Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.akureyri.is/is/frettir/fraedslurad-afhendir-vidurkenningar-1
Fræðsluráð afhendir viðurkenningar Fræðsluráð Akureyrarbæjar boðaði til samverustundar í Hofi í gær, mánudaginn 27. maí, þar sem nemendum og starfsfólki leik- og grunnskóla Akureyrarbæjar voru veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í námi og starfi, skólaárið 2018-2019. Óskað var eftir tilnefningum frá skó...
https://www.akureyri.is/is/frettir/naustahverfi-1-afangi-asatun-spennistod-tillaga-ad-deiliskipulagsbreytingu
Naustahverfi 1. áfangi, Ásatún – spennistöð – Tillaga að deiliskipulagsbreytingu Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu. Skipulagssvæðið afmarkast af Ásatúni í suðri, Miðhúsabraut í norðri og gögnustíg í austri.. Tillagan geri...
https://www.akureyri.is/is/frettir/breyting-a-svaedisskipulagi-eyjafjardar-2012-2024-flutningslinur-raforku
Breyting á Svæðisskipulagi Eyjafjarðar 2012-2024 - Flutningslínur raforku Kynningarfundur í Hlíðarbæ 6. júní 2019. Drög af skipulagstillögu og umhverfisskýrsla vegna breytinga á Svæðisskipulagi Eyjafjarðar liggja nú frammi til kynningar, m.a. á vef Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar og er hægt að skoða tillögur hér. Til ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kynning-a-cittaslow-i-hrisey
Kynning á Cittaslow í Hrísey Í gær var haldinn fundur með íbúum Hríseyjar þar sem hugmyndafræði Cittaslow-hreyfingarinnar var kynnt en Djúpavogshreppur hefur verið aðili að hreyfingunni frá 2013. Verkefnastjórn Brothættra byggða og hverfisráð Hríseyjar boðuðu til fundarins. Á fundinn mættu 34 íbúar og hlýddu á Gauta Jó...
https://www.akureyri.is/is/frettir/afmaelishatid-lifeyrissjodanna
Afmælishátíð lífeyrissjóðanna Kæru Akureyringar, góðir gestir. Undir lok 19. aldar voru mikil harðindaár á Norðurlandi og fólk flýði unnvörpum til vesturheims þar sem það hugðist búa sér betri framtíð, fjarri hinu „volaða landi" eins og séra Matthías kallaði landið okkar í kvæði frá árinu 1888. Þá hafði fólk enga afkom...
https://www.akureyri.is/is/frettir/gildagur-a-laugardaginn-1
Gildagur á laugardaginn Fimmti Gildagur ársins í Listagilinu er laugardaginn 1. júní og verður myndlistarsýningin Talaðu við mig!/Runā ar mani!/Talk to Me! opnuð í Listasafninu á Akureyri. Þar verða sýnd verk nítján lettneskra listamanna. Einnig verður opnuð ný sýning í Rösk rými og þar verður örsmiðja fyrir börn í boð...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fundur-i-baejarstjorn-thridjudaginn-4-juni
Fundur í bæjarstjórn þriðjudaginn 4. júní Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 4. júní. Á dagskránni verður meðal annars starfsáætlun og stefnuumræða velferðarráðs og umræður um fjölda og staðsetningu bensínstöðva í bæjarlandinu. Sjá dagskrá fundarins í heild sinni. Fundurinn verður hal...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sjomannadagshelgin-a-akureyri-3
Sjómannadagshelgin á Akureyri Á morgun, laugardaginn 1. júní, verður efnt til fjölskylduskemmtunar á Hömrum frá kl. 14-16 í tilefni sjómannadagsins sem er á sunnudag. Svæðið verður opnað kl. 14 með hoppuköstulum, rafmagnsbílum og bátum á tjörnunum en kl. 15 hefst skemmtidagskrá á þar sem Lína langsokkur, töframaður, tr...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skyrsla-baejarstjora-2342019-462019
Skýrsla bæjarstjóra 23/4/2019-4/6/2019 Í lok hvers bæjarstjórnarfundar fer bæjarstjóri yfir helstu verkefni hverju sinni. Efni skýrslunnar getur tekið breytingum í flutningi. Flutt á fundi bæjarstjórnar 4. júní 2019. 23. apríl: Átti fund með Svavari Pálssyni sýslumanni á norðurlandi eystra. 29. apríl: Átti góðan fund m...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samthykkt-skipulagstillaga-akstursithrotta-og-skotsvaedid-a-glerardal
Samþykkt skipulagstillaga - Akstursíþrótta- og skotsvæðið á Glerárdal Breyting á deiliskipulagi akstursíþrótta- og skotsvæðisins á Glerárdal. Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 19. febrúar 2019 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir akstursíþrótta- og skotsvæðið á Glérardal. Í breytingunni felst að lega göngust...
https://www.akureyri.is/is/frettir/heitir-akureyrarbaer
Akureyrarkaupstaður verði Akureyrarbær Á fundi bæjarstjórnar Akureyrar í gær, þriðjudaginn 4. júní, var samþykkt með 11 samhljóða atkvæðum að breyta heiti sveitarfélagsins úr Akureyrarkaupstað í Akureyrarbæ. Samþykktin er með fyrirvara um jákvæða umsögn örnefnanefndar og staðfestingu samgöngu- og sveitarstjórnarráðuney...
https://www.akureyri.is/is/frettir/solstoduhatidin-i-grimsey
Sólstöðuhátíðin í Grímsey Undirbúningur stendur nú sem hæst fyrir Sólstöðuhátíðina sem haldin verður í Grímsey um þarnæstu helgi, 20.-23. júní. Þessi helgi í kringum sumarsólstöður er kjörin til að heimsækja Grímsey og njóta alls þess besta sem þessi náttúruperla hefur að bjóða. Um helgina verður boðið upp á siglingu í...
https://www.akureyri.is/is/frettir/la-faer-sjo-grimu-tilnefningar
LA hlaut sjö Grímu-tilnefningar Menningarfélag Akureyrar hlaut sjö tilnefningar til Grímunnar, íslensku sviðslistaverðlaunanna, en tilkynnt var um þær fyrr í vikunni. Söngleikurinn Kabarett, í uppfærslu Leikfélags Akureyrar, hlýtur fimm tilnefningar. Auður Ösp Guðmundsdóttir fær tvær, fyrir búninga ársins og leikmynd á...
https://www.akureyri.is/is/frettir/uppbyggingarsamningur-akureyrarbaejar-og-ba
Uppbyggingarsamningur Akureyrarbæjar og BA Í dag skrifuðu Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri og Einar Gunnlaugsson formaður Bílaklúbbs Akureyrar (BA) undir uppbyggingarsamning milli Akureyrarbæjar og BA til næstu 4ra ára. Með samningnum taka Akureyrarbær og BA höndum saman um að halda áfram uppbyggingu á félagssvæði BA...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nordurstrandarleid-formlega-opnud
Norðurstrandarleið formlega opnuð Norðurstrandarleið, eða Arctic Coast Way á ensku, var í dag formlega opnuð á Hvammstanga og Bakkafirði. Leiðin hefur verið í þróun í meira en þrjú ár og því afar ánægjulegt að þessum áfanga hafi verið náð í dag. Sem kunnugt er hefur leiðin þegar vakið mikla athygli erlendis þrátt fyrir...
https://www.akureyri.is/is/frettir/adur-en-eg-dey
Áður en ég dey Fimmtudaginn 13. júní kl. 17 verður afhjúpaður svokallaður "Áður en ég dey veggur" á Amtsbókasafninu á Akureyri. Um er að ræða fallegan vettvang þar sem fólki gefst færi á að horfa yfir farinn veg, líta til framtíðar og deila framtíðardraumum, óskum og löngunum í opinberu rými. Veggurinn er áminning um a...
https://www.akureyri.is/is/frettir/enginn-titill-84
Virðum næði og öryggi annarra Fulltrúar frá Aflinu, Akureyrarstofu, Bílaklúbbi Akureyrar, umhverfismiðstöð Akureyrarbæjar, lögreglu og tjaldsvæðunum á Hömrum og Hrafnagili funduðu í síðustu viku um Bíladaga 2019 sem hefjast á morgun, föstudaginn 14. júní, og lýkur formlega með bílasýningu á þjóðhátíðardaginn 17. júní. ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fundur-i-baejarstjorn-18-juni
Fundur í bæjarstjórn 18. júní Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 18. júní. Á dagskránni er meðal annars: kosning forseta og skrifara bæjarstjórnar til eins árs, kosning bæjarráðs til eins árs, aðalskipulag vegna lóðar við Glerárskóla, umsókn um stækkun lóðar við Rangárvelli 4 og kerfi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samthykktar-skipulagstillogur-kjarnaskogur
Samþykktar skipulagstillögur - Kjarnaskógur Eftirfarandi breytingar hafa tekið gildi í b-deild Stjórnartíðinda: Breyting á deiliskipulagi Kjarnaskógar. Skipulagssvið Akureyrarkaupstaðar hefur þann 13. mars 2019 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Kjarnaskóg. Breytingin felur í sér að skipulagssvæðið minnkar vegna st...
https://www.akureyri.is/is/frettir/minni-umferd-um-thingvallastraeti
Minni umferð um Þingvallastræti Mælingar á umferð um helstu götur og gatnamót á Akureyri sýna að umferðin um Þingvallastræti hefur smám saman minnkað eftir að nýjar og mikilvægar tengibrautir í bæinn voru opnaðar. Á meðfylgjandi línuriti sést hvernig dregið hefur úr umferðinni um Þingvallastræti fyrst þegar Borgarbraut...
https://www.akureyri.is/is/frettir/17-juni-a-akureyri-3
17. júní á Akureyri Þjóðhátíðardagurinn 17. júní skipar háan sess í hugum Akureyringa sem og allra landsmanna. Mikið er um dýrðir í bænum og hefst hátíðardagskrá klukkan 13 í Lystigarðinum. Þaðan er farið í skrúðgöngu niður í miðbæ þar sem boðið er upp á fjölskylduskemmtun um daginn og svo aftur um kvöldið og fram að m...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hatidaravarp
Hátíðarávarp Kæru Akureyringar, góðir gestir. Gleðilegan þjóðhátíðardag. Nú er 101 ár síðan baráttunni fyrir fullveldi Íslands lauk með fullnaðarsigri. Og fyrir réttum 75 árum, árið 1944, slitum við formlega sambandinu við konungsveldið Danmörku. Þá var lýðveldið Ísland stofnað, þjóðin gat kosið sér þjóðhöfðingja en þu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/oskad-eftir-abendingum
Óskað eftir ábendingum Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir ábendingum frá bæjarbúum fyrir góðan árangur í fegrun og hirðingu bæjarins. Óskað er eftir ábendingum í eftirfarandi flokka: Flokkur nýrri garða Flokkur eldri garða Flokkur raðhúsa/fjölbýlishúsa Flokkur fyrirtækja Flokkur stofnana Fyrirmynda...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyrarbaejar-kolefnishlutlaust-samfelag
Akureyrarbær - Kolefnishlutlaust samfélag Markmið Vistorku er að stuðla að framleiðslu umhverfisvæns eldsneytis með sjálfbærri nýtingu hráefnis sem fellur til á Eyjafjarðarsvæðinu. Eitt af markmiðum Akureyrarbæjar er kolefnishlutlaust samfélag og fjölgun vistvænna bíla. Vakin er athygli á heimasíðu Vistorku þar sem ýms...
https://www.akureyri.is/is/frettir/solstoduhatidin-og-baugurinn-2
Sólstöðuhátíðin og baugurinn Dagskrá Sólstöðuhátíðarinnar í Grímsey er mjög fjölbreytt í ár. Í þessari viku var heimskautsbaugstáknið "Hringur og kúla / Orbis et Globus" flutt á núverandi staðsetningu baugsins og á fimmtudag hefst síðan formleg dagskrá með fjölbreyttum viðburðum sem stendur fram á sunnudaginn 23. júní....
https://www.akureyri.is/is/frettir/til-hamingju-med-daginn-konur
Til hamingju með daginn, konur! Akureyrarbær óskar konum í sveitarfélaginu og um land allt til hamingju með kvennréttindadaginn 19. júní. Í dag eru 104 ár síðan konur, 40 ára og eldri, fengu almennan kosningarétt og kjörgengi á Íslandi. Á kvenréttindadaginn verður frú Elísabetar Jónsdóttur kvenréttindakonu og tónskálds...
https://www.akureyri.is/is/frettir/interface-erasmus-verkefni-leitt-af-byggdastofnun
INTERFACE Erasmus verkefni leitt af Byggðastofnun Ég er fædd og uppalin í litlu samfélagi. Í Stykkishólmi þar sem 1200 manns búa. Ég fluttist þangað aftur eftir nám með rómantískar hugmyndir um að flytjast aftur heim eftir nám. Ég var dálítið eins og geimvera, einhleyp, á framabraut og ekki alveg eins og hinir. Það vor...
https://www.akureyri.is/is/frettir/jonsmessuhatid-a-akureyri-3
Jónsmessuhátíð á Akureyri Jónsmessuhátíð á Akureyri hefst á laugardaginn, 22. júní, kl. 12 á hádegi og stendur viðstöðulaust í 24 klukkustundir. Margt forvitnilegt og jafnvel sérkennilega skemmtilegt er á dagskrá og víst að auðvelt verður að breyta vökunótt á sumarsólstöðum í upplífgandi gleði fyrir þá sem kunna að sla...
https://www.akureyri.is/is/frettir/arsskyrsla-akureyrarbaejar-komin-ut
Ársskýrsla Akureyrarbæjar Ársskýrsla Akureyrarbæjar fyrir árið 2018 er komin út. Lítil spurn hefur verið eftir að fá skýrsluna prentaða á liðnum árum og því verður hún ekki prentuð að þessu sinni frekar en síðustu þrjú árin. Það er hvort tveggja umhverfisvæn aðgerð og felur um leið í sér dálítinn sparnað fyrir sveitarf...
https://www.akureyri.is/is/frettir/rettindi-barna-i-stafraenum-heimi
Réttindi barna í stafrænum heimi Um þessar mundir hefur hópur ungmenna á Akureyri unnið að réttindaverkefni með verkefnastjóra barnvæns sveitarfélags í samvinnu við umboðsmann barna. Verkefnið snýr að réttindum barna í stafrænum heimi og er hluti af ENYA (European Network of Young Advisors) sem vinnur með evrópskum sam...
https://www.akureyri.is/is/frettir/pump-track-braut-vid-oddeyrarskola
Ný hjólabraut á skólalóð Oddeyrarskóla Akureyrarbær hefur keypt og sett upp stóra og glæsilega hjólabraut á skólalóð Oddeyrarskóla. Hjólabrautin er ætluð iðkendum á hlaupahjólum, reiðhjólum og hjólabrettum á öllum aldri. Einnig er frjálst að hlaupa í brautinni. Brautin er ekki ætluð rafknúnum tækjum. Hjólabrautin var k...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tomstundardagskra-i-skogarlundi-i-sumar
Tómstundadagskrá í Skógarlundi í sumar Hæfingarstöð fatlaðra í Skógarlundi verður lokað í fjórar vikur í sumar vegna sumarleyfa starfsmanna og því mun venjubundin dagskrá Hæfingarstöðvarinnar leggjast af. Boðið verður því upp á tómstundadagskrá, lifandi tónlist og kaffisopa alla virka daga frá kl. 13-16. Opið verður fr...
https://www.akureyri.is/is/frettir/giljaskoli-og-naustaskoli-fyrstu-rettindaskolarnir-a-akureyri
GILJASKÓLI OG NAUSTASKÓLI FYRSTU RÉTTINDASKÓLARNIR Á AKUREYRI Nú á vordögum hófst undirbúningur vegna innleiðingar Réttindaskóla UNICEF á Akureyri og fyrstu skólarnir sem taka þátt eru Giljaskóli og Naustaskóli og hefst sú vinna strax haustið 2019. Í ljósi þess að Akureyrarbær er á góðri leið með að verða fyrsta barnvæ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/timamotasamningur-um-oldrunarthjonustu-undirritadur-a-akureyri-1
Tímamótasamningur um öldrunarþjónustu undirritaður á Akureyri Öldrunarheimili Akureyrar (ÖA) hafa undirritað samning við Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) um rekstur og nýsköpunar- og þróunarverkefni í öldrunarþjónustu. María Heimisdóttir, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, og Halldór S. Guðmundsson, framkvæmdastjóri Öldru...
https://www.akureyri.is/is/frettir/launasedlar-vinnuskolans
Launaseðlar Vinnuskólans Hér gefur að líta myndbönd um hvernig eigi að lesa launaseðla Vinnuskólans. Launaseðill fyrir 14 og 15 ára – Vinnuskóli Akureyrar. Launaseðill fyrir 16 ára – Vinnuskóli Akureyrar
https://www.akureyri.is/is/frettir/heradsskjalasafnid-a-akureyri-50-ara-1
Héraðsskjalasafnið á Akureyri 50 ára Í dag, mánudaginn 1. júlí, verður afmælisveisla í Brekkugötu 17 í tilefni þess að Héraðsskjalasafnið á Akureyri er 50 ára. Flutt verða fróðleg og skemmtileg erindi og boðið upp á kaffi og köku. Dagskráin hefst kl. 16. Allir eru hjartanlega velkomnir. Nánari upplýsingar á heimasíðu H...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sumarnamskeid-fyrir-born-5-16-ara
Sumarnámskeið fyrir börn 5-16 ára Mikilvægt er að börnin okkar hafi eitthvað uppbyggilegt og skemmtilegt fyrir stafni á sumrin. Úrval námskeiða og sumarstarfs fyrir krakka á aldrinum 5-16 ára á Akureyri er einstaklega fjölbreytt og litríkt sumarið 2019. Á heimasíðu Rósenborgar er að finna góðan lista yfir alls konar ná...
https://www.akureyri.is/is/frettir/enginn-titill-85
Skemmtiferðaskip heimsótt Hverfisnefnd Oddeyrar og starfsmenn frá umhverfis- og mannvirkjasviði Akureyrarbæjar fóru í gær um borð í skemmtiferðaskipið Mein Schiff til að fræðast um mengunarvarnir þess og starfsemina um borð. Í áhöfn skipsins eru um 1.000 manns en farþegar eru um 2.200. Dimitrios Karampastelas umhverfis...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjolmennasta-n1-motid-fra-upphafi
Fjölmennasta N1 mótið frá upphafi Þrítugasta og þriðja N1 mótið í knattspyrnu hefst á Akureyri í dag, 3. júlí og stendur til 6. júlí. N1 mótið er einn stærsti og vinsælasti íþróttaviðburður ársins hérlendis. Rétt tæplega 2.000 ungir drengir leggja land undir fót og etja kappi í vinsælustu íþróttagrein landsins á móti s...
https://www.akureyri.is/is/frettir/safnaleidin-verdi-skyrari
Safnaleiðin verði skýrari Í gær var unnið að því að færa safngripi í eigu Iðnaðarsafnsins að gönguleiðinni sem liggur frá Skautahöllinni og suður að söfnunum tveimur við Krókeyri, Iðnaðarsafninu og Mótorhjólasafninu. Markmiðið er að marka betur safnaleiðina sem liggur frá söfnunum í Innbænum og suður eftir. Þetta er þv...
https://www.akureyri.is/is/frettir/einnota-tiska
Einnota tíska? Einnota tíska (fast fashion) er ofarlega í umræðunni um umhverfismál þessa dagana og skyldi engan undra. Mikil ofneysla er á fatnaði í heiminum. Hver Íslendingur kaupir þrisvar sinnum meira af vefnaðarvöru en meðaljarðarbúi eða um 17 kg árlega. Jafnframt sóum við miklu magni af vefnaðarvöru. Árið 2016 he...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sumaropnun-i-hlidarfjalli-1
Sumaropnun í Hlíðarfjalli Hlíðarfjall á Akureyri opnar stólalyftuna Fjarkann annað sumarið í röð fimmtudagskvöldið 11. júlí 2019. Fjallahjólabrautir Hlíðarjalls njóta mikilla vinsælda og margt fólk fer upp með lyftunni til að njóta frábærs útsýnis yfir fjörðinn og bæinn. Göngufólk getur líka tekið lyftuna á leið sinni ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hriseyjarhatidin
Hríseyjarhátíðin Hríseyjarhátíðin verður haldin um næstu helgi og er búist við góðri aðsókn enda dagskráin skemmtileg og veðurspáin góð. Boðið verður upp á óvissuferðir, ratleiki, pönnufótbolta, traktorsferðir, gömludansaball, varðeld og brekkusöng og kvöldvöku með Bjartmari Guðlaugssyni svo fátt eitt sé nefnt. Hríseyj...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kaffi-og-vofflur-i-huna-ii
Kaffi og vöfflur í Húna II Gamli eikarbáturinn Húni II verður við Torfunefsbryggju í júlí og eru gestir og gangandi hjartanlega velkomnir um borð frá kl. 10-15 alla virka daga. Sú áhöfn sem við þekkjum er nú í sumarleyfi en í þeirra stað taka á móti gestum fjögur hress ungmenni sem hafa á reiðum höndum fróðleiksmola um...
https://www.akureyri.is/is/frettir/enginn-titill-86
Gildagur á Listasumri Sjötti Gildagur ársins í Listagilinu er á morgun, laugardaginn 13. júlí, og þar sem Listasumar er í fullum gangi verður nóg um að vera. Í Listasafninu á Akureyri er fjöldi spennandi sýninga í boði og í tilefni dagsins verður enginn aðgangseyrir milli kl. 14-17. Opnuð verður ljósmyndasýningin Akure...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sumarlestur-ungmenna-2020
Sumarlestur ungmenna 2019 Í sumar bryddar Amtsbókasafnið upp á þeirri nýjung að standa fyrir sérstakri sumarlestraráskorun fyrir ungmenni á aldrinum 14-20 ára. Áskorunin er í 8 liðum og snýr ekki bara að bóklestri heldur alls konar læsi; hljóðbækur og bækur á erlendum málum teljast einnig með. Áskorunin stendur til 15....
https://www.akureyri.is/is/frettir/orkuskipti-og-baett-orkunyting-i-grimsey
Orkuskipti og bætt orkunýting í Grímsey Á fundi Byggðastofnunar og framkvæmdastjóra og formanna landshlutasamtaka sveitarfélaga á Laugarbakka í Miðfirði þann 3. júní sl. voru undirritaðir samningar um styrki til sex landshlutasamtaka vegna sjö verkefna. Styrkirnir eru veittir á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar f...
https://www.akureyri.is/is/frettir/midaldadagar-um-helgina-2
Miðaldadagar um helgina Hvernig væri að bregða sér til miðalda? Það er hægt á Gásum rétt utan við Akureyri þar sem Miðaldadagar á Gásum verða haldnir hátíðlegir helgina 20. og 21. júlí. Á hátíðinni færist árlega líf og fjör yfir verslunarstaðinn sem er endurskapaður á tilgátusvæði með tilheyrandi miðaldamannlífi. Gásir...
https://www.akureyri.is/is/frettir/viltu-vera-med-a-akureyrarvoku
Viltu vera með á Akureyrarvöku? Nú er unnið að undirbúningi Akureyrarvöku sem haldin verður 30.-31. ágúst nk. Akureyrarstofa auglýsir eftir skemmtilegum og skapandi atriðum eða uppákomum sem tengst gætu hátíðinni og sett á hana alls kyns litrík blæbrigði. Bæði fyrirtæki og einstaklingar taka þátt í viðburðum á Akureyra...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samthykktar-skipulagstillogur-7
Samþykktar skipulagstillögur Breyting á deiliskipulagi miðbæjarins – Gránufélagsgata 4. Skipulagsráð Akureyrarkaupstaðar hefur þann 10. apríl 2019 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Gránufélagsgötu 4. Breytingin felur í sér að gert er ráð fyrir auknu byggingarmagni og heimild til að láta svalir ná út fyrir bygginga...
https://www.akureyri.is/is/frettir/god-gjof-til-leikskola-baejarins
Góð gjöf til leikskóla bæjarins Bryndís Guðmundsdóttir talmeinafræðingur færði nýverið öllum leikskólum Akureyrarbæjar gjöf með þjálfunarefninu "Lærum og leikum með hljóðin" sem er til þess ætlað að bæta framburð barna, auka orðaforða og undirbúa þau fyrir lestur og læsi almennt. Bryndís hefur starfað í rúmlega 30 ár s...
https://www.akureyri.is/is/frettir/veruleg-tekjuaukning-hja-pbi
Veruleg tekjuaukning hjá PBI Akureyrarbær hefur rekið Plastiðjuna Bjarg Iðjulund (PBI) frá árinu 1996. Fjölskyldusvið bæjarins annast daglegan rekstur og í ársskýrslu Akureyrarbæjar fyrir árið 2018 kemur fram að verkefnastaðan hefur verið góð og tekjur aukist um rúm 26% frá árinu 2016. Heildartekjur PBI árið 2018 voru ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/lokanir-gatna-og-umferdarstjornun-vegna-hjolreidahatidar-greifans-25-og-28-juli-2019
Lokanir gatna og umferðarstjórnun vegna Hjólreiðahátíðar Greifans 25., 27. og 28. júlí 2019 Hjólreiðahátíð Greifans fer fram 24. - 28. júlí 2019. Hér er að finna upplýsingar um þær lokanir gatna og umferðarstjórnun sem keppnin hefur í för með sér. Fimmtudagurinn 25. júlí frá 20:00 til 23:30 - Hlíðarbraut og Hlíðarfjall...
https://www.akureyri.is/is/frettir/druslugangan-2019
Druslugangan 2019 Druslugangan á Akureyri þetta árið verður haldin laugardaginn 27. júlí klukkan 14. Gangan hefst við Myndlistaskólann á Akureyri. Gengið verður niður Listagilið, norður göngugötuna og endað á Ráðhústorgi þar sem nokkur erindi verða flutt. Fimmtudagskvöldið áður, 25. júlí klukkan 20, verður svokallað "P...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nytt-gervigras
Nýtt gervigras Í byrjun vikunnar var lokið við að endurnýja gervigras á tveimur sparkvöllum bæjarins, við Lundarskóla og Giljaskóla, auk blakvallarleiksvæðis við Lundarskóla. Endurnýjunin er hluti af viðhaldi sparkvalla á Akureyri og hefur nú verið skipt um gervigras á fjórum völlum af sjö. Gervigras annarra sparkvalla...
https://www.akureyri.is/is/frettir/framkvaemdir-i-hlidarfjalli
Framkvæmdir í Hlíðarfjalli Sumaropnun í Hlíðarfjalli hefur verið tekið opnum örmum af útivistarfólki enda er svæðið frábært fyrir fólk sem vill njóta útsýnisins og einnig fyrir göngugarpa og fólk á fjallahjólum. Hægt er að nýta sér Fjarkann til að hraða för sinni upp fjallið frá fimmtudögum til sunnudaga. Í þessu samba...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samthykktar-skipulagstillogur-8
Samþykktar skipulagstillögur Breyting á deiliskipulagi Mýrarhverfis – Þingvallastræti 40. Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 16. október 2018 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Þingvallastræti 40. Breytingin felur í sér stækkun á byggingarreit fyrir viðbyggingu um 4,74 metra til suðurs og er heildarstærð st...
https://www.akureyri.is/is/frettir/potterdagurinn-a-amtsbokasafninu
Potterdagurinn á Amtsbókasafninu Hinn árlegi Potterdagur verður haldinn á Amtsbókasafninu miðvikudaginn 31. júlí frá kl. 15-18. Mjög góð aðsókn hefur verið að þessum viðburði og krakkar sem þekkja sögurnar af Harry Potter bíða í ofvæni. Í ár verður Harry 39 ára gamall og í tilefni þess verður heilmikið fjör! Töfrasprot...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ein-med-ollu-a-akureyri-1
Ein með öllu á Akureyri Fjölskylduhátíðin Ein með öllu verður haldin á Akureyri um verslunarmannahelgina. Frá fimmtudegi til sunnudags er boðið upp á þéttskipaða dagskrá. Sparitónleikar verða á Leikhúsflötinni á sunnudagskvöld og þar koma fram Jónas Sig, Friðrik Dór, Herra Hnetusmjör, KA-AKÁ, Stefán Elí, Flammeus, Anto...
https://www.akureyri.is/is/frettir/854-sumarstarfsmenn
Fjöldi sumarstarfsfólks 2019 Á ári hverju ræður Akureyrarbær fjölmargt sumarstarfsfólk til starfa til að viðhalda og sinna þeirri þjónustu sem bærinn veitir. Innan allra sviða er ráðið sumarstarfsfólk en meginþorri þess vinnur að fegrun bæjarins, umönnun aldraðra og við búsetuþjónustu. Samanlagt eru ríflega 850 manns í...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samthykktar-skipulagstillogur-9
Samþykktar skipulagstillögur Breyting á deiliskipulagi - Geirþrúðarhagi 6. Skipulagsráð Akureyrarkaupstaðar hefur þann 15. maí 2019 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Geirþrúðarhaga 6. Breytingin felur í sér að bílastæði stækka um 1,5 m til vesturs og að bil milli bílastæðalóða verði 3 m í stað 8 m. Stækkar því lóð...
https://www.akureyri.is/is/frettir/gotulokanir-um-verslo
Götulokanir um versló Sem gefur að skilja þá verður einhver röskun á umferð á miðbæjarsvæðinu um verslunarmannahelgina þegar fjölskylduhátíðin Ein með öllu fer fram ásamt Sumarleikunum. Á kortinu hér að neðan má sjá helstu götulokanir í miðbænum og við Samkomuhúsið. Smellið á myndina til að sjá stærri útgáfu. Og hér ge...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ny-utsynisskifa-a-ytri-sulu-1
Ný útsýnisskífa á Ytri-Súlu Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, vígði á mánudag nýja útsýnisskífu á Ytri-Súlu, ofan Akureyrar. Ferðafélag Akureyrar stóð fyrir uppsetningu skífunnar og er markmiðið að fræða göngugarpa um nágrennið. Útsýnisskífan bendir á 47 fjöll og kennileiti sem sjást af tindinum. Þar eru ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/aukid-oryggi-med-nyjum-gangbrautarljosum
Aukið öryggi með nýjum gangbrautarljósum Unnið er að því hörðum höndum að ljúka endurnýjun gangbrautarljósanna við gatnamót Hörgárbrautar og Stórholts. Með nýjum ljósum er vonast til að öryggi vegfarenda aukist enn frekar. Fyrir ári síðan var skipt um staura, kapla og lýsing bætt. Nú er hins vegar verið að skipta um sj...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nyir-samningar-vid-golfklubb-akureyrar
Nýir samningar við Golfklúbb Akureyrar Á dögunum var skrifað undir nýja samninga milli Akureyrarbæjar og Golfklúbbs Akureyrar (GA) sem gilda til ársins 2023. Þetta eru annars vegar rekstrarsamningur og hins vegar þjónustusamningur. Í rekstrarsamningnum er kveðið á um að GA reki og sjái um golfvöllinn að Jaðri, auk þess...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kertafleyting-vid-minjasafnstjornina-i-kvold
Kertafleyting við Leirutjörn í kvöld Árleg kertafleyting verður við Leirutjörnina á Akureyri, austan við Minjasafnið, í kvöld, föstudag, til að minnast kjarnorkusprengjanna sem var varpað á Hiroshima og Nagasaki 1945. Kertum hefur verið fleytt á Íslandi, bæði á Akureyri og í Reykjavík, um þetta leyti í mörg ár til minn...
https://www.akureyri.is/is/frettir/umsoknarfrestur-i-prentadan-baekling-akureyrarvoku-ad-renna-ut
Umsóknarfrestur að renna út! Afmælishátíð bæjarins, Akureyrarvaka, verður haldin helgina 30.-31. ágúst nk. Bæjarbúum er boðið að taka þátt í henni með einum eða öðrum hætti og auglýsir Akureyrarstofa eftir skemmtilegum og skapandi atriðum eða uppákomum sem tengst gætu hátíðinni og sett á hana alls kyns litrík blæbrigði...
https://www.akureyri.is/is/frettir/arangursrikir-fundir-med-rikisvaldinu
Gagnlegir fundir með ríkisvaldinu Bæjarstjórn Akureyrar átti í gær fundi með ráðherrum annars vegar og þingmönnum kjördæmisins og Markaðsstofu Norðurlands hins vegar. Ríkisstjórnin varði bróðurparti gærdagsins í fundahöld í Mývatnssveit, bæði ein og sér og svo með sveitarstjórnarfólki á Norðurlandi. „Við fengum þarna t...
https://www.akureyri.is/is/frettir/umferdarljos-afram-endurnyjud
Umferðarljós áfram endurnýjuð Hafin er vinna við að endurnýja umferðarljósin við gatnamót Þórunnarstrætis og Hrafnagilsstrætis. Skipt verður um öll ljós, bæði fyrir akandi og gangandi vegfarendur, og settar LED perur. Þá verður skipt um hnappa að hluta og stjórntölva endurnýjuð. Á meðan vinnunni stendur getur slokknað ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tillaga-ad-breytingu-a-adalskipulagi-akureyrar-2018-2030-krossaneshagi-b-afangi
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 Krossaneshagi B-áfangi Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur samþykkt að auglýsa breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030, skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í því að hluti núverandi athafnasvæðis, merkt AT5, sem liggur sunnan ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/lod-vid-glerarskola-skolasvaedid-vid-hofdahlid-hlidarhverfi-og-glerarvirkjun-breyting-a-adalskipulagi-og-tillogur-ad-deiliskipulagi
Lóð við Glerárskóla, skólasvæðið við Höfðahlíð, Hlíðarhverfi og Glerárvirkjun – breyting á aðalskipulagi og tillögur að deiliskipulagi Eftirtaldar skipulagstillögur eru auglýstar samhliða: Lóð við Glerárskóla - breyting á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 18. júní 2019 samþykk...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sunnutrod-verdur-budartrod
Sunnutröð verður Búðartröð Skipulagsráð samþykkti í morgun að götuheiti Sunnutraðar á Akureyri verði breytt í Búðartröð. Ástæðan er fyrst og fremst sú að önnur gata, í Hrafnagilshverfi í Eyjafjarðarsveit, ber sama nafn. Skipulagsráði barst erindi frá íbúa sem lagði til að nafni götunnar yrði breytt. Sunnutröð í Hrafnag...
https://www.akureyri.is/is/frettir/unnid-gegn-rakaskemmdum-i-brekkuskola
Unnið gegn rakaskemmdum í Brekkuskóla Úttekt vegna hugsanlegra rakaskemmda í Brekkuskóla, sem gerð var í vor, sýnir skemmdir á afmörkuðum svæðum. Að mati sérfræðinga Mannvits eiga skemmdirnar ekki að hafa áhrif á kennslu eða annað starf innan skólans, enda hafi verið gripið til fullnægjandi ráðstafana. Úrbætur er þegar...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skolaleikur-i-fullum-gangi
Skólaleikur í fullum gangi Þrátt fyrir að skólasetning sé ekki fyrr en í næstu viku er mikið líf og fjör í grunnskólum bæjarins. Á þriðja hundrað börn taka nú þátt í skólaleik. Skólaleikur er samstarfsverkefni leik- og grunnskóla og er í raun tveggja vikna aðlögun fyrir börn sem eru að byrja í fyrsta bekk. Markmiðið er...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vinna-vid-flugstefnu-veldur-vonbrigdum
Vinna við flugstefnu veldur vonbrigðum Bæjarráð Akureyrar gagnrýnir harðlega að enginn utan höfuðborgarsvæðisins sitji í starfshópi um stefnu stjórnvalda í flugmálum. Í þessari vinnu eru samfélags- og byggðasjónarmið ekki höfð að leiðarljósi, að mati bæjarráðs. Í september í fyrra skipaði samgöngu- og sveitarstjórnarrá...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hriseyjargata-lokud-vid-granufelagsgotu
Hríseyjargata lokuð við Gránufélagsgötu Í dag, mánudaginn 19. ágúst, verður Hríseyjargata lokuð við Gránufélagsgötu vegna framkvæmda á svæðinu. Áætluð lokun er frá kl. 10 og eitthvað fram eftir degi. Á þriðjudag og miðvikudag viku má búast við lokun Eiðsvallagötu við Ránargötu og við Hríseyjargötu. Mynd: Auðunn Níelsso...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sifellt-fleiri-nota-fristundastyrkinn
Sífellt fleiri nota frístundastyrkinn Það sem af er ári hefur frístundastyrk verið ráðstafað fyrir um helming barna á aldrinum 6-17 ára á Akureyri, eða sem nemur samtals 56 milljónum króna. Foreldrar eru eindregið hvattir til að nýta styrkinn fyrir börn sín. Skólar eru að hefjast að nýju eftir sumarfrí og er verið að l...
https://www.akureyri.is/is/frettir/midbaerinn-skipagata-12-tillaga-ad-deiliskipulagsbreytingu
Miðbærinn, Skipagata 12 – Tillaga að deiliskipulagsbreytingu Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að nýtingarhlutfall er hækkað, byggingarreitur er stækkaður til vesturs og norðurs og á 2. og 3...
https://www.akureyri.is/is/frettir/rangarvellir-tillaga-ad-deiliskipulagsbreytingu-2
Rangárvellir – Tillaga að deiliskipulagsbreytingu Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu. Skipulagssvæðið afmarkast af skógræktar- og landgræðslusvæði og óbyggðu svæði til norðurs, austurs og suðurs, til vesturs og suðurs af l...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skolastarf-ad-hefjast-eftir-sumarfri
Skólastarf að hefjast eftir sumarfrí Skólastarf er að hefjast að nýju eftir sumarfrí. Ríflega 2.700 börn verða við leik og störf í grunnskólum Akureyrar í vetur og 950 í leikskólum, sem er svipaður fjöldi og undanfarin ár. Leikskólar bæjarins hafa tekið til starfa að nýju eftir sumarfrí og verða grunnskólar settir í fy...
https://www.akureyri.is/is/frettir/jofnunargreidslur-teknar-upp
Auknar niðurgreiðslur vegna þjónustu dagforeldra Jöfnunargreiðslur verða teknar upp hjá Akureyrarbæ frá og með 1. október. Foreldrar 16 mánaða barna og eldri sem nýta þjónustu dagforeldra, og hafa ekki fengið boð um leikskóladvöl, eiga þá rétt á aukinni niðurgreiðslu, að upphæð 10 þúsund krónum. Fræðsluráð samþykkti þe...
https://www.akureyri.is/is/frettir/blomstrandi-idju-og-felagsstarf
Blómstrandi iðju- og félagsstarf Iðju- og félagsstarf er mikilvægur þáttur í starfi Öldrunarheimila Akureyrar. Starfið er að fara á fullt eftir sumarið og er dagskráin afar fjölbreytt. Tilgangurinn er fyrst og fremst að viðhalda getu og auka færni íbúa í Hlíð og Lögmannshlíð. Miklu máli skiptir að hafa eitthvað fyrir s...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samthykktar-skipulagstillogur-10
Samþykktar skipulagstillögur Breyting á deiliskipulagi Hagahverfis – húsreitir 4 og 5. Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar samþykkti þann 29. maí 2019 deiliskipulagsbreytingu fyrir Naustahverfi, 3. áfanga – Hagahverfi. Í breytingunni felst að lóðir eru sameinaðar í samræmi við fyrirliggjandi erindi, fjölgað er bílastæðum, ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/heimsokn-fra-umhverfisdeild-seul-borgar
Heimsókn frá umhverfisdeild Seúl borgar Í liðinni viku tóku Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri, Andri Teitsson formaður stjórnar umhverfis- og mannvirkjasviðs og Sigurður Ingi Friðleifsson framkvæmdastjóri Orkuseturs á móti hópi fólks frá umhverfisdeild Seúl borgar í Suður-Kóreu og voru þau hingað komin til að kynna sé...
https://www.akureyri.is/is/frettir/aukin-ahersla-a-personuvernd
Reynsla að komast á persónuverndarlög Þann 15. júlí 2018 tóku gildi ný lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018. Sama dag var innleidd persónuverndarstefna hjá Akureyrarbæ. Nú, rúmu ári síðar, er komin nokkur reynsla af breytingunum sem fylgdu. Í lögunum er meðal annars staðfestur sá grundvallarrétt...
https://www.akureyri.is/is/frettir/heimsokn-fra-pudong-borgarhluta-i-sjanghae
Heimsókn frá Pudong borgarhluta í Sjanghæ Sendinefnd frá Pudong, sem er borgarhluti innan Sjanghæborgar, heimsótti Akureyri í gær. Hópurinn var skipaður m.a. formanni og varaformanni fastanefndar Pudongsvæðisins og stjórnendum úr tækni- og tölvugeira þessa borgarhluta. Hópurinn byrjaði á því að heimsækja Atvinnuþróunar...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyrarvaka-um-helgina-1
Akureyrarvaka um helgina Akureyrarbær á afmæli 29. ágúst og helgina næst afmælisdeginum er bæjarhátíðin Akueyrarvaka haldin. Hátíðin fer því fram um helgina, föstudaginn 30. og laugardaginn 31. ágúst. Boðið er upp á þéttskipaða dagskrá frá föstudagsmorgni og fram undir miðnætti á laugardagskvöld þegar stórtónleikar ver...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyrarbaer-faer-nytt-nafn-i-afmaelisgjof
Akureyrarbær fær nýtt nafn í afmælisgjöf Akureyrarbær á afmæli í dag, 29. ágúst, og eru liðin 157 ár frá því bærinn hlaut kaupstaðarréttindi. Það er vel við hæfi að breyting á heiti sveitarfélagsins, úr Akureyrarkaupstað í Akureyrarbæ, hafi verið staðfest opinberlega í dag. Bæjarstjórn samþykkti í byrjun júní að breyta...
https://www.akureyri.is/is/frettir/gotulokanir-vegna-akureyrarvoku
Götulokanir vegna Akureyrarvöku Mikið verður um að vera á miðbæjarsvæðinu á föstudag og laugardag vegna Akureyrarvöku og því óhjákvæmilegt að loka þurfi tilteknum götum um tíma. Frá klukkan 16 föstudaginn 30. ágúst verður Listagilið lokað vegna uppsetningar sviðsvagns neðst í gilinu og lokast þar með einnig göngugatan....
https://www.akureyri.is/is/frettir/fundur-i-baejarstjorn-3-september
Fundur í bæjarstjórn 3. september Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 3. september. Á dagskránni er meðal annars: Efnistaka við Glerárós, stefna velferðarráðs um velferðartækni, starfsáætlun og stefnuumræða bæjarráðs og brothættar byggðir. Sjá dagskrá fundarins í heild sinni. Fundurinn...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vel-heppnud-akureyrarvaka-2
Vel heppnuð Akureyrarvaka Akureyrarvöku á 157. ára afmæli Akureyrarbæjar lauk á miðnætti laugardagskvöldið 31. ágúst með miðnætursiglingu eikarbátsins Húna II um Pollinn eftir magnaða stórtónleika í Listagilinu þar sem einvala lið tónlistarmanna steig á stokk. Allar veðurspár brugðust góðu heilli og var veður stillt og...
https://www.akureyri.is/is/frettir/thridjungur-af-heimilisurgangi-til-urdunar
Góður árangur í flokkun sorps Um 7.600 tonn af sorpi og öðrum úrgangi féllu til frá heimilum á Akureyri í fyrra. Stór hluti er endurunninn, þar af hátt í tvö þúsund tonn af lífrænum úrgangi í jarðgerðarstöð Moltu. Í fréttum RÚV í síðustu viku var fjallað um nýjar tölur Hagstofu Evrópusambandsins um úrgangslosun. Þar ke...
https://www.akureyri.is/is/frettir/leikskolinn-arholt-tekinn-til-starfa
Nýr leikskóli tekinn til starfa Leikskólinn Árholt tók til starfa á Akureyri í morgun eftir um sextán ára hlé. Miklar breytingar hafa verið gerðar á húsnæðinu og er aðstaðan öll hin glæsilegasta. Níu börn mættu til leiks og aðlögunar ásamt foreldrum sínum í dag. Fyrsta árið er gert ráð fyrir 12 til 14 börnum, niður í 1...
https://www.akureyri.is/is/frettir/gongum-i-skolann
Göngum í skólann Sex grunnskólar frá Akureyrarbæ taka þátt í átakinu Göngum í skólann sem hefst í dag og stendur í einn mánuð. Nemendur, foreldrar og starfsfólk er hvatt til að ganga, hjóla, eða fara á annan virkan hátt til og frá skóla. Árlega taka milljónir barna í yfir 40 löndum þátt í verkefninu. Þetta árið eru nú ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/rokkhatid-samtalsins
Rokkhátíð samtalsins LÝSA, rokkhátíð samtalsins, verður haldin föstudaginn 6. og laugardaginn 7. september í Menningarhúsinu Hofi. Dagskrá hátíðarinnar í ár er fjölbreytt en þar má finna yfir 50 viðburði. Þú finnur dagskrá hátíðarinnar hér. Dagskráin hefst á föstudagsmorgni m.a. með Stórþingi ungmenna og málþingi BHM u...
https://www.akureyri.is/is/frettir/snyrtum-grodur-a-lodamorkum
Íbúar hvattir til að snyrta gróður Byggingarfulltrúi Akureyrarbæjar og forstöðumaður umhverfismála vilja minna íbúa á að snyrta gróður á lóðamörkum. Nauðsynlegt er að bregðast við þar sem gróðurinn nær út fyrir lóðamörk að götum, gangstéttum og stígum og veldur óþægindum fyrir gangandi vegfarendur, umferð ökutækja eða ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fyrirlestur-um-flokkun-i-tilefni-af-plastlausum-september
Fyrirlestur um flokkun í tilefni af Plastlausum september Hvernig á að flokka snakkpokann, Pringles baukinn eða eggjabakkann og hvað verður um hráefnið eftir að búið er að flokka það? Flestir eru að gera sitt besta við að flokka sorp og eru meðvitaðir um mikilvægi þess að flokka heimilisúrgang en þó geta ýmsar spurning...
https://www.akureyri.is/is/frettir/framsaekin-stefna-um-velferdartaekni
Framsækin stefna um velferðartækni Stefna Akureyrarbæjar á sviði velferðartækni var samþykkt í bæjarstjórn á þriðjudaginn. Áhersla er lögð á nýsköpun og tæknilegar lausnir við þróun velferðarþjónustu. Markmiðið er að auka lífsgæði notenda, bæta vinnuumhverfi starfsfólks og nýta betur auðlindir til að mæta mannfjöldaþró...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skyrsla-baejarstjora-56-2019-392019
Skýrsla bæjarstjóra 5/6-2019-3/9/2019 Í lok hvers bæjarstjórnarfundar fer bæjarstjóri yfir helstu verkefni hverju sinni. Efni skýrslunnar getur tekið breytingum í flutningi. Flutt á fundi bæjarstjórnar 3. september 2019. Fyrstu tvær vikurnar í júní: Fundir með öllum sviðsstjórum og formönnum stjórna vegna gerðar fjárha...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vilt-thu-byggja-i-hagahverfi
Vilt þú byggja í Hagahverfi? 27 nýjar íbúðarhúsalóðir í Hagahverfi eru lausar til útlutunar. Áætlað er að lóðirnar verði byggingarhæfar í desember 2019. Þetta eru nítján einbýlishúsalóðir; við Margrétarhaga, Matthíasarhaga og Nonnahaga, og átta raðhúsalóðir; við Kristjánshaga, Margrétarhaga, Nonnahaga og Steindórshaga....