text
stringlengths
1
723k
„ Ég var í prófum og því með slökkt á símanum. Ég veit því ekki hvort Geir var eitthvað að reyna að ná í mig. Ég sá því bara á netinu að ég hefði verið valinn í EM-hópinn, “ segir Ágúst Elí Björgvinsson, markvörður FH, en hann mun þreyta frumraun sína á stórmóti í Króatíu í janúar. Það var ljóst að Björgvin Páll Gústav...
Íþróttasamband fatlaðra sendir fimmtán keppendur á Evrópuleika fatlaðra sem fara fram í Póllandi 18.23. september. Íslensku keppendurnir taka þátt í borðtennis, frjálsum íþróttum, keilu og lyftingum. Þeir sem keppa fyrir Íslands hönd eru : Borðtennis ; Sigurður A Sigurðsson, Soffía Rúna Jensdóttir og Guðmundur Hafstein...
Við byrjun 3. þáttaraðar byrjar Vanessa samband með Scott Rosson, en hún neyðist til að sleppa honum vegna þeirra afleiðinga sem hann gæti haft á samband Rufusar og Lilyar.
VÍSINDAMENN hjá Íslenskri erfðagreiningu ( deCODE Genetics ) tilkynntu í gær að þeir hefðu uppgötvað tvo breytileika í erfðamengi mannsins, sem ríflega fimmfalda líkurnar á því að fólk fái skjaldkirtilskrabbamein. Þessir breytileikar fundust, samkvæmt því sem segir í fréttatilkynningu frá Íslenskri erfðagreiningu, með ...
Stóru bankarnir munu bjóða viðskiptavinum sínum að gera hlé á afborgunum íbúðalána til að auðvelda þeim að takast á við áskoranir í tengslum við útbreiðslu kórónuveirunnar. Þetta kemur fram á heimasíðum bankanna. Á vef Arion banka segir að viðskiptavinum verði boðið að gera hlé á afborgunum í allt að þrjá mánuði. Vilji...
Emma Watson er ansi vinsæl leikkona hjá yngri kynslóðinni eftir að hafa tekið að sér hlutverk Hermione Granager í Harry Potter ásamt því að hafa nýlega túlkað Bellu í nýrri mynd Disney um Fríðu og Dýrið. Entertainment Weekly tók saman myndband á dögunum þar sem Emma leyfði börnunum að spyrja sig spurninga um allt á mil...
Tómas Árni Jónasson læknir fæddist á Ísafirði 5. október 1923. Hann lést á dvalar - og hjúkrunarheimilinu Grund 5. nóvember 2016. Foreldrar Tómasar voru Jónas Tómasson, bóksali og organisti, f. 13. apríl 1881, d. 9. september 1967, og Anna Ingvarsdóttir húsfreyja, f. 8. apríl 1900, d. 6. október 1943. Tómas ólst upp á ...
Skólanefnd Garðabæjar hefur samþykkt að ekki verði vetrarfrí í grunnskólum Garðabæjar næsta skólaár. Oddný Eyjólfsdóttir, grunnskólafulltrúi, segir að ákvörðunin hafi einróma verið samþykkt á 20. fundi skólanefndarinnar þann 10. apríl sl. Oddný sagði að fyrir ákvörðuninni væru einkum tvær ástæður. Annars vegar að ekki ...
Þær skiptast í viftur sem snúast á öxli og miðflóttaaflsviftur.
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir oddviti Framsóknarflokksins í borgarstjórn hyggst óska eftir tímabundnu leyfi frá störfum þegar hún snýr hún fæðingarorlofi ef að athugun á máli hennar verður ekki lokið af hálfu innri endurskoðunarborgarinnar og siðanefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga. Mál Sveinbjargar snýr að fél...
Nýtt einbýlishús var tekið í notkun að Sólheimum í síðustu viku. Um er að ræða fyrsta einbýlishúsið sem byggt er gagngert fyrir fólk með þroskahömlun. Fyrstu íbúar Grænhóls, en svo nefnist nýja húsið, eru sambýlisfólkið Reynir Pétur Ingvarsson og Hanný M. Haraldsdóttir. Búsetu og heimilissvið Sólheima annast þjónustu v...
Þann 31. júlí 2009 var hann úrskurðaður gjaldþrota að eigin ósk.
Hún rekur upphaf sitt til Norræna iðnaðarsjóðsins og NordTest sem settar voru á fót 1973.
" Hægt er að gera því foreldri sem ekki býr hjá barni skylt að greiða hinu sem sér um veislu í tilefni fermingar eða borgaralegrar athafnar, " segir Birna S. Björnsdóttir, aðstoðardeildarstjóri í sifja - og skiptadeild hjá sýslumanninum í Reykjavík. " Samkvæmt 60. grein barnalaganna er heimilt að úrskurða þann sem er m...
Meðal tillagna nefndarinnar var að Reykjavík yrði gerð að höfuðstað landsins.
Salan hjá Porsche hefur aukist þrjú síðastliðin ár. Porsche Cayenne seldist best allra bíla. Fleiri Porsche sportbílar seldust á árinu 2012 en nokkru sinni fyrr í sögu þýska framleiðandans. Alls voru afhentir 141.075 Porsche sportbílar sem er 18,7% aukning frá árinu 2011. Þetta þykir eftirtektarverður árangur í ljósi e...
Bandarískir hermenn í Afganistan skutu óvart 7 afganska lögreglumenn til bana í nótt. Bandaríski herinn var kallaður til aðstoðar eftir að lögreglumennirnir lentu í átökum við vígamenn Talibana.
Eftirmenn hans sem höfðingjar Sérókaþjóðarinnar hafa verið Ross Swimmer, Wilma Mankiller, Joe Byrd, Chad Smith og núverandi höfðinginn Bill John Baker.
Hornamaðurinn Arnór Gunnarsson hefur ákveðið að leggja landsliðsskóna á hilluna. Brjóskeyðing í hægri mjöðm spilar þar hvað stærstan þátt en Arnór segir skrokkinn ekki ráða við það álag sem fylgir því að spila sem atvinnu - og landsliðsmaður. Þetta er mikið áfall fyrir íslenska landsliðið en Arnór var fyrirliði liðsins...
Kröfur íslensku viðskiptabankanna á bandaríska fjárfestingabankann Lehman Brothers og tengdra aðila, eru 182 milljónir evra. Þetta jafngildir um 25 milljörðum íslenskra króna. Lehman Brothers er gjaldþrota og óvíst um heimtur fjárins. Mest er áhætta Straums. Bankinn á ekkert inni hjá Lehman Brothers bankanum sjálfum, e...
Félag flugmálastarfsmanna ríkisins hefur samþykkt kjarasamning við Isavia sem undirritaður var 7. maí sl. Já sögðu 106 eða 63,10%, nei sögðu 53 eða 31,55% og 9 skiluðu auðu eða 5,36%. Atkvæðagreiðslan var rafræn. Á kjörskrá voru 216. 169 greiddu atkvæði og tóku því rúm 78% félagsmanna þátt í atkvæðagreiðslunni, að því ...
Kjósendur munu kveða upp dóm yfir stjórnmálamönnum segir Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra og útilokar ekki að gengið verði fyrr til alþingiskosninga. Björn var gestur Sigmundar Ernis í Mannamáli í gærkvöldi. Í þættinum ræddi Björn meðal annars um mögulega lántöku Íslendinga í Rússlandi. Hann sagðist telja að um geópól...
Heilsudrottningin Jónína Benediktsdóttir fór í meðferð fyrr á þessu ári. Þessu greinir Jónína frá í pistli á Facebook. Hún segir að hún hafi fundið í hjarta sínu að hún hafi þurft á hjálp að halda. Hjálpina fékk hún í Krýsuvík. Hún segir að síðan árið 2000 hafi hún ekki treyst nokkrum manni og að það hafi þurft mikið t...
Kolbrún Gígja er ekki nema 20 ára og vinnur sem dyravörður og vaktstjóri á Hressingarskálanum. Hún er útskrifaður lífvörður en á lífvarðanámskeiðinu fékk hún viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur ásamt öðrum dreng. Hún ákvað að skella sér í lífvarðanám eftir að vinnufélagar hennar á Hressó bentu henni á hvað námið...
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu L um að vísað yrði frá dómi máli LB hf. á hendur sér. Þar sem heimild brast til kæru úrskurðarins var málinu vísað frá Landsrétti. Landsréttardómararnir A-kvk-nf E-kvk-nf, J-kk-nf S-kk-nf og Þ-kk-nf I-kk-nf N-kk-nf kveða upp úrskurð í máli þessu. Málsmeðferð og d...
Trímatarnir eða englar Leakeys eru þrjár konur, Jane Goodall, Dian Fossey og Birutė Galdikas, sem hver um sig hefur helgað líf sitt rannsóknum á einni tegund mannapa í sínu náttúrulega umhverfi, að undirlagi breska mannfræðingsins Louis Leakey.
Afar skiptar skoðanir eru um nýja skýrslu þriggja erlendra sérfræðinga um áhrif kísilgúrvinnslu í Mývatni sem greint var frá í Morgunblaðinu á föstudag. Gunnar Örn Gunnarsson, framkvæmdastjóri Kísiliðjunnar, segir skýrsluna staðfesta það sem fyrirtækið og flestir Mývetningar hafi ávallt sagt, að einhverjar sveiflur í l...
Íslensku milliríkjadómararnir í handknattleik, þeir Stefán Arnaldsson og Gunnar Viðarsson, Ólafur Haraldsson og Guðjón L. Sigurðsson, Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson hafa staðið sig með sóma í vetur á erlendri grundu og fengið mörg verkefni. Evrópska handknattleikssambandið, EHF, var að senda frá sér niðurstöður...
Líf og fjör ræður nú ríkjum í höfuðborginni en kl. 13 í dag var Fjölmenningardagur Reykjavíkurborgar settur í fimmta sinn. Markmið hátíðarinnar er að fagna fjölbreyttri menningu borgarsamfélagsins. En talið er að fulltrúar af 90 þjóðernum taki þátt í hátíðinni. Setningarathöfnin hófst við Hallgrímskirkju en það var Jón...
Undanfarin ár hefur áhugi fólks á vottuðum lífrænum snyrtivörum aukist, í ljósi þess hve aukefni í venjulegum snyrtivörum eru mörg hver skaðleg. I raun má segja að fólk þurfi að hugsa jafn vel um efnin sem það ber á húðina eins og matinn sem það borðar. Gott úrval er hér á landi af lífrænum snyrtivörum en þær hafa þótt...
Heildaraflinn í apríl hélst svipaður á milli ára í Suðurnesjahöfnum. Alls bárust 6.975 tonn á land í apríl síðastliðnum samanborið við 7.070 tonn í sama mánuði síðasta árs. Í Grindavík jókst heildaraflinn á milli ára. Var 4.758 tonn í apríl síðastliðnum samanborið við 3.888 tonn í apríl 2009.
Árleg bílasýning í Detriot í Michigan í Bandaríkjunum stendur nú sem hæst. Þar sýna bílaframleiðendur bæði bíla sem eru að koma á markað og einnig tilraunabíla sem hugsanlega gefa til kynna hvernig farartæki verða á götum eftir ár eða áratugi. Það hefur vakið athygli á sýningunni að bílaframleiðendur virðast ætla að ve...
Um 450 manns eru á boðunarlista Fangelsismálastofnunar um fangelsisvist í fangelsum landsins. Forstöðumaður Litla-Hrauns segir fangelsið þar yfirfullt. Það er þröngt á þingi í fangelsum landsins, ekki síst á Litla-Hrauni því þar er allt troðfullt og gengur illa að ganga á boðunarlistann en á honum eru 450 manns eða all...
,, Ég fékk samningstilboð í síðustu viku, ' sagði Hannes Þorsteinn Sigurðsson leikmaður FH í samtali við Fótbolta.net. Hann hefur fengið samningstilboð frá Spartak Nal'chik í Rússlandi þar sem hann var til reynslu í síðasta mánuði. ,, Ég er að fara yfir tilboðið núna og skoða það vel svo reikna ég með að senda þeim eit...
Sögustund Ívar Benediktsson iben@mbl.is Réttum aldarfjórðungi eftir sögulegasta 100 m hlaup sögunnar heimsótti Kanadamaðurinn Ben Johnson Ólympíuleikvanginn í Soeul í Suður-Kóreu í gær. Hann skokkaði eftir 6. brautinni og í mark, þeirri sömu og hann hljóp á í hlaupinu eftirminnilega. " Hér átti sér stað einn af stórvið...
Samfylking og Sjálfstæðisflokkur kynna í dag þá karla og konur sem gefa kost á sér í prófkjöri flokkanna fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík í vor. Sjálfstæðisflokkur efnir til opins fundar í Iðnó klukkan 11 þar sem þátttakendur í prófkjöri flokksins þann 23. þessa mánaðar, á laugardegi eftir viku, kynna sig o...
Atriði söngkonunnar Madonnu og rapparans Drake sem þau fluttu á Coachella -hátíðinni um helgina hefur fengið mikla athygli vegna þess að þau deildu ástríðufullum kossi á sviðinu. Það eru þá sérstaklega viðbrögð Drake við kossinum sem vakið hafa athygli en honum virtist hrylla við kossinum. Samkvæmt heimildum TMZ hryllt...
Volkswagen bílasmiðjurnar hafa vakið mikla athygli á bílasýningunni í Frankfurt með tvinnbílnum L 1 en nafnið vísar til þess að hann eyðir aðeins um 1,38 lítrum á hverja hundrað ekna kílómetra að meðaltali. Koldíoxíðslosun er aðeins um 39 grömm en gott þykir ef nýir smábílar komast undir 100 grömmin. Hugmyndabíllinn er...
Talsverð umræða spannst um þá ákvörðun Craigs Pedersen, þjálfara íslenska karlalandsliðsins í körfubolta, um velja Stjörnumanninn Tómas Þórð Hilmarsson í landsliðið en ekki Grindvíkinn Sigurð Gunnar Þorsteinsson. „ Þetta eru áþekkir leikmenn. Tómas Þórður getur skotið fyrir utan en er ekki þessi þungavigtarmaður undir ...
„ Mér sýnist það vera að staðfestast sem ég sagði í gær að dauðastríð ríkisstjórnarinnar er hafið og þau kjósa einhverra hluta vegna að framlengja það fram á haust, " segir Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar í samtali við mbl.is. „ Báðir flokkar eiga í vandræðum með að manna ráðherraembættin, því að Sjálfstæ...
Staðfest hefur verið að sautján manns hafi látist er eldur kom upp í rútu í suðausturhluta Kirgistans í morgun en samkvæmt óstaðfestum fréttum rússneskra fjölmiðla létust allt að fjörutíu manns í slysinu. Rútan, sem var í eigu kínversks fyrirtækis, var á leið til Kína. Ekki er ljóst hvað olli slysinu.
Björn Valur Gíslason fyrrverandi varaformaður Vinstri grænna og Björn Bjarnason fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins setja spurningamerki við frétt Fréttablaðsins í dag um úthringingar forystu - og áhrifafólks í VG til flokksráðsfulltrúa, en flokksráðið tekur endanlega ákvörðun um hvort Vinstri græn geta myndað rí...
John Obi Mikel, fyrirliði Nígeríu, skorar á Króata að hætta við fyrirætlanir sínar um að hvíla lykilmenn í lokaleik riðilsins gegn Íslandi. Zlatko Dalic, landsliðsþjálfari Króatíu, gaf það út strax eftir 3 - 0 sigur á Argentínu í gær að hann myndi hvíla lykilmenn þegar þeir mæta Íslandi þar sem Króatía er búið að trygg...
Írunn Þorbjörg Aradóttir átti frábæran leik þegar Stjarnan vann sannfærandi 5 - 1 sigur gegn Þór / KA í Pepsi-deild kvenna í dag. Stjarnan hafði tapað tveimur af síðustu þremur leikjum sínum og þurfti sigur til að stimpla sig aftur inn í titilbaráttuna. „ Við erum ógeðslega ánægðar með að ná að vinna eftir að hafa tapa...
Hinn fjögurra ára gamli Adolf Hitler Campbell og systur hans, JoyceLynn Aryan Nation þriggja ára og Honszlynn Hinler Jeannie, tveggja ára verða áfram í umsjá ríkisins. Þetta er úrskurður áfrýjunardómstóls í Bandaríkjunum sem ákvað að foreldrar þeirra ættu ekki að fá forræði yfir þeim aftur. Foreldrarnir, Heath og Debor...
Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur um að kortafyrirtækið Valitor verði að opna greiðslugátt fyrir fyrirtækið Datacell þannig að það geti tekið við framlögum með greiðslukortum til WikiLeaks var staðfestur í Hæstarétti í dag. Ef Valitor opnar ekki fyrir greiðslugáttina til WikiLeaks innan 15 daga þarf fyrirtækið að greiða 800...
Árið 2007 var fjörugt í viðskiptalífinu. Blaðamenn Markaðarins fóru yfir árið og fundu það markverðasta sem gerðist í heimi viðskiptanna. Janúar Í byrjun ársins upplýsti Markaðurinn að hér á landi hefði velta hlutabréfa ellefufaldast frá árinu 2000. Ákveðin stemning var á markaði og hjá bönkunum þóttust menn góðir að h...
ÍSLENSK-kínverska viðskiptaráðið stendur þessa dagana fyrir ferð viðskiptasendinefndar til Kína. Þátttakendur eru 22 frá 15 fyrirtækjum. Í tilkynningu segir að tilgangur ferðarinnar sé að heimsækja Canton sýninguna í Kína, en sýningin, sem nú er haldin í 100. sinn, sé ein stærsta vörusýning sem um getur. Sýningin er tv...
Bankinn var stofnaður árið 2008 undir nafninu Nýi Kaupþing banki en fékk nafnið Arion banki 21. nóvember 2009.
Superbreak flug frá Leeds, á Englandi, sem lenda átti um 10:30 á Akureyri í dag var snúið við til Egilsstaða. Hafði flugstjóri vélarinnar, sem er frá Titan Airways, þá hringsólað ofan Eyjafjarðar um stund. Áætlað var að bíða af sér versta veðrið á Egilsstöðum og reyna svo aftur lendingu á Akureyri seinna í dag. Á velli...
Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is " Ég hygg að hvar sem Þorvaldur er staddur þá muni það gleðja hans hjarta að heyra þessi lög flutt. Hann þekkir okkur Skúla og er ánægður með okkur, " segir Megas sem mun ásamt Skúla Sverrissyni og hljómsveit frumflytja í heild sinni Ósómaljóð Þorvaldar Þorsteinssonar á 29. Listahát...
YNGRI landslið kvenna í knattspyrnu, 19 ára og 17 ára landsliðin, leika í milliriðlum Evrópukeppninnar í Belgíu og Danmörku næsta vor en dregið var í riðlana hjá UEFA í gær. Ísland komst áfram úr undanriðlum í báðum aldursflokkum í haust. 19 ára liðið, sem Ólafur Þór Guðbjörnsson stjórnar, fer til Belgíu 24. - 29. aprí...
Ekki verður farið í neinar framkvæmdir til að koma í veg fyrir að hraun úr Geldingadölum flæði yfir Suðurstandarveg heldur verið einblínt á að verja Grindavíkurbæ og vegi þar í kring, samkvæmt tilkynningu frá almannavörnum ríkislögreglustjóra. Á næstu dögum mun hraun skríða fram úr Nátthaga yfir Suðurstrandarveg og í á...
Guðjón Þórðarson, þjálfari Grindavíkur í knattspyrnu karla ræddi við Hjört Hjartarson í útvarpsþættinum Boltinn á X-inu í morgun. Guðjón svaraði þar gagnrýni Paul McShane sem fyrr í vikunni lét þau orð falla að Guðjón væri lélegasti þjálfari sem hann hefði haft á ferlinu. Guðjón gagnrýndi sjálfur fjölmiðla á Íslandi í ...
Landic Property hf. hefur fest kaup á hlut FL Group í alþjóðlegum fasteignasjóðum. Sjóðirnir eru Prestbury, Lxb, Catalyst Capital, Terra Firma og WCC Europe. Kaupverðið er 20,6 milljarðar króna og voru kaupin fjármögnuð með víkjandi láni með breytirétti sem kemur til greiðslu eftir fimm ár. Þetta kemur fram í tilkynnin...
Formaður samninganefndar ljósmæðra telur ólíklegt að samningar náist á morgun á næsta fundi í kjaradeilu þeirra við ríkið. Þeim hafi einungis verið boðin rúmlega fjögurra prósenta hækkun og enn ber mikið í milli. Næsti fundur í kjaradeilunni hefur verið boðaður hjá ríkissáttasemjara klukkan þrjú á morgun. Katrín Sif Si...
Real Madrid náði aðeins markalausu jafntefli á móti Valencia í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld og spennan jókst því í baráttu Real og Barcelona um spænska meistaratitilinn. Real Madrid var tíu stigum á undan Barcelona fyrir nokkrum vikum en efrir þrjú jafntefli í síðustu fimm leikjum er forystan komin niður ...
Þróttur R. og Fylkir gerðu með sér 0 : 0 - jafntefli á Valbjarnarvellinum í Laugardal í kvöld. Úrslit leiksins segja í raun allt sem segja þarf um leikinn, hann var fremur bragðdaufur og lítið fyrir augað. Þróttur er með 19 stig en Fylkir 16 stig að loknum leiknum. Fylgst var með gangi mála í beinni textalýsingu hér á ...
Sean Dyche, stjóri Burnley, var eilítið svekktur í viðtali við Sky Sports eftir 1 - 1 jafntefli gegn Tottenham í kvöld. Burnley komst yfir en Tottenham jafnaði þegar Dele Alli skoraði úr vítaspyrnu. „ Við vorum flottir eftir að við fengum á okkur víti en við eigum enn mikið inni, " sagði Dyche. „ Í seinni hálfleik þá b...
Stjarnan gat lítið annað gert en unnið sinn leik í 16. umferð Pepsi-deildar kvenna í gærkvöldi gegn Aftureldingu til að halda lífi í vonum sínum um Íslandsmeistaratitilinn. Það gerðu Garðabæjarstúlkur líka en þær unnu auðveldan sigur, 3 : 0, þar sem Inga Birna Friðjónsdóttir skoraði tvö mörk. Með því minnkar Stjarnan m...
Landsbankinn hefur gert öllum fyrirtækjum sem falla undir Beinu brautina tilboð um endurskipulagningu skulda sinna eins og áður hafði verið lofað. 355 fyrirtæki voru í upphafi talin geta nýtt sér Beinu brautina sem samþykkt var sem úrræði fyrir lífvænleg fyrirtæki með víðtæku samkomulagi í desember á síðasta ári. 230 þ...
Að minnsta kosti einn lést og 30 slösuðust í skýstróki í Rússlandi.
Enska B-deildarfélagið QPR rak í dag knattspyrnustjórann Iain Dowie úr starfi eftir stutta dvöl hjá félaginu. Dowie tók við Luigi de Canio í maí síðastliðnum og stýrði leikinu í einungis fimmtán deildarleikjum. Meira en helmingur þeirra leikja vann QPR en félagið er í níunda sæti deildarinnar. Gareth Ainsworth tekur vi...
Kristján Gauti Emilsson, sem seldur var frá FH til hollenska B-deildarliðsins NEC í sumar, skoraði í dag sitt fyrsta mark fyrir hollenska liðið í dag. Mark Kristjáns, sem jafnframt var annað mark NEC í leiknum, kom á 59. mínútu en stuttu áður hafði hann komið inn á sem varamaður. NEC vann leikinn 2 - 0 og er í öðru sæt...
Magnús Scheving leikur sem kunnugt er aðalskúrkinn í Jackie Chan-myndinni The Spy Next Door. Hlutverkið er nokkuð stórt en myndin skartar auk þeirra tveggja Billy Ray Cyrus, föður unglingastjörnunnar Miley Cyrus, og George Lopez sem áhorfendur Stöðvar 2 ættu að kannast við úr samnefndum gamanþáttum. Stikla myndarinnar ...
Fimmtán erlendir sjálfboðaliðar verða á Íslandi fram að áramótum og taka þátt í stóru átaki til að hreinsa strandlengjuna kringum Ísland. Átakinu sem hófst í dag á að ljúka árið 2011. Reiknað er með því að 60 sjálfboðaliðar taki þátt í hreinsun strandlengjunnar í sumar en samtals munu tæplega 1700 sjálfboðaliðar koma a...
Diego Costa, fyrrum framherji Chelsea og Atletico Madrid, er með samningstilboð frá Benfica í Portúgal. Það er Goal.com sem fullyrðir þessar fréttir en Costa er án félags þessa stundina og skoðar sig um. Samningi leikmannsins við Atletico var rift í desember og er Benfica tilbúið að borga honum þrjár milljónir í árslau...
Ekki hefur verið rætt um það í ríkisstjórn að færa aflaheimildir frá einum hópi fiskiskipa til annarra hópa, samkvæmt því sem fram kom í máli Þorsteins Pálssonar sjávarútvegsráðherra í fyrirspyrnartím á alþingi í dag. Ráðherra sagði að lögmál markaðarins yrðu að ráða og að ekki stæði til að fara að handstýra þróun sáva...
Kevin Nolan fyrirliði Bolton hefur beðið forráðamenn liðsins að nota peninginn sem fékkst fyrir Nicolas Anelka til að styrkja liðið. Anelka fór til Chelsea á fimmtán milljónir punda fyrir helgi en hann hafði áður skorað ellefu mörk í 22 leikjum fyrir Bolton á tímabilinu. Nolan vonast til að peningurinn sem fékkst fyrir...
Talið er að edikssýra hafi lekið úr gámi í Dettifossi við Sundahöfn í dag. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur girt af svæði um borð og við hafnarkantinn til þess að kanna umfangið, en færa þarf nokkra gáma til til þess að komast að lekanum. Lekinn er líklega á afmörkuðu svæði um borð í skipinu en talið er að um 18 t...
Didier Drogba framherji Chelsea og Samuel Eto'o framherji Barcelona eru á meðal þeirra fimm leikmanna sem eru tilnefndir knattspyrnumenn Afríku árið 2006. Aðrir sem eru tilnefndir eru Michael Essien miðjumaður Chelsea, Nwaknwo Kanu framherji Portsmouth sem hefur tvívegis unnið þessi verðlaun og Mohamed Aboutrika sem að...
Hann hugðist keppa aftur á leikunum 1924, en komst ekki vegna veikinda.
Ekki ætlar Jóhanna að fara að sogast niður með Davíð Oddssyni? Hann er þegar búinn að taka Geir Haarde með sér í fallinu. Ég ímynda mér að sá kunni honum litla þökk fyrir ; Geir verður í sögunni hinn eilífi varaformaður. Jóhanna segir að ekkert sé að athuga við störf Ingimundar Friðrikssonar og Eiríks Guðnasonar. Samt ...
Níu nýleg verk flutt af og eftir meðlimi tónlistarhópsins Njúton. Höfundar : Hlynur Aðils Vilmarsson, Anna Sigríður Þorvaldsdóttir, Guðmundur Steinn Gunnarsson, Ingi Garðar Erlendsson, Kolbeinn Einarsson, Steingrímur Rohloff og Hugi Guðmundsson. Hljóðritað í Gróðurhúsinu 3/6 / 8 2007 af Valgeiri Sigurðssyni og Sturlu M...
Á vindasömum mánudegi er ekki úr vegi að birta lista yfir hluti sem við ættum að gera á hverjum deg, i í þeim tilgangi að við verðum hamingjusamari. Ekki veitir eftir allar lægðirnar! Búðu um rúmið Fallegir púðar og rúmteppi gleðja ekki bara augað heldur stuðlað að velgengi í lífinu, almennt. „ Það er mjög gott fyrir e...
Síðasti útgáfudagur Financial Times Deutschland er runninn upp eftir tólf ára útgáfu. Af því tilefni er forsíða blaðsins svört með fyrirsögninni " Endlich schwarz ", " Svart að lokum ". Samkvæmt frétt AFP er ákveðin kaldhæðni falin í þessari fyrirsögn þar sem í tólf ára sögu blaðsins hefur reksturinn aldrei verið réttu...
Helsta kenningin um dauða Lennons er að Mark Chapman hafi verið að vinna fyrir CIA og hafi verið fenginn til að drepa Lennon.
Samtök auglýsenda, SAU, telja starfsemi birtingahúsa vera mikið framfaraskref. Með því sé verið að skilja á milli auglýsingagerðar og birtingaráðgjafar. Nú geti auglýsendur valið að skipta við þá auglýsingastofu og birtingaráðgjöf sem þeir kjósa í stað þess að þurfa að skipta við sama aðilann á báðum sviðum. Í síðustu ...
Eins og flestir vita þá er Chelsea búið að reka knattspyrnustjórann Frank Lampard og er Thomas Tuchel mættur til enska félagsins. Lampard tók við Chelsea í júlí árið 2019 og eftir fínt fyrsta tímabil var Englendingurinn svo rekinn fyrr í janúar eftir slakt gengi. Lampard var alls við stjórnvölin í 571 dag og vann 52 pr...
MARGIR lögðu leið sína að Laufási síðastliðinn sunnudag, en þá var hinn hefðbundni starfsdagur haldinn. Í blíðskaparveðri gat fólkið fylgst með gömlum vinnubrögðum og var hesturinn í aðalhlutverki þetta árið. Fólk kom ríðandi til messu og sýnt var hvernig baggar voru bundnir á hesta fyrir daga rúllubindivéla. Vandasamt...
Nýja Stjörnustríðsmyndin, Star Wars : The Force Awakens, er vinsæl meðal bíógesta um allan heim og nema tekjur af miðasölu 529 milljónum Bandaríkjadala, 69 milljörðum íslenskra króna, á fyrstu sýningarhelgi. Aldrei áður hafa miðar á kvikmynd selst fyrir viðlíka fjárhæð en fyrra metið var aðeins nokkurra mánaða gamalt þ...
UM fimmtungi fleiri umsóknir bárust um nám í myndlist, tónlist, hönnun og arkitektúr í Listaháskóla Íslands en á sama tíma í fyrra. Þegar frestur til að skila inn umsóknum rann út fyrir helgi höfðu um 480 umsóknir borist, sem er um 20% aukning. Aðeins er reiknað með að skólinn geti tekið við um fimmtungi þessa hóps. Fl...
Paris SG náði í kvöld 10 stiga forskoti á toppi frönsku 1. deildarinnar í knattspyrnu og flest stefnir í að liðið nái að landa meistaratitlinum í fyrsta skipti í 19 ár. Parísarliðið bar í kvöld sigurorð af Troyes, 1 : 0, og skoraði Blaise Matuidi sigurmarkið um miðjan seinni hálfleik.
Þremenningarnir, sem voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í gær að beiðni embættis sérstaks saksóknara vegna Glitnismálsins, hafa nú allir kært gæsluvarðhaldsúrskurðinn til Hæstaréttar. Málsaðilar hafa greinargerðarfrest til morguns og verður málið tekið fyrir eftir það. Þeir sem um ræðir eru Lárus Welding, fyrrverandi for...
Rifjasmári er útbreiddur í Ölpunum yfir Dauphiné upp til Tyrol.
Stjórnir SPRON og Kaupþings hafa samþykkt að Kaupþing yfirtaki eignir og skuldir SPRON. Forstjóri Kaupþings á Íslandi, Ingólfur Helgason, telur samrunann efla starfsemi sem félögin hafa boðið upp á.
SÍÐASTLIÐIÐ fimmtudagskvöld kynnti sjónvarpsstöðin Skjár einn vetrardagskrá sína með pompi og pragt í Borgarleikhúsinu. Boðið var upp á veitingar og brot úr væntanlegri dagskrá var varpað á skjá. Margt forvitinna gesta sótti kynninguna en af nýju innlendu efni má nefna t.d. Popp Punkt þeirra Dr. Gunna og Felix Bergsson...
Ekki nota jólasveinana til að hegna eða umbuna í desember. Íslensku jólasveinarnir gætu verið forfeður okkar í dulargervi. Að deyja í fjall er gamall siður / talsmáti. Þeir koma svo í heimsókn um vetrarsólhvörf, jólin. Matargjafir og forfeðradýrkun gætu hafa verið bannaðar á myrku öldunum, svo við sögðum þá hafa stolið...
OECD spáir vaxandi atvinnuleysi á Íslandi næstu misseri og að það verði 5,7% á næsta ári. Atvinnuleysi hefur aldrei mælst svo hátt hér á landi frá því að reglubundnar mælingar hófust árið 1957. Viðskiptablaðið fjallar um þetta í dag og segir að hæst hafi atvinnuleysi farið í 5% árið 1995 og hafi verið á bilinu 4,4 - 5%...
Róttæki vinstri flokkurinn Syriza, sem farið hefur með stjórnartaumana í Grikklandi frá því í janúar sl. undir forystu fyrrverandi forsætisráðherrans Alexis Tsipras, og hægri flokkurinn Nýtt lýðræði mælast jafnir í nýjustu skoðanakönnunum í Grikklandi nú þegar aðeins vika er til þingkosninga. Kosningarnar eru þær fimmt...
Nepalska er opinbert tungumál landsins en innan við helmingur íbúa á nepölsku að móðurmáli.
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is Geir H. Haarde forsætisráðherra og Jóannes Eidesgaard, lögmaður Færeyja, funduðu í gær um sameiginleg málefni landanna, en Eidesgaard er staddur hér á landi í opinberri heimsókn sem stendur fram á föstudag. " Við ræddum í fyrsta lagi varnar - og öryggismál á Norður-Atlantshafi...
Mikið var um dýrðir þegar Gleðigangan var farin í dag, 19. árið í röð. Mikil eftirvænting var meðal þeirra sem fylgdust með um hver fengi þann heiður að vera á síðasta vagninum í fjarveru Páls Óskars. Litagleði, ást og hamingja var áberandi í Gleðigöngunni í dag. Þátttakendur voru mjög spenntir þegar fréttastofa náði t...
2 Matarbloggarinn Erla Guðmundsdóttir gefur ómótstæðilegar súkkulaðiuppskriftir.
Daily Mail hefur birt mynd af Ólafi Ragnari Grímssyni, fyrrverandi forseta Íslands, og Dorrit Moussaieff, með vinkonum Jeffrey Epstein. Myndin var tekin í boði sem kampavínsfyrirtækið Dom Perignon hélt. Fréttablaðið vakti athygli okkar á þessu. Meginviðfangsefni fréttar Daily Mail eru tengsl Epsteins við Katherine Keat...
Á milli jóla og nýárs voru sex ökumenn teknir fyrir ölvun við akstur. Að sögn lögreglu er þetta óvenju mikið. Fimm af þessum sex ökumönnum voru á aldrinum 16 - 20 og þar af einn án ökuréttinda. Þetta er slæm þróun og ökumenn ættu að hafa hugfast að eftir einn ei aki neinn.
Stefnt er að fjölgun leikskólarýma á Akureyri og að styrkja foreldra sem koma börnum ekki á leikskóla við 17 mánaða aldur. Fasteignagjöld verða lækkuð á næsta ári samkvæmt fjárhagsáætlun sem var samþykkt í gær. Gert er ráð fyrir 660 milljóna króna afgangi af rekstri Akureyrarbæjar á næsta ári. Mikil áhersla er á dagvis...
FJÖLMENNI fylgdist með er topphluti Spírunnar ( the Spire ), hæsta mannvirkis Írlands, var híft á sinn stað í O'Connell-stræti í miðborg Dyflinnar í gær. Upprunalega stóð til að lokið yrði við smíði Spírunnar aldamótaárið 2000, en eftir margvíslegar tafir á framkvæmdum tókst það loks í gær, með hjálp hæsta krana í Evró...
FYRIR síðustu kosningar til Alþingis lagði Framsóknarflokkurinn áherslu á svokölluð Barnakort. Í kosningastefnuskrá flokksins var eftirfarandi markmið sett fram : " Að hluti barnabóta verði án tekjutengingar þannig að öll börn fái barnakort við fæðingu sem verði 2.500 kr. á mánuði á barn. Kortið nýtist foreldrum til sk...
Yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem tóku afstöðu í skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2, eða rúm 54%, vilja að Samfylking og Vinstri-grænir myndi ríkisstjórn eftir kosningar. Næst flestir, eða rúmlega 12,5%, vilja ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Liðlega 9,5% vilja ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og...