Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
http://www.austurfrett.is/frettir/stoedh-fekk-haesta-styrkinn-ur-fornminjasjodhi
Stöð fékk hæsta styrkinn úr fornminjasjóði Uppgröftur á landnámsskála að Stöð í Stöðvarfirði fékk hæsta styrkinn þegar úthlutað var úr fornminjasjóði nýverið. Merkar heimildir eru þar að koma í ljós um þróun húsagerðar í kringum landnám. Alls var úthlutað tæplega 41,5 milljónum króna, þar af runnu fjórar milljónir til ...
http://www.austurfrett.is/frettir/sildarvinnslan-fagnar-godhri-lodhnuvertidh
Síldarvinnslan fagnar góðri loðnuvertíð „Segja má að nýliðin loðnuvertíð hafi gengið eins og í sögu. Alls varð afli íslensku skipanna á vertíðinni 70.726 tonn en 18 íslensk skip lönduðu afla og náðu þau öll sínum kvóta.“ Þetta segir í færslu á vefsíðu Síldarvinnslunnar þar sem fagnað er góðri loðnuvertíð í ár. Á vefsíð...
http://www.austurfrett.is/frettir/skemmdir-a-nupi-eftir-paskastorm
Skemmdir á Núpi eftir páskastorm Skemmdir urðu á íbúðarhúsi og hlöðu á bænum Núpi yst í norðanverðum Berufirði í óveðri um helgina. Rúður brotnuðu í húsinu og þakplötur fuku af hlöðunni. „Það geta orðið ægilega krappt hér í norðan- og norðvestanátt, þá myndast hnútar úr dalnum fyrir ofan,“ segir Björgvin Gunnarsson, bó...
http://www.austurfrett.is/frettir/fjorir-skipverja-i-suralskipinu-utskrifadhir
Fjórir skipverja í súrálskipinu útskrifaðir Líðan skipverja um borð í súrálsskipinu í Mjóeyrarhöfn þróast í rétta átt. Fjórir af þeim tíu sem smitaðir voru um borð við komu skipsins 20. mars síðastliðinn voru útskrifaðir í morgun. Fimm eru enn í einangrun um borð en vonir standa til að þeir verði útskrifaðir einnig flj...
http://www.austurfrett.is/frettir/varadh-vidh-hridh-og-stormi-austanlands
Varað við hríð og stormi austanlands Gul veðurviðvörun tekur gildi á morgun á Austurlandi að glettingi og Austfjörðum. Spáð er norðvestan hríð og stormi á Austfjörðum Þetta kemur fram á vefsíðu Veðurstofunnar. Þar segir að viðvörunin gildi frá klukkan 9 á morgun og fram til miðnættis á Austurlandi að Glettingi. Þar er ...
http://www.austurfrett.is/frettir/mannabein-fundust-a-vopnafirdhi
Mannabein fundust á Vopnafirði Staðfest hefur verið að bein, sem fundust í fjöru við Vopnafjörð í morgun, eru af manni. Þess verður freistað að bera kennsl á viðkomandi. Í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi segir að um klukkan hálf ellefu í morgun hafi verið haft samband við lögregluna og látið vita af beinum í ...
http://www.austurfrett.is/frettir/varnarmannvirki-eiga-adh-vernda-svaedhidh-naest-budhara
Varnarmannvirki eiga að vernda svæðið næst Búðará Litlar breytingar eru á áhættumati vegna ofanflóða á svæðinu næst Búðará á Seyðisfirði samkvæmt drögum að endurskoðuðu mati. Þær varnir sem byggðar hafa verið upp á svæðinu síðustu vikur virðast veita talsverða vörn. Veðurstofa Íslands hefur frá skriðföllunum um miðjan ...
http://www.austurfrett.is/frettir/thurrka-tharf-upp-tjoernina-i-botnum
Þurrka þarf upp tjörnina í Botnum Tjörnin í Botnum, ofan sunnanverðs Seyðisfjarðar, heyrir fljótt sögunni til vegna varnaraðgerða gegn skriðuföllum. Þær varnir sem þegar eru komnar virðast skipta miklu máli. Munabjörgun af skriðusvæðinu er nú lokið. Þetta var meðal þess sem kom fram á íbúafundi fyrir Seyðfirðinga í gær...
http://www.austurfrett.is/frettir/synataka-a-egilsstoedhum-um-helgina
Sýnataka á Egilsstöðum um helgina Þeir Austfirðingar, sem þurfa í sýnatöku vegna mögulegs Covid-19 smits um páskana, geta fengið þá þjónustu á Egilsstöðum á morgun laugardag og mánudag. Í tilkynningu frá aðgerðastjórn kemur fram að eitthvað hafi verið um að einstaklingar með einkenni hafi ekki getað skráð sig í sýnatök...
http://www.austurfrett.is/frettir/hvetja-austfirdhinga-til-adh-fara-varlega-um-paskana
Hvetja Austfirðinga til að fara varlega um páskana Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands hvetur íbúa fjórðungsins til að fara varlega um páskahátíðina til að forðast útbreiðslu Covid-19 veirunnar. Í tilkynningu aðgerðastjórnar er bent á að enn sé töluvert að greinast af smitum utan sóttkvíar auk þess sem vísben...
http://www.austurfrett.is/frettir/framkvaemdir-en-ekki-fotbolti-a-gardharsvelli-i-mai
Framkvæmdir en ekki fótbolti á Garðarsvelli í maí? Gert er ráð fyrir að hefja framkvæmdir við íbúðabyggð á knattspyrnuvellinum á Seyðisfirði í maí, gangi vinna við deiliskipulag eftir. Skipulagsmál í firðinum hafa verið í endurskoðun eftir skriðuföllin í desember. Stefán Bogi Sveinsson, formaður umhverfis- og framkvæmd...
http://www.austurfrett.is/frettir/starfsfolk-hjukrunarheimila-heldur-kjoerum-og-rettindum
Starfsfólk hjúkrunarheimila heldur kjörum og réttindum Náðst hefur samkomulag um að starfsfólk hjúkrunarheimilanna Hulduhlíðar á Eskifirði og Uppsala á Fáskrúðsfirði verði boðið að halda áfram störfum á sömu kjörum og áður, með óskert réttindi, þegar Heilbrigðisstofnun Austurlands tekur við rekstri þeirra af sveitarfél...
http://www.austurfrett.is/frettir/famennt-a-motmaelum-fellbaeinga
Fámennt á mótmælum Fellbæinga Messufall varð á boðuðum mótmælum íbúa í Fellabæjar við skrifstofur sveitarfélagsins Múlaþings í gær. Eins og Austurfrétt greindi frá í gær stóð til að mótmæla hugmyndum um að Fellabær muni á næstunni sameinast Fljótsdalshreppi. Þegar tíðindamaður Austurfréttar átti leið framhjá skrifstofu...
http://www.austurfrett.is/frettir/fljotsdaelingar-falast-eftir-fellabae
Aprílgabb: Fljótsdælingar falast eftir Fellabæ Þreifingar eru hafnar milli Fljótsdalshrepps og sveitarfélagsins Múlaþing um að Fellabær verði hluti af fyrrnefnda sveitarfélaginu. Fellbæingar hafa boðað til mótmæla vegna málsins í dag. Þeir fulltrúar í sveitarstjórnum og fulltrúar sem Austurfrétt hefur rætt við eru treg...
http://www.austurfrett.is/frettir/hlutfallslega-flestir-bolusettir-eystra
Hlutfallslega flestir bólusettir eystra Búið er að bólusetja rúm 16% Austfirðinga að hluta eða heild við Covid-19 veirunni. Þetta kemur fram í tölum sem finna má á boluefni.is en ríflega 600 Austfirðingar voru bólusettir í þessari viku. Búið er að bólusetja 7,53% íbúa fjórðungsins að fullu og 9,22% hafa fengið sína fyr...
http://www.austurfrett.is/frettir/opnadh-fyrir-umsoknir-i-hvatasjodh-seydhisfjardhar
Opnað fyrir umsóknir í Hvatasjóð Seyðisfjarðar Í gær var opnað fyrir umsóknir í Hvatasjóð Seyðisfjarðar. Sjóðnum er ætlað að styðja við uppbyggingu atvinnulífs á staðnum eftir aurskriðurnar í desember. Sjóðurinn er eitt þeirra úrræða sem í boði eru í gegnum sérstakt átak ríkisstjórnarinnar, sem veitir 250 milljónir á n...
http://www.austurfrett.is/frettir/grunn-og-tonlistarskolar-opnadhir-eftir-paska
Grunn- og tónlistarskólar opnaðir eftir páska Grunn- og tónlistarskólar á Austurlandi munu verða opnaðir fyrir staðnám eftir páskana. Þetta kemur fram í nýrri reglugerð sem heilbrigðisráðherra hefur gefið út. Fjallað er um málið á vefsíðu stjórnarráðsins. Þar segir að staðnám getur hafist að nýju á öllum skólastigum ef...
http://www.austurfrett.is/frettir/listakona-fra-portugal-sest-adh-a-djupavogi
Listakona frá Portúgal sest að á Djúpavogi „Við hjónin erum bæði að læra íslensku í augnablikinu enda höfum við hugsað okkur að búa hér áfram,“ segir Dileydi Florez, myndlistarkona frá Portúgal, sem sest hefur að á Djúpavogi ásamt eiginmanni sínum. Í vetur hafa staðið yfir teikninámskeið á vegum Dileydi á Djúpavogi en ...
http://www.austurfrett.is/frettir/sigurjon-radhinn-sloekkvilidhsstjori-fjardhabyggdhar
Sigurjón ráðinn slökkviliðsstjóri Fjarðabyggðar Sigurjón Valmundsson hefur verið ráðinn nýr slökkviliðsstjóri Fjarðabyggðar. Sigurjón mun hefja störf í byrjun sumars. Þetta kemur fram á vefsíðu Fjarðabyggðar. Þar segir að auglýst var eftir umsóknum um starfið þann 19. febrúar sl. og alls bárust fjórar umsóknir um stöðu...
http://www.austurfrett.is/frettir/buidh-adh-skrifa-undir-samninga-um-sorphirdhu-i-fjardhabyggdh
Samið um sorphirðu í Fjarðabyggð Búið er að skrifa undir samninga vegna sorphirðu í Fjarðabyggð, sem boðin var út nýverið. Alls bárust 24 tilboð í fjóra mismunandi verkþætti. Nýir verktakar taka við verkunum í vikunni. Fjarðabyggð ákvað síðasta haust að endurnýja ekki samning sinn við Íslenska gámafélagið heldur bjóða ...
http://www.austurfrett.is/frettir/veidha-ma-9-040-tonn-af-grasleppu
Veiða má 9.040 tonn af grásleppu Hafrannsóknastofnunar ráðleggur að veiðar á grásleppu fiskveiðiárið 2020/2021 verði að hámarki 9040 tonn. Er það um 74% hækkun milli ára. Þetta kemur fram á vefsíðu stofnunarinnar. Þar segir að ráðgjöfin byggi að mestu á stofnvístölu úr stofnmælingu botnfiska í mars 2021 en hún var sú h...
http://www.austurfrett.is/frettir/ekki-fleiri-smit-greinst-i-suralsskipinu
Ekki fleiri smit greinst í súrálsskipinu Ekki hafa greinst ný Covid-19 smit í flutningaskipinu Taurus Confidence, sem liggur í Mjóeyrarhöfn, í meira en viku. Sextán Covid-19 smit eru skráð á Austurlandi, allt landamærasmit. Tíu af þessum sextán eru skipverjar á Taurus Confidence. Einn þeirra var fluttur á sunnudag flut...
http://www.austurfrett.is/frettir/halendishringur-a-austurlandi-i-sigtinu
Hálendishringur á Austurlandi í sigtinu Byggðaráð Múlaþings hefur samþykkt að legga til við sveitarstjórn að áhersla verði lögð á útvega fjármagn til framkvæmda við Hálendishring á Austurlandi. Þetta kemur fram í tillögu sem var lögð fram og samþykkt á fundi Byggðaráðs í morgun. Um er að ræða bættan ferðamannaveg frá K...
http://www.austurfrett.is/frettir/yfir-600-austfirdhingar-fa-boluefni-i-vikunni
Yfir 600 Austfirðingar fá bóluefni í vikunni Alls verða 622 skammtar af bóluefni við Covid-19 veirunni verða notaðir á Austurlandi í þessari viku. Lokið verður við að bólusetja nær alla fædda árið 1950. Alls fá 451 einstaklingur bóluefni frá AstraZeneca, sem í byrjun síðustu viku var byrjað að gefa fólki yfir sjötugu. ...
http://www.austurfrett.is/frettir/sextan-skradhir-i-einangrun-a-austurlandi
Sextán skráðir í einangrun á Austurlandi Sextán eru nú skráðir í einangrun á Austurlandi vegna COVID smits. Í öllum tilvikum er um smit á landamærum að ræða. Tíu þessara skráninga tengjast súrálsskipi er liggur við Mjóeyrarhöfn á Reyðarfirði, en þau voru áður skráð sem „óstaðsett“ á covid.is. Þá tengjast fimm þeirra No...
http://www.austurfrett.is/frettir/andlat-sveinn-sigurbjarnarson
Andlát: Sveinn Sigurbjarnarson Sveinn Sigurbjarnarson, bílstjóri og framkvæmdastjóri frá Eskifirði, lést í nótt eftir baráttu við krabbamein. Sveinn var fæddur að Hafursá á Fljótsdalshéraði í júlí árið 1945, fjórði í röð átta systkina. Hann lauk gagnfræðaprófi frá Eiðum áður en hann hélt á Eskifjörð þar sem hann fór fl...
http://www.austurfrett.is/frettir/gullver-landadhi-godhum-afla-a-seydhisfirdhi
Gullver landaði góðum afla á Seyðisfirði Síðdegis í gær kom ísfisktogarinn Gullver NS til Seyðisfjarðar með góðan afla að lokinni fimm daga veiðiferð. Aflinn var blandaður samtals 112 tonn þar 44 tonn af ýsu rúmlega 30 tonn af. Þorski. Þetta kemur fram á vefsíðu Síldarvinnslunnar. Þar er rætt við Steinþór Þórðarson stý...
http://www.austurfrett.is/frettir/listmalari-rekur-tattustofu-a-eskifirdhi
Listmálari rekur tattústofu á Eskifirði Agnes Isabel hefur opnað tattústofu á Eskifirði og hefur töluvert að gera við að tattúvera íbúa þar sem og annarsstaðar að af Austurlandi. Agnes er jafnframt listmálari og hefur stundað fjarnám í myndlist við listaskóla í San Francisco. Agnes er pólsk en hún kom hingað fyrir tæpu...
http://www.austurfrett.is/frettir/buidh-adh-loka-vegum-yfir-oexi-og-breidhdalsheidhi
Búið að loka vegum yfir Öxi og Breiðdalsheiði Vegirnir um Öxi og Breiðdalsheiði eru lokaðir. Þetta kemur fram á vefsíðu vegagerðarinnar. Aðeins eru 10 dagar síðan þessir vegir voru opnaðir í fyrsta sinn eftir veturinn. Var það raunar nokkuð snemma miðað við fyrri vetur. Á vefsíðunni er áfram varað við að hreindýrahjarð...
http://www.austurfrett.is/frettir/metfjoeldi-umsokna-um-menningarstyrki
Metfjöldi umsókna um menningarstyrki Metfjöldi umsókna um styrki barst í ár til menningar- og nýsköpunarnefndar Fjarðabyggðar. Fyrir helgina úthlutaði nefndin árlegum styrkjum sínum til menningarmála. Fjallað er um málið á vefsíðu Fjarðabyggðar. Þar segir að alls veitti nefndin, með aðstoð starfsmanna Menningarstofu Fj...
http://www.austurfrett.is/frettir/einn-skipverji-fluttur-sudhur
Einn skipverji fluttur suður Einn skipverja af súrálsskipinu Taurus Confidence, sem greinst hafa með Covid-19, var fluttur til Reykjavíkur með sjúkraflugi í dag eftir að líðan hans versnaði. Þetta kemur fram í tilkynningu aðgerðastjórnar almannavarnanefndar Austurlands. Þar segir að einkennin hafi versnað þannig að rét...
http://www.austurfrett.is/frettir/engin-astaedha-enn-til-adh-kyrrsetja-taurus-confidence
Engin ástæða enn til að kyrrsetja Taurus Confidence Engin ástæða er enn talin til að fara fram á að flutningaskipið Taurus Confidence verði kyrrsett í Mjóeyrarhöfn. Tíu úr áhöfninni hafa verið greindir með Covid-19. Eins og Austurfrétt hefur greint frá í vikunni gaf skipstjóri flutningaskipsins ónákvæmar um ástand skip...
http://www.austurfrett.is/frettir/afkoma-fjardhabyggdhar-jakvaedh-um-211-milljonir
Afkoma Fjarðabyggðar jákvæð um 211 milljónir Á heildina litið er rekstrarafkoma Fjarðabyggðar góð miðað við árferði á síðasta ári. Afkoma ársins hjá samstæðu A og B hluta var jákvæð um 211 milljónir kr. en þar af var afkoma A hluta jákvæð um 52 milljónir kr. Þetta kemur fram í ársreikningi Fjarðabyggðar fyrir árið 2020...
http://www.austurfrett.is/frettir/mjoeg-osatt-vidh-verdhmat-a-eign-a-seydhisfirdhi
Mjög ósátt við verðmat á eign á Seyðisfirði Eydís Bára Jóhannsdóttir eigandi hússins Landamót á Seyðisfirði er mjög ósátt við verðmatið á húsinu. Húsið er á hættusvæði eftir skriðurnar fyrir síðustu jól og því verður það keypt af Eydísi þar sem hún má ekki búa í því lengur. „Nú hef ég fengið verðmatið fyrir Landamótin ...
http://www.austurfrett.is/frettir/reikna-medh-adh-faekki-i-einangrun-a-morgun
Reikna með að fækki í einangrun á morgun Fimm manns eru í einangrun á Austurlandi þessa stundina vegna Covid-19 smits sem greindist hjá þeim við komuna til landsins. Smit eins er þó gamalt og verður hann væntanlega frjáls ferða sinna strax á morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarnanefndar A...
http://www.austurfrett.is/frettir/snjoflodh-i-thvottarskridhum
Snjóflóð í Þvottárskriðum Ófært er um Hvalnes- og Þvottárskriður eftir að snjóflóð féll á veginn í Þvottárskriðum. Vegurinn er því ófær og var skráður svo kortér yfir 14. Ekki lágu fyrir nákvæmar um umfang flóðsins en vinnuflokkur frá Vegagerðinni hefur verið að störfum í Hvalnesskriðum við uppsetningu stálþils.
http://www.austurfrett.is/frettir/ibuafundur-fyrir-seydhfirdhinga-a-morgun
Íbúafundur fyrir Seyðfirðinga á morgun Haldinn verður íbúafundur fyrir Seyðfirðinga á Facebook á morgun, þriðjudag og hefst hann klukkan 17:00. Tilgangur fundarins er að upplýsa íbúa Seyðisfjarðar um stöðu mála. Fundurinn fer fram í gegnum Facebooksíðu Múlaþings Á vefsíðu Múlaþings kemur fram að íbúar geta sent inn spu...
http://www.austurfrett.is/frettir/kom-medh-kaerastanum-og-stofnadhi-danslistarskola
Kom með kærastanum og stofnaði danslistarskóla „Þetta var þannig í upphafi að ég á kærasta frá Vopnafirði og ég flutti hingað með honum enda svolítið hrifin af litlum bæjarfélögum og vil búa á slíkum stað,“ segir Urður Steinunn Önnudóttir Sahr sem stofnaði danslistarskóla sem hún nefnir Valkyrja á Vopnafirði. Skólinn t...
http://www.austurfrett.is/frettir/segir-unnidh-adh-farsaelli-yfirfaerslu-en-segir-ekki-hvernig
Segir unnið að farsælli yfirfærslu en segir ekki hvernig Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, segir það markmið ráðuneytisins að vel takist til við yfirfærslu reksturs hjúkrunarheimilanna Hulduhlíðar á Eskifirði og Uppsala á Fáskrúðsfirði frá Fjarðabyggð til ríkisins. Ekki fást upplýsingar um hvernig ráðuneytið ...
http://www.austurfrett.is/frettir/fimm-i-einangrun-eystra-eftir-landamaerasmit
Fimm í einangrun eystra eftir landamærasmit Fimm einstaklingar eru í einangrun á Austurlandi eftir að hafa greinst með Covid-19 veiruna. Þeir greindust við komu Norrænu til Seyðisfjarðar á þriðjudag. Um borð í ferjunni var 25 manna hópur á leið til vinnu hér á landi. Tveir þeirra greindust með smit við skimun í Hirtsha...
http://www.austurfrett.is/frettir/graent-ljos-a-sumarhusahverfi-i-ulfsstadhaskogi
Grænt ljós á sumarhúsahverfi i Úlfsstaðaskógi Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings hefur samþykkt að við gerð aðalskipulags Múlaþings verði tekið tillit til áforma um nýtt sumarhúsahverfi í Úlfsstaðaskógi. Þetta kemur fram á vefsíðu Múlaþings. Á fundi ráðsins í vikunni kom fram að fyrir liggur erindi dagsett 13.11.201...
http://www.austurfrett.is/frettir/austfirdhingar-hvattir-til-adh-kynna-ser-nyjar-sottvarnareglur-vel
Austfirðingar hvattir til að kynna sér nýjar sóttvarnareglur vel Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands hvetur íbúa fjórðungsins til að kynna sér vel nýjar sóttvarnareglur sem tóku gildi á miðnætti og gilda fram til 15. apríl. Stærsta breytingin er að ekki fá fleiri en tíu einstaklingar að koma saman. Þá eru íþr...
http://www.austurfrett.is/frettir/72-ara-og-eldri-fa-boluefni-i-naestu-viku
72 ára og eldri fá bóluefni í næstu viku Vonir standa til að hægt verði að bólusetja alla Austfirðinga yfir sjötugu við Covid-19 veirunni í næstu viku. Notast verður við AstraZeneca bóluefnið sem nýjar rannsóknir hafa sýnt að gefst vel í eldri aldurshópum. Skipt var um gír í bólusetningum á landsvísu í gær þegar ákveði...
http://www.austurfrett.is/frettir/spadh-er-mikilli-snjokomu-a-austurlandi-i-nott
Spáð er mikilli snjókomu á Austurlandi í nótt Gul veðurviðvörun tekur gildi klukkan 21 í kvöld á Austurlandi að Glettingi og stendur hún til hádegis á morgun. Spáð er mikilli snjókomu með skafrenningi og lélegu skyggni. Á vefsíðu Veðurstofunnar segir að spáð sé ...."hvassviðri með vindhraða á bilinu 15 - 20 m/s. Búist ...
http://www.austurfrett.is/frettir/listi-vg-i-nordhausturkjoerdaemi-stadhfestur
Listi VG í Norðausturkjördæmi staðfestur Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur staðfest lista sinn í Norðausturkjördæmi fyrir Alþingiskosningarnar í haust. Óli Halldórsson frá Húsavík skipar fyrsta sætið en fyrrum oddviti, Steingrímur J. Sigfússon, er í heiðurssætinu. Jódís Skúladóttir er efst Austfirðinga, í þriðja ...
http://www.austurfrett.is/frettir/felagsstarf-eldri-borgara-fellur-nidhur-a-vopnafirdhi
Félagsstarf eldri borgara fellur niður á Vopnafirði Félagsstarf eldri borgara fellur niður og félagsmiðstöðinni Drekinn hefur verið lokað á Vopnafirði vegna hertra sóttvarnarreglna. Eins og í öðrum sveitarfélögum eru grunnskóli og tónlistarskóli lokaðir frá og með deginum í dag og þar til páskafrí tekur við. Unnið verð...
http://www.austurfrett.is/frettir/vidhaekar-lokanir-i-fjardhabyggdh
Víðækar lokanir í Fjarðabyggð Fjarðabyggð hefur gripið til víðtækra lokana í sveitarfélaginu vegna hertra sóttvarnarreglna. Engin kennsla verður í grunn- og tónlistarskólum, sundlaugar og íþróttamannvirki verða lokuð sem og skíðasvæðið í Oddskarði. Þetta kemur fram á vefsíðu Fjarðabyggðar. Hvað skólahald varðar segir a...
http://www.austurfrett.is/frettir/ekkert-smit-i-landi-eystra
Ekkert smit í landi eystra Ekki er vitað um önnur Covid-19 smit á Austurlandi en þau sem eru um borð í flutningaskipi í Mjóeyrarhöfn. Hertar sóttvarnareglur taka gildi á miðnætti. Ríkisstjórn Íslands tilkynnti í dag mjög hertar sóttvarnaaðgerðir vegna aukningar innanlandssmita síðustu daga. Þær taka gildi á miðnætti. H...
http://www.austurfrett.is/frettir/spa-hridh-og-stormi-austanlands-i-dag
Spá hríð og stormi austanlands í dag Gul veðurviðvörun er í gildi á bæði á Austurlandi að Glettingi og Austfjörðum í dag. Spáð er hríð og stormi með talsverðri snjókomu. Á vefsíðu Veðurstofunnar segir að á Austurlandi er spáð norðaustan hríðarveðri og stendur viðvörnunin til kl. 15 í dag. Spáin gerir ráð fyrir hvassvið...
http://www.austurfrett.is/frettir/tonlistarhatidhum-i-neskaupstadh-frestadh
Tónlistarhátíðum í Neskaupstað frestað Viðburðum sem fara áttu fram næstu daga er ýmist frestað eða aflýst einum af öðrum eftir að hertar samkomureglur tóku gildi á miðnætti. Búið er að fresta Köld sem átti að hefjast í kvöld og Eistnaflugi í sumar. Eyjólfur Kristjánsson átti að hefja leikinn á Köld en af því verður ek...
http://www.austurfrett.is/frettir/grunnskolar-mulathings-lokadhir-i-tvo-daga
Grunnskólar Múlaþings lokaðir í tvo daga Samkvæmt þeim reglum sem mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur kynnt í tengslum við hertar sóttvarnaraðgerðir er ekki heimilt að hafa grunnskóla opna og því verða grunnskólar Múlaþings lokaðir þá tvo skóladaga sem eftir eru fram að páskaleyfi. Frístund er einnig lokuð þessa d...
http://www.austurfrett.is/frettir/enginn-alvarlega-veikur-um-bordh-i-suralsskipinu
Enginn alvarlega veikur um borð í súrálsskipinu Ekki hafa greinst fleiri Covid-19 smit um borð í flutningaskipinu Taurus Confidence sem verið hefur í Mjóeyrarhöfn frá því á laugardag. Skipverjar virðast sinna sóttvörnum vel um borð. Læknir og hjúkrunarfræðingur fóru um borð í skipið eftir hádegi í dag til að kanna líða...
http://www.austurfrett.is/frettir/hvatt-til-aukinnar-nytingar-orlofsrettar
Hvatt til aukinnar nýtingar orlofsréttar Fjölskylduráð Múlaþings hvetur foreldra leikskólabarna til þess að gefa börnum sínum tækifæri til að njóta almennrar lengingar orlofsréttar í sumar. Og að nýta sér heimild til aukins gjaldfrjáls sumarleyfis í tengslum við sumarlokun leikskólanna. Þetta kemur fram í nýrri fundarg...
http://www.austurfrett.is/frettir/ibuar-i-breidhabliki-hafa-ahyggjur-af-myglu
Íbúar í Breiðabliki hafa áhyggjur af myglu Íbúar í Breiðabliki, íbúðum aldraðra í Neskaupstað, hafa áhyggjur af myglu í húsinu. Föndursalur í húsinu var lokaður af eftir að starfsfólk fann fyrir óþægindum þar. Bæjaryfirvöld undirbúa heildarúttekt á húsinu. Sveinn Árnason, einn þeirra sem býr í Breiðabliki, segir íbúa þ...
http://www.austurfrett.is/frettir/svipa-besta-mjolkurkyrin
Svipa besta mjólkurkýrin Kýrin Svipa á Hallfreðarstöðum í Hróarstungu mjólkaði mest austfirskra kúa á síðasta ári. Meðalnyt eftir hverja kú voru mest á Austurlandi. Þetta kemur fram í niðurstöðum skýrsluhalds nautgriparæktarinnar fyrir árið 2020. Svipa gaf alls 13.293 lítra af mjólk á síðasta ári sem kemur henni í sjöt...
http://www.austurfrett.is/frettir/tveir-i-einangrun-i-norraenu
Tveir í einangrun í Norrænu Tveir farþegar Norrænu, sem væntanleg er til Seyðisfjarðar í fyrramálið, eru í einangrun um borð eftir að hafa greinst með Covid-19 smit. Veiran greindist í tvímenningunum við komu þeirra um borð í Hirtshals í Danmörku. Báðir höfðu áður framvísað neikvæði PCR prófi, tekið innan við 72 klukku...
http://www.austurfrett.is/frettir/von-a-hjolastolaadhgengi-i-landsbyggdharstraeto
Von á hjólastólaaðgengi í landsbyggðarstrætó Von er á sérsmíðuðum strætisvagni með hjólastólaaðgengi sem aka mun leiðina Akureyri-Egilsstaðir innan tíðar. Frá þessu er greint í Framkvæmdafréttum Vegagerðarinnar. Vegagerðin gerði síðasta sumar kröfu um aðgengi fólks í hjólastólum í útboði landssamganga. Nýverið var teki...
http://www.austurfrett.is/frettir/enskur-koekugerdharmeistari-bakar-fyrir-vopnfirdhinga
Enskur kökugerðarmeistari bakar fyrir Vopnfirðinga „Vopnfirðingar eru mjög vinsamlegt fólk í umgengni og það var það sem kom mér helst á óvart. Það kom mér líka á óvart hve þetta er fallegur staður,“ segir Louise Chouhan, enskur kokkur og kökugerðarmeistari (conditore), sem sest hefur að á Vopnafirði. Hún vinnur sem st...
http://www.austurfrett.is/frettir/brasiliska-afbrigdhidh-stadhfest-i-suralsskipinu
Brasilíska afbrigðið staðfest í súrálsskipinu Staðfest hefur verið að allir skipverjarnir sem greinst hafa með Covid-19 veiruna um borð í flutningaskipinu Taurus Confidence, sem er í Mjóeyrarhöfn, eru með brasilíska afbrigði veirunnar. Enginn er alvarlega veikur þar enn. „Þeir sem greindust á Reyðarfirði voru allir með...
http://www.austurfrett.is/frettir/buidh-adh-boluseta-yfir-12
Búið að bóluseta yfir 12% Meira en 12% Austfirðinga hafa nú fengið bólusetningu að einhverju leyti gegn Covid-19 veirunni. Samkvæmt tölum frá boluefni.is er búið að bólusetja 6,5% Austfirðinga að fullu en 5,9% hafa fengið fyrri sprautu. Alls hafa því 12,2% fengið bóluefni. Í síðustu viku var lokið við að bólusetja íbúa...
http://www.austurfrett.is/frettir/meiri-fjoelbreytni-tharf-i-tungumalakennslu
Meiri fjölbreytni þarf í tungumálakennslu Kennari við Menntaskólann á Egilsstöðum segir þörf á aukinni fjölbreytni í tungumálakennslu í framhaldsskólum. Ástæða sé til að skoða málin þar sem færri nemendur velji erlend tungumál en áður. „Ofuráhersla er á málfræðikennslu, en mín skoðun er að fjölbreytt sögu- og menningar...
http://www.austurfrett.is/frettir/skipstjorinn-taldi-ekki-covid-smit-um-bordh
Skipstjórinn taldi ekki Covid-smit um borð Skipstjóri flutningaskipsins Taurus Confidence svaraði öllum spurningum um mögulegt Covid-19 smit um borð neitandi í yfirlýsingu sinni til Landhelgisgæslunnar áður en skipið kom til hafnar á Reyðarfirði á laugardag. Umboðsaðili skipsins hérlendis lét hins vegar vita af einkenn...
http://www.austurfrett.is/frettir/ny-vefsidha-vopnafjardhar-tilnefnd-til-verdhlauna
Ný vefsíða Vopnafjarðar tilnefnd til verðlauna Ný vefsíða Vopnafjarðarhrepps sem var tekinn í notkun í september s.l. hlaut á föstudag tilnefningu til Íslensku vefverðlaunanna í flokki opinberra vefja. Fjallað er um málið á vefsíðunni. Þar segir að á föstudag, 26. mars, kemur svo í ljós hver af þeim 5 opinberu vefjum s...
http://www.austurfrett.is/frettir/fleiri-hus-daemd-onyt
Fleiri hús dæmd ónýt Sveitarstjórn Múlaþings hefur bannað uppbyggingu að svo stöddu á þremur lóðum til viðbótar á skriðusvæðinu á Seyðisfirði. Þá hefur verið fallið frá kröfu á endurbyggingu húss í Botnahlíð. Þetta var staðfest á síðasta fundi sveitarstjórnar. Með því að heimila ekki uppbyggingu fyrr en fullnægjandi rá...
http://www.austurfrett.is/frettir/hoffell-a-leidh-i-land-medh-1-650-tonn-af-kolmunna
Hoffell á leið í land með 1.650 tonn af kolmunna Hoffell er á landleið með 1.650 tonn af kolmunna af miðunum vestur af Írlandi. Um 700 mílna sigling er af miðunum. Þetta kemur fram á vefsíðu Loðnuvinnslunnar. Þar segir að túrinn gekk vel, veður var gott og aflinn fékkst á rúmum 3 sólarhringum. "Hoffell var eina íslensk...
http://www.austurfrett.is/frettir/rafraent-umsoknarkerfi-i-bigerdh-a-vopnafirdhi
Rafrænt umsóknarkerfi í bígerð á Vopnafirði "Vinna við innleiðingu tímaskráningarkerfis fyrir starfsfólk sveitarfélagsins er í fullum gangi. Einnig er verið að hefja vinnu við rafrænt umsóknarkerfi á heimasíðu sveitarfélagsins, málaskrá og stjórnendamælaborð fyrir fjárhagskerfið." Þetta kemur fram í skýrslu Söru Elísab...
http://www.austurfrett.is/frettir/folksfjoelgun-var-yfir-landsmedhaltali-i-mulathingi
Fólksfjölgun var yfir landsmeðaltali í Múlaþingi Fólksfjölgun í Múlaþingi á síðasta ári var 2% sem er nokkuð yfir landsmeðaltalinu sem hljóðar upp á 1,3%. Hvað Austurland í heild varðar var fólksfjölgunin aðeins undir meðaltalinu eða 1%. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að Íslendingar séu nú tæplega 3...
http://www.austurfrett.is/frettir/ekki-talin-haetta-i-byggdh-thott-hreyfing-maelist-i-skridhusarinu
Ekki talin hætta í byggð þótt hreyfing mælist í skriðusárinu Hreyfingar hefur orðið vart ofarlega í sári stóru skriðunnar sem féll á Seyðisfjörð 18. desember síðastliðinn. Ekki er talin hætta í byggð en varað er við ferðum fótgangandi í hlíðinni undir skriðunni. Í tilkynningu almannavarna kemur fram að hreyfingar hafi ...
http://www.austurfrett.is/frettir/blaengur-medh-182-milljona-krona-afla
Blængur með 182 milljóna króna afla Löndun hófst úr frystitogaranum Blængi NK í Norðfjarðarhöfn í morgun. Afli skipsins er rúm 750 tonn upp úr sjó að verðmæti 182 milljónir króna. Bjarni Ólafur Hjálmarsson skipstjóri segir, í samtali á vefsíðu Síldarvinnslunnar, að þetta hafi verið fínasti túr. „Aflinn er góð blanda, m...
http://www.austurfrett.is/frettir/dyralaeknathjonusta-a-adh-vera-tryggdh
Dýralæknaþjónusta á að vera tryggð Matvælastofnun telur að dýralæknaþjónusta eigi að vera vel tryggð á Austurlandi þrátt fyrir breytingar sem urðu á vaktsvæðum dýralækna í lok síðasta árs. Vaktsvæðum dýralækna breyttust um síðustu áramót þannig að svæðið milli Vopnafjarðar og Djúpavogs er nú skilgreint sem eitt vaktsvæ...
http://www.austurfrett.is/frettir/covid-smit-i-skipi-i-mjoeyrarhoefn
Covid-smit í skipi í Mjóeyrarhöfn Staðfest hefur verið að tíu af nítján manna áhöfn flutningaskipsins Taurus Confidence, sem lagðist að bryggju í Mjóeyrarhöfn í gær, eru með Covid-19 veiruna. Ekki er talin hætta á að smit dreifist út frá skipinu. Í tilkynningu aðgerðastjórnar almannavarnanefndar Austurlands kemur fram ...
http://www.austurfrett.is/frettir/ekki-ordhidh-var-vidh-nein-veikindi-i-nesskola
Ekki orðið vart við nein veikindi í Nesskóla Ekki hefur orðið vart við veikindi meðal nemenda eða kennarar í Nesskóla þar sem mygla var staðfest í morgun. Sýni voru tekin eftir ábendingu. Viðgerðir hefjast á mánudag. Myglan fannst í norðurhluta skólans þar sem unglingastigi, 8. – 10. bekk, er kennt. Stofurnar voru rýmd...
http://www.austurfrett.is/frettir/tveir-nyir-starfsmenn-hja-hafro-i-neskaupstadh
Tveir nýir starfsmenn hjá Hafró í Neskaupstað Gengið hefur verið frá ráðningu tveggja nýrra starfsmanna hjá nýrri starfstöð Hafrannsóknarstofnunnar í Neskaupstað. Í frétt um málið á vefsíðu stofnunarinnar segir að þær Helena Gallardo Roldán og Hrefna Zoëga, séu hinir nýju starfsmenn. Þær munu sinna sýnatöku úr afla upp...
http://www.austurfrett.is/frettir/enginn-skipverjanna-alvarlega-veikur
Enginn skipverjanna alvarlega veikur Enginn þeirra tíu skipverja flutningsskipsins Taurus Confidence, sem greinst hafa með Covid-19 veiruna, eru alvarlega veikir. Vel er fylgst með gangi mála um borð. Skipið lagðist að bryggju í Mjóeyrarhöfn seinni part laugardags. Skipstjórinn hafði þá látið vita að nokkrir um borð he...
http://www.austurfrett.is/frettir/einar-efstur-hja-piroetum
Einar efstur hjá Pírötum Einar Brynjólfsson varð efstur í prófkjöri Pírata í Norðausturkjördæmi sem lauk í dag. Hann hlaut yfirburðakosningu í kjörinu. Einar, sem sat á þingi fyrir flokkinn 2016-17, fékk 136 atkvæði í 1. sætið. Alls var 281 atkvæði greitt í kjörinu. Katla Hólm Vilbergs- og Þórhildardóttir varð önnur í ...
http://www.austurfrett.is/frettir/mygla-fannst-i-nesskola
Mygla fannst í Nesskóla Nemendur á elsta stigi Nesskóla voru sendir heim í morgun eftir að mygla fannst í norðurhluta skólahúsnæðisins. Viðgerðir á svæðinu hefjast strax á mánudag. Ekki er talið að mygla sé á fleiri stöðum í húsinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fjarðabyggð. Þar segir að þegar niðurstaða úr sýnum ...
http://www.austurfrett.is/frettir/lodhnan-threfalt-verdhmaetari-en-aridh-2018
Loðnan þrefalt verðmætari en árið 2018 Loðnuvertíðin, sem nú er lokið, var kærkomin vítamínsprauta inn í íslenskt efnahagslíf eftir doða COVID vetrarins. Þótt útgefinn kvóti hafi verið með þeim minnstu í sögunni er verðmæti hans fyrir þjóðarbúið þrefalt á við árið 2018 þegar síðast var veidd loðna við Ísland. Árið 2018...
http://www.austurfrett.is/frettir/opna-hotel-valaskjalf-um-helgar
Opna Hótel Valaskjálf um helgar Hótel Valaskjalf hefur verið opnað um allar helgar með tilboðum í mat og afþreyingu. Samhliða því verður veitingastaðurinn Glóð opinn fimmtudag til laugardaga frá kl. 18 til kl. 20 og Ölstofan verður opin sömu daga frá kl. 17 til kl. 23. Þetta kemur fram hjá Sigrúnu Jóhönnu Þráinsdóttur ...
http://www.austurfrett.is/frettir/skemmdir-unnar-a-maelitaekjum-vidh-oddskardhsveg
Skemmdir unnar á mælitækjum við Oddskarðsveg Að undanförnu hefur það borið við að skemmdir séu unnar á mælitækjum Veðurstofu Íslands þ.e. speglum, sem notuð eru til að fylgjast með hreyfingu jarðlaga við gamla Oddsskarðsveginn ofan Eskifjarðar. „Nú hefur það því miður gerst að undanförnu að nokkrir af speglunum hafa ve...
http://www.austurfrett.is/frettir/toeluvert-mikill-eldur-i-notapoka-a-eskifirdhi
Töluvert mikill eldur í nótapoka á Eskifirði Töluvert mikill eldur kom upp í nótapoka á svæði veiðarfæraverkstæðis Egersund á Eskifirði um klukkan átta í kvöld. Vel gekk þó að ráða niðurlögum eldsins. „Útkallið kom klukkan 19:57. Ég var nýkominn heim, bý 200 metra frá og var snöggur á svæðið með undanfarabíl. Annar slö...
http://www.austurfrett.is/frettir/oexi-opnudh-i-lok-dags
Öxi opnuð í lok dags Stefnt er á að opna fyrir umferð um veginn yfir Öxi síðar í dag. Starfsmenn Vegagerðarinnar hafa unnið að opnun vegarins í dag. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni ætti vegurinn að verða fær fyrir bíla búna til vetraraksturs í dag. Staðan skýrist nánar á næstu klukkutímum. Búið er að moka veginn ...
http://www.austurfrett.is/frettir/ovenjumikidh-um-umferdharsektir-i-fjardhabyggdh
Óvenjumikið um umferðarsektir í Fjarðabyggð Óvenjumikið hefur verið um umferðarsektir hjá lögreglunni í Fjarðabyggð að undanförnu en lögreglan hefur þar verið með umferðareftirlit í gangi. „Þetta hafa verið tugir sekta í hverri viku. Þannig voru gefnar út 14 sektir í gærdag og 11 daginn þar á undan svo dæmi séu tekin,“...
http://www.austurfrett.is/frettir/samfelagssjodhur-fljotsdals-styrkir-18-verkefni
Samfélagssjóður Fljótsdals styrkir 18 verkefni Samfélagssjóður Fljótsdals mun styrkja 18 verkefni í ár samtals um 12,8 milljónir. kr. Styrkjunum var úthlutað við hátíðlega athöfn á Óbyggðasetrinu síðdegis í gærdag. Þetta er í annað sinn sem úthlutað er úr sjóðnum. „Ánægjulegt er að sjá að stuðningur úr sjóðnum hefur ný...
http://www.austurfrett.is/frettir/stillt-upp-a-lista-vidhreisnar
Stillt upp á lista Viðreisnar Stillt verður upp á lista Viðreisnar í Norðausturkjördæmi fyrir þingkosningar í haust. Uppstillinganefnd er að störfum og stefnir að því að ljúka störfum í kringum páska. „Við höfum lagt upp með að vera tilbúin með listann síðustu dagana í mars og fundum meðal annars í kvöld. Þetta verður ...
http://www.austurfrett.is/frettir/toppskidhalyftan-i-oddskardhi-ekki-opnudh-meira-i-vetur
Toppskíðalyftan í Oddskarði ekki opnuð meira í vetur Ljóst er að toppskíðalyftan í Oddskarði verður ekki opnuð meira í vetur. Miklar skemmdir urðu á henni í óveðri fyrir nokkru síðan. Fjallað er um málið á vefsíðu Fjarðabyggðar. Þar segir að talsvert hafi verið spurt að undanförnu um stöðu mála á topplyftunni í Oddsska...
http://www.austurfrett.is/frettir/rannsaka-hvort-bruninn-a-eskifirdhi-var-ikveikja
Rannsaka hvort bruninn á Eskifirði var íkveikja Lögreglan á Austurlandi rannsakar nú brunann á Eskifirði í gærkvöldi. Beinist rannsóknin m.a. að því hvort um íkveikju hafi verið að ræða. Þetta kemur fram í máli Þórhallar Árnasonar aðalvarðstjóra lögreglunnar á Austurlandi. „Við erum meðal annars að rannsaka hvort um ík...
http://www.austurfrett.is/frettir/austurbru-vinni-adh-greiningu-a-studhlagili
Austurbrú vinni að greiningu á Stuðlagili Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Gauti Jóhannesson, varaformaður Austurbrúar, hafa undirritað samning um að Austurbrú vinni að greiningu á svæðinu við Stuðlagil. Þetta kemur fram á vefsíðu Stjórnarráðsins. Þar segir að Stuðlag...
http://www.austurfrett.is/frettir/thoerf-a-oedhrum-dyralaekni-sunnan-fagradals
Þörf á öðrum dýralækni sunnan Fagradals Formaður Búnaðarsambands Austurlands segir of mikið að ætla einum dýralækni að sinna vaktþjónustu fyrir svæðið frá Vopnafirði til Djúpavogs. Þörf sé á öðrum dýralækni sem búi sunnan Fagradals. Breytingar voru gerðar á svæðaskiptingu dýralækna um áramót í kjölfar þess að dýralækni...
http://www.austurfrett.is/frettir/godhur-dampur-i-frystihusi-svn-a-seydhisfirdhi
Góður dampur í frystihúsi SVN á Seyðisfirði Góður dampur er á starfseminni í frystihúsi Síldarvinnslunnar (SVN) á Seyðisfirði. Að sögn Ómars Bogasonar rekstrarstjóra SVN er húsið nánast fullmannað og enginn skortur á hráefni. „Við höfum að undanförnu mest verið að frysta á Ameríku og Evrópu en upp á síðkastið hefur hel...
http://www.austurfrett.is/frettir/reglugerdh-um-grasleppu-kemur-i-veg-fyrir-kludhridh-i-fyrra
Reglugerð um grásleppu kemur í veg fyrir sama klúðrið og í fyrra Sjávarútvegsráðherra hefur gefið út nýja reglugerð um grásleppuveiðar í ár. „Það má segja að þessi reglugerð komi í veg fyrir sam klúðrið og í fyrra,“ segir Kári Borgar Ásgrímsson sjómaður á Borgarfirði eystra og stjórnarmaður í Félagi smábátaeigenda á Au...
http://www.austurfrett.is/frettir/thailenskur-kokkur-eldar-a-egilisstadhaflugvelli
Taílenskur kokkur eldar á Egilsstaðaflugvelli Kaffiterían á Egilsstaðaflugvelli hefur bryddað upp á þeirri nýjung að bjóða upp á Asíumat í hádeginu. Taílenskur kokkur sér um matseldina. Mikael Viðarsson sem rekur Kaffiteríuna, ásamt eiginkonu sinni, Jitku Hamrovu, segir að þau hjónin hafi lengi ætlað sér að bjóða upp á...
http://www.austurfrett.is/frettir/lokidh-vidh-adh-bolusetja-80-ara-og-eldri
Lokið við að bólusetja 80 ára og eldri Verið er að ljúka við að bólusetja að fullu alla Austfirðinga yfir áttræðu í þessari viku gegn Covid-19 veirunni. Alls hafa 11,4% íbúa á svæðinu fengið bólusetningu. Í vikunni bárust 360 skammtar af bóluefni Pfizer/BioNTech austur. Lokið verður við að bólusetja alla yfir áttræðu á...
http://www.austurfrett.is/frettir/fjoelmenni-a-fyrirlestri-a-vegum-eramus
Fjölmenni á fyrirlestri á vegum Eramus+ Fjöldi ungmenna sótti fyrirlestur á vegum Erasmus+ nýlega þar sem kynntir voru margskonar styrkir sem standa ungmennum til boða. Þetta kemur fram á vefsíðu Múlaþings. Þar segir að kynningin fór fram í þremur félagsmiðstöðvum í einu; Í Nýung á Egilsstöðum og í gegnum fjarfundarbún...
http://www.austurfrett.is/frettir/vonast-til-adh-heilbrigdhisradhuneytidh-faist-til-adh-tryggja-rettindi-starfsfolks
Vonast til að heilbrigðisráðuneytið fáist til að tryggja réttindi starfsfólks Bæjarstjóri Fjarðabyggðar vonast til hugur fylgi máli hjá heilbrigðisráðherra í að vinna að farsælli færslu hjúkrunarheimila sveitarfélagsins til ríkisins og láti lög um aðilaskipti gilda. Hann segist ekki hafa getað ímyndað sér að ráðuneytið...
http://www.austurfrett.is/frettir/kaeru-a-undanthagu-fra-mati-a-umhverfisahrifa-breyttra-eldissvaedha-hafnadh
Kæru á undanþágu frá mati á umhverfisáhrifa breyttra eldissvæða hafnað Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfu náttúruverndarsamtaka um að fresta áhrifum ákvörðunar Skipulagsstofnunar um að breyting á staðsetningu eldiskvía Fiskeldis Austfjarða í Fáskrúðsfirði verði frestað. Eldisfyrirtækið óskaði ...
http://www.austurfrett.is/frettir/fjardhabyggdh-fagnar-yfirlysingu-velferdharnefndar
Fjarðabyggð fagnar yfirlýsingu velferðarnefndar Fjarðabyggð fagnar yfirlýsingu velferðarnefndar Alþingis í gærdag, og tekur heilshugar undir áhyggjur hennar af þeirri stöðu sem uppi er í málinu. Þetta kemur fram á vefsíðu Fjarðabyggðar. Greint var frá yfirlýsingu velferðarnefndar á Austurfrétt í gærdag en hún fjallaði ...
http://www.austurfrett.is/frettir/soemdu-um-rekstur-fab-lab-austurland
Sömdu um rekstur Fab Lab Austurland Verkmenntaskóli Austurlands og Fjarðabyggð, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og mennta- og menningarmálaráðuneytið hafa undirritað samninga um rekstur Fab Lab Austurland. Þetta kemur fram á vefsíðu Fjarðabyggðar. Þar segir að eð þessum samningum verður Verkmenntaskóla Austurlands...
http://www.austurfrett.is/frettir/telur-ekki-vaenlegt-adh-setja-loeg-vegna-yfirfaerslu-hjukrunarheimila
Telur ekki vænlegt að setja lög vegna yfirfærslu hjúkrunarheimila Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, telur ekki vænlegt að setja sérstök lög til að tryggja réttindi starfsfólks við yfirfærslu hjúkrunarheimila í Fjarðabyggð og víðar frá sveitarfélögum til ríkisins. Hún tekur hins vegar undir óskir sveitarfélaga...
http://www.austurfrett.is/frettir/profkjoer-hja-sjalfstaedhisflokknum
Prófkjör hjá Sjálfstæðisflokknum Valið verður í efstu sætin á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar með prófkjöri í lok maí. Tveir hafa þegar gefið kost á sér í oddvitasætið. Ákveðið var á aðalfundi kjördæmisráðs flokksins um helgina að halda prófkjör laugardaginn 29. maí. Þar var ...
http://www.austurfrett.is/frettir/skrifstofur-mulathings-lokadhar-a-morgun
Skrifstofur Múlaþings lokaðar á morgun Vegna starfsdags starfsfólks á skrifstofum Múlaþings, fimmtudaginn 18. mars, verða skrifstofurnar á Borgarfirði, Djúpavogi, Fljótsdalshéraði og Seyðisfirði lokaðar þennan dag. Þetta kemur fram á vefsíðu Múlaþings. Þar segir að vegna samkomutakmarkana af völdum Covid-19 hefur starf...