Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.vikubladid.is/is/frettir/moguleikar-a-svidi-jardvarmanytingar-i-evropu
Möguleikar á sviði jarðvarmanýtingar í Evrópu Iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Ragnheiður Elín Árnadóttir, tók í gær þátt í ráðstefnu í Brussel á vegum framkvæmdastjórnar ESB og Jarðvarmaráðs Evrópu (European Geothermal Energy Council) um leiðir til að auka notkun endurnýjanlegra orkugjafa í húshitun í Evrópu. Ráðstefnan...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vikudagur-kemur-ut-i-dag-7
Vikudagur kemur út í dag Vikudagur kemur út í dag og að vanda er blaðið stútfullt af fréttum, fróðleik og mannlífsefni. -Setja á upp skilti á Akureyri sem bannar fólki á húsbílum að leggja á óleyfilegum stöðum og vísa þeim á tjaldsvæði. Skortur hefur verið á sérmerktum bílastæðum fyrir húsbíla á Akureyri og undanfarin ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/svona-verdur-17-juni-a-akureyri
Svona verður 17. júní á Akureyri Þjóðhátíðardagur Íslendinga 17. júní er haldinn hátíðlegur með dagskrá í Lystigarðinum á Akureyri og í miðbæ Akureyrar. Hefðbundin hátíðardagskrá í Lystigarðinum hefst klukkan 12.45 með ljúfum tónum Lúðrasveitarinnar á Akureyri undir stjórn Ellu Völu Ármannsdóttur. Séra Hildur Eir Bolla...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/biladagar-hefjast-i-dag
Bíladagar hefjast í dag Bíladagar eru einn stærsti íþróttaviðburður sinnar tegundar sem haldinn er á Íslandi og er einskonar árshátíð allra áhugamanna um mótorsport. Bílaklúbbur Akureyrar býður upp á tjaldsvæði á félagssvæði sínu þessa daga þar sem gestir hátíðarinnar geta fengið gúmmífnykinn beint í æð. Á svæðinu er e...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thjodlistahatidin-vaka-erfdir-til-framtidar
ÞJÓÐLISTAHÁTÍÐIN VAKA - ERFÐIR TIL FRAMTÍÐAR Í dag, 15. júní, hefst á Akureyri þjóðlega listahátíðin Vaka þar sem boðið verður upp á alls kyns alþýðulist af besta tagi: Tónlist, söng og kveðskap, dans og handíðir frá Íslandi, Danmörku, Noregi, Lapplandi, Englandi, Skotlandi og Írlandi. Hátíðin stendur í fjóra daga þar ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/svaedisbundid-samrad-um-adgerdir-gegn-ofbeldi
Svæðisbundið samráð um aðgerðir gegn ofbeldi Um þrjátíu manns komu saman á Akureyri í gær til að ræða kosti og möguleika svæðisbundins samstarfs til að vinna gegn ofbeldi og afleiðingum þess. Stýrihópur þriggja ráðuneyta um landssamráð gegn ofbeldi efndi til fundarins en fyrirhugað er að halda sambærilega fundi um allt...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/21-radstefna-sjavarutvegsadherra-nordur-atlantshafsins-i-st-petursborg
21. ráðstefna sjávarútvegsáðherra Norður-Atlantshafsins í St. Pétursborg Gunnar Bragi, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sat 21. ráðstefnu sjávarútvegsáðherra Norður-Atlantshafsins í St. Pétursborg 8-11. júní. Þau ríki sem funda eru Rússland, Kanada, Noregur, Færeyjar, Grænland og Evrópusambandið fyrir hönd aðildarr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ekki-siglt-med-ferdamenn-a-myvatni
Ekki siglt með ferðamenn á Mývatni Umsókn ferðaþjónustubónda á Geiteyjarströnd til fimm ára tilraunasiglinga með ferðafólk á Mývatni hefur verið hafnað af Umhverfisstofnun. Aðalástæðan ku vera truflandi áhrif á fuglalíf sem starfsemin gæti valdið. Bóndinn hefur ákveðið að kæra niðurstöðuna til úrskurðarnefndar umhverfi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/landkynning-i-frakklandi-i-tengslum-vid-em
Landkynning í Frakklandi í tengslum við EM Mennta- og menningarmálaráðuneyti, utanríkisráðuneyti, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti og sendiráð Íslands í Frakklandi í samstarfi við Íslandsstofu standa fyrir menningarviðburðum og landkynningu í tengslum við Evrópumeistaramótið í knattspyrnu karla sem haldið verður í F...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/snarpara-og-thettara-listasumar
Snarpara og þéttara Listasumar Listasumar 2016 verður sett með viðhöfn laugardaginn 16. júlí í Listagilinu á Akureyri en þessi norðlenska listahátíð verður nú styttri og snarpari en verið hefur síðustu árin. Var ákveðið að þétta dagskrána og láta hana ná yfir einn og hálfan mánuð í stað þriggja til þess að skerpa fókus...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/full-satt-i-skjaldarvikurmalinu
Full sátt í Skjaldarvíkurmálinu Í framhaldi af fréttum um ágreining milli rekstraraðila ferðaþjónustufyrirtækisins Skjaldarvíkur í Eyjafirði og Einingar-Iðju á Akureyri um erlenda starfsþjálfunarnema hefur nú tekist samkomulag milli Einingar-Iðju og Skjaldarvíkur. Starfsþjálfunarnemarir verða settir á launaskrá að sinn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jonatan-magnusson-radinn-thjalfari-kathors
Jónatan Magnússon ráðinn þjálfari KA/Þórs Jónatan Magnússon hefur verið ráðinn þjálfari KA/Þórs í meistaraflokki kvenna í handknattleik. Jónatan er uppalinn KA-maður en samhliða þjálfun liðsins mun hann starfa hjá KA sem yfirþjálfari yngri flokka. Jónatan flyst búferlum heim frá Noregi í sumar þar sem hann hefur bæði þ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ovaent-heimsokn-til-hriseyjar
Óvænt heimsókn til Hríseyjar Fyrsta skemmtiferðaskipið kom óvænt til Hríseyjar á dögunum. Til stóð að skipið færi til Siglufjarðar og Grímseyjar en varð frá að hverfa vegna óhagstæðrar vindáttar. Í staðinn var haldið til Hríseyjar og fólk ferjað í land. Hríseyingar brugðust snarlega við og tóku vel á móti gestunum, seg...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/litid-atvinnuleysi-arsskyrsla-framsynar
Lítið Atvinnuleysi: Ársskýrsla Framsýnar Atvinnuástandið á félagssvæði Framsýnar hefur verið með betra móti og lítið verið um atvinnuleysi. Við gerð ársskýrslu Framsýnar var óskað eftir upplýsingum frá Vinnumálastofnun um fjölda þeirra félagsmanna sem fengu atvinnuleysisbætur á síðasta ári og upphæð atvinnuleysisbóta. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mun-skemmtilegra-ad-horfa-a-em-thegar-thu-thekkir-leikmennina
„Mun skemmtilegra að horfa á EM þegar þú þekkir leikmennina“ Akureyringurinn Sævar Guðmundsson er leikstjóri myndarinnar Jökullinn logar sem frumsýnd var nýverið í bíóhúsum landsins. Myndin er sagan um gullkynslóð íslenskrar knattspyrnu hjá körlum sem skráði sig í sögubækurnar með því að vera fámennasta þjóð sögunnar t...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hlutverk-forseta
Hlutverk forseta Sumir álíta að forseti Íslands geti mótað embættið að eigin vild. Þannig er það ekki. Hins vegar setur sérhver forseti að sjálfsögðu svip á embættið eftir hæfileikum og getu. Núverandi forseti fór fyrstur forseta lýðveldisins inn á nýjar brautir til þess að auka pólitískt áhrifavald sitt – án þess nokk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skens-skot-a-gotuhorninu-2
Skens & skot á götuhorninu Skens & skot á götuhorninu er nýr liður hér á dagskrain.is. Um er að ræða það besta úr liðnum „Á götuhorninu“ úr Vikudegi vikunnar og liðnum „Skens & skot“ úr Skarpi vikunnar. Hrunið góða, grænt og hlýtt?? Hjálmar Freysteinsson varð dálítið forviða eins og fleiri þegar hann las fréttir um að ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjarnam-i-haettu-ef-ekki-faest-fjarmagn
Fjarnám í hættu ef ekki fæst fjármagn Í gær laugardag voru 371 kandídatar brautskráðir á Háskólahátíð Háskólans á Akureyri í blíðskapar veðri. Athöfnin fór fram í þriðja sinn í glæsilegum húsakynnum skólans. Herra Stewart Wheeler, sendiherra Kanada á Íslandi var heiðursgestur á brautskráningu skólans og gaf hann kandíd...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kemst-thor-a-toppinn-3
Kemst Þór á toppinn? Sigurganga Þórs í Inkasso-deild karla í knattspyrnu heldur áfram en liðið hefur unnið þrjá leiki í röð og er nú aðeins tveimur stigum frá toppsætinu. Þór situr í fjórða sæti með tíu stig, jafnmörg stig og Leiknir R. og KA sem eru í næstu sætum fyrir ofan en Þórsarar hafa lakari markatölu. Grindavík...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/forsetakosningarnar
Forsetakosningarnar Það, sem rak mig nú til að stinga niður penna var pistill á Götuhorni síðasta Vikudags. Pistillinn er nafnlaus og hvað um það en samt vil ég minnast lítillega á innihaldið, sem ber yfirskriftina „Morgunblaðið búið að stimpla sig út.“ Ég eins og pistilhöfundur er áskrifandi að Mbl. og búinn að vera í...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hinsegin-korinn-heldur-tonleika-i-hofi
Hinsegin kórinn heldur tónleika í Hofi Hinsegin kórinn í Reykjavík leggur land undir fót um helgina og heldur tónleika í Hofi í dag laugardag 11. júní kl 17:00. Hinsegin kórinn hefur frá upphafi lagt ríka áherslu á fjölbreytt lagaval og er efnisvalið á komandi tónleikum þar engin undantekning. Hinsegin kórinn var stofn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hestamenn-stytta-ser-leid-yfir-einkalod
Hestamenn stytta sér leið yfir einkalóð Hjónin Sigríður Hrönn Sigurðardóttir og Ingvar Björnsson í Eyjafjarðarsveit hafa fengið nóg af yfirgangi hestamanna sem stytta sér leið yfir einkalóð þeirra. Síðastliðinn föstudag fór stór hópur hestamanna yfir lóðina og náðist atvikið á myndband. „Þetta hefur staðið yfir í mörg ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/valdimar-halldorsson-nyr-framkvaemdastjori-hvalasafnsins
Valdimar Halldórsson nýr framkvæmdastjóri Hvalasafnsins Valdimar Halldórsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Hvalasafnsins á Húsavík. Valdimar hefur bæði reynslu frá einkageiranum og úr stjórnsýslunni. Undanfarið hefur Valdimar starfað sjálfstætt við ráðgjöf . Áður starfaði Valdimar sem sérfræðingur hjá Íslandsbank...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eimur-samstarfsverkefni-a-svidi-orku-umhverfis-og-ferdamala-a-nordausturlandi-stofnad
Eimur - Samstarfsverkefni á sviði orku- umhverfis- og ferðamála á Norðausturlandi stofnað EIMUR, samstarfsverkefni á sviði orku-, umhverfis- og ferðamála á Norðausturlandi var stofnað með undirritun samstarfsyfirlýsingar bakhjarla verkefnisins á stofnfundi í Hofi á Akureyri, fimmtudaginn 9. júní. Eftirtaldir aðilar und...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/penninn-eymundsson-styrkir-bjorgunarsveitina-gardar
Penninn Eymundsson styrkir Björgunarsveitina Garðar Verslunin Penninn Eymundsson opnaði formlega nýja verslun á Húsavík í dag. Ingimar Jónsson forstjóri hélt stutta tölu hvar hann lýsti yfir mikilli ánægju með að opna sjöundu verslunina undir merkjum Pennans Eymundssonar á landsbyggðinni. Að þessu tilefni var Björgunar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ingi-bjornsson-radinn-framkvaemdastjori-stapa-lifeyrissjods
Ingi Björnsson ráðinn framkvæmdastjóri Stapa lífeyrissjóðs Stjórn Stapa hefur gengið frá ráðningu í starf framkvæmdastjóra Stapa lífeyrissjóðs. Var Ingi Björnsson valinn úr hópi 18 umsækjenda og mun hann taka til starfa á næstu mánuðum. Ingi hefur mastersgráðu í hagfræði frá Göteborgs Universitet og lauk B.Sc. gráðu í ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/spennandi-og-krefjandi-verkefni
„Spennandi og krefjandi verkefni“ „Ég tel mig hafa fullt erindi í embættið,“ segir Logi Már Einarsson bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Akureyri. Logi var kjörinn varaformaður flokksins á Landsfundi Samfylkingarinnar um sl. helgi. Í viðtali í Vikudegi sem kom út í gær ræðir Logi stöðu Samfylkingarinnar og verkefnið fra...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skora-a-rikisstjornina-ad-nidurgreida-innanlandsflug
Skora á ríkisstjórnina að niðurgreiða innanlandsflug Njáll Trausti Friðbertsson bæjarfulltrúi á Akureyri óskaði eftir eftir umræðu um innanlandsflugið sem almenningssamgöngur á bæjarstjórnarfundi í vikunni. Eftirfarandi bókun var samþykkt í framhaldi af umræðunni: „Bæjarstjórn Akureyrar skorar á ríkisstjórn Íslands að ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framsyn-gefur-felagi-eldri-borgara-eina-milljon
Framsýn gefur Félagi eldri borgara eina milljón Aðalfundur Framsýnar fór fram á miðvikudagskvöldið, þar var mættur Hafliði Jósteinsson fyrir hönd Félags eldri borgara á Húsavík og nágrenni. Hann veitti viðtöku veglegri gjöf Framsýnar vegna kaupa félagsins á félagsaðstöðu að Garðarsbraut 44 á Húsavík, neðri hæð og kjall...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/verdur-a-hlidarlinunni-a-em-i-frakklandi
Verður á hliðarlínunni á EM í Frakklandi Jón Guðmund Knutsen, sjúkraflutningamaður frá Akureyri, mun fylgja íslenska karlalandsliðinu eftir á Evrópumótinu í knattspyrnu sem hefst í Frakklandi í dag. Jón fer á vegum Rauða kross Íslands en hann er einn af tveimur sem valdir voru í verkefnið. Hann hélt til Frakklands á þr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nautn-i-listasafninu
Nautn í Listasafninu Laugardaginn 11. júní kl. 15 verður opnuð sýningin Nautn / Conspiracy of Pleasure í Listasafninu á Akureyri. Hin ýmsu lögmál og birtingarmyndir nautnar eru útgangspunktur sýningarinnar. Sex listamenn sýna ný verk þar sem þeir fjalla um hugtakið, hver frá sínu sjónarhorni og forsendum, og efna til o...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/barnasattmalinn-verdi-innleiddur-i-alla-lagaumgjord
Barnasáttmálinn verði innleiddur í alla lagaumgjörð Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um fjölskyldustefnu fyrir árin 2017 – 2021, með áherslu á börn og barnafjölskyldur . Meginmarkmið er að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins (barnasá...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorskafli-verdi-aukinn-um-5000-tonn
Þorskafli verði aukinn um 5.000 tonn Hafrannsóknastofnun kynnti í dag skýrslu um ástand helstu nytjastofna og veiðiráðgjöf fyrir fiskveiðiárið 2016/2017. Þar kemur m.a. fram að hrygningarstofn þorsks hefur ekki mælst stærri í 40 ár og almennt er staða helstu nytjastofna sterk. Leggur stofnunin til að þorskafli verði au...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/evropski-fjarfestingabankinn-og-landsvirkjun-semja-um-fjarmognun-theistareykjavirkjunar
Evrópski fjárfestingabankinn og Landsvirkjun semja um fjármögnun Þeistareykjavirkjunar Evrópski fjárfestingabankinn (EIB) hefur undirritað lánssamning að fjárhæð 125 milljónir evra við Landsvirkjun til fjármögnunar á nýrri jarðvarmavirkjun og borholum á Þeistareykjum. Fjármögnunin verður nýtt til þess að styðja við hön...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skarpur-kemur-ut-i-dag-1
Skarpur kemur út í dag Skarpurinn kemur út í dag en hann er kominn í sumar- og jafnvel fótboltaskap og er stútfullur af fróðlegu og skemmtilegu efni. - Jóhannes ritstjóri er á leið í sumarfrí og hleður í einn hárbeittan leiðara um samsærið gegn Framsóknarflokknum. - Dagur Sveinn Dagbjartsson Völsungur með meiru og leik...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stjorn-vadlaheidarganga-tekur-ahaettu-og-lanar-fyrir-flutningum-a-efni-i-flughladid
Stjórn Vaðlaheiðarganga tekur áhættu og lánar fyrir flutningum á efni í flughlaðið Vinna hefur hafist á ný við við nýtt flughlað á Akureyrarflugvelli. Mikið efni hefur þegar verið flutt af framkvæmdasvæðinu við Vaðlaheiðargöng og verður því haldið áfram á næstu dögum. Nú þegar er búið að grafa um 75% af lengd ganganna ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/pcc-skodar-tilbod-fyrir-nyja-ibudahverfid
PCC skoðar tilboð fyrir nýja íbúðahverfið Sérfræðingar á vegum PCC Seaview Residences ehf. eru nú að fara yfir tvö tilboð sem bárust í gatnagerð og lagnir fyrir veitur í væntanlegt íbúðahverfi sem fyrirtækið hyggst byggja. Norðurþing tók frá lóðir í Holtahverfi í því skyni undir 45 íbúðir. Eins og dagskrain.is hefur ít...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vikudagur-kemur-ut-i-dag-6
Vikudagur kemur út í dag Vikudagur kemur út í dag og að vanda er blaðið stútfullt af fréttum, fróðleik og mannlífsefni. -Jón Guðmund Knutsen, sjúkraflutningamaður frá Akureyri, mun fylgja íslenska karlalandsliðinu eftir á Evrópumótinu í knattspyrnu sem hefst á morgun, föstudaginn 10. júní. Jón fer til Frakklands á vegu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thad-er-eitthvad-svo-heimilislegt-vid-ad-hafa-kveikt-a-fotbolta
„Það er eitthvað svo heimilislegt við að hafa kveikt á fótbolta“ Dagur Sveinn Dagbjartsson er gamall varnarjaxl úr fótboltanum. Hann sleit barnskónum á Húsavík og lék knattspyrnu með Völsungi. Hann þótti afar góður varnarmaður og lék með yngri landsliðum Íslands. Þrálát hnémeiðsli settu þó strik í reikninginn og hæfile...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gudmundur-radinn-framkvaemdastjori-volsungs
Guðmundur ráðinn framkvæmdastjóri Völsungs Guðmundur Friðbjarnarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Völsungs frá og með 1. September n.k. Guðmundur er með BA-gráðu í Íslensku frá Háskóla Íslands og er að vinna að meistaraprófsritgerð við menntunarfræði frá Háskólanum á Akureyri. Guðmundur er Völsungum kunnugur en h...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/helgarvedrid-best-fyrir-nordan-og-austan
Helgarveðrið best fyrir norðan og austan Besta veðrið um helgina verður á Norður- og Austurlandi. Sólarkaflar gætuorðið langir en þoka gæti þó lúrt úti við austurströndina að næturlagi. Þetta kemur fram í veðurskeyti Veðurstofunnar í morgun. Þar segir enn fremur að þrátefli sé í veðrinu því veður verði mjög svipað á la...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/15-manudir-fyrir-storfelldan-fjardratt
15 mánuðir fyrir stórfelldan fjárdrátt Dómur féll í gær í Héraðsdómi Norðurlands eystra í máli konu sem gegndi áður starfi fjármálastjóra byggingarfélagsins Hyrnu á Akureyri. Konan sem ákærð var fyrir að hafa dregið sér fé frá fyrirtækinu á fimmtán ára tímabili, fyrst árið 2000, en mest síðustu þrjú ár; var dæmd í 15 m...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/breytt-fyrirkomulag-a-husnaedisstudningi-vid-leigjendur
Breytt fyrirkomulag á húsnæðisstuðningi við leigjendur Ríki og sveitarfélög hafa gert með sér samkomulag um breytta verka- og kostnaðarskiptingu vegna húsnæðisstuðnings við leigjendur. Samkomulagið tekur gildi þann 1. janúar 2017 samhliða gildistöku nýs húsnæðisbótakerfis. Meðal nýmæla er að öllum sveitarfélögum verður...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kjartan-pall-fastradinn-i-starf-tomstunda-og-aeskulydsfulltrua-nordurthings
Kjartan Páll fastráðinn í starf tómstunda- og æskulýðsfulltrúa Norðurþings Kjartan Páll Þórarinsson hefur verið ráðinn sem tómstunda- og æskulýðsfulltrúi Norðurþings. Kjartan Páll hefur lokið B.A. prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands ásamt því að vera með sveinspróf í húsasmíði frá Fjölbrautarskólanum í Breiðhol...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/virk-veitir-styrki-til-virkniurraeda
VIRK veitir styrki til virkniúrræða Framkvæmdastjórn VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs hefur ákveðið að veita í fyrsta sinn í haust styrki til virkniúrræða sem styðja við og auka árangur í starfsendurhæfingu. Markmið VIRK með styrkveitingunum til virkniúrræðanna er að stuðla að samstarfi við aðila sem veita opið og gjaldfr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eggaldinsalat-kjuklingur-og-fronsk-sukkuladikaka
Eggaldinsalat, kjúklingur og frönsk súkkulaðikaka Ferskt og gott líbanskt eggaldinsalat: 1 meðalstórt eggaldin 1 bolli smátt saxaðir ferskir tómatar 1 bolli smátt söxuð paprika (rauð eða gul) 1/2 bolli skalottulaukur eða rauðlaukur Eitt til tvö smátt söxuð hvítlauksrif 1/2 bolli söxuð steinselja Dressing: Safi úr einni...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skuggatrio-sigurdar-flosasonar-ridur-a-vadid-i-hofi
Skuggatríó Sigurðar Flosasonar ríður á vaðið í Hofi Hið léttblúsaða Skuggatríó Sigurðar Flosasonar heldur tónleika í Hömrum í Hofi fimmtudaginn 9. júní kl 20. Þetta eru fyrstu tónleikarnir í sumardagskrá Menningarfélags Akureyrar í samstarfi við Bistro 1862. Sigurður Flosason saxófónleikari, Þórir Baldursson Hammond or...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyringar-skipadir-i-heidursreglu-ofursta
Akureyringar skipaðir í heiðursreglu ofursta Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri á Akureyri og Eyjólfur Guðmundsson rektor Háskólans á Akureyri hafa verið skipaðir í heiðursreglu ofursta Kentucky-ríkis í Bandaríkjunum. Ofurstarnir eru eins konar sendiherrar Kentuckys sem eiga að efla velvilja og samkennd um veröld a...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/betra-net-og-simasamband-i-grimsey
Betra net- og símasamband í Grímsey Í sumar hefjast framkvæmdir við að bæta fjarskiptasamband í Grímsey en Grímseyingar hafa lengi búið við lélegt og óstöðugt net- og símasamband. Á liðnu ári fékk Grímsey inngöngu í verkefnið Brothættar byggðir á vegum Byggðastofnunar. Markmiðið verkefnisins, sem hlaut heitið Glæðum Gr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nyr-sjukrabill-til-thorshafnar
Nýr sjúkrabíll til Þórshafnar Sjúkrabifreiðin á Þórshöfn sem er af gerðinni Ford Econoline var komin til ára sinna, árgerð 1998. Það var því kærkomið þegar Björgvin Árnason sjúkraflutningamaður á Húsavík kom með nýjan sjúkrabíl til Þórshafnar í gær og afhenti hann formlega. Sá bíll er af tegundinni Benz sprinter, árger...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/glerardalur-fridlystur-sem-folkvangur
Glerárdalur friðlýstur sem fólkvangur Samkomulag um að Glerárdalur var friðlýstur sem fólkvangur var undirritað í gær. Það voru Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri á Akureyri og Sigrún Magnúsdóttir ráðherra umhverfis- og auðlindamála sem skrifuðu undir. Markmið friðlýsingarinnar er að vernda Glerárdal og aðliggjandi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/arsskyrsla-akureyrarbaejar-ekki-gefin-ut-a-pappir
Ársskýrsla Akureyrarbæjar ekki gefin út á pappír Ársskýrsla Akureyrarbæjar fyrir árið 2015 er komin út. Lítil eftirspurn hefur verið eftir að fá skýrsluna útprentaða á liðnum árum og því þótti einboðið að hætta prentun hennar. Það er hvort tveggja umhverfisvæn aðgerð og felur um leið í sér dálítinn sparnað fyrir sveita...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samstarfshopur-radherra-fundar-um-astand-myvatns
Samstarfshópur ráðherra fundar um ástand Mývatns Þriðji fundur Samstarfshópur sem á að taka saman upplýsingar um ástand Mývatns fundaði í þriðja sinn í gær. Umhverfis- og auðlindaráðherra skipaði hópinn um miðjan síðasta mánuð. Hópnum er gert að skila af sér samantekt til ráðherra fyrir 17. júní næstkomandi. Jón Óskar ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samningur-um-hafnrikisadgerdir-til-ad-uppraeta-ologlegar-veidar-tekur-gildi
Samningur um hafnríkisaðgerðir til að uppræta ólöglegar veiðar tekur gildi Hinn 5. júní sl. öðlaðist gildi samningur Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna um hafnríkisaðgerðir til að fyrirbyggja, hindra og uppræta ólöglegar, ótilkynntar og eftirlitslausar veiðar Samningurinn var undirritaður af fulltrúa Í...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hallar-a-konur-i-lokudu-profkjori-pirata
Hallar á konur í lokuðu prófkjöri Pírata Alls tólf manns hafa gefið kost á sér til prófkjörs á lista Pírata í Norðausturkjördæmi fyrir Alþingiskosningar 2016. Frestur til að bjóða sig fram er runninn út. Talsverður kynjahalli er á meðal frambjóðenda eða tíu karlar gegn tveimur konum. Kosið verður fyrir næstu mánaðamót ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/radstefnu-um-jardskjalfta-a-husvik-lokid
Ráðstefnu um jarðskjálfta á Húsvík lokið Um 80 manns sóttu í síðustu viku ráðstefnuna Jarðskjálftar á Norðurlandi. Ráðstefnan er samstarfsverkefni vísindamanna undir forystu Dr. Ragnars Stefánssonar og Þekkingarnets Þingeyinga. Þetta var í annað skipti sem ráðstefnan er haldin og voru þátttakendur um 20 fleiri en á fyr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/storaukning-i-solu-afengis-a-husavik
Stóraukning í sölu áfengis á Húsavík Nú standa yfir risaframkvæmdir á húsvískan mælikvarða í sveitarfélaginu Norðurþingi í sambandi við iðnaðaruppbyggingu PCC BakkaSilicon á Bakka. Stórar vinnubúðir hafa þegar risið á Bakkasvæðinu, við Húsavíkurhöfða þar sem LNS Saga vinnur við jarðgangagerð í gegnum höfðann og á Þeist...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/metafkost-i-husavikurhofdagongum
Metafköst í Húsavíkurhöfðagöngum Framvindan í gangagreftri í Húsavíkurhöfðagöngum var eftirfarandi í síðustu viku: Alls voru grafnir 66 metrar og er lengd gangnanna orðin 523 metrar, sem er um 55,5% af heildargraftrarlengd ganga í bergi. Að sögn Bjarna Jónssonar, byggingaræknifræðings, eru þetta mestu vikuleg afköst vi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/dettifossvegur-verdi-klaradur-an-tafar
Dettifossvegur verði kláraður án tafar Markaðsstofa Norðurlands og Ferðamálasamtök Norðurlands eystra gagnrýna ríkisstjórn og Alþingi fyrir að fjármagn sé ekki tryggt í fjárlögum til að klára uppbyggingu Dettifossvegar, vegkaflans frá Ásbyrgi upp að Dettifossi. Þetta kemur fram í áyktun frá samtökunum. „Uppbygging vega...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skrifstofa-akureyrarkaupstadar-til-hriseyjar
Skrifstofa Akureyrarkaupstaðar til Hríseyjar Í vikunni munu nokkrir starfsmenn Akureyrarkaupstaðar brydda upp á þeirri nýbreytni að flytja skrifstofu sína tímabundið í Hrísey. Skrifstofa þeirra verður í Hlein frá og með mánudagi og fram á fimmtudag. Starfsmennirnir munu stoppa mislengi í Hrísey, sumir frá mánudegi og f...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vormot-hfa-i-blidskaparvedri
Vormót HFA í blíðskaparveðri Vormót Hjólreiðafélags Akureyrar fór fram í blíðskaparveðri á Akureyri í gær sunnudag. Hringurinn sem hjólaður var er svokallaður Eyjafjarðarhringur sem er 26 km. Keppt var í karla og kvennaflokkum og einnig var hægt að hjóla einn hring, tvo eða þrjá. Þá var boðið upp á fjallahjólaflokk og ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kvennahlaupid-2016-god-thatttaka-fyrir-nordan
Kvennahlaupið 2016: góð þátttaka fyrir norðan Kvennahlaup ÍSÍ fór fram í 27. sinn á laugardag. Hlaupið var á um 80 stöðum á landinu og voru þátttakendur á 13. Þúsund í heildina. Á milli 300 og 400 manns hlupu á Akureyri í góðu veðri og á Húsavík hlupu um 70 konur og börn, Tveir feður slægðust einnig með. Þar var ágætt ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jonas-og-hermann-heidradir-a-sjomannadag
Jónas og Hermann heiðraðir á sjómannadag Mikið líf og fjör hefur verið á Húsavík um helgina enda hátíðarhöld í gangi vegna Sjómannadagsins. Tveir sjómenn voru heiðraðir á Húsavík í dag. Heiðrunin fór fram í Húsavíkurkirkju. Að þessu sinni voru Jónas Jónsson og Hermann Ragnarsson heiðraðir. Aðalsteinn Árni Baldursson fo...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vill-einhver-taka-thad-ad-ser-ad-laga-sigmund-david
Vill einhver taka það að sér að laga Sigmund Davíð Um helgina fór fram vorfundur miðstjórnar Framsóknarflokksins. Þar steig Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður flokksins í pontu, en hann hefur snúið aftur í hringiðu stjórnmálanna eftir nokkurt hlé,- með stormi dettur mér í hug að segja. Hann byrjaði á því að lýsa því...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/faer-syndaaflausn-fra-fjarmalaeftirlitinu
Fær syndaaflausn frá Fjármálaeftirlitinu! Í febrúar s.l. gerði Fjármálaeftirlitið ýmsar athugasemdir við starfsemi Sparisjóðs Suður-Þingeyinga. Taldi m.a. verklag sjóðsins varðandi útlán ekki í samræmi við ákvæði laga og reglna varðandi eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti fjármálafyrirtækja. Ennfremur að fundargerðir...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eg-hugsa-daglega-til-theirra
„Ég hugsa daglega til þeirra“ Tíu ár eru um þessar mundir frá því að hörmulegt slys varð um borð á Akureyrinni EA þar sem tveir létust í eldsvoða. Páll Baldvin Guðmundsson var einn skipverjana um borð og segir hann daginn aldrei líða sér úr minni. Hann var lengi að ná sér eftir atburðinn en með hjálp fagfólks, vina og ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skens-skot-a-gotuhorninu-1
Skens & skot á götuhorninu Skens & skot á götuhorninu er nýr liður hér á dagskrain.is. Um er að ræða það besta úr liðnum „Á götuhorninu“ úr Vikudegi vikunnar og liðnum „Skens & skot“ úr Skarpi vikunnar. Morgunblaðið búið að stimpla sig út Fjör færist í baráttuna um forsetastólinn enda styttist óðum í kosningar. Davíð O...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ofurfaeda-egg
Ofurfæða / egg Þegar við borðum, eða frekar setjum eitthvað ofan í okkur, þá fer líkaminn af stað í að vinna úr þeirri fæðu það sem hann getur nýtt til daglegra starfa. Stundum fer eitthvað ofan í okkur sem á ekki einu sinni heima á botni ruslatunnu. Af hverju gerist það? Það að við viljum gera okkur illt með þeirri að...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjaran-150-gesta-veitingastadur-vid-hofnina
Fjaran – 150 gesta veitingastaður við höfnina Um síðustu helgi var opnaður nýr fjölskyldurekinn veitingastaður við höfnina á Húsavík sem ber nafn við hæfi staðsetningar, sem sé Fjaran. Þar sem Fjaran seafood & grill restaurant er nú var áður veitingastaðurinn Naustið, en sá hefur fært sig um set upp fyrir Bakka og teki...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sjukralidar-fognudu-50-ara-utskriftarafmaeli
Sjúkraliðar fögnuðu 50 ára útskriftarafmæli Fyrstu sjúkraliðar landsins útskrifuðust frá Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri fyrir hálfri öld eða þann 26. maí árið 1966. Seinna það ár útskrifuðu Borgarspítali, Landspítali, Landakot og Kleppur sinn fyrsta árgang. Sjúkraliðar á Akureyri fögnuðu tímamótunum saman þar sem rif...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sjoppan-i-listagilinu-vekur-heimsathygli
Sjoppan í Listagilinu vekur heimsathygli Í Listagilinu á Akureyri leynist minnsta og eina hönnunarsjoppa landsins og jafnvel í heiminum. Sjoppan vöruhús er einungis 3,5 fm að stærð en þar er hægt að kaupa fjölbreyttar, skemmtilegar og vandaðar hönnunarvörur út um lúgu. Verslunina rekur Almar Alfreðsson vöruhönnuður ása...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/viktor-islandsmeistari-i-kraftlyftingum
Viktor Íslandsmeistari í kraftlyftingum Viktor Samúelsson úr Kraftlyftingafélagi Akureyrar og Helga Guðmundsdóttir úr Lyftingafélagi Hafnarfjarðar urðu Íslandsmeistarar í opnum flokki í kraftlyftingum um sl. helgi en mótið var haldið á Akureyri. Keppt var um Íslandsmeistaratitla karla og kvenna á stigum (óháð þyngdarfl...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hatid-hafsins-a-husavik-haldin-langt-inni-i-landi
Hátíð hafsins á Húsavík: Haldin langt inni í landi! Sjómannadagurinn fer í hönd. í dag laugardag er dagskrá með hefðbundnu sniði á Húsavík, skemmtisigling, kappróður, reiptog, pylsugrill og fleira. Um kvöldið er svo sjómannahófið, eða Hátíð hafsins, haldin fjarri ströndum, þ.e. í Ýdölum í Aðaldal. Þar er reyndar ekki í...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hluti-akureyrar-an-rafmagns-vegna-mistaka
Hluti Akureyrar án rafmagns vegna mistaka Rafmagnslaust var á hluta Akureyrarbæjar nú um eitt leytið, m.a. miðbænum og hluta Brekkunnar. Að sögn Norðurorku þá varði rafmagnsleysið í um 20-30 mínútur og er rafmagn nú komið aftur á bæinn. Rafmagnsleysið var til komið vegna mistaka, en stjórnstöð Landsnets í Reykjavík tók...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thetta-er-ekkert-djok-heldur-lifsins-alvara
Þetta er ekkert djók heldur lífsins alvara! Kvíðaröskunin félagsfælni er það sem ég þekki best til. Hún er 3. algengasta geð röskunin á eftir þunglyndi og alkóhólisma. Það eru á hverjum tíma 5 til 15% einstaklinga sem glíma við félagsfælni. Og má þá reikna með á hverjum tíma að það séu 15.000 til 45.000 þúsund Íslendin...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heimsvidburdur-kirkjukors-husavikur
Heimsviðburður Kirkjukórs Húsavíkur Í kvöld, 3. Júní fer fram einstakur tónlistarviðburður þegar Kirkjukór Húsvíkur í samvinnu við Norðursiglingu heldur tónleika um borð í skonnortunni Opal á Skjálfandaflóa. Kórinn hefur haldið árlega vortónleika undanfarin ár og fengið ljómandi viðtökur. „En nú ætlum við að gera eitth...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vilhjalmur-hlytur-styrk-ur-nyraektarsjodi
Vilhjálmur hlýtur styrk úr Nýræktarsjóði Í gær 2. maí, fékk Vilhjálmur Bergmann Bragason rithöfundur úthlutuðum styrk til útgáfu nýs leikrits sem hann hefur skrifað. Vilhjálmur er útskrifaðist frá Menntaskólanum á Akureyri 2008, lærði ensku við Háskóla Íslands og lauk nýverið námi í leikritun við Royal Academy of Drama...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/dekkjakurlid-burt-fyrir-aramot
Dekkjakurlið burt fyrir áramót Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hefur lagt fram samhljóða álit þess efnis að Alþingi álykti að fela umhverfis- og auðlindaráðherra í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga og Umhverfisstofnun að móta áætlun sem miði að því að kurluðu dekkjagúmmíi verði skipt út fyrir hættuminni...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/blida-blida-blida
Blíða, blíða, blíða. Veður verður áfram hlýtt og vindur lítill á landinu næstu daga, samkvæmt spá Veðurstofu Íslands. Í hugleiðingu veðurfræðings segir að nú sitji hæð yfir landinu og loftþrýstingur með því hæsta sem mælst hefur í júní. Vindur í dag verður með allra hægasta móti. Inn til landsins verður sólríkt og hlýt...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haekka-laun-i-vinnuskolanum-um-50
Hækka laun í Vinnuskólanum um 50% Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar ákvað á fundi nýverið að hækka laun í vinnuskólanum um 50% frá því í fyrra. Tímakaup fyrir 16 ára unglinga í sumar er 966 kr. á tímann, 15 ára unglingar fá 770 kr. og 14 ára 695 kr., auk orlofs. Ólafur Rúnar Ólafsson sveitarstjóri í Eyjafjarðarsveit, se...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/birkir-heimisson-til-heerenveen
Birkir Heimisson til Heerenveen Birkir Heimisson, knattspyrnumaður hjá Þór á Akureyri, gengur í sumar til liðs við hollenska úrvalsdeildarfélagið sc Heerenveen. Félögin hafa gengið frá samningum um kaup þess hollenska á leikmanninum og Heimir hefur þegar samið við Heerenveen. Birkir er fæddur 12. febrúar árið 2000 og þ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framkvaemdir-standa-yfir-i-sundlaug-akureyrar-i-blidunni
framkvæmdir standa yfir í Sundlaug Akureyrar í blíðunni Í dag er sannkölluð bongóblíða í höfuðstað Norðurlands og margir sem vildu kæla sig í veðurblíðunni í sundlaug Akureyrar urðu fyrir vonbrigðum. Viðgerð á sundlauginni hefur staðið yfir frá byrjun maí og stendur enn yfir. Syðri laugin er enn lokuð en hún er kaldari...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hugmyndasamkeppni-um-vistvaenni-skip
Hugmyndasamkeppni um vistvænni skip Ein mikilvægasta áskorunin í sjávarútvegi og annarri haftengdri starfsemi er að gera skip og skipasiglingar umhverfisvænni. Til að stuðla að því efna Íslenski sjávarklasinn, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og ÍslenskNýorka til samkeppni sem hefur það að markmiði að auka áhuga á ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leidakerfi-sva-i-endurskodun
Leiðakerfi SVA í endurskoðun Leiðakerfi Strætó á Akureyri hefur verið til endurskoðunar að undanförnu. Sagt er frá þessu á vef Akureyrarbæjar. „Reynt er að hafa þá vinnu í sem mestu samráði við íbúa og hagsmunaaðila og m.a. hafa verið haldnir opnir fundir til að fjalla um þessa vinnu og heyra sjónarmið sem flestra,“ se...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/radganga-upp-med-jokulsargljufrum-ad-austan
Raðganga upp með Jökulsárgljúfrum að austan Í sumar bryddar Ferðafélagið Norðurslóð upp á nýju gönguverkefni á félagssvæði sínu, en það er raðganga upp með Jökulsárgljúfrum að austan. Gengið verður í fjórum áföngum frá Landsárgili upp að Dettifossi, fyrstu tveir áfangarnir í sumar og seinni tveir sumarið 2017. Þetta er...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/boing-757-hringsoladi-yfir-eyjafirdi
Boing 757 hringsólaði yfir Eyjafirði Íbúar á Akureyri og nágrenni urðu margir hverjir varir við Boeing 757 þotu frá Icelandair sem flaug hring eftir hring um fjörðinn í gær. Þarna var samt engin neyð eða hættuástand yfirvofandi. Þarna voru nýjir flugmenn fyrirtækisins að æfa snertilendingar á flugvellinum á Akureyri. F...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eimur-stofnfundur-samstarfsverkefnis-um-baetta-nytingu-orkuaudlinda-og-nyskopun-a-nordausturlandi
Eimur - stofnfundur samstarfsverkefnis um bætta nýtingu orkuauðlinda og nýsköpun á Norðausturlandi Stofnfundur samstarfsverkefnis um bætta nýtinguorkuauðlinda og nýsköpun á Norðausturlandi verður haldinn í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri, fimmtudaginn 9. júní næstkomandi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu. „Markmið ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vikudagur-kemur-ut-i-dag-5
Vikudagur kemur út í dag Vikudagur kemur út í dag og að vanda er blaðið stútfullt af fréttum, fróðleik og mannlífsefni. -Um þessar mundir eru tíu ár frá því að hörmulegt slys varð um borð á Akureyrinni EA þar sem tveir létust í eldsvoða. Páll Baldvin Guðmundsson var einn skipverjanna og segir daginn aldrei líða sér úr ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/storhatid-a-akureyri-um-helgina-i-tilefni-sjomannadagsins
Stórhátíð á Akureyri um helgina í tilefni sjómannadagsins Blásið verður til stórhátíðar á Akureyri í tilefni sjómannadagsins í ár. Sjómannadagurinn sjálfur, sunnudaginn 5. júní, ber hæst en hann hefst með sjómannamessu í bæði Glerárkirkju og Akureyrarkirkju. Hátíðardagskráin fer fram við Menningarhúsið Hof, Torfunefsbr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjoruhreinsun-i-fjordum-med-adstod-thyrlu
Fjöruhreinsun í Fjörðum með aðstoð þyrlu Sunnudaginn næstkomandi, 5. júní, Sjómannadaginn 2016, mun þyrluskíða-fyrirtækið Arctic Heli Skiing standa fyrir hreinsunarátaki á fjörum óbyggða Grýtubakkahrepps, Huldulandsins, í samvinnu við sveitarfélagið, fjölda fyrirtækja og félagasamtök á svæðinu. Þetta kemur fram í tilky...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hildur-hauksdottir-ur-ma-er-framurskarandi-kennari
Hildur Hauksdóttir úr MA er framúrskarandi kennari Hildur Hauksdóttir enskukennari við Menntaskólann á Akureyri er í hópi fimm kennara sem í gær hlutu viðurkenningar fyrir framúrskarandi störf. Menntavísindasvið Háskóla Íslands veitti fimm kennurum viðurkenningar fyrir framúrskarandi störf við hátíðlega athöfn í Háskól...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/landsbankinn-heldur-fund-a-akureyri-um-thjodhags-og-verdbolguspa-bankans
Landsbankinn heldur fund á Akureyri um þjóðhags- og verðbólguspá bankans Landsbankinn efnir til fundar um uppfærða þjóðhags- og verðbólguspá bankans til ársins 2018. Á fundinum verður einnig fjallað um þróun fasteignamarkaðarins, lausafjárstýringu fyrirtækja, aflandskrónuútboð Seðlabankans, stöðu og horfur á mörkuðum o...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skrifad-undir-thjonustusamning-vid-isavia
Skrifað undir þjónustusamning við Isavia Innanríkisráðherra og forstjóri Isavia skrifuðu nýverið undir þjónustusamning ráðuneytisins og Isavia til eins árs. Samningurinn kveður á um fjárveitingar og verkefni Isavia á þessu ári sem snúast einkum um rekstur og þjónustu á flugvöllum landsins. Þá fjallar hann um framkvæmdi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyringar-sigursaelir-i-hnefaleikum
Akureyringar sigursælir í hnefaleikum Síðastliðna helgi fór fram hnefaleikamót á vegum Hnefaleikasambands Íslands í húsakynnum hnefaleikafélags Kópavogs. Á föstudag var keppt í flokki lengra komna og á laugardeginum í flokki byrjenda. Fjórir keppendur frá Fenri á Akureyri kepptu á mótinu en alls voru 26 hnefaleikamenn ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/opinn-fundur-a-husavik-um-jardskjalfta-og-jardvareftirlit
Opinn fundur á Húsavík um jarðskjálfta og jarðváreftirlit Í gær hófst á Húsavík alþjóðleg ráðstefna um jarðskjálfta og jarðváreftirlit. 60-70 vísindamenn og nemar frá öllum heimshornum sitja ráðstefnuna ásamt ýmsum heimamönnum sem koma að þessum málum með einum eða öðrum hætti. Ráðstefnan hefur til þessa farið fram á e...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/finkan-framleidir-prjonafatnad-fyrir-born-sem-verda-skitug
Finkan framleiðir prjónafatnað fyrir börn sem verða skítug Guðrun Erla Guðmundsdóttir fatahönnuður hefur rekið saumaverkstæðið Finkuna á Húsavík síðan í desember 2014. Guðrún er ánægð með viðtökurnar sem hún hefur fengið þó vissulega sé þetta búin að vera hálfgerð rússínbanaferð. Hún hefur mest verið að gera við og bre...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thingidn-alyktar-um-baga-stodu-vma
Þingiðn ályktar um bága stöðu VMA Á aðalfundi Þingiðnar, félags iðnaðarmanna í Þingeyjarsýslum sem haldinn var í gær urðu umræður um stöðu Verkmenntaskólans á Akureyri. Þungum áhyggjum var lýst yfir stöðu verknáms á Íslandi. Mikil vöntun sé á starfsfólki með verkmenntun og henni hefur verið mætt með innflutningi á star...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/einn-landvordur-thjonar-thusund-gestum-vid-dettifoss
Einn landvörður þjónar þúsund gestum við Dettifoss Vorleysingar eru miklar þessa dagana við Dettifoss og vatnavextir í Jökulsá með allra mesta móti þar í gljúfrinu. Aðeins einn landvörður er við fossinn en aðsóknin hefur tvöfaldast frá því á sama tíma í fyrra. Þangað koma nú um 1000 manns á dag. Þetta kemur fram á vef ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ibudarhusnaedi-i-skammtimaleigu-mikid-raett
Íbúðarhúsnæði í skammtímaleigu mikið rætt Talsvert hefur borið á margþættum húsnæðisvanda í hinum dreifðari byggðum landsins. Vandinn er misalvarlegur eftir byggðarlögum. Hann birtist m.a. í háum byggingarkostnaði á sama tíma og víðast hvar á landsbyggðinni er húnsæðisverð lágt. Oft meira en helmingi lægra en kostar að...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hollvinasamtok-vma-bjoda-upp-a-valgreidslur
Hollvinasamtök VMA bjóða upp á valgreiðslur Hollvinasamtök Verkmenntaskólans á Akureyri, fyrrverandi nemendur og aðrir velunnarar hafa tekið sig saman og sent út valgreiðslu sem birtist í heimabanka allra brautskráðra nemenda VMA frá upphafi fram til ársins 2013. Upphæðin er 3500 kr. og vonast velunnarar skólans til að...