Search is not available for this dataset
url stringlengths 21 288 | text stringlengths 1 1.35M |
|---|---|
https://www.akureyri.is/is/frettir/stofnfundur-um-fjolsmidju-a-akureyri | Stofnfundur um Fjölsmiðju á Akureyri
Mánudaginn 9. júlí var skrifað undir skipulagsskrá fyrir Fjölsmiðjuna á Akureyri. Fjölsmiðja er atvinnutengt úrræði fyrir ungt fólk á krossgötum sem hefur flosnað upp úr námi eða vinnu þar sem ungmennum er hjálpað við að finna sér stað í lífinu og byggja sig upp fyrir framtíðina. Í ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/heitir-fimmtudagar-1 | Heitir fimmtudagar
Jazzinn er rauður þráður í dagskrá Listasumars á Akureyri og hefur vakið athygli langt út fyrir landsteinana. Á þessu sumri er boðið upp á þá bestu í flokki íslenskra djassara en einnig spennandi erlenda djasstónlistarmenn.
Djassdúóið „The Story of Modern Farming" verður á Heitum fimmtudegi í Deiglun... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/sumarskoli-res | Sumarskóli RES
RES Orkuskóli (The School for Renewable Energy Science) tók formlega til starfa með opnunarhátíð í Ketilhúsinu á Akureyri í byrjun maí. Skólinn er afrakstur fjögurra ára undirbúningsferlis og verður alþjóðleg einkarekin mennta- og vísindastofnun á sviði endurnýjanlegra orkugjafa.
Nemendur á vegum Sumarsk... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/alyktun-stjornar-eythings | Ályktun stjórnar Eyþings
Stjórn sambands sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum sendi frá sér ályktun í gær í tilefni af ákvörðun ríkisstjórnarinnar um niðurskurð á aflaheimildum í bolfiski:
Stjórn Eyþings lýsir yfir áhyggjum af þróun atvinnulífs á svæðinu, verði ekki gripið strax til raunhæfra mótvægisaðgerða af... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/utimarkadur-a-radhustorgi | Útimarkaður á Ráðhústorgi
Síðasta laugardag var haldinn útimarkaður á Ráðhústorgi. Ýmsar vörur voru til sölu, fatnaður og glæsilegt handverk, auk þess sem dansarar frá dansfélaginu "Vefarinn", sýndu þjóðdansa við mikinn fögnuð áhorfenda.
Útimarkaðurinn var haldinn til að skapa líflega miðbæjarstemningu, m.a. í tengslum... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/sogufraegt-hus-faer-lif-a-ny | Sögufrægt hús fær líf á ný
Á fimmtudaginn sl. var tekið í notkun á ný, eitt hundrað ára gamalt hús við Kaupvangsstræti 6 á Akureyri eftir umfangsmiklar endurbætur. Engin starfsemi hefur verið í húsinu í um þrjá áratugi en húsið var á sínum tíma byggt sem sláturhús Kaupfélags Eyfirðinga og hýsti síðar fjölþætta starfsem... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/midaldakaupstadurinn-gasir-vaknar-til-lifsins-a-ny | Miðaldakaupstaðurinn Gásir vaknar til lífsins á ný
Hinn forni verslunarstaður á Gásum vaknar til lífsins helgina 21. og 22. júlí. Minjasafnið á Akureyri, Hörgárbyggð og Akureyrarstofa blása þá lífi í Gásakaupstað með aðstoð innlendra og erlendra kaupmanna og handverksfólks. Markaðurinn verður opnaður kl. 10 laugardagin... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/alyktun-vegna-skerdingar-a-aflaheimildum | Ályktun vegna skerðingar á aflaheimildum
Bæjarstjórn samþykkti ályktun á fundi sínum í gær er varðar væntanlegar skerðingar á aflaheimildum.
Ályktunin er svohljóðandi:
Bæjarstjórn Akureyrar lýsir yfir þungum áhyggjum af væntanlegum niðurskurði í aflaheimildum á þorski og þeim afleiðingum sem sá samdráttur mun hafa á at... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/jazz-a-akureyri | Jazz á Akureyri
DjangoJazz Festival Akureyri og Jazzklúbbur Akureyrar standa fyrir jasshátíð í Reykjavík, Húsavík og Akureyri dagana 20. til 25. júlí næstkomandi.
Hljómsveitin Snap Happy frá Ástralíu, sem um þessar mundir er á tónleikaferðalagi um norðurlöndin, mun spila á hátíðinni. Snap Happy, sem einnig kallast The ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/frabaer-arangur-ungs-frjalsithrottafolks | Frábær árangur ungs frjálsíþróttafólks
Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum, 12-14 ára, fór fram um helgina. Mótið var haldið í Borgarnesi, þrettán krakkar fóru frá UFA og komu þeir heim hlaðnir titlum og viðurkenningum.
Andri Már Bragason varð Íslandsmeistari í flokki 13 ára pilta í tveimur greinum: í 100 m hlaupi ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjor-hja-vinnuskolakrokkum | Fjör hjá vinnuskólakrökkum
Í gær var hefðbundin vinna lögð niður í Vinnuskólanum á Akureyri, en um 500 ungmenni á aldrinum 14-16 ára starfa þar í sumar. Krakkarnir skemmtu á Þórsvellinum og í Boganum ásamt leiðbeinendum sínum sem grilluðu pylsur og buðu uppá gos og súkkulaði.
Ýmislegt var í boði fyrir krakkana, m.a. þr... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/afrekskonur-fa-styrki | Afrekskonur fá styrki
Skíðakonurnar Dagný Linda Kristjánsdóttir og Íris Guðmundsdóttir hlutu í dag styrki úr Afreks- og styrktarsjóði Íþróttaráðs Akureyrarbæjar. Í dag voru undirritaðir samningar þar að lútandi við Skíðafélag Akureyrar sem fela í sér fastar mánaðarlegar greiðslur í eitt ár til Dagnýjar Lindu en níu mán... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/spnor-styrkir-midaldamarkadinn | SPNOR styrkir Miðaldamarkaðinn
Sparisjóður Norðlendinga er annar af aðalstyrktaraðilum Miðaldamarkaðsins að Gásum en hann er opinn eina helgi á hverju sumri. Þá er stemmingin, sem talin er hafa verið á Gásum í blómatíð kaupstaðarins um 1300, endursköpuð og býðst gestum að koma og upplifa forna tíð. Um 1.200 manns lögðu... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/trio-sunnu-i-deiglunni | Tríó Sunnu í Deiglunni
Það verður mikill hvalreki fyrir djassáhugamenn á Akureyri þegar Tríó Sunnu Gunnlaugs heldur tónleika í Deiglunni fimmtudagskvöldið 26. júlí kl. 21.30. Sunna hefur haslað sér völl í veröld djassins austan hafs og vestan á síðari árum og diskur hennar "Live in Europe" hefur fengið afar lofsamlega ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyringar-ordnir-riflega-17000 | Akureyringar orðnir ríflega 17.000
Akureyringar urðu 17.000 í byrjun júlí þegar hjónunum Krzysztof Dziubinski og Beatu Mieczyslawa Dziubinska fæddist fallegur sonur á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Pilturinn heitir Gabríel Óskar Dziubinski og leit heimsins ljós þann 3. júlí.
Af þessu tilefni færði bæjarstjórinn á Ak... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/verdmaet-umfjollun | Verðmæt umfjöllun
Condé Nast Taveller er óumdeilanlega eitt virtasta og víðlesnasta ferðatímarita heims, oft nefnt drottning ferðatímarita. Í júlíhefti blaðsins er að þessu sinni afar falleg og vel skrifuð grein um Ísland og fjallar hún að mestu um Norðurland og Vestfirði.
Greinilegt er að blaðakonan, Sue Halpern, hefu... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/aefingabudir-skautafolks | Æfingabúðir skautafólks
Í dag hefjast æfingabúðir fyrir skautafólk sem Listhlaupadeild Skautafélags Akureyrar heldur og eru þetta stærstu æfingabúðir sem listhlaupadeild á Íslandi hefur staðið fyrir. Þaulreyndir erlendir þjálfarar og hæfileikaríkir íslenskir þjálfarar kenna ungu norðlensku skautaáhugafólki íslistir.
Þr... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/i-fotspor-munkanna | Í fótspor munkanna
Laugardaginn 28. júlí kl. 11 stendur Minjasafnið á Akureyri í samvinnu við Amtmannssetrið á Mörðuvöllum fyrir sögugöngu frá miðaldakaupstaðnum Gásum að Möðruvöllum í Hörgárdal. Gangan hefst með leiðsögn Kristínar Sóleyjar Björnsdóttur, verkefnisstjóra Gásaverkefnisins, um Gásakaupstað. Sr. Gylfi Jóns... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/aldursvidmid-a-tjaldsvaedum-um-verslunarmannahelgina | Aldursviðmið á tjaldsvæðum um verslunarmannahelgina
Um komandi verslunarmannahelgi verður fjölskyldufólk á öllum aldri í forgangi á tjaldsvæðum Akureyrarbæjar við Þórunnarstræti og á Hömrum. Viðmið verða þó sett um aðgang einstaklinga á aldrinum 18-23 ára og geta þeir að öllu jöfnu ekki búist við að fá inni á tjaldsvæð... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/naustahverfi-reitur-28-og-naustagata-deiliskipulag | Naustahverfi, reitur 28 og Naustagata. Deiliskipulag
Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að deiliskipulagi í Naustahverfi, reit 28 og Naustagötu.
Tillagan fjallar um reit á brekkubrúninni sunnan kirkjugarðs, milli Miðhúsabrautar og Naustabæja. Um s... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/naustahverfi-i-holmatun-2-deiliskipulagsbreyting | Naustahverfi I, Hólmatún 2. Deiliskipulagsbreyting
Tillagan fjallar um breytingar á skólalóð grunnskóla sem sameinast við lóð leikskólans sem þar er fyrir og aðrar eftirfarandi breytingar:
Lóðir leikskólans og grunnskólans verða sameinaðar. Stærð lóðar er um 2.52 ha eftir sameiningu. Lega lóðarveggja er breytt sem og l... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/ragnheidur-grondal-og-black-coffee | Ragnheiður Gröndal og Black Coffee
Ragnheiður Gröndal og hljómsveitin Black Coffee halda tónleika á Heitum fimmtudegi í Ketilhúsinu 2. ágúst kl. 21.30. Á tónleikunum verður flutt blúsuð og djössuð tónlist úr ýmsum áttum auk frumsaminna laga Ragnheiðar Gröndal.
Hljómsveitina Black Coffee skipa auk Ragnheiðar þeir Ásgeir... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/abendingar-um-fagrar-lodir | Ábendingar um fagrar lóðir
Framkvæmdadeild Akureyrarbæjar óskar eftir ábendingum frá bæjarbúum um góðan árangur í fegrun og hirðingu bæjarins.
Óskað er eftir ábendingum í eftirfarandi flokka:
Flokkur nýrri garða
Flokkur eldri garða
Flokkur raðhúsa/fjölbýlishúsa
Flokkur fyrirtækja
Flokkur stofnana
Fyrirmyndargata bæjari... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/portrett-af-ketilhusinu | Portrett af Ketilhúsinu
Laugardaginn 4. ágúst opnar Arna Valsdóttir sýningu á innsetningarverki sem hún hefur sett upp í Ketilhúsinu á Akureyri. Verkið er einskonar portrettmynd af Ketilhúsinu þar sem Arna dregur upp ljóðræna teikningu af svipmóti hússins með ljósi, skuggum og endurvarpi.
„Ég hef þekkt Ketilhúsið frá þ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/markadsdagur-i-laufasi | Markaðsdagur í Laufási
Hinn árlegi markaðsdagur í Gamla bænum í Laufási í Eyjafirði verður haldinn mánudaginn 6. ágúst frá kl. 13.30–16.00. Á markaðnum mun að þessu sinni kenna ýmissa grasa þar má nefna handverk og listmuni ásamt margs konar matvöru úr héraðinu. Urtasmiðjan mun kynna vörur sínar og lifandi tónlist setu... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjolskylduhatidin-ein-med-ollu | Fjölskylduhátíðin Ein með öllu
Fjölskylduhátíðin Ein með öllu verður formlega sett klukkan 20.30 í kvöld á Ráðhústorgi á Akureyri. Síðan tekur við dagskrá við allra hæfi sem stendur nær óslitið fram að lokahátíðinni á Akureyrarvelli sem hefst klukkan 21.00 á sunnudagskvöld en hátíðinni verður slitið til kl. 23.30 það s... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/gott-astand-i-baenum | Gott ástand í bænum
Vel hefur gengið á hátíðinni Einni með öllu á Akureyri það sem af er og engin sérstök mál komið upp. Fjöldi fólks var á dagskrá hátíðarinnar í miðbæ Akureyrar í gærkvöldi og fóru þau vel fram. Veitingahús og skemmtistaðir voru vel sóttir.
Nokkur ölvun var en gestir fóru þó fljótlega heim eftir að da... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/verslunarmannahelgin | Verslunarmannahelgin
Hátíðahöld sunnudagsins fóru vel fram og fjöldi fólks var í miðbænum og á lokadagskrá hátíðarinnar á íþróttavellinum. Með batnandi veðri lifnaði yfir hátíðargestum og óþarflega mikið hjá sumum því talsverð ölvun varð er leið á nóttina. Ekkert alvarlegt kom þó upp á en tvær rúður voru brotnar og ein... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/sogusigling-i-kvold | Sögusigling í kvöld
Lítur Akueyri öðurvísi út frá sjó? Hvar standa Gránufélagshúsin og hvað fór fram þar? Hvenær er fyrstu mannaferða getið á Oddeyrinni? Hvar er elsta hús Akureyrar? Svörin við þessum og fleiri spurningum fást í sögusiglingu með Húna II í kvöld, miðvikudagskvöldið 8. ágúst, kl 19.30.
Hanna Rósa Sveinsd... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/vidburdavika-i-eyjafirdi | Viðburðavika í Eyjafirði
Viðburðavika verður í Eyjafirði 8.-15. ágúst og ber hæst stóra viðburði á borð við Fiskidaginn mikla á Dalvík og Handverkshátíð í Eyjafjarðarsveit. Gera má ráð fyrir að tugþúsundir gesta njóti þess sem í boði verður.
Í ljósi þess hafa aðilar á Eyjafjarðarsvæðinu og forsvarsmenn þessara hátíða h... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/kertafleyting-vid-minjasafnstjornina | Kertafleyting við Minjasafnstjörnina
Kertafleyting verður við Minjasafnstjörnina á Akureyri og Tjörnina í Reykjavík í kvöld, fimmtudagskvöldið 9.ágúst kl. 22.30. Athöfnin er í minningu fórnarlamba kjarnorkuárásanna á japönsku borgirnar Hírósíma og Nagasakí og lögð er áhersla á kröfuna um friðsaman og kjarnorkuvopnalaus... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/alyktun-vegna-minni-aflaheimilda | Ályktun vegna minni aflaheimilda
Stjórn Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar lýsir yfir áhyggjum sínum vegna fyrirhugaðs niðurskurðar í aflaheimildum á þorski og þeim afleiðingum sem sá samdráttur mun hafa á atvinnulíf í Eyjafirði þar sem veiðar og vinnsla á þorski eru afgerandi þáttur í rekstri margra fyrirtækja.
Stjórnin... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/yfirlysing-fra-baejarstjora | Yfirlýsing frá bæjarstjóra
Mikil umræða hefur spunnist um þá ákvörðun bæjaryfirvalda að hafa aldursviðmið á tjaldsvæðum Akureyrar um verslunarmannahelgina og af því tilefni hefur Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri, sent frá sér yfirlýsingu þar sem Akureyringar eru hvattir til að slíðra sverðin og nota næsta ár til ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/hin-hlidin-a-islandi | Hin hliðin á Íslandi
Í vefútgáfu dagblaðsins Los Angeles Times var fyrir skemmstu fjallað á skemmtilegan hátt um ferðalag til Norðurlands þar sem Akureyri var sögð vera ákjósanlegur stökkpallur fyrir þá sem vilja kynnast hreinni náttúru og gestrisni þeirra sem búa utan höfuðborgarsvæðisins.
Höfundur greinarinnar, Krist... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/nyr-menningarfulltrui-eythings | Nýr menningarfulltrúi Eyþings
Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir hefur verið ráðin í starf menningarfulltrúa Eyþings – sambands sveitarfélaga í Eyjafirðiog Þingeyjarsýslum. Hún var valin úr hópi 22ja umsækjenda, en tveir umsækjendur drógu umsóknir sínar til baka.
Ragnheiður Jóna er fædd á Hvanneyri í Borgarfirði árið 1966 ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/gudrun-hadda-heidrud | Guðrún Hadda heiðruð
Á hátíðinni Uppskera og handverk 2007 sem haldin var um síðustu helgi við Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit hlaut Guðrún Hadda Bjarnadóttir titilinn Handverksmaður ársins 2007. Svohljóðandi ávarp var flutt af því tilefni á hátíðarsamkomu á laugardagskvöld:
"Handverksmaður ársins er landnámsmaður á... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/undirbuningur-i-tonlistarskolanum | Undirbúningur í Tónlistarskólanum
Í Tónlistarskólanum á Akureyri er nú undirbúningur í fullum gangi vegna skólaársins 2007-2008. Enn er hægt að sækja um skólavist og eru nemendur í klassískt söngnám og á blásturshljóðfæri sérstaklega boðnir velkomnir en skólinn hefur lengi verið þekktur fyrir gott starf í söngdeild og ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/ibuafundur-i-holta-og-hlidahverfi | Íbúafundur í Holta- og Hlíðahverfi
Hverfisnefnd Holta- og Hlíðahverfis heldur íbúafund í matsal Glerárskóla kl. 20.30 fimmtudagskvöldið 16. ágúst nk. Kynntar verða tillögur að skipulagi á byggingarreit sem afmarkast af Langholti, Miðholti, Krossanesbraut og Undirhlíð.
Gestir fundarins verða Jón Ingi Cæsarsson, formaður... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/90-ny-storf-i-aflthynnuverksmidju | 90 ný störf í aflþynnuverksmiðju
Í dag var undirritaður raforkusamningur milli fyrirtækisins Becromal á Íslandi og Landsvirkjunar vegna fyrirhugaðrar aflþynnuverksmiðju á Akureyri, að viðstöddum iðnaðarráherra, fjármálaráðherra, forsvarsmönnum Landsnets og fleiri fyrirtækja og stofnana sem eiga hagsmuna að gæta. Ráðger... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/soguganga-um-oddeyrina | Söguganga um Oddeyrina
Hvenær er fyrstu mannaferða getið á Oddeyrinni? Hvað er Sweizerstíll? Er slíkan stíl að finna á Oddeyrinni? Hvað fór fram í Gránufélagshúsunum? Svörin við þessum spurningum má heyra í sögugöngu um Oddeyrina laugardaginn 18. ágúst kl 14.
Margskonar atvinnustarfsemi hefur verið á eyrinni, fiskvinns... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/gedheilbrigdisthjonusta-vid-born-i-dreifbyli | Geðheilbrigðisþjónusta við börn í dreifbýli
Á morgun, föstudaginn 17. ágúst, verður haldin í Brekkuskóla ráðstefna um geðheilbrigðisþjónustu barna í dreifbýli. Meðal fyrirlesara eru prófessorarnir Thomas M. Achenbach og Leslie Rescorla en Achenbach er heimsfrægur frumkvöðull á sviði forvarna í geðheilbrigðismálum barna... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/styttist-i-frumsyningu-ovita | Styttist í frumsýningu Óvita
Æfingar eru komnar vel á veg fyrir fyrstu frumsýningu haustsins hjá LA. Þar er á ferðinni stórsýning á leikriti Guðrúnar Helgadóttur, Óvitar! í leikstjórn leikarans ástsæla Sigurðar Sigurjónssonar. Fyrir uppsetninguna nú hefur verið samin tónlist og það er Jón Ólafsson sem á heiðurinn af al... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/morg-andlit-menningar-og-lista | Mörg andlit menningar og lista
Dagana 23. og 24. ágúst nk. verður haldin á Akureyri sameiginleg ráðstefna vinabæjanna Akureyrar, Randers, Ålesund og Västerås um málefni leikskóla. 250 þátttakendur eru skráðir til leiks, 63 frá hinum Norðurlöndunum og 187 Íslendingar. Fullbókað er á ráðstefnuna og komust færri að en vil... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/ibuafundur-i-holta-og-hlidahverfi-2 | Íbúafundur í Holta- og Hlíðahverfi
Íbúafundi í Holta- og Hlíðahverfi sem vera átti í síðustu viku var frestað af óviðráðanlegum orsökum og verður hann í staðinn haldinn kl. 20.30 miðvikudaginn 22. ágúst í matsal Glerárskóla.
Kynntar verða tillögur að skipulagi á byggingarreit sem afmarkast af Langholti, Miðholti, Kross... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/lokad-a-amtinu | Lokað á Amtinu
Rétt er að vekja athygli á því að vegna kynnisferðar starfsfólks Amtsbókasafnsins og Héraðsskjalasafnsins til Danmerkur 22. til 27. ágúst verða söfnin lokuð í fáeina daga. Afgreiðslutími verður sem hér segir:
Miðvikudagur 22. ágúst: 10.00-15.00
Fimmtudagur 23. ágúst: Lokað
Föstudagur 24. ágúst: Lokað
Lau... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/glaesileg-akureyrarvaka-um-helgina | Glæsileg Akureyrarvaka um helgina
Akureyrarvaka verður haldin um helgina með glæsilegri dagskrá þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Setning vökunnar fer fram í Lystigarðinum á föstudagskvöld og allan laugardag verður mikið um að vera fram á rauðanótt.
Akureyrarvaka markar lok Listasumars og er haldin í ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/nytt-fjolbreytt-leikar-kynnt | Nýtt fjölbreytt leikár kynnt
Leikfélag Akureyrar kynnti í gær dagskrá leikársins 2007-2008. Áfram er unnið eftir sömu stefnu og sérstök áhersla er lögð á að ná ekki síður til yngri leikhúsgesta en þeirra sem eldri eru. Sem fyrr einbeitir leikhúsið sér að uppsetningu nútímaverka, íslenskra og erlendra.
Fyrsta frumsýning... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/vel-heppnud-akureyrarvaka-3 | Vel heppnuð Akureyrarvaka
Mjög vel tókst til með Akureyrarvöku sem fram fór á laugardaginn og má gera ráð fyrir að annar hver bæjarbúi hafi tekið þátt í henni. Við setninguna í Lystigarðinum mættu á milli fjögur og fimm hundruð manns sem nutu rómantískrar kvöldstemningar og góðrar tónlistar.
Fjöldi manns var mættur á l... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/ny-syning-a-listasafninu-undirtitill | Ný sýning á Listasafninu - Undirtitill
Á Akureyrarvöku var opnuð sýning í Listasafninu á Akureyri á verkum þeirra listamanna sem tilnefndir hafa verið til Íslensku sjónlistaverðlaunanna 2007. Þetta er annað árið í röð sem Sjónlistaorðan verður veitt en markmiðið með henni er einkum þríþætt:
Að beina sjónum að framúrska... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/draugagongunni-ox-fiskur-um-hrygg | Draugagöngunni óx fiskur um hrygg
Hin árlega draugaganga Minjasafnsins og Leikfélags Akureyrar var sú fjölmennasta í sögunni. Áætlað er að um 800 þáttakendur (þessa heims) hafi gengið út Aðalstrætið undir leiðsögn Þórs Sigurðarsonar. Göngunni lauk í Samkomuhúsinu þar sem Þór og Þráinn Karlsson sögðu draugasögur í myrku... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/oldrunarheimili-akureyrar-og-iss-island-ehf-gera-samning | Öldrunarheimili Akureyrar og ISS Ísland ehf. gera samning
Í morgun undirrituðu Öldrunarheimili Akureyrar og ISS Ísland ehf. nýjan samning um ræstingar hjá Öldrunaheimilum Akureyrar. Samningurinn er til 3 ára og mun ISS Ísland sjá um allar ræstingar í hjúkrunar- og dvalarheimilinu Hlíð og dvalarheimilinu Kjarnalundi. Í ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/til-hamingju-med-afmaelid | Til hamingju með afmælið!
Í dag eru 145 ár frá því Akureyri fékk kaupstaðarréttindi. Afmælinu var fagnað um síðustu helgi á hinni árlegu Akureyrarvöku með afar góðri þátttöku bæjarbúa í ágætu veðri. Í tilefni dagsins sendir Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri, Akureyringum afmæliskveðju sína í fáeinum orðum.
Ágætu A... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/tonlistarskolinn-a-akureyri-hefur-vetrarstarfsemi-sina | Tónlistarskólinn á Akureyri hefur vetrarstarfsemi sína
Tónlistarskólinn á Akureyri er að hefja vetrarstarfsemi sína líkt og aðrir skólar bæjarins. Fjöldi nemenda í Tónlistarskólanum í vetur eru 450, þar af er fjöldi nýnema 128. Starfsmenn eru 42 í vetur og þar af eru 8 nýir kennarar. Í blásaradeild skólans eru 73 nemen... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/sumaraaetlunarflug-ie-fra-akureyri-til-kaupmannahafnar-gekk-mjog-vel | Sumaráætlunarflug IE frá Akureyri til Kaupmannahafnar gekk mjög vel
Sumaráætlunarflugi Iceland Express milli Akureyrar og Kaupmannahafnar lauk miðvikudaginn 29. ágúst síðastliðinn og gekk það í heildina mjög vel. Í sumar voru 40% af farþegum sem flugu með Iceland Express til Akureyrar erlendir ferðamenn og er það verul... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/eimskip-gerist-mattarstolpi-leikfelags-akureyrar | Eimskip gerist máttarstólpi Leikfélags Akureyrar
Baldur Guðnason forstjóri Eimskips og Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar skrifuðu í dag undir samstarfssamning. Með samningnum gerist Eimskip máttarstólpi leikhússins til framtíðar og í vetur verður Eimskip samstarfsaðili við uppsetningu leiksýninga... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/ithrottahusid-boginn-lokadur-ut-septembermanud | Íþróttahúsið Boginn lokaður út septembermánuð
Unnið er að því um þessar mundir að einangra Íþróttahúsið Bogann. Búið er að klæða húsið að innan með froðuplasti sem verður í framhaldinu hulið múrhúð. Af öryggisástæðum verður Boginn lokaður þangað til framkvæmdum lýkur, að beiðni Eldvarnareftirlitsins. Vinna við múrhúðun... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/kristjan-johannsson-operusongvari-syngur-fyrir-mommu | Kristján Jóhannsson óperusöngvari syngur ?Fyrir mömmu?
„Fyrir mömmu” er yfirskrift stórtónleika, sem haldnir verða í Íþróttahöllinni á Akureyri sunnudaginn 9. september. Kristján Jóhannsson, óperusöngvari, verður í aðalhlutverkinu en tónleikarnir eru til heiðurs móður hans, Fanneyjar Oddgeirsdóttur, sem verður níræð 14... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/bjargrad-barna-a-islandi-og-i-sudur-kyrrahafi-felagsvisindatorg-haskolanum-a-akureyri | Bjargráð barna á Íslandi og í Suður-Kyrrahafi - Félagsvísindatorg Háskólanum á Akureyri
Í erindi sínu á Félagsvísindatorgi gerir Sigrún Sveinbjörnsdóttir grein fyrir aðdraganda rannsóknar sem hún gerði á Fiji í Suður-Kyrrahafi haustið 2006, að hverju þurfti að gæta og hvaða hindranir og tækifæri leyndust í samvinnu við... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/einstakur-arangur-thorsstulkna-i-5-flokki-i-knattspyrnu | Einstakur árangur Þórsstúlkna í 5. flokki í knattspyrnu
Árangur Þórsstúlkna í fimmta flokki í fótbolta hefur verið einstakur á liðnu ári. Um helgina urðu stúlkurnar Íslandsmeistarar eftir úrslitaleiki við Val sem fram fóru á Blönduósi. A-lið Þórs sigraði 2-1 en B-liðið beið lægri hlut 1-4. Það er hins vegar samanlagður... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/haskolinn-a-akureyri-20-ara-i-dag | Háskólinn á Akureyri 20 ára í dag
Í dag eru 20 ár síðan Háskólinn á Akureyri var formlega stofnaður. Fyrsti rektorinn var Haraldur Bessason og til að byrja með var boðið upp á nám í tveimur deildum, heilbrigðisdeild og rekstrardeild. Fastráðnir starfsmenn voru fjórir og nemendur voru 31.
Frá upphafi hefur vöxtur HA ver... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/mjolkursamsalan-a-akureyri-tillaga-ad-deiliskipulagi | Mjólkursamsalan á Akureyri. Tillaga að deiliskipulagi.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að deiliskipulagi Mjólkursamsölunnar á Akureyri.
Breytingin felur í sér að lóðamörk lóðar Mjólkursamsölunnar við Súluveg er breytt og lóðin minnkar... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/adalskipulag-akureyrar-2005-2018-tillaga-ad-breytingu-veg | Aðalskipulag Akureyrar 2005 - 2018. Tillaga að breytingu vegna iðnaðarsvæðis 3.12.2 I, mjólkurstöðvar við Miðhúsabraut.
Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 2. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005 - 2018.
Breytingin felur í sér að lóðamörk lóðar... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/urslit-i-teiknisamkeppni-grunnskolanema | Úrslit í teiknisamkeppni grunnskólanema
Í gær var tilkynnt um úrslit í teiknisamkeppni sem Háskólinn á Akureyri hélt meðal grunnskólanema í 4. bekk á Akureyri, í tilefni af 20 ára afmæli skólans. Veitt voru þrenn verðlaun, auk viðurkenninga fyrir athyglisverðustu efnistök og framsetningu.
Öllum nemendum í 4. bekk grunn... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/bdquo-pater-jon-sveinsson-en-kalladu-mig-nonna-ldquo-s | „Pater Jón Sveinsson - en kallaðu mig Nonna“ - Sýning um lífshlaup Nonna opnar í Þjóðarbókhlöðunni um helgina.
Í ár eru 150 ár liðin frá fæðingu Jóns Sveinssonar, Nonna, þessa merka rithöfundar og jesúítaprests, en hann fæddist 16. nóvember árið 1857. Af því tilefni mun forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, opna á l... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/andlit-fra-akureyri | Andlit frá Akureyri
Sjónlistamaðurinn Martin J. Meier er gestur í Gestastúdíói Gilfélagsins í september. Verkefnið sem hann vinnur að er að teikna andlitsmyndir af íbúum Akureyrar. Myndirnar verða notaðar á sýningu sem opnar í Jónas Viðar Gallery 22. september næstkomandi.
Þess vegna biðlar hann til íbúa Akureyrar um a... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/frumflutningur-a-nyjum-tonverkum-eftir-jon-hlodver-askelsson-tonskald | Frumflutningur á nýjum tónverkum eftir Jón Hlöðver Áskelsson tónskáld
Á sunnudaginn verður boðið til mikillar hátíðar á Þingeyrum í Austur-Húnavatnssýslu en þá eru 130 ár liðin frá vígslu Þingeyrakirkju, einnar elstu og merkustu steinkirkju landsins. Þingeyraklaustur var áður ein merkasta trúar- og menningarmiðstöð lan... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/sidasta-skemmtiferdaskip-sumarsins-kemur-til-akureyrar-a-sunnudaginn | Síðasta skemmtiferðaskip sumarsins kemur til Akureyrar á sunnudaginn
Síðasta skemmtiferðaskip sumarsins kemur til Akureyrar á sunnudaginn en alls lögðu skemmtiferðaskip 58 sinnum við bryggju á Akureyri í sumar. Um er að ræða skipið Grand Princess sem er stærst þeirra skemmtiferðaskipa sem heimsótt hafa Akureyri en það ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/felagsmalanefnd-althingis-i-kynnisferd | Félagsmálanefnd Alþingis í kynnisferð
Félagsmálanefnd Alþingis kom til Akureyrar í gær til að kynna sér reynslu bæjarins af samþættingu verkefna á sviði þjónustu við fatlaða, heilsugæslu og öldrunarþjónustu við aðra þjónustu sem rekin er af sveitarfélaginu. Nefndin fékk yfirgripsmikla kynningu á þjónustu bæjarins og þe... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/afmaelishatid-haskolans-a-akureyri | Afmælishátíð Háskólans á Akureyri
Haldið var upp á afmæli Háskólans á Akureyri á laugardaginn. Athöfnin hófst með söng Karlakórs Akureyrar-Geysis, við Íslandsklukkuna. Því næst hringdi Kristinn E. Hrafnsson, höfundur listaverksins, klukkunni 20 sinnum í tilefni dagsins. Þá færðist hátíðin inn í skólabygginguna þar sem ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/baejarstjori-heimsaekir-grimsby | Bæjarstjóri heimsækir Grimsby
Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri, skrifaði undir viljayfirlýsingu um vinabæjarsamstarf í Grimsby um helgina. Ætlunin er að leggja áherslu á samskipti atvinnulífs og mennta- og rannsóknarstofnana Akureyrar og Grimsby.
Lögð var áhersla á þessa þætti í kynnisferðum og fundum. Fiskmarkað... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/kristjan-syngur-fyrir-ibua-hlidar | Kristján syngur fyrir íbúa Hlíðar
Kristján Jóhannsson, óperusöngvari frá Akureyri, tók lagið fyrir íbúa Dvalarheimilisins Hlíðar á Akureyri í gær. Móðir Kristjáns, Fanney Oddgeirsdóttir, dvelur á Hlíð en hún verður níræð 14. september næstkomandi. Óhætt er að segja að íbúum Hlíðar hafi þótt tónarnir fallegir og verið á... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/samningur-um-uppbyggingu-a-thorssvaedinu-undirritadur | Samningur um uppbyggingu á Þórssvæðinu undirritaður.
Í gær var skrifað undir nýjan og endurskoðaðan samning milli Akureyrarbæjar og Íþróttafélagsins Þórs um uppbygginu á félagssvæði Þórs. Markmið samningsins er að bæta verulega æfinga- og keppnisaðstöðu fyrir knattspyrnu á félagssvæði Þórs sem og að byggja þar upp full... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/grodrarstod-og-safnasvaedi-vid-krokeyri-tillaga-ad-deiliskip | Gróðrarstöð og safnasvæði við Krókeyri. Tillaga að deiliskipulagsbreytingu vegna mótorhjólasafns.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að breytingu á deiliskipulagi Gróðrarstöðvar og safnasvæðis við Krókeyri.
Breytingin felur í sér að svæð... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyrarflugvollur-tillaga-ad-deiliskipulagsbreytingu | Akureyrarflugvöllur. Tillaga að deiliskipulagsbreytingu.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að breytingu á deiliskipulagi Akureyrarflugvallar.
Breytingin felur í sér að lóð fyrir flugskýli sem áður var flugsafn er skipt upp í tvær lóðir ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyrarhlaup-kea-a-laugardaginn | Akureyrarhlaup KEA á laugardaginn
Akureyrarhlaup KEA fer fram næstkomandi laugardag, 15. september. Keppt verður í 21, 10 og 5 km auk þess sem boðið er upp á 3ja km skemmtiskokk. Dagskráin hefst klukkan 10 um morguninn á Akureyrarvelli með ræsingu í hálfu maraþoni. Í framhaldinu hefst upphitun sem Jón Jósep Snæbjörnsso... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/fyrsti-snjorinn-i-hlidarfjalli | Fyrsti snjórinn í Hlíðarfjalli
Fyrsti snjór haustsins er fallinn í Hlíðarfjalli eins og sjá má á vefmyndavélum heimasíðu Hlíðarfjalls. Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður Hlíðarfjalls segir vissulega ánægjulegt að sjá snjó í fjallinu og það lofi góðu fyrir veturinn þó nokkuð sé í að skíðaiðkun geti hafist.
Undirbúnin... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/fyrstu-10-syningar-a-ovita-ad-verda-uppseldar | Fyrstu 10 sýningar á Óvita að verða uppseldar
Fjölskylduleikritið Óvitar eftir Guðrúnu Helgadóttur í leikstjórn Sigurðar Sigurjónssonar verður frumsýnt hjá Leikfélagi Akureyrar á laugardaginn. Mikil sala er á sýninguna og nú styttist í að uppselt verði á fyrstu tíu sýningarnar. Samkvæmt fréttatilkynningu frá Leikfélagi... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/veitingahusid-fridrik-v-tilefnt-til-norraenna-heidursverdlauna | Veitingahúsið Friðrik V tilefnt til norrænna heiðursverðlauna
Veitingahúsið Friðrik V á Akureyri er tilefnt af hálfu Íslands til heiðursverðlauna ársins fyrir nýjan norræna mat og matargerðarlist, sem norræna ráðherranefndin stendur fyrir. Þema verðlaunanna, sem verða veitt í fyrsta sinn á þessu ári, er ferðaþjónusta o... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/norskir-embaettismenn-i-nams-og-kynnisferd | Norskir embættismenn í náms- og kynnisferð
Níu embættismenn frá sveitarfélaginu Stord í vestur Noregi eru þessa dagana í náms- og kynnisferð á Akureyri. Þeir eru hér til að kynna sér árangur bæjarins í samþættingu og samvinnu milli faghópa og mismunandi þjónustukerfa.
Akureyri varð fyrir valinu sem námsstaður þar sem h... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/fritt-i-sund-a-morgun | Frítt í sund á morgun
Sundlaug Akureyrar býður öllum gestum sínum frítt í sund á morgun, laugardag. Boðið er í tilefni Akureyrarhlaups KEA sem er á morgun og þríþrautar sem meðal annars fer fram í Akureyrarlaug.
Fólk er hvatt til að nýta þetta góða boð og skella sér í sund. |
https://www.akureyri.is/is/frettir/tre-faerd-til-vegna-byggingu-midhusabrautar | Tré færð til vegna byggingu Miðhúsabrautar
Framkvæmdamiðstöð Akureyrarbæjar vinnur að því þessa dagana að bjarga þúsundum trjáa vegna byggingu Miðhúsabrautar. Trén eru í öllum stærðum og í flestum tilfellum er um að ræða birki, lerki og furu. Trjánum verður svo fundinn staður víðsvegar um bæinn, t.d. á Eiðsvöllum, í Ak... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/lydheilsuthing-a-akureyri | Lýðheilsuþing á Akureyri
Lýðheilsuþing félags um lýðheilsu verður í Háskólanum á Akureyri á miðvikudaginn. Þingið ber yfirskriftina Búseta og lýðræði og er haldið í samstarfi við Vaxtasamning Eyjafjarðarsvæðisins og heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri. Þingið er opið öllum og er jafnframt hluti af þverfaglegu meistar... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/undirbuningur-fyrir-sjonlist-2007-stendur-sem-haest | Undirbúningur fyrir Sjónlist 2007 stendur sem hæst
Undirbúningur fyrir afhendingu Sjónlistaverðlaunanna 2007 sem fram fer á föstudaginn í Flugsafni Íslands er í fullum gangi en gera má ráð fyrir að um 250 gestir verði viðstaddir. Sýning á verkum þeirra sem tilnefndir eru var opnuð í Listasafninu á Akureyri á Akureyrarv... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/sigur-ros-ndash-heima-forsynd-a-akureyri-um-sidustu-helgi | Sigur Rós – Heima forsýnd á Akureyri um síðustu helgi
Kvikmyndin Heima með hljómsveitinni Sigur Rós var forsýnd í Borgarbíói á Akureyri á laugardaginn að viðstöddu fjölmiðlafólki hvaðanæva úr heiminum. Ákveðið var að hafa forsýninguna á Akureyri sem þótti gefa góða raun. Að sögn Kára Sturlusonar, umboðsmanns og skipule... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/heilbrigdisnefnd-althingis-kynnir-ser-malin-a-akureyri | Heilbrigðisnefnd Alþingis kynnir sér málin á Akureyri
Mikill áhugi er á reynslu Akureyringa af samþættingu þjónustu á sviði heilbrigðismála, öldrunarmála, félagsmála, skólamála og málefnum fatlaðra. Í gær heimsótti heilbrigðisnefnd Alþingis Akureyri og átti meðal annars fund á heilsugæslunni með framkvæmdastjórum þessa... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/leikskolakennarar-i-faereyjum | Leikskólakennarar í Færeyjum
Þessa vikuna eru tveir leikskólakennarar frá leikskólanum Iðavöllum staddir við kennslu í leikskóla í Færeyjum. Það er norræna félagið Nord Plus Junior sem styrkir kennaraskipti af þessu tagi og gerir starfsmönnum leikskóla á Norðurlöndunum kleift að kynna sér starfsemi starfsbræðra sinna. ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/vidburdarik-listahelgi-framundan | Viðburðarík listahelgi framundan
Það er viðburðarrík helgi framundan í heimi lista og menningar á Íslandi en í dag verða Sjónlistaverðlaunin 2007 veitt í Flugsafni Íslandi á Akureyri. Dagskráin hefst klukkan 19.15 þar sem listamennirnir, dómnefnd og gestir koma saman og hálftíma seinna hefst bein útsendingin í Ríkissjó... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyrskar-listakonur-syna-i-kaupmannahofn | Akureyrskar listakonur sýna í Kaupmannahöfn
Fimm listakonum, sem allar starfa að listsköpun á Akureyri, hefur verið boðin þátttaka í listsýningunni „SMELTEVAND” í Kaupmannahöfn. Þessi listsýning er haldin í tengslum við „Alþjóðlegt heimskautaár“ sem nú stendur yfir í heiminum og verður sýningin í Grænlandshúsinu í Kaup... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/studio-granda-og-hrafnkell-sigurdarson-hlutu-sjonlistaverdla | Studio Granda og Hrafnkell Sigurðarson hlutu Sjónlistaverðlaunin 2007 og Högna Sigurðardóttir hlaut Heiðursorðu Sjónlista
Sjónlistaverðlaunin 2007 voru veitt í Flugsafni Íslands á Akureyri í kvöld og voru þau sýnd í beinni útsendingu Ríkissjónvarpsins.Það var niðurstaða dómnefndar á sviði hönnunar að Studio Granda, sem... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/still-velur-listamann-arsins | Stíll velur listamann ársins
Sveinbjörg Hallgrímsdóttir, grafíklistamaður á Akureyri, hefur verið valin listamaður ársins hjá Auglýsingastofunni Stíl. Stíll hefur hrundið af stað verkefni sem fellst í að velja einn listamann á ári til að vinna með og kynna sérstaklega. Í samvinnu við Sveinbjörgu hefur fyrirtækið útfært... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/thegar-markadsvaeding-og-ardsemiskrafa-rifa-hjartad-ur-bladame | Þegar markaðsvæðing og arðsemiskrafa rífa hjartað úr blaðamennskunni
Í Félagsvísindatorgi hjá Háskólanum á Akureyri í hádeginu á morgun fjallar Birgir Guðmundsson um umræður sem fram fara í fagstétt blaðamanna víða um heim um þessar mundir og átaksaðgerð á vegum Evrópusambands blaðamanna, sem ráðist verður í nú í haust... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/baejarstjorinn-a-akureyri-i-khanty-mansiysk-i-russlandi | Bæjarstjórinn á Akureyri í Khanty?Mansiysk í Rússlandi
Í þessari viku verður allsherjarþing samtakanna Northern Forum haldið í Khanty – Mansiysk í Rússlandi. Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri og Sigríður Stefánsdóttir, deildarstjóri verða fulltrúar Akureyrar á þinginu.
Á þinginu mun bæjarstjóri að leggja fram boð þ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/syningin-matur-inn-2007-a-akureyri-13-14-oktober | Sýningin MATUR-INN 2007 á Akureyri 13.-14. október
Það styttist óðum í sýninguna MATUR-INN sem fram fer í Verkmenntaskólanum á Akureyri 13.-14.október. Sýningin er nú haldin í þriðja skipti og verður stærri en nokkru sinni. Það er félagið Matur úr héraði – Local food sem stendur fyrir sýningunni en félagið er afrakstur... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/ljosmyndasamkeppni-i-murmansk-ndash-akureyringum-bodin-that | Ljósmyndasamkeppni í Murmansk – Akureyringum boðin þátttaka.
Ljósmyndahátíð verður haldin í Murmansk í Rússlandi frá 1. október til 19. desember. Að því tilefni er efnt til ljósmyndasamkeppni en sýning á myndum úr keppninni opnar 10. nóvember nk. í Murmansk. Þar sem Akureyri er vinabær Murmansk er Akureyringum boðin þá... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/ma-hlytur-evropumerkid-fyrir-nybreytni-i-tungumalakennslu | MA hlýtur Evrópumerkið fyrir nýbreytni í tungumálakennslu
Menntaskólinn á Akureyri tók í gær á móti Evrópumerkinu, heiðursviðurkenningu fyrir nýbreytni í tungumálakennslu. Merkið er veitt á vegum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og Menntamálaráðuneytisins og er nú veitt í sjötta sinn hérlendis.
Evrópumerkið, sem ve... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/hin-arlega-ljodaganga-verdur-ad-thessu-sinni-um-hanefsstadask | Hin árlega Ljóðaganga verður að þessu sinni um Hánefsstaðaskóg í Svarfaðardal
Hina árlega Ljóðagönga verður á laugardaginn og er nú haldin níunda sinn. Farið verður með hópferðabíl frá Amtsbókasafninu á Akureyri klukkan 13:30 og ekið sem leið liggur í Hánefsstaðaskóg í Svarfaðardal og komið þangað um klukkan 14:00. Þar... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/vel-tekid-i-hugmyndir-um-flutning-hofudstodvar-northern-foru | Vel tekið í hugmyndir um flutning höfuðstöðvar Northern Forum til Akureyrar
Í dag lauk fundum á Allsherjarþingi samtakanna Northern Forum þar sem Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri, lagði fram boð þess efnis að flytja höfuðstöðvar Northern Forum til Akureyrar. Samþykkt var að skoða málið til hlítar og va... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/sprellmot-haskolans-a-akureyri | Sprellmót Háskólans á Akureyri
Hið árlega Sprellmót Háskólans á Akureyri er í dag. Sprellmótið er íþróttakeppni á milli deilda þar sem keppt er í ýmsum óhefðbundnum íþróttagreinum og er einn af hápunktum skemmtanalífs háskólans. Dagskrá mótsins byrjaði með hvatningakeppni á Ráðhústorginu á Akureyri en þar ræðst hvaða d... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/flokkun-ehf-endurnyjad-samstarf-um-sorpforgun-og-endurvin | Flokkun ehf. - Endurnýjað samstarf um sorpförgun og endurvinnslu á Eyjafjarðarsvæðinu.
Sveitarfélögin við Eyjafjörð hafa stofnað félagið Flokkun ehf. til að sjá um förgun og endurvinnslu úrgangs frá heimilum og fyrirtækjum í firðinum fyrir hönd sveitarfélaganna. Tilgangur félagsins er að sjá til þess að þekking um best... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyrarbaer-i-haustlitum | Akureyrarbær í haustlitum
Haustlitirnir eru nú að leggjast yfir Akureyri í allri sinni dýrð. Veðrið hefur verið yndislegt síðustu daga og notuðu margir helgina til útiveru í draumkenndu umhverfinu. Litadýrð haustsins er oftar en ekki viðfangsefni ljósmyndara sem margir fara á stjá til að fanga þennan margbreytileika mó... |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.