Search is not available for this dataset
url stringlengths 21 288 | text stringlengths 1 1.35M |
|---|---|
https://www.akureyri.is/is/frettir/greifinn-er-fyrirtaeki-arsins-2002 | Greifinn er fyrirtæki ársins 2002
Hefðbundið er að atvinnumálanefnd útnefni fyrirtæki ársins á Akureyri. Einnig eru veittar tvær aðrar viðurkenningar, annars vegar til fyrirtækis fyrir sérstakt framlag til atvinnulífs í bænum en hins vegar til einstaklings fyrir frumkvæði og áræði í starfi. Að þessu sinni voru 13 fyrir... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/breytingar-i-sigurhaedum | Breytingar í Sigurhæðum
Sú breyting er að verða í Sigurhæðum - Húsi skáldsins, að forstöðumaður frá upphafi, Erlingur Sigurðarson, lætur af störfum. Ekki verður ráðið í stað Erlings fyrr en með haustinu. Menningarfulltrúi Akureyrarbæjar mun á meðan svara fyrirspurnum og óskum um aðstöðu og heimsóknir. Hús skáldsins sem... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/brettasmidja-um-helgina | Brettasmiðja um helgina
Um helgina verður Brettasmiðja unglinga haldin öðru sinni í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar. Búast er við að um 250 unglingar frá félagsmiðstöðum alls staðar af landinu renni sér saman á brettum eða skíðum. Krakkarnir koma í bæinn í dag og gista í Himnaríki sem er staðsett í kjallara Glerárskóla. Ei... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/nam-i-idjuthjalfun | Nám í iðjuþjálfun
Sérskipulagt BS-nám verður í boði við iðjuþjálfunarbraut heilbrigðisdeildar Háskólans á Akureyri skólaárið 2003-2004. Um er að ræða 30 eininga nám sem deilist á tvö skólaár, 15 einingar á ári og hægt er að stunda það með hlutastarfi. Kennt verður í staðbundnum lotum á höfuðborgarsvæðinu nokkrum sinnum... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/forvitnileg-gestasyning | Forvitnileg gestasýning
Verðlaunaleikritið Gesturinn eftir Eric-Emmanuel Schmitt verður sýnt í Samkomuhúsinu á laugardags- og sunnudagskvöld í samvinnu við Borgarleikhúsið. Með aðalhlutverk í sýningunni fara Gunnar Eyjólfsson, Ingvar E. Sigurðsson, Björn Hlynur Haraldsson, Jóna Guðrún Jónsdóttir og Kristján Franklín Ma... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/kynningarfundur-vegna-komu-flottamanna | Kynningarfundur vegna komu flóttamanna
Í tilefni af komu flóttamanna frá fyrrum Júgóslavíu er boðað til fundar í Giljaskóla kl. 20 í kvöld. Bæjarbúar og gestir eru hvattir til að mæta, einkum þeir sem vilja taka að sér að styðja flóttafólkið fyrsta árið eða aðstoða á annan hátt við móttöku þess og aðlögun að nýju samfé... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/auglyst-eftir-listamonnum | Auglýst eftir listamönnum
Gilfélagið á Akureyri auglýsir nú eftir listamönnum sem vilja taka þátt í Listasumri 2003. Þeir sem vilja vera með verða að hafa hraðar hendur því umsóknarfrestur er til 1. mars. Dagskráin í fyrra var með afbrigðum fjölbreytt og skemmtileg, og það verður eflaust snúið að gera betur sem hlýtur ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/okyrrd-a-graena-hattinum | Ókyrrð á Græna hattinum
Hljómsveitin Ókyrrð flytur 12 ný lög eftir Bjarna Hafþór Helgason á Græna hattinum í miðbæ Akureyrar næsta fimmtudagskvöld. Lögin eru flest samin við ljóð eftir móðurbræður Bjarna Hafþórs, Ragnar Inga Aðalsteinsson og Hákon Aðalsteinsson. Ekki hefur tekist að skilgreina þessa tónlist eða fella h... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/samkomulag-um-verkefni-a-svidi-byggdamala | Samkomulag um verkefni á sviði byggðamála
Tómas Ingi Olrich, menntamálaráðherra, og Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðarráðherra, undirrituðu í morgun samkomulag um átak í uppbyggingu menntunar og menningar á landsbyggðinni.
Skilgreind hafa verið verkefni í samræmi við byggðaáætlun 2002-2005 þar sem lögð er áhersla á tengs... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/sveinn-og-hamlet-fa-menningarverdlaun-dv | Sveinn og Hamlet fá Menningarverðlaun DV
Menningarverðlaun DV voru afhent í 25. sinn á dögunum en verðlaunahafinn í leiklist er Sveinn Einarsson sem hlaut viðurkenninguna fyrir uppsetningu sína á Hamlet hjá Leikfélagi Akureyrar. Á heimasíðu DV segir orðrétt:
„Verðlaunahafinn í leiklist, Sveinn Einarsson, á að baki tugi... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/kvennakorinn-i-glerarkirkju | Kvennakórinn í Glerárkirkju
Laugardaginn 1. mars heldur Kvennakór Akureyrar sína aðra tónleika í Glerárkirkju. Kórinn er upphaflega stofnaður af nokkrum áhugasömum KA-konum og hafði lengi æfingaaðstöðu í KA-heimilinu. Þegar fór að fækka í hópnum var ákveðið að auglýsa eftir söngglöðum konum og þá undir merkjum Kvennakó... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/hagnadur-nam-80-milljonum-krona | Hagnaður nam 80 milljónum króna
Rúmlega 80 milljóna króna hagnaður varð af rekstri Sparisjóðs Norðlendinga á árinu 2002 og er það mun betri afkoma en varð á árinu 2001. Arðsemi eigin fjár var 24,4% og hagnaður fyrir skatta nam tæplega 100 milljónum króna.
Hagnaður af rekstri Sparisjóðs Norðlendinga á árinu nam 80,4 mil... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/milljardur-a-ari-i-fjogur-ar | Milljarður á ári í fjögur ár
Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, og Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, undirrituðu í dag víðtækt samkomulag heilbrigðismálaráðuneytisins og bæjaryfirvalda á Akureyri sem felur í sér að bæjarfélagið tekur nú að sér að sjá um alla heilsugæslu og öldrunarþj... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/glas-i-galleri-gersemi | Glás í Gallerí Gersemi
Nemendur í fagurlistadeild Myndlistarskólans á Akureyri opna sýninguna "Glás" í Gallerí Gersemi, fyrir ofan Bláu Könnuna á Akureyri, í dag kl. 17.00. Sýningin er samvinnuverkefni sem byggt er á sjálfstæðum verkum nemendanna í umsjón Hlyns Hallssonar. Verkin eru fjölbreytt m.a. innsetningar, texta... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/greid-leid-i-gegnum-vadlaheidi | Greið leið í gegnum Vaðlaheiði
Í dag var stofnað á Svalbarðseyri við Eyjafjörð undirbúningsfélag um gerð jarðganga undir Vaðlaheiði. Félagið hlaut nafnið Greið leið ehf. Í annarri grein stofnsamnings félagsins segir: Tilgangur félagsins er: Að standa fyrir nauðsynlegum undirbúningi fyrir stofnun félags um gerð og rekst... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/godamot-thors | Goðamót Þórs
Unglingaráð knattspyrnudeildar Þórs hleypir senn af stokkunum nýju móti fyrir yngstu kynslóðina, móti sjö manna liða í Boganum, hinu nýja og glæsilega fjölnota íþróttahúsi Akureyrarbæjar á félagssvæði Þórs í Glerárhverfi. Knattspyrnumót í knattspyrnuhöll hefur ekki verið haldið fyrr hér á landi svo vitað s... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/um-600-manns-a-ut-2003 | Um 600 manns á UT 2003
Um 600 þátttakendur eru skráðir á ráðstefnu um upplýsingatækni í skólastarfi, UT 2003, sem hófst kl. 13 í dag í Verkmenntaskólanum á Akureyri. Þetta er í fimmta sinn sem UT ráðstefna er haldin og segja aðstandendur ráðstefnunnar að þátttökufjöldi sé umfram væntingar.
Tómas Ingi Olrich menntamálar... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/ua-hagnast-um-1-4-milljarda | ÚA hagnast um 1,4 milljarða
Rekstur Útgerðarfélags Akureyringa (ÚA) skilaði umtalsvert betri afkomu á nýliðnu ári en árið á undan. Hagnaður varð af rekstrinum upp á 1,4 milljarða króna en árið 2001 varð 87 milljóna króna tap.
Útgerðarfélag Akureyringa hf. (ÚA) stýrir landvinnslu Brims og sérhæfir sig í vinnslu bolfisks... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/pall-rosinkranz-i-akureyrarkirkju-til-studnings-bornum-ur-hopi-flottamanna | Páll Rósinkranz í Akureyrarkirkju - Til stuðnings börnum úr hópi flóttamanna
Páll Rósinkranz kemur fram á tónleikum á Akureyri á sunnudags- og mánudagskvöld. Allur ágóði af síðari tónleikunum rennur til barna úr hópi þeirra flóttamanna sem senn eru væntanlegir til Akureyrar.
Sunnudagurinn 2. mars er æskulýðsdagur þjóðk... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/ahofnin-heldur-uti-heimasidu | Áhöfnin heldur úti heimasíðu
Sjómennska er í dag um margt frábrugðin þeirri mynd sem almenningur gerir sér af atvinnuveginum. Gríðarlegar tækniframfarir hafa átt sér stað í greininni og það hefur færst í vöxt að áhafnir haldi úti heimasíðum. Við bendum áhugasömum "landkröbbum" til dæmis á áhugaverða heimasíðu sem áhöfn... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/oskudagurinn-a-akureyri-1 | Öskudagurinn á Akureyri
Krakkar á öllum aldri stormuðu á milli verslana og þjónustufyrirtækja á Akureyri í gær til að syngja fyrir starfsfólk og þiggja nammi að launum. Meðfylgjandi eru myndir af tveimur söngflokkum sem sungu fyrir starfsfólk Ráðhússins á Akureyri.
Summary |
https://www.akureyri.is/is/frettir/gegn-vaendi-og-verslun-med-konur | Gegn vændi og verslun með konur
Á morgun er Alþjóðadagur kvenna og þá munu Zontaklúbbarnir á Akureyri selja barmnælu, gyllta rós, til styrktar baráttu Stígamóta gegn vændi og verslun með konur. Einnig verður starf Aflsins, systursamtaka Stígamóta á Norðurlandi, styrkt. Íslensku Zontaklúbbarnir eru sjö en um helgina sel... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/30-milljonir-i-pottinum | 30 milljónir í pottinum
Stjórn verkefnisins "Átak til atvinnusköpunar" hefur ákveðið var að auglýsa eftir umsóknum. Eins og áður eru 30 milljónir í pottinum. Átakið verður nánar auglýst í blöðum á næstu dögum. Umsóknarfrestur rennur út 26. mars nk. Impra yfirfer og metur umsóknir. Þeim er síðan skilað til stjórnar átak... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/tharf-12-thusund-farthega-a-arinu | Þarf 12 þúsund farþega á árinu
FYRSTA beina áætlunarflug Grænlandsflugs frá Akureyri til Kaupmannahafnar verður 28. apríl næstkomandi, en flogið verður tvisvar í viku milli þessara áfangastaða, á mánudögum og fimmtudögum allt árið um kring.
Forsvarsmenn félagsins kynntu áform þess á fundi á Akureyri í gær en þar kom fr... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/korfuboltaveisla-um-naestu-helgi | Körfuboltaveisla um næstu helgi
Úrslitakeppni 2. deildar Íslandsmóts karla í körfuknattleik verður haldin á Akureyri um næstu helgi. Þar verður lið Þórs í eldlínunni og freistar þess að komast upp í 1. deild. Leikið verður í tveimur riðlum og verður riðlakeppnin háð föstudag og laugardag. A-riðill verður leikinn í Íþró... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyrarbaer-styrkir-haskolann-veglega | Akureyrarbær styrkir háskólann veglega
Akureyrarbær styrkir Háskólann á Akureyri um 2,6 milljónir króna á tímabilinu 2003 - 2004. Þetta kemur fram í samkomulagi sem undirritað var föstudaginn 7. mars sl. Styrknum er ætlað að koma í stað fjölda smærri styrkja sem áður voru veittir af hálfu bæjarins. Sjóðurinn veitir sty... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/undir-fikjutre-althydulistir-og-frasagnarhefdir-indlands | Undir fíkjutré - Alþýðulistir og frásagnarhefðir Indlands
Sýningin „Undir fíkjutré: Alþýðulistir og frásagnarhefðir Indlands" verður opnuð í Listasafninu á Akureyri næstkomandi laugardag kl. 15. Þetta er í fyrsta sinn sem indversk myndlist er kynnt með jafn víðfeðmum hætti hér á landi. Sýningin er sérstaklega samansett... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/samningur-um-komu-flottafolksins | Samningur um komu flóttafólksins
Á miðvikudag var undirritaður í félagsmálaráðuneytinu í Reykjavík samningur milli ríksins og Akureyrarbæjar vegna komu tuttugu og fjögurra fljóttamanna frá fyrrum lýðveldum Júgóslavíu til Akureyrar. Samkvæmt samningnum mun ríkið greiða þann kostnað sem hlýst af komu flóttamannanna fyrst... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/evropusamruninn-og-stadbundid-lydraedi | Evrópusamruninn og staðbundið lýðræði
Félagsvísinda- og lagadeild boðar til ráðstefnu þriðjudaginn 18. mars nk. Yfirskrift ráðstefnunnar er "Evrópusamruninn og staðbundið lýðræði" og hefst hún klukkan 15:00 með inngangsorðum Mikaels M. Karlssonar, deildarforseta. Dagskráin er sem hér segir:
15.00 Inngangsorð
Mikael M. ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/mikilvaegur-samningur-um-vetrarithrottamidstod | Mikilvægur samningur um Vetraríþróttamiðstöð
Tómas Ingi Olrich, menntamálaráðherra, og Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, undirrita á mánudag samning um uppbyggingu og rekstur Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands á Akureyri. Samningurinn gildir til ársins 2008 og er framkvæmdafé á því tímabili um 360 milljónir ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/thogul-motmaeli-a-radhustorgi | Þögul mótmæli á Ráðhústorgi
Í dag mun fólk víðs vegar um heim, þ.á m. á Íslandi, sameinast með logandi kertaljós í hönd og mótmæla í þögn yfirvofandi stríði í Írak. Hér á landi verður komið saman á Ráðhústorginu á Akureyri, Lækjartorgi í Reykjavík, Silfurtorgi á Ísafirði og á Brekkubæ í Snæfellsbæ klukkan 19.00. Viðbur... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/enn-ein-ros-i-hnappagat-listasafnsins | Enn ein rós í hnappagat listasafnsins
Um helgina var sýningin "Undir fíkjutré: Alþýðulistir og frásagnarhefðir Indlands" opnuð í Listasafninu á Akureyri. Þetta er í fyrsta sinn sem indversk myndlist er kynnt með jafn víðfeðmum hætti hér á landi. Sýningin er sérstaklega samansett af Listasafninu á Akureyri með aðstoð pr... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/lokahatid-a-fimmtudag | Lokahátíð á fimmtudag
Lokahátíð Stóru upplestarkeppninnar í 7. bekk grunnskól- anna á Akureyri verður haldin næsta fimmudag frá kl. 17-19 í Kvosinni í Menntaskólanum á Akureyri. Þar koma fram 14 fulltrúar grunnskólanna sex á Akureyri og lesa fyrir gesti sögur og ljóð. Tónlistarflutningur er í höndum nemenda Tónlistarsk... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/vetrarithrottamidstod-islands | Vetraríþróttamiðstöð Íslands
Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra og Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri á Akureyri undirrituðu í morgun samning um uppbyggingu Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands á Akureyri. Athöfnin fór fram í flugstöðinni á Akureyrarvelli en með því var lögð áhersla á gildi Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/600000-kr-styrkur | 600.000 kr. styrkur
Jafnréttisnefnd Akureyrar hefur auglýst eftir umsóknum um styrki til verkefna sem hafa það markmið að jafna stöðu kynjanna. Heildarstyrkupphæð er kr. 600.000. Tilgangurinn með styrkveitingunni er að hvetja einstaklinga, félagasamtök, stofnanir og fyrirtæki á Akureyri til virks jafnréttisstarfs. Jafn... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/tillogur-um-breytingar-a-adal-og-deiliskipulagi-kidagil-t | Tillögur um breytingar á aðal- og deiliskipulagi; Kiðagil, Tröllagil
Akureyrarbær auglýsir hér með skv. 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga neðangreindar tillögur að breytingum á aðalskipulagi Akureyrar 1998-2018, og skv. 25. gr. og 1. mgr. 26. gr. sömu laga neðangreindar tillögur að deiliskipulagi / breytingum... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/kainn-i-freyvangi | Káinn í Freyvangi
Freyvangsleikhúsið frumsýnir í kvöld leikverkið K.N. kímnaskáldið góða eftir Hannes Örn Blandon. Káinn (Kristján Níels Jónsson) var fæddur og uppalinn í Eyjafirði en flutti vestur um haf og bjó þar öll sín fullorðinsár. Nú hefur Hannes Örn Blandon skrifað bráðskemmtilegt leikverk um viðburðaríka ævi þ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyrarbaer-stydur-frumkvodla | Akureyrarbær styður frumkvöðla
Í morgun var haldinn blaðamannafundur í Ráðhúsinu á Akureyri þar sem kynntar voru nýjar reglur um stuðning við frumkvöðla og fyrirtæki sem vilja hefja nýjan atvinnurekstur í bænum. Reglurnar marka ákveðin tímamót fyrir uppbyggingu atvinnulífs á svæðinu.
Frá blaðamannafundinum í morgun: Hi... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/flottamennirnir-komnir-til-akureyrar | Flóttamennirnir komnir til Akureyrar
Í dag komu 24 flóttamenn til Akureyrar frá fyrrverandi lýðveldum Júgóslavíu. Fólkið hefur búið í flóttamannabúðum við kröpp kjör síðustu árin en verður nú aðstoðað við að koma aftur undir sig fótunum og hefja nýtt líf í nýju landi.
Flóttafólkið við komuna til Akureyrar.
Kristján Þór... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/sinfoniettutonleikar-i-ketilhusinu | Sinfóníettutónleikar í Ketilhúsinu
Sunnudaginn 30. mars kl. 16.00 heldur Sinfóníuhljómsveit Norðurlands sinfóníettutónleika í Ketilhúsinu í Listagilinu á Akureyri. Sinfóníettan er 15 manna kammersveit, skipuð flestöllum hljóðfærum sinfóníuhljómsveitar. Efnisskráin er fjölbreytt. Frumfluttur verður víólukonsert eftir Ól... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/frumsyning-i-vma-i-kvold | Frumsýning í VMA í kvöld
Söngleikurinn Grease verður frumsýndur í Gryfjunni í Verkmenntaskólanum á Akureyri í kvöld klukkan 20. Alls koma á milli 40 og 50 nemendur að þessari sýningu og fá flestar deildir skólans eitthvað að gera fyrir hana. Leikstjóri er Þorsteinn Bachmann og tónlistarstjóri er Arnór Vilbergsson.
Leik... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/lma-frumsynir-chicago | LMA frumsýnir Chicago
Leikfélag Menntaskólans á Akureyri (LMA) frumsýnir söngleikinn Chicago í kvöld kl. 20. Leikstjóri er Laufey Brá Jónsdóttir og tónlistarstjóri Björn Þórarinsson.
Söngleikurinn Chicago er kabarettsöngleikur um konur í kvennafangelsi, um sögu þeirra og drauma, en kvikmyndin sem gerð var eftir þessum ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/esb-og-byggdamal | ESB og byggðamál
Í dag var haldin í Háskólanum á Akureyri ráðstefna undir yfirskriftinni ESB og byggðamál. Fjöldi áhugasamra sótti ráðstefnuna og umræður voru málefnalegar. Það voru nemendafélög auðlindadeildar og rekstrar- og viðskiptadeildar sem stóðu að ráðstefnunni. Bjarni Hjarðar, deildarforseti rekstrar- og viðsk... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/nefndabrennsla | Nefndabrennsla
"Nefndabrennsla" kallast keppni milli fastanefnda Akureyrarbæjar og Hafnarfjarðarbæjar í að minnka brennslu á eldsneyti, þ.e. notkun á einkabílum, þegar farið er á nefndarfundi. Bent er á aðra valkosti en stálkápuna, einkabílinn, til að komast á milli staða, s.s. að hjóla, ganga eða taka strætó. Keppnin ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/utskrift-ur-stjornunarnami | Útskrift úr stjórnunarnámi
Laugardaginn 22. mars útskrifaðist hópur nemenda úr námi í stjórnun frá símenntun Háskólans á Akureyri. Hér er um tímamót að ræða því þetta er í fyrsta skipti sem nemendur ljúka lengra endurmenntunarnámi frá símenntun HA. Um er að ræða þriggja missera nám, alls 300 kennslustundir sem svarar t... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/baejarlistamadur-valinn-med-nyjum-haetti | Bæjarlistamaður valinn með nýjum hætti
Menningarmálanefnd hefur ákveðið að beita nýrri aðferð við val á bæjarlistamanni Akureyrar sem hlýtur starfslaun menningarsjóðs. Í stað þess að nefndin velji listamanninn eftir ábendingum verður auglýst eftir umsóknum. Raunar mun þessi aðferð hafa verið viðhöfð þegar starfslaunum ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/hafnfirdingar-i-heimsokn | Hafnfirðingar í heimsókn
Í dag hafa fjórir góðir gestir úr Hafnarfirði verið hér á Akureyri í kynnisferð og átt góða fundi með nokkrum stjórnendum hjá Akureyrarbæ. Þeir voru fræddir um allt milli himins og jarðar í kerfi bæjarins, m.a. breytingar á stjórnsýslu, Fasteignir Akureyrar, reglur um stuðning við frumkvöðla og... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/anna-katrin-vann | Anna Katrín vann
Anna Katrín Guðbrandsdóttir nemandi í Menntaskólanum á Akureyri varð í 1. sæti í glæsilegri Söngkeppni framhaldsskólanna um síðustu helgi. Anna Katrín flutti Vísur Vatnsenda-Rósu, þjóðlagastefið sem Jón Ásgeirsson tónskáld gerði ódauðlegt, en hér var það í splunkunýrri útsetningu tveggja nemenda MA, St... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/matreidslumadur-arsins-2003 | Matreiðslumaður ársins 2003
Keppnin um titilinn Matreiðslumaður ársins 2003 fer fram í Verkmenntaskólanum á Akureyri á laugardag. Að þessu sinni eru 14 matreiðslumeistarar skráðir til keppni. Þátttakendur koma til bæjarins á föstudag og skoða aðstæður í Verkmenntaskólanum. Keppnin hefst síðan kl. 9 á laugardagsmorgun o... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/snjobrettamot-i-snjoleysi | Snjóbrettamót í snjóleysi
Snjóbrettamótið Ak-Extreme verður haldið í Hlíðarfjalli og bænum sjálfum um helgina. Aðstandendur mótsins eru staðráðnir í að halda það hvað sem tautar og raular, og þrátt fyrir að nú sé glampandi sól, snjóleysi og um 10 gráðu hiti á Akureyri.
Aðrennan fyrir "Eimskips Big Jumpinn" er tilbúin. ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/menning-a-torfunefi | Menning á Torfunefi
Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra og Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri á Akureyri undirrituðu í dag samning um byggingu menningarhúss á Akureyri. Athöfnin fór fram á uppfyllingunni við Torfunef þar sem ætlunin er að húsið rísi. Við þetta tækifæri flutti Anna Katrín Guðbrandsdóttir sigurlagið úr ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/um-3000-manns-i-grofargili | Um 3.000 manns í Grófargili
Snjóbrettamótið Ak-Extreme var haldið um síðustu helgi og á laugardagskvöld var stokkið af Big Jump pallinum í Grófargili. Veður var hagstætt og talið er að um 3.000 manns hafi mætt í gilið til að fylgjast með snjóbrettaköppunum sýna listir sínar.
Mikill skrekkur var kominn í menn þegar leið... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/nagrenni-glerarkirkju-adal-og-deiliskipulag-brekkuskoli-o | Nágrenni Glerárkirkju, aðal- og deiliskipulag. Brekkuskóli og nágr., deilisk.lag
Akureyrarbær auglýsir hér með skv. 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga neðangreinda tillögu að breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 1998-2018, og skv. 25. gr. sömu laga neðangreindar tillögur að deiliskipulagi.
1A. Svæði norðan og a... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/fyrirlestur-um-ungt-folk-i-haska | Fyrirlestur um ungt fólk?í háska
Miðvikudaginn 9. apríl flytur Sigrún Sveinbjörnsdóttir sálfræðingur fyrirlesturinn Samkynhneigð, sálfræði og samfélag: Um ungt fólk í háska. Þar ræðir Sigrún um þekkta áhættu- og verndarþætti á viðkvæmu æviskeiði unglingsáranna og þá þögn og afskiptaleysi sem ríkir gagnvart sam- og tvík... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/urslitakeppnin-hefst-i-dag | Úrslitakeppnin hefst í dag
Bæði Akureyrarliðin KA og Þór berjast í úrslitakeppninni í handbolta sem hefst kl. 19.15 í kvöld. Íslandsmeistarar KA mæta bikarmeisturum HK í KA-húsinu á Akureyri en Þórsarar halda suður á bóginn og keppa við ÍR í Austurbergi. Það má búast við hörkuviðureign meistaranna því bæði KA og HK ætl... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/samkeppnishaefni-svaeda-og-fyrirtaekja | Samkeppnishæfni svæða og fyrirtækja
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið, Verkefnisstjórn um byggðaþróun við Eyjafjörð og Iðntæknistofnun standa fyrir ráðstefnu á Akureyri næsta föstudag undir yfirskriftinni "Samkeppnishæfni svæða og fyrirtækja". Ráðstefnan byggir á stefnumörkun og áherslum iðnaðar- og viðskiptaráðherra Val... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/hak-faer-gaeda-og-umbotastyrk | HAK fær gæða- og umbótastyrk
Heilsugæslustöðin á Akureyri var einn af 13 umsækjendum er hlutu gæða- og umbótastyrk frá Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti. Um er að ræða styrk til að þróa námskeið fyrir nýorðna foreldra en slík námskeið eru einmitt að byrja á HAK. Námskeiðið er einn liður í Fjölskyldustefnu Akureyra... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/sendiherra-indlands-i-heimsokn | Sendiherra Indlands í heimsókn
Gopalkrishna Gandhi sendiherra Indlands á Íslandi gerði sér ferð til Akureyrar sl. laugardag. Sendiherrann hefur aðsetur í Osló en með honum í för var eiginkona hans Tara Gandi og tilgangur heimsóknar þeirra var að skoða sýninguna "Undir fíkjutré" sem nú stendur yfir á Listasafninu. Sendi... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/malefnasamningur-meirihlutans-metinn | Málefnasamningur meirihlutans metinn
Unnið verður áfram að því að setja málefnasamning og stefnu meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks á Akureyri upp í svokallað samhæft árangursmat (balanced scorecard). Er þetta niðurstaða vinnuhóps sem samanstóð af fulltrúum frá Akureyrarbæ og Háskólanum á Akureyri.
Í febr... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/mannaflathorf-vegna-storidjuframkvaemda | Mannaflaþörf vegna stóriðjuframkvæmda
Í hádeginu í dag hélt Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið fund á Hótel Kea þar sem fjallað var um mannaflaþörf og sérhæfni vegna stóriðjuframkvæmda árin 2003-2008. Kom þar meðal annars fram að eftirspurn eftir vinnuafli umfram framboð er áætluð um 18%.
Fundurinn var haldinn í tilefni ú... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/timamotasamningur | Tímamótasamningur
Föstudaginn 11. apríl sl. var undirritaður samningur um innkaup á mat- og drykkjarvörum milli Akureyrarbæjar, Valgarðs ehf. og Bónus Akureyri. Samningurinn tekur til allra innkaupa á þessu sviði að ferskmeti undanskyldu, þ.e. kjöti og fiski fyrir deildir, stofnanir og fyrirtæki bæjarins. Akureyrarbær ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/heimspeki-og-job-i-dymbilviku | Heimspeki og Job í dymbilviku
Á föstudaginn langa kl. 16.00 mun Arnar Jónsson leikari lesa þætti úr Jobsbók Gamla testamentisins í Glerárkirkju. Að flutningi loknum verður boðið til kaffisamsætis og umræðna í safnaðarsal kirkjunnar. Viðfangsefnið er mannleg þjáning en efnið skírskotar til heimspeki, trúar og sálgæslu. ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/starfsmannatolvur | Starfsmannatölvur
Í dag var undirritaður samningur milli Akureyrarbæjar og EJS hf um leigu á tölvum fyrir starfsmenn Akureyrarbæjar. Í upphafi árs var starfsfólki á skrifstofum og í skólum Akureyrarbæjar gefinn kostur á að taka Dell-tölvur frá EJS á leigu til næstu þriggja ára. Tilgangurinn er fyrst og fremst sá að þes... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/glaesilegt-islandsmot-i-fitness | Glæsilegt Íslandsmót í fitness
Um helgina lauk Íslandsmóti IFBB í fitness sem haldið var í Íþróttahöllinni á Akureyri. Íslandsmeistarar urðu Sigurbjörn Ingi Guðmundsson í íþróttafitness karla, Heiðrún Sigurðardóttir í íþróttafitness kvenna og Sif Garðarsdóttir í formfitness kvenna. Pétur Friðriksson sigraði í æfingum o... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/sumardagurinn-fyrsti-i-minjasafninu | Sumardagurinn fyrsti í Minjasafninu
Löngum hefur verið mikið um dýrðir á Íslandi á sumardaginn fyrsta. Fimmtudaginn 24. apríl ætla félagar úr Stoð, vinafélagi Minjasafnsins á Akureyri, að bregða á leik ásamt starfsmönnum safnsins og bjóða upp á ýmiss konar skemmtun og fróðleik frá fyrri tíð í formi söngs og sagna úr þj... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/ithrottir-gegn-einelti | Íþróttir gegn einelti
Körfuknattleiksdeild Þórs og Regnbogabörn hafa tekið höndum saman og efna til fyrirlesturs þar sem Stefán Karl Stefánsson leikari ræðir um einelti og íþróttir gegn einelti. Fyrirlesturinn verður haldinn í dag kl. 17.30 í Háskólanum á Akureyri (Sólborg). Þjálfurum hjá íþróttafélögunum, íþróttakennu... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/samherji-hlaut-utflutningsverdlaunin | Samherji hlaut Útflutningsverðlaunin
Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, veitti Samherja hf. Útflutningsverðlaun forseta Íslands við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær. Það var Þorsteinn Már Baldvinsson sem veitti verðlaununum viðtöku fyrir hönd fyrirtækisins.
Þetta er í fimmtánda sinn sem verðlaunin eru vei... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/sumardagurinn-fyrsti-a-akureyri | Sumardagurinn fyrsti á Akureyri
Jónas Viðar Sveinsson myndlistarmaður og Jóhann Árelíuz rithöfundur hlutu starfslaun Menningarsjóðs Akureyrarbæjar sem veitt voru við hátíðlega athöfn í Ketilhúsinu á Akureyri í dag. Í Minjasafninu var einnig mikið um dýrðir í tilefni af sumarkomunni.
Þau hlutu viðurkenningar: F. v. Jóha... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/vorkoma-i-ketilhusinu-1 | Vorkoma í Ketilhúsinu
Menningarmálanefnd Akureyrar býður til samsætis í Ketilhúsinu í Listagili kl. 15 í dag, sumardaginn fyrsta. Á "Vorkomu" verður að venju tilkynnt um starfslaun listamanna næsta starfsár og hverjir hljóta viðurkenningar menningar- og húsfriðunarsjóðs. Sú nýbreytni var viðhöfð um starfslaun listamann... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/fyrirgefdu-akureyri | Fyrirgefðu, Akureyri...
Á Vorkomu menningarmálanefndar Akureyrarbæjar las skáldkonan Sigurbjörg Þrastardóttir nokkur ljóð fyrir gesti. Eitt ljóðanna nefnir hún Leiðrétt og yrkir þar til Akureyrar. Í bréfi til vefstjóra lýsir skáldkonan tilurð ljóðsins og heimilar góðfúslega birtingu þess á Akureyri.is. Gefum Sigurbjörg... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/islandsmot-barna-og-unglinga-i-ishokki | Íslandsmót barna og unglinga í íshokkí
Íslandsmót barna og unglinga í íshokkí hófst í dag í Skautahöllinni á Akureyri. Spilaðir verða á 5. tug leikja um helgina en mótinu lýkur síðdegis á sunnudag. Heimamenn ætla sér stóra hluti en árlega eru 6 Íslandsmeistaratitlar í boði. Skautafélag Akureyrar (SA) hefur þegar krækt ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/beint-aaetlunarflug-hefst-a-manudag | Beint áætlunarflug hefst á mánudag
Áætlunarflug flugfélagsins Air Greenland milli Akureyrar og Kaupmannahafnar hefst nk. mánudag, 28. apríl. Áætlaður lendingartími þotu Air Greenland á Akureyrarflugvelli er kl. 10.45 og verður sérstök móttökuathöfn á Akureyrarflugvelli þar sem stutt ávörp verða flutt og öllum viðstöddu... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/ad-duga-eda-drepast-1 | Að duga eða drepast
Handknattleikslið KA tekur á móti Haukum í KA-heimilinu í dag í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Essó-deildarinnar og hefst leikurinn kl. 16.15. Haukar unnu auðveldan, 33-27 sigur í fyrsta leik liðanna sl. fimmtudag og nái KA ekki að knýja fram sigur í dag er liðið úr leik. |
https://www.akureyri.is/is/frettir/breytingar-hja-afe | Breytingar hjá AFE
Á fundi stjórnar Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar í síðustu viku var staðfestur vilji aðildarsveitarfélaganna um áframhaldandi rekstur AFE með breyttum áherslum. Framkvæmdastjóri félagsins hefur óskað eftir starfslokum og tekur forstöðumaður þróunar- og markaðssviðs AFE við starfi hans. Nýjar áherslu... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/til-koben-fyrir-14900-kr | Til Köben fyrir 14.900 kr.
FYRSTA áætlunarflug Grænlandsflugs milli Kaupmannahafnar og Akureyrar var í gær og var vel tekið á móti áhöfn og farþegum í Boeing-þotu félagsins við komuna til Akureyrar en sérstök móttökuathöfn var á Akureyrarflugvelli af þessu tilefni. Fulltrúar grænlensku heimastjórnarinnar, stjórnendur G... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/tuttugu-ar-fra-upphafi-utgerdar-samherja | Tuttugu ár frá upphafi útgerðar Samherja
Starfsfólk Samherja býður bæjarbúum öllum til móttöku í KA-heimilinu á Akureyri frá kl. 19 til 22 í dag. Tilefnið er að í gær voru 20 ár liðin frá því Samherji hf. hóf starfsemi á Akureyri og einnig er full ástæða til að fagna því að fyrirtækinu voru á dögunum veitt Útflutningsv... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/skjar-1-a-akureyri | Skjár 1 á Akureyri
Sjónvarpsstöðin Skjár 1 sendir út frá höfuðborg hins bjarta norðurs næstu daga. Í gærkvöldi heimsóttu Vala Matt og félagar falleg heimili á Akureyri og í kvöld verður þátturinn Fólk með Sirrý sendur út beint frá Fiðlaranum. Á föstudagskvöld verður Djúpa laugin í beinni útsendingu frá Akureyri og sunn... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/kea-uthlutar-7-milljonum | KEA úthlutar 7 milljónum
Menningar- og viðurkenningasjóður KEA svf. veitir tvisvar á ári styrki til ýmissa verkefna á félagssvæðinu. Á aðalfundi KEA á Akureyri 29. apríl 2003 var tilkynnt um úthlutun úr sjóðnum, samtals var úthlutað sjö milljónum króna til 34 aðila.
Lista yfir þá aðila sem hlutu styrki er að finna á he... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/130-stofnfelagar | 130 stofnfélagar
Stangaveiðifélag Akureyrar (SVFA) var stofnað síðastliðinn laugardag og mættu rétt innan við 100 manns á stofnfundinn sem haldinn var á Hótel Kea. Nú þegar hafa um 130 manns skráð sig sem stofnfélagar. Fyrsti formaður félagsins var kjörinn Ragnar Hólm Ragnarsson en aðrir í stjórn eru Björgvin Harri Bja... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/stortonleikar-i-hollinni | Stórtónleikar í Höllinni!
Á sunnudag verða haldnir í Íþróttahöllinni á Akureyri stórtónleikar þar sem koma fram meðal annarra Kristján Jóhannsson tenór og Kristinn Sigmundsson bassi. Tilefnið er að Sinfóníuhljómsveit Norðurlands er nú að ljúka sínu tíunda starfsári og á efnisskránni er Requiem (Sálumessa) eftir Giusepp... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/allt-um-kosningarnar-a-laugardag | Allt um kosningarnar á laugardag
Kosið verður til alþingis Íslendinga á laugardag og eru sex listar í framboði í norðausturkjördæmi. Kjörstaður Akureyringa er eins og svo oft áður Oddeyrarskóli og verða kjördeildir opnar frá 9-22.
Hægra megin á forsíðu Akureyri.is er að finna skiptingu í kjördeildir eftir götuheitum.
Á... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/ondvegissetur-i-audlindaliftaekni | Öndvegissetur í auðlindalíftækni
Í gær undirrituðu Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Tómas Ingi Olrich, menntamálaráðherra og Árni M. Mathiesen, sjávarútvegsráðherra, samkomulag um að unnið verði að því að til verði öndvegissetur í auðlindalíftækni í tengslum við Háskólann á Akureyri. Með öndvegis... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/4-tillogur-ad-breytingum-a-adalskipulagi-gleraros-krossan | 4 tillögur að breytingum á aðalskipulagi: Glerárós - Krossanesshagi - Móasíða - Mýravegur
Akureyrarbær auglýsir hér með skv. 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga neðangreindar tillögur að breytingum á aðalskipulagi Akureyrar 1998-2018:
1 Landfylling við Glerárós
Lagt er til að landfylling milli Gleráróss og Flot... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/3-tillogur-ad-deiliskipulagi-fiskihofn-krossanesshagi-thjonustustod | 3 tillögur að deiliskipulagi: Fiskihöfn - Krossanesshagi - Þjónustustöð
Akureyrarbær auglýsir hér með skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga neðangreindar tillögur að deiliskipulagi:
1 Deiliskipulag fiskihafnar og nágrennis
Tillagan fjallar um svæðið austan Hjalteyrargötu frá lóð Ú.A. að Glerá. Gerð er grein fyrir ha... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/inn-og-ut-um-gluggann | Inn og út um gluggann
Í dag var ýtt úr vör í Listasafninu á Akureyri farandsýningunni "Inn og út um gluggann: Ísland, Grænland og Færeyjar skoða hvert annað". Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, og Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, opnuðu sýninguna. Á undanförnum árum hefur samstarf mi... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/god-stemning-a-kjordegi | Góð stemning á kjördegi
Mikil og góð stemning hefur verið á Akureyri í gær og í dag vegna alþingiskosninganna 2003. Flokkarnir bjóða gestum og gangandi að þiggja veitingar og verður spennandi að sjá hverju það skilar upp úr kjörkössunum. Kjörstaður í Oddeyrarskóla er opinn til kl. 22. Talning fer hins vegar fram í KA-h... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/kirkjulistavika-a-akureyri | Kirkjulistavika á Akureyri
Kirkjulistavika hófst í gær með glæsilegum hátíðartónleikum í Íþróttahöllinni á Akureyri. Mikið verður um að vera næstu daga og er dagskráin svohljóðandi:
Mánudagur 12. maí
Kl. 20.30: Fyrirlestur Elsu E. Guðjónssen.
Þriðjudagur 13. maí
Kl. 9: Morgunsöngur.
Miðvikudagur 14. maí
Kl. 10: Mömmumo... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/fyrsta-skoflustungan-tekin-i-naustahverfi | Fyrsta skóflustungan tekin í Naustahverfi
Á þriðjudag tók bæjarstjórinn á Akureyri, Kristján Þór Júlíusson, fyrstu skóflustunguna að fyrsta íbúðarhúsinu í Naustahverfi. Hverfið er rammað inn af svipmiklu landslagi og liggur beint fyrir ofan flugvöllinn, frá suðurenda bæjarins að Kjarnaskógi. Rammaskipulag Naustahverfis... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/vorsyning-myndlistaskolans-a-akureyri-2003 | Vorsýning Myndlistaskólans á Akureyri 2003
Sýning á verkum nemenda Myndlistaskólans á Akureyri verður opnuð um helgina á tveimur stöðum í Listagilinu á Akureyri. Í Ketilhúsinu verða til sýnis útskriftarverk þeirra 13 nemenda sem útskrifast úr sérnámsdeildum skólans að loknu 90 eininga námi. Nám í fagurlistadeild er fjö... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/husid-ad-granufelagsgotu-6-rifid | Húsið að Gránufélagsgötu 6 rifið
Í dag var hafist handa við að rífa húsið að Gránufélagsgötu 6 á Akureyri, nánar tiltekið á horninu við Hótel Norðurland og Herradeild JMJ. Undanfarnar vikur hafa liðsmenn í slökkviliði bæjarins nýtt sér húsið til æfinga og því leikið um það eldur og reykur suma daga. En nú er sem sagt k... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/ithrottahus-og-vidbygging-vid-siduskola | Íþróttahús og viðbygging við Síðuskóla
Tréverk ehf. í Dalvíkurbyggð skrifaði á þriðjudag undir samning við Fasteignir Akureyrarbæjar um byggingu íþróttahúss og viðbyggingu við Síðuskóla. Alls bárust fjögur tilboð í verkið og voru þau öll yfir kostnaðaráætlun.
Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, og Björn Fri... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/kynja-og-byggdasjonarmid | Kynja- og byggðasjónarmið?
Félagsvísinda- og lagadeild boðar í samvinnu við Jafnréttisstofu og Jafnréttisráð til málþings um lýðræði og kynja- og byggðasjónarmið. Málþingið verður haldið föstudaginn 23. maí kl. 9.00 - 12.00 í stofu L203 á Sólborg. Fundarstjóri er Elín Hirst, fréttastjóri sjónvarpsins.
Í nýafstöðnum þin... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/einn-gaesluvollur-a-akureyri | Einn gæsluvöllur á Akureyri
Sumarið 2003 er rekinn einn gæsluvöllur á Akureyri frá 20. maí til 22. ágúst. Þar er um að ræða Eyrarvöll við Eiðsvöll. Markmið með rekstri gæsluvalla Akureyrar er að veita börnum 2-7 ára örugga útigæslu.
Reglur gæsluvalla Akureyrar eru þessar:
1. Gæsluvellir eru eingöngu ætlaðir til útileik... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/endurbaetur-a-brekkuskola | Endurbætur á Brekkuskóla
Í dag var skrifað undir samning vegna fyrsta áfanga endurbóta og viðbyggingar á Gagnfræðaskólahúsinu, Brekkuskóla. Skóflustunga verður tekin kl. 16.50 í dag og verða nemendur Brekkuskóla þátttakendur í athöfninni.
Í kynningarskjali frá Fasteignum Akureyrarbæjar segir:
Stjórn Fasteigna samþykkti... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/skippers-d-islande | Skippers d´Islande
Skúturnar sem taka þátt í siglingakeppninni Skippers d'Islande nálgast nú óðum Ísland og verða í Reykjavíkurhöfn innan fárra klukkustunda. Þaðan liggur leiðin til Akureyrar og er gert ráð fyrir að skúturnar sigli inn Pollinn 19. júní.
Skúturnar sem taka þátt í keppninni eru:
Arcelor Dunkerque
Port de... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/fyrsta-skemmtiferdaskipid-1 | Fyrsta skemmtiferðaskipið
Von er á 44 skemmtiferðaskipum til Akureyrar sumarið 2003 og í morgun tók Kristján Þór Júlíusson, bæarjstóri, á móti landfestum hjá því fyrsta. Skipið sem nú liggur við Oddeyrarbryggju er breskt og nefnist Discovery. Þegar landgangurinn var kominn á sinn stað steig bæjarstjórinn um borð og hei... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/nyir-studentagardar-vid-trollagil | Nýir stúdentagarðar við Tröllagil
Kristján Þór Júlíusson og Árni Magnússon ásamt krökkunum sem tóku fyrstu skóflustunguna.
Börn af leikskólanum Kiðagili tóku í morgun fyrstu skóflustunguna að nýjum stúdentagörðum sem taka á í notkun á næsta ári. Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, og Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/stjornuleit-a-akureyri | Stjörnuleit á Akureyri
Í gær voru á Akureyri tveir fulltrúar Stöðvar 2 að leita að hentugum stað fyrir upptökur og áheyrnarpróf vegna þáttarins Idol-Stjörnuleit sem stöðin sýnir næsta haust.
Þór Freysson, dagskrárgerðarmaður, og Heimir Jónasson, dagskrárstjóri innlendrar dagskrárgerðar, fóru víða um bæinn að skoða aðst... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/grodurreitur-tileinkadur-konum | Gróðurreitur tileinkaður konum
Jafnréttisnefnd Akureyrar stendur fyrir útisamveru við Hamra (ofan Akureyrar) þann 19. júní nk. kl. 17-19 í tilefni Kvenréttindadagsins. Þar hefur konum verið tileinkaður sérstakur reitur og verður gróðursett í hann í fyrsta skipti um leið og kallað verður eftir hugmyndum að nafni á reiti... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/stefnumotun-fyrir-ferdathjonustu-i-eyjafirdi | Stefnumótun fyrir ferðaþjónustu í Eyjafirði
Í gær var haldinn kynningarfundur á vegum Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar (AFE) og Iðntæknistofnunar um stefnumótun í ferðaþjónustu. Fundurinn markaði þáttaskil í starfi AFE þar sem félagið leggur nú niður ferðamálasvið. Að því tilefni veitti AFE eina milljón króna til stuðn... |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.