Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-og-thor-innsigludu-aframhaldandi-samstarf-i-gaer
KA og Þór innsigluðu áframhaldandi samstarf í gær Akureyrarfélögin KA og Þór hafa gert nýjan samsstarfsamning til næstu tíu ára um reksturinn á sameiginlegu liði félaganna í handknattleik karla undir nafninu Akureyri Handboltafélag. Félagið er á sínu fimmta starfsári en KA og Þór gerðu á sínum tíma fimm ára samstarfssa...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sveinbjorn-getum-baett-okkur-heilmikid
Sveinbjörn: Getum bætt okkur heilmikið Sveinbjörn Pétursson átti góðan dag í marki Akureyrar og varði 24 skot í 34:29 sigri norðanmanna gegn Selfossi í N1-deild karla í handbolta á heimavelli í kvöld. Sveinbjörn var þó ekkert alltof sáttur við sína frammistöðu í leikslok. „Það eru sumir hlutir sem ég hefði viljað gera ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-afram-a-sigurbraut-eftir-sigur-gegn-selfyssingum
Akureyri áfram á sigurbraut eftir sigur gegn Selfyssingum Sigurganga Akureyrar í N1-deild karla í handbolta hélt áfram í kvöld er liðið lagði nýliða Selfoss að velli, 34:29, í Íþróttahöllinni á Akureyri í kvöld. Sveinbjörn Pétursson átti enn einn stórleikinn fyrir norðanmenn en hann varði 24 skot í leiknum. Akureyringa...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skipverji-a-solbak-ea-slasadist-alvarlega-a-hendi
Skipverji á Sólbak EA slasaðist alvarlega á hendi Skipverjinn sem slasaðist um borð í Sólbak EA-1, vestnorðvestur af Barða í gærkvöld, klemmdist illa á hendi. Hann ber varanlegan skaða eftir slysið, en hann klemmdi hönd sína á milli toghlera og lunningar. Björgunarþyrla Landhelgisgæslunnar var send eftir manninum, en h...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/iceland-express-med-flugfreyju-vidtol-i-hofi-a-morgun
Iceland Express með flugfreyju- viðtöl í Hofi á morgun Iceland Express verður með atvinnuviðtöl í Hofi á Akureyri á morgun, föstudag, milli klukkan 10.00 og 15.00. Um er að ræða störf flugliða og þurfa viðkomandi ekki að hafa sótt um fyrirfram. Áhugasamir eru hvattir til að mæta í Hof á þeim tíma. Gott er að hafa feril...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-fekk-heimaleik-gegn-haukum-i-poweradebikarnum
Þór fékk heimaleik gegn Haukum í Poweradebikarnum Í hádeginu í dag var dregið í Poweradebikar karla-og kvenna í körfubolta. Tíu lið voru dregin saman í kvennaflokki og þrjú lið sitja hjá. Hjá körlunum var dregið í sextán liða úrslit. Þór var í pottinum í kvennaflokki og fékk liðið heimaleik gegn Haukum. Leikið verður á...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/islandsmotid-i-sundi-hefst-i-kvold
Íslandsmótið í sundi hefst í kvöld Íslandsmeistaramótið í sundi í 25 metra laug hefst í Laugardalslauginni í kvöld klukkan 18.30 og mun mótið standa yfir fram á sunnudagskvöld. Margir af besta sundfólki landsins mun taka þátt í mótinu og keppendur Óðins láta sig ekki vanta en alls mun 12 keppendur frá félaginu stinga s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aflamarksskip-veiddu-93-heildaraflans-a-sidasta-fiskveidiari
Aflamarksskip veiddu 93% heildaraflans á síðasta fiskveiðiári Heildarafli íslenska fiskiskipaflotans á síðasta fiskveiðiári var samtals 1.041.795 tonn. Aflamarksskip veiddu tæplega 93% af heildaraflanum en krókaaflamarks- og strandveiðibátar rúmlega 7%. Heildarveiði síðasta fiskveiðiárs er um 14% minni en á fiskveiðiár...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/arni-helgason-baud-laegst-i-byggingu-sjovarnargards
Árni Helgason bauð lægst í byggingu sjóvarnargarðs Árni Helgason ehf. átti lægsta tilboð í byggingu um 490 metra langs sjóvarnargarðs á Hjalteyri en tilboð í verkið voru opnuð hjá Siglingastofnun í morgun. Alls bárust átta tilboð í verkið og voru sjö þeirra undir kostnaðaráætlun. Tilboð Árna Helgasonar hljóðaði upp á t...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjolskylduhjalp-islands-kynnir-starfsemi-sina-a-akureyri
Fjölskylduhjálp Íslands kynnir starfsemi sína á Akureyri Fjölskylduhjálpin á Akureyri opnar starfstöð sína að Freyjunesi 4 á Akureyri á morgun, föstudaginn 12. nóvember kl 13 - 15. Öllum er boðið að koma og kynna sér starfsemina. Matarúthlutun hefst 16. nóv. kl 16 - 18. Síðan verður úthlutað vikulega á miðvikudögum. Sí...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bonus-oftast-med-laegsta-verd-i-verdkonnun-a-akureyri-1
Bónus oftast með lægsta verð í verðkönnun á Akureyri Neytendasamtökin gerðu verðkönnun í matvöruverslunum á Akureyri í samvinnu við verkalýðsfélögin á svæðinu. Verð var kannað á 36 vörutegundum í 6 verslunum: Bónus, Nettó, Hagkaup, Samkaup Úrval, Samkaup Strax og 10-11. Bónus er oftast með lægsta verð en 10-11 er oftas...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sa-oska-eftir-samstarfi-vid-adila-a-vinnumarkadi-og-rikisstjorn
SA óska eftir samstarfi við aðila á vinnumarkaði og ríkisstjórn Á fjölmennum fundi Samtaka atvinnulífsins á Akureyri í morgun um stöðu atvinnumála lýstu formaður SA og framkvæmdastjóri yfir vilja til samstarfs við aðra aðila á vinnumarkaðnum og ríkisstjórnina um að snúa af braut stöðnunar og atvinnuleysis. Vilmundur Jó...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vetrarvedur-og-vetrarfaerd
Vetrarveður og vetrarfærð Það er vetrarveður á Norðurlandi og því snjóþekja og hálkublettir víða, sem og éljagangur og skafrenningur. Ófært er á Siglufjarðarvegi en verið er að moka. Hálkublettir og skafrenningur er á Þverárfjalli og snjóþekja á Öxnadalsheiði. Snjóþekja og snjókoma er í Víkurskarði, samkvæmt upplýsingu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-maetir-nylidum-selfoss-i-n1-deildinni-i-kvold
Akureyri mætir nýliðum Selfoss í N1-deildinni í kvöld Akureyri fær Selfoss í heimsókn í kvöld í Íþróttahöllina kl. 19:00 þegar sjötta umferð N1-deildar karla í handbolta hefst. Akureyri trónir á toppi deildarinnar með tíu stig en liðið hefur unnið alla fimm leiki sína í deildinni. Nýliðar Selfoss hafa hins vegar aðeins...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ovissa-um-hvort-haegt-verdi-ad-byggja-upp-trunad-milli-adila
Óvissa um hvort hægt verði að byggja upp trúnað milli aðila Ný miðstjórn Alþýðusambands Íslands kom saman til síns fyrsta fundar í dag. Á fundinum voru kröftugar umræður um efnahags - og kjaramál. Undirbúningur kjarasamninga er kominn á fullt skrið hjá aðildarfélögum Alþýðusambandsins en ekki er búið að móta endanlegar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samstarfssamningur-aflsins-og-akureyrarbaejar-undirritadur
Samstarfssamningur Aflsins og Akureyrarbæjar undirritaður Aflið, samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi og Akureyrarbær skrifuðu undir samstarfssamning í dag. Samningurinn er til fjögurra ára, frá 2010-2014 og er styrkupphæðin sem Akureyrarbær greiðir árlega 1230 þúsund krónur á ári. Eiríkur Björn Björgvinsson bæjar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjolbreyttir-vidburdir-i-hofi
Fjölbreyttir viðburðir í Hofi Fjölbreyttir viðburðir eru framundan í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri á næstunni. Í kvöld verða félagarnir Gylfi Ægis, Rúnar Þór og Megas með tónleika í stóra sal Menningarhússins Hofs. Þeir voru léttir og hressir í Austurbæ í síðustu viku og búast má við skemmtilegri kvöldstund með þeim ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kaeru-eyfirdingar
Kæru Eyfirðingar Ólína Freysteinsdóttir skrifar Ég undirrituð sækist eftir setu á stjórnlagaþingi 2011. Það mun verða í senn ögrandi og gleðilegt verkefni að endurskoða Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands sem er að mínu mati þarft. Þó svo hún hafi gengt hlutverki sínu um áraraðir þá blasir nú við nýr veruleiki vegna stöð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fulltruar-sa-a-opnum-fundum-a-akureyri-og-husavik
Fulltrúar SA á opnum fundum á Akureyri og Húsavík Fundaröð Samtaka atvinnulífsins um stöðu atvinnumála og vinnumarkaðinn heldur áfram á morgun, fimmtudaginn 11. nóvember. Á Akureyri hefst fundur SA kl. 8:30 á Hótel KEA en á Húsavík hefst fundur kl. 12 á Veitingahúsinu Sölku. Vilmundur Jósefsson, formaður SA og Vilhjálm...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lasergeisla-beint-ad-stjornklefa-flugvelar-i-innanlandsflugi
Lasergeisla beint að stjórnklefa flugvélar í innanlandsflugi Lögreglan á Akureyri rannsakar hver gæti hafa beint sterkum lasergeisla að stjórnklefa flugvélar Flugfélags Íslands þegar hún kom inn til lendingar á Akureyri í gærkvöld. Talið er að geislinn hafi borist frá Vaðlaheiðinni og að hjólför þar tengist málinu. Mál...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sa-jotnar-steinlagu-i-egilshollinni-i-kvold
SA Jötnar steinlágu í Egilshöllinni í kvöld Björninn vann stórsigur gegn SA Jötnum í kvöld, 8:2, er liðin áttust við í Egilshöllinni á Íslandsmóti karla í íshokkí. Jötnar skoruðu þó fyrsta mark leiksins og það gerði Stefán Hrafnsson strax á þriðju mínútu en eftir það röðuðu heimamenn inn mörkunum. Stefán náði svo að kl...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/minningarhatid-um-matthias-a-sigurhaedum-og-i-ketilhusinu
Minningarhátíð um Matthías á Sigurhæðum og í Ketilhúsinu Fimmtudaginn 11. nóvember nk. eru 175 ár liðin frá því Matthías Jochumsson fæddist að Skógum í Þorskafirði. Að því tilefni verður opið hús á Sigurhæðum á Akureyri frá kl. 15-17 þann dag og hátíðardagskrá í minningu skáldsins í Ketilhúsinu um kvöldið. Á Sigurhæðum...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/undirskriftalistar-i-gang-vegna-nidurskurdar-a-hjukrunarrymum
Undirskriftalistar í gang vegna niðurskurðar á hjúkrunarrýmum Á fundi fulltrúa starfsmanna, aðstandenda, Félags eldri borgara og stéttarfélaga í gær var ákveðið að útbúa undirskriftalista þar sem niðurskurði á hjúkrunarrýmum á Öldrunarheimilum Akureyrar verður mótmælt. Íbúum Akureyrar og nágrennis mun gefast kostur á a...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oft-erfitt-ad-fa-folk-til-vidraedna-um-sin-skuldamal
Oft erfitt að fá fólk til viðræðna um sín skuldamál Birgir Svavarsson útibússtjóri Landsbankans á Akureyri og Sigurður K. Harðarsson útibússtjóri Arion banka mættu á síðasta fund Almannaheillanefndar og fóru þar m.a. yfir skuldamál. Báðir sögðu þeir oft erfitt að fá fólk til viðræðna um sín skuldamál. Fjölmiðlaumræðan ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/buid-ad-virkja-nyja-lind-i-grenivikurfjalli
Búið að virkja nýja lind í Grenivíkurfjalli Á Grenivík hefur borið á vatnsskorti á þessu ári, ekki síst eftir að fiskvinnsla Gjögurs fór inn á vatnsveituna. Búið er að virkja nýja lind í Grenivíkurfjalli og verið er að virkja aðra. Vonast er til að framkvæmdum verði lokið fyrir veturinn en með þeim á vatnsskortur að he...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-vann-eitt-gull-a-islandsmoti-yngra-flokka-i-blaki
KA vann eitt gull á Íslandsmóti yngra flokka í blaki Fyrri hluti Íslandsmóts yngri flokka í blaki fór fram í KA-heimilinu um sl. helgi þar sem um 250 krakkar tóku þátt. Keppt var í 4. og 5. flokki í bæði drengja-og stúlknaflokki og voru alls 45 lið skráð til leiks. Heimamenn í KA unnu ein gullverðlaun en piltarnir í 4....
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bilvelta-a-midhusabraut
Bílvelta á Miðhúsabraut Ökumaður og tveir farþegar sluppu nær ómeiddir eftir bílveltu á Miðhúsabraut, skammt ofan við Skautahöllina á Akureyri seint í gærkvöld. Talið er að ökumaðurinn hafi misst stjórn á bíl sínum á hálku með fyrrgreindum afleiðingum. Bílinn er töluvert skemmdur. Víða er hálka á götum bæjarins og því ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/island-standi-utan-evropusambandsins
Ísland standi utan Evrópusambandsins Kjördæmisþing VG í Norðausturkjördæmi, sem haldið var í Vogafjósi í Mývatnssveit um síðustu helgi, skorar á ríkisstjórnina að beita sér fyrir umtalsverðri hækkun auðlegðarskatts. Þá lýsir þingið ánægju sinni með þá ákvörðun ráðherra flokksins að taka ekki við styrkjum frá Evrópusamb...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bjorninn-og-sa-jotnar-maetast-i-egilshollinni-i-kvold
Björninn og SA Jötnar mætast í Egilshöllinni í kvöld Einn leikur fer fram á Íslandsmóti karla í íshokkí í kvöld en þá eigast við Björninn og SA Jötnar í Egilshöllinni kl. 19:30. Leikurinn átti að fara fram í síðustu viku en var frestað vegna veðurs. Björninn hefur farið illa af stað í deildinni í vetur og situr á botni...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stjornarskrain-vardar-okkur-oll
Stjórnarskráin varðar okkur öll Eygló Svala Arnarsdóttir skrifar Stjórnlagaþingið er það jákvæðasta sem hefur komið út úr kreppunni, sögulegur viðburður sem gerir okkur kleift að gera mikilvægar umbætur á samfélaginu. Því miður hefur það ekki fengið jafn mikla og jákvæða umfjöllun í fjölmiðlum og það á skilið og fyrir ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/adfor-ad-heilbrigdisstofnun-fjallabyggdar-og-faekkun-a-hjukrunarrymum-motmaelt
Aðför að Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar og fækkun á hjúkrunarrýmum mótmælt Trúnaðarmannafundur Einingar-Iðju, mótmælir harðlega aðför að Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar og fækkun á hjúkrunarrýmum hjá öldrunarstofnunum Akureyrarbæjar sem fyrirhuguð er samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2011. Með...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/horgarsveit-faer-allt-ad-36-milljonir-a-5-arum-ur-jofnunarsjodi
Hörgársveit fær allt að 36 milljónir á 5 árum úr Jöfnunarsjóði Framlög Jöfnunarsjóðs til endurskipulagningar þjónustu og stjórnsýslu í sameinaðuðu sveitarfélagi , Arnarneshrepps og Hörgárbyggðar, sem nú heitir Hörgársveit getur að sögn Guðmundar Sigvaldasonar sveitarstjóra orðið allt að 36 milljónir króna samtals á fim...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ungur-karlmadur-daemdur-fyrir-vorslu-barnaklams
Ungur karlmaður dæmdur fyrir vörslu barnakláms Ungur karlmaður hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmdur í 30 daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir kynferðisbrot. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa um nokkurt skeið, haft í vörslum sínum á hörðum diski í fartölvu samtals 3 ljósmyndir og 18 hreyfi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/alvarlegur-nidurskurdur-a-hjukrunarrymum-a-akureyri
Alvarlegur niðurskurður á hjúkrunarrýmum á Akureyri Í frumvarpi ríkisstjórnarinnar til fjárlaga fyrir árið 2011 er boðaður niðurskurður um 7 hjúkrunarrými á Öldrunarheimilum Akureyrar, auk þess eru 3 hjúkrunarrými skorin niður á þessu ári. Samanlagt er því um að ræða niðurskurð á 10 hjúkrunarrýmum á Öldrunarheimilum Ak...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/islendingarnir-endudu-i-37saeti-afmaelismoti-tarnby
Íslendingarnir enduðu í 37.sæti afmælismóti Tårnby Það gekk ekki sem skyldi á svellinu hjá The Wise Guys á 25 ára afmælismóti Tårnby krulluklúbbsins í Danmörku um helgina. Liðið tapaði fyrstu fjórum leikjum sínum en vann lokaleik sinn á mótinu og endaði í 37. sæti af 44 liðum. Það voru þeir Árni Arason, Haraldur Ingólf...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skyr-og-hledsla-slogu-i-gegn-a-norraenni-mjolkurvorusamkeppni
Skyr og Hleðsla slógu í gegn á norrænni mjólkurvörusamkeppni Dagana 2.-4. nóvember síðastliðinn fór fram samkeppni milli norrænna mjólkurvara („Scandinavian dairy contest"). Samkeppnin fór fram á Mjólkurvörusýningunni („Landsmejeriudstillingen") í Herning í Danmörku en keppnin fer fram annað hvert ár. Til að meta hvaða...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/taekifaeri-vardandi-nyja-orkugjafa-i-eyjafirdi
Tækifæri varðandi nýja orkugjafa í Eyjafirði Innflutningsverðmæti eldsneytis sem notað er á ökutæki til almenningssamgangna við Eyjafjörð er um 55 milljónir króna á ári. Ef þessu innflutta jarðefnaeldsneyti yrði skipt út fyrir endurnýjanlegt eldsneyti sem framleitt er innanlands og er samkeppnishæft í verði yrði þjóðha...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/i-umbodi-hvers-situr-framkvaemdavaldid
Í umboði hvers situr framkvæmdavaldið? Þór Gíslason skrifar Meðferð valds í stjórnskipan íslenska lýðveldisins er mjög brengluð og þarfnast lagfæringar. Á 135. löggjafarþinginu árið 2007-2008 náðu 84% frumvarpa til laga, sem lögð voru fram í nafni ríkisstjórnar, að verða að lögum. Aðeins 7% frumvarpa stjórnarþingmanna ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sa-valkyrjur-sigrudu-i-egilshollinni
SA Valkyrjur sigruðu í Egilshöllinni SA Valkyrjur lögðu Björninn að velli, 2:1, er liðin áttust við Egilshöllinni á Íslandsmóti kvenna í íshokkí sl. laugardag. Þetta var fyrsta viðureign liðanna í vetur eftir úrslitaeinvígið sl. vor þar sem SA sigraði eftir æsispennandi keppni. Mörk Valkyrja skoruðu þær Díana Björgvins...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/til-barattu-gegn-adfor-stjornvalda-ad-landsbyggdinni
Til baráttu gegn aðför stjórnvalda að landsbyggðinni "Árás valdhafa á landsbyggðina verður vart grímulausari en fram hefur komið í niðurskurðaráætlun ríkisstjórnarinnar í heilbrigðismálum, þar sem 84% af niðurskurði fjárveitinga til þeirra lendir fyrst og fremst á landsbyggðinni," segir í ályktun aðalfundar Landsbyggði...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/folkid-i-landinu-vill-breytingar
Fólkið í landinu vill breytingar Anna Kolbrún Árnadóttir skrifar Ég var svo heppin að fá tækifæri til þess að sitja Þjóðfund um Stjórnarskrá sem haldinn var nú um liðna helgi. Óhætt er að segja að öll umgjörð fundarins hafi verið til fyrirmyndar enda var fyrirkomulagið skilvirkt og lausnarmiðað, og allt það fólk sem tó...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/3-3-0-4-kallar-eyfirdinga
3 3 0 4 kallar Eyfirðinga! Hjörtur Hjartarson skrifar Gott fólk. Ég býð mig fram til stjórnlagaþings. Þar sem landið verður eitt kjördæmi í kosningunum 27. nóvember, er ég frambjóðandi Eyfirðinga eins og annarra landsmanna. Því tel ég sjálfsagða kurteisi að lýsa fyrir þeim hugmyndum mínum í sambandi við stjórnlagaþingi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/l-listinn-samthykkir-ekki-sjo-haeda-vidbyggingu-i-midbaenum
L-listinn samþykkir ekki sjö hæða viðbyggingu í miðbænum Geir Kristinn Aðalsteinsson oddviti L-listans segir að fulltrúar listans geti ekki samþykkt að ráðist verði í að byggja 7 hæða viðbyggingu við gamla Hótel Akureyri, eins og hugmyndir hafa verið um. Málið hafi verið rætt á fundi með þeim fulltrúum L-listans sem st...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tryggja-verdur-ad-natturan-og-natturuaudlindirnar-verdi-alltaf-okkar-eign
Tryggja verður að náttúran og náttúruauðlindirnar verði alltaf okkar eign Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Í samanteknum niðurstöðum frá nýafstöðnum þjóðfundi er talað um að stjórnarskráin eigi að tiltaka að auðlindir landsins séu sameign þjóðar og einnig eru vernd þjóðarhagsmuna sem sameiginlegt markmið. Í 40. grei...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samningur-um-thjonustu-sjukra-flutningamanna-vid-sjukraflug
Samningur um þjónustu sjúkra- flutningamanna við sjúkraflug Framkvæmdaráð hefur fyrir sitt leyti samþykkt drög að framlengingu á samningi milli Sjúkratrygginga Íslands og Akureyrarkaupstaðar um þjónustu sjúkraflutningamanna við sjúkraflug með sjúkraflugvélum innanlands. Samningurinn gildir frá og með 1. janúar 2011 til...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stjornlagathing-farsaell-grunnur-framfara
Stjórnlagaþing – farsæll grunnur framfara Guðrún Högnadóttir skrifar Við stöndum enn og ný á miklum tímamótum sem þjóð. Þegar grunnforsendur hafa brugðist er mikilvægt að læra af því sem hefur farið úrskeiðis og byggja enn sterkari stoðir um velferð og vöxt okkar samfélags. Stjórnarskráin er sú grunnstoð. Ný tegund lýð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heitasta-verslunargatan-a-nordurslod-arid-um-kring
Heitasta verslunargatan á norðurslóð árið um kring Verslunarmiðstöðin Glerártorg á Akureyri er 10 ára um þessar mundir en hún var opnuð þann 2. nóvember árið 2000. Á þessum 10 árum hafa orðið umtalsverðar breytingar á verslunarmiðstöðinni og húsnæðið m.a. verið stækkað til muna. Þar eru nú um 40 rekstraraðilar og fer f...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/storvirkid-islandsklukkan-synt-i-hofi-a-akureyri
Stórvirkið Íslandsklukkan sýnt í Hofi á Akureyri Þjóðleikhúsið heldur norður yfir heiðar og sýnir sjálft stórvirkið Íslandsklukkuna eftir Halldór Laxnes, í Hofi á Akureyri helgina 19.-21. nóvember. Verkið var frumsýnt sl. vor, í tilefni af 60 ára afmæli Þjóðleikhússins. Sýningin fékk frábærar viðtökur áhorfenda og gagn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vatnsleki-i-slippnum
Vatnsleki í Slippnum Vatnsleki kom upp í Slippnum Akureyri í morgun. Lögreglu barst tilkynning um lekann klukkan 06:29 og þegar hún kom á staðinn var aðkoman heldur leiðinleg með ökkladjúpu vatni yfir nokkur hundruð fermetra rými. Um töluvert tjón er að ræða að sögn lögreglu. Lekinn varð þegar lögn sprakk inni í lofthi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stjarnan-vann-storsigur-a-kathor-i-bikarnum-i-kvold
Stjarnan vann stórsigur á KA/Þór í bikarnum í kvöld Stjarnan er komið áfram í 8-liða úrslit Eimskipsbikar kvenna í handbolta eftir 24 marka sigur gegn KA/Þór í kvöld, 49:25, en leikið var í KA-heimilinu. Stjarnan leiddi með ellefu mörkum í hálfleik, 21:10. KA/Þór leikur nú í 2. deild en Stjarnan er í toppbaráttunni í ú...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rakel-afram-hja-thorka
Rakel áfram hjá Þór/KA Rakel Hönnudóttir verður áfram í herbúðum knattspyrnuliðs Þórs/KA en þetta tilkynnti hún síðdegis í dag við heimasíðu Þórs. Eins og Vikudagur hefur greint frá fór Rakel til reynslu hjá sænska úvalsdeildarliðinu Jitex BK nú í haust og sneri síðan heim úr þeirri ferð með samningstilboð. Rakel hefur...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gonguskidabrautin-i-hlidarfjalli-opnud-a-morgun
Gönguskíðabrautin í Hlíðarfjalli opnuð á morgun Gönguskíðabrautin í Hlíðarfjalli verður opnuð klukkan 10 í fyrramálið, laugardaginn 6. nóvember. Kveikt verður á flóðlýsingu við brautina til klukkan 10 annað kvöld. Snjóframleiðsla hefur gengið ágætlega efra síðasta sólarhringinn og eru snjóalög orðin þokkaleg. Vonast er...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tonleikar-med-hjaltalin-og-medlimum-sn-i-hofi-i-kvold
Tónleikar með Hjaltalín og meðlimum SN í Hofi í kvöld Í kvöld kl. 20.00 stendur Græni hatturin fyrir tónleikum með Hjaltalín í Menningarhúsinu Hofi. Hljómsveitin hefur fengið til liðs við sig meðlimi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og flytur efni af sínum plötum "Sleepdrunk season" og "Terminal" í glæsilegum útsetning...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rikid-syknad-i-thjodlendumali
Ríkið sýknað í þjóðlendumáli Íslenska ríkið hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra, verið sýknað í þjóðlendumáli sem tengist afréttarlandi á Hólsfjöllum. Eigendur jarðanna Grímsstaða I, Grímstungu og Grímstungu 2, höfðuðu mál á hendur ríkinu og kröfðust þess að felldur verði úr gildi úrskurður óbyggðanefndar þess efnis ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/the-wise-guys-keppa-a-25-ara-afmaelismoti-tarnby-krulluklubbsins
The Wise Guys keppa á 25 ára afmælismóti Tårnby krulluklúbbsins Þeir Árni Arason, Haraldur Ingólfsson, Jón Grétar Rögnvaldsson og Jónas Gústafsson héldu til Danmerkur sl. miðvikudag þar sem þeir taka nú þátt í 25 ára afmælismóti Tårnby klúbbsins í krullu, en mótið gengur undir heitinu Tårnby Cup. Íslensk lið hafa nokkr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oll-greidsluthjonusta-byrs-unnin-a-akureyri
Öll greiðsluþjónusta Byrs unnin á Akureyri Frá og með áramótum verður öll vinna við greiðsluþjónustu Byrs unnin á Akureyri en þjónustan er í dag unnin á tveimur stöðum, í Reykjavík og á Akureyri. Markmiðið með þessum breytingum er að auka sérhæfingu og þar með skilvirkni. Mikil þekking og reynsla af greiðsluþjónustu er...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/neikvaedar-frettir-ruv-af-jakvaedu-mali
Neikvæðar fréttir RÚV af jákvæðu máli Kristinn H. Gunnarsson skrifar Nýlega kom út lokaskýrsla um áhrif stóriðjuframkvæmdanna á Austurlandi. Þar gekk flest vel en sumt miður eins og gengur, en megin niðurstaðan er að framkvæmdirnar urðu landi og þjóð til hagsbóta og þá sérstaklega Austfirðingum. En því miður var umfjöl...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fimm-verkefni-fengu-samtals-6-milljonir-krona
Fimm verkefni fengu samtals 6 milljónir króna Þriðja og síðasta úthlutun ársins úr Vaxtarsamningi Eyjafjarðar 2008-2010 fór fram á haustfundi AFE í liðinni viku. Sem fyrr var mikil ásókn eftir verkefnaaðild Vaxtarsamnings Eyjafjarðar en alls bárust 13 umsóknir og var óskað samtals eftir ríflega 22 milljónum króna. Vaxt...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kathor-faer-stjornuna-i-heimsokn-i-kvold-i-bikarnum
KA/Þór fær Stjörnuna í heimsókn í kvöld í bikarnum KA/Þór og Stjarnan mætast í KA-heimilinu í kvöld kl. 18:15 í Eimskipsbikar kvenna í handbolta. Stjarnan situr í öðru sæti úrvalsdeildarinnar en KA/Þór leikur nú í 2. deild þar sem liðið siglir lygnan sjó um miðja deild og því verðugt verkefni sem býður norðanstúlkna.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/linta-og-vikingur-framlengdu-hja-thor
Linta og Víkingur framlengdu hjá Þór Aleksandar Linta og Víkingur Pálmason framlengdu samning sinn við knattspyrnulið Þórs í dag. Linta gerði eins árs samning en Víkingur þriggja ára samning. Óvissa var með hvort Linta myndi vera áfram í herbúðum Þórs, en hann hefur ákveðið leika með liðinu þriðja sumarið í röð en norð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leikurinn-fer-klarlega-i-reynslubankann
„Leikurinn fer klárlega í reynslubankann” „Þetta var ekki góður leikur en ég er þó sáttur með mína frammistöðu,” segir Oddur Gretarsson handboltakappi, sem var í eldlínunni með íslenska handboltalandsliðinu gegn Austurríki um sl. helgi. Leikurinn var liður í undankeppni Evrópumóts karla en Ísland tapaði sem kunnugt er ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-sotti-tvo-stig-i-vodafonehollina-i-kvold
Akureyri sótti tvö stig í Vodafonehöllina í kvöld Akureyri hélt sigurgöngu sinni áfram í N1-deild karla í handbolta er liðið sigraði Val á útivelli í kvöld, 23:17. Akureyri hafði tveggja marka forystu í hálfleik, 8:6. Með sigrinum eru norðanmenn áfram á toppi deildarinnar með 10 stig og hafa unnið alla fimm leikina í d...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vidraedur-vid-nordurorku-um-rannsoknir-og-vinnslu-a-hauggasi
Viðræður við Norðurorku um rannsóknir og vinnslu á hauggasi Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi sínum í morgun að fela bæjarstjóra að ganga til viðræðna við Norðurorku hf. en fyrirtækið óskaði eftir viðræðum við bæjaryfirvöld vegna rannsókna og vinnslu á hauggasi (metangasi) úr sorphaugunum á Glerárdal. Auk Norðurorku...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/arlegir-styrktartonleikar-aflsins-i-akureyrarkirkju-i-kvold
Árlegir styrktartónleikar Aflsins í Akureyrarkirkju í kvöld Árlegir styrktartónleikar Aflsins, samtaka gegn kynferðis- og heimilisofbeldi, verða haldnir í kvöld, fimmtudagskvöldið 4. nóvember, kl. 20.00 í Akureyrarkirkju. Meðal þeirra sem stíga á stokk eru Karlakór Akureyrar, kór Glerárkirkju, Heimir Ingimarsson, Rúnar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarrad-frestadi-afgreidslu-a-samningi-vid-bilaklubb-akureyrar
Bæjarráð frestaði afgreiðslu á samningi við Bílaklúbb Akureyrar Meirihluti íþróttaráðs samþykkti fyrir sitt leiti á fundi sínum nýlega drög að uppbyggingar- og rekstrarsamningi við Bílaklúbb Akureyrar. Fundargerð íþróttaráðs var til umfjöllunar á fundi bæjaráðs í morgun, þar sem afgreiðslu var frestað. Edward H. Huijbe...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sala-a-neydarkalli-bjorgunarsveitanna-hefst-i-dag
Sala á neyðarkalli björgunarsveitanna hefst í dag Í dag, fimmtudaginn 4. nóvember, hefst fjáröflunarátakið Neyðarkall björgunarsveita. Sjálfboðaliðar Slysavarnafélagsins Landsbjargar munu selja lítinn neyðarkall um land allt um helgina. Átakinu verður formlega hleypt af stokkunum þegar Magnús Hallgrímsson og Guttormur ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fundarod-sa-um-stodu-atvinnumala-og-vinnumarkadinn
Fundaröð SA um stöðu atvinnumála og vinnumarkaðinn Samtök atvinnulífsins efna til opinna funda á landsbyggðinni um stöðu atvinnumála og vinnumarkaðinn dagana 9.-12. nóvember. Vilmundur Jósefsson, formaður SA og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA munu ræða um stöðuna í atvinnulífinu, komandi kjarasamninga og svara...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/n1-deildin-rullar-af-stad-ad-nyju-i-kvold
N1-deildin rúllar af stað að nýju í kvöld N1-deild karla í handbolta hefst í kvöld að nýju eftir stutt hlé. Þrír leikir fara fram og mætast m.a. topplið Akureyrar og botnlið Vals í Vodafonehöllinni kl. 18:30. Það gengur hvorki né rekur hjá Valsmönnum sem eru enn án stiga, en Akureyri hefur unnið alla fjóra leikina og h...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oskar-thor-radinn-framkvaemda-stjori-knattspyrnudeildar-ka
Óskar Þór ráðinn framkvæmda- stjóri knattspyrnudeildar KA Óskar Þór Halldórsson, fréttamaður, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar KA og mun hann hefja störf eftir áramót. Óskar Þór kemur til með að starfa fyrir bæði stjórn knattspyrnudeildar og yngriflokkaráð í knattspyrnu og mun því koma að málum kn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorsarar-ur-leik-i-bikarnum-1
Þórsarar úr leik í bikarnum Þórsarar eru úr leik í Powerade-bikarkeppni karla í körfubolta eftir ósigur gegn sterku liði Grindavíkur á heimavelli í kvöld. Grindavík sigraði með 23 stiga mun, 90:67, eftir að hafa leitt í hálfleik, 47:29. Konrad Tota var stigahæstur í liði Þórs með 25 stig, Wesley Hsu skoraði 9 stig og þ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-maetir-topplidi-urvalsdeildarinnar-i-bikarnum-i-kvold
Þór mætir toppliði úrvalsdeildarinnar í bikarnum í kvöld Þór og Grindavík mætast í Íþróttahöllinni á Akureyri í kvöld í Poweradebikar karla í körfubolta kl. 17:30. Verkefnið verður erfitt fyrir Þórsara, þar sem þeir mæta í kvöld einu besta liðið landsins. Grindavík situr á toppi úrvalsdeildarinnar og eru enn ósigraðir ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vida-halka-og-eljagangur
Víða hálka og éljagangur Það er vetrarveður víða um land, hálka og eljagangur á vegum. Á Norðurlandi er hálka, snjóþekja, skafrenningur og éljagangur. Hálka og éljagangur er á Vatnsskarði og á Þverárfjalli. Þungfært er á Siglufjarðarvegi og verið er að moka. Hálka er á Öxnadalsheiði og hálka og éljagangur er í Víkurska...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jotnarnir-og-valkyrjur-unnu-i-gaerkvold
Jötnarnir og Valkyrjur unnu í gærkvöld Tveir nágrannaslagir fóru fram í Skautahöll Akureyrar í gærkvöld á Íslandsmótinu í íshokkí. Annars vegar áttust við SA Valkyrjur og SA Ynjur í kvennaflokki og hins vegar SA Víkingar og SA Jötnar í karlaflokki. Í kvennaflokki höfðu Valkyrjur yfirburði gegn Ynjum og sigruðu 9:1. Í k...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/verslunarmidstodin-glerartorg-a-akureyri-10-ara-i-dag
Verslunarmiðstöðin Glerártorg á Akureyri 10 ára í dag Verslunarmiðstöðin Glerártorg á Akureyri er 10 ára í dag en hún var opnou þann 2. nóvember árið 2000. Á þessum 10 árum hafa orðið umtalsverðar breytingar á verslunarmiðstöðinni og húsnæðið m.a. verið stækkað til muna. Þar eru nú um 30 rekstraraðilar og fer þeim fjöl...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sa-vikingar-og-sa-jotnar-maetast-i-skautahollinni-i-kvold
SA Víkingar og SA Jötnar mætast í Skautahöllinni í kvöld Leikur SA Víkinga og SA Jötna á Íslandsmóti karla í íshokkí sem átti að fara fram á þriðjudaginn í næstu viku, verður leikinn í kvöld í Skautahöll Akureyrar. SA Jötnar áttu að sækja Björninn heim í kvöld á Íslandsmótinu en vegna veðurs var þeim leik frestað í dag...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/felag-verslunar-og-skrifstofufolks-akureyri-og-nagrenni-80-ara-i-dag
Félag verslunar og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni 80 ára í dag Félag verslunar og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni fagnar 80 ára afmæli í dag en það var stofnað 2. nóvember 1930. Í desember 1930 eru skráðir félagar 26, en í dag eru fullgildir félagar um 1300. Tilgangur félagsins er að vinna að bættum kjörum o...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kristjan-for-a-kostum-a-fjolnismotinu-i-sundi
Kristján fór á kostum á Fjölnismótinu í sundi Sundfélagið Óðinn sendi ungt lið til keppni á Haustmóti Fjölnis sem fram fór í Laugardalnum um sl. helgi. Allir keppendur Óðins kepptu í flokki 12 ára og yngri. Hinn ellefu ára gamli Kristján Benedikt Sveinsson var í miklu stuði á mótinu en hann vann gullverðlaun í 200 m br...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/keyrdu-um-golfvollinn-a-akureyri-a-velsleda-og-fjorhjoli
Keyrðu um golfvöllinn á Akureyri á vélsleða og fjórhjóli Óprútnir náungar á vélsleða og fjórhjóli keyrðu á tækjum sínum inn á golfvöllinn að Jaðri á Akureyri seinni partinn í gær og hafði m.a. verið spólað í marga hringi fjórhjólinu á tveimur flötum vallarins þeirri 10. og 12. Steindór Ragnarsson vallarstjóri var lítt ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/askorun-til-forseta-um-ad-skipa-utanthingsstjorn-nu-thegar
Áskorun til forseta um að skipa utanþingsstjórn nú þegar Hrundið hefur verið af stað undirskriftarsöfnun þar sem skorað er á forseta Íslands að koma á utanþingsstjórn sem hefur það verkefni að leysa úr brýnustu vandamálum þjóðarinnar. Þ.e. skuldavanda heimilanna og vaxandi atvinnuleysi. Það eru tveir aðstandendur tunnu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fraedsluthing-um-forna-garda-i-svarfadardal-og-arskogsstrond
Fræðsluþing um forna garða í Svarfaðardal og Árskógsströnd Náttúrusetrið á Húsabakka heldur fræðsluþing um forna garða í Svarfaðardal og Árskógsströnd í Mennigarhúsinu Bergi á Dalvík laugardaginn 6. nóvember kl 13:00-16:00. Í sumar fóru fram frumrannsóknir á nokkrum af þeim fjölmörgu fornu görðum sem er að finna í Svar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stefan-fyrstur-i-mark-i-vetrarhlaupi-ufa
Stefán fyrstur í mark í Vetrarhlaupi UFA Fyrsta vetrarhlaup UFA þennan veturinn fór fram sl. laugardag. Fyrstur í mark var Stefán Viðar Sigtryggsson á tímanum 39:09 mín., annar var Snævar Máni Gestsson á 39:41 mín. og þriðji var Vilhjálmur Ragnar Kristjánsson á 40:00 mín. Fyrst kvenna var hlaupadrottningin Rannveig Odd...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sa-slagur-i-skautahollinni-i-kvold-1
SA-slagur í Skautahöllinni í kvöld Það verður nágrannaslagur í Skautahöllinni á Akureyri í kvöld þegar SA Ynjur og SA Valkyrjur mætast kl. 19:30 Íslandsmóti kvenna í íshokkí. Þá verður einnig leikið í karlaflokki í íshokkíinu í kvöld þar sem Björninn tekur á móti SA Jötnum í Egilshöllinni og hefst sá leikur einnig kl. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jon-orn-ingileifsson-akstursithrottamadur-arsins
Jón Örn Ingileifsson Akstursíþróttamaður ársins Jón Örn Ingileifsson frá Bílaklúbbi Akureyrar var valinn Akstursíþróttamaður ársins 2010 hjá ÍSÍ/LÍA en valið var kunngert á Hótel Selfossi sl. laugardag. Jón Örn varð Íslandsmeistari í torfæru í sumar eftir að hafa sigrað í fjórum af fimm umferðum.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/opus-og-raftakn-budu-laegst-i-burdarthols-og-rafmagnshonnun
Opus og Raftákn buðu lægst í burðarþols- og rafmagnshönnun Sex aðilar sendu inn verðtilboð í burðarþolshönnun á nýju hjúkrunarheimili við Vestursíðu og tveir aðilar sendu inn verðtilboð í rafmagnshönnun. Tilboðin voru opnuð hjá Faseignum Akureyrarbæjar í morgun. Lægsta tilboðið í burðarþolshönnun átti Opus, tæpar 5,9 m...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/styrktartonleikar-i-hofi
Styrktartónleikar í Hofi Vinir og vandamenn Sævars Darra Sveinssonar og fjölskyldu hans, efna til styrktartónleika í Hofi á morgun, þriðjudagskvöldið 2. nóvember nk. kl. 20.00. Sævar Darri, sem er 8 ára Akureyringur, greindist með hvítblæði í sepetmber sl. Hann þurfti undireins að fara í stranga lyfjameðferð suður til ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tveir-starfsmenn-becromal-fluttir-a-sjukrahus-eftir-efnaslys
Tveir starfsmenn Becromal fluttir á sjúkrahús eftir efnaslys Tveir starfsmenn Becromal Iceland í Krossanesi voru fluttir á slysadeild Sjúkrahússins á Akureyri, eftir að efnaslys varð í verksmiðjunni á þriðja tímanum í dag. Að sögn Þorbjörns Haraldssonar slökkviliðsstjóra voru mennirnir að dæla ætandi og ertandi efni af...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/saga-capital-fjarfestingarbanki-verdur-saga-fjarfestingarbanki
Saga Capital Fjárfestingarbanki verður Saga Fjárfestingarbanki Saga Capital Fjárfestingarbanki hefur breytt heiti sínu lítillega og heitir nú einfaldlega Saga Fjárfestingarbanki. Þessi einföldun er gerð til að undirstrika sérhæfingu bankans og sérstöðu sem banki atvinnulífsins og eini fjárfestingarbanki landsins. Samhl...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stefnt-a-hopferd-a-leik-vals-og-akureyrar-i-n1-deildinni
Stefnt á hópferð á leik Vals og Akureyrar í N1-deildinni Stefnt er að því að bjóða upp á rútuferð á leik Vals og Akureyrar sem fram fer nk. fimmtudag í N1-deild karla í handbolta. Lagt verður af stað klukkan 12:30 fimmtudaginn 4. nóvember en leikurinn hefst klukkan 18:30. Lagt verður af stað heim strax að leik loknum. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/engin-athugasemd-barst-vid-breytingar-a-skipulagi-flugvallarsvaedis
Engin athugasemd barst við breytingar á skipulagi flugvallarsvæðis Engin athugasemd barst við tillögu að breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018 vegna flugvallarsvæðis og heldur engin við tillögu að breytingu á deiliskipulagi flugvallarsvæðis. Deiliskipulagstillagan gerir m.a. ráð fyrir stækkun flugstöðvarbygging...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/taekifaeri-til-breytinga
Tækifæri til breytinga! Signý Sigurðardóttir skrifar Reynslan af íslensku stjórnkerfi sýnir að við þurfum að gera á því róttækar breytingar. Við þurfum raunverulegt lýðræði. Endurskoðun stjórnarskrárinnar getur orðið hornsteinn að því að samfélagið okkar þróist í lýðræðislega átt. Að því vil ég stuðla og býð mig þess v...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aukum-sjalfraedi-landsbyggdarinnar
Aukum sjálfræði landsbyggðarinnar Róbert Hlynur Baldursson skrifar Miðstýringin sem einkennir samfélagið okkar er áhugaverð. Ég velti því fyrir mér hvort ekki þurfi að fara ofan í saumana á þeirri uppbyggingu. Hvers vegna er málum þannig háttað, að ríkisstjórnin geti tekið ákvörðun um að skera niður fjárveitingar til e...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fanndis-og-olafur-knapar-arsins-i-barna-og-unglingaflokki-lettis
Fanndís og Ólafur knapar ársins í barna- og unglingaflokki Léttis Uppskeruhátíð barna og unglinga hjá hestamannafélaginu Létti var haldin sl. sunnudag í reiðhöll félagsins. Knapar ársins 2010 voru valin þau Fanndís Viðarsdóttir í unglingaflokki og Ólafur G. Ólafsson Gros í barnaflokki. Er þetta í annað skiptið í röð se...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorsarar-a-sigurbraut-a-ny-i-korfunni
Þórsarar á sigurbraut á ný í körfunni Þórsarar voru ekki lengi að bæta upp fyrir tapið gegn FSu sl. föstudagskvöld í 1. deild karla í körfubolta, er norðanmenn fögnuðu sigri gegn Ármanni í Laugardagshöllinni á laugardaginn var. Þór sigraði með 89 stigum gegn 78. Staðan í háfleik var 46:40 Þór í vil. Konrad Tota var sti...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/miklar-breytingar-a-thingvallastraeti-23-ad-fara-i-gang
Miklar breytingar á Þingvallastræti 23 að fara í gang Umfangsmiklar endurbætur verða gerðar á húsnæðinu Þingvallstræti 23 á Akureyri í vetur en þann 1. júní á næsta ári munu Icelandairhótels opna þar nýtt heilsárhótel, eins og fram hefur komið. Félagið hefur gert leigusamning um rekstur heilsárshótels í húsinu, með sam...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hk-hafdi-betur-gegn-ka-i-ka-heimilinu-i-gaer
HK hafði betur gegn KA í KA-heimilinu í gær KA tapaði sínum öðrum leik í röð á Íslandsmótinu í 1. deild karla í blaki er liðið lá á heimavelli í gær gegn HK, 2:3. HK vann fyrstu hrinuna 25:23 en KA næstu tvær, 25:18 og 25:16. HK jafnaði metin í 2:2 með sigri í fjórðu hrinu 25:23. Gestirnir tryggðu sér svo sigurinn með ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ahersla-a-aukinn-kaupmatt-i-komandi-kjaravidraedum
Áhersla á aukinn kaupmátt í komandi kjaraviðræðum Áhersla verður lögð á að efla kaupmátt í komandi viðræðum um endurnýjun kjarasamaninga að sögn formanna tveggja verkalýðsfélaga á Akureyri, Björns Snæbjörnssonar formanns Einingar-Iðju og Úlfhildar Rögnvaldsdóttur formanns Félags verslunar- og skrifstofufólks. Björn seg...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oskad-eftir-leyfi-fyrir-grenndar-gama-til-sorpflokkunar
Óskað eftir leyfi fyrir grenndar- gáma til sorpflokkunar Á fundi skipulagsnefndar í vikunni var tekið fyrir erindi frá Bergi Þorra Benjamínssyni f.h. framkvæmdadeildar þar sem hann óskar eftir leyfi til að setja niður grenndargáma til sorpflokkunar á 12 stöðum á Akureyri. Um er að ræða svæði við verslanalóðir og hins v...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-tapadi-fyrsta-leik-sinum-i-gaerkvold
Þór tapaði fyrsta leik sínum í gærkvöld Þórsarar töpuðu sínum fyrsta leik á Íslandsmóti 1. deildar karla í körfubolta á leiktíðinni er liðið lá gegn FSu á útivelli í gær, 99:104, eftir tvíframlengdan leik. Konrad Tota var sem fyrr stigahæstur í liði Þórs með 31 stig, Óðinn Ásgeirsson skoraði 18 stig og Ólafur Torfason ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leikjum-dagsins-i-ishokkiinu-frestad
Leikjum dagsins í íshokkíinu frestað Búið er að fresta tveimur leikjum á Íslandsmótinu í íshokkí sem fara áttu fram í Skautahöllinni á Akureyri í dag og í kvöld. Annars vegar er það leikur SA Víkinga og SR í karlaflokki og hins vegar leikur SA Valkyrja og SR í kvennaflokki. Leikjunum tveimur er frestað um óákveðin tíma...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vinnuskolinn-verdi-faerdur-til-samfelags-og-mannrettindadeildar
Vinnuskólinn verði færður til samfélags- og mannréttindadeildar Samfélags- og mannréttindaráð Akureyrarbæjar gerir það að tillögu sinni að Vinnuskólinn verði færður frá framkvæmdadeild til samfélags- og mannréttindadeildar í þeim tilgangi að flétta betur saman starf félagsmiðstöðva og Vinnuskólans, fyrst og fremst með ...