Search is not available for this dataset
url stringlengths 21 288 | text stringlengths 1 1.35M |
|---|---|
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kristjan-syngur-med-sinfoniu-hljomsveitinni-a-akureyri | Kristján syngur með Sinfóníu- hljómsveitinni á Akureyri
Stórsöngvarinn Kristján Jóhannsson er einsöngvari á tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands í
íþróttahúsi Síðuskóla á Akureyri í kvöld kl. 20.00. Kristján söng með Sinfóníuhljómsveitinni
á tónleikum í Háskólabíói um helgina en þá voru liðin átta ár síðan hann sön... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stapi-lifeyrissjodur-laekkar-vexti-sjodfelagalana-um-05 | Stapi lífeyrissjóður lækkar vexti sjóðfélagalána um 0,5%
Á stjórnarfundi Stapa lífeyrissjóðs í gær, var ákveðið að lækka vexti sjóðfélagalána úr 5,7%
í 5,2% frá 1. desember n.k. Kári Arnór Kárason framkvæmdastjóri sjóðsins segir að markmiðið með lækkuninni sé
að koma til móts við greiðendur sjóðfélagalána í þeim erfiðl... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/raedismadur-thjodverja-kvaddur-eftir-um-thriggja-aratuga-starf | Ræðismaður Þjóðverja kvaddur eftir um þriggja áratuga starf
Þýski sendiherrann á Íslandi, dr. Karl-Ulrich Müller, bauð til kveðjuhófs á Akureyri á dögunum, til heiðurs þýska
konsúlnum Svani Eiríkssyni, sem lætur nú af störfum eftir um 30 ára starf í þágu Sambandslýðveldisins Þýskalands.
Müller þakkaði Svani fyrir ágætt... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/blondulina-3-verdi-sett-i-farveg-nuverandi-linustaedis | Blöndulína 3 verði sett í farveg núverandi línustæðis
Skipulagsnefnd Akureyrar gerir athugasemdir við tillögu að matsáætlun Landsnets um mat á umhverfisáhrifum vegna lagningar Blöndulínu 3. Nefndin
bendir m.a. á að Svæðisskipulag Eyjafjarðar var fellt úr gildi fyrr á þessu ári og að nýtt svæðisskipulag sé í
vinnslu.
Sk... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/logreglan-a-akureyri-lagdi-hald-a-fikniefni-1 | Lögreglan á Akureyri lagði hald á fíkniefni
Lögreglan á Akureyri handtók við venjubundið eftirlit sl. föstudagskvöld, konu á fimmtugsaldri, sem reyndist vera með 10 grömm af kannabisefni
í fórum sínu. Málið telst upplýst og var konan látin laus að yfirheyrslu lokinni.
Síðastliðið laugardagskvöld voru síðan þrír aðilar ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hin-kalda-markadshyggja-hefur-komid-illa-vid-laglaunafolk | Hin kalda markaðshyggja hefur komið illa við láglaunafólk
Slæm staða efnahagsmála og þær aðgerðir sem hefur verið gripið til varðar alla landsmenn. Sérstaklega kemur ástandið illa við
aðstæður láglaunafólks, og aðstæður margra þeirra sem á síðustu árum hafa tekið lán til að koma sér upp
þaki yfir höfuðið eða til að byg... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-faer-lidsstyrk-i-handboltanum | Akureyri fær liðsstyrk í handboltanum
Akureyri Handboltafélag hefur fengið liðsstyrk því um helgina gekk Anton Rúnarsson til liðs við félagið frá Val.
Á heimasíðu Akureyri Handboltafélags segir um leikmannin:
„Anton Rúnarsson hefur verið í herbúðum Vals undanfarin ár. Anton er tuttugu ára gamall og leikur því einnig
me... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thridji-osigur-thorsara-i-rod-a-utivelli | Þriðji ósigur Þórsara í röð á útivelli
Þórsarar töpuðu í gærkvöld sínum þriðja útileik í röð í Iceland Expressdeild karla í körfubolta
þegar þeir mættu Grindavík á útivelli. Grindvíkingar voru fyrir leikinn efstir í deildinni með fullt hús stiga en Þórsarar
voru um miðja deild.
Á heimasíðu Þórs segir um leikinn:
„Fyrir... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/toluvert-af-folki-a-skidum-i-hlidarfjalli | Töluvert af fólki á skíðum í Hlíðarfjalli
Töluvert af fólki var mætt á skíði og bretti í Hlíðarfjalli nú um hádegisbil en í morgun var
skíðasvæðið opnað í fyrsta skipti á þessum vetri. Til stóð að opna í gær en það var ekki hægt vegna
hvassviðris.
Skíðafólkið sem mætt var í Hlíðarfjall lét vel af aðstæðum en þó er aðei... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/litil-hreyfing-er-a-fasteigna-markadnum-a-akureyri | Lítil hreyfing er á fasteigna- markaðnum á Akureyri
"Það er ekki algjört frost á markaðnum hér á Akureyri en auðvitað hefur hægst töluvert á," segir Arnar Birgisson
sölustjóri hjá fasteignasölunni Hvammi. Björn Guðmundsson hjá fasteignasölunni Byggð tekur í sama streng og segir að hreyfingin
undanfarnar vikur hafi veri... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/flugsafn-islands-a-akureyri-faer-stjornklefa-gullfaxa-ad-gjof | Flugsafn Íslands á Akureyri fær stjórnklefa Gullfaxa að gjöf
Flugsafn Íslands á Akureyri fékk í dag afhentan stjórnklefa Gullfaxa að gjöf við formlega athöfn í Flugsafninu, að viðstöddu
fjölmenni. Í þeim hópi voru gamlir flugmenn sem flugu þessari fyrstu þota í eigu Íslendinga.
Með hjálp góðra manna tókst að festa kaup... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lokad-i-hlidarfjalli-i-dag-en-opnad-i-fyrramalid | Lokað í Hlíðarfjalli í dag en opnað í fyrramálið
Ekki verður hægt að opna skíðasvæðið í Hlíðarfjall í dag eins og til stóð vegna hvassviðris. Þess í
stað hefur stefnan verið sett á að opna skíðasvæðið á morgun, sunnudag, kl. 10.00, að sögn Guðmundar Karls Jónssonar
forstöðumanns Skíðastaða.
Guðmundur Karl sagði að suðv... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bjorgunarsveitarmenn-selja-neydarkallinn-um-allt-land | Björgunarsveitarmenn selja Neyðarkallinn um allt land
Í dag hófst hin árlega sala á Neyðarkalli björgunarsveitanna um allt land. Félagar í Súlum, björgunarsveitinni á Akureyri,
láta ekki sitt eftir liggja og selja Neyðarkallinn á fimm stöðum í bænum, á Glerártorgi, við Bónus, Hagkaup,
Vínbúðina og við Hrísalund.
Salan ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjollistamadurinn-noi-opnar-syningu-i-ketilhusinu | Fjöllistamaðurinn Nói opnar sýningu í Ketilhúsinu
Jóhann Ingimarsson, eða Nói eins og hann er jafnan nefndur, opnar sýningu í Ketilhúsinu á Akureyri á morgun, laugardaginn 1. nóvember kl.
14:00. Sýningin ber yfirskriftina BLAND og eins og nafnið gefur til kynna sýnir Nói þar blönduð verk, bæði skúlptúra og málverk.
Sýn... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/snjomokstur-hefur-gengid-vel-a-akureyri | Snjómokstur hefur gengið vel á Akureyri
Snjómokstur hefur gengið vel síðustu daga, þrátt fyrir að töluvert hafi verið af þungum og blautum snjó í bænum, að
sögn Gunnþórs Hákonarsonar verkstjóra hjá framkvæmdamiðstöð Akureyrar.
Hann segir að engin ófærð hafi skapast í bænum þar sem snjórinn hefur þjappast tiltölulega ve... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vinnuhopur-akureyrarstofu-og-afe-skodar-nyja-moguleika | Vinnuhópur Akureyrarstofu og AFE skoðar nýja möguleika
Formaður stjórnar Akureyrarstofu og formaður stjórnar Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar hafa ásamt framkvæmdastjórum unnið að
hugmyndum um viðbrögð AFE og AKS við efnahagsþrengingunum í þjóðfélaginu.
Farið var yfir hugmyndirnar og rætt um næstu skref á fundi stjórna... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/taekifaeri-fyrir-lifeyrissjodi-ad-fjarmagna-gerd-vadlaheidarganga | Tækifæri fyrir lífeyrissjóði að fjármagna gerð Vaðlaheiðarganga
Kristján Möller samgönguráðherra segir að engar formlegar ákvarðanir hafi verið teknar um frestun framkvæmda við
Vaðlaheiðargöng. Staða efnahagsmála sé hins vegar afar viðkvæm um þessar mundir og tími fyrir einkaframkvæmdir óheppilegur,
lánsfjármagn af sko... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ljosmyndasafn-edvards-sigurgeirssonar-a-minjasafnid | Ljósmyndasafn Eðvarðs Sigurgeirssonar á Minjasafnið
Ljósmyndasafn Eðvarðs Sigurgeirssonar er komið á Minjasafnið á Akureyri til varðveislu. Um er að ræða mikið magn af filmum og
glerplötum, allt frá árinu 1926. Það ár byrjaði Vigfús Sigurgeirsson, bróðir Eðvarðs, með sjálfstæða
ljósmyndastofu í Braunsverslun í Hafnarst... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/horft-verdi-til-stodunnar-a-vinnu-markadi-vid-forgangsrodun-verkefna | Horft verði til stöðunnar á vinnu-markaði við forgangsröðun verkefna
Vinnumarkaðsráð Vinnumálastofnunar Norðurlandi eystra, samþykkti ályktun á fundi sínum í vikunni, þar sem þeim
tilmælum er beint til allra sveitarfélaga á starfssvæði ráðsins að á komandi misserum verði við forgangsröðun verkefna
á vegum sveitarfélaga... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skidasvaedid-i-hlidarfjalli-verdur-opnad-a-laugardag | Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli verður opnað á laugardag
Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli verður opnað kl. 10.00 nk. laugardagsmorgun. Mjög góðar aðstæður hafa verið fyrir
snjóframleiðslu undanfarnar vikur og búið hefur verið til traust undirlag fyrir þann mikla snjó sem fallið hefur af himnum ofan.
Fyrst um sinn verður opið í An... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/var-maria-magdalena-laerisveinninn-sem-jesu-elskadi | Var María Magdalena lærisveinninn sem Jesú elskaði?
Um þessar mundir stendur yfir sýningin Orð Guðs í Listasafninu á Akureyri. Á sýninguni er að finna verk eftir sex listamenn sem vekja upp
spurningar um ýmsa þætti kristinnar trúar. Í tengslum við sýninguna verður boðið upp á margskonar umræðu um málefni sem
tengjast þ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tonleikahaldi-aflyst-a-graena-hattinum-thessa-helgina | Tónleikahaldi aflýst á Græna hattinum þessa helgina
Tónleikahald hefur verið með líflegasta móti á Græna hattinum til langs tíma og til stóð að bjóða upp á
tónleika á veitingastaðnum í kvöld og næstu tvö kvöld. Öllum tónleikunum hefur nú verið aflýst af ýmsum
ástæðum.
Í kvöld, fimmtudagskvöld, áttu að vera tónleikar me... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/grylukerti-fell-af-thakskeggi-og-braut-rudu-i-husinu | Grýlukerti féll af þakskeggi og braut rúðu í húsinu
Grýlukerti féll af þakskegginu hjá Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar við Þórsstíg í morgun og braut rúðu
í húsnæðinu. Glerbrot dreifðust inn á gang framan við kennslustofur. Nemendur voru í frímútum en enginn varð fyrir glerbrotunum
þrátt fyrir að kaffikannan sé stutt fr... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarrad-fagnar-akvordun-ksi-um-storaukin-fjarframlog-til-barna-og-unglingastarfs | Bæjarráð fagnar ákvörðun KSÍ um stóraukin fjárframlög til barna- og unglingastarfs
Bæjarráð Akureyrar fagnar þeirri ákvörðun stjórnar KSÍ að bregðast við gjörbreytum aðstæðum í
íslensku efnahagsumhverfi með því að stórauka fjárframlög til barna- og unglingastarfs aðildarfélaga sambandsins.
Málið var rætt á fundi bæjarr... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stada-samherja-er-sterk-thratt-fyrir-otryggt-efnahagsastand | Staða Samherja er sterk þrátt fyrir ótryggt efnahagsástand
Samherji, eins og önnur fyrirtæki á Íslandi, hefur ekki farið varhluta af því erfiða efnahagsástandi sem hér ríkir. Þessar
aðstæður hafa þó ekki haft jafn mikil áhrif á rekstur Samherja og margra annarra fyrirtækja hér á landi.
Samherji er alþjóðlegur matvælafr... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skorad-er-a-stjornvold-ad-haekka-atvinnuleysisbaetur-hid-fyrsta | Skorað er á stjórnvöld að hækka atvinnuleysisbætur hið fyrsta
Framsýn- stéttarfélag Þingeyinga hefur sent frá ályktun, þar sem skorað er á stjórnvöld að hækka
atvinnuleysisbætur hið fyrsta til þess að koma til móts við þá einstaklinga sem þegar hafa misst vinnuna og þann mikla fjölda sem
býr við ótryggt atvinnuöryggi o... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/umhverfisnefnd-maelir-ekki-med-opnun-efnistokunamu-i-hvammi | Umhverfisnefnd mælir ekki með opnun efnistökunámu í Hvammi
Umhverfisnefnd Eyjafjarðarsveitar telur ekki ástæðu til að mæla með opnun efnistökunámu í landi Hvamms. Ljóst sé að
náman muni hafa umtalsverð áhrif á umhverfið þar sem hún yrði í næsta nágrenni við eitt fjölsóttasta
útivistarsvæði landsmanna í Kjarnaskógi.
Nám... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/komur-skemmtiferdaskipa-hafa-ekki-verid-afbodadar | Komur skemmtiferðaskipa hafa ekki verið afboðaðar
Pétur Ólafsson skrifstofustjóri hjá Hafnasamlagi Norðurlands telur að efnahagsástandið hér á landi muni ekki endilega hafa áhrif
á komur skemmtiferðaskipa hingað næsta sumar. Þegar hafa 57 slík skip boðað komu sína til Akureyrar sumarið 2009.
Pétur segir að vaninn sé sá... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/blikur-a-lofti-vegna-storframkvaemda-a-nordurlandi | Blikur á lofti vegna stórframkvæmda á Norðurlandi
Vaðlaheiðargöng verða ekki boðin út um mánaðamótin nóvember-desember nk. eins og upprunalegar áætlanir gerðu ráð
fyrir, vegna tafa við útboðsvinnu og breyttrar stöðu í efnahagsmálum. Kristján L. Möller samgönguráðherra, telur að
framkvæmdinni muni seinka vegna þessa um ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/svavar-knutur-og-adalsteinn-asberg-a-graena-hattinum | Svavar Knútur og Aðalsteinn Ásberg á Græna hattinum
Í kvöld, þriðjudagskvöldið 28. október, halda þeir Svavar Knútur trúbador og Aðalsteinn Ásberg, skáld og
tónsmiður, tónleika á Græna hattinum þar sem þeir flytja frumsamið efni í tónum og tali. Efnisskrá kvöldsins hjá
þeim félögum verður fjölbreytt og skemmtileg.
Yrki... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sinfoniuhljomsveit-islands-a-ferd-og-flugi | Sinfóníuhljómsveit Íslands á ferð og flugi
Þó svo að Japansferð Sinfóníuhljómsveitar Íslands hafi verið aflýst eins og fram hefur komið er engan bilbug að finna á
hljómsveitinni. Nú hefur verið sett saman metnaðarfull verkefnaskrá fyrir næstu vikur þar sem hljómsveitin verður á faraldsfæti um
höfuðborgarsvæðið og víðar... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atta-karlakorar-sameinast-a-heklumoti-a-husavik | Átta karlakórar sameinast á Heklumóti á Húsavík
Átta karlakórar taka þátt að þessu sinni í Heklumótinu 2008, sem haldið verður í Íþróttahöllinni á
Húsavík laugardaginn 1. nóvember nk. og hefst kl. 14.00. Þar mun á þriðja hundrað manna karlakór m.a. frumflytja nýtt íslenskt
tónverk, eftir Guðmund Óla Gunnarsson.
Hekla, ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/laus-plass-a-leikskolum-en-bidlisti-hja-dagforeldrum | Laus pláss á leikskólum en biðlisti hjá dagforeldrum
Sesselja Sigurðardóttir leikskólaráðgjafi kynnti stöðuna á umsóknarlista í leikskóla Akureyrarbæjar á síðasta
fundi skólanefndar. Fram kom að nú eru 10-12 pláss laus fyrir börn sem eru fædd 2003-2005 og er reiknað með því að búið
verði að fylla í plássin upp úr áramó... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/beinu-flugi-fra-akureyri-til-london-aflyst | Beinu flugi frá Akureyri til London aflýst
Ferðaskrifstofa Akureyrar hefur aflýst ferð sem skrifstofan hafði áætlað með leiguflugi til London þann 3. til 9. nóvember nk. Ragnheiðar
Jakobsdóttur, skrifstofustjóri hjá Ferðaskrifstofu Akureyar, sagði ástæðuna vera miklar afpantanir.
„Tveimur mánuðum fyrir brottför höfðu 1... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/umsoknarfrestur-til-meistaranams-res-i-vistvaenni-orkunytingu-framlengdur | Umsóknarfrestur til meistaranáms RES í vistvænni orkunýtingu framlengdur
Í ljósi aðstæðna í íslensku samfélagi hefur umsóknarfrestur til meistaranáms við RES - Orkuskólann (RES - the School for
Renewable Energy Science) verið framlengdur til 1. desember næstkomandi. Um er að ræða eins árs alþjóðlegt meistaranám í vistv... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skidasvaedid-a-dalvik-var-opnad-i-dag | Skíðasvæðið á Dalvík var opnað í dag
Skíðasvæði Dalvíkinga í Böggvisstaðarfjalli var opnað í dag og var ágætis mæting hjá skíðafólki.
Það hefur snjóað gríðarlega mikið á svæðinu frá því í gær, eða líklega um 60 sentimetra í
logni. Svæðið var opnað á fjórða tímanum í dag og var opið til kl. 18.00.
Snjóframleiðslukerfi e... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bygging-fjolbylishusa-vid-undirhlid-a-akureyri-i-bidstodu | Bygging fjölbýlishúsa við Undirhlíð á Akureyri í biðstöðu
"Við setjum þetta verkefni í biðstöðu á meðan óvissan ríkir," segir Sigurður Sigurðarson framkvæmdastjóri SS-Byggis en
félagið fékk á dögunum úthlutað reit við Undirhlíð, gegnt Bónus til að byggja á fjölbýlishús.
Ætlunin er að reisa þar tvö hús, með alls 57 íbúð... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vonskuvedur-og-ofaerd-vida-a-nordurlandi | Vonskuveður og ófærð víða á Norðurlandi
Mokstur er hafinn milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar en hann tefst eitthvað vegna snjóflóðs, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.
Víkurskarð er ófært og einnig er ófært um Fljótsheiði og Mývatnsöræfi, enda mikil ofankoma austan Eyjafjarðar og
stórhríð þaðan og austur á Tjörnes og M... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bjorgunarsveitarmenn-i-eyjafirdi-hafa-haft-i-nogu-ad-snuast | Björgunarsveitarmenn í Eyjafirði hafa haft í nógu að snúast
Björgunarsveitarmenn í Eyjafirði hafa verið á ferðinni frá því í gærkvöld, við aðstoða fólk sem lent hefur
í vandræðum vegna veðurs og ófærðar. Félagar í Súlum, björgunarsveitinni á Akureyri, eru þessa stundina að
aðstoða fólk í Dalsmynni, Húsvíkinga sem eru á... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/margir-grimseyingar-skuldsettir-vegna-kvotakaupa | Margir Grímseyingar skuldsettir vegna kvótakaupa
"Menn reyna að bera sig mannalega en það er auðvitað ekkert hægt að skafa utan af því, staðan er skelfilega slæm," segir Gylfi Gunnarsson
útgerðarmaður í Grímsey. Hann segir Grímseyinga hafa á liðnum árum reynt hvað þeir geta að bjarga sér, m.a. með
því að festa kaup á a... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hopurinn-a-indlandi-kominn-heilu-og-holdnu-nidur-a-laglendi | Hópurinn á Indlandi kominn heilu og höldnu niður á láglendi
Ungmennin fimm úr Súlum, björgunarsveitinni á Akureyri, sem ætluðu að klífa fjallið Shivling á Indlandi, eru nú komin niður
á láglendið, tæpum 6000 metrum neðar en þar sem þau gistu í þriðju búðum um síðustu helgi og er hitamismunurinn 40
gráður. Þau eru öll v... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stor-hopur-baenda-raedur-illa-vid-greidslubyrdi-erlendra-lana | Stór hópur bænda ræður illa við greiðslubyrði erlendra lána
Bændur hafa ekki farið varhluta af afleiðingum bankakreppunnar fremur en annað atvinnulíf. Gríðarleg veiking íslensku krónunnar hefur
hækkað greiðslubyrði af erlendum lánum á undanförnum mánuðum. Fjölmargir bændur skuldbreyttu lánum sínum í
myntlán og mikið af... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jofnunarsjodur-greidir-sveitar-felogum-ruma-tvo-milljarda | Jöfnunarsjóður greiðir sveitar- félögum rúma tvo milljarða
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga lýkur á mánudag greiðslu framlaga að fjárhæð rúmlega tveir milljarðar til
sveitarfélaga í landinu en framlögin áttu að berast sveitarfélögunum um næstu mánaðamót. Greiðslunum er flýtt til
að bæta fjárhagsstöðu sveitarfélaga.
Kristjá... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vegurinn-um-vikurskard-hefur-verid-opnadur-a-ny | Vegurinn um Víkurskarð hefur verið opnaður á ný
Vegurinn um Víkurskarð hefur verið opnaður á ný, eftir að jeppi og vörubíll með snjótönn, sem voru að koma úr
gagnstæðri átt, skullu mjög harkalega saman skömmu fyrir hádegi.
Ökumaður jeppans missti stjórn á bíl sínum með fyrrgreindum afleiðingum. Tveir menn sem voru í je... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kristjan-johannsson-a-tonleikum-a-akureyri-med-sinfoniunni | Kristján Jóhannsson á tónleikum á Akureyri með Sinfóníunni
Þriðjudaginn 4. nóvember nk. mun Sinfóníuhljómsveit Íslands halda tónleika í íþróttahúsi
Síðuskóla og eingöngvari verður enginn annar en Kristján Jóhannsson. Stjórnandi á tónleikunum, sem hefjast kl. 20.00, verður Petri
Sakari.
Búist er við miklum fjölda gesta ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rjufum-thogn-radamanna-og-gongum-til-lydraedis | Rjúfum þögn ráðamanna og göngum til lýðræðis
Boðað hefur verið til kyndilgöngu á Akureyri á morgun, laugardaginn 25. október, undir yfirskriftinni; Rjúfum þögn ráðamanna og
göngum til lýðræðis. Skorað er á fólk að mæta fyrir framan Samkomuhúsið kl. 16.00 en þaðan verður blysför á
Ráðhústorg.
"Hittumst og sýnum að við... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fikniefnamalum-hefur-fjolgad-mikid-a-akureyri | Fíkniefnamálum hefur fjölgað mikið á Akureyri
Fíkniefnamálum hefur fjölgað mikið á Akureyri að undanförnu, að sögn Gunnars Jóhannessonar hjá rannsóknardeild
lögreglunnar á Akureyri. Það sem af er þessu ári hafa komið upp 91 fíkniefnamál en allt árið í fyrra voru þau 78 talsins.
Gunnar segir það mikið áhyggjuefni að mál... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikilvaegara-en-nokkru-sinni-ad-jafna-kjorin-i-landinu | Mikilvægara en nokkru sinni að jafna kjörin í landinu
Mikil vá steðjar að íslensku samfélagi. Hrun fjármálafyrirtækja og hömlur á gjaldeyrisviðskipti hafa þegar valdið miklum
búsifjum og geta haft í för með sér keðjuverkandi hrun atvinnulífsins með atvinnuleysi og þrengingum, segir í ályktun
trúðarmannaráðs Kjalar stét... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fordaemir-auglysingu-um-dirty-night-i-sjallanum | Fordæmir auglýsingu um Dirty Night í Sjallanum
Samfélags- og mannréttindaráð Akureyrar fordæmir auglýsingu frá Agent.is um svokallaða Dirty night sem haldin var í Sjallanum 20. september
sl. og birt var í Dagskránni miðvikudaginn 17. september og óskar eftir formlegum skýringum frá rekstraraðilum Sjallans og Agent.is á... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/glaesilegur-sigur-akureyrar-a-val | Glæsilegur sigur Akureyrar á Val
Leik Akureyrar og Vals í N1 deild karla í handbolta var að ljúka fyrir nokkrum mínútum og varð niðurstaðan frábær sigur Akureyrar 24-22
fyrir framan troðfulla Höll af áhorfendum sem héldu uppi gríðarlegri stemmningu.
Valsarar voru fyrir leik kvöldsins ósigraðir í fyrstu fimm leikjum dei... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/plastidjan-bjarg-idjulundur-framleidir-utikerti-ur-kertaafgongum | Plastiðjan Bjarg-Iðjulundur framleiðir útikerti úr kertaafgöngum
Hægt er að endurnýta allt kertavax og þannig hægt að komast hjá því að það endi í ruslinu. Plastiðjan
Bjarg-Iðjulundur á Akureyri tekur við öllum kertaafgöngum, bræðir þá upp og notar í útikertin vinsælu sem þau
framleiða.
Nú er svo komið að það vantar ke... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyrarbaer-eykur-hlut-sinn-i-flokkun-eyjafjardar | Akureyrarbær eykur hlut sinn í Flokkun Eyjafjarðar
Bæjarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að auka hlutafé bæjarins í Flokkun ehf. um allt að 37,5 milljónir króna
og vísaði þeirri afgreiðslu til gerðar fjárhagsáætlunar næsta árs.
Hermann Jón Tómasson formaður bæjarráðs og formaður stjórnar Flokkunar Eyjafjarðar ehf. ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haskolinn-a-akureyri-tengilidur-vid-evropskar-byggdarannsoknir | Háskólinn á Akureyri tengiliður við evrópskar byggðarannsóknir
Byggðastofnun hefur valið Háskólann á Akureyri, úr hópi umsækjenda, til þess að vera tengiliður íslenskra stofnana við ESPON
(European Spatial Planning Observation Network) og evrópska samfélagið á sviði
byggðarannsókna fram til 2013.
Um er að ræða að tengi... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samtok-um-betri-byggd-vilja-raeda-vid-baejarrad-akureyrar | Samtök um betri byggð vilja ræða við bæjarráð Akureyrar
Stjórn Samtaka um betri byggð, hefur óskað eftir því að fulltrúar samtakanna fái tækifæri til að kynna
bæjarráðsmönnum á Akureyri tillögur samtakanna að svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins og tillögur að þéttri
og blandaðri miðborgarbyggð í Vatnsmýri.
Einnig vill... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/efnt-til-samveru-naestu-manudaga-i-safnadarheimilinu | Efnt til samveru næstu mánudaga í Safnaðarheimilinu
Næstu fimm mánudaga verður efnt til samveru í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju undir yfirskriftinni „Mánudagar gegn mæðu". Þar
verða umræður um stöðu þjóðarinnar og framtíðarhorfur og enda þótt samveran eigi sér stað í skugga kreppu vilja
aðstandendur þeirra láta þær f... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/toppslagur-i-handboltanum-i-kvold | Toppslagur í handboltanum í kvöld
Handboltalið Akureyrar hefur komið flestum á óvart með góðu gengi í N1-deildinni það sem af er tímabili en um liðna helgi vann
liðið sinn þriðja leik í röð með því að leggja Víkinga í Reykjavík. Nú er svo komið að liðið situr
í 2. - 3. sæti deildarinnar og mætir Völsurum sem eru í efst... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/alcoa-kynnir-matsaaetlun-fyrir-alver-a-bakka | Alcoa kynnir matsáætlun fyrir álver á Bakka
Alcoa hefur lagt fram tillögu að matsáætlun fyrir álver á Bakka við Húsavík, með allt að 346.000 tonna framleiðslugetu. Tekið er
á móti athugasemdum vegna tillögunnar til 6. nóvember næstkomandi.
Í tillögunni er fyrirhugaðri framkvæmd og framkvæmdasvæði lýst í stuttu máli og ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skodudu-afengisauglysingar-a-almannafaeri | Skoðuðu áfengisauglýsingar á almannafæri
Samfélags- og mannréttindaráð, sem fer með forvarnamál fyrir hönd Akureyrarbæjar, fór á fundi sínum í dag í
kynnisferð um bæinn til þess að skoða áfengisauglýsingar á almannafæri.
Tilgangur samfélags- og mannréttindaráðs með skoðunarferðinni var að kortleggja áfengisauglýsingar ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stor-beltagrafa-valt-af-flutningavagni | Stór beltagrafa valt af flutningavagni
Betur fór en á horfðist þegar stór beltagrafa valt útaf flutningavagni norðan við Akureyrarflugvöll nú fyrir stundu og hafnaði
nánast á hvolfi í fjöruborðinu. Stjórnandi gröfunnar slapp með skrekkinn og án meiðsla.
Fyrirtækið Ístak vinnur að lengingu flugbrautarinnar á Akureyri og... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/spurdi-hvort-til-greina-kaemi-ad-nuverandi-baejarstjori-sitji-ut-kjortimabilid | Spurði hvort til greina kæmi að núverandi bæjarstjóri sitji út kjörtímabilið
Jóhannes Bjarnason bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins varpaði fram þeirri spurningu í umræðum um efnahagsmál á fundi
bæjarstjórnar Akureyrar í dag, hvort til greina kæmi að núverandi bæjarstjóri Sigrún Björk Jakobsdóttir myndi sitja í
starfi bæ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/uppskeruhatid-ferdathjonust-unnar-var-haldin-i-skagafirdi | Uppskeruhátíð ferðaþjónust- unnar var haldin í Skagafirði
Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar var haldin í fjórða sinn þann 16. október sl. Markmið
hátíðarinnar er að efla samkennd og samvinnu á milli ferðaþjónustuaðila á Norðurlandi og að gefa fólki kost á
að kynnast innbyrðis.
Að þessu sinni voru Skagfirðingar gestgjafar... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/saga-capital-hefur-ordid-vid-vedkalli-sedlabankans | Saga Capital hefur orðið við veðkalli Seðlabankans
Saga Capital hefur í dag orðið við veðkalli Seðlabanka Íslands frá því í gær og lagt fram viðbótarveð í formi
reiðufjár og ríkisskuldabréfa í samræmi við reglur Seðlabankans. Skuldsetning Saga Capital er lítil og lausafjárstaða góð og
því átti bankinn ekki í erfiðleiku... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fylgst-verdi-med-astandi-umhverfisins-a-akureyri | Fylgst verði með ástandi umhverfisins á Akureyri
Umhverfisnefnd Akureyrarbæjar leggur til að hafinn verði undirbúningur að því að taka upp umhverfisvísa í upplýsingakerfum
bæjarins. Kristín Sigfúsdóttir umhverfisfræðingur kynnti nefndinni á dögunum hvað í umhverfisvísum felst en hún hefur
beint því til nefndarinnar að ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/margot-og-gunnar-a-tonleikum-i-laugarborg | Margot og Gunnar á tónleikum í Laugarborg
Söngkonan Margot Kiis og Gunnar Hrafnsson kontrabassaleikari halda tónleika í Laugarborg í Eyjafjarðarsveit fimmtudaginn 23. október nk. kl. 20.30. Á
efnisskránni eru ýmis erlend og íslensk djasslög, sem Margot og Gunnar hafa útsett.
Þau Margot og Gunnar hafa haldið tónleika á ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ofaert-er-um-vikurskard-og-fra-grenivik-ad-vikurskardi | Ófært er um Víkurskarð og frá Grenivík að Víkurskarði
Vegurinn á milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar var lokaður í morgun vegna snjóflóðs í Ólafsfjarðarmúlanum en hann hefur
nú verið opnaður. Ófært er um Víkurskarð og frá Grenivík að Víkurskarði. Á Norðaustur- og Austurlandi er
snjóþekja á leiðum í kringum Húsavík, þæfingsf... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thoroddur-hjaltalin-mikilvaegt-ad-hafa-trua-a-sjalfum-ser | Þóroddur Hjaltalín - Mikilvægt að hafa trúa á sjálfum sér
Akureyringar eiga ekki lið í efstu deild karla í knattspyrnu eiga bæjarbúar sína fulltrúa í efstu deild í gegnum öfluga dómara
sem koma hér úr bæ. Mennirnir sem um ræðir eru þeir Þóroddur Hjaltalín, Jóhannes Valgeirsson, Sverrir Pálmason og Áskell
Þór Gíslason. ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ungmennin-fimm-nadu-ekki-alla-leid-a-topp-fjallsins-shivling | Ungmennin fimm náðu ekki alla leið á topp fjallsins Shivling
Ungmennin fimm úr Súlum, björgunarsveitinni á Akureyri, sem ætluðu að klífa fjallið Shivling í Himalajafjallgarðinum á Indlandi,
þurftu að snúa við um helgina vegna veðurs og erfiðra aðstæðna, eftir að hafa komist langleiðina upp á tind fjallsins. Fjallið er ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/logreglan-a-akureyri-lagdi-hald-a-fikniefni | Lögreglan á Akureyri lagði hald á fíkniefni
Lögreglan á Akureyri handtók tæplega tvítugan mann sl. föstudagskvöld, sem reyndist vera með 2 grömm af amfetamíni í fórum
sínum. Í framhaldinu var gerð húsleit á heimili hans þar sem fundust 3 grömm af amfetamíni til viðbótar og 3 grömm af kannabisefni.
Auk þessa viðurkenndi... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/opinn-fundur-um-efnahagsmal-med-steingrimi-j | Opinn fundur um efnahagsmál með Steingrími J.
Tölum saman um efnahagsmál; er yfirskrift opins fundar með Steingrími J. Sigfússyni, fomanni Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, á morgun,
þriðjudaginn 21. október. Fundurinn verður haldinn á Hótel KEA á Akureyri og hefst kl. 20 .00.
Hver er staðan í efnahagsmálum? Hva... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eljagangur-og-halka-vida-a-nordurlandi | Éljagangur og hálka víða á Norðurlandi
Vetur konungur minnti hressilega á sig um helgina en þá fór að snjóa á Akureyri og víðar á Norðurlandi með tilheyrandi
hálku á vegum. Líkt og venjulega taka ökumenn við sér í kjölfarið, flykkjast á dekkjaverkstæði bæjarins og þar er
handagangur í öskjunni.
Samkvæmt upplýsingum Veg... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hafa-ahyggjur-af-theim-sem-hlaupa-fra-halfklarudum-byggingum | Hafa áhyggjur af þeim sem hlaupa frá hálfkláruðum byggingum
Töluvert hefur dregið úr uppbyggingu í Naustahverfi að undanförnu og nokkuð um að byggingaverktakar hafi fengið frest hvað varðar
ákveðna reiti í hverfinu. Hrafnhildur Karlsdóttir formaður hverfisnefndar Naustahverfis segir að þeir sem fengið hafi frest hafi h... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-rulladi-yfir-breidablik | Þór rúllaði yfir Breiðablik
Þórsarar unnu í kvöld léttan sigur á slöku liði Breiðabliks í Iceland Expressdeild karla í körfubolta. Leikur liðanna
fór fram í Íþróttahöllinni á Akureyri og fóru leikar 95-71.
Heimamenn voru ákveðnari í byrjun leiksins og áttu flest fráköst sem tilféllu undir körfunni. Staðan eftir fyrsta ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mun-meiri-medalthungi-dilka-i-ar-en-i-fyrra | Mun meiri meðalþungi dilka í ár en í fyrra
Það stefnir í mun meiri meðalþunga dilka úr haustslátrun Norðlenska á Húsavík en í fyrra. Þegar búið er
að slátra um 60 þúsund fjár, er meðalvigtin um 850 gr. meiri en meðalvigtin var í fyrra, að sögn Sigmundar Hreiðarssonar
vinnslustjóra á Húsavík.
Sigmundur segir að það sem ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/verk-eftir-mozart-flutt-a-tonleikum-i-glerarkirkju | Verk eftir Mozart flutt á tónleikum í Glerárkirkju
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands heldur tónleika í Glerárkirkju á Akureyri í dag, sunnudaginn 19. október kl. 16.00. Á
tónleikunum verða leikin verk eftir W.A.Mozart. Einleikari á horn er Ella Vala Ármannsdóttir og stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson, sem
verið hefur ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oruggur-sigur-akureyrar-a-vikingi-i-reykjavik | Öruggur sigur Akureyrar á Víkingi í Reykjavík
Akureyri Handboltafélag vann nú rétt í þessu frábæran útisigur á slöppu liði Víkinga í Reykjavík. Sigur
Akureyrar var fyllilega sanngjarnt enda hafði liðið yfirhöndina allan leikinn. Akureyri byrjaði leikinn frábærlega og komst í 5-2. Í þeirri
stöðu var skyttan sterka Árni ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leikfelag-akureyrar-frumsynir-musagildruna-i-kvold | Leikfélag Akureyrar frumsýnir Músagildruna í kvöld
Leikfélag Akureyrar frumsýnir í kvöld leikritið Músagildruna, eftir Agöthu Christie, í leikstjórn Þórs Tulinius. Agatha Christie
hefur verið kölluð drottning glæpasögunnar og er Músagildran hennar þekktasta verk.
Leikfélag Akureyrar er fyrst atvinnuleikhúsa á Íslandi t... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/enn-stefnir-i-met-i-sjukrafluginu-fra-akureyri | Enn stefnir í met í sjúkrafluginu frá Akureyri
Allt stefnir í að enn fjölgi flutningum í sjúkraflugi á vegum Slökkviliðs Akureyrar á milli ára. Í vikunni voru
sjúkraflug orðin 420 það sem af er þessu ári og fluttir hafa verið 450 sjúklingar.
Það stefnir því allt í að heildarfjöldi flutninga í sjúkraflugi verði yfir 500... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ahugaljosmyndaraklubbur-akureyrar-opnar-syningu | Áhugaljósmyndaraklúbbur Akureyrar opnar sýningu
Áhugaljósmyndaraklúbbur Akureyrar, ÁLKA, opnar ljósmyndasýningu laugardaginn 18. október með verkum félagsmanna á
veitingastaðnum Staðurinn að Strandgötu 2, Akureyri. Sýndar verða fjölbreyttar myndir eftir félagsmenn af ólíkum viðfangsefnum.
Markmið Álku er að ná saman og... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ymsar-athugasemdir-vardandi-hugmyndir-um-efnistoku-i-landi-hvamms | Ýmsar athugasemdir varðandi hugmyndir um efnistöku í landi Hvamms
Skipulagsnefnd Akureyrar gerir ýmsar athugasemdir við hugmyndir að breyttri landnotkun á jörðinni Hvammi í Eyjafjarðarsveit, þar sem þremur
hekturum lands er breytt úr landbúnaðarnotkun í efnistökusvæði, samkvæmt aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2005-202... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tvaer-sorptunnur-i-notkun-vid-hvert-heimili-naesta-vor | Tvær sorptunnur í notkun við hvert heimili næsta vor
Umhverfisnefnd Akureyrar samþykkti á fundi sínum í gær, að í stað þess að ein sorptunna verði tekin í notkun um
áramót og önnur í apríl þá verði málinu frestað og báðar tunnurnar verði teknar í notkun við hvert heimili
í apríl 2009 í ljósi efnahagsástandsins í landin... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kynningarfundur-fyrir-foreldra-og-forradamenn-nynema-i-ma | Kynningarfundur fyrir foreldra og forráðamenn nýnema í MA
Kynningarfundur fyrir foreldra og forráðamenn nýnema í Menntaskólanum á Akureyri verður haldinn á morgun, laugardaginn 18. október nk. og
hefst kl. 14.00 á Sal skólans á Hólum. Markmið fundarins er að kynna námið í skólanum og margs konar starf sem ætlað er að
s... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ha-leggur-sitt-af-morkum-i-efnahagsthrengingunum | HA leggur sitt af mörkum í efnahagsþrengingunum
Á fundi framkvæmdarstjórnar Háskólans á Akureyri í gær var ákveðið að innrita í háskólann um
áramót. Vegna núverandi aðstæðna í íslensku samfélagi var ákveðið að heimila innritun í fleiri námsleiðir
en undanfarin vormisseri. Innritað verður bæði í grunnám og framhaldsnám ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/faerri-almennar-gistinaetur-a-tjaldsvaedum-akureyrar | Færri almennar gistinætur á tjaldsvæðum Akureyrar
Almennum gistinóttum á tjaldsvæðum Akureyrarbæjar í Þórunnarstræti og að Hömrum fækkaði um þrjú
þúsund á milli ára, voru í ár 30.000 talsins en sumarið 2007 voru þær 33.000. Ef teknar eru með tölur frá Landsmóti
skáta í sumar eru gistinæturnar mun fleiri en þær voru í f... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ss-byggir-faer-lod-vid-undirhlid-undir-tvo-fjolbylishus | SS Byggir fær lóð við Undirhlíð undir tvö fjölbýlishús
Skipulagsnefnd Akureyrar samþykkti með fjórum atkvæðum á fundi sínum í vikunni, erindi frá Sigurði Sigurðarsyni fyrir hönd SS
Byggis ehf, þar sem hann sækir um lóð við Undirhlíð 1 - 3 fyrir byggingu tveggja fjölbýlishúsa.
Áður en framkvæmdir á lóð hefjast skulu ger... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ymislegt-forvitnilegt-i-bodi-hja-akureyrarbae-i-lydraedisviku | Ýmislegt forvitnilegt í boði hjá Akureyrarbæ í Lýðræðisviku
Nú stendur yfir Lýðræðisvika sveitarfélaga og af því tilefni er ýmislegt forvitnilegt í boði hjá Akureyrarbæ. Í
dag fimmtudag, frá kl. 15.30-16.00 verður opið hús með leiðsögn í Ráðhúsinu.
Starfsemi deilda bæjarins verður kynnt og m.a. boðið upp á sérstaka kyn... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarrad-greidir-fyrir-framkvaemdir-ad-homrum | Bæjarráð greiðir fyrir framkvæmdir að Hömrum
Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi sínum í morgun að greiða fyrirfram 3 milljónir króna af framkvæmdafé ársins
2009 vegna framkvæmda að Hömrum í sumar. Fyrir vikið verða ekki neinar framkvæmdir á svæðinu á næsta ári á kostnað
bæjarins.
Áður hafði framkvæmdaráð hafnað erind... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framsyn-stettarfelag-hvetur-til-samstodu-medal-thjodarinnar | Framsýn-stéttarfélag hvetur til samstöðu meðal þjóðarinnar
Framsýn-stéttarfélag hvetur til samstöðu meðal þjóðarinnar um að takast á við þann mikla efnahagsvanda sem blasir við
almenningi á Íslandi. Hrun efnahagslífsins mun koma illa við marga, ekki síst verkafólk, ellilífeyrisþega og öryrkja.
Framsýn hefur sérstakar á... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/moniak-verdur-ekki-med-thor-i-vetur | Moniak verður ekki með Þór í vetur
Roman Moniak sem gekk til liðs við Þór fyrr í sumar mun ekki leika meira með körfuboltaliði félagsins. Vegna þess erfiða
efnahagsástands sem skapast hefur í landinu var ljóst að erfitt yrði fyrir Þórsara að halda honum enda liðið að draga úr kostnaði
líkt og flest önnur lið landsins.
... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/logreglan-a-akureyri-lagdi-hald-a-fikniefni-vid-husleit | Lögreglan á Akureyri lagði hald á fíkniefni við húsleit
Lögreglan á Akureyri framkvæmdi húsleit í íbúð á Akureyri í gærkvöld og lagði hald á um 23 grömm af
kannabisefnum, 10 grömm af amfetamíni, 5 grömm af kókaíni og á annað hundrað steratöflur.
Tveir menn á þrítugsaldri voru handteknir í tengslum við málið og viðurken... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/viljayfirlysing-um-byggingu-gagnavers-i-dalvikurbyggd-undirritud | Viljayfirlýsing um byggingu gagnavers í Dalvíkurbyggð undirrituð
Dalvíkurbyggð hefur ritað undir viljayfirlýsingu við Greenstone ehf. um byggingu allt að 50.000 fermetra gagnavers á lóð sveitarfélagsins.
Viljayfirlýsingin stendur til þess að Dalvíkurbyggð mun leggja til lóð undir gagnaver og Greenstone ehf mun sjá um k... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tillaga-ad-deiliskipulagi-ka-svaedisins-lundarskola-og-lundarsels-kynnt | Tillaga að deiliskipulagi KA svæðisins, Lundarskóla og Lundarsels kynnt
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar ákvað í síðasta mánuði að auglýsa tillögu á deiliskipulagi KA svæðisins,
Lundarskóla og Lundarsels. Í framhaldi af því boðar skipulagsdeild fyrir hönd Akureyrarkaupstaðar til opins íbúafundar miðvikudaginn 15.
októbe... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/innganga-i-esb-er-eitt-brynasta-hagsmunamal-thjodarinnar | Innganga í ESB er eitt brýnasta hagsmunamál þjóðarinnar.
Jafnaðarmenn á Akureyri lýsa yfir fullum stuðningi við þau sjónarmið sem formaður flokksins Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir hefur nýverið sett fram um Evrópusambandið. Innganga í ESB er eitt brýnasta hagsmunamál þjóðarinnar.
Með sama hætti og hin íslenska landsbyggð... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hardur-vetur-framundan | Harður vetur framundan?
Veturinn framundan kann að verða harður, ef marka má pistil Hlinar Bolladóttur á Landpóstinum, fréttavef fjölmiðlanema við
Háskólann á Akureyri. Þar segir Hlín m.a. frá miklum músagangi í kringum heimili sitt á Svalbarðsströnd og
viðbrögðum heimiliskattarins við þessum tíðindum. Myndskreyttan pi... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aaetlad-ad-byggja-hreinsistod-i-sandgerdisbot | Áætlað að byggja hreinsistöð í Sandgerðisbót
Áætlað er að byggja hreinsistöð fyrir fráveitu í Sandgerðisbót á Akureyri. Hún, ásamt útrás þar
og dælustöð í Krossanesi, eru lokahnykkurinn í umfangsmiklum fráveituframkvæmdum á vegum Akureyrarbæjar sem staðið hafi yfir í
nær tvo áratugi.
Hafist var handa við fráveituframkv... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/uppsetningu-adsl-og-sjonvarpi-simans-lokid-i-reykarhverfi | Uppsetningu ADSL og Sjónvarpi Símans lokið í Reykárhverfi
Samkvæmt fréttum frá Símanum er nú loks séð fyrir endann á uppsetningu ADSL og Sjónvarpi Símans í Reykárhverfi
í Eyjafjarðarsveit. Þeir notendur sem eru innan 6 km línuleiðar frá stöð, geta nýtt fulla þjónustu kerfisins en hún takmarkast
við lengri leiðir.
Í pró... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nemendur-i-sjavarutvegsskola-sth-i-heimsokn | Nemendur í Sjávarútvegsskóla SÞ í heimsókn
Nemendur í Sjávarútvegsskóla Sameinuðu þjóðanna (United Nations University - Fisheries Training Programme in Iceland) komu í 10 daga
heimsókn í Háskólann á Akureyri í dag, mánudag.
Heimsóknin er hluti af námsefni skólans þar sem sjávarútvegsfyrirtæki á Norðurlandi verða heimsó... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ahersla-a-umferdaroryggi-i-lunda-og-gerdahverfi | Áhersla á umferðaröryggi í Lunda- og Gerðahverfi
"Við munum leggja áherslu á umferðaröryggi í hverfinu," segir Bryndís Elfa Valdemarsdóttir sem sæti á í hverfisnefnd Lunda- og
Gerðahverfis en aðalfundur nefndarinnar var haldinn á dögunum. Bryndís segir að áhersla verði á ferðaöryggi, "og við ætlum að
vekja athygli íbúa... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vilja-tvaer-akgreinar-a-glerargotu-allt-ut-ad-tryggvabraut | Vilja tvær akgreinar á Glerárgötu allt út að Tryggvabraut
Svifryksmengun, einkum við Hjalteyrargötu og eins Glerárgötu angrar íbúa Oddeyrar og vöktu þeir máls á menguninni á aðalfundi
hverfisnefndar Oddeyrar sem haldin var nýverið. Á fundinum flutti Hólmkell Hreinsson áhugavert erindi um sældarbæinn Akureyri (slow town... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/okumadur-fluttur-a-slysadeild-fsa-eftir-hardan-arekstur | Ökumaður fluttur á slysadeild FSA eftir harðan árekstur
Ökumaður var fluttur á slysadeild FSA til aðhlynningar eftir harðan árekstur tveggja fólksbifreiða á gatnamótum Núpasíðu og
Bugðusíðu á Akureyri fyrr í dag. Ökumaðurinn var einn í bílnum en ökumaður og farþegi í hinum bílnum sluppu án
meiðsla.
Samkvæmt upplýsingum... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kirkjunnar-menn-bua-sig-undir-ad-veita-folki-adstod | Kirkjunnar menn búa sig undir að veita fólki aðstoð
Svavar Alfreð Jónsson sóknarprestur í Akureyrarkirkju segir að þar á bæ búi menn sig nú undir að mæta þeim
áföllum sem þjóðin verði fyrir vegna tíðinda liðinna daga í kjölfar bágs efnahagsástands. "Við finnum fyrir
miklu óöryggi og kvíða meðal okkar sóknarbarna en óvi... |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.