text stringlengths 0 17.6M |
|---|
NETABÁTAR í Faxaflóa hafa fengið mjög dræman afla að undanförnu, allt niður í 100 kíló í róðri. Sjómenn eru þó ekki farnir að örvænta og segja að úr muni rætast áður en langt um líður. " Það hefur verið mjög léleg veiði nánast alveg frá áramótum. Hér hefur verið stanslaus norðanátt í heilan mánuð og þá er ekki að sökum... |
Einstaklingur sem skrifaði undir meðmælendalista fyrir framboð í sveitarstjórnarkosningunum í Kópavogi hefur farið fram á að Persónuvernd athugi hvort opinber birting á meðmælendalistum sé lögmæt. Telur hann að Þór Jónsson, fyrrverandi upplýsingafulltrúi Kópavogsbæjar, hafi brotið persónuverndarlög með því að birta með... |
Uppskrift fyrir fjóra Hráefni : 2 - 3 dósir niðursoðnir tómatar í bitum 2 stk. hvítlauksgeirar 1 stk. rauðlaukur 1 stk. agúrka 1 stk. paprika, hreinsuð 4 msk. ólífuolía ½ dl rauðvínsedik, nýmalaður pipar og salt brauðstangir ½ dl sýrður rjómi Matreiðsla : Maukið hvítlauk, rauðlauk, agúrku og papriku í matvinnsluvél í 2... |
Breiðablik lagði Val 3 - 2 í æfingaleik í Fífunni í gær en bæði lið tefldu fram blönduðu liði reyndra manna og nýliða. Rannver Sigurjónsson skoraði eitt mark fyrir Blika en hann hefur æft með liðinu að undanförnu. Keflavík sigraði Stjörnuna 2 - 1 í gærmorgun en Ólafur Karl Finsen skoraði mark Garðabæjarliðsins eftir að... |
Mario Balotelli skoraði sigurmark Liverpool í kvöld er liðið mætti Tottenham í ensku úrvalsdeildinni. Balotelli kom inná þegar um 15 mínútur voru eftir af leiknum í stöðunni 2 - 2 og skoraði markið á 83. mínútu leiksins. Einn stuðningsmaður Liverpool hafði enga trú á Balotelli og þarf að standa við skelfileg orð sem ha... |
KR-INGARNIR Kjartan Henry Finnbogason og Theodór Elmar Bjarnason halda utan til Hollands á laugardaginn þar sem þeir verða til reynslu hjá hinu kunna knattspyrnufélagi Feyenoord. " Við æfum þar í eina viku og það verður spennandi að spreyta sig þar. Feyenoord er þekkt fyrir gott uppeldisstarf og þegar boð kom frá félag... |
English Breakfwoof hefur í samstarfi við gæludýrafyrirtækið Woof & Brew, sett nýja te-tegund á markað sem er eingöngu fyrir hunda. Þessi nýjung var gerð til heiðurs alþjóðlega hundadeginum, sem finna má 26. ágúst ár hvert – og rennur ágóðinn 100% til góðgerðarfélags sem styrkir hunda. Hér er þó ekki verið að nota koffí... |
JOHN Barnes hefur verið einn besti knattspyrnumaður Englendinga á síðustu áratugum. Hann lék með Liverpool á hátindi ferils síns og marga leiki fyrir landslið Englands. Víkverji er að lesa sjálfsævisögu Barnes, sem nú er yfirþjálfari Glasgow Celtic í Skotlandi, og þar er um athyglisverða bók að ræða fyrir margra hluta ... |
Nýir ráðamenn í Líbíu segjast ráða yfir vopnum, sem hafi verið bönnuð á alþjóðavettvangi. Þetta séu vopn sem ríkisstjórn Múammars Gaddafis, fyrrverandi einræðisherra, hafi búið yfir. " Við ráðum yfir mörgum vopnum, sem eru bönnuð samkvæmt alþjóðlegum samningum, " sagði Mustafa Abdel Jalil, yfirmaður þjóðarráðs uppreisn... |
Chelsea 3 - 2 Arsenal 1 - 0 Pedro ( 9 ′ ) 2 - 0 Alvaro Morata ( 20 ′ ) 2 - 1 Henrikh Mkhitaryan ( 37 ′ ) 2 - 2 Alex Iwobi ( 41 ′ ) 3 - 2 Marcos Alonso ( 81 ′ ) Það fór fram stórleikur í ensku úrvalsdeildinni í dag er lið Chelsea og Arsenal áttust við á Stamford Bridge. Það var boðið upp á gríðarlega fjörugan fyrri hálf... |
Milljónir manna hafa lítið sem ekkert að leggja sér til munns í Norður-Kóreu. Hungurdauði blasir við hundruðum þúsunda berist þeim ekki matvæli að utan. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna. |
Í morgun veiddist enn einn stórlaxinn úr Hnausastreng í Vatnsdalsá í Húnavatnssýslu. Það var Oddur Ingason sem landaði 108 cm hæng eftir snarpa viðureign. Þetta er stærsti laxinn sem komið hefur á land úr ánni í sumar, en áður hafði breski tónlistarmaðurinn Eric Clapton landað 105 cm laxi úr Hnausastreng laxi þann 4. á... |
Fjórir leikir fóru fram í NBA-körfuboltanum í nótt en mesta spennan var er Phoenix vann sjö stiga sigur á New Orleans eftir framlengingu, 139 - 132. Phoenix sótti New Oreleans heim en staðan eftir venjuleagn leiktíma var 125 - 125. Í famlengingunni voru hins vegar gestirnir frá Phoenix sterkari og unnu sinn tíunda sigu... |
KARLMAÐUR á fimmtugsaldri liggur lífshættulega særður á gjörgæsludeild Landspítala eftir líkamsárás. Lögregla hefur handtekið karlmann á fertugsaldri vegna málsins og í dag ræðst hvort farið verður fram á gæsluvarðhald yfir honum. Lögregla tjáir sig ekki um tildrög árásarinnar að svo stöddu. Lögreglunni á höfuðborgarsv... |
Enginn getur vitað fyrir víst hvaðan fyrsta örugga og áhrifaríka bóluefni gegn kórónuveirunni mun koma. Þetta segir Jeremy Farrar, einn helsti sérfræðingur Breta í smitsjúkdómum, og leggur áherslu á að öryggið sé algjört forgangsatriði þegar kemur að þróun og prófunum bóluefna. Rætt er við Farrar á vef Guardian en lyfj... |
Kona í Port-au-Prince á Haítí horfir á eigur sínar brenna upp eftir að æstur múgur fór um markaðstorgið sem hún vann á og braut allt og bramlaði. Mikil mótmæli voru í borginni í gær vegna hneykslismáls sem tengist embættismönnum ríkisins. Æstur múgurinn fór um borgina og krafðist þess að kjördæmisráðið segði af sér, en... |
Lokaumferð þýsku B-deildarinnar í handbolta fór fram í gær. Íslendingaliðin Lübbecke og Düsseldorf voru þó þegar búin að tryggja sér sæti í úrvalsdeildinni fyrir þó nokkru. Hannover-Burgdorf, lið Hannesar Jónssonar og Heiðmars Felixssonar, tryggði sér svo annað sæti norðurriðilsins með sigri á Emper Rostock í gær, 34 -... |
Bridsdeild Samiðnar Bridsdeild Samiðnar spilar annan hvern fimmtudag á Suðurlandsbraut 30, 2. hæð. Spilamennska hefst kl. 19:30. Alltaf létt og skemmtileg stemning Fimmtudaginn 28. nóvember hefst tveggja kvölda tvímenningur þar sem keppt er um járnsmíðabikarinn. Allir félagar í Samiðn eru velkomnir. Nánari upplýsingar ... |
Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu, ræddi í dag við forystumenn stjórnmálaflokka um stuðning við efnahagsaðgerðir ríkisstjórnar hans. Búist er við að ríkisstjórnin samþykki á mánudag nýja efnahagsáætlun, sem síðan verður kynnt báðum deildum ítalska þingsins. Heimildarmenn kunngir áætluninni segja að ríkisstjórnin ger... |
Barcelona lenti ekki í miklum vandræðum með norska liðið Elverum er liðin mættust í Íslendingaslag í Meistaradeildinni í dag. Börsungar voru 15 - 12 yfir í hálfleik og unnu að endingu með níu marka mun, 33 - 24. Aron Pálmarsson skoraði þrjú mörk úr fjórum skotum en markahæstur Börsunga var Luka Cindric með sjö mörk úr ... |
Björn Steinar Guðmundsson fæddist á Hvammstanga 26. ágúst 1941. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 8. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðmundur Jónas Þorsteinsson Baldvinsson, f. 10.1. 1898, d. 27.3. 1957, og Þórunn Agnarsdóttir, f. 11.8. 1909, d. 22.10. 1992. Systkini Björn Steinars eru Óskar Ing... |
Bandaríski kylfingurinn Jordan Spieth hefði ekki getað fengið betri undirbúning um helgina fyrir stærsta mót ársins í golfheiminum. Spieth vann í gær sigur á John Deere Classic-mótinu sem er hluti af bandarísku PGA-mótaröðinni. Spieth hafði betur gegn landa sínum Tom Gillis eftir tvær holur í bráðabana en þeir spiluðu ... |
Ingvar Ólason er genginn í raðir Þróttar eftir tíu ára fjarveru en hann skrifaði undir eins árs samning við félagið nú í morgun. Ingvar hóf knattspyrnuferil sinn í 6. flokki Þróttar og lék með öllum yngri flokkum félagsins og upp í meistaraflokk. Hann fékk sitt fyrsta tækifæri með meistaraflokki sumarið 1991 og lék þar... |
Guðfríður Lilja | 27. febrúar 2007 Thelma í framboði Myndin af pabba – Saga Thelmu hreyfir við öllum er lesa. Það þarf mikið hugrekki til að ganga fram fyrir skjöldu og segja sögu sína eins og Thelma gerði. Ég vona að væntanleg kvikmynd verði unnin af jafn mikilli næmni og innsæi og bókin – og hvet alla til að lesa bók... |
Magnús Snædal hittir naglann á höfuðið þegar hann segir : " Þegar manni dettur ekkert frumlegt í hug sjálfum má reyna að endurraða orðum annarra ( í þessu tilviki Björns M. Ólsen og Hannesar Hafstein ) : Ef sætir þú skýr að Skúla og skálda létir þinn túla, nú eins og þá þú mundir fá högg frá Hákoni fúla. " Hér vísar Ma... |
Rebekka Hilmarsdóttir, bæjarstjóri í Vesturbyggð segir að ekki liggir fyrir, að svo stöddu, hvort friðlýsingu Látrabjargs muni fylgja aukið fjármagn og fleiri störf. Friðlýsingin er í undirbúningi og bæjarstjórn Vesturbyggðar hefur samþykkt drög að friðlýsingarskilmálum fyrir svæðið. Í svörum frá Umhverfisstofnun segir... |
Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is FORÐIST OKKUR eftir Hugleik Dagssson verður tekin til sýningar að nýju á litla sviði Borgarleikhússins á morgun. Sýningin, sem var sett upp seinasta haust, fékk afar góðar viðtökur jafnt hjá gagnrýnendum sem almenningi og komust færri að en vildu en Forðist okkur er samstarfs... |
Tveir af efnilegustu knattspyrnumönnum landsins, þeir Hafsteinn Gísli Valdimarsson og Sigurður Grétar Benónýsson, skrifuðu undir sína fyrstu samninga hjá ÍBV á föstudaginn var. Sigurður Grétar skrifaði undir tveggja ára samning en Hafsteinn Gísli þriggja ára. Báðir eru þeir á fyrsta ári í öðrum flokki og hafa gengið up... |
Ég veit að lausnari minn lifir og hann mun síðastur ganga fram á foldu. ( Jobsbók 19:25 ) |
Flugbókunum til Bretlands fjölgaði um 4,3 prósent mánuðinn eftir að Bretar kusu að yfirgefa Evrópusambandið. Ástæðu þess má rekja til þess að gengi Sterlingspunds féll um tíu prósent gagnvart bandaríkjadal. Mest aukning var frá Hong Kong, eða um 30,1 prósent, svo var 9,2 prósent aukning frá Bandaríkjunum og 5 prósent f... |
Mesut Ozil, sóknarmaður Arsenal hefur ekki viljað skrifa undir nýjan samning við félagið. Hann hefur því verið orðaður við brottför frá félaginu ásamt Alexis Sanchez en þessir tveir hafa verið algjörir lykilmenn í liðinu, undanfarin ár. Ozil hefur verið orðaður við Bayern Munich að undanförnu en hann gæti vel snúið aft... |
Jurgen Klopp stjóri Liverpool er ekki hrifinn af allri þeirri athygli sem hann dregur að sér. Þessi litríki karakter telur að svipbrigði hans á hliðarlínunni séu valdur þess að hann sé skærasta stjarna Liverpool. ,, Ég er ekki eini maðurinn í sýningunni, ég hef aldrei verið það og vil aldrei vera það, “ sagði Klopp. ,,... |
„ Það eru ekki minni líkur á verkföllum eftir þennan dag en kröfur okkar snúa náttúrulega fyrst og fremst að atvinnurekendum og þeim verður þá bara fylgt eftir af meiri hörku, “ segir Drífa Snædal, forseti ASÍ í samtali við fréttastofu um framhaldið í kjaraviðræðunum. Drífa bjóst við því að stjórnvöld myndu ganga lengr... |
Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra segir að það sé misskilningur að fjármögnun vegaframkvæmda með vegtollum muni flýta fyrir slíkum framkvæmdum. Ekki sé hægt að fara í öll þau verkefni sem kallað hefur verið eftir á sama tíma. „ Misskilningurinn sem hefur legið hérna í loftinu ósvarað í heilt ár er að við það að... |
Meirihlutinn í umhverfis - og skipulagsráði segir uppbyggingu á lóðinni þar sem Landsbankinn ætlar að reisa höfuðstöðvar sínar mikilvæga svo að þarna verði ekki áfram hola, stórt sár í miðborginni. Sjálfstæðismenn vilja vinna með bankanum til að finna viðunandi framtíðarstaðsetningu í borginni. Landsbankinn ákvað, í by... |
Runólfur B. Aðalbjörnsson fæddist 19. mars 1934. Hann lést 12. febrúar 2016. Útför Runólfs fór fram 27. febrúar 2016. Í dag er borinn til grafar sómamaðurinn Runólfur Aðalbjörnsson, fyrrverandi bóndi í Hvammi í Langadal. Runólfur, eða Olli eins og við kölluðum hann í daglegu tali, var mjög fjölhæfur og sérlega laghentu... |
Í dag, föstudag milli kl. 12 og 12.30, verða tónleikar í röðinni " Á ljúfum nótum " í Háteigskirkju. Flutt verða lög úr " Neun deutsche Arien " eftir Händel, ásamt fleiri verkum. Flytjendur á tónleikunum eru þau Erla Björg Káradóttir sópran, Balázs Stankowsky fiðluleikari og Kitty Kovács píanóleikari. Hádegistónleikarn... |
Hver elskar ekki léttan og fljótlegan morgunverð þegar tíminn er af skornum skammti. Morgunverð sem er dásamlega bragðgóður og líka svo merkilega hollur. Það er Anna Eiríksdóttir einkaþjálfari sem á þessa uppskrift en hún er afkaplega hrifin af honum. „ Þegar ég er í tímaþröng á morgnana þá finnst mér mjög gott að hend... |
Rómantískar ballöður og tónlist sveipuð dulúð fá töfraveröld Walt Disney til að lifna við á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands um helgina. Þrír þjóðþekktir söngvarar bregða sér í hlutverk þekkra teiknimyndapersóna en einn þeirra hefur ljáð hátt í 30 Disney-söguhetjum rödd sína. Felix Bergsson, söngvari : Þessi músí... |
Laugardaginn 3. ágúst kl. 15 verður dagskrá í Dalbæ á Snæfjallaströnd til að heiðra aldarminningu Ásgeirs Guðjóns Ingvarssonar ( 1919 - 1989 ) tónskálds, textahöfundar, tónlistar - og myndlistarmanns. Ásgeir var fæddur á Hamri í Nauteyrarhreppi, en fluttist ungur í Snæfjallahrepp með foreldrum sínum, Salbjörgu Jóhannsd... |
Eftir miðja síðustu öld ólst margt fólk upp umhverfis Klambratún, þar sem enn var rekinn búskapur. Aðskilnaður milli hverfa var þó mikill, því Miklabraut og Langahlíð skildu að hverfi. Höfundur þessarar greinar var á eina hlið en Einar Sveinsson á aðra hlið. Við kynntumst því ekki vegna umferðar. Fyrir réttum 30 árum k... |
Mál þetta, sem dómtekið var 20. júní síðastliðinn, var höfðað með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dagsettri 8. apríl sl., á hendur V-x-x S-x-x, kt. 000000-0000, Fangelsinu Litla-Hrauni, Eyrarbakka, Reykjavík, og R-x-x J-x-x, kt. 000000-0000, Engihjalla 9, Kópavogi, „ fyrir eftirtalin brot framin á árinu 20... |
Fyrsti farmurinn af íslensku sumargotssíldinni, á þessari vertíð, er nú á leið til Hornafjarðar. Skip Skinneyjar Þinganess eru þau einu sem byrjuð eru síldveiðar. Ásgrímur Halldórsson SH er væntanlegur til Hornafjarðar á miðnætti með tæp 700 tonn af síld sem þeir fengu á Breiðafirði. Ásgrímur var eina skipið þar við sí... |
Umræður um nýja stjórnarskrá Evrópusambandsins hófust í dag á franska þjóðþinginu. Þrjár nýjar skoðanakannanir, sem birtar voru í dag, benda til þess að meirihluti Frakka sé mótfallinn stjórnarskránni, en atkvæði verða greidd um hana í þjóðaratkvæðagreiðslu 29. maí næstkomandi. Undanfarnar tvær vikur hafa niðurstöður n... |
Í LEIKHÚSINU líður mér vel, þar er trukk og dýfa og taktur sem passar fyrir mig. Vinnutíminn er reglulegur, með kærkomnum afbrigðum og álagi vegna sýninga, andrúmsloftið lifandi og hreyfing á fólkinu. Mér finnst ég fjarska heppin með mitt starf - það er fullt af fólki sem getur sungið og fáar stöður við leikhúsin. " Au... |
Ofurbloggarinn og gervigrasafræðingurinn Jens Guð fer heldur betur óhefðbundna leið í markaðssetningu nýjustu plötu Lay Low, Ökutímum. Jens segir í fyrirsögn : " Kaupið plötuna Ökutíma eða ég lem ykkur! " Að vísu biðst hann afsökunar á hótuninni, en óhætt er að segja að hann hrífist af plötunni, sem er önnur sólóplata ... |
Landsmenn hafa í auknum mæli tekið út séreignarsparnaðinn sinn til að lækka síhækkandi skuldir og létta á greiðslubyrðinni. Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is SAMKVÆMT nýjum upplýsingum frá embætti ríkisskattstjóra hafa um 44 þúsund manns í 60 þúsund umsóknum sótt um að fá 33,7 milljarða króna greidda út af séreig... |
Reykjavíkurborg býður upp á sumarfrístund, siglingar, sumarbúðir, íþróttanámskeið, reiðnámskeið og leikjanámskeið í sumar. Íþrótta - og tómstundaráð Reykjavíkur heldur úti sumarvef ÍTR þar sem eru upplýsingar um það sumarstarf sem er í boði fyrir börn og unglinga á aldrinum 5 - 18 ára. Það eru sumarfrístund, siglingar,... |
OPINBER framlög til menntamála hérlendis í samanburði við önnur OECD-ríki hafa verið nokkuð á reiki. Rangar tölur birtust hjá OECD en nú hefur Hagstofan leiðrétt þær. Ef réttu tölurnar um opinber framlög til menntamála eru skoðaðar, sem eru nýjustu tölur OECD gefnar út árið 2002 og eru fyrir árið 1999, kemur í ljós að ... |
Lögmaður þeirra einstaklinga sem slitastjórn Glitnis hefur stefnt fyrir dóm í New York, Jonathan Gottfried, segir í yfirlýsingu að sjömenningarnir hafni alfarið þeim ásökunum sem koma fram í stefnu Glitnis. Segir hann vitni slitastjórnarinnar, Alexander Guðmundsson, fyrrum fjármálastjóra Glitnis, vafasamt og að hann be... |
Öllum málflutningi hjá Landsrétti hefur verið frestað eftir að starfsmaður dómstólsins greindist með kórónuveirusmit í gærkvöld. Björn L. Bergsson, skrifstofustjóri Landsréttar, segir að alla hjá Landsrétti fara í skimun í dag, bæði dómarar og starfsmenn. Þá verður húsnæði dómstólsins sótthreinsað hátt og lágt. Björn s... |
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Súrmatur er kominn í hillur verslana og hafin er sala á miðum á þorrablót. Þetta eru augljós merki þess að þorri nálgast, en bóndadagur er föstudaginn 22. janúar nk. Löng biðröð myndaðist fyrir utan útibú Íslandsbanka á Akranesi í nepjunni í gærmorgun, en þá hófst sala aðgöngumiða á þorrabl... |
80 ÁRA afmæli. Í dag, sunnudaginn 21. september, er áttræð Helena Sigtryggsdóttir, lengst af húsmóðir á Siglufirði en nú búsett í Kópavogi. Eiginmaður hennar var Jóhann G. Möller en hann lést árið 1997. Helena tekur á móti ættingjum og vinum á Marbakkabraut 32 í Kópavogi frá kl. 18 í kvöld. |
Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, sækist eftir efsta sæti Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor og að vera í forystu fyrir borginni. Dagur er uppalinn í Árbænum, læknir að mennt og hefur setið í borgarstjórn frá 2002. Hann er kvæntur fjögurra barna faðir. Hann er stoltur af árangri síðustu ár... |
Nú þegar landinn er að reyna að rísa upp úr rústum bankahrunsins finnst mér undarlegt að horfa upp á andvaraleysi ráðamanna gagnvart nýrri hugsun. Það mál sem er mér efst í huga er hversu erfitt það virðist vera að fá ráðamenn til að ýta undir notkun á óhefðbundnum orkugjöfum, og þá sérstaklega þeim sem við framleiðum ... |
Stjórnskipuð nefnd í Bandaríkjunum hefur komist að þeirri niðurstöðu að eiturefni hafi valdið svokallaðri Flóaveiki sem hrjáð hefur fyrrverandi hermenn er börðust í Persaflóastríðinu 1991. Að sögn The New York Times telur nefndin að hermennirnir hafi komist í snertingu við einhvers konar taugaeitur. Blaðið segir að hug... |
Nú rétt í þessu var dregið til undanúrslitanna í ensku bikarkeppninni en liðin sem eftir eru í keppninni eru : Chelsea, Arsenal, Manchester City og Tottenham. Drátturinn varð þessi : Arsenal - Manchester City Chelsea - Tottenham Leikirnir fara fram á Wembley 22. og 23. apríl. |
Tveir lottóspilarar eru rúmum 240 þúsund krónum ríkari eftir að Lottó kvöldsins. þeir hluti annan vinning kvöldsins. Fyrsti vinningurinn gekk ekki út að þessu sinni en hann var tæplega 27 milljónir króna. Tölur kvöldsins voru : 2, 27, 32, 39 og 40. Bónustalan var 4. |
Stefnt er að því að hundrað og níutíu íbúðir verði risnar í Vesturbugt við gamla slippinn í Reykjavík innan fimm ára. Verkefnið hefur tekið nokkrum breytingum frá því það var kynnt fyrst og íbúðum fjölgað. Í maí 2017 skrifuðu Reykjavíkurborg og byggingarfélagið Vesturbugt undir samning um byggingu 176 íbúða á einstakri... |
Hann svifti sig engu valdi samk guðsp. Þeir vita sem er að þeir ná ekki að starfa svona lengi einir og sér ( þ.e. þrír bankar í svona litlu og fámennu umhverfi sem hér er ; starfsemi þeirra erlendis er bara sýndarveruleiki sem er að falla um sjálfa sig ). Fortíðin leiðir til þess hvernig nútíminn er. 1 dós sýrður rjómi... |
Íslenskar kvikmyndir verða í brennidepli í Lincoln Center-listamiðstöðinni í New York dagana 18. - 26. apríl nk. Sýndar verða átján kvikmyndir, sem spanna rúmlega sex áratugi í kvikmyndasögu Íslands, allt frá fyrstu talkvikmyndinni 1949 til kvikmynda sem frumsýndar voru síðla árs 2011. |
Sú var tíðin að Íslendingar gumuðu af gestrisni sinni. Íslensk sveitagestrisni var á allra vörum og við stærðum okkur af því að vera höfðingjar heim að sækja. Nú virðist gestrisni okkar vera bundin við það að höfðingjar sæki okkur heim, eða í það minnsta fólk sem getur borgað fyrir greiðann. Beiningamenn eru hins vegar... |
Á Ásvöllum Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Haukar voru einfaldlega klókari en leikmenn ÍBV í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í handknattleik á Ásvöllum í gær. Leiknum lauk með fjögurra marka sigri, 35 : 31. Haukar voru með yfirhöndina nánast allan leikinn. Haukarnir voru sterkari aðilinn í upphafi ... |
Körlum starfandi í leikskólum í Reykjavík fjölgar um tæp 64 prósent frá árinu 2017 og voru þeir 167 í fyrra. Hlutfall karla af öllum stöðugildum hækkar þó aðeins lítillega og fer frá 9,7 prósent árið 2019 í 10,3 prósent árið 2020. Árið 2017 var hlutfallið aðeins 7,2 prósent. Þetta kemur fram í bæklingnum Kynlegar tölur... |
2. júní 1707 Bólusótt barst til landsins með Eyrarbakkaskipi. Hún geisaði í tvö ár og þriðjungur Íslendinga lést úr henni. Sóttin sem nefnd hefur verið " stóra bóla " var mannskæðasta sótt síðan " svarti dauði " herjaði þremur öldum áður. 2. júní 1934 Dalvíkurskjálftinn, einn stærsti jarðskjálfti sem átt hefur upptök n... |
Heildartap Íslenskrar erfðagreiningar frá árinu 1997 til ársloka 2011 nemur rúmlega 60 milljörðum króna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ítarlegri umfjöllun DV í dag um fyrirtækið. Fyrirtækið var selt í vikunni til bandaríska líftækni - og lyfjaframleiðslufyrirtækisins Amgen fyrir 415 milljónir Bandaríkjadala, eða... |
Íslendingar verða fyrir mikilli kjaraskerðingu á árinu vegna krónunnar. Peningastefnan hefur beðið skipbrot segir forstjóri Kaupþings. Davíð Oddsson, seðlabankastjóri ræddu á dögunum um lýðskrumara og mátti á ummælum hans skilja að þar væri átt við þá sem rætt hefðu um að hér ætti að taka upp evru. Hreiðar Már Sigurðss... |
Frakkar tilkynntu á blaðamannafundi nú rétt í þessu að Raymond Domenech hafi verið ráðinn landsliðsþjálfari þeirra. Domenech tekur við stöðunni af Jacques Santini sem hætti eftir EM 2004 til að taka við Tottenham Hotspur. Domenech er gamall landsliðsvarnarmaður en hann þjálfaði Olympique Lyon árin 1989 - 1994 og tók þá... |
Peter Marki-Zay verður formannsfulltrúi stjórnarandstöðunnar í þingkosningum Ungverjalands í vor. Marki-Zay er lítt þekktur á sviði alþjóðlegra stjórnmála en hann hefur undanfarin þrjú ár gegnt starfi bæjarstjóra í Hodmezovasarhely. Hann verður formaður flokks sem sameinar sex aðra flokka og er eitt af slagorðum kosnin... |
Það var árið 1919 sem tekin var í notkun fyrsta byggingin sem var sérstaklega reist fyrir heilbrigðisþjónustu á Hvammstanga, læknisbústaður sem stendur við Spítalastíg 1. Áður hafði héraðslæknir sinnt sjúklingum á heimili sínu. Í tilefni afmælisins býður Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga í afmæliskaffi milli... |
Alex Ferguson er sagður hafa mikinn áhuga á miðjumanninum snjalla hjá Aston Villa, Steven Davis. Þessi ungi miðjumaður hefur vakið verðskuldaða athygli í vetur fyrir frammistöðu sína eftir að honum tókst að vinna sig inn í liðið. Hann skoraði stórkostlegt sigurmark Villa gegn Charlton um helgina en þar sýndi hann hæfni... |
Tillaga til þingsályktunar um millilandaflug um Vestmannaeyjaflugvöll og Ísafjarðarflugvöll. Flm. : Ásmundur Friðriksson, Haraldur Benediktsson, Vilhjálmur Árnason, Elín Hirst, Unnur Brá Konráðsdóttir, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Páll Jóhann Pálsson, Jón Gunnarsson, Vilhjálmur Bjarnason, Páll Valur Björnsson, Lilja Rafne... |
Jón Dagur Þorsteinsson, fyrirliði U21 landsliðsins, sat fyrir svörum á fréttamannafundi í Ungverjalandi í dag. Á morgun klukkan 17:00 er komið að fyrsta leik Íslands í riðlakeppni EM. Leikið verður gegn Rússlandi en Danmörk og Frakkland eru einnig í riðlinum. Tvö efstu liðin tryggja sér sæti í útsláttarkeppni. „ Auðvit... |
Palestínumenn velja sauði á búfjármarkaði í Betlehem fyrir fórnarhátíðina Eid al-Adha, eina af helstu trúarhátíðum múslíma. Margir þeirra slátra þá sauð, geit, úlfalda eða kú til að minnast þess er Abraham var tilbúinn að fórna syni sínum að skipun Guðs til að sanna hlýðni sína við hann. Hátíðin hefst á morgun. |
Eftir vægast sagt harðar deilur og þung ummæli í kjölfar þess að KA hafði frumkvæði að því að slíta samstarfinu við Þór um rekstur kvennaliðs Þórs / KA hefur liðinu verið tryggð framtíð á ný næstu þrjú árin. Ekki virðast öll kurl þó vera komin til grafar. Eitt helsta þrætueplið í samstarfi félaganna þegar til endurskoð... |
Nikkei hlutabréfavísitalan hækkaði um 1,49% í Kauphöllinni í Tókýó í dag og er lokagildi hennar 17.719,20 stig. Hefur vísitalan ekki verið jafn há síðan 1. mars. Fylgdi Nikkei vísitalan í fótspor hlutabréfavísitalna á Wall Street sem hækkuðu í gærkvöldi. |
Ég, undirritaður, er fæddur og uppalinn á Akranesi en hef búið á höfðuborgarsvæðinu síðan 1991. Ég hef sterkar taugar til Akraness og alltaf öðru hverju, í það minnsta, grípur mig löngun til að flytja heim á Skagann. Ég og mín kona höfum nokkrum sinnum á undanförnum árum skoðað hús sem hafa verið til sölu á Akranesi en... |
„ Meginskýringin á þessu er að það hefur verið stígandi í eldsneytisverði á heimsmarkaði. Við erum ekki að horfa á stigvaxandi álagningu en skattahækkun um síðustu áramót spilar einnig inn í, “ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Bensínverð hefur hækkað nokkuð síðustu tvær vikur ... |
Í gærmorgun á milli klukkan 09:00 og 10:00 týndist umslag með peningaseðlum, 40.000 krónum, á leiðinni milli Landsbankans á Austurvegi að verslun Samkaupa við Tryggvagötu á Selfossi. Í frétt á vef DFS.is voru p eningaseðlarnir sagðir í Landsbankaumslagi en að öðru leyti var það ómerkt. " Þetta er stór upphæð fyrir þann... |
Samkomulag hefur tekist um myndun nýrrar samsteypustjórnar í Þýskalandi undir forystu Angelu Merkel, formanns kristilega demókrataflokksins. Þetta var tilkynnt síðdegis í dag. Til máls tók Angela Merkel, verðandi kanslari Þýskalands. |
Þetta er býsna áhugaverð skoðanakönnun sem gerð var af YouGov fyrir stuttu. Hún sýnir álit sem Evrópubúar í ýmsum löndum hafa á stjórnmálaleiðtogum. Þarna má til dæmis sjá að Angela Merkel og Emmanuel Macron eru vinsælli í Bretlandi en sjálf Theresa May. Donald Trump er hvarvetna í litlu áliti og kemur ekki á óvart. Óv... |
Á Jakobsvegi - hugsað upphátt á pílagrímaleiðinni til Santiago de Compostela er frásögn Jóns Björnssonar af leiðinni og sögunni sem tengist henni en hann fór árið 2001 í pílagrímsferð til Santiago de Compostela. Jakobsvegurinn á sér mikla og merkilega sögu og liggur um fjölmarga sögustaði og merkar menningarminjar. Á 9... |
Um 100 manns hafa verið valdir til að vera á viðbragðslista íslensku friðargæslunnar. Á fjárlögum næsta árs er gert ráð fyrir að 210 milljónir króna renni til friðargæslu og árið 2003 verði það 305 milljónir. Í fréttum RÚV kom fram að gert sé ráð fyrir að 20 manns starfi við friðargæslu erlendis á næsta ári, en árið ef... |
Eftir Steingerði Ólafsdóttur steingerdur@mbl.is MEÐ sveigjanlegum vinnutíma, tölvutækni og farsímum getur nútímamaðurinn alltaf verið í vinnunni, jafnvel þótt hann sé staddur heima í faðmi fjölskyldunnar. Þetta getur valdið streitu og jafnvel minnistapi og einbeitingarskorti, samkvæmt nýjustu rannsóknum. Þetta á ekki s... |
Teikningar eftir Sigmund munu ekki birtast í Morgunblaðinu næstu daga vegna veikinda. |
Uppfærsla Leikfélags Akureyrar á Gullna hliðinu eftir Davíð Stefánsson verður gestasýning í Borgarleikhúsinu í haust. Egill Heiðar Anton Pálsson leikstýrir sýningunni og með aðalhlutverk fer María Pálsdóttir. Gullna hliðið er eitt þekktasta og vinsælasta verk íslenskrar leiklistarsögu og segir af kerlingu sem getur ekk... |
Að vanda er nóg að gera á hársnyrtistofunni Rauðhettu og úlfinum á Skólavörðustíg. Annar eigenda stofunnar er Sigurjón G. Helgason, eða Grjóni eins og hann er yfirleitt kallaður, og blæs þar hár af miklum móð þessa dagana með forlátum Ferrari-hárblásara. Grjóni er flinkur í puttunum og ekki aðeins þegar kemur að skærum... |
Hinn níu ára gamli Xiang Xiang ( sem er ekki raunverulegt nafn barnsins ) hefur brætt hjörtu heimsbyggðarinnar, en þessi litli kínverski drengur er svo illa brunninn á andliti eftir slys sem hann varð fyrir fimm ára gamall, að hann þarf að ganga um með grímu. Drengurinn hefur aðeins einu sinni horft á spegilmyndina sín... |
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, afhenti Alice Bah Kuhnke, menningarmálaráðherra Svíþjóðar, til gjafar Íslendingasögurnar í sænskri þýðingu við hátíðlega athöfn í Uppsölum í dag. Í ræðu sinni rakti ráðherra sagnaarfinn og þýðingu Íslendingasagnanna enn þann dag í dag. „ „ Ber er hver að baki nema bróður sér ... |
„ Ég held að þú þyrftir að vera kjáni til að vera ekki mjög stressaður fyrir þessu og Jón er enginn kjáni, “ segir Jóhann Ævar Grímsson, einn af handritshöfundum Vakta-þáttanna um það hvaða tilfinningar bærast í brjósti Jóns Gnarrs, oddvita Besta flokksins, fyrir þeim nýju áskorunum sem blasa við honum í ljósi sigurs B... |
Ósætti með leikmannasamninga í Danmörku gæti orðið til þess að Bröndby gefi leik sinn gegn Barcelona í þriðju umferð UEFA Cup. Það var Per Nielsen fyrirliði Bröndby sem sagði frá þessu í gær : ,, Við stöndum saman og ef það gengur svo langt þá munum við ekki spila gegn Barcelona. ' sagði Nielsen á blaðamannafundi. Dans... |
Franska lögreglan handtók sex menn í dag í París og nágrenni en þeir eru grunaðir um að hafa átt aðild að þjófnaði á gullstöngum sem metnar eru á um 1,6 milljónir evra, sem svarar til 263 milljóna króna, í flugvél Air France sem var á leið til Zürich í Sviss. Leit stendur yfir að gullstöngunum sem var stolið úr vélinni... |
Jarðskjálfti af stærðinni 7,3 varð austur af Indónesíu í nótt að sögn jarðvísindastofnunar Bandaríkjann, USGS. Ekki er búist við því að skjálftinn eigi eftir að valda flóðbylgju. Upptök skjálftans voru á rúmlega 200 kílómetra dýpi suður af Ambon eyju um hádegi að staðartíma. Íbúar borgarinnar Darwin í Ástralíu fundu ve... |
Matthías Haraldsson, nýr þjálfari A-landsliðs kvenna í blaki hefur valið fyrsta æfingahóp sinn en þessi fyrsti hópur hans er fyrir komandi verkefni vorið 2013. Hópurinn samanstendur af eldri og reyndari leikmönnum í bland við unga og efnilega en þetta kemur fram í frétt á heimasíðu Blaksambands Íslands. Alls voru 23 le... |
Ég hef áður viðrað þá kenningu mína hér á síðum Morgunblaðins að mannskepnunni sé fyrirmunað að læra af sögunni. Ef til vill er það ofsögum sagt að þetta sé mín kenning, þ.e.a.s. að ég hafi sett hana fyrstur fram. Svo er að sjálfsögðu ekki. Til dæmis er haft eftir þýska heimspekingnum Georg Friedrich Hegel ( 1770 – 183... |
Bandaríkjamenn hafa fallist á að Íranar fái að senda farþegaflugvélar til viðgerða í öðrum löndum, að því er íranska ríkisútvarpið greindi frá í dag. Ekki kom fram í fréttinni í hvaða landi viðgerðirnar verði leyfðar, en heimildin mun ná til Airbus-flugvéla í eigu íranskra flugfélaga. Flugslys eru tíð í Íran, en flesta... |
Bretland er auðvelt skotmark fyrir hryðjuverkamenn vegna þess að mistekist hefur að halda í sameiginleg markmið og gildismat þjóðarinnar. Þetta kemur fram í skýrslu sem út kom í gær, þar sem stjórnvöld eru hvött til þess að grípa til aðgerða til að tryggja öryggi landsins. " Bretland kemur fram sem skotmark, sem molnan... |
Lögreglan í Sao Paulo í Brasilíu beitti táragasi í gærkvöldi til að leysa upp mikil mótmæli vegna yfirvofandi atkvæðagreiðslu um hvort svipta eigi Dilmu Rousseff, forseta landsins, embætti. Nokkur þúsund mótmælenda höfðu kveikt eld í ruslatunnum við torgið Paulista sem er staðsett í miðbæ Sao Paulo og hindruðu þannig a... |
Þó víkingar hafi fundið Norður-Ameríku löngu áður en Kristófer Kólumbus fór vestur um höf ásamt föruneyti sínu, hafa flestir talið að fáir Evrópubúar hafi vitað af því. Nú hefur því hinsvegar verið haldið fram að ítalskur munkur hafi skrifað um tilvist heimsálfunnar hinu megin við Atlantshafið, um 150 árum fyrir ferð K... |
Gera þarf nýtt greiðslumat fyrir að minnsta kosti 20 þúsund manns ef frumvarp til nýrra laga um neytendalán verður óbreytt að lögum. Þetta er mat Samtaka fjármálafyrirtækja. Ýmis smáfyrirgreiðsla eins og yfirdráttur á tékkareikningi eða heimild á krítarkorti verður þá háð greiðslumati fari samanlögð upphæð yfir eina mi... |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.