text stringlengths 1 723k |
|---|
Austurríki fór með sigur af hólmi í Eurovision í kvöld þegar Conchita Wurst söng sig inn í hug og hjörtu Evrópubúa með laginu Rise like a Phoenix. Wurst tileinkaði sigurinn öllum þeim sem hafa trú á friði og jafnrétti en lagið hennar hlaut 290 stig. Holland varð í öðru sæti og Svíþjóð í því þriðja. Ísland fékk meðal annars stig frá San Marino, sjö stig frá Frökkum og sex frá Ítalíu. Ísland varð að lokum í 15. sæti og getur vel við unað enda höfðu veðbankar litla trú á laginu og höfðu fyrir kvöldið í kvöld spáð því 21. sæti. Haraldur Freyr Gíslason, einn af forsprökkum sveitarinnar, sagði á Facebook - síðu sinni að þeir myndu bera 15. sætið með stolti. Austurríki hafði ekki unnið þessa keppni frá árinu 1966. Íslenska lagið Enga fordóma vakti mikla athygli á vefmiðlum í kvöld. Meðal annars sá breski leikarinn Ricky Gervais ástæðu til að tjá sig um mynd af Guðna Finnssyni á twitter. |
Íslenski fótboltamaðurinn Heiðar Helguson og Mariam Sif Vahabzadeh eru trúlofuð. Hann bað hennar á bát í Tyrklandi og verður brúðkaup þeirra næsta sumar. Parið fór í brúðkaup hjá Joey Barton og Georgiu McNeil sem haldið var í Bretlandi. Barton er fyrrverandi leikmaður Manchester City „ Við erum búin að vera saman í fimm ár en við kynntumst í gegnum vini, “ segir Mariam í samtali við Smartland. Þegar hún er spurð hvort þau hafi rætt brúðkaup fram og til baka segir hún svo ekki vera. „ Við höfum eiginlega aldrei rætt brúðkaup alvarlega. Höfum rætt það að giftast en ekkert meira en það, “ segir hún. - Ertu búin að ákveða í hvernig kjól þú verður á brúðkaupsdaginn? „ Mig langar að vera í svipuðum kjól og konan hans Joeys Bartons, Georgia McNeil, var í þegar þau gengu í hjónaband á dögunum. Hann var síður og þröngur. “ - Eruð þið búin að ákveða daginn? „ Við ætlum að gifta okkur næsta sumar en dagsetning er ekki komin ennþá. “ - Hvers vegna skiptir máli að ganga í hjónaband? „ Mér finnst brúðkaup vera staðfesting á því að fólk ætli að vera saman alla ævi og vinir alla ævi, svo er veislan vettvangur til þess að fagna með öllum sem manni þykir vænt um, “ segir Mariam. |
Endurskoðandi Svíans Anders Limpar fyrrum leikmanns Arsenal á yfir höfði sér fangelsisvist eftir að hafa verið fundinn sekur um að stela nærri 90 þúsund pundum ( rúmar 11 milljónir króna ) af leikmanninum sem hann hafði móttekið til að koma til skattsins í Englandi. Endurskoaðndinn heitir Marc Geppert og er 46 ára gamall. Hann var í viðræðum við innheimtumann skattsins fyrir hönd fótboltamannsins en í stað þess að greiða skuldina millifærði hann peningana á aðra bankareikninga í sinni eigu. Þegar Limpar áttaði sig á að ekki var búið að koma peningunum áleiðis til skattsins var búið að eyða hverri krónu. Limpar greiddi þvi skuldina að nýju en lögfræðingar Geppert sögðu að Limpar hafi greitt peninginn fyrir endurskoðunarvinnu hans en ekki til að koma peningnum til skila. Geppert tapaði málinu. Refsing hefur ekki verið ákveðin en það mun verða gert eftir þrjár vikur. Dómarinn varaði Geppert þó við því að þó hann fengi að ganga laus gegn tryggingu þangað til að þeim tíma liðnum þá ætti hann yfir höfði sér fangelsisvist. |
" Ég meinti aldrei að hann væri rasisti, " segir Gaukur Úlfarsson sem tjáir sig um umdeildan dóm vegna bloggfærslu. |
Á hádegi í gær hittust um tuttugu manns við íslensku ræðismannaskrifstofuna í Barcelona til að sýna reiði sína í garð íslenska ríkisins vegna réttarhaldanna sem fara fram yfir nímenningunum svokölluðu. Þeir eru ákærðir fyrir árás á Alþingi í desember 2008. Í yfirlýsingu frá stuðningssíðunímenninganna segir : „ Kúgunaraðferðir íslenska ríkisins teygja sig meira að segja til ræðismannaskrifstofunnar, sem kallaði á aðstoð ofbeldisfyllstu lögregludeildar Barcelona - „ Mossos " eins og hún er kölluð. Fjöldi „ Mossos " lögreglumanna voru í inngangi byggingarinnar auk þess sem nokkrir óeirðarbílar biðu í nálægri götu. Í byggingunni sem hýsir íslensku ræðismannaskrifstofuna er fjöldi annarra skrifstofa og venjulega er þar aðeins einn vörður. " Þar segir að þeir sem stóðu fyrir mótmælunum hafi tekið sér stöðu á götunni og mótmælt í meira en klukkustund. Þar voru þau með spjöld og borða sem stóð á „ Stöðvið kúgunina á íslenskum aktívistum! " og „ Ef nímenningarnir verða felldir, fellur íslenska ríkið líka! " . Þeim var ekki hleypt inn í bygginguna að þeirra sögn. „ Við dreifðum dreifimiðum um kúgunina og um ástandið á Íslandi veturinn 2008 - 2009, bjuggum til hávaða og kölluðum slagorð til stuðnings nímenningunum - og auðvitað gegn hinu kapítalíska kerfi. " |
Raoul Wallenberg, mannréttindastofnunin sænska skorar á Alþingi að endurskoða áætlanir um að skera niður fjárframlög til Mannréttindaskrifstofu Íslands. Mannréttindaskrifstofan fékk í fyrra 8 milljóna króna framlag frá utanríkis - og dómsmálaráðuneyti en eins og fram hefur komið er ekki gert ráð fyrir neinu framlagi til skrifstofunnar í fjárlagatillögum næsta árs. Þess í stað er gert ráð fyrir 8 milljóna króna styrkjum til mannréttindamála sem hægt verður að sækja um til viðkomandi ráðuneyta. Í áskorun Wallenberg-stofnunarinnar er lýst áhyggjum yfir tillögunum. Verði þær samþykktar sé fjárhagsgrundvöllur Mannréttindaskrifstofunnar í hættu og það grafi undan sjálfstæði skrifstofunnar þurfi hún að sækja um styrki til ráðuneytanna. Wallenberg-stofnunin skorar á Alþingi að huga að lagasetningu um stofnun sjálfstæðrar stofnunar til að stuðla að og vernda mannréttindi á Íslandi og erlendis. |
Mikill fjöldi gesta var samankominn á glæsilegu hóteli Armani sem staðsett er í hæsta turni heims, Burj Khalifa. Chris Martin, tónlistarmaður úr Coldplay, var meðal gesta og hafði á orði að hvergi í heiminum væru jafn margir best klæddu á einum stað á sama tíma. Hann flutti nokkur lög í veislunni. Meðal annarra gesta var leikkonan Sharon Stone, Lily James sem er vel þekkt úr Mamma Mia! og Downton Abbey svo eitthvað sé nefnt og Clive Owen sem nýlega lauk við að leika Bill Clinton í nýrri kvikmynd um forsetann fyrrverandi, Impeachment : American Crime Story. Gestunum var meðal annars boðið í eyðimerkurferð sem þeim þótti áhugaverð. Kjólarnir sem sýndir voru fyrir vorið 2022 voru hver öðrum glæsilegri. Expo 2020 sýningin í Dúbaí átti að vera á síðasta ári en var frestað vegna Covid. Armani sýnir hátísku í tengslum við sýninguna og kynnir þar með ítalska yfirburði í hönnun, eins og það er nefnt. Armani hlaut sjálfur gullna vegabréfsáritun í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Gullna vegabréfsáritunarkerfið hófst árið 2019 og veitir tíu ára búsetu sem viðurkenningu á sérstökum framlögum til landsins. Armani fagnar um þessar mundir ellefu árum í hótelrekstri í Dúbaí og segir að breytingarnar í borginni á þessum árum séu ævintýralegar. Það má segja að elegans sé ávallt í sniðunum hjá Armani. Gullfalleg efni og sniðin kvenleg. Hótelið í Dúbaí býður upp á lúxusgistingu og aðstöðu en það er á 38. hæð í skýjakljúfinum. Veggir eru til dæmis klæddir silki og leðri. „ Þótt hótelið hafi orðið tíu ára í fyrra er engin þörf á breytingum, klassinn hefur haldið sér vel. Þetta er tímalaus hönnun, “ segir Armani. „ Ég er ánægður og stoltur af að vera hér, “ sagði Armani við blaðamenn. „ Miðausturlönd eru vagga nýs lúxushugtaks, samheiti um stöðuga þróun og tilraunir sem eiga rætur í töfrum djúprar menningar þessara ríkja. “ Á tískusýningunni sýndi hann glæsilegan fatnað fyrir vorið 2022. Sýningin fór fram fyrir framan turninn Burj Khalifa en þar er stærsti gosbrunnur heims sem skiptir litum, flytur tónlist og hreyfist á rúmlega þúsund vegu. Glæsileikinn var því allt um kring. Það eru allir fínir í hvítum jakkafötum. Þessi tvíhneppti jakki er einstaklega smekklegur. Armani Pop-Up verslun hefur verið sett upp í Dubai Mall og verður opin í mánuð. Sömuleiðis er Armani-verslun í miðstöðinni sem var opnuð árið 2010 og endurnýjuð á síðasta ári. Önnur Armani-verslun er í Mall of the Emirates en báðar þessar verslunarmiðstöðvar eru sérlega glæsilegar. : Ljósblár og frjálslegur jakki en merki Armani er skraut í efninu. Sumarlegur jakki sem getur hentað spari eða bara í góðu veðri við gallabuxur. |
Roy Carroll markvörður West Ham verður frá næstu sex vikurnar eftir að hafa gengist undir aðgerð vegna bakmeiðsla sem hafa verið að hrjá hann. Þessi 28 ára gamli leikmaður hefur aðeins leikið þrjá leiki á árinu en Alan Pardew stjóri West Ham sagði : ,, Hann fór í aðgerð. Hann er leiður en reynir samt að vear jákvæður og honum hlakkkar til að koma til baka. Við höldum að það muni taka sex vikur. ' Jimmy Walker er búinn að jafna sig eftir alvarleg hnémeiðsli og er hann byrjaður að standa á milli stanganna í varaliðinu. Pardew segir að hann muni fljótlega fara að berjast við Shaka Hislop um sæti í byrjunarliðinu hjá aðalliðinu : ,, Jimmy Walker er að komast aftur í form og hann mun setja pressu fljótlega. ' |
„ Myndir öðlast oft markvert gildi með tímanum. Sumt sem virðist lítils virði í núinu verður merk heimild þegar fram líða stundir, til dæmis myndir af fólki við störf sín eða af skipum, bílum og húsum. Í safni mínu eru núna um 55 þúsund myndir af öllu mögulegu. Þetta er orðin heilmikil saga, “ segir Svavar B. Magnússon í Ólafsfirði. Næstkomandi laugardag verður í svonefndu Pálshúsi þar í bæ opnuð sýning á ljósmyndum Svavars í tilefni þess að nú í ár eru liðin 90 ár frá því að Magnús Gamalíelsson, faðir Svavars, hóf þar útgerð og fiskvinnslu á eigin vegum. Sú starfsemi varði allt fram til ársins 1997 en var þá sameinuð öðru félagi og með enn frekari sameiningum varð til sjávarútvegsfyrirtækið Rammi. Eftir stendur þó sagan, meðal annars skráð með myndum Svavars og verða þær sýndar í Pálshúsi í sumar. „ Áhuginn á því að taka myndir vaknaði innan við fermingu og þetta hefur alltaf fylgt mér. Ég tók myndir af öllu mögulegu sem fangaði athygli mína, “ segir Svavar sem í áratugi var fréttaritari og ljósmyndari Morgunblaðsins í Ólafsfirði. Margar myndanna fóru þó aldrei lengra en í eigið albúm, svo sem myndir úr starfsemi útgerðarfyrirtækis fjölskyldunnar, burðaráss í atvinnulífi bæjarins áratugum saman. Sjá umfjöllun um mál þetta í heild á baksíðu Morgunblaðsins í dag. |
Staða landsréttardómarans Jóns Finnbjörnssonar verður tekin til skoðunar á næsta fundi dómstólasýslunnar. Þetta kemur fram í svari Sigurðar Tómasar Magnússonar, hæstaréttardómara og formanns stjórnar dómstólasýslunnar. Í svarinu segir að mál Jóns verði tekið fyrir hjá stjórninni að því leyti sem úrlausn þess snúi að hlutverki dómstólasýslunnar. „ Óþarft er að taka fram að málið varðar ekki aðeins starfsemi Landsréttar heldur einnig viðkvæm persónuleg málefni þess dómara sem í hlut á, “ segir einnig í svari Sigurðar Tómasar. Jón er eini dómarinn af þeim fjórum sem dómur Mannréttindadómstóls Evrópu í Landsréttarmálinu tekur til, sem ekki hefur fengið nýja skipun við réttinn. Ásmundur Helgason var skipaður að nýju 17. apríl síðastliðinn, Arnfríður Einarsdóttir 1. júlí og Ragnheiður Bragadóttir 15. september. Hvorki er hægt að skikka dómara í leyfi, né leysa þá frá embætti nema með dómi, vegna ákvæðis stjórnarskrár um sjálfstæði dómsvaldsins. Dómararnir fjórir hættu að taka þátt í meðferð dómsmála við réttinn þegar fyrri dómur MDE var kveðinn upp í mars í fyrra og í nóvember höfðu allir dómararnir fjórir óskað eftir launuðu leyfi við réttinn. Þar sem hinir þrír hafa allir fengið nýja skipun við réttinn er Jón sá eini sem enn er í leyfi vegna Landsréttarmálsins. Jón lenti í 30. sæti af 33 umsækjendum í mati dómnefndar í aðdraganda fyrstu skipunar fimmtán dómara við réttinn. Hann fékk 4.325 stig í matinu en fékk samt stöðu við réttinn og var tekinn fram yfir fjóra umsækjendur sem höfðu á bilinu 5,5 til 6,2 stig í matinu. Með vísan til þess hve neðarlega hann lenti í mati dómnefndar gæti reynst torsótt fyrir hann að fá nýja skipun með því að sækja aftur um eins og hinir dómararnir þrír hafa gert með árangursríkum hætti. |
Verið er að leggja lokahönd á að standsetja brunnbátinn Snæfugl SU og gera hann kláran til að hefja flutning á lifandi fiski. Er raunar búið að flytja fyrstu laxana í tilraunaskyni, að því er kemur fram á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Frá því skipið kom heim frá Póllandi hefur verið unnið að því að gera allt klárt um borð og hafa norskir tæknimenn aðstoðað heimamenn við að setja niður tæki, ganga frá tölvubúnaði og tengja búnað. Einnig hefur skipstjóri á norskum brunnbáti verið um borð til að aðstoða áhöfn Snæfugls og kenna henni réttu handbrögðin. Fjórir eru í áhöfn skipsins. Búið er að fara tvær reynsluferðir á Snæfugli í fiskeldisstöð Sæsilfurs í Mjóafirði. Í fyrra skiptið var lítilsháttar af laxi dælt um borð og flutt til slátrunar hjá Síldarvinnslunni, en í hinni ferðinni var tekið meira magn af laxi og hann stærðarflokkaður á milli eldiskvía hjá Sæsilfri. Heimasíða Síldarvinnslunnar |
Anna Björk Bjarnadóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri ráðgjafarfyrirtækisins Expectus. Hún tekur við af Ragnari Þóri Guðgeirssyni sem er stofnandi félagsins en hann verður stjórnarformaður. Anna hefur starfað við ráðgjöf hjá Expectus síðan 2013 en fyrirtækið var stofnað fyrir sjö árum og sérhæfir sig í ráðgjöf á sviði stefnumótunar, rekstrar og upplýsingatækni. |
Að Syðra-Laugalandi í Eyjafjarðarsveit rekur Kristín Kolbeinsdóttir veitingastaðinn Silva hráfæði á sumrin. " Þetta var fjórða sumarið sem við erum með veitingahúsið og sumarið í ár gekk ágætlega, " segir Kristín. " Það vantaði íslensku ferðamennina eins og alls staðar á Norðurlandi en það kom fleira heimafólk og túristar. Hráfæðið er ákveðin sérgrein hússins en það er algengur misskilningur að sögn Kristínar að hráfæði sé það eina sem er á boðstólum. " Við bjóðum upp á hráfæði sem einn af kostunum. Við erum mest með grænmeti sem er bæði eldað og hrátt, hristinga, kaffi og kökur. Það halda margir að þetta sé bara hráfæði en það er ekki raunin. " Það sem helst virðist vekja athygli gesta er nýjar útfærslur af gömlum og góðum réttum, ef dæma má af sölutölum. " Vinsælasti og eiginlega flottasti rétturinn á matseðlinum er hnetusteikin en við bjóðum líka upp á hráfæðispítsu, sem er vinsælasta hráfæðið. Svo erum við með mangóvefju sem hefur verið öll árin og er alltaf til, en hún hefur notið sífelldra vinsælda. " Betri eftir mál en fyrir Grænmeti er í sviðsljósinu á Silva, en Kristín segir heilsusamlegt mataræði aðalsmerki staðarins. " Við veljum og notum hráefni með það að leiðarljósi að það geri sem mest fyrir líkama og sál. Við hugsum alltaf um það hvort hráefnið hefur jákvæða eiginleika sem veita fólki bætta heilsu og aukna orku. " Fræðagrunninn sem Kristín byggir eldamennskuna á sækir hún í nám sitt í Heilsumeistaraskóla Íslands. Þar lagði hún stund á lækningafræði og lifandi fræði, en í dag kennir hún þessi sömu fræði fyrir skólann. Auk veitingastaðarins selur Kristín brauð og ýmislegt sætt í verslanir Fisk Kompaní, Átaks og Flóru á Akureyri, en hún selur líka beint það sem hún kallar fljótandi fæði. " Þetta er hugsað sem eitthvað meira en bara venjulegur safakúr því að úr þessu færðu öll þau næringarefni sem þú þarft. Svo er þetta líka svo gott á bragðið! " bso@mbl.is |
KFR vann baráttusigur í grannaslag gegn Stokkseyri í B-riðli 4. deildar karla í knattspyrnu á Stokkseyri í kvöld. Árborg gerði 1 - 1 jafntefli við Skallagrím í C-riðlinum. Magnús Hilmar Viktorsson kom Rangæingum yfir á 20. mínútu og reyndist það eina mark fyrri hálfleiks. Fjörið var meira í seinni hálfleiknum en Eyþór Gunnarsson kom Stokkseyri yfir með tveimur mörkum með tuttugu mínútna millibili í fyrri hluta hans. Lokakaflinn var hins vegar æsilegur og KFR nýtti síðustu tíu mínúturnar til þess að knýja fram sigur. Aron Örn Þrastarson jafnaði 2 - 2 á 81. mínútu og þremur mínútum síðar skoraði Hjörvar Sigurðsson. Aron Örn var svo aftur á ferðinni á 90. mínútu og kom KFR í 2 - 4. Örvar Hugason minnkaði muninn fyrir Stokkseyri í uppbótartímanum og lokatölur urðu 3 - 4. Það var minna fjör á Selfossvelli þar sem Árborg tók á móti Skallagrím í toppbaráttu C-riðilsins. Árborg byrjaði leikinn af krafti en það voru gestirnir út Borgarnesi sem urðu fyrri til að skora, á 25. mínútu. Staðan var 0 - 1 í hálfleik en Magnús Helgi Sigurðsson jafnaði metin á 56. mínútu. Fleiri urðu mörkin ekki en Árborgarar voru nær því að bæta við. KFR fór upp í 4. sæti B-riðils með sigrinum í kvöld en liðið hefur 16 stig. Stokkseyr er í 6. sætinu með 10 stig. Í C-riðlinum er Árborg í 5. sæti með 17 stig en Skallagrímur er í 4. sætinu, sömuleiðis með 17 stig. |
Hvað tekur þú með þér inn í haust, myrkur og vetur? Hvaða liti, hljóð, sögur, orð og upplifanir eru þitt vetrarnesti? Ég nýt þeirrar blessunar með konu minni að horfa líka á veröldina með fimm ára drengjum okkar. Við reynum að miðla þeim visku og vitum að á þessum árstíma eru Þingvellir aðalstaðurinn til upplifana. Við notuðum því laugardaginn til pílagrímsferðar inn í ríki blámans, langsýna og skýrleika. Gjárnar seiddu, hægur Silfrustraumur heillaði og haustlitir glöddu. Við skokkuðum upp hleðslugötuna upp Hallann og í Stekkjargjá og síðan að úðandi Öxarárfossi. Eftir gleðihopp í gjánni héldum við svo niður að breiðunni við Neðrifoss. „ Nú ætla ég að sýna ykkur undur lífsins " sagði ég við karlana mína. Við læddumst öll að ánni og viti menn. Þarna var stór urriði, sem rauk af stað og sprettbunga myndaðst á grunnsævinu. „ Vá " hann er stór. „ Þeir eru fleiri hér einhvers staðar, " sagði pabbinn, „ það glittir í eitthvað þarna við flúðina. " Við fórum upp á brúna við Drekkingarhyl og undrið blasti við. Stór torfa fiska brosti þarna í glitrandi vatninu, kviðmiklir og bolþykkir. Sporðarnir voru sem skóflur. Ég taldi 101 stykki, kannski voru sumir þessara risafiska nærri tuttugu pund? Ég hef fylgst vel með Öxará í tvo áratugi og ástalífið þar fer batnandi. Mikilvægar riðstöðvar við útfall Sogsins við Kaldárhöfða voru eyðilagðar við gerð Steingrímsstöðvar fyrir hálfri öld. Hinn stórvaxni urriðastofn vatnsins hrundi, en hefur braggast síðustu ár með hjálp manna. Fyrir tuttugu árum voru aðeins nokkrir fiskar sem komu í Öxará til að efla lífið, en nú má vænta tvö til fjögur hundruð ofurfiska í ána hvert haust. Það er því sjón að sjá boltana. Nú er ástalífið í gerðinni í Öxará og lífsgleðin magnast. Fyrst er að kenna drengjum á undur lífsins, að við megum njóta og taka með okkur svona upplifun inn í okkur og veturinn. Svo þurfum við líka að vita að menn geta skemmt eða verndað. Ég sagði þeim ekkert um Drekkingarhyl í þessari ferð, en naut þess fremur að tala og hugsa um þessa lífiðju, gleði og vonir neðan við fossinn hjá hyl grimmdarinnar. Töfrar lífsins þrátt fyrir dauða. Í nánd við Drekkingarhyl spírar lífið í þessari Lífbreiðu. Neðan við Drekkingarhyl eru stangveiðar bannaðar en upplifanir leyfðar. Dauðinn dó en lífið lifir - góð viska fyrir veturinn og allt líf mannabarna. |
Verð á bensíni, bæði með og án opinberra gjalda, er hæst á Íslandi af 12 Evrópulöndum samkvæmt lista sem Búnaðarbankinn Verðbréf hefur tekið saman. Listinn, sem birtur er í ½ 5 fréttum Búnaðarbankans fer hér á eftir en þar er miðað við verð í evrum á 95 oktana bensíni þann 1. september sl. Er stuðst við upplýsingar frá Reuters, verðskrá íslensku olíufélaganna og fjármálaráðuneytinu. Með sköttum Án skatta Ísland 1,314 0,509 Bretland 1,304 0,314 Finnland 1,175 0,400 Frakkland 1,131 0,356 Danmörk 1,124 0,380 Ítalía 1,110 0,405 Belgía 1,093 0,396 Þýskaland 1,053 0,345 Portúgal 0,888 0,470 Lúxemborg 0,845 0,383 Spánn 0,835 0,348 |
Framkvæmdastjóri Glitnis HoldCo, Ingólfur Hauksson, segir ákvörðun um að fara fram á lögbann á fréttaflutning Stundarinnar og Reykjavík Media hafa verið tekna í samráði við tryggingafélag eignarhaldsfélagsins. Frá þessu er greint í Fréttablaðinu í dag, en þar áréttar Ingólfur að Glitnir Holdco ætli sér að reyna að fá staðfestingu á lögbanninu fyrir dómi. „ Þetta var gert til þess að tryggja félagið ef það koma fram einhverjar skaðabótakröfur frá þeim sem mögulega eru í þessum gögnum. Þetta eru upplýsingar sem við höfum og okkur skilst að þessi gögn hafi getað fengist keypt hjá einhverjum aðilum sem við þekkjum ekki til, “ segir Ingólfur, en tryggingarfélagið er breskt, og vildi Ingólfur ekki gefa upp nafn þess. Eins og kunnugt er, hefur lögbanninu verið kröftuglega mótmælt af hálfu bæði Stundarinnar og Reykjavík Media, og hefur Sigríður Rut Júlíusdóttir hrl., lögmaður Stundarinnar og Reykjavík Media, sagt að lögbannið sé alltof víðtækt. „ Ég er á þeirri skoðun að jafnvel þótt staðfestingarmálið muni tapast fyrir lögbannsbeiðendur, sem mér finnst persónulega líklegra heldur en hitt, að þá erum við samt sem áður núna komin í alvarlegt ástand. Þöggunin á sér stað núna. Lögbannið er á. Það á bara eftir að staðfesta það hjá dómstólum. Lögbannið var lagt á af fulltrúa framkvæmdavaldsins. Dómstólar hafa ekki fengið þetta mat, heldur bara fulltrúi framkvæmdavaldsins. Það er bara alvarlegt. Ég lít svo á að núna séum við að upplifa þöggun, “ sagði Sigríður Rut í viðtali við sjónvarpsþátt Kjarnans, á Hringbraut. Lögbannið nær til frekari umfjallana sem unnar eru upp úr gögnum frá Glitni, en umfjöllun Stundarinnar hefur verið um Bjarna Benediktsson, forsætisráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins, og viðskipti hans, fjölskyldu og samstarfsmanna hans, í aðdraganda hrunsins. Málið var meðal annars rætt á fundi stjórnskipunar - og eftirlitsnefndar Alþingis í gær. |
Bardagar brutust út í morgun nærri alþjóðaflugvellinum í borginni Aleppo í Sýrlandi. Flugvöllurinn er opinn þó barist sé í einungis fimm kílómetra fjarlægð frá honum. Stjórnarherinn beitir stórskotaliði gegn stöðvum uppreinsarmanna víða um landið. 138 féllu í bardögum í gær þar af 93 almennir borgarar. |
Eftir Benný Sif Ísleifsdóttur. Bjartur, 2018. Innb. 368 bls. Hetjum hafsins hafa oft verið gerð skil í bókum en konurnar sem heima sátu virðast hafa fengið minni athygli. Bók Bennýjar Sifjar Ísleifsdóttur fjalla um eiginkonur sjómanna, kvenhetjurnar í lífsins ólgusjó. Gríma er fyrsta skáldsaga Bennýjar en barnabók hennar J ólasveinarannsóknin kom út nýverið. Í Grímu er fjallað um örlög vinkvennanna Grímu og Önnu. Gríma er heldur fyrirferðarmeiri í takt við þau karaktereinkenni sem hún ber. Hegðun Grímu sér til þess að aldrei vantar umræðuefni og sögur, sannar eða ósannar í sjávarþorpi á sjötta og sjöunda áratugnum. Þegar nýr togari kemur í plássið breytist lífið í þorpi þar sem allt snýst um veiðar og vinnslu. Gríma fjallar um ástir og afbrýði, fordóma, forboðnar ástir, sorgir og gleði, vonbrigði, brostnar vonir, manngæsku, svik og smásálarhátt sem fléttar saman líf þorpsbúa. Sagan fjallar á mjög raunsæjan hátt um einhæft atvinnulíf í sjávarþorpi og lífið sem bíður sjómannskonunnar. Hlutverk hennar er að sjá um rekstur heimilisins, húshald og börn og hún ber alla ábyrgð og áhyggjur á herðum sér. Hún er ofurkonan sem stendur sína plikt. Bíður eftir eiginmanninum með tandurhreint hús og tekur á móti honum eins og tignum gesti. Stundum hefur jafnvel eitt barn bæst í hópinn þegar eiginmaðurinn loks kemur heim. Benný Sif tekst vel að koma lífi fjölskyldna í sjávarplássi á þessum tíma vel til skila með raunsannri lýsingu. Persónulýsingar eru allar trúverðugar fyrir utan Emil til þess að byrja með en óvæntur og vel úthugsaður endir gerir persónu hans trúverðuga. Benný Sif lætur sjö persónur fá kafla í bókinni til þess að segja hver sína sögu á fimmtán ára tímabili og þrjár kynslóðir segja frá. Söguþráðurinn er góður en að ósekju hefði mátt hafa bókina aðeins styttri því um miðbik sögunnar dettur þráðurinn aðeins niður en sækir svo í sig veðrið með óvæntum hætti í lok sögunnar. Grímu hafa allir gott af að lesa. Þeir sem fæddir eru á þessum tíma gætu eflaust skilið betur gjörðir foreldra sinna sem höfðu ekki sömu tækifæri og seinni kynslóðir fengu. Guðrún Erlingsdóttir |
Eftir Írisi Ö. Vilbergsdóttur iris@24stundir.is Krakkarnir í leikskólanum Austurborg láta frídag ekki koma í veg fyrir að þau fagni 17. júní saman. Þau taka forskot á sæluna og ganga sína eigin skrúðgöngu 16. júní ár hvert. Börnin koma sér í hátíðarskap með því að lita fána og föndra áður en stóri dagurinn rennur upp. Að þessu sinni gengu um 100 börn um hverfið syngjandi og veifandi fánum sem leikskólinn fékk gefins fyrir nokkrum árum. Nágrannarnir fylgjast með Gangan vekur að sjálfsögðu mikla hrifningu í hverfinu þar sem íbúarnir fylgjast með út um gluggann eða koma jafnvel út í dyr til að missa ekki af neinu. Að göngu lokinni safnast hópurinn saman í garði leikskólans þar sem starfsmennirnir grilla pylsur ofan í börnin. Ýmislegt skemmtilegt fer fram í útivistinni þennan hátíðisdag en til dæmis er boðið upp á andlitsmálun. Foreldrar eru alltaf velkomnir til að taka þátt í hátíðarhöldunum og yfirleitt koma einhverjir þeirra með í gönguna og njóta dagsins með barninu sínu. Óhætt er að segja að krakkarnir á Austurborg kunni að fagna 17. júní enda má gera ráð fyrir að þau fagni líka daginn eftir og þá með öllum borgarbúum. Þetta er stórskemmtilegt tækifæri til að læra um sögu þessa mikilvæga dags. |
Þáttastjórnendur morgunsjónvarpsins Good Morning America brugðu sér í heimsókn til Nadiu Suleman á dögunum þar sem hún var önnum kafin við barnauppeldi enda er hún fjórtán barna móðir. Þegar fréttamennirnir spurðu hana hvort hún gæti hugsað sér að eignast fleiri börn svaraði Nadia : „ Ef ég vildi gera það á hefðbundinn máta og gifta mig þá væri það allt annar kapítuli. “ Hún segist sofa í um tvo klukkutíma hverja nótt enda önnum kafin við barnauppeldi og ritstörf en Nadia hyggst græða peninga í framtíðinni með því að gefa út bók. Ef svo færi að hún yrði vel auðug gæti hún hugsað sér að eignast fleiri krakka. Núna aflar hún sér tekna með samstarfi við ýmsa fjölmiðla sem sýna fjölskyldunni áhuga en hún segist þó reyna að takmarka þetta. „ Ég hef varla aðra valkosti, “ segir hún. „ Mánaðarleg útgjöld hjá mér eru rúm milljón enda hef ég fjórar manneskjur í vinnu sem aðstoða við að annast börnin. Ég tek þetta klukkutíma í senn, og einn dag í einu, “ segir Nadia. Nadia segist ekki sjá eftir því að hafa eignast öll börnin og spurð að því hvort hún gæti hugsað sér að ættleiða eitthvert þeirra til góðrar fjölskyldu segir hún slíkt ekki henta sér. |
Eyjan er sunnan við Sankti Vinsent og Grenadíneyjar og norðan við Martinique. |
Verðbólga í ríkjunum þrjátíu sem eru aðilar að Efnahags - og framfarastofnuninni ( OECD ) mældist 2,2% í maímánuði og hélst þar með óbreytt frá því í aprílmánuði. Minni hækkanir á matarverði náðu að vega upp á móti verðhækkunum á olíu á heimsmarkaði, að því er fram kemur í hagtölum frá OECD. |
Liverpool staðfesti í gærkvöld að félagið hafi í fyrrakvöld fengið senda rannsóknarskýrsluna í máli Luis Suarez og Patrice Evra. Félagið segist nú þurfa að nýta tíma sinn til að skoða þessa 115 síðna skýrslu áður en tekin verður ákvörðun um áframhaldið. Suarez var dæmdur í átta leikja bann en Liverpool hefur alltaf sagst standa með leikmanninum en eftir á að taka áfrýjun fyrir í málinu. ,, Leikmaðurinn, félagið og lögfræðingar okkar munu nú taka þann tíma sem þarf til að lesa og meta og íhuga almennilega efni þessarar 115 síðna skýrslu og tjáum okkur ekkki að svo stöddu, " sagði á vef Liverpool. Rannsóknarskýrslan er 115 blaðsíður og er hægt að lesa hana með því aðsmella hér. Umræða um málið er á heimasvæði Fótbolta.net á Facebook. Smelltu hértil að fara þangað. |
EIGENDUR Blómavals ehf. hafa samþykkt tilboð Húsasmiðjunnar hf. í allt hlutafé fyrirtækisins. Bjarni Finnsson, framkvæmdastjóri Blómavals, mun stýra fyrirtækinu áfram en Blómaval var stofnað árið 1970 af Bjarna og Kolbeini Finnssonum og fjölskyldum þeirra. Verið er að vinna að áreiðanleikakönnun á Blómavali og mun endanleg niðurstaða liggja fyrir í lok ágúst. Jón Snorrason, stjórnarformaður Húsasmiðjunnar, segir að Blómaval muni starfa áfram undir merkjum þess, en væntanlega verði reksturinn að öðru leyti sameinaður Húsasmiðjunni. Gengi hlutabréfa Húsasmiðjunnar hækkaði um 0,5% á Verðbréfaþingi í gær í kjölfar þess að tilkynnt var um kaupin á Blómavali. |
Tveir spænskir myndasöguteiknarar hafa verið dæmdir til að greiða sekt að andvirði tæpra 270 þúsund króna hvor fyrir að misbjóða spænsku konungsfjölskyldunni. Teikning þeirra birtist á forsíðu háðstímaritsins El Jueves í júlí sl. Þar var dregin upp mynd listamannanna af ástarlotum prinsins Felipe og konu hans Letizia. Lögreglumenn kipptu eintökum El Jueves snarlega úr blaðsölurekkum eftir að þau komu út. Dómarinn í málinu sagði að listamennirnir, Guillermo Torres og Manel Fontdevila, hefðu rægt krúnuna á ástæðulausan og tilgangslausan hátt. Torres teiknaði myndina en Fontdevila, sem er ritstjóri tímaritsins, skrifaði myndatextann. Þar segir prinsinn við konu sína : „ Áttarðu þig á því, að ef þú verður ólétt verður þetta það næsta sem ég hef gert í líkingu við vinnu á allri minni lífstíð. “ Þar var vísað til samþykktar ríkisstjórnar Spánar um að greiða spænskum pörum sérstaklega fyrir hvert barn sem þau eigi. Í dómsalnum sögðu myndasöguhöfundarnir að þeir hefðu ekki gert neitt saknæmt og að þeir hefðu margsinnis áður tekið meðlimi konungsfjölskyldunnar fyrir. Fréttaritari BBC í Madrid segir nú harðar deilur hafa sprottið upp um tjáningarfrelsi á Spáni í kjölfar dómsins. |
Þorlákur Sævar Halldórsson barnalæknir var fæddur 25.6. 1934 í Reykjavík. Hann lést föstudaginn 19. september sl. Foreldrar hans voru Guðrún Soffía Þorláksdóttir húsmóðir, f. 14.9. 1913 á Hvammstanga d. 1.11. 1993 og Halldór Benjamín Þorbergsson sjómaður, f. 27.5. 1908 í Reykjavík, d. 10.12. 1970. Systkin : Þorbergur innkaupastjóri, f. 13.2. 1941 og Steinar flugvélstjóri, f. 10.9. 1943. Þorlákur Sævar var kvæntur Sigrúnu Erlu Skúladóttur húsmóður, f. 26.11.1934. Foreldrar hennar : Ólafía Þórunn Guðjónsdóttir húsmóðir, f. 2.9. 1904, d. 14.3. 1990 og Skúli Tómasson fátækrafulltrúi, f. 5.8. 1900. Börn : Dóra Soffía kennari, f. 27.6. 1959, Þórir læknir, f. 20.3. 1962, d. 21.10. 2007, Linda Sif leikari, f. 21.3. 1967. Menntun : Stúdentspróf frá MR 1954. Embættispróf í læknisfræði frá HÍ 1961. Lauk sérfræðinámi í barnalækningum frá Harvard Medical School 1968. Almennt : Lækningaleyfi 1963. Sérfræðingur í barnasjúkdómum 1968. Starfsferill : Aðstoðarlæknir á Landspítala slysavarnarstofu 1961. Héraðslæknir í Siglufjarðarhéraði 1961 - 1962. Aðstoðarlæknir á Landspítala 1962 - 1963. Í námsstöðu í lyflækningum við Memorial Hospital Worcester í Bandaríkjunum frá 1963, aðstoðarlæknir þar til 1964. Náms - og kennslustaða í barnalækningum við Harvard Medical School 1964 - 1968. Aðstoðarlæknir á Children's service á Massachusetts General Hospital í Boston 1964 - 1966 og yfirdeildarlæknir þar frá 1965 til 1967. Sérfræðingur á Walter E. Fernald State School í Boston frá 1967 - 1968. Námstaða í barnalækningum við Massachusetts General Hospital í Boston í Bandaríkjunum 1964 - 1968. Sérfræðingur á Kópavogshæli frá ' 68 - ' 96. Sérfræðingur í barnasjúkdómum á Landakotsspítala frá 1969 - 1995. Sérfræðingur í barnasjúkdómum á Landspítala Fossvogi 1995 - 2003. Sérfræðingur í barnasjúkdómum á Nýja Barnaspítalanum Landspítala Hringbraut 2003 - 2004. Sérfræðingur í barnasjúkdómum á læknastöðinni hf. 1968 - 1983. Sérfræðingur í barnasjúkdómum við Læknastöðina Landakoti 1983 - 1997. Sérfræðingur í barnasjúkdómum í Kjarvalshúsi, Greiningarstöð ríkisins frá 1972 - 2004. Kennari í barnalækningum við Harvard Medical School í Boston júlí 1965 - júní 1968. Kennari við HÍ í barnasjúkdómum frá 1969 - 2004. Kennari við Þroskaþjálfaskóla Íslands frá 1969 - 1983 og Kennaraháskóla Íslands ( fyrir sérkennara ) 1969 - 1971. Önnur störf : Í stjórnarnefnd kennslu fjölfatlaðra og hreyfihamlaðra 1974 - 977. Formaður Félags íslenskra barnalækna 1980 - 1983. Fulltrúi menntamálaráðuneytisins í nefnd varðandi framtíðarskipun Greiningar - og ráðgjafarstöðvar ríkisins 1984. Safnaði upplýsingum um öll börn sem fengu höfuðáverka á tímabilinu 1995 - 2004 og hluti þeirra niðurstaðna hefur verið birtur á vísindaráðstefnum í samvinnu við Ólaf Thorarensen sérfr. í taugasjúkdómum barna og Jónas Halldórsson taugasálfræðing. Ritstörf : Meðhöfundur að kennslubókinni Mental Retardation / an Atlas of diseases with associated physical abnormalities ' 72. Tímaritsgreinar í innlendum og erlendum læknatímaritum. Þorlákur Sævar verður jarðsunginn frá Langholtskirkju í dag kl. 13. Á skrifstofu Sævars hangir innrömmuð kveðja. Hún er frá samstarfsmönnum hans af spítalanum sem þeir færðu honum þegar hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Þar þökkuðu þeir honum ævistarfið og kvöddu hann með virðingu. Þegar við systkinin hugsum til frænda við fráfall hans fangar virðing best góðar minningar okkar. Við kveðjum föðurbróður okkar með söknuði. Sævar var elstur þriggja bræðra. Traustur maður með alla þá kosti sem eiga að prýða elstu bræður. Sem stóri bróðir pabba var hann holdgervingur visku og góðra ráða og saman mynduðu þeir bræður frábært þríeyki. Í bræðrahópnum er skarð fyrir skildi enda er aldrei nóg af góðum mönnum. Sævar starfaði sem barnalæknir alla sína starfsævi. Hann sinnti lækningum ekki aðeins af skyldurækni og þekkingu heldur af ástríðu og umhyggju. Sævar hafði alltaf tíma fyrir litla frændfólkið og fylgdi okkur systkinunum í gegnum handleggsbrot og unglingabólur. Það var alltaf gott að leita til fjölskyldulæknisins sem hlustaði íbygginn á minnstu vandamál. Umhyggjan skein í gegn. Það er meira vert að hann hjálpaði þúsundum barna og fjölskyldum þeirra að sigrast á veikindum og var þeim innan handar í gegnum erfið tímabil. Sævar naut sín í starfi og var góður læknir vegna þess að hann náði traustri tengingu bæði við börn og foreldra þeirra. Við erum þess fullviss að hann skildi bæði sáttur og stoltur við ævistarf sitt. Það var auðvelt að líka vel við Sævar frænda. Hann var yfirvegaður og heilsteyptur maður með þægilega nærveru. Hann hafi lágan róm og við sperrtum eyrun þegar hann talaði. Sævar var ráðagóður og skemmtilegur en umfram allt áhugasamur um allt sem okkur viðkom. Faðmlög hans voru þétt og hann var óspar á þau. Orð hans voru passleg og þau voru alltaf innileg. Það var alltaf gaman að hitta Sævar og manni leið vel eftir að hafa kvatt hann. Síðastliðið ár var erfitt og Sævar gekk í gegnum áföll sem voru honum þungbær. Þrátt fyrir mótlætið reyndi hann að sjá bjartari hliðar tilverunnar. Frændi leit á erfið veikindi sem áskorun frekar en endastöð og hann missti aldrei vonina um að hið ólíklega myndi takast. Sævar fann styrk í mótlætinu og við fylltumst stolti af baráttuþreki hans. Þótt veikindin hafi unnið á líkamanum sást glitta í blikið í auganu þar til yfir lauk. Blessuð sé minning frænda. Birna Björk, Ágústa Ýr og Halldór Benjamín. Við andlát Sævars frænda míns er mér ljúft og skylt að minnast hans nokkrum orðum. Þá verður mér fyrst fyrir að rifja upp ljúfar minningar frá bernskuárum mínum og uglingsárum Sævars í húsinu Grettisgötu 70. Þar bjuggu rétt fyrir miðja síðustu öld þrjár systur með fjölskyldur sínar á þremur hæðum hússins. Allar áttu systurnar börn og vorum við sjö frændsystkini í húsinu. Og þrátt fyrir nokkurn aldursmun var með okkur öllum vinátta sem aldrei hefur borið skugga á. Sameign okkar var Sæunn amma, en Sævar ber á sinn hátt nöfn hennar og Þorláks afa okkar. Soffía móðir Sævars og Halldór eiginmaður hennar bjuggu á neðstu hæðinni með þrjá syni, Sævar, Þorberg og Steinar, og var Sævar elstur. Ein af mínum fyrstu minningum um Sævar, meðan ég var enn á stuttbuxum, er fermingardagurinn hans. Aðra eins veislu hafði ég ennþá ekki séð, þótt veislusalurinn væri stofan heima, sem ekki var stór. Og aldrei hafði ég séð nokkurn mann betur klæddan en Sævar þá, í svörtum fermingarfötum með hvítt um hálsinn. Þessi skyndimynd hæfir reyndar vel minningu minni um Sævar, og hefur ekkert breyst til þessa dags. Hann var ávallt flottur í mínum augum. Að vísu viku svörtu fötin fyrir hvítum læknaslopp þegar fram liðu stundir, en sá klæðnaður fór honum ekki síður. Önnur minning er frá nágrenni Grettisgötunnar, leik - og athafnasvæði krakka og unglinga. Það fór ekki fram hjá mér, sem leit upp og álengdar til Sævars og stóru strákanna, að Sævar var vinsæll og vinmargur. Hann var þó ekki meðal þeirra sem hæst létu, en vinir löðuðust að honum og kunnu að meta þá hæversku, trygglyndi og öryggi sem honum var eiginlegt. Og þrátt fyrir hæglátt fas var húmorinn ávallt til staðar. Þessi minning er líka lífseig. Honum lá aldrei hátt rómur þótt síðar væri. En á hann var hlustað. Mér er kunnugt um að vinátta þessara stráka hefur enst meðan allir lifðu. Þá kemur minning um Sævar við eldhúsborðið hjá Soffíu móður sinni við lestur námsbóka meðan hún vann húsverkin á sinn hljóðláta hátt. Allar minningar mínar um Sævar eru mér kærar en þessi ekki síst. Fögur mynd af sambandi móður og sonar. Fólk af hans kynslóð eygði meiri möguleika til langskólanáms þótt af alþýðustétt væri en áður var. En það var mjög háð því að menn nytu umhyggju, eggjunar og skilnings sinna nánustu. Á það skorti ekki hjá Soffíu og Halldóri foreldrum Sævars. Hvílíkur mannauður hefur orðið til við þær aðstæður. Af sama toga er einnig minningin um Sigrúnu og Sævar. Þar fór líka saman ástúð, dugnaður og áræði sem dugði til frábærs námsárangurs hér heima og í Bandaríkjunum. Og ekki skorti verkefnin þegar heim kom og vinnudagurinn var oft æði langur. Þau voru ung þegar leiðir þeirra lágu saman og voru glæsilegt par. Mikil er sorg Sigrúnar og söknuður að sjá á bak lífsförunaut sínum. Við Guðrún kona mín og fjölskylda okkar vottum henni og dætrum þeirra Sævars okkar dýpstu samúð. Sverrir Sveinsson. |
Nemendur í Smárahverfi í Kópavogi reyndu við Íslandsmet í hópknúsi í morgun í tilefni Vináttugöngu í bænum. Börnin gengu í Fífuna, mynduðu þar hjarta, tóku víkingaklapp og föðmuðust í tvær mínútur, sem í tilkynningu frá bænum er talið vera Íslandsmet. |
Í NÆSTU hádegisleiðsögn sérfræðinga í Þjóðminjasafninu verður haldið í gamla Forsalinn við Bogasalinn á 2. hæð og heilsað upp á þrjá höfðingja frá 17. öld. Leiðsögnin er á morgun, þriðjudag, og hefst kl. 12:10. Gunnar Hannesson sagnfræðingur kynnir fyrir gestum bræðurna Gísla og Þórð Þorlákssyni, biskupa á Hólum og í Skálholti og Lárus Gottrup lögmann og sýslumann á Þingeyrum. Stoppað verður við gömul málverk af þessum litríku einstaklingum sem til sýnis eru í gamla Forsalnum. Gunnar fjallar um þá þremenninga í leik og starfi og dregur fram persónusögu þeirra og atriði úr einkalífinu eftir því sem heimildir og tími leyfa. Að sögn Gunnars er " markmiðið með leiðsögninni að nálgast þessa ágætu menn frá óopinberu sjónarhorni frekar en opinberu ". Frumheimildir hafa frá ýmsu forvitnilegu að segja um þá Gísla, Þórð og Lárus sem persónur og einstaklinga. Í rannsóknum og umfjöllun um þá hefur áhersla þó einkum verið lögð á atriði sem snerta opinber störf þeirra og embættisrekstur. Sjaldnar er dokað við atriði er standa þeim nær og eru ekki síður athyglisverð. |
Tottenham vann gríðarlega mikilvægan sigur í ensku úrvalsdeildinni í kvöld er liðið mætti Brighton. Tottenham gat komist þremur stigum á undan Chelsea í töflunni með sigri í kvöld og styrkt stöðu sína í þriðja sætinu. Aðeins eitt mark var skorað í leik kvöldsins en það gerði Christian Eriksen fyrir heimamenn. Þetta reyndist ansi tæpt hjá Tottenham en mark Eriksen kom á 89. mínútu og reyndist það nóg til að tryggja þrjú stig. Á sama tíma áttust við Watford og Southampton en leikið var á Vicarage Road, heimavelli Watford. Shane Long kom Southampton yfir í leik kvöldsins en hann skoraði mark eftir aðeins sjö sekúndur sem var fljótasta mark í sögu úrvalsdeildarinnar. Staðan var 1 - 0 þar til á 90. mínútu leiksins er Andre Gray jafnaði metin fyrir Watford og lokastaðan, 1 - 1. Tottenham 1 - 0 Brighton 1 - 0 Christian Eriksen ( 89 ′ ) Watford 1 - 1 Southampton 0 - 1 Shane Long ( 1 ′ ) 1 - 1 Andre Gray ( 90 ′ ) |
" SÍÐARI leikurinn var aðeins skárri en sá fyrri. Menn voru eitthvað frískari og síðan vaknaði Logi Geirsson aðeins síðasta stundarfjórðunginn og skoraði mörk af vinstri vængnum, " sagði Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari eftir sigurinn á Tékkum í Laugardalshöll í síðdegis í gær, 34 : 32. Alfreð var lítið ánægðari með síðari leikinn en hann var afar óhress með framgöngu leikmanna í fyrri viðureign þjóðanna í Laugardalshöll á laugardag þegar íslenska liðið tapaði, 27 : 29. Eftir Ívar Benediktsson iben@mbl.is " Að öðru leyti var ég óánægður með margt annað í leik okkar. Menn hlupu á tíðum ekki aftur í vörnina, engu var líkara en menn litu á leikinn sem æfingu. Þar af leiðandi fengu Tékkar auðveld mörk úr hraðaupphlaupum. Síðan gáfu menn alltof mikið af mörkum og léku illa í vörninni. Ólafur Stefánsson lék til dæmis ekki vörn í þessum leik. Hann var ekki einn um það. " Er varnarleikurinn þá áhyggjuefni? " Á köflum er hann það. Leikmenn voru yfirhöfuð lélegir í vörninni. Sverre Jakobsson barðist lengi vel og síðan Sigfús Sigurðsson á lokasprettinum. En það vantar enn þá mikið upp á að varnarleikurinn sé í lagi, " segir Alfreð sem hóf leikinn með Sverre og Vigni Svavarsson í miðju varnarinnar. Sú uppstilling tókst nokkuð vel framan af fyrri hálfleik. Alfreð sagðist reyna þetta til þess að þurfa á skipta sem fæstum inn á milli varnar og sóknar. " Það er vandamál hjá okkur með skiptingar þegar lið leika hratt á okkur. Þá náum við ekki að skipta leikmönnum inn á og það þýðir að þeir sem eru í sókninni verða að geta leikið almennilega í vörninni. Því var ekki að heilsa hjá öllum í þessum leik, því miður, " segir Alfreð þungur á brún. " Varnarleikurinn var slæmur og síðan var markvarslan einnig mjög slök í síðari hálfleik. Birkir Ívar Guðmundsson stóð sig vel í markinu í fyrri hálfleik en var slakur í þeim síðari. Mörg skotanna sem komu á markið voru ekki merkileg og markverðirnir áttu skilyrðislaust á verja flest þeirra. " HM-hópurinn tilkynntur í dag Alfreð er ekki aðeins óánægður með vörnina, sóknin er heldur ekki eins góð og hann hafði vonast eftir. " Við gerum við alltof mikið af tæknilegum mistökum í sóknarleiknum og slíkt gengur ekki þegar út í alvöruna verður komið, " sagði Alfreð sem hyggst tilkynna í dag hvaða 16 leikmenn hann hyggst taka með til Þýskalands. Hann hefur þegar afskrifað Björgvin Gústavsson markvörð. Þar með á hann eftir að kveðja tvo leikmenn úr þeim hópi sem tók þátt í leikjunum um helgina. Alfreð segir að það verði ein æfing í dag og síðan verða sennilega tvær æfingar á morgun. " Miðvikudagurinn verður nokkuð stífur áður en haldið verður til Þýskalands á fimmtudag, " segir Alfreð sem viðurkennir að ekkert sé í sjálfu sé óeðlilegt við að leikmenn séu nokkuð þungir um þessar mundir, svo skömmu fyrir mót og þar af leiðandi vanti ákveðinn frískleika í hópinn. " Það er ekkert óeðlilegt að vera þreyttur á þessum tímapunkti. Þá verða menn að nota hausinn og einbeita sér þess betur til að vega upp þreytuna. Því miður var raunin ekki sú hjá nokkrum mönnum núna um helgina. Þreyta getur ekki verið afsökun hjá þeim leikmönnum sem leikið hafa lítið með okkur upp á síðkastið. Hvernig geta þeir verið þreyttir? " spyr Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfar í handknattleik. Róbert hefur litlar áhyggjur " Við höfum heila viku til þess að laga vörnina með æfingum og það getur skilað sér. Til þessa hefur mestur tími okkar farið í sóknarleikinn þannig að nú tekur við vinna við að slípa saman vörnina, " segir Róbert Gunnarsson sem skoraði fjögur mörk í leiknum í gær. " Vörnin var skárri í þessum leik en á laugardaginn. Við erum þungir eftir erfiðar æfingar en ég hef engar áhyggjur af liðinu, fyrst og fremst hef ég bara mikla trú á liðinu og að það standi sig þegar á hólminn verður komið. Það þýðir ekki að velta sér endalaust upp úr því sem ekki hefur tekist sem skyldi. Við eigum frekar á horfa á það jákvæða og horfa bjartsýnum augum fram á veginn. Sóknarleikurinn hefur batnað smátt og smátt, en hann var ekki merkilegur fyrst þegar við komum saman í byrjun mánaðarins. Það á að vera auðveldara að fínpússa varnarleikinn en sóknarleikinn, " segir Róbert sem telur að sá tími sem er til stefnu fram að fyrsta leik á HM, við Ástralíu dugi. " Síðan verðum við að nota leikinn við Ástrala til þess að spila liðið saman, það er ekkert óeðlilegt, " segir Róbert Gunnarsson. |
Clarence Mitchell, talsmaður McCann-hjónanna, segir að taka verði fréttum dagsins af því að Madeleine McCann hafi verið flutt til Bandaríkjanna eftir að hún hvarf í Portúgal árið 2007 með fyrirvara. Mitchell sagði í samtali við Sky-fréttastofuna að hann væri sjálfur fullur efasemda um fullyrðingar öryggisvarðar í breska dagblaðinu The Sun í dag þess efnis að Madeleine litla hafi verið numin á brott af alþjóðlegum barnaníðingahring. Madeleine hvarf sem kunnugt er úr íbúð foreldra sinna á Praia da Luz í Portúgal þann 3. maí 2007, þá fjögurra ára gömul. Foreldrar hennar halda enn í vonina um að hún finnist á lífi en hingað til hefur umfangsmikil leit að telpunni engan árangur borið. Mitchell segir hins vegar að þessi umræddi aðili hafi gert hárrétt með að láta lögregluna vita af þessum upplýsingum. Hins vegar þurfi nú að rannsaka þær upplýsingar til að fá úr því skorið hvort eitthvað sé til í þeim. „ Það er langt frá Portúgal til Bandaríkjanna. Og að smygla barni þar á milli með einhverjum hefðbundnum leiðum er nánast ómögulegt, “ segir Mitchell sem útilokar þó ekkert að möguleikinn sé fyrir hendi. Hann bætti við að sú staðreynd að maðurinn hefði ekki fyrst farið í fjölmiðla, væri ekki í leit að peningum fyrir frásögn sína gerði hann heldur trúverðugari en flesta að hans mati. Sjá einnig : Öryggisvörður segir Madeleine vera í Bandaríkjunum. |
Raflagnafyrirtækið Rafmenn á Akureyri munu hér eftir sjá um þjónustu við fjarskiptakerfi Mílu á Akureyri og nágrannasveitum. Var samningur þar að lútandi undirritaður í dag. Samningurinn felur meðal annars í sér að starfsfólki Mílu á Akureyri verður boðið starf hjá Rafmönnum. Samkvæmt samningnum munu starfsmenn Rafmanna meðal annars sjá um allar nýlagnir, tengingar og viðgerðir á svæðinu .. Míla mun áfram sinna uppbyggingu á fjarskiptaneti sínu, viðhaldi þess, bilanagreiningu og fleiru. Míla mun einnig sjá um þjálfun þeirra starfmanna Rafmanna sem starfa munu við fjarskiptanetið, samkvæmt tilkynningu. |
" Já, ég er afar þakklátur fyrir sófann hérna, " sagði Guðmundur Guðjónsson sem sat og beið í Smáralindinni eftir konu sinni en hún var á búðarrölti. " Við kíkjum gjarnan saman í bæinn þegar útsölur eru og mér finnst það skemmtilegt en stundum fær maður bara nóg og þá getur verið gott að setjast aðeins niður og hvíla sig. " |
Beitir Ólafsson, markvörður Ýmis og bróðir Finns, hefur einnig æft með Karlsruher undanfarna daga en hann hélt til Þýskalands fyrir rúmri viku síðan. Beitir Ólafsson, markvörður Ýmis og bróðir Finns, hefur einnig æft með Karlsruher undanfarna daga en hann hélt til Þýskalands fyrir rúmri viku síðan. Þeir bræður munu æfa með liðinu áfram næstu daga áður en þeir koma heim á laugardag. „ Mér bauðst tækifæri á að koma hingað út til ég æfinga. Það er kærkomið að nýta pásuna heima og fá að æfa með góðu liði við frábærar aðstæður, halda sér í æfingu og sjá hvar maður stendur sem knattspyrnumaður í samanburði við leikmenn hér, " sagði Finnur. ,, Auðvitað væri gaman að fá tækifæri á að leika erlendis en ég er alveg rólegur, mér líður vel í ÍBV. " Finnur er líkt og Beitir uppalinn hjá HK en hann hefur leikið með ÍBV undanfarin tvö ár. |
Vincent Kompany, fyrirliði Manchester City, er tæpur fyrir leik gegn Reading á laugardag og hann gæti misst af öllum leikjum City í jólatörninni. Kompany meiddist í tapleiknum gegn Manchester United og gat ekki spilað gegn Newcastle um síðustu helgi. Kompany er meiddur aftan í læri. Í janúar mun City missa Kolo Toure sem tekur þátt í Afríkukeppninni með Fílabeinsströndinni en hann er fyrsti varamaður inn í miðvörðinn. Manchester City er í öðru sæti ensku úrvalsdeildarinnar, sex stigum á eftir Manchester United. |
( Lagt fyrir Alþingi á 144. löggjafarþingi 2014 – 2015. ) 1. gr. Við 21. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi : Ráðherra gefur árlega út leiðbeinandi reglur til sveitarstjórna, í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, um framkvæmd fjárhagsaðstoðar auk viðmiðunarfjárhæða fyrir fjárhagsaðstoð. 2. gr. Á eftir 21. gr. laganna kemur ný grein, 21. gr. a, svohljóðandi : Sveitarstjórn er heimilt að setja í reglur um veitingu fjárhagsaðstoðar skv. 21. gr. skilyrði um virka atvinnuleit sem einstaklingur, sem telst vinnufær að hluta eða fullu, skal uppfylla til að eiga rétt á grunnfjárhagsaðstoð og / eða fjárhagsaðstoð vegna sérstakra aðstæðna. Óheimilt er að skilyrða fjárhagsaðstoð til annars en umsækjanda sem metinn er vinnufær að hluta eða að öllu leyti. Þá er óheimilt að skerða aðstoð sem sérstaklega er ætluð börnum samkvæmt reglum sveitarstjórnar. Mat á vinnufærni einstaklings skal byggjast á samræmdu faglegu mati á færni til vinnu. Matið skal unnið í samvinnu við umsækjanda og samhliða gerð einstaklingsbundinnar áætlunar um framvindu. Til virkrar atvinnuleitar skv. 1. mgr. getur talist eftirfarandi : a. að hafa frumkvæði að starfsleit, b. að vera reiðubúinn að ráða sig í hvert það starf sem atvinnuleitandi er fær um að sinna samkvæmt mati á vinnufærni og greitt er fyrir samkvæmt lögum og kjarasamningum, sbr. 1. gr. laga um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda, nr. 55 / 1980, með síðari breytingum, en þar með telst að vera reiðubúinn að mæta í atvinnuviðtöl, c. að sækja um þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. 7. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, nr. 55 / 2006, d. að taka þátt í virkum vinnumarkaðsaðgerðum, þ.m.t. námsúrræðum, og e. að veita félagsþjónustu sveitarfélaga eða eftir atvikum Vinnumálastofnun nauðsynlegar upplýsingar til að auka líkur viðkomandi á að fá starf við hæfi. Aðstoð veitt af félagsþjónustu sveitarfélaga skal miðast við einstaklingsbundnar þarfir hvers og eins einstaklings og skal meðal annars veita félagslega ráðgjöf skv. V. kafla laga þessara. Þegar sveitarstjórn setur skilyrði um virka atvinnuleit fyrir grunnfjárhagsaðstoð er heimilt að kveða á um skerðingu grunnfjárhagsaðstoðar í allt að tvo mánuði í senn uppfylli hlutaðeigandi ekki lengur skilyrði 1. mgr. Hafi grunnfjárhagsaðstoð til einstaklings sætt slíkri skerðingu í tvígang verður grunnfjárhagsaðstoð til hans þó ekki skert í þriðja sinn fyrr en framkvæmt hefur verið að nýju mat á vinnufærni einstaklingsins skv. 2. mgr. Reynist hlutaðeigandi vinnufær að hluta eða öllu leyti er heimilt að skerða grunnfjárhæð hans að nýju. Óheimilt er að skerða mánaðarlega grunnfjárhagsaðstoð um meira en helming. Hafi sveitarstjórn sett skilyrði um virka atvinnuleit fyrir fjárhagsaðstoð vegna sérstakra aðstæðna er sveitarstjórn heimilt að fella hana niður í allt að sex mánuði í senn sé skilyrðum 1. mgr. ekki lengur fullnægt. Ný ákvörðun um greiðslu fjárhagsaðstoðar vegna sérstakra aðstæðna skal tekin að undangengnu mati. Félagsþjónustu sveitarfélaga er heimilt að leita eftir samstarfi á grundvelli samstarfssamnings við Vinnumálastofnun um aðstoð við atvinnuleitendur sem njóta fjárhagsaðstoðar hjá sveitarfélaginu og eftirfylgni við virka atvinnuleit þeirra, sbr. 15. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, nr. 55 / 2006. Við skerðingu á grunnfjárhagsaðstoð eða niðurfellingu fjárhagsaðstoðar vegna sérstakra aðstæðna skal ávallt meta aðstæður einstaklingsins heildstætt til að kanna hvort hann hafi hætt virkri atvinnuleit án gildra ástæðna. 3. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. Athugasemdir við lagafrumvarp þetta. I. Inngangur. Frumvarp þetta, sem unnið var í velferðarráðuneytinu, felur í sér breytingar á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga. Annars vegar er ráðherra falið að gefa út leiðbeinandi reglur til sveitarfélaga um framkvæmd fjárhagsaðstoðar þar sem m.a. sé kveðið á um viðmiðunarfjárhæðir fjárhagsaðstoðar sem sveitarfélög geta nýtt sér við setningu eigin reglna um framkvæmd fjárhagsaðstoðar. Hins vegar er lagt til að sveitarfélögin fái skýrari heimildir til að skilyrða fjárhagsaðstoð félagsþjónustu sveitarfélaga við virkni þeirra sem eru vinnufærir og fá fjárhagsaðstoð þar sem þeir hafa ekki fengið störf. II. Tilefni og nauðsyn lagasetningar. Á undanförnum missirum hefur skapast talsverð umræða um hvort núgildandi ákvæði laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40 / 1991, heimili sveitarfélögum að setja í reglur sínar skilyrði um virkni fyrir því að einstaklingar fái greidda fjárhagsaðstoð. Hefur sú umræða einna helst snúið að þeim sem teljast vinnufærir en hafa annaðhvort fullnýtt rétt sinn til atvinnuleysisbóta eða eiga af einhverjum ástæðum ekki rétt til greiðslna úr Atvinnuleysistryggingasjóði. Núgildandi 21. gr. laganna, sem fjallar um skyldu sveitarfélaga til þess að setja sér reglur um fjárhagsaðstoð, er fremur fáorð og lítið fjallað um hvert efni slíkra reglna geti verið og hvaða skilyrði megi setja fyrir greiðslu fjárhagsaðstoðar. Þar sem óvissa hefur ríkt um hvort heimilt sé að setja skilyrði um virkni í reglur sveitarfélaganna um fjárhagsaðstoð hefur Samband íslenskra sveitarfélaga farið þess á leit við ráðuneytið að kannað verði til hlítar hvort sveitarfélögin megi setja skilyrði um virkni og að lögin verði skýrð að þessu leyti. Í því samhengi þótti einnig rétt að kveða á um að ráðherra skuli gefa út leiðbeinandi reglur og viðmiðunarfjárhæðir til þess að tryggja samræmi og að fjárhæðir séu uppfærðar með reglubundnum hætti. III. Meginefni frumvarpsins. Í frumvarpinu er annars vegar lagt til að ráðherra gefi árlega út leiðbeinandi reglur um fjárhagsaðstoð þar sem m.a. skuli kveðið á um viðmiðunarfjárhæðir fjárhagsaðstoðar. Skulu slíkar reglur settar í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga. Hins vegar er lagt til að sveitarfélögum verði heimilað að setja í reglur sínar skilyrði um virkni þeirra sem eru vinnufærir en fá fjárhagsaðstoð þar sem þeir hafa ekki fengið störf. Er þar lagt til að fara skuli fram mat á vinnufærni umsækjanda áður en kemur til skoðunar hvort binda eigi fjárhagsaðstoð skilyrðum um virkni. Tekið er fram hvað geti talist til virkrar atvinnuleitar en þar var höfð hliðsjón af sams konar kröfum og gerðar eru til atvinnuleitenda innan atvinnuleysistryggingakerfisins svo að þeir teljist vera í virkri atvinnuleit. Lagt er til að einungis verði heimilt að kveða á um skerðingu mánaðarlegrar grunnfjárhagsaðstoðar félagsþjónustu sveitarfélaga í tvo mánuði í senn. Hins vegar eru ekki sett takmörk á það hversu oft sami einstaklingur geti sætt skerðingum en gert ráð fyrir að hlutaðeigandi fari aftur í mat á vinnufærni sé það gert oftar en tvisvar. Þá er lagt til að ekki verði heimilt að skerða mánaðarlega grunnfjárhagsaðstoð sem hlutaðeigandi á rétt á samkvæmt reglum sveitarfélagsins um meira en helming. Njóti hjón eða sambúðarfólk sameiginlegrar fjárhagsaðstoðar skal þó gæta þess að einungis fjárhagsaðstoð þess maka sem uppfyllir ekki lengur skilyrði samkvæmt ákvæði þessu skerðist. Þegar um er ræða svokallaðar heimildargreiðslur vegna sérstakra aðstæðna þá er gert ráð fyrir að heimilt sé að fella slíkar greiðslur niður í allt að sex mánuði í senn. Hins vegar er lagt til að óheimilt verði að skilyrða heimildargreiðslur sem koma til vegna aðstæðna barna, svo sem greiðslur fyrir tómstundir eða skólamáltíðir og þar sem reglur sveitarfélags taka framfærslu barna inn í útreikning grunnfjárhæðar. IV. Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar. Réttur einstaklinga til félagslegrar aðstoðar skv. 1. mgr. 76. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33 / 1944, einskorðast við þá sem þess þurfa. Þannig segir í athugasemdum við ákvæðið að ekki hafi verið ráðgert að sá sem gæti séð nægilega fyrir sér sjálfur þyrfti að njóta réttar til slíkrar aðstoðar. Með vísan til umrædds skilyrðis 1. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar verður það því talið eiga við málefnaleg rök að styðjast að setja skilyrði um virka atvinnuleit fyrir rétti einstaklings sem telst vinnufær að hluta eða að öllu leyti til fjárhagsaðstoðar sveitarfélaga en sams konar skilyrði um virka atvinnuleit hafa verið sett fyrir rétti einstaklings til atvinnuleysistrygginga, sbr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54 / 2006. V. Samráð. Frumvarpið er unnið í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga sem voru sammála þeirri útfærslu sem hér er lögð til. Þá var mat á áhrifum frumvarpsins á fjárhag sveitarfélaga skv. 129. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138 / 2011, einnig unnið í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga. VI. Mat á áhrifum. Meginmarkmið frumvarpsins er að virkja atvinnuleitendur sem hafa fullnýtt eða munu að óbreyttu fullnýta rétt sinn innan atvinnuleysistryggingakerfisins til þátttöku að nýju á vinnumarkaði og koma í veg fyrir að langvarandi atvinnuleysi leiði til óvinnufærni. Tillögum frumvarpsins er ætlað að taka af öll tvímæli um inntak heimilda til að skilyrða fjárhagsaðstoð en nokkur óvissa hefur verið uppi um það efni, einkum þar sem núgildandi lagaákvæði eru komin til ára sinna. Þá skapar frumvarpið lagagrundvöll undir samstarf milli Vinnumálastofnunar og félagsþjónusta sveitarfélaganna um mat á vinnufærni og þjónustu við atvinnuleitendur sem njóta fjárhagsaðstoðar hjá sveitarfélögum. Má ætla að frumvarpið leiði til þess að bæta þjónustu og stuðning við þá atvinnuleitendur sem fullnýtt hafa rétt sinn innan atvinnuleysisbótakerfisins. Þá mun það leiða til þess að fleiri þeirra komist aftur á vinnumarkað og draga úr óvinnufærni vegna langtímaatvinnuleysis. Við undirbúning frumvarpsins fór fram mat á áhrifum þess á fjárhag sveitarfélaga skv. 129. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138 / 2011. Niðurstaða þess var að frumvarpið, verði það lögfest, muni hafa jákvæð áhrif á fjárhag sveitarfélaga. Útgjöld þeirra til fjárhagsaðstoðar munu lækka og betra jafnvægi verður í útgjöldunum samhliða innleiðingu á virkri velferðarstefnu. Á móti vegur að aukning verður í stjórnsýslu þeirra vegna fjölgunar starfsmanna. Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins. Um 1. gr. Í greininni er lagt til að ný málsgrein bætist við 21. gr. laganna sem heimili ráðherra að gefa út leiðbeiningar til sveitarfélaga um framkvæmd fjárhagsaðstoðar sem sveitarfélög geti litið til við setningu reglna sinna um fjárhagsaðstoð. Skal þar meðal annars kveða á um viðmiðunarfjárhæðir fyrir fjárhagsaðstoð sveitarfélaga. Talsvert hefur skort á að samræmi sé á milli fjárhæðar fjárhagsaðstoðar milli sveitarfélaga auk þess sem fjárhæðir hafa í misjöfnum mæli tekið breytingum í samræmi við almennar verðlagsbreytingar í landinu. Er með þessu ákvæði ætlað að stuðla að því að meira samræmi verði milli sveitarfélaga auk þess að tryggja að reglulega sé farið yfir viðmiðunarfjárhæðir og að sveitarfélögin hafi alltaf aðgang að uppfærðum fjárhæðum miðað við þróun verðlags, launa o.fl. Um 2. gr. Er ákvæði þessu ætlað að stuðla með almennum hætti að því að atvinnuleitendur séu í virkri atvinnuleit þann tíma sem þeir fá greidda fjárhagsaðstoð og sýni vilja til að standa á eigin fótum og framfæra sjálfan sig og fjölskyldu sína. Áhersla er lögð á að einungis sé heimilt að skilyrða fjárhagsaðstoð til þeirra sem teljast vinnufærir að hluta eða öllu leyti. Gert er ráð fyrir að ákveðin skimun fari fram innan félagsþjónustu sveitarfélaga á því hvort líkur séu á að hlutaðeigandi sé vinnufær og sé það raunin er viðkomandi vísað til Vinnumálastofnunar þar sem hann sækir jafnframt um þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum á grundvelli laga um vinnumarkaðsaðgerðir, nr. 55 / 2006. Þannig er miðað við að áður en til skilyrðingar á fjárhagsaðstoð geti komið fari fram mat á vinnufærni hlutaðeigandi einstaklings hjá ráðgjafa Vinnumálastofnunar í samræmi við 11. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir. Leiði mat á vinnufærni einstaklings í ljós að viðkomandi sé ekki vinnufær að hluta eða að öllu leyti skal honum vísað til félagsþjónustu hlutaðeigandi sveitarfélags. Atvinnuleitandi skal leggja fram allar þær upplýsingar sem liggja fyrir um vinnufærni hans svo að unnt sé að aðstoða hann við að fá starf við hæfi og gefa honum kost á þátttöku í einstökum vinnumarkaðsúrræðum. Með samkomulagi við atvinnuleitandann er síðan gerð áætlun um atvinnuleit hans og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum á grundvelli matsins. Jafnframt skal leiðbeina atvinnuleitanda um aðra þjónustu verði talin þörf á að hann leiti sér aðstoðar í öðrum opinberum þjónustukerfum áður eða samhliða þeirri þjónustu sem veitt er samkvæmt lögum um félagsþjónustu eða lögum um vinnumarkaðsaðgerðir. Byggist þetta á góðri samvinnu ráðgjafa félagsþjónustu sveitarfélaga og Vinnumálastofnunar en mikilvægt er að aðstoðin miðist við einstaklingsbundnar þarfir hvers og eins til að stuðla að sem bestum árangri. Tekið er fram hvað geti talist til virkrar atvinnuleitar en þar var höfð hliðsjón af sams konar kröfum og gerðar eru til atvinnuleitenda innan atvinnuleysistryggingakerfisins svo að þeir teljist vera í virkri atvinnuleit. Þar á meðal er við það miðað að einstaklingurinn hafi sótt um þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. 7. gr. laga vinnumarkaðsaðgerðir, hafi frumkvæði að starfsleit og sé reiðubúinn að ráða sig í hvert það starf sem greitt er fyrir samkvæmt lögum og kjarasamningum, sbr. 1. gr. laga nr. 55 / 1980, um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda, en þar með telst einnig að vera reiðubúinn að mæta í atvinnuviðtöl. Er jafnframt við það miðað að um sé að ræða starf sem atvinnuleitandi er fær um að sinna samkvæmt mati á vinnufærni. Í þessu tilliti er ekki síður mikilvægt að atvinnuleitendur séu reiðubúnir að taka þátt í virkum vinnumarkaðsaðgerðum, þ.m.t. námsúrræðum, og að veita félagsþjónustu sveitarfélaga eða eftir atvikum Vinnumálastofnun nauðsynlegar upplýsingar til að auka líkur viðkomandi á að fá starf við hæfi. Enn fremur er rík áhersla lögð á að áður en til skerðingar á grunnfjárhagsaðstoð eða niðurfellingar fjárhagsaðstoðar vegna sérstakra aðstæðna geti komið skuli ávallt meta aðstæður einstaklingsins heildstætt til að kanna hvort gildar ástæður hafi verið fyrir því að viðkomandi hafi hætt virkri atvinnuleit. Það verður að ætla að það sé erfiðleikum bundið að takmarka þau tilvik sem gætu talist til gildra ástæðna í lögum eða reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk hættir í virkri atvinnuleit geta verið af margvíslegum toga. Ljóst er því að lagaregla þessi verður matskennd og ber því að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort viðkomandi sem í hlut á skuli sæta skerðingu á grunnfjárhagsaðstoð. Í ljósi þess að um íþyngjandi ákvörðun er að ræða eru gerðar ríkar kröfur um að þegar ákvarðanir um skerðingu fjárhagsaðstoðar eru teknar liggi fyrir hvaða ástæður lágu raunverulega að baki því að hlutaðeigandi einstaklingur hætti virkri atvinnuleit. Mikilvægt er að þau meginsjónarmið er ákvörðunin byggist á séu tilgreind í rökstuðningi hennar. Þá þykir mikilvægt að skilyrði séu sett um tímamörk þess hve lengi heimilt sé að skerða fjárhagsaðstoð í hvert sinn og hversu mikið. Þannig er lagt til að heimilt verði að kveða á um skerðingu mánaðarlegrar grunnfjárhagsaðstoðar félagsþjónustu sveitarfélaga í tvo mánuði í senn. Hins vegar eru ekki sett takmörk á það hversu oft sami einstaklingur geti sætt skerðingum en gert ráð fyrir að hlutaðeigandi fari aftur í mat á vinnufærni sé það gert oftar en tvisvar. Hafi einstaklingur í tvígang sætt skerðingu verði grunnfjárhagsaðstoð til hans því ekki skert í þriðja sinn nema að undangengnu endurmati á vinnufærni einstaklingsins sem leiðir í ljós að hann sé vinnufær að hluta eða að fullu. Verður að ætla að einstaklingur sem ítrekað hafnar starfstilboðum, neitar að mæta í atvinnuviðtöl eða taka þátt í virkum vinnumarkaðsaðgerðum sem ætlaðar eru til að auka færni hans svo að hann verði betur í stakk búinn að taka starfi þegar það býðst þarfnist mikillar aðstoðar og eftirfylgni við að standa aftur á eigin fótum. Er því mikilvægt að félagsþjónusta sveitarfélaga kanni vel ástæður þess að viðkomandi uppfyllir ekki skilyrði þau sem sett eru fyrir fjárhagsaðstoð til hans svo unnt sé að bjóða honum viðeigandi þjónustu, sbr. 3. mgr. ákvæðis þessa. Þá er lagt til að ekki verði heimilt að skerða mánaðarlega grunnfjárhagsaðstoð sem hlutaðeigandi á rétt á samkvæmt reglum sveitarfélagsins um meira en helming. Njóti hjón eða sambúðarfólk sameiginlegrar fjárhagsaðstoðar skal þó gæta þess að einungis fjárhagsaðstoð þess maka sem uppfyllir ekki lengur skilyrði samkvæmt ákvæði þessu skerðist en lagt er í hendur hverrar sveitarstjórnar að móta þær reglur en þó þannig að fjárhagsaðstoð hlutaðeigandi skerðist ekki nema um helming. Þegar um er að ræða svokallaðar heimildargreiðslur vegna sérstakra aðstæðna þá er gert ráð fyrir að heimilt sé að fella slíkar greiðslur niður í allt að sex mánuði í senn. Hins vegar er lagt til að óheimilt verði að skilyrða heimildargreiðslur sem koma til vegna aðstæðna barna, svo sem greiðslur fyrir tómstundir eða skólamáltíðir, og þar sem reglur sveitarfélags taka framfærslu barna inn í útreikning grunnfjárhæðar. Rétt er að geta þess að viðkomandi getur borið skerðingu á fjárhagsaðstoð og skilyrði fyrir henni undir úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála í samræmi við 63. gr. laganna. Fylgiskjal I. Velferðarráðuneyti : Mat á áhrifum frumvarpsins á fjárhag sveitarfélaga skv. 129. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138 / 2011. Frumvarpið snýr að heimildum sveitarfélaga til þess að binda ákvörðun um fjárhagsaðstoð til vinnufærra einstaklinga tilteknum skilyrðum um virka atvinnuleit eða þátttöku í öðrum hliðstæðum virkniverkefnum. Meginmarkmið frumvarpsins er að virkja atvinnuleitendur sem hafa fullnýtt eða munu að óbreyttu fullnýta rétt sinn innan atvinnuleysistryggingakerfisins til þátttöku að nýju á vinnumarkaði og koma í veg fyrir að langvarandi atvinnuleysi leiði til óvinnufærni. Tillögum frumvarpsins er ætlað að taka af skarið um inntak heimilda til að skilyrða fjárhagsaðstoð en nokkur óvissa hefur verið uppi um það efni einkum þar sem núgildandi lagaákvæði eru komin til ára sinna. Þá skapar frumvarpið lagagrundvöll undir samstarf milli Vinnumálastofnunar og félagsþjónusta sveitarfélaganna um mat á vinnufærni og þjónustu við atvinnuleitendur sem njóta fjárhagsaðstoðar hjá sveitarfélögum. Gert er ráð fyrir að samstarfið verði formgert nánar með samningum um gagnkvæmt framlag aðila til vinnumarkaðsúrræða í víðum skilningi. Forsendur kostnaðarmats. Að mati velferðarráðuneytis mun frumvarpið, verði það lögfest, hafa jákvæð áhrif á fjárhag sveitarfélaga. Eðli málsins samkvæmt eru nokkur atriði sem óvissa er um. Fyrst skal nefna að um er að ræða heimildarákvæði og ekki vitað á þessu stigi hversu mörg sveitarfélög muni festa það í reglur sínar um fjárhagsaðstoð. Í öðru lagi kemur það bæði í hlut Vinnumálastofnunar og félagsþjónustu að annast greiningarviðtöl og ráðgjöf við vinnufært fólk sem nýtur fjárhagsaðstoðar hjá sveitarfélögum. Vegna þessarar verkaskiptingar er kostnaður sveitarfélaga af þjónustu við atvinnuleitendur nokkuð óljós og háður nánari útfærslu í samstarfssamningum. Í þriðja lagi ráðast útgjöld til fjárhagsaðstoðar af þróun atvinnuleysis og framboði virkni - og átaksverkefna á vegum Vinnumálastofnunar. Spár gera ráð fyrir að atvinnuleysi haldi áfram að minnka. Í fjórða lagi er óvíst að hve miklu leyti tillaga um að stytta tímabil réttar innan atvinnuleysistryggingakerfisins úr þremur árum í tvö og hálft ár mun hafa áhrif á útgjöld sveitarfélag vegna fjárhagsaðstoðar. Á þessu stigi byggist kostnaðarmat því að verulegu leyti á vísbendingum. 1. Virk velferðarstefna. Tillögur frumvarpsins byggja á virkri velferðarstefnu. Á þessu stigi eru ekki forsendur til þess að meta nákvæmlega hvaða áhrif stefnan kann að hafa á þróun útgjalda sveitarfélaga vegna fjárhagsaðstoðar. Tvennt mun þó sýnilega skipta mestu máli, annars vegar hvaða árangri verður náð við að skapa atvinnutækifæri og virkniúrræði og hins vegar að samfella og skilvirkni náist í því fyrirkomulagi sem frumvarpið áformar. Er þar einkum horft til þess að ekki verði löng bið eftir því að vinnufærir umsækjendur um fjárhagsaðstoð fái boð um atvinnu eða virkni og að starfskraftar í félagsþjónustu nýtist sem best í beinni einstaklingsbundinni vinnu. Frá því snemma árs 2014 hefur Hafnarfjarðarbær unnið að verkefni, í samstarfi við Vinnumálastofnun, um innleiðingu á virkri velferðarstefnu undir yfirskriftinni „ Áfram í Hafnarfirði “. Verkefnið innleiðir ferli hliðstætt því sem lagt er upp með í frumvarpinu og hafa 137 einstaklingar farið í gegnum það hjá bæjarfélaginu það sem af er ári. Af þeim hópi hafa 106 fengið mat á vinnufærni og 79 fengið starf, þar af 24 hjá bæjarfélaginu sjálfu. Af þessum 79 störfum eru 46 sett á laggirnar með tímabundnum styrk sem er nokkuð hærri en sem nemur fullri fjárhagsaðstoð. Í 33 tilvikum hefur einstaklingur hins vegar fengið starf án þess að styrkur kæmi á móti frá sveitarfélaginu. Verkefnið í Hafnarfirði gefur vísbendingu um að ef nægilegt framboð er tryggt á atvinnutækifærum og virkniúrræðum geti samstarf sveitarfélaga og Vinnumálastofnunar dregið mjög úr útgjöldum vegna fjárhagsaðstoðar. Framhald atvinnuátaksverkefna, og sameiginleg fjármögnun þeirra af hálfu Vinnumálastofnunar og sveitarfélaga, er einnig ákveðin forsenda þess að jafnvægi verði náð í útgjöldum sveitarfélaga vegna atvinnuleitenda sem hafa fullnýtt eða munu að óbreyttu fullnýta rétt sinn innan atvinnuleysistryggingakerfisins. 2. Aukinn kostnaður innan stjórnsýslu sveitarfélaga. Reynsla sveitarfélaganna frá umliðnum árum er sú að tæplega helmingur þeirra sem fullnýta bótarétt sinn leiti eftir fjárhagsaðstoð hjá sveitarfélögum. Talið er að á yfirstandandi ári sé sá hópur um eða yfir 2.000 manns, þ.e. þeir sem fá fjárhagsaðstoð tímabundið eða samfellt, eftir að hafa fullnýtt rétt sinn til atvinnuleysisbóta. Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp til laga um breytingu á lögum, nr. 54 / 2006, um atvinnuleysistryggingar sem gerir ráð fyrir að stytta það tímabil sem heimilt er að greiða atvinnuleysisbætur úr þremur árum í tvö og hálft. Verði frumvarpið að lögum má gera ráð fyrir að um 500 – 550 manns missi rétt sinn til bóta um næstu áramót auk þess sem á milli 75 og 90 manns muni til viðbótar fullnýta rétt sinn í hverjum mánuði á árinu 2015. Þannig má gera ráð fyrir að um 2.500 – 3.000 einstaklingar komi til greina í því ferli hjá sveitarfélögum og Vinnumálastofnun sem þetta frumvarp gerir ráð fyrir. Ekki hefur farið fram greining á vinnu sveitarfélaga við gerð, framkvæmd og eftirfylgni einstaklingsbundinna áætlana. Út frá almennum viðmiðum um fjölda skjólstæðinga á hvern ráðgjafa innan félagsþjónustunnar má þó reikna með að á landsvísu muni þurfa að fjölga störfum í félagsþjónustu um a.m.k. 25 – 30 til þess að sinna núverandi hópi og þeirri viðbót sem fellur til nái tillögur fram að ganga þar að lútandi. Er þá gengið út frá viðtekinni verkaskiptingu þ.e. að félagsþjónustan muni hér eftir sem hingað til sinna almennri félagslegri ráðgjöf og veita persónulegan stuðning en að ráðgjöf og eftirfylgni við virka atvinnuleit og þátttöku í virkniúrræðum teljist viðbót við hefðbundin verkefni félagsþjónustunnar. 3. Skerðing / niðurfelling fjárhagsaðstoðar. Samkvæmt tillögum frumvarpsins mun grunnfjárhagsaðstoð skerðast í ákveðnum tilvikum, þ.e. þegar vinnufær viðtakandi sinnir ekki virkri atvinnuleit. Með sama hætti getur önnur fjárhagsaðstoð fallið niður. Enda þótt mörg sveitarfélög hafi í reglum sínum ákvæði um skerðingar liggja ekki fyrir gögn um hversu algengt er að fjárhagsaðstoð falli niður að hluta eða í heild. Fyrir liggur þó að í áðurnefndu verkefni Hafnarfjarðarbæjar hefur það sem af er ári komið til skerðingar í fimmtán tilvikum eða rúmlega 10%. Reykjavíkurborg hefur í 3. gr. reglna sinna um fjárhagsaðstoð ákvæði um heimild til skerðingar á grunnfjárhæð til handa þeim sem eru ekki í virkri atvinnuleit en hafa verið metnir vinnufærir. Samkvæmt upplýsingum frá velferðarsviði borgarinnar er áætlað, í samræmi við reynslu áranna 2013 og 2014 að skerðing komi til í 4% aðstoðarmánaða árið 2015. Borgin áætlar jafnframt að útgjöld vegna fjárhagsaðstoðar ( framfærslustyrks ) verði u.þ.b. 2,8 ma.kr. árið 2015 og að reiknaðir aðstoðarmánuðir verði 20.711. 4. Brottfall í hópi þeirra sem sækja um fjárhagsaðstoð. Sjá má af verkefninu í Hafnarfjarðarbæ að nokkurt brottfall verður í hópi þeirra sem sækja um fjárhagsaðstoð þegar kemur að gerð og eftirfylgni einstaklingsbundinna áætlana. Ástæður þessa brottfalls hafa ekki verið greindar en mögulega er hér um einhvers konar varnaðaráhrif að ræða. Að svo stöddu liggja ekki fyrir gögn um umfang brottfalls en vísbendingar eru um að það geti náð til fimmtungs umsækjenda. Slíkt umfang væri út af fyrir sig í samræmi við það sem greint hefur verið í atvinnuátaksverkefnum Vinnumálastofnunar. Telja verður því að brottfall úr hópnum geti haft merkjanleg kostnaðaráhrif, en aukið samstarf Vinnumálastofnunar og félagsþjónustu gefur einnig færi á að bregðast við tilvikum þar sem upp kemur grunur um misferli, bótasvik eða svarta atvinnustarfsemi. Samantekin niðurstaða. Að mati velferðarráðuneytis mun frumvarpið, verði það lögfest, hafa jákvæð áhrif á fjárhag sveitarfélaga. Útgjöld þeirra til fjárhagsaðstoðar munu lækka og betra jafnvægi verður í útgjöldunum samhliða innleiðingu á virkri velferðarstefnu. Á móti vegur að aukning verður í stjórnsýslu þeirra vegna fjölgunar starfsmanna. Velferðarráðuneytið áætlar að áhrif til lækkunar á útgjöldum sveitarfélaga til fjárhagsaðstoðar geti numið á bilinu 100 – 150 m.kr. á ári og er þá miðað við að aðstoðarmánuðum fækki um á bilinu 5 – 7% í kjölfar laganna. Inn í þessum fjárhæðum er þá búið að reikna með að fjölga þurfi störfum innan stjórnsýslu sveitarfélaga um 25 til að sinna greiningu, framkvæmd og eftirfylgni einstaklingsbundinna áætlana. Haft var samráð við Samband íslenskra sveitarfélaga við gerð kostnaðarumsagnar þessarar og gerir sambandið ekki athugasemd við niðurstöðu þess. Fylgiskjal II. Fjármála - og efnahagsráðuneyti, skrifstofa opinberra fjármála : Umsögn um frumvarp til laga breytingu á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40 / 1991, með síðari breytingum ( skilyrði fjárhagsaðstoðar ). Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40 / 1991, með síðari breytingum. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar varðandi félagsþjónustu sveitarfélaga en þær eru tvíþættar. Annars vegar er lagt til að félags - og húsnæðismálaráðherra gefi árlega út leiðbeinandi reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar sveitarfélaga þar sem m.a. verði kveðið á um viðmiðunarfjárhæðir fjárhagsaðstoðar sem sveitarfélög geta nýtt sér við að setja reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar. Með þessari breytingu er ætlunin að reyna að samræma fjárhæðir fjárhagsaðstoðar milli sveitarfélaga og stuðla að því að viðmiðunarfjárhæðir verði uppfærðar með reglubundnum hætti. Um er að ræða lögfestingu á svipuðu fyrirkomulagi og hefur verið við lýði allt frá því lögin voru sett þótt leiðbeinandi reglur og viðmiðunarfjárhæðir hafi ekki verið gefnar út og uppfærðar árlega. Hins vegar er lagt til sveitarfélög fái skýrari heimildir til að skilyrða ákvörðun um fjárhagsaðstoð við mat á vinnufærni og virka atvinnuleit þeirra sem eru taldir vinnufærir. Virk atvinnuleit samkvæmt frumvarpinu getur t.d. falið í sér frumkvæði að starfsleit, að vera tilbúinn að ráða sig í starf sem viðkomandi getur sinnt og að sækja um og taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Líkt og kemur fram í greinargerð frumvarpsins er breytingunni ætlað að stuðla að því að atvinnuleitendur séu í virkri atvinnuleit þann tíma sem þeir fá greidda fjárhagsaðstoð frá sveitarfélögum. Uppfylli einstaklingur ekki skilyrði um virka atvinnuleit verður sveitarfélögum heimilt að skerða fjárhagsaðstoð hans og kann það að draga úr þeim útgjöldum hjá sveitarfélögum. Skerðing á fjárhagsaðstoð mun aðeins koma til að undangengnu mati á vinnufærni og miðað er við að Vinnumálastofnun annist það mat en áður hafi starfsmenn félagsþjónustunnar unnið ákveðna greiningar - og undirbúningsvinnu með umsækjendum. Í þessu sambandi má benda á að í fjárlögum fyrir árið 2013 voru veittar tímabundið 255 m.kr. auknar fjárheimildir til að efla þjónustu Vinnumálastofnunar og Starfs ehf. við atvinnuleitendur með greiningarviðtölum og ráðgjöf. Þeirri þjónustu var ætlað að ná jafnt til þeirra sem áttu rétt til bóta hjá Atvinnuleysistryggingasjóði og þeirra sem voru án bótaréttar og fengu greidda framfærslu frá sveitarfélögum. Vinnumálastofnun fékk sambærilega tímabundna fjárheimild í fjárlögum fyrir árið 2014 til að sinna verkefnum sem þessum og þá er í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2015 einnig gert ráð fyrir slíkum framlögum ef frá eru talin áhrif af minnkandi atvinnuleysi. Telja má að lögfesting frumvarpsins geti haft nokkur áhrif á fjárhag sveitarfélaga og er fjallað um það í annarri umsögn en fjármála - og efnahagsráðuneytið hefur ekki lagt mat á þær áætlanir. Hér er eingöngu fjallað um áhrif lagasetningarinnar á fjárhag ríkissjóðs. Verði frumvarpið lögfest í núverandi mynd er því ekki gert ráð fyrir að það hafi áhrif á útgjöld ríkissjóðs. |
Þáttur af Ragnars sonum er ein af fornaldarsögum Norðurlanda. |
Ekki er víst hvort tónleikar verði haldnir á næsta ári í London til heiðurs Michael Jackson þar sem rekstur fyrirtækisins sem átti að sjá um skipulagningu þeirra, World Awards Media, gengur illa. Þó er ekki loku fyrir það skotið að bróðir Jackson, Jermaine, setji tónleikana upp sjálfur. Tónleikarnir áttu að fara fram í júní n.k.á Wembley leikvanginum. Þá segja skipuleggjendur að margir þeir listamenn sem koma áttu fram á tónleikunum, geti ekki gert það vegna annarra skuldbindinga. |
Bayer 3 - 1 Eintracht Frankfurt 1 - 0 Leon Bailey ( ' 70 ) 2 - 0 Lucas Alario ( ' 80 ) 3 - 0 Kerem Demirbay ( ' 90 ) 3 - 1 Andre Silva ( ' 90 ) Evrópubaráttan í þýsku úrvalsdeildinni er orðin mjög hörð eftir úrslit dagsins. Dortmund vann fyrr í dag og nú í kvöld áttust við Bayer Leverkusen og Eintracht Frankfurt. Markalaust var alveg fram að 70. mínútu en þá fór mörkunum að rigna inn. Leon Bailey og Lucas Alario komu heimamönnum í tveggja marka forystu áður en Kerem Demirbay setti þriðja markið á 90. mínútu. Andre Silva, sem hefur verið sjóðandi heitur á þessu tímabili, minnkaði muninn fyrir Frankfurt í uppbótartímanum en nær komust gestirnir ekki. Frankfurt er í fjórða sæti deildarinnar með 56 stig þegar þrír leikir eru eftir. Dortmund situr í því fimmta með einu stigi minna. Bayer Leverkusen er í sjötta sætinu, sex stigum á eftir Frankfurt. |
KÓRDRENGURINN Chris Martin hefur bannað sína eigin tónlist á heimili sínu, þannig að Gwyneth Paltrow, eignkona hans, og Apple, dóttir þeirra, stelast til að hlusta á tónlist Coldplay í bílnum. " Tónlistin er eiginlega bönnuð á heimilinu. En þegar hann er ekki nálægur, spilum við hana í bílnum, " segir Paltrow. Martin hefur auk þess viðurkennt að hann hafi fengið innblástur úr klámmyndum þegar hann samdi lögin á nýjustu plötu sveitarinnar. Martin segir að hann hafi verið orðinn uppiskroppa með hugmyndir að lögum á nýjustu plötu Coldplay, X & Y, þegar hann fékk innblástur frá klámmyndum, að því er fram kemur í breska blaðinu The Sun. " Núna skiljið þið ef til vill lögin " Hardest Part " og " Kingdom Come " með öðrum hætti en áður, " segir Martin. |
Nám : Stúdent frá Verzlunarskóla Íslands 1982 ; próf frá Tölvuháskóla Verzlunarskóla Íslands 1989 ; tölvunarfræði frá University of Texas at Austin 1993 ; The Executive Program, Darden Business School, University of Virginia 2005 ; stjórnendamarkþjálfi, Háskólinn í Reykjavík, 2018. Störf : Haukar hf., forritari og síðar framkvæmdastjóri, 1982 - 1988 ; Hjarni hf., hugbúnaðarsérfræðingur, 1989 - 1991 ; Tölvumiðstöð sparisjóðanna, hugbúnaðarsérfræðingur, 1994 - 1999 ; Teris ( áður Tölvumiðstöð sparisjóðanna ), forstjóri, 1999 - 2011 ; Sjóvá-Almennar tryggingar hf., framkvæmdastjóri rekstrarsviðs, 2011 - 2017 ; Borgun hf., forstjóri, frá 2018. Áhugamál : Skotveiði, skíði, badminton, útivera í íslenskri náttúru. Fjölskylduhagir : Giftur Margréti Völu Kristjánsdóttur, dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Þrír synir, tvær tengdadætur og sex mánaða sonardóttir sem ég sé ekki sólina fyrir. |
Réttur til fyrirvara Vegna fréttar í Morgunblaðinu í gær vill Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, árétta að hann telji neytendur hafa rétt til að gera fyrirvara um lögmæti gjaldeyrislána, þegar láni í erlendri mynt er breytt yfir í lán í íslenskum krónum. Nánar er fjallað um málið á www.talsmadur.is. |
Í tilkynningu frá Byr sparisjóði kemur fram að fjárhagsleg endurskipulagning sjóðsins sé vel á veg komin og hafa kröfuhafar, innlendir og erlendir, skrifað undir bindandi samkomulag þar um. ,, Samningar eru nú á lokastigi og er einungis beðið eftir umsögn opinberra aðila, " segir í kynningu. Fyrir liggur að fáist eiginfjárframlag það sem sótt hefur verið um frá ríkinu afgreitt og með samkomulagi við kröfuhafa fer eiginfjárhlutfall Byrs vel umfram lögbundið lágmark og verður sjóðurinn þá vel í stakk búinn til að takast á við áframhaldandi rekstur í erfiðu umhverfi. „ Við höfum lagt okkur fram um að ná fram niðurstöðu sem kröfuhafar geta fallist á. Það samkomulag sem nú liggur fyrir felur í sér björgun verðmæta en markmiðið er að tryggja rekstur Byrs til framtíðar og ljúka fjármögnun sjóðsins til næstu ára. Í öllu þessu ferli höfum við átt góð samskipti við FME og fjármálaráðuneytið og upplýst þá um gang mála, “ segir Jón Finnbogason sparisjóðsstjóri Byrs. Sparisjóðirnir þjóna einkum einstaklingum og smærri fyrirtækjum. Þeir mynda eina órofa heild ; keðju minni sjóða úti á landi og svo Byr sparisjóð á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri sem veitir nú þegar öðrum sparisjóðum þjónustu við m.a. innlenda og erlenda greiðslumiðlun. Sparisjóðirnir hafa einnig ritað undir viljayfirlýsingu til aukins samstarfs. |
Birna Svava Ingólfsdóttir Vestmann fæddist 13. janúar 1938 á Grímsstöðum á Fjöllum. Hún lést á Dvalarheimilinu Hlíð 27. ágúst 2020. Foreldrar hennar voru Ingólfur Kristjánsson bóndi, f. í Víðikeri í Bárðardal 8.9. 1889, d. á Akureyri 9.6. 1954, og Katrín María Magnúsdóttir frá Böðvarsdal í Vopnafirði, f. 13.10. 1895, d. í Reykjavík 17.3. 1978. Systkinin voru 15. Birna giftist hinn 14.9. 1961 Aðalsteini Vestmann frá Akureyri, f. 12. ágúst 1932, d. 2020. Foreldrar hans voru Þorvaldur Vestmann Jónsson bankagjaldkeri á Akureyri, f. 1896 í Kanada, d. 1940, og Margrét Aðalsteinsdóttir húsfreyja, f. 1898 á Skeiði í Svarfaðardal, d. 1982. Börn Birnu og Aðalsteins eru : 1 ) Inga Katrín Vestmann, f. 1958, m. Kristján Þ. Kristinsson, börn þeirra : Vera Kristín, m. Kári Jóhannesson, börn þeirra eru Kristján Logi, Róbert Bragi og Karen Emilía, Bjarki Þór Albertsson Vestmann og Kristinn Þráinn, m. Þórey Kara. 2 ) Þorvaldur Vestmann, f. 1963, m. Þórdís Þórólfsdóttir, börn hennar eru Eva Dís Guðmundsdóttir, barn Daníel Snær, og Bjarki Þór Guðmundsson, barn Aríana Ísis. 3 ) Margrét Vestmann, f. 1967, m. Aðalbjörn R. Svanlaugsson, börn þeirra : Aðalsteinn Vestmann, Anita Vestmann, m. Viðar Einarsson, barn þeirra Amanda Vestmann, Almar Vestmann og Axel Vestmann. 4 ) Vera Vestmann, f. 1976, d. 1978. 5 ) Valur Vestmann, f. 1978, m. Vera W. Vestmann, börn þeirra : Jóhannes W. Vestmann og Símon W. Vestmann. Útför Birnu fer fram í kyrrþey í Akureyrarkirkju hinn 7. september 2020 klukkan 13.30. Hægt verður að fylgjast með athöfninni á heimasíðu Akureyrarkirkju. Nú er mamma farin á eftir ástvini sínum og lífsförunaut í blíðu og stríðu, hún gaf honum nokkrar vikur til að gera allt klárt og svo dreif hún sig líka. Hún var fædd á Grímsstöðum á Fjöllum og ólst upp á Víðirhóli í sömu sveit, þar sem víðernin ráða ríkjum í bláfjallasal og drottningin sjálf Herðubreið blasir við. Ég var svo heppinn að fara með mömmu á þessar æskustöðvar til að litast um og rifja upp gamla daga, mér fannst staðurinn óskaplega afskekktur og úr leið og nefndi það : Þú ætlar ekki að segja mér að það hafi verið gott að búa hérna lengst inni á öræfum? " Gott? Það var yndislegt! " og gamla dreif sig út úr bílnum og skeiðaði til fjalls þannig að ferðafélagarnir áttu fullt í fangi með að fylgja henni eftir : " Þarna var geitakofinn og þarna fjárhúsin. " Hún hafði yngst um 20 ár við það að komast til fjallanna sinna þar sem hún ólst upp í hópi 15 systkina. Mamma var lágvaxin fíngerð kona sem hafði yndi af því að eiga falleg föt og vera vel til fara, " alger óþarfi að vera ekki vel til fara og snyrtilegur " sagði hún og pakkaði niður straujárninu þegar þau hjónin fóru til Spánar um jól. Mamma var nefnilega þannig að hún vílaði ekkert fyrir sér. Ef eitthvað virtist ætla að verða snúið þá fór hún á námskeið : Þegar hún eignaðist nýja forláta saumavél ; saumanámskeið, það kom örbylgjuofn á heimilið, nýmóðins apparat og mikið þing ; hún á námskeið, þegar þau hjón lögðu leið sína til Spánar ; spænskunámskeið. Hún hafði líka áhuga á andlegum málefnum, var reikimeistari og lærði svæðanudd auk þess að vera í Sálarrannsóknafélaginu þar sem hún starfaði mikið við umsýslu og var lengi í bænahring, bað fyrir þeim sem þurftu á góðum straumum að halda. Hún var líka gefin fyrir hreyfingu og stundaði sund daglega meðan hún gat og dreif pabba í gönguferðir sem þau stunduðu meðan heilsan leyfði og höfðu bæði ánægju af. Kvikmyndir voru líka áhugamál og þar var mamma á heimavelli, þekkti leikstjóra og leikara og gat rætt málin af ótrúlegri innsýn og kunnáttu sem var magnað að upplifa, ásamt því að heyra meitlaðar skoðanir sem ég get ekki haft eftir, en man t.d. ennþá hvað henni fannst um Woody Allen. Ljóð voru mömmu hugleikin og góð ferskeytla hressti alltaf, ég tala nú ekki um ef hún var ekki á neinni tæpitungu og efnistök hressileg þar sem ekkert er dregið undan. Annars var mágur hennar Matthías Johannessen hennar maður í skáldskap enda sá maður svo vel giftur að þaðan gat bara gott eitt komið. Ég man samt best eftir hvað mamma var margfróð og með góðan húmor sem bar kannski ekki mikið á, en hún skaut gjarnan fram setningum og athugasemdum sem settu hlutina í annað og fyndnara ljós. Ég veit að ef það er þannig að fólk hittist aftur í sumarlandinu þá er mamma þar og nú hafa orðið fagnaðarfundir þegar hún hitti alla sem fóru á undan, börnin sín, eiginmann og líka alla hina, systkinin öll, foreldra og þar frameftir götunum. Á Hólsfjöllum : Herðubreið birtist úr þokunni eins og þokað sé frá lokunni lindin mín ljúf og blíð á Víðirhóli. ( Matthías Johannessen ) Elsku mamma, takk fyrir allt og allt. Kveðja, Þorvaldur ( Brói ). Minning um móður Í hjarta mínu er lítið ljós, sem logar svo skært og rótt. Í gegnum torleiði tíma og rúms Það tindrar þar hverja nótt. Það ljósið kveiktir þú, móðir mín, af mildi, sem hljóðlát var. Það hefur lifað í öll þessi ár, þótt annað slokknaði þar. Og þó þú sért horfin héðan burt og hönd þín sé dauðakyrr, í ljósi þessu er líf þitt geymt, – það logar þar eins og fyrr. Í skini þess sífellt sé ég þig þá sömu og þú forðum varst, er eins og ljósið hvern lífsins kross með ljúfu geði þú barst. Af fátækt þinni þú gafst það glöð, þess geislar vermdu mig strax og fátækt minni það litla ljós mun lýsa til hinsta dags. ( Jóhannes úr Kötlum ) Elsku mamma, takk fyrir allt. Þín börn, Inga, Magga og Valur. Elsku amma Birna. Nú er öllum þínum verkefnum lokið, með glæsibrag og rúmlega það ; nú hefurðu tekið saman pjönkur þínar og ert farin yfir til afa og allra hinna sem hafa beðið eftir þér – og ég efast ekki um að það hafi orðið fagnaðarfundir. Þó svo að það hafi ekki liðið langur tími milli ykkar hjóna hefur það glatt afa að fá þig loksins til sín. Samband ykkar tveggja var alltaf fallegt og sterkt, jafnvel þegar heilsunni fór að hraka og þú fórst að missa lit – þá voruð þið alltaf samstiga og milli ykkar órjúfanleg tengsl. Ég sakna þess að koma með Amöndu í heimsókn til langömmu sinnar en er um leið gífurlega þakklát fyrir að þú hafir fengið að kynnast henni. Þakklát fyrir að þú hafir alltaf þekkt þitt nánasta fólk. Brosi með sjálfri mér þegar ég hugsa til ykkar afa og ykkar venja, eins og þess að hafa alltaf öll ljós slökkt nema þau nauðsynlegustu og þurfa að sannfæra Vidda um að þið væruð víst heima – það væri bara ekki kveikt frammi að óþörfu! Þú varst hörkudugleg, ákveðin en líka hlý og falleg sál. Takk fyrir allt, amma mín. Sjáumst í sumarlandinu. Þín Aníta. Kveðja Þú kenndir mér að hlusta, í kærleika og trú, kvistina mína græddir, þeir grænir standa nú. Þú alla vildir styðja sem allslags báru sár, þín eðlislæga hlýja, gat þerrað margra tár. Og nú – þegar þú ert komin upp á Astralsviðið, og yfirlítur tímabilið sem nú er liðið. Þá koma til þín gullkornin í glæstum ljóma sínum, og geisla frá sér kærleika á nýjum vegi þínum. Kveðja, Ingibjörg frá Gnúpafelli. |
Að minnsta kosti tólf eru látnir eftir að sprengja sprakk miðsvæðis í Bangkok, höfuðborg Taílands, í dag. Þá slasaðist fjöldi fólks samkvæmt frétt AFP fréttastofunnar. Þar kemur fram að líkamshlutar hafi verið á víð og dreif um götuna fyrir utan Erawan hofið þar sem sprengjan sprakk. Þúsundir heimsækja hofið á degi hverjum, en þar er meðal annars að finna styttuna Phra Phrom af gyðjunni Brahma. " Ég get staðfest að þetta var sprengja, en ég get ekki sagt til um það hvers kyns hún var ennþá, við erum að skoða það, " sagði Prawut Thavornsiri, talsmaður lögreglunnar í Taílandi. Uppfært 13:52 : Nærliggjandi svæði hafa verið rýmd en fregnir herma að fleiri sprengjur séu á staðnum. Sprengingin varð sökum mótorhjólasprengju og hefur önnur sprengja fundist á svæðinu samkvæmt taílenskum fjölmiðlum, en unnið er að því að aftengja hana. Ekki er vitað hver eða hverjir standa að baki árásinni. VIDEO - At least 12 dead, dozens injured in #Bangkok blast : http://t.co/9efuodWvat https://t.co/RbrVXN2oe0 - Ruptly ( @Ruptly ) August 17, 2015 BREAKING : At least 12 dead, multiple injured in Bangkok bomb blast #bangkok http://t.co/SPDBOjFaWo pic.twitter.com / CHpnGvJv 3B - Fox News ( @FoxNews ) August 17, 2015 #BANGKOK BLAST : Police : At least 12 people killed, 20 people wounded. http://t.co/4wRf8XNDdq pic.twitter.com / d 5 oQnuiMM 5 - The Straits Times ( @STcom ) August 17, 2015 |
Hollywood-leikarinn Tom Cruise sem dvalið hefur á Íslandi undanfarnar vikur fór niður í Þríhnúkagíg í Bláfjöllum um síðustu helgi, samkvæmt heimildum DV. Samkvæmt sömu heimildum hefur Cruise planað að fara aðra ferð niður í gíginn um helgina en í það skiptið ætlar hann að láta sig síga niður í reipi. Einstakur gíghellir Þríhnúkagígur er staðsettur í norðaustasta Þríhnúknum í Bláfjöllum, skammt frá Reykjavík, og er gríðarstór gíghellir fyrir neðan gígopið. Þríhnúkahellir er einstakt náttúrufyrirbæri og gefst fólki kostur á að síga niður í hellinn með sérstakri lyftu sem komið hefur verið þar fyrir. National Geographic hefur meðal annars gert heimildarmyndaþátt um gíginn. Fyrst núna í sumar er boðið upp á ferðir ofan í gíginn og þurfa þeir sem þangað vilja fara að láta sig hafa það að síga 120 metra niður í eldfjallið. Til að komast að fjallinu hefur Cruise þó þurft að ganga um fimm kílómetra leið – nema hann hafi tekið þyrluna sem hann hefur ferðast um á með sér. Það liggur þó ekki fyrir. Fyrirtækið 3H Travel sér um ferðirnar niður í gíghellinn. Ekki hefur fengist staðfest að Cruise hafi verið gestur fyrirtækisins um síðustu helgi. „ Við höfum ekki tjáð okkur um hverjir hafa verið að koma í heimsókn til okkar, “ segir Vignir Guðjónsson, einn af mönnunum á bak við 3H Travel. „ Við bjóðum alla sem hafa áhuga á að koma í heimsókn til okkar velkomna en við virðum líka þeirra „ privacy “ ; að vera ekkert að tala um þá. “ |
Eyjan varð þá hluti af nýlendum Bretlands á Kulborðseyjum. |
Umferðartafir eru á Reykjanesbraut vegna áreksturs, sem varð fyrir stundu við Hafnaveg, veginn sem liggur upp að aðalhliðinu upp á Keflavíkurflugvöll að svæði Varnarliðsins. Ekki er vitað um slys á fólki eða tjón á þessari stundu. Að sögn lögreglunnar í Keflavík er ekki ljóst hversu lengi umferðartafirnar vara. |
Staðfest var niðurstaða héraðsdómara um að hafna kröfu X um að fellt yrði úr gildi samþykki dóms - og kirkjumálaráðuneytisins til þess að hún yrði vistuð gegn vilja sínum á sjúkrahúsi. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir P-kk-nf K-x-x H-kk-nf, G-kk-nf C-kk-nf og M-kk-nf S-kk-nf. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 28. september 1999, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 27. september 1999, þar sem staðfest var ákvörðun dóms - og kirkjumálaráðuneytisins 16. sama mánaðar um að sóknaraðili skuli vistast á sjúkrahúsi. Kæruheimild er í 4. mgr. 31. gr., sbr. 1. mgr. 16. gr. lögræðislaga nr. 71 / 1997. Sóknaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi. Auk þess krefst hún kærumálskostnaðar. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði staðfestur. Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur. Samkvæmt 4. mgr. 31. gr., sbr. 17. gr. lögræðislaga greiðist úr ríkissjóði þóknun skipaðs talsmanns sóknaraðila, H-kvk-ef H-kvk-ef héraðsdómslögmanns, vegna meðferðar málsins í héraði og fyrir Hæstarétti, en þóknunin er ákveðin í einu lagi eins og í dómsorði greinir. Hinn kærði úrskurður er staðfestur. Þóknun skipaðs talsmanns sóknaraðila, H-kvk-ef H-kvk-ef héraðsdómslögmanns, vegna meðferðar málsins í héraði og fyrir Hæstarétti, samtals 75.000 krónur, greiðist úr ríkissjóði. |
Það voru skiptar skoðanir á frammistöðu tónlistarmannsinsNeil Youngsem kom fram í Laugardalshöll í gær. Flestir voru þó á því að gamli gítarleikarinn hafi staðið sig með prýði en að tónleikarnir sjálfir hafi verið alltof stuttir. Það þarf ekki nema að bera saman svonefndan lagalista tónlistarmannsinsá tónleikum hans í Chicago við lagalistann í Laugardalshöllinnien tónleikarnir í Chicago virðast hafa verið næstum því helmingi lengri. Þar má einnig sjá frægari lög kappans á borð við Southern Man, Old Man og Harvest Moon sem fengu ekki að hljóma í höllinni. Aftur á móti fengu áhorfendurnir í Reykjavík að heyra frumflutning á nýju lagi Neil Young sem ber nafnið Who's Gonna Stand Up And Save The Earth en hann talaði mikið um umhverfisvernd á milli laga og hrósaði Íslandi fyrir að vera einn óspilltasti staður á jörðinni. |
Rhein-Neckar Löwen sem Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari stýrir varð fyrir talsverðu höggi í baráttunni um Evrópusæti í þýska handboltanum í gærkvöldi. Löwen tapaði fyrir Gummersbach á heimavelli 32 : 33 og náði ekki að fylgja eftir góðum sigri á Füsche Berlín á dögunum. Róbert Gunnarsson var ekki á meðal markaskorara hjá Löwen sem var fjórum mörkum yfir í upphafi síðari hálfleiks en það dugði ekki til. Ivan Cupic var markahæstur með 9 mörk. Löwen er í 5. sæti deildarinnar með 44 stig og á þrjá leiki eftir. Hamburg er með 45 stig og Berlínarliðið með 46 stig en bæði eiga þau leik til góða. Kiel er þegar orðið meistari eins og fram hefur komið. Þýskaland fær fjögur sæti í Meistaradeild Evrópu. kris@mbl.is |
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greindi frá því nú rétt í þessu, á Facebooksíðu sinni, að reiðhjólamaður nokkur hafi verið gripinn en hann var á of mikilli ferð. Skríbent lögreglunnar virðist koma þetta á óvart því hann segir að hraðamælingar í íbúahverfum flokkist undir dagleg verkefni lögreglu. „ Á dögunum kom ný tegund á öngulinn, ef svo mætti segja, en þar reyndist kappsamur reiðhjólamaður hafa knúið reiðhjól sitt af svo miklum móð að hann lenti í hraðamyndavélinni góðu. Þetta er því gott tækifæri til að minna reiðhjólamenn á að hámarkshraði á akbrautum gildir auðvitað einnig fyrir reiðhjól. “ Ekki kemur fram í frétt lögreglunnar hver maðurinn var, né hvar hann var gripinn, né á hversu miklum hraða reiðhjólamaðurinn var á, né heldur : hvað svo? |
SKÁTAFÉLAGIÐ Kópar í Kópavogi verður 60 ára á morgun, miðvikudaginn 22. febrúar. Af því tilefni verður opið hús í skátaheimili þeirra á Digranesvegi 79. Að skátasið verður þar margt um að vera enda verða flestir starfandi skátar í Kópum á staðnum. Kópar hafa haldið úti skátastarfi í Kópavogi í 60 ár. Þeir fluttu fyrir ári í nýtt húsnæði í Kópavogsdalnum og una sér þar vel í leik og starfi. Skátafélagið er elsta starfandi félag í Kópavogi. Þessi 60 ár hefur skátastarfið dafnað og hafa Kópar verið sýnilegir jafnt í starfi sem og í þátttöku á skátamótum hérlendis og erlendis, segir í fréttatilkynningu. Í dag eru Kópar eitt fjölmennasta skátafélag landsins og starfa 300 skátar hjá félaginu á aldrinum 9 til 18 ára auk fjölda heldri skáta sem styðja við starfið. Kópavogsbúar, skátar og aðrir velunnarar félagsins eru velkomnir í heimsókn til Kópa á morgun, 22. febrúar, milli kl. 17 og 19. |
Stjórnarmenn og framkvæmdastjórar í hlutafélögum og einkahlutafélögum mega ekki hafa fengið dóm á síðustu þremur árum. Ríkari kröfur eru gerðar til þeirra sem gegna ábyrgðarstörfum fyrir fjármálafyrirtæki, lífeyrissjóði, tryggingafélög og kauphallir. Þar þurfa 10 ár að líða frá dómi. Þetta segir Magnús Kristinn Ásgeirsson, lögfræðingur Kauphallarinnar. Rætt var við hann í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun. Þar var rætt við hann um þær skorður sem þeim sem hlotið hafa fangelsisdóm fyrir refsivert athæfi eru settar í atvinnuþátttöku og viðskiptum að lokinni afplánun. Magnús segir að í lögum um hlutafélög og einkahlutafélög séu gerðar kröfur til manna sem gegni framkvæmdastjórastöðu eða sitji í stjórn. „ Þar eru gerðar kröfur til manna sem gegni slíkum stöðum að þeir hafi ekki á síðustu þremur árum hlotið dóm í tengslum við atvinnurekstur fyrir tiltekinn refsiverðan verknað. “ Þar séu sérstaklega talin til efnahagsbrot. Frekari kröfur séu settar í öðrum lögum, til dæmis hvað varðar þátttöku í fjármálafyrirtækjum, tryggingafélögum, lífeyrissjóðum og kauphöllum meðal annars. Ríkari kröfur séu gerðar þarna vegna efnahagslegs mikilvægis slíkra félaga og mikilvægis þeirra í samfélaginu. „ Hvað varðar fjármálafyrirtæki þá má meðal annars benda á að stjórnarmenn og framkvæmdastjórar í fjármálafyrirtækjum mega þannig ekki hafa fengið dóm í tengslum við atvinnurekstur á síðustu tíu árum fyrir efnahagsbrot eða tengd brot eins og hvað varðar hlutafélög. Því til viðbótar er sett fram matskennd krafa hvað varðar fjármálafyrirtæki um að stjórnarmenn og framkvæmdastjórar þeirra hafi gott orðspor. “ Við mat á því sé væntanlega litið til þess hvort háttsemi einstaklings sem sækist eftir stjórnarsetu eða framkvæmdastjórastöðu í fjármálafyrirtæki sé til þess fallið að rýra trúverðulgeika fyrirtækisins eða jafnvell fjármálamarkaðarins í heild. „ Þetta mat er í höndum Fjármálaeftirlitsins og ef það kemur til breytinga á stjórn eða framkvæmdastjórn fjármálafyrirtækja þá fer fram gríðarlega ítarlegt hæfismat af hálfu Fjármálaeftirlitsins sem tekur þá væntanlega mið af þessum sjónarmiðum. “ Magnús var í Morgunútvarpinu spurður hvort kröfur eða takmarkanir væru á ráðgjafastörfum, en dæmi eru um að menn hafi gegnt slíkum störfum að lokinni afplánun dóma. „ Engar takmarkanir eru settar varðandi almenn störf fyrir fyrirtæki. Þessum einstaklingum er ætlað að koma aftur í samfélagið og er ekki talin ástæða til að takmarka aðgang þeirra að störfum fyrir hlutafélög eða jafnvel fjármálafyrirtæki. En þarna eru þessi takmörk sett að þessir aðilar geta þá ekki gegnt þessum framkvæmdastjórastöðum og æðstu stöðum fyrirtækis. “ |
Forstjóri kísilverksmiðju PCC á Bakka segir lágt heimsmarkaðsverð á kísilmálmi og óstöðugan rekstur helstu ástæður þess að félagið leitar nú allt að 5 milljarða króna fjármögnun til að styrkja reksturinn. Kísilverksmiðja PCC var gangsett vorið 2018. Vandamálin hafa helst snúið að rykhreinsibúnaði frá ofnum hennar. Hluthafar telja nauðsynlegt að fá 5 milljarða króna innspýtingu til að tryggja rekstrargrundvöll hennar. Verksmiðjan getur framleitt um 32 þúsund tonn af kísilmálmi á ári eða um 90 tonn á dag. Undanfarnar vikur hefur framleiðslan sveiflast mikið og farið niður í 35 tonn á dag. Deilt er um hvort framleiðandi ofnanna eða PCC beri ábyrgð á kostnaði á lagfæringum á þeim. Því máli er enn ólokið og ekki ljóst hvort það verði leyst fyrir dómstólum eða með samkomulagi. Fyrr í þessum mánuði var greint frá því að hluthafar í verksmiðjunni, þýska fyrirtækið PCC auk íslenskra lífeyrissjóði, leiti að allt að 5 milljarða fjármögnun. Fundað var með hluthöfum í vikunni og þeir upplýstir um stöðu mála. Rúnar Sigurpálsson, forstjóri PCC, vildi ekki veita fréttastofu viðtal en sagði í samtali að ástæða þess að leitað væri til fjárfesta væri fyrst og fremst slæm staða á erlendum mörkuðum. Íslenskir lífeyrissjóðir og Íslandsbanki eiga 13,5% hlut í kísilveri PCC í gegnum samlagshlutafélagið Bakkastakk. Samtals jafngildir fjárfestingin í kísilverinu um 10 milljörðum króna. Ómar Örn Tryggvason, einn forsvarsmanna Bakkastakks, segir að ekki hafi verið ákveðið hvort lífeyrissjóðirnir komi að fjármögnuninni. Það verði ákveðið á næstu viku. En það eru ekki bara vandræði í fjármögnun. Í tvígang hefur starfsmaður orðið fyrir byssuskoti við störf sín, síðast í ágúst. Byssa er notuð til að losa þrýsting af bræðsluofnum. Samkvæmt heimildum fréttastofu fékk starfsmaðurinn byssukúlu í höndina en slasaðist ekki lífshættulega. Rúnar staðfestir að starfsmaður hafi orðið fyrir skoti þar sem hann hafi ekki virt öryggisreglur. Hann sé nú kominn aftur til starfa. |
Nýbakaður Óskarsverðlaunahafi, Emma Stone, var kvíðafullt barn og unglingur sem bjóst alltaf við hinu versta. „ Ég þjáðist af stöðugum kvíða, “ segir hún. Á verstu tímabilunum gat hún ekki hugsað sér að heimsækja vini sína og henni fannst erfitt að mæta í skólann. Sjö ára gömul var hún sannfærð um að heimurinn væri að líða undir lok. Foreldrar hennar höfðu áhyggjur af líðan hennar og sendu hana til sálfræðings. Stone segir mikla hjálp hafa verið í því. Hún skrifaði sögu, sem hún á ennþá, sem heitir Ég er stærri en kvíði minn. Hún ímyndaði sér að lítið grænt skrímsli sæti á öxl hennar og segði henni alls konar hluti sem eru ekki réttir. „ Þegar ég hlusta á skrímslið stækkar það. Ef ég hlusta mikið á það þá bugar það mig. En ef ég held áfram að gera það sem ég er að gera, leyfi skrímslinu að tala við mig en veiti því ekki mikla athygli, þá skreppur það saman og hverfur, “ er haft eftir leikkonunni. Stone fór að leika á unga aldri og segir að það hafi einnig hjálpað sér mikið við að vinna bug á kvíðanum. Í nýrri mynd fer Stone með hlutverk tennisstjörnunnar Billie Jean King í Battle of the Sexes. Myndin fjallar um eitt frægasta tenniseinvígi sögunnar, milli Billie Jean og Bobby Riggs sem Steve Carell leikur. Sjónvarp |
Eistneskur lögreglumaður var í dag dæmdur í fimmtán ára fangelsi í Rússlandi fyrir njósnir. Maðurinn er sagði hafa ýtt undir spennu á milli Rússlands og Eistlands. Dómstóll í Pskov héraði sem er skammt frá landamærum Eistland dæmdi manninn í fangelsi fyrir njósnir, vera búinn vopnum og fyrir að fara yfir landamærin án heimildar. Federica Mogherini, Utanríkismálastjóri Evrópusambandsins hefur hvatt rússnensk yfirvöld til þess að láta manninn lausan. Hún segir dóminn yfir honum ekki í samræmi við alþjóðalög. |
Af leikara Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Hinn mikli gleðigjafi Leslie Nielsen er allur. Nielsen var kanadískur leikari, þekktastur fyrir óborganlegan leik sinn í kjánagrínmyndum á borð við hina sígildu Airplane! og Naked Gun ( titill hinnar síðarnefndu fékk hina eftirminnilegu þýðingu Beint á ská á sínum tíma ). Nielsen var einn þeirra gamanleikara sem þurfa varla að gera nokkurn skapaðan hlut til að fá áhorfandanna til að hlæja sig máttlausan en í þann flokk fellur m.a. breski gamanleikarinn John Cleese. Oftar en ekki var svipurinn á Nielsen þannig að engu líkara var en hann væri gjörsamlega búinn að gleyma textanum eða á leiðinni í pottinn hjá mannætuættbálki. Þá brást hann við bráðfyndnum uppákomum með grafalvarlegum svip, sem gerði uppákomurnar mun fyndnari en þær annars hefðu orðið. Nielsen lék oft á tíðum persónur sem leysa þurftu flókin mál og voru gjörsamlega ófærar um það en tókst það engu að síður, fyrir algjöra heppni eða tilviljun. Ein þessara persóna var leynilögreglumaðurinn Frank Drebin sem birtist upphaflega í gamanþáttunum Police Squad! árið 1982 en þættirnir voru háðsádeila á dramatíska lögregluþætti. Hlutverk Drebin var skrifað sérstaklega með Nielsen í huga en að þáttunum stóð þríeykið Zucker / Abrahams / Zucker sem á marga snilldargrínmyndina að baki, m.a. Kentucky Fried Movie, Top Secret! , Airplane! og Naked Gun. Þó svo Nielsen sé öðru fremur minnst fyrir grínleik átti hann langan feril að baki í margs konar kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Það var þó ekki fyrr en hann lék óútreiknanlegan lækni um borð í hrapandi flugvél í Airplane! árið 1980 að frægðarsól hans tók að rísa. Hinn þekkti kvikmyndarýnir Roger Ebert sagði m.a. um frammistöðu hans í þeirri mynd að hann væri " Olivier skopstælinganna ", vísaði þar í stórleikarann Laurence Olivier. Það er við hæfi að enda þessa minningargrein á vel á góðkunnum frasa úr Airplane! Nielsen er spurður : " Surely you can't be serious? " og hann svarar eftirminnilega : " I am serious. And don't call me Shirley. " Þessi brandari verður ekki þýddur á íslensku þannig að hann skili sér til fulls. |
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga hefur samþykkt framlög vegna nemenda sem þurfa að sækja tónlistarskóla utan síns sveitarfélags fyrir skólaárið 2018 - 2019. Framlagið byggist á samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga um eflingu tónlistarnáms og jöfnun á aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms. Framlag á hvern nemenda fyrir skólaárið 2018 - 2019 er 464.098 kr. og eru samþykktar umsóknir fyrir 14 nemendur. Heildarupphæð framlaga er því um 6,5 m.kr. sem greiðist í jöfnum greiðslum á 12 mánuðum. Við greiðslu framlagsins fyrir nóvember fer jafnframt fram greiðsla vegna framlaga fyrir september og október. Á Vestfjörðum er það aðeins Bolungavíkurkaupstaður sem fær framlag úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga 928.196 kr sem er vegna tveggja nemenda í söngnámi. |
Danilo Turk, forseti Slóveníu, tilnefndi í dag Zoran Jankovic, borgarstjóra í Lubljana, sem forsætisráðherra landsins. Jankovic hlaut flest atkvæði í atkvæðagreiðslu á þingi í síðasta mánuði, en ekki þó hreinan meirihluta. Búist er við því að þingið samþykki hann sem forsætisráðherra í næstu viku, en þá fær hann fimmtán daga til að mynda nýja ríkisstjórn, sem einnig þarf samþykki þingsins. Stjórnmálaskýrendur telja að erfitt kunni að reyna að mynda samsteypustjórn með traustan meirihluta á þingi. |
ÓÁNÆGJA er meðal iðnaðarmanna vegna auglýsingaherferðar Húsasmiðjunnar sem ber heitið " Ekkert mál ". Eyjólfur Bjarnason, hjá Samtökum iðnaðarins ( SI ), segir iðnaðarmenn óhressa með það að Húsasmiðjan skuli auglýsa það sem ekkert mál fyrir venjulegt fólk að vinna verk sem iðnaðarmenn hafa sérmenntað sig í bæði bóklega og verklega. Að sögn Eyjólfs þykir iðnaðarmönnum að sér vegið, en margir þeirra hafa sett sig í samband við SI og kvartað undan auglýsingunum og telja að verið sé að brjóta gegn iðnaðarlögum. Árni Hauksson, forstjóri Húsasmiðjunnar, segir auglýsingaherferð Húsasmiðjunnar vera framkvæmdahvetjandi og miði að því að auka viðskipti bæði hjá Húsasmiðjunni og iðnaðarmönnum þegar haft var samband við hann fyrir helgi. Hann bendir á að Húsasmiðjan hafi þó ávallt mælt með því að fólk leiti til fagmanna í öllu því kynningarefni sem fyrirtækið hafi sent frá sér. Hann segir verktaka og fagmenn vera mjög stóran viðskiptahóp hjá fyrirtækinu sem skipti Húsasmiðjuna mjög miklu máli, og reynt sé að vísa eins mikið á þá og mögulegt er. Sendu Húsasmiðjunni bréf Finnbjörn A. Hermannsson, formaður Trésmiðafélags Reykjavíkur, segir iðnaðarmenn vera ósátta við það viðhorf sem kemur fram í auglýsingum Húsasmiðjunnar gagnvart störfum iðnaðarmanna. " Það er verið að etja fólki alveg upp í það að fara í flókin iðnaðarmannastörf og segja að það sé ekkert mál, " segir Finnbjörn og bætir því við að iðnaðarmenn sjái þrennt að í þessu. Í fyrsta lagi sé verið að plata fólk til þess að kaupa dýr efni og vinna verk sem það ræður ekki við. Í öðru lagi sé fólk að framkvæma hluti sem séu á ábyrgð annaðhvort meistara eða byggingarstjóra. Í þriðja lagi sitji faglærðir iðnaðarmenn uppi með skömmina ef ófaglærðir einstaklingar vinni verk illa. " Þetta er lýti á okkar starfsheiðri og það er þetta viðhorf sem við erum mjög ósáttir við sem Húsasmiðjan er að reyna koma inn, " segir Finnbjörn. Hann segir mikinn fjölda félagsmanna hafa samband við sig og krefjast aðgerða gegn auglýsingaherferð Húsamiðjunnar. Haft var samband við markaðsdeild Húsasmiðjunnar vegna málsins og að sögn Finnbjörns var bætt inn í lok auglýsinganna að fólk ætti ekki að hika við að leita til fagmanna ef um flóknari verk væri að ræða. Finnbjörn segir iðnaðarmenn ekki hafa þótt þau viðbrögð vera fullnægjandi. Fjórtán félög meistara og sveina hafa því skrifað undir bréf, sem sent hefur verið forstjóra Húsasmiðjunnar, þar sem iðnaðarmenn láta óánægjuraddir sínar í ljós. Finnbjörn segist eiga von á því að Húsasmiðjan dragi eitthvað úr auglýsingum sínum í kjölfar bréfsins. |
Á SAMA tíma og barningsmenn hamast við að lýsa ógæfu og bölvun ESB, horfum við Íslendingar fram á mestu erfiðleika í sögu þjóðarinnar í heila öld. Bankakreppan sem lagði fjármál þjóðarinnar í rúst hefur gengið berserksgang gegn efnahag og afkomu þjóðarinnar. Endanlegt tjónamat liggur ekki fyrir. Enginn veit hvort það versta er afstaðið. Gjaldmiðilskreppan er í algleymingi. Við búum við ónýtan gjaldmiðil, sem heldur niðri lífskjörum. Krónan er ónothæf í viðskiptum við útlönd og gengi hennar afar óstöðugt. Vísitölukrónan sem er önnur tegund krónu gengur nú milli bols og höfuðs á íslenskum fjölskyldum. Margar tilraunir hafa verið gerðar til að bjarga krónunni og gera að nothæfum gjaldmiðli en allar mistekist. Síðasta skipbrotið var banvænt. Kreppa atvinnulífsins er rétt að byrja. Hún gæti orðið erfiðust. Á stjórnkerfiskreppunni hefur enn ekki verið tekið. Vonandi fær úrlausn hennar sess í væntanlegum stjórnarsáttmála. Lítum okkur nær Af hverju er ég að klifa á þessari kreppusíbylju sem allir þekkja? Hjörleifur Guttormsson ritaði grein í Mbl 1. maí sl. þar sem hann gerði mikið úr þeim vanda sem ríki ESB væru í og kvað ESB svo grátt leikið að sambandið væri við það að liðast í sundur. Það er rétt að mörg Evrópuríki eiga við mikinn vanda að stríða, bæði þau sem eru innan ESB og þau fáu sem eru fyrir utan. Þessi vandi á rót sína að rekja til lánakreppunnar í Bandaríkjunum, hruns Lehmans-banka og í kjölfarið alheimssamdráttar eftir vörum og þjónustu. Hann bitnar misþungt á ríkjunum allt eftir því hvernig efnahagslíf þeirra er samsett og hvern aga þau hafa haft á fjármálum sínum. Þau geta því ekki öll beitt sömu úrræðum. Ekkert Evrópusambandsríki hefur þó orðið fyrir sambærilegu hruni og við. Þau ríki sem standa enn utan við evruna fengu harðastan skellinn, hin minni og viðráðanlegri. Við líðum ekki bara fyrir taumlausa frjálshyggju án opinbers eftirlits með fjármálastarfsemi heldur líka ónýtan gjaldmiðill. Efnahagslíf í opnu hagkerfi getur ekki þrifist án stöðugs gjaldmiðils og þolanlegra vaxta. Valkosturinn er meira og minna lokað hagkerfi sem hefur enga aðra möguleika til að ná í erlent fjármagn en að selja auðlindir sínar fyrir stóriðju. Varla liggur framtíðin þar. Evrópuraunir Hjörleifs Hjörleifur byggir staðhæfingu sína um vanda ESB á atvinnuleysistölum. Þær eru vissulega ekki glæsilegar frekar en á Íslandi. Hann fellur þó í þann pytt að geta þess hve við höfum búið við hátt atvinnustig andstætt ríkjum í ESB. Atvinnustigið á Íslandi síðustu 15 ár var keyrt áfram af stóriðjuframkvæmdum, fyrst í Hvalfirði síðan við Kárahnjúka og áfram með hömlulausri skuldsetningu einstaklinga og fyrirtækja. Skyldi stóriðja og glórulaus skuldsetning vera Hjörleifi að skapi? Ber slík stefna vott um heilbrigðari efnahagsstjórnun hér en í ESB? Síðar setur hann fram fullyrðingu um að " einstök ESB-ríki engist nú í spennitreyju sameiginlegs gjaldmiðils ... " Hvað er hér á ferð? Jú, sum Evrópuríki, sem ýmist hafa tekið upp evru eða ekki, létu reka á reiðanum í ríkisfjármálum og ráku efnahagsstefnu sem var keimlík okkar, byggða á óhóflegum lántökum og fjármálageira sem var úr hófi. Þau byggðu ójafnvægi inn í efnahagskerfið sem leiðrétta þarf óháð gjaldmiðli. Þau lönd sem búa við evruna sleppa þó betur en hin, því gengi evrunnar féll ekki. Hún var akkeri þessara þjóða, ekki böl. Þessi lönd kunna þó að þurfa að glíma við samdrátt og aukið atvinnuleysi. Þjóðargjaldmiðlar utan evrulandanna hrundu með tilheyrandi verðbólgu, vaxtahækkun og lífskjararýrnun auk atvinnuleysis. Hjörleifur er ófeiminn við að snúa staðreyndum á haus til að sá tortryggni um ESB. Tilgangurinn helgar meðalið. Vandi Evrópu er ekki evran heldur hnattræn efnahagskreppa sem kemur harðast niður á hátæknivæddum útflutningsríkjum. Vandi þýska hagkerfisins var slíkur. Það flaug aldrei eins hátt á öldufaldi spákaupmennsku. Enginn stór banki þar hefur verið látinn hætta starfsemi í kjölfar gjaldþrots. Sem mesta útflutningsþjóð heims birtist vandi þeirra í eftirspurnarsamdrætti. Heimurinn hætti að kaupa vörur. Þeir hafa því frekar reynt að örva kaupgetu innanlands til að vega upp hrun í útflutningi. Qui vadis, Ísland? Það er árátta ESB andstæðinga að forðast að benda þjóðinni á valkosti en eyða öllu púðri sínu í að sverta og tortryggja það stórmerkilega samstarf sem Evrópuþjóðirnar eru nú að byggja upp. Þeim nægir ekki að ræða um sameiginlega eða andstæða hagsmuni, heldur verður að byggja upp fjandsamlegt andrúmsloft gegn ESB. Þetta er óvandaður málflutningur. Þetta flókna samstarf er vissulega hvorki gallalaust né árekstralaust, því staða einstakra ríka er mismunandi og hagsmunir þeirra og metnaður rekast oft á. Megininntak samvinnu þessara nánustu vina og nágranna okkar er samstaða á grundvelli félagslegs öryggis. Viljum við deila því hlutskipti með þeim eða viljum við vera áfram ein á báti? Það er spurningin. Við vitum í öllum aðalatriðum að hverju við göngum í Evrópusamstarfinu, um aðra kosti vitum við ekkert. Reynsla okkar ein á báti í hnattvæddum heimi boðar þó ekkert gott. Höfundur er hagfræðingur. |
" Á tímabili var þetta eins og alger eyðimerkurganga. Við reyndum að missa ekki sjónar á því hver við erum og hvað við stöndum fyrir, " segir Brynhildur Guðjónsdóttir borgarleikhússtjóri um kórónuveirufaraldurinn. Þremur vikum eftir að hún tók við starfi sínu var starfsemi leikhússins nánast í lamasessi vegna heimsfaraldurs og samkomutakmarkana sem honum fylgdu. " Covid var reiðarslag fyrir alla en þetta var sviðslistum alveg sérlega þungt, " segir Brynhildur sem er gestur í nýjasta þætti Dagmála. Samspil sviðs og salar Leikhúsið þrífst á því að taka á móti fólki og því áttu samkomutakmarkanir afar illa við reksturinn. " Leikhús er samspil þess sem gerist á milli sviðs og salar. Það veit enginn hvað þetta er, en það þrá allir að beisla þetta. Það er vegna þess að þarna mætumst við og þarna er mannsandinn í sinni tærustu mynd, " segir Brynhildur. Hún er búin að vera í krísustjórnun nánast alveg síðan hún tók við en nú horfir til betri vegar og eru metnaðarfull verk á dagskrá leikhússins næsta haust. " Við getum ekki beðið. Ég fæ alveg gæsahúð í puttana þegar ég tala um þetta, " segir Brynhildur spennt. Spennandi leikár er í burðarliðnum og er m.a. sýningin Níu líf, sem fjallar um líf Bubba Morthens tónlistarmanns á dagskrá. Hún var frumsýnd á leikárinu 2019 til 2020. " Ég leyfi mér að fullyrða það að aldrei í næstum 125 ára sögu Leikfélags Reykjavíkur hafi stóra sýningin, sem er Níu líf, saga Bubba Morthens, þurft að bíða heilt leikár, " segir Brynhildur. Tíminn í faraldrinum hefur verið vel nýttur innan Borgarleikhússins, að sögn Brynhildar. Búið er að stórbæta þjónustuna, laga til og betrumbæta veitingastaðinn. Þá var opnaður nýr bar í leikhúsinu á sama tíma og óheimilt var að selja áfengi þar. Sá mun eflaust koma að góðum notum í vetur. |
Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, vill að stjórnskipunar - og eftirlitsnefnd rannsaki hvort ríkisstjórnin hafi reynt að koma í veg fyrir að upplýsingar um skattsvikara yrðu keyptar. Össur Skarphéðinsson segir að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson hafi tekið upp háttalag Davíðs Oddssonar sem hafi notað opinberar yfirlýsingar til að boxa niður opinbera starfsmenn. Bjarni Benediktsson húðskammi nú skattrannsóknarstjóra. Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingar : Bjarni hefur auðvitað hrakist úr hverju víginu í annað í þessu máli. Eh hann bersýnilega var ekki mjög hrifinn af því að þetta mál yrði leyst með því að gögnin yrðu keypt en það hefur fyrst og fremst verið aðhald almennings og fjölmiðla og stjórnarandstöðunnar sem að hefur neitt hann til uppgjafar í málinu. Ég tel hins vegar að öll embættisfærslan hafi verið með þeim hætti að það sé heppilegast fyrir málið að allt sé upplýst, það verði upplýst hvort að ríkisstjórnin hafi í reynd verið að tregðast við að kaupa gögn sem gætu hugsanlega upplýst alvarleg brot. Og mín skoðun er sú að stjórnskipunar - og eftirlitsnefnd eigi að rannsaka þetta mál. Hún var beinlínis stofnuð til þess og svona að síðustu hjá mér hringja allar rauðar bjöllur í hvert skipti sem að ráðherra segir ekki satt frá. Það kom fram í þessu máli að Bjarni húðskammaði skattrannsóknarstjóra opinberlega fyrir að ljúka ekki málinu en sannleikurinn komi í ljós og hann var þannig að hún, málið var stopp vegna þess að Bjarni sjálfur hafði ekki veitt heimild og hafði þó fengið skriflega ósk. Mér finnst sjálfsagt að þetta mál verði upplýst. |
Múrbúðin, sem rekur byggingavöruverslanir í Reykjavík, Reykjanesbæ, Akureyri og Húsavík, opnar verslun í Vestmannaeyjum á næstu vikum. Þar verða í boði allar almennar byggingavörur og eigandinn óttast ekki samkeppni við verslanir sem fyrir eru. Múrbúðin verður til húsa að Flötum 29 þar sem Geisli var áður. „ Draumurinn er að opna 10. október sem er okkar dagur “ sagði Þórarinn Sigurður Sigurðsson, eigandi Geisla og vísaði til þess að þann dag var Geisli stofnaður árið 1973. „ Hvort það tekst ræðst af því hvenær innréttingarnar koma en það þarf ekki mikið út af bera til að tímasetningar raskist. Okkar aðkoma að þessu er að við eigum húsnæðið og það er stefna Múrbúðarinnar að opna ekki verslanir úti á landi nema í samstarfi við heimamenn um reksturinn, “ sagði Þórarinn. „ Ég var hvattur til að opna verslun í Vestmannaeyjum og hlakka til að taka þátt í þessu, “ sagði Baldur Björnsson, framkvæmdastjóri og eigandi Múrbúðarinnar. „ Nú gefst Vestmannaeyingum tækifæri á að skipta við einkafjölskyldufyrirtæki en ekki fyrirtæki sem fengið hefur milljarða afskriftir og hefur verið rekið af viðskiptabanka okkar til skamms tíma. Við erum með alla almenna byggingavöru og hjá okkur fá allir sömu kjör, stórir sem smáir, “ sagði Baldur. |
" Íslendingar verða að bera búnir undir það að heilbrigðiskerfið þurfi að bregðast við hugsanlegum hryðjuverkum. " Þetta segir bráðalæknir sem stýrði aðgerðum eftir skotárásirnar í Kaupmannahöfn í fyrra. Rétt rúmur mánuður var liðinn frá hryðjuverkaárásunum á Charlie Hebdo í París þegar skotárásir voru gerðar í Kaupmannahöfn í febrúar í fyrra. Einn maður reyndist vera að verki og tveir létu lífið. Bráðalæknirinn Peter Anthony Berlac fjallaði um árásina frá sjónarhóli danska heilbrigðiskerfisins á bráðadögum Landspítalans í dag. Peter Anthony Berlac, yfirlæknir utanspítalaþjónustu í Kaupmannahöfn : Ég held að við höfum verið afar heppin að við urðum ekki verr úti núna. Þótt það hafi orðið mannfall voru ekki svo margir sem særðust. Ég held að við höfum staðist prófið þarna en það þýðir ekki að við verðum tilbúin næst. Allt frá 2009 hafa sameiginlegar stórslysa - og hryðjuverkaæfingar viðbragðsaðila verið haldnar í Danmörku. Berlac segir að þrátt fyrir það hafi aðstæður skapast í árásunum sem hefðu getað ógnað öryggi heilbrigðisstarfsmanna vegna samskiptaleysis við lögreglu. Peter Anthony Berlac : Þetta var allt öðruvísi en allt sem við höfum æft og greint áður. Mikil vinna hefur farið fram í Danmörku við að skoða viðbragðskerfi nágrannalandanna við hryðjuverkum og draga af þeim lærdóm. Berlac segir mikilvægt að á öllum stigum kerfisins fari fram æfingar og andlegur undirbúningur, jafnvel fyrir atburðum sem kunni að virðast óhugsandi. Peter Anthony Berlac : Það sem væri kannski sérstakt fyrir Ísland væri áætlun um hvernig hægt væri að fá hjálp að utan. Því ef meiriháttar atburður yrði hér yrði það ykkur sennilega ofviða. Svo þið verðið líka að hugsa um utanaðkomandi hjálp. Það versta sem þið getið gert er að stinga höfðinu í sandinn og segja að ekkert muni gerast hér á Norður-Atlantshafinu. Þið verðið að vera búin undir það versta. Þegar þið hafið hugsað þetta sem kerfi þá hafið þið líka æft samskiptaleiðir og samvinnu við önnur yfirvöld í ykkar eigin kerfi. |
Richie og Raleigh fá skýrslu um Margot frá einkaspæjaranum sem sviptir hulunni af reykingum hennar og framhjáhaldi. |
Árið 2003 lenti Huginn í 3. sæti D-riðils á eftir Hetti og Fjarðabyggð. |
Íslensk mykja er öflugri til metanframleiðslu en mykja úr kúm í nágrannalöndunum. Metanframleiðslustöð úr kúamykju frá bróðurparti kúabúa í Eyjafirði er talin geta framleitt metan fyrir allt að 5 þúsund bíla. Á fræðaþingi landbúnaðarins í dag verður kynnt rannsókn sem Svanhildur Ósk Ketilsdóttir, meistaranemi við Landbúnaðarháskólann hefur unnið að um gashæfni kúamykju og möguleika á metanvinnslu úr henni í Eyjafirði. Þóroddur Sveinsson er leiðbeinandi Svanhildar við þetta verkefni. Þóroddur Sveinsson, lektor við Landbúnaðarháskólann : Ja, megin niðurstaða rannsóknarinnar var það að íslensk kúamykja hún hefur mikla metanframleiðslugetu og meiri heldur en annars staðar hefur fundist í erlendum kúakynjum til dæmis í Evrópu og svo er hin megin niðurstaðan sú að framleiðslugeta svona miðlægrar metanstöðvar í Eyjafirði hún getur gefið jafnmikið eða meira magn af metani heldur en sambærilegar stöðvar í Evrópu, sem eru í rekstri í Evrópu í dag. Talið er að á Eyjafjarðarsvæðinu falli til um 140 þúsund tonn af kúamykju á ári. Úr allri þessari mykju væri unnt að framleiða umtalsvert magn af metani sem myndi duga á drjúgt marga bíla. Þóroddur Sveinsson : Ja, það fer svona eftir því hvaða forsendur maður gefur sér en við teljum að það sé kannski hægt að, að, að þetta sé næg orka fyrir 3 - 5 þúsund bíla. Það fer allt eftir því ja við hvaða viðmiðanir við erum með. |
Lítil kraftaverkastúlka fæddist á Filippseyjum í dag en móðirin fæddi stúlkuna í braki flugstöðvarbyggingar sem hefur verið breytt í neyðarskýli. Stúlkan hefur fengið nafnið Bea Joy í höfuðið á ömmu sinni sem talin er af eftir að fellibylurinn Haiyan reið yfir. Emily Sagalis, 21 árs, grét af gleði eftir að hafa fætt litlu stúlkuna innan um spítnabrak, glerbrot á skítugu gólfi flugstöðvarinnar. " Hún er svo falleg. Ég ætla að nefna hana Bea Joy í minningu móður minnar, Beatriz, " segir Sagalis í samtali við AFP fréttastofuna skömmu eftir fæðinguna. Að sögn Sagalis sópaði alda móður hennar á haf út þegar Haiyan fór yfir heimili þeirra skammt frá borginni Tacloban, höfuðstað Leyte héraðs. Talið er að yfir 10 þúsund manns hafi farist í he'raðinu sem varð einna verst úti í fellibylnum. " Hún er kraftaverk. Ég hélt að ég myndi deyja með hana enn inni í mér, þegar risavaxnar öldur gengu yfir og tóku okkur, segir Sagalis. Eiginmaður hennar, Jobert, segir að timburhús þeirra hafi farið þegar í fyrstu öldunni. Öll fjölskyldan hafi sópast út. Hann segir að það sama hafi gilt um alla nágranna þeirra og ekkert sé eftir í þorpinu þeirra annað en rusl og minningar um fólk og dýr. Það hafi ekki verið neitt annað en kraftaverk þegar hann hafi fundið konu sína á floti innan um ruslið. Hjónin og nágrannar þeirra sem lifðu af þurftu að halda til í rústunum þangað til í morgun og það eina sem þau höfðu var vatnsflaska. Þegar ljóst var að engin hjálp var í augnsýn og fæðingin að byrja þá þurftu þau að ganga í nokkra kílómetra þangað til að þau fengu aðstoð og far með jeppa í neyðarskýlið. En að sögn læknis var hún þegar búin að missa vatnið þegar komið var með hana og blæddi mikið. Þrátt fyrir að móðir og barn hafi lifað fæðinguna af er ekki vitað um framhaldið þar sem gríðarleg sýkingarhætta eru fyrir þær þar sem þær liggja á gólfinu í húsarústum. |
Bankinn stundar lánastarfsemi bæði í eigendalöndunum og í nývaxtarlöndum. |
Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, sagði í Kastljósi í kvöld að fyrirtækið hefði ekki getað greitt starfsfólki laun frá og með sumarmánuðum, ef ekki hefði verið brugðist við í rekstrinum eins og gert var í dag. Hann sagði algera sjóðþurrð hafa blasað við fyrirtækinu. Bjarni sagði ennfremur að raunveruleg staða Orkuveitunnar hefði ekki orðið ljós fyrr en í lok janúar á þessu ári, þegar skilað var skýrslu í kjölfarið á „ dýpri greiningarvinnu “ á stöðu félagsins. Þá hefði komið í ljós að OR gæti ekki bjargað sér á eigin spýtur og yrði að leita til eigenda sinna um stuðning. Hann sagði að stjórnendur hefðu talið að gjaldskrárhækkanir og uppsagnir starfsfólks, sem gripið var til í fyrra, myndu duga til að bjarga fyrirtækinu en sú hefði hreint ekki verið raunin. Aðspurður um hvers vegna fullnægjandi upplýsingar hefðu ekki legið fyrir fyrr svaraði Bjarni : „ Ég veit ekki hvers vegna upplýsingarnar voru ekki nægilega góðar og get ekki lagt mat á það. […] Ég veit ekki hvernig menn unnu í þessu fyrirtæki áður en ég kom að því. “ Hann sagðist hvorki vera sagnfræðingur né dómari og vildi ekki hafa skoðun á því hvernig Orkuveitan komst í þá stöðu sem við blasir. Þegar talið barst að orkusölu til stóriðju – en OR hefur skuldbundið sig til að selja orku til álvers Norðuráls í Helguvík – sagði Bjarni : „ Ég tel að það samrýmist ekki hlutverki OR að taka áhættu af að virkja og selja orku til þriðja aðila – stóriðju eða annarra einkaaðila – og setja þar með alla grunnstarfsemi fyrirtækisins í hættu. “ Með þessu virðist forstjóri Orkuveitunnar útiloka frekari orkusölu til stóriðju. |
MESSAÐ var í kirkjunni í Flatey á Skjálfanda um verslunarmannahelgina eins og verið hefur um nokkurra ára hríð. Prestur var séra Hildur Sigurðardóttir, aðstoðarprestur á Skinnastað í Öxarfirði og voru kirkjugestir um fimmtíu talsins. Að þessu sinni brá svo við að barn var skírt við messu í Flatey, en þar mun síðast hafa verið skírt fyrir um fjörutíu árum síðan. Litla stúlkan sem skírð var fékk nafnið Tekla Rögn og var kirkjugestum svo öllum boðið í skírnarkaffi í Sæberg þaðan sem unga snótin er ættuð. Flatey. Morgunblaðið. |
„ Það að lögreglu - og tollstjórinn á Suðurnesjum hafi haft á einni hendi lög -, öryggis - og tollgæslumál er arfur frá þeim tíma er utanríkisráðuneytið fór með yfirstjórn mála á Keflavíkurflugvelli fyrir hönd allra ráðuneyta meðan á dvöl varnarliðsins stóð. Með breytingunni er verið að færa stjórnsýslulega skipan mála í það horf sem almennt er í landinu, “ segir í athugasemdum sem dómsmálaráðuneytið hefur sent frá sér vegna umræðna í fjölmiðlum um löggæslu á Suðurnesjum og Keflavíkurflugvelli. Ráðuneytið segir að því hafi ekki borist uppsögn frá Jóhanni R. Benediktssyni, lögreglustjóra, en fram hefur komið að hann hafi sagt starfi sínu lausu í mótmælaskyni við boðaðar breytingar. Þá tekur ráðuneytið sérstaklega fram að ekki standi til að færa landamæragæslu frá lögreglustjóraembættinu. Í athugasemdum ráðuneytisins segir : „ Rökin fyrir breytingunum eru alveg skýr ; hagræðing, bætt stjórnsýsla og skýr ábyrgð, “ segir dómsmálaráðuneytið. „ Undanfarin ár hefur rekstur embættisins farið fram úr fjárheimildum og með þessum aðgerðum er verið að leggja traustari grunn að skilvirkari stjórnsýslu og betra rekstrarumhverfi. Það að lögreglu - og tollstjórinn á Suðurnesjum hafi haft á einni hendi lög -, öryggis - og tollgæslumál er arfur frá þeim tíma er utanríkisráðuneytið fór með yfirstjórn mála á Keflavíkurflugvelli fyrir hönd allra ráðuneyta meðan á dvöl varnarliðsins stóð. Með breytingunni er verið að færa stjórnsýslulega skipan mála í það horf sem almennt er í landinu. “ „ Skipulagsbreytingarnar miða að því að saman fari stjórnsýsluleg og rekstrarleg ábyrgð og eru þær ekki settar fram í sparnaðarskyni. Þær miðast að því að færa verkefnin undir forsjá þess ráðuneytis sem ber ábyrgð á hverjum málaflokki ; tollgæslan heyrir undir fjármálaráðuneytið, öryggismál eru á forræði samgönguráðuneytis og löggæsla og landamæragæsla áfram á forræði dóms - og kirkjumálaráðherra, “ segir ennfremur. „ Breytingarnar munu ekki hafa í för með sér minni samvinnu lögreglu, landamæragæslu, tollgæslu og öryggisgæslu á Keflavíkurflugvelli og eiga því á engan hátt að draga úr þeim árangri sem náðst hefur. Hér eftir sem hingað til munu tollverðir, lögreglumenn og öryggisverðir ákveða og skipuleggja samstarfið sín á milli þannig að það verði sem árangursríkast. Markmiðið er að styrkja hverja einingu en um leið að halda í heiðri og efla samstarfið á milli þeirra. “ „ Tekið skal sérstaklega fram að ekki stendur til að færa landamæragæslu frá lögreglustjóraembættinu. “ „ Ráðuneytinu hefur ekki borist uppsögn frá Jóhanni R. Benediktssyni. “ Björn Bjarnason dómsmálaráðherra fjallar einnig um málið á bloggi sínu. |
Þann 31. júlí skipaði Albert ríkisstjórninni að hafa herinn til reiðu. |
Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði fimm mörk í jafntefli Sönderjyske í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Arnar Birkir var næst markahæstur í liði Sönderjyske í 30 - 30 jafntefli við Bjerringbro-Silkeborg. Aaron Mensing var markahæstur með sex. Heimamenn í Bjerringbro byrjuðu betur og voru yfir framan af. Þegar flautað var til hálfleiks var staðan 17 - 15. Seinni hálfleikurinn var mjög jafn og skiptust liðin á að halda forystunni. Gestirnir í Sönderjyske voru með tveggja marka forystu tveimur mínútum fyrir leikslok en heimamenn náðu að koma til baka og tryggja sér stig í 30 - 30 jafntefli. |
Rory McIlroy endaði jafn í 22. sæti á síðasta risamóti ársins, PGA meistaramótinu, sem lauk nú um síðustu helgi. McIlroy hefur ekki náð að sigra mót á árinu og hefur hann einnig þurft að glíma við meiðsli. Í tvígang á þessu ári hefur hann þurft að taka frí í nokkrar vikur vegna meiðsla í rifbeinum. Nú virðast þau meiðsli hafa tekið sig upp að nýju og er mikil óvissa með framhaldið hjá McIlroy. Í viðtali eftir PGA meistaramótið sagði Rory að honum liði eins og hann ætti alveg að geta spilað nógu vel til þess að vinna. Hins vegar sagði hann einnig að hann vissi að ætli hann sér að gera það reglulega þurfi hann að ná sér fullkomlega af meiðslunum. „ Ég veit ekki hvað ég ætla að gera. Kannski sjáið þið mig á næsta ári, en kannski sjáið þið mig eftit vær vikur. Ég hef bara ekki leyft þessu að gróa að fullu. Mig langar að spila í ár og finnst ég geti spilað nógu vel til þess að vinna. Aftur á móti ætli ég mér að vera reglulega í toppbaráttunni þá þarf ég að ná mér fullkomlega. “ |
Hún byrjar því með eiturlyfjasala og reynir að missa meydóminn með honum, en hættir við á síðustu stundu. |
Í tilefni af íslenska safnadeginum á morgun, sunnudag, er boðið upp á ókeypis göngu um miðbæinn þar sem Vala Garðarsdóttir fornleifafræðingur mun segja frá nýjustu fornleifafundum á horni Kirkjustrætis og Tjarnargötu. Þar hafa fundist afar merkar minjar um umfangsmikla atvinnustarfsemi allt frá landnámsöld, m.a gangstígur, kolagröf, járnbræðsluofnar og húsarústir. Mæting við Landnámssýninguna í Aðalstræti 16, kl 14, og býðst gestum að skoða sýninguna ( ókeypis ) að leiðsögn lokinni. |
Spánverjinn Rafael Nadal féll í dag úr leik á Wimbledonmótinu í tennis þegar hann tapaði fyrir Belganum Steve Darcis í fyrstu umferðinni, en mótið hófst í dag. Darcis sigraði í þremur settum, 7 - 6 7 - 6 og 6 - 4. Þetta eru ein óvæntustu úrslit síðustu ára í tennisheiminum. Nadal, sem er fimmti á heimslistanum hefur unnið tólf risamót, þar á meðal opna franska meistaramótið á dögunum, en Darcis er í 135. sæti heimslistans. Nadal gekk ekki heill til skógar í dag, en hann féll úr leik í annarri umferð mótsins í fyrra og var í kjölfarið úr leik í átta mánuði vegna meiðsla. Þetta er í fyrsta sinn sem Nadal fellur úr leik í fyrstu umferð á einu af risamótunum fjórum, en þetta var 35. risamótið hans. |
Björgunarsveitir á Austurlandi voru kallaðar út síðdegis í dag vegna manns sem féll í vatn í Jökuldal á Austurlandi. Ekkert liggur fyrir um eðli útkallsins að svo stöddu. Uppfært klukkan 17:15 Í tilkynningu frá Landsbjörgu kemur fram að sveitirnar séu nú á leið á slysstað við Búrfellsvatn í Jökuldal þar sem maður féll í vatnð. Aðkoman að vatninu er erfið og ekki fær nema með breyttum bifreiðum. Ekki er vitað um ástand á vettvangi á þessari stundu. |
Opnað hefur verið fyrir umferð um nýtt hringtorg á mótum Suðurlandsvegar og Breiðholtsbrautar við Rauðavatn en í sérstöku mati sem gert var á slysastöðum á höfuðborgarsvæðinu komu gatnamótin þarna verst út þegar tekið hafði verið tillit til umferðar og fjölda slysa undanfarin ár. Sigurður Helgason hjá Umferðarráði segist vera mjög ánægður með hringtorgið nýja. Hann segir að eftir að ákvörðun um að leggja hringtorg þarna hafi loksins verið tekin hafi þetta tekið stuttan tíma og mjög gleðilegt að torgið skuli nú vera komið í gagnið. Umferðaröryggi aukais til muna eftir breytinguna. |
Hjörtur Már Reynisson úr Sundfélaginu Ægi gerði sér lítið fyrir og sigraði í 50 metra flugsundi á fyrsta degi Sundmeistaramóts Íslands sem hófst í Laugardalslaug í kvöld. Hjörtur Már synti á 25,04 og annar, ekki langt undan, varð Örn Arnarson úr SH. Þetta mun vera í fyrsta sinn í langan tíma sem Örn tapar hér á landi í 50 metra flugsundi. |
Sverrir Ingi Ingason, varnarmaður Breiðabliks og U21 landsliðsins, var ánægður eftir 2 - 0 sigur gegn Kasakstan í undankeppni EM 2015 í gær. Ísland er með fullt hús stiga eftir fyrstu fjóra leiki sína og á góðri leið í lokakeppnina. „ Fyrst og fremst var þetta þolinmæði og dugnaður í strákunum. Við vissum að Kasakstan myndi kannski vera aftar og vera mikið í stutta spilinu. Þetta voru virkilega erfiðar aðstæður en við fórum yfir það í hálfleik að gefa aðeins meira í til að klára leikinn, og það kom í seinni hálfleik, “ sagði Sverrir Ingi. ,, Þetta var virkilega erfitt í fyrri hálfleik á móti vindi og boltinn mikið í innköstum og markspyrnum, en í seinni hálfleiknum lægði aðeins og við gátum farið að spila boltanum og gefa fyrir. Það skóp tvö mörk. “ „ Við erum fullir sjálfstrausts og förum inn í alla leiki til að gera eins vel og við getum. Þegar Frakkarnir koma hingað munum við gefa þeim eins erfiðan leik og við getum. “ |
Enska úrvalsdeildarfélagið Brighton hefur lánað Anthony Knockaert til Championship-liðsins Fulham. Knockaert spilaði 30 leiki fyrir Brighton í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð en skoraði einungis tvö mörk í þeim. Hann hefur verið hjá liðinu síðan árið 2016 en hann kom þá frá Standard Liege. „ Markmiðið er að koma Fulham aftur í deild þeirra bestu þar sem að félagið á heima, " segir Knockaert. „ Ég kem hingað með skýr markmið og ég ætla að gera það sem ég get til þess að hjálpa liðinu beinustu leið upp aftur. " |
ALOISIUS Arnstein Brodersen, norskur munkur eða kórherra af Ágústínusarreglu, þeirri sem var í klaustrunum í Viðey, á Helgafelli, Möðruvöllum, Skriðuklaustri og Þykkvabæ í Álftaveri, flytur sunnudaginn 1. október erindi um Ágústínusarregluna á miðöldum. Erindið er flutt í tengslum við sýninguna Klaustur á Íslandi, en hún er í Viðeyjarskóla. Áður verður kaþólsk biskupsmessa í Viðeyjarkirkju og hefst hún kl. 14. Eftir messu verður boðið upp á kaffiveitingar, en síðan flytur Brodersen erindi sitt. Hann flytur það á norsku og fundargestir munu fá norska textann í hendur sér til glöggvunar. Að því loknu mun Brodersen leitast við að svara spurningum gesta. Gunnar Örn Ólafsson, formaður Félags kaþólskra leikmanna, stjórnar umræðum. Að ráðstefnunni lokinni gefst gestum tækifæri til að skoða klaustursýninguna. Ráðstefnugjöld eru engin. Ferðir verða úr Sundahöfn kl. 13, 13.30 og svo kl. 15.20 fyrir þá sem ekki komast í messuna. Brodersen var orðinn héraðslæknir í Norður-Noregi, er hann snerist til kaþólskrar trúar og gekk í klaustur í Klosterneuburg í Austurríki. Hann hefur lokið guðfræðiprófi og er nú sóknarprestur í Vín. Hann hefur sérstaklega lagt stund á kirkjusögu og skrifaði MA-ritgerð um Norðurlandatrúboð kaþólsku kirkjunnar á 19. öld. Þar kemur Ísland að sjálfsögðu við sögu. Kaþólska kirkjan hóf starf á Fáskrúðsfirði, Seyðisfirði og Grundarfirði, þar sem mikið var um franska sjómenn og loks keypti hún jörðina Landakot í Reykjavík. |
Sóknarmaðurinn Joel Campbell hafði trú á því að hann gæti verið partur af liði Arsenal undir stjórn Unai Emery. Campbell gekk í raðir Arsenal frá Saprissa árið 2011 en spilaði aðeins 23 deildarleiki á sjö árum áður en hann samdi við Frosinone. Hann var spenntur eftir komu Emery á síðasta ári en var svo látinn fara áður en tímabilið hófst. ,, Í sumar þá trúði ég því að ég hefði getað verið partur af verkefni Emery, “ sagði Campbell. ,, Ég ræddi við stjórann og félagið og var viss um að ég gæti gert vel í tæknilegu spænsku leikkerfi en félagið hafði aðrar hugmyndir. “ ,, Þetta var heilt yfir frábær reynsla og ég mun aldrei gleyma henni því enskur fótbolti er risastór. “ |
Erna Kristín Stefánsdóttir lét raka af sér hárið í morgun eftir að henni tókst að safna hálfri milljón til styrktar ABC-barnahjálpar. Erna Kristín var í viðtali við Ísland í dag í síðustu viku þar sem hún sagði frá áskoruninni. Í Íslandi í dag í kvöld verður fylgst með því þegar Erna Kristín fór á hárgreiðslustofuna í morgun og lét hárgreiðslumanninn raka hárið. Viðbrögðin voru stórkostleg þegar hún leit í spegil. Ísland í dag er í opinni dagskrá á Stöð 2 og hér á Vísi klukkan 18:55. |
Dómari við landnýtingar - og umhverfisdómstól Ástralíu hafnaði því í morgun að veita leyfi fyrir nýrri kolanámu í Nýja Suður-Wales vegna fyrirsjáanlegra, neikvæðra áhrifa af brennslu kolanna á loftslagsbreytingar. Er þetta í fyrsta skipti í sögu Ástralíu sem námuleyfi er synjað með vísan til Parísarsamkomulagsins. Yfirvöld í Nýja Suður-Wales synjuðu á sínum tíma námufyrirtækinu Gloucester Resources um starfsleyfi fyrir opna yfirborðs-kolanámu vegna neikvæðra umhverfisáhrifa fyrir bæinn Gloucester, sem þar er nærri. Fyrirtækið áfrýjaði úrskurði stjórnvalda til dómstólsins, sem nú hefur komist að þessari tímamótaniðurstöðu. Vísað í Parísarsamkomulagið Dómarinn, Brian Preston, sagði í úrskurði sínum að opin kolanáma á svo fögru landsvæði væri einfaldlega „ á röngum stað á röngum tíma. " Í rökstuðningi sínum tók hann einnig tillit til málflutnings Umhverfisverndarstofu Ástralíu, EDO, frjálsra félagasamtaka sem gerðust aðili að málinu eftir áfrýjun námufyrirtækisins. Var það Umhverfisverndarstofan sem lagði áherslu á að banna skyldi námuna vegna fyrirsjáanlegrar losunar gróðurhúsalofttegunda við brennslu kolanna, og vísaði í Parísarsamkomulagið máli sínu til stuðnings. Námufyrirtækið sagði kolin úr námunni aðeins munu leiða til örlítils brotabrots af heildarlosun losun heimsbyggðarinnar. Það þóttu dómaranum haldlaus rök og sagði enga ástæðu til að gernýta allar náttúruauðlindir í hagnaðarskyni. Vona að dómurinn verði fordæmisgefandi Ástralskir umhverfisverndarsinnar vonast til þess að dómurinn reynist fordæmisgefandi, en Ástralía er eitt mesta kolaframleiðsluríki heims og flytur meira út af þessu jarðefnaeldsneyti en nokkur þjóð önnur. Úrskurður landnýtingar - og umhverfisdómstólsins er ekki endanlegur, en námafyrirtækið hefur ekki greint frá því enn, hvort það hyggst áfrýja dómnum. |
Steinunn Jóhannesdóttir eða Steinunn Alice J. Hayes ( 19. janúar 1870 - 14. mars 1960 ) var fyrsta íslenska konan sem tók læknapróf. |
Lögreglan hefur ekki tekið Klaustursupptökurnar til formlegrar athugunar en lögfræðingur lögreglunnar hefur farið yfir ummæli Gunnars Braga Sveinssonar varðandi loforð um sendiherrastöður. Gunnar lýsti fjálglega á upptökunum hvernig hann hefði unnið sér inn greiða hjá Sjálfstæðismönnum með því að skipa, sem þáverandi utanríkisráðherra, Geir Haarde sem sendiherra í Washington á þeim tíma þegar Geir var mjög umdeildur vegna þess að hann hafði hlotið dóm í Landsrétti. Gunnar sagði hafa skipað Árna Þór Sigurðsson sendiherra á sama tíma til að beina athyglinni frá ráðningu Geirs. Taldi Gunnar sig eiga inni hjá Sjálfstæðismönnum vegna þessa. Gunnar hefur jafnframt viðurkennt í viðtali í kjölfar leyniupptökuhneykslisins að hann myndi ekki slá hendinni á móti sendiherrastöðu. RÚV fjallar um málið og ræddi við Sigríði Björk Guðjónsdóttur, lögreglustjóra á Höfuðborgarsvæðinu. Í fréttinni kemur fram að ástæða þess að lögreglan hefur ekki tekið málið til formlegrar skoðunar kann að vera sú að ekki er lagaskylda að auglýsa sendiherrastöðu. Var því ákvæði bætt inn í þegar gerðar voru breytingar á lögum um utanríkisþjónustu árið 1997. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, hefur kallað eftir því að mögulega hafi það sem Gunnar upplýsti á Klaustri varðað við 128. grein hegningarlaga, um viðurlög við spillingu opinberra starfsmanna. Leyniupptakan |
Mikið vesen hefur verið með farangur U21 árs landsliðsins fyrir leikinn gegn Dönum í Álaborg á föstudag. Liðin mætast þá í fyrri leik liðanna um sæti á EM á næsta ári. Farangur íslenska liðsins varð eftir í Kaupmannahöfn í gær vegna verkfalls hjá hlaðmönnum á flugvellinum þar. Farangurinn var ekki tekinn úr flugvélinni og því fór hann aftur til Íslands. U21 árs liðið fékk lánaðan æfingafatnað hjá Álaborg í morgun og því gat liðið æft samkvæmt áætlun. Leikmenn taka takkaskó með í handfarangur í landsliðsferðum ef farangurinn skilar sér ekki og því gátu þeir æft í sínum skóm. Hjalti Kristjánsson, læknir liðsins, var einnig sendur í verslunarferð þar sem allt dót hans var eftir á Íslandi. Ekki liggur ennþá fyrir hvenær farangurinn mun skila sér en það ætti þó að gerast síðar í dag. |
Konur sem hafa átt erfitt með brjóstagjöf burðast oft með mjög sára reynslu og tilfinningar vegna þess og þær minnast tímans eftir fæðingu og fyrstu mánuði barnsins með sorg í hjarta þar sem ekkert rými var til að njóta með barninu. Krafan um að láta brjóstagjöfina ganga hafi orðið yfirþyrmandi. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í rannsókn sem Sunna Símonardóttir, doktorsnemi í félagsfræði við Háskóla Íslands, vinnur nú að. Doktorsverkefni hennar fjallar um upplifun kvenna af móðurhlutverkinu og ráðandi samfélagslegar hugmyndir um það hlutverk en rannsóknin er eigindleg. „ Ég byrjaði á rannsókninni 2012. Ég tók viðtöl við 22 konur, annars vegar á meðan þær voru óléttar og hins vegar eftir að barnið kom í heiminn. Brjóstagjöfin var mikið rædd hjá þeim og margt áhugavert sem kom fram og út frá því kviknaði hugmynd um að bæta einum anga við rannsóknina þar sem ég myndi skoða brjóstagjöf sem gengur illa sérstaklega, “ segir Sunna í samtali við Vísi. Eins og belja sem er bundin á bás Sunna auglýsti eftir konum sem væru tilbúnar til að segja henni sögu sína í síðustu viku og létu viðbrögðin ekki á sér standa. Á aðeins tveimur sólarhringum höfðu um 60 konur sett sig í samband við hana og sagt henni frá erfiðleikum sínum við brjóstagjöf. „ Þetta er reynsla sem lýsir algjörum vanmætti, endurteknum sýkingum, innföllnum geirvörtum og geirvörtum sem duttu hreinlega af. Algeng mynd sem þær margar draga upp af sér er bara belja bundin á bás. Ef þær bregðast í brjóstagjöfinni þá upplifa þær margar að þær séu ekki nógu góðar mæður og að þær séu gölluð eintök. “ Sterk hugmynd um að allar konur geti gefið brjóst Sunna segir að á Norðurlöndunum sé mun meiri krafa gerð til kvenna en víðast hvar annars staðar um að vera með börn á brjósti og helst lengi, jafnvel allt upp í tvö ár. En hvers vegna ætli þessi krafa sé gerð til nýbakaðra mæðra, þrátt fyrir að brjóstagjöfin gangi illa? „ Það er ekki til neitt einfalt svar við því en ég held að það sé rosalega sterk hugmynd, bæði innan heilbrigðiskerfisins og samfélagsins, um að allar konur geti undir öllum kringumstæðum brjóstfætt börnin sín eins lengi og þær vilja. Þar af leiðandi vilja þær og eru þær líka hvattar til að þess að gefast ekki upp heldur reyna meira og reyna meira, “ segir Sunna. Konurnar lýsa þó margar hverjar mjög góðri þjónustu og stuðningi innan heilbrigðiskerfisins. Margar hefðu þó viljað að einhver hefði stoppað þær af og einfaldlega sagt : „ Þetta er nóg, þú ert búin að gera nóg og það að barnið fái þurrmjólk er ekki heimsendir. “ Neikvæð umræða um þurrmjólk hefur slæm áhrif „ Þetta tengist að mörgu leyti þessari hugmynd um að þurrmjólk sé vondur kostur en í raun er það besta fæða í heimi fyrir ungabörn fyrir utan brjóstamjólk. Það skiptir hins vegar máli hvernig við tölum um hlutina því orðin hafa svo mikið vald. Þessi einstrengingslega áhersla á að þurrmjólk sé vondur kostur og það megi ekki fjalla um hana nema með neikvæðum formerkjum veldur held ég rosalega miklum kvíða og vanlíðan hjá konum sem nota þurrmjólk til að fæða börnin sín, “ segir Sunna. Hún vonast til að rannsókn sín leiði til þess að meira jafnvægi komist á í umræðunni um brjóstagjöf og þurrmjólk en einnig að heilbrigðisstarfsmenn sem vinna við mæðravernd og brjóstagjöf hlusti á sögur kvennanna með opnum hug með það að markmiði að bæta þjónustuna. Hægt er að senda Sunnu reynslusögur af brjóstagjöf sem gekk illa á netfangið erfidbrjostagjof@gmail.com. „ Svo getum við öll lagt eitthvað á vogarskálarnar við það að hjálpa þessum konum að skila skömminni. Ég veit að það er rosaleg klisja en engu að síður hluti af þeirra erfiðleikum. Það hjálpar að tala opinskátt um brjóstagjöf og þá staðreynd að hún er ekki alltaf náttúruleg, auðveld eða sjálfsögð. “ |
Leik - og söngkonan Hilary Duff hefur nú sagt frá því að hún hafi drukkið fylgjuna sína í hristing fljótlega eftir að hún fæddi dóttur sína og að hún hafi gjörsamlega elskað það. Hilary sem er þrjátíu og eins árs gömul eignaðist sitt fyrsta barn með kærastanum sínum Matthew Koma í síðasta mánuði. „ Þetta var besti hristingur sem ég hef fengið. Ég hef ekki smakkað svona góðan hristing síðan ég var tíu ára gömul. Hann var fullur af kaloríum, djúsi og ávöxtum og var æðislegur, “ sagði Hilary í viðtali. Samkvæmt Metro þótti Hilary hugmyndin þó ekki girnileg til þess að byrja með en hugmyndin um næringarefnin yfirtók hryllingin sem Hilary upplifði fyrst. Kenningin um það að fylgjan komi í veg fyrir fæðingarþunglyndi og geti stöðvað blæðingu eftir fæðinguna var nægilega mikil til þess að sannfæra hana. Hilary mælir með því að konur borði fylgjuna sína og segir hún að henni hafi liðið frábærlega síðan hún drakk fylgjuna. |
Isaac “ Pablo Owusu Afriyie gengur til liðs við Ægi á láni frá Víking Reykjavík út tímabilið. „ Pablo er miðjumaður og kemur til með að styrkja og bæta leikmannahóp liðsins enn frekar fyrir komandi tímabil, við hlökkum til að sjá Pablo innan vallar! " segir á Instagram síðu Ægis. Pablo, sem er fæddur árið 2000, var á láni hjá Tindastóli í fyrra þar sem hann skoraði tvö mörk í átján leikjum. Ægir endaði í 8. sæti í 3. deildinni á síðasta tímabili. |
Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor skilaði fjármálaráðuneytinu skýrslu um skatta og velferð á Íslandi í nóvember 2009, ári eftir umsamin verklok. Skýrslan er afrakstur skattaverkefnis sem Árni Mathiesen, þáverandi fjármálaráðherra, samdi um við Félagsvísindastofnun í september 2007. Kostnaður við gerð skýrslunnar var liðlega 13 milljónir króna samkvæmt gögnum sem DV hefur undir höndum. Áskilið varí samningi að Hannes Hólmsteinn annaðist verkefnið. Fram kemur í 80 blaðsíðna skýrslunni, sem DV hefur undir höndum, að Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Friðbjörn Orri Ketilsson hjá AMX-vefnum og fleiri, hafi unnið skýrsluna með Hannesi. Skýrslan tekur til skattbreytinga á valdatíma Sjálfstæðisflokksins frá 1991 til 2007. Í verksamningi spurði ráðuneytið tiltekinna spurninga um skattbreytingar og er leitast við að svara þeim í skýrslu Hannesar. Í formála segir að rétt hafi þótt að doka við og fresta gerð skýrslunnar og meta framvinduna í ljósi bankahrunsins : „ Nú er það hins vegar mat okkar, mín og Félagsvísindastofnunar, að tímabært sé að ljúka verkinu. Skýrsla sú, sem hér fer á eftir, markar lok verksins. Í því var sá kostur tekinn að hafa vítt sjónarhorn og heimspekilegt ekki síður en hagfræðilegt, alþjóðlegt ekki síður en íslenskt, enda hafði ráð verið fyrir því gert í verksamningnum, “ segir orðrétt. Nánar er fjallað um skýrslu Hannesar Hólmsteins í helgarblaði DV. |
Manchester United hefur ákveðið að lækka miðveðr til yngri aðdáenda á næstu leiktíð. Fólk á aldrinum 18 - 25 ára getur keypt miða á 15 pund á leik eða um 2 þúsund krónur. Miðarnir verða í Stretford End sem er stúkan þar sem hörðustu stuðningsmenn United safnast saman. Með þessu vill félagið reyna að búa til meiri og betri stemmingu á Old Trafford. Jose Mourinho hefur gagnrýnt stemminguna sem er á Old Trafford og reynir félagið að bregðast við því. HM 2018 á 433.is er í boði : |
Mikel Arteta hélt fyrir andlit sitt þegar hann mætti á æfingu Manchester City í morgun. Hann kom þar með í veg fyrir að ljósmyndarar næðu myndum af áverkum í andliti hans en hann var blóðugur í framan eftir slagsmálin sem brutust út í göngunum eftir sigur Manchester City gegn Manchester United í gær. Fjölmiðlar segja að skurður hafi myndast á Arteta eftir að Romelu Lukaku kastaði flösku í hann. Arteta er í þjálfarateymi Manchester City. Enska knattspyrnusambandið hefur beðið Manchester United og Manchester City um skýringar á ólátunum. Allt sauð upp úr eftir að hávær tónlist ómaði úr klefa City eftir sigurinn. |
Kalkneysla ætti ekki að vera vandamál á Íslandi enda er mjólk og mjólkurvörur oft á borðum Íslendinga. Engu að síður skortir oft unglingsstelpur kalk en ráðlagður dagskammtur af kalki er stærri fyrir ungar stúlkur en aðra aldurshópa samkvæmt ráðleggingum landlæknisembættisins um daglega neyslu kalks. Auðveldlega má bæta úr þessu með neyslu á mjólk og mjólkurafurðum. Margar tegundir osta, rjómi og aðrar afurðir úr mjólk eru næringarríkur matur sem t.d. inniheldur mikið af B-vítamínum, joði, seleni og kalíum. Mjólkurmatur er einnig langmikilvægasti kalkgjafinn í fæðunni. Hæfilegur skammtur er að fá sér því sem nemur um tveimur glösum af mjólk á dag Einnig þarf að hafa í huga að mjólkurafurðir innihalda hlutfallslega mikið magn af mettaðri fitu sem hækkar LDL-kólestról í blóði. Slíkt getur aukið hættu á kransæðasjúkdómum og því þarf neyslan að vera hófleg og innan ráðlagðra marka, t.d. landlæknisembættisins. |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.