Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.vikubladid.is/is/frettir/undarlegur-timi-frekar-en-erfidur
„Undarlegur tími frekar en erfiður Snorri Óskarsson, kenndur við Betel hefur lengi verið umdeildur en Snorri er landsþekktur fyrir að fordæma það sem hann telur synd. Þegar hann flutti til Akureyrar risu upp háværar raddir gegn honum. Nýlega vann Snorri mál gegn Akureyrarbæ fyrir Hæstarétti en Snorra var vikið frá stör...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarfulltruum-verdi-fjolgad-um-fjora
Bæjarfulltrúum verði fjölgað um fjóra Vinnuhópur um íbúalýðræði og gagnsæa stjórnsýslu á Akureyri hefur skilað af sér tillögum en hópurinn var var skipaður í febrúar í fyrra. Verkefni hópsins var að koma fram með tillögur um það hvernig hægt sé að stíga virk og hröð skref í átt að íbúalýðræði og gagnsærri stjórnsýslu í...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skarpur-kemur-a-gotuna-i-dag
Skarpur kemur á götuna í dag Héraðsfréttablaðið Skarpur, kemur að venju út í dag og mun eins og aðrir Norðlendingar baða sig í vetrarsólinni sem brosir nú af bláum himni. Í blaðinu er hitt og þetta að lesa og skoða. Fjallað er um konur í ráðum og nefndum Norðurþings, en konur eru formenn í fjórum af sex aðalnefndum sve...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heimstonlisti-i-hofi
Heimstónlist í Hofi „Sinfóníuhljómsveit Norðurlands fer nú í annað sinn á einu ári í samstarf við erlenda listamenn á heimsmælikvarða. Síðast var það GENESIS-kempan Steve Hackett og nú Finnska þjóðlagasveitin Värttinä,“ segir í tilkynningu frá Menningarfélagi Akureyrar. Värttinä og SinfoniaNord spila í Hofi á sunnudagi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vikudagur-i-dag-11
Vikudagur í dag Snorri í Betel vann mál gegn Akureyrarbæ fyrir Hæstarétti fyrir skemmstu en Akureyrarbær sagði Snorra upp störfum sem kennara við Brekkuskóla eftir umdeild skrif Snorra um samkynhneigð á bloggsíðu hans. Snorri ræðir dómsniðurstöðuna, orðin sem iðulega verða umdeild og hann sjálfan. Vinnuhópur um bætt lý...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nemendafelag-vma-segir-brotid-a-keppendum-og-dregur-sig-ur-songkeppni
Nemendafélag VMA segir brotið á keppendum og dregur sig úr söngkeppni Vegna breytinga á Söngkeppni framhaldsskólanna ár frá ári hefur Þórduna, nemendafélag Verkmenntaskólans á Akureyri ákveðið að draga sig úr keppninni. Í yfirlýsingu á heimasíðu félagsins segir að nemendafélagið sé sérstaklega ósátt með núverandi breyt...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vilja-aukid-oryggi-fyrir-bornin
Vilja aukið öryggi fyrir börnin Markus Meckl, íbúi við Fróðssund á Oddeyrinni á Akureyri, hefur safnað rúmlega hundrað undirskriftum frá íbúum á Eyrinnar og þeim sem eiga börn á Iðavöllum og í Oddeyrarskóla. Þar sem farið er á leit við skipulagsnefnd Akureyrarbæjar að tekið verði til athugunar að þrengja Glerárgötu mil...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haettur-sem-forstodulaeknir-eftir-32-ar-i-starfi
Hættur sem forstöðulæknir eftir 32 ár í starfi Sigmundur Sigfússon hefur látið af störfum sem forstöðulæknir geðlækninga við Sjúkrahúsið á Akureyri eftir 32 ár í starfi. Þann 1. janúar sl. tók Helgi Garðar Garðarsson við sem forstöðulæknir og samdi til 5 ára. Sigmundur hættir sökum aldurs en hann komst á fullan eftirla...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leggjast-alfarid-gegn-faekkun-bilastaeda
Leggjast alfarið gegn fækkun bílastæða Miðbæjarsamtökin á Akureyri mótmæla því að bílastæðum í miðbænum fækki frá því sem nú er. Breyting á deiliskipulagi var auglýst frá 22. desember 2015 með athugasemdafresti til 3. febrúar 2016 en nýtt deiliskipulag gerir ráð fyrir fækkun bílastæða. Í bréfi frá Miðbæjarsamtökunum, s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ruv-flytur-i-gamla-zion-husid
RÚV flytur í gamla Zion húsið Svæðisstöð RÚV á Norðurlandi mun flytja í húsnæði við Hólabraut 13 eða gamla Zion húsið á Akureyri á næstu vikum en RÚV hefur verið í húsnæði Háskólans á Akureyri á Sólborg frá árinu 2010. Að sögn Brynjólfs Þórs Guðmundssonar, starfandi svæðisstjóri RÚV á Norðurlandi, er ástæða flutningana...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hjolastolafaer-skogarstigur-vid-kristnesspitala
Hjólastólafær skógarstígur við Kristnesspítala Í sumar verður lokið við 330 metra langan malbikaðan stíg í Kristnesskógi í Eyjafirði sem hafist var handa við á liðnu hausti. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið veitti á dögunum styrk sem nægir til að ljúka verkinu en styrkir til verkefnisins nema alls 4,4 milljónir króna. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kvenfelogin-burdarstolpar-i-samfelaginu-vid-oxarfjord
Kvenfélögin burðarstólpar í samfélaginu við Öxarfjörð Þann 1. febrúar var dagur kvenfélaganna á Íslandi. Í áraraðir hafa kvenfélögin í hinu dreifbýla og víðfeðma samfélagi við Öxarfjörð látið gott af sér leiða. Að sögn Guðrúnar S. Kristjánsdóttur, skólastjóra Öxarfjarðaskóla, hafa kvenfélögin í skólasamfélagi Öxarfjarð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/provincetown-i-usa-vill-vingast-vid-nordurthing
Provincetown í USA vill vingast við Norðurþing Fram hefur komið áhugi frá smábænum Provincetown í Massachusetts í Bandaríkjunum að gerast vinabær Húsavíkur og sveitarfélagsins Norðurþings. Málið var rætt á síðasta fundi tómstunda- og æskulýðsnefndar Norðurþings sem fer með vinabæjarsamskipti sveitarfélagsins, og þar ko...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tekst-a-vid-kvidann
Tekst á við kvíðann Freyja Steindórsdóttir er 17 ára menntaskólanemi á Akureyri sem leitar að skemmtilegum leiðum til að takast á við kvíða í daglegu lífi. Hún greindist með almenna kvíðaröskun í fyrra og hefur skrifað opinskátt um veikindinn á vefnum kvidi.is. Freyja er alin upp í Hong Kong og ræddi við blaðamann Viku...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sja-rodann-i-vestri
Sjá roðann í vestri... Þessa bráðskemmtilegu og raunar táknrænu mynd af roðanum í vestri yfir húsunum á Brávöllum á Húsavík, tók Sigfús Sigfússon, Þráinssonar, Kristjánssonar. Þeir sem þarna bjuggu, á Rauða Torginu á Húsavík, sungu örugglega oft baráttusönginn þar sem segir: „Sjá roðann í austri! Hann brýtur sér braut!...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/engir-stjornustaelar-i-supermann
Engir stjörnustælar í Súpermann Undanfarin þrjú ár hefur Ingi Freyr Sveinbjörnsson ferðast um heiminn og sýnt listir sínar á snjóskautum. Í fyrra tók hann fyrst þátt í breska raunveruleikaþættinum Jump sem sýndir eru um allan heim á Channel 4. Þar er Ingi Freyr í hlutverki þjálfara og kennir frægu fólki að standa á ska...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/asgrimur-fra-laekjarvollum-hlaut-hvatningarbikar-if
Ásgrímur frá Lækjarvöllum hlaut Hvatningarbikar ÍF Opna Húsavíkurmótið í Boccia sem orðinn er fastur liður í starfi Boccideildar Völsungs með góðum stuðningi Kiwanisklúbbsins Skjálfanda var haldið í Íþróttahöllinni á Húsavík s.l. sunnudag. Á mótinu var að venju afhentur “Hvatningabikar ÍF” sem hinn öflugi bocciamaður Á...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/verksmidjan-a-hjalteyri-er-handhafi-eyrarrosarinnar-2016
Verksmiðjan á Hjalteyri er handhafi Eyrarrósarinnar 2016 Verksmiðjan á Hjalteyri er listamiðstöð með sýningarsali og gestavinnustofur í gamalli síldarverksmiðju Kveldúlfs við Eyjafjörð. Frá því að nokkrir frumkvöðlar og listamenn tóku sig saman og stofnuðu Verksmiðjuna árið 2008 hefur þar verið haldið úti framsæknu myn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tjon-a-bilum-hefur-aukist-vegna-salts
Tjón á bílum hefur aukist vegna salts Varahlutaverslunum á Akureyri ber saman um að sala á varahlutum í bremsubúnað bíla hafi aukist eftir að Akureyrarbær fór að nota saltblandaðan sand á götum bæjarins. Mikil umræða hefur verið um saltnoktun á göturnar en í byrjun vikunnar fór af stað undirskriftalisti þar sem skorað ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/i-skarpi-sem-kemur-ut-i-dag
Í Skarpi sem kemur út í dag Héraðsfréttablaðið Skarpur, stundum nefnt „blað alls mannkyns,“ kemur út í dag, fimmtudaginn 18. febrúar. Þar er að venju sitt lítið af hverju að lesa og skoða. Fjallað er um snöfurmannleg svör Sparisjóðs Suður-Þingeyinga við umkvörtunum Fjármálaeftirlitsins. Gerð grein fyrir stórtíðindum í ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hradferdir-til-grimseyjar
Hraðferðir til Grímseyjar Hvalaskoðunarfyrirtækið Ambassador mun bjóða upp á hraðferðir til Grímseyjar og yfir norðurheimskautsbauginn allt næsta sumar. Lagt verður upp frá Torfunefsbryggju með leiðsögn um Eyjafjörð. Hvalir verða skoðaðir í firðinum og lundar í Grímsey þann tíma sem þeir eru í eyjunni. Í Grímsey verður...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vikudagur-i-dag-10
Vikudagur í dag Í Vikudegi sem kemur út í dag er að finna bæði áhugaverð viðtöl og fréttir. Ingi Freyr Sveinbjörnsson hefur undanfarið þjálfað stjörnur á snjóskautum fyrir breskan raunveruleikaþátt sem sýndur er á Channel 4. Ítarlegt viðtal er við Inga Frey um þetta óvænta ævintýri hans. Fjallað er um saltið sem notað ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oldungarad-tekid-til-starfa
Öldungaráð tekið til starfa Öldungaráð Akureyrar fundaði í fyrsta sinn á dögunum en ráðið er skipað þremur fulltrúum frá Félagi eldri borgara á Akureyri og tveim fulltrúum úr bæjarstjórn. Hlutverk ráðsins er að vera bæjarstjórn, nefndum og ráðum, til ráðgjafar um málefni og hagsmuni bæjarbúa 60 ára og eldri. Ráðið á st...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-hysi-skrifstofu-althjodlegu-nordurskautsvisindanefndarinnar
AKUREYRI HÝSI SKRIFSTOFU ALÞJÓÐLEGU NORÐURSKAUTSVÍSINDANEFNDARINNAR Ríkisstjórn Íslands ákvað á fundi sínum í gærmorgun, að tillögu forsætisráðherra, að veita fjármagni til reksturs Alþjóðlegu norðurskautsvísindanefndarinnar til næstu 5 ára. Samþykkt var að veita 35 milljónum króna til verkefnisins árlega, sem jafngild...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leigubilstjorar-motmaela-lokun-i-midbae-akureyrar
Leigubílstjórar mótmæla lokun í miðbæ Akureyrar Á síðasta aðalfundi Bifreiðastöðvar Oddeyrar var því mótmælt harðlega að loka Listagilinu og göngugötunni á Akureyri, „í tíma og ótíma, án samráðs við hagsmunaaðila eins og leigubílstjóra sem þurfa að komast að hótelum og gistiheimilum. Við sjáum ekki hvað umferð leigubíl...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hollvinir-sak-fjarmagna-kaup-a-nyrri-ondunarvel
Hollvinir SAk fjármagna kaup á nýrri öndunarvél Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) munu fjármagna kaup á öndunarvél fyrir gjörgæsludeildina á SAk. Tækið kostar um 9 milljónir króna en aðeins er liðinn tæpur mánuður frá því að samtökin afhentu tíu rúm á geðdeild sjúkrahússins að andvirði rúmar 7 milljónir. Me...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skolahald-fellur-nidur-vegna-vedurs
Flutningabíll fauk útaf veginum Ekkert ferðaveður er á skólasvæði Þelamerkurskóla nú í morgunsárið og spár benda til þess að þannig verði það alla vega fram að hádegi. Af þeim sökum verður ekkert skólahald í Þelamerkurskóla í dag, segir á heimasíðu skólans. Einnig fellur niður skólahald í Hlíðarskóla við Akureyri. Þá g...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/segja-saltnotkun-overulega-a-gotum-akureyrar
Saltnotkun óveruleg á götum Akureyrar Í frétt á vef Akureyrarbæjar segir að saltmagn á götum bæjarins sé óverulegt og kostir við saltnoktun séu fleiri en gallarnir. Eins fram kom í frétt Vikudags fyrr í dag og má sjá hér stendur yfir undirskriftasöfnun þar sem skorað er á Akureyrarbæ að hætta að salta götur og nota fre...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vilji-saltid-burt-af-gotum-akureyrarbaejar
Vilja saltið burt af götum Akureyrarbæjar Hafin er undirskriftalisti þar sem skorað er á Akureyrarbæ að hætta að salta bæinn og byrja að sanda. Vill hópurinn sem stendur fyrir undirskriftinni meina að saltið skemmi bílana. "Nú er Akureyrarbær byrjaður að salta götur bæjarins meira en áður en hingað til hefur alltaf ver...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nyr-og-oflugur-drattarbatur-til-akureyrar
Nýr og öflugur dráttarbátur til Akureyrar Hafnasamlag Norðurlands fyrirhugar að kaupa nýjan og öflugan dráttarbát til Akureyrar. Gangi kaupin eftir mun báturinn væntanlega verða afhentur síðla ársins 2017. Báturinn er ríkisstyrktur og í fjárlögum fyrir árið 2016 liggur fyrir samþykki fyrir fyrstu greiðsluna af þremur. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skemmtilegt-textakort-af-husavik
Skemmtilegt textakort af Húsavík Arnór Aðalsteinn Ragnarsson tók sig til á dögunum og bjó til frumlegt og skemmtilegt „textakort“ af Húsavík eða öllu heldur af götunum í póstnúmeri 640. Í textakortum af þessu tagi eru nöfn þeirra og stafir orðanna notaðir til að afmarka fyrirbæri á borð við götur og landamerki og þarf ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tonlistin-ekki-metin-til-fjar
Tónlistin ekki metin til fjár „Tónlistarskólinn hefur líklega aldrei verið sprækari en einmitt nú á þessum tímamótum,“ segir Hjörleifur Örn Jónsson skólastjóri Tónlistarskólans á Akureyri. Skólinn fagnaði 70 ára afmæli sínu í lok janúar og verður tímamótanna minnst með margvíslegum hætti fram eftir vori. Hjörleifur Örn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lh-frumsynir-dyrin-i-halsaskogi
LH frumsýnir Dýrin í Hálsaskógi Leikfélag Húsavíkur frumsýnir Dýrin í Hálsaskógi eftir Torbjörn Egner í Samkomuhúsinu á morgun, sunnudag. Leikstjóri er Jenný Lára Arnórsdóttir. Tónlistarstjóri er Sigurður Illugason og skipar hljómsveitina ásamt Kristjáni Halldórssyni og Adrienne Davis. Alls koma 20 leikarar fram í sýni...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vidbragdsaefing-i-hlidarfjalli
Viðbragðsæfing í Hlíðarfjalli Svokölluð „samæfing viðbragðsaðila“ verður haldin á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli í dag, laugardag kl. 16:00. Að þessari æfingu koma lögreglan, slökkvilið, Landsbjörg, Sjúkrahúsið á Akureyri og starfsfólk Hlíðarfjalls. Æfingin er haldin til að tryggja rétt viðbrögð við snjóflóðum sem hrundið...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/pcc-byrjad-ad-styrkja-samfelagid-a-husavik
PCC byrjað að styrkja samfélagið á Húsavík Bergur Elías Ágústsson, starfmaður PCC Bakki Silicon hf á Húsavík, kom færandi hendi í Sundlaug Húsavíkur s.l. þriðjudag. Hann afhenti Sundlauginni góða gjöf frá fyrirtækinu, flotleiktæki af ýmsum toga, svo sem flotdýnur, sundknattleikskörfur og fleira sem gleður unga sundlaug...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sveitarstjori-nordurthings-ma-stundum-vera-baejarstjori-husavikur
Sveitarstjóri Norðurþings má stundum vera bæjarstjóri Húsavíkur Eftir að innanríkisráðuneytið staðfesti nýjar samþykktir fyrir sveitarfélagið Norðurþing, þá verður bæjarstjórn Norðurþings aftur orðin sveitarstjórn og þar með bæjarstjóri Norðurþings sveitarstjóri á ný. Á síðasta kjörtímabili hafði sveitarstjórn verið br...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leggur-fram-frumvarp-um-sameiningu-thriggja-flugvalla
Leggur fram frumvarp um sameiningu þriggja flugvalla Höskuldur Þór Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins og formaður samgöngunefndar, hyggst leggja að nýju fram frumvarp á Alþingi í næstu viku um að Reykjavíkurflugvöllur, Egilsstaðarflugvöllur og Akureyrarflugvöllur fari undir sama hatt. Frumvarpið var lagt fram f...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/snorri-i-betel-hafdi-betur-gegn-akureyrarbae
Snorri í Betel hafði betur gegn Akureyrarbæ Hæstiréttur dæmdi í dag Snorra Óskarssyni, oftast kenndan við Betel, í vil í máli vegna uppsagnar hans sem grunnskólakennara á Akureyri. Akureyrarbær verður að greiða málskostnað sinn og Snorra. Snorri leitaði til innanríkisráðuneytisins eftir uppsögn sína. Niðurstaða þess va...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/godar-adstaedur-i-hlidarfjalli-og-fritt-fyrir-nemendur
Góðar aðstæður í Hlíðarfjalli og frítt fyrir nemendur Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli er opið í dag frá klukkan 10-19. Í tilkynningu segir að veðurskilyrði séu góð, -4°, logn og fallegt veður. Nú standa yfir skólafrí hjá grunn- og framhaldsskólum Akureyrar og því verður nemendum boðið frítt í skíðalyfturnar í dag og einnig ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyrsk-stuttmynd-synd-a-cannes-kvikmyndahatidinni
Akureyrsk stuttmynd sýnd á Cannes-kvikmyndahátíðinni Stuttmynd unnin í samstarfi Félagsmiðstöðvar Akureyrar og framhaldsskóla í Vesterálen í Noregi verður sýnd á Cannes-kvikmyndahátíðinni í maí nk. en um er að ræða eina virtustu kvikmyndahátíð heims. Í nokkur ár hafa Félagsmiðstöðvar Akureyrar verið í samstarfi við Ves...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baldvin-ringsted-synir-i-listasafninu
Baldvin Ringsted sýnir í Listasafninu Sýning Baldvins Ringsted, Snarstefjun, annar hluti: Bárujárnsárin, verður opnuð í Listasafninu á Akureyri á laugardaginn kemur þann 13. febrúar kl. 15 í Vestursal. Sýningin er framhald á vinnu Baldvins með tónlist og tungumál sem og tilraunir með strúktúr og afbyggingu í málverki. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/grimseyingar-funda-um-framtidina
Grímseyingar funda um framtíðina Íbúaþing verður haldið í Grímsey helgina 20.-21. febrúar þar sem farið verður yfir stöðu mála og framtíðarsýn eyjunnar. Grímsey er hluti af verkefninu „Brothættar byggðir“, en markmiðið með verkefninu er að efla byggð á viðkomandi stað, m.a. að fá fram skoðanir íbúanna sjálfra á framtíð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kynjaverur-a-sveimi
Furðurverur á sveimi Börn á Akureyri vöknuðu snemma í morgun og hafa gengið á milli fyrirtækja og sungið í von um að fá góðgæti að launum. Rík hefð er á Akureyri fyrir því að halda öskudaginn hátíðlegan með þessum hætti og hafa ýmsir kynjaverur sést á sveimi í bænum. Þessir hressu krakkar sungu fyrir starfsfólks Vikuda...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/laeknastofur-akureyrar-faera-starfsemi-sina-a-glerartorg
Læknastofur Akureyrar færa starfsemi sína á Glerártorg Eik fasteignafélag hf. og Læknastofur Akureyrar hafa undirritað leigusamning um hálfa efri hæðina í verslunar- og þjónustumiðstöðinni Glerártorgi á Akureyri. Í fréttatilkynningu segir að samningurinn hafi í för með sér mikla og góða uppbyggingu fyrir Glerártorg. Læ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stefan-gunnlaugsson-latinn
Stefán Gunnlaugsson látinn Stefán Gunnlaugsson, heiðursfélagi KA og fyrrum formaður félagsins, lést í nótt 71 árs að aldri. Stefán var í seinni tíð ötull félagsmaður í Hollvinasamtökum Sjúkrahússins á Akureyri en hann stofnaði félagið ásamt öðrum. Á heimasíða KA segir að Stefán hafi verið KA-maður út í gegn og unnið að...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/brynt-ad-fara-i-umtalsverdar-endurbaetur-i-hlidarfjalli
Brýnt að fara í umtalsverðar endurbætur í Hlíðarfjalli Formleg heimild Akureyrarbæjar til handa Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar til að vinna að úttekt á möguleikum á rekstri Hlíðarfjalls fékkst í október sl. Starfsmenn félagsins höfðu unnið nokkuð að málinu fyrir þann tíma en vinna AFE miðast fyrst og fremst við að ka...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/andlega-heilsan-staersti-sigurinn
Andlega heilsan stærsti sigurinn „Ég var búin að labba á einhvern vegg og vantaði aðstoð til að reyna komast bæði í líkamlegt og andlegt form. Þetta helst mikið í hendur. Ég fann að ég gat ekki gert þetta ein. Ég þekkti einn keppanda í síðustu seríu og hugsaði með mér að ég hefði engu að tapa og sótti um,“ segir Katrín...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bjorn-radinn-til-kea
Björn ráðinn til KEA Björn Gíslason hefur verið ráðinn til starfa hjá KEA en hann mun hafa umsjón með sérhæfðum fjárfestingum fyrirtækisins. Björn er 40 ára gamall sjávarútvegsfræðingur frá Háskólanum á Akureyri en hann er að auki með M.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá sama skóla. Björn hefur hlotið löggildingu sem verðb...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/adilar-i-ferdathjonustu-efli-opnunartima-yfir-veturinn
Aðilar í ferðaþjónustu efli opnunartíma yfir veturinn Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands, segir fólk í ferðaþjónustu á Akureyri þurfi að stíga skrefið í að átt að betri opnunartími yfir veturinn. Í aðsendri grein í síðasta blaði Vikudags hvatti Karl Jónsson, formaður Ferðamálafélags Eyja...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nordlendingar-bednir-ad-hyggja-ad-merktum-svartfuglum
Norðlendingar beðnir að hyggja að merktum svartfuglum Vegna frétta nýverið af svartfugladauða í nágrenni Þórshafnar vill Náttúrustofan Norðausturlands hvetja fólk til að hyggja að fótum svartfugla sem það finnur í fjörum. Unnið hefur verið að rannsóknum á ferðum íslenskra svartfugla utan varptímans í fáein ár en til þe...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heimsmeistaramot-i-freeski-og-fyrsta-islandsmeistaramotid-a-snjobrettum
Heimsmeistaramót í Freeski og fyrsta Íslandsmeistaramótið á snjóbrettum Iceland Winter Games (IWG) verður haldin dagana 24. mars – 3. apríl nk. og er undirbúningur fyrir hátíðina vel á veg kominn. Í tilkynningu frá mótshöldurum segir að á meðal þeirra sem hafa skráð sig til þátttöku á leikunum séu nokkrir af þekktustu ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/10-folksfaekkun-a-kopaskeri-thegar-tvaer-fjolskyldur-flytja
10% fólksfækkun á Kópaskeri þegar tvær fjölskyldur flytja Tvær til þrjár fjölskyldur, samtals 12 manns, eru að flytja búferlum frá Kópaskeri á næstunni og þetta þýðir einfaldlega að þorpsbúum fækkar um heil 10%. Að sögn Jóns Grímssonar, fyrrum bæjarfulltrúa í Norðurþingi, sem búsettur er á Kópaskeri og er þar öllum hnú...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fannfergi-ekki-verid-meira-a-husavik-i-vetur
Fannfergi ekki verið meira á Húsavík í vetur Mönnum ber saman um að ekki verið meiri snjór á Húsavík í vetur en nú í dag eftir stórhríðarveður og hvassviðri í gærkvöldi og nótt. Björgunarsveitarmen voru á þönum í bænum til að aðstoða fólk og sinna verkefnum sem upp komu og stóðu að venju vaktina með heiðri og sóma. Tun...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samradshopur-vegna-flottamanna
Samráðshópur vegna flóttamanna Bæjarráð Akureyrar hefur skipað samráðshóp að ósk velferðarráðuneytisins vegna komu móttöku flóttafólks. Bæjarráð samþykkir að tilnefna Eirík Björn Björgvinsson bæjarstjóra og Sigríði Stefánsdóttur framkvæmdastjóra samfélags- og mannréttindadeildar sem aðalmenn og Kristínu Sóleyju Sigursv...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thetta-er-akvedinn-sigur
„Þetta er ákveðinn sigur" Eyþór Daði Eyþórsson, 15 ára nemandi í Giljaskóla á Akureyri, leikur stórt hlutverk í sýningunni Pílu Pínu í uppsetningu Menningarfélags Akureyrar, en um stærstu sýningu ársins hjá félaginu er að ræða. Þrátt fyrir ungan aldur hefur ýmislegt gengið á í lífi Eyþórs en hann fæddist með margþættan...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyrarbaer-stydur-visindaskolann
Akureyrarbær styður Vísindaskólann Akureyrarbær og Háskólinn á Akureyri hafa skrifað undir samning um styrk til Vísindaskóla unga fólksins. Markmið bæjarins með styrkveitingunni er að styðja við fjölbreytni í tómstundatilboðum til barna og gefa börnum á Akureyri tækifæri til þess að kynnast heimi vísinda og fræða. Vísi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/i-skarpi-i-dag-3
Í Skarpi í dag Skarpur er kominn út í dag og þar er sitthvað forvitnilegt að finna og lesa. Erla Jónsdóttir skrifar stórfróðlega grein um Lauga í Smiðjunni, mann sem setti svip sinn á Húsavík á sínum tíma og upplifði miklar hörmungar erlendis á yngri árum, m.a. í fyrra heimsstríði. Rætt er við Jón Grímsson á Kópaskeri,...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/olidandi-ad-dregid-verdi-ur-oryggi-sjuklinga
Ólíðandi að dregið verði úr öryggi sjúklinga Njáll Trausti Friðbertsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, hóf umræður um sjúkraflugið, Reykjavíkurflugvöll og Landspítalann í bæjarstjórnarfundi sl. þriðjudag. Sagði Njáll í ræðu sinni að róinn sé lífróður í málefnum Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýrinni. Han...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vikudagur-dagins-er-ad-koma-ur-prentun-og-eins-og-alltaf-er-eitt-og-annad-ahugavert-i-bladinu
Vikudagur í dag Aðilar tengdir ferðaþjónustu vilja efla afgreiðslutíma yfir veturinn. Þórunn Egilsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins í NA-kjördæmi, gagnrýnir ákvörðun ISAVIA um breytingar á flugumferðarþjónustu við Akureyrarflugvöll. Hugmyndir eru uppi um Hlíðarfjall sem heilsársviðkomustað. Eyþór Daði Eyþórsson 15 ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sak-hlytur-althjodlega-gaedavottun-a-starfsemi-sinni
SAk hlýtur alþjóðlega gæðavottun á starfsemi sinni Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) hefur hlotið alþjóðlega gæðavottun á starfsemi sinni og er fyrsta heilbrigðisstofnunin á Íslandi til að hljóta slíka vottun. Vottunaraðilinn er alþjóðlega fyrirtækið DNV GL sem er eitt af stærstu fyrirtækjum á þessu sviði í heiminum. SAk er...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sveitarfelog-moti-stefnu-um-medhondlun-urgangs
Sveitarfélög móti stefnu um meðhöndlun úrgangs Bæjarstjórn Akureyrar leggur til að haldin verði ráðstefna á vegum Eyþings og SSNV í framhaldi af útgáfu Svæðisáætlunar um meðhöndlun úrgangs á Norðurlandi 20152026. Bæjarstjórn Akureyrar lýsir ánægju sinni með gerð áætlunarinnar sem er skýr viljayfirlýsing um frekara sams...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stjornvold-vidhaldi-nuverandi-notagildi-reykjavikurflugvallar-fyrir-sjukraflug
Stjórnvöld viðhaldi núverandi notagildi Reykjavíkurflugvallar fyrir sjúkraflug Stjórnarmenn í framkvæmdastjórnum heilbrigðisstofnananna áNorðurlandi skrifa grein í Vikudag þar sem skorað er á stjórnvöld að viðhalda núverandi notagildi Reykjavíkurflugvallar fyrir sjúkraflug þar til annar sambærilegur valkostur stendur t...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjolbreytileikanum-fagnad-a-amtinu
Fjölbreytileikanum fagnað á Amtinu Í febrúar verður fjölbreytileikanum fagnað á Amtsbókasafninu á Akureyri og mánuðurinn tileinkaður hinum ýmsu tungumálum sem Akureyringar tala og fleirum til. Sýndar verða þýðingar á sögu Andra Snæs Magnasonar um Bláa hnöttinn en sagan hefur verið þýdd á yfir 30 tungmál. Mismunandi útg...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/alvarlegt-mal-ad-akureyrarbaer-hafi-ekki-husnaedi-i-bodi-fyrir-framhaldsskolanemendur
„Alvarlegt mál að Akureyrarbær hafi ekki húsnæði í boði fyrir framhaldsskólanemendur „Mér finnst mjög alvarlegt mál að Akureyrarbær hafi ekki húsnæði í boði fyrir framhaldsskólanemendur til að setja upp leiksýningar,“ segir Pétur Guðjónsson viðburðastjóri á Akureyri. Eins og fjallað var um í síðasta blaði Vikudags verð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/forrettindi-ad-fa-ad-kynnast-thessu-folki
"Forréttindi að fá að kynnast þessu fólki" Jón Óðinn Waage flutti út til Svíþjóðar ásamt konunni sinni, Ingu Björk Harðardóttur, í byrjun september síðastliðinn í leit að betra lífi. Þau búa í smábæ í Mið-Svíþjóð. Ódi, eins og hann er jafnan kallaður, stundar nám í sænsku en meirihluti bekkjarfélaga hans eru flóttamenn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vistvaen-bilastaedi-vid-ha
Vistvæn bílastæði við HA Fyrstu vistvænu bílastæðin við Háskólann á Akureyri voru formlega tekin í notkun sl. þriðjudag. Óskar Þór Vilhjálmsson hjá Kennslumið stöðinni lagði fyrstur manna í stæðin og í kjölfarið fór rektor HA stuttlega yfir sögu og tilgang verkefnisins. Vistvænu stæðin eru ætluð fyrir ökutæki sem geta ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lyftir-taeplega-tonni
Lyftir tæplega tonni Það þurfti 120 kílóa kraftlyftingamann til að rjúfa áratuga einokun kvenna á titlinum Íþróttamanni ársins á Akureyri. Viktor Samúelsson úr KFA var kjörinn íþróttamaður Akureyrar árið 2015 en hann á einstakt ár að baki í íþróttinni. Hann vann það afrek í haust að verða yngstur Íslendinga til að lyft...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/anaegdir-eldri-borgarar-i-snaelandi
Ánægðir eldri borgarar í Snælandi Félag eldri borgara á Húsavík og nágrenni tók í notkun nýja félagsaðstöðu í Snælandi á bóndadaginn, 22. janúar s.l. Áður var félagið með aðstöðu í Bjarnahúsinu, sem var fremur óhentug, ekki síst hvað aðgengi varðar. Neðri hæðin í Snælandi er í eigu Sjálfsbjargar, Norðurþing hefur leigt...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fundu-ser-tima-til-ad-tengja-med-skridjoklum
Fundu sér tíma til að tengja með Skriðjöklum Þeir hittust á Húsavík á dögunum, gömlu félagarnir Bjarni Hafþór Helgason frá Grafarbakka og Kristján Svavarsson úr Vegamótum og var auðvitað menningarviðburður. Kristján býr enn á staðnum en Hafþór brotthlaupinn þaðan fyrir alllöngu. Sá síðarnefndi var að heimsækja ættingja...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hugleiding-um-skipulag-og-honnun
Hugleiðing um skipulag og hönnun Þriðjudaginn 2. febrúar kl. 17 heldur Árni Árnason innanhúsarkitekt fyrirlestur í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi undir yfirskriftinni Hugleiðing um skipulag og hönnun. Þar mun hann fjalla um skipulag frá sjónarhóli neytandans og einnig eigin hönnun á liðnum árum. Árni Árnason er úts...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/onaedi-vegna-hunda-ad-hrekja-fjolskyldu-i-burtu
Ónæði vegna hunda að hrekja fjölskyldu í burtu Par með tvö ung börn í tvíbýli á Akureyri hefur orðið fyrir miklum óþægindum og truflunum vegna fjölda hunda frá nágrönnunum. Parið, sem vill ekki koma fram undir nafni, segir nágrannana brjóta lög um fjölda dýra og þrátt fyrir ítrekaðar kvartanir við bæjaryfirvöld hefur e...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fraendsystkini-i-forsetaframbod
Frændsystkini í forsetaframboð? Fram hefur komið að Linda Pétursdóttir er að íhuga að fara í framboð til embættis forseta Íslands, enda hafi ýmsir hvatt hana til að gefa kost á sér. Linda er ættuð úr Flatey á Skjálfanda og frá Húsavík þar sem hún sleit barnsskónum. Hrannar Pétursson, sem fæddist og ólst upp á Húsavík, ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/afram-heitur-matur-i-hrisalundi
Áfram heitur matur í Hrísalundi Eins og Vikudagur hefur greint frá mun Nettó verslun í Hrísalundi verða opnuð í febrúar þar sem áður var rekin Samkaup Úrval búð. Í tilkynningu frá Samkaupum segir að einnig verði Ellos sérvöruverslun opnuð á neðri hæð sama húsnæðis. Nettó verslunin verður byggð upp í sama stíl og aðrar ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nordurthing-forseti-baejarstjornar-haettir-og-flytur-til-akureyrar
Norðurþing: Forseti bæjarstjórnar hættir og flytur til Akureyrar Friðrik Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar Norðurþings og oddviti Sjálfstæðisflokksins sem skipar meirihlutann í bæjarstjórn ásamt Vinstri grænum, hefur tilkynnt félögum sínum þar að hann muni hætta störfum sem bæjarfulltrúi á næstunni af persónulegum ástæ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ma-ad-rjufa-86-ara-gamla-hefd
MA að rjúfa 86 ára gamla hefð Stjórn Menntaskólans á Akureyri stefnir á að breyta skólaárinu næsta haust. Ætlunin er að skólinn hefjist í lok ágúst, reglulegum prófum haustannar ljúki í desember og reglulegum prófum vorannar ljúki í byrjun júní. Brautskráning verður eftir sem áður 17. júní. Málið var rætt á starfsmanna...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/i-skarpi-i-dag-2
Í Skarpi í dag Skarpur kemur að venju út í dag. Í blaðinu er ítarleg grein um áform Gb5 ehf sem tengjast styrkingu miðbæjarins á Húsavík með uppbyggingu þar, en þessum áformum hefur nú verið slegið á frest. Rætt er við Friðrik Sigurðsson, bóksala og forseta bæjarstjórnar Norðurþing, sem er að flytja til Akureyrar innan...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ithrottafraedi-i-bodi-vid-haskolann-a-akureyri
Íþróttafræði í boði við Háskólann á Akureyri Endurskoðun á kennaranámi við Háskólann á Akureyri er á lokastigi. Í kjölfarið er ætlunin að fjölga raunverulegum námskostum. Kjörsvið í fimm ára kennaranámi skólans verða því framvegis þrjú, leikskólakjörsvið, grunnskólakjörsvið og íþróttafræði. Íþróttafræðikjörsviðið er ný...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vikudagur-i-dag-9
Vikudagur í dag Í Vikudegi sem kemur út í dag er farið um víðan völl og áhugaverðar fréttir í bland við viðtöl og annað efni. Stefnt er að sögulegum breytingum á skólahaldi Menntaskólans á Akureyri næsta haust en málið var rætt á starfsmannafundi í gær. Pétur Guðjónsson, viðburðarstjóri á Akureyri, segir alvarlegt mál ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nyr-framkvaemdastjori-mak
Nýr framkvæmdastjóri MAk Menningarfélag Akureyrar hefur ráðið Þuríði Helgu Kristjánsdóttur í starf framkvæmdastjóra. Þuríður hefur starfað sem mannauðs- og verkefnastjóri hjá Norræna húsinu undanfarin átta ár. Þar annaðist hún verkefnastjórn smárra og stórra viðburða, fjárhagsáætlanagerð, mannauðsstjórnun og stefnumótu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/adgerdarhopur-um-framtidarrekstur-akureyrarbaejar
Aðgerðarhópur um framtíðarrekstur Akureyrarbæjar Á fundi bæjarráðs Akureyrar 7. Janúar sl. var stofnaður sérstakur aðgerðarhópur um framtíðarrekstur Akureyrarbæjar. Í hópnum eiga sæti oddvitar allra flokka í bæjarstjórn ásamt bæjarstjóra og fjármálastjóra bæjarins. Að auki vinnur Magnús Kristjánsson sérfræðingur hjá KP...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/radinn-forseti-heilbrigdisvisindasvids-vid-ha
Ráðinn forseti heilbrigðisvísindasviðs við HA Dr. Eydís Kristín Sveinbjarnardóttir hefur verið ráðinn sem forseti heilbrigðisvísindasviðs við Háskólann á Akureyri. Eydís Kristín verður í hlutastarfi í janúar og febrúar en tekur formlega við af dr. Árúnu K. Sigurðardóttir 1. mars n.k. Fram að þeim tíma sinnir Árún störf...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skattafrodleikur-kpmg
Skattafróðleikur KPMG Skattafróðleikur KPMG á morgun fimmtudag á Strikinu – skráning á kpmg.is Á hverju ári eru gerðar fjölmargar breytingar á skattkerfi okkar og því skiptir miklu máli fyrir alla sem koma að bókhaldi og/eða rekstri fyrirtækja að fá upplýsingar um hvort og þá hvernig viðkomandi breytingar geta haft áhr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/volundarhus-plastsins
Völundarhús plastsins Laugardaginn 30. janúar kl. 15 verður opnuð í Listasafninu á Akureyri, Vestursal sýning Jonnu – Jónborgar Sigurðardóttur Völundarhús plastsins. Sýningin er innsetning sem á að gera áhorfendur meðvitaða um umhverfisáhrif plastnotkunar. Undanfarin ár hefur Jonna unnið ýmis verk innblásin af ofneyslu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tok-matarhle-a-midjum-aefingum
Tók matarhlé á miðjum æfingum Hann fékk snemma áhuga á líkamsrækt og er margfaldur Íslands- og bikarmeistari í bæði fitness og vaxtarrækt. Arnar Grant hefur í nógu að snúast þessa fyrstu daga ársins við að leiðbeina fólki í að komast í gott form en hann hefur verið uppbókaður í 14 ár eða síðan árið 2002. Vikudagur spja...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vilja-vidraedur-vid-rikid-um-framtidarrekstur-oldrunarheimila-akureyrar
Vilja viðræður við ríkið um framtíðarrekstur Öldrunarheimila Akureyrar Bæjarstjórn Akureyrar lagði fram bókun á bæjarstjórnarfundi í vikunni þar sem lagt er áhersla á að þegar í stað verði teknar upp viðræður við ríkið um framtíðarfyrirkomulag á rekstri og starfsemi Öldrunarheimila Akureyrar. „Mikilvægt er að mótuð ver...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ekkert-saelgaeti-fyrir-born-a-skola-og-ithrottatima
Ekkert sælgæti fyrir börn á skóla- og íþróttatíma Sú nýbreytni hófst í Íþróttamiðstöð Eyjafjarðarsveitar nýverið að leyfa ekki sölu á sælgæti og gosdrykkjum fyrr en eftir klukkan 16:30 á daginn. Reglan hefur verið sú að selja ekki sælgæti á skólatíma eða fyrr en klukkan tvö. Ingibjörg Isaksen, forstöðumaður í Íþróttami...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aldrei-sed-adra-eins-framleidslu
„Aldrei séð aðra eins framleiðslu“ Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, tónlistarstjóri Menningarfélags Akureyrar, segir síðastliðna helgi hafa verið sérstakt afrek útaf fyrir sig hjá Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, eða SinfóNord eins og margir kalla hana í dag. Hljómsveitin sinnti samfélagsverkefni og frumsýndi nýja 100 mann...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/husvisk-ungmenni-i-kaffi-i-sendiradi-usa
Húsvísk ungmenni í kaffi í sendiráði USA 10 nemar á fyrsta ári í Framhaldsskólanum á Húsavík taka nú þátt í samstarfsverkefni Hvalasafnsins á Húsavík og Hvalveiðisafnsins í New Bedford, Massachusetts í Bandaríkjunum. Verkefnið hlaut í sumar styrk frá Bandarísku safnasamtökunum American Alliance of Museums. Samstarfið m...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/opnun-samsyningarinnar-i-drogum
Opnun samsýningarinnar „í drögum“ Í dag, laugardag kl. 15 verður opnuð í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi samsýningin í drögum / Prehistoric Loom IV en þar sýna 27 listamenn víðs vegar að úr heiminum, þar af sjö íslenskir. Sýningin er ávöxtur þeirra sambanda sem mynduðust hjá meistaranemum við Glasgow School of Art í...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nordurthing-leitar-leigjanda-ad-nordurljosum
Norðurþing leitar leigjanda að Norðurljósum Erlingur Thoroddsen starfrækti Hótel Norðurljós á Raufarhöfn um árabil af miklum myndarskap. Hann féll frá fyrir skömmu og nú hefur eigandi hótelsins, sveitarfélagið Norðurþing, auglýst rekstur Hótels Norðurljósa til leigu frá 1. febrúar 2016 til 31. október sama ár. Hið leig...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gagnrynir-hardlega-framkomu-vid-framhaldsskolanemendur
Gagnrýnir harðlega framkomu við framhaldsskólanemendur Ekkert verður af leiksýningum framhaldsskólanemanda MA og VMA í Samkomuhúsinu á Akureyri í vetur eins og verið hefur undanfarin ár. Ekki hafa náðst samningar milli stjórnenda menningarmála og leikfélög skólanna vegna hárrar leigu. Sigrún Björk Jakobsdóttir, móðir n...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hann-lifi-avallt-i-hjarta-minu
„Hann lifir áfram í hjarta mínu Að missa barnið sitt er án nokkurs vafa það erfiðasta sem foreldri getur gengið í gegnum. Þá lífsreynslu þekkir Emma Agneta Björgvinsdóttir en hún missti 12 ára son sinn, Blæng Mikeal Bogason, sem lést í bílslysi fyrir tæplega þremur árum. Emma segir erfitt að vinna sig úr sorginni og da...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/i-skarpi-i-dag-1
Í Skarpi í dag Héraðsfréttablaðið Skarpur kemur út í dag eins og aðra fimmtudaga. Þar er að venju komið víða við. Fjallað er um fund þar sem hagsmunaaðilar , íslenskir og erlendir, komu saman á Húsavík til að fara yfir stöðuna í stórframkvæmdunum í Þingeyjarsýslu og bera saman bækur sínar þar um. Á sama fundi var fjall...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vikudagur-i-dag-8
Vikudagur í dag Í Vikudegi sem kemur út í dag kennir ýmissa grasa. Emma Agneta Björgvinsdóttir missti 12 ára son sinn í bílslysi fyrir þremur árum, Blæng Mikael Bogason. Hún segist þakklát fyrir minningarnar en það geti verið erfitt að takast á við sorgina. Emma deilir reynslu sinni á einlægan og opinskáan hátt. Sigrún...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/viktor-samuelsson-ithrottamadur-akureyrar-2015
Viktor Samúelsson íþróttamaður Akureyrar 2015 Kraftlyftingamaðurinn Viktor Samúelsson úr KFA er íþróttamaður Akureyrar árið 2015. Kjöri íþróttamanns Akureyrar var lýst í verðlaunahófi á vegum Íþróttabandalags Akureyrar og Íþróttaráðs Akureyrarbæjar sem fram fór í Menningarhúsinu Hofi fyrr í dag. Alls tilnefndu 16 aðild...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framkvaemdir-hafnar-vid-flughlad
Framkvæmdir hafnar við flughlað Framkvæmdir eru hafnar við stækkun flughlaðs á Akureyrarflugvelli. Vinnuvélar eru komnar á svæðið til að byrja undirbúningsvinnu. Töluvert efni hefur safnast saman fyrir utan Vaðlaðarheiðargöngin, sem ýmist verður notað í sjálfa gangnagerðina og í flughlað. Framkvæmdir standa yfir á Akur...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gott-ad-geta-einbeitt-ser-ad-tonlistinni
„Gott að geta einbeitt sér að tónlistinni“ „Þetta er í fyrsta sinn sem ég fæ listamannalaun og því afar ánægjulegt. Það voru margir sem sóttu um þannig að ég var mjög sátt þegar ég sá tölvupóstinn,“ segir Sigrún Magna Þórsteinsdóttir, annar af tveimur organistum Akureyrarkirkju, í samtali við Vikudag. Sigrún fékk í vik...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/flottamennirnir-komnir-til-akureyrar
Flóttamennirnir komnir til Akureyrar Í kvöld lentu 23 flóttamenn frá Sýrlandi á Akureyrarflugvelli til að setjast að í bænum. Um er að ræða fjórar fjölskyldur sem hafa verið á ferðalagi í tæpan sólarhring. Á vef Akureyrarbæjar segir að fólkið hafi farið með rútu af flugvellinum í hús Rauða krossins við Viðjulund þar se...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/um-30-kjotidnadarmenn-hafa-utskrifast-a-atta-arum
Um 30 kjötiðnaðarmenn hafa útskrifast á átta árum Góð aðsókn hefur verið í kjötiðnaðarnám í Verkmenntaskólanun á Akureyri undanfarin ár. Frá því kennsla hófst aftur í greininni við skólann árið 2008 hafa hátt í 30 nemendur útskrifast. Námið lá niðri í 10 ár á Akureyri en Menntaskólinn í Kópavogi er móðurskólinn þegar k...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eg-var-logandi-hraeddur-fyrst
„Ég var logandi hræddur fyrst Jón Birgir Lúðvíksson hefur starfað sem miðill frá árinu 2007. Á unga aldri fór að hann sjá og skynja hluti sem aðrir sáu ekki. Hann segist í fyrstu hafa óttast náðargáfuna en náð tökum á henni með tímanum og nýtt hana til góðs. Jón var um tíma í neyslu, þar varð skyggnigáfan honum dragbít...