Dataset Viewer (First 5GB)
Auto-converted to Parquet Duplicate
Search is not available for this dataset
text
stringlengths
12
290k
Fjórir útlendingar sem festu bíl sinn í sandbleytu norðan við Mýrdalsjökul á laugardag geta þakkað sínum sæla fyrir veðurblíðuna um helgina. Fólkið lagði af stað fótgangandi eftir aðstoð en var illa búið til útivistar. Það komst í skála í fyrrinótt og gisti þar. Í gær óku svo ferðalangar fram á fólkið á gangi og var þv...
Dagbók 18 ára gamallar stúlku sem dvaldi í útrýmingarbúðum nasista hefur fundist í Hollandi. Í bókinni lýsir stúlkan þriggja mánaða tímabili sínu í útrýmingarbúðunum og þar kemur meðal annars fram sú mikla angist sem ríkti í búðunum, ekki síst meðal ungra barna sem send voru út í opinn dauðann líkt og hverjir aðrir.
Komið er í ljós að norsk stjórnvöld sem sögðust á sínum tíma vera andvíg innrásinni í Írak lánuðu Bandaríkjaher laserljósabúnað til að velja skotmörk og sendu þau til Kúveits aðeins nokkrum dögum fyrir innrásina.
Togarinn Kolbeinsey kom til Bolungarvíkur í dag en skipið mun leggja upp hjá Bakkavík í Bolungarvík og er þetta í fyrsta sinn í mörg ár sem togari er gerður þaðan út. Það er GP útgerð á Patreksfirði sem á skipið og gerði út undir nafninu Hrafnseyri. Skipið er ekki alveg ókunnugt Bolvíkingum því það var á árum áður gert...
Ökumaður bíls slapp lítið meiddur þegar bíllinn valt á hvolf út af þjóðveginum skammt frá Húsavík í gær í krapa og hálku. Maðurinn var fluttur á heilsugæslustöðina á Húsavík en var útskrifaður eftir aðhlynningu. Þá slapp ökumaður ómeiddur þegar malarflutningabíll með tengivagni valt út af veginum skammt frá Almannaskar...
Hluti af þekju úr þaki svonefnds IMEX-húss við Strandveg í Vestmannaeyjum fauk fyrir rúmum klukkutíma síðan. Þakhlutinn sem fór í einu lagi var mjög stór og skemmdi að minnsta kosti einn bíl mikið. Jóhannes Ólafsson, varðstjóri lögreglunnar í Vestmannaeyjum segir mikið mildi að ekki hafi orðið slys á fólki. Hann segir ...
Þrem starfsmönnum Sameinuðu þjóðanna var rænt í Kabúl, höfuðborg Afganistans í morgun. Sjö byssumenn rændu bíl starfsmannanna og námu þá á brott. Talað við Helen Ólafsdóttur sem stödd er í Kabúl.
Aðalfundur Öryrkjabandalags Íslands átelur harðlega að 10 mánuðir skuli vera liðnir án þess að þorri öryrkja hafi fengið þá kjarabót sem samið var um fyrir síðustu þingkosningar. Nú sé ár liðið frá því að ríkisstjórnin upplýsti að hún treysti sér ekki til að efna nema hluta samkomulagsins sem gert var, samkomulag sem þ...
Ekkert markvert gerðist á fundi forystumanna samninganefnda kennara, sveitarfélaga og skólastjóra sem hófst hjá ríkissáttasemjara klukkan 8 í morgun og lauk á 12. tímanum. Ásmundur Stefánsson, ríkissáttasemjari sagði að ekkert nýtt hefði gerst á fundinum en þar hafi verið farið yfir stöðuna. Nú þurfi hóparnir að ákveða...
Tunglmyrkvinn sást vel víðast hvar á landinu í nótt en skyggni tók að versna á höfuðborgarsvæðinu upp úr klukkan 2 í nótt þegar sjálfur almyrkvinn var að hefjast. Einhverjir eyddu nóttinni austur á Þingvöllum þar sem skyggni hélst gott og engin truflun var af rafljósum. Tunglmyrkvar eiga sér stað þegar tunglið gengur i...
Hagnaður af rekstri KB-banka á þriðja ársfjórðungi nam rúmlega 5 og hálfum milljarði króna og hagnaður bankans fyrstu 9 mánuði ársins nemur 11,7 milljörðum króna. Það er hagnaður upp á vel á annan milljarð króna á mánuði. Arðsemi eigin fjár fyrstu 9 mánuðina nam 32,5%. Stjórn bankans ákvað í morgun að selja allt að 110...
John Kerry hefur meira fylgi en George Bush í fimm af lykilríkjunum svokölluðu þar sem úrslit forsetakosninganna í Bandaríkjunum munu að líkindum ráðast. Frambjóðendurnir endursendast nú á milli þessara ríkja og kyssa börn sem mest þeir mega.
Lögreglan í Flórída hefur handtekið eftirlýstan mann sem þóttist vera lýtalæknir. Hann deyfði sjúklingana sína með dýralyfjum og setti brjóst í skálarstærð C á karlkynsvaxtaræktarmann sem hafði óskað eftir stærri brjóstkassa.
Þrjú rússnesk herskip sem hafa verið við æfingar fyrir austan land undanfarna daga héldu í átt frá landinu í gærda og eru þá 4 skip eftir. Skipherrann á beitiskipinu Pétri Mikla, tilkynnti skipherra á skipi Landhelgisgæslunnar í gær að hann hygðist einnig halda frá Íslandi í kvöld, ásamt þremur síðustu skipunum. Áður h...
Sjöundi maðurinn var handtekinn í gær vegna rannsóknar á umfangsmiklu smygli á kókaíni, amfetamíni og LSD með Dettifossi, skipi Eimskipafélagsins. Tveimur hefur verið sleppt úr haldi. Allir þeir sem lögregla hefur handtekið vegna málsins eru Íslendingar. Tveir þeirra voru handsamaðir í Hollandi og þar af var einn þeirr...
Lögreglumenn handtóku í nótt tæplega tvítugan mann á vettvangi þar sem hann hafði brotist inn í verslunarmiðstöð í Breiðholti. Það væri vart í frásögu færandi ef sami maðurinn hefði ekki líka verið handtekinn við innbrot á sama stað og um svipað leyti í fyrrinótt. Í hvorugt skiptið hafði hann komið þýfi undan áður en l...
Fjöldagröf fannst í norðurhluta Íraks og er talið að þar sé að finna hundruð og jafnvel þúsundir líka. Sum þeirra eru af börnum sem halda á leikföngunum sínum. Líklegt er talið að þetta leiði til þess að Saddam Hússein verði sakfelldur fyrir glæpi gegn mannkyni.
Kaflaskipti urðu í baráttunni um Íslandsbanka í gær. Forstjóri bankans hefur styrkt stöðu sína og stuðningsmenn hans mynda kjölfestu bankans ásamt Straumi. Umtalsverðar breytingar verða í bankaráði Íslandsbanka eftir að Lífeyrissjóður verslunarmanna seldi í gær 4% hlut í bankanum fyrir 5 milljarða. Eftir söluna á sjóðu...
Laun í landinu hækkuðu að meðaltali um 4% frá júní 2003 til júní 2004. Verðbólga var 3,3% og jókst kaupmáttur launanna því um 0,7%. Laun kvenna hækkuðu um 4,5% og því aðeins meira en laun karla, sem hækkuðu um 3,85 á tímabilinu. Laun á höfuðborgarsvæðinu hækkuðu um 4,3% en laun á landsbyggðinni um 3,6.
Hægrisinnuð sjónvarpsstöð í Bandaríkjunum sem nær til um fjórðungs þjóðarinnar hefur tilkynnt að viku fyrir forsetakosningarnar verði frumsýnd ný heimildamynd sem útmáli John Kerry, forsetaframbjóðanda demókrata sem föðurlandssvikara.
Framkvæmdastjórn Sjómannasambands Íslands ákvað í dag að fara með Sólbakssamninginn svokallaða fyrir Félagsdóm til að freista þess að fá ákvæði hans, sem brjóta í bága við gildandi kjarasamning milli SSÍ og LÍÚ, dæmd ógild. Jafnframt ákvað stjórnin að kalla samninganefnd sambandsins saman eins fljótt og unnt er til að ...
Samkeppnisráð hefur sektað þrjú olíufélög um samtals 2,6 milljarða króna fyrir ólögmætt samráð. Samkeppnisráð tók ákvörðun í málinu á fundi sínum í gær en það varðar ólögmætt samráð olíufélaganna Olíufélagsins, Olís og Skeljungs auk ólöglegs verðsamráðs Orkunnar við hin félögin. Olíufélögunum var kynnt ákvörðunin í mor...
Landssíminn ræður nú rúmum helmingshlut í sjónvarpsstöðinni Skjá einum. Allt er enn óljóst um hvort Síminn verður seldur á næstunni. Þingflokksformaður Framsóknar segist enn sem fyrr hissa á fjárfestingum Símans. Formaður Samfylkingarinnar segir Sjálfstæðisflokkinn misnota aðstöðu sína til að ná undirtökunum á fjölmiðl...
2,6% landsmanna voru atvinnulaus í september og hefur atvinnuleysi ekki minnkað meira milli mánaða mjög lengi. Atvinnulausir eru nú færri en á sama tíma fyrir ári. Mest hefur dregið úr atvinnuleysi á höfuðborgarsvæðinu.
Nokkur grömm geta skilið á milli lífs og dauða hjá tveimur karlmönnum og einni konu sem eru í haldi lögreglunnar í Singapore. Þau voru handtekin í kjölfar aðgerða gegn kókaínsölu og neyslu í efri stigum þjóðfélagsins.
Yasser Arafat, leiðtogi Palestínumanna lenti nú fyrir stundu á herflugvelli í Frakklandi þar sem hann mun gangast undir læknismeðferð.
Verið er að stofna íslenskt eignarhaldsfélag sem hefur yfir 60 flugvélar á sínum snærum í öllum heimsálfum og 3.200 starfsmenn. Félagið heitir Avion Group og er stofnað um rekstur Atlanta í Bretlandi, breska flugfélagið Excel Airways, Íslandsflug og Atlanta á Íslandi. Félagið tekur formlega til starfa um áramótin og ve...
Yfirvöld í Afganistan hafa handtekið þrjá menn og telja sig hafa fundið jeppa sem var notaður við að ræna fjórum starfsmönnum Sameinuðu þjóðanna í Kabúl í gær.
Grétar Þorsteinsson var endurkjörinn forseti Alþýðusambands Íslands í morgun. Fundarstjóri lýsti Grétar sjálfkjörinn forseta til næstu tveggja ára en enginn annar gaf kost á sér í starfið.
Bílsprengja sem sprakk við lögreglustöð í Bagdad fyrir skömmu varð 10 mönnum að bana og slasaði 12, að sögn talsmanna Bandaríkjahers í landinu.
Franskir læknar segja að þeir þurfi að rannsaka Yasser Arafat, í nokkra daga, til þess að komast að því hvaða sjúkdómur hrjái hann. Arafat var lagður inn á hersjúkrahús í París í dag.
Ökumenn tveggja bíla slösuðust þegar fólksbíll, jeppi og fóðurflutningabíll rákust saman skammt ofan við Litlu kaffistofuna við Suðurlandsveg laust fyrir klukkan 9 í morgun. Hinir slösuðu voru fluttir með sjúkrabílum á slysadeild Landspítalans en hvorugur er í lífshættu. Fóðurbíllinn var með fullfermi og lokaði hann ve...
Í samráði olíufélagnna þriggja var meðal annars stuðst við skriflegan samning um hvernig félögin skuli haga sér. Þar segir meðal annars: Ekki stuðla að né koma á viðbótarsölustöðum né smásöludælum til einkaafnota á framangreindum stöðum nema að fengnu samþykki hinna félaganna, enda falli sú sala einnig inn í skiptin. Á...
Starfsmenn fréttastofu danska ríkisútvarpsins lögðu niður vinnu í gær til að mótmæla því að störf þeirra verði flutt frá Kaupmannahöfn til Árósa. Þaðan voru störfin flutt til Kaupmannahafnar fyrir aðeins 4 mánuðum.
Ingibjörg Helga heitir hrefna ein sem merkt var með gervihnattamerki í Faxaflóa í haust. Samkvæmt upplýsingum Hafrannsóknastofnunar hefur hún nú haldið suður í höf, yfir þúsund sjómílna leið. Hrefnan Ingibjörg var merkt þann 14. september en rúmri viku síðar synti hún hratt vestur að landgrunnsbrún og hélt sig þar í no...
Enn er einn af hverjum 5 kjósendum í Bandaríkjunum óákveðinn um það hvern skuli kjósa í forsetakosningunum um leið og fylgi þeirra Bush og Kerrys mælist hnífjafnt.
Rannveig Guðmundsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar verður forseti Norðurlandaráðs næsta árið. Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra mun hins vegar stjórna Íslandi einn í næstu viku. Þing Norðurlandaráðs verður haldið í Stokkhólmi,- dagana fyrsta til þriðja nóvember og verður þá meðal annars kjörinn forseti ráðsins. Fo...
Tveir menn slösuðust þegar fólksbíll og malarflutningabíll rákust saman í Eyjafirði síðdegis í gær. Áreksturinn varð á Moldhaugahálsi við Dalvíkurafleggjara norðan Akureyrar. Tveir sjúkrabílar voru sendir á staðinn auk tækjabíls slökkviliðsins á Akureyri en beita þurfti klippum til að ná manni sem var fastur í flaki fó...
Búist er við auknum áhuga olíufélaga á að leita að olíulindum í grennd við Ísland og víðar á norðurslóðum vegna hækkandi olíuverðs og ótryggs ástands á mörgum helstu olíuvinnslusvæðunum. Tvö olíuleitarfyrirtæki sem fengu leyfi til frumathugana á íslenska hluta Jan Mayen hryggjarins hafa nú lokið athugunum og bjóða olíu...
Bilið á milli forsetaframbjóðandanna í Bandaríkjunum fer vaxandi og Bush forseti virðist í sókn samkvæmt könnunum. Bandarísk dagblöð stilla sér nú á bak við þann frambjóðanda sem þeim líkar best við.
Sautján ára unglingur, nýkominn með bílpróf, missti stjórn á jeppa sínum þegar hann ók yfir hraðahindrun innanbæjar á Selfossi seint í gærkvöld. Hann ók niður tvo ljósastaura áður en bíllinn nam staðar. Hinn ungi ökumaður var einn í bílnum og meiddist lítilsháttar en bíllinn er mikið skemmdur og staurarnir ónýtir.
Heilbrigðis- og félagsmálaráðherrar Norðurlandanna samþykktu á fundi sínum um áfengismál í morgun að leggja til aukna skattlagningu á áfengi. Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra segir að þetta þýði þó ekki að skattar á áfengi hækki hér á landi enda séu þeir ærnir fyrir. Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamála...
42 menn voru hætt komnir þegar hópferðabíll með starfsmenn álversins á Grundartanga valt í vindhviðu skammt frá gangamunnanum við Hvalfjarðargöng, norðanmegin, upp úr klukkan 7 í morgun. Kristján Már Unnarsson er á vettvangi atburða. Kristján Már Unnarsson: Nú rútan hún er á hvolfi rétt utan við veginn. Miðað við lýsin...
Ríkissaksóknari telur hæfilegt að allir sakborningarnir þrír í líkfundarmálinu verði dæmdir í tveggja og hálfs árs fangelsi hver. Verjendur krefjast sýknu af flestum ákæruliðum. Aðalmeðferð lauk rétt fyrir hádegi. Eins og fyrr segir þá lauk málflutningi ákæruvaldsins og verjenda í líkfundarmálinu fyrir nokkrum mínútum....
Tugþúsundir manna hafa í dag safnast saman víðsvegar um Evrópu til þess að mótmæla fyrirhuguðum niðurskurði bandaríska stórfyrirtækisins General Motors í Evrópu.
Að minnsta kosti 11 grunaðir Al Qaeda liðar hafa horfið meðan þeir hafa verið í varðhaldi í Bandaríkjunum og sumir hafa verið pyntaðir að sögn mannréttindarsamtaka.
Útbúnaður til að búa til kjarnavopn hefur horfið í Írak eftir að innrásin var gerð segja vopnaeftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna. Bandaríkjamenn hafa lagt ýmsar hömlur á starf eftirlitsmanna frá Alþjóða kjarnorkumálastofnuninni og verða þeir að treysta á gervihnattamyndir og aðrar heimildir.
Það ræðst í dag hvort sýslumaður á Akureyri fellst á lögbannsbeiðni útgerðarfélags togarans Sólbaks á samtök sjómanna til að koma í veg fyrir truflanir við löndun úr togaranum. Hann er væntanlegur til lands í fyrramálið. Það er útgerðarfélag Sólbaks ehf. í eigu Brims sem fór í gær fram á lögbann gegn Sjómannasambandinu...
Karlmaður var fluttur á slysadeild um klukkan hálftvö í dag eftir að hafa fallið niður af tveggja metra háum vinnupalli í Árbænum. Maðurinn var að rétta verkfæri niður af pallinum, sem var á hjólum, þegar hann fór af stað með þeim afleiðingum að maðurinn féll af honum og lenti á bakinu. Lögregla og sjúkralið komu á vet...
Vísitala neysluverðs í þessum mánuði er 0,76% hærri en í síðasta mánuði. Hækkunina má að mestu rekja til verðhækkunar á fatnaði og húsnæði. Undanfarna 3 mánuði hefur vísitalan hækkað um 1,2% sem jafngildir 4,9% verðbólgu á einu ári.
Fráhvarfseinkenni koffeins uppfylla nægilega mörg skilyrði til þess að flokkast sem geðsjúkdómur samkvæmt rannsóknum lækna við John Hopkins háskólann í Bandaríkjunum.
Fullvíst er talið að breska ríkisstjórnin ákveði í dag að senda breska hermenn til að aðstoða Bandaríkjaher við að koma böndum á uppreisnarhópa í Bagdad og nágrenni. Málið er líklegt til að valda uppþoti innan Verkamannaflokksins.
Nú fara að verða síðustu forvöð fyrir landsmenn að segja álit sitt á því hvert skuli verða þjóðarblóm Íslendinga. Frestur til að velja þjóðarblómið rennur út á föstudag, þann 15. október, eða eftir tvo daga. Valið stendur á milli sjö blóma: blágresis, blóðbergs, geldingarhnapps, gleym-mér-eijar, holtasóleyjar, hrafnafí...
Hjálparstarfsmenn reyna nú að koma mat og teppum til fólks sem hefst við á götum úti í Japan eftir að öflugur jarðskjálfti reið yfir landið um helgina.
Einn sakborninga í líkfundarmálinu neitar allri sök. Hinum sakborningunum tveimur ber að mestu leyti saman um að allir þrír hafi átt þátt í að koma líki Vaidasar Juceviciusar fyrir í höfninni í Neskaupstað. Jóhann Hlíðar Harðarson fylgist með aðalmeðferðinni sem hófst í morgun fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Það eru þrír...
Farið verður að selja dýrustu aðgöngumiða á tónleika hérlendis til þessa á föstudaginn, þegar forsala hefst á tónleika tenórsins Jose Carreras sem haldnir verða í Háskólabíói þann 5. mars í vetur.
Ísland er í 10. sæti á lista World Economic Forum yfir samkeppnishæfustu hagkerfi í heimi. Ísland lækkar þar með um 2 sæti frá því í fyrra. Efnahagskerfi Norðurlanda eru þó sem fyrr þau samkeppnishæfustu. Finnland trónir efst á listanum, þar á eftir koma Bandaríkin. Því næst Svíþjóð. Tævan og Noregur.
Allt gekk að óskum þegar Rússar skutu geimskot á loft frá Kazakstan í morgun. Um borð eru rússneskir og bandarískir geimfarar og er förinni heitið að alþjóðlegu geimstöðinni.
Óvæntur hagnaður ríkissjóðs af eldsneytishækkunum á heimsmarkaði gæti orðið allt að 1 milljarður króna á árinu vegna innheimtu virðisaukaskatts af hverjum eldsneytislítra. Frá áramótum hefur bensínlítrinn hækkað um rúmar 13 krónur og gas- og olíulítrinn um u.þ.b. 11 krónur. Og miðað við stöðuna á olíumörkuðum heimsins ...
Flutningavél með 6 manna áhöfn fórs í Halifax í Nova Scotia í morgun. Vélin hrapaði skömmu eftir flugtak og hafnaði í skóglendi skammt frá borginni þar sem kviknaði í henni. Vélin var skráð í Ghana en talsmaður flugfélagsins segir enn of snemmt að segja til um orsök slyssins.
Vísindamenn telja nú í fyrsta sinn að hægt sé að bjarga börnum frá malaríusmiti eða dauða með bólusetningu. Þótt enn sé langt í að menn telji baráttuna gegn þessum skæða sjúkdómi lokið segja sérfræðingar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar skrefið stórt.
Arthúr Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda varar við afskiptum sjálfskipaðra afla sem berjast gegn fiskveiðum með órökstuddum fullyrðingum. Þetta kom fram í ræðu hans á ársfundi Landssambands íslenskra smábátaeigenda. Vitnaði hann til þess að alþjóðlegt bann við trollveiðum væri nú komið til umfjöllunar hjá ...
Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út til að aðstoða fólk sem lent hefur í vandræðum í bílum sínum vegna ófærðar og illviðris sem gengur nú yfir norðaustanvert landið. Mjög hvasst er einnig í vindhviðum vestur eftir suðurströndinni. Flestir fjallvegir á Austfjörðum eru illfærir eða jafnvel ófærir auk þess sem skyggni...
Coloradoríki gæti skipt sköpum í forsetakosningunum í Bandaríkjunum.
Banaslys varð laust fyrir miðnætti þegar jeppi valt út af þjóðveginum ofan við Varmahlíð í Skagafirði. Einn lést og þrír voru fluttir á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, þar af einn alvarlega slasaður. Flughált var á vettvangi og er það talin ástæða þess að ökumaður missti stjórn á bílnum sem fór að minnsta kosti tvær v...
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin segir að 70 þúsund flóttamenn hafi látist í Darfur héraði í Súdan á síðustu mánuðum.
Innrásin í Írak hefur ekki leitt til öruggari heims. Þetta segir Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna.
Nú hafa 5% atkvæða í forsetakosningunum í Afganistan verið talin og hefur Hamid Karzai, bráðabirgðaforseti landsins, fengið 67% þeirra.
Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna segir umleitanir til friðar í Norður-Írlandi undanfarin ár vera frábærar og þær hvetji heimsbyggðina til dáða í viðleitni sinni til friðar.
Hryðjuverkamennirnir í Beslan voru á eiturlyfjum og í umsátrinu um skólann voru margir þeirra í fráhvarfi, eftir því sem rússnesk yfirvöld fullyrða.
Fleming Oppfeldt, þingmaður Venstre flokksins í Danmörku hefur verið handtekinn vegna gruns um að hafa beitt ungan dreng kynferðislegu ofbeldi.
Yfir 100 eru látnir eða slasaðir eftir sprengjuárásir skæruliða á höfuðstöðvar þjóðvarðarliðsins í Írak í morgun. Sex sprengjum var varpað á híbýli þjóðvarnarliðsins.
Öll sveitarfélögin 5 á Snæfellsnesi og þjóðgarðurinn Snæfellsjökull hafa fyrst sveitarfélaga á norðurhveli jarðar uppfyllt skilyrði Green Globe 21 umhverfismerkingarinnar um sjálfbæra ferðaþjónustu. Þetta er sjötta svæðið í heiminum sem uppfyllir skilyrðin. Vottunin verður kynnt á ráðstefnu Alþjóðaferðamálaráðsins í næ...
Friðgeir Karlsson, bóndi að Knerri á sunnanverðu Snæfellsnesi lagði sig í lífshættu þegar hann bjargaði hátt í 100 kindum úr logandi fjárhúsum sínum í gærkvöld áður en hann varð frá að hverfa. 600 lömb og kindur sem eftir urðu í fjárhúsunum, brunnu þar inni. Hann kallaði á aðstoð slökkviliðs laust fyrir klukkan 8 í gær...
Níu manns hafa fundist látnir í Japan eftir það sem virðist vera hópsjálfsmorð skipulagt á netinu. Talið er að fólkið hafi kynnst í gegnum vefsíðu sem hvetur fólk til að fyrirfara sér. Sjö ungmenni undir og um tvítugt fundust í sendiferðabíl utan við Tokyo, tvær konur fundust í bíl sunnan við borgina.
Líkinu af breska gíslinum Kenneth Bigley var komið fyrir rétt utan við Bagdad segja heimildarmenn Reutersfréttastofunnar meðal uppreisnarmanna í Írak. Líkið hefur ekki fundist.
Rannveig Guðmundsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar segir að ófremdarástand sé í túlkaþjónustu heyrnarlausra og kennir um viljaskorti stjórnvalda til að leysa málið. Rannveig segir heyrnarlausa hafa gengið Heródesargöngu síðustu 10 árin. Núverandi túlkaþjónusta sé ekki nægileg enda séu mörg tilvik þar sem heyrnarlausi...
Hvít-Rússar kjósa nú um það hvort forseti landsins skuli sitja sitt þriðja kjörtímabil í röð. kosningarnar sjálfar fara fram á sunnudaginn en þeir íbúar landsins sem ekki eiga heimangengt á kjörstað þá kjósa í dag.
Forsætisráðherra hvetur deilendur í kennaradeilunni til að setjast að samningaborði aftur og ítrekar að lög verði ekki sett á verkfallið. Launanefnd sveitarfélaga segir gerðardóm í málinu ekki koma til greina en að tilboð sem sáttasemjari lagði fram standi enn. Ríkissáttasemjari var boðaður með stuttum fyrirvara á fund...
Fylgi George Bush og Johns Kerrys er nákvæmlega jafnmikið samkvæmt nýjustu könnunum og því gætir mikillar spennu fyrir síðustu kappræður þeirra í kvöld. Þær eru síðasta stóra tækifæri frambjóðendanna til að sannfæra 7% kjósenda sem enn eru óákveðin.
Enginn sáttafundur verður í kennaradeilunni í dag en nefndirnar hitta ríkissáttasemjara hvor í sínu lagi. Samninganefnd kennara mætti til ríkissáttasemjara í morgun en samninganefnd sveitarfélaga hittir hann klukkan þrjú í dag. Finnbogi Sigurðsson, formaður samninganefndar kennara segist ekki vilja ræða niðurstöðu fund...
Samruni Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, SH ,og Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda, SÍF, er endanlega úr sögunni eftir að SÍF ákvað um helgina að kaupa stórt, franskt matvælafyrirtæki og selja um leið rúmlega 22% hlut sinn í SH. Í ársbyrjun í fyrra var það vilji bæði Landsbankans og Íslandsbanka að félögin yrðu s...
Rússnesk herskip fylktu liði aftur út af Þistilfirði í nótt. Skipherrann á rússneska beitiskipinu Pétri mikla stóð því ekki við það sem hann sagði við Landhelgisgæsluna í fyrradag, að hann myndi halda frá Íslandi í gærkvöldi. Skipherrann sagði þá að hann myndi halda á brott ásamt þremur öðrum herskipum sem eftir voru f...
Engar mótmælaaðgerðir voru á bryggjunni á Akureyri í morgun þegar löndun hófst úr togaranum Sólbaki er hann kom til hafnar klukkan átta. Forysta sjómannasamtakanna segist hlíta lögbanni á mótmælaaðgerðir sem sýslumaðurinn á Akureyri féllst á í gær að beiðni útgerðarfélags Sólbaks. Málið verður svo tekið fyrir í Héraðsd...
Íbúum á höfuðborgarsvæðinu hefur fækkað lítillega á síðastliðnum þremur mánuðum og þó nokkuð margir Íslendingar ætla að freista gæfunnar í útlöndum. Fækkun á höfuðborgarsvæðinu nam samanlagt um 88 manns, þá virða þó nokkrir sjá betri tækifæri í útlöndum en hér á landi því 365 Íslendingar fluttu úr landi umfram þá sem f...
Þau tíðindi berast frá Noregi að 13 flóttamenn frá Eþíópíu sem hafa dvalið í búðum fyrir flóttamenn í Noregi í þrjú ár án þess að fá landvistarleyfi settust að í Dómkirkjunni í Osló í gærkvöld og hófu þar hungurverkfall.
Maður sem brotist hafði inn í bíla dró upp hníf og hótaði lögreglumönnum þegar að lögreglan hafði króað hann af í Bústaðahverfi í Reykjavík í nótt. Ekki kom þó til þess að hann beitti hnífnum því þegar að lögreglumenn drógu upp kylfur og skipuðu honum að leggja frá sér hnífinn gerði hann það. Þýfi úr tveimur bílum fann...
Íslenskt flugfélag er orðað við eitt stærsta lágfargjaldaflugfélag Evrópu, Easy Jet. Breskir fjölmiðlar segja orðróm um yfirtökutilboð á kreiki. Avion Group, Icelandair og Iceland Express eru öll nefnd sem hugsanlegir kaupendur. Talsmaður Flugleiða sagðist geta svarað spurningum um málið síðar í dag. Viðmælendur frétta...
Þeir þrír menn sem frömdu húsbrot á ritstjórn DV í gær hafa allir heitið því að gefa lögreglunni skýrslu um málið eftir að lögregla náði í þá í síma í gærkvöld. Þeir réðust á fréttastjóra DV inni á ritstjórn blaðsins í gær og tóku hann m.a. kverkataki þannig að á honum sá og höfðu í hótunum við starfsfólk. Þá ruddu þei...
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Stefán Loga Sívarsson í 3ja ára fangelsi fyrir mjög alvarlega líkamsárás sem hefði getað leitt til dauða. Árásin átti sér stað á heimili hans við Skeljagranda í Reykjavík en síðast var Stefán Logi dæmdur í 2ja ára fangelsi ásamt bróður sínum fyrir lífshættulega líkamsárás í sömu íbúð...
Átta manns féllu og minnst 4 særðust þegar 2 öflugar sprengingar urðu í miðborg Bagdad í Írak í morgun.
Gamall Dornier DO-24 flugbátur er væntanlegur til Reykjavíkurflugvallar síðdegis í dag á leið sinni umhverfis hnöttinn líkt og forveri hans fór fyrir 75 árum. Þó þótti það flugsögulegt afrek. Í hnattfluginu á sínum tíma sat Dornier sjálfur eða hönnuður og smiður vélarinnar við stýrið en að þessu sinni er það sonursonur...
Vetrarveður skall á fyrir vestan á heiðum Vestfjarða í gærkvöldi og í nótt. Vegagerðarmenn þurftu til dæmis að bíða veðurs til að geta rutt veginn um Klettsháls. Mokstur hófst hins vegar snemma á Eyrarfjalli og Steingrímsfjarðarheiði en hálka og éljagangur er á öðrum heiðum. Éljagangurinn náði yfir á Breiðafjörð og er ...
Barnaverndarstofa hefur óskað eftir umsögn Persónuverndar vegna tregðu lögreglustjórans í Reykjavík við að afhenda myndbandsupptökur af skýrslutökum í kynferðisafbrotamálum. Persónuvernd telur ekkert í lögum standa því fyrir þrifum að Barnaverndarstofa fái umrædd gögn en segir jafnframt að það sé ekki á valdsviði sínu ...
Íslensk skip veiddu 62.800 tonn í september sem er um 32 þúsundum minna en á sama tíma í fyrra. Verðmæti fiskaflans dróst saman um 8,8% miðað við sama tímabil. Heildarverðmæti fiskafla það sem af er árinu hefur dregist saman um 1,1% frá áramótum miðað við sama tímabil í fyrra.
Verjendur Slobodans Milosevic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu, hafa óskað eftir því að verða leystir frá störfum en þeir vilja ekki verja hann lengur í réttarhöldunum yfir honum hjá Alþjóðastríðsglæpadómstólnum í Haag.
24 karlmaður lést eftir fall á íþróttaleikvangi í Danmörku í um helgina.
Fundur deilenda í kennaradeilunni hófst klukkan þrjú í húsi ríkissáttasemjara og stóð hann enn nú rétt fyrir fréttir. Deiluaðilar voru ekki mjög bjartsýnir fyrir fundinn enda benti ekki margt til þess að þar kæmi eitthvað nýtt fram. Báðir aðilar sögðu þó mæta til fundarins með opnum hug og reynt yrði eftir fremsta megn...
Sjö frændur og frænkur George Bush hafa sett á fót heimasíðu þar sem fólk er hvatt til þess að kjósa hann ekki.
Stjórn foreldrafélagsins í Grandaskóla hvetur foreldra til að senda borgarfulltrúum Reykjavíkur bréf í dag þar sem þeim er sagt að axla ábyrgð sína í kennaraverkfallinu. Stjórnarmaður félagsins segir að borgarfulltrúum beri skylda til að bregðast við óskum foreldra og hann segir nóg komið af þessu bulli, eins og hann o...
End of preview. Expand in Data Studio

No dataset card yet

Downloads last month
3