Search is not available for this dataset
url stringlengths 21 288 | text stringlengths 1 1.35M |
|---|---|
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ardgreidslur-bautans-315-milljonir | Arðgreiðslur Bautans 31,5 milljónir
Bautinn ehf. greiddi 31,5 milljónir í arð á síðasta ári. Félagið sem rekur samnefndan veitingastað á Akureyri er að fullu í eigu Guðmundar K. Tryggvasonar. Visir.is sagði fyrst frá.
Hagnaður félagsins var um 14,6 milljónir á síðasta ári en 38 milljónir króna árið 2014. Gengislán fyri... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/enginn-titill-6 | Áframhaldandi samstarf gegn heimilisofbeldi á Akureyri
Alls komu nítján mál upp í sameiginlegu átaki Lögreglunnar á Norðurlandi eystra og Akureyrarbæ gegn heimilisofbeldi sem hófst fyrir um ári síðan og var ákært í tveimur þeirra. Á þessu tímabili hefur nálgunarbanni verið beitt í þremur tilvikum. Ákveðið hefur verið a... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/althjodleg-radstefna-um-jardskjalfta-a-nordurlandi | Alþjóðleg ráðstefna um jarðskjálfta á Norðurlandi
Unnið er að undirbúningi alþjóðlegar ráðstefnu um jarðskjálfta á Norðurlandi og fer hún fram á Húsavík dagana 31. maí til 3. júní n.k.
Markmið ráðstefnunnar er að taka stöðuna á rannsóknum á jarðskjálftum á Norðurlandi, orsökum þeirra, eðli og áhrifum, hagnýtingu rannsó... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjolmenni-tok-thatt-i-1-mai-hatidarholdum | Fjölmenni tók þátt í 1. maí hátíðarhöldum
Mikið fjölmenni safnaðist saman í ágætis veðri á Akureyri til að taka þátt í fjölmennri kröfugöngu sem stéttarfélögin á Akureyri stóðu fyrir fyrr í dag, 1. maí, á alþjóðlegum baráttudegi verkafólks. Á annað hundrað manns mættu einnig í kaffiveislu á skrifstofu stéttarfélaganna ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/1-mai-fjolmenni-a-hatidarholdum-a-husavik | 1. maí: Fjölmenni á hátíðarhöldum á Húsavík
Þau voru ekki af verri endanum hátíðarhöldin sem Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum stóðu fyrir í íþróttahöllinni á Húsavík í dag 1. maí á baráttudegi verkafólks. Aðalsteinn Árni Baldursson formaður Framsýnar opnaði hátíðina með ræðu þar sem hann minntist þess þegar sjónvarpið ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/presturinn-og-manneskjan-maetast | Presturinn og manneskjan mætast
Séra Hildur Eir Bolladóttir mun kynna nýútkomna bók sína Hugrekki, saga af kvíða, á Uppstigningardag í Eymundsson á Akureyri.
Um bókina segir Hildur: „Ég hef þá inngrónu afstöðu að það sé alltaf hægt að gera eitthvað sér til sáluhjálpar. Og sú afstaða er sennilega mitt besta bjargráð.“
Þ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sannkollud-luxus-snekkja-a-pollinum | Sannkölluð lúxus-snekkja á Pollinum
Snekkja í eigu rússneska auðkýfingsins Andrey Melnichenko sem var í fyrra talinn 137 ríkasti maður í heimi hefur legið á Pollinum við Akureyri í dag.
Snekkjan er hin glæsilegasta enda má hún vera það því hún kostar skildinginn eða rúmlega 323 miljónir dala, snarað yfir í íslenskar kr... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/straetobilstjori-osattur-framkoma-neydarlinunnar | Strætóbílstjóri ósáttur framkoma Neyðarlínunnar
Þorsteinn Sigurbjörnsson strætóbílstjóri á Akureyri lenti í undarlegu atviki á föstudaginn var þegar farþegi í strætisvagn hans þurfti skyndilega á læknisaðstoð að halda. Þorsteinn hringdi í 112 og bað um að fá sjúkrabíl en því var hins vegar hafnað. Var hann sjálfur beði... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tm-og-volsungur-stadfesta-samstarf | TM og Völsungur staðfesta samstarf
Tryggingamiðstöðin og Íþróttafélagið Völsungur hafa undirritað samstarfssamning til eins árs og verður TM því einn helsti stuðningsaðili Völsungs á tímabilinu. TM mun jafnframt tryggja leikmenn karla- og kvennaliðs Völsungs í knattspyrnu og starfsfólk félagsins.
Tilgangur samstarfsins... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gamla-frettin-ae-hringid-thid-frekar-eg-er-i-vinnunni-nuna | Gamla fréttin: „Æ, hringið þið frekar, ég er í vinnunni núna"
Gamla fréttin að þessu sinni er í lengri kantinum. Um er að ræða viðtal sem birtist í 8 blaðsíðna blaðauka um Húsavík og nágrenni í Tímanum þriðjudaginn 14. júlí 1981 sem tekið var við Bjarna Aðalgeirsson þáverandi bæjarstjóra á Húsavík.
Farið var yfir nauðs... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/flugsafn-islands-fekk-500000-ur-safnasjodi | Flugsafn Íslands fékk 500.000 úr Safnasjóði
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur úthlutað úr Safnasjóði 2016 að fenginni umsögn safnaráðs, alls 108,4 millj. kr. Af þeirri upphæð renna 78,8 millj. kr. til einstakra verkefna en tæpar 30 millj. kr. í rekstrarstyrki til viðurkenndra safna um land allt.
Flugsafn Íslands á... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aukid-oryggi-a-sak | Aukið öryggi á SAk
Samningur milli Sjúkrahússins á Akureyri og Öryggismiðstöðvarinnar um almenna öryggisgæslu og uppsetningu aðgangsstýrikerfis, öryggismyndavéla og neyðarhnappa á SAk var undirritaður í vikunni. Er þetta einn liðurinn í alþjóðlegri gæðavottun SAk og stuðlar að auknu öryggi starfsmanna, sjúklinga og ann... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stefna-i-gedheilbrigdismalum-samthykkt-a-althingi | Stefna í geðheilbrigðismálum samþykkt á Alþingi
Alþingi samþykkti í dag tillögu Kristjáns Þórs Júlíussonar heilbrigðisráðherra um stefnu og aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum til fjögurra ára. Í stefnunni felst framtíðarsýn og markmið um bætta geðheilbrigðisþjónustu eru skilgreind. Heildarkostnaður aðgerða við framkvæ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/landsnet-samdi-i-dag-upp-a-12-milljarda-vegna-bakka | Landsnet samdi í dag upp á 1,2 milljarða vegna Bakka
Landsnet gekk í dag frá samningi að verðmæti 1,2 milljarðar króna vegna tengingar iðnaðarsvæðisins á Bakka við Húsavík við Þeistareykjavirkjun og raforkuflutningskerfið.
„Þetta er ánægjulegur áfangi í þeim nýframkvæmdum sem við erum af fara af stað með á Norðausturla... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikil-hatidarhold-a-husavik-1-mai | Mikil hátíðarhöld á Húsavík 1. maí
Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum standa fyrir veglegum hátíðarhöldum í íþróttahöllinni á Húsavík á baráttudegi verkafólks sunnudaginn 1. maí. Fram koma landsþekktir skemmtikraftar s.s. Friðrik Ómar, Jógvan, Stefán Jakobsson, Andri Ívarsson, Gísli Einarsson og Karlakórinn Hreimur. Ræðu... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/krambudin-opnar-a-husavik | Krambúðin opnar á Húsavík
Samkaup hf opnar nýja verlsun að Garðarsbraut 5 á Húsavík næstkomandi föstudag, 29. Apríl klukkan 12.00.
Verslunin verður rekin á sömu forsendum og Krambúðin á Skólavörðustíg í Reykjavík sem tók miklum breytingum í lok árs 2015. Voru þær breytingar gerðar til þess að mæta aukinni eftirspurn fr... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samraemdur-vitnisburdur-vid-lok-grunnskola-vorid-2016 | Samræmdur vitnisburður við lok grunnskóla vorið 2016
Nemendur úr grunnskólum landsins útskrifast í vor eftir nýju einkunnakerfi þar sem bókstafir lýsa hæfni nemenda. Þá er einnig í fyrsta sinn gert ráð fyrir að skólar skili samræmdum vitnisburði. Þetta er gert til að samræma þær upplýsingar sem nemendur fá á vitnisburð... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/einn-af-vorbodunum-maettur | Einn af vorboðunum mættur
Segja má að heldur kuldalegt hafið verið þegar fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins Magellan lagðist að bryggju í morgun. Með skipinu eru rétt tæplega 1000 ferðamenn en í áhöfn eru 600 manns. Helmingur farþega fer í skoðunarferðir austur til Mývatnssveitar en aðrir farþegar eru nú að spássera um ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/idnadarsafnid-a-akureyri-hlaut-styrki-ur-safnasjodi | Iðnaðarsafnið á Akureyri hlaut styrki úr Safnasjóði
Mennta- og menningarmálaráðherra úthlutaði á dögunum að fenginni umsögn safnaráðs úr Safnasjóði 2016, alls 108,4 millj. kr. Af þeirri upphæð renna 78,8 millj. kr. til einstakra verkefna en tæpar 30 millj. kr. í rekstrarstyrki til viðurkenndra safna um land allt.
Iðnað... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/adstoduleysi-ognar-flugstarfsemi-a-akureyrarflugvelli | Aðstöðuleysi ógnar flugstarfsemi á Akureyrarflugvelli
Hætta er á að Norlandair og Arctic Maintainance neyðist til að flytja starfsemi sína í burtu á næstu árum vegna aðstöðuleysis á Akureyrarflugvelli. Hjá þessum fyrirtækjum starfa rúmlega 30 manns í dag.
Fyrirtækin sóttu um lóðir við nýtt flughlað á Akureyrarflugvelli... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/er-thetta-edlilegt | Er þetta eðlilegt?
Mig langar til að biðja ykkur um að dreifa eða deila þessum skrifum mínum sem víðast. Ég vonast til að fá einhver viðbrögð frá fólki sem málið varðar s.s. stjórnmálamönnum, embættismönnum og jafnvel fréttamiðlum sem væru tilbúnir að fjalla um hvernig og hvort leikreglur okkar virka.
Í kvöldfréttum RÚ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skarpur-er-kominn-ut-i-snjokomu-dagsins | Skarpur er kominn út í snjókomu dagsins
Skarpur er kominn út í hríðarveður dagsins, hlýlegur að vanda. Í blaðinu er stórmerk grein frá Soroptimistum á Húsavík um hina þjóðsagnakenndu Lizzie á Halldórsstöðum og það er Björg Sigurðardóttir sem ritar. Birtar eru yfirlýsingar frá Kára Arnóri Kárasyni og Hrannari Péturssyni... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vikudagur-kemur-ut-i-dag-1 | Vikudagur kemur út í dag
Í Vikudegi sem kemur út í dag er m.a. ítarlegt viðtal við Benedikt Brynleifsson trommara frá Akureyri sem ræðir sigrana, sorgina, æskuárin á Akureyri og Eurovison-ævintýrið með Vinum Sjonna.
-Fjallað er um aðstöðuleysi á Akureyrarflugvelli sem ógnar starfsemi á flugvellinum.
-Strætóbílstjóri á ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/risaverkefni-hja-mak | Stærsta kvikmyndaverkefni MAk til þessa
Menningarfélag Akureyrar (MAk) hefur samið við Atla Örvarsson kvikmyndatónskáld vegna innspilunar og upptöku tónlistarinnar í kvikmyndinni “Lói-þú flýgur aldrei einn". Þetta er stærsta verkefni Arctic Cinematic Orchestra eða ACO, sem er kvikmyndatónlistaarmur Menningarfélags Akur... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hvalasafnid-a-husavik-hlytur-styrk-ur-safnasjodi-2016 | Hvalasafnið á Húsavík hlýtur styrk úr Safnasjóði 2016
Í fréttatilkynningu frá Hvalasafninu á Húsavík kemur fram að úthlutað hefur verið styrkjum úr Safnasjóði 2016. Hlutverk Safnasjóðs samkvæmt safnalögum nr. 141/2011 er fyrst og fremst að efla starfsemi safna sem undir lög þessi falla.
„Hvalasafnið á Húsavík hlaut að ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ny-reglugerd-um-medferd-elds-og-varnir-gegn-grodureldum | Ný reglugerð um meðferð elds og varnir gegn gróðureldum
Gefin hefur verið út reglugerð um meðferð elds og varnir gegn gróðureldum af umhverfis- og auðlindaráðuneytinu. Reglugerðinni er ætlað að vernda umhverfið og heilsu fólks með því að koma í veg fyrir mengun af sinubrennu, öðrum gróðureldum og meðferð elds á víðavan... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kjuklingarettir-og-nautasalat | Kjúklingaréttir og nautasalat
Slow Cooker hunangshvítlaukskjúklingur með grænmeti fyrir 4:
Þetta er afar einföld uppskrift þar sem hægt er að undirbúa allt að kvöldi, skella svo öllu í einu í slow cooker pottinn og maturinn er tilbúinn um kvöldmatartíma.
Hráefni :
8 kjúklingalæri með beini
500 g rauðar kartöflur
smælki... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ibuafundur-a-kopaskeri-a-morgun-oxarfjordur-i-sokn | Íbúafundur á Kópaskeri á morgun - Öxarfjörður í sókn
Auglýstur hefur verið íbúafundur á Kópaskeri á morgun, miðvikudaginn 27. apríl. Það er verkefnið “Öxarfjörður í sókn” sem býður til þessa upplýsinga- og umræðufundar í Skólahúsinu á Kópaskeri og stendur fundurinn frá kl. 17:00 til 19:00.
Á dagskrá fundarins eru: Drög... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samkomulag-um-ad-efla-eldvarnir-a-heimilum-og-i-stofnunum | Samkomulag um að efla eldvarnir á heimilum og í stofnunum
Akureyrarbær og Húnaþing vestra hafa gert samkomulag við Eldvarnabandalagið um að efla eldvarnir á heimilum og í stofnunum sveitarfélaganna. Samstarfið felur í sér að sveitarfélögin innleiða eigið eldvarnaeftirlit í stofnunum sínum í haust samkvæmt leiðbeiningum... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stjornvold-bregdist-vid-tilmaelum-esa-vegna-orkumala | Stjórnvöld bregðist við tilmælum ESA vegna orkumála
Á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun var ákveðið að setja á fót starfshóp fjögurra ráðuneyta undir forystu forsætisráðuneytisins til að undirbúa viðbrögð við nýlegri ákvörðun Eftirlitsstofnunar Efta (ESA) er varðar nýtingu náttúruauðlinda í þágu rafmagnsframleiðslu. Þe... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrirkomulag-strandveida-2016 | Fyrirkomulag strandveiða 2016
Aukning verður á veiðiheimildum á svæðum A og B fyrir strandveiðibáta á strandveiðitímabilinu sem hefst 2. maí og stendur til 31. ágúst 2016. Önnur ákvæði um veiðisvæði, veiðidaga, hámarksafla á dag og fjölda handfærarúlla verða óbreytt frá fyrri árum.
Við úthlutun aflaheimilda er byggt á ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyrarbaer-styrkir-verkefnasjod-ha | AKUREYRARBÆR STYRKIR VERKEFNASJÓÐ HA
Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri og Eyjólfur Guðmundsson rektor Háskólans á Akureyri undirrituðu í gær samning um styrk Akureyrarbæjar við Verkefnasjóð Háskólans á Akureyri.
Styrknum er ætlað að styðja við ráðstefnuhald eða meiriháttar samkomur, útgáfu og kynningarstarfsemi, m... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nemendur-dalvikurskola-hlutu-umhverfisvidurkenningu | Nemendur Dalvíkurskóla hlutu umhverfisviðurkenningu
Í gær var Dagur umhverfisins. Að því tilefni voru viðurkenningar afhentar á hátíðarathöfn í Listasafni Sigurjóns. Fjórir nemendur í 9. bekk Dalvíkurskóla hlutu einstaklingsviðurkenningu, þeir Helgi Halldórsson, Ragnar Freyr Jónasson, Sveinn Margeir Hauksson og Viktor ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fannst-stunginn-og-raenulaus-i-glerardal | Fannst stunginn og rænulaus í Glerárdal
Karlmaður á fertugsaldri varð fyrir grófri líkamsárás á laugardagsmorgun við heimahús á Akureyri. Visir.is sagði fyrst frá.
Að sögn mannsins var ráðist á hann með barefli og eggvopni. Hann var síðan fluttur nauðugur og meðvitundarlaus upp í Glerárdal ofan við Akureyri. Göngufólk ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thankastrik-joa-kynferdisleg-aflandsfelog | Þankastrik Jóa: Kynferðisleg aflandsfélög
Æ, æ. Maður er alveg miður sín eftir að hafa horft á Kastljós áðan. Fyrst og fremst vegna þess að það var útilokað að botna baun í hvað allt þetta fólk var að gera með því að stofna öll þessi félög án þess að leggja í þau eina einustu krónu og án þess að græða nokkurn skapaðan ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aukin-notkun-jardhita-studlar-ad-hagkvaemri-orkuframleidslu | Aukin notkun jarðhita stuðlar að hagkvæmri orkuframleiðslu
„Ísland hefur stutt þróun jarðhita um fjörutíu ára skeið og samkvæmt núgildandi þróunarsamvinnuáætlun er jarðhiti einn af fjórum meginstoðum þeirrar áætlunar,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra í morgun við setningu þriðja fundar Orkuráðgjafadeildar A... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vidskiptastjori-arion-banka-til-skodunar-fyrir-meint-brot-i-starfi | Viðskiptastjóri Arion banka til skoðunar fyrir meint brot í starfi
Viðskiptastjóra Arion banka á Akureyri var sagt upp störfum og gert að hætta strax fyrr í þessum mánuði vegna gruns um saknæmt athæfi hans í störfum hjá bankanum. Fréttablaðið sagði fyrst frá.
Haraldur Guðni Eiðsson, upplýsingafulltrúi Arion banka hefur... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eirikur-bjorn-fer-ekki-i-forsetaframbod | Eiríkur Björn fer ekki í forsetaframboð
Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri á Akureyri ætlar ekki að bjóða sig fram til forseta Íslands þegar kosið verður í embættið í sumar. Þetta segir Eiríkur Björn í yfirlýsingu sem hann sendir frá sér en hann hefur legið undir felldi undanfarnar vikur.
Yfirlýsing Eiríks Björns e... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/odruvisi-midbaejarrolt-1 | Öðruvísi miðbæjarrölt.
Eins og ég hef komið inn á áður, þá þarf ekki alltaf að leita langt eftir skemmtilegum gönguleiðum.
Nú langar mig að koma með hugmynd að öðruvísi miðbæjarrölti.
Við hefjum gönguna við Umferðamiðstöðina og göngum upp skemmtilega stallaðar trétröppur upp að Sigurhæðum, húsi séra Matthíasar. Brekkan... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gera-heimildarmynd-um-komu-flottafolksins-til-akureyrar | Gera heimildarmynd um komu flóttafólksins til Akureyrar
Skotta kvikmyndafjelag vinnur að gerð heimildarmyndar um komu flóttafólksins frá Sýrlandi til Akureyrar en fjórar fjölskyldur komu í janúar. Áætlað er tökur standi yfir fram að desember og myndin verði sýnd í sjónvarpi og kvikmyndahúsum. Nánar er fjallað um þetta ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vilja-einfalda-utanumhald-um-styrkveitingar | Vilja einfalda utanumhald um styrkveitingar
Bæjarráð Akureyrar hyggst yfirfara verklag styrkveitinga og hefur falið bæjarstjóra að vinna að því að samræmdar verði flokkanir á styrkveitingum og útbúinn verði gagnagrunnur til þess að halda utan um allar styrkveitingar frá bænum. Gagnagrunn sem heldur utan um söguna og au... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrirsjaanleg-thorf-a-fjolgun-leikskolaplassa-a-husavik | Fyrirsjáanleg þörf á fjölgun leikskólaplássa á Húsavík
Fræðslunefnd Norðurþings fjallaði á fundi sínum fyrir skömmu um erindi Sigríðar Valdísar Sæbjörnsdóttur, leikskólastjóra á Grænuvöllum, um þörf á fjölgun leikskólaplássa á Húsavík vegna væntanlegrar fjölgunar barna á leikskólaaldri næstu árin með tilkomu fyrirtækja... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/karlmadur-um-thritugt-haett-kominn-vid-vinnu-i-theistareykjavirkjun | Karlmaður um þrítugt hætt kominn við vinnu í Þeistareykjavirkjun
Karlmaður um þrítugt var fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri um níu á laugardagsmorgun eftir að annar endinn á 12 metra löngu stálröri féll á manninn þar sem hann var við vinnu í Þeistareykjavirkjun. mbl.is greindi frá þessu.
Samkvæmt lögreglunni á Húsavík á... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/outgefnu-efni-stolid-ur-tonlistarskolanum-tonraekt | Óútgefnu efni stolið úr tónlistarskólanum Tónrækt
Brotist var inn í tónlistarskólann Tónrækt sem er til húsa í Amarohúsinu í Hafnarstræti á Akureyri, aðfaranótt föstudags og talsverðum verðmætum stolið.
„Við vorum með hundrað krakka á Græna hattinum að spila, alveg sjúklega gaman og svo kemur einhver og eyðileggur þá s... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hver-ser-um-maerudaga-a-husavik-i-ar | Hver sér um Mærudaga á Húsavík í ár?
Eins og fram hefur komið hefur Húsavíkurstofa verið lögð niður og þar með annast hún ekki framkvæmd Mærudaga eða Mærudags eins og undanfarin sumur.
Í kjölfarið hefur æskulýðs- og menningarnefnd Norðurþings auglýst eftir áhugasömum aðila eða aðilum til að sjá um framkvæmd Mærudaga ár... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gamla-frettin-bing-crosby-i-laxa-i-adaldal | Gamla fréttin: Bing Crosby í Laxá í Aðaldal
Í tilefni af því að Kim Kardashian og Kanye West eru farin af landi brott eftir að hafa fangað athygli landans í nokkra daga er ekki úr vegi að rifja upp Íslandsför annarrar stórstjörnu úr Vesturheimi.
Gamla fréttin að þessu sinni er af laxveiðum Bing Crosby í Laxá í Aðaldal,... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samstarf-um-diploma-og-ma-nam-i-fjolmidla-og-bodskiptafraedi-innsiglad | Samstarf um diplóma- og MA nám í fjölmiðla- og boðskiptafræði innsiglað
Samningur um sameiginlegt nám í fjölmiðla- og boðskiptafræði við félagsvísindasvið Háskóla Íslands og hug – og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri var formlega undirritaður á Akureyri í morgun. Um er að ræða samning sem innsiglar samstarf skólan... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rumlega-33-aukning-til-aflsins | Rúmlega 33% aukning í viðtölum hjá Aflinu
Einstaklingsviðtölum hjá Aflinu, samtökum gegn kynferðis- og heimilisofbeldi, fjölgaði um 33,6% á milli ára sem er rúmlega þriðjungur. Viðtölin á árinu 2015 voru 1309 en alls komu 209 skjólstæðingar í einstaklingsviðtöl. Þetta kemur fram í ársskýrslu Aflsins sem fjallað er um í... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vorfagnadur-karlakorsins-hreims-ad-ydolum | Vorfagnaður Karlakórsins Hreims að Ýdölum
Hinn óborganlegi Vorfagnaður Karlakórsins Hreims, verður að Ýdölum í Aðaldal n.k. laugardag 23. apríl kl. 20.30. Vorfagnaðurinn hefur á undanförnum árum verið ein helsta árlega skemmtun og menningarviðburður í Þingeyjarþingi (ásamt og með líkast til 1. maí hátíðarhöldum á Húsav... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haraldur-ingi-er-baejarlistamadur-akureyrar | Haraldur Ingi er bæjarlistamaður Akureyrar
Í gær 21. apríl var tilkynnt á Vorkomu Akureyrarstofu um val á bæjarlistamanni Akureyrar 2016-2017 og varð myndlistarmaðurinn Haraldur Ingi Haraldsson þess heiðurs aðnjótandi. Hann mun á starfslaunatímabilinu vinna að gerð þrívíddarsýningarsals á netinu og skönnunarvers af sam... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/parisarsamkomulagid-a-akureyri | PARÍSARSAMKOMULAGIÐ Á AKUREYRI
Á Jarðardeginum, 22. apríl, horfa þjóðir heims til Parísarsamkomulagsins frá síðasta ári og ítreka mikilvægi þess að staðið sé við áætlanir um að bregðast við loftlagsbreytingum og snúa við þeirri þróun sem orsakað hefur hlýnun jarðar. Stefnt er að því að innan fárra ára verði hægt að dra... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gilfelagid-hvetur-til-endurnytingar-og-flokkunar-a-rusli-med-skemmtilegum-haetti | Gilfélagið hvetur til endurnýtingar og flokkunar á rusli með skemmtilegum hætti
Stjórn Akureyrarstofu samþykkti nýverið að veita styrk að upphæð kr. 100.000 til Gilfélagsins fyrir verkefni sem kallast „Selfie recycling“ og einhverskonar samfélagslegt verkefni og myndlistarsýning fyrir alla aldurshópa. Dagskrain.is spur... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skarpur-a-fyrsta-degi-sumars | Skarpur á fyrsta degi sumars
Skarpur kom út í dag á sumardaginn fyrsta og kennir þar ýmissa grasa. Ítarlegt viðtal er við Huld Hafliðadóttur um Hvalasafnið á Húsavík, sögu þess, verkefni og framtíðarsýn. Vangavelt er um hvort forsendubrestur hafi orðið i forsetakosningum og hvort fyrrum veitustjóri á Húsavík sé óður eð... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leikskolaborn-med-syningu-i-safnahusinu | Leikskólabörn með sýningu í Safnahúsinu
Sumardagurinn fyrsti heilsar Húsvíkingum með blíðskapar veðri.
Haldið var upp á daginn í Safnahúsinu í morgun þar sem leikskólabörn sem fædd eru árin 2014 - 2015 og eru á deildunum Fossi, Vilpu og Bergi á leikskólanum Grænuvöllum héldu myndlistasýningu undir heitinu „Líkaminn min... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nytt-tolublad-vikudags-komid-ut | Nýtt tölublað Vikudags komið út
Nýtt tölublað Vikudags er komið út. Meðal efnis í blaði vikunnar er ítarlegt viðtal við Sigurð Hjört Þrastarson sem er einn fremsti keppandinn í Crossfit hér á landi en Sigurður er einn eigandi og þjálfari í Crossfit Hamri á Akureyri.
-Fjallað er um árskýrslu Aflsins á Akureyri, samtök g... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/siduskoli-hafnadi-i-odru-saeti-i-skolahreysti | Síðuskóli hafnaði í öðru sæti í Skólahreysti
Holtaskóli frá Reykjanesbæ er sigurvegari í Skólahreysti 2016 en úrslitin fóru fram í Laugardalshöll í gærkvöld. Þetta er annað árið í röð sem skólinn vinnur keppnina og í fimmta sinn á síðustu sex árum. Holtaskóli fékk 63,5 stig í keppninni og 250 þúsund krónur í verðlaunaf... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sma-perla-innan-seilingar-4 | Smá perla innan seilingar.
Einn af skemmtilegri útsýnisstöðum á Akureyri eru klappirnar fyrir ofan smábátahöfnina í Sandgerðisbót. Í daglegu tali eru þær kallaðar Hannesarklappir, eftir Hannesi Jóhannssyni sem bjó í Bárufelli.
Gott er að nálgast þær á þrennan hátt. Hægt er að ganga út klappirnar frá Krossanesbraut, rét... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stulknakor-husavikur-syngur-a-fyrsta-degi-sumars | Stúlknakór Húsavíkur syngur á fyrsta degi sumars
Stúlknakór Húsavíkur heldur vortónleika í sal Borgarhólsskóla á morgun, sumardaginn fyrsta kl. 15. Kórinn syngur meðal annars lög um frið en einnig lög úr kvikmyndum og söngleikjum.
Undirbúningur fyrir þátttöku á kóramóti í Danmörku stendur sem hæst og fara stúlkurnar ut... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/andresar-andar-leikarnir-ad-hefjast | ANDRÉSAR ANDAR LEIKARNIR AÐ HEFJAST
41. Andrésar andar leikarnir í skíðaíþróttum verða haldnir af Skíðafélagi Akureyrar í Hlíðarfjalli dagana 20.-23. apríl 2016. Andrésarleikarnir eru stærsta skíðamót landsins með yfir 800 keppendur á aldrinum 5-15 ára ár hvert. Þeim fylgja þjálfara, fararstjórar, foreldrar og fjölskyl... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ekki-gert-rad-fyrir-fjarmagni-i-flughlad-i-samgonguaaetlun | Ekki gert ráð fyrir fjármagni í flughlað í samgönguáætlun
Ekki er gert ráð fyrir fjármagni í nýtt flughlað á Akureyrarflugvelli í drögum að fjögurra ára samgönguáætlun. Fyllingarvinna í fyrsta áfanga nýs flughlaðs á Akureyrarflugvelli hófst skömmu eftir áramót og lauk í síðasta mánuði þegar búið var nota það fjármagn s... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/siduskoli-keppir-i-urslitum-skolahreysti | Síðuskóli keppir í úrslitum Skólahreysti
Síðuskóli er meðal tólf skóla í úrslitum í Skólahreysti sem fara fram í dag miðvikudaginn 20. apríl í Laugardalshöll. Landsbankinn er bakhjarl Skólahreysti og frítt er inn á keppnina í Laugardalshöll í boði bankans.
RÚV sýnir beint frá keppninni og hefst útsending kl. 20.00 í kv... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/grabrok-2 | Grábrók.
Að keyra á milli Akureyrar og Reykajvikur finnst mörgum langt og leiðinlegt. En það breytir því ekki að mörg okkar keyra þessa leið nokkrum sinnum á hverju ári. Hér er ég með uppástungu til að gera þetta að skemmtilegu ferðalagi.
Næst þegar þið eigið leið til Reykjavikur legg ég til að áður en þið farið af sta... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kjuklingur-ponnusteiktur-lax-og-dodlukaka-med-karamellukremi | Kjúklingur, pönnusteiktur lax og döðlukaka með karamellukremi
Ég elska að útbúa mat, á mjög erfitt með að fara eftir uppskriftum og er, um leið og ég les uppskriftir, búin að breyta þeim eitthvað, bæta við og svona,“ segir Guðrún Birgisdóttir sem sér um matarkrók vikunnar. „Gallinn er að ég gleymi oft að skrifa niður h... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/riki-og-sveitarfelog-semja-um-markmid-um-afkomu-og-efnahag-sveitarfelaga | Ríki og sveitarfélög semja um markmið um afkomu og efnahag sveitarfélaga
Samkomulag vegna markmiða um afkomu og efnahag sveitarfélaga árin 2017-2021 var í dag undirritað af fjármála- og efnahagsráðherra, innanríkisráðherra og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Samkomulagið markar tímamót í fjárhagslegum samskiptum ríkis... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/topp-5-listinn-baekur-thorbergs-thordarsonar | TOPP 5 LISTINN: BÆKUR ÞÓRBERGS ÞÓRÐARSONAR
Topp fimm listamaður vikunnar er Orri Harðarson, rithöfundur og tónlistarmaður frá Akranesi. Hann hefur búið á Akureyri um árabil ásamt eiginkonu sinni, Ingu Elísabetu Vésteinsdóttur. Saman eiga þau stúlkurnar Karólínu og Birgittu Ósk. Orri vinnur nú að nýrri skáldsögu sem út ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hinn-eini-sanni-volsungur | Hinn eini sanni Völsungur!
Íþróttafélagið Völsungur á Húsavík átti 89 ára afmæli s.l. þriðjudag 12. apríl. Undirritaður hefur á undanförnum árum skrifað um og myndað fjölda Völsunga á öllum aldri sem hafa verið að keppa í hinum ýmsu greinum íþrótta. En það var ekki fyrr en á dögunum sem mér tókst að mynda sérstaklega h... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/enginn-titill-5 | Íslenskunámskeið fyrir erlendar konur með börn
Zontaklúbbur Akureyrar fékk styrk upp á 320.000 kr. frá velferðarráðuneytinu til að fjármagna íslenskunámskeið fyrir erlendar konur sem eru með lítil börn eða barnshafandi.
Námskeiðið er unnið í samstarfi við Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar og Alþjóðastofu Akureyrarbæjar.
A... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kjolagjorningur-i-listasafnid | Kjólagjörningur í Listasafnið
Thora Karlsdóttir myndlistamadur, og formaður Gilfélagsins var í níu mánuði eða 280 daga í svokölluðum kjólagjörningi, frá 1.mars til 5.des. 2015. „Gjörningurinn gekk út á það að á hverjum morgni klæddi ég mig í nýjan kjól og var í honum allan daginn. Kærastinn minn Björn Jónsson sem er áh... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rokhugsun-talnaskilningur-og-rymisvitund-barna-i-leikskolanum-palmholti | Rökhugsun, talnaskilningur og rýmisvitund barna í leikskólanum Pálmholti
Leikskólinn Pálmholt á Akureyri hlaut nýverið styrk úr Sprotasjóði mennta- og menningarmálaráðuneytisins eins og komið hefur fram hér á dagskráin.is.
Markmið verkefnisins er að efla þekkingu kennara leikskólans á rökhugsun, talnaskilningi og rýmis... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samvinnu-framhaldsskola-a-nordurlandi-frestad | Samvinnu framhaldsskóla á Norðurlandi frestað
Vegna þess að breytingar á skóladagatali Menntaskólans á Akureyri hafa ekki náðst í gegn í menntamálaráðuneytinu verður ekkert af samvinnu menntaskóla á Norðurlandi eins og gert var ráð fyrir á næsta skólaári.
„Það var ekki búið að útvega það fjármagn sem þarf til að breyta... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gonguleidur-um-krossanesborgir | Gengið um Krossanesborgir
Að ganga um Krossanesborgir er alveg dýrðlegt. Það er búið að leggja þar góða göngustíga við allra hæfi. Það þarf ekki að fara lengra til að komast í nálægð við felst það sem náttúran hefur upp á að bjóða. Fjölbreytt fuglalíf, fjölbreyttan gróður og margvísleg jarðfræðileg fyrirbrigði. Krossan... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/starfsstod-glofa-a-akureyri-lokad | Starfsstöð Glófa á Akureyri lokað
Fyrirtækið Glófi ehf. áætlar að leggja niður starfsstöð sína á Akureyri á næstu vikum, samkvæmt áreiðanlegum heimildum Vikudags. Eftir því sem blaðið kemst næst hefur fyrirtækið átt undir högg að sækja vegna innflutnings á ullarvörum frá Asíu og er verið að bregðast við erfiðri stöðu á... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akvad-ad-elta-drauminn | Ákvað að elta drauminn
Lára Sóley Jóhannsdóttir, Bæjarlistamaður Akureyrar 2015-2016, vill þakka fyrir sig með því að efna til tónleika í Akureyrarkirkju miðvikudaginn 20. apríl næstkomandi. Þar mun Lára bjóða bæjarbúum og öðrum gestum til tónlistarveislu.
Lára Sóley er sjálfstætt starfandi tónlistarmaður og segist ver... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/buist-er-vid-versnandi-vedri | Búist er við versnandi veðri
Veður fer versnandi, fyrst á Vestfjörðum og almennt á Norðurlandi þegar líður á morguninn.
Það hvessir af norðri víðast hvar á landinu þegar líða fer á daginn, víða 13-23 m/s síðdegis, hvassast nyrst, en 18-25 SA- og A-lands í kvöld. Búast má við slyddu og síðar snjókomu á norðurhelmingi la... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/enginn-titill-4 | Samstarf um Sjávarútvegsskólann
Háskólinn á Akureyri ritaði í gær undir samstarfssamning um aðkomu að Sjávarútvegsskólanum. Hann hefur verið starfræktur á Neskaupstað síðustu þrjú sumur. Síldarvinnslan, Fjarðarbyggð og fleiri fyrirtæki á Austurlandi starfrækja skólann. Markmiðið með skólanum er að vekja áhuga á sjávarú... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rekstur-akureyrarbaejar-vidunandi | Rekstur Akureyrarbæjar viðunandi
Ársreikningar Akureyrarbæjar fyrir árið 2015 hafa verið lagðir fram í bæjarráði. Fram kemur að heilt yfir hafi reksturinn verið viðunandi og rekstrarafgangur meiri en gert var ráð fyrir. Mest munar þar um sölu Norðurorku á hlut sínum í Þeistareykjum ehf en á móti kemur að rekstur aðalsj... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/a-leikskolanum-idavelli-raedur-margbreytileikinn-rikjum | Á leikskólanum Iðavelli ræður margbreytileikinn ríkjum
Leikskólinn Iðavöllur á Akureyri hlaut nýverið styrk úr Sprotasjóði mennta- og menningarmálaráðuneytisins eins og komið hefur fram hér á dagskráin.is. Um er að ræða styrk sem nemur 2,3 milljónum króna til að koma í framkvæmd verkefninu: „Það er leikur að læra íslen... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/afram-motmaelt-a-akureyri | Áfram mótmælt á Akureyri
Akureyringar halda áfram að mótmæla ríkisstjórninni og boða til mótmæla á morgun, laugardaginn 16. apríl kl. 14. Áætlað er að hittast fyrir framan Samkomuhúsið og ganga niður á Ráðhústorg til að hlýða á erindi og tónlist.
"Við mótmælum aukinni siðspillingu og spilltu stjórnvaldi og við trúum á ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hrein-adfor-ad-hestamennsku-a-landinu | „Hrein aðför að hestamennsku á landinu“
Hestamannafélagið Léttir á Akureyri gagnrýnir harðlega þá ákvörðun Landssambands hestamannafélaga (LH) um að landsmót hestamanna 2020 og 2022 verði haldin á Suðurlandi. Í ályktun frá félaginu segir að með þessari ákvörðun sé stjórn LH að ákveða að þrjú landsmót í röð, 2018-2020 o... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samkomulag-um-studning-vid-tonlistarnam | Samkomulag um stuðning við tónlistarnám
Markmið samkomulagsins er að gera nemendum kleift að stunda hljóðfæranám á framhaldsstigi og söngnám á mið- og framhaldsstigi óháð búsetu.
Markmið samkomulagsins er að gera nemendum kleift að stunda hljóðfæranám á framhaldsstigi og söngnám á mið- og framhaldsstigi óháð búsetu. Ma... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hollvinasamtok-sak-afhentu-nyja-ondunarvel | Hollvinasamtök SAk afhentu nýja öndunarvél
Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) afhentu í dag 14. apríl nýja öndunarvél fyrir gjörgæsludeildina á Sak sem kostaði um 9 milljónir króna. Það eru því þrjár nýjar öndunarvélar á sjúkrahúsinu í dag. Fyrr á þessu ári afhentu samtökin 10 rúm á geðdeild sjúkrahússins að... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sitthvad-i-skarpi-i-dag | Sitthvað í Skarpi í dag
Þingeyska héraðsfréttablaðið Skarpur kemur að venju út í dag. Í blaðinu er fjallað um útboð Landsnets vegna Þeistareykjalínu og Kröflulínu. Hinn eini sanni Völsungur að eðli, ætt og upplagi er kynntur til sögunnar. Rætt er við dömur úr Stúlknakór Húsavíkur um tónleikahald og Danmerkurferð. Málef... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ronja-raeningjadottir-i-skulagardi-i-kvold | Ronja ræningjadóttir í Skúlagarði í kvöld!
Í dag, fimmtudaginn 14. apríl, kl 19:30 og síðan sunnudaginn 17. apríl kl 15:00, stígur stoltur hópur nemenda Öxarfjarðarskóla á svið í Skúlagarði í Kelduhverfi með eitt stórt sameiginlegt verkefni, Ronju ræningjadóttur eftir Astrid Lindgren. Það er Hrund Ásgeirsdóttir sem lei... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hjukrunarfraedingar-a-sak-segja-upp-vegna-oanaegju | Hjúkrunarfræðingar á SAk segja upp vegna óánægju
Fjórir af fimm bráðahjúkrunarfræðingum á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) hafa sagt upp störfum vegna óánægju með ráðningarferli nýs forstöðuhjúkrunarfræðings í byrjun ársins og sá fimmti hefur óskað eftir leyfi. Um reynslumikla hjúkrunarfræðinga er að ræða se... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kalkunabollur-ostakaka-og-kjuklingasalat | Kalkúnabollur, ostakaka og kjúklingasalat
Kalkúnabollur, ostakaka og kjúklingasalat Thelma Snorradóttir sér um matarkrók vikunnar og kemur hér með nokkra úrvalsuppskriftir.
Kalkúnahakkbollur
600 g kalkúnahakk (fæst í Nettó)
Ca. 4-8 jalapenohringir frá Casa Fiesta
2 msk. vökvi úr jalapenokrukkunni
3-4 rif af hvítlauk
1 ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vikudagur-i-dag-17 | Vikudagur í dag
Í Vikudegi sem kemur út í dag er m.a. að finna ítarlegt viðtal við Láru Sóleyju Jóhannsdóttur, bæjarlistamann Akureyrarar 2015-2016 og tónlistarkonu, sem spjallar um lífið í tónlistinni og fjölskylduna.
-Hjúkrunarfræðingar bráðamóttöku á Sjúkrahúsinu á Akureyri hafa sagt upp vegna óánægju.
-Starfsstöð r... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjolbreytt-og-skemmtileg-menningarverkefni | FJÖLBREYTT OG SKEMMTILEG MENNINGARVERKEFNI
Stjórn Akureyrarstofu tók fyrir á dögunum fjölda umsókna um styrki úr Menningarsjóði og Húsverndarsjóði. Hátt í þrjátíu spennandi menningarverkefni fengu verkefnastyrk eða samning við Menningarsjóð og einnig voru tveir styrkir veittir úr Húsverndarsjóði. Mikil fjölbreyttni ein... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hefja-undirbuning-a-rekstri-hlidarfjalls-til-einkaadila | Hefja undirbúning á rekstri Hlíðarfjalls til einkaaðila
Bæjarráð Akureyrar hefur formlega samþykkt að íþróttafulltrúi hefji undirbúning að því að útvista rekstur skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli til einkaaðila. Á fundi bæjarráðs Akureyrar fyrir páska var tekið undir þá ósk íþróttaráðs bæjarins að fela forstöðumanni íþrótt... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/topp-5-listinn-kvikmyndatonlist | Topp 5 listinn: Kvikmyndatónlist
Topp 5 listi vikunnar er grjótharður, við gefum topplistamanninum orðið:
Ég heiti Brynjólfur Þór Guðmundsson og flutti til Akureyrar um áramót til að leysa Freyju Dögg Frímannsdóttur af sem svæðisstjóri RÚV. Rétt tæpra átta ára fór ég í fyrsta skipti á völlinn um það leyti sem ÍA varð Í... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fe-i-skattaskjolum-er-i-besta-falli-sidlaust-eining-idja | Fé í skattaskjólum er í besta falli siðlaust: Eining-Iðja
Eftirfarandi ályktun var samþykkt með lófaklappi á aðalfundi Einingar-Iðju í gær:
Baráttan gegn skattaskjólum er alþjóðleg barátta fyrir sanngirni, jöfnuði og velferð
Heildarsamtök launafólks á Íslandi hafa barist í heila öld fyrir bættum kjörum og betri lífsgæð... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/humar-i-hvitlaukssmjori-grafin-gaes-og-marengsterta | Humar í hvítlaukssmjöri, grafin gæs og marengsterta.
Tinna Lóa Ómarsdóttir svæðissölustjóri hjá MS á Akureyri er með matarkrók vikunnar og töfrar hér fram girnilegar uppskriftir sem er tilvalið að skella í.
Forréttur:
Grafin gæsabringa
Grafin gæsabringa, krydduð t.d. með salti, pipar, oregano, timian, rósmarin eða því ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lax-kjuklingur-og-marens-med-sitronurjoma | Lax, kjúklingur og marens með sítrónurjóma
Tinna Jónsdóttir, ljósmóðir á Akureyri, sér um matarkrók vikunnar og kemur hér með nokkrar úrvalsuppskriftir.
Laxafrauð með gúrkusósu Þetta frauð kemur upphaflega frá ömmu minni heitinni Þóru Sigurðardóttur og er vinsæll hátíðarforréttur í minni fjölskyldu.
Laxafrauð: 150 g re... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/adalfundur-einingar-idju-2016-umfjollun | Aðalfundur Einingar-Iðju 2016 - umfjöllun
Fjölmennur aðalfundur Einingar-Iðju var haldinn í Menningarhúsinu HOFI á Akureyri í gær, þriðjudaginn 12. apríl. Á fundinum var farið yfir ársreikninga félagsins og einnig voru kosnir 37 fulltrúar Einingar-Iðju á ársfund Stapa. Í skýrslu stjórnar fjallaði Björn Snæbjörnsson, fo... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/12-dogum-baett-vid-grasleppuvertidina | 12 dögum bætt við grásleppuvertíðina
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur ákveðið að fjölga dögum við grásleppuveiðar úr 20 í 32 með reglugerð sem gefin var út í gær 12. apríl. Þar með verða veiðidagar jafnmargir og þeir voru í fyrra, en þá veiddust um 6.400 tonn af grásleppu. Dagafjöldinn nú er miðaður við að lí... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/volsungur-vard-89-ara-i-dag | Völsungur varð 89 ára í dag
Íþróttafélagið Völsungur á afmæli í dag og er 89 ára gamalt. Félagið var stofnað 12. apríl 1927 og fór í sína fyrstu keppnisferð 19. apríl sama ár þegar keppt var við Reykdæli í knattspyrnu.
Í tilefni dagsins var boðið í kaffi og léttar veitingar á Grænatorgi, félagsaðstöðu íþróttafélagsins ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/niu-af-hundradi-10-bekkinga-hafa-skrad-sig-i-framhaldsskola | Níutíu af hundraði 10. bekkinga hafa skráð sig í framhaldsskóla
Forinnritun í framhaldsskóla á haustönn 2016 lauk á miðnætti 10. apríl. Umsóknir bárust frá 90% nemenda úr 10. bekkjum grunnskóla landsins. Nemendur sem vilja breyta umsóknum sínum geta gert það á tímabilinu 4. maí til 10. júní. Ef engra breytinga er þörf ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thankastrik-eipa-ad-fa-hus-en-ekki-fiskabur | Þankastrik Eipa: Að fá hús en ekki fiskabúr
Hver elskar ekki að flytja? Ég er einmitt að standa í þessu núna, bý reyndar í kjallaranum hjá mömmu og pabba með alla fjölskylduna, konu og tvo virka stráka (2 og 4 ára) á meðan við erum á milli húsnæða.
Við erum í ferli hjá bankanum að reyna sannfæra hann um að lána okkur f... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mun-taka-a-ad-bregdast-vid-vandanum | „Mun taka á að bregðast við vandanum“
Þuríður Helga Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar (MAk), segir í samtali við Vikudag að ekki sé búið að ákveða hvernig brugðist verður við fjárhagsvandræðum félagsins. Unnið sé að því að greina vandann. Bæjarráð Akureyrarbæjar samþykkti á fundi sínum nýverið... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/saelusapum-veitt-hvatningarverdlaun | Sælusápum veitt hvatningarverðlaun
Aðalfundur Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga var haldinn í gær 11. apríl í Skúlagarði. Auk venjulegra aðalfundarstarfa stóð Atvinnuþróunarfélagið fyrir málþingi um jarðhitaauðlindir við Öxarfjörð og fjölnýtingu jarðhita sem tókst með miklum ágætum.
Frá árinu 2002 hefur verið hefð fyrir ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/volsungur-89-ara | Völsungur 89 ára
Þriðjudaginn 12. apríl á Völsungur 89 ára afmæli. Af því tilefni mun íþróttafélagið bjóða upp á kaffi og léttar veitingar á Grænatorgi, félagsaðstöðu Völsungs í íþróttahöllinni, á milli 10:00 og 12:00 þriðjudaginn 12. apríl. Völsungar sem og bæjarbúar allir er velkomnir. (Völsungur.is) |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.