Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
http://www.austurfrett.is/frettir/rjupnaskyttan-fundin
Rjúpnaskyttan fundin Rjúpnaveiðimaðurinn sem leitað hefur verið að síðan á föstudagsmorguninn er fundin heill á húfi. Björgunarsveitamenn á vélsleðum fundu manninn þar sem hann var á gangi með hundi sínum á austanverðum Ketilsstaðahálsi upp úr klukkan tíu í morgun. Maðurinn var vel á sig kominn þegar hann fannst, en ka...
http://www.austurfrett.is/frettir/buast-vid-um-200-manns-i-mat
Búast við um 200 manns í mat Sjálfboðar Rauða krossins á Héraði hafa opnað fjöldahjálparmiðstöð í Egilsstaðaskóla þar sem björgunarsveitarmönnum sem leitað hafa að rjúpnaskyttu á Völlum síðan í gærkvöldi gefst færi á að hvíla sig og næra. „Við höfum sett upp 30 bedda úr neyðarkerru sem er hér til staðar í fjórar skólas...
http://www.austurfrett.is/frettir/stigamot-anna-vart-eftirspurn-a-austurlandi
„Stígamót anna vart eftirspurn á Austurlandi“ „Þörfin hefur verið svo mikil að við höfum bætt einum degi við, þannig að hálfsmánaðarlega er ráðgjafi frá okkur á Egisstöðum yfir nótt og er þá með viðtöl í tvo heila daga,“ segir Anna Bentína Hermansen ráðgjafi Stígamóta á Austfjörðum. Stigamót eru grasrótarsamtök sem ber...
http://www.austurfrett.is/frettir/oliuverd-tharf-ad-haekka-til-ad-vinnsla-a-drekasvaedinu-borgi-sig
Olíuverð þarf að hækka til að vinnsla á Drekasvæðinu borgi sig Vísbendingar eru um góðar olíulindir á Drekasvæðinu en olíuverð í dag er of lágt til að vinnsla borgi sig. Líklegast er að uppbygging þar hefjist í tengslum við námavinnslu á Grænlandi. Þetta er meðal þess sem fram kom á íbúafundi um uppbyggingu stórskipaha...
http://www.austurfrett.is/frettir/leitad-medan-mannskapurinn-getur
Leitað meðan mannskapurinn getur Um 200 manns eru skráðir virkir við leit að rjúpnaskyttu sem leitað hefur verið að á Völlum á Héraði síðan um klukkan átta í gærkvöldi. Leit verður haldið áfram meðan hægt er. „Það eru tugir hópa úti og verið að leita líklegustu svæðin,“ sagði Sveinn Halldór Oddsson Zoega, formaður svæð...
http://www.austurfrett.is/frettir/thydir-ekki-ad-senda-menn-af-stad-nema-a-thrugum-edha-skidum
Þýðir ekki að senda menn af stað nema á þrúgum eða skíðum Verið er að endurskipuleggja leit að rjúpnaskyttu á Völlum sem staðið hefur yfir síðan í gærkvöldi. Nokkuð hefur reynt á leitarmenn enda aðstæður erfiðar en von er á liðsauka úr Reykjavík í hádeginu. Útkall barst um klukkan tuttugu mínútur fyrir átta í gærkvöldi...
http://www.austurfrett.is/frettir/pantadi-a-annad-hundrad-raftaekja-i-nafni-alversins-til-nota-i-eigin-thagu
Pantaði á annað hundrað raftækja í nafni álversins til nota í eigin þágu Héraðsdómur hefur dæmt fyrrum starfsmann Alcoa Fjarðaáls í 12 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til endurgreiða fyrirtækinu tæpar tíu milljónir króna sem er andvirði raftækja sem hann pantaði í nafni fyrirtækisins til eigin nota. Ein pöntun er frá...
http://www.austurfrett.is/frettir/deilur-ut-af-strandblakvelli-magnast-upp-fulltrui-a-skrifstofu-sakadur-um-einelti-og-ofsoknir
Deilur út af strandblakvelli magnast upp: Fulltrúi á skrifstofu sakaður um einelti og ofsóknir Sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps hefur beðið húseiganda afsökunar hafi verið brotið gegn rétti hans við byggingareftirlit á lóð hans. Lóðareigandinn sakaði fulltrúa á skrifstofu um ofsóknir gegn sér vegna andstöðu við bygging...
http://www.austurfrett.is/frettir/seinheppin-sveit-adh-sunnan
Seinheppin sveit að sunnan Það gekk ekki þrautalaust fyrir um 50 björgunarsveitarmenn úr Reykjavík að komast austur á Hérað til aðstoðar við leit að týndri rjúpnaskyttu. Í fyrsta lagi fór flugvélin sem fara átti með hópinn austur klukkutíma síðar í loftið en áætlað var. Afísingarbúnaður virkaði ekki sem skyldi og skipt...
http://www.austurfrett.is/frettir/leitad-ad-rjupnaskyttu-a-heradi
Leitað að rjúpnaskyttu á Héraði Björgunarsveitir allt frá Eyjafirði suður í Öræfasveit hafa verið kallaðar út til leitar að rjúpnaskyttu á Héraði. Þyrla Landhelgisgæslunnar er farinn af stað með sporhunda á leitarsvæðið. Björgunarsveitir voru kallaðar út rétt fyrir klukkan átta í kvöld og fyrstu leitarmenn voru komnir ...
http://www.austurfrett.is/frettir/ibuar-austurlands-vinna-saman-ad-unglingalandsmoti-umfi-a-egilsstoedum
Íbúar Austurlands vinna saman að Unglingalandsmóti UMFÍ á Egilsstöðum Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið á Egilsstöðum verslunarmannahelgina 2017. Forsvarsmenn Ungmennafélags Íslands, Fljótsdalshéraðs og Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands hittust á Egilsstöðum á þriðjudag og skrifuðu undir samning þessa efnis. U...
http://www.austurfrett.is/frettir/styrkir-starfstroun-og-opnar-dyr-til-nams
„Styrkir starfsþróun og opnar dyr til náms“ „Raunfærnimatið er gríðarlega gott tækifæri fyrir fólk sem búið er að vinna að skórækt í mörg ár og geta með þessu móti stytt námið. Þetta er hvetjandi og góð leið til þess að ná fólki inn í nám,“ segir Else Möller, skógfræðingur og verkefnastjóri hjá Austurbrú. Fólki sem sta...
http://www.austurfrett.is/frettir/ny-heilsugaesla-a-reydarfirdi-bodin-ut-i-vor
Ný heilsugæsla á Reyðarfirði boðin út í vor? Kristín Björg Albertsdóttir, sem um síðustu mánaðarmót lét af störfum sem forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands bindur vonir við að ný heilsugæslustöð á Reyðarfirði verði boðin út í vor. Stjórnendur stofnunarinnar hafa lagt áherslu á að stöðin rísi sem fyrst. „Það var b...
http://www.austurfrett.is/frettir/ellefu-nautgripir-forust-i-eldi
Ellefu nautgripir fórust í eldi Ellefu nautgripir fórust í eldsvoða á gripahúsi á bænum Fögruhlíð í Jökulsárhlíð í dag. Húsið varð alelda á stuttum tíma og er gjörónýtt. „Það er ótrúlegt að tíðarfarið sé búið að vera svona. Annars hefðu fjárhúsin verið full af skepnum,“ segir Baldur Pálsson, slökkviliðsstjóri hjá Bruna...
http://www.austurfrett.is/frettir/tolf-sottu-um-starf-forstodumanns-menningarmidstodvarinnar
Tólf sóttu um starf forstöðumanns Menningarmiðstöðvarinnar Tólf umsækjendur eru um starf forstöðumanns Menningarmiðstöðvar Fljótsdalshéraðs, Sláturhússins, miðstöðvar sviðslista á Austurlandi. Nýr forstöðumaður tekur við um áramót. Umsóknarfrestur var 1. nóvember síðastliðinn. Alls sóttu þrettán um stöðuna en einn dró ...
http://www.austurfrett.is/frettir/fjardabyggd-ekki-storkostleg-skerding-a-thjonustu-thott-engin-lodna-veidist
Fjarðabyggð: Ekki stórkostleg skerðing á þjónustu þótt engin loðna veiðist Bæjarstjóri Fjarðabyggðar segir að ekki verði stórkostlegur niðurskurður á þjónustu sveitarfélagsins þótt tekjur sveitarfélagsins dragist saman ef engin loðna veiðist á næsta ári. „Minni tekjur þýða einfaldlega að þá þarf að aðlaga útgjöldin að ...
http://www.austurfrett.is/frettir/foru-sudur-med-sigur-i-huga
Fóru suður með sigur í huga „Hópurinn hittumst svo í gær og menn eru strax farnir að huga að næsta ári,“ segir Guðmundur Einarsson, kennari í Egilsstaðaskóla og umsjónarmaður liðsins Oreo sem bar sigur úr býtum í vélmennakapphlaupi hinnar árlegu tækni- og hönnunarkeppni FIRST LEGO League sem haldin var í Háskólabíói fy...
http://www.austurfrett.is/frettir/sonnun-tess-ad-vid-erum-a-rettri-braut
„Vonandi sönnun þess að við erum á réttri braut“ „Þetta skiptir okkur miklu máli, það er mikil hvatning fólgin í þessum viðurkenningum auk þess að vera ákveðinn gæðastimpill og vonandi sönnun þess að við erum á réttri braut. Við munum halda áfram og vekjum vonandi í leiðinni enn frakari athygli á áfangastaðnum Austurla...
http://www.austurfrett.is/frettir/heildarendurnyjun-a-sparkvollum-i-fjardabyggd
Heildarendurnýjun á sparkvöllum í Fjarðabyggð „Við viljum einfaldlega vera með þessi mál í lagi en með þessu erum við að bregðast við umræðunni í samfélaginu um að dekkjakurlið geti verið skaðlegt heilsu,“ segir Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri í Fjarðabyggð, um ákvörðun bæjarráðs að fjarlægja svarta dekkjakurlið...
http://www.austurfrett.is/frettir/verkfall-sjomanna-hefdi-vond-ahrif-a-eskju
Verkfall sjómanna hefði vond áhrif á Eskju Verkfall sjómanna gæti tafið uppbyggingu nýs frystihúss Eskju á Eskifirði. Samninganefndir funda fram eftir degi í von um sættir áður en verkfall hefst klukkan ellefu í kvöld. „Varðandi verkfall sjómanna þá kemur það einstaklega illa fyrir Eskju því við áætluðum að fara til ve...
http://www.austurfrett.is/frettir/lausn-ad-flytja-inn-laekna
Lausn að flytja inn lækna? Kristín Björg Albertsdóttir, sem um síðustu mánaðarmót lét af störfum sem forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands, telur koma til greina að leita út fyrir landsteinana til að ráða bót á læknaskorti á landsbyggðinni. Þetta kemur fram í viðtali við Kristínu í nýjasta tölublaði Austurgluggans...
http://www.austurfrett.is/frettir/undirbua-stofnun-vatnsverksmidju-a-borgarfirdi
Undirbúa stofnun vatnsverksmiðju á Borgarfirði Borgarfjarðarhreppur hefur auglýst kynningu á drögum að nýju aðalskipulagi fyrir sveitarfélagið þar sem til stendur að stofna vatnsverksmiðju. Samkvæmt skipulagslýsingunni verður 11 hekturum í landi Geitlands, sem er næst síðasti bær við þorpið þegar komið er frá Egilsstöð...
http://www.austurfrett.is/frettir/flottaborn-daga-uppi-hja-sveitarfelogum-thvi-urraedi-utlendingastofnunar-eru-sprungin
Flóttabörn daga uppi hjá sveitarfélögum því úrræði Útlendingastofnunar eru sprungin Lögfræðingur Barnaverndarstofu telur að ný útlendingalög feli í sér mikla réttarbót sem koma hingað til lands. Núverandi úrræði dugi ekki lengur. Barnaverndaryfirvöld sveitarfélaganna bera ábyrgð meðan hælisumsókn er metin. „Það má velt...
http://www.austurfrett.is/frettir/orkuskipti-a-austurlandi-taeknin-ordin-odyrari-fyrr-en-folk-thordi-ad-vona
Orkuskipti á Austurlandi: Tæknin orðin ódýrari fyrr en fólk þorði að vona Hjá Austurbrú er að komast á laggirnar verkefni um orkuskipti á Austurlandi þar sem horft er á uppbyggingu innviða fyrir rafmagnsbíla, nýja orkugjafa í sjávarútvegi og betri nýtingu á orku til húshitunar. Verkefnisstjóri segir tæknina vera fyrr k...
http://www.austurfrett.is/frettir/eins-og-modurskipid-hafi-kallad-mig-heim
„Eins og móðurskipið hafi kallað mig heim“ „Ég hafði enga von um það að vinna til þessara verðlauna og það var bara hálfgert sjokk,“ segir reyðfirski rithöfundurinn Inga Mekkin Beck, sem hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin árið 2016 á dögunum fyrir bókina Skóladraugurinn sem er jafnframt hennar fyrsta bók. Bókin fjallar...
http://www.austurfrett.is/frettir/nordhfirdingar-bjartsynir-a-lifid-eftir-gong
„Norðfirðingar bjartsýnir á lífið eftir göng“ Hvernig nýtum við sóknarfærin er yfirskrift málþings um samfélagsleg áhrif Norðfjarðarganga sem haldið verður í Egilsbúð á laugardaginn milli klukkan 10:00 og 12:00. Málþingið er haldið af áhugafólki um Norðfjarðargöng og samstarfsaðilar eru Samvinnufélag útgerðarmanna Nesk...
http://www.austurfrett.is/frettir/vilji-til-ad-stofna-hagsmunafelag-ungra-austfirdinga
„Vilji til að stofna hagsmunafélag ungra Austfirðinga“ „Sú mynd sem ungt fólk á Austurlandi hefur af svæðinu og möguleikum þess er margt áhugaverð og ég held að það sé sterkt fyrir framtíð fjórðungsins hversu vel það er tilbúið að vinna saman þvert yfir sveitarfélög og hefur mikla óbeit á einhverjum gömlum og úldnum hr...
http://www.austurfrett.is/frettir/sjo-saekja-um-embaetti-forstjora-hsa
Sjö sækja um embætti forstjóra HSA Sjö umsóknir bárust um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA) sem auglýst var auglýst laust til umsóknar í október. Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna að fengnu áliti þriggja manna nefndar sem metur hæfi umsækjenda. Staðan var auglýst eftir að Kristín Björg Alberts...
http://www.austurfrett.is/frettir/franska-uppbyggingin-hefur-gert-okkur-enn-stoltari-af-faskrudsfirdi
Franska uppbyggingin hefur gert okkur enn stoltari af Fáskrúðsfirði Bæjarstjóri Fjarðabyggðar afhenti nýverið forsvarsmönnum Minjaverndar viðurkenningar fyrir gott samstarf við íbúa, fyrirtæki og stofnanir í sveitarfélaginu við uppbyggingu frönsku húsanna á Fáskrúðsfirði. Uppbyggingin skipti máli fyrir bæði sjálfsálit ...
http://www.austurfrett.is/frettir/stolnum-bil-skilad-aftur-a-sama-stad
Stolnum bíl skilað aftur á sama stað Lögreglan á Austurlandi hefur ekki enn upplýsingar um ferðir bíls sem hvarf af bílastæðinu við flugvöllinn á Egilsstöðum á sunnudag. Ökumenn eru minntir á að fara með gát nú þegar hálka er tekin að myndast á vegum. Lögreglan auglýsti á sunnudagskvöld eftir jeppabifreið sem horfið ha...
http://www.austurfrett.is/frettir/afram-bjartsyn-a-millilandaflug-um-egilsstadi
Áfram bjartsýn á millilandaflug um Egilsstaði María Hjálmarsdóttir, verkefnastjóri hjá Austurbrú, er bjartsýn á að millilandaflug komist aftur á um flugvöllinn á Egilsstöðum á næstu árum þótt Discover the World hafi ákveðið að halda ekki áfram áætlunarflugi sínu. Dýrmæt reynsla hafi orðið til í sumar. „Ég hefði að sjál...
http://www.austurfrett.is/frettir/um-bord-i-nyjum-adalsteini-jonssyni-myndir
Um borð í nýjum Aðalsteini Jónssyni – Myndir Nýr Aðalsteinn Jónsson kom til hafnar á Eskifirði á mánudag. Það er stærsta fiskiskip Íslendinga. Skipverjar hafa í vikunni verið að gera skipið klárt til síldveiða. Skipið er keypt frá Noregi og var smíðað árið 2004 í Fitjar Mek Verksted. Það er hannað af Wärtsila í Finnlan...
http://www.austurfrett.is/frettir/kindurnar-tregar-heim-a-godhu-hausti
Kindurnar tregar heim á góðu hausti Austfirska sauðfjárbændur vantar enn töluver í safn sitt þrátt fyrir göngur í haust. Kindurnar virðast tregar heim þar sem haustið hefur verið sérstaklega gott. „Það vantaði víða mjög margt þegar ég var á Suðurfjörðum fyrir skemmstu og ég hef heyrt svipaðar sögur úr sveitum þar sem k...
http://www.austurfrett.is/frettir/baejarstjora-seydisfjardar-afhent-askorun-kennara-um-betri-kjor
Bæjarstjóra Seyðisfjarðar afhent áskorun kennara um betri kjör Vilhjálmur Jónsson tók í gær við undirskriftalista kennara við Seyðisfjarðarskóla og áskorun um betri kjör. Kennarar hafa lýst yfir miklum áhyggjum af nýliðun í stéttinni. Kennarar um allt land hafa síðustu daga safnað undirskriftum og afhent. Í áskoruninni...
http://www.austurfrett.is/frettir/lundunafluginu-haett-kannski-vorum-vid-adeins-of-snemma-a-ferdinni
Lundúnafluginu hætt: Kannski vorum við aðeins of snemma á ferðinni Breska ferðaskrifstofan Discover the World ætlar ekki að halda áfram beinu flugi milli Lundúna og Egilsstaða sem komið var á fyrir síðasta sumar. Samkeppni við flugfélög í gegnum Keflavík er erfið. „Kannski vorum við bara aðeins of snemma á ferðinni,“ e...
http://www.austurfrett.is/frettir/diana-mjoll-thad-sem-stod-upp-ur-var-ad-komast-i-tengingu-vid-heimamanninn
Díana Mjöll: Það sem stóð upp úr var að komast í tengingu við heimamanninn Fyrirtæki á sama sviði geta vel starfað saman en samt viðhaldið innri samkeppni. Ferðaklasinn Meet the Locals sem Tanni Travel á Eskifirði hefur byggt upp á Austurlandi síðustu ár er dæmi um það. „Við vorum árum saman búin að leita að austfirska...
http://www.austurfrett.is/frettir/6o-ar-lidhin-fra-silfurstoekki-vilhjalms-einarssonar
6o ár liðin frá silfurstökki Vilhjálms Einarssonar „Vegna smæðar byggðarlagsins kom ekki til greina að stunda neinar hópíþróttir. Það voru ekki nógu margir í neitt lið. Auk þess voru hinir fáu jafnaldrar mínir ekki sérlega hneigðir fyrir íþróttir flestir hverjir og ég einn um þær kúnstir í þorpinu lengi vel,“ segir Vil...
http://www.austurfrett.is/frettir/af-hverju-er-ekki-longu-buid-ad-tessu
„Af hverju er ekki löngu búið að þessu?“ „Þetta er félag þeirra sem vilja auka sýnileika sam- og tvíkynhneigðra, pankynhneigðra, asexual, intersex, transfólks og þeirra sem upplifa sig sem hinsegin á einhvern hátt,“ segja þær Kristrún Björg Nikulásdóttir, formaður félagsins og Sigurbjörg Lovísa Árnadóttir, og einn stof...
http://www.austurfrett.is/frettir/margret-gauja-ef-thu-vilt-verda-tannlaeknir-tharftu-ad-drepa-thann-sem-fyrir-er-a-stadnum
Margrét Gauja: Ef þú vilt verða tannlæknir þarftu að drepa þann sem fyrir er á staðnum Ungmenni á landsbyggðinni geta haft stórar hugmyndir um framtíð sína í heimabyggð en vita ekki endilega hvaða farveg þau geta fundið þeim. Mikill ávinningur fáist með því að veita þeim stuðning. „Þau vita að þau skortir frumkvæðið þv...
http://www.austurfrett.is/frettir/segja-ma-ad-vid-seum-eitt-af-boernum-kvenfelagsins
„Segja má að við séum eitt af börnum kvenfélagsins“ „Leikskólinn Lyngholt væri ekki það sem hann er í dag ef við hefðum ekki Kvenfélag Reyðarfjarðar,“ segir Lísa Lotta Björnsdóttir, leikskólastjóri leikskólans Lyngholts á Reyðarfirði, en kvenfélagið gaf skólanum skjávarpa í gær. „Kvenfélagið hefur verið bakhjarl leiksk...
http://www.austurfrett.is/frettir/thjonustuhus-risid-a-vatnsskardi
Þjónustuhús risið á Vatnsskarði Síðastliðinn föstudag var tekið í notkun þjónustuhús á Vatnsskarði sem einkum er ætlað ferðalöngum á leið í Stórurð. Húsið er eitt skrefið í uppbyggingu svæðisins. Það voru sveitarstjórarnir Jón Þórðarson, Borgarfirði og Björn Ingimarsson, Fljótsdalshéraði sem klipptu á borða og opnuðu þ...
http://www.austurfrett.is/frettir/ibuar-vesturbaejarins-einir-um-ad-vilja-flugvollinn-burt
Íbúar Vesturbæjarins einir um að vilja flugvöllinn burt Ekki er meirihluti fyrir flutningi Reykjavíkurflugvallar úr Vatnsmýrinni hjá öðrum en þeim sem eru búsettir vestan Kringlumýrarbrautar samkvæmt nýrri könnun sem gerð var fyrir Vegagerðina. Landsmenn eru sammála um að endurbætur á Hringveginum eru mest aðkallandi í...
http://www.austurfrett.is/frettir/meiri-kvoti-til-breiddalsvikur-fognum-thessari-nidurstodu
Meiri kvóti til Breiðdalsvíkur: Fögnum þessari niðurstöðu Oddviti Breiðdalshrepps gleðst yfir ákvörðun Byggðastofnunar um að bæta við 100 tonna byggðakvóta frá og með núverandi fiskveiðiári. Það eigi að duga til að tryggja áframhaldandi vinnslu á staðnum. Stjórn Byggðastofnunar ákvað á síðasta fundi sínum að auglýsa ef...
http://www.austurfrett.is/frettir/skrefi-naer-ad-thetta-verdi-ad-veruleika
„Skrefi nær að þetta verði að veruleika“ Skeftissmiðja Krossdals fékk fyrstu verðlaun í Ræsingu, nýsköpunarsamkeppni Nýsköpunarmiðstöðvar og Fljótsdalshéraðs. Frumkvöðullinn segir viðurkenninguna skipta máli fyrir framhald verkefnisins. Ræsing hefur verið haldin víða um land en í verkefninu fá þátttakendur 12 vikur til...
http://www.austurfrett.is/frettir/vid-erum-unga-folkid-sem-allir-eru-ad-tala-um
„Við erum unga fólkið sem allir eru að tala um“ Undirbúningsfundur vegna Byggðarástefnu ungra Austfirðinga verður haldinn á Borgarfirði eystra um næstu helgi. Ásta Hlín Magnúsdóttir, ein skipuleggjenda fundarins, segir mikilvægt að ungt fólk hittist til að ræða byggðamál. Áhugafólk um byggðaþróun á Austurlandi hefur ák...
http://www.austurfrett.is/frettir/oradi-ekki-fyrir-tessum-umsvifum
„Óraði ekki fyrir þessum umsvifum“ „Það er bara alveg brjálað að gera hérna á Borgarfirði, bæði í viðhaldi eldri húsa og nýrra verkefna,“ segir Björn Kristjánsson, húsasmíðameistari og hönnuður, en auglýsing frá honum birtist á heimasíðunni Borgafjörður eystri og auglýsir hann þar eftir starfskröftum í smíðavinnu. Í au...
http://www.austurfrett.is/frettir/atkvaedin-ad-austan-koma-seint
Atkvæðin að austan koma seint Atkvæði af Austurlandi vigta seint inn í úrslit úr Norðausturkjördæmi í þingkosningunum á morgun. Gerðar hafa verið ráðstafanir fyrir flutning atkvæða ef veður verður vont. Talningafólk lokar sig inni í Brekkuskóla á Akureyri klukkan átta annað kvöld þegar minnstu kjörstaðirnir loka. Þar v...
http://www.austurfrett.is/frettir/folk-bidur-adh-medaltali-i-tiu-ar-med-ad-leita-ser-hjalpar
„Fólk bíður að meðaltali í tíu ár með að leita sér hjálpar“ „Ég held að þetta verði voðalega kósý og það er mikilvægt að fólk á þessum minni stöðum sé ekki feimið við sín andlegu veikindi,“ segir Tara Ösp Tjörfadóttir, en ljósmyndaverkefnið „Faces Of Depression“ verður með myndatöku í boði Aloca Fjarðaráls, á Egilsstöð...
http://www.austurfrett.is/frettir/vid-viljum-gera-sjalf
„Við viljum gera sjálf“ Sýningin Að heiman og heim opnaði í Sláturhúsinu á Egilsstöðum síðastliðinn laugardag. Sýningin hefur síðustu ár snúist um útskriftar verk austfirskra listnema en í ár er áhersla á samtalið um innviðina sem þurfa að vera til staðar á svæðinu. „Við viljum tala um samfélagsgrundvöllinn og innviðin...
http://www.austurfrett.is/frettir/vidurkenningarnar-hvetja-til-snyrtimennsku-og-godrar-umgengni
Viðurkenningarnar hvetja til snyrtimennsku og góðrar umgengni Umhverfisviðurkenningar fyrir snyrktimennsku og umgengni voru veittar á Fljótsdalshéraði í haust. Björn Ingimarsson bæjarstjóri og Anna Alexandersdóttir forseti bæjarstjórnar afhentu verðlaunahöfum viðurkenningarskjal og blómvönd, en einnig munu þau fá skilt...
http://www.austurfrett.is/frettir/tetta-er-olidandi-astand
„Þetta er ólíðandi ástand“ Kirkjuklukkunum víða á Austurlandi verður hringt klukkan fimm síðdegis næstu daga til að vekja athygli á ástandinu í Sýrlandi og til að minnast þeirra sem látist hafa. Framtakið á upphaf sitt að rekja til finnska prestsins Teemu Laajasalo í Kallio sókn í lútersku kirkjunni í Finnlandi. Honum ...
http://www.austurfrett.is/frettir/helgi-omar-ef-reiknilikanid-er-snarvitlaust-eru-fjarveitingarnar-ekki-i-samhengi-vid-veruleikann
Helgi Ómar: Ef reiknilíkanið er snarvitlaust eru fjárveitingarnar ekki í samhengi við veruleikann Helgi Ómar Bragason, sem í sumar lét af störfum sem skólameistari Menntaskólans á Egilsstöðum eftir um 25 ára starf, segir erfitt að átta sig á þeim fjárheimildum sem ætlaðar séu til framhaldsskólanna. Stefnuleysi framboða...
http://www.austurfrett.is/frettir/sigmundur-david-landsspitalinn-rekur-arodur-sidustu-fjora-manudi-hvers-ars
Sigmundur Davíð: Landsspítalinn rekur áróður síðustu fjóra mánuði hvers árs Fyrsti þingmaður Norðausturkjördæmis segir stjórnendur Landsspítalans dreifa hörmungarsögum þaðan til að tryggja spítalanum aðgang að fjármagni. Sjúkrahúsmál séu meðal þeirra dýru en umdeildu kostnaðarsömu aðgerða sem ráðast þurfi í. „Margar he...
http://www.austurfrett.is/frettir/djupivogur-bedhidh-medh-uthlutanir-lodha-medhan-skipulag-er-klaradh
Djúpivogur: Beðið með úthlutanir lóða meðan skipulag er klárað Sveitarstjóri Djúpavogshrepps segir töluverðan áhuga á að fá íbúðalóðir og mögulega atvinnustarfsemi í þéttbýlinu. Beðið er með afgreiðslu þeirra meðan lokið er við deiliskipulag. „Það hefur verið töluverður áhugi. Ég held mér sé óhætt að fullyrða að fjórir...
http://www.austurfrett.is/frettir/aetla-ekki-adh-bidha-i-52-ar-eftir-soemu-launum-og-strakarnir-vidh-hlidhina-a-mer
Ætla ekki að bíða í 52 ár eftir sömu launum og strákarnir við hliðina á mér Konur dagsins í dag eru þakklátar þeim sem ruddu brautina í áttina að jafnari stöðu kynjanna en gera sér grein fyrir að halda verður áfram. Launamunur kynjanna er nú um 14% og virðist vera að aukast á ný. „Það er fokking fáránlegt að karlar fái...
http://www.austurfrett.is/frettir/atta-austfirdingar-a-lista-framsoknarflokksins
Átta Austfirðingar á lista Framsóknarflokksins Austfirðingar raða sér í þrjú efstu sætin á lista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson leiðir listann líkt og í síðustu kosningum. Í kjölfar hans fylgja síðan þingkonurnar Þórunn Egilsdóttir og Líneik Anna Sævar...
http://www.austurfrett.is/frettir/200-milljona-skuld-skorin-af-hsa
200 milljóna skuld skorin af HSA Ráðherra heilbrigðismála hefur samþykkt sérstaka fjárveitingu til Heilbrigðisstofnunar Austurlands til lækka gamlar skuldir stofnunarinnar. Uppsögn stofnunarinnar á samningum við sérfræðilækna var dregin til baka eftir íhlutun ráðuneytisins. HSA ákvað í lok sumars að hætta með heimsókni...
http://www.austurfrett.is/frettir/umhverfisvidurkenningar-veittar-i-fjardabyggd
Umhverfisviðurkenningar veittar í Fjarðabyggð Þrjá umhverfisviðurkenningar voru veittar í Fjarðabyggð í síðustu viku, en það var í fyrsta skipti sem sveitarfélagið veitir viðurkenningar af þeim toga. Viðurkenningar veittu þeir Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri og Jón Björn Hákonarson, formaður eigna-, skipulags- o...
http://www.austurfrett.is/frettir/ungmenni-i-fjardabyggd-kjosa-i-skuggakosningunum-a-laugardaginn
Ungmenni í Fjarðabyggð kjósa í „skuggakosningunum“ á laugardaginn „Þetta er gott tækifæri til þess að virkja krakkana til þess að hugsa um kosningar og pólitók áður en þau verða sjálf fullgildir kjósendur,“ segir Bjarki Ármann Oddsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi í Fjarðabyggð um „skuggakosningarnar“ sem verða samhli...
http://www.austurfrett.is/frettir/ferdamenn-stela-bannad-ad-tjalda-skiltum
Ferðamenn stela „bannað að tjalda“ skiltum Djúpavogshreppur hefur pantað ný skilti með áréttingum um að bannað sé að gista í tjöldum eða bílum þar sem hinum eldri hefur verið stolið. Sveitarstjórinn segir þörf á að árétta að aðeins skuli gist á merktum svæðum. „Þau hafa ekki horfið öll heldur nokkur. Ég held það sé ekk...
http://www.austurfrett.is/frettir/nemendur-vilja-fa-brunu-tunnuna-i-fjardabyggdh
Nemendur vilja fá „brúnu tunnuna“ í Fjarðabyggð Ég held að það skipti miklu máli að við förum að fá brúnu tunnuna, en þá þurfum við gráu tunnuna ekki einu sinni lengur, þarf bara að vera flokkað og matur, ekkert almennt,“ segir Marta Lovísa Kjartansdóttir, nemandi í 9. bekk í Grunnskóla Reyðarfjarðar. Nemendur 9. og 10...
http://www.austurfrett.is/frettir/axarvegur-lokadur
Axarvegur lokaður Vegurinn yfir Öxi er lokaður í dag og á morgun vegna ræsagerðar. Vegfarendur verða að finna aðrar leiðir milli Héraðs og Djúpavogs á meðan. Lokað var klukkan tíu í morgun og verður vegurinn lokaður til klukkan 19:00 á morgun, miðvikudag.
http://www.austurfrett.is/frettir/tveir-austfirdingar-a-lista-flokks-folksins
Tveir Austfirðingar á lista Flokks fólksins Tveir Austfirðingar eru á lista Flokks fólksins í Norðausturkjördæmi. Ástrún Lilja Sveinbjarnardóttir á Egilsstöðum skipar annað sæti listans. Hinn Austfirðingurinn er Elín Hermannsdóttir í Neskaupstað. Flokkur fólksins er eitt af tíu framboðum sem skiluðu inn framboðum í kjö...
http://www.austurfrett.is/frettir/salmonellufaraldur-teygir-sig-austur-a-land
Salmonellufaraldur teygir sig austur á land Matvælastofnun leitar skýringa á tíðari salmonellusýkingum en tíðkast hefur. Áberandi fjölgun er síðustu tvo mánuði sem meðal annars teygir anga sína austur á land. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Matvælastofnun. Þar segir að síðan í ágúst hafi tólf einstaklingar gre...
http://www.austurfrett.is/frettir/helgi-omar-sameining-me-og-eidaskola-mistokst-gjorsamlega
Helgi Ómar: Sameining ME og Eiðaskóla mistókst gjörsamlega Helgi Ómar Bragason, sem í sumar lét af störfum sem skólameistari Menntaskólans á Egilsstöðum eftir að hafa gegnt stöðunni í um aldarfjórðung, geðjast ekki að hugmyndum um sameiningar framhaldsskóla. Í honum situr bitur reynsla af sameiningu ME og Alþýðuskólans...
http://www.austurfrett.is/frettir/opinn-fundur-um-fiskeldismal
Opinn fundur um fiskeldismál Austurbrú stendur í dag fyrir opnum fundi um fiskeldismál á Djúpavogi þar sem rætt verður um fiskeldi frá ýmsum sjónarhornum. Meðal frummælenda er Guðmundur Gílason, framkvæmdastjóri Fiskeldis Austfjarða, Valgeir Ægir Ingólfsson frá Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða og sérfræðingar frá MAST, ...
http://www.austurfrett.is/frettir/skrifad-undir-samning-um-menningarhus-a-egilsstodum-godir-hlutir-gerast-haegt
Skrifað undir samning um Menningarhús á Egilsstöðum: Góðir hlutir gerast hægt Mennta- og menningarmálaráðuneytið og sveitarfélagið Fljótsdalshérað undirrituðu í gær viljayfirlýsing um uppbyggingu menningarhúss á Egilsstöðum. Loforð um það er að verða tuttugu ára gamalt. Annars vegar er gert ráð fyrir uppbyggingu mennin...
http://www.austurfrett.is/frettir/fyrr-myndi-eg-hoggva-af-mer-hondina-en-kjosa-islensku-thjodfylkinguna
„Fyrr myndi ég höggva af mér höndina en kjósa Íslensku þjóðfylkinguna“ Fulltrúar fjögurra flokka í Norðausturkjördæmi útiloka samstarf við Íslensku þjóðfylkinguna við myndun ríkisstjórnar eftir kosningar og saka hana um hatursfullan boðskap. Fulltrúi hennar segir hana ekki „flokk haturs.“ Þetta kom fram á framboðsfundi...
http://www.austurfrett.is/frettir/einn-austfirdingur-a-lista-dogunar
Einn Austfirðingur á lista Dögunar Guðríður Tryggvadóttir, afgreiðslumaður í Neskaupstað, er eini einstaklingurinn með lögheimili á Austurlandi sem sæti á á lista Dögunar í Norðausturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar. Hún skipar fjórða sæti listans. Listinn í heild sinni: 1. Sigurður Eiríksson, ráðgjafi, Eyjafjarðar...
http://www.austurfrett.is/frettir/vilja-hafa-sidasta-spolinn-fallegan
Vilja hafa síðasta spölinn fallegan Samvinnufélag útgerðarmanna (SÚN) og Olíusamlag útvegsmanna (OÚN) styrktu á dögunum félagið Bjarmann í Neskaupstað til kaupa á sérútbúnum útfararbíl af gerðinni Mercedes Bens Vito sem leysti af hólmi gamlan bíl sem var úr sér genginn. Félagið Bjarminn var stofnað af þremur félögum ár...
http://www.austurfrett.is/frettir/oryggi-eflt-a-fjardarheidi
Öryggi eflt á Fjarðarheiði Verktakar vinna um þessar mundir að endurbótum að veginum yfir Fjarðarheiði. Þar er fjölgað vegriðum og gengið betur frá í kringum veginn. „Aðgerðirnar fela meðal annars í að flatari vegfláa, breikka veg undir vegrið, lagfæringar á vegrásum og svæðum við hlið vegar ásamt ræsalögn.“ Vinnan ski...
http://www.austurfrett.is/frettir/thjodhfylkingin-ekki-medh-lista-i-nordhaustur
Þjóðfylkingin ekki með lista í Norðaustur Kjósendur í Norðausturkjördæmi geta valið milli tíu framboða í komandi þingkosningum. Íslenska þjóðfylkingin er ekki þar á meðal. Forsvarsmenn fylkingarinnar höfðu tilkynnt að hún myndi bjóða fram í öllum kjördæmum og síðast í gær ritaði einn þeirra á Facebook-síðu hennar að í ...
http://www.austurfrett.is/frettir/byggingarkranarnir-hafa-faert-sig-of-nalaegt-vatnsmyrinni
Byggingarkranarnir hafa fært sig of nálægt Vatnsmýrinni Frambjóðendur í Norðausturkjördæmi virðast sammála um að illa hafi staðið að lokun svokallaðrar neyðarbrautar á Reykjavíkurflugvelli. Sem fyrst verði að opna slíka braut í Keflavík til að tryggja sjúkraflug. Spurt var um afstöðu frambjóðenda til neyðarbrautarinnar...
http://www.austurfrett.is/frettir/fjorir-teknir-undir-ahrifum-fikniefna-i-umferdinni
Fjórir teknir undir áhrifum fíkniefna í umferðinni Lögreglan á Austurlandi tók fjóra einstaklinga undir áhrifum fíkniefna við umferðareftirlit í síðustu viku. Slökkvilið var kallað til á Hótel Héraði eftir að reykur barst úr ofni á neðstu hæð hússins. Slökkviliðið var kallað á staðinn á tólfta tímanum í gær eftir að br...
http://www.austurfrett.is/frettir/sigmundur-david-kom-ekki-til-greina-ad-fara-i-serframbod
Sigmundur Davíð: Kom ekki til greina að fara í sérframboð Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrum forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, er ákveðinn í að leiða flokkinn í komandi kosningabaráttu í Norðausturkjördæmi. Hann segist vilja einbeita sér að málefnum kjördæmisins á næsta kjörtímabili. Sigmundur beið læ...
http://www.austurfrett.is/frettir/nitjan-stadir-a-austurlandi-i-forgang-a-naesta-ari
Nítján staðir á Austurlandi í forgang á næsta ári Nítján staðir á Austurlandi eru meðal þeirra 140 sem eru á lista sem Umhverfis- og auðlindaráðuneytið lagði fram í morgun í drögum að áætlun um uppbyggingu innviða á ferðamannastöðum, um land allt, til verndar náttúru og menningarminjum. Í samræmi við bráðabirgðaákvæði ...
http://www.austurfrett.is/frettir/rikir-mega-verda-rikir-en-thurfa-ekki-ad-verda-ogedslega-rikir-a-okkar-kostnad
„Ríkir mega verða ríkir en þurfa ekki að verða ógeðslega ríkir á okkar kostnað“ Fjármunum í sjávarútvegi er ekki dreift til almennings. Ekki á að vera hættulegt að breyta kerfinu með að setja allan afla á markað segir frambjóðandi Pírata í Norðausturkjördæmi. Frambjóðandi Framsóknarflokksins segir að stíga verði varleg...
http://www.austurfrett.is/frettir/framkvaemdir-vid-strandblakvoll-kaerdar
Framkvæmdir við strandblakvöll kærðar Þrír íbúar á Vopnafirði hafa kært framkvæmdir við strandblakvöll í bænum til umhverfis- og auðlindaráðuneytisins. Þeir telja að skort hafi á samráð við aðdraganda framkvæmdarinnar. Í bréfi íbúanna til ráðuneytisins segir alvarlegt að ráðist hafi verið í framkvæmdina án grenndarkynn...
http://www.austurfrett.is/frettir/enn-framlengt-stoduleyfi-fyrir-starfsmannabudirnar
Enn framlengt stöðuleyfi fyrir starfsmannabúðirnar Stöðuleyfi fyrir starfsmannabúðir sem reistar voru við byggingu álvers Alcoa í Reyðarfirði hefur verið framlengt til næsta sumars. Unnið er að því að fjarlægja búðirnar. Framlenging stöðuleyfisins hefur orðið að árvissum viðburði síðan 2009 en álverið var gangsett í ma...
http://www.austurfrett.is/frettir/hjon-ur-vopnafirdi-a-lista-bjartrar-framtidar
Hjón úr Vopnafirði á lista Bjartrar framtíðar Fimm Austfirðingar eru á framboðslista Bjartrar framtíðar í Norðausturkjördæmi en listinn var opinberaður fyrir helgi. Efstur er Arngrímur Viðar Ásgeirsson, ferðaþjónustufrömuður á Borgarfirði sem skipar þriðja sætið. Á listanum eru einnig framhaldsskólakennararnir Stefán M...
http://www.austurfrett.is/frettir/frystihusid-prufukeyrt-15-november-aldrei-fleiri-starfsmenn-myndir
Frystihúsið prufukeyrt 15. nóvember: Aldrei fleiri starfsmenn - Myndir Hátt í 150 starfsmenn unnu að byggingu nýs frystihúss Eskju á Eskifirði í dag og hafa aldrei verið fleiri þar. Stefnt er að því að prufukeyra húsið um miðjan næsta mánuð með síld. „Það eru 146 starfsmenn á verkstaðnum í dag. Það er fjöldi sem við hö...
http://www.austurfrett.is/frettir/frambodsfundur-i-valaskjalf
Framboðsfundur í Valaskjálf Austurfrétt/Austurglugginn standa fyrir fundi með frambjóðendum fyrir Alþingiskosningarnar í Valaskjálf Egilsstöðum á morgun miðvikudag. Fundurinn hefst klukkan 20:00 og er öllum opinn. Að loknum stuttum framsöguræðum verður opnað fyrir spurningar úr sal. Fulltrúar frá Bjartri framtíð, Frams...
http://www.austurfrett.is/frettir/kristin-albertsdottir-vestur-a-firdi
Kristín Albertsdóttir vestur á firði Kristín Björg Albertsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands hefur verið skipuð forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða frá 1. nóvember næstkomandi. Ekki er ljóst hver tekur við starfinu eystra þá. Kristín Björg var ein fjögurra sem sótti um starfið vestra en sérstök ne...
http://www.austurfrett.is/frettir/mognud-makrilmet
Mögnuð makrílmet Sannkallað makrílstríð hefur geisað undanfarnar vikur og var þeim stærsta til þessa landað úr Berki NK síðastliðinn föstudag. Óvenjustór makríll barst óvenjustór makríll á landi í fiskiðjuver Síldarvinnslunnar í Neskaupstað og reyndar sá stærsti sem starfsfólk hafði augum litið, en hann vóg 1285 grömm....
http://www.austurfrett.is/frettir/ovist-um-aframhald-isfisks-a-breiddalsvik
Óvíst um áframhald Ísfisks á Breiðdalsvík Sveitarstjórn Breiðdalshrepps hefur áhyggjur af framtíð vinnslu Ísfisks á staðnum. Framkvæmdastjórinn segir forsendur vinnslunnar brostnar nema til komi meiri meðgjöf hins opinbera í formi kvóta eða breyttar reglur. „Að óbreyttu verðum við ekki með starfsemi á Breiðdalsvík í ve...
http://www.austurfrett.is/frettir/yndislegt-ad-vinna-skorpuvinnu-a-borgarfirdi
„Yndislegt að vinna skorpuvinnu á Borgarfirði“ „Ég er alveg viss um að allir fá innblástur af náttúrunni sem hér dvelja,“ segir Ásta Hlín Magnúsdóttir, en nú gefst öllum kostur á að leigja skrifstofuaðstöðu í Fjarðaborg í lengri eða skemmri tíma. Þetta er dæmi um afrakstur vinnu starfshóps sem skipaður var að sveitarst...
http://www.austurfrett.is/frettir/jon-bjorn-bydur-sig-fram-sem-ritara-framsoknarflokksins-mikilvaegt-ad-fara-samhent-ut-af-flokksthingi
Jón Björn býður sig fram sem ritara Framsóknar: Mikilvægt að fara samhent út af flokksþingi Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar, hefur tilkynnt um framboð sitt til ritara Framsóknarflokksins. Hann segir flokksmanna bíða það verk að kjósa forustu flokksins eftir bestu samvisku. „Eftir að hafa horft...
http://www.austurfrett.is/frettir/bill-brann-a-jokudal
Bíll brann á Jökudal Fólksbifreið gjöreyðilagðist eftir að eldur kom upp í henni á þjóðveginum um Jökuldal á sjötta tímanum í dag. Engin slys urðu á fólki. Kona með tvö börn var í bílnum og kom hún sér og börnunum út þegar hún sá hvað var að gerast. Atvikið átti sér stað skammt innan við Hofteig og var konan á leiðinni...
http://www.austurfrett.is/frettir/blak-spiludum-fullkominn-leik-myndir
Blak: Spiluðum fullkominn leik – Myndir Þróttur vann Stjörnuna tvisvar í Mizunodeild karla í blaki í Neskaupstað um helgina en þurfti að hafa mismikið fyrir sigrunum. Þjálfari liðsins lýsir fyrri leiknum sem fullkomnum. Þróttur vann fyrri leikinn á laugardag 3-0 eða 25-18, 25-20 og 25-7 í hrinum. Afgerandi sigur í síðu...
http://www.austurfrett.is/frettir/djupivogur-i-sameiningarvidraedum-rett-ad-lata-reyna-a-samtalid
Djúpivogur í sameiningarviðræðum: Rétt að láta reyna á samtalið Annar fundurinn í sameiningarviðræðum Djúpavogshrepps, sveitarfélagsins Hornafjarðar og Skaftárhrepps var haldinn á Kirkjubæjarklaustri á miðvikudag. Oddviti Djúpavogshrepps segir stuðning ríkisins geta ráðið miklu um framþróun viðræðnanna. „Hornfirðingar ...
http://www.austurfrett.is/frettir/kvidi-og-tunglyndi-vaxandi-medal-ungra-stulkna-gedhheilbrigdisdagur-a-austurlandi
Kvíði og þunglyndi vaxandi meðal ungra stúlkna: Geðheilbrigðisdagur á Austurlandi Málþing um geðheilbrigsðisþjóunustu á Austurlandi verður haldið í grunnskólanum á Reyðarfirði á laugardaginn, en það er samstarfsverkefni HSA, Félagsþjónustu Fjarðabyggðar og Fljótsdalshéraðs, ME, VA, Virk og StarfA. Sex erindi eru á dags...
http://www.austurfrett.is/frettir/blodgjoef-er-lifgjoef-blodbankinn-er-maettur-a-austurlandid
„Blóðgjöf er lífgjöf“: Blóðbankinn er mættur á Austurlandið „Það er Heilsueflingarnefndin sem stendur að þessu mikilvæga framtaki,“ segir Harpa Vilbergsdóttir, formaður Heilsueflingarnefndar Alcoa Fjarðaáls, en blóðbankinn var með móttöku fyrir starfsmenn álverslóðarinnar í dag en opið verður fyrir alla á morgun miðvik...
http://www.austurfrett.is/frettir/sjo-austfirdingar-a-lista-vidreisnar
Sjö Austfirðingar á lista Viðreisnar Sjö einstaklingar búsettir á Austurlandi eru á framboðslista Viðreisnar í Norðausturkjördæmi en listinn var kynntur fyrir helgi. Jens Hilmarsson, lögregluþjónn á Egilsstöðum, er efstur þeirra í þriðja sæti. Strax á eftir honum kemur síðan Ester Sigurðardóttir á Vopnafirði og í sjött...
http://www.austurfrett.is/frettir/bilvelta-a-fjardarheidi
Bílvelta á Fjarðarheiði Fjórir erlendir ferðamenn sluppu með skrekkinn þegar bifreið þeirra valt á Fjarðarheiði í morgun. Fyrsti snjórinn heilsaði á Fjarðarheiðinni og er útlit fyrir að ferðalangarnir hafi misst stjórn á bílnum í krapa en snjóþekja og slydda var á slysstað. Atvikið átti sér stað rétt fyrir klukkan tíu ...
http://www.austurfrett.is/frettir/husstjornarskolinn-fridlystur
Hússtjórnarskólinn friðlýstur Forsætisráðherra hefur friðlýst Handverks- og hússtjórnarskólann á Hallormsstað að fenginni tillögu Minjastofnunar Íslands. Friðlýsingin nær til ytra borðs skólahússins ásamt ásamt upprunalegum innréttingum í vefstofu, skrifstofu skólastjóra, anddyri og svokallaðri Höll, sem er samkomustað...
http://www.austurfrett.is/frettir/byggjum-afram-a-godu-samstarfi
„Byggjum áfram á góðu samstarfi“ Síldarvinnslan í Neskaupstað hefur aukið eignarhlut sinn í útgerðarfélaginu Runólfi Hallfreðssyni ehf. á Akranesi um helming en félagið gerir út Bjarna Ólafsson Ak. Síldarvinnslan heftur átt 38% í Runólfi frá árinu 2003 en félagið var upphaflega stofnað af hjónunum Runólfi Hallfreðssyni...
http://www.austurfrett.is/frettir/fulltruar-morgundagsins-vinna-ad-aukinni-umhverfisvitund
Fulltrúar morgundagsins vinna að aukinni umhverfisvitund „Mér þætti það allavega fáránlegt að menntastofnun sem að hefur það hlutverk að mennta fulltrúa morgundagsins beiti sér ekki fyrir því að berjast gegn einu stærsta vandamáli sem mannkynið stendur frammi fyrir sem að eru gróðurhúsaáhrifin,“ segir Sigurður Ingvi Gu...
http://www.austurfrett.is/frettir/gongumanni-bjargad-ur-sjalfheldu
Göngumanni bjargað úr sjálfheldu Björgunarsveitir á Austurlandi voru kallaðar út um miðjan dag í gær tli að aðstoða sem kominn var í sjálfheldu í Tungudal inn af Fáskrúðsfirði. Vegna mikilla vatnavaxta hafði hækkað í á sem maðurinn treysti sér ekki yfir. Björgunarsveitarmenn komu manni og línu yfir vatnsfallið. Gönguma...
http://www.austurfrett.is/frettir/stjornvoeld-hvoett-til-adh-storauka-framloeg-til-skograektar
Stjórnvöld hvött til að stórauka framlög til skógræktar Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands var haldinn á Djúpavogi fyrir stuttu en þar var ályktað um eflingu skógræktar á næstu fimm árum. Um 120 félagsmenn úr aðildarfélögum Skógræktarfélags Íslands tóku þátt í fundinum. Samþykkt var ályktun um eflingu skógræktar þar s...
http://www.austurfrett.is/frettir/varadh-vidh-rigningu-i-kvoeld-ekkert-sem-innfaeddir-austfirdhingar-eiga-ekki-adh-venjast
Varað við rigningu í kvöld: Ekkert sem innfæddir Austfirðingar eiga ekki að venjast Veðurstofan varar við úrkomu á Austfjörðum í kvöld og stormi í fyrramálið. Enn á eftir að bæta í þá rigningu sem verið hefur í dag en mest úrkoman ætti að ganga hratt yfir. „Þessum viðvörunum er sérstaklega beint til ferðamanna sem eru ...