text
stringlengths
0
5.29M
Real Madrid hafði betur í nágrannaslagnum gegn Atletico Madrid þegar liðin mættust í spænsku úrvalsdeildinni í dag. Belgíski markvörðurinn í liði Real Madrid, Thibaut Courtois, fékk óblíðar móttökur á Metropolitano vellinum í Madrid í dag. Courtois lék að sjálfsögðu með Atletico á árunum 2011 til ársins 2014 en hann va...
Kvartettinn svonefndi, Bandaríkin, Rússland, Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar, kynnti í dag nýjar tillögur sem miða að því að blása nýju lífi í efnahag Palestínumanna og styðja við friðarumleitanir milli Ísraelsmanna og Palestínumanna. Tilkynning Kvartettisins kemur eftir að Ísraelsmenn lýstu yfir að þeir hygðust...
Hollusta og hreinleiki eru orðin sem gjarnan eru notuð þegar íslenzkum matvælum er lýst og þau eru markaðssett. Við teljum sjálfum okkur gjarnan trú um að íslenzkur matur sé bæði betri og heilnæmari en matur í öðrum löndum – það sýna skoðanakannanir. Sumir vilja nota þessa meintu yfirburði íslenzkra matvæla sem röksemd...
" Steve er leikmaður sem getur breytt gangi leikja upp á eigin spýtur. Sjáið bara markið sem hann skoraði um síðustu helgi. Ef hann spilar vel þá spilar Liverpool vel, " sagði Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, á blaðamannafundi sem haldinn var í gær fyrir síðari leik Liverpool og Chelsea í Meistaradeild Evró...
Hann hóf þá störf sem barnalæknir í Vín.
Aras Ozbiliz, leikmaður Spartak Moskvu og armenska landsliðsins, tók líklega misheppnuðustu hornspyrnu sögunnar í leik Armeníu og Danmerkur í gærkvöldi. Miðað við tilburðina hjá Ozbiliz þá er kannski ekki skrýtið að Armenum tókst ekki að skora og töpuðu leiknum 1 - 0 þar sem Daniel Agger tryggði Dönum sigurinn með mark...
" Þetta er enginn óskariðill fyrir mig en ég get lifað með þessu, " sagði Dagur Sigurðsson landsliðsþjálfari Austurríkis í handknattleik eftir að dregið var í riðla fyrir EM í Austurríki í dag. Dagur þarf að glíma við lið Íslands, Danmerkur og Serbíu í riðlakeppni mótsins. " Þetta verður allavega mjög erfitt. Ég á marg...
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Miklar endurbætur hafa verið gerðar á gleraugnaversluninni Optical Studio í Smáralind í Kópavogi, þær fyrstu síðan verslunin var opnuð í nýrri verslunarmiðstöðinni 2001. " Við höfum nær tvöfaldað rýmið og bætt við öðru sjónmælingaherbergi, " segir Kjartan Bragi Kristjánsson, sjónt...
Barna - og unglingageðdeild Landspítalans og Píeta-samtökin fengu 10 milljónir kr. hvort um sig á 49. umdæmisþingi Kiwanishreyfingarinnar sem haldið var í Hafnarfirði á dögunum. Peningar þessir voru afrakstur landssöfnunar Kiwanis, til styrktar geðverndarmálum, sem efnt hefur verið til þriðja hvert ár. Gylfi Ingvarsson...
Chilemaðurinn Clarence Acuna hjá Newcastle hefur verið sviptur ökuleyfi í 2 ár og sektaður um 1000 pund ( 136 þús kr ). Acuna var á jólaskemmtun Newcastle manna og var klæddur sem Kapteinnn krókur erkióvinur Pétur Pan í sögunni frægu auk þess að vera drukkinn undir stýri. Kannski ekki svo skrýtið að löggan hafi stoppað...
Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins hefur skipað Fróða Kristinsson, fyrrverandi stjórnarmann Sambands ungra Framsóknarmanna, í stjórn Flugþróunarsjóðs. Fróði sat í stjórn SUF árin 2015 til 2016 og gegndi stöðu kosningastjóra Framsóknarflokksins í sveitarstjórnarkosningum Hafnarfja...
Að blogga um níu ára samfellt einelti í Varmárskóla í Mosfellsbæ hefur hjálpað Hólmfríði Guðlaugu Einarsdóttur að losa um þá miklu vanlíðan sem hefur fylgt eineltinu. Loks fékk hún nóg og gekk út. Nú stundar hún nám í Réttarholtsskóla þar sem tekið var vel á móti henni og hún hefur eignast nýja vini. " Mágkona mín hvat...
Alls bárust átta umsóknir um stöðu forstjóra Heilbrigðisstofnunar Norðurlands en 22 umsóknir bárust um stöður forstjóra þriggja sameinaðra heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni. Valbjörn Steingrímsson, forstjóri Heilbrigðisstofnanna á Blönduósi og í Vestmannaeyjum, sækir um stöðu forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurland...
Þegar nýir vegir eru teknir í notkun verða þeir gömlu að skemmtilegum hjólreiðabrautum. Þetta er raunin víða um land og mikilvægt fyrir hjólreiðafólk að vera með augun opin gagnvart möguleikunum, " segir Örlygur Steinn Sigurjónsson. Hann starfar innan Íslenska fjallahjólaklúbbsins og er, ásamt Hrönn Harðardóttur, farar...
KB mótaröðin Meðfylgjandi eru úrslit í tölti T 3 og T 7 KB mótaraðarinnar sem fram fór þann 5.3. s.l. Alls voru 77 skráningar og gekk mótið afar vel og skemmtilega fyrir sig. Sáumst margar flottar sýningar. Lauk því á skeiði í gegn um höllina þar sem Guðmundur M Skúlason á Fannari bar síður úr bítum með tímann 5,55 sek...
Ég sé eftir Birgittu. Framganga hennar á sínum tíma togaði mig til fylgis við Pírata. Þar var í fyrsta sinn kominn alvöruflokkur fyrir mig. Mér sárnar höstug orð hennar í kveðjunni. Skil þó, að fólk með yfirburði á erfitt með sætta sig við meðaljóna kringum sig. Þannig verður það líka, þegar Gunnar Smári fer á þing með...
„ Stærstur hluti þeirra starfa sem orðið hafa til síðustu misseri er störf sem ekki krefjast mikillar menntunar eða sérhæfingar eða þá störf fyrir iðnmenntaða og fólk með annars konar framhaldsmenntun. Minna hefur orðið til af störfum sem krefjast háskólamenntunar á sama tíma og háskólamenntuðum fjölgar mjög á vinnumar...
Keflvíkingar báru sigurorð af Breiðabliki í Smáranum í kvöld, 105 - 98. Í byrjun leiks virtist sem Keflvíkingar væru ekki komnir niður á jörðina eftir bikarsigur helgarinnar, en þá náðu heimamenn frumkvæðinu og leiddu með 6 stigum 26 - 20 eftir fyrsta leikhluta. Þá tóku gestirnir loks við sér og náðu yfirhöndinni í lei...
Vegna hlýinda síðasta sólarhringinn er nú mikið eða jafnvel mjög mikið rennsli í ám víða um land miðað við árstíma. Það er t.d. mikið rennsli í Dynjandisá á Vestfjörðum, mjög mikið í Hjaltadalsá í Skagafirði, mikið í Selá í Vopnafirði, mjög mikið í Fossá í Berufirði og sömuleiðis í Hólmsá undan Mýrdalsjökli, svo nokkur...
Þegar kosið var til Kirkjuþings í vor héldu héldu leikmenn óbreyttu kynjahlutfalli en vígðum konum fjölgaði um eina frá síðasta þingi ( eru nú þrjár en karlarnir níu, eða 25% ). Hlutfall kvenna er þó ennþá lægra í Kirkjuráði sem kosið var fyrir tæpum mánuði síðan, eða 20%. Þetta kemur fram í pistli sem Arnfríður Guðmun...
Sóley Tómasdóttir skrifar um framboð Önnu Pálu Sverrisdóttur til formennsku í Félagi ungra jafnaðarmanna á bloggi sínu og kemst að þeirri niðurstöðu að hvorki sé hægt að taka hana né flokk hennar alvarlega. Það vanti úthaldið. Þetta sé eiginlega bara tómt grín. Stjórnmálaskýring Sóleyjar er kostuleg – en felur meðal an...
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X 977. Tómas Þór Þórðarson og Benedikt Bóas Hinriksson stýrðu skútunni og tóku meðal annars mjög áhugavert viðtal við Aron Jóhannsson. Aron gekk í raðir Hammarby frá Werder Bremen fyrr í þessum mánuði en hann hefur gengið í gegnum erfiða tíma á ferlinum vegna meiðsla. Annars ræddu þeir T...
Sigurður Eiríksson fæddist 22. mars 1928. Hann lést 14. desember 2019. Útför Sigurðar fór fram 28. desember 2019. Lífið getur breyst eins og slökkt sé á kerti, sem ekki er hægt að tendra á ný. Í hinsta sinn ég hönd þína snerti, nú farinn ertu sumarlandið í. - Með söknuð í hjarta við kveðjum þig nú. Í ljósið bjarta, þar...
Stór netárás var framkvæmd á nokkur íslensk fyrirtæki fyrr í dag en þetta staðfestir CERT-ÍS, netöryggissveit á vegum Póst - og fjarskiptastofnunar, í samtali við Fréttablaðið. Verið er að rannsaka málið að svo stöddu. „ Það eina sem við vitum á þessum tímapunkti er að það var gerð árás á fleiri en eitt íslenskt fyrirt...
Um næstu áramót verður hafist handa við nýtt 620 íbúða hverfi fyrir sunnan Smáralindina í Kópavogi. Hefur verkefnið fengið heitið 201 Smári og eru það Reginn fasteignafélag og Smárabyggð ehf. sem standa á bak við það. Ingvi Jónasson hjá Klasa ehf, sem er þróunaraðili verkefnisins, segir að hugmyndin sé að gera nýtt mið...
Milljónir ferðamanna um heim allan reiða sig á heimasíðu Tripadvisor þegar kemur að vali á gistingu, veitingastöðum og afþreyingu. Á vefnum er bæði hægt lesa umsagnir annarra og sömuleiðis deila upplifun sinni, hvort sem hún er góð eða slæm. Vissulega á ekki að taka upplifun einstakra ferðamanna sem heilögum sannleika,...
Paul Sheppard, miðjumaður frá Leeds, kemur til reynslu hjá Landssímadeildarliði Keflvíkinga á morgun. Sheppard er 23 ára gamall og hefur leikið með unglingaliðum Leeds, en var í láni hjá skoska liðinu Ayr United á síðustu leiktíð. Hann hefur góð meðmæli og er talinn mjög efnilegur, skv. heimildum Víkurfrétta. Talið er ...
Þjóðlagahátíðin á Siglufirði er nýafstaðin og kom langspil mjög við sögu á henni. Örn Magnússon lék á langspil á tvennum tónleikum á hátíðinni og hélt erindi á málþingi um hljóðfærið. Langspil var áberandi á þjóðlagahátíðinni á Siglufirði. Auk íslenska langspilsins voru tónleikar með langspili frá Noregi og Bandaríkjun...
Russell Westbrook, leikmaður Oklahoma City Thunder, hefur verið útnefndur verðmætasti leikmaður NBA-deildarinnar á nýafstaðinni leiktíð, en hann tók á móti viðurkenningu sinni á verðlaunahátíð sem fram fór í New York í fyrrinótt. Westbrook varð annar leikmaðurinn í sögu NBA-deildarinnar til að vera með þrefalda tvennu ...
Talsverður erill hefur verið hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í dag og í kvöld sem hefur þurft að sinna þremur útköllum eftir tilkynningar um elda í matarpottum í íbúðarhúsum. Þá fóru sjúkraflutningamenn í yfir 30 sjúkraflutninga í dag. Á sjöunda tímanum í kvöld fóru slökkviliðsmenn að fjölbýlishúsi við Trönuhjalla...
Mér finnst skemmtilegast að lesa ævintýrabækur eins og Hringadróttinssögu, Hobbitann og Harry Potter. Mér fannst líka skemmtilegt að lesa bækurnar um Narníu. Svo horfi ég á myndirnar þegar ég er búin að lesa bækurnar. Það sem mér finnst skemmtilegt við þessar sögur er hvað þær eru spennandi. Þær eru ævintýri og allt ge...
FÓLKI á atvinnuleysisskrá hefur fjölgað nokkuð að undanförnu og voru 5.211 skráðir atvinnulausir hjá Vinnumálastofnun undir lok ársins, 30. desember, og hafði fjölgað um 300 frá lokum nóvember. Á sama tíma árið 2002 voru 4.911 skráðir atvinnulausir og hefur þeim því fjölgað um 140 milli ára og mælist atvinnuleysið nú n...
Í kvöld varð ljóst í hvaða röð lögin sem keppa til úrslita í Eurovision verða flutt á laugardagskvöld. Daði Freyr og Gagnamagnið eru tólfta atriðið í röðinni, á eftir Sviss og á undan Spáni. Kýpverjar verða fyrstir á svið og síðustu tónarnir verða í flutningi San Marinó. Keppnin á laugardagskvöld stendur á milli 26 lag...
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hilduredda@24stundir.is Það eru gömul sannindi og ný að lífið er saltfiskur. Að minnsta kosti hefur Dagrúnu Matthíasdóttur, myndlistarkonu á Akureyri, fundist það vera mikill snilldarfrasi frá því að hún var barn og las bækur föður síns um teiknimyndafígúruna Siggu Viggu, jafnvel þótt hún ...
Skammdegið leggst misjafnlega í landann, viðbrigðin frá sólríkum sumardögum geta verið óyndislega afgerandi og tregafull á þessari breiddargráðu. Sæbjörn Valdimarsson sér ljós í myrkrinu því hann getur upplýst að bíóáhugamenn eiga í vændum góðar stundir í kvikmyndasölum fram til jóla. Veðurfarslega var sumarið sem er a...
Kópavogsbær hefur opnað bókhald bæjarins með aðgengilegri veflausn á vefsíðu bæjarins. Þar er að finna upplýsingar um færslur ársins 2014, 2015 og fyrstu 6 mánuði ársins 2016. Kópavogsbær er fyrsti opinberi aðilinn á Íslandi sem opnar bókhald sitt með þessum hætti og markar viðburðurinn tímamót í stjórnsýslu á Íslandi....
Í vikunni hafa iðjuþjálfar sótt flesta grunnskóla heim í tilefni af Skólatöskudögum. Nemendur hafa þá verið fræddir um rétta notkun á skólatöskum og líkamsbeitingu. En þar sem iðjuþjálfum gafst ekki tækifæri til að fara í alla bekki geta þeir krakkar sem ekki hlutu fræðslu lært um það hér hvernig nota á skólatöskuna ré...
Zé Sérgio ( fæddur 8. mars 1957 ) er brasilískur knattspyrnumaður.
Fundað verður um veiðar Íslendinga í rússneskri lögsögu í Barentshafi í Moskvu 13. apríl. Samningur hefur verið í gildi um þessar veiðar, en ekki náðist niðurstaða um framkvæmd hans á fundi í desember. Ástæða þess var sögð tæknilegs eðlis. Samkvæmt samningi um veiðarnar á síðasta ári máttu íslensk skip þá veiða 5.091 t...
Bókaverslunin Útúrdúr hefur hafið sölu á tímaritinu FUKT en blaðið sérhæfir sig í nútímalegum teikningum í víðum skilningi. Ingvar Högni Ragnarsson, einn eigenda Útúrdúrs, segir tímaritið vera veglega viðbót við tímaritaflóru verslunarinnar. " Útúrdúr er í samstarfi við útgáfufyrirtæki víða erlendis og áhugi var fyrir ...
Howard er hvítflibba-glæpamaður og fyrrum kókaínfíkill.
Niðurstöðum Rannsóknarnefndar samgönguslysa vegna rannsóknar á banaslysi segir að eldri ökumenn eru almennt í marktækt meiri hættu við að taka vinstri beygjur á gatnamótum en miðaldra ökumenn. Eldri ökumenn eru almennt í marktækt meiri hættu við að taka vinstri beygjur á gatnamótum en miðaldra ökumenn. Þetta á sérstakl...
Hljómsveitin Blur hélt tónleika í Zenith tónleika og ráðstefnuhöllinni í París í sumar. Þeir tónleikar voru hljóðritaðir af Radio France – France Inter fyrir EBU og eru í Konsert kvöldins á Rás 2. SAGAN STUTT Blur var stofnuð í London árið 1988 af fjórum ungum skólastrákum, þeim sömu fjórum og eru enn í bandinu í dag. ...
Árni Vilhjálmsson reyndist hetja Jonkopings í Svíþjóð í dag er liðið mætti Frej í næst efstu deild. Árni og félagar hafa byrjað tímabilið illa en liðið er aðeins með sjö stig eftir fyrstu sjö leiki deildarinnar. Árni byrjaði leikinn á varamannabekknum í dag en skoraði sigurmark liðsins á 93. mínútu í uppbótartíma, stut...
Þegar ullin var þvegin fóru allir í sín verstu föt því ullarþvottur þótti óþrifaleg vinna.
Kvennalandsliðið er rétt í þessu að koma á hótel sitt í Ermelo í Hollandi en framundan er Evrópumótið þar í landi sem hefst hjá þeim á þriðjudaginn. Stelpurnar voru kvaddar með mikilli athöfn í Leifsstöð fyrir brottför og Heiða Dís var þar og smellti af nokkrum myndum sem má sjá hér að neðan.
„ Fátt kemur þarna á óvart enda byggist frumvarpið á fjármálaáætluninni sem var samþykkt í vor. Við gagnrýndum hana harðlega og settum fram breytingatillögur vegna þess að við vildum standa vörð um velferðina í niðursveiflunni og setja einnig meira fjármagn í skólana og nýsköpun og rannsóknir og loftlagsmálin. Sú gagnr...
Breskur karlmaður hefur verið fundinn sekur um líkamsárás, sem var framhald rifrildis hans við mann á spjallrás á netinu, árásin er sú fyrsta þar sem dæmt er vegna " net-æðis ". Maðurinn sem er frá Clackton í Essex játaði sig sekan um að hafa ekið 112 kílómetra leið og lamið viðmælanda sinn með hakaskafti í desember á ...
Barack Obama lagði í dag upp í vikulanga ferð til nokkurra Asíuríkja. Hann sækir meðal annars leiðtogafund samtaka Asíu - og Kyrrahafsríkja.
30 / 2007, með síðari breytingum ( smáskipaviðmið og mönnunarkröfur ). Frá samgöngu - og sveitarstjórnarráðherra. 1. gr. Í stað tölunnar „ 12 “ í 19. tölul. 3. gr. laganna kemur : 15. 2. gr. Í stað tölunnar „ 12 “ í a-lið 1. mgr., 1., 2. og 3. tölul. a-liðar 3. mgr. og 4. mgr. 12. gr. laganna kemur : „ 15 “. 3. gr. Við...
Norðurljós skulda lífeyrissjóðunum í landinu um 2 milljarða króna í óveðtryggðum skuldabréfum, því ekkert þeirra bréfa sem mynda þessa skuld er með veði í eignum félagsins. Eitt bréfa Norðurljósa sem er 350 milljónir króna að nafnverði og skiptist niður í einingar sem hver er 5 milljónir króna, er skráð í Kauphöll Ísla...
Heil umferð fer fram í ensku úrvalsdeildinni um helgina og á mánudag en fótboltaþyrstir Íslendingar geta séð helming þeirra í beinni útsendingu á Klúbbnum við Gullinbrú. Fjörið byrjar rétt fyrir hádegi á morgun með leik Aston Villa og Chelsea og í kjölfarið rekur hver leikurinn annan. Laugardagur : 11:45 Aston Villa - ...
Íslaust og hið ákjósanlegasta veður til loðnumælinga rannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar Rannsóknaskipið Árni Friðriksson er nú í loðnumælingarleiðangri meðfram kantinum úti af Austur-Grænlandi í óvenjuhagstæðum skilyrðum. Íslaust hefur verið á slóðinni og veður eins og best verður á kosið. Skipið fann loðnu alveg nor...
Hef undir höndum, segir Þorsteinn Ólafsson, hugmyndir að frírri orku. EIN AF ástæðunum fyrir því að ekki er litið á fría orku sem raunhæfan möguleika er eflaust sú að okkur er snemma kennt að þetta sé óframkvæmanlegt. Mín skoðun er hins vegar sú að þetta sé mögulegur kostur og að hindrunina sé fremur að finna í afstöðu...
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra ræddi framgang Icesave málsins við Wouter Bos, fjármálaráðherra Hollands, á fundi í Istanbul í morgun. Þá segist hann hafa rætt stuttlega við Alistair Darling fjármálaráðherra Breta í gær þegar í ljós kom að ekki næðist þríhliða fundur með ráðherrunum. Steingrímur segir fundina...
Haukar sigruðu á Sauðárkróki Haukar sigruðu Tindastól 99 : 88 í úrvalsdeildinni í körfuknattleik á Sauðárkróki í gærkvöldi. Með sigrinum fóru Haukar upp í þriðja sæti deildarinnar, eru með 18 stig eins og Tindastóll og KR. Staðan í hálfleik var 47 : 41 fyrir heimamenn. Tindastólsmenn voru mistækir í byrjun og skoruðu e...
Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði á Alþingi í gær að forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar væri að tryggja vinnufúsum höndum fulla vinnu. Ef ekki verði óvænt áföll gangi verðbólgan niður með haustinu. " Við munum aldrei sætta okkur við skerta möguleika fólks til að framfleyta fjölskyldum sínum og það er forgangsverke...
Frumvarp sem heimilar prestum og forstöðumönnum skráðra trúfélaga sem hafa vígsluheimild, að gefa saman samkynhneigða í staðfesta samvist hefur verið lagt fram á Alþingi. Sem kunnugt er náðist ekki samkomulag um þetta atriði þegar samstaða var um umtalsverðar réttarbætur í málefnum samkynhneigðra í vor vegna andstöðu k...
TÓNLEIKARÖÐ Tónlistaskólans í Reykjavík í Norræna húsinu lýkur í dag klukkan tvö með Vínarklassík. Meðal fjölmargra tónlistarnema sem spila á tónleikunum í dag er söngkonan Ragnheiður Gröndal, en í þetta skiptið mun hún vera í öðru hlutverki en vanalega og leika á píanó. Meðal þess sem boðið verður upp á er fyrsti þátt...
Ég hef á tilfinningunni að almennt megi telja að Íslendingar treysti hver öðrum nokkuð vel. Reyndar man ég ekki eftir að það hafi verið sérstaklega rannsakað hér á landi – en þetta er að minnsta kosti tilfinningin. Við treystum, frekar en að tortryggja, og erum kannski dálítið bernsk á stundum – ef allt er sett í stóra...
Risastóru stytturnar á Páskaeyju hafa lengi verið uppspretta vangavelta um tilgang þeirra og ekki síður hvernig þeim var komið fyrir enda eru þær stórar og þungar. Íbúar eyjunnar gerðu stytturnar á árunum 1250 til 1500. Stór höfuð einkenna þær en þessi stóru höfuð eru talin eiga að sýna forfeður íbúanna. Nú telja vísin...
Daniel Ricciardo á Red Bull var fljótastur á báðum æfingum dagsins fyrir ungverska kappaksturinn sem fram fer um helgina. Uppfærslurnar á Red Bull bílnum greinilega að virka vel. Fyrri æfingin Kimi Raikkonen varð annar á fyrri æfingunni á Ferrari bílnum. Lewis Hamilton varð þriðji á Mercedes. Fyrstu fimm ökumennirnir v...
„ Við sem erum í mömmuklúbbi með Rut ákváðum að gera eitthvað til þess styrkja fjölskylduna, “ segir Bjarney Rut Jensdóttir, en hópurinn hefur tekið undir sig eitt af rýmunum í Kjarnanum ( hjá Icelandair hótelinu ) í Reykjanesbæ næstu þrjá daga. „ Þarna verður markaður þar sem seld verða leikföng, fatnaður og ýmislegt ...
„ Ég sá alltaf fyrir mér svæði sem var eingöngu stórborg, en hér er gríðarlega mikið og fallegt náttúrusvæði, “ segir Egill Þór Ívarsson flugmaður, sem búsettur hefur verið á í sjálfstjórnarhéraðinu Hong Kong undanfarið ár. Þar hefur hann starfað hjá Cathay Dragon, sem er stórt flugfélag í Asíu. Þangað hélt hann eftir ...
Þótt eldra fólk hafi ekki allt lært að borða japanskt sushi er unga fólkið fallið fyrir því. Mörg fermingarbörn kjósa að hafa sushi, sashimi og stick's, eins og þessir japönsku réttir eru kallaðir, á fermingarborðinu sínu. Anna Þorsteinsdóttir sem rekur Ósushi við Lækjargötu og í Borgartúni ásamt bróður sínum, Kristján...
KR-ingar gerðu góða ferð í Stykkishólm, þar sem þeir fögnuðu sigri á Snæfellingum í úrvalsdeildinni í körfuknattleik karla, Iceland Express-deildinni, 74 : 71 og eru þeir nú á toppi deildarinnar með Njarðvíkingum, sem lögðu ÍR-inga að velli í Njarðvík, 100 : 85. KR og Njarðvík eru með 20 stig, en Snæfell 18 og Skallagr...
SKÓGRÆKTARFÉLAG Íslands samþykkti á nýafstöðnum aðalfundi ályktun um að skógrækt og skógarreitir fái sinn sess í skipulagslögum. " Við erum að þrýsta alvarlega á stjórnvöld til að koma í veg fyrir þann núning sem orðið hefur undanfarin ár vegna skerðingar á útivistarsvæðum og skóglendum, " sagði Brynjólfur Jónsson, fra...
Lögreglan á Suðurnesjum handtók tvo ökumenn vegna gruns um fíkniefnaakstur um helgina. Annar var á ferð í Grindavík og vakti athygli lögreglumanna af því að hann var ekki með bílbelti spennt. Þá var hann ekki með ökuskírteini meðferðis. Sýnatökur á lögreglustöð staðfestu neyslu hans á kannabis og amfetamíni. Hinn ökuma...
Í dag taka Fylkisstúlkur á móti ÍBV í 9. umferð Pepsí Max deildar kvenna. Liðin eru á svipuðum slóðum í deildinni. Fylkir í þriðja sæti með 15 stig en Eyjaliðið í sætinu fyrir neðan með 12 stig. Það má því búast við hörkuleik á Würth vellinum í dag klukkan 18.00. Leiknum verður sjónvarpað á Vísi.
Annika Sörenstam frá Svíþjóð var í stórhættu að komast ekki í gegnum niðurskurðinn á Opna breska meistaramótinu í golfi í gær en hún náði að leika á pari vallar annan daginn í röð og er hún 10 höggum á eftir Yori Fudoh frá Japan og Ji-Yai Shin frá Suður-Kóreu sem eru 10 höggum undir pari vallar þegar keppni er hálfnuð....
Þessa dagana stendur yfir Heimsmeistarakeppni kvennaliða í körfu knattleik, en keppnin fer fram í Kína. Það verða stórveldin Bandaríkin og Rússland sem leika til úrslita, en þær fyrrnefndu unnu lið Ástralíu í undanúrslitum, 71 : 56. Rússar hinsvegar lögðu suður-Kóreu í hinni undanúrslitaviðureigninni, 70 : 53. Liðins s...
Það er nóg framundan á Stöð 2 Sport í dag. Olís-deild karla í handbolta hefst, Íslendingar verða í eldlínunni í Evrópudeildinni í fótbolta. Þá eru lærisveinar José Mourinho að sprikla í Sambandsdeild Evrópu. Stöð 2 Sport Olís-deild karla fer af stað klukkan 17.50 þegar útsending hefst fyrir leik HK og KA. Klukkan 20.00...
Ensku blöðin einbeita sér nær öll að Manchester United í morgun og nær öll eru á því að Gareth Bale sé á leiðinni á Old Trafford í sumar. Það gengur lítið upp hjá Gareth Bale hjá Real Madrid þessa daganna og þessi dýrasti knattspyrnumaður heims gæti því verið á leiðinni aftur í enska boltann. Bale fær mesta gagnrýnina ...
Sómalskir sjóræningjar réðust í morgun til atlögu gegn tveimur skipum. Þeir náðu öðru skipinu sem var við Seychelleseyjar á sitt vald.
Félagsstarf Árskógar 4 | Bað kl. 8 - 16. Smíði / útskurður kl. 9 - 16.30. Félagsvist kl. 13.30. Dalbraut 18 - 20 | Bridds alla mánudaga í sumar frá kl. 13 í félagsmiðstöðinni að Dalbraut 18 - 20. Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrifstofa FEBK Gullsmára 9 og Gjábakka verður lokuð vegna sumarleyfa 1. - 31. júní. Hægt e...
Lífræn efnasambönd eru í lífrænni efnafræði efnasamband kolefnis.
BÍ / Bolungarvík 1 - 2 ÍR : 0 - 1 Brynjar Benediktsson 1 - 1 Oluwatomiwo Ameobi 1 - 2 Axel Kári Vignisson ( víti ) ÍR-ingar unnu baráttu sigur á BÍ / Bolungarvík á Ísafirði í fyrstu umferð 1. deildar karla í dag. Heimamenn á Ísafirði eru nýliðar í deildnni en mæta til leiks með mikið breytt lið og nýjan þjálfara, Guðjó...
íslendingar munu ekki fá að njóta skálans á heimavelli þess sem hýsti íslenska hluta bókamessunnar í Frankfurt í síðasta mánuði hvar landið skipaði heiðursess. Ástæðan er sú að það ekki er til fjarmagn til að flytja skálann heim. Jónína Michaelsdóttir rithöfundur sló þeirri hugmynd fram í grein í Fréttablaðinu í síðust...
Brennuvargar léku lausum hala í bæjunum Taastrup og Rødovre, vestan við Kaupmannahöfn, í nótt, en kveikt var í nokkrum gámum, hjólhýsi, geymsluskúr og kjallaraherbergi. Um 11 - leytið í gærkvöldi var bensínsprengju, svokölluðum molotovkokteil, varpað inn um glugga á skóladagheimili. Eldsprengjan mun hafa dáið út fljótl...
„ Málið er að ég var inni í öðrum hópi sem kallast Andvaka og þar var fólk sem var að tala um að það væri einmana og andvaka, og ákvað ég að búa til svoleiðis hóp, “ segir hinn 34 ára gamli Hermann Þór Sæbjörnsson Neffa en hann hefur stofnað hóp á Facebook undir nafninu Kúrufélagagrúbban. Hópinn stofnaði Hermann Þór þa...
Fjármálaeftirlitið hefur kannað stærstu ný útlán Íslandsbanka, Landsbankans og MP banka árið 2014. Könnun fór þannig fram að Fjármálaeftirlitið fékk lista yfir öll útlán bankanna þriggja sem voru yfir 100 milljónum króna á síðasta ári og valdi nokkur lán til nánari skoðunar. Alvarlegasta athugasemdin var gerð vegna þes...
Sjálfstæðismenn á Akureyri sendu í kvöld frá til tilkynningu, þar sem fram kemur að flokkurinn muni leggja til að auglýst verði eftir bæjarstjóra, komi flokkurinn að meirihlutasamstarfi eftir kosningar. Frá þessu er greint á vefsíðu Vikudagsen hér að neðan má lesa tilkynninguna : „ Í tilefni af ummælum sem fram komu í ...
Valur varði Íslandsmeistaratitil sinn með 4 - 1 sigri á Keflavík í lokaumferð Pepsi-deildarinnar í dag. Hér að neðan eru myndir sem Hafliði Breiðfjörð tók þegar Valsmenn unnu Keflavík og fögnuðu titlinum.
Verkefnið Stofnmæling botnfiska á Íslandsmiðum, oft nefnt togararall, hefur staðið yfir frá 27. febrúar á vegum Hafrannsóknastofnunar. Fimm skip taka þátt í verkefninu, togararnir Bjartur, Ljósafell og Páll Pálsson ásamt rannsóknaskipunum Bjarna Sæmundssyni og Árna Friðrikssyni. Búið er að fara yfir miðin fyrir norðan,...
Keflvíkingar máttu sætta sig við tap gegn Selfyssingum fyrir austan fjall í kvöld. Bæði lið mættu fersk til leiks og áttu sína spretti fram á við. Fyrsta mark leiksins kom úr síðustu spyrnu fyrri hálfleiks en þá barst boltinn út fyrir teiginn eftir mikið klafs og baráttu Keflvíkinga við að koma boltanum í burtu. Boltin...
Í tilefni af 60 ára afmæli Krabbameinsfélags Íslands þann 27. júní sl. var ákveðið á hátíðarfundi stjórnar félagsins að kjósa þrjá nýja heiðursfélaga til setu í heiðursráði félagsins. Þetta eru Guðrún Sigurjónsdóttir, Jóhannes Tómasson og Steinunn Friðriksdóttir. Í ráðinu voru níu heiðursfélagar fyrir. Guðrún Sigurjóns...
Framkvæmdastjóri flæðisviðs Landspítalans segir skýrslu Ríkisendurskoðunar taka undir sjónarmið spítalans um að sjúkrahótel skuli nýtast sjúklingum. Þá sýni skýrslan sömuleiðis mikilvægi þess að vanda vel til samningagerðar. Ríkisendurskoðun birti í dag sérstaka skýrslu um deilu Landspítalans og Sjúkratrygginga Íslands...
Brynjar Gestsson hefur verið ráðinn þjálfari Þróttar í Vogum sem leikur í 3. deildinni. Brynjar hefur einnig verið ráðinn sem yfirþjálfari yngri flokka hjá félaginu. Gengið var frá ráðningunni í síðustu viku en Þróttur staðfesti tíðindin í fréttatilkynningu í dag. Í sumar hefur Brynjar verið aðstoðarþjálfari hjá Þrótti...
Tónlistarmaðurinn og Íslandsvinurinn Nick Cave vinnur nú að handriti endurgerðar á költ-myndinni The Crow frá 1994. Stephen Norrington mun leikstýra og skrifaði hann fyrstu drög að handritinu, sem Cave situr nú við að snyrta til. The Crow var gerð eftir samnefndri teiknimyndasögu en varð hvað frægust fyrir það að aðall...
Hjalti Geir Erlendsson hjaltigeir@mbl.is Landsvirkjun hefur sagt upp öllum sölusamningum um skerðanlega orku frá og með áramótum. Orkusölufyrirtækjunum hafa verið kynntir nýir skilmálar og nýtt verð og þeim eftirlátið að gera viðskiptavinum gein fyrir hvað sé í farvatninu. Andri Teitsson, framkvæmdastjóri orkusölufyrir...
Hagnaður Eyju fjárfestingafélags, í eigu hjónanna Birgis Þórs Bieltvedt og Eyglóar Kjartansdóttur, nam 80 milljónum. Eigið fé Eyju fjárfestingafélags nam þremur milljörðum króna í árslok 2018. Hagnaður þess nam tæpum 80 milljónum króna. Markaðurinn greindi fyrst frá. Eyja er í eigu Birgis Þórs Bieltvedt og Eyglóar Bjar...
„ Veiðisafnið var opnað 2004 og er stærsta safn sinnar tegundar bæði á Íslandi og á Norðurlöndum öllum, það er ég búinn að fá staðfest, “ segir Páll Reynisson, stofnandi og safnstjóri Veiðisafnsins á Stokkseyri. Á safninu má finna fjöldann allan af uppstoppuðum dýrum og nú hafa átta ný dýr bæst í safnið. „ Ég hef sjálf...
Þrátt fyrir úrhellisrigningu gengu hátt í 500 manns gegn sjálfsvígum í hinni árlegu geðgöngu í Reykjavík í kvöld í tilefni af alþjóðageðheilbrigðisdeginum. Fjölmennt var í Hallgrímskirkju þar sem haldin var athöfn fyrir geðgönguna. Páll Óskar og Mónika ásamt Mótettukór Hallgrímskirkju sungu fyrir gesti. Þetta er í 11. ...
Ákvæði í stjórnarfrumvarpi sem heimilar Áfengis - og tóbaksverslun ríkisins ( ÁTVR ) að hafna því að taka vörur í sölu ef umbúðir þeirra líkjast umbúðum óáfengra drykkja stenst ekki lög að mati Félags atvinnurekenda. ÁTVR fær meðal annars heimild til að neita að taka í sölu áfengi sé óáfengur drykkur í svipuðum umbúðum...
Samtök atvinnulífsins sjá enga ástæðu til þess að takmarka aðgang rúmenskra og búlgarskra ríkisborgara að íslenskum vinnumarkaði í kjölfar þess að umrædd ríki gerast aðilar að ESB og EES um næstu áramót. Þvert á móti beri að taka vel á móti þessum nýju aðildarríkjum EES með öllum þeim réttindum og skyldum sem aðild hef...
Thibaut Courtois, hinn bráðefnilegi markvörður Atletico Madrid, gerði sig sekan um skammarlegan og vandræðalegan leikaraskap í 1 - 0 sigri liðsins gegn Real Madrid í gærkvöldi. Belgíski landsliðsmarkvörðurinn var að reyna að tefja leikinn á lokasekúndunum þegar Gareth Bale dreif sig að honum til að reyna að flýta fyrir...
Klaus Regling, yfirmaður björgunarsjóðs Evrópusambandsins, segist ekki búast við því að samkomulag náist um að Kínverjar leggi fé í sjóðinn. Regling sem er í Peking segist gera ráð fyrir að Kínverjar haldi áfram að kaupa verðbréf sem sjóðurinn gefi út.
Sjónvarpsþátturinn Fótbolti.net er flautaður á klukkan 12:00 í dag en hann er á dagskrá á SportTv klukkan 12:00 á föstudögum og sýndur bæði á netinu og í sjónvarpi. Smelltu hér til að fara í beina vefútsendingu Dagskrá í þætti tíu : - Freyr Alexandersson, þjálfari Leiknis, er gestur þáttarins - Farið verður ítarlega yf...
Félagið Vaðlaheiðargöng hf. greiðir áhættugjald í stað ábyrgðargjalds vegna 14,4 milljarða láns ríkisins til framkvæmdar á Vaðlaheiðargöngum. Í svari fjármála - og efnahagsráðuneytisins til fjárlaganefndar Alþingis frá því í maí kemur fram að ábyrgðargjald komi til greiðslu hjá þeim sem njóta ríkisábyrgðar almennt á sk...
Skiptifarþegum á leið yfir Atlantshafið mun fækka um nærri fimmtung frá fyrra ári ef ný spá ISAVIA gengur eftir. Í farþegaspá Isavia fyrir árið 2019 er gert ráð fyrir að heildarfjöldi farþega sem fara um Keflavíkurflugvöll í ár dragist saman um 8,7% frá því sem var árið 2018. Þetta kom fram þegar ríkisfyrirtækið kynnti...