Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
http://www.austurfrett.is/frettir/1954-sera-thorgeir-skipadur-soknarprestur-a-egilsstodum
Séra Þorgeir skipaður sóknarprestur á Egilsstöðum Biskup Íslands hefur ákveðið að skipa séra Þorgeir Arason í embætti sóknarprests Egilsstaðaprestakalls og Ólöfu Margréti Snorradóttur guðfræðing í embætti prests í prestakallinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þjóðkirkjunni í dag. Þorgeir og Sigríður Munda Jónsdótti...
http://www.austurfrett.is/frettir/1947-vidbotarkvoti-auglystur-a-djupavogi-engar-raunhaefar-motvaegisadgerdir-verid-settar-fram
Viðbótarkvóti auglýstur á Djúpavogi: Engar raunhæfar mótvægisaðgerðir verið settar fram Byggðastofnun hefur auglýst eftir samstarfsaðilum um nýtingu viðbótaraflaheimilda á Djúpavogi og Breiðdalsvík. Hreppsnefnd Djúpavogshrepps telur heimildirnar engan vegin nógu miklar til að mæta því höggi sem verður þegar vinnsla Vís...
http://www.austurfrett.is/frettir/1944-thungaflutningar-samraemast-vart-fjolskylduvaenum-midbae
Þungaflutningar samræmast vart fjölskylduvænum miðbæ Úrskurðanefnd umhverfis- og auðlindamála hefur til meðferðar kæru þriggja íbúa á Reyðarfirði út af starfsleyfi Gámaþjónustu Austurlands í miðbæ staðarins. Íbúarnir telja starfsleyfið ekki samræmast gildandi aðalskipulagi. Heilbrigðiseftirlit Austurlands (HAUST) gaf í...
http://www.austurfrett.is/frettir/1934-einar-mar-alltof-litid-aunnist-i-thvi-ad-sameina-sveitarfelogin
Einar Már: Alltof lítið áunnist í því að sameina sveitarfélögin Einar Már Sigurðsson, sem skipar fjórða sætið á lista Fjarðalistans í Fjarðabyggð, segir það slæmt ef íbúar telja sig hafa orðið utanveltu eftir sameiningu sveitarfélaga. Rætt var um forgangsröðun á milli byggðakjarnanna og íbúalýðræði á framboðsfundi á St...
http://www.austurfrett.is/frettir/1953-allstadar-buid-ad-skera-inn-ad-beini-kalla-0-19-ekki-blodugan-nidurskurd
Allstaðar búið að skera inn að beini: Kalla 0,19% ekki blóðugan niðurskurð Frambjóðendur Fjarðalistans segja mikilvægt að efla fjölskyldusvið og velferðarþjónustu í Fjarðabyggð eftir niðurskurðartímabil. Oddviti Sjálfstæðismanna segir það lúxusvandamál að leikskólar sveitarfélagsins séu sprungnir. Heilbrigðis-, skóla-,...
http://www.austurfrett.is/frettir/1946-fjorir-af-fimm-hreppsnefndarmonnum-viku-vegna-vanhaefis
Fjórir af fimm hreppsnefndarmönnum viku vegna vanhæfis Fjórir af fimm hreppsnefndarmönnum í Fljótsdal þurftu á einhverjum tímapunkti að víkja sæti vegna vanhæfis á síðasta fundi á meðan teknar voru fyrir styrkbeiðnir sem þeir tengdust á einhvern hátt. Jóhann F. Þórhallsson, varaoddviti, vék fyrstur þegar tekin var fyri...
http://www.austurfrett.is/frettir/1940-thad-eru-ad-detta-af-okkur-allar-skrautfjadhrirnar
„Það eru að detta af okkur allar skrautfjaðrirnar" Heilbrigðis-, umhverfis- og skipulagsmál voru kjósendum á Fáskrúðsfirði ofarlega í huga á opnum framboðsfundi þar í gærkvöldi. Þeir lýstu meðal annars vonbrigðum sínum með að ekki væri læknir með fasta búsetu á staðnum og ótta við að sjúkrabifreið yrði tekin þaðan vegn...
http://www.austurfrett.is/frettir/1933-nu-er-rodin-komin-ad-djupavogi-myndband
„Nú er röðin komin að Djúpavogi" - Myndband Djúpavogshreppur, með stuðningi AFLs starfsgreinafélags, hefur látið gera myndband þar sem kallað er eftir viðbrögðum stjórnvalda við fyrirhuguðum brottflutningi á bolfiskvinnslu Vísis frá staðnum. „Tilgangurinn var að vekja stjórnvöld og almenning til umhugsunar um þann vand...
http://www.austurfrett.is/frettir/1931-vid-erum-bjartir-i-dag-skrifad-undir-samning-um-rannsoknir-i-finnafirdi
Við erum bjartir í dag: Skrifað undir samning um rannsóknir í Finnafirði Bárður Jónasson, oddviti Vopnafjarðarhrepps, segir mikla atvinnumöguleika felast í mögulegri umskipunarhöfn í Finnafirði fyrir sveitarfélögin á Norðausturlandi. Formlegur samningur á milli Bremenports, Langanesbyggðar, Vopnafjarðarhrepps og verkfr...
http://www.austurfrett.is/frettir/1926-nogu-mikid-hugs-fyrir-minn-smekk-hofum-ekki-hugmynd-um-hver-reikningurinn-verdur
Nógu mikið „hugs" fyrir minn smekk: Höfum ekki hugmynd um hver reikningurinn verður Fulltrúar Fjarðalistans í bæjarstjórn Fjarðabyggðar saka meirihlutann um að draga lappirnar í jöfnun gjaldskrár fyrir almenningssamgöngur í sveitarfélaginu. Bæjarfulltrúar meirihlutans segja aftur á móti að reikna þurfi út afleiðingar o...
http://www.austurfrett.is/frettir/1919-nordfjardargong-framvinda-eykst-a-ny-eskifjardarmegin
Norðfjarðargöng: Framvinda eykst á ný Eskifjarðarmegin Þegar um 20% hafa verið grafin af Norðfjarðargöngum er áhrifa setlagsins Eskifjarðarmegin loksins hætt að gæta og hægt að hefja fulla vinnslu á ný. Þrátt fyrir að setlagið hafi horfið upp úr þekjunni nokkrum dögum áður, þá var bergfleygurinn undir því enn of þunnur...
http://www.austurfrett.is/frettir/1914-gengid-fra-starfslokum-jons-palssonar-hja-austurbru
Gengið frá starfslokum Jóns Pálssonar hjá Austurbrú Gengið hefur verið frá starfslokasamningi milli Austurbrúar og Jóns Pálssonar sem gegnt hefur starfi fulltrúa markaðsmála hjá stofnuninni í ár. „Austurbrú gerði starfslokasamkomulag við Jón. Um þetta samkomulag ríkir trúnaður og ég mun því ekki tjá mig frekar um þetta...
http://www.austurfrett.is/frettir/1930-tugir-keyrdhu-framhja-umferdarslysi-hefdi-getad-verid-alvarlegra
Tugir keyrðu framhjá umferðarslysi: Hefði getað verið alvarlegra Tugir ferðalanga keyrðu framhjá Inga Ragnarssyni á meðan hann beið eftir sjúkrabíl eftir að hann lenti út af veginum yfir Fagradal í gærmorgun. „Þeir hafa væntanlega séð mig í framsætinu á hreyfingu og ég var á breyttum jeppa þannig þetta kann að hafa lit...
http://www.austurfrett.is/frettir/1924-ragnar-sigurdsson-nyr-formadur-fosa-aetlum-ad-efla-hagsmunabarattu
Ragnar Sigurðsson nýr formaður FOSA: „Ætlum að efla hagsmunabaráttu" Ragnar Sigurðsson var kjörinn formaður Félags opinberra starfsmanna á Austurlandi (FOSA) á aðalfundi félagsins fyrri skemmstu. Hann segir mikilvægt að efla hagsmunabaráttu félagsins, efla menntunarsjóði og auka sýnileika félagsins. „Það er mikilvægt a...
http://www.austurfrett.is/frettir/1917-afhenti-sigmundi-davidh-undirskriftalista-tilfinningin-er-adh-menn-vilji-reyna-adh-hjalpa-okkur
Afhenti Sigmundi Davíð undirskriftalista: Tilfinningin er að menn vilji reyna að hjálpa okkur Kristján Ingimarsson, íbúi á Djúpavogi, afhenti Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, forsætisráðherra og fyrsta þingmanni Norðausturkjördæmis, í dag undirskriftarlista með nöfnum 150 íbúa Djúpavogshrepps út af þeirri stöðu sem upp er...
http://www.austurfrett.is/frettir/1904-elfa-hlin-efst-hja-seydisfjardarlistanum
Elfa Hlín efst hjá Seyðisfjarðarlistanum Elfa Hlín Pétursdóttir, verkefnastjóri hjá Austurbrú, verður í forsvari fyrir Seyðisfjarðarlistann, nýtt framboð á Seyðisfirði. Í kynningu frá listanum, sem fengið hefur listabókstafinn L, segir að hann sé hópur af fólki sem vilji leggja samfélaginu á Seyðisfirði lið, óháð flokk...
http://www.austurfrett.is/frettir/1929-jens-gardar-synist-ekki-ad-siglingar-norraenu-til-eskifjardar-verdi-ad-veruleika
Jens Garðar: Sýnist ekki að siglingar Norrænu til Eskifjarðar verði að veruleika Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar, telur ólíklegt að hugmyndir Smyril-Line um að flytja siglingar ferjunnar Norrænu til Seyðisfjarðar verði að veruleika. Frambjóðendur segja að ekki verði ráðist í hafnarframkvæmdir fyr...
http://www.austurfrett.is/frettir/1922-daemdur-fyrir-adh-hota-loegreglumoennum-djoefull-skal-eg-fokking-drepa-ykkur
Dæmdur fyrir að hóta lögreglumönnum: „Djöfull skal ég fokking drepa ykkur" Héraðsdómur Austurlands dæmdi nýverið karlmann á þrítugsaldri í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrri að hafa í hótunum við lögreglumenn við skyldustörf. Hann var hins vegar sýknaður af því að hafa reynt að kýla og sparka í þá. Atvikið átti sér ...
http://www.austurfrett.is/frettir/1916-hofum-synt-tillitssemi-og-bedid-en-vid-gerum-thad-ekki-lengur
„Höfum sýnt tillitssemi og beðið en við gerum það ekki lengur" Grunnskólakennarar á Fljótsdalshéraði inntu forsvarsmenn bæjarstjórnar eftir hvað þeir teldu vera eðlileg laun fyrir kennarastarfið á útifundi í gær. Forsvarsmenn bæjarstjórnar segja lítið svigrúm í fjárhag sveitarfélagsins til launahækanna. Kennarar lögðu ...
http://www.austurfrett.is/frettir/1902-arnbjorg-leidir-sjalfstaedismenn-a-seydisfirdi
Arnbjörg leiðir Sjálfstæðismenn á Seyðisfirði Arnbjörg Sveinsdóttir, forseti bæjarstjórnar og fyrrverandi þingmaður, er efst á lista Sjálfstæðisflokksins á Seyðisfirði fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Konur skipa fjögur efstu sætin á listanum. Í öðru sæti er Margrét Guðjónsdóttir, formaður bæjarráðs. Flokkurinn ...
http://www.austurfrett.is/frettir/1900-thrjatiu-starfsmenn-visis-foru-sudur-til-ad-skoda-adstaedur
Þrjátíu starfsmenn Vísis fóru suður til að skoða aðstæður Tæplega 30 starfsmenn fiskvinnslu Vísis á Djúpavogi fóru með morgunflugi frá Egilsstöðum klukkan níu áleiðis til Grindavíkur til að skoða aðstæður þar. Vísir hyggst hætta bolfiskvinnslu á Djúpavogi í sumar og hefur boðið starfsmönnunum að flytjast suður. Hópurin...
http://www.austurfrett.is/frettir/1894-andres-og-soley-halda-afram-hja-framfaralistanum
Andrés og Sóley gefa kost á sér áfram í sveitarstjórn Andrés Skúlason, oddviti Djúpavogshrepps, fer fyrir F-lista framfara á Djúpavogi. Sóley Dögg Birgisdóttir gefur einnig kost á sér áfram í sveitarstjórn. Andrés og Sóley Dögg skipuðu fyrsta og fjórða sætið á Nýlistanum sem bauð einn fram árið 2010 og fékk þar af leið...
http://www.austurfrett.is/frettir/1888-tveir-hreppsnefndarmenn-haetta-a-borgarfirdi
Tveir hreppsnefndarmenn hætta á Borgarfirði Tveir fulltrúar í hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps gefa ekki kost á sér til áframhaldandi setu í hreppsnefnd. Kosningin verður að venju óhlutbundin. Þetta staðfesti Björn Aðalsteinsson, formaður kjörstjórnar, í svari við fyrirspurn Austurfréttar. Samkvæmt reglum geta hreppsnef...
http://www.austurfrett.is/frettir/1883-stadsetning-oliuhafnar-hefur-gridarlega-thydingu-ef-farid-verdur-ad-bora
Staðsetning olíuhafnar: Hefur gríðarlega þýðingu ef farið verður að bora Ákvörðun Eykon Energy um að velja Reyðarfjörð sem sína aðalhöfn fyrir landþjónustu við olíuleit- og vinnslu hefur lítil áhrif fyrst í stað. Umsvifin verða hins vegar gríðarleg ef borun hefst á Drekasvæðinu. Reynsla svæðisins af því að takast við s...
http://www.austurfrett.is/frettir/1896-syslumanns-og-logreglustjoraembaetti-sameinud-hvar-lendir-hoefn
Sýslumanns- og lögreglustjóraembætti sameinuð: Hvar lendir Höfn? Gert er ráð fyrir að einn sýslumaður og einn lögreglustjóri verði yfir öllu Austurlandi miðað við frumvörp sem samþykkt voru á Alþingi í morgun. Ekki er gert ráð fyrir uppsögnum starfsmanna og ekki hefur verið ákveðið var embættin verða með aðsetur. Með l...
http://www.austurfrett.is/frettir/1893-endurreisn-bydur-fram-a-fljotsdalsheradi
Endurreisn býður fram á Fljótsdalshéraði Endurreisn – listi fólksins er nýtt framboð á Fljótsdalshéraði sem Áskell Einarsson, bóndi í Eiðaþinghá, leiðir. Slagorð Listans er „Við gerum allt fyrir alla, en meira fyrir suma (með fyrirvara um efndir)". „Endurreisn er samstaða óflokksbundinna einstaklinga sem vilja sjá ákva...
http://www.austurfrett.is/frettir/1887-hreppsnefndin-haettir-oll-i-breiddal
Hreppsnefndin hættir öll í Breiðdal Enginn sitjandi hreppsnefndarmanna í Breiðdalshreppi gefur kost á sér til áframhaldandi setu. Þar verður óhlutbundin kosning í fyrsta sinn í áraraðir. Framboðsfrestur rann út klukkan tólf á hádegi á laugardag. Ekkert framboð barst fyrir tilsettan tíma og því verður óhlutbundin kosnin...
http://www.austurfrett.is/frettir/1882-engir-listar-i-fljotsdal-varaoddvitinn-haettir-i-hreppsnefnd
Engir listar í Fljótsdal: Varaoddvitinn hættir í hreppsnefnd Ein breyting er fyrirsjáanleg á hreppsnefnd Fljótsdalshrepps þar sem varaoddvitinn hefur beðist undan endurkjöri. Í hreppnum verður að venju óhlutbundin kosning. Þetta staðfesti Lára G. Oddsdóttir, formaður kjörstjórnar, í svari við yfirspurn Austurfréttar. S...
http://www.austurfrett.is/frettir/1895-oskalistinn-nyr-a-djupavogi-ljost-ad-mikid-verk-er-framundan
Óskalistinn nýr á Djúpavogi: Ljóst að mikið verk er framundan Rán Freysdóttir innanhússarkitekt, skipar efsta sætið á Óskalistanum sem er nýtt framboð í Djúpavogshreppi. Hún segir þau vilja tryggja aukið lýðræði og gera sveitarfélagið að ákjósanlegum stað til að búa á. „Við leggjum áherslu á að meira samráð verði milli...
http://www.austurfrett.is/frettir/1889-vilhjalmur-baejarstjori-efstur-hja-framsoknarmonnum-a-seydisfirdi
Vilhjálmur bæjarstjóri efstur hjá framsóknarmönnum á Seyðisfirði Vilhjálmur Jónsson, bæjarstjóri, fer fyrir framboði B-lista, framsóknar-, samvinnu- og félagshyggjufólks á Seyðisfirði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Þrír karlar eru í efstu sætum listans. Tillaga uppstillingarnefndar að listanum var samþykkt sa...
http://www.austurfrett.is/frettir/1884-ssa-stjornvoeld-verdha-adh-koma-adh-malefnum-sjavarbyggdha-a-austurlandi
SSA: Stjórnvöld verða að koma að málefnum sjávarbyggða á Austurlandi Stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi vill að stjórnvöld beiti sér í málefnum sjávarbyggða á Austurlandi. Jafnframt vill hún að þingmenn fundu með bæjarstjórn Seyðisfjarðar og forsvarsmönnum Smyril-Line til að ræða ferjumál á Seyðisfirði. Þetta ...
http://www.austurfrett.is/frettir/1881-samthykkt-ad-endurskoda-reglur-um-byggingamal-med-tilliti-til-tjons-af-voldum-myglusveppa
Samþykkt að endurskoða reglur um byggingamál með tilliti til tjóns af völdum myglusveppa Alþingi samþykkti í morgun þingályktunartillögu sem lögð var fram af tólf þingmönnum um endurskoðun laga og reglna með tilliti til myglusvepps og tjóns af völdum þeirra. Tillagan var lögð fram í kjölfar myglumála í húsum á Austurla...
http://www.austurfrett.is/frettir/1878-fjardabyggd-og-fljotsdalsherad-verda-starfssvaedi-eykon-energy
Fjarðabyggð og Fljótsdalshérað verða starfssvæði Eykon Energy Fjarðabyggð og Fljótsdalshérað verða starfssvæði landþjónustu Eykon Energy vegna fyrirhugaðrar olíuleitar og –vinnslu á Drekasvæðinu samkvæmt ákvörðun stjórnenda fyrirtækisins. Í faglegri úttekt sem gerð var á staðarvali fyrir þjónustumiðstöð vegna fyrirhuga...
http://www.austurfrett.is/frettir/1874-eyjolfur-leidhir-k-listann-a-vopnafirdi
Eyjólfur og Sigríður Elva efst hjá K-listanum á Vopnafirði Bæjarfulltrúarnir Eyjólfur Sigurðsson og Sigríður Elva Konráðsdóttir skipa efstu sætin tvö hjá K-listanum, lista félagshyggju á Vopnafirði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. K-listinn fékk tvo menn kjörna fyrir fjórum árum. Ólafur K. Ármannsson var þá odd...
http://www.austurfrett.is/frettir/1864-sigrun-blondal-se-eftir-ad-hafa-ekki-verid-fyrr-a-moti-thessu
Sigrún Blöndal: Sé eftir að hafa ekki verið fyrr á móti þessu Fulltrúar minnihlutans í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs sátu hjá við afgreiðslu framkvæmdaáætlunar við veghleðslur á Breiðdalsheiði í gær. Þeir segjast ósáttir við tilurð, meðferð og forgangsröðun þeirra fjármuna sem forsætisráðuneytið veitti til verkefnisins....
http://www.austurfrett.is/frettir/1857-leitad-ad-thremur-ungum-stelpum-foru-i-langa-gongu-thvi-thaer-vantadi-eitthvad-spennandi-ad-gera
Leitað að þremur ungum stelpum: Fóru í langa göngu því þær vantaði eitthvað spennandi að gera Ítarleg leit var gerð að þremur níu ára gömlum stelpum á Egilsstöðum í kvöld. Þær komu fram um miðnættið inni á Völlum. Leit hafði þá staðið í um einn og hálfan tíma. Stelpurnar lögðu a stað um klukkan hálf átta í kvöld. Að sö...
http://www.austurfrett.is/frettir/1880-gengid-i-hus-a-austurlandi
Gengið í hús á Austurlandi Björgunarsveitarmenn á Austurlandi hafa um helgina gengið í hús til að ná í gögn í tengslum við landsátakið „Útkall – í þágu vísinda". Yfir eitt hundrað þúsund Íslendingar hafa fengið boð um að taka þátt í samanburðarhópi fyrir rannsóknir Íslenskrar erfðagreiningar en átakið fer fram í samsta...
http://www.austurfrett.is/frettir/1866-truflun-fra-storidhju-a-sudhvesturlandi-olli-rafmagnsleysi-a-austurlandi
Truflun frá stóriðju á suðvesturlandi olli rafmagnsleysi á Austurlandi Truflun frá stóriðju á suðvesturlandi hleypti af stað keðjuverkunum í rafkerfi landsins sem olli um tveggja tíma rafmagnsleysi víða um Austurland á mánudagskvöld. Raftæki skemmdust í spennusveiflunum. Skerða hefur þurft orku til raforkunotenda á Aus...
http://www.austurfrett.is/frettir/1862-flugslysaaefing-a-vopnafirdi
Flugslysaæfing á Vopnafirði Isavia heldur flugslysaæfingu á Vopnafjarðarflugvelli næstkomandi laugardag. Íbúar í grennd við flugvöllinn mega búast við því að sjá reyk stíga upp frá flugvellinum þar sem kveikt verður í bílflökum til þess að líkja eftir braki úr flugvél. Æfingin stendur frá því klukkan tíu um morguninn f...
http://www.austurfrett.is/frettir/1850-fjardalistinn-staerstur-miklar-sveiflur-a-fylgi
Fjarðalistinn stærstur: Miklar sveiflur á fylgi Fjarðalistinn mælist með tæplega 40% fylgi í Fjarðabyggð í skoðanakönnum sem birt var í dag. Listinn vinnur mann af Sjálfstæðisflokki en meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks heldur. Töluverðar sveiflur virðast á fylgi. Félagsvísindastofnun gerði könnunina fyri...
http://www.austurfrett.is/frettir/1875-eg-aetladi-ekki-ad-vera-medh-neinn-aesing-skodanir-minar-eru-ekki-nytilkomnar
Ég ætlaði ekki að vera með neinn æsing: Skoðanir mínar eru ekki nýtilkomnar Til snarpra orðaskipta kom á fundi bæjarstjórnar Fjarðabyggðar í gær í umræðu um ársreikning og almenningssamgöngur eftir að minnihluti Fjarðalistans lagði fram tillögu um að sveitarfélagið yrði allt eitt gjaldsvæði frá og með haustinu. Fulltrú...
http://www.austurfrett.is/frettir/1865-stefan-bogi-jakvaett-thegar-verkefni-her-njota-nad-fyrir-augum-rikisvaldsins
Stefán Bogi: Jákvætt þegar verkefni hér njóta náð fyrir augum ríkisvaldsins Fulltrúar minnihlutans í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs sátu hjá þegar fulltrúar meirihlutans samþykktu framkvæmdaáætlun fyrir uppbyggingu og skráningu veghleðslna á Breiðdalsheið á bæjarstjórnarfundi í gær. Fulltrúum meirihlutans þykir undarlegt...
http://www.austurfrett.is/frettir/1861-stefan-grimur-leidir-betra-sigtun
Stefán Grímur leiðir Betra Sigtún Stefán Grímur Rafnsson, vélfræðingur, verður í oddvitasæti nýs framboðslita á Vopnafirði sem kallast Betra Sigtún. Kjarni listans er skipaður fólki á aldrinum 25-35 ára. Hópurinn hefur fengið úthlutað listabókstafnum Ð. Á meðal stefnumála framboðsins er að auglýsa starf sveitarstjóra, ...
http://www.austurfrett.is/frettir/1849-fallidh-fra-sameiginlegri-stjornun-skolanna-a-faskrudhsfirdhi
Fallið frá sameiginlegri stjórnun skólanna á Fáskrúðsfirði Bæjaryfirvöld í Fjarðabyggð hafa hætt við að setja leik- og grunnskólana á Fáskrúðsfirði undir einn stjórnanda á næsta skólaári. Aðgerðin mætti harðri andstöðu meðal starfsmanna og foreldra í leikskólanum. Ákvörðunin var tekin á fundi bæjarráðs í gær en ráðið t...
http://www.austurfrett.is/frettir/1846-noro-veira-a-undanhaldi-starfsfolk-a-hros-skilidh-fyrir-uthald-vidh-erfidhar-adhstaedhur
Nóró-veira á undanhaldi: Starfsfólk á hrós skilið fyrir úthald við erfiðar aðstæður Nóró-veirusýking sem upp kom á hjúkrunardeild HSA á Egilsstöðum er á undanhaldi. Stefnt er að því að opna deildina á ný á föstudag eftir viku einangrun. Þetta staðfesti Ragnar Sigurðsson, svæðisstjóri norðursvæðis hjá HSA, í samtali við...
http://www.austurfrett.is/frettir/1838-agaetur-gangur-i-kolmunnaveidum
Ágætur gangur í kolmunnaveiðum Ágætur gangur er í kolmunnaveiðum en skipin eru flest að veiðum innan færeysku lögsögunnar þótt aflanum sé landað á Austfjörðum. Barði dró Bjart til hafnar í Neskaupstað í gærkvöldi eftir að vélarbilun kom upp í síðarnefnda skipinu. Fiskimjölsverksmiðjur Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði og...
http://www.austurfrett.is/frettir/1828-bardur-leidir-framsoknarmenn-a-vopnafirdi-thorunn-i-heidurssaetinu
Bárður leiðir framsóknarmenn á Vopnafirði: Þórunn í heiðurssætinu Bárður Jónasson, verkstjóri og oddviti Vopnafjarðarhrepps skipar efsta sætið á lista Framsóknarfélags Vopnafjarðar og óháðra fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Þórunn Egilsdóttir, þingmaður sem var oddviti framan af kjörtímabilinu skipar heiðurssætið....
http://www.austurfrett.is/frettir/1825-betra-sigtun-frambod-ungs-folks-sem-vill-taka-thatt-i-motun-samfelagsins
Betra Sigtún: Framboð ungs fólks sem vill taka þátt í mótun samfélagsins Á Vopnafirði er verið að leggja lokahönd á nýtt framboð sem ber heitið Betra Sigtún. Kjarnann í kringum það myndar fólk á aldrinum 20-35 ára. Formaður framboðsfélagsins segir hópinn vilja gera samfélagið aðlaðandi til að ungt fólk flytji aftur hei...
http://www.austurfrett.is/frettir/1845-fordaema-lokun-fiskvinnslu-litid-a-starfsfolk-sem-vinnuhju
Fordæma lokun fiskvinnslu: Litið á starfsfólk sem vinnuhjú Ákvörðun Vísis um að hætta núverandi fiskvinnslu á Djúpavogi og flytja til Grindavíkur er harðlega fordæmd í ályktun sem samþykkt var á aðalfundi AFLs – starfsgreinafélags um síðustu helgi. „Fyrirtækin virðast líta á starfsfólk sitt sem vinnuhjú sem unnt er að ...
http://www.austurfrett.is/frettir/1833-sigmundur-david-undirbjo-fund-med-forsaetisradherra-hollands
Sigmundur Davíð undirbjó fund með forsætisráðherra Hollands Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra og fyrstu þingmaður Norðausturkjördæmis, gat ekki sótt fund þriggja sveitarfélaga með stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi fyrir skemmstu vegna annarra fundarhalda. Í svari sem Austurfrétt barst í dag frá f...
http://www.austurfrett.is/frettir/1827-940-milljona-rekstrarhagnadur-i-fjardabyggd-erum-stolt-af-arangrinum
940 milljóna rekstrarhagnaður í Fjarðabyggð: Erum stolt af árangrinum Hraðar hefur gengið að greiða niður skuldir Fjarðabyggðar heldur en áætlað var. Uppgangstímar í atvinnulífi hafa nýst til þess og samstaða verið í bæjarstjórn um stærri atriði. Hagnaður af rekstri sveitarfélagsins nam tæpum 940 milljónum króna á síða...
http://www.austurfrett.is/frettir/1824-hjukrunardeildin-a-egilsstodum-einangrud-vegna-veirusykingar
Hjúkrunardeildin á Egilsstöðum einangruð vegna veirusýkingar Upp er komin Noro-veirusýking á hjúkrunardeild HSA á Egilsstöðum. Sýni úr vistmanni HSA staðfesta tilfellið en ennfremur leikur grunur á fleiri tilfellum meðal annars meðal starfsmanna en beðið er niðurstöðu sýnatöku. Þetta kemur fram í tilkynningu sem HSA se...
http://www.austurfrett.is/frettir/1843-kaup-sildarvinnslunnar-a-berg-huginn-ogilt-domarinn-taldi-litid-hald-i-rokum-svn
Kaup Síldarvinnslunnar á Berg-Huginn ógilt: Dómarinn taldi lítið hald í rökum SVN Héraðsdómur Reykjavíkur ógilti í gær kaup Síldarvinnslunnar á útgerðarfélaginu Berg-Huginn í Vestmannaeyjum. Vestmannaeyjabær höfðaði mál og taldi sig eiga forkaupsrétt á félaginu. Dómari taldi þau rök að ekki væri verið að kaupa fiskiski...
http://www.austurfrett.is/frettir/1829-thrir-thingmenn-ekki-enn-skyrt-fjarveru-fra-ssa-fundi
Þrír þingmenn ekki enn skýrt fjarveru frá SSA fundi Þrír þingmenn Norðausturkjördæmis hafa ekki svarað fyrirspurn Austurfréttar um hvers vegna þeir hafi ekki sótt fund Sambands sveitarfélaga á Austurlandi með forsvarsmönnum Djúpavogshrepps, Seyðisfjarðarkaupstaðar, Breiðdalshrepps og útgerðarmönnum. Tæpar tvær vikur er...
http://www.austurfrett.is/frettir/1826-yfir-tuttugu-milljonir-austur-i-framkvaemdir-a-ferdamannastodum
Yfir tuttugu milljónir austur í framkvæmdir á ferðamannastöðum Rúmlega 23 milljónum var veitt til framkvæmda við þrjár austfirskar náttúruperlur, Teigarhorn, Stórurð og Hengifoss, þegar úthlutað var úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir helgi. Styrkir voru á meðal þeirra tíu stærstu sem veittir voru en alls var úthl...
http://www.austurfrett.is/frettir/1821-1-mai-vidh-getum-sagt-vidh-viljum-ekki-svona-samfelag
1. maí: Við getum sagt við viljum ekki svona samfélag Launþegar verða að hugsa út í hvers konar samfélag þeir vilja sjá mótast á Íslandi. Þeir hafa tækifæri til þess í gegnum kjarasamninga. Umræðan um vaxandi ójöfnuð í íslensku samfélagi var inntak 1. maí ávarps AFLs starfsgreinasambands. „Samfélag fyrir alla" var yfir...
http://www.austurfrett.is/frettir/1817-tveir-sottu-um-embaetti-soknarprests-a-egilsstodum
Tveir sóttu um embætti sóknarprests á Egilsstöðum Tveir umsækjendur eru um embætti sóknarprests í Egilsstaðaprestakalli og fjórir um embætti prests. Prestarnir koma í stað séra Jóhönnu Sigmarsdóttur, núverandi sóknarprests og séra Láru G. Oddsdóttur, sóknarprests á Valþjófsstað sem láta af störfum í haust. Séra Sigríðu...
http://www.austurfrett.is/frettir/1814-austurbru-jona-arny-framkvaemdastjori-i-stadh-karls-soelva
Austurbrú: Jóna Árný framkvæmdastjóri í stað Karls Sölva Stjórn Austurbrúar ses. og Karl S. Guðmundsson framkvæmdastjóri hafa gert með sér samkomulag um starfslok. Jóna Árný Þórðardóttur hefur verið ráðin til að gegna starfi framkvæmdastjóra stofnunarinnar tímabundið næstu mánuði. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu f...
http://www.austurfrett.is/frettir/1808-vilhjalmur-jons-thingmennirnir-gera-ser-grein-fyrir-afallinu-sem-yrdi-ef-ferjan-faeri
Vilhjálmur Jóns: Þingmennirnir gera sér grein fyrir áfallinu sem yrði ef ferjan færi Bæjarstjóri Seyðisfjarðarkaupstaðar segir þingmenn Norðausturkjördæmis gera sér grein fyrir að það yrði áfall fyrir atvinnulíf staðarins ef siglingar ferjunnar Norrænu færðust þaðan. „Þingmennirnir hafa staðið við bakið á okkar uppbygg...
http://www.austurfrett.is/frettir/1806-lifandi-ledurblaka-med-skipi-til-reydarfjardar
Lifandi leðurblaka með skipi til Reyðarfjarðar Lifandi leðurblaka barst til Reyðarfjarðar með skipi frá Rotterdam í gærkvöldi. Starfsmenn Eimskips í Mjóeyrarhöfn handsömuðu blökuna sem fer á Náttúrugripasafnið í Neskaupstað. Starfsmenn Náttúrustofu Austurlands sóttu dýrið eftir hádegi í dag. Leðurblakan verður svæfð og...
http://www.austurfrett.is/frettir/1816-andres-skula-a-ekki-ad-vera-i-bodi-fyrir-thingmenn-ad-skila-audu-i-thessum-malum
Andrés Skúla: Á ekki að vera í boði fyrir þingmenn að skila auðu í þessum málum Forsvarsmenn Djúpavogshrepps vilja að þingmenn kjördæmisins og sjávarútvegsráðherra heimsæki staðinn og kynni sér aðstæður í ljósi þess að Vísir hyggst hætta bolfiskvinnslu á staðnum. Oddvitinn er óhress með mætingu þingmanna stjórnarflokka...
http://www.austurfrett.is/frettir/1812-nordfjardargong-buid-ad-grafa-1000-metra-eskifjardarmegin
Norðfjarðargöng: Búið að grafa 1000 metra Eskifjarðarmegin Léttara er orðið yfir þeim sem vinna við gerð nýrra Norðfjarðarganga en verið hefur. Annars vegar er búið að grafa 1000 metra Eskifjarðarmegin, hins vegar er setlagið sem hægt hefur á allri framvindu horfið. Þúsund metra áfanganum var náð í gær en byrjað var að...
http://www.austurfrett.is/frettir/1807-krefjast-tafarlausra-adgerda-stjornvalda-til-ad-koma-i-veg-fyrir-meirihattar-bakslag
Krefjast tafarlausra aðgerða stjórnvalda til að koma í veg fyrir meiriháttar bakslag Sveitarstjórn Djúpavogshrepps krefst þess að stjórnvöld grípi þegar í stað til aðgerða þannig að afstýra megi meiriháttar bakslagi í veiðum og fiskvinnslu á Djúpavogi. Þetta kemur fram í ályktun frá síðasta sveitarstjórnarfundi. Um mán...
http://www.austurfrett.is/frettir/1801-57-milljona-tap-hja-fljotsdalsheradhi-ekki-enn-fundidh-lausnir-vidh-oellum-heimsins-ahyggjum
57 milljóna tap hjá Fljótsdalshéraði: Ekki enn fundið lausnir við öllum heimsins áhyggjum Rekstrarafkoma sveitarfélagsins Fljótsdalshéraðs á árinu 2013 var neikvæð um 57 milljónir króna þótt gert væri ráð fyrir sjö milljóna tekjuafgangi. Frávikin skýrast fyrst og fremst af breytingum í fjármagnsliðum. Bæjarfulltrúar te...
http://www.austurfrett.is/frettir/1815-visir-stadfestir-lokun-a-djupavogi-skodunarferd-sudur-undirbuin
Vísir staðfestir lokun á Djúpavogi: Skoðunarferð suður undirbúin Starfsfólk Vísis á Djúpavogi fékk í dag staðfestingu á ákvörðun Vísis hf. að hætta bolfiskvinnslu á staðnum og flytja til Grindavíkur. Starfsfólki verður á næstunni boðið þangað til að skoða aðstæður og meta hvort það flytji með. Útlit er fyrir að um helm...
http://www.austurfrett.is/frettir/1810-innbrot-hja-fjardhaali
Innbrot hjá Fjarðaáli Brotist var inn í húsnæði Starfsmannafélags Alcoa-Fjarðaáls á Reyðarfirði í nótt. Þjófarnir höfðu á brott með sér nokkuð af dýrum búnaði. Tilkynning um innbrotið barst Lögreglunni á Eskifirði í morgun. Starfsmannaaðstaðan sem um ræðir stendur ekki á álverslóðinni heldur er hún í svonefndu Sómahúsi...
http://www.austurfrett.is/frettir/1805-ferdamenn-saekjast-eftir-osnortnum-vidernum-rosalega-skemmtilegt-ad-sja-ekki-neinn-a-leidinni
Ferðamenn sækjast eftir ósnortnum víðernum: Rosalega skemmtilegt að sjá ekki neinn á leiðinni Ferðamenn á hálendi Íslands sækjast eftir að ferðast um ósnortin víðerni. Það er þó ekki algilt því sumum kann að þykja það ógnandi að vera svo einir á ferð. Upplifun þeirra má til dæmis bæta með að merkja gönguleiðir en aukin...
http://www.austurfrett.is/frettir/1799-ahrif-menntunar-a-byggdhathroun-og-sjalfbaerni
Áhrif menntunar á byggðaþróun og sjálfbærni Ársfundur Sjálfbærniverkefnisins á Austurlandi verður haldinn þriðjudaginn 29. apríl nk. kl. 14.30 – 18.30 á Hótel Héraði, Egilsstöðum. Í ár verður sjónum beint sérstaklega að menntamálum. Verkefnið hefur verið starfrækt að frumkvæði Alcoa og Landsvirkjunar frá árinu 2004 í þ...
http://www.austurfrett.is/frettir/1798-uppstokkun-framundan-hja-austurbru-kominn-timi-a-ad-meta-arangurinn-af-stofnuninni
Uppstokkun framundan hjá Austurbrú? Kominn tími á að meta árangurinn af stofnuninni Til stendur að nota næstu mánuði til að meta hvernig til hefur tekist með stofnun Austurbrúar og kortleggja framtíð stofnunarinnar. Hörð átök hafa verið innanhúss síðustu mánuði og framtíð framkvæmdastjórans er í lausu lofti. Samkvæmt h...
http://www.austurfrett.is/frettir/1780-osattir-vid-atak-i-faekkun-villikatta-a-ekki-ad-vera-hugmynd-i-sidudu-samfelagidh-arid-2014
Ósáttir við átak í fækkun villikatta: Á ekki að vera hugmynd í siðuðu samfélagið árið 2014 Félagið Villikettir hefur sent bæjaryfirvöldum á Fljótsdalshéraði mótmæli vegna átaks sveitarfélagsins um fækkun villikatta. Tæplega fjögur hundruð undirskriftir söfnuðust til stuðnings mótmæla Villikattanna. Í bréfi sem félagið ...
http://www.austurfrett.is/frettir/1774-sumarstorf-a-landsbyggdinni-starf-leitar-eftir-samstarfsadilum
Sumarstörf á landsbyggðinni: STARF leitar eftir samstarfsaðilum STARF – vinnumiðlun og ráðgjöf er að kynna verkefni sem ber yfirskriftina Sumarstörf á landsbyggðinni, en það gengur út á að leita eftir samstarfi við ferðaþjónustufyrirtæki vítt og breytt um landið sem hafa í hyggju að ráða til sín sumarstarfsfólk. Með au...
http://www.austurfrett.is/frettir/1766-daemdur-fyrir-loedhrung-og-brotnar-rudhur-en-motadhilinn-syknadhur-fyrir-sjalfsvoern
Dæmdur fyrir löðrung og brotnar rúður en mótaðilinn sýknaður fyrir sjálfsvörn Héraðsdómur Austurlands dæmdi nýverið karlmann fyrir að hafa löðrungað annan mann í áflogum og valdið spjöllum á bifreið hans. Hann stefndi hinum manninum fyrir að hafa nefbrotið sig en sá var sýknaður á grundvelli neyðarvarnar. Atvikið átti ...
http://www.austurfrett.is/frettir/1788-nordfjardargong-veik-berglog-tefja-fyrir-vinnu
Norðfjarðargöng: Veik berglög tefja fyrir vinnu Vinna Eskifjarðarmegin við ný Norðfjarðargöng hefur gengið hægt síðustu vikur þar sem bergið er veikt. Vonast er til að sá kafli sé senn að baki. Verktakar hafa glímt við þykk og veik setlög sem hafa krafist mikilla styrkinga. Sprengdar hafa verið mjög stuttar færur, alve...
http://www.austurfrett.is/frettir/1778-engin-ny-tidindi-fyrir-okkur-austfirdinga-ad-thurfa-ad-eiga-vid-natturuverndarsinna
„Engin ný tíðindi fyrir okkur Austfirðinga að þurfa að eiga við náttúruverndarsinna" Bæjarfulltrúar í Fjarðabyggð telja nauðsynlegt að tryggja afhendingu raforku í sveitarfélaginu. Aukakostnaður þar sem kynda hefur þurft í Neskaupstað með olíu í mars og apríl nemur milljónum króna. Formaður bæjarráðs segir svarið vera ...
http://www.austurfrett.is/frettir/1771-hef-verid-i-sjokki-sidan-eg-fekk-fyrsta-orkureikninginn-myndar-trekk-og-einangrun-husa
Hef verið í sjokki síðan ég fékk fyrsta orkureikninginn: Myndar trekk og einangrun húsa Baldvin Harðarson myndaði í haust íbúðarhús í Fljótsdal með hitamyndavél. Hún sýnir hvar varmi tapast úr húsinu. Upplýsingarnar má nota til að einangra og þétta húsin betur og ná fram betri orkunýtingu. Baldvin, sem býr í Færeyjum, ...
http://www.austurfrett.is/frettir/1763-allir-geislafraedhingar-hja-hsa-hafa-sagt-upp-thetta-er-alvarleg-stadha
Allir geislafræðingar hjá HSA hafa sagt upp: Þetta er alvarleg staða Þeir þrír geislafræðingar sem starfa hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) sögðu upp störfum í byrjun apríl. Þeir fara fram á hækkun grunnlauna í samningi sem ekki hefur verið endurnýjaður síðan árið 2006. Framkvæmdastjóri lækninga vonast til að la...
http://www.austurfrett.is/frettir/1784-hafa-ahyggjur-af-umfangi-uppfyllingar-fyrir-nedan-dalshverfid
Hafa áhyggjur af umfangi uppfyllingar fyrir neðan dalshverfið Íbúar á Eskifirði hafa áhyggjur af umfangi efnis úr Norðfjarðargöngum sem komið hefur verið fyrir neðan við bæinn. Þeir hafa meðal annars áhyggjur af áhrif umferðar á fuglalíf. Þetta kemur fram í bréfi sem Íbúasamtök Eskifjarðar sendu sveitarfélaginu Fjarðab...
http://www.austurfrett.is/frettir/1775-samid-um-markadssetningu-a-fljotsdalsheradi
Samið um markaðssetningu á Fljótsdalshéraði Ferðaþjónustufyrirtækið Austurför mun hafa yfirumsjón með markaðssetningu og verkefnastjórnun fyrir nýstofnuð samtök þjónustufyrirtækja á Fljótsdalshéraði. Félagið fær stuðning frá sveitarfélaginu til að fylgja markaðssetningu þjónustusamfélagsins eftir. Samningar þar að lúta...
http://www.austurfrett.is/frettir/1768-gjaldkeri-starfsmannafelags-fjardaals-grunadur-um-fjardratt-umtalsverdar-upphaedir
Gjaldkeri starfsmannafélags Fjarðaáls grunaður um fjárdrátt: Umtalsverðar upphæðir Gjaldkeri Sóma, starfsmannafélags Alcoa Fjarðaáls, hefur verið kærður til lögreglu en grunur leikur á að hann hafi dregið sér umtalsverðar upphæðir úr sjóðum félagsins. Málið mun hafa uppgötvast við gerð ársreiknings fyrir félagið. Gjald...
http://www.austurfrett.is/frettir/1761-milljonir-i-aukinn-orkukostnad-vegna-skerdingar-a-orku
Milljónir í aukinn orkukostnað vegna skerðingar á orku Aukinn kostnaður fyrirtækja og stofnana í Neskaupstað vegna skerðingar á jafnorku hleypur á milljónum króna. Hækkun gjaldskrár er 150% þar sem kynda þarf með olíu í stað rafmagns. Í lok febrúar tilkynnti Landsvirkjun að skerða yrði afhendingu á jafnorku til húshitu...
http://www.austurfrett.is/frettir/1755-vegid-ad-faglegum-gildum-og-sjalfstaedi-leikskolans-starfsmenn-a-kaerabae-motmaela-sameiningu-i-stjornun
Vegið að faglegum gildum og sjálfstæði leikskólans? Starfsmenn á Kærabæ mótmæla sameiningu í stjórnun Leikskólakennarar við Kærabæ á Fáskrúðsfirði afar óánægðir með þá ákvörðun að sameina yfirstjórn leik- og grunnskólans á næsta skólaári. Þeir óttast að það komi niður á faglegu starfi leikskólans. Bæjaryfirvöld vilja g...
http://www.austurfrett.is/frettir/1752-villi-jons-agaett-ad-hittast-og-fara-yfir-malin
Vilhjálmur Jóns: Ágætt að hittast og fara yfir málin Bæjarstjórnar, bæjarráð og fulltrúar hafnanna á Seyðisfirði og í Fjarðabyggð hittust á fundi á Seyðisfirði í gær til að ræða málefni ferjunnar Norrænu. Bæjarstjóri Seyðisfjarðar segir lítið hafa komið út úr fundinum þótt alltaf sé gott að hittast til að ræða málin. „...
http://www.austurfrett.is/frettir/1740-allar-bjoergunarsveitir-uppteknar-ihugudhu-adh-kalla-reydhfirdhinga-ut-til-adhstodhar-a-fjardharheidhi
Allar björgunarsveitir uppteknar: Íhuguðu að kalla Reyðfirðinga út til aðstoðar á Fjarðarheiði Austfirskar björgunarsveitir höfðu í næg horn að líta seinni partinn í gær með útköllum upp á Vatnajökul og austfirskar heiðar til aðstoðar ferðamönnum. Á tímabili leit út fyrir að kalla þyrfti út björgunarsveit frá Reyðarfir...
http://www.austurfrett.is/frettir/1734-thad-vildu-allir-eignast-sparisjodinn-ottudust-ad-missa-sjodinn-ur-heimabyggd
Það vildu allir eignast sparisjóðinn: Óttuðust að missa hann úr heimabyggð Stofnfé var aukið í Sparisjóði Norðfjarðar árið 2007 til að reyna að tryggja áframhaldandi vald heimamanna yfir sjóðnum. Fréttir höfðu borist af útsendurum sem buðu stofnfjáreigendum „gull og græna skóga" fyrir hlut þeirra í sjóðnum. Þetta kemur...
http://www.austurfrett.is/frettir/1754-jens-gardar-gott-ad-geta-sest-nidur-og-talad-hreint-ut-vid-bordid
Jens Garðar: Gott að geta sest niður og talað hreint út við borðið Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar, segir það hafa verið gagnlegt að hitta forsvarsmenn Seyðisfjarðarkaupstaðar á fundi í gær til að ræða framtíð siglinga ferjunnar Norrænu. Ýmsar spurningar hafi vaknað eftir fundinn. „Þessi fundur v...
http://www.austurfrett.is/frettir/1749-gekk-ur-stjorn-fyrirtaekis-eftir-ad-hafa-verid-neitad-um-arsreikninginn
Gekk úr stjórn fyrirtækis eftir að hafa verið neitað um ársreikninginn Sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Norðfjarðar hætti í stjórn bifreiðaverkstæðis sem sjóðurinn átti í eftir að fulltrúar meirihlutaeigenda í stjórninni neituðu að afhenda ársreikning fyrirtækisins. Sparisjóðurinn afskrifaði að lokum átta milljónir króna ve...
http://www.austurfrett.is/frettir/1738-menn-vildu-bara-ad-sparisjodurinn-lifdi
„Menn vildu bara að sparisjóðurinn lifði" Rúmar 250 milljónir sem heimamenn söfnuðu í nýtt stofnfé var forsenda þess að ríkið kom að fjárhagslegri endurskipulagningu Sparisjóðs Norðfjarðar. Vegna þess hversu vel gekk að safna stofnfé virðast eldri stofnfjáreigendur hafa fengið að halda eftir stærri hlut en í mörgum öðr...
http://www.austurfrett.is/frettir/1730-norraena-verdur-a-seydisfirdi-naesta-vetur
Norræna verður á Seyðisfirði næsta vetur Forstjóri Smyril-Line segir ekkert hæft í sögusögnum um að ákvarðanir hafi teknar um að Norræna sigli til Eskifjarðar strax næsta vetur. Ástandið á Fjarðarheiði þurfi hins vegar að hafa í huga við gerð langtímaáætlana. „Eins og ég hef áður sagt þá hefur Norröna siglt árum saman ...
http://www.austurfrett.is/frettir/1753-badir-baejarfulltruar-a-listans-halda-afram
Báðir bæjarfulltrúar Á-listans halda áfram Bæjarfulltrúarnir Gunnar Jónsson og Sigrún Harðardóttir skipa efstu tvö sætin á framboðslista Á-lista áhugafólks um sveitarstjórnarmál á Fljótsdalshéraði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor, líkt og þau gerðu fyrir síðustu kosningar. Listinn var samþykkt á félagsfundi í gæ...
http://www.austurfrett.is/frettir/1744-snjoflodahaetta-a-veginum-ad-nyju-nordfjardargongunum-engin-akvordun-tekin-um-varnir
Snjóflóðahætta á veginum að nýju Norðfjarðargöngunum? Engin ákvörðun tekin um varnir Ráðgjafar sögðu að gera yrði ráðstafanir til að verja veginn að vætanlegum jarðgöngum í Fannardal fyrir snjóflóðum. Forstöðumaður hjá Vegagerðinni segir flóð ekki tíð á svæðinu en staðan verði metin í kjölfar flóðs sem féll nýverið ska...
http://www.austurfrett.is/frettir/1736-samid-vid-sjukralida-i-neskaupstad-engin-roskun-a-thjonustu
Samið við sjúkraliða í Neskaupstað: Engin röskun á þjónustu Samningar hafa tekist á milli Heilbrigðisstofnunar Austurlands og sjúkraliða stofnunarinnar sem sinna heimahjúkrun í Neskaupstað. Þeir höfðu áður hótað að hætta störfum frá og með 1. maí nema samningar tækjust. „Báðir aðilar eru sáttir við málalendingu. Starf ...
http://www.austurfrett.is/frettir/1728-sparisjodurinn-veitti-3-5-milljonum-i-styrki-til-nitjan-felaga
Sparisjóðurinn veitti 3,5 milljónum í styrki til nítján félaga Sparisjóður Norðfjarðar veitti í gær 3,5 milljónum króna í samfélagsmál til nítján félaga í Fjarðabyggð. Hagnaður sjóðsins nam tæpum 52 milljónum króna á síðasta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu sem send var út að loknum aðalfundi sjóðsins á miðvikudag. ...
http://www.austurfrett.is/frettir/1727-ekki-kennt-i-dymbilviku-thratt-fyrir-verkfall
Ekki kennt í dymbilviku þrátt fyrir verkfall Bætt verður aftan á skólaárið í austfirskum framhaldsskólum og kenndur einn laugardagur til að vinna upp kennslu sem glatast hefur út af kennaraverkfalli. Ekki verður kennt í dymbilviku. Samkvæmt nýgerðum samningum framhaldsskólakennara og ríkisins bætast við sex auka kennsl...
http://www.austurfrett.is/frettir/1716-bjoergunarsveitir-kalladar-ut-til-adstodar-lekum-bat-i-reydarfirdi
Björgunarsveitir kallaðar út til aðstoðar lekum bát í Reyðarfirði Björgunaraðgerðir í Reyðarfirði gengu vel í dag þegar sjóflokkar björgunarsveita á Austurlandi voru kallaðir út eftir að tilkynning barst um lekan bát í mynni Reyðarfjarðar. Um var að ræða lítinn fiskibát með einum manni um borð. „Þetta gekk mjög vel. Þa...
http://www.austurfrett.is/frettir/1708-riflega-100-milljona-afgangur-hja-vopnafjardharhreppi
Ríflega 100 milljóna afgangur hjá Vopnafjarðarhreppi Ríflega 100 milljóna króna hagnaður var af rekstri Vopnafjarðarhrepps á síðasta ár. Handbært fé frá rekstri er jákvætt upp á tæpar 200 milljónir. Unnið er að niðurgreiðslu skulda sveitarfélagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sveitarstjóra sem send var út eftir...
http://www.austurfrett.is/frettir/1680-nyr-batur-i-flota-borgfirdhinga-falkatindur-kom-til-hafnar-i-morgun
Nýr bátur í flota Borgfirðinga: Fálkatindur kom til hafnar í morgun Nýr bátur bættist í flota Borgfirðinga þegar Fálkatindur kom til hafnar í fyrsta skipti upp úr klukkan sjö í morgun. Eigandinn Kári Borgar lýsir bátnum sem glæsilegu skipi. „Það er gaman að vera með nýja og glæsilega báta," segir Kári. Fálkatindur er e...
http://www.austurfrett.is/frettir/1726-eina-bodid-i-rannsoknir-fyrir-fjardarheidi-langt-yfir-kostnadaraaetlun
Eina boðið í rannsóknir fyrir Fjarðarheiðargöng langt yfir kostnaðaráætlun Vegagerðin metur nú stöðuna eftir að aðeins eitt boð langt yfir kostnaðaráætlun barst í rannsóknarboranir fyrir væntanleg Fjarðarheiðargöng. Þrjátíu milljónir voru ætlaðar í verkið af fjárlögum í ár. Tilboðin voru opnuð á þriðjudag en um er að r...
http://www.austurfrett.is/frettir/1710-andres-skula-stjornvoeld-geta-ekki-verid-ahorfendur-ad-malum-af-thessari-staerd
Andrés Skúla: Stjórnvöld geta ekki verið áhorfendur að málum af þessari stærð Oddviti Djúpavogshrepps kallar eftir viðbrögðum stjórnvalda vegna þeirrar stöðu sem uppi er vegna áforma Vísis hf. um að flytja alla vinnslu og aflaheimildir frá Djúpavogi til Grindavíkur. Stíf fundarhöld hafa verið undanfarna daga um stöðuna...
http://www.austurfrett.is/frettir/1686-snjorinn-minnkar-haegt-a-heidhum-enn-veruleg-haetta-vidh-haspennulinur
Snjórinn minnkar hægt á heiðum: Enn veruleg hætta við háspennulínur Landsnet varar ferðafólk enn við hættu sem stafar af því að vera á ferð við háspennulínur á hálendinu. Þar sem ástandið er verst hefur verið gripið til þess ráðs að moka, eða ryðja frá línum og setja upp merkingar. „Það er enn víða ansi mikill snjór se...
http://www.austurfrett.is/frettir/1679-sigmundur-davidh-stjornvoeld-hljota-adh-gefa-moennum-tima-til-adh-vinna-adh-lausn
Sigmundur Davíð: Stjórnvöld hljóta að gefa mönnum tíma til að vinna að lausn Ríkisstjórnin ætlar að svo komnu máli ekki að beita sér í málum sjávarútvegsfyrirtækisins Vísis, sem hyggst meðal annars hætta bolfiskvinnslu á Djúpavogi í sumar. Útlit er fyrir að 25-35 starfsmenn missi vinnuna á stærsta vinnustað sveitarféla...