text stringlengths 0 5.29M |
|---|
Handknattleiksdeild Gróttu hefur sent frá sér yfirlýsingu eftir að Gunnar Andrésson, þjálfari karlaliðs félagsins, var úrskurðaður í eins leiks bann af aganefnd HSÍ í gær. Gunnar tekur út leikbannið í kvöld þegar Grótta mætir FH, en hann fékk að líta rauða spjaldið í leik gegn Aftureldingu um liðna helgi fyrir orð sem ... |
Það var sannkölluð hátíð í bæ í Garðabænum á laugardaginn þegar ný og glæsileg íþróttamiðstöð Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar var opnuð með formlegum hætti að viðstöddu miklu fjölmenni. Aðstaðan er öll hin glæsilegasta. Húsnæðið er um 1.400 fermetrar og á efri hæðinni eru veitingasalur, skrifstofur starfsmanna, versl... |
Forstjóri Bankasýslu ríkisins stendur við ásakanir sínar um óeðlileg afskipti ráðuneytisstjóra fjármála - og efnahagsráðuneytisins af störfum stofnunarinnar. Forstjórinn telur að nýtt frumvarp geti ýtt undir afskipti embættismanna af bönkum í eigu ríkisins. Guðmundur Árnason, ráðuneytisstjóri fjármála - og efnahagsráðu... |
ÞÓRUNN Lárusdóttir leik - og söngkona var valin " andlit ársins " hjá No Name-snyrtivörufyrirtækinu við hátíðlega athöfn í Versölum um helgina. Þetta er í 16. skipti sem No Name velur andlit ársins til að kynna vörur fyrirtækisins en Kristín Rós Hákonardóttir sundkona var valin " andlit ársins " á síðasta ári. Á hverju... |
Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra sendi í gær bréf til Bandaríkjastjórnar og væntir hann þess að Bush Bandaríkjaforseti hafi nú fengið það í hendur. Halldór segir íslensku ríkisstjórnina aldrei hafa útilokað að þoturnar færu frá Keflavík, ef loftvarnir Íslands yrðu tryggðar eftir sem áður. Halldór Ásgrímsson, forsæt... |
Einn er í haldi lögreglu á höfuðborgarsvæðinu vegna gruns um að hafa í gærkvöld orðið manni að bana í búsetukjarna fyrir geðfatlaða við Miklubraut. Mikill viðbúnaður var við húsið vegna málsins. Fjöldi lögreglu - og sjúkrabíla dreif þar að um tíuleytið í gærkvöld. Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn, staðfest... |
Baldur Arnarson baldura@mbl.is " Þá ákvörðun tók ég í ljósi stjórnarskipta sem gætu brostið á hvern dag. Ég taldi því rétt að halda mig fremur heima við í því ljósi og sendi æðsta yfirmann ráðuneytisins á sviði norðurslóðamála, Hermann Örn Ingólfsson, sem staðgengil minn. Slíkt er alsiða eigi ráðherrar ekki heimangengt... |
INDIANA Pacers sigraði New York Knicks, 88 : 84, á heimavelli í öðrum leik liðanna í úrslitum Austurdeildarinnar í NBA-körfuknattleiknum í fyrrinótt og hefur 2 - 0 yfir í viðureigninni. Knicks hafði yfir í síðasta leikhluta, mest sex stig, en Dale Davis tryggði sigur Pacers á lokasprettinum, misnotaði tvö vítaköst, sem... |
Hörður Ægisson hordur@mbl.is Forsætisráðherra hefur skipað starfshóp sem á að að kanna mögulegar endurbætur á peningakerfinu. Formaður hópsins er Frosti Sigurjónsson, þingmaður Framsóknarflokksins og formaður efnahags - og viðskiptanefndar. Að auki er hópurinn skipaður þeim Þorbirni Atla Sveinssyni, sérfræðingi í marka... |
Bjarki Már Elísson mun skipta um lið í þýsku efstu deildinni í handbolta karla næsta sumar. Bjarki Már Elísson landsliðsmaður í handbolta mun ganga í raðir þýska efstudeildarliðsins Lemgo frá Füchse Berlin í sumar. Þetta kemur fram í frétt á mbl.is. Bjarki Már hefur leikið með Berlínarrefunum frá því árið 2015, en segi... |
Norbert Haug, íþróttastjóri Mercedes, segist fullviss um að hinn þýski keppinautur BMW muni ekki standa Mercedes á sporði á næsta ári hvað bílhraða varðar. BMW sneri aftur til þátttöku í Formúlu - 1 í ár eftir 13 ára fjarveru og lagði Williamsliðinu til mótora. Stóð liðið sig framar vonum og náði þriðja sæti í stigakep... |
Norður-Kórea vinnur enn að undirbúningi tilraunasendinga með langdrægum eldflaugum sem Bandaríkin hafa lagt mikið kapp á að afstýra, samkvæmt upplýsingum suður-kóreskra embættismanna. William Cohen, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sem nú er í heimsókn í Suður-Kóreu, hefur heitið því að gera allt sem í hans valdi sten... |
Grasrót hreyfingarinnar er kraumandi pottur hugmynda og stórra verkefna um þessar mundir. Ég naut þess heiðurs að vera við setningu þings Rafiðnaðarsambands Íslands annars vegar og Samiðnar hins vegar en bæði þingin standa nú yfir. Rafiðnaðarmenn ákváðu á sínu þingi að leggja áherslu á jafnrétti kynjanna og öruggt star... |
Nú rétt í þessu var tilkynnt á hófi í Iðnó lið umferða 7 - 12 í Landsbankadeild karla. Sigurvin Ólafsson leikmaður FH sem í gær var valinn í íslenska landsliðið var valin besti leikmaður umferða 7 - 12 og Kristján Guðmundsson þjálfari Keflavíkur besti þjálfarinn. Stuðningsmenn KR fengu stuðningsmannaverðlaunin að þessu... |
Hann finnst á opnum svæðum utan regnskóga Mið-Afríku, meðal annars á gresjunum og staktrjáasléttum ( e. savanna ) í austurhluta Afríku en einnig á gisnu svæði utan þéttustu skóga í vesturhluta álfunnar og á Kalahari-svæðinu í sunnanverðri Afríku. Afríkufílar ( Loxodonta spp. ) Önnur þeirra og sú stærri er gresjufíllinn... |
Lizzy Pattinson, systir leikarans Roberts Pattinsons, tók þátt í bresku söngvakeppninni The X-Factor en hún var dæmd úr leik á sunnudaginn. Lizzy gekk mjög vel í fyrstu áheyrnarprufu keppninnar og voru dómararnir hrifnir af frammistöðu hennar, meðal dómara keppninnar er hinn ákveðni Simon Cowell. Lizzy gekk vel í keppn... |
Hugefli - Listin að umbreyta eigin hegðun og framkomu er eftir Garðar Garðarsson. Í kynningu segir m.a. : " Bókin er eins konar vegakort um innlönd hugans. Komið er víða við, og meðal þess sem tekið er fyrir er sjálfsímyndin, undirmeðvitundin, vanahegðun, sjálfsdáleiðslu - og slökunaraðferðir, ofurnámstækni, táknkerfi ... |
HJÖRTUR Harðarson og Gunnar Einarsson hafa báðir skrifað undir samning um að leika með Keflvíkingum í körfuknattleiknum næsta vetur og fara því hvergi eins og orðrómur hafði verið uppi um. HANNA Guðrún Stefánsdóttir hefur gengið til liðs við knattspyrnulið FH úr Haukum, en hún er þekkt handknattleikskona með Haukum. Ha... |
Ástarstjörnu yfir Hraundranga skýla næturský. Hló hún á himni. Hryggur þráir sveinn í djúpum dali. Veit ég, hvar von öll og veröld mín glædd er guðs loga. Hlekki brýt ég hugar og heilum mér fleygi faðm þinn í. - - Háa skilur hnetti himingeimur. Blað skilur bakka og egg. En anda, sem unnast, fær aldregi eilífð að skilið... |
„ Þessar breytingar eru allar samkvæmt bókinni og sveitarstjórnarlögum. Stjórnskipulagsbreytingarnar hjá okkur taka ekki það langan tíma að það hefur ekki liðið nema sem nemur „ hefðbundnum tíma “ á milli funda. Ég veit ekki um neitt mál sem ekki hafi verið hægt að leysa á þessum tíma, enda starfsfólk bæjarins að störf... |
tv er þjóðarlén Túvalú. |
Ökumaður fólksbíls var stöðvaður í Borgarnesi í gær eftir glæfraakstur um Norðurárdal með barn í bílnum hjá sér. Lögreglumaður á Hólmavík varð fyrst var við manninn og mældi hann á 146 km hraða. Hann hlýddi þó ekki stöðvunarmerkjum og ók áfram suður. Með lögreglubíl með blikkandi ljós á eftir sér ók hann 40 km og hvarf... |
Furðufuglinn, sem kann allt skrýtið að meta, má ekki gleymast um jólin. Allt sem er öðruvísi og spes gleður hann. Það er langskemmtilegast að velja gjöf fyrir þessa týpu enda þarf hún bara að vera skemmtileg og svolítið sérstök, þá ætti hún að slá í gegn. Guðný Hrönn | gudnyhronn@mbl.is |
Flautuleikarinn Björn Davíð Kristjánsson og gítarleikarinn Þórarinn Sigurbergsson koma fram á hádegistónleikum Íslenska flautukórsins í Listasafni Íslands í dag kl. 12.10 og er aðgangur ókeypis. Á efnisskránni eru verkin Mei eftir Fukushima, þættir úr Suite fyrir flautu og gítar eftir Oliver Kentish, Largo úr Sonate op... |
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðaróhappi sem varð á gatnamótum Höfðabakka, Strengs og Bæjarháls í Reykjavík kl. 19.07 mánudagskvöldið 4. nóvember. Þar rákust saman dökkgrár Peugeot 508 ( PB-P 96 ) og ljósgrár Toyota Hilux ( PU - 477 ). Ökumönnunum ber ekki saman um stöðu umferðarljósa, en ann... |
„ Myndir öðlast oft markvert gildi með tímanum. Sumt sem virðist lítils virði í núinu verður merk heimild þegar fram líða stundir, til dæmis myndir af fólki við störf sín eða af skipum, bílum og húsum. Í safni mínu eru núna um 55 þúsund myndir af öllu mögulegu. Þetta er orðin heilmikil saga, “ segir Svavar B. Magnússon... |
HUGMYNDIR um virkjun við Villinganes í Skagafirði hafa verið uppi með einum eða öðrum hætti frá árinu 1973 þegar fyrst var hreyft tillögum um að virkja við nesið. Frá þeim tíma og fram til ársins 1977 fóru þar fram rannsóknir á vegum Orkustofnunar, en síðan var gerð náttúrufræðileg könnun sem lokið var 1982. Þá var fal... |
Sýrlenski herinn hefur náð völdum á ný í bænum Sadad en flestir íbúarnir þar eru kristnir. Hörð átök hafa verið um Sadad líkt og víðar annars staðar í Homs héraði. Herinn hefur barist við liðsmenn hreyfingar sem tengist al-Qaeda um yfirráð í bænum undanfarna viku en enn er barist í sveitunum í kring. Samkvæmt upplýsing... |
KFS mætir liði KFR í fyrsta heimaleik sumarsins á morgun, laugardag kl 15:00 á Þórsvelli. KFR var spá neðsta sæti 3. deildar en vann fyrsta leik sinn á móti Berserkjum síðustu helgi. KFS var spá næst neðsta sæti en eins og flest allir vita þá segir spá ekkert til um úrslit leikja og því getur allt gerst. KFS hvetur eyj... |
Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli var nóttin róleg á svæðinu nærri gosstöðinni í Eyjafjallajökli. Borið hefur á örlitlu öskufalli á Hvolsvelli sem greinist sem hárfínn salli á bílum. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni er allhvöss austanátt með suðurströndinni en annars hægari suðaustlæg átt. Austanáttinn er í þrigg... |
SAUÐBURÐUR hefur gengið vel á Norðurlandi það sem af er. Þrátt fyrir kuldann sem þar hefur verið eru bændur ánægðir, minnugir ástandsins sem skapaðist í fyrra þegar halda þurfti öllu fé innanhús sökum vosbúðar. Þau Jón Kristófer Sigmarsson og Ólöf Birna Björnsdóttir voru ánægð þegar blaðamaður Morgunblaðsins tók af þei... |
Íslenska U17 ára landslið pilta í handknattleik tapaði fyrir Rúmenum með minnsta mun í þriðja leik sínum á European Open sem haldið er í Gautaborg í Svíþjóð. Ísland var 11 : 9 yfir í hálfleik og var fimm mökum yfir, 18:13, þegar stundarfjórðungur var eftir. Þá hrökk allt í baklás hjá íslenska liðinu og Rúmenar innbyrtu... |
Frönsk stjórnvöld áforma að setja á fót annað athvarf fyrir flóttamenn þar sem umdeilt skýli skammt frá Calais er orðið yfirfullt, að því er segir í frétt frá BBC. Nýja skýlið verður rekið af Rauða krossinum og verður á lóð geðsjúkrahúss skammt frá Dunkerque. Forráðamenn lestasamgangna hafa farið fram á það við frönsk ... |
Skagamaðurinn Arnór Sigurðsson lék allan tímann með CSKA Moskva þegar liðið tapaði á heimavelli fyrir tékkneska liðinu Viktoria Plzen 2 : 1 í næstsíðustu umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í kvöld. Nikola Vlasic kom CSKA í forystu með marki úr vítaspyrnu á 10. mínútu leiksins. Tékkarnir fengu gott ... |
Oddný G. Harðardóttir, formaður Samfylkingarinnar, hefur þegar haft samband við Birgittu Jónsdóttur, einn af umboðsmönnum Pírata vegna stjórnarmyndunar. Stefna þær á að hittast til að kanna mögulegt samstarf. „ Ég er búinn að hafa samband við Birgittu og við ætlum að finna okkur tíma til að hittast, “ segir Oddný í sam... |
Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins á hendur Jóni Garðari Ögmundssyni, fyrrum rekstarstjóra McDonald's á Íslandi og fyrrum eiganda Metro, fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Jón Garðar er ákærður fyrir að hafa sem stjórnarmaður og framkvæmdastjóri Lystar ehf ekki staðið við skil á opinberum gjöldum – tekjuskatti og ú... |
Þessi hlutir geta verið til dæmis gen, stjórnraðir, skerðiset fyrir skerðiensím og STS ( sequence tagged sites ). |
Mynd dagsins er daglegur liður hér á 433.is sem hefur notið vinsælda. Í liðnum reynum við að finna myndir sem tengjast knattspyrnu. Hafir þú ábendingar um góða mynd máttu endilega senda hana á 433@433.is. Mynd dagsins er af tveimur goðsögnum hjá Liverpool og viðurnefnum þeirra. Nú hefur Jamie Carragher fengið nafnið Sp... |
Miðjumaðurinn Jóhann Ingi Jóhannsson hefur gengið til liðs við Fjarðabyggð í fyrstu deildinni en hann var í láni hjá félaginu í sumar frá HK. Jóhann Ingi sem er uppalinn hjá Val Reyðarfirði hefur gert tveggja ára samning við lið Fjarðabyggðar sem sigraði aðra deildina síðastliðið sumar og vann sér þar með sæti í þeirri... |
Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis - og auðlindaráðherra, hafði í nógu að snúast í gær og í fyrradag, en ráðherrann opnaði sýningu, vígði ofanflóðavarnargarð og tók skóflustungu að nýrri byggingu. Fram kemur á vef ráðuneytisins að Sigrún hafi í fyrradag formlega opnað snjóflóðamannvirki við Búðargil á Bíldudal á Vestfjörðu... |
Jeg vil leyfa mjer að leggja til, að kosin verði þriggja manna nefnd til að athuga mál þetta, að þessari 1. umr. lokinni. Jeg vil leyfa mjer að leggja til, að þessu frumv. sje vísað til reikningslaganefndarinnar að þessari fyrstu umræðu lokinni. Jeg vil leyfa mjer að leggja til, að kosin verði 5 manna nefnd til að athu... |
Mál sjö meðlima mótorhjólaklúbbsins Fáfnis, nú MC Iceland, gegn íslenska ríkinu verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur eftir hádegi. Vilja mennirnir, þar á meðal Jón Trausti Lúthersson, fá bætur vegna meintrar ólögmætrar handtöku í byrjun júlí árið 2007. Það var að kvöldi miðvikudagsins fjórða júlí árið 2007 sem sérs... |
Vísindamenn Veðurstofunnar eru að leggja af stað í aðra ferð til að mæla gasútstreymi á þremur stöðum á Reykjanesskaga. Melissa Anne Pfeffer, sérfræðingur á sviði ösku - og efnadreifingar, segist vera búin að yfirfara gögnin frá í gær og merkir engar marktækar breytingar. Sjá einnig : Engar marktækar breytingar á kviku... |
Seðlabankinn býðst til þess að kaupa evrur og íslenskar krónur. Næsta gjaldeyrisútboð fer fram 28. mars næstkomandi. Næsta gjaldeyrisútboði Seðlabanka Íslands, sem liður í afnámi gjaldeyrishafta, lýkur 28. mars næstkomandi, þegar frestur til þess að skila inn tilboðum rennur út. Bankinn býðst til þess að kaupa evrur í ... |
Jón Sigurvin Sigmundsson fæddist í Reykjavík 24. september 1934. Hann lést á Landakotsspítalanum 22. júlí 2013. Foreldrar hans voru Sigmundur Þ. Pálmason bryti, f. í Skálavík N-Ís. 3. maí 1900, d. 18. ágúst 1965, og Margrét Gísladóttir, f. Litlu Þúfu, Hnapp. , 23. nóvember 1908, d. 16. júlí 1964. Systkini : Svanlaug Es... |
Í norska öryggisfangelsinu í Bärum þar sem fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik er vistaður er áætlað að reisa nýja öryggisálmu. Þar mun Breivik geta umgengist aðra fanga undir ströngu eftirliti. Við núverandi aðstæður getur Breivik einungis umgengist starfsfólk fangelsisins. Áætlað er að hönnun nýja fangelsisins ve... |
The Vintage Caravan mættu í Stúdíó 12 fyrir helgi og tóku þrjú lög, þar af eitt spánýtt. Það er von á breiðskífu frá strákunum á næstunni en sveitin hefur verið iðin við kolann í tónleikaferðum um Evrópu undanfarin ár. „ Við höfum verið meira og minna á flakki. 2014, 2015 og 2016 tókum við svona hundrað gigg á ári, “ s... |
Sífellt verðu algengara að konur í Danmörku gangist undir fegrunaraðgerðir á kynfærum og á það bæði við um giftar og ógiftar konur og konur af dönskum og erlendum uppruna. Þetta kemur fram á fréttavef Jyllands-Posten. " Sífellt fleiri konur af öðrum uppruna en dönskum gangast undir brjóstaaðgerðir, " segir Jesper Nygar... |
Karl Sigurbjörnsson, sá umdeildi biskup Íslands, lét reiði sína í ljósi um helgina þegar hann fordæmdi það sem hann kallaði dagleg mannorðsmorð í fjölmiðlum. Fáum duldist að þarna var hann að finna útrás gremju sinni vegna óvæginnar umfjöllunar um hann og þá þöggun sem beitt var í máli Ólafs Skúlasonar. Illugi Jökulsso... |
Forstjóri kísilverksmiðju PCC á Bakka segir lágt heimsmarkaðsverð á kísilmálmi og óstöðugan rekstur helstu ástæður þess að félagið leitar nú allt að 5 milljarða króna fjármögnun til að styrkja reksturinn. Kísilverksmiðja PCC var gangsett vorið 2018. Vandamálin hafa helst snúið að rykhreinsibúnaði frá ofnum hennar. Hlut... |
Stjórnvöld í Jemen hafa leyst úr haldi Jamal al-Badawi höfuðpaurinn í hryðjuverkaárásinni á bandaríska herskipið USS Cole. Jamal hefur setið í fangelsi síðan 2003 en hefur tvisvar náð að flýja úr vistinni, síðast í fyrra. Bandarísk stjórnvöld eru æf af reiði yfir því að Jamal skuli sleppt nú. Hann gaf sig fram við stjó... |
Á annað hundrað gróðurhúsalömpum hefur verið stolið úr gróðurhúsum í uppsveitum Árnessýslu síðustu tvo mánuði. Lögreglan líkir málinu við faraldur og telur að nota eigi lampana til að rækta kannabisplöntur. Innflutningur á marijúana hefur minnkað undanfarna mánuði en ræktun kannabisplöntunnar hér á landi hefur hins veg... |
Þýska handknattleiksliðið Wetzlar vill halda Kára Kristjáni Kristjánssyni línumanni áfram í herbúðum sínum. Þetta staðfesti Kári í samtali við Morgunblaðið í gær. Núverandi samningur hans rennur út um mittþetta ár. Línumaðurinn Giorgos Chalkidis verður ekki áfram hjá liðinu eftir að samningur hans rennur út í vor en í ... |
Nýliðar Fylkis geta verið ánægðir með byrjun sína á Íslandsmóti kvenna í fótbolta því eftir þrjár umferðir er Árbæjarliðið komið með sex dýrmæt stig í vasann. Ljóst var fyrirfram að baráttan í neðri hluta deildarinnar yrði hörð og tvísýn og Fylkiskonur hafa þegar sent keppinautunum skýr skilaboð um að þær ætli ekki að ... |
Tveir voru teknir fyrir of hraðan akstur í umdæmi Keflavíkurlögreglunnar í nótt. Lögreglan hefur verið í hálfgerðum vorverkum síðustu dag því fjöldi ökumanna hefur ratað í radar lögreglunnar og skráð sig fyrir gíró frá sýslumanni. |
Eftir að hafa tekið meira en árshlé frá sviðsljósinu hyggur tónlistarmaðurinn Michael Jackson á endurkomu. Jackson ætlar í mars að ferðast til Japan þar sem hann ætlar að koma fram á samkomu honum til heiðurs en Japan er einn af hans eftirlætisstöðum í heiminum. Í samtali við AP-fréttastofuna staðfesti talsmaður Jackso... |
Ný bók sem Nicolas Sarkozy skrifaði í tilefni af framboði sínu til forseta Frakklands skaust á topp franska metsölulistans í dag. Bókin All for France seldist í 32 þúsund eintökum fyrstu þrjá dagana á markaði, samkvæmt tímaritinu sem birtir listann, Livres Hebdo. Önnur bók úr smiðju Sarkozy, France for Life, var gefin ... |
Sífellt færist í vöxt að menn stundi strandveiði með kaststöngum, nú eða flugustöngum. Við Ægissíðuna er hægt að veiða ufsa og fleiri tegundir. Æ fleiri hafa áhuga á að stunda strandstangveiði. Í sumar mátti sjá fjölda fólks kasta á makríltorfur sem gengu nánast upp á land. Á umræðuvefnum veidi.is er fjallað um strands... |
Hnefaleikakappinn Oscar de la Hoya fór mikinn í hringnum í New York kvöld er hann sigraði andstæðing sinn, Darrel Coley, örugglega í ójöfnum bardaga. De la Hoya hafði yfirburði allan bardagann og knésetti hann Coley með þungu skrokkhöggi í sjöundu lotu. Ljóst er að De la Hoya gerir nú kröfu um að fá tækifæri til endurh... |
Kaþólska kirkjan hefur hingað til farið ófögrum orðum um Harry Potter-bækur J.K. Rowling en nú er það liðin tíð. Grein í L'Osservatore Romano, dagblaði Vatíkansins, segir Harry Potter og blendingsprinsinn bestu myndina í seríunni og hrósar myndinni í hástert fyrir túlkun á ást unga fólksins. Dagblaðið gagnrýnir Rowling... |
Keiran Trippier, bakvörður Burnley segir að töpuð stig á mikilvægum augnablikum kostuðu Burnley að lokum en liðið er fallið úr ensku úrvalsdeildinni eftir aðeins eitt tímabil í deild þeirra bestu. Liðið vann Hull City í gær en það dugði ekki til þar sem Sunderland og Leicester unnu leiki sína. „ Það var gott að við unn... |
Ísfirska lækningavörufyrirtækið Kerecis hefur ráðið Mike Cadigan sem fjármálastjóra ( Chief Financial Officer ). Cadigan hefur búið Seattle undanfarin ár og býr að 25 ára reynslu af fjármálastjórnun, þróun og fjárfestingarbankastarfsemi. Aðsetur Mike mun verða á skrifstofu Kerecis á Washington D.C. svæðinu. Kerecis sel... |
Hún er heimsins stærsta fallorkustífla með 22.500 megavatta framleiðslugetu sem svarar til 5 prósenta af rafmagnsnotkun Kína. |
Bæjarráð Árborgar samþykkti á fundi sínum í vikunni beiðni Bifreiðaklúbbs Suðurlands og Bifhjólasamtakanna Postula um afnot af Hrísholti 8 undir starfsemi sína. Þar var Björgunarsveitin Tryggvi með aðstöðu á sínum tíma en síðan þá hafa Skátafélagið Fossbúar og áhaldahús Árborgar meðal annars notað húsið. Klúbbarnir fá ... |
„ Það er ekki hægt að segja annað en að Kristín Soffía hafi brugðist ókvæða við. Það er annað hvort þekkingarleysi eða verið að reyna að villa um, “ segir Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, um viðbrögð framangreinds borgarfulltrúa í kjölfar fregna af uppbyggingu lúxushótels á Miðbakkanum í Reykjavík. Morg... |
Boðaðar aðgerðir í stjórnarsáttmálanum í þágu tekjulágra á húsnæðismarkaði geta ýtt undir verðhækkanir. Þá kann hækkandi fermetraverð nýrra íbúða í miðborg Reykjavíkur að þrýsta á leiguverð á höfuðborgarsvæðinu. Þetta er mat Elvars Orra Hreinssonar, greinanda hjá Íslandsbanka. Hann segir eftir að koma í ljós hvernig rí... |
RÉTT rúmu ári eftir að hann lét eiginkonuna sigla sinn sjó hefur bandaríski kvikmyndaleikarinn Tom Cruise sagt upp spænsku leikkonunni Penelope Cruz, að því er segir í frétt BANG Showbiz. Cruise hafði beðið Cruz um að giftast sér og hafði parið í hyggju að láta verða af því á næstunni. Ekki nóg með að Cruise vilji ekki... |
RAGNAR Bragason kvikmyndagerðarmaður telur að hækkun á hlutfalli framleiðslustyrks úr Kvikmyndasjóði af kostnaðaráætlun úr 40% í 50%, eins og boðað er í stuðningi hins opinbera við kvikmyndagerð, sé til þess fallið að auka listrænt frelsi íslenskra kvikmyndagerðarmanna í samstarfi og samframleiðslu með erlendum aðilum.... |
OLÍUFÉLÖGIN, utan Atlantsolíu og Orkunnar, hækkuðu í gær og fyrradag eldsneytisverð á stöðvum sínum. Bensínlítrinn hjá Olís, Skeljungi og Olíufélaginu Esso hækkaði á þjónustustöðvum um fjórar krónur og dísilolíulítri um tvær krónur. Frá því í febrúar hefur bensínið hækkað um tæp 15% hér á landi. Hæsta bensínverðið var ... |
Bjarni Fritzson, þjálfari ÍR, var svekktur eftir 33 : 29 tap sinna manna gegn Aftureldingu í 11. umferð Olísdeildar karla í handknattleik í kvöld. ÍR hefur nú tapað sex af síðustu sjö deildarleikjum sínum og fóru leikmenn liðsins afar illa af stað í kvöld, telur Bjarni að það hafi sökkt liðinu í kvöld? „ Við náum að ja... |
„ Það er jafn mikið jafnréttismál að fjölga karlkyns leikskólakennurum og að fjölga konum í stjórnum fjármálafyrirtækja, “ segir Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara. Aðeins eitt prósent leikskólakennara er karlar. Á fundi um málið í gær sagðist Dagur B. Eggertsson borgarstjóri tilbúinn að huga að ... |
Þessi ofnbakaði kjúklingaréttur er algjör snilld enda fremur auðveldur í framkvæmd sem er akkúrat það sem við viljum sem oftast - að minnsta kosti hversdags! Það frábæra við hann er að börn eru sérlega sólgin í hann og því kemst hann fljótt á uppáhaldslista heimilisins ef að líkum lætur. Ofnbakaður kjúklingur í rjómasv... |
Undanfarna daga, eins og svo oft áður, hefur spunnist umræða hér í Fréttablaðinu um það hvort Guð sé til eða ekki til. Og sýnist sitt hverjum. Frá mínu sjónarhorni er mikill munur á andlegri og huglægri trú. Við getum spurt hvort veröldin og tilveran með öllum sínum undrum sé raunveruleg eða bara blekking. Ef við svöru... |
Töluverður fjöldi fólks á Seyðisfirði hefur verið settur í sóttkví vegna smits sem þar greindist hjá einstaklingi með tengsl við leikskólann á Seyðisfirði. Í samráði við leikskólann og smitrakningarteymið var börn, foreldrar og starfsfólk á leikskólanum boðað í skimun í dag og ættu niðurstöður úr þeirri skimun að liggj... |
Mengunarmál hafa verið í umræðunni hér á landi í sumar. Skólpmengunina frá dælustöð Veitna við Faxaskjól ber þar sennilega hæst. Málið hefur vakið mikla athygli, ekki síst vegna þess hversu langur tími leið frá því málið kom upp þar til íbúar voru látnir vita. Fyrstu tilkynningar af málinu bárust frá þremur óheppnum ko... |
Daníel Laxdal og félagar í Stjörnunni slógu enn á ný í gegn í Pepsi-deildinni í sumar og náðu besta árangri félagsins í efstu deild. Stjörnumenn skemmtu áhorfendum með fögnunum í fyrra en í ár voru þeir með skemmtilegasta og markahæsta liðið og fögnin voru nú orðin frétt gærdagsins í Garðabænum. Fyrirliðinn Daníel Laxd... |
" Flökt á gengi íslensku krónunnar veldur því að verðbólga er sífellt of há. Krónan hefur þó styrkst frá byrjun mars um 8% en á sama tíma helst verðlag enn hátt og hækkar sífellt, " sagði Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands í ræðu sinni í tilefni af baráttudegi verkalýðsins í dag og spyr ... |
Minningabók um Boris Jeltsín er í bústað rússneska sendiherrans að Túngötu 9 í Reykjavík. Fyrstur til að skrifa nafn sitt í bókina var Geir H. Haarde forsætisráðherra sem kom í sendiherrabústaðinn klukkan tíu í morgun. Minningabókin mun liggja þar frammi í dag og gefst þeim sem vilja votta minningu Borisar Jeltsín fyrr... |
Íslandsmeistarar Vals í handknattleik kvenna hófu titilvörn sína í dag á því að vinna fjögurra marka sigur á KA / Þór, 18:14. Nýliðar ÍR steinlágu á heimavelli gegn ÍBV, 35 : 24. Staðan í hálfleik hjá Val og KA / Þór var aðeins 8 : 6. Kristín Guðmundsdóttir var markahæst í hinu mikið breytta liði Vals með 7 mörk. næsta... |
Gestir á Islandia Hótelinu að Núpum, í nágrenni við Kirkjubæjarklaustur, eru að yfirgefa hótelið vegna öskufalls frá gosinu. Þau munu njóta aðstoðar björgunarsveitamanna. Viðbragðsaðilar vegna gossins voru að dreifa rykgrímum og gleraugum nú rétt í þessu þegar Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis var ... |
Reykjanesbær hefur lagt fram nýtt deiliskipulag fyrir Fitjar samkvæmt uppdrætti Glámu - Kím. Deiliskipulagssvæði er u.þ.b. 29 hektarar að stærð og afmarkast af lóðum við Fitjabakka og Fitjabraut til norðurs, strandlínu til austurs, Njarðarbraut til vesturs og suðurs og Víkingaheimum til suðausturs. Markmið skipulagsins... |
Íris Ósk Ingadóttir hefur verið ráðin í starf tómstundafulltrúa í Strandabyggð. Tekur hún við af Esther Ösp Valdimarsdóttur sem lét af störfum í byrjun mánaðarins og snýr sér að öðrum verkefnum, eftir að hafa starfað sem tómstundarfulltrúi í fjögur ár. Íris hefur áður starfað sem tómstundafulltrúi í Strandabyggð, því h... |
Einar Stefánsson, prófessor og yfirlæknir, skrifar í Morgunblaðið 25.9. sl. grein sem er svo ótrúlega afhjúpandi fyrir vanþekkingu augnlæknisins á sögu og samtíð Ísraelsríkis að mér er alveg nóg boðið. Með því að byrja á að vanvirða múslima að hætti fákunnandi krossfara, sem trúir því að alheimslögreglan eigi sjálfsagð... |
Þeir marka sér svæði með lykt sem þeir mynda með lyktarkyrtli á kviði. |
Unga fólkið í dag er betur sett en foreldrar þess fyrir hálfri öld, sem betur fer. Það er auðveldara að stofna heimili, jafnvel eignast sitt eigið þak yfir höfuðið. Auðvitað er þetta basl hjá mörgum, en í dag þarf ekki að sækja um leyfi til Fjárhagsráðs til að eignast íbúð eða sækja skömmtunarmiða til oddvitans til að ... |
Kristján Þór Júlíusson hagar sér eins og framsóknarráðherra. Segir blákalt, að svart sé hvítt. Sagði hækkun komugjalda á heilsustöðvar ekki vera hækkun. Í fylgiskjölum fjárlagafrumvarps sé góður vilji til að bæta hag fólks. Þetta er gamla lumman : Ég er svo góðviljaður, að ég má lemja þig, það tekur meira á mig en þig,... |
Samkaup hafa ákveðið að bjóða vi ðskiptavinum sínum að koma með plastpoka í allar verslanir fyrirtækisins og skipta þeim út fyrir fjölnotapoka. Átakið fer af stað í dag. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu. „ Við höfum tekið upp 50.000 fjölnota poka og komið upp sérstökum mótttökustöðvum í verslunum okkar. Með því vil... |
Þrír leikir fóru fram í Olís-deild karla í handbolta í kvöld og enduðu tveir leikir með jafntefli í spennuleikjum. Botnlið Víkings gerði 24 - 24 jafntefli við Fram sem er í efri hluta deildarinnar og sömu úrslit urðu í viðureign Aftureldingar og Gróttu að Varmá í Mosfellsbæ í kvöld. Valsmenn unnu góðan útisigur á ÍR í ... |
Líkur á þriggja flokka ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar hafa aukist. Líkur á þriggja flokka ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar hafa aukist, nú þegar enginn er með stjórnarmyndunarumboðið. Samkvæmt hádegisfréttum Ríkisútvarpsins ræddust formenn flokkanna við í ... |
Hringiðan og IMC Ísland undirrituðu í dag samstarfssamning um aðgang Hringiðunnar að dreifikerfi IMC, en það hefur aðgang að bæði kerfum Vodafone og Símans. Með þessu getur Hringiðan veitt viðskiptavinum sínum farsímaþjónustu til viðbótar við net - og símaþjónustu sem fyrirtækið hefur veitt, en Hringiðan er elsta netþj... |
Enska knattspyrnuliðið Barnsley hefur enn ekki fengið leikheimild fyrir landsliðsmanninn Emil Hallfreðsson en ein vika er liðin frá því hann gekk í raðir 1. deildarliðsins frá ítalska liðinu Reggina. Simon Davey knattspyrnustjóri Barnsley er afar ósáttur við vinnubrögð ítalska knattspyrnusambandsins en hann hefði gjarn... |
Elísabet II Bretadrottning heldur jólin hátíðleg eins og margir og kemur konungsfjölskyldan saman um hátíðarnar og nýtur samvista. Eins og hjá svo mörgum fjölskyldum eru hefðir í hávegum hafðar um jólin hjá konungsfjölskyldunni. Drottningin er með þrjár strangar reglur varðandi jólagjafirnar og þeim verður að fylgja. Ó... |
Hart er í fuglaári syðra en norðan - og austanlands er annað uppi á teningnum. Eitt árið enn virðist sandsílastofninn hér við land ekki ná sér á strik með tilheyrandi ætisskorti fyrir sjófugla. Lundinn hefur liðið fyrir þetta undanfarin ár. Fréttastofa hafði samband við nokkra sem héldu til lundaveiða í síðustu viku og... |
Nýlega birti E online brúðkaupsmyndir þar sem sýnt var nærmynd af brúðarhjónunum Kim Kardashian og Kanye West. Undanfarna daga hefur brúðkaupið verið mikið umtal og tala margir um brúðkaup aldarinnar. Myndir frá brúðkaupinu hafa birst undanfarna daga. Hér má sjá fyrstu myndir brúðhjónanna, þar sem þau leyfa almenningi ... |
Hér er viðtal úr Silfri sunnudagsins. Það er Robert Wade, prófessor við LSE, einn þeirra sem spáði fyrir um íslenska bankahrunið, sem talar um vitræna atvinnustefnu eins og hann nefnir það. |
Orkusérfræðingar Evrópusambandsins koma saman til neyðarfundar í Brussel í dag þar sem þeir meta tjónið sem varð í ýmsum borgum Evrópu þegar dró úr gasstreymi frá Rússlandi í fyrradag. Þá hyggjast þeir kanna hvernig aðildarríki sambandsins geti nýtt aðra orkugjafa en rússneskt gas. |
Tveir lögreglumenn frá Selfossi voru í Héraðsdómi Suðurlands sýknaðir af 16 milljón króna skaðabótakröfu konu á Selfossi. Hún telur þá ábyrga fyrir slysi, þar sem hún úlnliðsbrotnaði illa og varð fyrir vikið 85% öryrki. Konan var dæmd til að greiða lögreglumönnunum sitthvorar 200 þúsund krónurnar í málskostnað. Vorið 2... |
Baldur Borgþórsson, varaborgarfulltrúi Miðflokksins, gagnrýnir seinagang hjá Reykjavíkurborg hvað varðar úrræði fyrir tvö fötluð börn sem búa í sveitarfélaginu. Börnin áttu að fara í úrræðið, sem staðsett er í öðru sveitarfélagi, þann 18. október síðastliðinn en fengu ekki aðgang að því vegna þess að ekki hafði verið g... |
Roberto Mancini knattspyrnustjóri Manchester City vonast til að Manchester United geti teflt Wayne Rooney fram í leik Manchester-liðanna á laugardag svo United geti ekki verið neinar afsakanir ef það tapar leiknum. Rooney, sem hefur skorað 34 mörk á tímabilinu, er kapphlaupi við tímann en sóknarmaðurinn skæði á við mei... |
Við heyrðum af 11 ára tvíburasystrum, þeim Jófríði og Ásthildi Ákadætrum, sem gefa reglulega út fréttabréf fjölskyldunnar. Við skelltum okkur í heimsókn til þeirra og forvitnuðumst um þessa skemmtilegu iðju þeirra. Hvernig vinnið þið blaðið ykkar? Ásthildur : " Við gerum þetta hjá ömmu okkar og afa í tölvunni hjá þeim.... |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.