text stringlengths 1 19M |
|---|
Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is " MÉR buðust samningar við þrjú óperuhús og ákvað að yfirlögðu ráði að taka samningi um stöðu við húsið í Aachen í Þýskalandi, " segir Hrólfur Sæmundsson barítónsöngvari sem er á leið til starfa í Þýskalandi. Hrólfi bárust tilboð frá óperuhúsunum í Aachen, Leipzig og Salzburg í kjö... |
Nígeríumaðurinn Moses Akatugba var einungis 16 ára gamall þegar hann var handtekinn í heimalandinu fyrir vopnað rán. Játning var þvinguð fram með pyndingum þar sem Moses játaði að hafa starfað með öðrum dreng sem lögreglan hafði skotið til bana og átti að hafa tekið þátt í ráninu. Við handtökuna var Moses skotinn í han... |
Verð á saltfiski hefur hækkað mikið síðustu misserin á erlendum mörkuðum. Í Morgunpunktum Kaupþings í dag kemur fram að nú virðist hins vegar ákveðin pattstaða vera komin upp þar sem kaupendur eru farnir að halda að sér höndum vegna þess hve verð er hátt. Vísað er í vefrit Intrafish þar sem segir að sumir markaðsaðilar... |
Apple hélt kynningu í gær sem var mun styttri en sú síðasta. Kynningin var líka mun látlausari og var haldin í Townhall hjá Apple í stað risa ráðstefnusals. Tim Cook byrjaði og tók föstum tökum á stóra FBI málinu sem er búið að vera mikil í deiglunni. Apple ætlar ekki að taka þátt í því að brjóta niður persónuvernd ein... |
Slökkvilið Sauðárkróks var kallað út um klukkan þrjú í dag en þá var eldur laus í þaki á Hótel Mælifelli. Þrír menn voru að vinna við lagfæringar á þakinu þegar eldur kviknaði meðal annars í tjörupappa sem fuðraði upp. Mikill reykur steig upp af þakinu, en eldurinn var slokknaði áður en slökkviliðið var komið á vettvan... |
Yfirlýsing íranskra yfirvalda til Alþjóðakjarnorkumálstofnunarinnar, IAEA, varðandi kjarnorkuáætlanir sínar virðist vera heildstæð, sagði Mohamed ElBaradei, yfirmaður IAEA, við blaðamenn í Ottawa. Stofnunin veitti Íransstjórn frest til dagsins í dag til að láta í té upplýsingar um kjarnorkuáætlunina en Bandaríkjastjórn... |
Skuldabréfavísitalan GAMMA, GBI, hækkaði um 0,3% í dag en velta með skuldabréf nam rúmum 30 milljörðum króna. Hækkunin í dag vekur nokkra athygli þar sem skuldabréfavísitalan lækkaði um 5,4% í gær en þannig þurrkaðist öll ávöxtun sl. mánaðar út. GBI hefur nú lækkað um 6,8% á einni viku en hækkað um 0,2% á einum mánuði.... |
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn barni með því að hafa í tvígang tælt sextán ára stúlku sem var sjúklingur á sjúkrahúsinu Vogi að Stórhöfða. Brotin sem maðurinn er ákærður fyrir áttu sér stað föstudag og laugardag í febrúar 2018. Er manninum gefið að sök að hafa tælt stúlkuna til að hafa við hann ... |
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vinstri grænna, vonast til þess að sú staðreynd að ICAN ( International Campaign to Abolish Nuclear Weapons ) hafi fengið friðarverðlaun Nóbels verði til þess að hafa jákvæð áhrif á umræðuna um kjarnorkuafvopnun í heiminum. Telur Katrín að verðlaunin geti jafnvel breytt... |
Íslenski landsliðsmaðurinn Hörður Axel Vilhjálmsson skoraði 3 stig þegar lið hans, Nymburk sigraði Tajfun Sentjur, 70 : 56, á útivelli í FIBA Europe bikarnum í kvöld. Hörður lék í rúmar 19 mínútur. Staðan var jöfn að loknum fyrri hálfleik, 32 : 32, og leikurinn í járnum lengi fram eftir síðari hálfleik. Það var síðan í... |
Skemmtidagskráin Jólapopp fer fram á Café Haítí við Reykjavíkurhöfn annað kvöld kl. 21. Verður þar m.a. blásið til Popppunkts-keppni undir stjórn Dr. Gunna og hlýtt á tóna hljómsveitarinnar Prinspóló. Þá mun rithöfundurinn Einar Kárason kynna bók sína Mér er skemmt og ljósmyndabókina Poppkorn. |
Nú er ljóst hvernig sumaráætlun Herjólfs verður en skipið mun sigla í Landeyjahöfn frá og með 1. júlí næstkomandi. Á tímabilinu 1. júlí til 31. ágúst verða farnar 32 ferðir á viku. Þannig verða farnar fjórar ferðir mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga, fyrsta ferð 7.30 frá Eyjum, svo 10.30, 17.00 og 20.00. Síðasta ferð ... |
Hollenski vængmaðurinn Arjen Robben hefur fullvissað stuðningsmenn Chelsea um að hann verði áfram í herbúðum enska liðsins á næstu leiktíð, en hann hefur lengi verið orðaður við sölu frá félaginu. Robben segist enn fremur hafa fulla trú á að hann verði kominn aftur í sitt besta form áður en næsta tímabil hefst. Robben ... |
Karlmaður, sem í Héraðsdómi Suðurlands var sakfelldur fyrir gróft kynferðisbrot og annað ofbeldi, gegn tólf ára dreng, fyrir sex árum, var sýknaður í Hæstarétti í dag. Drengurinn sagði ekki frá meintri misnotkun fyrr en mörgum árum eftir að meint brot var framið. Framburður drengsins þótti trúverðugur en maðurinn, sem ... |
Selfoss og ÍBV skildu jöfn í þriðja leik sínum á sex dögum en liðin mættust í 1. deild karla í handbolta í kvöld á Selfossi. Eyjamenn náðu að merja jafntefli á lokamínútunni, 25 - 25. Selfoss var ekki með í leiknum fyrstu níu mínútur leiksins þar sem Eyjamenn skoruðu fimm mörk án þess að Selfoss næði að svara fyrir sig... |
Það heitasta í umræðunni í dag er Hringrásargarðurinn sem kynntur var á dögunum en inni í honum er svokölluð Þjóðarbrennsla. Hringrásargarður er mjög gott framtak og er í raun stórgóð hugmynd. Ég veit ekki með ykkur en ég er alfarið á móti því að byggja hér þjóðarbrennslu þessi framkvæmd er dýr, það er hægt að fara í a... |
Umdeildu kaupin á Autonomy leiða til málshöfðunar gegn endurskoðendarisum. Í síðustu viku tilkynnti bandaríski tölvuframleiðandinn HP að afskrifa þyrfti 8,8 milljarða dollara af þeim 11,1 milljörðum dollara sem fyrirtækið greiddi fyrir Autonomy. Meg Whitman, forstjóri HP, sagði að fyrirtækið hefði stuðst við ársreiknin... |
Það er ekki auðvelt að mæla áhrif fólks, hvort sem það er í listalífinu eða annars staðar, á hlutlægan hátt. Áhrif eru margþætt og birtast á ólíka vegu, bæði beint og óbeint, í sviðsljósinu og bak við tjöldin. Þau geta falist í að hafa með listrænum innblæstri áhrif á tísku og fegurðarskyn og þannig hvernig listaverk v... |
Uppgrip ættu almennt að vera fagnaðarefni. Ný fisktegund á Íslandsmiðum, makríll, telst til uppgripa því á örfáum árum hafa útflutningstekjur af makrílveiðum vaxið frá núlli upp í 20 milljarða. Uppsjávarflotinn, sem beinst hefur mestmegnis að síld og loðnu, fékk með þessum nýja aufúsugesti væna viðbót og vill nú festa ... |
Kjósið mig á Evrópuþingið og ég mun koma fram nakin í Playboy, segir fyrrverandi Ungfrú Belgía. Ég mundi gera allt fyrir frægðina, nema koma nakinn fram, segir í dægurlagatexta Stuðmanna. Anke van Dermeersch, sem var kosin Ungfrú Belgía árið 1991, vill komast á Evrópuþingið fyrir Frjálslynda flokkinn og gerir ýmislegt ... |
Það vakti nokkra athygli í gær þegar tilkynnt var á vefnum amx.is að báðir ritstjórarnir, Jónas Haraldsson og Óli Björn Kárason, hefðu hætt. Vangaveltur eru uppi um það hvort Óli Björn hafi sett þennan „ fremsta fréttaskýringarvef “ Íslands á hausinn. Eiður Guðnason, fyrrverandi sendiherra, er oddviti þeirrar kenningar... |
Lionel Messi, leikmaður Barcelona, segist eiga enn eftir að ná hápunkti ferlis síns og telur að hann geti orðið enn betri. Messi hefur verið kjörinn besti knattspyrnumaður heims af FIFA undanfarin þrjú ár og er af mörgum talinn besti knattspyrnumaður sögunnar. Argentínumaðurinn hefur látið mikið af sér kveða á leiktíði... |
Tæplega 400 börn sem sóttu um nám í skólahljómsveitum Reykjavíkur á síðasta ári komust ekki að. Stjórnanda skólahljómsveitarinnar í Árbæ og Breiðholti þykir miður að svo mörg börn fái ekki tækifæri. Í ár stefnir aftur í mikla umfram aðsókn í skólahljómsveitirnar. Nú þegar eru 170 börn á biðlista þótt umsóknarferlinu sé... |
KR-ingar hafa fengið undanþágu til að semja við markvörðinn Beiti Ólafsson um að leika með liðinu í Pepsi-deild karla í knattspyrnu. Stefán Logi Magnússon aðalmarkvörður KR-inga er meiddur næsta mánuðinn og Sindri Snær Jensson varamarkvörður meiddist svo í bikarsigrinum á ÍR í fyrrakvöld og verður frá keppni í 5 - 6 vi... |
ÞEKKTUR sérfræðingur á sviði alþjóðasamskipta og öryggismála norðursvæða, dr. Lassi Heininen, talar um alþjóðastjórnmál, efnahagsþróun og bráðnandi norðurslóðir á Félagsvísindatorgi HA í stofu L 201 á Sólborg kl. 12 í dag. |
Rúmfatalagerinn hagnaðist um 532 milljónir króna á síðasta rekstrarári og jókst hagnaðurinn um 233 milljónir króna milli ára. Samkvæmt ársreikningi Rúmfatalagersins ehf. fyrir rekstrarárið frá 1. mars 2015 til loka febrúar 2016 námu heildareignir 2,2 milljörðum króna í lok rekstrarársins, eigið fé var jákvætt um rúmar ... |
Demöntum, að verðmæti allt að tíu milljónum bandaríkjadala, var stolið úr skartgripaverslun í New York á dögunum. Verslunareigandinn geymdi þá í ólæstum öryggisskáp að sögn lögreglu. Að sögn breska dagblaðsins Telegraph hefur verslunareigandinn skápinn ólæstan til þess að auðvelda aðgengi að öðrum eðalsteinum. Virði de... |
Manchester United sigraði Sunderland 3 : 1 á útivelli í dag. Wayne Rooney skoraði fyrsta markið á 40. mínútu og hann lagði svo upp annað markið fyrir Ruud van Nistelrooy á 76. mínútu. Stephen Elliott minnkaði muninn fyrir heimamenn á 82. mínútu en það var svo varamaðurinn Guiseppe Rossi sem gerði síðasta mark leiksins ... |
ÞRÁTT fyrir að olíuframleiðsluríki eins og Sádi-Arabía hafi hagnast mjög vel á hækkandi olíuverði undanfarið ár hafa yfirvöld þar áhyggjur af afleiðingum hás olíuverðs til lengri tíma. Nú þegar er áhugi fyrir raf - og tvinnbifreiðum orðinn töluverður og margir sem ekki vildu heyra á kjarnorku minnst íhuga það alvarlega... |
Stjórnarandstaðan vill meiri upplýsingar og meiri tíma til umræðu um Icesave samninginn. Ásbjörn Óttarsson, fulltrúi sjálfstæðismanna í nefndinni, segir að ef einhvern tíma sé ástæða til að gefa sér tíma í mál þá sé það nú. Á fundi fjárlaganefndar í gær óskaði minnihlutinn í nefndinni eftir því að Hagfræðistofnun Háskó... |
Nýkjörnar sveitarstjórnir taka við alls staðar í íslenskum sveitarfélögum í dag, 15 dögum eftir kjördag. Fráfarandi sveitarstjórnir hafa haldið umboði sínu hingað til. Meirihlutar hafa verið myndaðir undanfarnar tvær vikur mjög víða um land og daglegt líf í stjórnkerfi sveitarfélaganna að ná á sig mynd á ný. Skulu alla... |
Hendrik Antoon Lorentz ( f. 18. júlí 1853 í Arnhem, d. 4. febrúar 1928 í Haarlem ) var hollenskur eðlisfræðingur. Hann hlaut nóbelsverðlaunin í eðlisfræði árið 1902 fyrir rannsóknir sínar á rafsegulgeislun. Lorentz stundaði grunnskólann í Arnhem þangað til hann náði 13 ára aldri, þá fór hann í nýjan menntaskóla þar. Ha... |
Eftirfarandi frásögn er eftir afa minn og nafna Friðrik Ásmundsson Brekkan frá Ytri Reykjum og Brekkulæk. Friðrik var fæddur árið 1888. Í dalverpi einu í Vatnsnesfjalli í vestanvert við Þrælafell hefir mér verið sagt er tjörn eða vatn, sem kallast Grákollutjörn. Sagt er að frá vissum stöðum í nágrenni tjarnarinnar sjái... |
Tímaritið Shoot hefur valið úrvalslið þriðju umferðar í riðlakeppni Meistaradeildarinnar og má sjá það hér að neðan. Þetta var ekki góð umferð fyrir enska boltann og aðeins Manchester United sem á fulltrúa þaðan. Stillt er upp í leikkerfið 4-3-3. Markvörður : Fraser Forster ( Celtic ) Varði eins og hetja á Nývangi þar ... |
Brian McDermott, njósnari Arsenal, býst ekki við því að það verði mikið í gangi hjá félaginu í janúarglugganum. Hann telur að það verði ekki keyptur sóknarmaður. Arsenal var gagnrýnt fyrir að vera eina félagið í fimm sterkustu deildum Evrópu sem fékk ekki útileikmann til sín í sumar. Markvörðurinn Petr Cech var sá eini... |
Ísraelsher gerði loftárásir á landamæri Gasasvæðisins og Egyptalands í morgun en samkvæmt upplýsingum hersins eru árásirnar liður í viðbrögðum hersins við sprengjuárás Palestínumannaá landamærastöð Ísraela í gær. Þetta kemur fram á fréttavef BBC. Þá segja talsmenn hersins skotmörk árásanna vera göng undir landamærin, s... |
Verslunin Edinborg var ein af stærri kaupmannsverslununum í Reykjavík á fyrri hluta 20. aldarinnar en þaðan var einnig gert út. |
Á seinni hluta 20. aldarinnar voru þar fyrst og fremst seldar vefnaðarvörur og leikföng. |
Verslunin var stofnuð af Ásgeiri Sigurðssyni sem var jafnframt konsúll eða sendiherra Breta. |
Verslunin var með útibú á Eskifirði og á Ísafirði þar sem verslunin stóð fyrir byggingu hafskipsbryggju sem varð tilefni deilna í bæjarstjórn. |
Fljótlega eftir stofnun, eða uppúr aldamótunum 1900, var hægt að fá vínber og epli í janúar í versluninni. |
Fyrsta árið eftir stofnun RÚV árið 1930 leigði það aðstöðu hjá Edinborgarverslun við Hafnarstræti en fluttist svo um set í Landssímahúsið við Austurvöll. |
Leigufélagið Heimstaden hyggst ekki taka áskorun varaformanns Íbúðafélagsins Bjargs um að stórlækka leiguna. Framkvæmdastjóri Heimstaden á Íslandi segir að félagið hafi ekki kost á að endurfjármagna öll lán sín með sama hætti og Bjarg. Leiguverð ráðist fyrst og fremst af framboði og eftirspurn. Bjarg, óhagnaðardrifið í... |
Yevgeny Shevchuk, leiðtogi Transdnestríu héraðs aðskilnaðarsinna í Moldóvu, hvatti í dag Evrópusambandið til að viðurkenna sjálfstæði héraðsins. Hann sagði að slík viðurkenning myndi leiða til aukis stöðugleika á svæðinu. Þing Transdnestíu hefur samþykkt ályktun þar sem hvatt er til að Rússland og Sameinuðu þjóðirnar v... |
Þær fregnir berast af framleiðslu þriðju myndar breska leikstjórans Christopher Nolans um Leðurblökumanninn að Joseph Gordon-Levitt muni leika son glæpaforingjans Carmine Falcone sem kom fyrir í Batman Begins. Sonurinn heitir Alberto Falcone en Gordon-Levitt þykir einn heitasti leikarinn í Hollywood í dag eftir þátttök... |
Leggja á niður starfsstöð hjá Strætó og verður sjö varðstjórum sagt upp störfum í tengslum við það. Júlía Þorvaldsdóttir, sviðsstjóri farþega - og þjónustusviðs Strætó, segir að auglýst verði eftir fólki til starfa í sjö nýjar stöður í nýju þjónustuveri fyrirtækisins. Með skipulagsbreytingum hjá Strætó var stofnað þjón... |
Eftir að Tottenham rak Andre Villas-Boas úr starfi í morgun hafa alls fimm stjórar í ensku úrvalsdeildinni misst starfið á tímabilinu eða 25% þeirra stjóra sem hófu keppni í ágúst. ' |
Kaupþing vill nýta kaupréttarákvæði til að kaupa 13% hlut ríkisins í Arion banka en félagið hefur ársfrest til að selja bankann. Eignarhaldsfélagið Kaupþing hyggst nýta kaupréttarákvæði í hluthafasamkomulagi við ríkið frá árinu 2009 til að kaupa 13% hlut ríkisins í Arion banka að því er Fréttablaðið greinir frá. Er sal... |
Fjölbreytnin á ferðamannamarkaðnum er sífellt að aukast. Ein af nýjustu viðbótunum eru svefnhylki að japanskri fyrirmynd á Galaxy Pod Hostel við Laugaveg. Hylkin eru líklega ekki hentug fyrir þá sem eru með innilokunarkennd en þau eru 2 m. að lengd en rúmur metri á hæð og breidd. Hafi fólk hinsvegar áhuga á upplifa svi... |
TALIÐ er að tjónið sem varð er fjórir ljósastaurar lögðust á hliðina við Glerárgötu á Akureyri í óveðrinu á sunnudag, nemi að minnsta kosti einni milljón króna. Að sögn Franz Árnasonar, framkvæmdastjóra Norðurorku, eru staurarnir ónýtir, auk þess sem skipta þarf um kapal á því svæði sem staurarnir stóðu á. Staurarnir s... |
Rán var framið á veitingastað í skemmtigarðinum Dyrehavsbakken norður af Kaupmannahöfn í gærkvöldi. Tveir menn ógnuðu hjónum sem reka veitingastaðinn Lille Peter með veiðibyssu og neyddu þau til að tæma um 400.000 danskar krónur úr peningaskáp staðarins. Að því loknu voru þau bundin á höndum og fótum með límbandi. Lögr... |
Bandaríska kapalsjónvarpsstöðvafyrirtækið Comcast gerði í gær 4.600 milljarða króna tilboð í breiðbandsdeild AT & T -fjarskiptafyrirtækisins. Í fréttaskeyti Reuters segir að ef af kaupunum yrði mundi verða til heimsins stærsta breiðbandsfjarskiptafyrirtæki. Forsvarsmenn Comcast segja sameiningarviðræður við AT & T hafa... |
Þingflokkur Pírata lýsir yfir „ djúpum vonbrigðum “ með viðbrögð ríkisstjórnarinnar við Samherjamálinu, sem kynnt voru í dag. Í yfirlýsingu frá þingflokki Pírata sem send var út í kvöld segir að aðgerðir ríkisstjórnarinnar einkennist af „ skammsýni og plástrapólitík “. Þá kallar flokkurinn eftir því að Kristján Þór Júl... |
1 : 0 Allyson Haran 36. með skoti af stuttu færi úr teignum eftir aukaspyrnu Hrafnhildar Hauksdóttur. 1 : 1 Rio Hardy 80. með skoti af stuttu færi eftir langt innkast Madeline Keane. Gul spjöld : Madeline ( Grindavík ) 35. brot. , Sophie ( Grindavík ) 56. brot. , Steffi ( Grindavík ) 64. brot. , Rio ( Grindavík ) 88. b... |
Yfirvöld í Montana-ríki í Bandaríkjunum leita grábjarnar sem varð konu að bana á tjaldsvæði í smábænum Ovando. Leah Lokan, 65 ára gamall hjúkrunarfræðingur frá Kaliforníu, var í hjólreiðaferð í ríkinu og gisti ásamt ferðafélögum sínum á tjaldsvæði í bænum. Lokan og félagar gerðu varúðarráðstafanir með sérstöku spreyi s... |
Ítalska félagið Roma hefur sett sig í samband við umboðsmenn Maurizio Sarri, knattspyrnustjóra Chelsea, og hefur félagið áhuga á að fá hann til sín eftir tímabilið. Framtíð Sarri hjá Chelsea er í óvissu eftir slakt gengi að undanförnu og búast margir við að Sarri verði rekinn frá Chelsea á næstu vikum. Að sögn Sky á Ít... |
Marel hefur undirritað viljayfirlýsingu með hollenska fjárfestingasjóðnum Nimbus um að Nimbus kaupi Stork Food og Dairy Systems. Að sögn Sigsteins Grétarssonar, forstjóra Marels, er stefnt að því að ljúka sölunni fyrir áramót og er því ekki unnt á þessu stigi að upplýsa um kaupverðið. Um er að ræða rekstur þess hluta S... |
Veðurstofan spáir hægri, breytilegri átt um kl. 18 á morgun. Skýjað verður með köflum norðaustantil en annars víða skýjað að mestu og hætt við smáskúrum á víð og dreif. Búast má við þokulofti víðast hvar við sjávarsíðuna í nótt. Hiti verður á bilinu 8 til 18 stig að deginum, en allt að 22 stig norðaustanlands. Hiti 4 t... |
Til stóð að Túttífrútturnar yrðu með sjóðheitt brrrrlesk show til að bræða hug og hjörtu fólks í Menningarhúsinu Tjarnarborg 14. febrúar á sjálfan Valentínusatdaginn. Þær sjá sér ekki annað fært en að fresta sýningunni til vors vegna slæmrar veðurspár. Burlesk er sviðslistaform sem einblínir á jákvæða líkamsímynd sem e... |
Serbneski miðjumaðurinn Marko Grujic mun snúa aftur til Liverpool í lok júní eftir að lánssamningnum hans við Herthu Berlín lýkur en þetta staðfesti yfirmaður íþróttamála hjá þýska félaginu. Grujic, sem er 24 ára gamall, gekk til liðs við Liverpool frá Rauðu Stjörnunni árið 2016. Hann fékk að spreyta sig í nokkrum leik... |
Umferðarslys var á Kringlumýrarbraut, sunnan Bústaðarvegar, laust fyrir 10:00. Bíl var ekið aftan á annan bíl með þeim afleiðingum að sá síðastnefndi valt. Gerandi ók af vettvangi en var stöðvaður af lögreglu stuttu síðar og handtekinn. Ekki er hægt að upplýsa nú hvort einhver slys hafi verið á fólki. Lögregla hefur lo... |
Fjöldi fólks beið í röð í Bessastaðastofu eftir að skrá heimsókn sína í gestabókina en vel á annað þúsund manns lagði leið sína á Bessastaði í gær. Fólk á öllum aldri kynnti sér staðinn og sögu hans. Mikið var um fjölskyldufólk og ungt fólk og þótti takast afar vel til samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu forseta. Bæði ... |
Linda Björk Ingimarsdóttir, matgæðingur á eatrvk.com, tók til í frystinum í vikunni og uppgötvaði að hún á fullt af rabarbara frá því í fyrra sem varð að koma í not því nú fer að detta inn næsta rabarbarauppskera. Linda lumaði einnig á dýrindisberjum sem nú fást víða á góðu verði og úr varð þessi stórkostlega rabarbara... |
Stálbáturinn Eiður ÍS er kominn á flot. Björgunarmenn sem hafa unnið að því undanfarið að ná upp bátunum sem sukku í Flateyrarhöfn í snjóflóðum í síðasta mánuði náðu honum upp í dag. Þar með er búið að ná fimm af sex bátum sem sukku á flot eða koma þeim í land. Aðeins er einn bátur eftir, sá er hálfur á kafi í höfninni... |
Bandaríska sjónvarpsstöðin Fox News hefur beðið Gretu Thunberg afsökunar á ummælum sem álitsgjafi lét falla um hana í beinni útsendingu í gærkvöldi. Michael Knowles, sem kom inn sem álitsgjafi í þáttinn The Story with Martha MacCallum í gærkvöldi sagði Thunberg „ andlega veikt sænskt barn “ sem væri verið að misnota í ... |
KNATTSPYRNA Bikarkeppni KSÍ, VISA-bikarkeppni karla, 8 liða úrslit : Fylkisvöllur : Fylkir - Keflavík 18.30 Akureyri : KA - ÍBV 18.30 1. deild kvenna, A-riðill : Víkin : HK / Víkingur - Ægir 19 Bessastaðav. : UMFB - Keflavík 19.30 1. deild kvenna, B-riðill : Akranes : ÍA - Þróttur R. 19 Sauðárk. : Hvöt / Tindastóll - F... |
Arnór Guðjohnsen var reiður eftir leikinn og sagði brottvísun sína hafa verið út í hött. " Ég mótmælti dómi við línuvörðinn og hann varð svo svekktur að hann kallaði í dómarann nokkru síðar og lét reka mig út af, " sagði hann og bætti því við að það væri grátlegt að svona dómur gæti þýtt eins eða tveggja leikja bann. "... |
Fyrirtækið Hagvangur á rætur að rekja til ársins 1971 en ráðningarþjónustan tók til starfa árið 1978. Katrín S. Óladóttir, annar eigenda ráðningafyrirtækisins Hagvangs, segir ótal margt hafa breyst á þeim áratugum sem eru liðnir síðan hún kynntist þessum geira, meðal annars hvernig fólk kemur sér á framfæri á samskipta... |
Björn Ingólfsson sendi nýárskveðju á leirinn, póstlista hagyrðinga, þar sem hann rifjaði upp : " Við lágum samtímis á Landsspítalanum í sumar tveir jafnaldrar, gamlir skólabræður og þess vegna vinir í nær hálfa öld. Ég læknaðist af krabbameini og er heill orðinn, Hreiðar Karlsson átti ekki afturkvæmt. Þetta gerir mann ... |
Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, byrjar vel á Áskorendamótaröðinni í golfi, en keppt er í Horsens í Danmörku að þessu sinni. Birgir er á meðal efstu manna þegar þetta er skrifað en hann er samtals á 5 höggum undir pari en margir eiga eftir að ljúka leik í dag. Áskorendamótaröðin er næst sterkasta atvi... |
Viðar Halldórsson formaður FH hefur verið kjörinn í stjórn ECA. Ásamt Viðar eru Sergey Fursenko frá Zenit, Raphael Landthaler frá Rapíd Vín og Stefan Pantović frá FC Crvena zvezda. Um er að ræða samtök fyrir knattspyrnufélög í Evrópu en 230 lið eru í samtökunum. Tvö lið eru frá Íslandi en þar eru FH og KR sem koma frá ... |
Óstaðfestar fregnir herma að víðtækt vopnahlé í Sýrlandi, sem tók gildi klukkan tíu í kvöld að íslenskum tíma, hafi verið rofið innan við tveimur klukkustundum síðar. Sýrlenska mannréttindavaktin, sem er með höfuðstöðvar á Englandi en sækir upplýsingar sínar til sjónarvotta á vettvangi, hefur þetta eftir talsmanni uppr... |
Bakvörðurinn Luke Shaw í liði Manchester United er allur að braggast eftir þungt höfuðhögg sem hann fékk í leik með Englendingum gegn Spánverjum í Þjóðadeild UEFA í knattspyrnu um síðustu helgi. Enskir fjölmiðlar greina frá því í kvöld að svo getur farið að Shaw verði með Manchester United á laugardaginn þegar það sæki... |
Framkvæmdir við nýjar brýr yfir Hólá og Stigá í Öræfum hefjast á næstunni. Hinar nýju brýr verða tvíbreiðar og leysa af hólmi einbreiðar brýr, sem hafa verið slysagildrur. Þess er skemmst að minnast að banaslys varð á brúnni yfir Hólá á annan dag jóla 2015. Framkvæmdin er liður í að fækka einbreiðum brúm á hringveginum... |
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvo karlmenn, fædda 1981 og 1983, til að greiða 360 þúsund krónur og 380 þúsund krónur í sekt fyrir að hafa í vörslum sínum um 33 grömm af amfetamíni. Mennirnir voru með efnin í sölu - og dreifingarskyni ásamt því að vera sjálfir í neyslu. Lögregla gerði húsleit hjá mönnunum 30. apríl... |
Nýja iPhone símans frá Apple var beðið með eftirvæntingu en hann vakti blendnar tilfinningar þegar hann kom á markað nú fyrir helgina. |
Páll Einarsson, jarðeðlisprófessor, segir gosið ekki hafa komið á óvart, þjóðin hafi staðið á öndinni í þrjár vikur og fimmtán mánuðir síðan að fyrsta hrinan hófst. Þetta sagði hann í viðtali við fréttastofu RÚV í Sjónvarpinu. „ Það sem benti til að gos gæti verið í spilunum að þessu fylgdi kvikugangur, hann virðist ha... |
Alls sóttu 24 um embætti forstjóra Vegagerðarinnar. Samgöngu - og sveitarstjórnarráðherra skipar í embættið til fimm ára og er miðað við að skipunin taki gildi 1. júlí næstkomandi. Þriggja manna nefnd hefur verið skipuð til að meta hæfni umsækjenda. Hún starfar í samræmi við lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkis... |
Framkvæmdir eru komnar á skrið í reiðhöllinni í Arnargerði en hún verður 20 ára 11. mars næstkomandi. Í síðasta mánuði óskaði stjórn Hestamannafélagsins Neista eftir aðstoð frá félagsmönnum, sem og öðrum, við að koma reiðhöllinni í betra horf og stóð hún fyrir vinnuhelgi um síðustu helgi. Á vef Neista segir að vaskir N... |
-segir 4ra barna faðir úr Sandgerði en fjöldi fólks og barna stóðu í langri röð á leið í Covid - 19 próf „ Það er mjög illa staðið að þessu, hvers lags skipulagning er þetta? Það er ekki bjóðandi að standa með fjögur börn í langri röð í rigningunni. Ég var bókaður í próf kl. 9.15 með fjögur börn og það eru hundrað mann... |
Guilded er hugbúnaður sem er að notaður til að eiga samskipti yfir netið og kemur frá fyrirtækinu Guilded Inc. ( Núverandi Eigandi : Roblox Corporation ) í San Francisco. |
Hægt er að hringja og senda skilaboð í Guilded. |
Hugbúnaðurinn er hannaður fyrir rafíþróttir og almenna spilun tölvuleikja. |
Hægt er að fá Guilded á Windows, MacOS, Linux, Android og iOS. |
= Saga : = |
Á 16. Ágúst 2021 Keypti Roblox Corporation Guilded fyrir " 90 milljónir bandaríkjadala. " |
Japanskur maður framdi sjálfsvíg fyrir framan japanska þingið í morgun. Japanska lögreglan sagði manninn hafa verið með bréf sem var ætlað forsætisráðherra Japan, Yasuo Fukuda. Maðurinn kom til þingsins í leigubíl, gekk út og skaut sig með skammbyssu. Fram kemur á fréttavef BBC að notkun skammbyssa sé mjög sjaldgæf í J... |
Ökumaður, sem lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði nýverið vegna gruns um að hann æki undir áhrifum fíkniefna, reyndist með metamfetamín og kókaín í tíu smelluláspokum í fórum sínum. Einnig fundust síðar fíkniefni á heimili mannsins við húsleit, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu. Þá lagði lögregla hald á sext... |
Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins sem í daglegu tali er nefndur Barnasáttmálinn var lagður fyrir allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna þann 20. nóvember 1989 og fagnar því 30 ára afmæli í ár. Sáttmálinn var fullgiltur á Íslandi árið 1992 og lögfestur 20. febrúar 2013 og er því hluti af íslenskri löggjöf. Þa... |
Stærstu seðlabönkum heims er vandi á höndum. Horfur í heimshagkerfinu hafa farið versnandi að undanförnu. Spenna í milliríkjaviðskiptum Bandaríkjanna og Kína fer vaxandi, iðnaðarframleiðsla í Evrópu er að dragast saman og afkomu fyrirtækja vestanhafs hefur hrakað. Hlutabréfaverð hefur fallið og fjárfestar flýja með fé ... |
Varaforseti Bandaríkjanna, Mike Pence, kemur til landsins í dag. Dagskrá heimsóknarinnar var í gærkvöldi enn nokkuð óljós að öðru leyti en að Pence muni sækja málþing um viðskipti milli ríkjanna tveggja auk fundar með forseta Íslands og utanríkisráðherra, sem haldinn verður klukkan 14 í Höfða. Afar líklegt má telja að ... |
Antonio Conte, stjóri Chelsea, hefur greint frá því hvernig töp gegn Arsenal og Liverpool hafi hjálpað liðinu. Chelsea hefur verið óstöðvandi undanfarið í deildinni en byrjaði tímabilið erfiðlega áður en Conte breytti um leikkerfi. ,, Fyrir leikinn gegn Liverpool þá vissi ég að kerfið okkar væri ekki gott og við þurftu... |
Þúsundir hafa verið fluttar í öruggt skjól vegna fellibylsins Willa sem nálgast vesturströnd Mexíkó. Willa telst nú fimmta og efsta stigs fellibylur er þegar farinn að valda flóðum í Michoacan-fylki. Búist við að miðja hans verði komin inn yfir land seinnipartinn í dag eða í kvöld með stormflóðum og mikilli úrkomu allt... |
Franskir læknar segja breska vísindamenn fara með fleipur þegar þeir sögðu svokallaðann G-blett kvenna ekki vera til. Segja Frakkarnir blettinn geta blekkt vísindmamenn því hann er í mörgum tilvikum falinn ef hann er ekki snertur nógu mikið. Frakkarnir segja 60 prósent kvenna hafa G-blett. Frakkarnir kenna lítilli trú ... |
Svo virðist vera að samband sé á milli frjálsræðis, eftirlætis, umburðarlyndis, stjórnleysis eða afskiptaleysis foreldra, hvert svo sem réttnefnið er, og þess að börnin eigi erfitt með að setja sér mörk. Baumrind greindi foreldrana í þrjá hópa eftir því hvaða uppeldishættir þeim voru tamastir : Í leiðandi foreldra, ski... |
Benedikt Valsson fjölmiðlamaður á 30 ára afmæli í dag. Hann tók í byrjun apríl við spurningaþættinum Satt og logið sem er sýndur á Stöð 2. " Þetta er búin að vera skemmtileg vegferð og skemmtilegur þáttur og virkilega gaman að vinna í honum. Það er kominn nýr og ferskur kynnir, annars er þátturinn með frekar hefðbundnu... |
Eystri-Rangá skilaði ríflega þúsund laxa veiði síðustu viku og er áin komin í 3.308 laxa og hafa þegar veiðst fleiri laxar þar í sumar en allt árið í fyrra. Sumarið 2019 var lokatalan í Eystri-Rangá 3.048. Þá varð Ytri-Rangá önnur áin til að fara yfir þúsund laxa og var vikuveiðin þar 136 laxar. Urriðafoss í Þjórsá er ... |
FÓTBOLTAKAPPINN David Beckham hefur í hyggju að fjárfesta í sjö milljóna punda einkaþotu svo hann geti ferðast fljótt og örugglega á milli Evrópu og Ameríku. En í bígerð er að bandaríska fótboltaliðið Los Angeles Galaxy láni ítalska liðinu AC Milan Beckham. Meðan hann dvelur á Ítalíu ætlar kona hans, Victoria, og synir... |
MIELE Extra þvottavél frá árunum 1914 - 20, sem er talin elsta rafknúna þvottavél hér á landi, verður gerð upp á næstunni og síðan höfð til sýnis hjá Eirvík ehf. Fyrirtækið, sem hefur umboð á Íslandi fyrir tæki frá Miele, heldur á þennan hátt upp á 100 ára afmæli Miele þvottavélarinnar. Miele var stofnað í Þýskalandi á... |
Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttir endurheimti aldrei fylgið sem hún naut á fyrstu mánuðum sínum. Það fjaraði fljótt undan henni, og eftir það varð líf hennar eintómur barningur. Svona er líf stjórnmálamanna þessa dagana. Stjórnarandstaða tekur við af stjórn og er fljótt búin að ávinna sér jafn miklar óvinsældir. Við h... |
End of preview. Expand in Data Studio
README.md exists but content is empty.
- Downloads last month
- 7