Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.vikubladid.is/is/frettir/yfirlysing-fra-trans-atlantic
Yfirlýsing frá Trans Atlantic Ferðaskrifstofan Trans Atlantic hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fjölmiðlaumfjöllunar um að flugvél í beinu flugi frá Riga til Akureyrar um miðjan október ákvað að lenda á Keflavíkurflugvelli. Yfirlýsingin er eftirfarandi: Alvitur hengir bakara fyrir smið Það hefur vart farið framhjá f...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nordursigling-hlaut-umhverfisverdlaun-ferdamalastofu
Norðursigling hlaut Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu Norðursigling á Húsavík er handhafi Umhverfisverðlauna Ferðamálastofu 2015. Ráðherra ferðamála, Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar og viðskiptaráðherra, afhenti verðlaunin á Ferðamálaþingi í Hofi á Akureyri í dag. Verðlaunin hafa verið veitt árlega frá árinu 1995 og...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leidsogn-um-gran-2015
Leiðsögn um GraN 2015 Fimmtudaginn 29. október kl. 12.15-12.45 verður boðið upp á leiðsögn í Listasafninu á Akureyri um sýninguna GraN 2015 sem var opnuð um síðastliðna helgi. Guðmundur Ármann Sigurjónsson listamaður tekur á móti gestum og fræðir þá um sýninguna og einstaka verk. Aðgangur er ókeypis. GraN 2015 endurspe...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lifid-i-gegnum-linsu-ahugaljosmyndara
Lífið í gegnum linsu áhugaljósmyndara Ármann Hinrik Kolbeinsson, formaður ÁLKA,áhugaljósmyndaraklúbbs Akureyrar, sendi Vikudegi nokkrar valdar myndir til birtingar. Ármann hefur áratuga reynslu af ljósmyndun og myndar ýmist náttúruna, bæjarumhverfið eða fólk. Sjón er sögu ríkari en myndaopnu má nálgast í prentútgáfu bl...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atak-gegn-heimilisofbeldi-a-dalvik-og-i-fjallabyggd
Átak gegn heimilisofbeldi á Dalvík og í Fjallabyggð Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri á Norðurlandi eystra, Gunnar Ingi Birgisson, bæjarstjóri Fjallabyggðar, og Bjarni Th. Bjarnason, sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar, undirrituðu nýverið samstarfsyfirlýsingu lögreglunnar á Norðurlandi eystra við sveitarfélögin um...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skemmtiferdaskip-boda-komu-sina-11-ar-fram-i-timann
Skemmtiferðaskip boða komu sína 11 ár fram í tímann Búið er bóka komu tveggja skemmtiferðaskipa til Akureyrar og víðar hér á landi árið 2026 en það er Fred Olsen Cruise Lines sem á skipin. Pétur Ólafsson, hafnarstjóri Hafnasamlags Norðurlands, segir það mjög sérstakt að skemmtiferðaskip boði komu sína með svo löngum fy...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gran-2015-i-listasafninu
GraN 2015 í Listasafninu Sýningin GraN 2015 verður opnuð í Listasafninu á Akureyri í dag, laugardag, kl. 15:00 en þar sýna 25 grafíklistamenn frá Danmörku, Finnlandi, Færeyjum, Grænlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð. Vegleg sýningarskrá kemur út af þessu tilefni. GraN 2015 endurspeglar þá fjölbreytni sem er að finna í g...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/adstaedur-voru-kjornar-fyrir-lendingu-a-akureyri
Aðstæður voru kjörnar fyrir lendingu á Akureyri Á sama tíma og flugvél frá Riga í beinu flugi til Akureyrar ákvað að lenda frekar á Keflavíkurflugvelli í síðustu viku vegna veðurs voru flugvélar að lenda á sama tíma á Akureyrarflugvelli. Þetta segir Guðni Sigurðsson fjölmiðlafulltrúi Isavia í samtali við Vikudag. Eins ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hollt-ad-geta-horfid-og-endurnyjad-sjalfan-sig
Hollt að geta horfið og endurnýjað sjálfan sig Þórgnýr Dýrfjörð framkvæmdastjóri Akureyrarstofu segir framtíð menningar á Akureyri eiga mikið undir skilningi ríkisvaldsins á að aukið fjárframlag þurfi til menningarstofnana hér. Þórgnýr er menntaður heimspekingur og segir mikilvægt að vera sífellt spyrjandi. Hann tók sé...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/flugvel-lenti-i-keflavik-thratt-fyrir-rjomablidu-fyrir-nordan
Flugvél lenti í Keflavík þrátt fyrir rjómablíðu fyrir norðan Flugvél á leið frá Riga í Lettlandi í beinu flugi til Akureyrar um miðja síðustu viku hætti við að lenda á Akureyrarflugvelli og lenti þess í stað á Keflavíkurflugvelli. Þykir þetta sérstakt í ljósi þess að blíðskaparveður var á Akureyri þennan dag. Flugið va...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thetta-er-grin-an-djoks-frumsynt-i-kvold
"Þetta er grín, án djóks" frumsýnt í kvöld Menningarfélag Akureyrar frumsýnir glænýtt íslenskt verk í sviðsetningu Leikfélags Akureyrar og menningarhússins Hofs íkvöld. Verkið ber titilinn Þetta er grín, án djóks og er eftir þau Halldór Laxness Halldórsson (Dóra DNA) og Sögu Garðarsdóttur. Um er að ræða sprenghlægilegt...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skolalodin-ovidunandi-fyrir-bornin
Skólalóðin óviðunandi fyrir börnin Á aðalfundi Foreldrafélags Naustaskóla á Akureyri þann 17. september sl. var samþykkt einróma ályktun um að „skora á bæjaryfirvöld á Akureyri að standa við þá ákvörðun að ljúka framkvæmdum við skólalóð Naustaskóla á árinu 2016.“ Í bréfi skólastjóra Naustaskóla til bæjaryfirvalda segir...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hjolastolarola-i-kjarnaskogi
Hjólastólaróla í Kjarnaskógi Í Kjarnaskógi á Akureyri hefur verið útbúið nýtt samkomusvæði með grillhúsi og leiktækjum í mjög fallegu umhverfi. Svæðið heitir Birkivöllur en auk myndarlegra birkitrjáa eru þar ýmsar fleiri trjátegundir, til dæmis falleg tré af gráelri og síberíuþin svo eitthvað sé nefnt. Í vikunni komu n...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vilja-aukid-framlag-fra-ferdamalastofu
Vilja aukið framlag frá Ferðamálastofu Framkvæmdastjóra Akureyrarstofu hefur verið falið að fara í viðræður við Ferðamálastofu um aukna aðkomu að rekstri Upplýsingamiðstöðvar ferðamanna og boða til fundar með nágrannasveitarfélögum í Eyjafirði um endurskoðaðan samningsgrundvöll um rekstur miðstöðvarinnar. Á undanförnum...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hin-fullkomna-helgi-i-berlin
Hin fullkomna helgi í Berlín Þær Katrín Árnadóttir og Margrét Rós Harðardóttir reka leiðsögufyrirtækið Berlínur þar sem þær stöllur bjóða upp á leiðsögn á íslensku um borgina. Í byrjun nóvember verður beint flug frá Akureyri til Berlínar þar sem fólki gefst tækifæri að upplifa Berlín á einstakan hátt undir leiðsögn þei...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/preben-tekur-saeti-a-althingi
Preben tekur sæti á Alþingi Preben Pétursson, varaþingmaður Bjartrar framtíðar, tók sæti á Alþingi í fyrsta sinn í dag. Hann er varamaður Brynhildar Pétursdóttur sem situr nú allsherjarþing Sameinuðu Þjóðanna í New York. Í tilkynningu frá Bjartri framtíð segir að Preben útskrifaðist sem mjólkurtæknifræðingur 1989 og he...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/a-annad-hundrad-milljonir-i-lagfaeringar-a-gamla-apotekinu
Á annað hundrað milljónir í lagfæringar á Gamla Apótekinu Gamla Apótekið var flutt aftur á sinn stað í Innbænum á Akureyri á dögunum eftir nokkra mánaða fjarveru en húsið var geymt á Krókeyri á meðan nýr grunnur var byggður undir húsið. Gamla Apótekið er í eigu Minjaverndar sem vinnur að því að gera húsið upp. Ástand h...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/norraenir-kvikmyndadagar-a-akureyri
Norrænir kvikmyndadagar á Akureyri Norrænir kvikmyndadagar standa nú yfir á Akureyri þar sem sex kvikmyndir verða til sýnis í Sambíóunum fram til 20. október og aðgangur ókeypis. Það er norðlenski kvikmyndaklúbburinn KvikYndi og Norræna upplýsingaskrifstofan sem standa að kvikmyndadögunum. „Nú er komið að Norðurlöndunu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/starfsemi-mak-skerdist-verulega-vid-obreytt-fjarframlog
Starfsemi MAk skerðist verulega við óbreytt fjárframlög Fari svo að fjárframlög ríkisins til menningarstofnana á Akureyri hækki ekki á næsta ári mun það hafa afdrifaríkar afleiðingar fyrir menningarlífið í bænum. Þetta segir Gunnar Gunnsteinsson framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar (MAk). Bendir hann á að stærsti...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lykillinn-ad-gera-grin-ad-sjalfum-ser
„Lykillinn að gera grín að sjálfum sér" Henni var ýtt út í grínið á sínum tíma og samdi sitt fyrsta uppistand á hótelherbergi á Akureyri. Saga Garðarsdóttir, leikkona, handritshöfundur, uppistandari og grínari hefur undanfarna mánuði dvalið á Akureyri þar sem hún undirbýr leiksýninguna, „Þetta er grín án djóks“, sem fr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/verkfall-lamar-skolastarf-og-heilbrigdisthjonustu
Verkfall lamar skólastarf og heilbrigðisþjónustu Verkfall SFR og Sjúkraliðafélags Íslands sem skall í nótt hefur víðtæk áhrif í samfélaginu. Engin kennsla er í Menntaskólanum á Akureyri í dag en húsverðir, skólafulltrúi og skrifstofustjóri MA eru félagar í SFR og því getur hefðbundin kennsla ekki farið fram þar sem skó...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skipulagsmal-vid-eyjafjord
Skipulagsmál við Eyjafjörð Í tilefni útkomu bókar sinnar „Mótun framtíðar Hugmyndir-Skipulag-Hönnun“ mun Trausti Valsson, prófessor í skipulagsfræði við HÍ halda erindi um skipulagsmál í Lionssalnum að Skipagötu 14 á Akureyri í dag, fimmtudaginn 15. október, milli klukkan 16 og 18. Að opnunarerindi Trausta loknu verða ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skora-a-thingmenn-ad-endurskoda-afnam-tolla
Skora á þingmenn að endurskoða afnám tolla Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar lagði fram bókun á síðasta sveitarstjórnarfundi þar sem skorað er á þingmenn landsins að endurskoða afnám tolla á ýmis matvæla. Eins og fram hefur komið hafa íslensk stjórnvöld og Evrópusambandið (ESB) gert milliríkjasamning um viðskipti með bú...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sterkt-althjodlegt-unglingamot-haldid-a-akureyri
Sterkt alþjóðlegt unglingamót haldið á Akureyri Viðburðarstofa Norðurlands í samstarfi við Golfklúbb Akureyrar hafa komist að samkomulagi við A.R Events um að fá mót inn á Global Junior Golf Tour mótaröðina sem A.R Events standa fyrir. Global Junior Golf Tour er mótaröð sem haldin er á heimsvísu fyrir krakka á aldrinum...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kennari-i-rum-40-ar-og-djazzgeggjari
Kennari í rúm 40 ár og djazzgeggjari Sverrir Páll Erlendsson hefur verið kennari við Menntaskólann á Akureyri í rúmlega 40 ár. Þrátt fyrir að vera kominn á eftirlaunaaldur er hann ekkert á þeim buxunum að hætta strax. Hann segir það forréttindi að vinna með ungu fólki og vera partur af ríkulegu félagslífi innan skólans...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skidaferdin-haekkar-i-verdi
Skíðaferðin hækkar í verði Bæjarráð Akureyrar hefur samþykkt nýja gjaldskrá í Hlíðarfjall fyrir veturinn 2015-2016 og munu bæði stakir miðar og árskort hækka í verði. Þannig mun vetrarkort fyrir fullorðna sem seld eru í október fyrir opnun hækka um 1.650 krónur og kosta nú 34.650. Vetrarkortin sem keypt eru eftir þann ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hafa-thrifid-um-300-sorptunnur
Hafa þrifið um 300 sorptunnur Davíð Jón Stefánsson rekur lítið fyrirtæki á Akureyri ásamt konu sinni Heiðu Björgu og sérhæfa þau sig í að þrífa sorptunnur. Fyrirtækið nefnist Hreintunna.is og er óhætt að segja að vinnan sé miður geðsleg á köflum. Davíð segist hafa fengið hugmyndina erlendis frá en þauhófu starfsemina í...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nala-til-synis-a-amtsbokasafninu
Nála til sýnis á Amtsbókasafninu Nú fyrir helgina var sýningin Nála opnuð á Amtsbókasafninu á Akureyri. Börn og fullorðnir hafa lagt leið sína á safnið og sett mark sitt á sýninguna sem byggð er á Nálu – riddarasögu eftir Evu Þengilsdóttur. Bókin kom út hjá Sölku í lok árs 2014 og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaver...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rudur-brotnar-a-straetoskylum-3
Rúður brotnar á strætóskýlum Rúður voru brotnar á þremur strætóskýlum í Brekkuhverfi á Akureyri á dögunum. Hver rúða kostar frá tugum upp í hundruðir þúsunda og segir Helgi Már Pálsson, bæjartæknifræðingur á Akureyri, að um milljónatjón sé að ræða. Lögreglan á Akureyri hefur málið til rannsóknar en segir mál af þessu t...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nunna-er-eins-og-hjonaband-vid-gud
„Nunna er eins og hjónaband við Guð" Í Álfabyggðinni á Akureyri búa fimm nunnur sem kalla sig Karmelsystur en þær eru jafnframt dagmömmur í bænum og eru níu börn á heimilinu í daggæslu. Marcelina de Almeida Lara er ein systranna en hún fagnaði þeim áfanga á dögunum að eiga 25 ára afmæli sem nunna. Vikudagur heimsótti M...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oasaettanlegur-mismunur-i-menningarmalum
„Óásættanlegur mismunur í menningarmálum" Mikill mismunur er á framlagi ríkisins til menningarstofnanna í Reykjavík og á Akureyri. Á undanförnum árum hafa framlög til stofnana ríkisins í Reykjavík s.s. Hörpu, Listasafns Íslands, Þjóðleikhússins og Sinfóníuhljómsveitar Íslands hækkað um hundruði milljóna króna á sama tí...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hjolreidastandur-i-midbae-akureyrar
Hjólreiðastandur í miðbæ Akureyrar Sérstakur hjólreiðaviðgerðarstandur var settur upp neðst í Skátagilinu í Miðbæ Akureyrar á dögunum. Standurinn er samvinnuverkefni milli Hjólreiðafélags Akureyrar (HFA) og Akureyrarbæjar. Hjólreiðastandurinn er sá fyrsti sinnar tegundar hér á landi. „Þetta er mjög stór áfangi fyrir ok...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gervigrasid-i-boganum-verdur-endurnyjad
Gervigrasið í Boganum verður endurnýjað Dekkjakurl er víða á gervigrasvöllum á Akureyri, m.a. í Boganum, þar sem um 1.500 börn stunda æfingar að jafnaði í hverri viku, og á skólalóðum bæjarins. Mikil umræða hefur verið um dekkjakurl á gervigrasvöllum en greint hefur verið frá því að krabbameinsvaldandi efni séu í kurli...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/klaednadur-a-midoldum
Klæðnaður á miðöldum Beate Stormo fyrirlestur í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi í dag kl. 17:00 undir yfirskriftinni "Klæðnaður á miðöldum." Þar fjallar hún um klæðnað miðalda og þátttöku sína á miðaldadögum á Gásum. Aðgangur er ókeypis. Beate Stormo er bóndi og eldsmiður og hefur haft áhuga á gömlu handverki og for...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nyr-skipulagsstjori-a-akureyri
Nýr skipulagsstjóri á Akureyri Bjarki Jóhannesson hefur verið ráðinn nýr skipulagsstjóri Akureyrarbæjar og hefur störf þann 1. nóvember næstkomandi. Alls sóttu sex um stöðu skiplagsstjóra. Bjarki tekur við starfinu af Pétri Bolla Jóhannessyni sem hefur gegnt stöðunni í 15 ár. Bjarki er fæddur og uppalinn Akureyringur. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjolskylda-skipar-utsvarslidid
Fjölskylda skipar Útsvarsliðið Búið er að skipa í liðið sem mun keppa fyrir hönd Akureyrar í Útsvari, spurningakeppni sveitarfélagana þennan veturinn. Urður Snædal heldur sæti sínu í liðinu en tveir nýliðar eru með henni í för; eiginmaður hennar, Ragnar Elías Ólafsson, og faðir hans, Ólafur Helgi Theodórsson. Því er um...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikill-launamunur-otholandi-astand
Mikill launamunur óþolandi ástand Heimir Kristinsson, varaformaður Byggiðnar, segir að smiðir norðan heiða og raunar almennt á landsbyggðinni beri mun minna úr býtum en kollegar þeirra á höfuðborgarsvæðinu. Enginn starfi þó á launum undir töxtum, heldur tíðkist að yfirborga menn syðra og þá mun meira en gengur og geris...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/alfkonur-opna-ljosmyndasyninguna
ÁLFkonur opna ljósmyndasýninguna ÁLFkonur opna ljósmyndasýninguna "Á eigin vegum" í Sal Myndlistarfélagsins í Kaupvangsstræti 10 í dag, laugardag, kl. 14:00 opna. ÁLFkonur er áhugaljósmyndarafélag fyrir konur. Þær hafa starfað saman frá sumrinu 2010 og er þessi 16. sýning hópsins jafnframt 5 ára afmælissýning. Að þessu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/dottir-min-hefur-lifad-i-helviti-i-morg-ar
„Dóttir mín hefur lifað í helvíti í mörg ár“ Inga Vala Birgisdóttir hefur barist lengi fyrir því að dóttir hennar Karen Alda fái þá þjónustu sem hún þarf til að freista þess að koma lífi hennar á réttan kjöl. Karen er greind með CP-heilalömun, er þroskaskert og glímir við andleg veikindi. Í þrjú ár hefur Inga Vala beði...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samfelagsleg-ahrif-hedinsfjardarganga
Samfélagsleg áhrif Héðinsfjarðarganga Í dag, þann 2. október 2015, eru fimm ár síðan Héðinsfjarðargöngin opnuðu. Í því tilefni boða Fjallabyggð og Háskólinn á Akureyri til málþings í Ólafsfirði kl 14:00 þar sem kynntar verða heildarniðurstöður sjö ára rannsóknar á samfélagsáhrifum ganganna. Í dag opnar jafnframt vefuri...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/konan-er-minn-helsti-gagnrynandi
„Konan er minn helsti gagnrýnandi" Arnar Jónsson hefur um árabil verið einn allra fremsti leikari þjóðarinnar en ferilinn spannar um sex áratugi. Arnar útskrifaðist úr Leiklistarskóla Þjóðleikhússins árið 1964 en leikur um þessar mundir í Býr Íslendingur hér? í uppsetningu Leikfélags Akureyrar. Arnar er því kominn á sv...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hlidarfjall-a-lista-yfir-flottustu-skidasvaedi-heims
Hlíðarfjall á lista yfir flottustu skíðasvæði heims Í síðustu viku birti vefurinn Unofficial Networks sem er hluti af USA Today keðjunni, val sitt á 12 flottustu eða mest spennandi (exotic) skíðasvæðum heims og á þeim lista er að finna Hlíðarfjall ofan Akureyrar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Akureyrarbæ. "S...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/logreglan-herdir-eftirlit-med-skemmtistodum
Lögreglan herðir eftirlit með skemmtistöðum Lögreglumenn hjá embætti lögreglustjórans á Norðurlandi eystra halda uppi sérstöku eftirliti með veitingastöðum og skemmtistöðum í umdæminu þessa dagana. Átakið hófst um síðustu helgi og stendur fram yfir næstu helgi. Áhersla er lögð á að skoða hvort ekki séu til staðar gild ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/beint-flug-til-koben
Beint flug til Köben Íslenska ferðaskrifstofan Trans-Atlantic hyggst í samstarfi við eistneska flugfélagið Estonian Air hefja áætlunarflug milli Kaupmannahafnar og Akureyrar sumarið 2016. Þessi nýja flugleið verður hluti af leiðakerfi Estonian Air og til sölu á heimasíðu þeirra, heimasíðu Trans Atlantic og á öllum hels...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/styrktartonleikar-mikka-litla-i-akureyrarkirkju
Styrktartónleikar Mikka litla í Akureyrarkirkju Tónleikar til styrktar Styrktarsjóði Mikaels Smára Evensen verða haldnir í Akureyrarkirkju í kvöld. Fimmtudag, kl. 20:00 en húsið opnar kl. 19. Mikki litli er 3 ára og með sjúkdóminn ataxia telangiectasia sem er ólæknandi erfðasjúkdómur sem einkennist af vaxandi óstöðugle...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrstu-hadegistonleikar-tonak
Fyrstu hádegistónleikar Tónak Fyrstu hádegistónleikar vetrarins hjá Tónlistarfélagi Akureyrar verða á föstudaginn kemur í Hömrum í Menningarhúsinu Hofi og hefjast kl 12.15. Þar mun Jón Sigurðsson píanóleikari leika efnisskrá tileinkaða rússneska tónskáldinu Alexander Scriabin (18721915) en á þessu ári eru hundrað ár li...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eg-er-faeddur-a-bak-vid-budarbordid
„Ég er fæddur á bak við búðarborðið" Kristján Skarphéðinsson, betur þekktur sem Kristján í Amaro, er sennilega einn sá langlífasti í verslunarbransanum hér á landi. Frá blautu barnsbeini hefur Kristján verið viðloðandi verslun en foreldrar hans, Skarphéðinn Ásgeirsson og Laufey Tryggvadóttir, voru ákveðnir frumkvöðlar ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fia-i-brynju-selur-isbudina
Fía í Brynju selur ísbúðina Fríður Leósdóttir eða Fía í Brynju, sem á og rekið hefur ísbúðina Brynju á Akureyri, hefur ákveðið að selja eftir 30 ár í rekstri. Hún vill þó ekki upplýsa nákvæmlega hverjir það eru sem munu senn taka við Brynju en segir að það séu „menn að sunnan“. Fía mun þó sinna rekstrinum áfram undir s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fiskistofa-a-borgum-til-bradabirgda
Fiskistofa á Borgum til bráðabirgða Undirbúningur fyrir opnun höfuðstöðva Fiskistofu á Akureyri er nú í fullum gangi en eins og fram hefur komið munu höfuðstöðvar stofnunarinnar flytjast norður 1. Janúar 2016. Ljóst er að starfsstöð sú sem Fiskistofa hefur haft á Akureyri til margra ára rúmar ekki fleiri starfsmenn en ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stormeistaraefni-i-skak
Stórmeistaraefni í skák Skákþing Norðlendinga, hið 81. í röðinni var haldið á Akureyri um síðustu helgi en keppendur voru tuttugu talsins, þar á meðal tveir alþjóðlegir meistarar úr Reykjavík, þeir Guðmundur Kjartansson og Einar Hjalti Jensson. Fyrirfram var gert ráð fyrir að slagurinn um sigur á mótinu yrði fyrst og f...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/auka-a-ibualydraedi-og-gagnsaeja-stjornsyslu
Auka á íbúalýðræði og gagnsæja stjórnsýslu Vinnuhópur um íbúalýðræði og gagnsæa stjórnsýslu á Akureyri var skipaður í febrúar sl. og er verkefni hópsins að koma fram með tillögur um það hvernig hægt sé að stíga virk og hröð skref í átt að íbúalýðræði og gagnsærri stjórnsýslu í bænum. Hópurinn vinnur nú að slíkum tillög...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gangagroftur-stodvadist-i-tvo-manudi
Gangagröftur stöðvaðist í tvo mánuði Erfitt berg í Vaðlaheiðargöngum hefur gert það að verkum að lítið hefur gengið að bora undanfarnar vikur og mánuði. Göngin lengdust um alls sjö metra í síðustu viku og er það í fyrsta sinn síðan í lok júlí í sumar að sprengt er í þeim. Göngin höfðu því ekkert lengst í tæpa tvo mánuð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/litill-engill-sem-vid-fengum-ad-lani
„Lítill engill sem við fengum að láni" Mikael Smári Evensen er þriggja ára drengur sem glímir við afar sjaldgæfan sjúkdóm. Um er að ræða erfðasjúkdóm sem leggst meðal annars á tauga- og ónæmiskerfið. Hér á landi greinist sjúkdómurinn á 10-20 ára fresti og er talið að eitt barn af hverjum 40.000-100.000 greinist með han...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oaxaca-i-mjolkurbudinni
Oaxaca í Mjólkurbúðinni Ásdís Ásgeirsdóttir ljósmyndari opnar sýninguna Oaxaca í Mjólkurbúðinni á Akureyri, laugardaginn 26. september kl. 14. Sýning Ásdísar ber yfirskriftina Oaxaca /wa'ha'ka/ eftir borg í Mexíkó þar sem Ásdís tók myndirnar á sýningunni en hún sótti þar tíu daga námskeið í febrúar á þessu ári hjá hinu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hjalti-jon-radinn-skolameistari-kvennaskolans
Hjalti Jón ráðinn skólameistari Kvennaskólans Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað Hjalta Jón Sveinsson skólameistara Kvennaskólans í Reykjavík til fimm ára. Hjalti Jón hefur MEd gráðu í uppeldis- og menntunarfræði frá Háskóla Íslands og MA próf í menntunarfræði frá Háskólanum á Akureyri. Hann hefur gegnt stöð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nazar-flygur-beint-fra-akureyri
Nazar flýgur beint frá Akureyri Ferðaskrifstofan Nazar flýgur fjórum sinnum í haust frá Akureyrarflugvelli til Tyrklands og mun geta flutt allt að 720 farþega frá Akureyri beint í sólina. Flogið verður til Antalya og hægt er að panta annað hvort pakkaferð eða bara flug. Í fréttatilkynningur segir að Ferðaskrifstofan Na...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leidsogn-um-samsyninguna-haust
Leiðsögn um samsýninguna Haust Fimmtudaginn næstkomandi þann 24. septemberkl. 12.15-12.45 verður boðið upp á leiðsögn um samsýninguna Haust í Listasafninu á Akureyri, en þar sýna 30 norðlenskir listamenn. Á meðal þeirra eru Guðmundur Ármann Sigurjónsson og Heiðdís Hólm en þau munu ásamt Hlyni Hallssyni, safnstjóra List...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gaetu-thurft-ad-visa-idnfyrirtaekjum-fra-naestu-arin
Gætu þurft að vísa iðnfyrirtækjum frá næstu árin Fyrirtæki sem krefjast töluverðar notkunar á raforku geta ekki byggt upp starfsemi á Akureyri vegna lélegs flutningskerfi á raforku. Forsvarsmenn Landsnets hafa lýst því yfir að flutningsgeta rafmagns inn á Akureyri og nágrenni sé ekki nægileg. Þetta þýðir að Akureyrarbæ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fimmti-islendingurinn-til-fa-svarta-beltid-i-jiu-jitsu
Fimmti Íslendingurinn til fá svarta beltið í jiu-jitsu Ingþór Valdimarsson, yfirþjálfari hjá bardagaklúbbnum Fenri á Akureyri, fékk nýverið svarta beltið í brasilísku jiu-jitsu. Ingþór er aðeins fimmti Íslendingurinn sem öðlast hefur svarta beltið í greininni en hann og Gunnar Nelsson bardagakappi eru þeir einu sem eru...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skipa-starfshop-vegna-komu-flottamanna
Skipa starfshóp vegna komu flóttamanna Bæjarráð Akureyrar hefur falið samfélags-og mannréttindaráði að stofna starfshóp vegna komu flóttamanna til bæjarins með aðkomu m.a. skólanefndar og velferðarráðs. Samkvæmt upplýsingum frá Rauða Krossinum hafa 80 manns á Akureyri boðið fram aðstoð sína með einum eða öðrum hætti vi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ambassador-faerir-ut-kviarnar
Ambassador færir út kvíarnar Á stjórnarfundi hvalaskoðunarfyrirtækisins Ambassador var ákveðið að halda markvissri uppbyggingu félagsins á Akureyri áfram. Vegna aukinna umsvifa var tekin ákvörðun um að kaupa annan hvalaskoðunarbát og hefja rekstur hans næsta vor. Til viðbótar tók stjórn félagsins ákvörðun um færa sig i...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kjarnaskogur-kveikti-hugmynd-ad-gardi-i-minningu-sonarins
Kjarnaskógur kveikti hugmynd að garði í minningu sonarins Þegar sonur hennar lést í bílslysi langt fyrir aldur fram ákvað Vilborg Arnarsdóttir að halda gömlu draumi til streitu um að opna fjölskyldugarð í Súðavík. Garðurinn nefnist Raggagarður í höfuðið á Ragnari Vestfjörð heitnum, syni Vilborgar. Hugmyndina að garðinu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sinfo-og-atli-a-toppnum-vestanhafs-risamynd-a-teiknibordinu
Sinfó og Atli á toppnum vestanhafs-Risamynd á teikniborðinu Vinsælasta kvikmyndin í bíóhúsum vestanhafs um liðna helgi var myndin The Perfect Guy en Akureyringurinn Atli Örvarsson sá m.a. um tónlistina í myndinni. Við upptökur á tónlistinni nýtti Atli sér krafta Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands en myndin er sú fyrsta s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sofnudu-rumlega-200-thusund-i-bingo-og-styrktu-aflid
Söfnuðu rúmlega 200 þúsund í bingó og styrktu Aflið Hjónin Guðrún Rósa Friðjónsdóttir og Óskar Aðalgeir Óskarsson héldu stór bingó í byrjun september á Akureyri til styrktar Aflinu, samtökum gegn kynferðis- og heimilisofbeldi, og söfnuðu þau rúmlega 200 þúsund krónum. Lögðu þau hjónin ómælda vinnu í söfnun vinninga og ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bolti-og-bleijuskipti-i-vetur-1
Bolti og bleijuskipti í vetur Ingimundur Ingimundarson, yfirleitt kallaður Diddi í daglegu tali er landsmönnum kunnur sem einn af silfurdrengjunum í íslenska handboltalandsliðinu. Ingimundur er að hefja sitt annað ár með Akureyrarliðinu og er einnig aðstoðarþjálfari. Meiðsli hafa sett strik í reikninginn á ferlinum og ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jakkafataklaett-folk-med-bindi-og-thorskhaus
Jakkafataklætt fólk með bindi og þorskhaus Laugardaginn næstkomandi þann 19. september kl. 14:00 opnar Harldur Ingi Haraldsson vinnustofusýningu í Sýningasal Myndlistafélagsins í Listagilinu á Akureyri undir nafninu Codhead Xl. Sýningin stendur til 27. september. Á sýningunni má sjá málverk unnin með blandaðri tækni á ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thaettirnir-lifrikid-i-sjonum-vid-island-verdlaunadir
Þættirnir „Lífríkið í sjónum við Ísland“ verðlaunaðir Umhverfis- og auðlindaráðherra, Sigrún Magnúsdóttir, veitti í dag í tilefni af Degi íslenskrar náttúru, þáttaseríunni „Lífríkið í sjónum við Ísland“ eftir þá Erlend Bogason og Pétur Halldórsson fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins. Þáttaröðin var sý...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/beinar-rutuferdir-milli-keflavikurflugvallar-og-akureyrar-naesta-vor
Beinar rútuferðir milli Keflavíkurflugvallar og Akureyrar næsta vor Ferðaþjónustufyrirtækið Gray Line hefur ákveðið að hefja beinar áætlunarferðir milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar næsta vor. Í apríl og maí verður ekið þrisvar í viku en daglega yfir sumarið fram í miðjan september. Áætlun Gray Line Airport Expres...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/i-nyjum-kjol-a-hverjum-degi-i-niu-manudi
Í nýjum kjól á hverjum degi í níu mánuði Thora Karlsdóttir, myndlistamaður á Akureyri, er í heldur óvenjulegu verkefni þessa dagana en í heila níu mánuði fer hún í nýjan kjól á hverjum degi. „Ég kalla þetta kjólameðgöngu,“ segir Thora sem byrjaði gjörninginn 1. mars. „Þetta eru 280 dagar sem þýðir ansa marga kjóla og í...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/missti-tvaer-tennur-thegar-umdeild-rola-skall-a-hann
Missti tvær tennur þegar umdeild róla skall á hann Drengur á grunnskólaaldri á Akureyri missti tvær tennur og slasaðist illa í munni þegar hann fékk svokallaða körfurólu í andlitið í sumar við Lundarskóla. Rólurnar hafa verið talsvert í umræðunni og þykja umdeildar, en nokkur börn hafa slasast undanfarin ár hér á landi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/finn-vodalega-litid-fyrir-aldrinum
„Finn voðalega lítið fyrir aldrinum" Eiríkur Páll Sveinsson var næstfyrsti háls,- nef- og eyrnalæknirinn sem starfaði á Akureyri. Hann nam læknisfræði við Háskóla Íslands, útskrifaðist þaðan í febrúar 1965 og stundaði framhaldsnám í Svíþjóð á sínum tíma. Þar lærði hann m.a. að setja rör í eyrun á börnum, sem hann gerði...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/algjort-virdingarleysi-vid-grenndargamana
Algjört virðingarleysi við grenndargámana Algengt er að fólk hendi grasi og alls kyns rusli við grenndargámana á Akureyri sem eingöngu eru ætlaðir fyrir endurnýtanlegt efni svo sem dagblöð og bylgjupappa. Þegar Helgi Jón Jóhannesson, starfsmaður Gámaþjónustu Norðurlands, kom að grenndargámunum við Bónus í Langholti ein...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ragnheidur-synir-rymisthraedi
Ragnheiður sýnir Rýmisþræði Sýning á verkum Ragnheiðar Bjarkar Þórsdóttur undir yfirskriftinni Rýmisþræðir verður opnuð í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi, í dagkl. 15:00. Þræðir tengja Ragnheiði Björk við lífið, upprunann og uppsprettuna. Þeir eru í senn efniviðurinn og viðfangsefnið í listsköpun hennar og mynda upp...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sorgin-getur-gert-thig-ad-sterkari-manneskju
„Sorgin getur gert þig að sterkari manneskju" Eftir hátt í 40 ára starf í íþróttamiðstöðinni við Glerárskóla stendur Samúel Jóhannsson á tímamótum. Hann gerði garðinn frægan á Akureyri sem markvörður ÍBA og Þórs á árum áður og er sennilega einn þekktasti markvörður Akureyringa. Samúel hefur stundað myndverkagerð í 35 á...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tonmennt-a-undanhaldi-i-skolum-a-akureyri
Tónmennt á undanhaldi í skólum á Akureyri Tónmennt er aðeins kennd í tveimur grunnskólum á Akureyri en erfiðlega hefur gengið að fá tónmenntakennara til starfa. Brekkuskóli og Naustaskóli eru þeir einu af sjö grunnskólum Akureyrar þar sem börn fá að njóta tónlistar. Soffía Vagnsdóttir, fræðslustjóri á Akureyri, segir á...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vilja-dynheima-aftur-sem-tonlistarhus
Vilja Dynheima aftur sem tónlistarhús Hópur fólks á Akureyri hefur hrint af stað undirskriftalista þar sem skorað er á Akureyrarbæ að nýta Hafnarstræti 73, sem Dynheimar voru áður, sem tónlistarhús og endurvekja tónlistarmenningu Akureyrar. Undirskriftasöfnunin hefur staðið yfir í um tvær vikur og hafa um 200 manns skr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gaedabakstur-kaupir-kristjansbakari
Gæðabakstur kaupir Kristjánsbakarí Gæðabakstur ehf. hefur fest kaup á Kristjánsbakaríi á Akureyri og eru kaupin gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Kristjánsbakarí er eitt af elstu fjölskyldufyrirtækjum landsins og á farsæla 103 ára sögu í samfelldri eigu þriggja ættliða. Bæði félög verða rekin áfram...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-skiptir-um-heimavoll-spila-i-ka-heimilinu
Akureyri skiptir um heimavöll-Spila í KA-heimilinu Stjórn og aðstandendur Akureyrar Handboltafélags hafa tekið þá ákvörðun að skipta um heimavöll félagsins. Heimaleikir félagsins á komandi tímabili verða leiknir í því sem í daglegu tali er kallað KA heimilið en ýmsir hafa þó viljað kalla Íþróttahús Lundarskóla. Í tilky...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skemmtiferdaskip-sneri-vid-vegna-vedurs
Skemmtiferðaskip sneri við vegna veðurs Skemmtiferðaskip með 2000 farþega innanborðs sem átti að leggjast við Oddeyrarbryggju á Akureyri í morgun þurfti frá að hverfa vegna veðurs en stíf sunnanátt er nú á Akureyri. Bergþór Erlingsson hjá SBA á Akureyri segir að um 60 manns hafi undirbúið komu gesta skemmtiferðaskipsin...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hverjar-eru-bokavenjur-skolafulltruana
Hverjar eru bókavenjur skólafulltrúana? Þjóðarsáttmáli um læsi á milli Akureyrarkaupstaðar og mennta- og meningarmálaráðuneytisins var undirritaður í síðustu viku. Börn og foreldrar eru hvött til þess að taka sér bók í hönd og lesa sér til gagns og gamans. Í því tilefni fékk Vikudagur fulltrúana fimm í skólnefnd Akurey...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/getur-verid-haettulegt-ad-drekka-of-mikid-vatn
Getur verið hættulegt að drekka of mikið vatn? Drykkjarvatn getur verið mjög hættulegt þegar það er drukkið mikið á of stuttum tíma. Algeng einkenni vökvasöfnunar (overhydrating) eru sundl, meðvitundarleysi, persónuleikabreytingar og uppköst – áður en þú að lokum getur fallið í dá. Læknar hafa áhyggjur af óhóflegri ney...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/farsakennt-og-mikid-hitamal
„Farsakennt og mikið hitamál“ Skiptar skoðanir eru á meðal hagsmunaaðila um lokanir í göngugötunni í miðbæ Akureyrar en sú venja að loka götunni tímabundið á sumrin hefur lengið verið hitamál. Meðan sumir vilja skapa stemmningu með því að loka fyrir bílaumferð eru aðrir því ósammála og segja stemmninguna ekkert minni m...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vistvaenir-bilar-fa-forgang
Vistvænir bílar fá forgang „Yfirlýst markmið bæjaryfirvalda á Akureyri er að hamla eins og frekast er kostur gegn notkun mengandi jarðefnaeldsneytis og gera Akureyri þannig smám saman að fyrirmyndar umhverfisvænu samfélagi,“ segir í tilkynningu frá Akureyrarbæ. Vistorkustæði í og við miðbæ Akureyrar hafa verið tekin í ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baerinn-opinn-fyrir-hjolastigum-a-gotum
Bærinn opinn fyrir hjólastígum á götum Guðmundur Baldvin Guðmundsson. formaður bæjarráðs á Akureyri. segir að bæjaryfirvöld muni skoða þann möguleika að leggja hjólastíga meðfram helstu götum bæjarins . Eins og Vikudagur greindi frá nýverið er mikil gróska í hjólreiðum á Akureyri og sagði Vilberg Helgason, formaður Hjó...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/soum-minna
Sóum minna! Um 20% af útgjöldum heimilanna fara í matarinnkaup. Er þar miðað við hina steríótípíska fjölskyldu - 3,9 manns á heimili. Það gera um 1,6 milljón á ári eða 135 þúsund krónur á mánuði. Enn hafa fngar rannsóknir verið gerðar á því hversu miklum mat Íslendingar sóa á ári hverju, en séum við á pari við önnur Ev...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/otrulega-lansom-i-thessu-litla-samfelagi
„Ótrúlega lánsöm í þessu litla samfélagi" Dusanka Kotaras var í hópi þeirra 24 flóttamanna sem komu til Akureyrar frá fyrrum Júgóslavíu árið 2003. Hingað kom hún ásamt eiginmanni sínum og tveimur dætrum og öðlaðist fjölskyldan nýtt og betra líf á Akureyri. Hún segist þakklát fyrir það tækifæri sem henni og fjölskyldunn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/otimabaert-ad-tala-um-fjolda-flottamanna
Ótímabært að tala um fjölda flóttamanna Guðmundur Baldvin Guðmundsson, formaður bæjarráðs á Akureyri, segir óvíst hversu mörgum flóttamönnum Akureyri gæti tekið við. Akureyrarbær var fyrst sveitarfélaga til að lýsa yfir vilja til að taka á móti flóttamönnum á þessu ári og því næsta en þá var talið að Ísland myndi taka ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thetta-er-raunverulegur-missir
„Þetta er raunverulegur missir" Skilningur á fósturlátum og andvanafæðingum er oft lítill meðal fólks en hefur þó orðið meiri undanfarin ár með aukinni umræðu. Ragnheiður Ýr Guðjónsdóttir fæddi tvisvar dáin börn á innan við ári og segir þá lífsreynslu fylgja sér alla tíð. Hún lítur á sig sem fjögurra barna móður en hef...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/miklar-endurbaetur-a-bradamottoku-sak
Miklar endurbætur á bráðamóttöku SAk Ný og endurbætt bráðamóttaka hefur verið tekin í notkun á Sjúkrahúsi Akureyrar. Jafnframt hefurverið tekið í notkun nýtt forgangsröðunarkerfi sem miðar að bættu flæði og auknu öryggi sjúklinga. Síðast en ekki síst var formlega tekið í notkun nýtt sjúklingavöktunarkerfi inni á bráðam...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/a-gjorningahatid-i-fyrsta-sinn
A! Gjörningahátíð í fyrsta sinn A! Gjörningahátíð verður haldin í fyrsta sinn dagana 3. - 6. september og er stefnt að því að hún verði að árlegum viðburði. Á dagskrá eru 14 fjölbreyttir gjörningar auk „off venue“ viðburða og vídeólistahátíðarinnar heim. A! Gjörningahátíð er lokahnykkurinn á Listasumri á Akureyri sem v...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/itreka-mikilvaegi-fyrir-beint-flug-fra-akureyri
Ítreka mikilvægi fyrir beint flug frá Akureyri Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar ítrekrar mikilvægi þess að fjármagn verði sett í að markaðssetja Akureyrarflugvöll sem áfangastað fyrir beint flug. Njáll Trausti Friðbertsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hóf umræðu um eingáttastefnuna á bæjarstjórnarfundi í gær. Í ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/breyttu-gomlu-felagsheimili-i-hrisey-i-studio
Breyttu gömlu félagsheimili í Hrísey í stúdíó Ljótu hálfvitarnir hafa nýlokið við upptöku sinnar fimmtu plötu en þeir félagar ákváðu að taka upp plötuna í Hrísey. „Ég veit ekki til þess að einhver hafi tekið upp plötu hér á eyjunni áður, án þess að ég hafi kynnt mér málið til hlýtar. En ég held þó ekki,“ segir Oddur Bj...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thakklaetid-sem-folk-synir-er-ometanlegt
„Þakklætið sem fólk sýnir er ómetanlegt" Hjónin Guðmundur Ólafur Gunnarsson og Kristín Baldvinsdóttir héldu til Kambódíu um miðjan ágúst þar sem þau aðstoða við uppbyggingu og rekstur á nýjum skóla. Þau segja ferðalag til Indlands fyrir þremur árum hafa breytt miklu í lífi þeirra og fundu þau þörf til að láta gott af s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lokad-vegna-malbikunar
Lokað vegna malbikunar Í dag, mánudaginn 31. ágúst, er unnið að malbikun við nýtt hringtorg á gatnamótum Borgarbrautar og Bugðusíðu á Akureyri og er svæðið lokað fyrir allri umferð meðan á malbikun stendur. Strætisvagnar keyra um Bröttusíðu og Borgarbraut að Merkigili á meðan. Biðskýli í Bugðusíðu og Vestursíðu verða þ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/geta-fullmenntad-kokka-og-thjona
Geta fullmenntað kokka og þjóna Verkmenntaskólinn á Akureyri hefur fengið heimild til þess að útskrifa matreiðslu- og framreiðslumenn en til þessa hafa nemendur þurft að fara suður yfir heiðar og ljúka náminu þar. Marína Sigurgeirsdóttir, brautarstjóri matvælabrautar VMA, segir þetta mikið og stórt skref. Hún segir jaf...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stundum-hrys-manni-hugur-vid-verkefninu
„Stundum hrýs manni hugur við verkefninu" Svavar Alfreð Jónsson hefur starfað sem prestur í nærri þrjá áratugi. Hann segir starfið gefandi og krefjandi í senn og árin hafi kennt sér að vera alltaf leitandi í trúnni. Hann er kvæntur menntaskólaástinni, Bryndísi Björnsdóttur úr Svarfaðardal og saman eiga þau þrjú börn. E...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fagna-endurbotum-a-eidsvelli
Fagna endurbótum á Eiðsvelli Hverfisnefnd Oddeyrar á Akureyri fagnar endurbótum á Eiðsvelli. Akureyrarbær hefur í nafni Umhverfisátaks og í samvinnu við hverfisnefndina sinnt viðhaldi á staðnum sem nokkuð hefur látið á sjá síðustu ár. Göngustígurinn hefur verið endurnýjaður, útbúið hefur verið opnanlegt fag á girðingun...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thusund-kerti-i-thagu-fridar
Þúsund kerti í þágu friðar Eftir stórtónleikana í Listagilinu á Akureyri annað kvöld, laugardagskvöldið 29. ágúst, í tengslum við Akureyraravöku, þar sem koma fram meðal annars Jónas Sig, Lay Low og Samúel Samúelsson, verður efnt til friðarvöku í kirkjutröppunum. Kveikt verður á um þúsund útikertum í þágu heimilisfriða...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hjolreidafolk-vill-hjolastiga-medfram-gotum
Hjólreiðafólk vill hjólastíga meðfram götum Vilberg Helgason, formaður Hjólreiðafélags Akureyrar, segir mikla þörf að hjólreiðarstígum meðfram stofnbrautum á Akureyri. Hjólreiðar njóti vaxandi vinsælda í bænum og sífellt fleiri nýta sér reiðhjól sem farartæki. Bæjaryfirvöld á Akureyri hafa lagt töluvert í uppbyggingu f...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/illuga-og-arnori-bodid-til-malefnalegrar-umraedu-um-laesi
Illuga og Arnóri boðið til málefnalegrar umræðu um læsi Háskólinn á Akureyri stendur við sína gagnrýni um hvernig gögn Menntamálastofnunar um árangur Byrjendalæsis hafa verið sett fram og túlkuð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri en þar segir að ákveðið hafi verið að efna ...