Search is not available for this dataset
url stringlengths 21 288 | text stringlengths 1 1.35M |
|---|---|
http://www.austurfrett.is/frettir/4028-bida-eftir-fundi-med-mannvirkjastofnun | Bíða eftir fundi með Mannvirkjastofnun
Björn Ingimarsson, formaður stjórnar Brunavarna á Austurlandi, segir að næstu skref í úrbótum hjá slökkviliðinu verði stigin í samvinnu við Mannvirkjastofnun. Stofnunin gerir margvíslegar athugasemdir við aðbúnað slökkviliðsins í nýrri úttekt.
Meðal þess sem stofnunin setur út á e... |
http://www.austurfrett.is/frettir/4022-bjorgunarsveitir-kalladar-til-adstodar-ferdalongum-a-fjallvegum | Björgunarsveitir kallaðar til aðstoðar ferðalöngum á fjallvegum
Björgunarsveitin Vopni á Vopnafirði hefur tvívegis verið kölluð vegna ferðalanga í vandræðum á fjallvegum það sem af er vikunni. Færð á vegum endurspeglar að haustið er komið.
Á þriðjudag var sveitin kölluð út þegar pallbíll með húsi á pallinum fór út af v... |
http://www.austurfrett.is/frettir/4015-faskrudsfjardargong-lokud-eftir-hadegi-a-morgun | Fáskrúðsfjarðargöng lokuð eftir hádegi á morgun
Fáskrúðsfjarðargöng verða lokuð frá klukkan 13-16 á morgun, miðvikudaginn 21. október, vegna björgunaræfingar.
Í tilkynningu frá Vegagerðinni er vegfarendum bent á að fara um Vattarnesveg á meðan æfingunni stendur. |
http://www.austurfrett.is/frettir/4008-framleitt-a-fullu-alla-daga | „Framleitt á fullu alla daga"
Tvöfalt meiri afli hefur komið til vinnslu hjá fiskvinnslustöð Gullbergs á Seyðisfirði í ár en í fyrra.
Það sem af er ári er unnin afli 2.600 tonn meðan hann var 1.310 á sama tíma í fyrra. Nánast allur afli sem unninn hefur verið í fiskvinnslustöðinni á árinu er ufsi og þorskur. Einungis ö... |
http://www.austurfrett.is/frettir/4026-brunavarnir-a-austurlandi-er-alls-stadar-naegt-vatn | Brunavarnir á Austurlandi: Er alls staðar nægt vatn?
Mannvirkjastofnun gerir margvíslegar athugasemdir við aðbúnað Brunavarna á Austurlandi í nýrri skýrslu. Meðal annars er talið hæpið að nægt vatn sé til staðar í slökkvistarf í þremur austfirskum þéttbýlisstöðum.
Samkvæmt lögum skal Mannvirkjastofnun taka út hvernig s... |
http://www.austurfrett.is/frettir/4021-brunavarnir-a-austurlandi-monnun-er-ekki-naegjanleg-menntun-og-thjalfun-er-abotavant | Brunavarnir á Austurlandi: Mönnun er ekki nægjanleg, menntun og þjálfun er ábótavant
Gerðar eru margvíslegar athugasemdir við mönnun og menntun hjá Brunavörnum á Austurlandi í nýrri úttektarskýrslu Mannvirkjastofnunar. Slökkvistjórinn telur framsetningu stofnunarinnar á stöðunni í skýrslunni óheppilega.
Samkvæmt lögum ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/4014-thorunn-egilsdottir-til-hvers-ad-byggja-upp-vegi-thangad-sem-enginn-byr | Þórunn Egilsdóttir: Til hvers að byggja upp vegi þangað sem enginn býr?
Þórunn Egilsdóttir, þingkona Framsóknarflokksins frá Vopnafirði, segir að staldra verði við samgöngumálum og hugsa hvert stefni og fyrir hverja uppbygging í vegakerfinu sé ætluð.
„Eftir þessa yfirreið get ég ekki annað en velt því fyrir mér, líkt o... |
http://www.austurfrett.is/frettir/4003-fiskimjolsverksmidjur-skerdingar-20151016 | Rafvæðing fiskimjölsverksmiðja í hættu? Ekki skert þegar engir samningar eru í gildi
Forsvarsmenn Síldarvinnslunnar óttast að rafvæðing fiskimjölsverksmiðja í hættu þar sem þær geti ekki reitt sig á orku af markaði. Forstjóri Landsvirkjunar segir orkuna til staðar nú en samningana vanti.
Í nýlegum pistli á vef Síldarvi... |
http://www.austurfrett.is/frettir/4024-brunavarnir-a-austurlandi-brunavarnaaaetlun-enn-osamthykkt | Brunavarnir á Austurlandi: Brunavarnaáætlun enn ósamþykkt
Mannvirkjastofnun gerir athugasemd við að ekki liggi fyrir brunavarnaáætlun fyrir Brunavarnir á Austurlandi. Hún hefur verið í smíðum frá því að slökkviliðið var stofnað í byrjun árs 2007. Eldvarnaeftirliti er einnig talið ábótavant.
Samkvæmt lögum skal Mannvirk... |
http://www.austurfrett.is/frettir/4018-fyrstu-farmarnir-af-sumargotssild-til-vopnafjardar-og-nordfjardar | Fyrstu farmarnir af sumargotssíld til Vopnafjarðar og Norðfjarðar
Skipin Lundey NS og Bjarni Ólafsson komu í gærkvöldi með fyrstu farmana af sumargotssíld til Austfjarða. Veiðarnar fara hægt af stað en aflinn náðist að mestu á Jökuldjúpinu vestur af landinu.
Bjarni Ólafsson kom til Norðfjarðar um klukkan 9 í gærkvöldi ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/4011-utvarpsstjori-of-mikid-verid-skorid-nidur-i-starfsemi-ruv-a-landsbyggdinni | Útvarpsstjóri: Of mikið verið skorið niður í starfsemi RÚV á landsbyggðinni
Magnús Geir Þórðarson, útvarpsstjóri, telur að niðurskurður í starfsemi RÚV hafi bitnað of harkalega á starfsemi þess á landsbyggðinni á undanförnum árum. Mikil vinna hafi verið lögð í að snúa við rekstrinum undanfarið ár en um leið leitast við... |
http://www.austurfrett.is/frettir/4000-jakvaedni-i-gard-gullleitar-i-vopnafirdi | Jákvæðni í garð gullleitar í Vopnafirði
Fyrirtækið Iceland Resources hefur fengið leyfi til að leita að gulli og kopar í Vopnafjarðarhreppi. Fleiri svæði á Austurlandi gætu innihaldið góðmálma.
Fyrirtækið hefur bent á átta svæði á Íslandi, þar af tvö á Austurlandi sem það hefur áhuga á að skoða með þann möguleika í hug... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3999-stofna-ahugahop-um-gong-milli-eskifjardar-og-herads | Stofna áhugahóp um göng milli Eskifjarðar og Héraðs
Stofnaður hefur verið hópur áhugamanna um jarðgöng milli Eskifjarðar og Héraðs. Hvatamenn að stofnun hópsins eru: Gísli Hjörtur Guðjónsson og Stefán Víðisson.
Í tilkynningu frá hópnum segir að markmið hans sé að kynna, og koma í umræðu, helstu kosti þess að bora jarðg... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3994-fjardhabyggdh-og-va-semja-um-verknamskynningar | Fjarðabyggð og VA semja um verknámskynningar
Fjarðabyggð og Verkmenntaskóli Austurlands undirrituðu um helgina samning um verknámskynningar í vinnuskóla sveitarfélagsins.
Samningurinn byggir á tilraunaverkefni, en undanfarin tvö ár hefur verknámsvika verið fastur hluti vinnuskólanum fyrir nemendur í 9. bekk. Kynningin ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3987-halslon-komid-a-yfirfall | Hálslón komið á yfirfall
Yfirborð Hálslóns náði í 625 metra hæð yfir sjávarmál á föstudag og er lónið þar með komið á yfirfall. Lónið hefur aldrei farið svo seint á yfirfall síðan það var fyrst fyllt síðsumars 2008.
Sumarið eystra var óvenju kalt og því svo rann svo lítið vatn í lónið að óttast var að skerða þyrfti ork... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3980-maria-hjalmars-eg-sleppti-ekki-clive-og-hann-ekki-mer | María Hjálmars: Ég sleppti ekki Clive og hann ekki mér
María Hjálmarsdóttir, verkefnisstjóri alþjóðaflugs hjá Austurbrú, segir væntanlegt áætlunarflug milli Egilsstaða og London Gatwick afrakstur stanslausar vinnu undanfarið ár. Hún segir það gæfu að flugið sé á vegum ferðaskrifstofu sem skili sér í þróun Austurlands s... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3996-hrund-haett-i-hreppsnefnd-vopnafjardar | Hrund hætt í hreppsnefnd Vopnafjarðar
Hrund Snorradóttir hefur látið af störfum sem fulltrúi í sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps þar sem hún er flutt af svæðinu.
Hrund var í öðru sæti lista framsóknarmanna og óháðra í sveitarfélaginu fyrir sveitastjórnarkosningarnar í fyrra en listinn kom þremur mönnum að.
Í bréfi Hrund... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3993-vill-ad-kynjafraedi-verdi-skyldufag-i-framhaldsskola | Vill að kynjafræði verði skyldufag í framhaldsskóla
Ingibjörg Þórðardóttir, varaþingmaður og framhaldsskólakennari úr Neskaupstað, vill að grunnáfangi í kynjafræði verði gerður að skyldufagi á öllum brautum framhaldsskóla. Mikil vakning hafi orðið eftir að nokkrir skólar fóru að kenna kynjafræði sem valfag.
Ingibjörg t... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3984-mesta-starfsanaegjan-i-verkmenntaskolanum | Mesta starfsánægjan í Verkmenntaskólanum
Verkmenntaskóli Austurlands í Neskaupstað fékk hæstu einkunn austfirskra ríkisstofnana í úttekt SFR á stofnun ársins. Menntaskólinn á Egilsstöðum er meðal hástökkvara ársins á landsvísu. Úttektin byggist einkum á ánægju starfsmanna með stofnun sína.
Verkmenntaskólinn varð í tíun... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3978-nordfjardargong-gengur-vel-ad-steypa-bruargolfid-a-eskifjardara | Norðfjarðargöng: Gengur vel að steypa brúargólfið á Eskifjarðará
Byrjað var að steypa gólfið á nýja brú yfir Eskifjarðará klukkan sjö í morgun og unnið verður við það fram á kvöld. Þetta er stærsta einstaka steypan í gerð nýrra Norðfjarðarganga.
„Þetta gengur allt vel. Aðstæður eru ákjósanlegar, þurrt og logn og ekki o... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3995-smygl-i-norraenu-foru-i-dyra-islandsferd-thratt-fyrir-ad-vera-i-fjarhagskroggum | Smygl í Norrænu: Fóru í dýra Íslandsferð þrátt fyrir að vera í fjárhagskröggum
Hollensk kona sem grunuð er um að hafa staðið í stórfelldu fíkniefnasmygli ásamt með Norrænu í byrjun september er laus úr gæsluvarðhaldi en sætir nú farbanni. Ósamræmi þykir vera í framburði hjónanna.
Komið er inn á ósamræmið í gæsluvarðhal... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3991-virkjunardomur-domurinn-tekur-adeins-til-hluta-af-hagsmununum | Virkjunardómur: Dómurinn tekur aðeins til hluta af hagsmununum
Forstjóri Landsvirkjunar segir dóm Hæstaréttar í máli fyrirtækisins gegn Þjóðskrá og Fljótsdalshéraði marka tímamót í skiptingu gjalda af fasteignagjöldum virkjana. Bæjarráð Fljótsdalshérað telur þörf á að endurskoða allt skattkerfi raforkuframleiðslu.
Hæst... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3982-tvaer-bilveltur-i-gaer | Tvær bílveltur í gær
Lögreglan á Egilsstöðum var tvisvar kölluð út í gær vegna bílvelta. Vörubíll fór út af veginum um Fagradal og jeppabifreið á Háreksstaðaleið. Ökumaður hennar slasaðist nokkuð.
Flutningabíll frá Nesfrakt fór út af skammt frá sæluhúsinu á Fagradal um klukkan hálf níu í gærmorgun og valt eina veltu. L... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3977-arngrimur-vidar-handsoludum-hugmyndina-um-beina-flugid-a-stadnum | Arngrímur Viðar: Handsöluðum hugmyndina um beina flugið á staðnum
Það var Arngrímur Viðar Ásgeirsson, ferðaþjónustuaðili á Borgarfirði, sem fyrstur stakk þeirri hugmynd að eiganda bresku ferðaskrifstofunnar Discover the World að koma upp beinu flugi á milli Egilsstaða og Englands. Hann á von að flugið lengi ferðamannat... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3974-landsvirkjun-tapar-i-haestaretti-meta-ma-vatnsrettindi-karahnjukavirkjunar-til-fasteignamats | Landsvirkjun tapar í Hæstarétti: Meta má vatnsréttindi Kárahnjúkavirkjunar til fasteignamats
Hæstiréttur snéri í dag við úrskurði héraðsdóms í máli Landsvirkjunar gegn Þjóðskrá og Fljótsdalshéraði um að Þjóðskrá ætti ekki að skrá og meta vatnsréttindi við Jökulsá á Dal inn í fasteignamat. Dómurinn gæti haft umtalsvert ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3970-launafl-og-multitask-endurselja-fyrir-simann | Launafl og MultiTask endurselja fyrir Símann
Launafl á Reyðafirði og MultiTask í Neskaupstað eru nýir endurseljendur fyrir Símann á Austurlandi. Þá er Rafey á Egilsstöðum nýr verktaki fyrir Símann.
„Við hjá Símanum viljum bæta þjónustuna með því að koma nær. Þess vegna fjölgum við endurseljendum á Austfjörðum," segir S... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3965-stadfest-ad-flogid-verdi-tvisvar-i-viku-milli-egilsstada-og-london | Staðfest að flogið verði tvisvar í viku milli Egilsstaða og London
Tilhögun beins flugs milli Egilsstaða og Lundúna er kynnt á blaðamannafundi sem hófst klukkan hálf tvö í flugstöðinni á Egilsstöðum. Flogið verður á miðvikudögum og laugardögum allt næsta sumar.
Samkvæmt heimildum Austurfréttar hefst flugið þann 28. maí... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3960-olof-nordal-reidum-okkur-ekki-a-orkufrekan-idnad-umfram-thad-sem-ordid-er | Ólöf Nordal: Reiðum okkur ekki á orkufrekan iðnað umfram það sem orðið er
Ólöf Nordal, innanríkisáðherra, spáir því að ekki verði frekari uppbygging í kringum orkufrekan iðnað á næstu árum hérlendis. Hún kallar eftir meiri langtímahugsun í stjórn efnahagsmála og aðhaldi í rekstri ríkisins.
Þetta kom fram í máli Ólafar,... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3973-isavia-egilsstadaflugvollur-er-tilbuinn | ISAVIA: Egilsstaðaflugvöllur er tilbúinn
Björn Óli Hauksson, forstjóri ISAVIA, segir að Egilsstaðaflugvöllur og starfsmenn hans geti leikandi tekið á móti áætluðu flugi milli Egilsstaða og Lundúna næsta sumar. Flogið verður tvisvar í viku.
„Egilsstaðaflugvöllur er tilbúinn og alltaf verið tilbúinn," sagði Björn Óli í s... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3968-hvernig-virkar-lundunaflugid | Hvernig virkar Lundúnaflugið?
Ferðaskrifstofan Discover the World kynnti í dag formlega áætlun sína um að fljúga tvisvar í viku á milli Egilsstaða og Gatwick flugvallar við London næsta sumar. Um leið var undirritað samkomulag við ferðaþjónustufyrirtækin Tanna Travel og Fjallasýn um þjónustu við ferðamenn og sölu á flu... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3964-taeknidagur-fjoelskyldunnar-2015 | Tæknidagur fjölskyldunnar 2015
Tæknidagur fjölskyldunnar verður haldinn í Verkmenntaskóla Austurlands laugardaginn 10. október. Dagurinn er sem fyrr tileinkaður tækni, vísindum, sköpun og þróun á Austurlandi og miðast dagskráin við alla aldurshópa.
Tæknidagarnir í fyrra og hittiðfyrra hafa tekist með eindæmum vel en áæ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3958-fjorir-i-gaesluvardhhald-eftir-fikniefnasmygl-med-norraenu | Fjórir í gæsluvarðhald eftir fíkniefnasmygl með Norrænu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu haldlagði fyrir viku mikið magn fíkniefna sem falin voru í bifreið sem kom til landsins með Norrænu fyrir tæpum tveimur vikum.
Fjórir einstaklingar, tveir Íslendingar og tveir Hollendingar, voru handteknir við rannsóknina og úrskurða... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3972-diana-mjoll-thurfum-ad-ryna-okkar-skipulag | Díana Mjöll: Þurfum að rýna okkar skipulag
Tanni Travel á Eskifirði og Fjallasýn á Húsavík skrifuðu í gær undir samkomulag við bresku ferðaskrifstofuna Discover the World um að annast sölu í beint flug skrifstofunnar til Lundúna á Íslandi og þjónusta ferðalanga sem hingað koma. Framkvæmdastjóri Tanna Travel segir að fa... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3967-sigmundur-david-millilandaflugid-naudsynlegt-fyrir-landid-allt | Sigmundur Davíð: Millilandaflugið nauðsynlegt fyrir landið allt
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, segir beint flug á milli Egilsstaða og Lundúna nauðsynlegt ekki bara fyrir Austurland heldur landið allt. Fjölga þurfi gáttum inn í landið til að hægt sé að taka á móti auknum fjölda ferðamanna.
Þetta kom fra... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3962-haett-vid-skerdingar-vantar-ruman-metra-i-halslon | Hætt við skerðingar: Vantar rúman metra í Hálslón
Landsvirkjun hefur ákveðið að draga til baka takmarkanir á afhendingu rafmagns til kaupenda ótryggrar orku sem boðaðar voru vegna lágrar stöðu í miðlunarlónunum síðsumars.
Í gær mældist vatnsyfirborðið í lóninu í 623,8 metra hæð en lónið fer á yfirfall í 625 metra hæð o... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3954-afangastadurinn-austurland-snyst-ekki-bara-um-upplifun-ferdamanna-heldur-einnig-anaegju-ibua | Áfangastaðurinn Austurland: Snýst ekki bara um upplifun ferðamanna heldur einnig ánægju íbúa
Svíinn Daniel Byström stýrir á morgun vinnustofu um hönnun Austurlands sem áfangastaðar í Sláturhúsinu á Egilsstöðum. Þar verður meðal annars kynnt könnun sem gerð var í sumar meðal íbúa og ferðmanna á styrkleikum og veikleikum... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3953-enginn-sotti-um-stoedhu-heradhsdyralaeknis | Enginn sótti um stöðu héraðsdýralæknis
Engin umsókn barst um stöðu héraðsdýralæknis á Austurlandi áður en umsóknarfrestur rann út fyrir tíu dögum. Staðan hefur verið laus síðan í vor.
Þetta er í annað skiptið á árinu sem reynt er að auglýsa stöðuna. Vandræðin hófust hins vegar fyrr þegar ekki tókst að fá afleysingalækn... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3948-erfitt-ad-rada-frettamann-i-halft-starf-fleiri-en-einn-drogu-umsoknirnar-til-baka | Erfitt að ráða fréttamann í hálft starf: Fleiri en einn drógu umsóknirnar til baka
Freyja Dögg Frímannsdóttir, svæðisstjóri RÚVAK, segir illa hafa gengið í hálfa stöðu fréttamanns sem auglýst var á Austurlandi í vor. Áfram sé hins vegar stefnt að ráðningu í stöðuna.
„Við vissum að það yrði erfitt að ráða í hálfu stöður... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3945-bjartsyni-um-urbaetur-a-diskoljosunum-a-eidum-a-naestunni | Bjartsýni um úrbætur á diskóljósunum á Eiðum á næstunni
Forstöðumaður dreifikerfis Ríkisútvarpsins segir vonast til að hægt verði að fá leyfi fyrir að skipta um ljósabúnað í langbylgjumastrinu á Eiðum innan tíðar. Bilaður ljósum með skærum, hvítum blikkljósum hefur valdið íbúum þar miklum ama.
„Samkvæmt alþjóðlegum reg... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3940-okumenn-hvattir-til-ad-syna-smolum-tillitssemi | Ökumenn hvattir til að sýna smölum tillitssemi
Lögreglan á Austurlandi hvetur ökumenn til að sýna smölum tillitssemi þar sem þeir þurfa að reka fé eftir þjóðvegunum. Brögð eru að því að smölum sé lítil virðing sýnd.
Smalavertíðin er nú í fullum gangi en fyrstu göngu skal lokið fyrir lok september. Seinni göngur standa ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3952-adalfundur-sambands-sveitarfelaga-a-austurlandi-settur-i-morgun | Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Austurlandi settur í morgun
Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) var settur á á Hótel Framtíð, Djúpavogi í morgun. Sveitarstjórnarmenn þeirra átta sveitarfélaga sem mynda landshlutasamtökin munu þar móta sameiginlegar áherslur landshlutans auk þess að ræða þau tækifæ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3947-olof-nordal-reyfarakennd-samskipti-valsmanna-vid-reykjavikurborg | Ólöf Nordal: Reyfarakennd samskipti Valsmanna við Reykjavíkurborg
Innanríkisráðherra segir málefni Reykjavíkurflugvallar vera í erfiðum hnút þar sem ríkið hafi eina stefnu og borgin aðra. Loforð borgarinnar til Valsmanna hafi sérstaklega flækt þau. Hún vill samt fara varlega í yfirlýsingar ef það skyldi koma til kasta ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3944-vegamalastjori-tilbuinn-ad-skoda-hvort-nordfjardargong-verdi-opnud-fyrr | Vegamálastjóri: Tilbúinn að skoða hvort Norðfjarðargöng verði opnuð fyrr
Hreinn Haraldsson, vegamálastjóri, segir að á næstu dögum verði rætt við aðalverktaka Norðfjarðarganga um hvort hægt séu að opna göngin fyrr en áætlað var. Hann segir gröft þeirra hafa gengið hraðar en menn hafi þorað að vona.
„Það er stórkostlegt... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3937-hollenska-parid-afram-i-einangrun | Hollenska parið áfram í einangrun
Hæstiréttur Íslands staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð til 7. október yfir hollensku pari sem grunað er um tilraun til stórfellds innflutnings á fíkniefnum með Norrænu í byrjun mánaðarins.
Parið kom til Seyðisfjarðar með ferjunni að morgni þriðjudagsins 8. september. Grunur mun hafa... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3949-gaslykt-fra-skaftarhlaupi-a-austurlandi | Gaslykt frá Skaftárhlaupi á Austurlandi
Íbúar á Fljótsdalshéraði og Seyðisfirði urðu eftir hádegi í dag varir við gaslykt sem kemur frá upptökum Skaftárhlaups.
Austurfrétt bárust ábendingar frá Snæfelli, Seyðisfirði og Egilsstöðum um að þar mætti finna hveralykt.
Elín Björk Jónasdóttir, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Ís... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3946-um-100-hreindyr-eftir-af-kvotanum-nygraedingurinn-breytti-hegdun-dyranna | Um 100 hreindýr eftir af kvótanum: Nýgræðingurinn breytti hegðun dýranna
Ekki náðist að veiða 103 hreindýr af þeim 1274 sem fella átti þar til sumarveiðitímabilinu lauk þann 20. september. Seint gréri á heiðum í sumar þannig að dýrin eltu nýgræðingin upp lengur og komu síður niður undir lok tímabilsins.
„Þetta breytti ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3943-skip-sildarvinnslunnar-adh-veidhum | Skip Síldarvinnslunnar að veiðum
Síldveiðar eru að hefjast að nýju hjá Síldarvinnslunni eftir nokkurt hlé á veiðum og vinnslu í síðustu viku.
Beitir NK og Birtingur NK höfðu lagt stund á veiðarnar á meðan viðhaldsverkefnum var sinnt um borð í Berki NK. Nú er Börkur tilbúinn að hefja veiðar og hélt hann út á miðin í gær... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3934-sidasta-sprenging-i-nordfjardargongum-vonumst-til-ad-hjalpa-ykkur-til-ad-eiga-betra-lif-myndir | Síðasta sprenging í Norðfjarðargöngum: Vonumst til að hjálpa ykkur til að eiga betra líf - Myndir
Þrjár þéttsetnar rútur fluttu gesti inn í væntanleg Norðfjarðargöng þegar síðasta haftið í göngunum var sprengt. Vegamálastjóri segir að með því sé helsta óvissan í verkinu úr sögunni. Á næstunni verður skoðað hvort hægt v... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3932-olof-nordal-prestar-eru-opinberir-embaettismenn-sem-halda-a-veraldlegu-valdi | Ólöf Nordal: Prestar eru opinberir embættismenn sem halda á veraldlegu valdi
Ólöf Nordal, innanríkisráðherra, segir að prestar geti ekki mismunað pörum um giftingar á grundvelli kynhneigðar á meðan þeir séu opinberir starfsmenn. Hún segir breytingatillögu á hjúskaparlögum um samviskufrelsi presta hafa verið lagða fram ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3928-loegreglumenn-bodha-til-samstoedhufundar | Lögreglumenn boða til samstöðufundar
Lögreglumenn víða um land hafa að undanförnu gripið til aðgerða til að vekja athygli á kjarabaráttu sinni.
Verkfallsréttur lögreglumanna var afnuminn með lögum árið 1986 og var það þá hluti af samkomulagi milli lögreglumanna og fjármálaráðherra.
Undanfarin ár hefur borið á mikilli ó... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3922-vilja-adgerdaaaetlun-um-millilandaflug-um-egilsstadi-og-akureyri-thorf-a-ad-dreifa-ferdamonnum | Vilja aðgerðaáætlun um millilandaflug um Egilsstaði og Akureyri: Þörf á að dreifa ferðamönnum
Íslensk stjórnvöld verða að koma markvissar að kynningu á flugvöllunum á Akureyri og Egilsstöðum til að auka möguleika á millilandaflugi um þá. Þingsályktunartillaga liggur fyrir Alþingi um að gera aðgerðaáætlun.
Átta þingmenn... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3916-hlyr-september-bjargar-vatnsstodu-i-halsloni | Hlýr september bjargar vatnsstöðu í Hálslóni
Landsvirkjun hefur frestað mögulegri takmörkun á afhendingu rafmagns til viðskiptavina um einn mánuð. Met var nýverið sett í innrennsli á einum degi í Hálslón.
Sunnudaginn 13. september mældist dagsmeðtal innrennslis í lónið 580 m3/s sem er mesta innrennsli sem mælst hefur í... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3931-varad-vid-stormi-a-austfjordum-i-kvold | Varað við stormi á Austfjörðum í kvöld
Veðurstofan varar við hvassviðri á Austurlandi í kvöld en kröpp lægð gengur yfir landið í dag. Lægðinni fylgir einnig talsverð úrkoma.
Veðurstofan gaf út viðvörun vegna lægðarinnar í morgun en útlit er fyrir storm á Austurlandi seint í kvöld og í nótt. Sérstaklega er varað við snö... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3927-tjoldin-tom-a-kelati-stodinni-hjalpum-thessu-folki | Tjöldin tóm á Kelati-stöðinni: Hjálpum þessu fólki
Flóttamenn í Ungverjalandi eru hvattir til að passa upp á eigur sínar og hvers konar ferðamáta þeir kjósa sér, segir Austfirðingur sem nýkominn er frá landinu. Hún segist upplifa úrræðaleysi eftir heimkomuna.
„Það stakk mig að fara þarna í gegn og sjá aðstæðurnar, þótt... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3921-gera-uttekt-a-kynbundnum-launamun | Gera úttekt á kynbundnum launamun
Til stendur að gera úttekt á kynbundnum launamun hjá sveitarfélaginu Fjarðabyggð með jafnlaunavottun í huga.
Þetta var samþykkt á fundi bæjarstjórnar fyrir skemmstu. Í bókun segir að sveitarfélagið hafi lengi haft það að stefnu að laun starfsmanna þess séu jöfn óháð kyni.
Rétti þyki að... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3914-sera-david-a-kollaleiru-naesti-biskup-katholikka-a-islandi | Séra Davíð á Kollaleiru næsti biskup kaþólikka á Íslandi
Frans páfi skipaði í dag Davíð Tencer, sóknarprest kaþólska safnaðarins á Reyðarfirði, sem nýjan biskup kaþólikka á Íslandi. Hann tekur við embættinu í lok október.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá kirkjunni í dag. Um leið samþykkir páfi afsögn Péturs Bürcher b... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3929-nordfjardargong-opnud-fyrr-en-aaetlad-var | Norðfjarðargöng opnuð fyrr en áætlað var?
Innanríkisráðuneytið hefur óskað eftir því við Vegagerðina að kannað verði hvort hægt verði að flýta verklokum við ný Norðfjarðargöng. Ráðherra sprengir síðasta haftið á dag.
Ólöf Nordal, innanríkisráðherra, skýrði frá þessu á opnum fundi sjálfstæðismanna í Fjarðabyggð í gærkvö... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3924-hafbjorgin-bjargadi-velarvana-bat | Hafbjörgin bjargaði vélarvana bát
Hafbjörg á Norðfirði var eitt þeirra björgunarskipa Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem kallað var út í gær til aðstoðar bátum á Íslandsmiðum.
Í tilkynningu frá Landsbjörgu segir að skip félagsins hafi alls verið kölluð fimm sinnum út í gær.
Kallið barst um klukkan tvö í gær vegna vél... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3918-mikilvaegt-ad-styrkja-flutningskerfi-raforku-austur | Mikilvægt að styrkja flutningskerfi raforku austur
Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs telur mikilvægt að flutningskerfi raforku verði styrkt. Núverandi ástand sé óásættanlegt fyrir fyrirtæki á Austurlandi.
Þetta kemur fram í bókun frá síðasta fundi bæjarstjórnarinnar þar sem matslýsing vegna kerfisáætlunar Landsnets 2015-202... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3913-knattspyrna-bikarar-verdha-klarir-a-egilsstoedhum-og-hoefn-fyrir-lokaleikina-i-2-deild | Knattspyrna: Bikarar verða klárir á Egilsstöðum og Höfn fyrir lokaleikina í 2. deild
Lokaumferðin í 2. deild karla í knattspyrnu fer fram á morgun og þá kemur í ljós hvort Leiknismenn eða Huginsmenn standa uppi sem sigurvegarar í deildinni. Bæði lið hafa 48 stig fyrir lokaumferðina en Leiknismenn hafa betri markatölu.
... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3911-fluor-i-grasi-i-reydharfirdhi-um-36-minni-i-sumar | Flúor í grasi í Reyðarfirði um 36% minni í sumar
Flúor í grasi í Reyðarfirði fer minnkandi þriðja árið í röð, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Alcoa Fjarðaáli. Þar segir að flúorinn hafi verið 36 prósentum minni nú heldur en sumarið 2014, en það sumar hafi einnig dregið úr flúor miðað við sumarið 2013. Meða... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3906-voelundur-hlytur-vidhurkenningu | Völundur hlýtur viðurkenningu
Völundur Jóhannesson á Egilsstöðum hlaut í dag Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti.
Sigrún Magnúsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra veitti viðurkenninguna í dag í tilefni af degi íslenskrar náttúru. Auk Völundar hlutu hjónin Björn Halldórsson og Elisabeth Hauge á Valþjófss... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3900-nafn-mannsins-sem-lest-i-seydhisfirdhi | Nafn mannsins sem lést í Seyðisfirði
Svissneski maðurinn sem lést í sunnanverðum Seyðisfirði í síðustu viku hét Pascal René Danz Lunn. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi í dag.
Leit var gerð að manninum á laugardag í kjölfar þess að upplýsingar bárust frá eiginkonu hans í Sviss um að ekk... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3885-horft-til-heilsulindar-hallormsstadhaskoli-seldur | Horft til heilsulindar: Hallormsstaðaskóli seldur
Sveitarstjórnir Fljótsdalshéraðs og Fljótsdalshrepps hafa samþykkt að selja húsnæði Hallormsstaðaskóla. Kaupandi er 701 hotels ehf., en það félag á og rekur meðal annars Hótel Hallormsstað, Hótel Valaskjálf og veitingastaðinn Salt á Egilsstöðum.
Kaupverð eignanna er 105... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3908-gegnumslag-i-nordhfjardhargoengum-vidhbuidh-adh-thadh-myndi-eitthvadh-gat-opnast | Gegnumslag í Norðfjarðargöngum: „Viðbúið að það myndi eitthvað gat opnast“
Klukkan 10:00 í morgun var gegnumslag í Norðfjarðargöngum. Aðeins 7 metrar voru eftir ósprengdir, en hver sprengifæra er 5 metrar. „Það var viðbúið að það myndi eitthvað gat opnast. Þegar það eru bara tveir metrar eftir þá getur þetta látið unda... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3904-dypkun-vopnafjardharhafnar-hefst-um-manadhamot | Dýpkun Vopnafjarðarhafnar hefst um mánaðamót
Þann 7. september síðastliðinn var verksamningur um dýpkun Vopnafjarðarhafnar undirritaður. Hagtak hf. tók að sér verkið, en samningsupphæðin er 157.250.000 kr. með vsk. Gert er ráð fyrir því að framkvæmdir hefjist um næstu mánaðamót og er áætlaður verktími fjórir mánuðir.
Ó... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3899-enginn-sotti-um-eina-rikisstarfidh-a-borgarfirdhi | Enginn sótti um eina ríkisstarfið á Borgarfirði
Engar umsóknir bárust um 40% stöðu hjúkrunarfræðings eða sjúkraliða á Borgarfirði eystri áður en umsóknarfresturinn rann út fyrir viku síðan. Því er ekki útlit fyrir að neinn ríkisstarfsmaður verði starfandi á Borgarfirði eystri frá næstu mánaðamótum. Þetta kom fram á vef... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3882-sidhferdhisleg-skylda-okkar-adh-taka-a-moti-flottafolki | „Siðferðisleg skylda okkar að taka á móti flóttafólki"
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar áréttaði á fundi sínum í gær fyrri stefnu sveitarfélagsins, um að það væri tilbúið til að taka á móti flóttamönnum í samstarfi við stjórnvöld.
Bæjarráð hefur óskað eftir því við félagsmálanefnd að tekin verði umræða í nefndinni og framkvæm... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3907-melarett-frestadh-til-sunnudags-vegna-thoku-i-rananum | Melarétt frestað til sunnudags vegna þoku í Rananum
Melarétt í Fljótsdal hefur verið frestað um einn dag og réttað verður á sunnudag í stað laugardags, vegna tafa við smalamennsku. Þoka í Rananum hefur verið til vandræða fyrir smalamenn að sögn Þorvarðs Ingimarssonar, smalastjóra.
„Það var bara þoka og menn töfðust og ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3903-fagradalsvegur-af-vegaskra-um-aramot | Fagradalsvegur af vegaskrá um áramót
Að öllu óbreyttu verður Fagradalsvegur í Breiðdal tekinn af vegaskrá um næstkomandi áramót. Breiðdalshreppur óskaði eftir því við Vegagerðina fyrr í sumar að niðurfellingu vegarins af vegaskrá yrði frestað frá og með 1. janúar næstkomandi, en varð ekki að ósk sinni.
Vegagerðin hafna... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3888-matjurtaraekt-vanmetin-audhlind-a-austurlandi | Matjurtarækt - Vanmetin auðlind á Austurlandi
Óhætt er að fullyrða að óvíða á landinu er matjurtarækt stunduð í minna mæli en á Austurlandi, enda vantar mikið upp á að slík ræktun í landsfjórðungnum komist nálægt því að uppfylla vaxandi neysluþörf heima fyrir, þó svo að góðar aðstæður til slíkrar framleiðslu séu hér ví... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3877-alidh-er-idhnadharleir | Álið er iðnaðarleir
Austurbrú stóð nýverið fyrir málstofunni „Áframvinnsla á áli, möguleikar og tækifæri" í Fróðleiksmolanum á Reyðarfirði.
Á málstofunni var fulltrúum iðnfyrirtækja og hönnunarsamfélagsins á Austurlandi stefnt saman við frumkvöðla til að ræða um hráefnið ál og mögulega áframvinnslu þess.
Mikill áhugi v... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3875-framkvaemdastjoraskipti-hja-samvinnufelagi-utgerdharmanna-i-neskaupstadh | Framkvæmdastjóraskipti hjá Samvinnufélagi útgerðarmanna í Neskaupstað
Hinn 15. október nk. mun Freysteinn Bjarnason láta af störfum framkvæmdastjóra Samvinnufélags útgerðarmanna í Neskaupstað sökum aldurs en hann hefur gegnt starfinu frá árinu 2005. Við starfinu tekur Guðmundur Rafnkell Gíslason sem að undanförnu hefur... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3863-verdhur-audhvelt-adh-auka-framleidhsluna-til-muna | "Verður auðvelt að auka framleiðsluna til muna"
Ný brettasmiðja Tandrabergs ehf. er að rísa á hafnarsvæðinu í Neskaupstað og áætlað er að starfsemi hefjist í henni um næstu mánaðarmót.
Framkvæmdir við nýbygginguna hófust í febrúar þegar grafið var fyrir húsinu en eiginlegar byggingaframkvæmdir í apríl. Húsið sjálft sem... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3853-nordfjardargeng-framkvaemdirnar-sedar-ur-lofti-myndbond | Norðfjarðargöng: Framkvæmdirnar séðar úr lofti – Myndbönd
Verkfræðistofan Hnit, sem hefur eftirlit með framkvæmdum við ný Norðfjarðargöng, hefur tekið myndavélarflygildi (dróna) í sína þjónustu. Tvö myndbönd af svæðinu má sjá á YouTube-rás stofunnar.
Starfsmenn verkfræðistofunnar nýttu góða veðrið í byrjun vikunnar til... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3849-starf-rikisins-a-borgarfirdhi-laust-til-umsoknar | Starf ríkisins á Borgarfirði laust til umsóknar
Það er ekki á hverjum degi sem að auglýst er starf á vegum ríkisins á Borgarfirði eystri. Nú er það hins vegar reyndin, en Heilbrigðisstofnun Austurlands auglýsti nýverið eftir hjúkrunarfræðingi eða sjúkraliða í 40% starf á Borgarfirði.
Jón Þórðarson, sveitarstjóri á Borg... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3873-fyrsti-hluti-oliuleitar-adh-hefjast | Fyrsti hluti olíuleitar að hefjast
Stórt olíurannsóknarskip á vegum Eykon Energy liggur nú við bryggju í Reyðarfjarðarhöfn.
Eykon Energy ásamt samstarfsaðilum ætla að hefja olíuleit á Drekasvæðinu og fagleg úttekt á staðarvali fyrir þjónustumiðstöð sýndi að Fjarðabyggð og Fljótsdalshérað standa sterkast að vígi, en olí... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3862-augnlaeknir-vaentanlegur-i-fjardhabyggdh | Augnlæknir væntanlegur í Fjarðabyggð
Augnlæknaþjónusta mun verða í boði í Fjarðabyggð í kringum mánaðarmótin september-október. Þetta verður í fyrsta sinn í meira en ár sem augnlæknaþjónusta verður í boði í sveitarfélaginu.
Augnlæknirinn sem þjónað hefur Fjarðabyggð undanfarin ár, Örn Sveinsson, sá sér ekki annað fært ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3852-701-hotels-semja-um-kaup-a-hallormsstadharskola | 701 Hotels semja um kaup á Hallormsstaðarskóla
Samkvæmt Þráni Lárussyni, stjórnarformanni 701 Hotels ehf., hefur fyrirtækið undirritað samkomulag við Fljótsdalshérað og Fljótsdalshrepp um kaup á byggingum Hallormsstaðarskóla. Samkvæmt Þráni er ætlunin sú að nýta skólabyggingarnar til þess að stækka Hótel Hallormsstað o... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3845-mikill-ahugi-a-aframvinnslu-als-a-austurlandi | Mikill áhugi á áframvinnslu áls á Austurlandi
Austurbrú stóð fyrir málstofunni „Áframvinnsla á áli, möguleikar og tækifæri" í Fróðleiksmolanum á Reyðarfirði síðastliðinn fimmtudag.
Á málstofunni var fulltrúum iðnfyrirtækja og hönnunarsamfélagsins á Austurlandi stefnt saman við frumkvöðla til að ræða um hráefnið ál og m... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3871-storidhjuskoli-fjardhaals-eitt-af-staerstu-fraedhsluverkefnum-austurbruar | Stóriðjuskóli Fjarðaáls eitt af stærstu fræðsluverkefnum Austurbrúar
Stóriðjuskóli Fjarðaáls er farinn af stað eftir sumarfrí og fer kennsla fram í starfsstöð Austurbrúar í Fróðleiksmolanum á Reyðarfirði.
Kjartan Glúmur Kjartansson, verkefnastjóri hjá Austurbrú, stýrir verkefninu fyrir hönd Austurbrúar.
„Þetta er eitt ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3856-elsta-hus-neskaupstadhar-flutt-a-nyjan-stadh | Elsta hús Neskaupstaðar flutt á nýjan stað
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd Fjarðabyggðar samþykkti á síðasta fundi sínum að úthluta sveitarfélaginu lóð að Þiljuvöllum í Neskaupstað með það fyrir augum að flytja þangað Gamla Lúðvíkshúsið.
Húsið er kennt við Lúðvík Sigurðsson, kaupmann og útgerðarmann, sem þar bjó le... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3850-vigdis-segist-hafa-mismaelt-sig-er-hun-sagdhi-adh-norraena-fai-kannski-annan-ferjustadh | Vigdís segist hafa mismælt sig er hún sagði að Norræna fái kannski annan ferjustað
Umræðuþátturinn Stjórnarráðið var á dagskrá sjónvarpsstöðvarinnar ÍNN í gærkvöldi. Willum Þór Þórsson og Ásmundur Friðriksson, alþingismenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks fara með þáttarstjórn og gestur þeirra í gærkvöldi var Vigd... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3844-alelda-bill-a-reydharfirdhi | Alelda bíll á Reyðarfirði
Eldur kom upp í bíl á Reyðarfirði í morgun og varð hann fljótlega alelda. Slökkvilið og lögregla voru kölluð á staðinn og hefur eldurinn nú verið slökktur. Engin slys urðu á fólki.
Bíllinn var sem staðsettur í miðju íbúðahverfi en veðrið var stillt þannig að aldrei varð hætta á að eldurinn bær... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3843-thadh-er-gott-adh-lesa-thjodharsattmali-um-laesi-undirritadhur-a-austurlandi-a-morgun | „Það er gott að lesa“: Þjóðarsáttmáli um læsi undirritaður á Austurlandi á morgun
Á morgun kemur Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra til Austurlands og skrifar undir Þjóðarsáttmála um læsi á Egilsstöðum og í Neskaupstað. Þjóðarsáttmálinn er nýtt verkefni mennta- og menningarmálaráðuneytisins og er markm... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3836-greidhslukerfi-liggur-nidhri-radhir-vidh-hradhbanka | Greiðslukerfi lá niðri: Raðir mynduðust við hraðbanka
Bilun kom upp fyrr í dag í greiðslukerfi fyrirtækisins Verifone, sem áður hét Point. Bilunin hafði þær afleiðingar að fjölmargar verslanir og fyrirtæki gátu ekki tekið við greiðslu með greiðslukortum. Biðraðir hafa myndast við hraðbanka víða um land af þessum sökum.... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3824-90-starfsmanna-alcoa-fjardhaals-samthykktu-nyjan-kjarasamning | Nýr kjarasamningur starfsmanna Alcoa Fjarðaáls samþykktur með yfirburðum
Atkvæðagreiðslu um kjarasamning AFLs og RSÍ við Alcoa Fjarðaál lauk í gær, þriðjudag, og var hann samþykktur með miklum yfirburðum. Á kjörskrá voru 393 starfsmenn og samþykktu 90% þeirra sem greiddu atkvæði um samninginn, en hann gildir til fimm á... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3808-innflutningsbann-russa-hefur-ahrif-a-gridarlega-morg-storf-a-austfjordum | Innflutningsbann Rússa hefur áhrif á gríðarlega mörg störf á Austfjörðum
Erfitt er að meta áhrif innflutningsbanns Rússa á íslenskan fisk á Austurland en sjávarútvegsfyrirtæki á svæðinu hafa átt í miklum viðskiptum við Rússa. Formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) segir bannið koma harðar niður á Íslendingum ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3841-leikmadhur-hattar-rekinn-fra-felaginu-vegna-kynthattafordoma | Leikmaður Hattar rekinn frá félaginu vegna kynþáttafordóma
Stjórn Hattar rekstrarfélags hefur ákveðið að reka Georgi Stefanov frá liðinu í kjölfar niðrandi ummæla sem hann lét falla um markvörð Ægis frá Þorlákshöfn í leik Hattar og Ægis síðastliðinn laugardag. Stefanov kom til Hattar frá Búlgaríu í lok lok júlímánaðar ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3832-nordfjardargong-eskifjardara-flaeddi-yfir-vinnusvaedi-brunarvinnuflokksins | Norðfjarðargöng: Eskifjarðará flæddi yfir vinnusvæði brúnarvinnuflokksins
Úrhellisrigning hefur verið undanfarnar klukkustundir á Eskifirði með þeim afleiðingum að vöxtur hljóp í ár og læki. Eskifjarðará bólgnaði upp og vatn flæddi yfir vinnusvæði brúarvinnuflokks VHE.
Flokkurinn vinnur við byggingu nýrrar brúar á Eski... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3823-seldi-bil-ur-landi-sem-hann-atti-ekki | Seldi bíl úr landi sem hann átti ekki
Karlmaður á sextugsaldri var nýverið dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi í héraðsdómi Austurlands fyrir fjárdrátt. Hann seldi bifreið úr landi sem var í eigu fjármögnunarfyrirtækis.
Manninum var gefið að sök að hafa dregið sér og fyrirtæki sínu í Þýskalandi 14,5 milljónir ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3806-nordfjardargong-slokkvilidid-aefdi-sig-a-sjohusum-sem-thurftu-ad-vikja-fyrir-nyjum-vegi | Norðfjarðargöng: Slökkviliðið æfði sig á sjóhúsum sem þurftu að víkja fyrir nýjum vegi
Slökkvilið Fjarðabyggðar notaði tækifærið í gær til æfinga þegar tvö sjóhús við veginn niður Hólmaháls voru brennd þar sem þau voru í línu nýs vegar sem gerður verður að Norðfjarðargöngum. Slökkviliðsstjórinn segir hafa verið gott að... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3837-leikmadhur-hattar-sakadhur-um-kynthattafordoma-i-gardh-andstaedhings | Leikmaður Hattar sakaður um kynþáttafordóma í garð andstæðings
Hattarmenn tóku á móti Ægi á Vilhjálmsvelli á Egilsstöðum í dag. Leiknum lauk með 0-2 sigri gestanna úr Þorlákshöfn. Röð atvika í síðari hálfleik er þó það sem stendur upp úr að leik loknum.
Georgi Stefanov, leikmaður Hattar, var í tvígang sakaður um að ver... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3827-airbnb-a-austurlandi-32-ibudhir-edha-hus-til-leigu-i-thettbyli | Airbnb á Austurlandi: 32 íbúðir eða hús til leigu í þéttbýli
Airbnb er vefsíða sem gerir fólki kleift að leigja út íbúðir sínar til ferðamanna í skemmri eða lengri tíma. Síðan nýtur síaukinna vinsælda á meðal Íslendinga sem sjá tækifæri í að leigja húsnæði sitt út tímabundið á meðan þeir fara sjálfir að ferðast eða fjá... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3812-heitavatnslaust-a-egilsstodum-i-dag | Heitavatnslaust á Egilsstöðum í dag
Lokað verður fyrir heita vatnið á veitusvæði Hitaveitu Egilsstaða og Fella austan Lagarfljóts eftir hádegi í dag og fram á kvöld vegna tengivinnu við stofnlögn.
Í tilkynningu frá hitaveitunni eru vatnsnotendur hvattur til að gæta þess að neysluvatnskranar séu örugglega lokaðir og slö... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3798-soegulegur-baejarstjornarfundur | Sögulegur bæjarstjórnarfundur
Í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna, munu konur skipa hvert sæti á næsta fundi bæjarstjórnar Fjarðabyggðar - sem fram fer i dag.
Konur eru fjórar af níu bæjarfulltrúum og taka því fimm varabæjarfulltrúar úr röðum kvenna sæti á fundinum.
Þetta verður í fyrsta sinn í sögu sveit... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3796-lunga-skolinn-undirbyr-sinn-annan-starfsvetur-enn-opidh-fyrir-umsoknir | LungA-skólinn undirbýr sinn annan starfsvetur: Enn opið fyrir umsóknir
LungA-skólinn á Seyðisfirði hefur göngu sína á ný í september, en skólinn hefur starfað í einn heilan vetur. Námsfyrirkomulaginu svipar til norrænna lýðháskóla og er boðið upp á 12 vikna námskeið, bæði á haustönn og vorönn. Austurfrétt heyrði í Jona... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3787-snaefellsskali-opnadhi-ovenju-seint | Snæfellsskáli opnaði óvenju seint
Snæfellsvegur inn að Snæfellsskála opnaði loks fyrir akandi umferð þann 29. júlí síðastliðinn. Það er umtalsvert seinna en fyrri ár og má rekja orsökina til mikillar kuldatíðar undanfarna mánuði. „Þetta er held ég bara seinasta opnunin í manna minnum. Það var búið að vera svo mikið af ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3780-heyrulla-flaut-atta-kilometra-medh-anni-myndband | Heyrúlla flaut átta kílómetra með ánni - Myndband
Mikið flóð varð að Skriðufelli í Jökulsárhlíð í vikunni, í kjölfar mikillar úrkomu. Túnin voru undirlögð vatni eins og sjá má í myndbandinu hér að neðan, sem var tekið af Stefaníu Malen Stefánsdóttur á Skriðufelli.
Ragnar Magnússon, bóndi á Skriðufelli, segir úrkomuna h... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3774-barnalegt-ad-gera-utanrikisradherra-abyrgan-fyrir-hagsmunum-sildarvinnslunnar-i-neskaupstad | „Barnalegt að gera utanríkisráðherra ábyrgan fyrir hagsmunum Síldarvinnslunnar í Neskaupstað"
Utanríkismálanefnd Alþingis virðist ekki vera á þeirri skoðun að hverfa frá viðskiptaþvingunum gegn Rússum í ótta við að það komi niður á íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum. Formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir viðs... |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.