Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.akureyri.is/is/frettir/framtid-atvinnulifsins-a-akureyri
Framtíð atvinnulífsins á Akureyri Í síðustu viku var haldin hér á Akureyri ráðstefna um Akureyri og atvinnulífið. Sex frummælendur fjölluðu, hver á sinn hátt, um stöðu atvinnulífsins og framtíðarhorfur. Markmið ráðstefnunnar var að stilla saman strengi til nýrrar sóknar. Á ráðstefnunni var: Farið yfir stefnu og aðgerði...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ekki-segja-fra
Ekki segja frá... Undanfarna daga hafa verið á ferðinni á Akureyri ungar konur sem tilheyra áhugahópi sem kallar sig "Ekki segja frá" en markmið hópsins er að fara herferð gegn heimilis- og kynferðisofbeldi. Herferðin byggist á fyrirlestrum og er markmið hennar fyrst og fremst fræðsla og forvarnir. Fulltrúar hópsins se...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vidtalstimar-baejarfulltrua
Viðtalstímar bæjarfulltrúa Viðtalstímar bæjarfulltrúa eru hafnir að nýju og eru nú hafðir sídegis frá kl. 17 til 19 en ekki á kvöldin eins og áður var. Almenningi er frjálst að koma í Ráðhúsið, Geislagötu 9, á áðurnefndum tíma og tjá sig við bæjarfulltrúana. Hér að neðan má sjá áætlun um viðtalstíma veturinn 2002-2003....
https://www.akureyri.is/is/frettir/upp-um-360-prosent
Upp um 360 prósent! Enginn þettbýliskjarni á landinu, hvorki bær né borg, státar af jafn vinsælli heimasíðu og Akureyrarbær, samkvæmt upplýsingum frá Modernus, Samræmdri vefmælingu. Ný og endurbætt heimasíða bæjarins var opnuð í seinni hluta júnímánaðar og síðan hefur orðið gríðarleg fjölgun á heimsóknum og flettingum....
https://www.akureyri.is/is/frettir/ny-deild-vid-haskolann-a-akureyri
Ný deild við Háskólann á Akureyri Háskólaráð samþykkti í dag, á 200. fundi sínum, stofnun nýrrar deildar, félagsvísinda- og lagadeildar, við Háskólann á Akureyri. Nám í deildinni fer af stað haustið 2003. Sérstakir heiðursgestir á fundinum voru Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra, Páll Skúlason rektor Háskóla Íslands,...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjolskyldan-saman-gaman-mikid-um-ad-vera-naesta-laugardag
Fjölskyldan saman, gaman - Mikið um að vera næsta laugardag Næstkomandi laugardag er komið að öðrum áfanga í heilsuræktarverkefninu "Fjölskyldan saman, gaman!". Fjölbreytt dagskrá verður í boði á Akureyri fyrir alla fjölskylduna. Margar og ólíkar tegundir íþrótta og heilsuræktar verða kynntar og boðið upp á leiðsögn og...
https://www.akureyri.is/is/frettir/siduskoli-vid-bugdusidu-breyting-a-adalskipulagi-og-deilis
Síðuskóli við Bugðusíðu - Breyting á aðalskipulagi og deiliskipulag lóðar Breyting á aðalskipulagi og deiliskipulag lóðar Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.b. tillögu að breytingu á aðalskipulagi. Skv. tillögunni stækkar lóð Síðuskóla (stofnanasvæði)...
https://www.akureyri.is/is/frettir/klappir-10-ara
Klappir 10 ára Laugardaginn 2. nóvember verða 10 ár síðan Leikskólinn Klappir tók til starfa. Haldið var upp á afmælið í dag og var mikið um dýrðir á leikskólanum þegar börnum, foreldrum, starfsfólki og öðrum góðum gestum var boðið til veislu. Eins og sést á meðfylgjandi mynd höfðu börn og starfsfólk í nógu að snúast v...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nybygging-vid-giljaskola-vigd
Nýbygging við Giljaskóla vígð Í gær var formlega tekin í notkun nýbygging við Giljaskóla og er þar með lokið öðrum áfanga af þremur við byggingu skólans. Skólafólk, gestir og nemendur voru í hátíðarskapi við þessa athöfn. Undirbúningur að byggingu Giljaskóla hófst árið 1995 og það sama ár hóf skólinn starfsemi sína í h...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samstarf-um-styrktarverkefni
Samstarf um styrktarverkefni Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri (HA), og Benedikt Sigurðarson, formaður stjórnar Kaupfélags Eyfirðinga, samvinnufélags (svf.), hafa undirritað samstarfsyfirlýsingu um styrktarverkefni. Í yfirlýsingunni lýsir KEA vilja félagsins til að kosta skilgreind verkefni innan háskól...
https://www.akureyri.is/is/frettir/norraenn-skjaladagur-9-november
Norrænn skjaladagur 9. nóvember Héraðsskjalasafnið á Akureyri tekur þátt í samnorrænum skjaladegi næsta laugardag. Markmið með skjaladeginum er að vekja athygli á starfsemi skjalasafna og hvetja fólk til að afhenda söfnunum skjöl til varðveislu. Í tilefni dagsins setur Héraðsskjalasafnið á Akureyri upp sýninguna "Þegar...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hus-a-ferd-um-gotur-baejarins
Hús á ferð um götur bæjarins Akureyringar hafa eflaust margir tekið eftir því að stórt hús var í dag flutt með miklum tilfæringum af Oddeyrinni og inn á Krókeyri. Þarna var verið að flytja hið svokallaða Wathne-hús af athafnasvæði Norlenska á Oddeyrinni og að sögn Hönnu Rósu Sveinsdóttur, deildarstjóra Munadeildar Minj...
https://www.akureyri.is/is/frettir/helgarsportid-heldur-afram-fjolskyldan-saman-gaman-3
Helgarsportið heldur áfram - Fjölskyldan saman, gaman 3 Þriðji hluti af fjórum í heilsuræktarátakinu "Fjölskyldan saman, gaman" fer fram næsta laugardag en þátttaka fór fram úr björtustu vonum um síðustu helgi. Á laugardagsmorgun kl. 9.00 hefst kynning á badminton í Íþróttahöllinni á Akureyri. Þar geta allir fengið að ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/stofnun-hverfisnefndar-a-oddeyri
Stofnun hverfisnefndar á Oddeyri Bæjarstjórn Akureyrar hefur ákveðið að hafa forgöngu um stofnun hverfisnefnda í bænum og verður sú fyrsta stofnuð á Oddeyri næsta þriðjudagskvöld. Hverfisnefndir starfa sjálfstætt og á eigin ábyrgð en hlutverk þeirra er að vera vettvangur íbúanna til að hafa áhrif á nánasta umhverfi sit...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vidtalstimar-baejarfulltrua-3
Viðtalstímar bæjarfulltrúa Bæjarfulltrúarnir Oktavía Jóhannesdóttir og Þóra Ákadóttir verða til viðtals í dag milli kl. 17.00 og 19.00 í Ráðhúsinu Geislagötu 9. Almenningi er frjálst að koma í Ráðhúsið og tjá sig við bæjarfulltrúana. Að hálfum mánuði liðnum, 25. nóvember, verða Oddur Helgi Halldórsson og Jóhannes G. Bj...
https://www.akureyri.is/is/frettir/storvidburdur-i-tonlistarlifinu
Stórviðburður í tónlistarlífinu Sinfóníuhljómsveit Norðurlands heldur tónleika í Glerárkirkju á Akureyri sunnudaginn 17. nóvember kl. 16.00. Á efnisskrá að þessu sinni eru tvö stórverk frá 19. öld. Fiðlukonsert í D-dúr op. 77 eftir Johannes Brahms og Sinfónía nr. 3 í Es-dúr op. 55, "Eroica" eftir Ludwig van Beethoven. ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/djass-og-aftur-djass
Djass og aftur djass Laugardaginn 16. nóvember n.k. verða haldnir tvennir djasstónleikar á Græna hattinum og verða þessir tónleikar, sem bera yfirskriftina Hvítur stormsveipur, tileinkaðir minningu Finns Eydal, tónlistarmanns, sem lést þennan dag fyrir fimm árum, langt fyrir aldur fram. Efnisskrá tónleikanna er mjög í ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/jakobsvegurinn-til-santiago-de-compostela
Jakobsvegurinn til Santiago de Compostela Fyrirhugað er á vegum Félags áhugafólks um heimspeki á Akureyri og Gilfélagsins að standa fyrir námskeiði með Jóni Björnssyni sálfræðingi um ofangreinda leið frá Pýreneafjöllum til Santiago á Spáni. Árið 2001 fór Jón pílagrímaleiðina til Santiago frá Vézelay í Mið-Frakklandi. Á...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fyrsta-hverfisnefndin-a-akureyri
Fyrsta hverfisnefndin á Akureyri Fyrsta hverfisnefndin á Akureyri var stofnuð á Oddeyri í gærkvöldi. Um 50 manns komu á stofnfundinn þar sem fóru fram lífleg skoðanaskipti. Bæjarstjórinn á Akureyri, Kristján Þór Júlíusson, stýrði fundinum og hóf hann með stuttri kynningu á þeirri hugmynd um íbúalýðræði sem býr að baki ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ad-bua-til-mold-namskeid-fyrir-baejarbua-um-naestu-helgi
Að búa til mold - Námskeið fyrir bæjarbúa um næstu helgi Námskeið fyrir bæjarbúa um næstu helgi Það hefur færst mikið í vöxt að garðeigendur komi sér upp safnhaugum í görðum sínum og jarðgeri lífrænan úrgang, s.s. gras, greinar og lauf. Næstkomandi laugardag býðst bæjarbúum að sækja námskeið í heimajarðgerð, sem haldið...
https://www.akureyri.is/is/frettir/modurmalid-a-morgun-dagur-islenskrar-tungu-2002
Móðurmálið á morgun - Dagur íslenskrar tungu 2002 Dagur íslenskrar tungu 2002 Að tillögu menntamálaráðherra ákvað ríkisstjórn Íslands, haustið 1995, að 16. nóvember ár hvert, sem er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar, yrði dagur íslenskrar tungu. Í framhaldi af því hefur menntamálaráðuneytið árlega beitt sér fyrir sé...
https://www.akureyri.is/is/frettir/songkeppni-framhaldsskolanna-urslitin-a-akureyri
Söngkeppni framhaldsskólanna - Úrslitin á Akureyri! Úrslitin á Akureyri! Nú hefur verið upplýst að úrslitakeppni Söngkeppni framhaldsskólanema vorið 2003 verður haldin í Íþróttahöllinni á Akureyri 29. mars. Þátttökurétt í úrslitakeppninni hafa þeir sem standa uppi sem sigurvegarar í undankeppni, sem haldin er í framhal...
https://www.akureyri.is/is/frettir/almenn-thatttaka-og-anaegja-fjolskyldan-saman-gaman-lokahluti
Almenn þátttaka og ánægja - Fjölskyldan saman, gaman - lokahluti Fjölskyldan saman, gaman - lokahluti Laugardaginn 16. nóvember er komið að fjórðu og síðustu lotunni í heilsuræktar- og heilsuverndarátakinu "Fjölskyldan saman, gaman!" Þátttakan hefur verið mjög góð og eru aðstandendur verkefnisins ánægðir með viðtökurna...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vetrarsport-2003-a-akureyri
Vetrarsport 2003 á Akureyri Dagana 23. og 24. nóvember verður útilífssýningin Vetrarsport 2003 haldin í Íþróttahöllinni á Akureyri. Sýningin hefur fyrir löngu unnið sér fastan sess meðal þeirra fjölmörgu sem stunda vetrarsport af einhverju tagi enda er þar mikið úrval alls kyns búnaðar, tækja og varnings sem viðkemur v...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skipulag-stigakerfis-fyrir-akureyri-kynning-a-vinnslustigi
Skipulag stígakerfis fyrir Akureyri - Kynning á vinnslustigi Nú stendur yfir á Umhverfisdeild vinna að áætlun um samræmt kerfi stíga/leiða á Akureyri fyrir gangandi, hjólandi og ríðandi vegfarendur. Fyrstu drög að áætluninni hafa verið kynnt fyrir Umhverfisráði, og geta þeir sem áhuga hafa skoðað hér PowerPoint-sýningu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kjarnalundur-deiliskipulag-framlenging-frests
Kjarnalundur, deiliskipulag - framlenging frests Hér með tilkynnist að áður auglýstur frestur til að gera athugasemdir við tillögu að deiliskipulagi lóðar Náttúrulækningafélagsins við Kjarnaskóg, þar sem byggingin Kjarnalundur stendur, hefur verið framlengdur. Framlengdur frestur til að gera athugasemdir við tillöguna ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/althjodastofa-formlega-opnud
Alþjóðastofa formlega opnuð Starfsemi Alþjóðastofunnar á Akureyri var formlega hleypt af stokkunum í dag. Kristín Kjartansdóttir, verkefnisstjóri Alþjóðastofunnar, ávarpaði gesti í tilefni dagsins, því næst sagði Þóra Ákadóttir, forseti bæjarstjórnar nokkur orð, og loks tók til máls Páll Pétursson, félagsmálaráðherra. ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/jolatred-a-radhustorgi
Jólatréð á Ráðhústorgi Jólatréð frá Randers, vinabæ Akureyrar í Danmörku, er komið í bæinn og ljósin verða tendruð við hátíðlega athöfn næsta laugardag. Athöfnin hefst kl. 15.00 á Ráðhústorgi og er dagskráin svohljóðandi: Kl. 15.00 Lúðrasveit Akureyrar leikur létt lög. Kl. 15.20 Barnakór Lundarskóla syngur. Kl. 15.30 Á...
https://www.akureyri.is/is/frettir/menntun-sjukraflutningamanna-fsa-tekur-ad-ser-rekstur-sjukraflutningaskolans
Menntun sjúkraflutningamanna - FSA tekur að sér rekstur sjúkraflutningaskólans FSA tekur að sér rekstur sjúkraflutningaskólans Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, undirritaði á Akureyri í dag samning við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri um rekstur FSA á sjúkraflutningaskóla. Í samningnum felst að FS...
https://www.akureyri.is/is/frettir/felag-um-vardveislu-wathnehuss
Félag um varðveislu Wathnehúss Stefnt er að því að stofna sérstakt félag um varðveislu Wathnehússins svokallaða kl. 20.30 annað kvöld í Minjasafninu á Akureyri. Eins margir bæjarbúar muna eflaust var Wathnehúsið flutt í tvennu lagi af Oddeyrartanga inn á Krókeyri í upphafi nóvembermánaðar. Það hefur nú verið sett niður...
https://www.akureyri.is/is/frettir/konur-i-laeri
Konur í læri Í dag hittu þrjár áhugasamar og upprennandi stjórnmálakonur stöllur sínar sem sæti eiga í bæjarstjórn Akureyrar í bæjarstjórnarsal Ráðhússins. Fundur þeirra var hluti átaks sem ráðherraskipuð nefnd um aukinn hlut kvenna í stjórnmálum hefur hrundið af stað. Nýliðarnir á hálum brautum stjórnmálanna fá með þe...
https://www.akureyri.is/is/frettir/islandsklukkunni-hringt-6
Íslandsklukkunni hringt Sunnudaginn 1. desember nk. verður Íslandsklukkunni sem stendur við húsnæði Háskólans á Akureyri hringt í tilefni af fullveldisdeginum og boðið verður upp á hátíðardagskrá þar sem tvö erindi verða flutt. Björn Ingólfsson, skólastjori í Grenivíkurskóla, kynnir nýútgefna bók sína, "Bein úr sjó. Um...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ljosin-tendrud-a-radhustorgi
Ljósin tendruð á Ráðhústorgi Fjölmenni var á Ráðhústorgi í dag þegar ljósin voru tendruð á jólatrénu frá danska vinabænum Randers. Í upphafi lék Lúðrasveit Akureyrar jólalög og Barnakór Lundarskóla söng. Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri, ávarpaði Akureyringa og konsúll Dana á Akureyri, Helgi Jóhannesson, sagði nokku...
https://www.akureyri.is/is/frettir/adventutonleikar-sn
Aðventutónleikar SN Aðventutónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands verða að þessu sinni í Íþróttahúsi Glerárskóla sunnudaginn 8. desember kl. 16.00. Á efnisskránni eru Fagottkonsert í B-dúr K 191 eftir W. A. Mozart, Konsert fyrir tvær fiðlur og hljómsveit í d-moll eftir J. S. Bach, Menúettar eftir L.v. Beethoven og ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sterk-fjarhagsstada-baejarins
Sterk fjárhagsstaða bæjarins Frumvarp að fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2003 var afgreitt í fyrri umræðu í bæjarstjórn nú síðdegis. Veltufjárhlutfall samstæðureiknings er 1,09 og eiginfjárhlutfall er 40%. Fjárhagsstaða bæjarins verður því að teljast afar sterk. Heildartekjur Akureyrarbæjar verða tæpir 7,9 mil...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hverfisnefnd-i-giljahverfi
Hverfisnefnd í Giljahverfi Á fimmtudagskvöldið kemur verður stofnuð hverfisnefnd í Giljahverfi á Akureyri en það afmarkast af Borgarbraut að norðan og Hlíðarbraut að austan. Þetta er önnur hverfisnefndin sem stofnuð er. Sú fyrsta var stofnuð á Oddeyri í nóvember og var stofnfundurinn afar vel sóttur. Hverfisnefndir sta...
https://www.akureyri.is/is/frettir/leifur-breidfjord-i-glerarkirkju
Leifur Breiðfjörð í Glerárkirkju Listamaðurinn Leifur Breiðfjörð vinnur þessa dagana að því, með hjálp iðnaðarmanna, að setja upp glerlistaverk sín í glugga Glerárkirkju á Akureyri. Verkin verða sett upp í vesturglugga kirkjuskipsins og vesturglugga litlu kapellunnar í suðurálmunni. Glerárkirkja var upphaflega tekin í ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/breytingar-a-adalskipulagi-a-v-helgamstraeti-og-vidilund
Breytingar á aðalskipulagi: a) v/Helgam.stræti og Víðilund, b) Ákvæði um næturklúbba. Breyting á deiliskipulagi við Víðilund Akureyrarbær auglýsir hér með skv. 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga neðangreindar tillögur að breytingum á aðalskipulagi Akureyrar 1998-2018, og skv. 1. mgr. 26. gr. sömu laga neðangre...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tillaga-ad-deiliskipulagi-orlofshus-i-budargili
Tillaga að deiliskipulagi: Orlofshús í Búðargili Með vísan til 25. greinar skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.b. auglýsir Akureyrarbær hér með tillögu að deiliskipulagi fyrir ofangreint svæði, sem er sunnan lóðar Fjórðungssjúkrahússins og nær frá botni Búðargils upp að Þórunnarstræti. Tillagan gerir ráð fyrir ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/gagnlegur-stofnfundur-hverfisnefndar
Gagnlegur stofnfundur hverfisnefndar Í gærkvöldi var hverfisnefnd stofnuð í Giljahverfi á Akureyri. Þrátt fyrir fremur dræma mætingu þótti fundurinn afar gagnlegur og góður. Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri, setti fundinn og hélt stutta tölu um hlutverk og eðli hverfisnefnda. Því næst var komið að fulltrúum bæjarins...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nyskopunarmidstod-hefur-starfsemi-a-akureyri
Nýsköpunarmiðstöð hefur starfsemi á Akureyri Starfsemi Impru nýsköpunarmiðstöðvar á Akureyri hófst með formlegum hætti í gær. Nýsköpunarmiðstöðin er hluti af starfsemi Iðntæknistofnunar og mun starfa á Akureyri og í Reykjavík. Nýsköpunarmiðstöðinni er ætlað að auka og efla nýsköpun og frumkvöðlastarf í landinu í samsta...
https://www.akureyri.is/is/frettir/gaf-barnadeild-fsa-550000-kr
Gaf barnadeild FSA?550.000 kr. Nína Arnarsdóttir, 12 ára Akureyringur, gaf barnadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri 550.000 kr. en upphæðina vann Nína í s.k. Barnamessu í þættinum "Viltu vinna milljón?" á Stöð 2 í gærkvöldi. Nína ákvað að hætta í leiknum þegar hún var komin með fyrrnefnda upphæð og átti þemur spurn...
https://www.akureyri.is/is/frettir/raud-jol-a-akureyri
Rauð jól á Akureyri? Veðurstofa Íslands spáir Norðlendingum rauðum jólum samkvæmt fyrstu spám og jafnvel er gert ráð fyrir rigningu á landinu á aðfangadag. Veðurklúbburinn á Dalbæ á Dalvík er ekki sammála Veðurstofunni. Helstu spámenn klúbbsins telja að það fari að kólna upp úr miðjum mánuðinum, í kringum 20. desember ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/staedi-fyrir-500-bila-vid-skidastadi
Stæði fyrir 500 bíla við Skíðastaði Guðmundur Karl bíður eftir snjónum Framkvæmdum við Skíðastaði í Hlíðarfjalli er að mestu lokið. Bílastæðum hefur verið fjölgað um nær helming og rúma þau nú um 500 bíla. Nýtt bílaplan hefur verið gert suðaustan við Skíðastaði og planið austan við hótelið hefur verið stækkað til mikil...
https://www.akureyri.is/is/frettir/frumsyning-a-fostudagskvold
Frumsýning á föstudagskvöld Leikfélag Akureyrar frumsýnir leikritið Hversdagslegt kraftaverk í Samkomuhúsinu kl. 20.00 annað kvöld. Hér er á ferðinni ævintýraleg og töfrandi skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Sagan hefst upp til fjalla á sveitabýli. Töframaður nokkur hefur breytt birni í ungan mann með þeim álögum að ve...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjolskyldudagur-i-sundlauginni-a-morgun
Fjölskyldudagur í sundlauginni á morgun Fjölskyldudagur verður í Sundlaug Akureyrar á morgun, laugardaginn 14. desember. Ókeypis verður í sundlaugina og þar verður ýmislegt um að vera. Inga Magnúsdóttir íþróttakennari verður með ungbarnasund, krakkasund og sundskóla fyrir 4-5 ára á tímabilinu frá kl. 13 til 14.30. Þá v...
https://www.akureyri.is/is/frettir/seinni-umraeda-um-fjarhagsaaetlun
Seinni umræða um fjárhagsáætlun Frumvarp að fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2003 verður lagt fram til seinni umræðu í bæjarstjórn Akureyrar í dag. Þá verður einnig lögð fram til fyrri umræðu Áætlun um rekstur, fjármál og framkvæmdir á árunum 2004-2006. Af þessu tilefni var boðað til blaðamannafundar í Ráðhúsin...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hrokurinn-gefur-skakbaekur
Hrókurinn gefur skákbækur Krakkar í 3. bekk Brekkuskóla á Akureyri fengu í morgun gefna bókina Skák og mát eftir Anatolí Karpov sem er sagður hafa skrifað bókina með fulltingi Andrésar Andar. Krakkarnir gleðjast yfir nýju skákbókinni sinni. Í Fréttablaðinu í morgun segir orðrétt: "Skáktrúboðinn öflugi Hrafn Jökulsson f...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vimuefnaneysla-ungs-folks
Vímuefnaneysla ungs fólks Áfengis- og vímuvarnarnefnd Akureyrarbæjar hefur fengið í hendur skýrslu þar sem fram koma niðurstöður rannsóknar á vímuefnaneyslu ungs fólks á Akureyri. Rannsóknin var unnin af fyrirtækinu Rannsóknir og greining og var framkvæmd meðal nemenda í 8. - 10. bekk grunnskóla á Akureyri árin 1997 - ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/jonatan-thor-magnusson-i-landslidshopinn
Jónatan Þór Magnússon í landsliðshópinn Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari í handknattleik valdi Jónatan Þór Magnússon, fyrirliða íslandsmeistara KA í handknattleik, í 26 manna landsliðshóp sinn vegna undirbúnings fyrir HM í Portúgal sem hefst 20. janúar. Annars er hópurinn skipaður eftirfarandi leikmönnum: Markve...
https://www.akureyri.is/is/frettir/baejarrad-stydur-framkvaemdir-vid-karahnjuka
Bæjarráð styður framkvæmdir við Kárahnjúka Bæjarráð Akureyrar samþykkti í morgun að styðja fyrirhugaðar framkvæmdir Landsvirkjunar við Kárahnjúka. Á fund ráðsins mættu til viðræðna Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunnar, Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, og Bjarni Bjarnason, framkvæmdastjóri orkus...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyringum-fjolgar-um-1-31
Akureyringum fjölgar um 1,31% Akureyringar voru 15.840 hinn 1. desember sl. og hafði fjölgað um 208 eða 1,31% frá því á sama tíma í fyrra. Á Norðurlandi eystra fjölgar samtals um 0,53%. Mest er fjölgunin á Laugum í Reykdælahreppi en á bak við 10,20% fjölgun þar standa raunar bara 10 manns. Fólki fækkar í Grímsey, Hríse...
https://www.akureyri.is/is/frettir/byggingarhaefi-reglur-um-byggingarhaefi-loda
Byggingarhæfi (Reglur um byggingarhæfi lóða) Eftirfarandi tillögur að verklagsreglum er ætlað að vera nefndum og starfsmönnum til leiðbeininga um byggingarhæfi reita eða lóða. Jafnframt eiga þær að skýra fyrir lóðahöfum í hvaða ástandi lóðir eru afhentar og hvernig frágangi og uppbyggingu nýrra hverfa verði háttað. Byg...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vinnureglur-umhverfisrads-vid-lodaveitingar
Vinnureglur umhverfisráðs við lóðaveitingar 1. gr. Umhverfisráði er falið það verkefni, í umboði bæjarstjórnar, að sjá um úthlutun byggingalóða, samkvæmt þessum reglum, með þeim undantekningum sem greinir í 2. gr. 2. gr. 2.0.1 Áður en byggingarsvæði er tilbúið til úthlutunar, skal umhverfisráð /umhverfisdeild halda opi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/byggingarleyfis-thjonustu-og-gatnagerdargjold
Byggingarleyfis-, þjónustu- og gatnagerðargjöld Uppfært 27. september 2011 Byggingarleyfisgjöld - Gjöld miðast við eina yfirferð aðaluppdrátta. Þá er innifalið í gjaldinu byggingarleyfisgjald, gjald vegna útmælingar og hæðarsetningar, byggingareftirlits, lögbundinna úttekta, fokheldisvottorðs og vottorðs vegna lokaútte...
https://www.akureyri.is/is/frettir/gjaldskra-gatnagerdargjalda-i-akureyrarkaupstad
Gjaldskrá gatnagerðargjalda í Akureyrarkaupstað 1. grein Almenn heimild Greiða skal gatnagerðargjald af öllum fasteignum eftir því sem nánar segir til um í gjaldskrá þessari. Um gatnagerðargjald fer að öðru leyti eftir lögum um gatnagerðargjald nr. 153/2006 og reglugerð um gatnagerðargjald. 2. grein Ábyrgð á greiðslu g...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyringar-med-i-evropumeistaralidinu-i-handbolta
Akureyringar með í Evrópumeistaraliðinu í handbolta Þrír Akureyringar voru í liði íslenska unglingalandsliðsins í handknattleik, skipað leikmönnum 18 ára og yngri, sem varð Evrópumeistari í Slóvakíu á dögunum.
https://www.akureyri.is/is/frettir/almenn-bjartsyni-i-atvinnulifinu
Almenn bjartsýni í atvinnulífinu Í könnun sem Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar lét Gallup vinna fyrir sig á fyrirtækjamarkaði í Eyjafirði kom í ljós að forsvarsmenn 74% fyrirtækja segja veltu hafa aukist undanfarin tvö ár. Algengara er að velta stærri fyrirtækja hafi aukist en þeirra minni. Könnunin náði til allra fyrir...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ny-heimasida-eyjarfjardarsveitar-formlega-opnud
Ný heimasíða Eyjarfjarðarsveitar formlega opnuð Ný heimasíða Eyjarfjarðarsveitar hefur verið formlega opnuð. Síðan hefur að geyma ýmsar upplýsingar um sveitarfélagið, nefndir þess og starf. Allar fundargerðir verða nú birtar jafnóðum og á þann hátt geta íbúar fylgst náið með þeim málefnum sem nefndir og sveitarstjórn f...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ny-heimasida-eyjarfjardarsveitar-opnud-1
Ný heimasíða Eyjarfjarðarsveitar opnuð Ný heimasíða Eyjarfjarðarsveitar hefur verið formlega opnuð
https://www.akureyri.is/is/frettir/ny-heimasida-eyjarfjardarsveitar-opnud
Ný heimasíða Eyjarfjarðarsveitar?opnuð Ný heimasíða Eyjarfjarðarsveitar hefur verið formlega opnuð. Síðan hefur að geyma ýmsar upplýsingar um sveitarfélagið, nefndir þess og starf. Allar fundargerðir verða nú birtar jafnóðum og á þann hátt geta íbúar fylgst náið með þeim málefnum sem nefndir og sveitarstjórn fást við h...
https://www.akureyri.is/is/frettir/landshlutautvarp-eda-landsutvarp
Landshlutaútvarp eða landsútvarp Á morgun miðvikudaginn 24.september verður haldinn fyrirlestur á félagsvísindatorgi Háskólans á Akureyri undir yfirskriftinni Landshlutaútvarp eða landsútvarp. Fyrirlesturinn verður í húsakynnum Háskólans við Þingvallastræti 23, í stofu 14 klukkan 16.30. Jóhann Hauksson, dagskrá stjóri ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vidurkenning-fyrir-throunarverkefni
Viðurkenning fyrir þróunarverkefni Í september síðastliðnum fengu leikskólarnir Krógaból, Síðusel og Sunnuból á Akureyri viðurkenningu fyrir verkefnið "Lífsleikni í leikskóla" á Ráðstefnu Íslensku menntasamtakanna. Það er mikils virði fyrir starfsmenn leikskólanna þriggja að fá viðurkenningu á því þróunarstarfi sem þei...
https://www.akureyri.is/is/frettir/aramotaavarp-baejarstjora
Áramótaávarp bæjarstjóra Gleðilegt nýjár, ágætu Akureyringar. Við áramót horfa menn um öxl, leggja dóm á það sem liðið er og hugleiða hvað framtíðin muni bera í skauti sér. Á nýjársdegi er ætíð margs að minnast og í dag þökkum við hvert öðru fyrir liðið ár. Persónulega hef ég margt að þakka, en það sem ég vil nefna sér...
https://www.akureyri.is/is/frettir/dagny-linda-ithrottamadur-akureyrar-2002
Dagný Linda íþróttamaður Akureyrar 2002 Dagný Linda Kristjánsdóttir var í gær kjörin íþróttamaður Akureyrar 2002. Niðurstaðan var tilkynnt í árlegu hófi Íþróttabandalags Akureyrar, þar sem m.a. allir Íslandsmeistarar bæjarins á árinu eru heiðraðir, en að þessu sinni urðu alls 239 Akureyringar Íslandsmeistarar í 83 íþró...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vinartonleikar-salonhljomsveitar-sinfoniuhljomsveitar-nordurlands
Vínartónleikar Salonhljómsveitar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands Vínartónleikar Salonhljómsveitar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands Sinfóníuhljómsveit Norðurlands fagnar nýju ári með Vínartónleikum í Laugarborg laugardaginn 11. janúar kl. 20.30 og í Dalvíkurkirkju sunnudaginn 12. janúar kl. 16.00. Það er Salonhljómsvei...
https://www.akureyri.is/is/frettir/boginn-skal-husid-heita
Boginn skal húsið heita Á fundi ÍTA sem haldinn var 30. des sl. var samþykkt nafnið "Boginn" á nýja fjölnota íþróttahúsið á Akureyri. Alls bárust 48 nafnatillögur frá 29 einstaklingum. Höfundur sigurnafnsins er Haraldur Ingólfsson, Smárahlíð 7 L, 603 Akureyri, og hlýtur hann að launum árskort í Hlíðarfjall. Dregið var ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/endurvinnum-jolatren-1
Endurvinnum jólatrén! Söfnun jólatrjáa endurvinnslu stendur yfir Nú stendur yfir söfnun jólatrjáa sem lokið hafa hlutverki sínu á heimilum og í fyrirtækjum bæjarins. Starfsmenn framkvæmdamiðstöðvarinnar fara um bæinn dagana 7. - 10. jan. og safna saman jólatrjám, sem hafa verið sett út að götu við lóðarmörk. Einnig er ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/veidimenn-i-utnordri
Veiðimenn í útnorðri Laugardaginn 11. janúar kl. 14.00 verður opnuð í Ketilhúsinu í Listagilinu á Akureyri sýningin Veiðimenn í útnorðri. Sýningin fjallar um löndin þrjú, Grænland, Ísland og Færeyjar, þar sem fólk hefur öldum saman búið við og í veiðimannamenningu og gerir það enn þrátt fyrir sín nútímalegu hátæknisamf...
https://www.akureyri.is/is/frettir/haengsmenn-afhenda-heimahjukrun-hak-minningargjof
Hængsmenn afhenda heimahjúkrun HAK minningargjöf Félagar í Lionsklúbbnum Hæng afhentu í dag heimahjúkrun Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri minningargjöf um Níels Halldórsson f. 15. júlí 1924, d. 14. desember 2002. Með gjöfinni vilja Hængsmenn minnast stuðnings hans við blaðaútgáfu klúbbsins. Í rúma tvo áratugi veitti ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/menntasmidja-unga-folksins-a-akureyri
Menntasmiðja unga fólksins á Akureyri Þann 15. janúar næstkomandi hefur Menntasmiðja unga fólksins á Akureyri starfsemi sína annað árið í röð á vegum Menntasmiðjunnar á Akureyri sem Þorbjörg Ásgeirsdóttir (myndin) veitir forstöðu. Upphaflega var verkefnið sett af stað sem tilraunaverkefni innan Menntasmiðjunnar á Akure...
https://www.akureyri.is/is/frettir/a-vaktinni-i-50-ar-slokkvilid-akureyrar
Á vaktinni í 50 ár - Slökkvilið Akureyrar Nú eru 50 ár síðan teknar voru upp fastar vaktir hjá Slökkviliði Akureyrar. Þá voru fastráðnir 4 brunaverðir ásamt varaslökkviliðsstjóra og gengu þeir vaktir allan sólarhringinn, einn á vakt í senn en auk þess varaslökkviliðsstjóri á daginn. Þá nýverið hafði slökkviliðið flutt ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vissu-hvorugur-af-hinum
Vissu hvorugur af hinum Þrennt hlaut verðlaun í samkeppni Leikfélags Akureyrar í skapandi skrifum undir yfirskriftinni Uppistand um jafnréttismál. Þar af voru tveir bræður sem vissu hvorugir að hinn hefði sent inn leikþátt í keppnina. Halldór E. Laxness leikstjóri og Þorsteinn Bachmann leikhússtjóri. Fjórtán handrit bá...
https://www.akureyri.is/is/frettir/a-skidi-i-naestu-viku
Á skíði í næstu viku? Talsvert hefur snjóað á Akureyri síðustu sólarhringa og ef fram fer sem horfir er líklegt að hægt verði að opna skíðabrautirnar í Hlíðarfjalli seinnihluta næstu viku. Guðmundur Karl Jónsson, framkvæmdastjóri Skíðastaða, er brosmildur þessa dagana, enda er nú skyndilega orðið vetrarlegt um að litas...
https://www.akureyri.is/is/frettir/aftokur-og-utrymingar
Aftökur og útrýmingar Laugardaginn 18. janúar kl. 15 hefur Listasafnið á Akureyri sitt 10. starfsár með trukki og dýfu en þá verða opnaðar þrjár sýningar sem bera yfirskriftina Aftökur & útrýmingar. Verkin á sýningunum koma frá Manhattan, Indiana-fylki, Berlín og Bochum í Þýskalandi. Af þessu tilefni hefur verið gefin ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hlidarfjall-opid-um-helgina
Hlíðarfjall opið um helgina! Skjótt skipast veður í lofti. Guðmundur Karl Jónsson, framkvæmdastjóri Skíðastaða, hefur tilkynnt að stólalyftan í Hlíðarfjalli verði ræst kl. 11 í fyrramálið og að opið verði alla helgina. Mikil snjókoma undanfarna daga gerir mönnum kleift að opna strax og setja nýju stólalyftuna, Fjarkann...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vigsla-bogans
Vígsla Bogans Nýtt fjölnota íþróttahús á Akureyri, Boginn, var formlega tekið í notkun í dag. Þetta stórglæsilega mannvirki mun gjörbreyta allri aðstöðu til íþróttaiðkana í bænum. Margt var um manninn í Boganum og allir í hátíðarskapi. Þórarinn B. Jónsson, formaður verkefnisliðs um byggingu hússins, afhendir Kristjáni ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjolmenni-vid-opnun-syningar
Fjölmenni við opnun sýningar Sýningin Aftökur og útrýmingar var opnuð í Listasafninu á Akureyri í dag að viðstöddu fjölmenni. Hér er á ferðinni mögnuð sýning sem vekur undarlegar tilfinningar með áhorfandanum. Það ríkti sérkennilegt andrúmloft í Listasafninu við opnunina, enda hér fjallað um viðfangsefni sem vekur alla...
https://www.akureyri.is/is/frettir/thorskeldisdagurinn-a-akureyri
Þorskeldisdagurinn á Akureyri Föstudaginn 24. janúar næstkomandi verður efnt til ráðstefnu á Akureyri þar sem gerð verður grein fyrir stefnumótunarvinnu vegna framtíðar þorskeldis á Íslandi. Ráðstefnan hefst kl. 13.00 í matsal Útgerðarfélags Akureyringa hf. Fyrir réttu ári var haldinn umræðufundur á Akureyri um þorskel...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samherji-kaupir-hlut-i-fjord-seafood-asa
Samherji kaupir hlut í Fjord Seafood ASA Samið hefur verið um kaup Samherja hf. á eignarhlut í norska sjávarútvegs- og fiskeldisfyrirtækinu Fjord Seafood ASA sem er eitt af stærstu fyrirtækjum á sínu sviði í heiminum. Samherji hf. kaupir um 2,6% hlut í Fjord Seafood í lokuðu hlutafjárútboði. Nafnverð hlutabréfanna er 1...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyringar-taka-a-moti-24-flottamonnum
Akureyringar taka á móti 24 flóttamönnum Fyrir hönd félagsmálaráðuneytisins hefur Akureyrarbær í samvinnu við Rauða kross Íslands ákveðið að taka á móti 24 flóttamönnum frá fyrrum lýðveldum Júgóslavíu. Fólkið hefur búið í flóttamannabúðum síðastliðin 6-8 ár án allra nútímaþæginda. Um er að ræða 6 fjölskyldur, 13 fullor...
https://www.akureyri.is/is/frettir/gong-undir-vadlaheidi
Göng undir Vaðlaheiði Bæjarráð Akureyrar samþykkti í gær að bærinn taki þátt í stofnun undirbúningsfélags vegna fyrirhugaðra Vaðlaheiðarganga. Fyrir fundi ráðsins lá erindi dagsett 16. janúar 2003 frá Eyþingi þar sem kynnt er skýrsla nefndar um Vaðlaheiðargöng og óskað eftir að bæjarráð taki afstöðu til stofnunar undir...
https://www.akureyri.is/is/frettir/margt-i-fjallinu
Margt í Fjallinu Hlíðarfjall var opið frá kl. 11 til 17 í dag og var talsverður fjöldi fólks þar saman kominn í góðu skíðafæri. Í dag var milt veður á Akureyri og veðurspáin gefur fyrirheit um áframhaldandi gott skíðafæri og nægan snjó. Smellið ykkur inn á www.hlidarfjall.is og lesið um opnunartíma og skíðafæri. Þar er...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kvennalid-sa-islandsmeistari
Kvennalið SA Íslandsmeistari Kvennalið Skautafélags Akureyrar (SA) sigraði lið Skautafélags Reykjavíkur (SR) örugglega síðastliðið laugardagskvöld með 18 mörkum gegn engu á Íslandsmótinu í íshokkí en leikurinn fór fram í Skautahöllinni á Akureyri. Með sigrinum hampaði SA Íslandsmeistaratitlinum þriðja árið í röð. Skaut...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nyr-slokkvilidsstjori
Nýr slökkviliðsstjóri Erling Þór Júlínusson, nýráðinn slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Akureyrar, var staddur á Akureyri í gær og heimsótti m.a. væntanlega samstarfsmenn á slökkvistöðinni. Erling sagði í samtali við Morgunblaðið að nýja starfið legðist vel í sig, "þetta er spennandi starf og spennandi lið". Erling Þór hef...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tvaer-frumsyningar-um-naestu-helgi
Tvær frumsýningar um næstu helgi Leikfélag Akureyrar frumsýnir tvö verk um næstu helgi. Leyndarmál rósanna eftir Manuel Puig verður frumsýnt kl. 20 á föstudagskvöld og á laugardagskvöld verður boðið upp á Uppistand um jafnréttismál. Leyndarmál rósanna gerist á sjúkrahúsi í Suður-Ameríku en fer vítt og breytt um lendur ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/eistnaskortur-a-islandi
Eistnaskortur á Íslandi? Þorrinn er hafinn og fregnir af hugsanlegum skorti á hrútspungum hérlendis virðast hafa vakið athygli út fyrir landsteinana. Eftirfarandi er af heimasíðu Norðlenska hér á Akureyri: Fréttir af vefsvæði Norðlenska berast víða en frétt um hugsanlegan skort á eistum hefur vakið athygli í Bandaríkju...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ithrottamadur-arsins-hja-thor
Íþróttamaður ársins hjá Þór Val á Íþróttamanni Þórs fyrir árið 2002 verður kunngjört í hófi í Hamri, félagsheimili Þórs á morgun, laugardaginn 1. febrúar kl. 14.00. Við sama tækifæri verður kunngjört val á bestu íþróttamönnum einstakra deilda innan félagsins. Átta íþróttamenn félagsins, tveir frá hverri deild, hlutu út...
https://www.akureyri.is/is/frettir/afleitt-vedur-a-akureyri
Afleitt veður á Akureyri Í dag hefur gengið á með dimmum éljum á Akureyri. Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli er lokað, skyggni mjög takmarkað og ekkert ferðaveður. Útlit er fyrir að veðrið gangi ekki niður að gagni fyrr en á þriðjudag. Veðurspá er svohljóðandi skv. Veðurstofu Íslands: Veðurhorfur á landinu til kl.18 á morgun:...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ua-hlytur-vidurkenningu
ÚA hlýtur viðurkenningu Útgerðarfélag Akureyringa (ÚA) hlaut í dag viðurkenningu jafnréttis- og fjölskyldunefndar Akureyrarbæjar fyrir árið 2002. ÚA rekur metnaðarfulla starfsmannastefnu og setur sér að tryggja hverjum einstaklingi sem starfar hjá fyrirtækinu jafnræði í samskiptum og tækifærum óháð kynferði, uppruna, s...
https://www.akureyri.is/is/frettir/faerri-flytja-til-hofudborgarsvaedisins
Færri flytja til höfuðborgarsvæðisins Hagstofa Íslands hefur sent frá sér fréttatilkynningu um búferlaflutninga árið 2002 þar sem kemur meðal annars fram að flutningar fólks til höfuðborgarsvæðisins voru talsvert færri en á síðustu árum. Aðfluttir umfram brottflutta til höfuðborgarsvæðis voru aðeins 293 samanborið við ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nytt-met-i-januar
Nýtt met í janúar Nýliðinn janúar reyndist vera metmánuður í flettingum og gestakomum á heimasíðu Akureyrarbæjar. Flettingar ruku úr 34.899 í desember upp í 60.094 eða um næstum 42% og gestir heimasíðunnar voru 6.007. Þeir höfðu flestir orðið 4.617 árið 2002 en voru einungis 3.845 í desember. Gestum hefur því fjölgað u...
https://www.akureyri.is/is/frettir/schubert-beethoven-og-mozart
Schubert, Beethoven og Mozart Sunnudaginn 9. febrúar kl. 16.00 heldur Sinfóníuhljómsveit Norðurlands tónleika í Glerárkirkju á Akureyri. Efnisskráin er í klassískum stíl: Forleikur eftir Franz Schubert, Píanókonsert nr. 1 eftir Ludwig van Beethoven og Sinfónía nr. 40 eftir Wolfgang Amadeus Mozart. Einleikari á tónleiku...
https://www.akureyri.is/is/frettir/beint-flug-a-milli-akureyrar-og-koben
Beint flug á milli Akureyrar og Köben Stjórn Grænlandsflugs hefur samþykkt að gengið verði til samninga um beint áætlunarflug á milli Akureyrar og Kaupmannahafnar. Að sögn Hólmars Svanssonar, framkvæmdastjóra Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, á nú einungis eftir að ganga frá nokkrum tæknilegum atriðum til þess að málið...
https://www.akureyri.is/is/frettir/dansi-dansi-dukkan-min
Dansi, dansi dúkkan mín Í suðurstofum Minjasafnsins á Akureyri stendur nú yfir sýning á brúðusafni Guðbjargar Ringsted. Við söfnunina hefur Guðbjörg fyrst og fremst í huga leikföng sem segja sögu, dúkkur sem börn hafa leikið sér að og leitað trausts hjá. Hún setur ekki fyrir sig þó dúkkurnar beri þess einhver merki í ú...
https://www.akureyri.is/is/frettir/erling-thor-bodinn-velkominn
Erling Þór boðinn velkominn Á fundi framkvæmdaráðs Akureyrarbæjar síðastliðinn föstudag var nýr slökkviliðsstjóri, Erling Þór Júlínusson, boðinn velkominn til starfa. Jafnframt voru Tómasi Búa Böðvarssyni, fráfarandi slökkviliðsstjóra, þökkuð störf hans á löngum og farsælum ferli hjá slökkviliði Akureyrar og honum óska...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sidasta-ljodakvoldid
Síðasta ljóðakvöldið Föstudaginn 14. febrúar lætur Erlingur Sigurðarson af forstöðu Húss skáldsins: Sigurhæða - Davíðshúss. Af því tilefni heldur hann sitt síðasta ljóðakvöld á Sigurhæðum þann dag kl. 20.30. Ljóðakvöldin hófust upp með stofnuninni fyrir tæpum 6 árum undir titlinum "Íslands þúsund ljóð" og spurt var: "H...
https://www.akureyri.is/is/frettir/menningarhus-a-akureyri
Menningarhús á Akureyri Ríkisstjórn Íslands samþykkti í gær að veita 6,3 milljörðum króna til framkvæmda á næstu 18 mánuðum til að bregðast við auknu atvinnuleysi og örva efnahagslífið. Þar af er gert ráð fyrir að einn milljarður fari til byggingar menningarhúsa á Akureyri og í Vestmannaeyjum. Kristján Þór Júlíusson, b...
https://www.akureyri.is/is/frettir/breyttur-utivistartimi
Breyttur útivistartími Sérstakar undanþágur sem gilt hafa á Akureyri um útivistartíma 13 til 15 ára eru nú fallnar úr gildi. Af því tilefni hafa lögreglan og forvarnarfulltrúi bæjarins tekið höndum saman í kynningarátaki á reglum um útivistartíma og dreifa á næstunni póstkortum með hinum nýju reglum til allra nemenda í...
https://www.akureyri.is/is/frettir/drog-ad-samkomulagi-um-menningarhus
Drög að samkomulagi um menningarhús Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri lagði fram drög að samkomulagi um nýtt menningarhús á Akureyri á fundi með Tómasi Inga Olrich menntamálaráðherra í dag. Auk þeirra tveggja sátu fundinn Jakob Björnsson formaður bæjarráðs, Sigrún Björk Jakobsdóttir formaður menningarmálanefndar, fólk...