Title
stringlengths
43
45
Keywords
stringlengths
3
239
Summary
stringlengths
73
7.24k
Text
stringlengths
778
682k
Mál nr. 128/2016
Kærumál Farbann
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta áfram farbanni á grundvelli 1. mgr. 100. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, sbr. 2. mgr. 95. gr. sömu laga.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson og Benedikt Bogason og Guðrún Erlendsdóttir settur hæstaréttardómari. Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 16. febrúar 2016, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 16. feb...
Mál nr. 122/2016
Kærumál Vitni Skýrslugjöf
Hæstiréttur taldi að uppfyllt væru skilyrði b. liðar 1. mgr. 59. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála til að tekin yrði skýrsla af A fyrir dómi. Var ekki talið skipta máli þótt hún hefði áður gefið skýrslu hjá lögreglu, enda færi sönnunarfærslan fram fyrir dómi, sbr. 1. og 2. mgr. 111. gr. laga nr. 88/2008.
Dómur Hæstaréttar Mál þetta dæma Benedikt Bogason hæstaréttardómari og Guðrún Erlendsdóttir og Ingveldur Einarsdóttir settir hæstaréttardómarar. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 14. febrúar 2016, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 16. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Suðurlands 1...
Mál nr. 126/2016
Kærumál Farbann
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta áfram farbanni á grundvelli 1. mgr. 100. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, sbr. 2. mgr. 95. gr. sömu laga.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson og Benedikt Bogason og Guðrún Erlendsdóttir settur hæstaréttardómari. Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 16. febrúar 2016, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 16. febr...
Mál nr. 125/2016
Kærumál Farbann
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta áfram farbanni á grundvelli 1. mgr. 100. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, sbr. 2. mgr. 95. gr. sömu laga.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson og Benedikt Bogason og Guðrún Erlendsdóttir settur hæstaréttardómari. Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 16. febrúar 2016, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 16. febr...
Mál nr. 123/2016
Kærumál Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
 Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma Helgi I. Jónsson hæstaréttardómari og Guðrún Erlendsdóttir og Ingveldur Einarsdóttir settir hæstaréttardómarar. Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 15. febrúar 2016 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 15. feb...
Mál nr. 113/2016
Kærumál Vitni Skýrslugjöf
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu A um að skýrslutaka yfir henni færi fram í Barnahúsi.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson og Karl Axelsson og Guðrún Erlendsdóttir settur hæstaréttardómari. Brotaþoli skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 12. febrúar 2016, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 15. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 12. febr...
Mál nr. 114/2016
Kærumál Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Greta Baldursdóttir, Helgi I. Jónsson og Karl Axelsson. Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 12. febrúar 2016, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 15. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 12. febrúar 2016, þar sem varnar...
Mál nr. 115/2016
Kærumál Vistun á stofnun
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi áfram vistaður á viðeigandi stofnun á grundvelli 2. mgr. 95. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. laga nr. 88/2008.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Greta Baldursdóttir og Karl Axelsson og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari. Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 12. febrúar 2016, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 15. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur ...
Mál nr. 98/2016
Kærumál Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma Helgi I. Jónsson hæstaréttardómari og Guðrún Erlendsdóttir og Ingveldur Einarsdóttir settir hæstaréttardómarar. Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 10. febrúar 2016 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 10. fe...
Mál nr. 157/2015
Skaðabætur Slysatrygging Sjómaður Líkamstjón Örorka Miski Uppgjör Fyrirvari Almannatryggingar Gjafsókn
A krafði V hf. um greiðslu bóta vegna líkamstjóns sem hann hlaut í starfi sínu sem háseti. Höfðu aðilar samið um bætur vegna slyssins á grundvelli matsgerðar í maí 2010 og var eingreiðsluverðmæti fullra bóta frá almannatryggingum og lífeyrissjóði A dregið frá örorkubótunum. Tók A við bótunum með fyrirvara um niðurstöðu...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson og Benedikt Bogason og Guðrún Erlendsdóttir settur hæstaréttardómari. Aðaláfrýjandi skaut málinu upphaflega til Hæstaréttar 9. janúar 2015. Ekki varð af fyrirhugaðri þingfestingu þess 25. febrúar sama ár og áfrýjaði hann öðru sinni 27. sama má...
Mál nr. 382/2015
Fjármálafyrirtæki Slit Riftun Óvenjulegur greiðslueyrir Endurgreiðsla
Í janúar 2010 gaf S hf. út skuldabréf til H ehf. að fjárhæð 1.560.000.000 krónur. Í desember sama ár gerðu aðilarnir samning um kaup H ehf. á kröfum í eigu S hf. samkvæmt sex lánssamningum. Í samningnum kom fram að samanlögð fjárhæð þessara krafna væri 1.746.245.864 krónur, en kaupverði þeirra, 1.043.621.412 krónur, sk...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Viðar Már Matthíasson. Aðaláfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 5. júní 2015. Hann krefst þess að hinn áfrýjaði dómur verði staðfestur um riftun greiðslu sinnar á 1.043.621.412 krónum til gagnáfrýjanda, ...
Mál nr. 393/2015
Gjaldþrotaskipti Greiðsla Riftun
M ehf. rak fiskvinnslu og lagði bátur S hf. félaginu til afla. Í málinu krafðist þrotabú M ehf. þess að viðurkennd yrði riftun á nánar greindum greiðslum M ehf. til S hf. og að félagið yrði gert að endurgreiða sér samanlagða fjárhæð þeirra. Talið var að þrotabúið hefði engin haldbær rök fært fyrir því að greiðslurnar h...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Viðar Már Matthíasson, Eiríkur Tómasson og Ólafur Börkur Þorvaldsson. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 11. júní 2015. Hann krefst þess að viðurkennd verði riftun frá 14. maí 2014 á 19 nánar greindum greiðslum Marmetis ehf. til stefnda á tímabilinu frá ...
Mál nr. 305/2015
Fasteign Sameign Gjaldtaka Lögbann Einkahlutafélag
Í málinu kröfðust D o.fl. þess að L ehf. væri óheimilt að innheimta gjald fyrir aðgang að Hverum við Námafjall og Leirhnjúk í landi Reykjahlíðar í Skútustaðahreppi. Reistu þau kröfu sína einkum á því að samþykki allra sameigenda að jörðinni þyrfti til gjaldtökunnar, en fyrir lá að D o.fl. ættu tæp 30% hlut í jörðinni s...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Viðar Már Matthíasson, Eiríkur Tómasson og Ólafur Börkur Þorvaldsson. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 28. apríl 2015. Hann krefst sýknu af kröfum stefndu. Þá krefst hann málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti óskipt úr hendi þeirra. Stefndu krefj...
Mál nr. 333/2015
Vinnusamningur Laun Kjarasamningur Varnarsamningur
S krafði I ohf., en til vara Í, um greiðslu vangoldinna launa vegna frítökuréttar sem hann taldi sig hafa áunnið sér í starfi sínu hjá slökkviliði varnarliðsins. Kröfunni til stuðnings vísaði S til tveggja nánar tilgreindra kjarasamninga en hann taldi sig hafa notið sömu kjara og þar var mælt fyrir um í starfi sínu hjá...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason og Karl Axelsson og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 8. maí 2015. Hann krefst þess að stefnda Isavia ohf., en til vara íslenska ríkinu, verði gert að greiða sér aðallega 12.552.120 krónu...
Mál nr. 396/2015
Sveitarfélög Ráðningarsamningur Uppsögn Stjórnsýsla Stjórnarskrá Tjáningarfrelsi
Ágreiningur aðila laut að því hvort A hefði með lögmætum hætti sagt S upp störfum sem grunnskólakennari vegna ummæla um samkynhneigð sem hann lét falla á vefmiðli. Með vísan til 1. mgr. 57. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 réðust réttindi og skyldur S í starfi af ákvæðum kjarasamnings, sem hafði verið í gildi þegar...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Eiríkur Tómasson og Ólafur Börkur Þorvaldsson. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 15. júní 2015. Hann krefst þess að felldur verði úr gildi úrskurður innanríkisráðuneytisins 4. apríl 2014, þar sem ákvörðun hans 12. júlí 2012 um að...
Mál nr. 326/2015
Skaðabætur Miski Varanleg örorka Endurupptaka bótaákvörðunar Matsgerð Málflutningsyfirlýsing
Ágreiningur aðila laut að því hvort sú ófyrirsjáanlega breyting sem hafði orðið á heilsu H frá því að upphaflega var lagt mat á varanlegan miska hans og varanlega örorku af völdum slyss, sem hann varð fyrir árið 2005, væri þess eðlis að miska- og örorkustig væri verulega hærra þannig að hann ætti samkvæmt 11. gr. skaða...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Viðar Már Matthíasson, Eiríkur Tómasson og Greta Baldursdóttir. Áfrýjandi skaut málinu upphaflega til Hæstaréttar 20. febrúar 2015. Ekki varð af fyrirhugaðri þingfestingu þess 8. apríl sama ár og áfrýjaði hann öðru sinni 5. maí 2015. Áfrýjandi krefst þess að...
Mál nr. 344/2015
Lausafjárkaup Skaðabætur Matsgerð
V ehf. keypti bát og gaf B út afsal honum til handa fyrir bátnum en kaupverðið var 300.000 krónur. Afsalaði B síðar bátnum á nýjan leik til S ehf. sem tók hann úr vörslum V ehf. að honum forspurðum. Krafðist V ehf. skaðabóta úr hendi B vegna sölunnar til S ehf. Hafði V ehf. byggt kröfu sína í héraði á matsgerð þar sem ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma Karl Axelsson hæstaréttardómari og Guðrún Erlendsdóttir og Ingveldur Einarsdóttir settir hæstaréttardómarar. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 15. maí 2015. Endanlegar dómkröfur hans eru þær að stefnda verði gert að greiða sér 4.000.000 krónur ,,ásamt lögmæltum dráttarvöxtum...
Mál nr. 72/2016
Kærumál Kæra Frávísun frá Hæstarétti
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli Ó á hendur Í var vísað frá dómi. Í kæru Ó var getið hins kærða úrskurðar en á hinn bóginn var hvorki gerð krafa um breytingu á honum né gerð grein fyrir þeim ástæðum sem kæran var reist á. Var hún því ekki í samræmi við 1. mgr. 145. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála....
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Greta Baldursdóttir, Benedikt Bogason og Karl Axelsson. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru sem barst héraðsdómi 22. janúar 2016, en kærumálsgögn bárust réttinum 5. febrúar sama ár. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 8. janúar 2016 þar...
Mál nr. 411/2015
Fasteign Stjórnvaldsákvörðun Framkvæmdaleyfi Rannsóknarregla
Í málinu kröfðust E o.fl. þess að ógilt yrði framkvæmdaleyfi V og L sem samþykkt var af sveitarstjórn R í september 2010 vegna enduruppbyggingar á flóðavarnargarði við Þórólfsfell í R sem varð fyrir skemmdum af völdum flóða í Markarfljóti í apríl sama ár. Fyrir lá að endurbygging varnargarðsins lauk í nóvember 2010 og ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Greta Baldursdóttir, Karl Axelsson, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Viðar Már Matthíasson. Áfrýjendur skutu málinu til Hæstaréttar 19. júní 2015. Þau krefjast þess að ógilt verði framkvæmdaleyfi stefndu Vegagerðarinnar og Landgræðslu rík...
Mál nr. 253/2015
Fjármálafyrirtæki Slit Riftun Endurgreiðsla Tómlæti
Fjármálafyrirtækið SV, sem síðar sameinaðist sparisjóðnum SK, gaf út skuldabréf sem greiða átti í einu lagi á gjalddaga í mars 2010, en F var kröfuhafi bréfsins. Í mars 2009 keypti SK bréfið af F og sama dag gerðu aðilar samning um að innlausnarverð þess, ásamt öðrum fjármunum, skyldi lagt á innlánsreikning hjá sparisj...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Greta Baldursdóttir og Ólafur Börkur Þorvaldsson. Aðaláfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 7. apríl 2015. Hann krefst þess að gagnáfrýjanda verði gert að greiða sér 101.810.048 krónur, aðallega með vöxtum samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga...
Mál nr. 325/2015
Skaðabætur
A hf. og Í hf. höfðuðu mál gegn G og kröfðust skaðabóta vegna þess sem þau töldu vanrækslu G á skyldum sínum sem lögmaður og fasteignasali við sölu fasteignarinnar S51. Töldu félögin að G hefði liðsinnt eigendum fasteignarinnar við að létta veðum af henni, gegn því að þau fengju greiddar 575 milljónir króna upp í áhvíl...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Greta Baldursdóttir og Viðar Már Matthíasson. Áfrýjendur skutu málinu til Hæstaréttar 5. maí 2015. Þeir krefjast þess að stefnda verði gert að greiða áfrýjandanum Arion banka hf. 64.323.376 krónur og áfrýjandanum Íslandsbanka hf. 41.74...
Mál nr. 364/2015
Fjármálafyrirtæki Skuldamál Skuldajöfnuður
Í hf. krafði G ehf. um greiðslu skuldar vegna yfirdráttar á tékkareikningi. G ehf. mótmælti ekki fjárkröfu Í hf. en taldi sig eiga gagnkröfur til skuldajafnaðar á móti kröfu Í hf. með vísan til þess að starfsmenn Í hf. hefðu millifært af reikningum félagsins án heimildar, inn á reikning og til greiðslu skulda annars fé...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson, Benedikt Bogason og Karl Axelsson. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 26. maí 2015. Hann krefst þess aðallega að til skuldajafnaðar á móti kröfu stefnda að fjárhæð 16.979.066 krónur komi gagnkrafa sín að fjárhæð 9.453.666 krónur, en ti...
Mál nr. 63/2016
Kærumál Varnarþing Frávísunarúrskurður felldur úr gildi
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli L 7-9 á hendur L ehf. var vísað frá dómi á þeirri forsendu að það hefði verið höfðað á röngu varnarþingi. Í dómi Hæstaréttar var vísað til þess að samkvæmt 1. mgr. 33. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála mætti höfða mál meðal annars í þeirri þinghá þar sem stjórnarstöð...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Eiríkur Tómasson og Greta Baldursdóttir. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 22. janúar 2016, en kærumálsgögn bárust réttinum 27. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 12. janúar 2016, þar sem máli ...
Mál nr. 69/2016
Kærumál Sakarefni Lögvarðir hagsmunir Vanreifun Frávísunarúrskurður felldur úr gildi að hluta
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli Þ gegn Í var vísað frá dómi á þeim grundvelli að Þ hefði ekki sýnt fram á að hann ætti lögvarða hagsmuni af úrlausn um þær kröfur sem hann hafði uppi um viðurkenningu á skaðabótaskyldu Í, sbr. 2. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Ágreiningur aðila snerist u...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Eiríkur Tómasson, Greta Baldursdóttir og Karl Axelsson. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 25. janúar 2016, en kærumálsgögn bárust réttinum 29. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 15. janúar 2016 þar sem máli sóknaraðila...
Mál nr. 93/2016
Kærumál Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
X var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi samkvæmt c. lið 1. mgr. 95. gr., sbr. 3. mgr. 97. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, þar til dómur gengi í Hæstarétti í máli ákæruvaldsins á hendur honum.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma Benedikt Bogason hæstaréttardómari og Guðrún Erlendsdóttir og Ingveldur Einarsdóttir settir hæstaréttardómarar. Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 5. febrúar 2016, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 8. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 5....
Mál nr. 24/2016
Kærumál Einkarefsimál Vanreifun Frávísunarúrskurður staðfestur
Kærumál. Einkarefsimál. Vanreifun. Frávísunarúrskurður staðfestur. K kærði úrskurð héraðsdóms þar sem máli hennar á hendur M var vísað frá dómi. Fyrir Hæstarétti krafðist K þess að einkarefsikröfur hennar á hendur M yrðu teknar til efnismeðferðar en þær voru hafðar uppi á þeim grunni að M hefði án vitundar og í óleyfi...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson og Viðar Már Matthíasson og Guðrún Erlendsdóttir settur hæstaréttardómari. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 4. janúar 2016, en kærumálsgögn bárust réttinum 18. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur ...
Mál nr. 62/2016
Kærumál Ráðgefandi álit EFTA-dómstóllinn
Kærumál. Ráðgefandi álit. EFTA-dómstóllinn. K ehf. krafðist þess að I ohf. yrði gert með beinni aðfarargerð að veita sér aðgang að tilteknum gögnum í samræmi við úrskurðarorð úrskurðarnefndar um upplýsingarmál. Undir rekstri málsins í héraði krafðist I ohf. þess að aflað yrði ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins á fjórum...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Eiríkur Tómasson og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 18. janúar 2016 en kærumálsgögn bárust réttinum 22. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 8...
Mál nr. 286/2015
Aðild Samlagsaðild Frávísun frá héraðsdómi
F o.fl. kröfðu Ö, föður þeirra, óskipt um greiðslu fjárhæðar sem svaraði til helmings kaupverðs í fasteign. Hafði helmingshlutur í fasteigninni komið til skipta milli F o.fl. að jöfnu við einkaskipti á dánarbúi móður þeirra en eignin var að öðru leyti í eigu Ö. Í dómi Hæstaréttar kom fram að ófrávíkjanlegt skilyrði þes...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson og Benedikt Bogason og Guðrún Erlendsdóttir settur hæstaréttardómari. Áfrýjendur skutu málinu til Hæstaréttar 20. apríl 2015. Þeir krefjast þess að stefnda verði gert að greiða sér 7.000.000 krónur með vöxtum samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 3...
Mál nr. 87/2016
Kærumál Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason og Karl Axelsson og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari. Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 2. febrúar 2016, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 2. febrúar...
Mál nr. 272/2015
Samkeppni Stjórnsýsla Andmælaréttur Rannsókn Stjórnvaldssekt
Samkeppnisstofnun hóf í desember 2001 rannsókn á ætluðu ólögmætu samráði þriggja olíufélaga sem hefði brotið í bága við 10. gr. þágildandi samkeppnislaga nr. 8/1993. Á grundvelli rannsóknarinnar tók samkeppnisráð ákvörðun í október 2004, þar sem komist var að niðurstöðu um að félögin hefðu brotið gegn fyrrgreindu ákvæð...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Eiríkur Tómasson, Greta Baldursdóttir, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Viðar Már Matthíasson. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 15. apríl 2015. Hann krefst þess aðallega gagnvart stefnda Samkeppniseftirlitinu að úrskurður áfrýjun...
Mál nr. 381/2015
Fjármálafyrirtæki Lánssamningur Gengistrygging
A hf. höfðaði mál gegn B ehf. til innheimtu eftirstöðva gjaldfallins lánssamnings. Aðilar deildu meðal annars um hvort lánið hefði verið í japönskum jenum eða í íslenskum krónum og bundið gengi japanskra jena með ólögmætum hætti. Talið var að umrætt lán hefði verið í japönskum jenum með vísan til tilgreiningar á lánsfj...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson, Benedikt Bogason og Karl Axelsson. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 5. júní 2015. Hann krefst aðallega sýknu af kröfu stefnda, en til vara að hún verði lækkuð. Í báðum tilvikum krefst hann málskostnaður í héraði og fyrir Hæstarétti. Ste...
Mál nr. 739/2015
Ávana- og fíkniefni Tilraun
M og A voru ákærð fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, M með því að hafa staðið að ólögmætum innflutningi á 9.053,55 g af amfetamíni að 69 til 70% styrkleika, 194,81 g af kókaíni að 64% styrkleika og 10.027,25 g af MDMA að 78% styrkleika, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni, en A fyrir að hafa tekið á móti...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Eiríkur Tómasson, Greta Baldursdóttir, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Viðar Már Matthíasson. Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar 22. október 2015 í samræmi við yfirlýsingar ákærðu um áfrýjun. Af hálfu ákæruvaldsins er þess krafis...
Mál nr. 277/2015
Samkeppni Stjórnsýsla Andmælaréttur Rannsókn Stjórnvaldssekt
Samkeppnisstofnun hóf í desember 2001 rannsókn á ætluðu ólögmætu samráði þriggja olíufélaga sem hefði brotið í bága við 10. gr. þágildandi samkeppnislaga nr. 8/1993. Á grundvelli rannsóknarinnar tók samkeppnisráð ákvörðun í október 2004, þar sem komist var að niðurstöðu um að félögin hefðu brotið gegn fyrrgreindu ákvæð...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Eiríkur Tómasson, Greta Baldursdóttir, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Viðar Már Matthíasson. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 17. apríl 2015. Hann krefst þess aðallega gagnvart stefnda Samkeppniseftirlitinu að úrskurður áfrýjun...
Mál nr. 278/2015
Samkeppni Stjórnsýsla Rannsókn Stjórnvaldssekt
Samkeppnisstofnun hóf í desember 2001 rannsókn á ætluðu ólögmætu samráði þriggja olíufélaga sem hefði brotið í bága við 10. gr. þágildandi samkeppnislaga nr. 8/1993. Á grundvelli rannsóknarinnar tók samkeppnisráð ákvörðun í október 2004, þar sem komist var að niðurstöðu um að félögin hefðu brotið gegn fyrrgreindu ákvæð...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Eiríkur Tómasson, Greta Baldursdóttir, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Viðar Már Matthíasson. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 17. apríl 2015. Hann krefst þess aðallega gagnvart stefnda Samkeppniseftirlitinu að úrskurður áfrýjunar...
Mál nr. 757/2015
Málskostnaðartrygging Frávísun frá Hæstarétti
Máli L ehf. gegn L hf. var vísað frá Hæstarétti þar sem L ehf. afhenti ekki skilríki fyrir málskostnaðartryggingu innan þess frests sem félagið hafði til þess að setja hana.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson og Benedikt Bogason og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 6. nóvember 2015. Hann krefst þess að viðurkennt verði að tilteknir samningar milli sín og stefnda sem bera heitið „fjármögnunarle...
Mál nr. 456/2015
Börn Forsjá Umgengni
K og M deildu um forsjá tveggja barna þeirra, umgengnisrétt og lögheimili. Taldi héraðsdómur, með tilliti til þess að þau væru bæði hæf til að fara með forsjána, að það væri börnunum fyrir bestu að forsjá þeirra væri sameiginleg en lögheimili þeirra hjá M. Var sú niðurstaða meðal annars reist á því að líklegra væri að ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson og Benedikt Bogason og Guðrún Erlendsdóttir settur hæstaréttardómari. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 9. júlí 2015. Hún krefst þess aðallega að sér verði falin forsjá barnanna A og B, en til vara að forsjá barnanna verði sameiginleg ...
Mál nr. 320/2015
Óvígð sambúð Stjórnvaldsúrskurður Stjórnsýsla Skattur Tekjuskattur Álag Gjöf
K krafðist þess að úrskurður yfirskattanefndar, þar sem gerðar voru breytingar á opinberum gjöldum hennar gjaldárin 2007-2009, yrði felldur út gildi að hluta og breytt þannig að tekjuviðbót fyrir gjaldárin 2007 og 2008 félli niður eða yrði lækkuð og að álag á tekjuviðbót vegna framangreindra gjaldára félli niður eða yr...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma Karl Axelsson hæstaréttardómari og Guðrún Erlendsdóttir og Ingveldur Einarsdóttir settir hæstaréttardómarar. Áfrýjandi skaut málinu upphaflega til Hæstaréttar 22. september 2014. Var málið fellt niður og skaut áfrýjandi því öðru sinni til réttarins 4. maí 2015. Hún krefst þess...
Mál nr. 190/2015
Kynferðisbrot Málshraði Ómerkingu héraðsdóms hafnað Sératkvæði
X var ákærður fyrir kynferðisbrot samkvæmt 1. og 2. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa haft samræði og endaþarmsmök við A sem ekki gat spornað við verknaðinum sökum ölvunar og svefndrunga auk þess að hafa beitt hana ofbeldi. Í héraði komst meiri hluti dómenda að þeirri niðurstöðu á grundve...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Benedikt Bogason, Eiríkur Tómasson, Greta Baldursdóttir og Karl Axelsson. Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar af hálfu ákæruvaldsins 20. febrúar 2015 og krefst þess aðallega að ákærði verði sakfelldur samkvæmt ákæru og dæmdur t...
Mál nr. 298/2015
Gjaldþrotaskipti Riftun Gjöf Óvenjulegur greiðslueyrir Skuldajöfnuður Skaðabætur
Þrotabú S ehf. krafðist riftunar á 19 nánar tilgreindum ráðstöfunum S ehf. til K ehf. sem fram fóru á síðustu sex mánuðum fyrir gjaldþrot S ehf. Þá gerði þrotabúið skaðabótakröfu á hendur K ehf., S, sem var stjórnarmaður og framkvæmdastjóri S ehf. en jafnframt eigandi K ehf., og J sem var stjórnarformaður S ehf. Var ek...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason og Karl Axelsson og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 22. apríl 2015. Endanlegar dómkröfur hans fyrir Hæstarétti eru þær að rift verði eftirtöldum ráðstöfunum Sigurplasts ehf. til stefnd...
Mál nr. 842/2014
Fjármálafyrirtæki Markaðsmisnotkun Hegningarauki
Í málinu voru SÞÁ, sem bankastjóri L hf., ÍG, sem forstöðumaður eigin fjárfestinga bankans, og JSH og W, sem starfsmenn sömu deildar, ákærðir fyrir markaðsmisnotkun samkvæmt 117. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti með því að hafa í sameiningu í störfum sínum með tilboðum og viðskiptum fyrir eigin reikning L hf...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Eiríkur Tómasson, Helgi I. Jónsson og Viðar Már Matthíasson og Gunnlaugur Claessen fyrrverandi hæstaréttardómari. Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar 12. desember 2014 af hálfu ákæruvaldsins og í samræmi við yfirlýsingu ákærða ...
Mál nr. 12/2016
Kærumál Kröfugerð Frávísunarúrskurður staðfestur
Staðfest var ákvæði í dómi héraðsdóms um frávísun varakröfu D gegn T og Í. Í niðurstöðu Hæstaréttar kom fram að með varakröfu sinn hefði D ekki afmarkað hvaða réttindi hún taldi sig njóta á grundvelli 76. gr. stjórnarskrárinnar heldur hafi aðeins leitað viðurkenningar á því að þeim réttindum hefði ekki verið fullnægt. ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Benedikt Bogason og Viðar Már Matthíasson.   Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 3. janúar 2016 en kærumálsgögn bárust réttinum 15. sama mánaðar. Kært er ákvæði í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 21. desember 2015 um að vísa f...
Mál nr. 41/2016
Kærumál Gjafsókn
M og K kærðu úrskurð héraðsdóms og kröfðust þess að fjárhæð málflutningsþóknunar lögmanna þeirra vegna gjafsóknar í héraði yrði ákveðin hærri en gert var í hinum kærða úrskurði. Í dómi Hæstaréttar kom meðal annar fram að umtalsverð vinna hefði legið að baki niðurstöðu í málinu sem hefði verið tekið fyrir alls 11 sinnum...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson og Karl Axelsson og Guðrún Erlendsdóttir settur hæstaréttardómari. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 14. janúar 2016, en kærumálsgögn bárust réttinum 29. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 5. janúar 201...