Title
stringlengths
15
17
Keywords
stringlengths
3
238
Summary
stringlengths
73
7.23k
Text
stringlengths
125
646k
Mál nr. 13/2024
Kærumál Hæfi dómara Vanhæfi
Staðfestur var úrskurður Landsréttar þar sem hafnað var kröfu um að tveir landsréttardómarar vikju sæti í málinu.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen, Karl Axelsson, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 1. mars 2024 en kærumálsgögn bárust réttinum 4. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Landsréttar 16. febrúar...
Mál nr. 27/2023
Sifskaparbrot Börn Forsjá Heimfærsla Refsiheimild
X var ákærð fyrir brot gegn 193. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 fyrir að hafa svipt A valdi og umsjá yfir tveimur börnum þeirra með því að hafa farið með þau úr landi gegn vilja A og haldið þeim þar. Í dómi Hæstaréttar sagði að X og A hafi farið sameiginlega með forsjá barna sinna og átt sama lögheimili þegar h...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen, Ingveldur Einarsdóttir, Karl Axelsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar 5. júní 2023 í samræmi við yfirlýsingu ákærðu um áfrýjun. Ákæruvaldið krefst þess að dómur Landsréttar verði stað...
Mál nr. 30/2023
Almannatryggingar Félagsleg aðstoð Óvígð sambúð Stjórnsýsla Lögskýring Stjórnarskrá Kröfugerð Aðild
A höfðaði mál á hendur T og krafðist þess að ógiltur yrði úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála sem staðfesti ákvörðun T um að synja henni um greiðslu heimilisuppbótar. Umsókn A um heimilisuppbót 9. mars 2020 hafði verið synjað með vísan til þess að samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands væri A í skráðri sambúð o...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen, Ingveldur Einarsdóttir og Sigurður Tómas Magnússon og Þorgeir Örlygsson fyrrverandi hæstaréttardómari.2. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 16. júní 2023. Hún krefst þess að ógiltur verði úrskurður úrskurðarnefndar velferða...
Mál nr. 24/2023
Fæðingarorlof EES-samningurinn EFTA-dómstóllinn Ráðgefandi álit Tryggingagjald
A höfðaði mál á hendur Í og krafðist þess að felldur yrði úr gildi úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála, þar sem staðfest var niðurstaða fæðingarorlofssjóðs um útreikning greiðslna í fæðingarorlofi til A. Taldi A að úrskurðurinn færi í bága við EES-samninginn. A hafði verið búsett og starfandi í Danmörku á 12 mánað...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Ingveldur Einarsdóttir, Karl Axelsson, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 5. maí 2023. Hún krefst þess að felldur verði úr gildi úrskurður úrskurðarn...
Mál nr. 33/2023
Húsaleigusamningur Vanefnd Áhættuskipti Force majeure Túlkun samnings Brostnar forsendur Stjórnunarábyrgð Ógilding samnings
Með leigusamningi til 20 ára leigði Í ehf. til F ehf. fasteign undir hótelrekstur. Vegna aðstæðna sem rekja mátti til heimsfaraldurs Covid-19 lokaði F ehf. hótelinu í apríl 2020. Í málinu krafðist F ehf. að endurgjaldsákvæði leigusamnings aðila yrði breytt á tímabilinu apríl 2020 til mars 2021. Í ehf. krafðist hins veg...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Ingveldur Einarsdóttir, Karl Axelsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.2. Aðaláfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 22. júní 2023. Hann krefst sýknu af kröfum gagnáfrýjanda og að ákvæði greinar 6.1 um leigufjárhæð í leigusamningi að...
Mál nr. 29/2023
Húsaleigusamningur Vanefnd Áhættuskipti Force majeure Túlkun samnings Brostnar forsendur Stjórnunarábyrgð Ógilding samnings
Með leigusamningi til 20 ára leigði S ehf. til B hf. fasteignir undir hótelrekstur. Vegna aðstæðna sem rekja mátti til heimsfaraldurs Covid-19 lokaði B hf. hótelinu í mars 2020. Jafnframt greiddi B hf. 20% af umsaminni leigu á tímabilinu. Í málinu krafði S ehf. B hf. um vangoldnar leigu samkvæmt leigusamningnum, að frá...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Karl Axelsson, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Aðaláfrýjendur skutu málinu upphaflega til Hæstaréttar 5. apríl 2023 en ekki varð af þingfestingu málsins og var áfrýjað að nýju 9. júní 2023. Þeir krefjast ...
Mál nr. 43/2023
Fíkniefnalagabrot Ávana- og fíkniefni Skipulögð brotastarfsemi Heimfærsla Samverknaður Hlutdeild Sönnunargögn Stjórnarskrá Mannréttindasáttmáli Evrópu
Þau brot sem voru til meðferðar fyrir Hæstaréttar voru í fyrsta lagi aðild G og H að innflutningi á 53 lítrum af amfetamínvökva sem falinn hafði verið í saltdreifara sem fluttur var til landsins í byrjun árs 2020 og framleiðslu amfetamíns úr vökvanum í sölu- og dreifingarskyni sem jafnframt var felld undir ákvæði almen...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingveldur Einarsdóttir, Björg Thorarensen, Karl Axelsson, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar 8. september 2023 í samræmi við yfirlýsingar ákærðu um áfrýjun. Ákæruvaldið krefst þess að ómerkingarkrö...
Mál nr. 31/2023
Kynferðisbrot Nauðgun Börn Barnaverndarlagabrot Refsiheimild Heimfærsla Refsiákvörðun Miskabætur
Í þeim hluta málsins sem var til endurskoðunar fyrir Hæstarétti var B í þremur ákæruliðum ákærður fyrir brot gegn 1. mgr. 194. gr. og 1. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga, með því að hafa fengið brotaþola A til að stinga fingri í endaþarm, taka myndband af því og senda sér, með því að hafa fengið brotaþola A og C ti...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Ingveldur Einarsdóttir, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar 21. júní 2023 í samræmi við yfirlýsingu ákærða um áfrýjun. Ákæruvaldið krefst þess að dómur Landsréttar...
Mál nr. 25/2023
Fasteign Forkaupsréttur Kaupsamningur Hjón Tómlæti Ógildi löggernings Stjórnarskrá Sératkvæði
Ágreiningur málsins laut að því hvort forkaupsréttur G og R ehf. á grundvelli skiptayfirlýsingar sem þinglýst var á fasteign málsaðila hefði orðið virkur við sölu B á eignarhluta sínum í fasteigninni til eiginkonu sinnar S. Með skiptayfirlýsingunni var fasteigninni skipt í tvo eignarhluta og kveðið á um gagnkvæman fork...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Ingveldur Einarsdóttir, Karl Axelsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.2. Áfrýjendur skutu málinu til Hæstaréttar 10. maí 2023. Þeir krefjast sýknu af kröfum stefndu en til vara krefst áfrýjandinn Björn Ingólfsson að kaupverð fastei...
Mál nr. 43/2022
Dánarbú Erfðaskrá Dánargjöf Lífsgjöf
A höfðaði mál á hendur niðjum E, skammlífari maka hennar, til ógildingar á gerningi frá 3. desember 2018 um ráðstöfun nánar tilgreindra málverka til niðjanna og krafðist þess að viðurkennt yrði að málverkin teldust hluti óskipts bús þeirra. A lést undir rekstri málsins og tók dánarbú hennar við aðild. Í dómi Hæstarétta...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Ingveldur Einarsdóttir, Karl Axelsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.2. A áfrýjaði málinu til Hæstaréttar 15. ágúst 2022. Í áfrýjunarstefnu er þess krafist að skjali 3. desember 2018 sem ber yfirskriftina „Um ráðstöfun málverka min...
Mál nr. 6/2023
Kynferðisbrot Endurupptaka Ákvörðun refsingar Miskabætur Sératkvæði
Með dómi Landsréttar í máli nr. 43/2018 var X sakfelldur fyrir brot gegn 2. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa í tvö skipti á tilgreindu tímabili káfað á kynfærum dóttur sinnar A. Refsing X var ákveðin fangelsi í níu mánuði en fullnustu sex mánaða hennar frestað skilorðsbundið í þrjú ár. M...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Björg Thorarensen og Sigurður Tómas Magnússon, Helgi I. Jónsson fyrrverandi hæstaréttardómari og Ólafur Ólafsson dómstjóri Héraðsdóms Austurlands.2. Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar 6. janúar 2023 og krefst þess að dómur Land...
Mál nr. 10/2023
Kærumál Fjárslit Óvígð sambúð Opinber skipti Gjafsókn
Kærður var úrskurður Landsréttar þar sem leyst var úr ágreiningi A og B í tengslum við opinber skipti til fjárslita milli þeirra vegna slita óvígðrar sambúðar. Landsréttur vísaði kröfu A um hlutdeild í innbúi frá héraðsdómi en hafnaði kröfum hennar um hlutdeild í öðrum eignum og réttindum sem skráð voru eign B. Fyrir H...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Karl Axelsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 27. desember 2022 en kærumálsgögn bárust réttinum 4. janúar 2023. Kærður er úrskurður Landsréttar 13. desember 2022...
Mál nr. 50/2022
Fjarskipti Fjölmiðill Stjórnvaldsákvörðun Stjórnvaldssekt Ómerking dóms Landsréttar Ómerking héraðsdóms Heimvísun
Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að dómur Landsréttar hefði ekki fullnægt þeim kröfum sem gera yrði til rökstuðnings í dómi fyrir niðurstöðu um sönnunar- og lagaatriði samkvæmt f-lið 1. mgr. 114. gr. laga nr. 91/1991, sbr. 3. og 4. mgr. 164. gr. sömu laga. Þá taldi rétturinn að meðferð málsins hefði farið úr skor...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Karl Axelsson, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 10. október 2023. Hann krefst þess aðallega að ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar nr. 10/2018 verði felld úr gildi ...
Mál nr. 45/2022
Eignarnám Eignarnámsbætur Eignarréttur Afnotaréttur Erfðaskrá Matsgerð
Árið 1938 hafði MEH þáverandi eigandi jarðarinnar V arfleitt SKLH að öllum eigum sínum, þar á meðal V, en með erfðaskránni voru margvíslegar kvaðir lagðar á arfinn varðandi ráðstöfun og nýtingu V. Dánarbú SKLH var tekið til opinberra skipta 1967 og er þeim ólokið. Erfingjar í dánarbúi SKLH höfðuðu á árinu 2014 mál á he...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen og Sigurður Tómas Magnússon og Þorgeir Örlygsson fyrrverandi hæstaréttardómari.2. Áfrýjendur skutu málinu til Hæstaréttar 21. september 2022. Þeir krefjast þess aðallega að stefndi verði dæmdur til að g...
Mál nr. 47/2022
Skaðabætur Viðurkenningarkrafa Kröfuréttur Verksamningur Lagaskil Fyrningarfrestur Málflutningsyfirlýsing
Í málinu krafðist Í hf. viðurkenningar á rétti sínum til skaðabóta úr hendi H ohf. og S ehf. á þeim grundvelli að þeir síðarnefndu hefðu ekki gætt að því við framsal á byggingarreitum á lóðinni að Austurbakka 2 í Reykjavík í apríl og ágúst 2013 að kaupendur þeirra skuldbyndu sig beint gagnvart Í hf. til að virða rétt h...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen, Karl Axelsson, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Áfrýjendur skutu málinu til Hæstaréttar 19. og 22. september 2022. Þeir krefjast sýknu af dómkröfu stefnda og málskostnaðar á öllum dómstigum.3. Stefndi kr...
Mál nr. 52/2022
Manndráp af gáleysi Hlutdeild Vinnuslys Fyrning Refsiákvörðun Skilorð
B og S voru ákærðir fyrir hlutdeild í manndrápi af gáleysi samkvæmt 215. gr., sbr. 22. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, auk brota gegn ákvæðum laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og reglugerðum nr. 367/2006 um notkun tækja og nr. 920/2006 um skipulag og framkvæmd vinnuverndarstarfs...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Karl Axelsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar 25. október 2022 í samræmi við yfirlýsingar ákærðu um áfrýjun. Ákæruvaldið krefst þess að ákærðu verði sakfelld...
Mál nr. 44/2022
Fiskveiðistjórn Aflaheimild Aflahlutdeild Aflamark Stjórnarskrá Jafnræðisregla Atvinnuréttindi Viðurkenningarmál Kröfugerð Lögspurning Frávísun frá héraðsdómi að hluta Aðfinnslur
Með lögum nr. 46/2019 var fest í lög aflamarksstjórn við veiðar á makríl og því skyni gerðar breytingar á lögum nr. 151/1996 um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og lögum nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða. FM höfðaði mál á hendur Í og krafðist viðurkenningar á að óheimilt hafi verið með lögum nr. 46/2019 að takmarka veiði...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Karl Axelsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 6. september 2023. Hann krefst þess aðallega að viðurkennt verði með dómi að óheimilt hafi verið að takmarka heimildir félagsm...
Mál nr. 49/2022
Ábyrgðaryfirlýsing Skaðabótaskylda Sýkna að svo stöddu Ómerking dóms Landsréttar að hluta
K, umboðsfyrirtæki hljómsveitarinnar S, höfðaði mál á hendur LE ehf., L ehf. LV ehf. og G vegna kröfu um greiðslu skuldar vegna tónlistarflutnings hljómsveitarinnar á tónlistarhátíðinni SS sumarið 2018. K byggði kröfu sína á hendur LE ehf. á því að framkvæmdastjóri félagsins hefði í viðtali við fjölmiðla gefið ábyrgðar...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Karl Axelsson, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 21. september 2022. Hann krefst þess að stefndu verði gert að greiða sér óskipt 133.273,45 bandaríkjadali með dráttarv...
Mál nr. 48/2022
Skaðabætur Miskabætur Gæsluvarðhald Framsal sakamanns Stjórnarskrá
A höfðaði mál á hendur Í og krafðist skaðabóta vegna gæslu hans á Ítalíu frá 14. febrúar til 16. ágúst 2017 á meðan hann beið framsals hingað til lands og vegna gæsluvarðhalds sem hann sætti hér á landi frá 17. ágúst 2017 til 10. janúar 2018 í tengslum við rannsókn lögreglu og meðferð sakamáls. A var ákærður fyrir peni...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Ása Ólafsdóttir og Björg Thorarensen, Viðar Már Matthíasson fyrrverandi hæstaréttardómari og Guðmundur Sigurðsson prófessor.2. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 21. september 2022. Hann krefst sýknu af kröfu stefnda og málskostnaðar...
Mál nr. 40/2022
Hæfi dómara Vanhæfi Ómerking dóms Landsréttar
Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að einn dómari málsins í Landsrétti hefði verið vanhæfur til að fara með málið og dæma í því á grundvelli g-liðar 5. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Dómur Landsréttar var því ómerktur og málinu vísað til löglegrar meðferðar fyrir Landsrétti.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Ingveldur Einarsdóttir, Karl Axelsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.2. Aðaláfrýjendur skutu málinu til Hæstaréttar 29. júní 2022. Þeir krefjast þess aðallega að hinn áfrýjaði dómur verði ómerktur og málinu vísað aftur til Landsrét...
Mál nr. 39/2023
Laun Dómarar Opinberir starfsmenn Embættismenn Stjórnarskrá Stjórnsýsla Endurgreiðsla ofgreidds fjár Lögskýring Viðurkenningarkrafa Ógildingarkrafa
Í málinu var deilt um ákvarðanir Í sem vörðuðu laun A og tilkynntar voru með bréfi Fjársýslu ríkisins 29. júní 2022. Í fyrsta lagi var tekin ákvörðun um að breyta viðmiði við árlega uppfærslu launa A, í öðru lagi um að endurkrefja hana um hluta greiddra launa og í þriðja lagi um að lækka laun hennar fyrir júní 2022. Í ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma Lára V. Júlíusdóttir lögmaður, Guðmundur Sigurðsson prófessor, Hrefna Friðriksdóttir prófessor, Kristinn Bjarnason lögmaður og Róbert R. Spanó prófessor.2. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 11. júlí 2023. Áfrýjandi krefst sýknu af öllum kröfum stefndu og málskostnaðar fyrir héraðs...
Mál nr. 18/2023
Fyrning Fyrningarfrestur Skaðabætur Skipting sakarefnis
Sakarefni málsins var skipt í héraði og laut ágreiningurinn aðeins að því hvort ætlaðar kröfur A slhf. um skaðabætur á hendur AV hf., J og S hf. væru fyrndar og hvort um þær færi eftir reglum um skaðabætur innan eða utan samninga. Ætluð krafa A slhf. á hendur AV hf. var reist á því að AV hf. hefði vanefnt þær skuldbind...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Karl Axelsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.2. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 21. apríl 2023. Hann krefst þess að staðfest verði að ófyrnd sé krafa áfrýjanda um skaðabætur úr hendi stefndu vegna tjóns se...
Mál nr. 19/2023
Skaðabætur Stjórnarskrá Líkamstjón Umferðarslys Varanleg örorka
A varð fyrir líkamstjóni í umferðarslysi árið 2011 en hún var þá á 22. aldursári. Hún fékk greiddar bætur úr ábyrgðartryggingu ökutækis hjá T hf. og var við útreikning bóta notast við margföldunarstuðul 1. mgr. 6. gr. skaðabótalaga. Eins og málið lá fyrir Hæstarétti gerði A kröfu um að notast yrði við hærri stuðul en þ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Ingveldur Einarsdóttir, Karl Axelsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.2. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 4. maí 2023 og krefst þess að stefnda verði gert að greiða sér 9.378.976 krónur með 4,5% ársvöxtum frá 28. mars 2014 til...
Mál nr. 55/2023
Kærumál Meiðyrði Málsgögn Leiðbeiningarskylda Frávísun Landsréttar felld úr gildi
Kærður var úrskurður Landsréttar þar sem máli A gegn M var vísað frá Landsrétti á þeim grundvelli að málatilbúnaður A væri ekki í samræmi við meginreglur einkamálaréttarfars um munnlegan málflutning og skýran og ljósan málatilbúnað og frágangur málsgagna í ósamræmi við reglur Landsréttar um málsgögn í einkamálum. Hæsti...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Karl Axelsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.2. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 1. desember 2023 en kærumálsgögn bárust réttinum 7. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Landsréttar 17. nóvember 202...
Mál nr. 40/2023
Kærumál Dánarbú Erfðaskrá Arfleiðsluheimild
Kærður var úrskurður Landsréttar þar sem leyst var úr ágreiningi um gildi og túlkun erfðaskrár I þar sem hann ráðstafaði eignarhlut sínum í jörðinni P til sjö barnabarna sinna. Fyrir lá að verðmæti eignarinnar fór fram úr arfleiðsluheimild samkvæmt 35. gr. erfðalaga nr. 8/1962. Þar sem fyrirmæli erfðaskrárinnar yrðu ek...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Karl Axelsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.2. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 12. júlí 2023 sem barst réttinum 13. sama mánaðar en kærumálsgögn bárust 19. þess mánaðar. Kærður er úrskurður Lan...
Mál nr. 12/2023
Vátrygging Slysatrygging Kjarasamningur Fyrning
A krafðist greiðslu bóta úr slysatryggingu launþega frá V hf., vegna tjóns sem leiddi af atviki [...] desember 2013 þegar hann var við störf sem lögreglumaður. Í kjölfar þessa atburðar glímdi A við áfallastreituröskun. Hæstiréttur féllst ekki á það með A að trygging sú sem um væri deilt væri höfuðstólstrygging sem um g...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen, Ingveldur Einarsdóttir, Karl Axelsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.2. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 14. mars 2023. Hann krefst þess að stefnda verði gert að greiða sér 2.435.071 krónu með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr...
Mál nr. 53/2023
Kærumál Kröfugerð Málsforræði
Kærð var dómsathöfn Landsréttar um að vísa frá héraðsdómi kröfu A að fjárhæð 1.747.350 krónur vegna ætlaðs tjóns hans af búferlaflutningum í tilefni af niðurlagningu stöðu. Í dómi Hæstaréttar var vísað til þess að kröfugerð í einkamálum væri í meginatriðum háð vilja aðila máls og með henni væri sakarefni þess ráðstafað...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Ingveldur Einarsdóttir og Karl Axelsson.2. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 16. nóvember 2023 sem barst réttinum 17. sama mánaðar en kærumálsgögn bárust réttinum 22. þess mánaðar. Kærð er dómsa...
Mál nr. 49/2023
Kærumál Hæfi dómara Vanhæfi Úrskurður Landsréttar felldur úr gildi
Kærður var úrskurður Landsréttar þar sem úrskurður héraðsdóms um að héraðsdómari í málinu viki sæti var staðfestur. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að seta héraðsdómarans í öðru máli um ágreining S ehf. við annan aðila leiddi ekki til þess að hann hefði verið vanhæfur til að fara með mál S ehf. á hendur L slf. á...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingveldur Einarsdóttir, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen og Ólafur Börkur Þorvaldsson og Viðar Már Matthíasson fyrrverandi hæstaréttardómari.2. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 25. september 2023 en kærumálsgögn bárust réttinum 3. október sama á...
Mál nr. 13/2023
Niðurfelling máls Málskostnaður Gjafsókn
Mál R gegn A var fellt niður að ósk R. R lagði ákvörðun um málskostnað í mat Hæstaréttar og A gerði kröfu um málskostnað án tillits til gjafsóknar. Með dómi Hæstaréttar var R gert að greiða A málskostnað sem skyldi renna í ríkissjóð.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen, Ingveldur Einarsdóttir, Karl Axelsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.2. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar 29. mars 2023. Með tölvubréfi til réttarins 24. október sama ár óskaði áfrýjandi eftir því að málið yrði fellt niður...
Mál nr. 16/2023
Stjórnsýsla Rannsóknarregla Sönnun Skip Skipaskrá Aðild Kröfugerð Frávísun frá héraðsdómi að hluta Aðfinnslur
Skipið Amelia Rose var skráð í íslenska skipaskrá árið 2014 með smíðaárið 2003. S ehf. óskaði eftir því við S í júlí 2021 að skráningu skipsins yrði breytt í skipaskrá þannig að það teldist gamalt skip en ekki nýtt, þar sem kjölur þess hefði verið lagður fyrir 1. janúar 2001 og teldist skipið því gamalt í skilningi 2. ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingveldur Einarsdóttir, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Karl Axelsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.2. Aðaláfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 13. apríl 2023. Hann krefst sýknu af kröfum gagnáfrýjanda og málskostnaðar á öllum dómstigum.3. Gagnáfrýjandi áfrýj...
Mál nr. 37/2023
Kærumál Frávísun Málskostnaður
Staðfest var niðurstaða Landsréttar um að vísa kröfum frá Landsrétti og héraðsdómi.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Ingveldur Einarsdóttir og Ólafur Börkur Þorvaldsson.2. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 30. júní 2023 sem barst réttinum sama dag en kærumálsgögn bárust 10. og 18. júlí sama ár. Kærður er dómur...
Mál nr. 38/2023
Kærumál Kaupsamningur Kröfugerð Viðurkenningarkrafa Lögvarðir hagsmunir
Kært var ákvæði í dómi Landsréttar þar sem viðurkenningarkröfu N ehf. var vísað frá héraðsdómi í heild sinni. Í dómi Hæstaréttar var vísað til þess að kröfugerð N ehf. fyrir héraðsdómi um viðurkenningu á skaðabótaskyldu hefði verið svo skýr og ákveðin að unnt hefði verið að taka hana óbreytta upp í dómsorð. Komst Hæsti...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ingveldur Einarsdóttir, Ólafur Börkur Þorvaldsson, Karl Axelsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 30. júní 2023 sem barst réttinum 3. júlí sama ár en kærumálsgögn bárust 6. þess mánaðar. Kært er ákv...
Mál nr. 35/2023
Kærumál Endurupptaka Stefna Málatilbúnaður Útivist í héraði
Kærður var úrskurður Landsréttar þar sem fallist var á beiðni H um endurupptöku málsins fyrir héraðsdómi á grundvelli b-liðar 2. mgr. 137. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála en útivist hafði orðið af hálfu H í héraði. Hæstiréttur vísaði til þess að tímafrestur til endurupptöku samkvæmt 1. mgr. 137. gr. laga nr. ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingveldur Einarsdóttir, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Karl Axelsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 22. maí 2023 en kærumálsgögn bárust réttinum 26. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Landsréttar 9. maí 2023 í ...
Mál nr. 4/2023
Neytendakaup Pakkaferðir Afpöntun Force majeure Endurgreiðsla
S höfðaði mál á hendur F ehf. og krafðist endurgreiðslu vegna ferðar sem hann hafði bókað hjá F og greitt að fullu til Norður-Ítalíu en afpantað daginn fyrir brottför vegna útbreiðslu COVID-19 faraldurs. Hæstiréttur taldi ótvírætt að þegar ferðin var afpöntuð hefðu aðstæður á ákvörðunarstað verið bæði óvenjulegar og óv...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Karl Axelsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 11. janúar 2023. Hann krefst sýknu af kröfum stefnda og málskostnaðar á öllum dómstigum.3. Stefndi krefst staðfestingar hins á...
Mál nr. 5/2023
Ráðningarsamningur Uppsögn Kjarasamningur Túlkun samnings Veikindaforföll Veikindalaun Stjórnarskrá
A krafðist greiðslu launa úr hendi B ehf. í veikindaforföllum. Deila aðila sneri helst að því hvort aðgerð sem A gekkst undir og tilefni hennar félli undir sjúkdómshugtak vinnuréttar og kjarasamnings sem var í gildi þegar hún fór fram eða hvort setning laga nr. 80/2019 um kynrænt sjálfræði hefði leitt til réttindamissi...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Karl Axelsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.2. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 18. janúar 2023. Hann krefst þess að stefnda verði gert að greiða sér 479.368 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr...
Mál nr. 3/2023
Neytendakaup Pakkaferðir Afpöntun Force majeure Endurgreiðsla
Ó höfðaði mál á hendur F ehf. og krafðist endurgreiðslu vegna ferðar sem hann hafði bókað hjá F og greitt að fullu til Norður-Ítalíu en afpantað daginn fyrir brottför vegna útbreiðslu COVID-19 faraldurs. Hæstiréttur taldi ótvírætt að þegar ferðin var afpöntuð hefðu aðstæður á ákvörðunarstað verið bæði óvenjulegar og óv...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Karl Axelsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 11. janúar 2023. Hann krefst sýknu af kröfum stefnda og málskostnaðar á öllum dómstigum.3. Stefndi krefst staðfestingar hins á...
Mál nr. 26/2023
Kærumál Nauðungarsala Sérstök sameign Slit
Kærður var úrskurður Landsréttar þar sem hafnað var kröfu B um ógildingu á nauðungarsölu á hesthúsi sem farið hafði fram að beiðni H til slita á sameign. Í dómi Hæstaréttar voru skilyrði 2. mgr. 8. gr. laga nr. 90/1991 um nauðungarsölu rakin. Fram kom að óumdeilt væri að H reisti beiðni sína á þinglýstum kaupsamningi f...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Ingveldur Einarsdóttir, Karl Axelsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 28. mars 2023 en kærumálsgögn bárust réttinum 5. apríl sama ár. Kærður er úrskurður Landsréttar 14. mars 2023 ...
Mál nr. 2/2023
Neytendakaup Pakkaferðir Afpöntun Force majeure Endurgreiðsla
G höfðaði mál á hendur F ehf. og krafðist endurgreiðslu vegna ferðar sem hann hafði bókað hjá F og greitt að fullu til Norður-Ítalíu en afpantað daginn fyrir brottför vegna útbreiðslu COVID-19 faraldurs. Hæstiréttur taldi ótvírætt að þegar ferðin var afpöntuð hefðu aðstæður á ákvörðunarstað verið bæði óvenjulegar og óv...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Karl Axelsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 11. janúar 2023. Hann krefst sýknu af kröfum stefnda og málskostnaðar á öllum dómstigum. 3. Stefndi krefst staðfestingar hins ...
Mál nr. 28/2023
Kærumál Málskostnaður Frávísun Málsgögn
Staðfestur var úrskurður Landsréttar þar sem vísað var frá réttinum máli vegna ágalla á gerð kærumálsgagna. Hæstiréttur taldi að ekki yrði véfengt það mat Landsréttar að málatilbúnaður sóknaraðila hefði verið svo ófullkominn að vísa hefði mátt málinu frá samkvæmt 2. mgr. 149. gr. laga nr. 91/1991.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Karl Axelsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 6. júní 2023 sem barst réttinum sama dag en kærumálsgögn bárust réttinum 12. sama mánaðar. Kærður er úrsku...
Mál nr. 8/2023
Manndráp Samverknaður Hlutdeild Refsiákvörðun Milliliðalaus sönnunarfærsla Heimfærsla Sönnunarmat Ásetningur Miskabætur Skaðabætur Réttargæslumaður
AS, CS, MS og SQ voru ákærð fyrir manndráp samkvæmt 211. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa í félagi staðið saman að því að svipta A lífi. Héraðsdómur sakfelldi AS samkvæmt ákæru en sýknaði CS, MS og SQ af öllum sakargiftum. Landsréttur komst aftur á móti að þeirri niðurstöðu að þau hefðu öll átt ve...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen, Karl Axelsson, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar 25. janúar 2023 í samræmi við yfirlýsingar ákærðu um áfrýjun. Ákæruvaldið krefst þess að dómur Landsréttar ver...
Mál nr. 29/2022
Náttúruvernd Refsiheimild Refsiábyrgð Stjórnarskrá Auglýsing Sekt Refsiábyrgð lögaðila Sératkvæði
R ehf., nú V ehf.og F var gefið að sök brot gegn lögum nr. 60/2013 um náttúruvernd og auglýsingu nr. 161/2019 um staðfestingu á stjórnunar- og verndaráætlun friðlandsins á Hornströndum með því að hafa staðið fyrir, skipulagt og selt útsýnisflug með tveimur þyrlum um friðlandið og lendingu þar og G og S fyrir að hafa fl...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar 3. maí 2022 í samræmi við yfirlýsingu ákærðu um áfrýjun. Ákæruvaldið krefst þess að staðfest verði niðurstað...
Mál nr. 33/2022
Eignarréttur Hefð Traustfang Jörð Þinglýsing Gjafsókn Sérstök sameign
Ágreiningur málsaðila laut að eignarrétti að jörðinni Bjarnastöðum í sveitarfélaginu Norðurþingi. V krafðist þess að viðurkennt yrði að hún sem eigandi Sigtúna væri eigandi helmings alls lands Bjarnastaða. Byggði hún á því að helmingshlutur jarðarinnar hafi fylgt afsali fyrir Sigtúnum. H og E reistu sýknukröfu sína á þ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen, Ingveldur Einarsdóttir, Karl Axelsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.2. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 27. maí 2022. Hún krefst þess að viðurkennt verði að hún sem eigandi Sigtúna, með landnúmer 154209, sé eigandi helming...
Mál nr. 55/2022
Kærumál Viðurkenningarkrafa Lögmaður Skaðabætur Lögvarðir hagsmunir Vanreifun Frávísunardómur staðfestur
Kærður var dómur Landsréttar þar sem máli A ehf. á hendur H og S hf. var vísað frá héraðsdómi. Ágreiningur málsins fyrir Hæstarétti laut að því hvort A ehf. hefði lögvarða hagsmuni af því að fá efnisdóm í máli um viðurkenningu á óskiptri bótaskyldu H og S hf. vegna lögmannsstarfa H fyrir A ehf. Í dómi Hæstaréttar kom f...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingveldur Einarsdóttir, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen og Sigurður Tómas Magnússon og Helgi I. Jónsson fyrrverandi hæstaréttardómari.2. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 11. nóvember 2022 en kærumálsgögn bárust réttinum 18. sama mánaðar. Kærður...
Mál nr. 27/2022
Skaðabætur Líkamstjón Örorka Miski Uppgjör Fyrirvari Endurupptaka bótaákvörðunar Matsgerð Fyrning Gjafsókn
B slasaðist í umferðarslysi árið 2009 og fékk greiddar bætur úr ábyrgðartryggingu bifreiðar A hjá V hf. árið 2011 á grundvelli matsgerðar um varanlegan miska og varanlega örorku hans. Í kvittun lögmanns B um móttöku bóta þar sem kom fram að fullar og endanlegar bætur væru greiddar vegna slyssins var jafnframt ritað „Me...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen, Ingveldur Einarsdóttir, Karl Axelsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Áfrýjendur skutu málinu til Hæstaréttar 29. apríl 2022 og krefjast sýknu af öllum kröfum stefnda og málskostnaðar á öllum dómstigum.3. Stefndi krefst þess að ...
Mál nr. 35/2022
Persónuvernd Persónuupplýsingar Fjölmiðill Friðhelgi einkalífs Tjáningarfrelsi Stjórnarskrá Mannréttindasáttmáli Evrópu Málsástæða Málskostnaður Gjafsókn
Málið átti rætur að rekja til sýningar á sjónvarpsþætti en í honum voru meðal annars sýnd viðtöl við B sem tekin höfðu verið upp sumarið áður. Ágreiningur aðila laut að kröfu B um greiðslu miskabóta úr hendi A meðal annars á þeim grundvelli að í þættinum hefðu komið fram viðkvæmar persónuupplýsingar án samþykkis hennar...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingveldur Einarsdóttir, Ása Ólafsdóttir, Karl Axelsson, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Aðaláfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 2. júní 2022. Hann krefst sýknu af kröfum gagnáfrýjanda og „málskostnaðar að mati Hæstaréttar“ án tillits ti...
Mál nr. 54/2022
Kærumál Áfrýjunarstefna Aðild Ómerking
Kærður var úrskurður Landsréttar þar sem máli A á hendur B hf. var vísað frá Landsrétti. Undir rekstri málsins í héraði höfðu orðið þau mistök að ranglega var skipt um nafn stefnda. Hæstiréttur vísaði til þess að ekki væri við neinar skráðar lagareglur eða fordæmi að styðjast við úrlausn þess hvaða réttarfarslegar afle...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Ingveldur Einarsdóttir og Sigurður Tómas Magnússon.2. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 3. nóvember 2022 en kærumálsgögn bárust réttinum 10. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Landsréttar 21. okt...
Mál nr. 53/2022
Kærumál Hjón Fjárskipti Frávísun frá héraðsdómi
Kærður var úrskurður Landsréttar sem felldi úr gildi úrskurð héraðsdóms þar sem leyst var úr ágreiningi aðila við opinber skipti til fjárslita milli þeirra vegna hjónaskilnaðar. Ágreiningur aðila laut að skiptum á margvíslegum eignum; töluverðum fjölda fasteigna, miklum fjölda bifreiða og tækja, hluta í einkahlutafélög...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Karl Axelsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 28. október 2022 sem barst réttinum 31. sama mánaðar en kærumálsgögn bárust 7. nóvember sama ár. Kærður er...
Mál nr. 28/2022
Endurupptaka Endurupptökudómur Réttlát málsmeðferð Stjórnarskrá Mannréttindasáttmáli Evrópu Dómari Dómstóll Akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna Akstur sviptur ökurétti Reynslulausn Skilorðsrof Ómerking dóms Landsréttar
Með dómi Landsréttar 23. mars 2018 í máli nr. 6/2018 var X sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Með dómi Hæstaréttar 24. maí 2018 í máli nr. 10/2018 var dómur Landsréttar staðfestur. Fyrir Hæstarétti krafðist X aðallega ómerkingar hins áfr...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingveldur Einarsdóttir, Ása Ólafsdóttir, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Sigurður Tómas Magnússon og Ingibjörg Benediktsdóttir fyrrverandi hæstaréttardómari. 2. Með úrskurði Endurupptökudóms 31. mars 2022 í máli nr. 3/2022 var fallist á beiðni ákærða um endurupptöku ...
Mál nr. 30/2022
Fasteignakaup Riftun Haldsréttur Uppgjör Sératkvæði
Ágreiningur málsaðila laut að uppgjöri í kjölfar riftunar G á kaupsamningi milli aðila um fasteign. Krafðist M þess að G yrði gert að greiða sér leigu fyrir afnot af fasteigninni fyrir þann tíma er hún hefði haft umráð hennar. Í dómi Hæstaréttar var rakið að hafi samningur verið efndur í heild eða að hluta þegar honum ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Karl Axelsson, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 10. maí 2022. Hann krefst þess að stefndu verði gert að greiða sér 15.995.882 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr...
Mál nr. 32/2022
Hæfi dómara Vanhæfi Ómerking dóms Landsréttar
Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að einn dómari málsins í Landsrétti hefði verið vanhæfur til að fara með málið og dæma í því á grundvelli b-liðar 5. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Dómur Landsréttar var því ómerktur og málinu vísað til löglegrar meðferðar fyrir Landsrétti.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen, Ingveldur Einarsdóttir, Karl Axelsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.2. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 27. maí 2022. Hún krefst þess aðallega að hinn áfrýjaði dómur verði ómerktur og málinu vísað á ný til Landsréttar til ...
Mál nr. 7/2022
Endurupptaka Endurupptökudómur Réttlát málsmeðferð Milliliðalaus sönnunarfærsla Mannréttindasáttmáli Evrópu Frávísun frá Hæstarétti
Með dómi Hæstaréttar 31. október 2013 í máli nr. 135/2013 hafði X verið sakfelldur fyrir hlutdeild í umboðssvikum samkvæmt 249. gr., sbr. 1. mgr. 22. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Endurupptökudómur féllst á beiðni X um endurupptöku málsins. Í dómi Hæstaréttar var rakið að munnleg sönnunarfærsla gæti ekki fari...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason og Ása Ólafsdóttir og Helgi I. Jónsson, Ingibjörg Benediktsdóttir og Þorgeir Örlygsson fyrrverandi hæstaréttardómarar.2. Með úrskurði Endurupptökudóms 30. desember 2021 í máli nr. 26/2021 var fallist á beiðni ákærða um endurupptöku á hæstaréttarmá...
Mál nr. 24/2022
Gjaldþrotaskipti Þrotabú Greiðsla Riftun Áfrýjunarleyfi Gagnáfrýjun
Þrotabú D höfðaði mál á hendur Í og krafðist riftunar á tveimur greiðslum sem inntar voru af hendi af þriðja aðila til Í vegna skulda D og námu samtals 125.946.684 krónum. Var annars vegar um að ræða greiðslu að fjárhæð 85.000.000 krónur en hins vegar að fjárhæð 40.946.684 krónur. Beiðni D um áfrýjunarleyfi var afmörku...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingveldur Einarsdóttir, Björg Thorarensen, Karl Axelsson, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Aðaláfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 7. apríl 2022. Í aðalsök er þess krafist að hinn áfrýjaði dómur verði staðfestur um að rift sé greiðslu 8....
Mál nr. 14/2022
Gjaldþrotaskipti Þrotabú Greiðsla Riftun Áfrýjunarleyfi Gagnáfrýjun
Þrotabú P höfðaði mál á hendur Í og krafðist riftunar á tveimur greiðslum sem inntar voru af hendi af þriðja aðila til Í vegna skulda P og námu samtals 70.787.549 krónum. Var annars vegar um að ræða greiðslu að fjárhæð 1.599.049 krónur en hins vegar að fjárhæð 69.188.500 krónur. Beiðni P um áfrýjunarleyfi var afmörkuð ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingveldur Einarsdóttir, Björg Thorarensen, Karl Axelsson, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Aðaláfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 4. mars 2022. Í aðalsök er þess krafist að hinn áfrýjaði dómur verði staðfestur um að rift sé greiðslu 13....
Mál nr. 39/2022
Kærumál Jörð Fasteign Samlagsaðild Kröfugerð Viðurkenningarkrafa Frávísunarúrskurður Landsréttar staðfestur
Kærður var úrskurður Landsréttar þar sem máli AJ á hendur K, K ehf., M, R og AB var vísað frá héraðsdómi. Ágreiningur málsins laut einkum að afmörkun jarðarinnar Dalbæjar 1, sem er í eigu AJ, gagnvart jörðunum Dalbær 2 og Dalbær 3 og nýtingu jarðarinnar. Með fyrri kröfu sinni krafðist AJ viðurkenningar á því að Dalbæ 2...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Ingveldur Einarsdóttir og Ólafur Börkur Þorvaldsson.2. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 24. júní 2022 en kærumálsgögn bárust réttinum 4. júlí 2022. Kærður er úrskurður Landsréttar 10. júní 2022...
Mál nr. 21/2022
Endurupptaka Skattalög Fjármagnstekjuskattur Mannréttindasáttmáli Evrópu Skriflegur málflutningur Frávísun frá héraðsdómi
Með dómi Hæstaréttar 15. maí 2014 í máli nr. 465/2013 hafði X verið sakfelldur fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum. Með úrskurði Endurupptökudóms 21. janúar 2022 var fallist á beiðni X um endurupptöku málsins. Ákæruvaldið tók undir kröfu X um að vísa málinu frá héraðsdómi þar sem efnismeðferð og sakfelling myndi b...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir og Björg Thorarensen og Árni Kolbeinsson og Viðar Már Matthíasson fyrrverandi hæstaréttardómarar.2. Með úrskurði Endurupptökudóms 21. janúar 2022 var fallist á beiðni ákærða um endurupptöku á hæstaréttarmálinu nr. 465/2013 sem dæm...
Mál nr. 41/2022
Kærumál Dánarbú Skiptastjóri Þóknun Málskostnaður
Kærður var úrskurður Landsréttar þar sem leyst var úr ágreiningi A og B annars vegar og C hins vegar um þóknun C sem skiptastjóra í dánarbúi D. Í dómi Hæstaréttar var fallist á niðurstöðu hins kærða úrskurðar að miða bæri þóknun C við 25.900 krónur fyrir hverja unna vinnustund. Þá var talið að A og B hefðu glatað rétti...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Ingveldur Einarsdóttir, Karl Axelsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Sóknaraðilar skutu málinu til Hæstaréttar með kæru 5. júní 2022 en kærumálsgögn bárust réttinum 9. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Landsréttar 24. maí 2022 þa...
Mál nr. 4/2022
Vátryggingarsamningur Vátryggingarskilmálar Vátrygging Brunatrygging Uppgjör Virðisaukaskattur Viðurkenningarkrafa
Ágreiningur aðila fyrir Hæstarétti laut að bótarétti Þ ehf. úr brunatryggingu tilgreindrar fasteignar hjá S hf. sem brann árið 2017 og þýðingu skilmála í vátryggingarsamningi milli aðila um að bætur skyldu lækka ef vátryggður gæti nýtt kostnað vegna tjóns til skattafrádráttar. Í dómi Hæstaréttar var rakið að málatilbún...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen, Ingveldur Einarsdóttir, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 21. janúar 2022. Hann krefst þess að viðurkennd verði skylda stefnda til að greiða sér 202.852.875 krónur í...
Mál nr. 35/2020
Endurupptaka Umboðssvik Fjármálafyrirtæki Hæfi dómara Frávísun frá Hæstarétti
Með dómi Hæstaréttar í máli nr. 478/2014 var M sakfelldur fyrir umboðssvik í starfsemi G hf., sbr. 249. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Refsing hans var ákveðin fangelsi í 2 ár. Með úrskurði endurupptökunefndar í október 2020 var fallist á beiðni M um endurupptöku málsins. Vísaði nefndin til þess að einn dómara...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir og Karl Axelsson og Kristinn Halldórsson dómstjóri og Ragnheiður Harðardóttir landsréttardómari.2. Með úrskurði endurupptökunefndar 23. október 2020 var fallist á beiðni ákærða um endurupptöku á hæstaréttarmáli nr. 478/2014 sem dæ...
Mál nr. 11/2022
Endurupptaka Skattalög Fjármagnstekjuskattur Mannréttindasáttmáli Evrópu Skriflegur málflutningur Frávísun frá héraðsdómi
Með dómi Hæstaréttar 22. maí 2014 í máli nr. 416/2013 hafði X verið sakfelldur fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum. Með úrskurði Endurupptökudóms 21. janúar 2022 var fallist á beiðni X um endurupptöku málsins. Ákæruvaldið tók undir kröfu X um að vísa málinu frá héraðsdómi þar sem efnismeðferð og sakfelling myndi b...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingveldur Einarsdóttir, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Með úrskurði Endurupptökudóms 21. janúar 2022 var fallist á beiðni ákærða um endurupptöku á hæstaréttarmálinu nr. 416/2013 sem dæmt var 22. maí 201...
Mál nr. 3/2022
Sveitarfélög Lóðarleigusamningur Endurgreiðslukrafa Gjaldtaka Stjórnarskrá
Ágreiningur aðila átti rætur að rekja til samkomulags frá 22. janúar 2016 milli R annars vegar og H ehf. og V ehf. hins vegar sem þáverandi lóðarhafa á nánar tilgreindu svæði í Reykjavík. Með samkomulaginu gengust lóðarhafar undir þá skyldu að greiða innviðagjald sem ætlað var að standa straum af uppbyggingu svæðisins ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Ingveldur Einarsdóttir og Sigurður Tómas Magnússon.2. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 19. janúar 2022. Hann krefst þess aðallega að stefndi verði dæmdur til að greiða sér 120.101.383 krónur ásamt vöxtum ...
Mál nr. 10/2022
Endurupptaka Endurupptökudómur Réttlát málsmeðferð Mannréttindasáttmáli Evrópu Skattsvik Staðgreiðsla opinberra gjalda Fjármagnstekjuskattur Málshraði Dráttur á máli Tafir á meðferð máls Frávísun frá héraðsdómi Refsiákvörðun Málskostnaður
Með dómi Hæstaréttar 7. febrúar 2013 í máli nr. 74/2012 voru J og T sakfelldir fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum, sem þeir frömdu í eigin nafni og sem stjórnendur B hf. Endurupptökudómur féllst á beiðni J og T um endurupptöku málsins. Vísað var til þess að Mannréttindadómstóll Evrópu hefði 18. maí 2017 komist að...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma Ása Ólafsdóttir hæstaréttardómari, Árni Kolbeinsson, Eiríkur Tómasson og Hjördís Hákonardóttir fyrrverandi hæstaréttardómarar og Þorgeir Ingi Njálsson landsréttardómari.2. Með úrskurði Endurupptökudóms 21. janúar 2022 var fallist á beiðni ákærðu um endurupptöku á hæstaréttarmálinu nr. ...
Mál nr. 8/2022
Endurupptaka Endurupptökudómur Réttlát málsmeðferð Milliliðalaus sönnunarfærsla Mannréttindasáttmáli Evrópu Skriflegur málflutningur Frávísun frá Hæstarétti
Með dómi Hæstaréttar 28. apríl 2016 í máli nr. 74/2015 höfðu X, Y og Z verið sakfelld fyrir ýmsa háttsemi í starfsemi A ehf. Með úrskurðum Endurupptökudóms 30. desember 2021 var fallist á beiðni þeirra um endurupptöku málsins. Í dómi Hæstaréttar kom fram að ákæruvaldið tæki undir kröfu X, Y og Z um að vísa málinu frá H...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma Ása Ólafsdóttir hæstaréttardómari, Hjördís Hákonardóttir, Ingibjörg Benediktsdóttir og Þorgeir Örlygsson fyrrverandi hæstaréttardómarar og Þorgeir Ingi Njálsson landsréttardómari.2. Með úrskurðum Endurupptökudóms í málum nr. 20/2021, 29/2021 og 30/2021, öllum uppkveðnum 30. desember 20...
Mál nr. 18/2022
Aðild Málskostnaður Frávísun frá héraðsdómi
Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að K, sem deild innan Í, uppfyllti ekki þann áskilnað 1. mgr. 16. gr. laga nr. 91/1991 að geta átt réttindi eða borið skyldur að landslögum. Því væri óhjákvæmilegt að vísa málinu sjálfkrafa frá héraðsdómi.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingveldur Einarsdóttir, Björg Thorarensen, Karl Axelsson, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 21. mars 2022. Hann krefst sýknu af kröfu stefnda en til vara að kröfur hans verði lækkaðar verulega. Þá krefs...
Mál nr. 17/2022
Viðurkenningarkrafa Almannatryggingar Ellilífeyrir Heimilisuppbót Lífeyrisréttindi Stjórnarskrá Mannréttindasáttmáli Evrópu Eignarréttur Meðalhóf Jafnræðisregla Gjafsókn
B höfðaði mál á hendur T og Í og krafðist viðurkenningar á að T hefði á tímabilinu 1. mars 2017 til 1. apríl 2020 verið óheimilt að skerða ellilífeyri til hennar samkvæmt lögum um almannatryggingar nr. 100/2007 og heimilisuppbót samkvæmt lögum nr. 99/2007 um félagslega aðstoð vegna greiðslna sem B naut á sama tímabili ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Karl Axelsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 4. mars 2022. Hún krefst þess að viðurkennt verði með dómi að stefndu Tryggingastofnun ríkisins hafi á tímabilinu 1. ...
Mál nr. 15/2022
Viðurkenningarkrafa Almannatryggingar Ellilífeyrir Lífeyrisréttindi Stjórnarskrá Mannréttindasáttmáli Evrópu Eignarréttur Meðalhóf Jafnræðisregla Gjafsókn
A höfðaði mál á hendur T og Í og krafðist viðurkenningar á að T hefði á tímabilinu 1. mars 2017 til 1. apríl 2020 verið óheimilt að skerða ellilífeyri til hans samkvæmt lögum um almannatryggingar nr. 100/2007 vegna greiðslna sem A naut á sama tímabili úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum á þann hátt að lækka ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Karl Axelsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 4. mars 2022. Hann krefst þess að viðurkennt verði með dómi að stefndu Tryggingastofnun ríkisins hafi á tímabilinu 1....
Mál nr. 16/2022
Viðurkenningarkrafa Almannatryggingar Ellilífeyrir Lífeyrisréttindi Stjórnarskrá Mannréttindasáttmáli Evrópu Eignarréttur Meðalhóf Jafnræðisregla Gjafsókn
C höfðaði mál á hendur T og Í og krafðist viðurkenningar á að T hefði á tímabilinu 1. mars 2017 til 1. apríl 2020 verið óheimilt að skerða ellilífeyri til hennar samkvæmt lögum um almannatryggingar nr. 100/2007 vegna greiðslna sem C naut á sama tímabili úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum á þann hátt að lækk...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Karl Axelsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 4. mars 2022. Hún krefst þess að viðurkennt verði með dómi að stefndu Tryggingastofnun ríkisins hafi á tímabilinu 1. ...
Mál nr. 22/2022
Hæfi dómara Vanhæfi Ómerking dóms Landsréttar
Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að tveir dómara málsins í Landsrétti hefðu verið vanhæfir til að fara með málið og dæma í því á grundvelli g-liðar 5. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Dómur Landsréttar var því ómerktur og málinu vísað til löglegrar meðferðar fyrir Landsrétti.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Karl Axelsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.2. Áfrýjendur skutu málinu til Hæstaréttar 1. apríl 2022. Þeir krefjast sýknu af kröfum stefnda. Þá krefjast áfrýjendur málskostnaðar á öllum dómstigum.3. Stefndi kref...
Mál nr. 20/2022
Lax- og silungsveiði Félagafrelsi Eignarréttur Stjórnarskrá Mannréttindasáttmáli Evrópu Sameign Viðurkenningarkrafa Málsástæða Málskostnaður Sératkvæði
Ágreiningur aðila laut að því hvort V væri heimilt á grundvelli e-liðar 1. mgr. 37. gr. laga nr. 61/2006 að selja veiðihús félagsins að Fossási í Borgarbyggð á leigu til almenns gisti- og veitingarekstrar utan skilgreinds veiðitímabils samkvæmt lögunum í ljósi fyrirmæla 2. mgr. 74. gr. stjórnarskrárinnar um neikvætt fé...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen, Ingveldur Einarsdóttir, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Áfrýjendur skutu málinu til Hæstaréttar 22. mars 2022. Þau krefjast þess hvort um sig að viðurkennt verði með dómi að stefnda sé óheimilt að selja...
Mál nr. 2/2022
Ákæra Umboðssvik Mútur Peningaþvætti Hlutdeild Lögskýring Skilorð Upptaka Einkaréttarkrafa Skaðabætur Frávísun frá héraðsdómi að hluta
G var ákærður fyrir hlutdeild í umboðssvikum samkvæmt 249. gr. almennra hegningarlaga, mútugreiðslur samkvæmt 1. mgr. 264. gr. a laganna og peningaþvætti samkvæmt 1. mgr., sbr. 2. mgr. 264. gr. laganna og R fyrir umboðssvik, mútuþægni samkvæmt 2. mgr. 264. gr. a laganna og peningaþvætti. Hæstiréttur vísaði til þess að ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingveldur Einarsdóttir, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Karl Axelsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar 20. desember 2021. Ákæruvaldið krefst þess að ákærðu verði sakfelldir samkvæmt ákæru og að refsing þeirra verði þy...
Mál nr. 31/2022
Líkamsárás Brot í nánu sambandi Manndráp Tilraun Heimfærsla Ásetningur Gáleysi Sönnun Viðurkenningarkrafa Miskabætur Skaðabætur Sakarkostnaður Frávísun frá héraðsdómi að hluta
Ágreiningsefni málsins um heimfærslu háttsemi X til refsiákvæða laut að því hvort hún skyldi heimfærð til 211. gr., sbr. 20. gr., almennra hegningarlaga eða til. 2. mgr. 218. gr. sömu laga en ágreiningslaust var hins vegar að háttsemi X mætti færa undir 1., sbr. 2. mgr. 218. gr. b laganna. Í Landsrétti var háttsemin he...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Karl Axelsson, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar 16. maí 2022 í samræmi við yfirlýsingu ákærða um áfrýjun. Ákæruvaldið krefst þess að ákærði verði sakfelldur sam...
Mál nr. 17/2023
Skaðabætur Líkamstjón Umferðarslys Árslaun Viðmiðunartekjur Varanleg örorka
A varð fyrir líkamstjóni í umferðarslysi árið 2014 en hún var þá nýlega orðin 18 ára og barnshafandi. Hún fékk greiddar bætur úr ábyrgðartryggingu ökutækis hjá T hf. og var við útreikning bóta vegna varanlegrar örorku miðað við lágmarkslaun samkvæmt 3. mgr. 7. gr. skaðabótalaga. Í málinu gerði A kröfu um að meta skyldi...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Karl Axelsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.2. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 14. apríl 2023 og krefst sýknu af kröfum stefndu og málskostnaðar fyrir Landsrétti og Hæstarétti.3. Stefnda krefst aðallega s...
Mál nr. 9/2023
Félagsleg aðstoð Stjórnarskrá Mannréttindasáttmáli Evrópu Jafnræðisregla Eignarréttur Kröfugerð Lögvarðir hagsmunir Viðurkenningarkrafa Frávísun frá héraðsdómi að hluta
A og Ö höfðuðu mál á hendur T vegna setningar laga nr. 116/2016 sem bættu nýrri reglu um áhrif tekna á útreikning ellilífeyris í 1. mgr. 23. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar. A og Ö töldu að með lögunum hefði komist á ólögmæt mismunun gagnvart örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegum sem bryti gegn jafnræðisregl...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen, Ingveldur Einarsdóttir, Karl Axelsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.2. Áfrýjendur skutu málinu til Hæstaréttar 9. febrúar 2023. Áfrýjandi A krefst þess aðallega að stefnda verði gert að greiða sér 402.462 krónur með dráttarvöxtu...
Mál nr. 46/2023
Kærumál Frávísun frá Hæstarétti Málskostnaður
Kærður var úrskurður Landsréttar þar sem úrskurður héraðsdóms um þóknun vegna vinnu varnaraðila sem skipaðs verjanda var felldur úr gildi. Í niðurstöðu Hæstaréttar kom fram að í 1. mgr. 211. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála væri ekki fyrir hendi heimild til þess að kæra til Hæstaréttar fyrrgreindan ágreining. V...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Ingveldur Einarsdóttir og Karl Axelsson.2. Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 6. október 2023 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 10. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Landsréttar 3. október ...
Mál nr. 7/2023
Hæfi dómara Vanhæfi Ómerking dóms Landsréttar
Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að sérfróður meðdómandi í málinu í Landsrétti hefði verið vanhæfur til að fara með málið og dæma í því á grundvelli g-liðar 5. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Dómur Landsréttar var því ómerktur og málinu vísað til löglegrar meðferðar fyrir Landsrétti.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Ingveldur Einarsdóttir, Karl Axelsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.2. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 27. janúar 2023. Hann krefst þess aðallega að hinn áfrýjaði dómur verði ómerktur. Til vara krefst hann sýknu af öllum kr...
Mál nr. 45/2023
Kærumál Kæruheimild Frávísun frá Hæstarétti Aðfinnslur Sérálit
Kærður var úrskurður Landsréttar þar sem Landsréttur hafði staðfest úrskurð héraðsdóms en vísað frá dómi kröfum A gegn varnaraðilunum F, G, V hf. og H ehf. Í niðurstöðu Hæstaréttar kom fram að úrskurður Landsréttar gæti sætt kæru til Hæstaréttar ef ekki hefðu verið staðfest ákvæði í dómi héraðsdóms um frávísun. Brast þ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Ingveldur Einarsdóttir og Karl Axelsson.2. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 22. september 2023 sem barst réttinum 26. sama mánaðar en kærumálsgögn bárust 28. þess mánaðar. Kærður er úrskurður L...
Mál nr. 32/2023
Kærumál Börn Faðerni Vefengingarmál Mannerfðafræðileg rannsókn Friðhelgi einkalífs Stjórnarskrá
Kærður var úrskurður Landsréttar þar sem kröfu A og B um mannerfðafræðilega rannsókn á grundvelli 15. gr. barnalaga var hafnað. Laut krafan að því að rannsókn skyldi fara fram á því hvort að sonur C væri sonur látins föður A og B en þau höfðu höfðað mál til vefengingar á því. Í dómi Hæstaréttar var vísað til þess að dr...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Ingveldur Einarsdóttir og Karl Axelsson.2. Sóknaraðilar skutu málinu til Hæstaréttar með ódagsettri kæru sem barst Landsrétti 8. júní 2023. Kærumálsgögn bárust Hæstarétti 14. sama mánaðar. Kærður er úrskurður L...
Mál nr. 56/2022
Endurupptaka Markaðsmisnotkun Fjármálafyrirtæki
Með úrskurði endurupptökudóms í máli nr. 15/2022 var fallist á beiðni ÍG um endurupptöku á máli nr. 842/2014, sem dæmt var í Hæstarétti 4. febrúar 2016 hvað hann varðar. Í málinu var ÍG, sem forstöðumaður eigin fjárfestinga L hf., ákærður fyrir markaðsmisnotkun sem lýst var í 117. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðs...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir og Ólafur Börkur Þorvaldsson og landsréttardómararnir Eiríkur Jónsson og Þorgeir Ingi Njálsson.2. Með úrskurði Endurupptökudóms 31. október 2022 í máli nr. 15/2022 var fallist á beiðni ákærða um endurupptöku á hæstaréttarmálinu nr...
Mál nr. 14/2023
Endurupptaka Skattalög Fjármagnstekjuskattur Mannréttindasáttmáli Evrópu Skriflegur málflutningur Frávísun frá héraðsdómi
Með dómi Hæstaréttar 11. júní 2015 í máli nr. 550/2014 hafði X verið sakfelldur fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum og 262. gr. almennra hegningarlaga. Með úrskurði Endurupptökudóms 28. febrúar 2023 var fallist á beiðni X um endurupptöku málsins hvað hann varðaði. Ákæruvaldið tók undir kröfu X um að vísa málinu fr...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Björg Thorarensen og Ása Ólafsdóttir og landsréttardómararnir Aðalsteinn E. Jónasson, Davíð Þór Björgvinsson og Ragnheiður Harðardóttir.2. Með úrskurði Endurupptökudóms 28. febrúar 2023 í máli nr. 26/2022 var fallist á beiðni A, eftirlifandi maka ákærða, X, um end...
Mál nr. 11/2023
Skaðabætur Slysatrygging Líkamstjón Kjarasamningur Gjafsókn Sératkvæði
A varð fyrir líkamstjóni á árinu 2018 þegar ekið var á hann á gangbraut við Ánanaust. A var á slysdegi starfsmaður R. Aðilar höfðu gert með sér samgöngusamning sem fól í sér að A gekkst undir að notast við vistvænan samgöngumáta á leið til og frá vinnu. Fyrir lá að A kaus að ganga til vinnu en hlaupa frá vinnustað til ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Ingveldur Einarsdóttir og Karl Axelsson.2. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 14. febrúar 2023 og krefst sýknu af kröfum stefnda og málskostnaðar fyrir Landsrétti og Hæstarétti.3. Stefndi krefst staðfesting...
Mál nr. 57/2022
Kærumál Niðurfelling máls Kærumálskostnaður Gjafsókn
Mál A gegn dánarbúi B var fellt niður að ósk A. A gerði kröfu um kærumálskostnað án tillits til gjafsóknar og B um kærumálskostnað fyrir Hæstarétti. Rétt þótti að kærumálskostnaður félli niður fyrir Hæstarétti en gjafsóknarkostnaður A var felldur á ríkissjóð.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Ingveldur Einarsdóttir og Ólafur Börkur Þorvaldsson2. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 26. október 2022 en kærumálsgögn bárust réttinum 4. nóvember sama ár. Kærður er úrskurður Landsréttar 13. ...
Mál nr. 38/2022
Endurupptaka Fjármálafyrirtæki Markaðsmisnotkun Mannréttindasáttmáli Evrópu Skriflegur málflutningur Frávísun frá Hæstarétti
Með dómi Hæstaréttar 4. febrúar 2016 í máli nr. 842/2014 hafði X verið sakfelldur fyrir markaðsmisnotkun. Með úrskurði Endurupptökudóms 19. maí 2022 var fallist á beiðni X um endurupptöku málsins að því er hann varðaði. Í dómi Hæstaréttar kom fram að ákæruvaldið krefðist þess að málinu yrði vísað frá réttinum. Að gættr...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir og Ólafur Börkur Þorvaldsson og Ingibjörg Benediktsdóttir fyrrverandi hæstaréttardómari og Þorgeir Ingi Njálsson landsréttardómari.2. Með úrskurði Endurupptökudóms 19. maí 2022 var fallist á beiðni ákærða um endurupptöku á hæstaré...
Mál nr. 46/2022
Kynferðisbrot Nauðgun Sönnun Ómerkingarkröfu hafnað
X var ákærður fyrir nauðgun og stórfellt brot í nánu sambandi samkvæmt 1. mgr. 194. gr. og 1. mgr., sbr. 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa ráðist að fyrrverandi kærustu sinni með ofbeldi og haft samræði og önnur kynferðismök við hana án hennar samþykkis. Héraðsdómur sýknaði X af öllum ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Ingveldur Einarsdóttir og Sigurður Tómas Magnússon.2. Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar 21. september 2022 í samræmi við yfirlýsingu ákærða um áfrýjun. Ákæruvaldið krefst þess að dómur Landsréttar ve...
Mál nr. 37/2022
Skuldamál Neytendalán Samningur Skuldabréf Ógilding samnings EES-samningurinn Málsástæða
Í málinu var deilt um heimild Í til að krefja Ó og M um þóknun við uppgreiðslu á húsnæðisláni sem þau höfðu tekið í júlí 2008 hjá Í. Ágreiningurinn laut einkum að afleiðingum þess að í skilmálum lánssamnings aðila skorti ákvæði um útreikning þóknunarinnar þrátt fyrir lagaskyldu þar um og hvort Ó og M ættu af þeirri ást...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen, Ingveldur Einarsdóttir, Karl Axelsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Áfrýjendur skutu málinu til Hæstaréttar 16. júní 2022. Þau krefjast þess að stefnda verði gert að greiða þeim 2.744.856 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt 1. m...
Mál nr. 36/2022
Slysatrygging Líkamstjón Miski Stjórnarskrá Vátryggingarsamningur Uppgjör Fyrirvari Endurupptaka bótaákvörðunar Sjómaður
A slasaðist á árinu 2014 við störf á frystitogara og var vinnuveitandi hans með áhöfn skipsins vátryggða hjá S hf. í samræmi við fyrirmæli 172. gr. siglingalaga nr. 34/1985. A fékk greiddar bætur úr slysatryggingunni 2016 og gerði fyrirvara við bótauppgjörið um rétt til frekari bóta yrði varanleg örorka og/eða miski sí...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Karl Axelsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.2. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 16. júní 2022. Hann krefst sýknu af öllum kröfum stefnda og málskostnaðar á öllum dómstigum.3. Stefndi krefst staðfestingar h...
Mál nr. 42/2022
Endurupptaka Skattalög Fjármagnstekjuskattur Mannréttindasáttmáli Evrópu Skriflegur málflutningur Frávísun frá héraðsdómi
Með dómi Hæstaréttar 21. september 2017 í máli nr. 283/2016 hafði X verið sakfelldur fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum. Með úrskurði Endurupptökudóms 15. júní 2022 var fallist á beiðni X um endurupptöku málsins. Ákæruvaldið tók undir kröfu X um að vísa málinu frá héraðsdómi þar sem efnismeðferð og sakfelling myn...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingveldur Einarsdóttir, Ása Ólafsdóttir og Sigurður Tómas Magnússon og Árni Kolbeinsson og Ingibjörg Benediktsdóttir fyrrverandi hæstaréttardómarar.2. Með úrskurði Endurupptökudóms 15. júní 2022 var fallist á beiðni ákærða um endurupptöku á hæstaréttarmálinu nr. 2...
Mál nr. 1/2023
Kærumál Lögvarðir hagsmunir Frávísun frá Landsrétti staðfest Frávísun frá Hæstarétti að hluta
Kærður var úrskurður Landsréttar þar sem aðalkröfu S ehf. um frávísun þess máls sem S ehf. hafði höfðað á hendur R frá héraðsdómi var vísað frá Landsrétti og varakröfu hans um ómerkingu héraðsdóms var hafnað. Hæstiréttur staðfesti með vísan til forsendna niðurstöðu hins kærða úrskurðar um frávísun á þeirri kröfu S ehf....
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingveldur Einarsdóttir, Ása Ólafsdóttir, Karl Axelsson, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 30. desember 2022 sem barst réttinum 2. janúar 2023 en kærumálsgögn bárust réttinum 9. sama mánaðar. ...
Mál nr. 58/2022
Kærumál Börn Innsetningargerð Stjórnarskrá Mannréttindasáttmáli Evrópu Haagsamningurinn Gjafsókn Ómerking úrskurðar Landsréttar
Kærður var úrskurður Landsréttar þar sem fallist var á kröfu B um að honum væri heimilt að liðnum þremur mánuðum frá uppsögu úrskurðarins að fá barnið C tekið úr umráðum A og afhent sér með beinni aðfarargerð, hefði A ekki áður farið með barnið til búseturíkis þeirra. Í dómi Hæstaréttar kom fram að þótt mál aðila hefði...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Ingveldur Einarsdóttir og Ólafur Börkur Þorvaldsson.2. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 7. nóvember 2022 en kærumálsgögn bárust réttinum 15. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Landsréttar 25. ok...
Mál nr. 51/2022
Kærumál Dánarbú Opinber skipti Faðerni Erfð Aðild
Kærður var úrskurður Landsréttar þar sem hafnað var kröfum A og B um að viðurkennt yrði að þær væru erfingjar J. A og B reistu kröfur sínar á því að sýnt hefði verið fram á með mannerfðafræðilegri rannsókn að faðir þeirra, K sem lést 2006, hefði í raun verið sonur J. Þær væru því niðjar J og bæri arfur eftir hann á gru...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingveldur Einarsdóttir, Björg Thorarensen, Karl Axelsson, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Sóknaraðilar skutu málinu til Hæstaréttar með kæru 8. september 2022 en kærumálsgögn bárust réttinum 13. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Landsrétta...
Mál nr. 59/2022
Kærumál Kæruheimild Frávísun frá Hæstarétti
Kærður var úrskurður Landsréttar þar sem vísað var frá réttinum máli vegna ágreinings undir rekstri málsins í héraði um hvort aflað yrði matsgerðar dómkvadds matsmanns. Um kæruheimild vísaði sóknaraðili til a-liðar 1. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991. Hæstiréttur taldi að skýra yrði kæruheimildina þannig að hún væri bund...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Ingveldur Einarsdóttir og Sigurður Tómas Magnússon.2. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 9. desember 2022 sem barst réttinum 12. sama mánaðar en kærumálsgögn bárust 16. sama mánaðar. Kærður er úr...
Mál nr. 34/2022
Lánssamningur Ábyrgð Lögskýring
Ágreiningur aðila laut að ábyrgð K á námsláni sem stofnað hafði verið til með útgáfu skuldabréfs í september 2005. Við gildistöku laga um Menntasjóð námsmanna nr. 60/2020 26. júní 2020 voru í vanskilum tvær afborganir af skuldabréfinu. Bréfið var gjaldfellt 21. júlí 2020. K byggði á því að ábyrgð hans tæki aðeins til þ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Ingveldur Einarsdóttir og Karl Axelsson.2. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 1. júní 2022. Hann krefst sýknu af kröfum stefnda og málskostnaðar á öllum dómstigum.3. Stefndi krefst þess að hinn áfrýjaði dóm...
Mál nr. 53/2021
Tryggingarbréf Veðréttur Ábyrgð Tilkynning Stjórnarskrá Sératkvæði
L hf., sem hafði tekið við réttindum LÍ hf., höfðaði mál gegn A og krafðist þess að honum yrði gert að þola að fjárnám vegna skuldar Þ ehf. á grundvelli skuldabréfs frá 6. desember 2007 inn í veðrétt samkvæmt tryggingarbréfi útgefnu 21. mars 2007 áhvílandi á fasteign A. Þ ehf. hafði gefið tryggingabréfið út til LÍ hf. ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Ingveldur Einarsdóttir og Ólafur Börkur Þorvaldsson.2. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 26. nóvember 2021. Hann krefst þess að stefnda verði með dómi gert að þola að fjárnám verði gert vegna skuldar Þróun...
Mál nr. 26/2022
Kærumál Eignarréttur Sameign Stjórnvald Stjórnsýsla Skaðabætur Lögvarðir hagsmunir Viðurkenningarkrafa Frávísun frá héraðsdómi felld úr gildi
I ehf. kærði ákvæði í dómi Landsréttar um að vísa frá héraðsdómi tilgreindum kröfum félagsins á hendur sveitarfélaginu H. Í dómi Hæstaréttar kom fram að með viðurkenningarkröfu sinni leitaðist I ehf. við að fá dóm um skaðabótaskyldu H vegna ætlaðs tjóns félagsins vegna tilgreindra ákvarðana H en frávísun Landsréttar á ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Ingveldur Einarsdóttir og Ólafur Börkur Þorvaldsson.2. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 15. apríl 2022 sem barst réttinum 19. sama mánaðar. Kærumálsgögn bárust réttinum 26. sama mánaðar. Kærð e...
Mál nr. 5/2022
Börn Umgengni Dómur Ómerking dóms Landsréttar að hluta Gjafsókn
A og B höfðu deilt um forsjá tveggja barna sinna, meðlag með þeim, lögheimili og umgengni. Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu að A og B skyldu fara sameiginlega með forsjá barna sinna, lögheimili dóttur málsaðila skyldi vera hjá A en lögheimili sonarins hjá B. Í dómsorði Landsréttar sagði um umgengniskröfur A og B ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Ingveldur Einarsdóttir, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 26. janúar 2022. Hún krefst þess að hinum áfrýjaða dómi verði hrundið og breytt á þá leið að ákveðið verði me...
Mál nr. 25/2022
Kærumál Útlendingur Lögvarðir hagsmunir Persónuvernd Stjórnarskrá Frávísun frá héraðsdómi felld úr gildi
A kærði dóm Landsréttar þar sem máli hennar á hendur Í var vísað frá héraðsdómi. Ágreiningur málsins laut að því hvort A hefði lögvarða hagsmuni af því að fá efnisdóm um ógildingu úrskurðar kærunefndar útlendingarmála 25. september 2018 þar sem staðfest var synjun Útlendingastofnunar um að veita A vegabréfsáritun til Í...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Ingveldur Einarsdóttir og Sigurður Tómas Magnússon.2. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 8. apríl 2022 en kærumálsgögn bárust réttinum 18. sama mánaðar. Kærður er dómur Landsréttar 25. mars 2022 ...
Mál nr. 55/2021
Málskostnaður Samning dóms Frávísun gagnsakar Ómerking dóms Landsréttar Heimvísun
Í málinu deildu aðilar um skylduaðild E ehf. og G að Á samkvæmt 17. gr. laga nr. 75/2008 og jafnframt skyldu þeirra til að greiða árgjald til þess fyrir árin 2016 til 2018. Í dómi Hæstaréttar var rakið að áfrýjun Á beindist að E ehf. sem neytti heimildar 3. mgr. 177. gr. laga nr. 91/1991 til að gagnáfrýja dóminum. Máls...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingveldur Einarsdóttir, Björg Thorarensen, Karl Axelsson, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Aðaláfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 10. desember 2021 og beinist áfrýjun hans að gagnáfrýjandanum Einum á móti X ehf. Hann krefst aðallega óme...
Mál nr. 50/2021
Málefni fatlaðs fólks Sveitarfélög Lögvarðir hagsmunir Skaðabætur Miskabætur Frávísun frá héraðsdómi að hluta Gjafsókn
A höfðaði mál gegn M og krafðist annars vegar greiðslu miskabóta og hins vegar viðurkenningar á skaðabótaskyldu vegna meðferðar og afgreiðslu M á umsókn hans um notendastýrða persónulega aðstoð samkvæmt lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. A hafði sótt um notendastýrða persónul...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Ingveldur Einarsdóttir, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 18. nóvember 2021. Hann krefst þess annars vegar að stefnda verði gert að greiða sér 700.000 krónur með drátt...
Mál nr. 23/2022
Kærumál Áfrýjun Áfrýjunarheimild Birting Stjórnarskrá Mannréttindasáttmáli Evrópu Frávísunarúrskurður Landsréttar felldur úr gildi
X kærði úrskurð Landsréttar þar sem áfrýjun hans á dómi héraðsdóms 11. mars 2021 þar sem hann var sakfelldur fyrir líkamsárás var vísað frá dómi á þeim grunni að X hefði fallið frá áfrýjun með bindandi hætti þegar honum var birtur dómurinn. Skipaður verjandi X var viðstaddur dómsuppsögu í héraði en ekki X sjálfur og va...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Karl Axelsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 4. apríl 2022 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 5. og 22. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Landsrét...
Mál nr. 51/2021
Vátryggingarsamningur Rekstrarstöðvunartrygging Fyrning Fyrningarfrestur Lögskýring Sönnun Skipting sakarefnis
Í málinu deildu aðilar um það hvort krafa P ehf. á hendur V hf., til greiðslu bóta úr rekstrarstöðvunartryggingu vegna tjóns 6. júlí 2014 við bruna í húsnæði verslunarinnar G, hefði verið fyrnd þegar málið var höfðað í júní 2019. Í dómi Hæstaréttar kom fram að samkvæmt 1. mgr. 52. gr. laga nr. 30/2004 um vátryggingarsa...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen, Ingveldur Einarsdóttir, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 26. nóvember 2021. Hann krefst sýknu af kröfum stefnda og málskostnaðar á öllum dómstigum. 3. Stefndi krefs...
Mál nr. 35/2021
Ákæra Skattalög Virðisaukaskattur Staðgreiðsla opinberra gjalda Peningaþvætti Lögskýring Sekt Frávísun frá héraðsdómi að hluta
G var ákærður fyrir annars vegar meiri háttar brot gegn skattalögum sem daglegum stjórnanda og stjórnarmanni samlagsfélagsins F og hins vegar fyrir peningaþvætti. Í dómi Hæstaréttar var ekki talið að saksókn í málinu bryti í bága við 1. mgr. 4. gr. 7. samningsviðauka við mannréttindasáttmála Evrópu. Varðandi 3. ákæruli...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Ingveldur Einarsdóttir, Karl Axelsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar 29. júlí 2021. Ákæruvaldið krefst þess að ákærði verði sakfelldur samkvæmt ákæru og refsing hans þyngd. 3. Ákærði k...
Mál nr. 39/2021
Landamerki Leigusamningur Afsal Jörð Kröfugerð Gagnsök
Ó höfðaði mál gegn M og S sem eigendum jarðarinnar B sem þau keyptu árið 1991. Ó sat í óskiptu búi eftir eiginmann sinn sem tók árið 1983 á leigu spildu úr landi B og keypti árið 1989. Ágreiningur aðila laut að merkjum spildunnar og jarðarinnar. Um formhlið málsins komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að Landsrétti h...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen, Karl Axelsson, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Aðaláfrýjendur skutu málinu til Hæstaréttar 7. september 2021. Í aðalsök krefjast þau þess að viðurkennt verði með dómi að rétt landamerki spildu í eigu ga...