Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
http://www.austurfrett.is/frettir/ellefu-starfsmerki-afhent-a-uia-tinginu
Ellefu starfsmerki og eitt silfurmerki afhent á UÍA þinginu Alls voru ellefu einstaklingar sæmdir starfsmerkjum á 67. þingi UÍA sem haldið var á Reyðarfirði um helgina, átta þeirra hlutu starfsmerki UÍA og þrír starfsmerki UMFÍ. Á vef UÍA segir að einstaklingarnir átta sem sæmdir voru starfsmerki UÍA að þessu sinni haf...
http://www.austurfrett.is/frettir/kveikja-fyrir-ta-sem-vilja-vita-meira-um-austurland
„Kveikja fyrir þá sem vilja vita meira um Austurland“ „Þetta er allt annað en fréttasíða, við erum að skrásetja lífið okkar hér á Austurlandi,“ segir María Hjálmarsdóttir, verkefnastjóri hjá Austurbrú, um heimasíðuna Austurland.is sem opnuð var á dögunum. Austurland.is er opinber heimasíða verkefnisins Áfangastaðurinn ...
http://www.austurfrett.is/frettir/fyrrum-formadur-starfsmannafelags-vhe-akaerdur-fyrir-fjardratt
Fyrrum formaður starfsmannafélags VHE ákærður fyrir fjárdrátt Lögreglustjórinn á Austurlandi hefur ákært fyrrum formann starfsmannafélags VHE á Austurlandi fyrir fjárdrátt. Formaðurinn er talinn hafa dregið sér tæpar átt milljónir króna úr sjóðum félagsins. Í ákæru lögreglustjóra er talin upp 91 millifærsla formannsins...
http://www.austurfrett.is/frettir/tvo-hross-daud-eftir-akeyrslu
Tvö hross dauð eftir ákeyrslu Tvö hross drápust þegar ekið var inn í hrossastóð á Hringveginum skammt innan við Egilsstaði miðvikudagskvöld. Kvartanir hafa borist vegna hrossa á ferli á þessum slóðum. Tveir voru í bílnum og má telja mildi að þeir hafi sloppið án meiðsla því bíllinn er gjörónýtur. Tvö hross úr stóðinu d...
http://www.austurfrett.is/frettir/klaedningin-fauk-af-i-fellum
Klæðningin fauk af í Fellum Klæðning hefur fokið af á um 20 metra kafla á veginum milli Teigabóls og Skeggjastaða í Fellum. Bálhvasst er víða á Austurlandi. „Ég held ég hafi aldrei farið um Fellin í jafn samfelldu roki,“ segir Sveinn Ingimarsson sem átti leið um svæðið í dag. Mynd sem hann setti á Facebook hefur vakið ...
http://www.austurfrett.is/frettir/stormur-a-austurlandi-leidinni-nordur-lokad
Stormur á Austurlandi: Leiðinni norður lokað Vegagerðin hefur lokað veginum yfir Mývatns- og Möðrudalsöræfi um óákveðinn tíma. Meðalvindur þar er milli 20 og 30 metrar á sekúndu og vex heldur. Í athugasemd veðurfræðings kemur fram að spáð sé mjög hvössum vindi á Austur- og Suðausturlandi um leið og kröpp lægð fer til s...
http://www.austurfrett.is/frettir/tiu-karlar-sottu-um-starf-svidsstjora-veitusvids
Tíu karlar sóttu um starf sviðsstjóra veitusviðs Enginn kona er meðal tíu umsækjenda um starf sviðsstjóra veitusviðs hjá Fjarðabyggð. Starfið er nýtt og mun sviðsstjórinn bera ábyrgð á stjórnun og starfsemi vatnsveitu, hitaveitu, rafveitu og fráveitu sveitarfélagsins. Í nánari lýsingu starfsins segir að sviðsstjóri ber...
http://www.austurfrett.is/frettir/telja-sjalfbaerniverkefnid-merkilegt-a-heimsvisu
Telja sjálfbærniverkefnið merkilegt á heimsvísu Fulltrúar Fjarðaáls, Austurbrúar og Landsvirkjunar undirrituðu í gær áframhaldandi samkomulag um sjálfbærniverkefnið á Austurlandi. Verkefnið felst í að safna og gera aðgengileg gögn um þróun umhverfis, efnahags og samfélags á Austurlandi í kjölfar Kárahnjúkavirkjunar og ...
http://www.austurfrett.is/frettir/akaerdur-fyrir-ad-keyra-vorubil-undir-ahrifum-kannabis
Ákærður fyrir að keyra vörubíl undir áhrifum kannabis Lögreglustjórinn á Austurlandi hefur ákært karlmann á fertugsaldri fyrir að keyra 14 tonna vöruflutningabifreið undir áhrifum kannabisefna. Maðurinn var stöðvaður í lok júní í fyrra á móts við gatnamótin þar sem beygt er frá Reyðarfirði í austur í áttina að Fáskrúðs...
http://www.austurfrett.is/frettir/engar-breytingar-fyrirhugadar-a-vopnafirdi
HB Grandi: Engar breytingar fyrirhugaðar á Vopnafirði Forstjóri HB Granda segir engar breytingar framundan á starfsemi fyrirtækisins á Vopnafirði þar sem það er helsti atvinnuveitandinn. Tilkynnt var í gær að fyrirtækið myndi hætta botnfiskvinnslu á Akranesi. „Það eru ekki fyrirhugaðar neinar breytingar á Vopnafirði,“ ...
http://www.austurfrett.is/frettir/vid-gledjumst-tar-til-annad-kemur-i-ljos
„Við gleðjumst þar til annað kemur í ljós“ „Fyrstu viðbrögð mín eru þau að vera algerlega í skýjunum – að það hafi verið tekið mark á þessum mótmælum,“ segir Berglind Häsler, bóndi á Karlsstöðum í Berufirði við þeim fréttum að búið sé að samþykkja að veita 1200 milljónum til viðbótar til vegamála. Ríkisstjórnin samþykk...
http://www.austurfrett.is/frettir/ahugi-a-ferd-um-gullna-hringinn-og-austurland-ad-vetri
Áhugi á ferð um Gullna hringinn og Austurland að vetri Seyðfirski ferðaskipuleggjandinn One Stop Shop hefur hafið sölu á vetrarferðum þar sem bæði er farið um lykilstaði á Suðurlandi og Austurlandi. Stjórnandinn segir hugarfarsbreytingar þörf til að selja Austurlandi að vetri til. „Auðvitað langar okkur að selja lengri...
http://www.austurfrett.is/frettir/fimm-sottu-um-stodu-felagsmalastjora
Fimm sóttu um stöðu félagsmálastjóra Fimm sóttu um stöðu félagsmálastjóra Fjarðabyggðar en umsóknarfrestur rann út fyrir skemmstu. Sigrún Þórarinsdóttir sem gegnt hefur starfinu undanfarin ár sagði starfi sínu lausu í lok síðasta árs. Félagsmálastjóri hefur yfirumsjón með félagslegri þjónustu á vegum sveitarfélagsins. ...
http://www.austurfrett.is/frettir/eskja-haettir-vinnslu-i-hafnarfirdi
Eskja hættir vinnslu í Hafnarfirði Rekstrarfélag Eskju ehf., sem er dótturfélag Eskju hf. hefur selt bolfiskvinnslu félagsins að Óseyrarbraut í Hafnarfirði og hættir rekstri. Kröftum Eskju verður beint enn frekar að vinnslu uppsjávarfisk í nýju frystihúsi á Eskifirði. Í tilkynningu Eskju segir að ástæða sölunnar sé bre...
http://www.austurfrett.is/frettir/tad-vottadi-ekki-fyrir-eftirsja-hja-henni
„Það vottaði ekki fyrir eftirsjá hjá henni“ „Ég varð bara gersamlega orðlaus, táraðist og trúði þessu ekki,“ segir Una Sigríður Jónsdóttir, móðir Rúriks Páls Hallgrímsson, tveggja ára gamals drengs sem settur var út á stétt vegna hegðunar í hádegismatnum í gær á leikskólanum Kærabæ á Fáskrúðsfirði. Una skrifaði svo hlj...
http://www.austurfrett.is/frettir/eskfirdingar-langtreyttir-a-framkvaemdum-vid-ar-baejarins
Eskfirðingar langþreyttir á framkvæmdum við ár bæjarins „Þetta minnir á sögu Davíðs Oddssonar af tilraunum hans til að hringja í konu sína frá Moskvu um árið,“ segir Ragnhildur Kristjánsdóttir, íbúi á Eskifirði, um rask sem hlaust af framkvæmdum við Ljósá á Eskifirði. Í bréfi sem Ragnhildur sendi Austurfrétt segir; „Va...
http://www.austurfrett.is/frettir/vid-erum-satt
„Við erum sátt“ Við erum ánægð með það hvernig verið er að taka á málunum. Auðvitað erum við sár og reið en við vitum að þetta er góð manneskja og hún og sonur okkar eru miklir vinir,“ segir Una Sigríður Jónsdóttir, móðir Rúriks Páls, tveggja ára drengs í Leikskólanum Kærabæ á Fáskrúðsfirði. „Málið hefur verið unnið ei...
http://www.austurfrett.is/frettir/taekifaerin-eru-a-landsbyggdinni
„Tækifærin eru á landsbyggðinni“ Ívar Ingimarsson var kosinn í stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar fyrir starfsárið 2017-2018 á aðalfundi samtakanna sem haldin voru í Silfurbergi í Hörpu fyrir rúmri viku. Hann segir mikilvægt að rödd landsbyggðarinnar hljómi innan samtakanna. SAF eru hagsmunasamtök allra fyrirtækja sem st...
http://www.austurfrett.is/frettir/efnahagur-skilur-a-milli-theirra-sem-geta-sott-ser-salfraedithjonustu
Efnahagur skilur á milli þeirra sem geta sótt sér sálfræðiþjónustu Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) auglýsti nýverið eftir tveimur sálfræðingum til starfa. Enginn sálfræðingur hefur verið fastráðinn hjá stofnuninni frá haustinu 2015 þar sem ekki hefur tekist að ráða í stöðurnar. Forstjóri HSA segir verst að sumir t...
http://www.austurfrett.is/frettir/berufjardarbotn-vegagerdin-bidur-akvordunar-radherranna
Berufjarðarbotn: Vegagerðin bíður ákvörðunar ráðherranna Vegurinn um Berufjarðarbotn er enn á lista yfir fyrirhuguð útboð í nýjasta hefti Framkvæmdafrétta Vegagerðarinnar. Talsmaður Vegagerðarinnar segir þann lista ekki hafa neina sérstaka stöðu sem stendur. Vegagerðin gefur út Framkvæmdafréttir sínar mánaðarlega. Í þe...
http://www.austurfrett.is/frettir/ahaettusvaedin-verda-betur-greind-og-girt-af
Áhættusvæðin verða betur greind og girt af „Ég ætla ekki að segja þér hvað við vorum lengi á leiðinni,“ segir Björn Einarsson, formaður Björgunarsveitarinnar Ársólar á Reyðarfirði, en lögreglan veitti sveitinni leyfi til forgangsaksturs eftir að útkall á háum forgangi barst vegna snjóflóðs af þaki Fjarðabyggðarhallarin...
http://www.austurfrett.is/frettir/austurland-hastokkvarinn-i-nytingu-hotelherbergja-taekifaeri-thegar-thettist-a-odrum-stodum
Austurland hástökkvarinn í nýtingu hótelherbergja: Tækifæri þegar þéttist á öðrum stöðum Mesta aukning í nýtingu hótelherbergja á tímabilinu nóvember-janúar er á Austurlandi. Nýtingin nú er nær þrefalt betri en fyrir ári. Sérfræðingur segir Austurland vekja athygli þegar önnur svæði sé að fyllast. Þetta kemur fram í tö...
http://www.austurfrett.is/frettir/orlof-skal-alltaf-tiltekid-a-launasedli
Orlof skal alltaf tiltekið á launaseðli Austfirskt útgerðarfyrirtæki hefur verið dæmt til að greiða fyrrum starfsmanni tæpar 450 þúsund krónur í vangoldið orlof. Útgerðin telst bera allan halla af því að orlof var ekki skráð á launaseðil sjómannsins. Deilt var um hvort orlofið hefði verið inni í heildarlaunum starfsman...
http://www.austurfrett.is/frettir/andlat-stefan-mar-gudmundsson
Andlát: Stefán Már Guðmundsson Stefán Már Guðmundsson, framhaldsskólakennari og formaður Íþróttafélagsins Þróttar í Neskaupstað lést í gær, 55 ára að aldri. Stefán Már fæddist í Reykjavík 18. júlí árið 1961. Hann lærði smíði og starfaði í greininni áður en hann flutti norður á Þórshöfn og tók til starfa sem íþróttakenn...
http://www.austurfrett.is/frettir/tetta-er-framfaraskref-fyrir-allt-og-alla
„Þetta er framfaraskref fyrir allt og alla“ „Þetta er í rauninni eðlilegt skref eftir að HB Grandi jók umsvif sín, auk þess að vera einn liður í að styrkja net Olís á landabyggðinni,“ segir Samúel Karl Sigurðsson, svæðisstjóri Olís á Austurlandi, en umboð og verslun hefur verið opnuð á Vopnafirði. Unnið er í samstarfiv...
http://www.austurfrett.is/frettir/kennarar-eru-lykilmenn-tegar-kemur-adh-tjalfun-i-lestri
„Kennarar eru lykilmenn þegar kemur að þjálfun í lestri“ „Stóra upplestrarkeppnin, hefur öll þau ár sem hún hefur verið við lýði, sannað að hún á erindi við börnin og verið stór þáttur í eflingu læsis á miðstigi grunnskóla,“ segir Jarþrúður Ólafsdóttir, kennsluráðgjafi á Skólaskrifstofu Austurlands og umsjónarmaður kep...
http://www.austurfrett.is/frettir/attatiu-ara-gamlir-munur-i-husvegg
Áttatíu ára gamlir munur í húsvegg „Ég ætlaði nú bara að fara upp og saga flísar sem ég er að vinna með en hugsaði að mig langaði að halda aðeins áfram að rífa það sem ég var var byrjaður á og það var þá sem ég fann þetta inn í vegg á miðhæðinni,“ segir Gunnar Viðar Þórarinsson, en hann fann 80 ára gamalt bréf og fleir...
http://www.austurfrett.is/frettir/blak-kvennalidid-i-undanurslit-bikarkeppninnar
Blak: Kvennaliðið í undanúrslit bikarkeppninnar Kvennalið Þróttar tryggði sér sæti í úrslitakeppni bikarkeppninnar í blaki með að leggja Völsung í gærkvöldi á Húsavík. Þróttur vann einnig deildarleik liðanna um helgina. Völsungur vann fyrstu hrinuna í gærkvöldi 25-22 en Þróttur fylgdi á eftir með þremur hrinum 14-25, 1...
http://www.austurfrett.is/frettir/mikill-vidbunadur-vegna-otta-um-ad-born-hefdu-ordid-undir-snjonum
Mikill viðbúnaður vegna ótta um að börn hefðu orðið undir snjónum Mikill viðbúnaður var við Fjarðabyggðarhöllina á Reyðarfirði um klukkan tvö í gær eftir að óttast var að börn hefðu orðið undir snjóflóðið sem hrundi af þaki Fjarðabyggðarhallarinnar. Sjúkrabílar, lögreglubílar og íbúar úr nágrenninu þustu björgunarsveit...
http://www.austurfrett.is/frettir/tad-er-ordid-timabaert-ad-karlmenn-lati-sig-tessi-mal-varda
„Það er orðið tímabært að karlmenn láti sig þessi mál varða“ „Þetta er mikið vandamál, en staðreyndin er sú að það er allskonar fræðsla í boði en ef það er eitthvað sem tengist geð- eða forvarnarmálum, þá mæta bara konur,“ segir Margrét Perla Kolka sem fer fyrir forvarnarteymi Verkmenntaskóla Austurlands. Forvarnarteym...
http://www.austurfrett.is/frettir/haesti-styrkur-til-einkaadila-i-fossahringinn-i-fljotsdal
Framkvæmdastjóður ferðamannastaða: Hæsti styrkur til einkaaðila í Fossahringinn í Fljótsdal Highland Hostel ehf., sem rekur ferðaþjónustu að Laugarfelli á Fljótsdalsheiði, fékk hæsta styrk einkaaðila þegar úthlutað var úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða í dag. Austfirsk verkefni hlutu alls um 77 milljónir króna. Alls v...
http://www.austurfrett.is/frettir/studentsprofid-er-bara-eins-og-grunnskolaprof-i-dag
„Stúdentsprófið er bara eins og grunnskólapróf í dag“ „Stundum höfum við fengið til okkar gamla nemendur, sem selja mun betur en ókunnugir,“ segir Árni Ólason, skólameistari Menntaskólans á Egilsstöðum, en Háskóladagurinn verður með opna kynningu í á morgun, miðvikudaginn 15. mars milli klukkan 11:00 og 13:00. Fulltrúa...
http://www.austurfrett.is/frettir/tetta-er-algert-luxusvandamal
„Þetta er algert lúxusvandamál“ „Það er bara allt fullt af börnum hjá okkur, sem er alveg dásamlegt,“ segir Gauti Jóhannesson, sveitarstjóri á Djúpavogi, en enn og aftur hefur verið auglýst eftir dagforeldrum til starfa í bænum. „Þetta er í þriðja sinn sem auglýsingin fer í loftið og sem betur fer virðist hún hafa vaki...
http://www.austurfrett.is/frettir/heilsa-snyst-ekki-bara-um-hreyfingu-og-naeringu
„Heilsa snýst ekki bara um hreyfingu og næringu“ „Verkefnið getur skipt töluverðu máli fyrir okkur í stóra samhenginu. Það gerir Seyðisfjörð m.a. að vænlegum kosti til að búa á, þar sem skilyrði til betra lífs eru fyrir hendi,“ segir Eva Björk Jónudóttir, þjóustufulltrúi Seyðisfjarðar, en Seyðisfjarðarkaupstaður og Emb...
http://www.austurfrett.is/frettir/blaa-kirkjan-a-seydisfirdi-gul
Bláa kirkjan á Seyðisfirði gul „Við komust ekki til Reykjavíkur á málþing en getum vakið athygli á sjúkdómnum, sem margir vita ekki af, á þennan hátt,“ segir Dagný Erla Ómarsdóttir, atvinnu-, menningar- og íþróttafulltrúi hjá Seyðisfjarðarkaupstað, en þessa vikuna er bláa kirkjan á Seyðisfirði lýst upp með gulum lit í ...
http://www.austurfrett.is/frettir/aetla-ad-halda-afram-motmaelum-i-berufirdi-latum-ekki-bjoda-okkur-thetta
Ætla að halda áfram mótmælum í Berufirði: Látum ekki bjóða okkur þetta Áfram verður mótmælt í Berufirði vegna frestun vegaframkvæmda í botni fjarðarins. Skipuleggjendur segjast ætla halda áfram þar til framkvæmdir við lagningu nýs vegar hefjast. Ummæli samgönguráðherra um að mótmælin hafi engin áhrif hafa farið öfugt o...
http://www.austurfrett.is/frettir/motmaeli-i-berufirdi-bidum-eftir-naestu-skrefum-stjornvalda
Mótmæli í Berufirði: Bíðum eftir næstu skrefum stjórnvalda Sveitarstjórn Djúpavogshrepps lauk fundi sínum í gær á brúnni yfir Berufjarðará með samþykkt ályktunar þar sem frestun vegabóta í firðinum er mótmælt. Á sjötta tug bifreiða var stopp við brúna á meðan mótmælum stóð þar í gær. „Nú bíðum við og sjáum hver viðbrög...
http://www.austurfrett.is/frettir/djupavogsbuar-eiga-thad-inni-ad-vera-brjaladir
„Djúpavogsbúar eiga það inni að vera brjálaðir“ Oddviti Djúpavogshrepps er æfur yfir að til standi að fresta framkvæmdum við Hringveginn í Berufirði enn eitt árið þótt verkefnið sé inni á samgönguáætlun sem samþykkt var á Alþingi í haust. Hann segir þingmenn hafa komist upp með að svara ekki hvernig þeir ætluðu að fjár...
http://www.austurfrett.is/frettir/daemi-um-hvad-einfaldleikinn-getur-verid-sterkur
„Dæmi um hvað einfaldleikinn getur verið sterkur“ Þjónustuhúsið á Vatnsskarði, sem Fljótsdalshérað og Borgarfjarðarhreppur standa að, hefur verið tilnefnt til Menningarverðlauna DV 2016 í flokknum arkitektúr. Hönnuður hússins er Eirik Rönning Andersen frá Zero Impact Strategies. Árið 2013 stóðu sveitarfélögin Fljótsdal...
http://www.austurfrett.is/frettir/telur-flugfelagid-vel-sett-med-velar
Telur Flugfélagið vel sett með vélar Forstjóri Flugfélags Íslands segir að í öllum rekstri komi alltaf upp vandamál sem ekki sé hægt að sjá fyrir. Félagið felldi niður miðdegisflug í Egilsstaði í gær og notaði þotu í kvöldflugið vegna skorts á flugvélum. Farþegar sem áttu bókað til eða frá Egilsstöðum um miðjan dag í g...
http://www.austurfrett.is/frettir/fyrsta-flottamannafjolskyldan-komin-til-fjardabyggdar
Fyrsta flóttamannafjölskyldan komin til Fjarðabyggðar Sveitarfélagið Fjarðabyggð tók á þriðjudaginn í síðustu viku á móti fyrstu flóttamönnunum sem koma þangað. Það er sjö manna fjölskylda frá Írak sem búa mun á Reyðarfirði. Móttakan flokkast sem fjölskyldusameining. Fjölskyldufaðirinn hefur verið um allnokkurt skeið á...
http://www.austurfrett.is/frettir/stjorn-ssa-gagnslaust-kerfi-vid-stjornun-samgongumala
Stjórn SSA: Gagnslaust kerfi við stjórnun samgöngumála Stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) vill að samgönguráðherra kalli stjórnir landshlutasamtaka og þingmenn um land allt á sinn fund hið fyrsta til að fara yfir verklag við stjórnun samgöngumál á næstu árum. Þetta kemur fram í ályktun sem stjórnin sendi...
http://www.austurfrett.is/frettir/miklar-ahyggjur-af-stodu-samgongumala-hvada-rugl-er-i-gangi
Miklar áhyggjur af stöðu samgöngumála: Hvaða rugl er í gangi? Bæjarráð Fjarðabyggðar og Fljótsdalshéraðs fara fram á að þingmenn tryggi aukið fjármagn til samgöngumála þannig að hægt verði að fara í þær framkvæmdir sem fyrirhugaðar eru á þessu ári samkvæmt samgönguáætlun. Samtökin Ungt Austurland telja tafir á uppbyggi...
http://www.austurfrett.is/frettir/mikilvaegt-ad-rannsoknarbladamennska-hljoti-vidurkenningu
„Mikilvægt að rannsóknarblaðamennska hljóti viðurkenningu“ „Þetta er fyrst og fremst mikill heiður og viðurkenning,“ segir vopnfirski fréttamaðurinn Tryggvi Aðalbjörnsson, sem hlaut verðlaun fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins sem veitt voru um helgina. Tryggi hefur unnið á RÚV í rúm fimm ár og fékk verðlaunin fyrir um...
http://www.austurfrett.is/frettir/valgerdur-gunnarsdottir-thydir-ekki-annad-en-bidjast-afsokunar-skammast-sin-og-laera-af-thessu
Valgerður Gunnarsdóttir: Þýðir ekki annað en biðjast afsökunar, skammast sín og læra af þessu Formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis kallar eftir að þjóðin sameinist í að forgangsraða þannig í ríkisfjármálum að samgöngumál njóti forgangs. Hún segir eðlilegt að margir séu sárir þegar aðeins sé hægt að framkvæma...
http://www.austurfrett.is/frettir/segir-thingmenn-halda-thvi-fram-ad-oabyrgt-hafi-verid-ad-greida-atkvaedi-med-samgonguaaetlun
Segir þingmenn halda því fram að óábyrgt hafi verið að greiða atkvæði með samgönguáætlun Engar endurbætur verða á Borgarfjarðarvegi í ár þótt ákveðið hafi verið að ráðast í þær á samgönguáætlun sem Alþingi samþykkti í haust. Oddviti Borgarfjarðarhrepps segist hafa orðið vondur þegar hann frétti af því að ekki yrði stað...
http://www.austurfrett.is/frettir/flug-milli-akureyrar-og-keflavikur-jakvaett-fyrir-austfirdinga
Flug milli Akureyrar og Keflavíkur jákvætt fyrir Austfirðinga Verkefnastjóri flugmála hjá Austurbrú segir það jákvæða þróun að hafið sé beint flug milli Akureyrar og Keflavíkur í tengslum við millilandaflug. Það sé bæði hentugt fyrir íbúa og stuðli að dreifingu ferðamanna. „Við teljum þetta mjög jákvætt og styðjum Norð...
http://www.austurfrett.is/frettir/vikingur-til-vopnafjardar-eftir-ad-hafa-fengid-notina-i-skrufuna
Víkingur til Vopnafjarðar eftir að hafa fengið nótina í skrúfuna Víkingur AK kom til Vopnafjarðar um klukkan hálf níu í gærkvöldi eftir að hafa fengið loðnunótina í aftari hliðarskrúfuna. Veiði á loðnumiðunum gengur vel og fiskurinn lítur vel út. Óhappið varð á föstudagskvöld þegar verið var að klára að draga nótina en...
http://www.austurfrett.is/frettir/sigrun-blondal-vid-faum-engin-svor
Sigrún Blöndal: Við fáum engin svör Formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) segir fá svör hjá þingmönnum þegar þeir séu spurðir út í hvers vegna muni tíu milljörðum á samþykkti samgönguáætlun og fjárlögum. Fleiri landshlutar telji sig svikna. „Vandinn liggur í að þarna vantar tíu milljarða upp á það sem var...
http://www.austurfrett.is/frettir/beitir-med-staersta-lodnufarm-islandssogunnar-thegar-skipin-og-veidarfaerin-eru-stor-gengur-vel
Beitir með stærsta loðnufarm Íslandssögunnar: Þegar skipin og veiðarfærin eru stór gengur vel Beitir NK kom til hafnar í Neskaupstað um klukkan tvö í nótt með fullfermi, ríflega 3000 tonn. Það mun vera stærsti loðnufarmur sem skip hefur komið með til hafnar hérlendis. Loðnuveiðin þykir ævintýraleg. „Skipið er stórt og ...
http://www.austurfrett.is/frettir/austfirdingar-leggja-til-fiskiskipin-i-togararallid
Austfirðingar leggja til fiskiskipin í togararallið Tvö rannsóknarskip og tvö fiskiskip, bæði frá Austurlandi, taka nú þátt í togararalli Hafrannsóknarstofnunar. Verkefnið hefur verið gert á sambærilegan hátt á hverju ári frá 1985. Togararallið, eða marsrallið, er stofnmæling á botnfiskum á Íslandsmiðum. Það stendur yf...
http://www.austurfrett.is/frettir/serstaedar-upphafsadgerdir-logreglu-sottur-med-leiguflugi-austur-a-seydisfjord
Sérstæðar upphafsaðgerðir lögreglu: Sóttur með leiguflugi austur á Seyðisfjörð Lögreglumenn voru sendir austur með leiguflugi til að handtaka Albert Klahn Skaftason, einn þeirra sem síðar var dæmdur fyrir morðið á Guðmundi Einarssyni, eftir að Sýslumaðurinn á Seyðisfirði neitaði að gera það. Endurupptökunefnd úrskurðað...
http://www.austurfrett.is/frettir/aetla-ad-loka-thjodveginum-um-berufjord-til-ad-motmaela-frestun-framkvaemda
Ætla að loka þjóðveginum um Berufjörð til að mótmæla frestun framkvæmda Íbúar í Berufirði stefna að því að loka Hringveginum um fjörðinn eftir hádegi á sunnudag til að mótmæla því að horfið verði frá uppbygginu nýs vegar yfir fjörðinn. Sú ákvörðun hefur vakið upp hörð viðbrögð. „Það eru allir sótbrjálaðir. Kosningabará...
http://www.austurfrett.is/frettir/raunveruleg-haetta-a-ad-strokulax-geti-blandast-villtum-laxi
Raunveruleg hætta á að strokulax geti blandast villtum laxi Skipulagsstofnun vill að Fiskeldi Austfjarða fjalli um kosti þess að nota ófrjóan lax í nýju eldi á Austfjörðum. Til stendur að ráðast í alhliða kortlagningu á útbreiðslu laxfiska í austfirskum ám á næstunni. Þetta kemur fram í umsögn Skipulagsstofnunar um til...
http://www.austurfrett.is/frettir/lifdu-betur-meira-en-ad-segja-thad-ad-taka-upp-stora-bok-og-lesa
Lifðu betur: Meira en að segja það að taka upp stóra bók og lesa Verkefnið „Lifðu betur“ var eitt af þeim sem fengu hæsta styrkinn þegar úthlutað var úr Uppbyggingarsjóði Austurlands nýverið. Tveir frumkvöðlar á Norðfirði standa á bak við verkefnið sem gengur út á að þróa fjargeðheilbrigðisþjónustu. „Meginmarkmið verke...
http://www.austurfrett.is/frettir/strandblakvollur-a-vopnafirdi-hofum-engan-ahuga-a-stridi-vid-ibuana
Strandblakvöllur á Vopnafirði: „Höfum engan áhuga á stríði við íbúana“ Oddviti Vopnafjarðarhrepps segir að rætt verði við íbúa í nágrenni fyrirhugaðs strandblakvallar áður en haldið verið áfram með framkvæmdirnar. Tækniatriði varð til þess að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamál ógilti framkvæmdina. Niðurstaða nefn...
http://www.austurfrett.is/frettir/fjallvegum-lokad-klukkan-fjogur-vindurinn-naer-ser-vel-nidur-a-vopnafirdi
Fjallvegum lokað: Vindurinn nær sér vel niður á Vopnafirði Vegagerðin hefur boðað lokanir á austfirskum vegum frá klukkan fjögur og fram á kvöld vegna afleitrar veðurspár. Veðurfræðingur segir Austfirðinga sunnan Vopnafjarðar, sleppa betur en aðra landsmenn við hvassviðrið. „Þið sleppið vel við vindinn miðað við landið...
http://www.austurfrett.is/frettir/buin-ad-vera-aevintyralega-god-veidi
„Búin að vera ævintýralega góð veiði“ Köstin sem loðnuveiðiskipin fá þessa dagana eru með þeim stærstu sem menn muna eftir. Loðnan er sömuleiðis með fallegra móti. „Við fengum 1000 tonn í fyrsta kasti í síðasta túr og 1200 tonn því næsta. Þetta er ævintýralega góð veiði. Það eru allir bátarnir að fá stór köst,“ segir S...
http://www.austurfrett.is/frettir/ad-loknu-sjomannaverkfalli-farnir-til-hafs-a-ny-en-ekki-syngjandi-saelir-eda-gladir
Að loknu sjómannaverkfalli: Farnir til hafs á ný – en ekki syngjandi, sælir eða glaðir Segja má að austfirsku fiskiskipin hafi látið úr höfn nánast um leið og ljóst var að sjómenn hefðu samþykkt nýjan kjarasamning. Afar skiptar skoðanir eru hins vegar um samningana meðal sjómanna. Afleðingar verkfallsins munu koma í lj...
http://www.austurfrett.is/frettir/nordfjardargong-flestir-starfsmenn-metrostav-hafa-lokid-storfum
Norðfjarðargöng: Flestir starfsmenn Metrostav hafa lokið störfum Flestir starfsmenn tékkneska verktakans Metrostav eru farnir af starfssvæði Norðfjarðarganga því vinnu þeirra við þau er að mestu lokið. Hafin er vinna við vegagerð í göngunum sjálfum. Vinnu við vatnsklæðingar og sprautusteypun er lokið og því eru nú ákve...
http://www.austurfrett.is/frettir/opinn-fundur-um-framtid-huso-viljum-heyra-hugmyndir-samfelagsins
Opinn fundur um framtíð Húsó: Viljum heyra hugmyndir samfélagsins Í kvöld verður haldinn opinn umræðufundur um framtíðarmöguleika Hússtjórnarskólans á Hallormsstað, námsleiðir og ímynd hans í samfélaginu. Hvatinn að baki fundinum er að ekki sóttu nógu margir nemendur um nám þar á vorönn til að halda uppi námi. „Við þur...
http://www.austurfrett.is/frettir/nog-ad-gera-hja-londunarmonnum-brjalad-ad-gera-i-lodnuveidinni
Nóg að gera hjá löndunarmönnum: Brjálað að gera í loðnuveiðinni Austfirsk fiskiðjuver eru að komast á fulla ferð eftir að verkfalli sjómanna lauk á sunnudagskvöld. Löndunarmenn hafa varla undan að þjónusta skipin sem streyma til hafnar. „Það er brjálað að gera,“ segir Einar Birgir Kristjánsson, framkvæmdastjóri Tandrab...
http://www.austurfrett.is/frettir/austurlandsvinur-gerdi-verdlaunatillogu-ad-adstodu-vid-hengifoss
Austurlandsvinur gerði verðlaunatillögu að aðstöðu við Hengifoss Norska arkitektastofan Zis As fékk fyrstu verðlaun í hönnunarsamkeppni fyrir aðstöðu ferðamenn við Hengifoss. Sama stofa átti einnig verðlaunahönnun að aðstöðuhúsi fyrir Stórurð sem vígt var á Vatnsskarði í haust. Að baki stofunni standa hjónin Eirik Rønn...
http://www.austurfrett.is/frettir/verkfallid-lamar-allt-herna
„Verkfallið lamar allt hérna“ Verkfall sjómanna er farið að hafa veruleg áhrif á tekjur sjávarútvegssveitarfélaga. Tugi milljóna vantar í kassann hjá Vopnafjarðarhrepp og útlit er fyrir að fresta þurfi framkvæmdum. „Þetta lamar allt hérna. Verkstæðin, veitingastaðina, þjónustufyrirtækin. Ég hef hitt menn sem eru dottni...
http://www.austurfrett.is/frettir/fyrsta-wasabi-uppskeran-sprettur-vel
Fyrsta wasabi uppskeran sprettur vel Von er á að fyrsta uppskeran af wasabi-plöntum, sem ræktaðar eru í gróðurhúsi Barra við Fellabæ, verði tilbúin í byrjun sumars. Um er að ræða einu ræktunina á Norðurlöndum. „Við erum með hálft hús undir ræktunina. Okkur líst mjög vel á ræktunina, það er allt samkvæmt áætlun. Það er ...
http://www.austurfrett.is/frettir/kvartad-undan-malningarbragdi-af-flatbraudinu-baetum-ollum-sem-hafa-samband
Kvartað undan málningarbragði af flatbrauðinu: Bætum öllum sem hafa samband Fjölmargir viðskiptavinir Fellabakarís eru óánægðir með flatbrauð fyrirtækisins sem þeir segja eiga það til að bera málningarbragð. Bakaríið heitir úrbótum og sárabótum handa þeim sem fá skemmt brauð. Óánægðir viðskiptavinir létu heyra í sér á ...
http://www.austurfrett.is/frettir/var-radherra-ad-styrkja-stodu-verslunarinnar-i-buvorusamningum
Var ráðherra að styrkja stöðu verslunarinnar í búvörusamningum? Þórunn Egilsdóttir, bóndi á Hauksstöðum í Vopnafirði og þingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi, er gagnrýnin á breytta skipan nýs ráðherra á samráðshópi um endurskoðun búvörusamninga. Þórunn tók málið upp á Alþingi í síðustu viku og benti þá að...
http://www.austurfrett.is/frettir/folk-vill-bara-komast-a-skidi
„Fólk vill bara komast á skíði“ „Skíðasvæðið er ekki fallegt sem stendur, það er hvorki snjór í brekkunum eða við lyftur,“ segir Marvin Ómarsson, forstöðumaður skíðasvæðisins í Oddsskarði. Marvin segir að skíðaiðkendur séu orðnir langþreyttir á snjóleysinu. „Fólk vill bara komast á skíði. Hér er grænn mosi og stærri læ...
http://www.austurfrett.is/frettir/kristjan-thor-undarlegt-hvad-haegt-er-ad-gera-mikid-ur-litlu
Kristján Þór: Undarlegt hvað hægt er að gera mikið úr litlu Menntamálaráðherra hrósaði menningar- og frumkvöðlastarfi á Austurlandi í ávarpi sínu við úthlutun úr Uppbyggingarsjóði Austurlands í gær. Þingmenn Norðausturkjördæmis hafa verið á svæðinu í vikunni. „Þetta hafa verið mjög góðir dagar og við fengið að heyra fr...
http://www.austurfrett.is/frettir/islandsbanki-skerdir-opnunartima-a-reydarfirdi
Íslandsbanki skerðir opnunartíma á Reyðarfirði „Undanfarin misseri hefur dregið úr komum viðskiptavina í útibúið og á sama tíma aukist sú þjónusta útibúsins sem veitt er í gegnum tölvupóst og síma,“ sagði Gunnar F. Vignisson, útibússtjóri Íslandsbanka á Reyðarfirði, en viðskiptavinum bankans var tilkynnt um fyrirhugaða...
http://www.austurfrett.is/frettir/mikid-vatnsvedur-eystra-gott-ad-ekki-var-frost-i-jordu-myndir
Mikið vatnsveður eystra: Gott að ekki var frost í jörðu – Myndir Minni ár eru að verða orðnar eðlilegar en stærri ár eru jafnvel enn að vaxa eftir miklar rigningar eystra síðustu daga. Oddviti Fljótsdal segir vatnavexti sem þessa ekki óvenjulega en tíðarfarið sé það. „Það var mikið vatn á ferðinni í gær. Allir lækir be...
http://www.austurfrett.is/frettir/allir-eru-serfraedhingar-a-sinu-svidhi
„Allir eru sérfræðingar á sínu sviði“ „Ég er afar stoltur af því að taka við þessari viðurkenningu fyrir hönd starfsfólks Alcoa Fjarðaáls. Innan Fjarðaáls starfar fjölbreyttur hópur starfsfólks sem eru öll sérfræðingar á sínu sviði,“ segir Magnús Þór Ásmundsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls, en fyrirtækið var kosið mennta...
http://www.austurfrett.is/frettir/uppbyggingarsjodur-austurlands-haestu-styrkirnir-i-salfraedi-og-sveitasnakk
Uppbyggingarsjóður Austurlands: Hæstu styrkirnir í sálfræði og sveitasnakk LungA, Havarí, til framleiðslu sveitasnakks, og Orri Smárason sálfræðingur, til að þróa sáttar- og atferlismaðferð, fengu hæstu styrkina þegar úhlutað var úr Uppbyggingarsjóði Austurlands í dag. Alls var úthlutað 58,5 milljónum til 80 verkefna. ...
http://www.austurfrett.is/frettir/hitamet-ekki-stadfest-strax
Hitamet ekki staðfest strax Veðurstofan bíður með að staðfesta hvort hitamet fyrir febrúarmánuð hafi verið sett á Eyjabökkum í gær. Hlýtt loft hefur verið yfir Austfjörðum síðustu daga. „Það þarf að tékka betur á stöðinni, hvort hún sé ekki örugglega í lagi,“ segir Trausti Jónsson um 19,1 stiga hita sem mældist á Eyjab...
http://www.austurfrett.is/frettir/hvert-starf-fyrir-konu-skiptir-mali-fyrir-samfelagid
Hvert starf fyrir konu skiptir máli fyrir samfélagið Austfirðingar eru þátttakendur í fimm landa Evrópuverkefni sem miðar að því að efla frumkvöðlakonur á landsbyggðinni. Verkefnisstjóri minnir á að á sumum svæðum skipti hvert starf máli. „Þetta verkefni er sprottið út frá hugmynd sem kviknaði á Egilsstöðum fyrir tveim...
http://www.austurfrett.is/frettir/austfirdingar-minnast-olafar-nordal
Austfirðingar minnast Ólafar Nordal Fjölmargir Austfirðingar, jafnt samflokksmenn sem aðrir, hafa minnst Ólafar Nordal, fyrrverandi þingmanns fjórðungsins, á samfélagsmiðlum. Samflokksmenn minnast hennar sem lærimeistara og aðrir sem manneskju sem lagði sig fram um að miðla málum. Ólöf lést í gærmorgun eftir baráttu vi...
http://www.austurfrett.is/frettir/vid-viljum-fa-haug-af-tilnefningum
„Við viljum fá haug af tilnefningum“ „Viðurkenningin okkar er hugsuð sem hvatning, gott klapp á bakið, sem fær kannski fleiri til þess að feta í fótspor viðkomandi,“ segir Sigríður K. Þorgrímsdóttir, sérfræðingur á þróunarsviði Byggðastofunar, en nú óskar stofnunin eftir tillögum að samfélagsviðurkenningunni Landstólpa...
http://www.austurfrett.is/frettir/sjomannaverkfall-thad-er-ekki-gaman-ad-vita-af-folki-sem-ekki-hefur-vinnu
Sjómannaverkfall: Það er ekki gaman að vita af fólki sem ekki hefur vinnu Fimmtudagurinn var langur hjá Grétari Ólafssyni, formanni sjómannadeildar AFLs starfsgreinafélags en hann þurfti í langt ferðalag til að sitja samningafund í sjómannadeilunni. Hann segir samningamenn vel meðvitaða um þau áhrif sem verkfallið hefu...
http://www.austurfrett.is/frettir/vegir-skemmdir-eftir-mikla-vatnavexti
Vegir skemmdir eftir mikla vatnavexti Vatn hefur víða flætt yfir vegi á Austurlandi í miklum vatnavöxtum eftir úrkomu vikunnar. Á nokkrum stöðum eru vegir í sundur. Fljótsdælingar hafa sjaldan séð aðra eins vatnavexti á þessum árstíma og segja dalinn hreinlega á floti. Lækir komi hvítfissandi niður hlíðarnar og á nokkr...
http://www.austurfrett.is/frettir/helmingur-tilnefninga-ad-austan
Helmingur tilnefninga að austan Þrjú af þeim sex verkefnum sem eiga möguleika á að hljóta Eyrarrósina í ár eru af Austurlandi, en þau eru Eistnaflug í Neskaupstað, List í ljósi á Seyðisfirði og Rúllandi snjóbolti á Djúpavogi. Eyrarrósarlistinn 2017 var birtur í gær, en Eyrarrósin er viðurkenning sem veitt er framúrskar...
http://www.austurfrett.is/frettir/ekki-haldid-afram-med-ofanflodavarnir-synd-ad-thessir-peningar-seu-ekki-nyttir
Ekki haldið áfram með ofanflóðavarnir: „Synd að þessir peningar séu ekki nýttir“ Bæjarráð Fjarðabyggðar lýsir vonbrigðum yfir að ekki sé gert ráð fyrir að halda áfram gerð snjóflóðavarna við Norðfjörð í fjárlögum þessa árs, einkum í ljósi þess að sérstakur sjóður sé til staðar fyrir ofanflóðavarnir. „Það eru mikil vonb...
http://www.austurfrett.is/frettir/deila-um-yfirrad-yfir-heitu-vatni-vid-selardalslaug
Deila um yfirráð yfir heitu vatni við Selárdalslaug Tvö mál eru fyrir héraðsdómi Austurlands sem tengjast deilum um yfirráð yfir landi og heitu vatni við Selárdalslaug í Vopnafirði. Deilt er um túlkun jarðasölusamning frá árinu 1963. Í dag verður tekin fyrir stefna hreppsins gegn Veiðifélagi Selár en hreppurinn krefur ...
http://www.austurfrett.is/frettir/kroppakjor-risin-a-ny
Kroppakjör risin á ný „Ég átti mig sjaldnast á því hvað ég er orðinn gamall,“ segir Már Sveinsson, 84 ára íbúi í þjónustuíbúðunum Breiðabliki í Neskaupstað, en lítil líkamsræktaraðstaða var formlega opnuð þar á föstudaginn að hans frumkvæði. Íbúar Breiðabliks sendu félagsmálanefnd bréf þar sem lagt var til að tómstunda...
http://www.austurfrett.is/frettir/austfirskir-sjomenn-eru-eitilhardir-i-verkfalli
Austfirskir sjómenn eru eitilharðir í verkfalli Formaður Sjómannadeildar AFLs segir baráttuhug í austfirskum sjómönnum sem hafa verið í verkfalli í einn og hálfan mánuð. Helst hefur strandað á deilum um hlutdeild í olíuverði. „Hljóðið í mönnum er enn eitilhart og þeir ætla að klára þetta,“ segir Grétar Ólafsson, formað...
http://www.austurfrett.is/frettir/tessi-dagur-skiptir-miklu-mali
„Þessi dagur skiptir miklu máli“ „Dagur leikskólans skipar orðið stóran sess í okkar starfi, bæði hjá börnum og starfsfólki,“ segir Sandra Konráðsdóttir, leikskólastjóri í Brekkubæ á Vopnafirði. Dagur leikskólans hefur verið haldinn hátíðlegur í tíu ár, en 6. febrúar er merkilegur dagur í leikskólasögu þjóðarinnar því ...
http://www.austurfrett.is/frettir/lodnuvinnslan-styrkir-kvotann-a-sandfellinu-med-ad-kaupa-borgarhofda
Loðnuvinnslan styrkir kvótann á Sandfellinu með að kaupa Borgarhöfða Loðnuvinnslan hefur keypt útgerðina Borgarhöfða og bátinn Hafrafell með 700 tonna kvóta. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir kaupin styrkja heilsársútgerð Sandfellsins sem kom til Fáskrúðsfjarðar fyrir sléttu ári. „Með þessum kaupum erum við komin me...
http://www.austurfrett.is/frettir/vilja-naega-fjarmuni-til-ad-ljuka-rannsoknum
Vilja næga fjármuni til að ljúka rannsóknum Bæjarstjórn Seyðisfjarðar skorar á Alþingi og ríkisstjórn að nú þegar verði skilgreindir nægir fjármunir til að ljúka rannsóknaráætlun vegna Fjarðarheiðaganga í samræmi við samgönguáætlun 2015-2018. Þetta kemur fram í ályktun bæjarstjórnar sem samþykkt var á síðasta fundi hen...
http://www.austurfrett.is/frettir/thoroddur-bjarnason-ad-byggja-upp-haskola-islands-var-byggdamal
Þóroddur Bjarnason: Að byggja upp Háskóla Íslands var byggðamál Prófessor við Háskólann á Akureyri telur miklar breytingar framundan á háskólanámi í heiminum og spyr hvort stærri háskólar séu tilbúnir að takast við þá. Uppbygging menntastofnana hefur haft mikil áhrif á íbúaþróun í landinu undanfarna öl. Þóroddur Bjarna...
http://www.austurfrett.is/frettir/vidtaekar-thungatakmarkanir-i-vaetutid
Víðtækar þungatakmarkanir í vætutíð Segja má að þungatakmarkanir hafi verið sett á alla helstu vegi á Austurlandi nema Fagradal, hringveginn úr norðri og Vopnafjarðarheiði í hádeginu í dag. Þær gætu haft þó nokkur áhrif á flutninga um svæðið. Takmarkanir um 10 tonna öxulþunga tóku gildi klukkan eitt í dag vegna hætta á...
http://www.austurfrett.is/frettir/norsk-lodnuskip-med-fyrstu-lodnuna-til-austfjarda
Norsk loðnuskip með fyrstu loðnuna til Austfjarða Norska loðnuskipið Fiskebas landaði fyrstu loðnunni á Austfjörðum á föstudag þegar það kom inn til Fáskrúðsfjarðar. Fleiri skip hafa fylgt í kjölfarið, bæði þar og á Norðfirði. Fiskebas kom aftur í gær og kom því samtals með 350 tonn. Í morgun kom Eros með 650 tonn til ...
http://www.austurfrett.is/frettir/opnun-rannsoknaseturs-hi-frestad-um-ar-thvi-midur-eina-leidin-sem-okkur-er-faer
Opnun rannsóknaseturs HÍ frestað um ár: Því miður eina leiðin sem okkur er fær Opnun rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Egilsstöðum verður frestað um ár vegna fjárskorts skólans. Staða akademísks sérfræðings verður framlengd á meðan. Bæjarráð Fljótsdalshéraðs lýsir yfir vonbrigðum sínum en forstöðumaður hjá skólanum seg...
http://www.austurfrett.is/frettir/fiskvinnsla-i-gang-a-faskrudhsfirdhi
Fiskvinnsla í gang á Fáskrúðsfirði Vinnsla er hafin á ný í frystihúsinu Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði en hún hefur legið niðri frá því fyrir jól vegna verkfalls sjómanna. Keyptur er afli af krókaaflamarksbátum. Vinnsla hófst aftur á fimmtudag en hráefnið kemur frá Dögg SU og Hafrafelli SU. Sjómenn bátanna eru í Land...
http://www.austurfrett.is/frettir/mistoek-vidh-utsendingu-aminningarbrefa-fra-austurglugganum
Mistök við útsendingu áminningarbréfa frá Austurglugganum Útgáfufélag Austurlands ákvað um áramót að hætta útsendingu reikninga á pappír til áskrifenda Austurgluggans. Til stóð að senda út aðvörun á pappír til þeirra sem ekki hefðu greitt á eindaga og gefa þeim kost á að greiða áskriftarkröfur án innheimtukostnaðar inn...
http://www.austurfrett.is/frettir/23-milljonir-austur-i-ljosleidaralagningu-ekki-upp-i-nos-a-ketti
23 milljónir austur í ljósleiðaralagningu: Ekki upp í nös á ketti Fjögur austfirsk sveitarfélög fá samanlagt 23 milljónir króna úr sérstakri 100 milljóna úthlutun í lagningar ljósleiðara sem ráðherra byggðarmála kynnti í gær. Formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi segir fjármögnunina skref í rétta átt en mun mei...
http://www.austurfrett.is/frettir/aukinn-thrystingur-kominn-a-ad-innanlandsflugid-verdi-skilgreint-sem-almenningssamgongur
Aukinn þrýstingur kominn á að innanlandsflugið verði skilgreint sem almenningssamgöngur Framkvæmdastjóri Austurbrúar segir þrýsting Austfirðinga hafa skilað því að farið sé að ræða af alvöru um að innanlandsflug verði skilgreint sem almenningssamgöngur. Stuðningur sé úr fleiri áttum. „Við náðum ákveðinni umræðu af stað...
http://www.austurfrett.is/frettir/leit-adh-heitu-vatni-a-djupavogi-haett-adh-sinni
Leit að heitu vatni á Djúpavogi hætt að sinni Leit að heitu vatni á Búlandsnesi í Djúpavogshreppi hefur verið hætt að sinni. Boranir þar í byrjun mánaðarins báru takmarkaðan árangur. „Við vorum að dýpka tvær holur núna í þeirri von að við myndum finna heitara vatn. Við lentum á mjög hörðu bergi og höfum sagt þetta gott...
http://www.austurfrett.is/frettir/varad-vid-frostrigningu-a-heradi
Varað við frostrigningu á Héraði Vegagerðin varar ferðalanga á Fljótsdalshéraði við frostrigningu sem skapað geti flughálku á Héraði í dag. Spáð er vaxandi austanátt á landinu í dag. Reiknað er með 13-20 m/s á Austurlandi í kvöld og nótt með slyddu eða rigningu. Hægari vindur verður úti við ströndina. Hætta er við fros...
http://www.austurfrett.is/frettir/bylgja-radin-verkefnastjori-ithrotta-tomstunda-og-forvarnamala
Bylgja ráðin verkefnastjóri íþrótta- tómstunda og forvarnamála Bylgja Borgþórsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri íþrótta-, tómstunda- og forvarnamála hjá sveitarfélaginu Fljótsdalshéraði. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá sveitarfélaginu. Bylgja hefur starfað sem kennari við Egilsstaðaskóla undanfarin misse...
http://www.austurfrett.is/frettir/57-thusund-tonna-lodnukvoti-thetta-er-voda-dapurt
57 þúsund tonna loðnukvóti: Þetta er voða dapurt Austfirskir útgerðarmenn binda vonir við að Hafrannsóknastofnun leggi út í annan leiðangur til að leita loðnu. Stofnunin kynnti í dag niðurstöður sínar úr tveimur rannsóknarleiðöngrum í mánuðinum og veiðiráðgjöf ársins. „Þetta er voða dapurt. Vonandi fara menn í annan le...
http://www.austurfrett.is/frettir/allir-vinna-ad-sama-marki-af-heilum-hug
„Allir vinna að sama marki af heilum hug“ Veruleg fækkun slysa hefur orðið á starfsstöðvum Síldarvinnslunnar í Neskaupstað að undanförnu og Hefur uppsjávarskipið Beitir NK verið slysalaus í þrjú ár. Í ársbyrjun 2016 var Guðjón B. Magnússon ráðinn í starf öryggisstjóra. „Samkvæmt nýrri starfsmannastefnu fyrirtækisins ve...