year
stringclasses
2 values
id
stringlengths
1
3
intro
stringlengths
53
1.08k
main
stringlengths
303
6.4k
summary
stringlengths
51
406
2022
188
null
Forseti Úkraínu leggur til leiðtogafund með forsetum Frakklands og Rússlands og kanslara Þýskalands þar sem deila Úkraínumanna og Rússa verði leidd til lykta. Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, lagði til í dag að hann og leiðtogar Frakklands, Þýskalands og Rússlands ræddust við og leiddu til lykta deilu Úkraínumanna ...
Forseti Úkraínu leggur til leiðtogafund með forsetum Frakklands og Rússlands og kanslara Þýskalands, þar sem deila Úkraínumanna og Rússa verði leidd til lykta.
2022
188
Íslenska karlalandsliðið í handbolta hélt af stað til Ungverjalands í morgun. Liðið mætir Portúgal í fyrsta leik á föstudagskvöld.
Eftir níu daga dvöl í sóttvarnarkúlu lagði liðið loks af stað til Ungverjalands í morgun. Janus Daði Smárason, landsliðsmaður, segir að tveir, þrír dagar í kúlunni í viðbót hefðu sennilega orðið full mikið þó að liðið sé samheldið. Janus gat ekki beitt sér að fullu á síðasta stórmóti og þurfti að yfirgefa liðið, þá á m...
null
2022
188
Snarpur jarðskjálfti varð suðvestur af Húsafelli og vestan við Ok á tíunda tímanum í morgun. Nokkur jarðskjálftavirkni hefur verið á svæðinu síðan um áramót og viðbúið að verði áfram, að sögn náttúruvársérfræðings Veðurstofu Íslands.
Klukkan korter yfir níu í morgun varð jarðskjálfti 3,1 að stærð um 18 kílómetra suðvestur af Húsafelli, við Sandfell, vestan við Ok. Skjálftinn fannst vel í Húsafelli, að því er fram kemur á vef Veðurstofu Íslands. Salóme Jórunn Bernharðsdóttir, náttúrvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir ekki hættu á eldgosi á þ...
Jarðskjálfti, þrír komma einn að stærð, varð suðvestan við Húsafell og vestan við Ok á tíunda tímanum í morgun. Náttúruvársérfræðingur býst við að jörð haldi áfram að skjálfa svæðinu, en engin hætta er á gosi.
2022
188
Þorskveiðiheimildir til strandveiða verða skertar um eitt þúsund og fimm hundruð tonn í ár, samkvæmt nýrri reglugerð sjávarútvegsráðherra. Talsmaður smábátaeigenda segir þetta koma verulega á óvart og strandveiðar stöðvist á miðju tímabili verði þetta ekki leiðrétt.
Í breytingum á reglugerð um veiðar í atvinnuskyni á yfirstandandi fiskveiðiári kemur fram að þorskveiðiheimildir fyrir strandveiðar og almennan byggðakvóta verða skertar miðað við síðasta fiskveiðiár. Heimildir til strandveiða minnka um fimmtán hundruð tonn, fara úr tíu þúsund tonnum í átta þúsund og fimm hundruð tonn....
Þorskveiðiheimildir til strandveiða hafa verið skertar um eitt þúsund og fimm hundruð tonn miðað við það sem áður hafði verið ákveðið. Talsmaður smábátaeigenda krefst leiðréttingar á þessu hið fyrsta.
2022
188
Skiptar skoðanir eru meðal kúabænda um viðbrögð stjórnar Íseyjar við áskökunum ungrar stúlku á hendur fyrrum framkvæmdastjóra fyrirtækisins, sumum finnst að stjórnin hefði mátt bregðast fyrr við, þar á meðal er Guðný Helga Björnsdóttir, bóndi á Bessastöðum við Hrútafjörð.
Hún bregst seint við finnst okkur mörgum bændum, það hefði mátt fyrr grípa inn í og setja starfsmanninn til hliðar þegar þessar ásakanir komu fram og urðu ljósari. Við erum mjög ánægð með að það skuli svo í kjölfar viðtalsins, að það sé búið að víkja starfsmanninum frá störfum, því að bændur vilja ekki að svona háttala...
null
2022
189
Aung San Suu Kyi, fyrrverandi leiðtogi Mjanmar, fékk í dag fjögurra ára fangelsisdóm fyrir brot á sóttvarnareglum og fyrir að hafa smyglað litlum talstöðvum til landsins.
Dómstóll herforingjastjórnarinnar í Mjanmar dæmdi Aung San Suu Kyi, fyrrverandi leiðtoga landsins, í fjögurra ára fangelsi. Hún hefur setið í varðhaldi frá því að herinn rændi völdum fyrir tæplega einu ári. Samkvæmt heimildum AFP fréttastofunnar var Aung San Suu Kyi sakfelld að þessu sinni og dæmd fyrir að hafa smyglað...
Aung San Suu Kyi, fyrrverandi leiðtogi Mjanmar, fékk í dag fjögurra ára fangelsisdóm fyrir brot á sóttvarnareglum og fyrir að hafa smyglað litlum talstöðvum til landsins.
2022
189
Karl og kona voru fyrir helgi sakfelld fyrir að beita fjórar dætur sínar síendurteknu andlegu og líkamlegu ofbeldi og hótunum um þriggja ára skeið. Maðurinn var jafnframt sakfelldur fyrir að hóta konunni ítrekað og beita hana andlegu og líkamlegu ofbeldi.
Stúlkurnar voru á aldrinum tveggja til ellefu ára þegar fyrst vaknaði grunur um ofbeldið og hafði það þá staðið yfir í tvö ár. Skömmu síðar komu barnaverndaryfirvöld stúlkunum í fóstur en maðurinn hélt áfram að nálgast eldri stúlkurnar og ógna þeim. Málið uppgötvaðist þegar elsta stúlkan sagði þjálfara sínum að pabbi h...
null
2022
189
Fundur fulltrúa stjórnvalda í Bandaríkjunum og Rússlandi um stöðu og þróun mála í Úkraínu er haldinn í dag. Ólíklegt þykir að nokkur árangur verði af honum.
Fulltrúar stjórnvalda í Bandaríkjunum og Rússlandi eru mættir til viðræðna í Genf í Sviss. Þar verður staða og þróun mála í Úkraínu til umræðu ásamt valdajafnvæginu í Evrópu. Litlar vonir eru bundnar um árangur þess fundar. Aðstoðarutanríkisráðherrar landanna, Wendy Sherman og Sergei Ryabkov, fara fyrir sendinefndunum....
Fundur fulltrúa stjórnvalda í Bandaríkjunum og Rússlandi um stöðu og þróun mála í Úkraínu er haldinn í dag. Ólíklegt þykir að nokkur árangur verði af honum.
2022
189
Kindurnar Tignarleg frá Sveinsstöðum í Húnaþingi og Móbotna frá Straumi í Hróarstungu á Héraði skráðu sig á spjöld sögunnar á föstudag. Þá kom í ljós að þær bera sjaldgæft gen sem verndar þær gegn riðu. Fjórar slíkar kindur hafa nú fundist í íslenska stofninum en þó hafa engir hrútar fundist enn.
Alls hafa nú fundist fjórar kindur hér á landi sem bera sérstakt gen sem talið er að geti verndað þær fyrir riðu. Ráðunautur segir að leitin að geninu beinist ekki síst að öllu furðufé; kindum sé séu óvenjulegar eða sérstakar að einhverju leyti. Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins ásamt sérfræðingi frá Tilraunamiðstöð Hásk...
Ærnar Tignarleg frá Sveinsstöðum í Húnaþingi og Móbotna frá Straumi í Hróarstungu á Héraði voru skráðar á spjöld sögunnar á föstudag. Þá kom í ljós að þær bera sjaldgæft gen sem verndar þær gegn riðu. Fjórar slíkar kindur hafa nú fundist í íslenska stofninum en enginn hrútur. þó hafa engir hrútar fundist enn.
2022
189
Landsvirkjun hefur nú tilkynnt stórnotendum svo sem álverum að skerða þurfi orkusölu til þeirra vegna þess hve lítið vatn er í lónum á Þjórsársvæðinu. Álver gætu þurft að minnka framleiðslu vegna þessa nú þegar álverð er í miklum hæðum.
Landsvirkjun þarf að skerða orku til stórnotenda á borð við álver og líklega þarf að minnka framleiðslu vegna þessa. Staðan í vatnsbúskap hefur ekki verið lakari í sjö ár. Landsvirkjun hafði þegar gripið til skerðinga, meðal annars hjá fiskimjölsverksmiðjum og nú er ljóst að þær fá ekki rafmagn fyrr en í vor þegar leys...
Landsvirkjun hefur tilkynnt stórnotendum svo sem álverum að skerða þurfi orkusölu til þeirra vegna þess hve lítið vatn er í lónum Þjórsár. Álver gætu þurft að minnka framleiðslu, nú þegar álverð er í miklum hæðum.
2022
190
Hundruð skæruliða og óbreyttra borgara hafa fallið í Nígeríu undanfarna viku. Ríkisstjórnin hefur skorið upp herör gegn glæpahópum sem hafa svarað með árásum á óbreytta borgara.
Hópar skæruliða í Nígeríu drápu að minnsta kosti tvö hundruð manns í liðinni viku. Átök milli stjórnvalda og skæruliða hafa harðnað verulega undanfarna viku en skæruliðarnir hafa valdið miklum búsifjum. Skipulagðir skæruliðahópar hafa gert íbúum norðvesturhluta Nígeríu lífið leitt árum saman og hefur stjórnvöldum gengi...
Hundruð skæruliða og óbreyttra borgara hafa fallið í Nígeríu undanfarna viku. Ríkisstjórnin hefur skorið upp herör gegn glæpahópum sem hafa svarað með árásum á óbreytta borgara.
2022
190
Ef banna á blóðtöku hryssna alveg ætti allt eins að banna allt búfjárhald á Íslandi segir formaður Dýraverndarsambands Íslands. Mikilvægt sé þó að refsa fyrir illa meðferð á dýrum.
Ef leggja á blóðtöku hryssna á Íslandi af, væri réttast að hætta öllu búfjárhaldi. Dæmi eru um illa meðferð dýra í öllum geirum að mati formanns Dýraverndarsambands Íslands. Náið eftirlit með dýrahaldi er nauðsyn og gott að lögreglurannsókn fer fram á blóðtöku hryssna á nokkrum stöðum sem uppvís urðu að illri meðferð a...
Ef banna á blóðtöku hryssna alveg ætti allt eins að banna allt búfjárhald á Íslandi segir formaður Dýraverndarsambands Íslands. Mikilvægt sé þó að refsa fyrir illa meðferð á dýrum.
2022
190
Rússar útiloka að kvikað verði frá kröfum um að NATO hætti að fjölga aðildarlöndum í austri. Fundur þeirra og Bandaríkjanna um málefni Úkraínu hefst í kvöld.
Fundur Bandaríkjamanna, NATO og Rússa um málefni Úkraínu hefst í kvöld með vinnukvöldverði varautanríkisráðherra landanna. Rússar segjast ekki ætla að slaka neitt á kröfum sínum um að NATO hætti stækkunartilburðum sínum til austurs. Rússar hafa sent tugi þúsunda hermanna að landamærum Úkraínu undanfarnar vikur og mánuð...
Rússar útiloka að kvikað verði frá kröfum um að NATO hætti að fjölga aðildarlöndum í austri. Fundur þeirra og Bandaríkjanna um málefni Úkraínu hefst í kvöld.
2022
190
Lovísa Thompson sneri aftur inn á handboltavöllinn eftir hlé þegar Valskonur lutu í lægra haldi fyrir Stjörnunni í spennandi leik í úrvalsdeild kvenna í handbolta í gærkvöld.
Lovísa ákvað í október að taka sér hlé frá handbolta en þá greindi hún frá því að líkaminn og hausinn hefðu ekki verið að vinna saman síðustu misseri og hún ætlaði að taka sér pásu þar til hún fyndi löngunina í handbolta á nýjan leik. Löngunin virðist vera komin til baka eða í það minnsta spilaði Lovísa fínan leik og s...
Lovísa Thompson var aftur í liði Vals í úrvalsdeildinni í handbolta í gærkvöld, eftir að hafa tekið sér pásu frá boltanum í leit að lönguninni á nýjan leik. Lovísa skoraði fjögur mörk en Valskonur töpuðu naumlega fyrir Stjörnunni.
2022
190
Miklu hvassvirði er spáð í kvöld og hefur Veðurstofan gefið út gula veðurviðvörun fyrir mestallt landið. Von á 20-28 metrum á sekúndu á suðvestanverðu landinu. Í óveðrinu sem gekk yfir landið á fimmtudag flettist klæðning af Nesvegi frá Grindavík að Reykjanesvita og tjón varð í höfnum og á sjóvarnargörðum. Eftirlitsmað...
Í óveðrinu á fimmtudaginn var mikið brim og varð mikið tjón í Grindavík og víða í höfnum og á sjóvarnargörðum á suðvesturhorninu. Hafnadeild Vegagerðarinnar hefur ekki enn metið tjón á höfnunum vegna veðursins, en þá flæddi yfir bryggjukanta í Grindavíkurhöfn og sjóvarnargarðar löskuðust. Sjór flæddi in á svæði Matorku...
null
2022
191
Yfirlæknir á Vogi vonast til þess að hægt verði að taka á móti fólki í áfengismeðferð á fimmtudag. Fyrir helgi var spítalanum lokað eftir að þrjátíu og þrír sjúklingar og starfsmenn smituðust af kórónaveirunni.
Niðurstöður PCR skimunar í fyrrakvöld urðu til þess að sjúklingar og starfsmenn á Vogi voru sendir heim. Í gær var Vogur sótthreinsaður en hvænær getur starfsemin hafist aftur? Sko ef allt fer á besta veg þá vonum við að við getum tekið sjúklinga inná Vog á fimmtudaginn. Segir Valgerður Rúnarsdóttir yfirlæknir á Vogi. ...
Yfirlæknir á Vogi vonast til þess að hægt verði að taka við fólki í áfengismeðferð á fimmtudag. Spítalinn var sótthreinsaður í nótt eftir að þrjátíu og þrír sjúklingar og starfsmenn greindust með kórónuveiruna.
2022
191
Undanfarnar vikur hefur nokkur þúsund rúmmetrum af möl og sandi verið mokað úr virkjunarlóni Glerárvirkjunar í miðjum Akureyrarbæ. Lónið fyllist smám saman af framburði úr ánni og þessu þarf að moka burt á nokkurra ára fresti. Andri Teitsson, formaður umhverfis- og mannvirkjaráðs, segir óvenju mikið efni í lóninu í þet...
Af því að þetta flóð, sem kom um mánaðarmótin júní/júlí, það var virkilega stórt eins og fólk sá. Áin var kolmórauð og bar með sér feiknalegt magn og við erum að áætla að það séu kannski 3000 rúmmetrar sem þarf að fjarlægja úr lóninu. Hvað verður um allt þetta efni? Það er gaman að segja frá því að það nýtist. Það er t...
null
2022
191
null
Ríkislögreglustjóri hefur aflýst óvissustigi almannavarna vegna jarðskjálftahrinu við Fagradalsfjall sem hófst 21. desember. Alls mældust tólf skjálftar yfir fjórum að stærð og níutíu skjálftar yfir þremur þær rúmlega tvær vikur sem hrinan stóð. Kvikuhreyfingar neðanjarðar komu hrinunni af stað en töluverðar landbreyti...
Óvissustigi almannavarna vegna jarðskjálftahrinu við Fagradalsfjall sem hófst skömmu fyrir jól hefur verið aflýst. Alls mældust tólf jarðskjálftar yfir fjórum, þær rúmu tvær vikur sem hrinan stóð.
2022
191
Héraðssaksóknari hefur ákært karl og konu fyrir að hafa flutt fjögur kíló af kókaíni til landsins með flutningaskipi i október á síðasta ári. Götuvirði efnanna er um 70 milljónir króna.
Efnið fannst við tollskoðun í höfninni í Þorlákshöfn í október á síðasta ári, vandalega falið undir gólfi í bifreið sem kom frá Danmörku með flutningaskipi. Í ákæru kemur fram að lögregla hafi skipt efninu út fyrir gervikókaín og síðan fylgst með ferðum bílsins. Maður var síðan handtekinn við Freyjugötu í miðborg Reykj...
null
2022
191
Mikill órói er í stjórnmálum í Færeyjum, minnstu munaði að stjórnin félli en hún hefur keypt sér gálgafrest með hrókeringum, en hefur misst meirihlutann á Lögþinginu.
33 þingmenn sitja á Lögþinginu í Færeyjum, mið- og hægri stjórn hefur farið með völd í rúm tvö ár. Sambandsflokkurinn, Miðflokkurinn og Fólkaflokkurinn höfðu nauman meirihluta, en nú getur Bárður á Steig Nielsen, lögmaður eða forsætisráðherra, ekki lengur gengið að því að meirihluti þingmanna styðji stjórnina. Erfiðlei...
null
2022
191
Búið er að handtaka fyrrverandi yfirmann leyniþjónustunnar í Kasastan fyrir landráð. Hann hafði verið rekinn úr starfi í kjölfar mikilla mótmæla í landinu. Bandaríkjamenn hafa áhyggjur af stöðunni í landinu, einkum veru rússnesks herliðs þar.
Kassym-Jomart Tokayev forseti Kasakstan tilkynnti í gær, eftir nokkurra daga hörð mótmæli, að ró væri komin á í landinu. Jafnframt var tilkynnt að rússneskt herlið væri á leið til landsins, sem svo kom í gær. Alls er gert ráð fyrir tvö þúsund og fimm hundruð manna herliði í Kasakstan. Toakyev átti langt samtal við Vlad...
null
2022
191
Lögfræðingar serbnesku tennisstjörnunnar Novak Djokovic segja að hann hafi fengið undanþágu fá reglum um bólusetningar í Ástralíu vegna nýlegrar Covid-19 sýkingar hans. Sú ástæða var hins vegar ekki tekin gild á landamærum Ástralíu.
Djokovic hefur aldrei staðfest það með berum orðum að hann sé óbólusettur en tilkynnti í vikunni að hann væri á leið til Ástralíu á Opna ástralska meistaramótið í tennis með undanþágu frá bólusetningarskyldu sem ríkir í landinu. Tennissamband Ástralíu hafði gefið út að möguleikar væru á að fá undanþágu frá skyldunni ef...
null
2022
192
Forseti Kasakstans skipar öryggissveitum landsins að skjóta mótmælendur án viðvörunar. Hann útilokar samningaviðræður af öllu tagi.
Öryggissveitum í Kasakstan hefur verið skipað að skjóta á mótmælendur án viðvörunar. Forseti landsins segir að samningaviðræður við andstæðinga hans komi ekki til greina. Þeir séu stigamenn sem hafi hlotið þjálfun í andófsaðgerðum erlendis. Kassym-Jomart Tokayev forseti ávarpaði þjóðina í dag í þriðja sinn á einni viku...
Forseti Kasakstans skipar öryggissveitum landsins að skjóta mótmælendur án viðvörunar. Hann útilokar allar samningaviðræður.
2022
192
Rúmlega 1400 eru á biðlista eftir íbúð hjá Bjargi íbúðafélagi. Þrátt fyrir hraða uppbyggingu síðustu ár lengist listinn þar sem þörfin fyrir hagstætt húsnæði var og er mikil. Framkvæmdastjóri Bjargs segir sífellt fleiri sveitarfélög sækjast eftir samstarfi.
Flestar íbúðir Bjargs eru í Reykjavík en sífellt fleiri sveitarfélög bætast í hópinn. Íbúðirnar eru fyrir fólk sem er virkt á vinnumarkaði og á aðild að ASÍ eða BSRB. Björn Traustason er framkvæmdastjóri Bjargs íbúðafélags. Sveitarfélögin hafa staðið vel á bak við okkur í að útvega okkur lóðir í verkefnið, þannig að nú...
null
2022
192
Körfuknattleikssamband Íslands hefur slegið tveimur næstu leikjum KR í úrvalsdeild karla á frest. Þetta er gert þar sem fjöldi leikmanna er ýmist í einangrun eða sóttkví.
Breiðablik og KR áttu að eigast við klukkan korter yfir sex í kvöld og svo var fyrirhugaðir leikur KR á útivelli við Val á mánudag. Báðum leikjum hefur nú verið frestað og unnið að því að finna nýja leiktíma. Að auki hefur tveimur leikjum Selfyssinga í 1. deild karla sem áttu að vera spilaðir um helgina verið frestað, ...
Tveimur leikjum KR-inga í efstu deild karla í körfubolta hefur verið frestað þar sem leikmenn eru ýmist í einangrun eða sóttkví.
2022
192
Ekkert flóð varð í Grindavíkurhöfn í nótt eins og óttast var. Mikið flóð var þar í gærmorgun og náði vatnið upp á miðja hurð á frystiklefa fiskvinnslunnar Vísis. Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis segir að tjónið hlaupi á tugum milljóna króna en að frystiklefinn hafi sloppið nokkuð vel.
Það var unnið fram á nótt við að hreinsa og gera klárt, það komu engar fyllur í gærkvöldi og flóðið fór ekki upp á bryggju í gær. Við vorum með húsið klárt í morgun en við erum án frystiklefans. Fyrsta skoðun á honum er að þetta hafi sloppið, golf og annað. Enn þá erum við ekki að tala um annað tjón en þau sem urðu á a...
Tjón fiskvinnslunnar Vísis í Grindavík hleypur á tugum milljóna eftir flóð þar í gær. Búist er við stormi við Faxaflóa, á Suðurlandi og Suðausturlandi í nótt og fram á morgun
2022
192
Rússneskt útgerðarfélag hefur keypt meirihluta í eyfirska fyrirtækinu Vélfagi. Annar stofnandi fyrirtækisins segir að aðkoma Rússanna sé nauðsynleg til að komast inn á rússneskan markað.
Vélfag var stofnað 1995 og þróar og framleiðir vélar í fiskvinnslu fyrir stærstu sjávarútvegsfyrirtæki landsins. Rússneska fyrirtækið, Norebo, hefur nú eignast 54,5 prósent hlut í Vélfagi. Kaupverðið er trúnaðarmál. Hjónin Bjarmi Arnfjörð Sigurgarðarsson og Ólöf Ýr Lárusdóttir eru stofnendur Vélfags. Ólöf segist fagna ...
Rússneskt útgerðarfyrirtæki hefur eignast meirihluta í eyfirsku fiskvinnsluvélafyrirtæki. Stefnan er sett á að komast inn á rússneskan markað með framleiðsluna.
2022
192
Lögmaður Erlu Bolladóttur segir að það geti tekið langan tíma að fara með mál hennar fyrir endurupptökudómstólinn. Afstaða ríkissaksóknara ráði þar miklu.
Endurupptökunefnd ákvað árið 2017 að mál allra sakborninga í Geirfinnsmálinu skyldu fara aftur fyrir dómstóla, nema mál Erlu. Ári síðar sýknaði Hæstiréttur sakborningana. Fyrr í vikunni heimilaði Héraðsdómur endurupptöku á máli Erlu. Forsætisráðherra sagði í fréttum í gær að ríkið myndi una dómnum. Ragnar Aðalsteinsson...
Lögmaður Erlu Bolladóttur segir að það geti tekið langað tíma að fara með mál hennar í endurupptökudómstól. Hann vonar að ríkissaksóknari sé tilbúinn að flýta fyrir afgreiðslu málsins.
2022
192
Karlmaður á sjötugsaldri, sem grunaður er um fjölmörg brot gegn börnum, hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til þriðja febrúar, samkvæmt úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur. Búið er að taka skýrslur af meira en fjörutíu manns vegna málsins, meirihluti þeirra er á barnsaldri.
[VEFFRÉTT TILBÚIN en óbirt: Gæsluvarðhald framlengt - meira en 30 börn gefa skýrslu í kynferðisbrotamáli] Farið var fram á að gæsluvarðhald yrði framlengt um fjórar vikur og féllst dómurinn á það. Þetta staðfestir Ævar Pálmi Pálmason, yfirmaður kynferðisbrotadeildar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn var uppha...
null
2022
193
Bandarískir alríkissaksóknarar hafa ákært rúmlega sjö hundruð manns á því ári sem í dag er liðið frá árás stuðningsmanna Donalds Trump, þáverandi forseta, á bandaríska þinghúsið. Sjötíu og fjórir hafa fengið dóm fyrir aðild sína að árásinni og þar af hefur tæpur helmingur verið dæmdur í fangelsi.
Mikill fjöldi stuðningsmanna Trumps gerði áhlaup á þinghúsið þann 6. janúar og reyndi að koma í veg fyrir að þingið staðfesti sigur Joes Biden í forsetakosningunum sem fram fóru í nóvember 2020. Trump og aðrir Repúblikanar höfðu ítrekað fullyrt að svindlað hefði verið í kosningunum, án þess að birta nokkur sönnunargögn...
null
2022
193
Tugir mótmælenda í Kasakstan eru sagðir hafa fallið þegar öryggissveitir skutu á þá. Á annað þúsund hafa slasast. Tólf lögreglumenn liggja í valnum. Friðargæslulið verður sent til landsins til að lægja öldurnar.
Öryggissveitir í Kasakstan segjast hafa fellt tugi mótmælenda þegar þeir reyndu að brjóta sér leið inn á lögreglustöðvar og fleiri opinberar byggingar í Almaty, fjölmennustu borg landsins. Á annað þúsund slösuðust þegar fólk mótmælti mikilli hækkun eldsneytisverðs. Mótmælaalda reis í Kasakstan þegar verð á eldsneyti va...
Tugir mótmælenda í Kasakstan eru sagðir hafa fallið þegar öryggissveitir skutu á þá. Á annað þúsund hafa slasast. Tólf lögreglumenn liggja í valnum. Friðargæslulið verður sent til landsins. til að lægja öldurnar.
2022
193
Björgunarsveitir sinntu um hundrað verkefnum vegna vonskuveðursins sem gekk yfir suðvestanvert landið í gærkvöld og í nótt. Um sjötíu þeirra voru á höfuðborgarsvæðinu. Mest var um foktjón en fyrsta útkall barst á ellefta tímanum í gærkvöld. Verkefnum fækkaði eftir því sem líða tók á nóttina. og voru flestar sveitir kom...
Þetta voru þessi hefðbundnu foktjón; klæðningar, þakplötur, gluggar, girðingar, fiskikör. Eitt trampólín meira að segja læddist þarna með og partýtjald. Þannig það var af ýmsu að taka. -Þið voruð væntanlega vel undirbúin, en var þetta meira en þið bjuggust við? Já og nei. Þetta var svolítið hverfaskipt. Við vorum mikið...
null
2022
193
null
Um sex hundruð milljónir hafa verið teknar ólöglega út úr Heilsustofnuninni í Hveragerði, samkvæmt úttekt eftirlitsdeildar Sjúkratrygginga Íslands og kröfur hafi verið gerðar um úrbætur. Þetta kemur fram á vef Kjarnans. Þar segir enn fremur að samningur Heilsustofnunar við Sjúkratryggingar, sem rennur út í mars, tryggi...
Náttúrulækningafélag Íslands tók sex hundruð milljónir króna ólöglega út úr stofnuninni á fimmtán ára tímabili, samkvæmt umfjöllun Kjarnans. Umframkostnaði við arðgreiðslur hafi verið velt yfir á sjúklinga.
2022
193
Asahláka og talsverð rigning eru á Austurlandi í dag. Skriðuvakt hefur verið virkjuð á Seyðisfirði en ekki er talin mikil hætta á ferðum.
Vel er fylgst með hlíðum ofan Seyðisfjarðar vegna skriðuhættu. Hlýindi og mikil rigning eru á Suðaustur- og Austurlandi. Sex stiga hiti var á Egilsstöðum í morgun og mikill vindur. Við þessar aðstæður verður asahláka enda mikill snjór fyrir. Slökkvilið Fjarðabyggðar var kallað út rétt fyrir hádegi eftir að vatn tók að ...
Asahláka og talsverð rigning eru á Austurlandi í dag. Vatn flæddi inn í hús á Eskifirði í morgun. Skriðuvakt hefur verið virkjuð á Seyðisfirði en ekki er talin mikil hætta á ferðum.
2022
193
Hátíðarhöld vegna þrettándans, sem er í dag, eru víðast með óvenjulegu sniði vegna samkomutakmarkana. Þrettándabrennum og flugeldasýningum hefur sums staðar verið aflýst eða þeim frestað, ýmist vegna veðurs eða sóttvarna.
Það er hefð fyrir því að kveðja jólin með flugeldum eða álfabrennum. Lítið fer fyrir slíkri gleði nú í ár, líkt og í fyrra, vegna strangra sóttvarnareglna. Upplýsingar um fyrirkomulag á þrettándanum má finna á heimasíðum bæjarfélaga landsins, en hér verður stiklað á stóru. Í Hafnarfirði, á Akureyri og í Stykkishólmi er...
Jólin verða kvödd á óhefðbundin hátt annað árið í röð. Þrettándabrennum og flugeldasýningum hefur verið aflýst eða frestað víðast hvar á landinu, ýmist vegna veðurs eða sóttvarna.
2022
193
Aðeins einn leikur fór fram í úrvalsdeild kvenna í körfubolta í gærkvöld, en hinum tveimur var frestað. Íslandsmeistarar Vals færast nær toppliðum deildarinnar.
Valur sótti Grindavík heim í eina leik gærkvöldins og fór með sigur af hólmi með 73 stigum gegn 58. Valur er eftir sigurinn með 16 stig, tveimur minna en Fjölnir í öðru sæti og Njarðvík sem situr á toppnum. Njarðvíkingar eiga þó leik til góða. Grindavík er áfram í næstsíðasta sæti deildarinnar með 6 stig, fjórum meira ...
null
2022
193
Grjót kastaðist yfir varnargarða og upp á land í miklum sjógangi við Ólafsvík í morgun. Loka þurfti aðalgötunni sem er stórskemmd eftir öldurótið.
Þótt versta veðrið hafi gengið niður þá hefur sjávarstaða hækkað og öldugangur jókst töluvert á norðanverðu Snæfellsnesi í morgun. Sjógangur var svo mikill að aðalgatan í Ólafsvík varð fyrir skemmdum. Það hefur bara gengið töluvert mikið yfir hann. Mikið af grjóti og öðru sem hefur gengið upp á hann. Hann hefur skemmst...
null
2022
193
Langmesti fjöldi sem greinst hefur á landamærunum greindist í gær, þrjú hundruð og fjórtán smit. Yfir þúsund smit voru innanlands. Prófessor í líftölfræði telur að áfram verði yfir þúsund smit á dag næstu sjö daga.
Það er óþarfi að trúa svartsýnustu spám um hversu lengi núverandi bylgja faraldursins stendur, segir prófessor í líftölfræði. Hann telur þó að áfram verði yfir þúsund smit á dag fram í miðja næstu viku. 1.378 smit greindust alls í gær, þar af 1064 innanlands. Aldrei hafa greinst jafnmörg smit á landamærunum. Þau voru 3...
Greind kórónuveirusmit á landamærunum í gær voru miklu fleiri en nokkru sinni, þrjú hundruð og fjórtán. Yfir þúsund smit voru innanlands. Prófessor í líftölfræði telur að áfram verði yfir Horfur eru á að yfir þúsund smit greinist hvern dag næstu vikuna.
2022
194
Framkvæmdastjóri Orkuseturs telur að þegar stjórnvöld hætta að veita virðisaukaskattsívilnanir á rafmagnsbíla muni orkuskiptum bílaflotans seinka. Hann telur rétt að miða við ártal eða minnka afsláttinn í þrepum, annars muni nýskráningunum bensín og dísilbíla fjölga.
Sigurður Friðleifsson, framkvæmdastjóri Orkuseturs, segir að skattaívilnanir stjórnvalda á tengiltvinn-, rafmagns- og vetnisbíla hafi verið aðalforsenda þess árangurs sem Ísland hefur náð í orkuskiptum. Við höfum verið í algjörri sérstöðu Íslendingar og Norðmenn í hraða orkuskipta og erum komin lengst í fólksbílaútskip...
null
2022
194
Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í stærstu borg Kasakstans og víðar um landið vegna harðra mótmæla gegn hækkunum á orkuverði. Ríkisstjórnin hefur sagt af sér.
Forseti Kasakstan lýsti í dag yfir neyðarástandi í Almaty, stærstu borg landsins, og víðar í vesturhluta þess vegna víðtækra mótmæla að undanförnu. Landsmenn brugðust ókvæða við þegar eldsneytisverð var tvöfaldað um áramótin. Ríkisstjórnin hefur sagt af sér. Nokkur þúsund manns tóku þátt í mótmælum í Almaty í dag. Mótm...
Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í stærstu borg Kasakstans og víðar um landið vegna harðra mótmæla gegn hækkunum á orkuverði. Ríkisstjórnin hefur sagt af sér.
2022
194
Fámennt þorp á vesturströnd Grænlands eignast sinn eigin Michelin-stjörnu veitingastað næsta sumar. Flutningurinn á að vera tímabundinn en Færeyingar virðast harla lítt ánægðir með fyrirhugaða stækkun staðarins þar í landi.
Eigendur tveggja stjörnu veitingastaðarins Koks hafa ákveðið að hætta starfsemi í Færeyjum og flytja reksturinn til þorpsins Ilimanaq sunnan bæjarins Ilulissat. Johannes Jensen, forstjóri Gist og Vist sem rekur Koks segir þetta vera óvenjulegt tækifæri, náttúran sé stórkostleg og úrval hráefna einstakt, hvort sem það e...
null
2022
194
Alls fer einn milljarður króna í gerð Fjarðarheiðarganga til Seyðisfjarðar á árinu. Stefnt er að því að bjóða verkið út á þessu ári og hefja framkvæmdir á því næsta.
Fjarðarheiðargöng verða boðin út á þessu ári og eiga framkvæmdir að hefjast í síðasta lagi á því næsta. Milljarður er áætlaður í verkið á þessu ári. Fjarðarheiðargöng verða lengstu jarðgöng landsins 13,4 kílómetrar að lengd. Þau tengja Egilsstaði og Seyðisfjörð og leysa af hólmi fjallveginn um Fjarðarheiði sem er mikil...
Alls fer einn milljarður króna í gerð Fjarðarheiðarganga til Seyðisfjarðar á árinu. Stefnt er að því að bjóða verkið út á þessu ári og hefja framkvæmdir á því næsta.
2022
194
Til skoðunar er að létta sóttkví hjá þríbólusettum einstaklingum og verður það kynnt á næstu dögum.
Bólusetningar fimm til ellefu ára barna eru hafnar og fara á fullt í næstu viku. Delta-afbrigðið er enn ráðandi í smitum hjá börnum og því er talið mikilvægt að hefja bólusetningu sem fyrst. Karlmaður á sjötugsaldri lést af völdum covid á Landspítala í gær og er það sjöunda andlátið í þessari bylgju faraldursins. 30 sj...
Til greina kemur að létta á sóttkví þríbólusettra einstaklinga. Þetta kom fram á upplýsingafundi almannavarna. Bólusetning fimm til ellefu ára barna er hafin og fer á fullt í næstu viku.
2022
194
Bændur á Höfða skammt sunnan við Raufarhöfn misstu um tvö hundruð heyrúllur í sjóinn í miklu óveðri sem gekk yfir austanvert landið í fyrradag. Þeir segja tjónið hlaupa á milljónum.
Talsvert tjón varð á bænum Höfða í Norður- Þingeyjarsýslu á mánudag þegar hvassviðri olli því að sjór hrifsaði með sér girðingar, rekavið og stóran hluta af heyjum á bænum. Nanna Steina Rögnvaldsdóttir, bóndi á Höfða segir hlutina hafa gerst mjög hratt og illa hafi gengið að ráða við aðstæður. Þetta gekk bara yfir á ei...
Brim hrifsaði með sér um tvö hundruð heyrúllur sem stóðu við sveitabæ í Norður- Þingeyjarsýslu á mánudaginn. Bóndinn á bænum segir tjónið hlaupa á milljónum. Þá er mikið tjón á varnargörðum á Vopnafirði.
2022
194
Íslenska karlalandsliðið í handbolta heldur í dag áfram undirbúningi sínum fyrir EM. Eftir PCR-próf gærdagsins fjölgar um tvo í hópnum í dag.
Íslenska handboltalandsliðið hefur dvalið í sóttvarnarkúlu á hóteli hérlendis síðustu daga í undirbúningi sínum fyrir Evrópumótið í handbolta sem hefst í næstu viku. Landsliðshópur Guðmundar Guðmundssonar telur 20 manns og voru þrír leikmenn enn utan hóps í gær, annað hvort vegna sóttkvíar eða einangrunar. HSÍ staðfest...
null
2022
195
Heimilislaus maður þurfti að gista í fangaklefa í nótt, en honum hafði verið vísað frá aðstöðu á vegum velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Þar segir að maðurinn gisti annars á götunni í kulda og frosti. Sviðstjóri hjá Reykjavíkurborg segir að tilkynning lögreglu hafi komið á ó...
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greindi frá því í morgun að heimilislaus maður hefði þurft að gista í fangageymslu þar sem hann hafi ekki fengið inni í gistiskýli á vegum borgarinnar. Í tilkynningu lögreglunnar til fjölmiðla segir að maðurinn gisti annars á götunni í sjö stiga frosti. Honum hafi undanfarna daga verið me...
Heimilislaus maður gisti fangageymslu í nótt, þar sem honum var vísað frá aðstöðu á vegum borgarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Sviðstjóri velferðarsviðs segir það ekki rétt að manninum hafi verið vísað út í kuldann, og hefur óskað skýringa frá lögreglunni.
2022
195
Tenniskappinn Novak Djokovic ætlar að verja titilinn á Opna ástralska meistaramótinu í tennis. Allir keppendur eiga að vera bólusettir gegn kórónuveirunni en Serbinn fær undanþágu til að taka þátt.
Opna ástralska er fyrsta risamót ársins. Allir keppendur og starfsfólk eiga samkvæmt reglum mótsins að vera bólusettir gegn covid eða með læknisvottorð um undanþágu. Djokovic, sem hefur unnið mótið oftast allra eða níu sinnum, hefur ekki viljað svara því opinberlega hvort hann sé bólusettur eða ekki. Hann skrifaði á In...
null
2022
195
null
Þörf er á endurskipulagningu ferðaþjónustufyrirtækja næstu misseri. Heildartekjur í greininni á nýliðnu ári voru um tvö hundruð þrjátíu og átta milljarðar króna. Eiginfjárstaða í greininni er enn jákvæð en faraldurinn hefur höggvið þar stórt skarð. Ný skýrsla um fjárhagsstöðu ferðaþjónustunnar frá upphafi covid-faraldu...
Heildartekjur ferðaþjónustunnar voru tæpir 140 milljarðar króna í fyrra. Eiginfjárstaðan er enn jákvæð, en faraldurinn hefur höggvið þar stórt skarð þrátt fyrir þrjátíu og sex milljarða króna stuðning stjórnvalda.
2022
195
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fellt úr gildi ákvörðun endurupptökunefndar árið 2017 um að hafna endurupptöku vegna dóms Erlu Bolladóttur í Guðmundar- og Gerfinnsmálinu. Erla sagði miklar tilfinningar hrærast innra með sér að dómsuppsögu lokinni. Lögmaður hennar telur verulegar líkur á að forsætisráðherra muni beita sér...
Sakborningarnir í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu voru sakfelldir í Hæstarétti 1980. Endurupptökunefnd ákvað árið 2017 að mál allra sem sakfelldir voru skyldu fara aftur fyrir dómstóla nema mál Erlu sem hafði verið dæmd fyrir að bera rangar sakir á menn. Hinir sakborningarnir voru svo sýknaðir með sögulegum dómi í Hæstar...
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi úr gildi ákvörðun endurupptökunefndar árið 2017 um að hafna því að dómur yfir Erlu Bolladóttur í Guðmundar- og Gerfinnsmálinu yrði endurupptekinn. Lögmaður hennar telur verulegar líkur á að forsætisráðherra muni beita sér, og að öllum Guðmundar- og Geirfinnsmálum verði lokið á næstu viku...
2022
195
Allt stefnir í að mjög djúp lægð komi að landi úr vestri annað kvöld með hávaðaroki úr suðri/suðaustri og úrkomu. Veðurfræðingur hvetur fólk til að fylgjast vel með veðurspám sem geti breyst hratt.
Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir fyrir Suðurland, Faxaflóa, Breiðafjörð og Miðhálendið sem taka gildi annað kvöld. Djúp lægð er á leiðinni og er lægðarmiðjunni spáð vestur af Faxaflóa. Standist spárnar verður þrýstingur hennar mjög mikill. Birta Líf Kristinsdóttir, veðurfræðingur segir erfitt að spá fyrir um...
Gular veðurviðvarnir munu einkenna veðurkortin þegar djúp lægð kemur að landinu annað kvöld. Veðurfræðingur hvetur fólk til að fylgjast vel með spám.
2022
195
Skólahald hefst að nýju í Danmörku á morgun eftir þriggja vikna hlé. Heilbrigðisyfirvöld segja ráðlegast að bólusetja börnin til að draga úr fjölgun kórónuveirusmita. Skima á fyrir veirunni tvisvar í viku hjá nemendum og starfsfólki skólanna.
Kennsla hefst að nýju á morgun í grunnskólum í Danmörku eftir þriggja vikna hlé. Mennta- og barnamálaráðherra landsins telur að það sé óhætt út frá heilbrigðissjónarmiðum. Skima á fyrir veirunni tvisvar í viku hjá nemendum og starfsfólki skólanna. Stjórnvöld og heilbrigðisyfirvöld í Danmörku tilkynntu ákvörðunina á fun...
Skólahald hefst að nýju í Danmörku á morgun eftir þriggja vikna hlé. Heilbrigðisyfirvöld segja ráðlegast að bólusetja börnin til að draga úr fjölgun kórónuveirusmita.
2022
196
Kórónuveirufaraldurinn hefur leikið Sri Lanka grátt. Alþjóðabankinn telur að hálf milljón landsmanna hafi bæst í hóp þeirra allra fátækustu frá því að heimsfaraldurinn byrjaði. Ríkið rambar á barmi gjaldþrots.
Sri Lanka, sem áður hét Ceylon, er fimmtuguasta og sjöunda fjölmennasta þjóð heims en þar búa rúmlega tuttugu milljónir. Áður en heimurinn fór að glíma við COVID-19 sjúkdóminn hafði sjórnvöldum á Sri Lanka gengið vel að bæta lífskjör í landinu. Samkvæmt skýrslu Alþjóðabankans hafði dregið úr fátækt en viðsnúningurinn v...
null
2022
196
Laxeldisfyrirtækið Arctic Fish áformar að koma upp laxasláturhúsi í Bolungarvík. Fyrirtækið hefur keypt hús og samið við Bolungarvíkurkaupstað með það í huga.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu Arctic Fish sem skrifaði undir samninga við Bolungarvíkurkaupstað um lóðaúthlutun og forsendur aflagjalds á gamlársdag. Húsið kaupir Arctic Fish af Fiskmarkaði Bolungarvíkur sem ætlar að reisa nýtt hús undir starfsemi sína. Arctic Fish hefur leitað að stað fyrir nýtt sláturhús um no...
Fiskeldisfyrirtækið Arctic Fish hyggst koma upp nýju laxasláturhúsi í Bolungarvík. Fyrirtækið hefur keypt hús og samið við Bolungarvíkurkaupstað með það fyrir augum.
2022
196
Íslenska karlalandsliðið í handbolta byrjar í dag æfingar fyrir EM sem hefst eftir tíu daga. Þrír leikmenn eru frá vegna sóttkvíar eða einangrunar.
Ísland hefur keppni á EM í Ungverjalandi 14. janúar, degi eftir að mótið hefst. Ísland mætir Portúgal í fyrsta leik. Þrjú kórónuveirusmit greindust í landsliðshópnum fyrir áramót og núna er einn leikmaður í einangrun og tveir í sóttkví. Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóri HSÍ, er í einangrun en fylgist grannt með ga...
Karlalandslið Íslands í handbolta hóf í dag æfingar fyrir EM í Ungverjalandi og Slóvakíu. Mótið hefst eftir tíu daga. Þrír leikmenn eru í sóttkví eða einangrun.
2022
196
Indverjar byrjuðu í morgun að bólusetja fimmtán til átján ára unglinga og hertu um leið sóttvarnir í stærstu borgunum. Sóttvarnayfirvöld á Indlandi vilja ekki að sagan frá því í fyrra endurtaki sig. Þá létust rúmlega tvö hundruð þúsund manns á stuttum tíma.
Dauðsfjöllin þá komu í kjölfar trúarsamkomunnar Kumb Mela sem dró að sér um tuttugu og fimm milljónir pílagríma. Þá er talið að margir hafi smitast á fjölmennum fundum fyrir kosningar sem voru á Indlandi í apríl í fyrra. Nú á að bólusetja hundrað milljónir táninga með indverska bóluefninu Covaxin sem fékk neyðarleyfi f...
null
2022
196
Enn loga eldar í þinghúsinu í Höfðaborg í Suður-Afríku. Maður á fimmtugsaldri hefur verið ákærður fyrir að kveikja í húsinu.
Slökkviliðsmenn í Höfðaborg í Suður-Afríku hafa náð tökum á eldi sem brunnið hefur í þinghúsi landsins síðan í gærmorgun. Maður á fimmtugsaldri, sem var handtekinn í húsinu, hefur verið ákærður fyrir að kveikja í því. Eldurinn kviknaði í fyrrinótt í elsta hluta þinghússins. Slökkviliðsmenn börðust við hann í allan gærd...
Enn loga eldar í þinghúsinu í Höfðaborg í Suður-Afríku. Maður á fimmtugsaldri hefur verið ákærður fyrir að kveikja í húsinu.
2022
197
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra fór um víðan völl í áramótaávarpi sínu. Eins og gefur að skilja var faraldurinn fyrirferðarmikill, þar sagði hún samhyggð, samstöðu og samvinnu þjóðarinnar skipta mestu.
faraldurinn er orðinn langvarandi ástand og eðlilega vakna réttmætar spurningar hvort aðferðir okkar gegn honum séu endilega hinar réttu. Hvernig sem ég set það reikningsdæmi upp, hvort sem ég miða við fjölda andláta, hlutfall bólusettra eða stöðu efnahags og samfélags. Þá kemur ísland vel út í öllum samanburði við önn...
null
2022
197
Eitt þúsund sjötíu og sex greindust með COVID-19 Á síðasta degi ársins. Þar af greindust hundrað tuttugu og sjö sem landamærasmit. Tæplega fimm hundruð eru í sóttkví. Eitt smit hefur bæst við á hjartadeild Landspítalans.
Sex daga sýni sem niðurstaða fæst úr fyrir kvöldið gefa til kynna hvort fleiri smit bætast við á hjartadeild Landspítalans. Átta sjúklingar á deildinni hafa nú greinst með smit. Þeir sem hefja nýja árið í einangrun eru sjö þúsund sex hundruð áttatíu og fimm og í sóttkví eru fimm þúsund fimm hundruð tuttugu og fimm. Gyl...
null
2022
197
Íbúar Boulder-sýslu í Colorado í Bandaríkjunum gátu snúið aftur heim í gær eftir að ofsafengnir gróðureldar skildu eftir sig slóð eyðileggingar á örskömmum tíma. Ekki hefur verið tilkynnt að neinn hafi farist og segir ríkisstjórinn það nýárskraftaverk, verði það raunin.
Þúsundir þurftu að leita skjóls á fimmtudag þegar ekkert varð við eldana ráðið. Staðfest hefur verið að fimm hundruð hús brunnu. Enn á eftir að meta skemmdir og segir Joe Pelle, lögreglustjóri Boulder-sýslu, það ekki þurfa að koma á óvart ef þúsund hús reynist ónýt. Það vildi til happs að það byrjaði að snjóa í gær og ...
Ríkisstjóri Colorado í Bandaríkjunum segir það nýárskraftaverk að enginn hafi farist í skógareldunum miklu í Boulder-sýslu á fimmtudag. Það byrjaði að snjóa í gær og eldurinn er að mestu slökktur.
2022
197
Áfengi, tóbak og bensín er meðal þess sem hækkaði í verði um áramótin. Ný lög tóku gildi og stofnanir urðu til.
Það er ekki aðeins hjá mannskepnunni sem innreið nýs árs markar nýtt upphaf. Áramótin eru einnig tímamót hjá hinu opinbera. Reglur breytast, stofnanir koma og fara og gjöld hækka. Ýmis opinber gjöld hækka um 2,5% nú um áramót. Þar má nefna olíugjald, vörugjöld hvers konar, áfengis- og tóbaksgjöld og gjald í framkvæmdas...
null
2022
197
Bannað verður að selja í plasti flestar tegundir af ávöxtum og grænmeti í Frakklandi frá og með deginum í dag. Yfirvöld segja að Frakkar noti allt of mikið af einnota plasti og að með banninu verði hægt að saxa verulega á notkunina.
Bannið nær til umbúða þrjátíu tegunda - meðal annars um agúrkur, sítrónur og appelsínur. Það nær þó ekki til stærri pakkninga eða niðurskorinna ávaxta. Emmanuel Macron, forseti Frakklands, segir nýju lögin vera byltingu og sýna vilja stjórnvalda til að hætta að nota einnota plast fyrir árið 2040. Talið er að yfir þriðj...
Frakkar nota allt of mikið af einnota plasti að mati þarlendra yfirvalda og í dag taka gildi ný lög sem banna plastumbúðir utan um ávexti og grænmeti.
2022
197
Hjalti Már Björnsson, yfirlæknir á bráðamóttöku Landspítalans segir að álagið á bráðamótttökuna hafi verið með nokkuð hefðbundu sniði í nótt en meira um handabruna vegna flugelda en áður.
Þessi áramótin var mest áberandi að það voru sjö sem komu til deildarinnar vegna flugeldaáverka á höndum. Þar höfðu menn verið að skjóta upp flugeldum úr hendinni í stað þess að vera með almennilega skotaðstöðu fyrir flugeldana. Hér virðist vera að snjóleysi hafi sett strik í reikninginn, fólk hefur ekki umgengist flug...
null