Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
http://www.austurfrett.is/frettir/hardhgerdhur-tyrki-tjaldar-a-egilsstoedhum
Harðgerður Tyrki tjaldar á Egilsstöðum Það vakti óskipta athygli starfsmanns Austurfréttar, þegar hann kom til vinnu í morgun, að reist hafði verið tjald utan undir húsvegg á gamla KHB húsinu í miðbæ Egilsstaða. Á ellefta tímanum lét svo tjaldbúinn sjá sig og var hinn sprækasti. Ferðalangurinn reyndist vera ungur Tyrki...
http://www.austurfrett.is/frettir/utlit-fyrir-kalda-viku
Útlit fyrir kalda viku Útlit er fyrir að Austfirðingar þurfi að klæða sig vel ætli þeir að vera úti við í vikunni. Spáð er um tíu stiga frosti flest alla daga. Samkvæmt veðurspá er útlit fyrir austlægar áttir og 8-15 stiga frost. Útlit er fyrir að kaldast verði á Héraði á miðvikudagskvöld. Á Egilsstöðum var 10 stiga fr...
http://www.austurfrett.is/frettir/mistok-vid-daelingu-komu-birtingi-a-hlidina-i-reykjavikurhofn
Mistök við dælingu komu Birtingi á hliðina í Reykjavíkurhöfn Mistök við dælingu úr lestartönkum Birtings áttu upptökin að keðjuverkun sem varð til þess að skipið hallaði og reyk lagði frá því í Reykjavíkurhöfn í lok ágúst. Þetta er niðurstaða Rannsóknarnefndar sjóslysa sem skilaði nýverið lokaskýrslu sinni um atvikið. ...
http://www.austurfrett.is/frettir/djupavogshreppur-syknadur-af-skadabotakrofu-hluthafa-kvennasmidjunnar
Djúpavogshreppur sýknaður af skaðabótakröfu hluthafa Kvennasmiðjunnar Djúpavogshreppur og tveir einstaklingar sem sátu á vegum hreppsins í stjórn Kvennasmiðjunnar ehf. hafa verið sýknaður af tæplega átta milljóna skaðabótakröfu minnihluta eigenda í félaginu. Þeir töldu sig hafa orðið fyrir skaða með að fá ekki að njóta...
http://www.austurfrett.is/frettir/vatnid-komid-i-lag-a-seydisfirdi
Vatnið komið í lag á Seyðisfirði Viðgerð er að fullu lokið á tækjabúnaði í vatnshreinsistöð Vatnsveitu Seyðisfjarðar og þurfa íbúar því ekki lengur að sjóða neysluvatn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bænum í morgun. Gerlamengun mældist yfir mörkum í sýnum sem tekin voru á fimmtudag og var íbúum í kjölfarið ráðlagt ...
http://www.austurfrett.is/frettir/hofsjokli-og-thrandarjokli-verdur-ekki-bjargard
Hofsjökli og Þrándarjökli verður ekki bjargað Hofsjökull eystri mun hverfa á fáum áratugum og Þrándarjökull verður innan tíðar heldur ekki talinn meðal íslenskra jökla vegna hlýnunar jarðar. Þeir hafa meira en helmingast undanfarna öld. „Staða þessara jökla er grafalvarleg. Undanhaldið verður afar bratt þegar þeir eru ...
http://www.austurfrett.is/frettir/sigrun-blondal-hver-vill-vera-mamman-sem-fjarlaegdi-leiktaekin
Sigrún Blöndal: Hver vill vera mamman sem fjarlægði leiktækin? Konur í sveitastjórnum þurfa oft að velja á milli vinnunnar, fjölskyldunnar og stjórnmálanna. Það gerir þær margar afhuga stjórnmálunum. Ýmis önnur streita sem fylgir gerir starfið ekki aðlaðandi. Seta í sveitarstjórnum verði að flokkast sem starf en ekki á...
http://www.austurfrett.is/frettir/felagasamtok-vilja-kaupa-barnaskolann-a-eidum
Félagasamtök vilja kaupa barnaskólann á Eiðum Bæjarráð Fljótsdalshéraðs hefur falið bæjarstjóra að ræða við tvö félagasamtök í Eiðaþinghá sem vilja kaupa gamla barna- og leikskólann á Eiðum. Þetta var samþykkt á fundi bæjarráðs í gær þar sem tekið var fyrir 23ja milljóna boð Búnaðarfélags Eiðaþinghár og Kvenfélags Eiða...
http://www.austurfrett.is/frettir/dennis-quaid-og-michelle-fairley-fara-med-adalhlutverkin-i-fortitude
Dennis Quaid og Michelle Fairley fara með aðalhlutverkin í Fortitude Stórleikarinn Dennis Quaid mun leika eitt aðalhlutverkanna í annarri þáttaröð af Fortitude, en tökur hefjast á Reyðarfirði næstkomandi þriðjudag. Persóna Quaids heitir Michael Lennox og verður kona hans, Freya Lennox, leikin af Michelle Fairley. Denni...
http://www.austurfrett.is/frettir/vegurinn-um-berufjardarbotn-tilbuinn-til-utbods
Vegurinn um Berufjarðarbotn tilbúinn til útboðs Vegagerðin er tilbúin að bjóða út nýjan veg um Berufjarðarbotn eftir að Skipulagsstofnun staðfesti nýtt skipulag fyrir svæðið. Stærsti hluti framkvæmdarinnar er brú yfir Berufjörð sem styttir leiðina umtalsvert. Um leið verður hægt að aka hringinn í kringum Ísland á bundn...
http://www.austurfrett.is/frettir/gistinottum-i-november-fjolgadi-mest-eystra
Gistinóttum í nóvember fjölgaði mest eystra Gistinóttum á hótelum á Austurlandi í nóvembermánuði fjölgaði um 46% á milli ára samkvæmt tölum Hagstofunnar. Þetta er mesta aukning á landinu í mánuðinum. Gistinæturnar eru þó enn fæstar eystra. Gistinætur í nóvember 2015 á Austurlandi voru 2.829 talsins en voru 1.942 í sama...
http://www.austurfrett.is/frettir/sektadur-fyrir-ad-sigla-an-rettinda
Sektaður fyrir að sigla án réttinda Lögreglustjórinn á Austurlandi hefur sektað karlmann á þrítugsaldri fyrir að hafa farið í veiðiferð án þess að hafa tilskilin réttindi. Maðurinn réri til fiskjar sem skipstjóri á smábát í júní. Hann var um 15 sjómílur austur af Norðfjarðarhorni þegar skipverjar á varðskipinu Þór höfð...
http://www.austurfrett.is/frettir/jardhitaleit-i-fjardabyggd-gefur-tilefni-til-nanari-rannsokna
Jarðhitaleit í Fjarðabyggð gefur tilefni til nánari rannsókna Jarðhitaleit á Norðfirði, Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði gefur fyrirheit til frekari rannsókna. Þar virðast finnast álíka heit svæði og á Eskifirði en þar fannst vatnsæð sem hefur séð bænum fyrir heitu vatni í tæp tíu ár. Þetta kemur fram í áfang...
http://www.austurfrett.is/frettir/heitar-umraedhur-i-jafnrettisviku-me
Heitar umræður í jafnréttisviku ME Jafnréttisnefnd Menntaskólans á Egilsstöðum, í samstarfi við Nemendafélag ME og Femínistafélag ME, hefur í vikunni staðið fyrir jafnréttisviku í þeim tilgangi að fræða og efla umræðu um jafnréttismál innan skólans. „Það var fjölbreytt dagskrá í boði. Það var sýndur sjónvarpsþáttur um ...
http://www.austurfrett.is/frettir/stefna-fjordungssjukrahussins-motud-til-lengri-tima-her-verdur-thad
Stefna Fjórðungssjúkrahússins mótuð til lengri tíma: Hér verður það Vinna er að hefjast við framtíðarstefnumótun fyrir Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað (FSN). Stjórnendur í Neskaupstað virðast ánægðir með nýtt fólk í framkvæmdastjórn Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA). „Sjúkrahúsið er mikið stolt okkar og við v...
http://www.austurfrett.is/frettir/eva-mjoll-rekstrarstjori-fsn-til-hausts
Eva Mjöll rekstrarstjóri FSN til hausts Eva Mjöll Þorfinnsdóttir hefur verið ráðin tímabundið í starf rekstrarstjóra Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað (FSN). Stjórnendur HSA segja horfa til betri vegar í læknamálum sjúkrahússins. Þeir telja mikilvægt að renna frekari stoðum undir heilsugæsluna í Fjarðabyggð með bygg...
http://www.austurfrett.is/frettir/fyrsta-lodnan-til-neskaupstadar
Fyrsta loðnan til Neskaupstaðar Polar Amaroq kom með fyrstu loðnu ársins í Neskaupstað á laugardag. Aflinn var 710 tonn af frosinni loðnu og 30 tonn af fráflokkaðri sem fór í mjöl- og lýsisvinnslu. Aflinn fékk norðaustur af Langanesi og fór skipið strax aftur til veiða um kvöldið. Það er gert út af grænlenskri útgerð s...
http://www.austurfrett.is/frettir/rullandi-snjobolti-tilnefndur-til-eyrarrosarinnar-2016
Rúllandi snjóbolti tilnefndur til Eyrarrósarinnar 2016 Samtímalistasýningin Rúllandi snjóbolti á Djúpavogi er eitt þeirra verkefna sem hlýtur tilnefningu til Eyrarrósarinnar í ár. Rúllandi snjóbolti er samstarfsverkefni Djúpavogshrepps og CEAC (Chinese European Art Center) og hefur verið haldin frá árinu 2014 í gömlu B...
http://www.austurfrett.is/frettir/jon-loftsson-vidskiptin-vid-grundartanga-breyta-islenskri-skograekt
Jón Loftsson: Viðskiptin við Grundartanga breyta íslenskri skógrækt Jón Loftsson, fráfarandi skógræktarstjóri, segir rekstrarumhverfi íslenskrar skógræktar hafa gerbreyst þegar Járnblendiverksmiðjan á Grundatanga hóf að kaupa innlendan grisjunarvið til orkunotkunar. Grisjun skóganna standi nú undir sér. Eftir hrun vild...
http://www.austurfrett.is/frettir/skortur-a-ibudum-og-skrifstofum-a-djupavogi
Skortur á íbúðum og skrifstofum á Djúpavogi Sveitarstjóri Djúpavogshrepps segir húsnæðisskort vera orðinn í sveitarfélaginu. Sveitarfélagið reynir að liðsinna þeim sem þangað vilja flytja til að starfa eða byggja upp atvinnu. Þetta kemur fram í ávarpi Gauta Jóhannessonar, sveitarstjóra, í nýjasta tölublaði Bóndavörðunn...
http://www.austurfrett.is/frettir/jon-loftsson-ekki-einfalt-ad-flytja-skograektina-austur
Jón Loftsson: Ekki einfalt að flytja Skógræktina austur Jón Loftsson lét af embætti skógræktarstjóra um síðustu áramót vegna aldurs og þakkar fyrir sig með mikilli skógræktarráðstefnu á morgun. Fyrsta verk hans í embætti fyrir 25 árum var að fylgja eftir ákvörðun Alþingis um að flytja aðalskrifstofu Skógræktar ríkisins...
http://www.austurfrett.is/frettir/i-fortidinni-kann-framtid-thessa-stadar-ad-leynast
„Í fortíðinni kann framtíð þessa staðar að leynast“ Aldursgreining liggur nú fyrir á viðarkolsýni sem sent var til rannsóknar úr húsarústum sem fundust við fornleifauppgröft á Stöð í Stöðvarfirði í nóvember. Dr. Bjarni F. Einarsson forleifafræðingur á Fornleifafræðistofunni segir að sýnið sé frá 9. öld. „Nánar tiltekið...
http://www.austurfrett.is/frettir/hsa-daudadomur-ad-hjakka-afram-i-sama-fari-serfraedithjonustunnar
HSA: Dauðadómur að hjakka áfram í sama fari sérfræðiþjónustunnar Hluti þess fjár sem Heilbrigðisstofnun Austurlands er ætlað til að sinna grunnþjónustu er nýttur til að kaupa þjónustu sérfræðinga. Stjórnendur stofnunarinnar segja núverandi kerfi sérfræðilækna ekki geta gengið lengur. Ekki gangi að sérfræðilæknar séu ei...
http://www.austurfrett.is/frettir/samid-vid-hljodkerfaleiguna-um-rekstur-egilsbudar
Samið við hljóðkerfaleiguna um rekstur Egilsbúðar Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur samþykkt drög að samningi við G.V. Hljóðkerfi ehf. um leigu á félagsheimilinu Egilsbúð. Ekki verður föst veitingasala í húsinu. Frá þessu skýrði Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, á íbúafundi í Neskaupstað í gærkvöldi. Han...
http://www.austurfrett.is/frettir/nanari-samvinna-austurgluggans-og-austurfrettar
Nánari samvinna Austurgluggans og Austurfréttar Náin samvinna hefur verið milli vikublaðsins Austurgluggans og netmiðilsins Austurfréttar í tæp tvö ár. Samvinnan hefur nú aukist enn frekar þar sem ritstjórnir hafa verið sameinaðar. Samstarfið hófst með samningi um að Austurfrétt sinnti efnisvinnslu fyrir Austurgluggann...
http://www.austurfrett.is/frettir/tad-verdur-ad-hofda-til-samvisku-folks-i-tessu
„Það verður að höfða til samvisku fólks í þessu“ Samkvæmt könnun er Fáskrúðsfjörður annar þeirra tveggja staða sem hefur með afgerandi hætti bætt aðbúnað barna í bílum síðastliðin tvö ár. Þetta er meðal þess sem niðurstaða könnunar á öryggi barna í bílum við leikskóla sem Slysavarnafélagið Landsbjörg, Sjóvá, VÍS og Sam...
http://www.austurfrett.is/frettir/minjagildid-ekki-tryggt
Minjagildið ekki tryggt Útlit er fyrir að 20-25 tjón í óveðrunum milli jóla og nýárs falli undir bótaskyldu Viðlagatryggingar Íslands. Fyrst og fremst er um að ræða tjón í Fjarðabyggð. Fulltrúar Viðlagatryggingar komu austur í síðustu viku og stóðu fyrir fundum í Fjarðabyggð og á Breiðdalsvík til að fara yfir málin. Í ...
http://www.austurfrett.is/frettir/blak-otrulegur-tolf-stiga-kafli-throttar-i-mikilvaegum-sigri-a-stjornunni
Blak: Ótrúlegur tólf stiga kafli Þróttar í mikilvægum sigri á Stjörnunni Kvennalið Þróttar vann um helgina mikilvægan 3-0 sigur á Stjörnunni í baráttunni um þriðja sætið í Mizuno-deild kvenna. Fyrsta hrina virtist töpuð en Þróttur snéri henni sér í vil með því að skora tólf stig í röð. Hrinan virtist töpuð í stöðunni 1...
http://www.austurfrett.is/frettir/hilda-jana-viljum-vinna-med-heimafolki-ad-nyjum-thattum
Hilda Jana: Viljum vinna með heimafólki að nýjum þáttum Hilda Jana Gísladóttir, sjónvarpsstjóri N4, segir unnið að því að tryggja að áfram verði þáttur með austfirsku efni á sjónvarpsstöðinni. Síðasti þátturinn af Glettum að austan í stjórn Gísla Sigurgeirssonar fór í loftið í gærkvöldi. „Við leggjum áherslu á að ný þá...
http://www.austurfrett.is/frettir/riduafbrigdi-greint-a-bae-i-berufirdi
Riðuafbrigði greint á bæ í Berufirði Riðuafkvæmið Nor98 fannst nýverið í kind frá bænum Kelduskógum í Berufirði. Ekki er talin þörf á að skera niður fjárstofninn á bænum. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Matvælastofnun sendi frá sér í dag. Riðan kom fram við reglulega skimun. Nor98 er kölluð afbrigðileg riða en ranns...
http://www.austurfrett.is/frettir/gamla-lysingin-var-ekki-logleg
„Gamla lýsingin var ekki lögleg“ Gagngerar endurbætur hafa verið gerðar á lýsingunni í íþróttahússins á Fáskrúðsfirði. Hefur ljósmagnið verið tvöfaldað og jafnvel þrefaldað þar sem mest lætur. Lélega lýsingu íþróttasalarins má í megindráttum rekja til þess að stuðst var við óbeina lýsingu í sitt hvorri hlið salarins. F...
http://www.austurfrett.is/frettir/stada-heilbrigdismala-i-fjardabyggd-i-brennidepti
Staða heilbrigðismála í Fjarðabyggð í brennidepli Kritsín Björg Albertsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands, situr ásamt öðrum stjórnendum HSA fyrir svörum á íbúafundi sem fram fer í Neskaupstað í kvöld. Fundurinn hefst á framsögu Kristínar Bjargar um stöðu heilbrigðismála í Fjarðabyggð og áherslur HSA. Þ...
http://www.austurfrett.is/frettir/umbodsmadur-althingis-urskurdar-saudhfjarbaendum-a-jokuldal-i-vil-gegn-raduneyti
Umboðsmaður Alþingis úrskurðar sauðfjárbændum á Jökuldal í vil gegn ráðuneyti Umboðsmaður Alþingis telur að atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hafi ekki staðið rétt að málum þegar það vísaði frá stjórnsýslukæru þeirra gegn Matvælastofnun. Stofnunin ætlaðist til að bændurnir gerðu nýja landnýtingaráætlun eftir nýjum l...
http://www.austurfrett.is/frettir/4125-leitad-ad-myglu-i-kennslustofum-i-fellaskola
Leitað að myglu í kennslustofum í Fellaskóla Sýnatökur í tveimur kennslustofum Fellaskóla benda til þess að myglusveppur sé þar til staðar. Sjáanleg mygla hefur ekki fundist en ráðist hefur verið í hreinsun og viðgerðum á kennslustofunum tveimur. Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs, segir að ráðist hafi ver...
http://www.austurfrett.is/frettir/4120-loegreglan-stodvadi-leyfislausa-folksflutninga
Lögreglan stöðvaði leyfislausa fólksflutninga Lögreglan á Egilsstöðum sektaði í dag erlendan ferðamann sem tók upp í farþega á sérútbúinn vörubíl án þess að hafa nokkur leyfi til fólksflutninga. Ökumaðurinn hafði útbúið gám aftan á bílinn með plássi fyrir farþega. Þegar lögreglan hafði afskipti af honum sátu sex þar en...
http://www.austurfrett.is/frettir/4117-fulltruar-vidlagatryggingar-koma-austur
Fulltrúar Viðlagatryggingar koma austur Fulltrúar Viðlagatryggingar Íslands taka á móti tilkynningum um tjón í óveðrunum á milli jóla og nýárs í Fjarðabyggð á morgun. Í tilkynningu frá stofnuninni segir að flóð og skriður hafi valdið talsverðum skemmdum á vátryggðum eignum, bæði hjá einstaklingum og sveitarfélaginu. Tj...
http://www.austurfrett.is/frettir/4146-sjo-austfirdingar-fa-listamannalaun
Átta Austfirðingar fá listamannalaun Sjö tónskáld og hönnuðir auk myndlistarmanns, sem ýmist búa í fjórðungnum eða eiga þar rætur, eru meðal þeirra sem hljóta listamannalaun í ár. Hæsta styrkinn af þeim fær Svavar Pétur Eysteinsson, gjarnan titlaður Prins Póló. Svavar Pétur fær sex mánaða laun úr launasjóði tónskálda e...
http://www.austurfrett.is/frettir/4124-med-nyfaeddan-son-sinn-i-thyrluflug-faedingin-var-besta-jolagjofin
Með nýfæddan son sinn í þyrluflug: Fæðingin var besta jólagjöfin Litli drengurinn þeirra Jóhönnu Sigfúsdóttur og Sveins Gunnars Guðmundssonar hefur lent í fleiri ævintýrum en flestir jafnaldrar hans, en aðeins tveggja daga gamall þurfti hann að komast undir læknishendur í Reykjavík sem var erfitt vegna mikil veðurofsa....
http://www.austurfrett.is/frettir/4119-tugmilljona-tjon-a-austfirskum-vegum-i-ovedrunum
Tugmilljóna tjón á austfirskum vegum í óveðrunum Tug milljóna tjón varð á vegum á Austurlandi í óveðrunum sem gengu yfir fjórðunginn á milli jóla og nýárs. Skemmdir urðu víða, mest af völdum vatns og ágangs sjávar. Ekki er enn búið að meta skemmdirnar til fulls. Þetta kemur fram í frétt á vef Vegagerðarinnar. Þar kemur...
http://www.austurfrett.is/frettir/4116-adalsteinn-jonsson-aftur-a-sjo-um-helgina
Aðalsteinn Jónsson aftur á sjó um helgina Fiskiskipið Aðalsteinn Jónsson er komið til Akureyrar þar sem gert verður við skemmd sem kom á skipið í óveðrinu milli jóla og nýárs. Þorsteinn Kristjánsson, forstjóri Eskju, segir að gat hafi komið á síðuna rétt við sjólínu og við það skemmst 5-6 síðubönd alveg aftast á síðunn...
http://www.austurfrett.is/frettir/4126-foktjon-a-bifreidum-ekki-baett
Foktjón á bifreiðum ekki bætt Hvorki Viðlagatrygging né tryggingafélögin tryggja foktjón sem varð á bifreiðum í óveðrinu sem gekk yfir Austfirði síðasta fimmtudagsmorgun. „Það var mikið tjón á bílum, einkum Stöðvarfirði, sem ekki er bætt,“ segir Hulda Ragnheiður Árnadóttir framkvæmdastjóri Viðlagatryggingar. Stofnunin ...
http://www.austurfrett.is/frettir/4123-david-tencer-frelsid-verdur-ad-rikja-fra-badum-hlidum
David Tencer: Frelsið verður að ríkja frá báðum hliðum Biskup kaþólskra á Íslandi telur umræðu um trúfrelsi á Íslandi vera farna að snúast upp í að sótt sé að trúuðum. Afleiðingarnar séu þær að menn verði hræddari við að játa trú sína og það hafi áhrif á menningu þjóðarinnar, til dæmis jólahaldið. „Ég held að það séu e...
http://www.austurfrett.is/frettir/4118-sildarvinnslan-hugar-ad-naesta-nyja-skipi
Síldarvinnslan hugar að næsta nýja skipi Stjórn Síldarvinnslunnar hefur hafið undirbúning að endurnýjun bolfiskskipa fyrirtækisins. Eins stendur til að auka afköst landvinnslunnar verulega. Frá þessu skýrði forstjórinn Gunnþór Ingvason, þegar tekið var á móti nýjum Beiti í Norðfjarðarhöfn um jólin. Á síðustu sex árum h...
http://www.austurfrett.is/frettir/4115-flugferdum-austur-a-ekki-ad-faekka-med-nyjum-velum
Flugferðum austur á ekki að fækka með nýjum vélum Forstjóri Flugfélags Íslands býst við að félagið haldi að mestu óbreyttri áætlun á flugferðum milli Reykjavíkur og Egilsstaða þótt fyrirtækið taki á næstunni í notkun nýjar og stærri vélar. „Þetta mun hafa þau áhrif að með því að hafa möguleikann á stærri vélum erum við...
http://www.austurfrett.is/frettir/4109-bjorgolfur-hjorleifur-og-steinunn-medal-falkaorduhafa
Björgólfur, Hjörleifur og Steinunn meðal fálkaorðuhafa Hjörleifur Guttormsson, þingmaður Austfjarða í áraraðir, var meðal þeirra ellefu sem forseti Íslands sæmdi heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu í dag. Fyrrum forstjóri Síldarvinnslunnar og fyrrum forstöðumaður Minjasafns Austurlands voru einnig í hópnum. Hjörleif...
http://www.austurfrett.is/frettir/4106-tekid-til-eftir-storminn-a-eskifirdi-myndir
Tekið til eftir storminn á Eskifirði – Myndir Mikið tjón varð á Eskifirði í morgun þegar ein alversta lægð sem Austfirðingar hafa kynnst gekk yfir svæðið. Eftir hádegi var unnið að því að taka til og lappa upp á það sem hægt var eftir storminn. Um leið og komið var yfir Hólmahálsinn tók að bera á athöfnum í bænum en þr...
http://www.austurfrett.is/frettir/4103-rafmagn-er-komid-a-aftur-i-neskaupstad
Rafmagn er komið á aftur í Neskaupstað Í hádeginu tókst að spennusetja Neskaupsstaðarlínu 1, milli Eskifjaðrar og Neskaupstaðar, að nýju en hún sló út á níunda tímanum í morgun. Í tilkynningu frá Landsneti segir að erfiðlega hafi gengið kanna ástæðu bilunarinnar vegna veðurs en rétt fyrir hádegi kom í ljós að fok aðsko...
http://www.austurfrett.is/frettir/4100-eins-og-malbikid-hafi-lyfst-upp-af-hringveginum
Eins og malbikið hafi lyfst upp af Hringveginum Hringvegurinn er stórskemmdur sunnan við Breiðdalsvík eftir veður næturinnar. Skemmdir hafa einnig orðið á hafnarsvæðinu og aðstöðu sveitarfélagsins. „Það er eins og malbikið hafi lyfst upp og færst,“ segir Ingólfur Finnsson, björgunarsveitarmaður á Breiðdalsvík. Þegar Au...
http://www.austurfrett.is/frettir/4108-stodfirdingar-hjalpudust-ad-i-allan-dag-vid-ad-hreinsa-eftir-ovedrid-myndir
Stöðfirðingar hjálpuðust að í allan dag við að hreinsa eftir óveðrið – Myndir Stöðfirðingar fóru af stað í birtingu og voru að fram í myrkur til að hreinsa þorpið eftir ofsaveðrið sem gekk yfir Austfirði í gærmorgun. Íbúi segir mikið tjón hafa orðið þar. „Fólk var að í allan gærdag á meðan var bjart og byrjaði strax kl...
http://www.austurfrett.is/frettir/4310-pall-bjorgvin-bjorgunarsveitirnar-okkar-eru-otrulegar
Páll Björgvin: Björgunarsveitirnar okkar eru ótrúlegar Bæjarstjóri Fjarðabyggðar segist þakklátur öllum þeim viðbragðsaðilum og fjölda sjálfboðaliða sem komið hafi að björgunaraðgerðum um allt sveitarfélagið í ofsaveðrum síðustu daga. Hann segir íbúa þakkláta fyrir að veðrið sé gengið yfir. „Maður er snortinn yfir gríð...
http://www.austurfrett.is/frettir/4307-stoedhvarfjoerdhur-halft-soexuver-horfidh-og-thakploetur-a-ferdhinni
Stöðvarfjörður: Hálft Söxuver horfið og þakplötur á ferðinni Lögreglumenn eru á leið á Stöðvarfjörð til að kanna skemmdir sem orðið hafa þar í óveðri í nótt. Þakplötur fuku af frystihúsinu og gömul verðbúð er að hálfu horfin. Íbúi segist ekki hafa upplifað annað eins þann aldarfjórðung sem hann hefur búið í þorpinu. „V...
http://www.austurfrett.is/frettir/4302-enn-baetir-i-vindinn-lausar-thakploetur-a-alverinu
Enn bætir í vindinn: Lausar þakplötur á álverinu Björgunarsveitir voru kallaðar út um klukkan sex í morgun til að aðstoða við hefta fok á þakplötum af álverinu í Reyðarfirði. Þær upplýsingar fengust hjá Fjarðaáli að plötur hefðu verið að fjúka að skrifstofubyggingu álversins. Fokið hefði ekki verið alvarlegt en aðstoð ...
http://www.austurfrett.is/frettir/4107-beint-ur-bjorgunaradgerdum-i-flugeldasolu-heldur-mest-upp-a-gunnlaug-ormstungu
Beint úr björgunaraðgerðum í flugeldasölu: Heldur mest upp á Gunnlaug ormstungu Björgunarsveitarmenn á Eskifirði hafa staðið í ströngu í vikunni bæði í útköllum vegna veðurofsans en einnig við sína helstu fjáröflun, flugeldasöluna. Formaðurinn segir gott að geta nú loks einbeitt sér að flugeldunum. „Líðanin er nokkuð g...
http://www.austurfrett.is/frettir/4104-allsherjar-hreingerning-bidur-a-breiddalsvik-myndir
Allsherjar hreingerning bíður á Breiðdalsvík – Myndir Íbúi á Breiðdalsvík segir mikið hreinsunarstarf bíða heimamanna eftir óveðrið þegar lægir. Klæðning fór af um kílómeters kafla af Hringveginum þar í nótt og klæðning fauk af stafni á gömlu félagsheimili. „Maður hættir sér ekki mikið út í þetta veður en sér að það þa...
http://www.austurfrett.is/frettir/4101-eskifjordur-litur-ut-eins-og-stridssvaedi-myndir
Eskifjörður: Lítur út eins og stríðssvæði – Myndir Mikil eyðilegging hefur orðið á Eskifirði þar sem tvær gamlar bryggjur og sjóhús hafa eyðilagst í veðrinu í morgun. Sjórinn hefur einnig skemmt veginn við brúna yfir Eskifjarðará. „Þetta er eins og stríðssvæði. Það er brak og rusl og jarðvegur og grjót,“ segir björguna...
http://www.austurfrett.is/frettir/4303-hafid-raedur-gamlar-bryggjur-farnar-a-eskifirdi-og-ottast-um-sjohusin
Hafið ræður: Gamlar bryggjur farnar á Eskifirði og óttast um sjóhúsin Tvær gamlar bryggjur eru foknar á haf út eftir óveður næturinnar og óttast er um afdrif sjóhúsanna sem þykja aðalsmerki bæjarins. Við Mjóeyri hefur sjórinn étið þrjá metra af eyrinni. „Það eru tvær sjóhúsabryggjur farnar í utanverðum miðbænum og því ...
http://www.austurfrett.is/frettir/4097-varaafl-raest-i-neskaupstadh
Varaafl ræst í Neskaupstað Útleysing varð á Neskaupstaðarlínu, milli Eskifjarðar og Norðfjarðar, rétt fyrir klukkan hálf níu í morgun sem olli rafmagnsleysi í bænum. Eftir að tilraunir til að setja línuna inn aftur báru ekki árangur var varaafl fyrir bæinn ræst. Hjá Landsneti fengust þær upplýsingar um klukkan hálf tíu...
http://www.austurfrett.is/frettir/4163-vegunum-lokad-klukkan-tiu-i-kvold
Vegunum lokað klukkan tíu í kvöld Austfirskum fjallvegum verður lokað í kvöld klukkan 22:00 vegna spár um aftakaveður í nótt og fyrramálið. Búist er við að það standi fram undir hádegi á morgun. Lokanirnar verða sem hér segir: Klukkan 19:00 - frá Freysnesi að Jökulsárlóni á Breiðamerkursandi. Klukkan 22:00 - frá Höfn a...
http://www.austurfrett.is/frettir/4136-vida-skemmdir-eftir-vatnsvedrid-i-gaer-myndir
Víða skemmdir eftir vatnsveðrið í gær – Myndir Skemmdir eru víða á vegakerfinu á Austurlandi og fleiri mannvirkjum eftir mikið vatnsveður sem gekk yfir fjórðunginn í gær. Enn er ekki hægt að meta tjónið að fullu. Vegagerðarmenn voru á fullu í gær við að grafa frá ræsum og upp úr skurðum til að forða tjóni á vegum. Því ...
http://www.austurfrett.is/frettir/4293-ibudarhus-rymd-a-eskifirdi-vegna-skriduhaettu
Íbúðarhús rýmd á Eskifirði vegna skriðuhættu Sex íbúðarhús á Eskifiðri sem standa nærri Grjótá voru rýmd á níunda tímanum í kvöld kvöld vegna skriðuhættu eftir að hlaup varð í ánni um klukkan sjö. Engin hús skemmdust í hlaupinu en farvegur árinnar aflagaðist samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Ekki er vitað um skemmdir ...
http://www.austurfrett.is/frettir/4096-brunnar-opnadir-til-ad-letta-a-lagnakerfinu
Brunnar opnaðir til að létta á lagnakerfinu Björgunarsveitar- og bæjarstarfsmenn á Egilsstöðum hjálpuðust á öðrum tímanum í nótt að við að opna brunna til að létta á lagnakerfi bæjarins. Útkall barst upp úr klukkan eitt þegar vatn byrjaði að flæða inn í Héraðsprent sem staðsett er í kjallarahúsnæði í miðbænum. Síðan he...
http://www.austurfrett.is/frettir/4161-austfirdingar-hvattir-til-ad-huga-ad-lausamunum-og-halda-sig-heima-i-nott-og-fyrramalid
Austfirðingar hvattir til að huga að lausamunum og halda sig heima í nótt og fyrramálið Almannavarnaefnd fjarða vekur athygli á mjög slæmri veðurspá fyrir Austfirði í kvöld og nótt. Full ástæða er til að gera allar nauðsynlegar og viðeigandi ráðstafanir. Fólk er hvatt til að halda sig heima við og vera ekki á ferðinni ...
http://www.austurfrett.is/frettir/4162-einn-alversti-stormur-sem-austfirdingar-hafa-fengid-vidbragdsadilar-klarir-i-nottina
Einn alversti stormur sem Austfirðingar hafa fengið: Viðbragðsaðilar klárir í nóttina Veðrið sem gengur í austan lands í nótt verður að líkindum verst á milli klukkan sex og tíu í fyrramálið. Viðbragðsaðilar hafa nýtt lognið á milli stormanna tveggja í að gera klárt fyrir þann seinni. Búast má við að upp úr klukkan níu...
http://www.austurfrett.is/frettir/4157-krapaflod-fell-a-adalbol
Krapaflóð féll á Aðalból Félagar í Björgunarsveitinni Jöklu á Jökuldal voru í kvöld að leið að Aðalbóli í Hrafnkelsdal þar sem krapaflóð féll á íbúðarhúsið seinni partinn í dag. Flóðið var stórt og náði náði upp undir glugga á efri hæð hússins og krapi er í herbergjum á neðri hæð. Engin slys urðu á fólki. Ábúendur eru ...
http://www.austurfrett.is/frettir/4300-taeplega-70-metra-hvidha-a-vatnsskardhi
Tæplega 70 metra hviða á Vatnsskarði Snælduvitlaust verður er á Vatnsskarði eystra en þar mældist vindhviða upp á 67 m/s um klukkan ellefu í kvöld. Meðalvindstyrkur var á sama tíma 46 m/s. Til samanburðar má nefna að sterkasta vindhviðan sem mældist í óveðrinu sem gekk yfir landið aðra í byrjun mánaðarins var 72,5 m/s ...
http://www.austurfrett.is/frettir/4160-ibuum-leyft-ad-fara-til-sins-heima-og-vatn-komid-a
Íbúum leyft að fara til síns heima og vatn komið á Íbúum sex húsa á Eskifirði sem rýmd voru í gærkvöldi vegna flóðahættu úr Grjótá var leyft að fara aftur til síns heima í morgun.Úrkomulaust hefur verið síðan í gærkvöldi og vatn sjatnað í ám og lækjum. Óvissustigi vegna krapaflóðahættu hefur verið aflýst á Austfjörðum....
http://www.austurfrett.is/frettir/4159-leitad-ad-bilun-a-vatnslogninni-fyrir-neskaupstad-vitum-ekkert-enn
Leitað að bilun á vatnslögninni fyrir Neskaupstað: Vitum ekkert enn Enn er leitað að bilun á vatnslögninni til Neskaupstaðar en vatnið fór af bænum seinni partinn í dag. Starfsmenn bæjarins og aðrir viðbragðsaðilar hafa haft í nógu að snúast í miklu vatnsveðri í dag. „Við vitum ekkert og erum enn að leita. Við erum kom...
http://www.austurfrett.is/frettir/4156-flugstjori-thyrlunnar-yfir-neskaupstad-tok-vid-okkur-vindbal
Flugstjóri þyrlunnar: Yfir Neskaupstað tók við okkur vindbál Flugstjóri í þyrlusveit Landhelgisgæslunnar lýsir sjúkraflugi þyrlu gæslunnar austur á firði í gærkvöldi sem verulega krefjandi verkefni. Til stóð að sækja sjúkling til Norðfjarðar en þar var ekki hægt að lenda vegna veðurs. Breiðdalsvík varð fyrir valinu í s...
http://www.austurfrett.is/frettir/4155-4290-mikid-tjon-i-bluskjallaranum
Mikið tjón í Blúskjallaranum Óttast er að milljóna tjón hafi orðið þegar vatn flæddi inn í félagsheimili Blús-, rokk og jazzklúbbsins á Nesi (BRJÁN) í dag. „Það er 30 sentímetra djúpt vatn í öllu húsnæðinu og mikið tjón," segir Sigurður Ólafsson, formaður klúbbsins. Inni voru meðal annars magnarar, gítarbox, botn úr hl...
http://www.austurfrett.is/frettir/4152-thyrlan-reyndi-tvisvar-ad-lenda-i-midbae-neskaupstadar
Þyrlan reyndi tvisvar að lenda í miðbæ Neskaupstaðar Þyrla Landhelgisgæslunnar reyndi tvisvar að lenda í Neskaupstað til að sækja sjúkling í gærkvöldi áður en hún varð frá og hverfa vegna veðurs og lenda á Breiðdalsvík. Ný Norðfjarðargöng voru notuð við sjúkraflutninganna. „Þetta gekk ágætlega fyrir rest en stóð lengi ...
http://www.austurfrett.is/frettir/4282-sera-gunnlaugur-tokum-moti-utlendingum-eins-og-sakamonnum-sem-thurfa-adh-sanna-sakleysi-sitt
Séra Gunnlaugur: Tökum móti útlendingum eins og sakamönnum sem þurfa að sanna sakleysi sitt Fáar þjóðir eru háðari öðrum um afkomu sína eins og Íslendingar. Samt virðumst við girða fyrir komu þeirra sem eru öðruvísi en við til landsins. Skoða þarf bæði gildismatið og reglurnar. Þetta er inntak predikunar sem Gunnlaugur...
http://www.austurfrett.is/frettir/4144-fjolmenni-tok-a-moti-beiti
Fjölmenni tók á móti Beiti Norðfirðingar fjölmenntu þegar nýr Beitir sigldi í fyrsta skipti inn Norðfjörðinn fyrir hádegi. Skipið verður til sýnis á sunnudag. Skipið kom inn að Neskaupstað tíu mínútur yfir ellefu í morgun og sigldi hring meðfram miðbænum. Þar höfðu bæjarbúar safnast saman til að fagna heimkomu skipsins...
http://www.austurfrett.is/frettir/4289-raesi-hafa-ekki-undan-i-vatnselgnum
Ræsi hafa ekki undan í vatnselgnum Vattarnesvegur út með sunnanverðum Reyðarfirði er í sundur vegna vatnavaxta og hefur verið lokað. Starfsmenn Vegagerðarinnar reyna að ryðja frá ræsum til að forða frekari skemmdum á vegakerfinu. „Vatnsveðrið er að fara illa með vegina og það er ekki útséð með hversu illa það gerir það...
http://www.austurfrett.is/frettir/4286-thakid-fauk-af-verkstaedi-rafeyjar
Þakið fauk af verkstæði Rafeyjar Björgunarsveitin Hérað var kölluð út á sjötta tímanum í morgun þegar þak fauk af verkstæði Rafeyjar. Á Fáskrúðsfirði var björgunarsveitin kölluð út fyrir hádegið til að hefta þakplötur. Um miðnætti gekk í mikinn storm á Austfjörðum og um sex tímum síðar hafði hann hrifið með sér þakið a...
http://www.austurfrett.is/frettir/4148-allt-onytt-i-brunni-eftir-brotsjo
Allt ónýtt í brúnni eftir brotsjó Fleiri hundruð lítrar af sjó flæddu um borð í línubátinn Auði Vésteins þegar báturinn fékk á sig brotsjó á þriðjudag. Miklar skemmdir urðu á bátnum. Á vefnum Aflafréttir er greint frá því að báturinn hafi verið í sinni síðustu ferð fyrri jól í nokkuð góðu veðri. Heldur var þó farið að ...
http://www.austurfrett.is/frettir/4271-fjardaal-kaerir-fyrrverandi-starfsmann-fyrir-fjarmalamisferli
Fjarðaál kærir fyrrverandi starfsmann fyrir fjármálamisferli Alcoa Fjarðaál hefur kært fyrrverandi starfsmann fyrir fjármálamisferli. Maðurinn er talinn hafa dregið sér verðmæti upp á hátt í tíu milljónir króna. Fyrst var greint frá málinu í hádegisfréttum RÚV. Maðurinn er á fimmtugsaldri og starfaði í tölvudeild álver...
http://www.austurfrett.is/frettir/4153-kannast-ekki-vid-ad-vera-a-leid-i-radherrastol
Kannast ekki við að vera á leið í ráðherrastól Þórunn Egilsdóttir, þingmaður frá Vopnafirði, kannast ekki við fréttir um að hún kunni að verða næsti ráðherra Framsóknarflokksins ef uppstokkun verður gerð á ríkisstjórninni um áramótin. „Nei, ekki mér vitanlega," svaraði Þórunn þegar Austurfrétt spurði hana að því hvort ...
http://www.austurfrett.is/frettir/4151-thyrlan-farin-fra-breiddalsvik
Þyrlan farin frá Breiðdalsvík Þyrla Landhelgisgæslunnar, sem kölluð var út á sjötta tímanum í dag til að sækja veikan nýbura austur í Neskaupstað, hóf sig á loft með sjúklinginn frá Breiðdalsvík á leið til Reykjavíkur um klukkan hálf eitt í nótt. Í upphafi var gert ráð fyrir að flugið tæki um 6-7 tíma og gert var ráð f...
http://www.austurfrett.is/frettir/4277-hotelin-lokud-um-hatidarnar-ekki-nogu-mikil-fjolgun-til-ad-hafa-opid
Hótelin lokuð um hátíðarnar: Ekki nógu mikil fjölgun til að hafa opið Lokað er á stóru hótelunum þremur á Egilsstöðum um jól og áramót. Eigandi Gistihússins á Egilsstöðum segir fjölgun í vetrarferðamennsku ekki næga til að halda uppi fullri þjónustu yfir hátíðarnar. Þeir sem selji gistingu um þetta leyti árs beri ábyrg...
http://www.austurfrett.is/frettir/4269-sjoe-utlendingar-ljuka-islenskunamskeidhi-a-vopnafirdhi
Sjö útlendingar ljúka íslenskunámskeiði á Vopnafirði „Það er ekki auðvelt að tala íslensku nema maður hafi lært hana frá barnsaldri," segir Else Möller, verkefnastjóri Austurbrúar á Vopnafirði. Sjö einstaklingar af erlendu bergi brotnu, búsettir á Vopnafirði, luku fyrir stuttu íslenskunámskeiði sem hófst í haust. Leiðb...
http://www.austurfrett.is/frettir/4134-beitir-kemur-til-hafnar-a-morgun
Beitir kemur til hafnar á morgun Nýr Beitir NK siglir inn Norðfjörð klukkan 11 í fyrramálið. Með komunni verður hann að stærsta uppsjávarveiðiskipi í eigu Íslendinga. Skipið er keypt frá Danmörku og hét áðru Gitte Henning en var smíðað í Litháen í fyrra. Það leysir af hólmi 18 árum eldra skip með sama nafni. Í tilkynni...
http://www.austurfrett.is/frettir/4263-nyr-beitir-leysir-atjan-ara-skip-af-holmi
Nýr Beitir leysir átján ára skip af hólmi Enn bættist í glæsilegan skiptaflota Síldarvinnslunnar, þegar Gitte Henning, stærsta uppsjávarskipið við Norður- Atlantshaf, var afhent Síldarvinnslunni í Frederikshavn í Danmörku fyrir helgi og fékk þá nafnið Beitir. Gert er ráð fyrir að skipið komi heim á Þorláksmessu, en gam...
http://www.austurfrett.is/frettir/4129-samband-komid-aftur-a-hja-nova
Samband komið aftur á hjá Nova Viðgerð er lokið á bilun sem varð í dreifikerfi Nova þannig að samband viðskiptavina í Neskaupstað og Eskifirði datt út klukkan níu í gærkvöldi. Farsímanotendum er bent á að endurræsa síma sína ef þeim gengur illa að ná sambandi. Þær upplýsingar fengust hjá Nova að bilun hefði komið upp í...
http://www.austurfrett.is/frettir/4247-daemdur-fyrir-ad-kafa-a-unglingspilti
Dæmdur fyrir að káfa á unglingspilti Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt karlmann á fimmtugsaldri í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að áreita unglingspilt kynferðislega með að káfa á bakhluta hans. Atvikið átti sér stað í lok nóvember 2013 en var ekki kært til lögreglu fyrr en febrúar 2014. Atvikið átti sér...
http://www.austurfrett.is/frettir/4133-selja-travel-east-gaman-ad-byggja-upp-fyrirtaeki-sem-eflir-austurland
Selja Travel East: Gaman að byggja upp fyrirtæki sem eflir Austurland Heiður Vigfúsdóttir, fyrrum eigandi ferðaskrifstofunnar Travel East, telur skrifstofunni vel borgið í höndum nýs eiganda. Við tekur uppbygging viðburða- og þjónustufyrirtækis undir nafni Austurfarar. „Okkur líður furðuvel miðað við hversu hratt þetta...
http://www.austurfrett.is/frettir/4262-vidhbuidh-adh-framkvaemdirnar-valdi-timabundnum-truflunum
Viðbúið að framkvæmdirnar valdi tímabundnum truflunum Framkvæmdir eru að hefjast við lagningu 132 kílóvolta (kV) jarðstrengja frá Stuðlalínu tvö sunnan Eskifjarðar að tengivirki Landsnets á Eskifirði og áfram þaðan að loftlínum ofan við bæinn. Áætlaður kostnaður er 125 milljónir króna og er stefnt að því að framkvæmdum...
http://www.austurfrett.is/frettir/4128-rekstur-egilsbudar-bodinn-ut-daglegur-veitingarekstur-erfidur
Rekstur Egilsbúðar boðinn út: Daglegur veitingarekstur erfiður Fjarðabyggð hefur óskað eftir tilboðum frá áhugasömum aðilum til að taka að sér rekstur félagsheimilisins Egilsbúðar í Neskaupstað. Bæjarstjórinn segir vilja til að efla menningarhlutverk hússins. „Við förum þá leið að auglýsa húsið til rekstraraðila þar se...
http://www.austurfrett.is/frettir/4245-ekki-aukid-framlag-til-me-a-fjarlogum-gaeti-thurft-ad-faekka-afongum
Ekki aukið framlag til ME á fjárlögum: Gæti þurft að fækka áföngum Menntaskólinn á Egilsstöðum gæti þurft að draga úr námsframboði þar sem skólinn fær ekki framlag til að mæta fjölgun fjarnema. Í fyrsta sinn í haust þurfti að hafa fjarnemum sem vildu skrá sig í áfanga. Önnur umræða um fjárlög næsta árs stendur nú yfir ...
http://www.austurfrett.is/frettir/4132-kaupir-travel-east-viljum-auka-ferdamennskuna-utan-haannatimans
Kaupir Travel East: Viljum auka ferðamennskuna utan háannatímans Friðrik Árnason, eigandi Hótels Bláfells á Breiðdalsvík, hefur keypt ferðaskrifstofuna Travel East. Hann segir litlar breytingar framundan á fyrirtækinu en markmiðið sé að efla ferðamennsku utan háannatíma. „Við ætlum okkur að skerpa áherslur og efla reks...
http://www.austurfrett.is/frettir/4260-atburdir-eins-og-thessi-skilja-eftir-sig-sar-sem-aldrei-groa-myndir
Minningarreitur vígður á Norðfirði: Atburðir eins og þessi skilja eftir sig sár sem aldrei gróa - Myndir Norðfirðingar fjölmenntu þegar minningarreitur um þá sem farist hafa í snjóflóðum í firðinum var vígður þar í kvöld. Forseti bæjarstjórnar sagði í ávarpi sínu að segja yrði sögu flóðanna eins og aðrar sögur. „Atburð...
http://www.austurfrett.is/frettir/4248-haestirettur-thyngdi-refsingu-fyrir-dreifingu-nektarmynda-af-fyrrverandi-kaerustu
Hæstiréttur þyngdi refsingu fyrir dreifingu nektarmynda af fyrrverandi kærustu Hæstiréttur Íslands hefur þyngt refsingu yfir karlmanni sem birti nektarmyndir af fyrrverandi kærustu sinni á Facebook. Dómurinn taldi manninn hafa brotið gróflega gegn trúnaði stelpunnar. Héraðsdómur dæmdi strákinn í vor í 60 daga skilorðsb...
http://www.austurfrett.is/frettir/4244-gert-rad-fyrir-80-milljonum-i-flugvollinn-a-nordfirdi
Gert ráð fyrir 80 milljónum í flugvöllinn á Norðfirði Gert er ráð fyrir að ríkið veiti 80 milljónum í endurbætur á Norðfjarðarflugvelli á næsta ári á móti framlagi heimamanna. Bæjarstjórinn segir það hjartans mál að efla öryggi flugvallarins. „Það er mjög ánægjulegt að þetta sé komið á fjárlög og þýðir að við verðum að...
http://www.austurfrett.is/frettir/4243-landsbankinn-tolurnar-syna-ad-timi-er-kominn-a-breytingar-a-seydisfirdi
Landsbankinn: Tölurnar sýna að tími er kominn á breytingar á Seyðisfirði Framkvæmdastjóri einstaklingsþjónustu hjá Landsbankanum segist skilja áhyggjur Seyðfirðinga af breytingum á afgreiðslu bankans þar. Hann segir ráðist í þær út af því að heimsóknum hafi farið fækkandi, samhliða aukinni notkun á netbanka og annarri ...
http://www.austurfrett.is/frettir/4239-velta-lodhnuvinnslunnar-hefur-aukist-um-70-milli-ara
Velta Loðnuvinnslunnar hefur aukist um 70% milli ára Glæsilegum árangri var fagnað með áhöfn Ljósafellsins frá Fáskrúðsfirði í gær, en aflaverðmæti skipsins er komið í rúmlega einn milljarð, en það var 750 milljón króna í fyrra. Áætlað aflaverðmæti allt árið er tæplega 1,1 milljarður sem er um 45% aukning milli ára. „V...
http://www.austurfrett.is/frettir/4229-mikilvaegt-adh-halda-nemendum-i-heimabyggdh-adheins-lengur
„Mikilvægt að halda nemendum í heimabyggð aðeins lengur" Fyrir liggur að framhaldsskóladeild verði starfrækt á Vopnafirði frá og með næsta skólaári, en frá þessu er greint á heimasíðu Vopnafjarðar. Grundvöllur fyrir deildinni er að nemendur verði nægilega margir á aldrinum 16 til 25 ára og enn liggur ekki ljóst fyrir h...
http://www.austurfrett.is/frettir/4225-raedir-adstod-vid-flottamenn-thad-leggur-enginn-upp-i-thessa-ferd-ad-gamni-sinu
Ræðir aðstoð við flóttamenn: Það leggur enginn upp í þessa ferð að gamni sínu Fáskrúðsfirðingurinn Þórunn Ólafsdóttur dvaldist í haust við hjálparstörf á grísku eyjunni Lesbos þangað sem þúsundir flóttamanna hafa komið frá Austurlöndum síðustu mánuði. Hún segir flóttafólkið hætta öllu sínu í von um betra líf. „Mín hugs...
http://www.austurfrett.is/frettir/4242-seydfirdingar-motmaeltu-breytingu-landsbankans-okkur-finnst-thetta-halfgert-grin
Seyðfirðingar mótmæltu breytingu Landsbankans: Okkur finnst þetta hálfgert grín Um 50 Seyðfirðingar mættu á fund í útibúi Landsbankans í dag þar sem mótmælt var fyrirhugðum breytingum á þjónustu bankans á staðnum. Fundarstjórinn segir heimamenn álíta að breytingarnar séu ekki hugsaðar til enda. „Þetta var mjög kraftmik...
http://www.austurfrett.is/frettir/4237-nordfjardargong-unnid-ad-lokastyrkingum
Norðfjarðargöng: Unnið að lokastyrkingum Það styttist í að vinnu ljúki við lokastyrkingar Norðfjarðarganga, en einungis er eftir að styrkja um 1 kílómetra af þeim 7,5 sem göngin spanna. Þá hefst vinna við steypt mannvirki inni í göngum, auk uppsetningu vatnsklæðninga á lekum svæðum. Uppsteyping vegskála í Fannardal er ...
http://www.austurfrett.is/frettir/4228-fortitude-svolitidh-eins-og-adh-koma-a-sitt-annadh-heimili
Fortitude: „Svolítið eins og að koma á sitt annað heimili“ Reyðarfjörður er að taka á sig mynd Fortitude á nýjan leik, smábæjarins á Svalbarða þar sem ógnvænlegir atburðir eiga sér stað. Upptökur af annarri þáttaröðinni hefjast í febrúar, en líkt og áður er það helst miðbærinn sem breytir um svip – búið er að byggja ut...
http://www.austurfrett.is/frettir/4224-tolf-herbergjum-baett-vidh-a-hotel-austur-a-reydharfirdhi
Tólf herbergjum bætt við á Hótel Austur á Reyðarfirði Nú er að rísa viðbygging við Hótel Austur á Reyðafirði, en áætlað er að tólf ný herbergi verið tekin í gagnið í vor. „VHE er að reisa þetta fyrir okkur úr forsteytum einingum. Sökklarnir eru komnir og byrjað verður á aðalhæðinni fyrir áramót, en allt á að vera orðið...