Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.vikubladid.is/is/frettir/umhverfisnefnd-leggst-gegn-efnistoku-i-landi-hvamms
Umhverfisnefnd leggst gegn efnistöku í landi Hvamms Umhverfisnefnd Akureyrarkaupstaðar skorar á sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar að fella út tillögu að 150.000 m³ efnistöku í landi Hvamms sunnan Kjarnaskógar sem gert er ráð fyrir að verði opin í 20-25 ár. Sú áskorun byggir á þeim staðreyndum að þetta er stór náma og þe...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/naestu-leikir-1
Næstu leikir Af mörgum íþróttaviðburðum er taka yfir páskana þar sem norðlenskt íþróttafólk verður eldlínunni. Má þar nefna að KA- stúlkurnar í blaki fá Þrótt Neskaupsstað í heimsók í kvöld í undanúrslitum MIKASA- deildar kvenna og Akureyri og HK mætast í Íþróttahöllinni á Akureyri annan dag páska. Hér að neðan má sjá ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vel-a-fjorda-thusund-baejarbua-skrifudu-undir-motmaeli-gegn-midbaejarskipulagi
Vel á fjórða þúsund bæjarbúa skrifuðu undir mótmæli gegn miðbæjarskipulagi Knútur Karlsson heimsótti Hermann Jón Tómasson bæjarstjóra á Akureyri í dag ásamt fríðu föruneyti og afhenti honum undirskriftalista með 3.775 undirskriftum bæjarbúa. Knútur er einn þeirra sem stóð að söfnun undirskrifta, þar sem lýst er andstöð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-sigradi-i-flokki-a-lida-a-godamoti-thors
Þór sigraði í flokki A- liða á Goðamóti Þórs Goðamót Þórs fór fram í Boganum um liðna helgi þar sem sjötti flokkur drengja var í aðalhlutverki. Mótið var það 25. í röðinni og voru 524 keppendur frá 18 félögum á mótinu. Í flokki A- liða voru það heimamenn í Þór sem sigruðu, í flokki B- liða sigraði Höttur, Breiðabliki s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haettu-ad-hanga-komdu-ad-synda-hjola-eda-ganga
"Hættu að hanga! Komdu að synda, hjóla eða ganga" Á síðasta fundi íþróttaráðs Akureyrar var lagt fram til kynningar erindi frá landsfulltrúa Ungmennafélags Íslands þar sem fram kemur að félagið hafi ákveðið að gefa verkefnum á sviði almenningsíþrótta enn meira vægi í starfsemi félagsins. Markmiðið er að vekja fólk til ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skrifad-undir-samninga-vegna-starfsemi-i-hofi
Skrifað undir samninga vegna starfsemi í Hofi Rekstur Menningarhússins Hofs er nú óðum að taka á sig mynd, enda aðeins fimm mánuðir þangað til húsið verður opnað. Fulltrúar Akureyrarbæjar, Menningarfélagsins Hofs, Tónlistarskólans á Akureyri, Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og Akureyrarstofu skrifuðu í morgun undir sa...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bjartmar-og-rannveig-stigameistarar-i-vetrarhlaupi-ufa
Bjartmar og Rannveig stigameistarar í vetrarhlaupi UFA Síðastliðin laugardag fór fram síðasta vetrarhlaup UFA þennan veturinn á Akureyri. Eins venja er hófst hlaupið við líkamsræktarstöðina Bjarg og var hlaupinn 10 km hringur. Alls voru 25 hlauparar sem tóku þátt. Rannveig Oddsdóttir kom fyrst í mark á tímanum 40:53 se...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leggst-gegn-thvi-ad-leyfi-verdi-veitt-fyrir-veitingastad-yfir-glera
Leggst gegn því að leyfi verði veitt fyrir veitingastað yfir Glerá Umhverfisnefnd Akureyrar leggst gegn því að leyfi verði veitt fyrir veitingastað yfir Glerá með vísan til umferðaröryggis sunnan ár og lítillar fjarlægðar í íbúðahús við Lönguhlíð. Jafnframt eru þessar hugmyndir ekki í samræmi við anda væntanlegs deilis...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sidustu-syningadagar-allir-krakkar-allir-krakkar-lif-og-leikir-barna
Síðustu sýningadagar Allir krakkar, allir krakkar – líf og leikir barna Síðustu sýningadagar sýningar Minjasafnins „Allir krakkar, allir krakkar... líf og leikir barna" eru núna um páskana. Á henni gefst gestum safnins kostur á því að dusta rykið af gömlum minningum og deila með sér upplifun æskuáranna til afkomenda si...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-og-fylkir-skildu-jofn-i-boganum
Þór og Fylkir skildu jöfn í Boganum Þór og Fylkir gerðu í dag 3:3 jafntefli er liðin áttust við í Boganum í Lengjubikarkeppni karla í knattspyrnu. Þór komst 3:0 yfir í leiknum með mörkum frá Sigurði Marinó Kristjánssyni, Jóhanni Helga Hannessyni og Atla Sigurjónssyni og þannig stóðu leikar í hálfleik. Fylkir gafst ekki...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikilvaegt-ad-sveitarfelog-standi-saman-vid-lausn-urgangsmala
Mikilvægt að sveitarfélög standi saman við lausn úrgangsmála Eiður Guðmundsson framkvæmdastjóri Flokkunar mætti á síðasta fund stjórnar Eyþings, þar sem farið var yfir stöðu úrgangsmála í landshlutanum. Einnig hafði verið óskað eftir því að hann upplýsti um afdrif samstarfsverkefnis SSA og Eyþings sem stofnað var til á...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tvaer-thotur-a-akureyrarflugvelli
Tvær þotur á Akureyrarflugvelli Það er ekki mikið um þotur á Akureyrarflugvelli á veturna en þó voru hér tvær slíkar um helgina. Á föstudag kom færeysk BA-146 í leiðindaveðri með starfsmenn Samherja frá Bremen og Humberside á árshátíð fyrirtækisins og á laugardag kom B737 þota með eldri borgara í dagsferð frá Englandi....
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjolnir-lagdi-ka-ad-velli-i-lengjubikarkeppni-karla
Fjölnir lagði KA að velli í Lengjubikarkeppni karla Fjölnir lagði KA að velli, 2:0, er liðin mættust í Egilshöllinni í gær í Lengjubikarkeppni karla í knattspyrnu. Pétur Markan og Bjarni Gunnarsson skoruðu mörk Fjölnis í leiknum. KA situr því sem fastast á botni riðils 2 í A- deild en KA hefur einungis fengið eitt stig...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lysir-vonbrigdum-med-breytingar-a-rekstri-svaedisstodva-ruv
Lýsir vonbrigðum með breytingar á rekstri svæðisstöðva RÚV Stjórn Eyþings lýsir áhyggjum og vonbrigðum með þær breytingar sem ákveðnar voru á rekstri svæðisstöðva Ríkisútvarpsins (RÚV). Svæðisstöðvarnar s.s. Svæðisútvarp Norðurlands á Akureyri, hafa gegnt mikilvægu hlutverki við fréttaflutning og dagskrárgerð á þjónust...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kathor-lauk-leik-i-sjounda-saeti
KA/Þór lauk leik í sjöunda sæti KA/Þór endaði í sjöunda sæti N1- deildar kvenna í handbolta með 13 stig, en lokaumferð deildarinnar fór fram í dag. KA/Þór sótti Stjörnuna heim í Mýrina í lokaleiknum og þar höfðu Stjörnustelpur betur, 34:19. Staðan í hálfleik var 21:7 fyrir Stjörnuna. Martha Hermannsdóttir og Emma Sarda...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jacob-for-med-sigur-i-opnum-flokki-a-sterku-moti-i-bordtennis
Jacob fór með sigur í opnum flokki á sterku móti í borðtennis Jacob Jörgensen úr Akri sigraði í opnum flokki á Grand Prix móti Akurs í borðtennis sem haldið var í íþróttahúsi Síðuskóla á Akureyri í dag. Hann lagði Davíð Jónsson úr KR að velli í úrslitaleik. Flestir af sterkustu spilurum Íslands tóku þátt og gekk mótið ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hk-vann-audveldan-sigur-a-ka-i-blaki-kvenna
HK vann auðveldan sigur á KA í blaki kvenna Súlkurnar í KA fara ekki vel af stað í úrslitakeppni MIKASA- deildar kvenna í blaki. KA mætti HK í Digranesi í dag og HK- stúlkur unnu auðveldan 3:0 sigur. KA hefur þar með tapað tveimur fyrstu leikjum sínum í undanúrslitum deildarinnar. Næsti leikur liðsins er heimaleikur ge...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-islandsmeistari-i-blaki-karla
KA Íslandsmeistari í blaki karla KA tryggði sér rétt í þessu Íslandsmeistaratitilinn í blaki karla eftir 3:0 sigur gegn HK í öðrum leik liðanna, sem fram fór í Digranesi í dag. KA var mun betri aðilinn í leiknum og vann allar þrjár hrinurnar, 25:9, 25:11 og 25:14. KA vann þar með einvígið 2:0. Þetta er fyrsti Íslandsme...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stjorn-eythings-stydur-styttingar-a-hringveginum
Stjórn Eyþings styður styttingar á Hringveginum Stjórn Eyþings tekur undir sjónarmið Vegagerðarinnar um að Húnavallaleið (Svínavatnsleið) og ný veglína í Skagafirði verði settar á aðalskipulag viðkomandi sveitarfélaga. Umræddar veglínur leiða til mikilvægrar styttingar á Hringveginum. Stjórnin minnir á samþykkt frá aða...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/forstjori-samherja-gagnrynir-ahugaleysi-stjornmalamanna
Forstjóri Samherja gagnrýnir áhugaleysi stjórnmálamanna Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja gagnrýndi stjórnmálamenn á svæðinu fyrir áhugaleysi gagnvart málefnum sjávarútvegsfyrirtækja, á mjög fjölmennum fundi á Hótel KEA í vikunni, þar sem hann fór yfir starfsemi Samherja. Þorsteinn Már sagði að Björn Snæbjör...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjorar-fra-ka-i-landslidshopinn
Fjórar frá KA í landsliðshópinn Tuttugu manna landsliðshópur hefur verið valinn fyrir EM smáþjóða í blaki kvenna sem fram fer í Möltu dagana 10.- 14. júní næstkomandi. Fjórir leikmenn úr hópnum koma frá KA en það eru þær Auður Anna Jónsdóttir, Hulda Elma Eysteinsdóttir, Birna Baldursdóttir og Una Margrét Heimisdóttir. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-tapadi-stort-gegn-fjolni-i-fyrsta-leik-lidanna
Þór tapaði stórt gegn Fjölni í fyrsta leik liðanna Þór steinlá gegn Fjölni í kvöld með 40 stiga mun er liðin mættust í Dalhúsi í fyrsta umspilsleiknum í 1. deild kvenna í körfubolta. Lokatölur urðu 83:43 fyrir Fjölni. Rut Konráðsdóttir var stigahæst í liði Þórs í leiknum með 17 stig og Erna Magnúsdóttir kom henni næst ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/laun-ungmenna-i-vinnuskolanum-akvedin
Laun ungmenna í Vinnuskólanum ákveðin Bæjarráð samþykkti á fundi sínum í gær, tillögu að launum 14, 15 og 16 ár unglinga í Vinnuskóla Akureyrarbæjar í sumar. Laun ungmenna í 8. bekk, 14 ára, verða 359 krónur á tímann, laun ungmenna í 9. bekk, 15 ára, verða 410 krónur á tímann og laun ungmenna í 10. bekk, 16 ára, verða ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fodurverksmidjan-bustolpi-raedst-i-vidamikla-endurnyjun
Fóðurverksmiðjan Bústólpi ræðst í viðamikla endurnýjun Veigamikil endurnýjun á framleiðslubúnaði fer fram í fóðurverksmiðjunni Bústólpa á Akureyri nú í vor. Með nýrri vinnslutækni tvöfaldast afkastageta verksmiðjunnar, unnt verður að framleiða orkuríkara og efnameira fóður miðað við rúmmál, ásamt því að fóðurgildi þess...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thungar-ahyggjur-vegna-atvinnu-astandsins-i-byggingaridnadi
Þungar áhyggjur vegna atvinnu- ástandsins í byggingariðnaði Aðalfundur Fagfélagsins, sem er stéttarfélag starfsfólks í byggingariðnaði, sem haldinn var samtímis á Akureyri og í Reykjavík í gær, lýsir yfir þungum áhyggjum vegna atvinnuástandsins í byggingariðnaði. Það er með öllu óásættanlegt að ríflega 20% félagsmanna ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hagnadur-kea-276-milljonir-krona-a-sidasta-ari
Hagnaður KEA 276 milljónir króna á síðasta ári Samkvæmt óendurskoðuðu bráðabirgðauppgjöri KEA fyrir árið 2009 sem kynnt hefur verið fulltrúaráði félagsins nam hagnaður eftir skatta 276 milljónum króna. Hagnaður fyrir reiknaða skatta á sama tímabili nam 300 milljónum króna. Heildareignir félagsins nema rúmlega 4,3 millj...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-vann-oruggan-sigur-gegn-hk-i-kvold
KA vann öruggan sigur gegn HK í kvöld KA vann 3:0 sigur gegn HK í fyrsta leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í MIKASA- deild karla í blaki, en leikið var í KA- heimilinu í kvöld. KA vann allar þrjár hrinur leiksins, 28:26, 25:21 og 25:20 og þar með leikinn 3:0. KA er því 1:0 yfir í einvíginu. Liðin mætast öðru sinn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fram-lagdi-akureyri-ad-velli-med-fimm-marka-mun
Fram lagði Akureyri að velli með fimm marka mun Akureyri tapaði sínum öðrum leik í röð í N1- deild karla í handbolta er liðið lá á heimavelli fyrir Fram í kvöld með fimm marka mun, 26:31. Eftir góðan sigur gegn FH fyrir viku síðan hafa norðanmenn tapað tveimur leikjum í röð gegn liðum í botnbaráttunni ,en halda þó enn ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/safna-undirskriftum-gegn-nyju-deiliskipulagi-i-midbae-akureyrar
Safna undirskriftum gegn nýju deiliskipulagi í miðbæ Akureyrar Knútur Karlsson, einn þeirra sem stendur að söfnun undirskrifta þar sem andstöðu er lýst við nokkur atriði varðandi skipulag í miðbæ Akureyrar, vonast til þess að um 2.500 undirskriftir safnist áður en þeim verður skilað inn til bæjarstjóra á mánudag í næst...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stydur-rannsoknir-a-landgrunni-undan-nordausturlandi
Styður rannsóknir á landgrunni undan Norðausturlandi Bæjarráð Akureyrar styður heilshugar þingsályktunartillögu þar sem því er beint til iðnaðarráðherra að hann hlutist til um að nú þegar verði hafist handa um framhald rannsókna á hugsanlegum kolvetnisauðlindum undan Norðausturlandi. Bæjarráði barst erindi frá Alþingi,...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stefnt-ad-sogusyningu-i-tilefni-100-ara-afmaelis-umf-aeskunnar
Stefnt að sögusýningu í tilefni 100 ára afmælis UMF. Æskunnar Ungmennafélagið Æskan stendur á tímamótum í ár þegar 100 ár verða liðin frá stofnun þess. Á þessum 100 árum sem liðin eru hefur mikið vatn runnið til sjávar. Ýmislegt hefur breyst og félagsstarfið tekið stakkaskiptum. Til að minnast þessarar aldar sem liðin ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/urslitarimman-i-mikasa-deild-karla-i-blaki-hefst-i-kvold
Úrslitarimman í MIKASA- deild karla í blaki hefst í kvöld Úrslitarimman í MIKASA- deild karla í blaki hefst í kvöld kl. 19:30 í KA- heimilinu en í ár berjast KA og HK um titillinn. Liðin hafa mæst fjórum sinnum í deildinni í vetur og staðan þar 2:2 og því má búast við hörku einvígi milli þessara liða um Íslandsmeistara...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/verdum-ad-spyta-i-lofana
„Verðum að spýta í lófana” Akureyri Handboltafélag og botnlið Fram mætast í Íþróttahöllinni á Akureyri í kvöld kl. 19:00 í N1- deild karla í handbolta. Gengi Akureyrar hefur verið upp og ofan síðustu leiki. Eftir langþráðansigur gegn FH í síðasta heimaleik var Akureyri kippt niður á jörðina á ljóshraða í tapleiknum geg...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samherji-bodar-til-funda-um-atvinnumal-og-starfsemi-felagsins
Samherji boðar til funda um atvinnumál og starfsemi félagsins Samherji hf. hefur boðað til nokkurra funda í Eyjafirði, þar sem farið verður yfir atvinnumál og starfssemi Samherja kynnt. Fyrsti fundurinn verður haldinn á Hótel KEA á Akureyri í fyrramálið, fimmtudagsmorgun 25. mars kl. 8.15. Annað kvöld verður svo annar ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/umsoknarvefur-vinnuskolans-a-akureyri-opnadur
Umsóknarvefur Vinnuskólans á Akureyri opnaður Umsóknarvefur Vinnuskólans á Akureyri hefur verið opnaður fyrir umsóknir. Vinnuskólinn er fyrir unglinga á aldrinum 14-16 ára. Einnig er í boði sumarvinna með stuðningi. Hægt er að sækja rafrænt um á heimasíðu Akureyrarbæjar og er tekið við umsóknum frá 19. mars til 19. apr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/svortu-snakarnir-sigrudu-a-kvennamoti-i-ishokki
Svörtu snákarnir sigruðu á kvennamóti í íshokkí Kvennamót í íshokkí fór fram í Skautahöllinni á Akureyri sl. helgi þar sem 50 konur frá SA, SR og Birninum á öllum aldri kepptu í þremur liðum. Liðin þrjú sem sett voru saman voru Svörtu snákarnir, Rauðu Tígrarnir og Hvítu hákarlanir. Það var lið Svörtu snákanna sem bar s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sa-eldri-vann-grannaslaginn-2
SA eldri vann grannaslaginn SA eldri hafði betur gegn SA yngri, 6:4, er liðin mættust í Skautahöll Akureyrar í gærkvöld. SA eldri hefur þar með 16 stig í deildinni en þær yngri hafa 3 stig. SA eldri hefur þar með tryggt sér sæti í úrslitakeppninni, en regluverkið heimilar þó sameiningu SA- liðanna í úrslitum. Björninn ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fundarherferd-heimssynar-afram-island-ekkert-esb-hefst-i-dag
Fundarherferð Heimssýnar “Áfram Ísland – ekkert ESB” hefst í dag Í dag, miðvikudaginn 24. mars, hefst fyrsti dagur í fundarherferð Heimssýnar „Áfram Ísland - Ekkert ESB". Um er að ræða 17 fundi sem haldnirr verða um allt land á milli 24. og 31. mars. Rúmlega 20 frummælendur eru til staðar og munu þeir skipta á milli sí...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjolbreytt-lista-og-menningardagskra-a-akureyri
Fjölbreytt lista- og menningardagskrá á Akureyri Brekkusniglarnir Þórarinn Hjartarson, Gísli Sigurgeirsson, Ólafur Kjartansson og fleiri núverandi og fyrrverandi íbúar við Spítalaveg segja sögu húsa og mannlífs á syðsta hluta "Suðurbrekku" á Sigurhæðum í kvöld, miðvikudaginn 24. mars kl. 20.00 "Eyrarpúkar" sjá um næsta...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rong-forgangsrodun-nidurskurdar-hefur-alvarlegar-afleidingar-fyrir-heimilin
Röng forgangsröðun niðurskurðar hefur alvarlegar afleiðingar fyrir heimilin „Niðurskurður og sparnaður í íslensku efnahagslífi , þ.a.m. í heilbrigðis-og félagsþjónustu er raunveruleiki sem ekki virðist umflúinn. Röng forgangsröðun niðurskurðar hefur alvarlegar afleiðingar fyrir heimilin í landinu þegar t.d. ummönnun sj...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aflaverdmaeti-bjorgvins-ea-um-175-milljonir-krona
Aflaverðmæti Björgvins EA um 175 milljónir króna Björgvin EA, frystitogari Samherja hf., kom til hafnar á Akureyri fyrr í dag, eftir um 32 daga veiðiferð við Noregsstrendur. Afli togarans er um 600 tonn upp úr sjó og aflaverðmætið um 175 milljónir króna. Ráðgert er að Björgvin haldi til veiða á ný í næstu viku.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bokamarkadurinn-opnar-a-akureyri-a-morgun
Bókamarkaðurinn opnar á Akureyri á morgun Bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefenda hefst á Akureyri á morgun, miðvikudaginn 24. mars og stendur til þriðjudagsins 6. apríl. Lokað er föstudaginn langa og páskadag. Markaðurinn er á sama stað og undanfarin ár, við hlið Bakarísins við brúna, Gleráreyrum 2, rétt við Glerá...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/120-ferdamenn-til-akureyrar-i-beinu-flugi-fra-englandi
120 ferðamenn til Akureyrar í beinu flugi frá Englandi Um 120 ferðamenn koma í beinu flugi til Akureyrar frá Englandi næstkomandi laugardag á vegum Ferðaskrifstofunnar Nonna. Um er að ræða dagsferð og er áætluð lending á Akureyrarflugvelli kl. 10:00. Ekið verður til Mývatns og áður en lagt er af stað heim aftur fá ferð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sex-umsaekjendur-um-embaetti-prests-i-akureyrarprestakalli
Sex umsækjendur um embætti prests í Akureyrarprestakalli Sex umsækjendur eru um embætti prests í Akureyrarprestakalli, Eyjafjarðarprófastsdæmi. Frestur til að sækja um embættið rann út 18. mars. Umsækjendur eru; séra Guðmundur Guðmundsson, cand. theol. Haraldur Örn Gunnarsson, séra Hildur Eir Bolladóttir, séra Jóna Lov...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/menningarrad-eythings-uthlutadi-23-milljonum-til-menningarstarfs
Menningarráð Eyþings úthlutaði 23 milljónum til menningarstarfs Menningarráð Eyþings úthlutaði 23 milljónum króna til menningarstarfs á starfssvæði Eyþings við hátíðlega athöfn í menningarhúsinu Bergi á Dalvík sl. fimmtudag. Þetta er í sjötta sinn sem úthlutað er styrkjum samkvæmt samstarfssamningi mennta- og menningar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mammutar-deildarmeistarar-i-krullu
Mammútar deildarmeistarar í krullu Mammútar eru deildarmeistarar í krullu eftir sigur gegn Skyttunum, 9:2, í lokaumferð deildarinnar sem fram fór Skautahöll Akureyrar í gær. Þetta er annað árið í röð sem lið Mammúta verður deildarmeistari. Eftir leiki gærdagsins er ljóst hvaða fjögur lið leika í úrslitakeppni Íslandsmó...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/opinbert-fe-til-uppbyggingar-vetrarithrottamannvirkja-a-akureyri-aaetlad-60-milljonir-a-ari
Opinbert fé til uppbyggingar vetraríþróttamannvirkja á Akureyri áætlað 60 milljónir á ári Í þriggja ára áætlun Akureyrarbæjar er gert ráð fyrir því að bærinn leggi 30 milljónir króna á ári næstu þrjú árin til Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands. Hermann Jón Tómasson bæjarstjóri segir að reiknað sé með því að ríkið leggi fr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/endurbaetur-hafa-verid-gerdar-husnaedi-velsmidjunnar
Endurbætur hafa verið gerðar húsnæði Vélsmiðjunnar Umfangsmiklar framkvæmdir hafa staðið yfir á efri hæð veitingahússins Vélsmiðjunnar á Akureyri. Einnig hafa verið gerðar lagfæringar á neðri hæðinni, að sögn Birgis Torfasonar veitingamanns en efri hæðin var opnuð formlega um nýliðna helgi eftir breytingar. "Við erum a...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/maria-threfaldur-unglingameistari-a-umi
María þrefaldur unglingameistari á UMÍ Skíðakonan María Guðmundsdóttir, SKA, varð þrefaldur unglingameistari í flokki 15-16 ára á Unglingameistaramóti Íslands á skíðum sem haldið var á Siglufirði um helgina. María sigraði í stórsvigi, svigi og alpatvíkeppni. Fleiri keppendur frá SKA voru að gera góða hluti á mótinu. Au...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/opinn-fundur-allra-foreldra-grunnskolabarna-a-akureyri
Opinn fundur allra foreldra grunnskólabarna á Akureyri Hvað gerir barnið mitt í tölvunni? er yfirskrift opins fundar allra foreldra grunnskólabarna á Akureyri, sem haldinn verður í Brekkuskóla miðvikudaginn 24. mars kl. 20.00. Markmiðið með fundinum er að fá fram sýn foreldra á þróun mála hjá börnum í þeim tækniheimi s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/italskir-hljodfaeraleikarar-a-tonleikum-i-laugarborg
Ítalskir hljóðfæraleikarar á tónleikum í Laugarborg Ítölska tónlistarfólkið Natalia Benedetti klarínettuleikari og Sebastiano Brusco píanóleikari halda tónleika í Laugarborg í Eyjafjarðarsveit í kvöld, mánudagskvöld kl. 20.30. Tónleikarnir eru liður í vetrardagskrá Laugarborgar og á efnisskrá eru verk eftir C. Saint-Sa...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/grotta-lagdi-akureyri-ad-velli
Grótta lagði Akureyri að velli Grótta lagði Akureyri að velli með þriggja marka mun, 29:26, er liðin áttust við í dag á Seltjarnarnesi í N1- deild karla í handbolta. Heimamenn í Gróttu voru mun betri allan leikinn og leikurinn varð aldrei spennandi fyrr en rétt í lokin þegar norðanmenn náðu að minnka muninn í eitt mark...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samningar-um-byggingu-hjukrunarryma-a-lokastigi
Samningar um byggingu hjúkrunarrýma á lokastigi Félagsmálaráðuneytið er að leggja lokahönd á samninga við níu sveitarfélög um byggingu á 360 hjúkrunarrýmum, þar af 45 hjúkrunarrými á Akureyri. Hermann Jón Tómasson bæjarstjóri á Akureyri segir að vonir standi til þess að þess að hægt verði að skrifa undir samning mjög f...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/grotta-akureyri-i-beinni-a-ruv
Grótta- Akureyri í beinni á RÚV Grótta og Akureyri mætast í dag á Seltjarnarnesi í N1- deild karla í handbolta. Leikurinn verður í beinni útsendingu á RÚV kl. 16:00, en þetta er í fyrsta skipti síðan 18. október 2008 sem leikur með Akureyri er sýndur í sjónvarpinu.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/reynt-verdur-ad-fylla-adra-vel-fra-faereyjum-um-paskana
Reynt verður að fylla aðra vél frá Færeyjum um páskana „Þetta gekk alveg eins og í sögu og allir alsælir," segir Guðmundur Karl Jónsson forstöðumaður í Hlíðarfjalli en um liðna helgi skemmtu tæplega 100 Færeyingar sér konunglega við skíðaiðkun í fjallinu. Þeir komu í beinu flug til Akureyrar og dvöldu í bænum í fjóra d...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sameining-horgarbyggdar-og-arnarneshrepps-samthykkt
Sameining Hörgárbyggðar og Arnarneshrepps samþykkt Sameining Hörgárbyggðar og Arnarneshrepps var samþykkt í kosningum í báðum sveitarfélögum í dag. Gert er ráð fyrir að sameiningin taki gildi 12. júní nk. Kosið verður til sveitarstjórnar í sameinuðu sveitarfélagi í sveitarstjórnarkosningunum 29. maí nk. Á kjörskrá í Ar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-maetir-hk-i-urslitum-um-islandsmeistaratitilinn-i-blaki
KA mætir HK í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í blaki Það verða HK og KA sem leika til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í blaki í flokki karla. Þetta varð ljóst eftir 3:2 sigur HK á Stjörnunni í dag í öðrum leik liðanna í undanúrslitum. HK vann einvígið 2:0. Fyrsti leikur KA og HK í úrslitum verður í KA-heimilinu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haukar-logdu-kathor-ad-velli-i-ka-heimilinu
Haukar lögðu KA/Þór að velli í KA- heimilinu KA/Þór tapaði með fjögurra marka mun gegn Haukum, 31:35, er liðin mættust í KA- heimilinu í dag í N1- deild kvenna í handbolta. Leikurinn var jafnframt síðasti heimaleikur KA/Þórs á tímabilinu. Markvörður Hauka, G. Bryndís Jónsdóttir, reyndist norðanstúlkum erfið í dag en hú...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kosid-um-sameiningu-horgar-byggdar-og-arnarneshrepps-1
Kosið um sameiningu Hörgár- byggðar og Arnarneshrepps Íbúar í Hörgárbyggð og Arnarneshreppi kjósa um sameiningu sveitarfélagana tveggja í dag, laugardag. Kjörfundur hófst kl. 10 í morgun og stendur til kl. 20.00 í kvöld í báðum sveitarfélögum. Íbúar Hörgárbyggðar kjósa í Hlíðarbæ en íbúar Arnarneshrepps í Leikhúsinu á ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bryndis-baetti-sitt-eigid-islandsmet
Bryndís bætti sitt eigið Íslandsmet Bryndís Rún Hansen, sundkona úr Óðni, setti eina Íslandsmet gærdagsins á Íslandsmótinu í 50 m laug sem fram fer í Laugardagslauginni nú um helgina. Bryndís setti met í 50 flugsundi en hún synti á tímanum 27, 65 sekúndum og bætti þar með sitt eigið Íslandsmet um fjórðung úr sekúndu. A...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sidasti-heimaleikur-kathors-i-dag
Síðasti heimaleikur KA/Þórs í dag KA/Þór leikur í dag sinn síðasta heimaleik í N1- deild kvenna í handbolta, er liðið fær Hauka í heimsókn í KA- heimilið. Norðanstúlkur eiga erfitt verkefni fyrir höndum en 17 stig skilja liðin að fyrir leikinn í dag, Haukar hafa 30 stig í fjórða sæti deildarinnar en KA/Þór 13 stig í sj...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-komid-i-urslit-mikasa-deildar-karla
KA komið í úrslit MIKASA- deildar karla KA er komið úrslit MIKASA- deildar karla í blaki eftir 3:1 sigur gegn Þrótti R. í KHÍ húsinu í kvöld í öðrum leik liðanna í úrslitakeppninni. Þróttur vann fyrstu hrinuna 25:21, en KA vann næstu þrjár hrinur, 25:22, 25:23 og 25:16. KA vann þar með einvígi liðanna 2:0 og er einu sk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/slippurinn-og-kaelismidjan-frost-gera-samning-vid-norskan-adila
Slippurinn og Kælismiðjan Frost gera samning við norskan aðila Slippurinn Akureyri ehf. og Kælismiðjan Frost ehf. hafa gert samning um umfangsmiklar endurbætur á togaranum K. Arctander frá Lofoten í Noregi. Skipið er í eigu Norland Havfiske A/S en það er hluti af Aker Seafoods samsteypunni. Helsu verkefnin eru að skipt...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-hof-urslitakeppnina-med-tapi-gegn-throtti
KA hóf úrslitakeppnina með tapi gegn Þrótti Úrslitakeppnin í MIKASA- deild kvenna í blaki hófst í gær, en úrslitakeppnin hjá konunum er þannig að fjögur efstu liðin í deildinni spila tvöfalda umferð. Þróttur N. og KA mættust í Neskaupsstað og þar hafði Þróttur betur 3:0. Á sama tíma lagði HK Fylki að velli, 3:0, og því...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haefileikakeppni-fyrir-grunn-skolanemendur-haldin-i-vor
Hæfileikakeppni fyrir grunn- skólanemendur haldin í vor NorðanGarri nefnist ný hæfileikakeppni sem er opin fyrir alla grunnskóla á Norðurlandi. Keppnin verður haldin 23. maí nk. og mun að öllum líkindum fara fram í Samkomuhúsinu á Akureyri en það veltur á fjölda þátttakenda. Keppnin er fyrir grunnskólanema í 8.- 10. be...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/radstefna-um-stjornufraedi-i-tilefni-af-althjodlega-stjornufraediarinu
Ráðstefna um stjörnufræði í tilefni af alþjóðlega stjörnufræðiárinu Á morgun, laugardaginn 20. mars verður haldin ráðstefna á vegum Háskólans á Akureyri og Menntaskólans á Akureyri í tilefni alþjóðlega stjörnufræðiársins 2009 og ber hún yfirskriftina; Undur alheimsins. Ráðstefnan fer fram í MA og stendur frá kl. 10 - 2...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/golfklubburinn-og-skotfelagid-fa-adstodu-i-kjallara-hallarinnar
Golfklúbburinn og Skotfélagið fá aðstöðu í kjallara Hallarinnar Bæjarráð samþykkti á fundi sínum í gær, tillögu íþróttaráðs þess efnis að Golfklúbbi Akureyrar og Skotfélagi Akureyrar verði gert kleift að færa inniaðstöðu sína í kjallara Íþróttahallarinnar og að leigu vegna þessa verði bætt við fjárhagsramma íþróttadeil...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fundur-um-samgongumal-i-haskolanum-a-akureyri
Fundur um samgöngumál í Háskólanum á Akureyri Bættar samgöngur - hvað er í veginum? er yfirskrift fundar um samgöngumál, sem haldinn verður í Háskólanum á Akureyri í dag, föstudaginn 19. mars frá kl. 13-16. Markmið fundarins er að vekja athygli á og efla umræðu um samgöngur og upplýsa þátttakendur um hvernig þessum mál...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mammutar-og-vikingar-oruggir-i-urslitakeppnina-i-krullu
Mammútar og Víkingar öruggir í úrslitakeppnina í krullu Næstsíðustu umferð Íslandsmótsins í krullu lauk í gærkvöld með tveimur frestuðum leikjum í Skautahöll Akureyrar. Svarta gengið hafði betur gegn Üllevål, 8:2, og Mammútar sigruðu Riddara 8:4. Línur eru farnar að skýrast fyrir lokaumferðina en staða efstu liða fyrir...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-vann-langthradan-sigur-a-fh
Akureyri vann langþráðan sigur á FH Akureyri vann langþráðan sigur á FH í kvöld, 33:30, er liðin mættust í Íþróttahöllinni á Akureyri í N1- deild karla í handbolta, en fram að leiknum í kvöld hafði FH lagt Akureyri þrívegis að velli í vetur. Norðanmenn hófu leikinn af krafti og fyrri hálfleikur liðsins var frábær í bæð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/marsmot-ufa-haldid-i-boganum-um-helgina
Marsmót UFA haldið í Boganum um helgina Marsmót UFA í frjálsum íþróttum verður haldið í Boganum næstkomandi laugardag, þann 20. mars, og er mótið öllum opið. Keppnisgjald er 1000 krónur óháð fjölda greina sem keppt er í og fá allir keppendur þátttökuverðlaun. Í flokki 10 ára og yngri verður keppt í þrautabraut, í flokk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fagnar-adgerdum-sem-taka-a-skuldavanda-heimilanna
Fagnar aðgerðum sem taka á skuldavanda heimilanna Stjórn Samfylkingarinnar á Akureyri fagnar aðgerðum ríkisstjórnarinnar sem taka á skuldavanda heimilanna og eru einhverjar þær umfangsmestu sem gripið hefur til. Annars vegar er um almennar aðgerðir, sem nýtast munu öllum og hins vegar sértækar aðgerðir sem beinast að þ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skolanefnd-veitir-vidurkenningar-fyrir-framurskarandi-skolastarf
Skólanefnd veitir viðurkenningar fyrir framúrskarandi skólastarf Samkvæmt skólastefnu Akureyrarbæjar skal árlega, veita þeim einstaklingum eða stofnunum sem skarað hafa fram úr í skólastarfi viðurkenningar. Markmiðið er að vekja sérstaka athygli á því sem vel er gert og hvetja þá sem fyrir valinu verða til þess að hald...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/arna-valinn-i-sextan-manna-landslididshop
Arna valinn í sextán manna landsliðiðshóp Arna Valgerður Erlingsdóttir, leikmaður KA/Þórs, var valinn í sextán manna landsliðshóp kvenna í handbolta fyrir tvo leiki gegn Bretum í undankeppni Evrópumótsins. Arna er nýliði í hópnum en Júlíus Jónasson landsliðsþjálfari valdi tvo nýliða í hópinn að þessu sinni, en auk Örnu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tillaga-um-arlega-radstefnu-a-akureyri-um-malefni-heimskautasvaedanna
Tillaga um árlega ráðstefnu á Akureyri um málefni heimskautasvæðanna Á fundi bæjarráðs Akureyrar í morgun var tekið fyrir erindi frá skjalaverði nefndasviðs Alþingis þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um árlega ráðstefnu á Akureyri um málefni heimskautasvæðanna. Bæjarráð tekur heilshugar undir ályk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framsyn-skorar-a-sjavarutvegs-radherra-ad-auka-thorskvotann
Framsýn skorar á sjávarútvegs- ráðherra að auka þorskvótann Framsýn- stéttarfélag skorar á sjávarútvegsráðherra að auka nú þegar við þorskkvóta á yfirstandandi fiskveiðiári þar sem margt virðist benda til þess að mun meira sé af fiski í sjónum en rannsóknir sýna. Ljóst er að fjöldi báta mun stöðvast á næstu vikum vegna...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-tekur-a-moti-fh-i-kvold-fritt-i-hollina
Akureyri tekur á móti FH í kvöld- Frítt í Höllina Það verður toppslagur í Íþróttahöllinni á Akureyri í kvöld þegar Akureyri Handboltafélag og FH eigast við í N1- deild karla í handbolta. FH hefur reynst norðanmönnum ansi erfiðir í vetur. Liðin hafa mæst þrisvar sinnum, tvisvar í deildinni og einu sinni bikarnum, og hef...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-vann-fyrsta-leikinn-i-urslitakeppninni
KA vann fyrsta leikinn í úrslitakeppninni KA hafði betur gegn Þrótti R. í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppni MIKASA- deildar karla í blaki en leikið var í KA- heimilinu í kvöld. KA vann allar hrinur leiksins, fyrstu tvær með tölunum 25:21 og þá þriðju 25:20 og vann þar með leikinn 3:0. KA hefur þar með tekið 1:0 forys...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kammerkor-nordurlands-med-tonleika-i-ketilhusinu
Kammerkór Norðurlands með tónleika í Ketilhúsinu Kammerkór Norðurlands heldur tónleika í Ketilhúsinu á Akureyri sunnudaginn 21. mars kl. 20:30. Stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson. Á efnisskrá er íslensk kóratónlist, þar af nokkur ný verk, samin sérstaklega fyrir kórinn. Kammerkór Norðurlands var stofnaður haustið 1...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oddviti-sjalfstaedismanna-segir-alltaf-leitt-ad-missa-lidsmenn
Oddviti sjálfstæðismanna segir alltaf leitt að missa liðsmenn "Það er alveg ljóst að þegar menn fara í prófkjör og ná ekki þeim árangri sem þeir stefna að þá skoða þeir sinn hug," segir Sigrún Björk Jakobsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, aðspurð um brotthvarf Sigurðar Guðmundssonar úr flokknum. "Það var ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/urslitakeppni-karla-i-blaki-hefst-i-kvold
Úrslitakeppni karla í blaki hefst í kvöld Í kvöld hefst úrslitakeppnin í blaki í MIKASA- deild karla með tveimur leikjum. Nýkýndir bikar- og deildarmeistarar KA leika gegn Þrótti R. og verður fyrsti leikur liðanna háður í KA- heimilinu og hefst kl. 19:30 í kvöld. Í hinni viðureigninni eigast við HK og Stjarnan. Leikið ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sigurdur-sagdi-sig-ur-sjalfstaedisflokknum-og-bodar-nytt-frambod
Sigurður sagði sig úr Sjálfstæðisflokknum og boðar nýtt framboð Sigurður Guðmundsson verslunarmaður á Akureyri, sem hafnaði í 6. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor, sagði sig úr flokknum í gærkvöld og ætlar að mæta með nýtt framboð til leiks í vor. "Ég hafði tekið ákvörðun um að...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/frambodslisti-sjalfstaedis-flokksins-a-akureyri-samthykktur
Framboðslisti Sjálfstæðis- flokksins á Akureyri samþykktur Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins við sveitarstjórnarkosningarnar þann 29. maí nk. var samþykktur á fundi fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri í gærkvöld. Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarfulltrúi skipar efsta sæti listans en Siguður Guðmundsson versluna...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/arna-og-silvia-fara-med-u19-ara-landslidinu-til-russlands
Arna og Silvía fara með U19 ára landsliðinu til Rússlands Þær Silvía Rán Sigurðardóttir og Arna Sif Ásgrímsdóttir, knattspyrnukonur úr Þór/KA, voru báðar valdar í U19 ára landsliðshóp kvenna í knattspyrnu sem leikur í milliriðli EM í Sochi í Rússslandi í lok mánaðarins. Fyrsti leikur Íslands verður gegn Spánverjum þann...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skorar-a-sjavarutvegsradherra-og-rikisstjorn-ad-auka-vid-thorskkvotann
Skorar á sjávarútvegsráðherra og ríkisstjórn að auka við þorskkvótann Atvinnumálanefnd Dalvíkurbyggðar skorar á sjávarútvegsráðherra og ríkisstjórn að auka við þorskkvóta yfirstandandi fiskveiðiárs. Nefndin ítrekar ályktun sína frá 18. júní 2009 um þann vanda sem af því hlýst hve lítið má veiða af þorski. Ef ekki verðu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oskad-eftir-lod-undir-bakariveitingastad-a-hentugum-stad-vid-glera
Óskað eftir lóð undir bakarí/veitingastað á hentugum stað við Glerá Á síðasta fundi skipulagsnefndar Akureyrar var tekið fyrir erindi frá SS Byggi, þar sem óskað er eftir lóð undir bakarí/veitingastað á hentugum stað við Glerá. Lögð var fram hugmynd um lóð á nýjum stað ofar við ána. Borist hefur umsögn Vegagerðarinnar ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kea-bydur-a-leik-akureyrar-og-fh
KEA býður á leik Akureyrar og FH KEA hefur ákveðið að bjóða áhugafólki um handbolta frítt á stórleik Akureyrar og FH í Íþróttahöllinni á Akureyri næstkomandi fimmtudag í N1- deild karla í handbolta. Um sannkallaðan toppbaráttuslag er að ræða, en Akureyri er í öðru sæti deildarinnar með 20 stig en FH er í fjórða sæti me...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mjolkurframleidsla-i-landinu-drost-orlitid-saman-a-milli-ara
Mjólkurframleiðsla í landinu dróst örlítið saman á milli ára Mjólkurframleiðsla í landinu dróst saman um 0,38 prósent á síðasta ári samanborið við árið á undan og nam tæpum 126 milljónum lítra. Sala mjólkurvara var þó góð á árinu og í raun meiri en vænta mátti miðað við erfitt efnahagsástand. Þegar skoðaðar eru sölutöl...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/threttan-sjukraflug-i-sidustu-viku
Þrettán sjúkraflug í síðustu viku Síðasta vika byrjaði kröftulega í sjúkraflugi, en um kl. 08:00 kom fyrsta beiðnin um F-1 (hæsti forgangur) flug frá Akureyri til Reykjavíkur. Á meðan á því flugi stóð var óskað eftir F-1 fugi frá Egilsstöðum til Reykjavíkur. Ekki var liðin langur tími er beiðni kom um annað F-1 flug fr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bilaleiga-akureyrar-kaupir-200-nyja-volkswagen-og-skoda
Bílaleiga Akureyrar kaupir 200 nýja Volkswagen og Skoda Bílaleiga Akureyrar-Höldur ehf. hefur samið við HEKLU um kaup á 200 nýjum Volkswagen og Skoda bifreiðum sem afhentir verða á vormánuðum. Steingrímur Birgisson forstjóri Hölds segir fyrirtækið leggja áherslu á að bjóða nýja og örugga gæðabíla sem eru hagkvæmir í re...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-vann-mikilvaegan-sigur-gegn-vikingi
Akureyri vann mikilvægan sigur gegn Víkingi Annar flokkur Akureyrar Handboltafélags vann mikilvægan sigur á Víkingi, 39:28, í Höllinni á Akureyri sl. laugardag, í toppbaráttu 1. deildarinnar. Akureyri hafði yfir í hálfleik, 16:12. Oddur Gretarsson skoraði 13 mörk fyrir norðanmenn í leiknum og Jóhann Gunnarsson kom næst...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mottaka-i-ka-heimilinu-til-heidurs-blaklidum-felagsins
Móttaka í KA-heimilinu til heiðurs blakliðum félagsins Aðalstjórn og blakdeild KA buðu til móttöku í KA-heimilinu seinni partinn í dag, til heiðurs karla- og kvennaliðum félagsins í blaki, sem bæði gerðu það gott um helgina. Karlaliðið fagnaði bikarmeistaratitili, eftir sigur á Stjörnunni 3:2. Hið unga og efnilega kven...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stjornvold-forgangsradi-faglega-i-rikisfjarmalum
Stjórnvöld forgangsraði faglega í ríkisfjármálum Fulltrúafundur Félags framhaldsskólakennara gerir sér grein fyrir þeim vanda sem íslenskt samfélag á við að etja og óhjákvæmilegum samdrætti í ríkisútgjöldum. Fundurinn leggur fast að stjórnvöldum að forgangsraða faglega í ríkisfjármálunum til næstu ára með það að markmi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oddur-i-urvalslidi-8-14-umferdar-n1-deildar-karla
Oddur í úrvalsliði 8.- 14. umferðar N1- deildar karla Oddur Gretarsson leikmaður Akureyrar Handboltafélags var valinn í úrvalslið 8- 14. umferðar N1- deildar karla í handbolta, en valið var tilkynnt á blaðamannafundi HSÍ í dag. Oddur hefur spilað vel fyrir Akureyrarliðið í undanförnum leikjum og skoraði meðal annars 12...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/glerarlaug-20-ara
Glerárlaug 20 ára Í dag, mánudaginn 15. mars, eru liðin 20 ár frá því að Glerárlaug á Akureyri var opnuð almenningi. Laugin var vígð laugardaginn 20. janúar árið 1990 og skólasund hófst svo tveimur dögum síðar, eða mánudaginn 22. janúar. Ekki var hægt að opna fyrir almenning í sund strax vegna vöntunar á læsingum á ská...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/frambodslisti-samfylkingarinnar-a-akureyri-samthykktur
Framboðslisti Samfylkingarinnar á Akureyri samþykktur Framboðslisti Samfylkingarinnar á Akureyri fyrir sveitarstjórnarkosningarnar var samþykktur einróma á vel sóttum félagsfundi félagsins sem haldinn var laugardaginn þann 13. mars. Hermann Jón Tómarsson bæjarstjóri skipar efsta sæti listans en í heiðurssætinu er Magnú...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/andri-fannar-med-thrennu-gegn-islandsmeisturunum
Andri Fannar með þrennu gegn Íslandsmeisturunum Andri Fannar Stefánsson var á skotskónum fyrir KA í dag þegar liðið gerði 3:3 jafntefli gegn Íslandsmeisturunum í FH í Boganum í A- deild Lengjubikarskeppni karla í knattspyrnu. Andri skoraði öll þrjú mörk KA í leiknum en fyrir FH skoruðu þeir Atli Viðar Björnsson, Gunnar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-bikarmeistari-i-blaki-i-karlaflokki
KA bikarmeistari í blaki í karlaflokki KA tryggði sér sigur í Bridgestonebikarnum í karlaflokki í blaki í dag með sigri gegn Stjörnunni, 3:2, í úrslitaleiknum í Laugardagshöllinni. Stjarnan byrjaði þó leikinn betur og vann fyrstu hrinuna. KA jafnaði metin í 1:1 en Stjarnan tók aftur forystuna í þriðju hrinu og staðan 2...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nytt-fyrirkomulag-i-sorphirdu-a-akureyri-i-utbodi
Nýtt fyrirkomulag í sorphirðu á Akureyri í útboði Akureyrarkaupstaður og Flokkun Eyjafjarðar ehf. auglýstu á dögunum eftir tilboðum í sorphirðu fyrir heimili í bænum, rekstur gámavallar og flutning á úrgangi næstu átta árin. Verkið er boðið út á EES svæðinu en fjöldi heimila sem þjónusta á eru um 7.300. Helgi Már Pálss...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-leikur-um-saeti-i-urvalsdeild
Þór leikur um sæti í úrvalsdeild Þór tryggði sér annað sætið í 1. deild kvenna í körfubolta með sextán stiga sigri gegn Laugdælingum, 60:44, í Íþróttahúsi Síðuskóla í gær. Þór endar með 18 stig í öðru sæti deildarinnar og mun leika umspilsleiki gegn Fjölni, sem endaði í efsta sæti með 24 stig, um sæti í úrvalsdeild á n...