year stringclasses 2
values | id stringlengths 1 3 | intro stringlengths 53 1.08k ⌀ | main stringlengths 303 6.4k ⌀ | summary stringlengths 51 406 ⌀ |
|---|---|---|---|---|
2021 | 67 | Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfisráðherra, segir að árangur hafi náðst á loftlagsráðstefnunni í Glasgow, þótt hann hafi ekki verið nægilega mikill. Hann segist bera með sér kyndil vonarinnar frá Skotlandi. | Það náðist árangur en hann var bara ekki nægilega mikill.
sagði umhverfisráðherra um niðurstöðuna í viðtali við Þóru Arnórsdóttur í Silfrinu í morgun. Þrátt fyrir vonbrigði á ákveðnum sviðum hafi náðst áfangasigrar.
Í fyrsta lagi skilar þetta samkomulag okkur því aðríki heims eru að standa við markmiðið um að hlýnun ja... | null |
2021 | 67 | Forystumenn stjórnarandstöðuflokka segja að ríkisstjórninni hafi mistekist að efla Landspítalann nægilega mikið til að takast á við faraldurinn. Þess vegna þurfi stöðugt að herða samkomutakmarkanir þegar smitum fjölgar. | Ríkisstjórnin ákvað á föstudag að herða samkomutakmarkanir enn frekar vegna mikillar fjölgunar kórónuveirusmita.
Í minnisblaði sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra er vísað til þess að vaxandi fjöldi smita hafi skapað mikið álag á Landspítalann og heilbrigðiskerfið í heild. Starfsemi rakningateymis sé í uppnámi og f... | null |
2021 | 67 | Fólk sem fjársveltir Landspítalann getur ekki á sama tíma gert kröfur um að spítalinn ráði við heimsfaraldur svo það geti lifað sínu eðlilega lífi. Þetta segir formaður læknaráðs Landspítalans. | Landspítalinn hefur verið fjársveltur frá hruni og því viðbúið að hann gæti ekki ráðið við heimsfaraldur, segir formaður læknaráðs. Hún segir starfsfólk reiðubúið að leggja mikið á sig en það verði að fá meðbyr frá fjárveitingavaldinu.
Steinunn Þórðardóttir, öldrunarlæknir og formaður læknaráðs Landspítalans, ræddi stö... | Fólkið sem fjársveltir Landspítalann getur ekki á sama tíma gert kröfur um að spítalinn ráði við heimsfaraldur svo það geti lifað sínu eðlilega lífi. Þetta segir formaður læknaráðs Landspítalans. Forystumenn stjórnarandstöðuflokka segja að ríkisstjórnin hafi brugðist spítalanum. |
2021 | 67 | Baráttukonan Greta Thunberg, gefur hins vegar lítið fyrir þann árangur sem sagður er hafa náðst á loftslagsráðstefnunni. | COP26 er lokið, sagði Greta, hér er stutt samantekt: Bla, bla, bla. Þessi niðurstaða Thunberg er í fullu samræmi við greiningu hennar frá því í síðustu viku, þegar hún sagði að loftslagsráðstefnan væri í raun lítið meira en tveggja vikna hylling á óbreyttu ástandi og bla, bla, bla. Þrátt fyrir það og þrátt fyrir líti... | null |
2021 | 68 | Ráðamenn á Norðurlöndum virðast einhuga um að næst þegar löndin standa frammi fyrir vandamáli á borð við kórónuveirufaraldurinn verði þau að bregðast sameiginlega við. | Þegar farsóttin breiddist út gripu ríkisstjórnir til einhliða ráðstafana. Ráðamenn ræddust ekki við augliti til auglitis, ekkert varð úr því að þeir kæmu til Reykjavíkur á fund Norðurlandaráðs í fyrra. Anna Hallberg, norrænn samstarfsráðherra í sænsku ríkisstjórninni segir að þetta megi aldrei gerast aftur:
Sigurður In... | null |
2021 | 68 | Gagnrýnt hefur verið að Ísland skuli ekki hafa sýnt meiri metnað og boðað róttækari aðgerðir í loftslagsmálum á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Glasgow sem nú er að ljúka. Umhverfisráðherra segir að vissulega hefði komið sér vel ef stjórnarmyndunarviðræður væru að baki og hann með umboð til að boða stærri skref... | Loftslagsráðstefnunni lýkur í dag. Til stóð að henni lyki í gær en ekki náðist sátt um drögin og því var ráðstefnulokum frestað til dagsins í dag. Unnið hefur verið að yfirlýsingunni í alla nótt og verður hún borin upp til samþykktar allra þátttökuríkja síðdegis í dag. Helstu ágreiningsefnin hafa verið niðurgreiðslur á... | Drög að lokayfirlýsingu eru komin fram á loftslagsráðsefnunni í Glasgow og verður lögð fyrir tæp tvöhundruð þátttökuríki síðar í dag. Umhverfisráðherra segir hann hafi ekki verið með umboð til að taka stærra skref fyrir Íslands hönd vegna stjórnarmyndunarviðræðna. |
2021 | 68 | Einn er í haldi lögreglu eftir hnífstunguárás við Hagkaup í Garðabæ í nótt. Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir meira um gróf ofbeldisverk ungra manna en áður. | Lögregla var kölluð að Hagkaupum í Garðabæ á öðrum tímanum í nótt vegna harðra slagsmála utan við verslunina. Margeir Sveinsson er aðstoðaryfirlögrelguþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglu.
Þarna höfðu fjórir aðilar lent saman og tveir af þeim höfðu fengið áverka eftir eggvopn.
Tveir voru fluttir á slysadeild - a... | Maður sem var stunginn í kvið og bak fyrir utan Hagkaup í Garðabæ í nótt er ekki í lífshættu. Einn er í haldi lögreglu vegna árásarinnar. |
2021 | 68 | Heilbrigðisráðuneytið hefur gefið tímabunda undanþágu frá hraðprófum vegna viðburða um helgina vegna þess að hraðprófsstöðvar anna ekki álaginu. | Þúsundir manna ætluðu í Covid hraðpróf vegna allskonar viðburða núna um helgina. Svo margir reyndar að hraðprófsstöðvar hafa ekki annað þessu aukna álagi. Frá og með miðnætti gilda þær reglur að allt að fimm hundruð manns mega koma saman gegn því að framvísa neikvæðum niðurstöðum úr hraðprófi. Ljóst þótti að að ekki næ... | Hraðprófsstöðvar vegna Covid anna ekki auknu álagi þar sem þúsundir væntanlegra gesta á menningarviðburði helgarinnar ætluðu í próf. Heilbrigðisráðuneytið hefur því gefið undanþágu frá hraðprófum fram yfir helgi. |
2021 | 68 | Pólsk kvikmyndahátð er haldin í Valhöll á Eskifirði um helgina. Sex kvikmyndir verða sýndar og segir skipuleggjandinn mikilvægt að Íslendingar kynnist betur pólskri menningu og þeirri öflugu kvikmyndagerð sem iðkuð er í Póllandi. | Olga JabBoDska, er stjórnandi hátíðarinnar sem haldin er í samvinnu við Menningarstofu Fjarðabyggðar. Hún lærði við kvikmyndaskólann í Lodz, stærsta kvimyndaskóla Póllands,og starfaði við dreifingu kvikmynda í Póllandi. Hún hefur verið á Íslandi í átta ár og býr nú á Fáskrúðsfirði.
Olga segist vilja kynna Íslendingum p... | Frægasta grínmynd Pólverja verðu sýnd á pólskri kvikmyndahátíð á Eskifirði um helgina. Skipuleggjandinn vonar að þeir sem mæta kynnist ekki bara pólskri kvikmyndagerð heldur einnig sögu og menningu landsins. |
2021 | 68 | Dómari í Los Angeles í Bandaríkjunum kvað í gærkvöld upp þann úrskurð að Britney Spears skuli fá fullt sjálfræði. Hún hefur verið undir stjórn föður síns síðustu þrettán ár. | Bandaríska söngkonan Britney Spears var ein skærasta poppstjarna heims á fyrsta áratug þessarar aldar. Undanfarin ár hefur hún hins vegar helst verið í sviðsljósinu vegna deilna um sjálfræði við föður sinn. Jamie Spears, faðir Britney, fór upphaflega fram á það að verða skipaður lögráðamaður fullorðinnar dóttur sinnar ... | null |
2021 | 68 | Knattspyrnumaðurinn Emil Pálsson sem var endurlífgaður eftir að hafa farið í hjartastopp í leik í Noregi í byrjun síðustu viku segist engu nær um orsökina. Hann hafi þó verið í stífum rannsóknum í Björgvin í Noregi í rúma viku. Þá séu fótboltamenn í Noregi skoðaðir reglulega af læknum, en aldrei hafi neitt óeðlilegt ko... | null | Knattspyrnumaðurinn Emil Pálsson sem var endurlífgaður eftir að hafa farið í hjartastopp í leik í Noregi í byrjun síðustu viku segist engu nær um orsökina. Hann hafi þó verið í stífum rannsóknum í Björgvin í Noregi í rúma viku. |
2021 | 69 | Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt karlmann í fangelsi fyrir að selja börnum kannabis, gefa einu þeirra amfetamín og hvetja þau til neyslu. | Karlmaður hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi í Héraðsdómi Austurlands fyrir að selja börnum fíkniefni. Maðurinn braut barnaverndarlög og þótti ekki ástæða til að skilorðsbinda refsinguna.
Maðurinn var ákærður fyrir að selja tveimur sextán ára stúlkum og einni fjórtán ára, kannabis á heimili sínu. Hann leyfði... | Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt karlmann í fangelsi fyrir að selja börnum kannabis, gefa einu þeirra amfetamín og hvetja þau til neyslu. |
2021 | 69 | Rússar ætla að standa við samninga um að dæla gasi til annarra Evrópuríkja. Forseti Hvíta-Rússlands hótaði í gær að skrúfa fyrir gasleiðslu sem liggur um land hans. | Talsmaður rússnesku ríkisstjórnarinnar segir að Rússar ætli að standa við samninga um gasviðskipti við aðrar Evrópuþjóðir. Forseti Hvíta-Rússlands hótaði í gær að skrúfa fyrir gas frá Rússlandi ef Evrópusambandið herðir refsiaðgerðir gegn landi hans.
Dmitry Peskov, talsmaður rússnesku stjórnarinnar, sagði í dag á fundi... | Rússar ætla að standa við samninga um að dæla gasi til annarra Evrópuríkja. Forseti Hvíta-Rússlands hótaði í gær að skrúfa fyrir gasleiðslu sem liggur um land hans. |
2021 | 69 | Þetta er allt að koma, segir Ísak Bergmann Jóhannesson um leik íslenska karlalandsliðsins í fótbolta gegn Rúmeníu í undankeppni HM í gærkvöldi. Niðurstaðan varð markalaust jafntefli. | Rúmenar eru í harðri baráttu um annað sæti undanriðilsins og sæti í umspili um HM-sæti og leikurinn gríðarlega mikilvægur fyrir þá, á meðan íslenska liðið átti ekki möguleika á umspilssæti. Bæði lið vörðust vel en fengu líka sín færi en niðurstaðan varð jafntefli.
Sagði Ísak Bergmann Jóhannesson. Eftir erfiða byrjun á ... | null |
2021 | 69 | Ferðamálaráðherra telur að gera þurfi meira í öryggismálum í Reynisfjöru. Þar lést ung kona í vikunni. Ráðherra segir að fá þurfi að borðinu þá sem hlut eiga að máli varðandi Reynisfjöru og að það fólk verði að vera tilbúið að gera það sem þarf. | Unga konan sem lést var í hópi fimmtán erlendra ferðamanna sem voru með íslenskan fararstjóra. Verkefnastjóri slysavarna hjá Landsbjörg sagði í hádegisfréttum að fyrir nokkrum misserum hefði starfshópur skipaður af ráðuneytinu undir forystu Ferðamálastofu gert tillögur til úrbóta í fjörunni. Meðal þess var að setja upp... | null |
2021 | 69 | Ný drög að samkomulagi loftslagsráðstefnunnar í Glasgow voru birt í morgun. Orðalagið í þeim þykir ekki jafn metnaðarfullt og í upphaflegu drögunum í umræðu um jarðefnaeldsneyti. | Í upphaflegu drögunum er meðal annars kveðið á um að ríki heims leggi áherslu á að hætta kolabrennslu og afnema niðurgreiðslu jarðefnaeldsneytis. Í drögunum sem birt voru í morgun hefur orðið breyting á. Þar segir nú að ríki heims leggi áherslu á að hætta að brenna kol af krafti og að óskilvirkum niðurgreiðslum verði h... | Ný drög að samkomulagi loftslagsráðstefnunnar í Glasgow hafa verið birt. Þau eru gagnrýnd fyrir veikara orðalag en í fyrri drögum. |
2021 | 70 | Baráttufólk í loftslagsmálum og stjórnmálamenn hafa lýst hóflegri ánægju með samkomulag sem stjórnvöld í Bandaríkjunum og Kína sögðust í gær hafa náð um samvinnu í loftslagsmálum. | Í samkomulaginu segir að ríkin vilji fá metnaðarfulla niðurstöðu af loftslagsráðstefnunni í Glasgow. Heimurinn þurfi að styrkja Parísarsamkomulagið og halda hækkun meðalhita jarðar innan 1,5 stiga.
Kína og Bandaríkin segjast í ályktuninni ætla að vinna saman að mótun stefnu um að lækka kostnað við orkuskipta og um orku... | Bandaríkin og Kína náðu í gær samkomulagi um samstarf í loftslagsmálum. Stjórnmálamenn og baráttufólk lýsa hóflegri ánægju með það. |
2021 | 70 | Banaslysið í Reynisfjöru í gær, þar sem ung kona lést, er það fjórða á fáum árum. Konan var í fimmtán manna hópi með íslenskum leiðsögumanni. Ferðmálastofa lét gera tillögur um aukið öryggi í Reynisfjöru og búið var að fjármagna framkvæmdir þess vegna. Jónas Guðmundsson verkefnastjóri slysavarna hjá Landsbjörg segir að... | Það sem gerist nú yfirleitt þarna í Reynisfjöru er að fólk er að horfa á ölduna og allt þess háttar. Svo er það einhvers staðar á bilinu fimmta til tíunda hver alda sem er stærri og kraftmeiri og fer lengra upp á land. Og það gerist í þessu tilfelli og grípur fjóra einstaklinga með sér.
Þremur tókst að bjarga sér en un... | Verkefnastjóri slysavarna hjá Landsbjörg segir að hluti landeigenda hafi staðið í vegi fyrir því að öryggi yrði bætt í Reynisfjöru, þar sem ung kona lést í gær. Það sé ótækt að hægt sé að stöðva nauðsynlegar umbætur. |
2021 | 70 | Dagur einhleypra hefur vart farið fram hjá þeim sem hafa opnað blöð eða vefsíður í dag, yfirfull af tilboðum. Það er fullt að gera hjá mörgum fyrirtækjum. Formaður Neytendasamtakanna hvetur fólk til að kaupa ekki í fljótfærni. | Kynlífshjálpartækjaverslunin Blush er meðal þeirra fyrirtækja sem eru með sérstök tilboð. Gerður Arinbjarnardóttir, eigandi Blush, segir að það sé heldur minna að gera en í fyrra.
Það var einhvern veginn meiri sprenging í fyrra á miðnætti, þá var eins og allir meira tilbúnir.
En núna virðist þetta að vera dreifast aðei... | null |
2021 | 71 | Útlendingastofnun leitar að húsnæði fyrir hælisleitendur sem þurfa að fara í skimunarsóttkví. Farsóttarhús taka ekki lengur við þessum einstaklingum vegna fjölda smita í samfélaginu og mikils álags. Finna þarf pláss fyrir um 20-25 manns sem hingað koma í leit að vernd. | Gylfi Þór Þorsteinsson, forstöðumaður farsóttarhúsa, sagði frá þeirri stöðu í fréttum RÚV í morgun að farsóttarhús gætu ekki tekið hælisleitendur í skimunarsóttkví. Alls voru 120 í sóttvarnarhúsum í morgun og von var á fjórum til viðbótar eftir smit gærdagsins.
Þetta er mjög strembið og við erum að skoða það með Sjúkra... | null |
2021 | 71 | Taívönsk stjórnvöld segja sex kínverskar herflugvélar hafa flogið inn á loftvarnarsvæði sitt í gær. Kínverjar segja heimsókn bandarískra þingmanna til eyjunnar ólíðandi. | Fjölmiðlar á eyjunni sögðu frá því í gær að hópur bandaríska þingmanna væri kominn til landsins með bandarískri herflugvél. Ekki hefur verið greint frá því um hvaða þingmenn ræðir en þeir eru sagðir úr báðum deildum Bandaríkjaþings. Kínversk stjórnvöld hafa brugðist illa við heimsókninni enda gera þau tilkall til eyjun... | null |
2021 | 71 | Áætlun um stuðning við börn í skólum hefur ekki enn fengist fjármögnuð. Þetta segir verkefnastjóri geðræktar hjá Embætti landlæknis. Skólar nýta sjaldan gagnreyndar aðferðir til að fást við erfiða hegðun barna. | Fyrir tveimur árum gaf Embætti landlæknis út aðgerðaáætlun um stuðning við börn og ungmenni í skólastarfi eftir rannsókn sem gerð var í skólum. Í Morgunútvarpi Rásar tvö í morgun sagði Sigrún Daníelsdóttir verkefnastjóri geðræktar hjá embættinu að styrkja þyrfti innviði skólakerfisins til þess að styðja við börn og ung... | null |
2021 | 71 | Skaðlegur starfsandi ríkir á Menntamálastofnun og það ógnar öryggi og heilsu starfsfólks sem ber lítið traust til stjórnenda. Þetta kemur fram í drögum að skýrslu um starfshætti þar. Helmingur starfsfólksins hefur ýmist upplifað eða orðið fyrir einelti, kynferðislegri áreitni eða kynbundnu ofbeldi á vinnustaðnum. Mennt... | Þetta kemur fram í áhættumati starfa fyrir Menntamálastofnun sem unnin var að beiðni menntamálaráðuneytisins.
Í skýrslu um matið, sem nú er til umsagnar hjá starfsfólki Menntamálastofnunar og fréttastofa hefur undir höndum, segir að helmingur starfsfólks upplifi mikið álag og það sé vegna tilviljanakenndrar stjórnunar ... | Stjórnunarhættir á Menntamálastofnun ógna heilsu og öryggi starfsfólks samkvæmt úttekt á starfsháttum þar. Menntamálaráðherra segir að málið sé í algjörum forgangi innan ráðuneytisins. |
2021 | 71 | Breiðablik fékk sitt fyrsta stig í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta þegar liðið gerði markalaust jafntefli við úkraínska liðið Kharkiv í þriðju umferðinni í gær. Liðin mætast á Kópavogsvelli í næstu viku. | Bæði lið voru án stiga fyrir leikinn í gær en markalaust jafntefli í Úkraínu gaf liðunum sitt hvort stigið. Ásmundur Arnarsson, þjálfari Blika, segir Breiðablik stefna á þrjú stig gegn Kharkiv á Kópavogsvelli í næstu viku.
sagði Ásmundur, en Frakklandsmeistarar PSG eru áfram með fullt hús stiga og á toppi riðilsins eft... | null |
2021 | 71 | null | Tveir voru fluttir á sjúkrahús eftir að rafmagnshlaupahjól og létt bifhjól skullu saman á hjólastíg á gatnamótum Sæbrautar og Kringlumýrarbrautar í Reykjavík í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er annar þeirra í lífshættu. Lögregla vill litlar upplýsingar veita um slysið en það er til rannsóknar. Heimilt er að ... | Tveir voru fluttir á sjúkrahús og er annar í lífshættu eftir umferðarslys á hjólastíg við Sæbraut í Reykjavík í morgun. Létt bifhjól og rafmagnshlaupahjól skullu saman. |
2021 | 71 | Atvinnuleysi minnkaði um rúmlega fjögur prósent í október frá fyrri mánuði. Mesta breytingin var á höfuðborgarsvæðinu. Vinnumálastofnun spáir auknu atvinnuleysi í nóvember vegna árstíðasveiflu. | Atvinnulausum fækkaði um 4,4 prósent í október og mælist skráð atvinnuleysi fjögur komma níu prósent. Alls fækkaði atvinnulausum um 428, mest á höfuðborgarsvæðinu þar sem atvinnulausum fækkaði um 402 frá því í september.
Atvinnuleysi er mest á Suðurnesjum eða 9,2 prósent. Þó svo að atvinnulausum hafi fækkað um 47 manns... | Skráð atvinnuleysi mælist nú fjögur komma níu prósent á landsvísu. Atvinnulausum fækkar um fjögur hundruð á höfuðborgarsvæðinu, frá fyrra mánuði. Atvinnuleysi minnkaði nokkuð á höfuðborgarsvæðinu frá því í september. |
2021 | 71 | Áfrýjunardómstóll Evrópusambandsins staðfesti í dag að netrisinn Google eigi að greiða tvo komma fjóra milljarða evra í sekt fyrir brot á samkeppnislögum. | Áfrýjunardómstóll Evrópusambandsins, Almenni dómstóllinn, staðfesti í dag ákvörðun framkvæmdastjórnar ESB, að sekta bandaríska netþjónusturisann Google um 2,4 milljarða evra fyrir brot á samkeppnisreglum. Fyrirtækið getur vísað málinu til Evrópudómstólsins, sem kveður upp endanlegan dóm.
Sektarupphæðin nemur 361 þúsund... | Áfrýjunardómstóll Evrópusambandsins staðfesti í dag að netrisinn Google eigi að greiða tvo komma fjóra milljara evra í sekt fyrir brot á samkeppnislögum. |
2021 | 72 | Framkvæmdastjori Ó. Johnson & Kaaber segir að þrátt fyrir að verð á matvöru hafi hækkað mikið í heiminum verði þeim hækkunum ekki velt beint út í verðlagið hér. Veðurfar og skortur á vinnuafli vegna faraldursins séu helstu skýringar þess að verð á sykri, hveiti og kaffi hafi hækkað. | Ekki stendur til að velta út í verðlag hér miklum verðhækkunum sem hafi orðið á heimsmarkaði með ýmsa hrávöru eins og sykur, hveiti og kaffi. Ólafur Ó. Johnson, framkvæmdastjóri Ó. Johnson & Kaaber, segir að allir hafi haldið aftur af verðhækkunum, bæði heildsalar og þeir sem standi í vöruflutningum.
Nei, alls ekki og ... | null |
2021 | 72 | Gæsla hefur verið hert á landamærum Póllands og Hvíta-Rússlands eftir að nokkur hundruð hælisleitendur reyndu að komast yfir til Póllands með því að klippa sér leið gegnum gaddavírsgirðingu. Forsætisráðherra Póllands segir að öryggi og stöðugleiki í Evrópusambandinu sé í húfi. Pólskt og hvítrússneskt herlið er við land... | Pólverjar áætla að þrjú til fjögur þúsund hælisleitendur séu saman komnir við landamærin. Þeir hafa lokað landamærastöð við þorpið Kuznica. Liðsauki var sendur í gær til að verja landamærin eftir að mjög tók að fjölga í hópi hælisleitenda. Enn fleiri voru sendir á staðinn í dag eftir að nokkur hundruð hælisleitendur be... | null |
2021 | 72 | null | Sala Símans á Mílu er enn til umfjöllunar í Þjóðaröryggisráði sem fundaði um málið í gær. Unnið er að samningu frumvarps um erlendar fjárfestingar.
Þjóðaröryggisráð fjallaði um erlendar fjárfestingar og sölu Símans á Mílu á fundi sínum í gær. Þetta kemur fram í skriflegu svari upplýsingafulltrúa ríkisstjórnarinnar við ... | Sala Símans á Mílu er enn til umfjöllunar í Þjóðaröryggisráði sem fundaði um málið í gær. Unnið er að samningu frumvarps um erlendar fjárfestingar. |
2021 | 72 | Lögreglumenn hafna alfarið fullyrðingum lögmanns um meinta mismunun þegar kemur að rannsókn kynferðisbrotamála og vilja að ríkissaksóknari rannsaki þessar ásakanir. Formaður Landssambands lögreglumanna sakar lögmanninn um aðför að starfsheiðri lögreglumanna. | Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmaður sagði á ráðstefnu í síðasta mánuði að það væri hennar upplifun að hvítur karlmaður í góðum jakkafötum fengi betri framgang en aðrir hjá lögreglu og dómstólum í nauðgunarmálum. Þorbjörg hefur sinnt réttargæslu fyrir þolendur kynferðisofbeldis og á einnig sæti í eftirlitsnefnd um störf l... | Landssamband lögreglumanna vill að ríkissaksóknari rannsaki ummæli lögmanns um meinta mismunun lögreglu og dómstóla þegar kemur að rannsókn kynferðisbrotamála. |
2021 | 72 | Geimferðafyrirtækið Virgin Galactic hefur selt um hundrað farmiða frá því að Richard Branson stofnandi þess hélt út fyrir heiðhvolfið í sumar. Fyrirtækið stefnir á að hefja almennar ferðir fyrir lok árs 2022. Alls hafa selst um 700 miðar frá stofnun fyrirtækisins. | Eigendur fyrirtækisins gerðu ekki ráð fyrir svo mikilli sölu. Fargjaldið nemur nú tæpum 59 milljónum íslenskra króna sem er um það bil tvöfalt það sem 600 viðskiptaskiptavinir þess greiddur á árunum 2005 til 2014.
Alls hafa selst um 700 farmiðar frá upphafi að því er talsmaður fyrirtækisins segir í samtali við AFP-frét... | null |
2021 | 72 | Kvennalið Breiðabliks leikur þriðja leik sinn í Meistaradeild Evrópu í dag, þegar liðið mætir úkraínska liðinu Kharkiv í Úkraínu. Leikmaður og þjálfari eru bjartsýn á að geta sótt fyrstu stig liðsins í leiknum. | Bæði Breiðablik og Kharkiv eru án stiga fyrir leikinn í dag eftir að hafa tapað fyrir PSG og Real Madrid. Selma Sól Magnúsdóttir, leikmaður Blika, segir liðið spennt fyrir krefjandi verkefni kvöldsins.
Sagði Selma Sól Magnúsdóttir. YouTube er með alþjóðlegan sýningarrétt á Meistaradeild kvenna í fótbolta og leikur Brei... | null |
2021 | 72 | Bættar samgöngur, fjarskipti og rafmagn eru meðal þess sem þarf að ráðast í til að auka byggðafestu í Árneshreppi. Þetta kemur fram í tillögum verkefnisstjórnar brothættra byggða í hreppnum. | Tillögur verkefnisstjórnarinnar gera grein fyrir þeim aðgerðum sem stjórnvöld geta gripið til í þágu byggðar í Árneshreppi. Þar er sérstök áhersla lögð á innviðauppbyggingu. Skúli Gautason sem stýrir verkefninu Áfram Árneshreppur segir að þessar aðgerðir skipti mestu máli við að bjarga byggð í hreppnum og standi öðrum ... | null |
2021 | 72 | Guðný Bjarnadóttir læknir segir að Kristinn E. Andrésson, fyrrverandi þingmaður og ritstjóri, hafi beitt hana kynferðislegu ofbeldi þegar hún var níu ára. Þetta kemur fram í aðsendri grein eftir Guðnýju í Morgunblaðinu í dag. Hún þagði yfir leyndarmálinu í 60 ár. | Guðný segir að ástæða greinarskrifanna sé vondar minningar sem ný bók um Kristin og eiginkonu hans, Þóru Vigfúsdóttur, veki upp. Í bókinni, Kristinn og Þóra: Rauðir þræðir, sé reynslu Guðnýjar ekki getið enda hafi hún þagað um málið í sex áratugi. Guðný segir frá heimsókn sinni til þeirra hjóna þegar hún var níu ára. ... | Sextíu og níu ára gömul kona segir að Kristinn E, Andrésson, einn helsti frömuður íslenskra kommúnista á síðustu öld, hafi beitt hana kynferðisofbeldi þegar hún var barn. Hún þagði yfir leyndarmálinu í sextíu ár. |
2021 | 73 | Alvarlegur læknaskortur gæti skapast hér á landi á næstu áratugum samkvæmt spálíkani sem Læknafélag Íslands hefur látið gera. Formaður Læknafélagsins segir mikilvægt að bæta vinnuaðstöðu lækna og efla sérfræðinám til að koma í veg fyrir þessa þróun. | Rúmlega sautján hundruð læknar verða starfandi hér á landi í lok þessa áratugar samkvæmt spálíkani Læknafélagsins en þyrftu að vera tæplega 1.900 til að hægt sé sinna öllum verkefnum. Staðan mun að óbreyttu versna enn frekar og árið 2040 mun vanta rúmlega 250 lækna.
Reynir Arngrímsson formaður Læknafélagsins segir að á... | Læknafélag Íslands telur að alvarlegur læknaskortur gæti að óbreyttu skapast hér á landi á næstu árum. Vísbendingar eru um að það muni vanta allt að 128 lækna árið 2030 og yfir 250 árið 2040. |
2021 | 73 | Höfðað hefur verið einkamáli í Texasríki í Bandaríkjunum gegn tveimur röppurum, skipuleggjendum og staðarhöldurum tónleika þar sem átta létust á föstudagskvöldið. | Átta á aldrinum 14 til 27 ára tróðust undir og létu lífið á tónleikunum og tugir slösuðust alvarlega. Lögmannsstofa Thomas J. Henry höfðar málið fyrir hönd Kristian Paredes sem slasaðist verulega í atganginum. Auk rapparanna Scott Travis og Drake er tónleikahaldaranum Live Nation og vettvangi tónleikanna NRG Park stefn... | null |
2021 | 73 | Öruggt þykir að forseti Níkaragva haldi völdum fjórða kjörtímabilið í röð. Bandaríkjaforseti er afar þungorður varðandi aðdraganda og framkvæmd kosninganna. | Þau sjö sem talin voru eiga möguleika á að fella Daniel Ortega forseta í kosningunum sitja nú í varðhaldi eða eru í útlegð. Forsetinn fullyrðir að þau séu öll hermdarverkamenn sem ætli sér að grafa undan grunnstoðum ríkisins. Stjórnarandstaðan í landinu segir þátttöku hafa verið afskaplega dræma þótt stjórnvöld fullyrð... | null |
2021 | 73 | Helena Sverrisdóttir, reyndasti leikmaður íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta, er meidd og fór ekki með liðinu til Rúmeníu þar sem það hefur undankeppni EM á fimmtudag. Í hennar stað kemur hin sautján ára gamla Emma Sóldís Svan Hjördísardóttir. | Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta flaug í gær til Búkarest í Rúmeníu þar sem liðið mætir heimakonum í fyrsta leik undankeppni EM á fimmtudag. Reyndasti leikmaður liðsins, Helena Sverrisdóttir, heltist úr lestinni og sat eftir heima.
Helena hefur verið að glíma við meiðsli í hné og ekki spilað síðustu leiki með fél... | Helena Sverrisdóttir, reyndasti leikmaður íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta, er meidd og fór ekki með liðinu til Rúmeníu þar sem það hefur undankeppni EM á fimmtudag. Í hennar stað kemur hin sautján ára gamla Emma Sóldís Svan Hjördísardóttir. |
2021 | 73 | Mjög ólíklegt telst að aftur fari að gjósa úr eldstöðinni við Fagradalsfjall, segir Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjallafræði. Engin kvika hefur komið úr gígnum í um tvo mánuði, en Þorvaldur segir að gasið sem streymi úr gígnum bendi til þess að enn sé kvika á hreyfingu undir eldstöðinni. | Ég get nú ekki afskrifað þetta enþá alveg. Við skulum hafa það nú bara alveg á hreinu að það er náttúrulega ekki mitt hlutverk að lýsa yfir goslokum. Það hlutverk er hjá Veðurstofunni. En eru einhverjar líkur á því að gosið fari aftur af stað? Mér finnst það nú frekar litlar líkur. En það er ekki allavega ekki alveg hæ... | null |
2021 | 73 | Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra og sendiherra, var í morgun sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur af ákæru um kynferðislega áreitni. Verjandi hans segir dóminn mikið gleðiefni. | Jón Baldvin var ákærður fyrir að hafa strokið Carmen Jóhannsdóttur utanklæða á rassi í matarboði á Spáni árið 2018. Hann hefur alla tíð haldið fram sakleysi sínu og sagt að brotið hafi verið sviðsett. Auk þeirra Jóns Baldvins og Carmenar voru þrjú vitni á staðnum, Bryndís Schram eiginkona Jóns Baldvins, Laufey Ósk Arnó... | Jón Baldvin Hannibanlsson var í morgun sýknaður af ákæru um kynferðisbrot. Verjandi hans segir að dómurinn sé vel rökstuddur og lögfræðilega réttur. |
2021 | 73 | Erlendu ferðafólki er heimilt að koma til Bandaríkjanna frá og með deginum í dag geti það sannað að það sé ekki veirusmitað eða veikt af COVID-19. Landamærunum var lokað fyrir tuttugu mánuðum vegna heimsfaraldursins. | Búist er við miklum fjölda ferðafólks til Bandaríkjanna eftir að ströngum takmörkunum var aflétt á miðnætti að staðartíma. Allir verða þó að sanna að þeir séu heilir heilsu. Tuttugu mánuðir eru liðnir síðan landinu var lokað að mestu fyrir erlendu ferðafólki vegna heimsfaraldursins.
Ferðafólki er heimilt að koma til Ba... | Erlendir ferðamenn mega koma til Bandaríkjanna frá og með deginum í dag, geti þeir sannað að þeir séu ekki veirusmitaðir. Landamærunum var lokað fyrir tuttugu mánuðum vegna heimsfaraldursins. |
2021 | 73 | Á meðan Íslendingar bóka skíðaferðir til Alpanna stefna Færeyingar á skíðaferðir til Akureyrar. Í febrúar á næsta ári verður flogið beint á milli Akureyrar og Færeyja með það fyrir augum að Færeyingar komist á skíði í Hlíðarfjalli. | Færeyska ferðaskrifstofan Tur mun bjóða upp á alla vega tvö bein flug á milli Færeyja og Akureyrar í febrúar. Jónatan Friðriksson er íslenskur tengiliður ferðaskrifstofunnar.
Þetta eru Færeyingar að koma í skíðaferðir hingað. Þeir eru að nota flugið til baka með því bjóða Akureyringum ódýrt flug til baka. Þeir eru búni... | null |
2021 | 73 | Forsætisráðherra Danmerkur boðar að grípa þurfi til hertra aðgerða vegna faraldursins og hvetur alla þá sem ekki hafa látið bólusetja sig gegn COVID-19 að gera það sem fyrst. | Smitum hefur fjölgað verulega í Danmörku undanfarnar vikur og sjúkrahúsinnlögnum sömuleiðis. Mette Frederiksen forsætisráðherra segir ríkisstjórnina fylgjast náið með framvindu mála í faraldrinum. Hún segir að grípa þurfi skjótt til aðgerða svo halda megi aftur af útbreiðslu veirunnar og draga þar með úr hættunni á að ... | null |
2021 | 74 | Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra telur Íslendinga geta lært af öðrum þjóðum hvernig á að haga stefnumótun í umhverfismálum og eftirfylgni með aðgerðum. Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, brýndi þjóðareiðtoga í morgun við upphaf áttunda dags ráðstefnunnar en henni lýkur næstu helgi. Johnson segir að... | null | null |
2021 | 74 | Forsætisráðherra Íraks slapp óskaddaður frá drónaárás á aðsetur hans í nótt. Hann sakar árásarmennina um heigulshátt. Mikil spenna hefur verið í landinu frá kosningunum þar tíunda október. | Árásin var gerð með þremur drónum hlöðnum sprengiefnum sem voru send frá svokallaðri lýðveldisbrú. Hún liggur yfir ánni Tigris sem rennur í gegnum höfuðborgina Bagdad. Samkvæmt heimildum AFP úr öryggisgæslu forsetans voru tveir drónanna skotnir niður áður en tókst að nota þá. Sá þriðji flaug hins vegar á forsetabústaði... | Reynt var að ráða forsætisráðherra Íraks af dögum í drónaárás í nótt. Hann slapp ómeiddur. Árásin er talin tengjast óánægju með úrslit kosninga þar fyrir tæpum mánuði. |
2021 | 74 | Yfirvöld í Texas ákváðu í gær að hefja formlega lögreglurannsókn á troðningnum sem varð á tónleikum rapparanna Travis Scott og Drake í Houston á föstudagskvöld. Átta manns létust af völdum troðningsins. | Um fimmtíu þúsund manns voru á tónleikunum þegar atvikið átti sér stað. Vitni hafa lýst mikilli hræðslu sem gripið hafi um sig í hópnum. Þá hafi fólk eina stundina verið að dansa og skemmta sér en þá næstu hafi það ekki getað andað og liðið hafi yfir fólk í hrönnum. Sumir hafi lítið skipt sér af þeim sem lágu og jafnve... | Lögreglurannsókn er hafin á tildrögum þess að átta manns létust á tónleikum í Houston í Texas á föstudagskvöld. Meðal annars verður rannsakað hvort gestir hafi verið sprautaðir með lyfjum. |
2021 | 74 | Tvær 160 metar háar vindmyllur gætu risið við Lagarfossvirkjun á Úthéraði. Umhverfis- og framkvæmdanefnd Múlaþings hefur samþykkt að breyta skipulagi til að heimila vindorkuver við virkjunina. | Líkur hafa aukist á því að vindmyllur rísi við Lagarfossvirkjun á Úthéraði. Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings hefur samþykkt að vinna skipulag sem gerir ráð fyrir að Orkusalan fái að nýta vindorku á iðnaðarsvæði við virkjunina.
Gert er gert ráð fyrir tveimur vindmyllum sem yrðu samtals allt að 10 megavött og 160 me... | Tvær 160 metar háar vindmyllur gætu risið við Lagarfossvirkjun á Úthéraði. Umhverfis- og framkvæmdanefnd Múlaþings hefur samþykkt að breyta skipulagi til að heimila vindorkuver við virkjunina. |
2021 | 74 | Fyrirtæki leita í auknum mæli til Skógræktarinnar með það fyrir augum að kolefnisjafna starfsemi sína. Skógræktarstjóri segir ekki seinna vænna fyrir fyrirtæki að byrja að leita leiða til að mæta skuldbindingum Íslands um kolefnishlutleysi fyrir árið 2040. | Sjávarútvegsfyrirtækið Eskja á Eskifirði hefur gert samning við Skógræktina um að þróa kolefnisverkefni, með plöntun trjáa á landi fyrirtækisins, í þeim tilgangi að kolefnisjafna starfsemi sína. Fyrirtækið Festi hafði áður lagt af stað í slíkt verkefni, fyrst íslenskra fyrirtækja.
Þröstur Eysteinsson, skógræktarstjóri,... | null |
2021 | 74 | Formenn ríkisstjórnarflokkanna halda áfram stjórnarmyndunarviðræðum í dag. Fjármálaráðherra segir að það sé ekki tímabært að upplýsa um efni stjórnarsáttmálans og að skipting ráðuneyta hafi enn ekki verið rædd. | Katrín Jakobsdóttir, Bjarni Benediktsson og Sigurður Ingi Jóhannsson ætla að hittast í ráðherrabústaðnum strax eftir hádegið í dag og ræða myndun nýrrar ríkisstjórnar. Óvíst er hvenær hún verður kynnt, en þau hafa sagt að fyrst þurfi undirbúningsnefnd um rannsókn kjörbréfa að ljúka störfum. Nú stefnir í að nefndin skil... | Formenn ríkisstjórnarflokkanna halda stjórnarmyndunarviðræðum áfram í dag. Hugmyndir um nýtt innviðaráðuneyti verða sífellt háværari. |
2021 | 74 | Sólveig Anna Jónsdóttir, fyrrverandi formaður Eflingar segir starfsfólk félagsins hafa hrakið sig úr starfi. Farið hafi verið fram gegn henni með ofsakenndum hætti, fáir hafi orðið fyrir jafn grófum árásum. Þetta sagði Sólveig í Silfrinu í morgun. | Sólveig hefur sagt að sér vegið og vænt trúnaðarmenn Eflingar og starfsmenn félagsins um að taka þátt í ofsóknum gegn sér og Viðari Þorsteinssyni fyrrverandi framkvæmdastjóra Eflingar en þau létu bæði af störfum um mánaðamótin.
Ég hef strax frá fyrsta degi þurft að þola ýmislegt, úti í samfélaginu og ég hugsa að fáar m... | Sólveig Anna Jónsdóttir segir starfsfólk Eflingar hafa hrakið sig úr starfi formanns. Farið hafi verið fram gegn henni með ofsakenndum hætti, fáir hafi orðið fyrir jafn grófum árásum. |
2021 | 74 | Enska úrvalsdeildarliðið Norwich rak í gærkvöld Daniel Farke úr starfi sínu sem knattspyrnustjóri liðsins. Farke er fjórði knattspyrnustjórinn sem er látinn fara í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð. | Norwich vann Brentford í 11. umferðinni í gær og var þetta fyrsti sigur Norwich í deildinni á leiktíðinni. Þrátt fyrir sigurinn var Daniel Farke rekinn frá félaginu eftir fjögur ár sem knattspyrnustjóri Norwich. Farke tók við Norwich árið 2017 og undir hans stjórn hefur liðið flakka á milli úrvalsdeildarinnar og fyrstu... | Norwich vann sinn fyrsta sigur í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni í gær. Þrátt fyrir sigurinn rak Norwich knattspyrnustjórann Daniel Farke eftir leik. |
2021 | 75 | Minnst átta eru látnir eftir mikill troðning á tónleikahátíð í Houston í Texas í gærkvöld. Hátíðin átti að standa alla helgina en henni hefur nú verið aflýst. | Að minnsta kosti átta létu lífið og um 300 slösuðust í miklum troðningi á tónleikahátíð í Houston í Texas í gærkvöld. Um fimmtíu þúsund manns voru á hátíðinni.
Tónleikarnir voru liður í tónlistarhátíð sem rapparinn Travis Scott stendur fyrir. Hann var sjálfur á sviðinu ásamt öðrum rappara, Drake, þegar slysið átti sér ... | Minnst átta eru látnir eftir mikinn troðning á tónleikahátíð í Houston í Texas í gærkvöld. Hátíðin átti að standa alla helgina en henni hefur nú verið aflýst. |
2021 | 75 | Fyrrum formaður Sálfræðingafélag Íslands og kennari í faginu gagnrýnir aðgerðarleysi heilbrigðisráðuneytisins við að koma á fót starfsnámi svo nýútskrifaðir sálfræðingar fái starfsleyfi. Hann gagnrýnir einnig að aðrar stéttir eigi að ákveða hvernig starfsnáminu skuli hagað, en ekki fólk úr stéttinni. | Reglugerð um starfsleyfi sálfræðinga frá 2012 kveður á um verklega þjálfun meistaranema. Sú þjálfun er hins vegar hvergi í boði og nú fá nýútskrifaðir sálfræðingar ekki starfsleyfi en fram að þessu hefur verið veitt undanþága frá þessari kröfu. Í svari heilbrigðisráðuneytisins við spurningum fréttastofu segir að þar ti... | null |
2021 | 75 | Tafir urðu á flugi frá Keflavíkurflugvelli í morgun vegna ofankomu. Lengri tíma en ella tók að afísa vélar og gera þær ferðbúnar fyrir flug. Umhleypingar eru í kortunum og í Mýrdal og Öræfum má búast við allt að 40 metrum á sekúndu í hviðum. | Það er skammt stórra högga á milli í veðrinu. Það er von á stormi syðst síðdegis og aftur aðra nótt. Veðurfræðingur bendir fólki á að fylgjast vel með spám og jafnvel fresta eða flýta för eftir veðri. Það snjóaði víða sunnanlands í nótt og í morgun.
Spákortið er fremur gult næstu daga. Gert ráð fyrir stormi aðra nótt. ... | null |
2021 | 75 | Evrópumótinu í sundi í 25 metra laug lýkur í kvöld. Snæfríður Sól Jórunnardóttir synti í undanrásum 200 metra skriðsundsins í morgun og komst í undanúrslitin. | 200 metra skriðsundið er þriðja grein Snæfríðar á Evrópumótinu sem fram fer í Kazan í Rússlandi. Snæfríður synti í undanrásunum í morgun, varð fjórða í sínum riðli á 1 mínútu og 57,47 sekúndum, og komst áfram í undanúrslitin með ellefta besta tímann. Snæfríður var tæpri sekúndu frá Íslandsmeti sínu í greininni í 25 met... | Snæfríður Sól Jórunnardóttir komst í undanúrslit í 200 metra skriðsundi á Evrópumótinu í sundi í 25 metra laug. Anton Sveinn McKee hefur lokið keppni á EM. |
2021 | 75 | Meira en níutíu manns létust og hundrað slösuðust þegar olíutankur bíls sprakk á fjölförnum gatnamótum í Sierra Leone í kjölfar áreksturs. | Minnst níutíu og tveir eru látnir eftir að tankur olíubíls sprakk í árekstri á fjölförnum gatnamótum í Freetown, höfuborg Sierra Leone, í gærkvöld.
Fregnir af tildrögum slyssins hafa verið nokkuð misvísandi. AFP-fréttastofan hefur eftir vitnum að slysið hafi viljað þannig að til olíubíllinn hafi verið á bensínstöð þega... | Meira en níutíu manns létust og hundrað slösuðust þegar olíutankur bíls sprakk á fjölförnum gatnamótum í Sierra Leone í kjölfar áreksturs. |
2021 | 76 | Almannavarnir telja að ekki þurfi að hafa miklar áhyggjur af úrkomu á Seyðisfirði um helgina þar sem kalt verður í veðri. | Spáð er talsverðri úrkomu á Seyðisfirði á morgun. Enn er í gildi óvissustig vegna hættu á að jarðfleki við skriðusárið síðan í desember falli úr hlíðinni.
Fram kemur á vef Veðurstofunnar að á morgun snjói í til fjalla og svo fari kólnandi á sunnudag. Uppsöfnuð úrkoma gæti náð allt að 70 millimetrum en í tilkynningu frá... | Almannavarnir telja að ekki þurfi að hafa miklar áhyggjur af úrkomu á Seyðisfirði um helgina þar sem kalt verður í veðri. |
2021 | 76 | Nú er fyrsta rjúpnaveiðihelgin framundan og fjöldi manns á leið til veiða. Veður gæti þó sett strik í reikninginn enda spáin ekki sérlega góð. Lögreglan fylgist vel með rjúpnaskyttum og kannar hvort öll leyfi séu í lagi. | Rjúpnaveiðin hófst fyrsta nóvember og mánudagur og þriðjudagur voru því fyrstu veiðidagarnir. Það má ekki veiða á miðvikudögum og fimmtudögum. Nú eru þrír veiðidagar framundan og það ætla margir að nýta sér. Það eru misgóðar fréttir af fyrstu dögunum enda veðrið ekki alls staðar upp á það besta. Rjúpnaskyttur segja að ... | null |
2021 | 76 | Fulltrúadeild Bandaríkjaþings greiðir atkvæði í dag um samtals þriggja billjóna dala frumvörp Bandaríkjaforseta til endurbóta á flutningakerfi landsins og stækkunar velferðarkerfisins. | Í yfirlýsingu frá Hvíta húsinu segir að ákvæði frumvarpanna feli í sér sögulega umbreytingu sem mikilvægt sé að nái fram að ganga. Löngu sé orðið tímabært að endurnýja illa farna vegi og brýr, skipaskurði og breiðbandsnet.
Einfaldur meirihluti atkvæða í fulltrúadeildinni nægir til að frumvarpið um endurbætur flutningak... | null |
2021 | 76 | Í fyrsta sinn í 15 ár er stefnt að því að byggja fjölda íbúðarhúsa norður af Akureyri. Mikill áhugi er á lóðunum og færri fengu úthlutun en vildu. | Í Holtahverfi á Akureyri hefur verið unnið að deiliskipulagi fyrir nýtt íbúðahverfi í nokkur ár. Þar er gert ráð fyrir um 300 íbúðum. Skipulagsráð Akureyrarbæjar úthlutaði í síðustu viku 19 lóðum og var áhuginn svo mikill að dregið var úr gildum umsóknum á fundi ráðsins. Áður hafði lóðum verið úthlutað undir íbúðir fyr... | null |
2021 | 76 | Anton Sveinn McKee er kominn í undanúrslit í 200 metra bringusundi á EM í sundi í 25 metra laug. Anton varð áttundi inn í undanúrslitin í Kazan í Rússlandi í morgun. | Anton synti í undanrásum í morgun á tveimur mínútum og 6,28 sekúndum. Hann varð með því áttundi inn í undanúrslitin sem verða klukkan þrjár mínútur fyrir fimm í dag. Hann var tæpum fimm sekúndum frá sínum besta tíma og á því nóg inni fyrir undanúrslitin. Steingerður Hauksdóttir synti snemma í morgun í undanrásum í 100 ... | null |
2021 | 76 | Þúsundir ungmenna taka þátt í kröfugöngu og fjöldafundi í Glasgow í dag til að mótmæla aðgerðaleysi ráðamanna í loftslagsmálum. | Þúsundir ungra aðgerðasinna eru saman komnir í Glasgow í Skotlandi þar sem loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna stendur yfir. Þeir ganga fylktu liði um miðborgina og safnast saman síðar í dag þar sem þeir mótmæla ónógum aðgerðum ráðamanna í loftslagsmálum.
Dagurinn í dag er tileinkaður unga fólkinu á ráðstefnunni í Gl... | Þúsundir ungmenna taka þátt í kröfugöngu og fjöldafundi í Glasgow í dag til að mótmæla aðgerðaleysi ráðamanna í loftslagsmálum. |
2021 | 77 | Stíf fundahöld eru enn hjá undirbúningskjörbréfanefnd vegna talningar í Norðvesturkjördæmi. Formaður nefndarinnar segir enn of snemmt að segja til um hvenær störfum nefndarinnar lýkur. Formenn stjórnarflokkanna stefna á að kynna nýja ríkisstjórn í lok næstu viku. | Undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kjörbréfa, venjulega kölluð undirbúningskjörbréfanefnd, hefur verið að störfum síðan í byrjun október. Sautján kærur hafa borist nefndinni, langflestar vegna talningar í Norðvesturkjördæmi, en kærufrestur rann út síðasta föstudag. Birgir Ármannsson formaður nefndarinnar segir vinnuna ga... | Undirbúningskjörbréfanefnd vegna talningar atkvæða í Norðvesturkjördæmi er enn að störfum og ekki ljóst hvenær þeim lýkur. Formenn stjórnarflokkanna stefna að því að kynna nýja ríkisstjórn í lok næstu viku. |
2021 | 77 | Menningarmálaráðherrar Norðurlandanna hafa samþykkt auknar fjárveitingar til norræns menningarsamstarfs en fyrirhugaður var niðurskurður sem hafði verið harðlega gagnrýndur. Þá fær Norræna húsið í Reykjavík aukið fjármagn vegna viðhalds. | Menningarmálaráðherrar Norðurlandanna funduðu í Kaupmannahöfn í gær á þingi Norðurlandaráðs. Á þeim fundi voru auknar fjárveitingar til norræns menningarsamstarfs samþykktar en ráðherrarnir gerðu athugasemdir við áður boðaðan niðurskurð að sögn Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra. Hún segir athugasemdi... | Menningarmálaráðherrar Norðurlandanna hafa samþykkt aukið fé til norræns menningarstarfs en fyrirhugaður niðurskurður hafði verið harðlega gagnrýndur. Þá fær Norræna húsið í Reykjavík aukið fjármagn vegna aðkallandi viðgerða. |
2021 | 77 | Steingerður Hauksdóttir, sundkona, setti persónulegt met í 50 metra baksundi á Evrópumeistaramótinu í 25 metra laug í morgun en hún er ein af þremur keppendum Íslands á mótinu. | 50 metra baksundið er aðalgrein Steingerðar en hún synti í morgun á 28,18 sekúndum, hennar besti tími fyrir daginn í dag var 28,52 sekúndur. Tíminn dugði þó ekki inn í undanúrslitin en er farinn að færast nær Íslandsmeti Eyglóar Óskar Gústafsdóttur sem er 27,40 sekúndur. Snæfríður Sól Jórunnardóttir synti í 100 metra s... | null |
2021 | 77 | Í Norðurþingi hefur lausaganga katta verið bönnuð í meira en áratug. Kattaeigendur á Húsavík eru almennt ekki sáttir við bannið. Þeir íhuga að reyna að fá það fellt úr gildi og að fundin verði málamiðlunarlausn. | Ákvörðun bæjarstjórnar Akureyrar um að banna lausagöngu katta hefur vakið miklar og heitar umræður. Áætlað er að bannið taki gildi 2025.
Silja Jóhannesar Ástudóttir, kattaeigandi á Húsavík, segir að þrátt fyrir að lausaganga katta hafi verið bönnuð í þetta langan tíma séu kattaeigendur langt frá því að vera sáttir við ... | null |
2021 | 77 | Ekki verður unnið frekar við uppsetningu Hólasandslínu í vetur og útlit er fyrir að framkvæmdum seinki um allt að átta mánuði. Starfsmenn verktakans frá Bosníu eru á heimleið og koma ekki til landsins aftur fyrr en næsta vor. | Hólasandslína þrjú er sjötíu kílómetra löng háspennulína frá Hólasandi til Akureyrar. Framkvæmdir hófust í ágúst 2020 og áætlað var að taka línuna í notkun núna í árslok. Nú er ljóst að það tekst ekki því aðstæður á framkvæmdasvæðinu eru orðnar erfiðar í frosti og hálku.
Segir Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltr... | Átta mánaða seinkun er fyrirsjáanleg á framkvæmdum við Hólasandslínu, nýrrar háspennulínu frá Hólasandi til Akureyrar. Starfsmenn verktakans frá Bosníu eru á heimleið og koma ekki til landsins aftur fyrr en næsta vor. |
2021 | 77 | Bráðnun Hofsjökuls á liðnu sumri var óvenju mikil, sér í lagi á norðanverðum jöklinum sökum blíðviðris norðanlands. Leysingar á jöklinum voru um 45 prósent meiri en í meðalári. | Vísindamenn Veðurstofu Íslands fóru í haustleiðangur á Hofsjökul í október til að mæla leysingar á jöklinum. Seinasta vetur var snjókoma þar eðlileg miðað við seinustu 30 ár en leysingar voru meiri.
sérstaklega seinni part sumars og sérstaklega á norðanverðum jöklinum. Við teljum líklegt að það tengist því hversu sólrí... | null |
2021 | 78 | Rannsókn héraðssaksóknara á skotárás á bíl borgarstjóra og skrifstofur Samfylkingarinnar hefur verið hætt. Þetta staðfestir Kolbrún Benediktsdóttir, varahéraðssaksóknari, í samtali við fréttastofu. Hægt verður að taka rannsóknina upp ef nýjar upplýsingar koma fram. | Sextugur karlmaður lá undir grun um að hafa skotið á bíl borgarstjóra og skrifstofur Samfylkingarinnar. Hann sat um tíma í gæsluvarðhaldi.
Samkvæmt heimildum fréttastofu er ekkert sem tengir manninn við skotárásina og engin vitni voru að henni. Maðurinn hefur ávallt neitað sök.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir óþ... | Rannsókn héraðssaksóknara á skotárás á bíl borgarstjóra og skrifstofur Samfylkingarinnar hefur verið hætt. Borgarstjóri segir það óþægilegt og að auknar öryggisráðstafanir verði viðhafðar áfram. |
2021 | 78 | Formenn stjórnarflokkanna hittast á föstudag til að halda áfram viðræðum um myndun ríkisstjórnar. Formenn Vinstri grænna og Framsóknar koma heim af þingi Norðurlandaráðs á morgun. Undirbúningskjörbréfanefnd fundar stíft á sama tíma og er niðurstöðu hennar beðið. Gangi allt eftir gæti ný ríkisstjórn litið dagsins ljós u... | Undirbúningskjörbréfanefnd hefur fundað stíft síðan í byrjun október, þegar til hennar var stofnað, og sagði Birgir Ármannsson formaður nefndarinnar í samtali við fréttastofu í morgun að svo yrði áfram alla þessa viku. Í vikulok verði síðan að sjá til hvort hillir í niðurstöðu um helgina. Formenn stjórnarflokkanna hitt... | Gangi allt eftir gæti ný ríkisstjórn litið dagsins ljós um miðjan mánuðinn. Formenn flokkanna hittast á föstudag til að halda áfram viðræðum sem nú hafa staðið í rúmar fimm vikur. |
2021 | 78 | Finnur Ricart, ungmennafulltrúi í sendinefnd Íslands á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Glasgow segir að Ísland ætti að stefna að 70 prósenta samdrætti fyrir 2030. Þversagnir hafi einkennt ræðu Katrínar Jakobsdóttir, forsætisráðherra á loftslagsþinginu í gær. | Ég fann fyrir smá reiði að Ísland væri að sýna sig á alþjóðavettvangi með stór markmið, að þeirra sögn þegar þau voru að vísa í vísindin sem að segja eru að segja að Ísland þurfi að ganga lengra en Ísland er að ganga. Þetta voru þversagnir finnst mér. Við gætum raunverulega sett okkur miklu betri markmið og verið leiðt... | Fulltrúi unga fólksins á Íslandi á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna segir að sumar af væntingum hans séu þegar brostnar eftir leiðtogadagana sem lauk í gær. Markmiðin séu ekki nógu góð og Ísland ætti að ganga lengra. |
2021 | 78 | Sjö manna sendinefnd á vegum Evrópuþingsins kom til Taívan í morgun. Heimsóknin er liður í þeirri stefnu Evrópusambandsins að styrkja tengslin við eyríkið þrátt fyrir viðvaranir Kínastjórnar. | Franski þingmaðurinn Raphael Glucksmann fer fyrir sendinefndinni sem fundar með Tsai Ing-wen, forseta Taívan og fleiri háttsettum embættismönnum.
Glucksmann hefur löngum verið gagnrýninn í garð Kínastjórnar sem lagði á hann viðskiptaþvinganir í mars síðastliðnum. Hann segir það ekki slá sig út af laginu, heldur berjist... | null |
2021 | 78 | Síðustu ár hefur bandarískur fræðimaður sinnt mikilvægum rannsóknum við Mývatn með stuðningi bandaríska vísindasjóðsins. Sjóðurinn framlengdi nýverið styrkinn til tíu ára. | Lífríki Mývatns hefur verið rannsakað í hátt í 50 ár. Upp úr aldamótum vöktu rannsóknirnar áhuga Anthonys Ragnars Ives, bandarísks vísindamanns sem vildi leggja þeim lið. Síðustu tíu ár hafa rannsóknir Anthonys og teymis hans verið styrktar af bandaríska vísindasjóðnum sem hefur veitt áframhaldandi styrk fyrir rannsókn... | null |
2021 | 78 | Evrópumeistaramótið í sundi í 25 metra laug stendur nú yfir í Kazan í Rússlandi. Anton Sveinn McKee tryggði sér í morgun keppnisrétt í undanúrslitum í 100 metra bringusundi. | Þetta var fyrsta sund Antons á mótinu en auk hans keppa þar Snæfríður Sól Jórunnardóttir og Steingerður Hauksdóttir. Anton synti á 57,98 sekúndum og varð þar með fjórtándi inn í undanúrslitin sem fram fara í kvöld klukkan 17:43. Íslandsmet Antons í greininni er 56,30 sekúndur. Eyleifur Jóhannesson, landsliðsþjálfari í ... | Anton Sveinn McKee tryggði sér í morgun keppnisrétt í undanúrslitum í 100 metra bringusundi á EM í Kazan í Rússlandi. |
2021 | 78 | Heilbrigðisráðherra Þýskalands varar við faraldri meðal landsmanna sem ekki eru bólusettir við kórónuveirunni. Hann vill herða aðgerðir gegn útbreiðslu veirunnar að nýju. | Jens Spahn, heilbrigðisráðherra Þýskalands, segir að við blasi faraldur meðal þeirra landsmanna sem eru óbólusettir gegn kórónuveirunni. Sums staðar í landinu séu sjúkrarúm á gjörgæsludeildum nú þegar að fyllast af COVID-19 sjúklingum.
Lothar Wieler, yfirmaður Robert Koch-stofnunarinnar í Þýskalandi, og Jens Spahn heil... | Heilbrigðisráðherra Þýskalands varar við kórónuveirufaraldri meðal óbólusettra landsmanna. Hann vill herða aðgerðir að nýju gegn útbreiðslu veirunnar. |
2021 | 78 | Formenn aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins lýsa yfir miklum áhyggjum af hækkun stýrivaxta á þessu ári og segja að það geti leitt til þess að samningar á almennum vinnumarkaði bresti. | Mikil áhersla var lögð á lækkun stýrivaxta í lífskjarasamningunum sem voru undirritaðir í apríl 2019. Vextir voru þá fjögur og hálft prósent en voru komnir niður í 0,75 prósent í lok síðasta árs. Á þessu ári hefur Seðlabankinn hins vegar hækkað vexti í þrígang og eru nú eitt og hálft prósent.
Í ályktun formannafundar S... | Formenn aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins lýsa yfir miklum áhyggjum af hækkun stýrivaxta á þessu ári. Það geti leitt til þess að samningar á almennum vinnumarkaði bresti. |
2021 | 79 | Formaður undirbúningskjörbréfanefndar vegna talningar atkvæða í Norðvesturkjördæmi telur allt of snemmt að segja til um hvenær niðurstaða nefndarinnar liggur fyrir. Enn sé verið að greina gögn vegna málsins. | Nefndin hefur fundað stíft síðan hún tók til starfa fyrir rúmum fjórum vikum en kærufrestur rann út síðastliðinn föstudag. Sextán kærur bárust nefndinni, langflestar vegna talningar í norðvesturkjördæmi. Birgir Ármannsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður undirbúningskjörbréfanefndar segir talsverða vinnu vera... | null |
2021 | 79 | Ríkari kröfur eru gerðar til lögreglumanna vegna eðlis starfans, segir Halla Bergþóra Björnsdóttir lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu. Hún segist ekki geta tjáð sig um ábendingar vegna umdeildra ummæla lögreglumanns á samfélagsmiðlum. | Embætti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu bárust nýverið ábendingar vegna ummæla lögreglumanns um ásakanir á hendur tónlistarmanninum Ingólfi Þórarinssyni, auk ummæla um þolendur kynferðisofbeldis.
Halla Bergþóra sagði í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun að opinberir starfsmenn hafi tjáningarfrelsi eins og aðrir, en man... | Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu segir að lögreglumenn verði að gæta orða sinna í hvívetna, þar á meðal við skoðanaskipti á samfélagsmiðlum. Ríkari kröfur séu gerðar til lögreglunnar vegna eðlis starfans. |
2021 | 79 | Forseti ASÍ á von á að Sólveig Anna Jónsdóttir tilkynni um afsögn sem annar varaforseti ASÍ fljótlega. Hún býst við að málefni Eflingar verði rædd á fundi miðstjórnar ASÍ á morgun. | Efling er aðildarfélag ASÍ og hefur Sólveig Anna Jónsdóttir, fráfarandi formaður Eflingar, gegnt embætti annars varaforseta. Drífa Snædal, forseti ASÍ, segir að Sólveig Anna hafi ekki enn sagt af sér. Hún á þó von á að það verði fljótlega.
Drífa gerir ráð fyrir því að málefni Eflingar verði rædd á Miðstjórnarfundi ASÍ ... | Sólveig Anna Jónsdóttir hefur ekki sagt af sér embætti annars varaforseta ASÍ en forseti sambandsins á von á að hún tilkynni fljótlega um afsögn. Mál Eflingar verða til umræðu á miðstjórnarfundi ASÍ á morgun. |
2021 | 79 | Rúmlega eitt hundrað þjóðarleiðtogar á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna hafa sammælst um að stöðva eyðingu skóga í heiminum fyrir árið 2030. Brasilíumenn eru þeirra á meðal. | Á annað hundrað þjóðarleiðtogar sem sitja loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sammæltust í dag um að stöðva eyðingu skóga í heiminum fyrir árið 2030. Stofna á sjóð til að bæta þeim skaðann sem þurfa að hætta að ganga á skógana. Umhverfisverndarsinnar fagna, en eru efins um efndirnar.
Í fréttum frá ráðstefnunni í Glas... | Rúmlega hundrað þjóðarleiðtogar á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna hafa sammælst um að stöðva eyðingu skóga í heiminum fyrir árið 2030. Brasilíumenn eru þeirra á meðal. |
2021 | 79 | Geðlestin fer nú um landið og fræðir grunn- og framhaldsskólanema um geðheilsu með þeim skilaboðum að við búum öll við geð, rétt eins og við erum með hjarta. | Þetta er í fyrsta skipti sem Geðlestin heimsækir grunn- og framhaldsskóla landsins. Lestin er nú á Vestfjörðum og fer þaðan norður í land. Grímur Atlason er framkvæmdastjóri Geðhjálpar, sem stendur fyrir verkefninu ásamt hjálparsíma Rauða krossins. Hann segir að heimsóknir Geðlestarinnar séu hugsaðar sem upphafið á fræ... | null |
2021 | 79 | Þing Norðurlandaráðs stendur nú í Kaupmannahöfn. Efling norræns samstarfs eftir bakslag í faraldrinum er þar efst á baugi. | Hvað lærdóm geta Norðurlöndin dregið af kórónuveirufaraldrinum og hvernig á að efla samstarf á sviði neyðarviðbúnaðar til frambúðar? Þetta er yfirskrift þings Norðurlandaráðs sem haldið er í Kaupmannahöfn um þessar mundir. Ýmsum þykir sem faraldurinn hafi sýnt fram á að norrænt samstarf sé nánara í orði en á borði þeg... | null |
2021 | 79 | Á sama tíma og það vantar sálfræðinga fá nýútskrifaðir sálfræðingar ekki starfsleyfi þar sem verklega þjálfun vantar í nám sálfræðinga á Íslandi. Námið hér á landi stenst ekki þær kröfur sem gerðar eru á hinum Norðurlöndunum. | Reglugerð um starfsleyfi sálfræðinga frá 2012 kveður á um verklega þjálfun meistaranema. Sú þjálfun er hins vegar hvergi í boði og nú fá nýútskrifaðir sálfræðingar ekki starfsleyfi en fram að þessu hefur verið veitt undanþága frá þessari kröfu. Tryggvi Guðjón Ingason, formaður Sálfræðingafélags Íslands, segir að ýmsar ... | Nýtútskrifaðir sálfræðingar fá ekki starfsleyfi hér á landi þar sem verklega þjálfun vantar í námið. Minnst tveir sálfræðingar hafa lent í vandræðum í Svíþjóð því íslenska námið stenst ekki þær kröfur sem gerðar eru annars staðar á Norðurlöndunum. |
2021 | 80 | Ein leið til að vekja athygli á umhverfismálum er að blanda saman vísindum og listum. Það er eitt af markmiðum sýningar á Skagaströnd um rekavið sem lifandi gagnabanka. | Tveir þýskir listamenn, Ines Meier og Inka Dewitz, halda úti vefsíðu um rekavið á Íslandi sem styrkt er meðal annars af Loftslagssjóði. Þar er að finna fróðleik um nýtingu rekaviðar og þær upplýsingar sem hann getur gefið okkur, til dæmis um loftslagsbreytingar. Hluti af verkefninu er sýning sem opnuð hefur verið í lis... | null |
2021 | 80 | Stykkishólmsbær vill verða aðgengilegri fyrir nýja íbúa, sérstaklega þau sem eru af erlendu bergi brotin. Meðal annars með því að veita börnum innflytjenda styrk til að stunda íþróttastarf. | Innflytjendum á Íslandi hefur fjölgað mikið síðustu áratugi og eru nú rúmlega fimmtán prósent allra landsmanna. Í Stykkishólmi hefur nú verið skipaður starfshópur með það að markmiði að gera samfélagið aðgengilegra fyrir nýbúa, með sérstakri áherslu á innflytjendur. Aðgerðirnar eiga að ná til samfélagsins í heild; svei... | null |
2021 | 80 | Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda fagnar breyttri verðskrá Póstsins sem afnemur sama pakkaverð um land allt. Þjónustan hafi sums staðar verið undirverðlögð og grafið undan einkareknum fyrirtækjum sem sinna flutningum. | Alþingi hefur verið gert afturreka með lög sem áttu að tryggja sama verð fyrir flutning á pökkum með Póstinum um allt land. Ný verðskrá, sem tekur gildi í dag, hækkar verð á landsbyggðinni þangað sem dýrara er að flytja böggla en lækkar verð innan höfuðborgarsvæðisins. Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnu... | Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda fagnar breyttri verðskrá Póstsins sem afnemur sama pakkaverð um land allt. Þjónustan hafi sums staðar verið undirverðlögð og grafið undan einkareknum fyrirtækjum sem sinna flutningum. |
2021 | 80 | Á annað hundrað þjóðarleiðtogar eru komnir til Glasgow í Skotlandi, eða á leið þangað, til að taka þátt í COP26, loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Gestgjafinn Boris Johnson segir að grípa verði til aðgerða þegar í stað. | Yfir hundrað og tuttugu þjóðarleiðtogar eru komnir til Glasgow í Skotlandi til að taka þátt í tveggja daga leiðtogafundi um loftslagsmál. Nokkra vantar í hópinn, þar á meðal forseta Kína. Hann ætlar ekki að ávarpa fundinn um fjarbúnað, heldur láta sér nægja að senda skriflega yfirlýsingu.
Gestgjafi fundarins, Boris Joh... | Á annað hundrað þjóðarleiðtogar eru komnir til Glasgow í Skotlandi, eða á leið þangað, til að taka þátt í COP26, loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Gestgjafinn Boris Johnson segir grípa verði til aðgerða þegar í stað. |
2021 | 80 | Mikil spenna var í 16 liða úrslitum bikarkeppni karla í körfubolta í gærkvöldi. Stjarnan marði Tindastól í úrvalsdeildarslag á Sauðárkróki. | Stjarnan hafði góða forystu þegar leikur þeirra gegn Tindastóli var vel rúmlega hálfnaður í gærkvöldi og voru Garðbæingar mest 16 stigum yfir. Heimamenn í Tindastóli svöruðu þó fyrir sig og þeir minnkuðu muninn í eitt stig á lokamínútunni og áttu lokasóknina. Hana náðu þeir þó ekki að nýta sem skildi og því vann Stjarn... | null |
2021 | 80 | Formaður Skotfélags Akureyrar segir að ekki sé hægt að banna rjúpnaskyttum að ganga á veiðislóð fyrir hádegi þótt sjálf rjúpnaveiðin megi ekki hefjast fyrr en klukkan tólf. Fyrsti dagur rjúpnaveiða er í dag og þar sem hann ber upp á mánudag fara væntanlega færri til veiða en væri fyrsti veiðidagur á laugardegi. | Ég ætla ekki í dag og ekki á morgun. Ég ætla ekki að taka mér heilan dag í fríi í vinnu til þess að skreppa í örfáa klukkutíma. Í mínum nærhópi hef ég heyrt það að menn ætli ekki í dag. Menn ætli að hinkra kannski eftir helginni, en svo er veðurglugginn um helgina ekkert sérstakur.
Þetta segir Ómar Jónsson, veiðimaður ... | Formaður Skotfélags Akureyrar segist ekki líta svo á að rjúpnaskyttum sé bannað að ganga á veiðislóð fyrir hádegi þótt sjálf rjúpnaveiðin megi ekki hefjast fyrr en klukkan tólf. Fyrsti dagur rjúpnaveiða er í dag. |
2021 | 80 | Ríkisstjórn Frjálslynda lýðræðisflokksins fór með sigur af hólmi í þingkosningum í Japan í gær. Flokkurinn er hófsamur íhaldsflokkur sem hefur verið nær samfellt við völd í landinu frá því að hann var stofnaður árið 1955. Hann tryggði sér hreinan meirihluta í neðri deild þingsins, 261 af 495 fulltrúum. | Samstarfsflokkurinn Komeito, húmanistaflokkur með rætur í búddisma, uppskar 32 þingsæti. Hvort nýkjörinn forsætisráðherra og formaður Frjálslyndra, Kishida Fumio, kýs að hafa Komeito áfram í stjórninni á eftir að koma í ljós. Kishida var kjörinn formaður flokksins eftir að Yoshihide Suga sagði af sér vegna mikillar óán... | null |
2021 | 81 | 26. loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðana er hafin. Hún var sett í Glasgow fyrir hádegi í dag en formlegar viðræður þjóðarleiðtoga og sendinefnda hefjast á morgun. Forsætisráðherra Bretlands segir enga von til þess að þar náist samkomulag um aðgerðir sem takmarka hlýnun jarðar við 1,5 gráður. | Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands er í Róm á leiðtogafundi G20 þar sem hefur reynst torvelt að ná samkomulagi um aðgerðir í loftslagsmálum.
Where we stand today there is no chance of stopping climate change next week. There is no chance of getting an agreement next week to limit climate change to 1,5 degrees.
Ei... | Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna var sett í Glasgow í Skotlandi í morgun. Forsætisráðherra Bretlands segir enga von um að ná samkomulagi um aðgerðir sem takmarka hlýnun jarðar við 1,5 gráður. |
2021 | 81 | Mikill erill var hjá lögreglu og sjúkraflutningafólki á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Lögreglumenn fóru úr einu útkalli í annað og hálfur sjúkrabílaflotinn var í miðborg Reykjavíkur. | Útköll lögreglunnar voru út um allt höfuðborgarsvæðið og af öllu tagi. Tíu manns gistu fangageymslur og 117 mál eru skráð í bækur lögreglunnar frá klukkan fimm í gær til klukkan fimm í morgun. Útköllin voru vegna hávaða í heimahúsum, drykkjuláta og slagsmála, en einn var handtekinn fyrir að ráðast á dyravörð í miðborg ... | Mikill erill var hjá lögreglu og sjúkraflutningafólki á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Lögreglumenn fóru úr einu útkalli í annað og hálfur sjúkrabílaflotinn var í miðborg Reykjavíkur. |
2021 | 81 | Ætli Íslendingar sér að standa við markmið um kolefnishlutleysi árið 2040, nemur kostnaður við um 300-500 milljörðum króna að lágmarki. Þetta sagði Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Klappa, í Silfrinu í dag. Hann segir það vandasamt verkefni stjórnvalda að tapa ekki yfirsýn í málaflokknum. | null | null |
2021 | 81 | Bandaríski kvikmyndaleikarinn Alec Baldwin tjáði sig við fjölmiðlafólk í fyrsta sinn í gær eftir atvik á tökustað á dögunum þar sem hann varð kvikmyndatökumanninum Halynu Hutchings að bana með voðaskoti. Baldwin sagðist ekki mega tjá sig um rannsóknina að neinu leyti að beiðni lögreglu. | Alec Baldwin er staddur í Vermont ásamt fjölskyldu sinni. Hann var að keyra um í bænum Manchester og var eltur af svokölluðum papparössum. Hann ákveður að stöðva bíllinn og stígur út ásamt eiginkonu sinni Hilariu Baldwin.
I am not allowed to make any comments because it´s an ongoing investigation. I have been ordered b... | Bandaríski kvikmyndaleikarinn Alec Baldwin sem varð kvikmyndatökumanni að bana á dögunum tjáði sig við fjölmiðlafólk í fyrsta sinn í gær um atvikið. |
2021 | 81 | Njarðvík og Stjarnan eru komin áfram í 8-liða úrslit bikarkeppni kvenna í körfubolta eftir sigra í 16-liða úrslitum í gærkvöld. Áfram verður leikið í bikarkeppninni í dag. | Njarðvík fór í heimsókn í Borgarnes og mætti liði Skallagríms. Nebojsa Knezevic tók við sem þjálfari liðsins í gær eftir að Goean Miljevic lét af störfum í vikunni en Skallagrímur hefur enn ekki unnið leik í deildinni. Ekki kom sigurinn í bikarleiknum því Borgfirðingar sáu aldrei til sólar og öruggur sigur Njarðvíkur n... | Fjögur lið eru komin áfram í 8-liða úrslit bikarkeppni kvenna í körfubolta eftir sigra í 16-liða úrslitum í gær, fjórir leikir fara svo fram í bikarkeppninni í dag. |
2021 | 81 | Reiknað er með að þungaflutningar um Breiðafjörð nær tvöfaldist á næstu fimm árum með auknum umsvifum í fiskeldi. Sveitarfélög bíða óþreyjufull eftir að hafist verði handa við að endurhanna hafnarmannvirki. | Á fundi sveitarfélaga, samgönguráðuneytis og Vegagerðarinnar var gerð grein fyrir niðurstöðum þarfagreiningar fyrir framtíð ferjusiglinga um Breiðafjörð. Fyrirséð virðist að þungaflutningar muni aukast mikið á næstu fimm árum, sem má fyrst og fremst rekja til aukinna umsvifa í fiskeldi á sunnanverðum Vestfjörðum. Núver... | null |
2021 | 82 | Vopnasérfræðingur við gerð kvikmyndarinnar Rust, segist ekki hafa minnstu hugmynd um ástæður þess að raunveruleg kúla var í skotvopninu sem varð tökustjóra myndarinnar að bana 21. október síðastliðinn. | Þetta er í fyrsta sinn sem vopnasérfræðingurinn Hannah Gutierrez-Reed tjáir sig um atburði þessa örlagaríka fimmtudags fyrir rúmri viku. Leikarinn Alec Baldwin var að æfa sig að beina byssu að linsu tökuvélar þegar skot hljóp af og hæfði Halynu Hutchins tökustjóra og Joel Souza leikstjóra myndarinnar.
Dave Halls aðstoð... | null |
2021 | 82 | Tuttugasta og sjötta loftslagsráðstefna sameinuðu þjóðanna verður sett í Glasgow í Skotlandi á morgun. Þangað mæta helstu ráðamenn heims og reyna að stilla saman strengi til að ná markmiðum þjóða sinna í loftslagsmálum. Miðað við nýja skýrslu Umhverfismálasjóðs Sameinuðu þjóðanna eru ríki heims hvergi nálægt því að ná ... | Það er kannski gott að taka bara dæmi úr fortíðinni. Fulltrúar bílaborgarinnar miklu Detroit litu á það sem sitt hlutverk í Washington að verja bílaiðnaðinn í Bandaríkjunum fyrir kröfum um aukna nýtingu, að þau myndu nota minni orku. Þetta þýddi það að Detroit bara sat eftir, þeir misstu algjörlega frumvæðið. Eitt af þ... | Það er skaðlegt ef stjórnmálamenn eru ekki hreinskilnir um hvaða aðgerðir þurfi að grípa til segir formaður Loftslagsráðs. Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna verður sett í Glasgow í Skotlandi á morgun. |
2021 | 82 | Nöfn tveggja manna sem hlutu þyngstu kynferðisbrotadóma Íslandssögunnar eru horfin úr dómunum á vef Hæstaréttar. Þeir eru á meðal tuttugu og tveggja sem hafa nýtt sér nýlegar reglur um nafnhreinsanir. Þriðjungur er kynferðisbrotamenn. | Nýjar reglur um birtingu dóma og úrskurða á vef dómstóla tóku gildi í október fyrir tveimur árum og leystu aðrar sambærilegar af hólmi. Tilefnið var breytt Evrópulöggjöf um persónuvernd. Í hinum nýju birtingarreglum var það nýmæli að upplýsingar um einka-, fjárhags-, eða viðskiptahagsmuni yrðu framvegis ekki birtar og ... | null |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.