Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gilfelagsgledi-i-deiglunni-um-helgina
Gilfélagsgleði í Deiglunni um helgina Gilfélagsgleði verður haldin í Deiglunni, laugardaginn 21.maí frá kl. 14:00 og stendur frameftir kvöldi! Kl. 14:00 mun formaður Gilfélagsins hann Guðmundur Ármann Sigurjónsson segja sögu félagsins í stuttu máli og greinir hann frá framtíðasýn og nýrri stefnu og áherslum Gilfélagsin...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samherji-og-slade-gorton-i-samstarf
SAMHERJI OG SLADE GORTON Í SAMSTARF Slade Gorton og Samherji tilkynna í dag miðvikudag 18. maí að félögin ætla að fara í samstarf um markaðssetningu og sölu á sjávarafurðum í Norður Ameríku. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Samherja í dag. Aðgangur Samherja að mörkuðum í Norður Ameríku mun aukast með samstarfin...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/asi-gagnrynir-hardlega-forgangsrodun-i-rikisfjarmalum
ASÍ gagnrýnir harðlega forgangsröðun í ríkisfjármálum Miðstjórn Alþýðusambandsins gagnrýnir harðlega forgangsröðun í ríkisfjármálum sem fram kemur í þingsályktun um fjármálaætlun fyrir árin 2017-2021. Hvorki er að finna merki þess að efnahagsstefna stjórnvalda til næstu ára muni treysta efnahagslegan stöðugleika né und...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jakvaed-afkoma-af-rekstri-skutustadahrepps
Jákvæð afkoma af rekstri Skútustaðahrepps Um 7,9 milljóna hagnaður var af rekstri sveitarfélagsins Skútustaðahrepps á árinu 2015. Rekstartekjur Skútustaðahrepps námu 408,8 milljónum króna. Þar af námu rekstartekjur A hluta 378,8 milljónum. Rekstargjöld fyrir afskriftir og fjármagnsliði námu 367,4 milljónum, þar af námu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/althjodlegi-og-islenski-safnadagurinn-a-akureyri
ALÞJÓÐLEGI OG ÍSLENSKI SAFNADAGURINN Á AKUREYRI Í dag er alþjóðlegi og íslenski safnadagurinn. Í tilefni af því býður Minjasafnið á Akureyri upp á byggingasögugöngu um menningarlandslag á hluta Suðurbrekkunnar á Akureyri í dag 18. maí. Í göngunni verður rýnt í skipulag og byggingar í nágrenni Menntaskólans á Akureyri. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gunnar-bragi-maelti-fyrir-frumvarpi-til-laga-um-breytingu-a-buvorulogum-bunadarlogum-og-tollalogum
Gunnar Bragi Mælti fyrir frumvarpi til laga um breytingu á búvörulögum, búnaðarlögum og tollalögum Gunnar Bragi Sveinsson sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra mælti í dag fyrir breytingum á búvörulögum, búnaðarlögum og tollalögum. Þessar breytingar eru forsenda nýgerðra búvörusamninga. Þetta kemur fram í tilkynningu frá...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tillaga-ad-framkvaemdaaaetlun-i-jafnrettismalum-logd-fyrir-althingi
Tillaga að framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum lögð fyrir Alþingi Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum tilfjögurra ára . Þetta er í sjötta sinn sem slík áætlun er lögð fram. Markmið hennar er að tilgreina þau verke...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tiu-frambjodendur-hafa-skilad-inn-undirskriftum-medmaelenda
Tíu frambjóðendur hafa skilað inn undirskriftum meðmælenda Meðmælendalistum við framboð tíu forsetaframbjóðenda fyrir forsetakjör í sumar hefur verið skilað inn hjá yfirkjörstjórn í Norðausturkjördæmi. Þó voru ekki allir þessir tíu búnir að safna öllum tilskildum undirskriftum á Norðurlandi. Verið er að fara yfir nöfn ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heiti-potturinn-fekk-godar-vidtokur-a-skjaldborg
Heiti potturinn fékk góðar viðtökur á Skjaldborg Heiti Potturinn stuttheimildamynd eftir Hörpu Fönn Sigurjónsdóttur var frumsýnd á Skjaldbogarhátíðinni á Patriksfirði á laugardaginn. Harpa hélt einnig tónleika á hátíðinni, en hún semur tónlistina í myndinni ásamt því að tónverk eftir Hinn íslenska Þursaflokk, KiraKira ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/veidifelag-myvatns-faer-fulltrua-i-nefnd-um-malefni-myvatns
Veiðifélag Mývatns fær fulltrúa í nefnd um málefni Mývatns Formanni Veiðifélags Mývatns hefur verið bætt við samstarfshóp umhverfis- og auðlindaráðuneytisins um ástand Mývatns. Frá þessu er greint í Morgunblaðinu. Upphaflega gerði ráðuneytið ekki ráð fyrir fulltrúa frá veiðifélaginu í hópnum sem er ætlað að safna saman...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skattkerfinu-beitt-til-ad-styrkja-landsbyggdina
Skattkerfinu beitt til að styrkja landsbyggðina Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra boðar nýja nálgun í byggðamálum. Byggðastofnun vinnur nú að nýrri byggðaáætlun og kannar samhliða því hvort og hvernig beita megi skattkerfinu og námslánum til að bæta stöðu landsbyggðarinnar, Rúv sagði frá þessu. Gunnar Bragi Sveinsso...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rekstrahagnadur-sparisjods-sudur-thingeyinga-34-milljonir
Rekstrahagnaður Sparisjóðs Suður-Þingeyinga 34 milljónir Aðalfundur Sparisjóðs Suður-Þingeyinga var haldinn á Breiðumýri 5. maí sl. Rekstur sparisjóðsins gekk vel á árinu 2015 og var rekstrarhagnaður rúmar 34 milljónir króna. Viðskiptavinum sjóðsins fjölgaði umtalsvert á árinu, enda virðist, að sögn Ara Teitssonar stjó...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gamla-frettin-rikisthensluna-ut-a-land
Gamla fréttin: Ríkisþensluna út á land Gamla fréttin er úr Þjóðviljanum að þessu sinni og birtist 10. október 1990. Fréttin fjallar um ójafnvægi í byggðamálum og tillögur um að ný störf á vegum hins opinbera verði utan höfuðborgarsvæðisins. Það væri líklega hægt að skrifa svipaða frétt í dag: Rúmlega 18 þúsund ný störf...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eg-laet-mer-aldrei-leidast
„Ég læt mér aldrei leiðast Þorsteinn Pétursson gengur iðulega undir nafninu Steini Pje og er mörgum bæjarbúum Akureyrar að góðu kunnur sem lögreglumaður í áratugi. Hann er einn af upphafsmönnum Hollvina Húna og hefur einbeitt sér að því verkefni ásamt öðru eftir að hann lagði lögreglubúninginn á hilluna fyrir sex árum....
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrirvaralaus-heimsokn-logreglunnar-a-idnadarsvaedid-a-bakka
Fyrirvaralaus heimsókn lögreglunnar á iðnaðarsvæðið á Bakka Lögreglan á Norðurlandi eystra með aðstoð Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Lögregluskóla ríkisins og einnig formanns Framsýnar, stéttarfélags fóru á vinnusvæðið við Bakka, norðan Húsavíkur á föstudag. Tilefnið var fyrirvaralaus heimsókn á vinnusvæðið til a...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gudlaugur-arason-synir-alfabaekurnar-a-husavik
Guðlaugur Arason sýnir Álfabækurnar á Húsavík Í síðustu viku opnaði Guðlaugur Arason, rithöfundur og myndlistarmaður, sýningu í kjallara Safnahússins á Húsavík. Þessi sýning er um margt ólík öllum öðrum sýningum í þessu húsi fyrr og síðar, því hér er verið að sýna Álfabækur. Álfabækur Gulla Ara hafa vakið verulega athy...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skatafelagid-klakkur-faer-nytt-heimili
SKÁTAFÉLAGIÐ KLAKKUR FÆR NÝTT HEIMILI Miðvikudaginn 11. maí afhenti Akureyrarbær Skátafélaginu Klakki nýtt húsnæði undir starfsemi sína í kjallara Þórunnarstrætis 99, sem betur er þekkt sem gamli Húsmæðraskólinn. Á efri hæðum hússins hefur öll skammtíma- og skólavistun fyrir fatlað fólk í bænum haft aðsetur síðan í mar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hefur-fylgst-med-fuglalifinu-i-halfa-old
Hefur fylgst með fuglalífinu í hálfa öld Þorsteinn Þorsteinsson er sennilega betur þekktur sem Steini rjúpa en viðurnefnið er dregið af einskærum áhuga hans á fuglum. Frá árinu 1963 hefur Þorsteinn verið viðriðinn fuglalífið. Hann er ekki menntaður í faginu en hefur mikla reynslu og ástríðu fyrir því að kanna og velta ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heradsdomur-nordurlands-eystra-timamotadomur
Héraðsdómur Norðurlands eystra: Tímamótadómur Karlmaður var dæmdur fyrir skemmstu í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir kynlífskúgun gegnum samfélagsmiðil. Hann var fundinn sekur fyrir tilraun til nauðgunar sem fólst í því að hóta 15 ára dreng að birta nektarmyndir af honum ef hann hefði ekki við sig samræði. Dómurinn ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kennsla-og-rannsoknir-i-starfsendurhaefingu-efld
KENNSLA OG RANNSÓKNIR Í STARFSENDURHÆFINGU EFLD Fulltrúar VIRK, Háskóla Íslands og Háskólans á Akureyri skrifuðu á dögunum undir samstarfssamning um ráðningu lektors í starfsendurhæfingu í tengslum við eflingu náms á fræðasviðinu. Báðir skólarnir munu bjóða í sameiningu upp á framhaldsnám í starfsendurhæfingu frá og me...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bleikar-heyrullur-um-oll-tun-i-sumar
Bleikar heyrúllur um öll tún í sumar Í sumar munu bleikar heyrúllur skreyta tún bænda um allt land í fyrsta sinn. Þetta uppátæki tengist átaki bænda, dreifingaraðila og framleiðanda heyrúlluplasts um að minna á árvekni um brjóstakrabbamein og styrkja málefnið á sama tíma. Framleiðandinn Trioplast, innlendir dreifingara...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/prjonakofinn-vid-hofnina-a-husavik
Prjónakofinn við höfnina á Húsavík 3. maí s.l. opnuðu þær tengdamæðgur Ragnhildur Ingólfsdóttir í Eyvík og Þórunn Ágústa Kristjánsdóttir, verslunina Prjónakofann niðri á hafnarstéttinni á Húsavík, steinsnar frá Helguskúr. Þar eru til sölu dýrðarinnar lopapeysur og fleira sem þær hafa sjálfar prjónað og einnig fáeinar p...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hollvinir-huna-vilja-vernda-gomul-skip-og-bata
Hollvinir Húna vilja vernda gömul skip og báta Á aðalfundi Hollvinafélags Húna II sem haldinn var á Akureyri um borð í Húna II laugardaginn 30. apríl sl. var gerð samþykkt ályktun þar sem skorað er á Minjastofnun og stjórnvöld að standa betur að verndun gamalla skipa og báta. „Félagið leggur til að fylgt verð svipaðri ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eurovison-er-okkar-fotbolti
„Eurovison er okkar fótbolti“ Úrslitakvöldið í Eurovison fer fram í Stokkhólmi í Svíþjóð í kvöld og vafalaust mun stór hluti landsmanna sitja límdur við skjáinn á meðan keppninni stendur. Vikudagur tók tvo eldheita aðdáendur keppninnar tali, þau Jóhann Davíð Ísaksson lækni og hjúkrunarfræðinginn Þórunni Kristínu Sigurð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nytt-husnaedi-feb-synt-i-blidunni-a-husavik
Nýtt húsnæði FEB sýnt í blíðunni á Húsavík Félag eldri borgara á Húsavík og nágrenni opnaði í dag dyrnar að nýju húsnæði félagsins að Garðarsbraut 44, neðri hæð og kjallara og sýndi það félagsmönnum og gestum. Húsgagnaverslunin- og verkstæðið Hlynur sf. og síðar Ómur sf. var þarna áður til húsa. Fjölmenni var að skoða ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/seldi-365-ibudir-thar-af-21-a-nordurlandi
Seldi 365 íbúðir, þar af 21 á Norðurlandi Stærsta einstaka opna söluferlið í sögu Íbúðalánasjóðs er nú yfirstaðið með undirritun kaupsamninga síðustu daga. Það eru 21 íbúð á Norðurlandi meðal þeirra 356 um allt land sem auglýstar voru í opnu söluferli. Íbúðirnar fara að miklu leyti til leigufélaga sem hyggjast leigja þ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/list-an-landamaera-a-husavik
List án landamæra á Húsavík List án landamæra er listahátíð með áherslu á fjölbreytileika mannlífsins. Allir sem vilja geta tekið þátt! Á hátíðinni vinnur listafólk saman að allskonar list með frábærri útkomu. Það leiðir til auðugra samfélags og aukins skilnings manna á milli. Ákveðið var að efna til þessarar hátíðar á...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/radherra-kallar-eftir-skyrari-verkaskiptingu-i-heilbrigdiskerfinu-a-arsfundi-sak
Ráðherra kallar eftir skýrari verkaskiptingu í heilbrigðiskerfinu á ársfundi SAk Skýrari verkaskipting í heilbrigðiskerfinu og aukin samvinna og samráð milli stofnana eru mikilvægir liðir í því að bæta heilbrigðisþjónustuna. Heilbrigðisráðherra, Kristján Þór Júlíusson talaði m.a. um mikilvægi skýrari verkaskiptingar í ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/huggulegt-kvold-med-godum-mat
Huggulegt kvöld með góðum mat Grafin Gæs, forréttur 1 stk. vel valin bringa af gæs á heppilegum aldri. Kryddblanda (gott að væta í smá olive olíu og merja þetta í mortel) ½ – matskeið sinnepsfræ ½ – matskeið basil ½ – matsekið timian ½ – matskeið rósmarín ½ - matskeið salt ½ – matskeið svartur pipar ½ - matsekið oregan...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ambassador-semur-um-launakjor-starfsmanna
Ambassador semur um launakjör starfsmanna Hvalaskoðunarfyrirtækið Ambassador ehf. Skrifaði í gær undir samkomulag vegna launamála starfsmanna fyrirtækisins sumarið 2016, þetta kemur fram á vef Einingar – Iðju. Samkomulagið nær til almennra starfsmanna við afgreiðslu í miðasölu, háseta, leiðsögumanna og vaktstjóra. Amba...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vitlaus-haukur-heidar-fekk-sms-fra-ksi
Vitlaus Haukur Heiðar fékk SMS frá KSÍ Akureyringurinn Haukur Heiðar Hauksson verður í eldlínunni með íslenska karlalandsliðinu á EM í fótbolta sem fram fer í Frakklandi í sumar. Þegar hópurinn var tilkynntur með pompi og prakt í vikunni var leikmönnum tilkynnt með SMS frá KSÍ hvort þeir færu með eða ekki og voru skila...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thetta-er-algjor-timaskekkja
„Þetta er algjör tímaskekkja“ Íbúar á Oddeyri og hagsmunaaðilar eru ósáttir við nýjar skipulagshugmyndir Akureyrarbæjar á Hvannavallareitnum. Í skipulagsdrögum er gert ráð fyrir skrifstofu og atvinnuhúsnæði í framhaldi af Glerárgötu 36 en langstærsti hluti svæðisins verður nýttur undir verslunarskemmu og bílastæði. Arn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/adalfundur-volsungs-felagid-rekid-med-hagnadi
Aðalfundur Völsungs: Félagið rekið með hagnaði Aðalfundur Íþróttafélagsins Völsungs á Húsavík var haldinn í gær, miðvikudaginn 11. maí og var mæting með ágætum. Elín Gunnsteinsdóttir gekk úr aðalstjórn Völsungs og sæti hennar tók Berglind Jóna Þorláksdóttir. Ný aðalstjórn Völsungs er því þannig skipuð: Guðrún Kristinsd...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skarpur-er-kominn-ut-i-dag
Skarpur er kominn út í dag Skarpur er kominn út í sólarblíðuna á Norðurlandi. Í blaðinu er viðtal við Guðlaug Arason myndlistarmann og rithöfund, sem er að opna sýningu á Húsavík í dag. Greint er frá heimkomu eðalfleysins Sæborgarinnar til Húsavíkur. Fjallað um List án landamæra. Rætt við fyrrum Húsvíking sem er nefndu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/barnarum-innkollud-vegna-hengingarhaettu
Barnarúm innkölluð vegna hengingarhættu Neytendastofa hefur tekið ákvörðun um að setja á sölubann og innkalla Basson Baby-barnarúm af gerðinni Julia frá versluninni Ólavíu og Oliver. Hönnun rúmanna fela í sér hengingarhættu fyrir börn. Í tilkynningu frá Neytendastofu kemur fram að verslunin hafi áður innkallað rúmið ve...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorvaldur-ludvik-segir-starfi-sinu-lausu
Þorvaldur Lúðvík segir starfi sínu lausu Framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, hefur sagt starfi sínu lausu frá og með næstu mánaðamótum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Þorvaldur verður félaginu innan handar þar til búið verður að ráða nýjan framkvæmdastjóra, en...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vill-gera-strandveidikerfid-sveigjanlegra
Vill gera strandveiðikerfið sveigjanlegra Strandveiðikerfið er of áhættusamt eins það er í dag segir Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokks,. Hann vill aukinn sveigjanleika sem gerir strandveiðisjómönnum kleift að velja sér fasta daga í mánuði. „Enginn vill tapa veiðidegi og allt er lagt undir til þess að sæ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vikudagur-kemur-ut-i-dag-2
Vikudagur kemur út í dag Vikudagur kemur út í dag en í blaði vikunnar kennir ýmissa grasa. -Steini Pje er mörgum bæjarbúum Akureyrar að góðu kunnur sem lögreglumaður í áratugi. Hann er einn af upphafsmönnum Hollvina Húna og hefur einbeitt sér að því verkefni ásamt öðru eftir að hann lagði lögreglubúninginn á hilluna fy...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/godgerdasyning-til-styrktar-sjukrahusinu-a-akureyri
GÓÐGERÐASÝNING TIL STYRKTAR SJÚKRAHÚSINU Á AKUREYRI Vandræðaskáld blása nú til sérstakrar góðgerðarsýningar á gamanleiknum Útför – saga ambáttar og skattsvikara í Samkomuhúsinu á Akureyri föstudaginn 13. maí kl 20. Vandræðaskáld sýndu sýninguna fyrst á Akureyri síðastliðið haust við afar góðar undirtektir og hefur sýni...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eirikur-bjorn-gagnrynir-stjornvold
Eiríkur Björn gagnrýnir stjórnvöld Eiríkur Björn Björgvinsson Bæjarstjóri á Akureyri gagnrýnir stjórnvöld harðlega fyrir seinagang við lausn á byggðavanda Grímseyinga. Ráðuneytin sem fara með einstaka málaflokka gefa engin svör. Rúv sagði frá þessu á vef sínum. „Í nóvember ákvað ríkisstjórnin að ráðist yrði í sérstakar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hlyjast-fyrir-nordan-i-dag
Hlýjast fyrir Norðan í dag Suðlæg eða breytileg átt 5-10 m/s. Skýjað eða skýjað með köflum og stöku skúrir sunnan- og vestalands, en bjart að mestu norðaustan- og austanlands. Hiti 5 til 14 stig í dag, hlýjast norðanlands, segir á vef veðurstofunnar Akureyri í sól og blíðu
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rikid-styrki-hreppinn-strax
Ríkið styrki hreppinn strax Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra mælist til þess að ríkisstjórn Íslands veiti Skútustaðahreppi fjárhagslegan stuðning án tafar, vegna kostnaðar við hönnun, byggingu og rekstur á hreinsivirkjun fyrir skólp í Skútustaðahreppi. Mikilvægt sé að hraða úrbótum í fráveitumálum eins og kostur er ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/afi-fekk-rangt-barn-heim-med-ser-af-leikskolanum
Afi fékk rangt barn heim með sér af leikskólanum Afi barns á leikskólanum Kiðagili á Akureyri var fyrir mistök sendur heim með rangt barn fyrir nokkrum vikum. Soffía Vagnsdóttir, fræðslustjóri Akureyrar segir að röð tilviljana hafi leitt til þessarar hörmulegu niðurstöðu. RÚV greindi fyrst frá málinu á vef sínum fyrr í...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nemendur-i-brekkuskola-hlutu-siljuna-i-myndbandasamkeppni-barnabokaseturs-2016
NEMENDUR Í BREKKUSKÓLA HLUTU SILJUNA Í MYNDBANDASAMKEPPNI BARNABÓKASETURS 2016 Nemendur í Brekkuskóla urðu í 1. og 2. sæti í eldri flokki Siljunnar, myndbandasamkeppni Barnabókaseturs 2016. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Brekkuskóla 6. maí. Það voru þau Arndís Eva Erlingsdóttir og Egill Andrason sem sigr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bilvelta-vid-husavik
Bílvelta við Húsavík Einn var fluttur til aðhlynningar eftir bílveltu við Húsavík um hádegisbil í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Húsavík er ekki talið að maðurinn sé alvarlega slasaður. upplýsingar um orsakir bílveltunnar liggja ekki fyrir að svo stöddu
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gledi-og-gjafmildi-rikir-i-safnasafninu
Gleði og gjafmildi ríkir í Safnasafninu Að venju heldur Safnasafnið ótrautt og bjartsýnt inn í sumarið með fjölda áhugaverðra sýninga á sínu 21. starfsári. Næstkomandi laugardag, 14. maí kl. 14.00, opnar Safnasafnið dyrnar og sýnir verk eftir 67 listamenn og nemendur þriggja skóla. Ber fyrst að nefna tvær yfirgripsmikl...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kevin-keegan-sagdi-ad-island-muni-vinna-em
Kevin Keegan sagði að Ísland muni vinna EM Kevin Keegan er á meðal sérfræðinga á ráðstefnunni Business and Football sem stendur nú yfir í Hörpu. Keegan ræddi m.a. um leiðtogahæfni og sagði að á tíma sínum hjá Liverpool hefðu leikmenn ekki lært fótbolta. Þeir hefðu lært á lífið. Keegan spilaði á ferli sínum meðal annars...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nytt-krabbameinslyf-kynnt
Nýtt krabbameinslyf kynnt Samkvæmt tilkynningu á vef Lyfjafyrirtækisins Alvogen var fyrirtækið fyrst á markað með nýtt samheitalyf á Íslandi og á ýmsum mörkuðum í Mið- og Austur Evrópu. Reseligo heitir umrætt krabbameinslyf en það er samheitalyf Zoladex sem seldist fyrir um 200 milljónir evra í Evrópu á síðasta ári en ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/afnam-tolla-a-fatnad-og-sko-skila-ser-ekki-til-neytenda
Afnám tolla á fatnað og skó skila sér ekki til neytenda Í ársbyrjun 2016 voru felldir niður tollar af fatnaði og skóm. Þessar aðgerðir lögðust vel í almenning. Þessi lagabreyting átti að skila 13% lægra verði til neytenda að meðaltali af þeim vörum sem áður báru tolla. Samkvæmt úttekt verðlagseftirlits ASÍ þá hafa þess...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sveitarstjornarmenn-a-nordurlandi-eystra-gagnryna-fjogurra-ara-samgonguaaetlun
Sveitarstjórnarmenn á Norðurlandi eystra gagnrýna fjögurra ára samgönguáætlun Í samgönguáætlun fyrir árin 2015 til 2018 er ekki gert ráð fyrir að Dettifossvegur verði kláraður eins og áður hefur komið fram á dagsrain.is. Þetta gagnrýna sveitastjórnarmenn á Norðurlandi eystra og segja að vegurinn sé lykillinn að ferðaþj...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/styrkir-til-atvinnumala-kvenna
Styrkir til atvinnumála kvenna Nýverið úthlutaði Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra 32 milljónum króna í styrki til atvinnumála kvenna. 33 verkefni alls hlutu styrk að þessu sinni. Styrkirnir eru í samræmi við niðurstöðu ráðgjafarnefndar sem mat umsóknirnar sem bárust, alls 219 talsins, um styrki til v...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tilraunir-til-breytinga-a-greidslufyrirkomulagi-a-hjukrunarheimilum
Tilraunir til breytinga á greiðslufyrirkomulagi á hjúkrunarheimilum Félags- og húsnæðismálaráðherra, Eygló Harðardóttir hefur skipað starfshóp til að útfæra og koma á tilraunaverkefni í samvinnu við eitt eða fleiri hjúkrunarheimili um nýtt fyrirkomulag greiðsluþátttöku íbúa á á dvalar- og hjúkrunarheimilum. Þetta kemur...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/saeborgin-fekk-godar-mottokur-i-sinni-gomlu-heimahofn
Sæborgin fékk góðar móttökur í sinni gömlu heimahöfn Sæborgin, tíundar eikarskip í hvalaskoðunarflota Norðursiglingar á Húsavík, fékk góðar móttökur þegar hún sigldi inn í sína gömlu heimahöfn í hádeginu í dag. Sæborg ÞH var seld frá Húsavík til Keflavíkur árið 1992, en hefur undanfarin ár verið gerð út í ferðaþjónustu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skolameistari-framhaldsskolans-a-husavik-laetur-af-storfum
Skólameistari Framhaldsskólans á Húsavík lætur af störfum Dóra Ármannsdóttir skólameistari Framhaldsskólans á Húsavík hefur beðist lausnar frá embætti. Dóra hefur gengt embættinu síðan 2012, en áður kenndi hún íslensku við skólann frá árinu 1992. Hún hefur auk BA gráðu í íslensku frá Háskóla Íslands, Dipl. Ed. og M.Ed....
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tonleikar-med-karlakornum-mannerstimmen-basel
TÓNLEIKAR MEÐ KARLAKÓRNUM MÄNNERSTIMMEN BASEL Svissneski karlakórinn Männerstimmen Basel verður með tónleika í Akureyrarkirkju miðvikudaginn 11. maí kl. 20.00 „Hnébuxur, axlabönd og flauelsjakkar, kórbúningur karlakórsins Männerstimmen Basel, er skemmtilega gamaldags, en á sama tíma í hressilegri mótsögn við lífleglega...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hverju-skilar-ferdathjonustan
Hverju skilar ferðaþjónustan? Lilja Berglind Rögnvaldsdóttir kynnir niðurstöður rannsóknar sinnar á efnahagslegum áhrifum ferðaþjónustu, á opnum fyrirlestri á vegum Þekkinganets Þingeyinga á morgun miðvikudag. Rannsóknin er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi, henni er ætlað að skýra umfang atvinnugreinarinnar sem og...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/reka-fjora-veitingastadi
Reka fjóra veitingastaði Hallgrímur Friðrik Sigurðarson matreiðslumeistari og Þóra Hlynsdóttir eiginkona hans hafa keypt rekstur veitingastaðarins 1862 Nordic Bistro í Hofi á Akureyri. Hallgrímur átti veitingastaðinn ásamt þeim Vigni Má Þormóðssyni og Leifi Hjörleifssyni sem var opnaður 2010 en hefur nú keypt þá út úr ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-tekur-a-moti-volsungi-i-borgunarbikarnum
Þór tekur á móti Völsungi í Borgunarbikarnum Þór tekur á móti Völsungi í Borgunarbikar karla í kvöld þriðjudaginn 10. maí, á Þórsvelli. Í liði Völsungs eru nokkrir leikmenn sem hafa leikið með Þór m.a. markahrókurinn Jóhann Þórhallsson sem hefur leikið 90 leiki með Þór og í þeim skorað 46 mörk. Aðrir eru, Halldór Orri ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/urskurdur-um-gaesluvardhald-yfir-karlmanni-stadfest
Úrskurður um gæsluvarðhald yfir karlmanni staðfest Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Norðurlands eystra um að karlmaður skuli sæta gæsluvarðhaldi til föstudagsins 27. maí næstkomandi. Maðurinn var handtekinn 28. apríl eftir að hann réðst, ásamt félaga sínum, inn á heimili annars manns. Í hinum kærða úrskur...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/radstefnan-snjallari-saman-heppnadist-vel
RÁÐSTEFNAN SNJALLARI SAMAN HEPPNAÐIST VEL Ráðstefnan Snjallari saman – upplýsingatækni og miðlun í skólastarfi sem haldin var á vegum miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri (MSHA) heppnaðist í alla stað vel, samkvæmt fréttatilkynningu á vef Háskólans á Akureyri. Rúmlega 200 þátttakendur áttu þar saman lærdóms...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/styrktarfelagid-kom-faerandi-hendi-a-hsn-a-husavik
Styrktarfélagið kom færandi hendi á HSN á Húsavík Styrktarfélag Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga, færði Heilbrigðisstofnun Norðurlands, starfsstöðinni í Norðurþingi, góðar gjafir fyrr í dag. Auður Gunnarsdóttir, formaður Styrktarfélagsins, afhenti þá stofnuninni svokallaðan sturtustól að verðmæti 1.5 milljónir sem keypt...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/saeborg-thh-snyr-aftur-til-husavikur-sem-hvalaskodunarskip
Sæborg ÞH snýr aftur til Húsavíkur sem hvalaskoðunarskip Norðursigling festi nýlega kaup á tíunda eikarskipinu í flota fyrirtækisins. Skipið var smíðað af Skipasmíðastöð Gulla og Trausta á Akureyri árið 1977 fyrir Karl Aðalsteinsson úgerðarmann á Húsavík og syni hans, Aðalstein Pétur og Óskar Eydal. Skipið hlaut nafnið...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/islendingar-og-graenlendingar-auka-samstarf
Íslendingar og Grænlendingar auka samstarf Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra og Vittus Qujaukitsoq, utanríkisráðherra Grænlands, voru sammála um að efla samstarf landanna enn frekar. En þau ræddust við á símafundi 6. maí sl. Ráðherrarnir ræddu um samstarfið á grundvelli viljayfirlýsingar landanna frá árinu 2013 þar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-islandsmeistari-i-9-flokki-i-korfuknattleik-karla
Þór Íslandsmeistari í 9. flokki í körfuknattleik karla Þórsarar eru Íslandsmeistarar í 9. flokki karla í körfubolta eftir 64-46 sigur á Stjörnunni í gær sunnudag. Þór hafði nokkra yfirburði mest allan leikinn og höfðu 13 stiga forskot í hálfleik 36-23. Stjörnumenn náðu þó að hleypa mikilli spennu í leikinn í þriðja lei...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrsti-formadur-gilfelagsins-er-nyr-formadur-gilfelagsins
Fyrsti formaður Gilfélagsins er nýr formaður Gilfélagsins Á aðalfundi Gilfélagsins sem haldinn var í síðustu viku var kosin ný stjórn og nýr formaður. Nýji formaðurinn er Guðmundur Ármann Sigurjónsson, en hann er jafnframt einn af stofnendum Gilfélagsins og fyrsti formaður þess. „Allir sem þekkja Guðmund vita að hann g...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/felag-eldri-borgara-a-husavik-synir-nytt-husnaedi
Félag eldri borgara á Húsavík sýnir nýtt húsnæði Eins og áður hefur komið fram á dagskrain.is hefur Félag eldri borgara á Húsavík og nágrenni fest kaup á nýju húsnæði undir félagsaðstöðu og aðra starfsemi félagsins að Garðarsbraut 44, fyrstu hæð og kjallara. Í tilefni af því verður húsnæðið til sýnis „fyrir áhugasama o...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/auglysa-eftir-sjalfbodalidum-til-vinnu-a-eyjafjardarsvaedinu
Auglýsa eftir sjálfboðaliðum til vinnu á Eyjafjarðarsvæðinu Verkalýðsfélagið Eining-Iðja á Akureyri hefur fengið ábendingar um að 30 aðilar í ferðaþjónustu og landbúnaði á Eyjafjarðarsvæðinu óski eftir erlendum sjálfboðaliðum til starfa þar sem húsnæði, fæði og kynning á landinu eru laun fyrir vinnuna. Þetta segir Björ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjoregg-alyktar-um-astandid-i-myvatni-og-laxa
Fjöregg ályktar um ástandið í Mývatni og Laxá Fjöregg, félag um náttúruvernd og heilbrigt umhverfi í Mývatnssveit, heitir á Alþingi og ríkisstjórn að axla ábyrgð og sýna í verki að lögin um vernd Mývatns og Laxár séu meira en orðin tóm. Þetta kemur fram í eftirfarandi ályktun aðalfundar Fjöreggs: “Lífríki Mývatns og La...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/husavikurstofa-lokar-og-hvad-svo
Húsavíkurstofa lokar - Og hvað svo ? Það finnst mér undarleg ákvörðun hjá Norðurþingi að loka Húsavíkurstofu. Á heimasíðu Húsavíkurstofofu má finna eftirfarandi: „Húsavíkurstofa er miðstöð fyrir hagsmunaraðila í verslun og þjónustu á svæðinu. Þar er veitt þjónusta á sviði markaðs- og kynningarmála fyrir Húsavík ásamt v...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/enginn-titill-8
Óttast skemmdir á húsnæði vegna sprenginga í Höfðagöngum Jóhann Þórarinsson fyrverandi lögreglumaður óttast skemmdir á húsi sínu að Sólbrekku 1 vegna titrings sem hlýst af sprengingum við gangagerð í gegnum Húsavíkurhöfða. Hann hefur fært nákvæmt bókhald yfir það hvenær hann finnur fyrir sprengingum. "Ég hringdi í nokk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/enginn-titill-7
Gamla fréttin: Kosningabaráttan '96 Gamla fréttin að þessu sinni er fréttaskýring úr Degi – Tímanum (163. Tölublað 29.08. 1996). Hér er farið yfir kostnað frambjóðendanna sem sóttust eftir kjöri til embættis 5. forseta lýðveldisins, á kosningabaráttunni. Hildur Helga Sigurðardóttir skrifaði: Í hita baráttunnar um embæt...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aetla-ad-ljuka-ferlinum-med-stael
„Ætla að ljúka ferlinum með stæl Helena Eyjólfsdóttir er landsmönnum góðkunn en hún söng sig inn í hjörtu íslensku þjóðarinnar sem barn og hefur gert ófáar dægurlagaperlurnar ógleymanlegar á löngum ferli sem söngkona. Helena segist vera óhrædd við að ögra sjálfri sér og takast á við nýjar áskoranir. Hún ætlar að enda s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jan-haettir-sem-framkvaemdastjori-hvalasafnsins
Jan hættir sem framkvæmdastjóri Hvalasafnsins Jan Aksel Klitgaard, hefur sagt upp störfum sem framkvæmdastjóri Hvalasafnsins á Húsavík, starfið hefur þegar verið auglýst laust til umsóknar og 15-20 hafa sótt um. Enda segir Jan að þetta sé mjög fjölbreytt og spennandi starf. En hversvegna ákvað hann að hætta? „Þetta var...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ekki-kasper-og-jesper-heldur-kasper-og-kuti
Ekki Kasper og Jesper, heldur Kasper og Kúti! Nei, þetta eru ekki ræningjarnir í Kardemommubæ, þeir Kasper og Jesper án Jónatans. Þetta eru þeir Kasper og Kúti, nánar tiltekið Kasper Schmeichel, markvörður danska landsliðsins í fótbolta og nýbakaður Englandsmeistari með Leicester, og Húsvíkingurinn Aðalsteinn Árni Bald...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/simaskrain-kvodd-med-virtum
Símaskráin kvödd með virtum Lokið er 111 ára sögu einhverrar mest lesnu bókar Íslandssögunnar - ef ekki þeirrar mest lesnu. Síðasta Símaskráin kom út í dag. „Símaskráin hefur verið gefin út frá árinu 1905 og er nú síðasta útgáfa hennar komin í dreifingu. Hún hefur verið hluti af íslensku samfélagi í 111 ár og gegnt mik...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/uppsetningin-a-pilu-pinu-skinandi-vitnisburdur-um-samtakamatt-mak
Uppsetningin á Pílu pínu skínandi vitnisburður um samtakamátt MAk Viðtökurnar á ævintýrasöngleiknum Pílu Pínu sem Menningarfélag Akureyrar hefur nýlega lokið sýningum á, hafa verið vonum framar. Fullt hús var á öllum sýningunum níu. Hátt í fimm þúsund áhorfendur á öllum aldri hafa því sótt sýninguna. Sýningin á Pílu Pí...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hlutfall-kvenna-i-stjornum-storra-fyrirtaekja-undir-vidmidum
Hlutfall kvenna í stjórnum stórra fyrirtækja undir viðmiðum Konur voru í lok árs 2015 tæp 26 prósent stjórnarmanna fyrirtækja sem greiða laun og skráð eru í hlutafélagaskrá, sem er hækkun upp á 0,4 prósentustig frá árinu í fyrra. Hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja hefur farið hækkandi frá árinu 2007. Þetta kemur fra...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kadlin-opnar-a-ny-og-nu-i-samkomuhusinu
Kaðlín opnar á ný og nú í Samkomuhúsinu Í vikunni opnuðu handverks- og hannyrðakonurnar í Kaðlín sína rómuðu verslun í nýjum höfuðstöðvum, í Samkomuhúsinu á Húsavík. Áður höfðu þær verið með aðstöðu í Pakkhúsinu á Sölkutorgi um árabil, en yfirgáfu staðinn um áramótin síðustu. Það var svo Norðurþing sem skaut yfir þær s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vilja-ad-astaedur-hvitleits-myvatns-verdi-rannsakadar
Vilja að ástæður hvítleits Mývatns verði rannsakaðar Bragi Finnbogason, formaður Veiðifélags Laxár telur að mikil fjölgun ferðamanna sé ástæða þess að Mývatn varð hvítleitt síðasta sumar en Laxá í Aðaldal rennur úr Mývatni. „Eina breytan sem hefur aukist er þessi ofboðslega fjölgun ferðamanna. Þeir sem koma t.d. með sk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/serhaefa-sig-i-ferdum-fyrir-rika-og-fraega-folkid
Sérhæfa sig í ferðum fyrir ríka og fræga fólkið Akureyringurinn Karl Ólafsson starfar hjá ferðafyrirtækinu Nordic Luxury og er einn af stofnendum fyrirtækisins sem sérhæfir sig í að skipuleggja ferðir í Skandinavíu fyrir efnamikið fólk. Líkt og Akureyringar og aðrir nærsveitarmenn hafa tekið eftir síðustu daga hefur sa...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/maedradagsblomin-seld-a-husavik-i-dag
Mæðradagsblómin seld á Húsavík í dag Áratugum saman hafa konur í Kvenfélagi Húsvíkur búið til rósir úr kreppappír af miklu listfengi og selt í tengslum við Mæðradaginn. Mæðradagsblóm Kvenfélagsins renna jafnan út eins og volgar vöfflur. Þau hafa verið notuð til skreytinga á stórsýningum í höfuðborginni og meira að segj...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/deiliskipulag-snidgengid-vid-byggingu-steypustodvar-a-husavik
Deiliskipulag sniðgengið við byggingu steypustöðvar á Húsavík Í Ríkisútvarpinu í gær var greint frá því að sveitarstjórn Norðurþings hefði veitt leyfi til að byggja steypustöð á Húsavík þótt hvorki lægi fyrir byggingaleyfi né deiliskipulag. Fréttin á ruv.is er svohljóðandi: „Ný steypustöð við Húsavík, sem meðal annars ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/veidifelag-myvatns-leitar-studnings-stjornvalda
Veiðifélag Mývatns leitar stuðnings stjórnvalda Eftirfarandi skeyti var sent til umhverfis- og auðlindaráðherra ásamt öðrum alþingismönnum nú skömmu fyrir hádegi: “Hæstvirtur Umhverfis- og auðlindaráðherra, Sigrún Magnúsdóttir. Á félagsfundi í Veiðifélagi Mývatns 4. maí 2016 komu fram þungar áhyggjur félagsmanna af ást...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vikudagur-i-dag-18
Vikudagur kemur út í dag Vikudagur kemur út í dag en í blaði vikunnar er m.a. ítarlegt viðtal við söngkonuna dáðu Helenu Eyjólfsdóttur sem ræðir ferilinn, Sjallaárin, fjölskylduna og segir frá spennandi verkefnum framundan. Karl Ólafsson starfar hjá Nordic Luxury sem sérhæfir sig í ferðum fyrir efnameiri fólk og stendu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/httpwwwdagskrainisisfrettireyfirskur-karlmadur-faedir-dottur
Eyfirskur karlmaður fæðir dóttur Henrý Steinn er 19 ára Eyfirðingur, hann eignaðist dóttur á dögunum með kærasta sínum Dodda. Aðdragandi þess að Henrý varð faðir var líklega með óhefðbundnari hætti en hjá flestum feðrum. Henrý nefnilega gekk bæði með barnið og fæddi það. Barnið kom í heiminn 13. apríl. Hann segist í vi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-og-thor-spad-godu-gengi-i-sumar
KA og Þór spáð góðu gengi í sumar Inkassodeildin er rétt í þann mund að hefjast. Akureyrarliðin KA og Þór munu etja kappi í sömu deild í sumar. Samkvæmt spá þjálfara og fyrirliða deildarinnar sem fotbolti.net hefur tekið saman er Akureyrarliðunum spáð góðu gengi. Þór er spáð 4. sætinu á meðan að KA er spáð upp um deild...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/volsungi-spad-8-saeti-i-sumar
Völsungi spáð 8. sæti í sumar Vefmiðillinn Fótbolti.net fékk alla fyrirliða og þjálfara í 2. deild karla í knattspyrnu til að spá fyrir um sumarið og fengu liðin því stig frá 1-11 eftir því. Ekki var leyfilegt að spá fyrir sínu eigin liði. Samanlögð spá er sem hér segir: 1. ÍR 230 stig 2. Grótta 220 stig 3. Afturelding...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kor-akureyrarkirkju-fetar-nyjar-slodir
Kór Akureyrarkirkju fetar nýjar slóðir Kór Akureyrarkirkju undir stjórn Eyþórs Inga Jónssonar mun ásamt jasshljómsveit halda tónleika í Akureyrarkirkju sunnudaginn 8. maí kl. 20:00 þar sem flutt verða sönglög eftir Tómas R. Einarsson og Sigurð Flosason. Lagahöfundarnir verða báðir í hljómsveitinni sem spilar með kórnum...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/storstjarna-ur-heimi-ahaettuithrotta-vid-tokur-a-nyrri-thattarod-a-islandi
Stórstjarna úr heimi áhættuíþrótta við tökur á nýrri þáttaröð á Íslandi Bandaríska sjónvarps- og kvikmyndaframleiðslufyrirtækið The Go Big Project var við tökur á Húsavík í gær 3. maí. Fyrirtækið er að framleiða 10 þátta sjónvarpsseríu fyrir sjónvarpsstöðina InsightTV. Dagskrain.is spurði Carlos Vargas framleiðanda þát...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/namsferd-til-lettlands
Námsferð til Lettlands Nú í apríl hélt lítill hópur af nemendum úr HA í viku ferð til Riga í Lettlandi. Ég er fjarnemi í nútímafræði og var svo lánsamur að bjóðast að fara með. Fararstjórinn í ferðinni var sjálfur Markus Meckl en auk hans voru einnig Sigrún Stefánsdóttir og Birgir Guðmundsson frá Háskólanum, auk nokkur...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fagrad-i-eineltismalum-framhaldsskola-sett-a-laggirnar
Fagráð í eineltismálum framhaldsskóla sett á laggirnar Reglugerð um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í framhaldsskólum hefur verið gefin út. Mælst er til þess í reglugerðinni að starfrækt verði sérstakt fagráð í eineltismálum sem verður ráðgefandi í málum sem ekki leysast innan skóla. Slíkt fagráð hefur verið ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/uti-alla-nottina-i-hlidarfjalli
ÚTI ALLA NÓTTINA Í HLÍÐARFJALLI Formlega er skíðavertíðinni í Hlíðarfjalli lokið en lyfturnar verða ræstar aftur með viðhöfn á föstudaginn kl. 15 og látnar ganga viðstöðulaust í 32 tíma eða til kl. 23 á laugardagskvöldið. Boðið verður upp á alls kyns húllumhæ í Fjallinu þegar gestir kveðja frábæran skíðavetur og fagna ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/studningur-vid-at-vinnu-og-byggdathroun-skerptur
Stuðningur við atvinnu- og byggðaþróun skerptur Bætt hefur verið úr annmörkum sem lúta að stuðningi ríkisins við atvinnu- og byggðaþróun að því er fram kemur í fréttatilkynningu sem Ríkisendurskoðun sendi frá sér í gærkvöld. „Ríkisendurskoðun ítrekar ekki ábendingar sínar til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis frá ár...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kraftmiklum-hagvexti-spad-naestu-ar
Kraftmiklum hagvexti spáð næstu ár Samkvæmt nýrri hagspá ASÍ eru horfur í efnahagslífinu bjartar um þessar mundir. Gangi spá hagdeildar eftir verður hagvöxtur hér á landi samfelldur í 8 ár. Kraftmiklum hagvexti er spáð á þessu ári eða 4,9% og að hann verði að jafnaði 3,8% á árunum 2017–2018. Vöxturinn hvílir á vaxandi ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gudni-bragason-ser-um-maerudaga-2016
Guðni Bragason sér um Mærudaga 2016 Guðni Bragason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Mærudaga 2016. Þetta kom fram á 57. fundi sveitarstjórnar Norðurþings sem haldin var í síðustu viku. Það var hugur í Guðna þegar dagskrain.is sló á þráðinn til hans, „þetta leggst mjög vel í mig,“ sagði hann og bætti við að hann væri...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/luxus-snekkja-til-solu
Lúxus-snekkja til sölu Lúxussnekkjan sem nú er við akkeri í Eyjafirði hefur vart farið framhjá nokkrum manni sem leið hefur átt um Akureyri. Snekkjan er nú til sölu því rússneski auðkýfingurinn Andrey Melnichenko eigandi hennar er búinn að kaupa sér nýja snekkju sem ku vera bæði stærri og dýrari en sú sem liggur við ak...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/birkir-skoradi-fyrir-island
Birkir skoraði fyrir Ísland Þórsarinn Birkir Heimisson skoraði fyrra markið í leik U17 landsliða karla í gær, mánudag þegar Ísland vann 2-0 sigur á Finnum í undirbúningsmóti UEFA sem fram fer í Finnlandi. Ísak Ólafsson Breiðabliki skoraði seinna markið. Þá kom Hermann Helgi Rúnarsson inn á sem varamaður á 65. mínútu. A...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gratt-i-fjollum-nordanlands
Grátt í fjöllum norðanlands Það hefur snjóað talsvert í fjöll á norðan- og norðvestanverðu landinu í nótt og má búast við að veður og færð á milli landshluta Norðvestur- og Norðanlands verði ekki með besta móti fram eftir morgni, gera má ráð fyrir snjókomu og skafrenningi. Það dregur úr norðvestanáttinni og úrkomunni þ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/losna-vid-offitutengda-sjukdoma-eftir-adgerdir
Losna við offitutengda sjúkdóma eftir aðgerðir Í næstu mánuðum mun birtast grein í Læknablaðinu um árangur aðgerða tengda offitu hér á landi sem ná til 772 sjúklinga sem fóru í aðgerð á árunum 2001 til 2014. Niðurstöðurnar þar sýna að aðgerðirnar skili verulegu þyngdartapi, en 84% sjúklinga léttast mjög vel. Um 78% þei...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fk-gagnrynir-tokur-fast-8-vid-myvatn
FK gagnrýnir tökur Fast 8 við Mývatn Félag kvikmyndagerðarmanna gerir athugasemdir við frumvarp iðnaðarráðherra um hækkun tímabundinnar endurgreiðslu vegna kvikmyndagerðar á Íslandi. Hlutfall endurgreiðslunnar stendur til að hækka úr 20 prósentum í 25 prósent, m.a. til að bregðast við aukinni samkeppni um erlend kvikmy...