Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
http://www.austurfrett.is/frettir/ymsar-leidir-verid-raeddar-til-ad-husstjornarskolinn-gaeti-haldid-afram-starfsemi
Ýmsar leiðir verið ræddar til að Hússtjórnarskólinn gæti haldið áfram starfsemi Menntamálaráðuneytið telur þær hugmyndir að námi sem stjórnendur Handverks- og hússtjórnarskólans á Hallormsstað hafi lagt fram um framtíð skólans ekki uppfylla kröfur aðalnámsskrár framhaldsskóla. Óljóst sé hvaða hæfniviðmiðum nám í skólan...
http://www.austurfrett.is/frettir/mikilvaegt-ad-skapa-umraeduvettvang-i-fjoelkjarna-samfelagi
Mikilvægt að skapa umræðuvettvang í fjölkjarna samfélagi „Það skiptir öllu máli að vera í beinum tengslum við íbúa. Við erum fjölkjarna sveitarfélag þar sem t.d. 83 kílómetrar eru á milli Neskaupstaðar í norðri og Stöðvarfjarðar í suðri. Þess vegna er afar mikilvægt að boðið sé upp á aðgengilegan vettvang í öllum bæjar...
http://www.austurfrett.is/frettir/nuna-turfum-vid-ekki-ad-vera-eins-og-sardinur-i-dos
„Núna þurfum við ekki að vera eins og sardínur í dós“ Fjölmenni var við vígslu kaþólsku kirkjunnar á Kollaleiru í Reyðarfirði um helgina, þar á meðal Robert Fico, forsætisráðherra Slóvakíu. Kirkjan er bjálkahús úr slóvenskum viði og hófst bygging hennar vorið 2015. Kirkjan tekur um 40 manns í sæti. „Kapellan okkar var ...
http://www.austurfrett.is/frettir/oheppinn-okumadur-og-fikniefnamal-i-norraenu
Óheppinn ökumaður og fíkniefnamál í Norrænu Óheppinn ökumaður komst í klandur við bílastæðið við Selskóg þegar hann bakkaði bíl sínum ofan í ræsi þar við í hádeginu. Þrjú mál tengd fíkniefnum komu upp þegar Norræna kom til landsins í morgun. Ökumaðurinn ætlaði að snúa við og bakka inn á afleggjarann en vildi ekki betur...
http://www.austurfrett.is/frettir/hakon-asgrimsson-helt-eg-vaeri-ad-fara-svara-nokkrum-spurningum
Hákon Ásgrímsson: Hélt ég væri að fara svara nokkrum spurningum Reyðfirðingurinn Hákon Ásgrímsson hefur síðastliðna tvo vetur vakið nokkra athygli sem einn af þremur liðsmönnum Fjarðabyggðar í spurningakeppninni Útsvari. Eina reynsla Hákons af spurningakeppnum áður en hann fór í Útsvarið var einn vetur í Gettu betur me...
http://www.austurfrett.is/frettir/slovakisk-fyrirmenni-a-rikisthotu-til-kirkjuvigslu
Slóvakísk fyrirmenni á ríkisþotu til kirkjuvígslu Þrír slóvakískir ráðherrar, þeirra á meðal forsætisráðherrann Robert Fico, komu með þotu slóvakíska ríkisins til Egilsstaða á laugardagsmorgun til að vera viðstaddir vígslu kaþólsku kirkjunnar á Reyðarfirði. Ráðherrarnir funduðu með starfsbræðrum sínum í Reykjavík dagin...
http://www.austurfrett.is/frettir/thrjar-thotur-lentu-a-egilsstodum
Fjórar þotur lentu á Egilsstöðum Fjórar þotur á vegum íslenskra flugfélaga lentu á Egilsstöðum um miðnætti í gærkvöldi. Ekki var talið hægt að lenda í Keflavík vegna skyggnis en mikil þoka lá yfir vellinum í dag. Tvær þotur frá Wow, önnur á leið frá Amsterdam og hin frá London, lentu á Egilsstöðum rétt fyrir miðnætti í...
http://www.austurfrett.is/frettir/vid-aetlum-ad-halda-afram-a-tessari-braut
„Við ætlum að halda áfram á þessari braut“ „Það er í okkar höndum að búa börnunum umhverfi og þekkingu sem hvetur þau til heilsusamlegra ákvarðana er verða hluti af lífsstíl þeirra til framtíðar,“ segir Sandra Konráðsdóttir, leikskólastjóri í Brekkubæ á Vopnafirði, en skólinn hlaut titilinn heilsuskóli fyrir stuttu. „Þ...
http://www.austurfrett.is/frettir/ekkert-adh-thvi-adh-dorga-af-bryggjum-i-nordhfirdhi
Ekkert að því að dorga af bryggjum í Norðfirði Lögreglan á Austurlandi hefur beðist afsökunar á hafa haft afskipti af fjölskyldu sem var að renna fyrir fisk innst í Norðfirði í gær og bannað henni að dorga. Móðir sem var þar með syni sínum segist fyrst hafa haldið að um grín væri að ræða. „Ég, sonur minn og vinur hans ...
http://www.austurfrett.is/frettir/vid-setjum-jafnrettismal-a-oddinn
„Við setjum jafnréttismál á oddinn“ „Við höfum alltaf boðið konum heim þennan dag. Fyrst var það kannski ein leið til þess að fá konur til okkar og kynna þeim fyrirtækið og störfin. Í dag þegar fyrirtækið er orðið 10 ára og rótgróið erum við frekar að fagna þessum mikilvæga degi en við setjum jafnréttismálin á oddinn h...
http://www.austurfrett.is/frettir/tridja-tattaroedh-fortitude-stadfest
Þriðja þáttaröð Fortitude staðfest Pivot og Sky Atlantic munu framleiða þriðju þáttaröðina af Fortitude og munu tökur sem fyrr fara fram á Reyðarfirði og nágrenni. Þetta staðfestir Snorri Þórisson, eigandi Pegasus, sem er meðframleiðandi þáttaraðarinnar. Þáttaröðin á að gerast í þorpi á norðurhjara veraldar þar sem ýms...
http://www.austurfrett.is/frettir/sildarvinnslan-stefnir-a-adh-lata-smidha-nyja-isfisktogara
Síldarvinnslan stefnir á að láta smíða nýja ísfisktogara Síldarvinnslan í Neskaupstað stefnir á endurnýjun ísfisktogaranna fjögurra sem gerðir eru út á vegum samsteypunnar á næstunni. Hagnaður hennar nam 4,1 milljarði króna á síðasta ári. Þetta kom fram á aðalfundi félagsins sem haldinn var á föstudag. Á vegum Síldarvi...
http://www.austurfrett.is/frettir/oegrun-er-fyrir-alla
Ögrun er fyrir alla „Ég hef lengi gengið með þá hugmynd í maganum að reyna að finna einhverja leið til að auglýsa og fá fólk til að heimsækja okkur á Vopnafjörð og sjá hversu fjölbreytta og skemmtilega nátturu fjörðurinn býður uppá,“ segir Bjarney Guðrún Jónsdóttir, en hún stendur fyrir útivistarratleiknum Ögrun á Vopn...
http://www.austurfrett.is/frettir/timabaert-ad-thad-se-einn-lendingarvefur
„Tímabært að það sé einn lendingarvefur“ „Með þessu móti verður bæði hægt að fræðast um ný og spennandi störf auk þess að kynna sér hvernig mannlífið og staðirnir eru utan vinnutíma,“ segir María Hjálmarsdóttir, verkefnastjóri hjá Austurbrú, en nú er hægt að skoða öll auglýst störf á Austurlandi á vefnum Austurland.is ...
http://www.austurfrett.is/frettir/adsoknin-miklu-meiri-en-okkur-oradi-fyrir
„Aðsóknin miklu meiri en okkur óraði fyrir“ „Þetta var bara lítið fræ sem varð svo allt í einu risastórt,“ segir Hákon Hildibrand, frumkvöðull verkefnisins Neskaupstaður - Art Attack 2017, sem hlaut hæsta styrkinn í fyrri úthlutun ársins úr menningar- og viðurkenningasjóði SÚN. Art Attack 2017 er listamannadvöl í Neska...
http://www.austurfrett.is/frettir/radherra-bindur-vonir-vid-flug-milli-keflavikur-og-egilsstada
Ráðherra bindur vonir við flug milli Keflavíkur og Egilsstaða Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, vonast til að góð reynsla af áætlunarflugi milli Akureyrar og Keflavíkur verði til þess að opna tækifæri víðar á landinu, meðal annars í gegnum Egilsstaði. „Ég bind vonir við að flugleiðin Keflavík - ...
http://www.austurfrett.is/frettir/skemmtiferdaskipin-koma-i-stad-fiskiskipanna
Skemmtiferðaskipin koma í stað fiskiskipanna Von er á um tæplega tíu þúsund farþegum með 26 skemmtiferðaskipum til Djúpavogs. Tölurnar eru dæmi um vaxandi fjölda ferðamanna. Á sama tíma hefur afli í höfninni dregist saman. Frá þessu er greint í nýjasta tölublaði Bóndavörðunnar, fréttabréfi Djúpavogshrepps. Fjögur skip ...
http://www.austurfrett.is/frettir/vidbotarfjarmagn-til-skaftfells
Viðbótarfjármagn til Skaftfells Rekstur menningarmiðstöðvarinnar Skaftfells á Seyðisfirði á að vera tryggður út árið eftir að menntamálaráðuneytið veitti viðbótarframlagi til starfseminnar í ár. Ráðuneytið staðfesti með bréfi til stjórnenda Skaftfells í síðustu viku að það hefði veitt miðstöðinni 6,5 milljóna viðbótarf...
http://www.austurfrett.is/frettir/vonast-til-ad-filterinn-auki-athygli-a-fjardabyggd
Vonast til að filterinn auki athygli á Fjarðabyggð „Ég hafði heyrt ungmennin tala mikið um þörfina á að búa til geofilter fyrir Fjarðabyggð. Hugmyndin um þessa samkeppni kom svo upp og er nú að verða að veruleika en Ungmennaráð Fjarðabyggðar vill flottan Fjarðabyggðar-geofilter,“ segir Bjarki Bjarki Ármann Oddsson, íþr...
http://www.austurfrett.is/frettir/tad-er-frabaer-helgi-framundan
„Það er frábær helgi framundan“ „Sjómannadagshelgin er stærsta helgi sumarsins á Eskifirði og mikið um að vera,“ segir Kristinn Þór Jónasson, formaður sjómannadagsráðs Eskifjarðar. „Dagskráin er hefðbundinn og undirbúningur er í fullum gangi. Að venju er eitthvað fyrir alla og bærinn fyllist af brottfluttum Eskfirðingu...
http://www.austurfrett.is/frettir/faer-evropskan-frumkvodlastyrk-sjaum-ekki-eftir-ad-hafa-einbeitt-okkur-ad-saebjugunum
Fær evrópskan frumkvöðlastyrk: Sjáum ekki eftir að hafa einbeitt okkur að sæbjúgunum Aurora Seafood, fyrirtæki Davíðs Freys Jónssonar frá Egilsstöðum, fékk nýverið tæplega 190 milljóna króna Evrópustyrk til þróunar á veiðum og vinnslu sæbjúgna. Fyrirtækið hyggur á landvinninga erlendis með tækni sína. „Við stofnuðum Au...
http://www.austurfrett.is/frettir/fljotsdalsherad-betri-afkoma-en-reiknad-var-med
Fljótsdalshérað: Betri afkoma en reiknað var með Afkoma af rekstri sveitarfélagsins Fljótsdalshéraðs árið 2016 var jákvæð um 256 milljónir. Tekjur sveitarfélagsins voru hærri en áætlaðar var og bæjarstjóri segir áhugaverða vaxtarsprota í atvinnulífinu. Rekstri sveitarfélaga er skipt í tvennt og má segja að í A-hluta sé...
http://www.austurfrett.is/frettir/aetlum-ad-faera-okkur-enn-lengra-inn-i-japanska-eldhusid
„Ætlum að færa okkur enn lengra inn í japanska eldhúsið“ „Já, við erum frekar hissa en umfram allt mjög stolt og ánægð að hafa ratað aftur á listann en það er alls ekkert sjálfgefið. Fyrst og fremst er þetta þó staðfesting á því að við erum að gera góða hluti og óvanalegt að svo nýr veitingastaður nái þangað, sem þar a...
http://www.austurfrett.is/frettir/fartegarnir-komnir-austur
Farþegarnir komnir austur Þeir 40 fjörutíu farþegar sem áttu bókað flug austur í Egilsstaði í morgun en þurftu að lenda á Akureyri vegna bilunar í vel Air Iceland Connect eru komnir a áfangastað. Eftir lendingu á Akureyri fengu farþegarnir far austur með rútu, en þangað komu þeir um klukkan eitt. Árni Gunnarsson, framk...
http://www.austurfrett.is/frettir/kannski-eigum-vid-eftir-ad-koma-einhverjum-a-ovart
„Kannski eigum við eftir að koma einhverjum á óvart“ „Mér líst afar vel á þetta nýja starf, ekki síst vegna þess að sjávarútvegurinn í dag er gríðarlega spennandi grein,“ segir Stöðfirðingurinn Svavar Hávarðsson, nýr ritstjóri Fiskifrétta. Svavar hefur verið blaðamaður á Fréttablaðinu í rúman áratug en stundaði áður sj...
http://www.austurfrett.is/frettir/metsoluhofundurinn-maetir-sjalfur-i-utgafuhofid
Metsöluhöfundurinn mætir sjálfur í útgáfuhófið „Stór og stækkandi hópur lesenda er farinn að bíða eftir bókunum sem hafa komið út á vorin, síðustu tvö ár,“ segir Sigríður Lára Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Bókstafs á Egilsstöðum, en föstudaginn 9. júní gefur forlagið Bókstafur út þriðju bók írska metsöluhöfundarins...
http://www.austurfrett.is/frettir/margt-likt-milli-landa-en-annad-olikt
Margt líkt milli landa en annað ólíkt „Við eigum mikla samleið með þessum nágrönnum okkar og það er mikil orka í loftinu um að tengjast betur og fólk er sammála um að miklir möguleikar felist í samstarfi,“ segir Lára Vilbergsdóttir, verkefnastjóri skapandi greina hjá Austurbrú en hún ásamt og Katrínu Jónsdóttur, verkef...
http://www.austurfrett.is/frettir/tetta-er-ein-af-minum-uppahaldssogum
„Þetta er ein af mínum uppáhaldssögum“ „Aðventa er ein af mínum uppáhaldssögum, ég les hana alltaf um jólin og núna er átta ára sonur minn byrjaður að taka þátt í þessu með mér,“ segir Ottó Geir Borg, en hann hlaut nýverið hæsta styrkinn sem Menningarsjóður Gunnarsstofnunar úthlutaði í ár. Er þetta annað árið sem úthlu...
http://www.austurfrett.is/frettir/vid-viljum-gera-vel-vid-barnafjolskyldur
„Við viljum gera vel við barnafjölskyldur“ „Við ákváðum að lækka þessa vöruflokka, því ef á að gera vel við einhverja þá eru það barnafjölskyldur,“ segir Nikulás Árnason, rekstrarstjóri verslunarinnar Kauptúns á Vopnafirði, en verslunin hefur stórlækkað verð á barnavörum. Verslunin Kauptún á Vopnafirði sendi frá sér sv...
http://www.austurfrett.is/frettir/byggir-dagskrana-upp-ut-fra-tatttoku-gesta
Byggir dagskrána upp út frá þátttöku gesta „Það verður rosalega mikið um að vera og þetta verður virkilega skemmtilegt. Dagskráin er afar fjölbreytt og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi,“ segir Elísabet Reynisdóttir, skipuleggjandi Vopnaskaks sem hefst með Bustarfellsdeginum þann 18. júní og stendur sleitulaus...
http://www.austurfrett.is/frettir/sla-hotelbyggingu-a-seydisfirdi-a-frest
Slá hótelbyggingu á Seyðisfirði á frest Aðstandendur TindarHótel ehf. hafa ákveðið að slá áformum um uppbyggingu nýs hótels á Seyðisfirði á frest. Ástæðan er versnandi afkoma ferðaþjónusta og óvissa um aðgerðir ríkisins. „Við teljum á þessum tímapunkti ekki ráðlegt að ráðast í eins viðamiklar fjárfestingar og til stóð ...
http://www.austurfrett.is/frettir/vegagerdin-oskareftir-tilbodum-i-vegaframkvaemdir-um-berufjardarbotn
Vegagerðin óskar tilboða í vegaframkvæmdir um Berufjarðarbotn Vegagerðin hefur óskað eftir tilboðum í gerð 4,9 km langs vegar um Berufjarðarbotn ásamt smíði 50 metra langrar brúar og gerð 1,7 km langra heimreiða að bæjunum Berufirði og Hvannabrekku. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu Vegagerðarinnar sem birt va...
http://www.austurfrett.is/frettir/charisma-verdur-nyr-jon-kjartansson
Charisma verður nýr Jón Kjartansson Eskja hf. tilkynnti í gærkvöldi um að fyrirtækið hefði gengið frá kaupum á nýju uppsjávarveiðiskipi, Charismu frá Lerwick á Hjaltlandseyjum. Hún kemur í stað Jóns Kjartanssonar. „Tilgangur kaupanna er að endurnýja Jón Kjartansson en hann er kominn til ára sinna auk þess sem skipið er...
http://www.austurfrett.is/frettir/vill-nyta-eldmodinn-i-verkefnid
Vill nýta eldmóðinn í verkefnið „Nú þarf bara að nýta eldmóðinn sem skapaðist í gær og ég vona að bæjarbúar taki þátt í verkefinu, ég nenni ekki að sitja uppi með 30 metra af efni og sauma allt sjálf,“ segir Oddý Björk Daníelsdóttir, en mikill áhugi er fyrir því að gera Seyðisfjörð að plastpokalausu samfélagi. Anna Guð...
http://www.austurfrett.is/frettir/their-hafa-enntha-eitthvadh-til-adh-keppa-adh
„Þeir hafa ennþá eitthvað til að keppa að“ „Stefnan var alltaf sett á að gera mitt besta í skólanum. Ég kem á eftir tveimur bráðgáfuðum systkinum sem dúxuðu bæði við ME, þannig var alltaf svolítil pressa á mér að dúxa líka,“ segir Gísli Björn Helgason, dúx Menntaskólans á Egilsstöðum, sem útskrifaðist með 9,93 í meðale...
http://www.austurfrett.is/frettir/styrkirnir-eru-hvetjandi-og-efla-starfsemi-felaganna
Styrkirnir eru hvetjandi og efla starfsemi félaganna „Ég tel að styrkir sem þessir séu hvetjandi fyrir þá sem standa að sjálfboðaliðsstarfi sem oft tekur mestan frítíma þessa fólks,“ segir Vilhjálmur G. Pálsson, forstöðumaður Sparisjóðs Austurlands, en sjóðurinn afhenti alls 4,1 milljón í samfélagsstyrki fyrir stuttu. ...
http://www.austurfrett.is/frettir/karna-mun-leida-menningarstofu-fjardabyggdar
Karna mun leiða Menningarstofu Fjarðabyggðar Karna, eða Kristín Arna Sigurðardóttir, hefur verið ráðin til þess að veita Menningarstofu Fjarðabyggðar forstöðu og mun hún hefja störf í júlí. Menningarstofa Fjarðabyggðar mun starfa á klasagrunni í samstarfi sveitarfélagsins, fyrirtækja og félaga innan þess og Tónlistarmi...
http://www.austurfrett.is/frettir/atta-saekjast-eftir-stoedu-upplysingafulltrua
Átta sækjast eftir stöðu upplýsingafulltrúa Átta einstaklingar sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fjarðabyggðar en fresturinn rann út 12. maí síðastliðinn. Upplýsingafulltrúi hefur umsjón með upplýsinga- og kynningarmálum sveitarfélagsins. Hann starfar á stjórnsýslu- og þjónustusviði og vinnur m.a. að stefnumörkun og þr...
http://www.austurfrett.is/frettir/stefan-mar-var-med-hjarta-ur-gulli
„Stefán Már var með hjarta úr gulli“ Marta Guðlaug Svavarsdóttir hlaut viðurkenninguna Gullhjartað, hvatningarverðlaun iðnnema, sem veitt voru í fyrsta skipti við brautskráningu nemenda frá Verkmenntaskóla Austurlands síðastliðinn laugardag. Hvatningarverðlaunin eru til minningar um Stefán Má, kennara við Verkmenntaskó...
http://www.austurfrett.is/frettir/ekkert-menningarhus-i-fjarmalaaaetlun-ritadi-ekki-undir-tha-viljayfirlysingu
Ekkert menningarhús í fjármálaáætlun: Ritaði ekki undir þá viljayfirlýsingu Fjármunir í fyrirhugað menningarhús á Egilsstöðum eru hvergi sjáanlegir í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem lögð var á ný fyrir Alþingi á föstudag. Menntamálaráðherra segir framkvæmdafé skorta til fjölda verkefna á menningarsviði. Illugi Gu...
http://www.austurfrett.is/frettir/badir-leikskolarnir-eru-sprungnir
„Báðir leikskólarnir eru sprungnir“ „Á fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2017 er tólf milljónum varið í hönnun viðbygginga við leikskólana á Eskifirði og Reyðarfirði en báðir skólarnir eru orðnir of litlir,“ segir Þóroddur Helgason, fræðslustjóri Fjarðabyggðar. Unnið er að frumhönnun á viðbyggingum leikskólanna á...
http://www.austurfrett.is/frettir/forsvarmenn-husstjornarskolans-undrandi-a-raduneytinu-hvi-var-thetta-ekki-raett-strax
Forsvarmenn Hússtjórnarskólans undrandi á ráðuneytinu: Hví var þetta ekki rætt strax? Skólameistari Húsmæðraskólans á Hallormsstað undrast skýringar Mennta- og menningarmálaráðuneytisins á því hvers vegna samningur við skólann sé ekki endurnýjaður. Þær standist ekki að fullu það sem farið hafi milli skólans og ráðuneyt...
http://www.austurfrett.is/frettir/lokun-huso-er-stefnan-virkilega-ad-yta-hverjum-einasta-nemenda-i-boknam
Lokun Húsó: Er stefnan virkilega að ýta hverjum einasta nemenda í bóknám? Tveir þingmenn Norðausturkjördæmis ræddu stöðu Hússtjórnarskólans á Hallormsstað við upphaf þingfundar í morgun. Kallað var eftir svörum ráðherra um stöðu stutts starfsnáms á framhaldsskólastigi. Skólanefnd tilkynnti í gær að ekki yrði boðið upp ...
http://www.austurfrett.is/frettir/ahrifavaldur-heimsaekir-austurland
Áhrifavaldur heimsækir Austurland Carlo Petrini stofnandi Slow Food og formaður samtakanna frá upphafi, heimsækir Austurland á miðvikudaginn og boða Austfirskar Krásir og Austurbrú til hádegisfundar í Havarí á Karlsstöðum. Í fréttatilkynningu segir að Carlo Petrini sé án efna einn áhrifamesti einstaklingur á sviði matv...
http://www.austurfrett.is/frettir/gjafir-vinsamlegast-afthakkadar-i-urslitathaetti-utsvars
Gjafir vinsamlegast afþakkaðar í úrslitaþætti Útsvars RÚV vill ekki að liðin sem keppa í úrslitaþætti Útsvars í kvöld skiptist á gjöfum í lok útsendingarinnar eins og venja hefur verið. Stuðningsaðilar og aðstandendur liðanna eru ósáttir við þá ákvörðum. Útsendingarstjóri segir úrslitaþáttinn frábrugðinn öðrum. „Við fe...
http://www.austurfrett.is/frettir/flugfelag-islands-verdur-air-iceland-connect
Flugfélag Íslands verður Air Iceland Connect Í morgun var tilkynnt á breytingu á nafni Flugfélags Íslands sem eftirleiðis heitir Air Iceland Connect. Tvöfalt nafnakerfi þótti valda ruglingi og ofan á varð að leggja íslenska nafninu vegna aukinna umsvifa í ferðamennsku og tengingu við systurfélagið Icelandair. „Í grunni...
http://www.austurfrett.is/frettir/husstjornarskolinn-hefdi-verid-fullur-i-haust
Hússtjórnarskólinn hefði verið fullur í haust Ekki verður boðið upp á nám við Hússtjórnarskólann á Hallormsstað næsta vetur en skólinn hefur starfað samfellt frá árinu 1930. Menntamálaráðuneytið hefur dregið til baka fjárstuðning sinn þar sem skólinn telst ekki uppfylla lög og reglur sem gilda um framhaldsskóla í landi...
http://www.austurfrett.is/frettir/tok-allt-verknamid-fra-donskum-landbunadarskola-a-vopnafirdi
Tók allt verknámið frá dönskum landbúnaðarskóla á Vopnafirði Hin danska Nina van Amerongen hefur nýlokið verknámi sínu við félagsbúið Engihlíð í Vopnafirði þrátt fyrir að vera að útskrifast frá dönskum landbúnaðarskóla. Hún segir Ísland hafa veitt sér frelsi sem hún hafi ekki fundið í Danmörku og hún finni það sama á d...
http://www.austurfrett.is/frettir/helgin-vid-erum-ekki-ordin-sodd
Helgin; „Við erum ekki orðin södd“ „Við verðum áfram á tánum og reynum að gera okkar allra besta,“ segir Davíð Þór Jónsson, um lið Fjarðabyggðar í Útsvari sem mætir liði Grindavíkur í seinni undanúrslitaþætti Útsvars í kvöld. Lið Fjarðabyggðar skipa sem fyrr þau Davíð Þór Jónsson, Hákon Ásgrímsson og Heiða Dögg Liljudó...
http://www.austurfrett.is/frettir/talsvert-tjon-a-raftaekjum-eftir-truflun-i-gaer
Talsvert tjón á raftækjum eftir rafmagnsleysið í gær Ljóst er að margir viðskiptavinir Rarik á Austurlandi hafi orðið fyrir tjóni á rafbúnaði vegna spennusveiflu sem varð í truflunum á raforkukerfinu í gærmorgun. Rafmagn var af í fjórðungnum frá klukkan sjö um morguninn fram yfir klukkan tíu, eða í um þrjá tíma, vegna ...
http://www.austurfrett.is/frettir/rafmagnslaust-a-austurlandi
Rafmagnslaust á Austurlandi Rafmagn fór af hluta Austurlands og Kirkjubæjarklaustri upp úr klukkan sjö í morgun. Að því er fram kemur í tilkynningu frá Rarik er það vegna útleysingar frá álverinu á Grundartanga. Landsnet vinnur að því að koma rafmagni aftur á kerfið.
http://www.austurfrett.is/frettir/ekkert-ad-gerast-i-nyskopun-sjavarutvegs-a-austurlandi
Tækifæri í áframvinnslu uppsjávarafla á Austfjörðum Austurland hefur setið eftir í þróun nýrra sjávarútvegsafurða meðan annars staðar hefur byggst upp blómlegur iðnaður og verðmæti. Tækifærin eru fyrir hendi á svæðinu fyrir fólk með góðar hugmyndir. Þetta er mat Ingva Þórs Georgssonar, viðskiptafræðings hjá Samtökum fy...
http://www.austurfrett.is/frettir/austfirdingar-duglegir-vid-ad-minnka-matarsoun
Austfirðingar duglegir við að minnka matarsóun „Viðskiptavinir taka þessu rosalega vel og við sjáum að þeim er ekki sama,“ segir Sigurjón Magnússon, verslunarstjóri í Krónunni á Reyðarfirði, um átakið Minnkum matarsónun og mikla sölu á vörum í þeim flokki á svæðinu. Krónan fór af stað með átakið Minnkum matarsóun fyrir...
http://www.austurfrett.is/frettir/heita-adgerdum-vegna-hradaksturs-vid-leikskolann
Aðgerðum heitið vegna hraðaksturs við leikskólann Til stendur að koma upp hraðahindrunum við leikskólann Dalborg á Eskifirði til að draga úr umferðarhraða. Foreldrar hafa lýst áhyggjum af bæði umferðarhraða og þunga. Þetta kom fram á íbúafundi á Eskifirði í gærkvöldi. Mikil umferð vörubíla er núna framhjá skólanum en m...
http://www.austurfrett.is/frettir/umferdartafir-vid-jokulsa-i-loni-ut-juni
Umferðartafir við Jökulsá í Lóni út júní Búast má við umtalsverðum töfum á brúnni yfir Jökulsá í Lóni til loka júnímánaðar á meðan unnið er við viðgerð á brúnni. Skipta þarf út öllu timbri á brúnni. Viðgerðin hófst í gær en varað er við 20-30 mínútna töfum í senn á milli klukkan 7-19 fram til 30. Júní. Brúin er 247 lön...
http://www.austurfrett.is/frettir/sex-sottu-um-starf-skipulags-og-byggingafulltrua
Sex sóttu um starf skipulags- og byggingafulltrúa Sex einstaklingar sóttu um starf skipulags og byggingafulltrúa Fljótsdalshéraðs sem auglýst var laust til umsóknar fyrir páska. Umsóknarfresturinn var framlengdur einu sinni. Í auglýsingu er gerð krafa um háskólapróf í arkitekt, byggingarfræði, landslagsarkitekt, tæknif...
http://www.austurfrett.is/frettir/fyrsta-hledslustodin-fyrir-rafbila-sem-opin-er-almenningi
Fyrsta hleðslustöðin fyrir rafbíla sem opin er almenningi Á þriðjudag var tekin í notkun fyrsta hleðslustöðin fyrir rafbíla sem opin er almenningi á Austurlandi. Von er á fleiri slíkum stöðvum innan tíðar. Stöðin stendur við íþróttamiðstöðina á Egilsstöð en Austurbrú fékk nýverið styrk til að koma fyrir slíkum tenglum ...
http://www.austurfrett.is/frettir/halda-atta-fyrirlestra-um-islenskt-handverk
Halda átta fyrirlestra um íslenskt handverk „Við erum mjög stolt af því að hafa orðið fyrir valinu,“ segir Guðný Kristjánsdóttir, formaður og einn af stofendum Salthússins, handverksmarkaðar á Stöðvarfirði, en þangað munu í sumar koma átta erlendir hópar og hlýða á fyrirlestur um íslenskt handverk. Salthúsmarkaðurinn v...
http://www.austurfrett.is/frettir/ganga-hart-a-eftir-verktakanum-ad-syna-framfarir
Ganga hart á eftir verktakanum að sýna framfarir Bæjarstjóri Fjarðabyggðar segir verktaka að byggingu raðhúsa við Skólaveg á Fáskrúðsfirði hafa takmarkaðan tíma til stefnu til að klára húsin. Fleiri áhugasamir bíði. Húsgrunnarnir við Skólaveg 98-110 hafa staðið hálfkláraðir í nær áratug. Fyrsta skóflustunga að húsunum ...
http://www.austurfrett.is/frettir/baett-vid-stodugildum-til-ad-maeta-fjolgun-leikskolabarna
Bætt við stöðugildum til að mæta fjölgun leikskólabarna Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs hefur samþykkt aðgerðir til að mæta fjölgun leikskólabarna í sveitarfélaginu á næsta skólaári. Ríflega 20 börn fædd á síðasta ári hefði vantað gæslu ef ekkert hefði verið að gert. Að tillögu fræðslunefndar verður stöðugildum við Tjarna...
http://www.austurfrett.is/frettir/fjardabyggd-i-plus-yfir-heildina-en-minus-af-logbundnum-verkefnum
Fjarðabyggð í plús yfir heildina en mínus af lögbundnum verkefnum 65 milljóna tap varð af rekstri A-hluta sveitarfélagsins Fjarðabyggðar í fyrra en þeim hluta er gjarnan lýst sem lögboðnum verkefnum sem skatttekjur eiga að standa undir. Hátt í 400 milljóna hagnaður varð hins vegar á samsteypunni. Í B-hlutanum eru fjárh...
http://www.austurfrett.is/frettir/tvottaveldid-opnar-a-breiddalsvik
Þvottaveldið opnar á Breiðdalsvík „Mér fannst ég hafa svo mikinn frítíma að mig langaði að gera eitthvað skemmtilegt,“ segir Sigríður Stephensen Pálsdóttir, stofnandi Þvottaveldisins, sem er eitt þeirra fjórtán verkefna á Breiðdalsvík sem hljóta brautargengi til samfélagsverkefna á vegum verkefnisins Brotthættra byggða...
http://www.austurfrett.is/frettir/austurbru-fjarframlog-fylgja-ekki-visitoluhaekkunum-og-thvi-vantar-starfsfolk
Austurbrú: Fjárframlög fylgja ekki vísitöluhækkunum og því vantar starfsfólk Ekki er útlit fyrir að Austurbrú skili þeirri framlegð sem vænst var á þessu ári. Formaður stjórnar segir að tryggja verði að framlög til stofnunarinnar verði að fylgja verðlagsbreytingum. Framkvæmdastjórinn kveðst finna fyrir auknum stuðningi...
http://www.austurfrett.is/frettir/ny-kroflulina-hefur-talsvert-neikvaed-ahrif-a-votlendi
Ný Kröflulína hefur talsvert neikvæð áhrif á votlendi Ný raflína milli Kröflu og Fljótsdalsstöðvar, Kröflulína 3, hefur í för með sér talsverða röskun á votlendi á Jökuldals- og Fljótdalsheiðum. Landsnet vill leggja línuna alla sem loftlínu þar sem jarðstrengur væri meira en tvöfalt dýrari. Þetta kemur fram í frummatss...
http://www.austurfrett.is/frettir/gaeti-verid-skynsamlegt-fyrir-sveitarfelogin-ad-leggja-husbyggjendum-til-stofnframlog
Gæti verið skynsamlegt fyrir sveitarfélögin að leggja húsbyggjendum til stofnframlög Sveitarfélög landsins gætu þurft að skoða það alvarlega að styrkja húsbyggjendur til að afþýða húsnæðismarkinn segir hagfræðingur. Hann telur tækifæri fyrir landsbyggðirnar í hækkandi húsnæðisverði þéttbýlisins. „Það þarf einhver að ta...
http://www.austurfrett.is/frettir/alltaf-vitnad-i-veturinn-1929
Alltaf vitnað í veturinn 1929 „Nei, andskotakornið, menn muna svo stutt, það hefur oft komið svona góður vetur þar sem heiðin hefur verið meira og minna opin,“ segir Sigfús Vilhjálmsson á Brekku í Mjóafirði í tengslum við formlega sumaropnun Vegagerðarinnar um Mjóafjarðarheiði um mánaðamótin. „Vegagerðin opnar heiðina ...
http://www.austurfrett.is/frettir/synileiki-hefur-bein-ahrif-a-jafnretti
„Sýnileiki hefur bein áhrif á jafnrétti“ „Sýnileiki ólíkra einstaklinga er mikilvægur, bæði í samfélaginu og í samfélagsumræðunni. Sýnileiki hefur bein áhrif á jafnrétti á öllum sviðum,“ segir Guðbjörg Gunnarsdóttir, verkefnastjóri hjá Félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs, en Að austan leit við á opnun sýningarinnar List án...
http://www.austurfrett.is/frettir/thadh-sarvantar-urraedhi
„Það sárvantar úrræði“ „Það þarf að opna umræðuna og leita allra leiða til að bæta líðan þeirra sem búa við þennan heilsuvanda. Sjálfsvíg og sjálfsskaði eru alvarleg samfélagsmein sem við þurfum að taka höndum saman gegn, vinna að úrbótum og hlúa hvert að öðru,“ segir Þórhalla Ágústsdóttir, hjúkrunarfræðingur, um göngu...
http://www.austurfrett.is/frettir/stofna-netverslun-med-vorur-fra-samfelagslega-abyrgum-framleidendum
Stofna netverslun með vörur frá samfélagslega ábyrgum framleiðendum Hjón í Neskaupstað hafa sett á fót vefverslunina Ethic.is sem selur vörur frá samfélagslega ábyrgum framleiðendum. Áhuginn kviknaði þegar þau fóru sjálf að leita sér eftir fötum frá slíkum framleiðendum. „Okkur fannst ekki nógu mikið í boði á Íslandi o...
http://www.austurfrett.is/frettir/bjartsynn-a-byggingu-nys-hjukrunarheimilis
Bjartsýnn á byggingu nýs hjúkrunarheimilis „Það er vaxandi þörf fyrir hjúkrunarrými í fjórðungnum og við leggjum áherslu á að næsta hjúkrunarheimili rísi á Norðfirði,“ segir Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar. Samkvæmt greiningu er vaxandi þörf fyrir hjúkrunar- og hvíldarrými fyrir aldraða í Fjarðabyg...
http://www.austurfrett.is/frettir/vedrid-a-islandi-er-omurlegt
„Veðrið á Íslandi er ömurlegt“ Uppgræðsla auðna á hálendi Íslands gæti breytt veðurfari á Íslandi og gert landið vænlegra til búsetu og ræktunar. Búvísindamaður hvetur til að gerðar verði grundvallarbreytingar í landnýtingarmálum. Þetta kom fram í máli Egils Gautasonar, B.Sc. í búvísindum frá Landbúnaðarháskóla Íslands...
http://www.austurfrett.is/frettir/betra-ad-senda-einn-laekni-austur-en-marga-sjuklinga-sudur
Betra að senda einn lækni austur en marga sjúklinga suður Heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni eiga í vandræðum með að fá til sín og halda í lækna og annað fagfólk. Forsvarsmenn Heilbrigðisstofnunar Austurlands segja yfirvöld skorta stefnu um sérfræðiþjónustu. „Okkur vantar fagfólk, einkum lækna en líka aðrar stéttir,...
http://www.austurfrett.is/frettir/tad-er-buid-ad-gera-fikniefni-ad-sjalfsoegdum-hlut
„Það er búið að gera fíkniefni að sjálfsögðum hlut“ „Kannski þarf bara að fara í geggjaða herferð eins og þá sem skilaði okkur því að reykingar og áfengisneysla er nú í sögulegu lágmarki hjá unglingum. Samfélagsmiðlaheimurinn hefur vaxið svo gífurlega á síðustu tveimur árum og er bara orðinn mjög hættulegur og ætti að ...
http://www.austurfrett.is/frettir/barattudagur-verkafolks-ef-vid-treystum-rikinu-fyrir-velferdarmalum-tha-er-thvi-kludrad
Baráttudagur verkafólks: Ef við treystum ríkinu fyrir velferðarmálum þá er því klúðrað Verkalýðsfélaga býður á nýu að berjast fyrir að allir geti komið sér þaki yfir höfuðið, eins og þau hafa áður gert. Hinn frjálsi markaður hefur ekki staðið sig í því hlutverki. Húsnæðismál voru áhersluatriði á 1. maí í gær af hálfu A...
http://www.austurfrett.is/frettir/med-olikindum-ad-fulltrui-radherra-hafi-neitunarvald-um-skipulag-strandsvaeda
Með ólíkindum að fulltrúi ráðherra hafi neitunarvald um skipulag strandsvæða Allir átta bæjar- og sveitarstjórar á Austurlandi og fjórir af Vestfjörðum hafa sent umhverfis- og auðlindaráðherra bréf þar sem mótmælt er harðlega frumvarpi að nýju hag- og strandsvæðaskipulagi. Þeir telja að um alvarlega aðför sé að ræða að...
http://www.austurfrett.is/frettir/ekki-gerdar-tilraunir-a-sjuklingum-med-ad-senda-tha-a-nordfjord
Ekki gerðar tilraunir á sjúklingum með að senda þá á Norðfjörð Framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) viðurkennir að hvimleitt sé hve oft sjúklingar séu sendir aftur til baka í Egilsstaði til að fara í sjúkraflug eftir að hafa verið sendir á umdæmissjúkrahúsið í Neskaupstað til rannsókna. F...
http://www.austurfrett.is/frettir/tuttugu-stiga-hiti-i-dag
Tuttugu stiga hiti í dag Austfirðingar eiga gott í vændum því veðurspár gera ráð fyrir 20 stiga hita í fjórðungnum í dag og á morgun. Hlýindin eru þegar komin því tæplega 19 stiga hiti mældist á Seyðisfirði, Borgarfirði og Norðfirði klukkan níu í morgun. Veðurspár gera ráð fyrir hægri sunnan átt eða breytilegri átt í d...
http://www.austurfrett.is/frettir/fjorir-sottu-mum-starf-forstoedhumanns-menningarstofu-fjardhabyggdhar
Fjórir sóttu mum starf forstöðumanns Menningarstofu Fjarðabyggðar Fjórir sækjast eftir starfi forstöðumanns Menningarstofu Fjarðabyggðar, umsóknarfrestur rann út þann 19. apríl. Forstöðumaður Menningarstofu Fjarðabyggðar kemur til með að halda utan um menningarmálin í Fjarðabyggð og framfylgja menningarstefnunni. Sami ...
http://www.austurfrett.is/frettir/adgengismal-hreyfihamladra-vidhorfsbreyting-ordid-fra-sidustu-ferd
Aðgengismál hreyfihamlaðra: Viðhorfsbreyting orðið frá síðustu ferð Viðhorfsbreyting hefur orðið í aðgengismálum á Íslandi undanfarin misseri en enn vantar töluvert upp á. Fyrst og fremst vantar fjármagn til að gengið sé í að bæta úr. Aukinn ferðamannastraumur setur þrýsting á úrbætur. Þetta er mat Brands Bjarnasonar K...
http://www.austurfrett.is/frettir/blodbankinn-tarf-70-blodgjafa-a-dag
„Blóðbankinn þarf 70 blóðgjafa á dag“ Blóðbankinn er á leiðinni austur og verður með blóðsöfnun á Egilsstöðum í dag og á Reyðarfirði á morgun og miðvikudag. Móttaka verður á heilsugæslunni á Egilsstöðum í dag, milli klukkan 11:00 og 16:00 og á heilsugæslu Alcoa Fjarðaáls á morgun þriðjudag, milli klukkan 8:30 og 18:00 ...
http://www.austurfrett.is/frettir/taeplega-100-milljona-hagnadur-vopnafjardarhrepps
Tæplega 100 milljóna hagnaður Vopnafjarðarhrepps Rekstur Vopnafjarðar var jákvæður um 97 milljónir króna í fyrra. Skuldahlutfall sveitarfélagsins er um 60% sem er með því besta á landinu. Ársreikningur sveitarfélagsins var tekinn til fyrri umræðu á fundi sveitarstjórnar fyrir helgi. Samkvæmt bókun var hagnaður ársins 9...
http://www.austurfrett.is/frettir/berjast-fyrir-leyfi-til-ad-mega-fullnyta-nyja-hjukrunarheimilid
Berjast fyrir leyfi til að mega fullnýta nýja hjúkrunarheimilið Yfirstjórn Heilbrigðisstofnunar Austurlands hefur barist fyrir fjármunum frá heilbrigðisráðuneytinu til að geta nýtt öll þau rými sem til staðar eru á hjúkrunarheimilinu Dyngju sem opnað var fyrir tveimur árum. Tugir bíða eftir hjúkrunarrýmum á Austurlandi...
http://www.austurfrett.is/frettir/daemdur-til-ad-greida-27-milljona-sekt-fyrir-skattsvik
Dæmdur til að greiða 27 milljóna sekt fyrir skattsvik Stjórnandi austfirsks verktakafyrirtækis var nýverið dæmdur í héraðsdómi Austurlands til að greiða tæplega 27 milljóna sekt fyrir að standa ekki skil á virðisaukaskatti og staðgreiðslu opinberra gjalda launamanna. Rannsókn hófst á brotunum eftir að fyrirtækið var te...
http://www.austurfrett.is/frettir/ofridarseggir-voktu-hotelgesti
Ófriðarseggir vöktu hótelgesti Óánægðir hótelgestir á Valaskjálf fóru fram á skaðabætur eftir að skemmtanaglaðir Austfirðingar skemmdu nætursvefn þeirra um páskahelgina. Hótelhaldarinn óttast um orðspor hótelsins komi fleiri slík atvik upp. „Svona atvik geta skapað okkur illt umtal sem veldur gríðarlegu tjóni því það g...
http://www.austurfrett.is/frettir/tiu-sottu-um-starf-felagsmalastjora-fljotsdalsherads
Tíu sóttu um starf félagsmálastjóra Fljótsdalshéraðs Tíu umsóknir bárust um starf félagsmálastjóra Fljótsdalshéraðs en umsóknarfrestur rann út fyrir páska. Félagsmálastjóri hefur yfirumsjón með félagslegri þjónustu Fljótsdalshéraðs en starfssvæðið nær einnig yfir Vopnafjörð, Borgarfjörð eystri, Seyðisfjörð, Fljótsdalsh...
http://www.austurfrett.is/frettir/ferdatjonustan-er-komin-a-afturfaeturnar
„Ferðaþjónustan er komin á afturfæturna“ „Þetta er strax farið að bíta okkur fast hér fyrir austan, þó svo að þeir fyrir sunnan finni lítið sem ekkert ennþá. Það verður svo í haust sem þetta kemur fyrst til með að hafa gífurleg áhrif,“ segir Friðrik Árnason, eigandi Hótel Bláfells á Breiðdalsvík, um boðaðrar skattahækk...
http://www.austurfrett.is/frettir/raelni-ad-eg-stoppadi-til-ad-athuga-hvad-vaeri-ad-gerast
Rælni að ég stoppaði til að athuga hvað væri að gerast Bílstjóri flutningsbíls sem brann á veginum yfir Oddsskarð segir bílinn hafa orðið alelda á örskammri stundu. Það hafi verið heppni að hann stöðvaði bílinn til að kanna hvað væri að frekar en halda áfram. „Ég verð var við pínulítinn reyk aftan úr bílnum og var ekki...
http://www.austurfrett.is/frettir/riflega-80-milljona-hagnadur-hja-sparisjodi-austurlands
Ríflega 80 milljóna hagnaður hjá Sparisjóði Austurlands Hagnaður af rekstri Sparisjóðs Austurlands fyrir skatta og lögbundið framlag til samfélagslegra verkefna á síðasta ári nam 82 milljónum króna. Útlán jukust um hálfan milljarð. Þetta kemur fram í tilkynningu sem sjóðurinn sendi frá sér eftir aðalfund á þriðjudag. H...
http://www.austurfrett.is/frettir/fengu-innan-vid-halftima-til-ad-taka-a-moti-fostum-flugfarthegum
Fengu innan við hálftíma til að taka á móti föstum flugfarþegum Hótel Hallormsstaður var opnað til að taka á móti 75 farþegum úr vél Primera-flugfélagsins sem var á Egilsstöðum í nótt vegna veðurs. Skammur tími var til stefnu til að taka á móti fólkinu. „Hótelið er lokað á veturna og rúturnar voru nánast lagðar af stað...
http://www.austurfrett.is/frettir/fjardabyggd-osatt-vid-vidhaldid-a-veginum-yfir-oddsskard
Fjarðabyggð ósátt við viðhaldið á veginum yfir Oddsskarð Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur lýst yfir óánægju sinni með viðhald Vegagerðarinnar á veginum yfir Oddsskarð sem stöðugt sígur. Honum er haldið í horfinu með malarofaníburði og til stendur að reyna að klæða kaflana í byrjun sumars. Jarðsig hefur lengi verið vandamál...
http://www.austurfrett.is/frettir/hotelbyggingu-hafnad-a-stodvarfirdi
Hótelbyggingu hafnað á Stöðvarfirði Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd Fjarðabyggðar hefur hafnað hugmyndum um að breyta Salthúsinu á Stöðvarfirði í gistihús. Nefndin telur stækkun hússins ekki samræmast núgildandi skipulagi. Sótt var um að hækka húsið um tvær hæðir fyrir 40 herbergja gistirými með veitingasal á tveim...
http://www.austurfrett.is/frettir/birgir-radinn-skolastjori-a-eskifirdi
Birgir ráðinn skólastjóri á Eskifirði Birgir Jónsson, upplýsingafulltrúi Fjarðabyggðar, hefur verið ráðinn skólastjóri Eskifjarðarskóla frá og með næsta skólaári. Hilmar Sigurjónsson lætur þá af störfum eftir að hafa stýrt skólanum frá árinu 1996. Birgir tók við starfi upplýsingafulltrúa sveitarfélagsins um síðustu ára...
http://www.austurfrett.is/frettir/sjukrabill-i-fjogurra-bila-arekstri
Sjúkrabíll í fjögurra bíla árekstri Enginn slasaðist þegar sjúkrabíll frá Slökkviliði Fjarðabyggðar lenti í fjögurra bíla árekstri í botni Reyðarfjarðar á föstudag. Blint var út af kófi og krapi og hálka var á vegum. „Það eru áhyggjuefni að sjúkrabílar, sem eru vel búnir, lendi í svona óhöppum þannig við erum að skoða ...
http://www.austurfrett.is/frettir/listahatid-og-menningarmessa-medal-nyrra-verkefna-i-fjardabyggd
Listahátíð og Menningarmessa meðal nýrra verkefna í Fjarðabyggð „Listahátíð Fjarðabyggðar verður haldin á tveggja ára fresti, sem og Menningarmessa. Menningar- og, komið verður á fót fræði- og listamannadvöl sem og menningartengdu fræðslustarfi í skólum sveitarfélagsins og vinnuskóla Fjarðabyggðar svo eitthvað sé nefnt...
http://www.austurfrett.is/frettir/akaerdur-fyrir-skjalafals-vid-hreindyraveidar
Ákærður fyrir skjalafals við hreindýraveiðar Lögreglustjórinn á Austurlandi hefur ákært karlmann um þrítugt fyrir að blekkja eftirlitsmenn Umhverfisstofnunar og lögreglu við hreindýraveiðar. Manninum er gefið að sök að hafa merkt dýr sem annar hafði veitt með sínu merki, svonefndu hækilbandi en hefði átt að vera með me...
http://www.austurfrett.is/frettir/hafsteinn-tilnefndur-til-barnabokmenntaverdlauna-nordurlandarads
Hafsteinn tilnefndur til barnabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Hafsteinn Hafsteinsson, rithöfundur og myndskreytir í Neskaupstað, var í morgun tilnefndur til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir bók sína Enginn sá hundinn sem kom út fyrir síðustu jól. Honum er efst í huga þakklæti til þeirra sem...
http://www.austurfrett.is/frettir/gert-vid-a-morgun-eftir-hvassvidrid
Gert við á morgun eftir hvassviðrið Vegagerðin áformar að gera við vegi á Héraði sem skemmdust í óveðrinu í gær á morgun. Björgunarsveitir hjálpuðu fólki í vanda á Breiðdalsheiði og nóg var að gera hjá austfirskum veitingastöðum sem þurftu að sinna ferðamönnum sem voru strand. Hávaðarok gekk yfir Austurland í gær. Veðu...
http://www.austurfrett.is/frettir/50-manna-ruta-fauk-ut-af-vidh-svartfell
50 manna rúta fauk út af við Svartfell Rúta með fimmtíu farþegum fauk út af veginum við Svartfell á Möðrudalsöræfum í hádeginu og tvær aðrar minni lentu í árekstri. Engin slys urðu á fólki og eru björgunarsveitir að ferja fólkið af slysstað. „Aðstæður þarna eru rosalega slæmar. Vindhraðinn er 31 m/s og 36 m/s í hviðum....
http://www.austurfrett.is/frettir/storskipahofn-i-finnafirdi-gridarlegt-verkefni-ef-af-verdur
Stórskipahöfn í Finnafirði gríðarlegt verkefni ef af verður Sveitarfélögin Vopnafjarðarhreppur og Langanesbyggð vinna nú að stofnun félaga til að halda utan um verkefni sem tengjast mögulegri stórskipahöfn í Finnafirði. Leitað er að fjárfestum og áhugasömum viðskiptavinum. Á íbúafundi á Vopnafirði í janúar fór Ólafur Á...
http://www.austurfrett.is/frettir/ibudharhus-a-vollum-illa-farid-eftir-bruna
Íbúðarhús á Völlum illa farið eftir bruna Íbúðarhúsið á Stormi á Völlum er illa farið eftir eldur kom þar upp rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi. Slökkvistarf gekk vel þótt það hafi ekki litið vel út á tímabili. „Slökkvistarfið gekk vonum framan miðað við hvernig staðan var þegar slökkviliðið kom á staðinn. Það var kominn...