Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
http://www.austurfrett.is/frettir/2144-bruni-vid-utileikhusid-i-selskogi
Bruni við útileikhúsið í Selskógi Slökkvilið Fljótsdalshérað var kallað út laust fyrir hádegi vegna bruna í mannvirki sem áður tilheyrði útileikhúsinu í Selskógi. Vel gekk að slökkva glóðina sem þar hafði kraumað. Vegfarandi hringdi og lét vita af því að eldur væri laus í torfi og hann væri á leið í uppistöðu. Glóðin l...
http://www.austurfrett.is/frettir/2141-raforka-dreifikerfid-verdhur-ad-geta-thjonad-ibuum-fjordungsins
Raforka: Dreifikerfið verður að geta þjónað íbúum fjórðungsins Sveitastjórnarmenn á Austurlandi hafa áhyggjur af dreifikerfi raforku á svæðinu. Á Héraði vilja menn samstillt átak Austfirðinga til að vinna að úrbótum. Vakin var athygli á málinu fyrir skemmstu með ályktun fundar stjórnar Sambands sveitarfélaga á Austurla...
http://www.austurfrett.is/frettir/2134-lodnuvinnslan-kaupir-nytt-hoffell-kominn-timi-a-ad-uppfaera
Loðnuvinnslan kaupir nýtt Hoffell: Kominn tími á að uppfæra Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði tilkynnti í gær um að ákveðið hefði verið að kaupa skipið Smaragd frá Noregi. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir að tilkoma skipsins feli í sér byltingu fyrir gæði afla og aðstöðu áhafnar. „Afköst í kælingu, siglingu og burði au...
http://www.austurfrett.is/frettir/2122-afhending-rafmagns-thurfum-annadh-medh-starfsemina-ef-thetta-breytist-ekki
Afhending rafmagns: Þurfum annað með starfsemina ef þetta breytist ekki Iðn- og tæknifyrirtæki eiga erfitt uppdráttar á Austurlandi vegna mikils spennuflökts á rafmagni. Rafmagnsverkfræðingur segir þau vart eiga annarra kosta völ en að flytja sig um set batni afhendingaröryggi á rafmagni ekki. „Þetta er spursmál um líf...
http://www.austurfrett.is/frettir/2143-god-lifsskilyrdi-fyrir-laxa-i-joklu
Góð lífsskilyrði fyrir laxa í Jöklu Mælingar á löxum og seiðum úr Jökulsá á Dal gefa til kynna að lífsskilyrði fyrir fiskin séu góð í ánni. Veiðisvæðið í ánni hefur stækkað eftir að gerður var fiskigangur við svokallaðan Steinboga fyrir tveimur árum. Þetta kemur fram í skýrslu um veiðina sem Veiðimálastofnun sendi frá ...
http://www.austurfrett.is/frettir/2139-auglyst-eftir-sveitarstjora-a-vopnafirdi
Auglýst eftir sveitarstjóra á Vopnafirði Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps hefur samþykkt að auglýsa starfs sveitarstjóra laust til umsóknar. Tillaga þess efnis var samþykkt á fyrsta fundi nýrrar sveitarstjórnar í síðustu viku. Sömuleiðis var samþykkt að semja við fráfarandi sveitarstjóra, Þorstein Steinsson, að gegna sta...
http://www.austurfrett.is/frettir/2133-utlit-fyrir-ad-uta-verdi-a-reydarfirdi-naestu-vikurnar
Útlit fyrir að Uta verði á Reyðarfirði næstu vikurnar Útlit er fyrir að flutningaskipið Uta verði á Reyðarfirði næstu vikurnar. Skipið, sem kyrrsett var í Mjóeyrarhöfn í síðustu viku, var í gær flutt þaðan og inn á Reyðarfjörð. Um þriðjungur þess farms sem var í skipinu er enn í Mjóeyrarhöfn. „Það er enn kyrrsett og ég...
http://www.austurfrett.is/frettir/2121-vilja-ad-byrjad-verdi-a-seydisfjardargongum-2016
Vilja að byrjað verði á Seyðisfjarðargöngum 2016 Bæjarstjórn Seyðisfjarðar vill að byrjað verði á framkvæmdum við Seyðisfjarðargöng árið 2016. Til þess þarf að tryggja fjármagn í rannsóknir þannig að þeim ljúki í tæka tíð. Þetta kemur fram í áskorun sem samþykkt var á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar í síðustu viku. R...
http://www.austurfrett.is/frettir/2142-halfs-ars-fangelsi-fyrir-itrekadar-hotanir-i-gard-logregluthjona
Hálfs árs fangelsi fyrir ítrekaðar hótanir í garð lögregluþjóna Héraðsdómur Austurlands dæmdi í síðustu viku karlmann á fertugsaldri í hálfs árs fangelsi fyrir ítrekaðar hótanir í garð lögregluþjóna. Hótanirnar beindust meðal annars að fjölskyldumeðlimum lögreglu. Ákæran á hendur manninum var í fimm liðum og játaði han...
http://www.austurfrett.is/frettir/2137-fagradal-lokad-a-medan-vorubil-var-nad-upp
Fagradal lokað á meðan vörubíl var náð upp á veg Vegurinn yfir Fagradal var lokaður í rúman klukkutíma seinni partinn í dag þar sem ná þurfti upp vörubíl sem fór út af þar skömmu fyrir hádegi. Ökumaður var einn í bílnum og slapp hann ómeiddur. Ekki er vitað hvernig óhappið bar að en bíllinn fór beint út af veginum, sam...
http://www.austurfrett.is/frettir/2127-raforkumal-astandid-hvergi-verra-a-landinu
Raforkumál: Ástandið hvergi verra á landinu Forstjóri Landsnets segist skilja að forsvarsmenn fyrirtækja á Austurlandi séu hugsi um framtíð rekstrarins vegna ótryggrar afhendingar á rafmagni. Illa hefur gengið að fylgja eftir hugmyndum um nýja byggðalínu en sú gamla er úr sér gengin. „Ástandið er hvergi verra á landinu...
http://www.austurfrett.is/frettir/2118-malefnasamningur-i-fjardabyggd-rada-a-verkefnastjora-i-atvinnumalum
Málefnasamningur í Fjarðabyggð: Ráða á verkefnastjóra í atvinnumálum Í meirihlutasamkomulag Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í bæjarstjórn Fjarðabyggðar er talað sérstaklega um að ráða verkefnastjóra atvinnumála til sveitarfélagsins. Lækka á álögur á fjölskyldufólk í gegnum gjaldskrá skólastofnana. Gert er ráð fyr...
http://www.austurfrett.is/frettir/2116-gunnthorunn-afram-oddviti-i-fljotsdal
Gunnþórunn áfram oddviti í Fljótsdal Gunnþórunn Ingólfsdóttir verður áfram oddviti Fljótsdælinga. Kosið var í helstu embætti á fyrsta fundi nýrrar sveitarstjórnar. Gunnþórunn hefur verið oddviti frá árinu 2002 en oddvitinn sinnir einnig daglegum rekstri skrifstofu sveitarfélagsins í fullu starfi. Varaoddviti leysir han...
http://www.austurfrett.is/frettir/2113-satu-hja-vidh-radhningu-baejarstjora
Sátu hjá við ráðningu bæjarstjóra Minnihluti Fjarðalistans í bæjarstjórn Fjarðabyggðar sat hjá þegar ákveðið var að ráða Pál Björgvin Guðmundsson áfram sem bæjarstjóra. Fulltrúar listans vonast samt eftir góðu samstarfi við hann. Gengið var frá ráðningunni á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar fyrir viku. Tillaga um ráðn...
http://www.austurfrett.is/frettir/2110-uta-enn-i-hofn-en-farmurinn-farinn-ur-landi
Uta enn í höfn en farmurinn farinn úr landi Flutningaskipið Uta, sem kyrrsett var í Mjóeyrarhöfn í síðustu viku vegna skulda, er þar enn. Farmur skipsins er hins á leið á áfangastað. Þetta staðfesti Karl Harðarson, forstjóri Thorships, umboðsaðila skipsins hérlendis, í samtali við Austurfrétt í hádeginu. Farmur skipsin...
http://www.austurfrett.is/frettir/2101-uta-kyrrsett-i-mjoeyrarhoefn
Uta kyrrsett í Mjóeyrarhöfn Flutningaskipið Uta hefur verið kyrrsett í Mjóeyrarhöfn. Umboðsaðili skipsins segir um gamla skuld að ræða sem sé óviðkomandi núverandi rekstraraðilum eða Alcoa sem það er í flutningum fyrir. „Skipið er kyrrsett vegna eldri skulda sem komu til áður en það kom inn í það verkefni sem er núna o...
http://www.austurfrett.is/frettir/2115-gerdhi-myndband-til-adh-benda-a-seinagang-i-framkvaemdum-verdhur-malbikadh-um-leidh-og-haegt-er
Gerði myndband til að benda á seinagang í framkvæmdum: Verður malbikað um leið og hægt er Myndband sem íbúi í Neskaupstað gerði til að vekja athygli á seinagangi í gatnaframkvæmdum sveitarfélagsins Fjarðabyggðar hefur vakið mikla athygli í bænum. Bæjarstjórinn segir að framkvæmdunum verði lokið eins fljótt og hægt er. ...
http://www.austurfrett.is/frettir/2112-nyr-meirihluti-a-heradi-sveitarfelagid-er-ekki-ad-fara-ad-kaupa-valaskjalf
Nýr meirihluti á Héraði: Sveitarfélagið er ekki að fara að kaupa Valaskjálf Helstu ágreiningsmál framboðanna þriggja sem mynda nýjan meirihluta á Fljótsdalshéraði verða leyst með heildstæðum úttektum og stefnum. Umtalsverðar breytingar eru á nefndakerfi sveitarfélagsins. „Það er ekki tilviljun að þessi staður er valinn...
http://www.austurfrett.is/frettir/2108-lex-gefur-ut-logfraedilegan-leidarvisi-fyrir-ferdathjonustuna
LEX gefur út lögfræðilegan leiðarvísi fyrir ferðaþjónustuna Lögmannsstofan LEX hefur gefið út 70 síðna leiðarvísi fyrir ferðaþjónustuna um þau lögfræðilegu atriði sem þarf að huga að við stofnun og rekstur ferðaþjónustufyrirtækja. Ritinu er dreift ókeypis til ferðaþjónustufyrirtækja um allt land, þar á meðal þeirra tæp...
http://www.austurfrett.is/frettir/2099-ekki-bedid-med-verdhaekkanir-til-ad-sleppa-vid-svartan-lista-asi
Ekki beðið með verðhækkanir til að sleppa við svartan lista ASÍ Landsvirkjun segist ekki hafa beðið með hækkanir á gjaldskrá til að forðast að lenda á svörtum lista Alþýðusambands Íslands. Formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar segist „ekki par hrifinn" af nýlegum hækkunum á heildsöluverði raforku frá fyrirtækinu. „Ég geri r...
http://www.austurfrett.is/frettir/2114-laegstu-fasteignagjoldin-a-vopnafirdi
Lægstu fasteignagjöldin á Vopnafirði Lægstu fasteignagjöld landsins eru á Vopnafirði þótt þau hækki töluvert á milli ára. Þau eru hins vegar í hærra lagi miðað við landsbyggðina á Egilsstöðum. Þetta kemur fram í útreikningum Þjóðskrár Íslands fyrir Byggðastofnun sem birtur eru í dag. Reiknað er út fasteignamat og faste...
http://www.austurfrett.is/frettir/2111-nyr-meirihluti-a-heradi-ef-allir-aetla-ad-vinna-saman-tharf-adh-gera-thadh-a-jafnrettisgrundvelli
Nýr meirihluti á Héraði: Ef allir ætla að vinna saman þarf að gera það á jafnréttisgrundvelli Oddvitar meirihlutaflokkanna í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs segja að ekki hafi verið hægt að fallast á hugmyndir Framsóknarflokksins um samstarf allra í bæjarstjórn því B-lista fólk hafi viljað byrjað viðræðurnar á þeirra hugm...
http://www.austurfrett.is/frettir/2102-afmaelismessa-egilsstadakirkju-a-sunnudag
Afmælismessa Egilsstaðakirkju á sunnudag Frú Agnes Sigurðardóttir, biskup Íslands, predikar í afmælismessu Egilsstaðakirkju sem haldin verður á sunnudag. Fjörutíu ár voru í byrjun vikunnar frá því kirkjan var vígð. Kirkjan, sem teiknuð var af Hilmari Ólafssyni arkitekt, var vígð þann 16. janúar árið 1974. Fram að því h...
http://www.austurfrett.is/frettir/2098-stefan-grimur-thydir-litid-ad-sitja-uti-i-horni-og-bida
Stefán Grímur: Þýðir lítið að sitja úti í horni og bíða Stefán Grímur Rafnsson, nýkjörinn sveitarstjórnarmaður á Vopnafirði, hvatti íbúa til að nýta sér tjáningarfrelsið og hafa með því áhrif á samfélagið í hátíðarræðu sinni á 17. júní. „Af hverju að fara í framboð... til hvers?" spurði Stefán Grímur í ræðunni. Hann va...
http://www.austurfrett.is/frettir/2095-hrund-snorra-fekk-flestar-utstrikanir-a-vopnafirdi
Hrund Snorra fékk flestar útstrikanir á Vopnafirði Hrund Snorradóttir, sem skipaði annað sætið á lista Framsóknarmanna og óháðra í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum á Vopnafirði fékk flestar útstrikanir af frambjóðendum í sveitarfélaginu. Hrund fékk tólf útstrikanir eða frá um 6,7% kjósenda flokksins. Um 15-20% kjós...
http://www.austurfrett.is/frettir/2084-austurbru-i-fjarthrong-obreyttur-rekstur-ekki-kostur
Austurbrú í fjárþröng: Óbreyttur rekstur ekki kostur Rúmlega tuttugu milljóna króna tap varð á rekstri Austurbrúar á síðasta ári. Endurskoðandi stofnunarinnar telur að með óbreyttum rekstri geti hún ekki staðið við skuldbindingar sínar í ár. Aðgerðir eru þegar hafnar til að rétta við fjárhaginn. Þessar upplýsingar er a...
http://www.austurfrett.is/frettir/2074-meirihlutavidraedur-halda-afram-a-fljotsdalsheradi
Meirihlutaviðræður halda áfram á Fljótsdalshéraði Fulltrúar Á-lista, Héraðslista og Sjálfstæðisflokks hittast í fjórða sinn í dag á fundi um myndun hugsanlegs meirihluta í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs. „Þetta hafa verið ágætir fundir. Við ætlum að halda áfram í dag og erum að vinna okkur í gegnum málaflokkana," segir A...
http://www.austurfrett.is/frettir/2069-nordfjardargong-met-slegid-i-gangagreftrinum
Norðfjarðargöng: Met slegið í gangagreftrinum Met var slegið í jarðgangagreftrinum í síðustu viku, þegar rúmlega 136 m voru lagðir að baki í heildina. Eskifjarðarmegin voru grafnir 75,2 m og var grafið í basalti og kargabergi. Rauðleitt smit er á kargaberginu og sjást þess merki á fyllingum við ós Eskifjarðarár. Fannar...
http://www.austurfrett.is/frettir/2093-fangelsisdomurinn-yfir-fridriki-brynjari-stadfestur-frasogn-hans-stenst-ekki-blodferla-a-vettvangi
Fangelsisdómurinn yfir Friðriki Brynjari staðfestur: Frásögn hans stenst ekki blóðferla á vettvangi Hæstiréttur staðfesti í dag niðurstöðu héraðsdóms Austurlands um sextán ára fangelsisdóm yfir Friðriki Brynjari Friðrikssyni fyrir að hafa myrt Karl Jónsson á Egilsstöðum í maí í fyrra. Dómkvaddir matsmenn skiluðu nýrri ...
http://www.austurfrett.is/frettir/2081-heradslisti-byrjar-med-forseta-baejarstjornar-malefnasamningur-kynntur-sidar
Héraðslisti byrjar með forseta bæjarstjórnar: Málefnasamningur kynntur síðar Sigrún Blöndal, oddviti Héraðslistans, byrjar sem forseti bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs í nýjum meirihluta Á—lista, Héraðslista og Sjálfstæðisflokks sem endanlega var myndaður í morgun. Austurfrétt greindi frá því í gærkvöldi að meirihlutasam...
http://www.austurfrett.is/frettir/2073-sami-meirihluti-afram-a-seydisfirdi-fresta-thurfti-fyrsta-baejarstjornarfundinum
Sami meirihluti áfram á Seyðisfirði: Fresta þurfti fyrsta bæjarstjórnarfundinum Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur gengu fyrir viku frá samkomulagi í áframhaldandi meirihlutasamstarf í bæjarstjórn Seyðisfjarðar. Til stóð að halda fyrsta bæjarstjórnarfundinn síðasta föstudag en honum þurfti að fresta þar sem bæjars...
http://www.austurfrett.is/frettir/2066-husvik-og-thorlakshofn-saekjast-ekki-eftir-norraenu
Húsvík og Þorlákshöfn sækjast ekki eftir Norrænu Ekki eru uppi áform um siglingar Norrænu til Húsavíkur eða Þorlákshafnar. Framkvæmdastjóri Smyril-Line staðfestir að ekki sé til skoðunar að sigla til Húsavíkur. „Þetta mál hefur ekki komið til umræðu hjá okkur né fyrirspurning þar af lútandi og því ekki um neitt mál að ...
http://www.austurfrett.is/frettir/2089-gunnhildur-ingunn-bylgja-og-gudmundur-oftast-strikud-ut-a-heradi
Gunnhildur, Ingunn Bylgja og Guðmundur oftast strikuð út á Héraði Gunnhildur Ingvarsdóttir, sem var í öðru sæti Framsóknarflokksins, Ingunn Bylgja Einarsdóttir, sem var í fimmta sæti Héraðslistans og Guðmundur Sveinsson Kröyer, sem var í öðru sæti á lista Sjálfstæðisflokksins, fengu flestar útstrikanir í nýafstöðnum sv...
http://www.austurfrett.is/frettir/2078-meirihlutasamkomulag-nanast-i-hofn-a-fljotsdalsheradi-bjorn-afram-baejarstjori
Meirihlutasamkomulag nánast í höfn á Fljótsdalshéraði: Björn áfram bæjarstjóri Tilkynnt verður um nýjan meirihluta Á-lista, Héraðslista og Sjálfstæðisflokks í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs á morgun. Björn Ingimarsson verður áfram bæjarstjóri. „Við munum senda frá okkur fréttatilkynningu á morgun en viðræðunum er að mest...
http://www.austurfrett.is/frettir/2072-gengidh-fra-myndun-meirihluta-a-vopnafirdi-listarnir-skipta-med-ser-oddvitaembaettinu
Gengið frá myndun meirihluta á Vopnafirði: Listarnir skipta með sér oddvitaembættinu Betra Sigtún og K-listi félagshyggju á Vopnafirði skrifuðu í gær undir samkomulag um meirihlutasamstarf í hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps næstu fjögur árin. K-listi byrjar með oddvitaembættið sem skiptist á milli framboðanna. „Það bar a...
http://www.austurfrett.is/frettir/2065-fljotsdalsherad-aetla-ad-halda-afram-vidraedum-um-myndun-meirihluta
Fljótsdalshérað: Ætla að halda áfram viðræðum um myndun meirihluta Á-listi, Sjálfstæðisflokkur og Héraðslistinn ætla að halda áfram viðræðum um myndun meirihluta í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs. Flokkarnir funduðu í fyrsta sinn saman í dag um myndun meirihlutans. „Það kom ekkert sérstakt út úr fundinum. Við ræddum ákveð...
http://www.austurfrett.is/frettir/2064-lagarfljotid-rennur-um-nyjan-os
Lagarfljótið rennur um nýjan ós Nýr ós Lagarfljóts var opnaður á ný á sunnudag en tilraunir til að beina fljótinu um hann í janúar mistókust. Reynt er að beina ósnum til austurs til að varna því að jökulvatn berist upp í veiðiár í norðanverðum Héraðsflóa. „Þetta lítur nokkuð vel út. Ósinn er orðinn 150-200 metra breiðu...
http://www.austurfrett.is/frettir/2061-heradslisti-sjalfstaedisflokkur-og-a-listi-byrja-a-ad-raeda-saman
Héraðslisti, Sjálfstæðisflokkur og Á-listi byrja á að ræða saman Héraðslisti, Sjálfstæðisflokkur og Á-listi ætla að byrja að ræða saman um myndun meirihluta í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs. Ekki virðist ætla að ganga að koma saman fjögurra flokka meirihluta. Oddvitar allra framboðanna fjögurra sem komu að mönnum í bæjar...
http://www.austurfrett.is/frettir/2055-sigrun-blondal-atti-frekar-von-a-simtali-um-ad-meirihlutasamningurinn-vaeri-fragenginn
Sigrún Blöndal: Átti frekar von á símtali um að meirihlutasamningurinn væri frágenginn Sigrún Blöndal, oddviti Héraðslistans í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs, segir það hafa komið á óvart að heyra af því að Framsóknarflokkurinn hefði slitið meirihlutaviðræðum við Á-listann. Upp er komin ný staða sem meta þurfi í róleghei...
http://www.austurfrett.is/frettir/2052-5-6-milljarda-hagnadur-sildarvinnslunnar
5,6 milljarða hagnaður Síldarvinnslunnar Síldarvinnslan í Neskaupstað skilaði 5,6 milljarða króna hagnaði á síðasta ári. Stjórn félagsins var endurkjörin á aðalfundi þess sem haldinn var í gær. Hluthafar fá tvo milljarða króna greidda í arð. Þetta kemur fram í tilkynningu sem send var út eftir fundinn. Rekstrartekjur v...
http://www.austurfrett.is/frettir/2063-thetta-er-sa-fundur-sem-hefur-verid-bodadur-eru-bara-fyrstu-vidraedhur
Þetta er sá fundur sem hefur verið boðaður: Eru bara fyrstu viðræður Oddviti Framsóknarflokksins í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs segir menn hafa einblínt á vandamálin fremur en tækifærin við hugsanlegt allra samstarf í bæjarstjórn án formlegs meirihluta. Oddviti Sjálfstæðisflokksins segir að hugmyndin sé ágæt en menn vi...
http://www.austurfrett.is/frettir/2059-daemdur-fyrir-ad-reyna-ad-muta-logreglumonnum-til-ad-henda-fikniefnum-i-fljotid
Dæmdur fyrir að reyna að múta lögreglumönnum til að henda fíkniefnum í fljótið Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt karlmann á fertugsaldri í tveggja mánaða fangelsi fyrir að reyna að múta lögreglumönnum til að henda fíkniefnum sem þeir fundu við leit á heimili hans í Lagarfljótið. Við leitina í byrjun desember í fyrra f...
http://www.austurfrett.is/frettir/2054-vidraedum-slitid-a-heradi-fannst-edlilegast-ad-kanna-hug-annarra
Viðræðum slitið á Héraði: Fannst eðlilegast að kanna hug annarra Framsóknarflokkurinn á Fljótsdalshéraði hefur lagt fram hugmyndir um samstarf allra flokka í bæjarstjórn. Þar með er viðræðum flokksins við Á-lista um áframhaldandi meirihlutasamstarf lokið. Oddviti Framsóknar segir listann nú bíða eftir viðbrögðum hinna....
http://www.austurfrett.is/frettir/2051-samid-um-aframhaldandi-meirihlutasamstarf-i-fjardabyggd
Samið um áframhaldandi meirihlutasamstarf í Fjarðabyggð Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur hafa gert með sér samkomulag um áframhaldandi meirihlutasamstarf í Fjarðabyggð. Páll Björgvin Guðmundsson verður áfram bæjarstjóri, Jens Garðar Helgason oddviti Sjálfstæðismanna áfram formaður bæjarráðs og Jón Björn Hákonars...
http://www.austurfrett.is/frettir/2062-fimm-milljonir-i-atvinnuatak-ungmenna-i-fjardabyggd
Fimm milljónir í atvinnuátak ungmenna í Fjarðabyggð Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkti á síðasta fundi sínum allt að fimm miljóna króna framlag í atvinnuátak ungs fólks. Bæjarstjórinn segir vilja til að styðja við ungmenni sem séu að taka sín fyrstu skref á almennum vinnumarkaði. Framlagið fer til Þjónustumiðstöðvar F...
http://www.austurfrett.is/frettir/2056-anna-alexanders-vid-heyrum-i-einhverjum-seinni-partinn-i-dag
Anna Alexanders: Við heyrum í einhverjum seinni partinn í dag Anna Alexandersdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins á Fljótdalshéraði, segir flokkinn skoða alla möguleika á meirihlutasamstarfi í bæjarstjórn með opnum hug. Farið verður yfir hugmyndir Framsóknarmanna um samstarf allra lista í bæjarstjórn síðar í dag og söm...
http://www.austurfrett.is/frettir/2053-meirihlutavidhraedum-slitid-a-heradi-efast-um-heilindi-framsoknarmanna
Meirihlutaviðræðum slitið á Héraði: Efast um heilindi Framsóknarmanna Í gærkvöldi slitnaði upp úr meirihlutaviðræðum Á-lista og Framsóknarmanna um áframhaldandi samstarf í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs. Oddviti Á-listans efast um að viðræðuaðilinn hafi verið heill í sannfæringu sinni í viðræðunum sem hófust strax að lok...
http://www.austurfrett.is/frettir/2049-gary-copsey-tha-saum-vid-bru-skipsins-standa-upp-ur-sjonum-og-hugsudum-thetta-er-mjog-haettuleg-stada
Gary Copsey: Þá sáum við brú skipsins standa upp úr sjónum og hugsuðum: „Þetta er mjög hættuleg staða" Flugmaðurinn Gary Copsey segir það hafa vakið upp blendnar tilfinningar að snúa aftur til Vöðlavíkur í fyrsta sinn tuttugu árum eftir að hann og félagar hans í þyrlusveit bandaríska hersins björguðu sex skipverjum af ...
http://www.austurfrett.is/frettir/2048-erlingur-gudhjons-hofdum-ekki-burdi-til-ad-senda-ut-flotta-kosningasnepla
Erlingur Guðjóns: Höfðum ekki burði til að senda út flotta kosningasnepla Erlingur Hjörvar Guðjónsson, talsmaður Endurreisnarinnar á Fljótsdalshéraði, segir fólkið á listanum vera sátt við niðurstöður sveitarstjórnakosninganna um síðustu helgi. Framboðið fékk 3% fylgi og kom ekki að manni. „Við þökkum fyrir veittan stu...
http://www.austurfrett.is/frettir/2023-sigtunsfolk-velur-a-milli-k-lista-og-framsoknarflokks-i-kvold
Sigtúnsfólk velur á milli K-lista og Framsóknarflokks í kvöld Þeir sem stóðu að framboðslistanum Betra Sigtúni á Vopnafirði hittast í kvöld til að ráða ráðum sínum. Fundað hefur verið með hinum listunum tveimur sem komu að fulltrúum í hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps. Á fundinum er stefnt að ákveða með hvorum verði farið...
http://www.austurfrett.is/frettir/2019-andres-skula-kosningarnar-syna-soknarhug-i-folki
Andrés Skúla: Kosningarnar sýna sóknarhug í Djúpavogsbúum Andrés Skúlason, oddviti Framfaralistans á Djúpavogi, er ánægður með kosningaþátttökuna í sveitarfélaginu þar sem hans framboð vann nauman sigur. Hann telur sveitarstjórnina vel mannaða til að takast á við þau verkefni sem framundan eru. „Fyrir það fyrsta er ég ...
http://www.austurfrett.is/frettir/2015-rumur-helmingur-breidhaelinga-vill-sameinast-odru-sveitarfelagi
Rúmur helmingur Breiðdælinga vill sameinast öðru sveitarfélagi Naumur meirihluti Breiðdælingar vill sameinast öðru sveitarfélagi, ef marka má niðurstöður skoðanakönnunar sem gerð var samhliða sveitarstjórnarkosningunum á laugardag. Fjarðabyggð virðist álitlegast sameiningarkosturinn. Spurt var hvort menn vildu að Breið...
http://www.austurfrett.is/frettir/2047-anna-alexanders-ekki-skyr-studhingur-vid-nuverandi-meirihluta
Anna Alexanders: Ekki skýr stuðningur við núverandi meirihluta Anna Alexandersdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins á Fljótsdalshéraði, segir listann þar vera sigurvegara kosninganna. Ekki sé sjálfgefið að túlka úrslitin á þann hátt að kjósendur styðji núverandi meirihluta áfram. „Við erum mjög ánægð með okkar hlut í þe...
http://www.austurfrett.is/frettir/2022-sigrun-blondal-hugmyndir-um-sameiningar-skola-fellu-ekki-kjosendum-i-ged
Sigrún Blöndal: Hugmyndir um sameiningar skóla féllu ekki kjósendum í geð Sigrún Blöndal, oddviti Héraðslistans, segir að svo virðist sem hugmyndir Héraðslistans hafi ekki átt upp á pallborðið hjá kjósendum á Fljótsdalshéraði. Þeir virðist almennt ánægðir með störf meirihlutans. Héraðslistinn tapaði fjórðungi af fylgi ...
http://www.austurfrett.is/frettir/2018-ran-freysdottir-folk-vill-ferskt-afl-i-sveitarstjornarmalum-a-djupavogi
Rán Freysdóttir: Fólk vill ferskt afl í sveitarstjórnarmálum á Djúpavogi Rán Freysdóttir, leiðtogi Óskalistans á Djúpavogi, segist líta á það sem sigur að hafa komið að tveimur mönnum í sveitarstjórn Djúpavogshrepps. Sex atkvæðum munaði á Framfaralistanum, sem náði meirihluta og Óskalistanum. „Við í Óskalistanum lítum ...
http://www.austurfrett.is/frettir/2013-meirihlutavidraedur-i-fjardabyggd-ganga-vel
Meirihlutaviðræður í Fjarðabyggð ganga vel Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur ræða saman um áframhaldandi meirihlutasamstarf í Fjarðabyggð. Oddviti Sjálfstæðismanna segir vilja kjósenda nokkuð skýran um að þeir styðji meirihlutann áfram. „Við oddvitarnir hittumst í gær, ræðum við okkar fólk seinni partinn í dag og...
http://www.austurfrett.is/frettir/2037-betra-sigtun-og-k-listi-i-formlegar-meirihlutavidraedur
Betra Sigtún og K-listi í formlegar meirihlutaviðræður Liðsmenn Betra Sigtúns ákváðu á félagsfundi í gær að fara í formlegar viðræður við K-lista félagshyggju um myndun nýs meirihluta í sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps. „Það er ekki kominn neinn tími á fyrsta fund en hann verður væntanlega í kvöld eða á morgun," segir ...
http://www.austurfrett.is/frettir/2021-gunnar-jons-stadfesting-a-thvi-ad-traust-er-borid-til-okkar
Gunnar Jóns: Staðfesting á því að traust er borið til okkar Gunnar Jónsson, oddviti Á-listans á Fljótsdalshéraði, segir útkomu listans í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum vera þeim sem að framboðinu standi hvatning til að halda áfram. Listinn bætti við sig þriggja prósentustiga fylgi frá síðustu kosningum og var ekk...
http://www.austurfrett.is/frettir/2017-kjarnaborun-i-nordfjardargongum
Kjarnaborun í Norðfjarðargöngum Ákveðið var að fara í frekari rannsóknir á því sem framundan er í jarðgangagreftrinum á báðum stöfnum, svo verktakinn hafi sem bestar upplýsingar við vinnslu ganganna. Jarðlögin halla um 6-8° til suðvesturs á þessu svæði. Það hefur í för með sér, að í gangahlutanum sem grafinn er frá Esk...
http://www.austurfrett.is/frettir/2012-aurskrida-i-fljotsdal-anaegdur-med-ad-vera-lifandi
Aurskriða í Fljótsdal: Ánægður með að vera lifandi Jón Þór Þorvarðarson, bóndi á Glúmsstöðum I í Fljótsdal, stóð á bæjarhlaðinu þegar aurskriða féll niður fjallshlíðina í gær. Skriðan fór sitt hvorum megin við fjárhúsin á bænum. „Ég sá fyrst einn stein og svo kom meira og meira og meira," segir Jón sem stóð úti á hlaði...
http://www.austurfrett.is/frettir/2011-b-og-d-raeda-saman-um-aframhaldandi-samstarf-a-seydisfirdi
B og D ræða saman um áframhaldandi samstarf á Seyðisfirði Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur ræða saman um áframhaldandi meirihlutasamstarf á Seyðisfirði. Seyðisfjarðarlistinn hefur lagt til að ekki verði prófað að skipta bæjarstjórninni eftir línum meiri- og minnihluta. „Við erum byrjuð að tala saman um áframhald...
http://www.austurfrett.is/frettir/2007-hakon-efstur-i-breiddal-draem-kjorsokn
Hákon efstur í Breiðdal: Dræm kjörsókn Hákon Hansson, dýralæknir, varð efstur í kjöri til sveitarstjórnar Breiðdalshrepps. Aðeins um helmingur þeirra sem voru á kjörskrá nýtti atkvæðisrétt sinn. Hákon Hansson 67 atkvæði Svandís Ingólfsdóttir, 43 atkvæði Helga Hrönn Melsteð, 39 atkvæði Arnaldur Sigurðsson 36 atkvæði Gun...
http://www.austurfrett.is/frettir/2004-fjardabyggd-kosningaurslit2014
Fjarðabyggð: Allir listar með þrjá menn Öll framboðin í Fjarðabyggð koma að þremur mönnum í bæjarstjórn Fjarðabyggðar. Framsóknarflokkurinn vinnur mann af Sjálfstæðisflokknum en listarnir mynda meirihlutann. Framsóknarflokkurinn: 628 atkvæði, 29,8% -3 fulltrúar Sjálfstæðisflokkurinn: 787 atkvæði – 37,4% - 3 fulltrúar F...
http://www.austurfrett.is/frettir/2001-eirikur-kosinn-adalmadur-i-hreppsnefnd-a-hlutkesti
Fljótsdalur: Eiríkur Kjerúlf kosinn aðalmaður í hreppsnefnd eftir hlutkesti Varpa þurfti hlutkesti til að fá úr því skorið hverjir yrðu aðalmenn í hreppsnefnd Fljótsdalshrepps. Eiríkur J. Kjerúlf, sem kemur nýr inn í hreppsnefndina, hafði þar betur gegn Magnhildi Björnsdóttur. Á kjörskrá voru 64 einstaklingar, 41 karl ...
http://www.austurfrett.is/frettir/2010-a-og-b-listar-raeda-saman-a-fljotsdalsheradi
Á- og B-listar ræða saman á Fljótsdalshéraði Flokkarnir sem mynda núverandi meirihluta á Fljótsdalshéraði ræða saman um áframhaldandi samstarf. Oddviti Framsóknarflokksins segist túlka niðurstöður kosninganna á laugardag sem stuðningsyfirlýsingu við sitjandi meirihluta. „Núverandi meirihlutaflokkar hafa rætt saman en v...
http://www.austurfrett.is/frettir/2006-djupivogur-framfaralistinn-fekk-sex-atkvaedum-meira-en-oskalistinn
Djúpivogur: Framfaralistinn fékk sex atkvæðum meira en Óskalistinn F – listi framfara fær meirihlutann í sveitarstjórn Djúpavogshrepps á næsta kjörtímabili. Sex atkvæði skildu hann frá Óskalistanum en listarnir tveir voru einir í framboði. Óskalistinn 129 atkvæði, 48,9%, 2 fulltrúar Framfaralistinn: 135 atkvæði, 51,1%,...
http://www.austurfrett.is/frettir/2003-vopnafjordur-framsokn-hafdi-thridja-manninn-a-atta-atkvaedum
Vopnafjörður: Framsókn hafði þriðja manninn á fjórtán atkvæðum Fjórtán atkvæði skildu að B-lista framsóknarmanna og Ð-lista Betra Sigtúns á Vopnafirði sem tryggði Framsóknarmönnum þrjá fulltrúa í sveitarstjórn. Framsóknarflokkurinn: 178 atkvæði, 38,7%, 3 fulltrúar K-listi félagshyggju: 118 atkvæði, 25,7%, 2 fulltrúar B...
http://www.austurfrett.is/frettir/2000-jakob-oddviti-fekk-flest-atkvaedi-a-borgarfirdi
Jakob oddviti fékk flest atkvæði á Borgarfirði Jakob Sigurðsson, oddviti Borgarfjarðarhrepps, fékk flest atkvæði í kosningum til sveitarstjórnar þar. Arngrímur Viðar Ásgeirsson og Helgi Hlynur Ásgrímsson koma þar nýir inn í sveitastjórn. Varpa þurfti hlutkesti um síðasta sætið. Á kjörskrá voru 102. Atkvæði greiddu 62 e...
http://www.austurfrett.is/frettir/2009-betra-sigtun-kannar-badhar-leidhir-a-vopnafirdhi
Betra Sigtún kannar báðar leiðir á Vopnafirði Þreifingar eru hafnar um myndun meirihluta á Vopnafirði en ekki ljóst hvaða stefnu þær munu taka. Oddviti Betra Sigtúns segir að rætt verði við báða flokkana. „Við erum byrjuð að tala saman en það er ekkert ákveðið. Við sögðum allan tímann að við gengjum óbundin til kosning...
http://www.austurfrett.is/frettir/2005-fljotsdalsherad-kosningaurslit2014
Fljótsdalshérað: Meirihlutinn heldur en Sjálfstæðisflokkurinn tekur mann af Héraðslistanum Meirihluti Framsóknarflokks og Á-lista á Fljótsdalshéraði heldur. Sjálfstæðisflokkurinn vinnur mann af Héraðslistanum. Litlu munar að þriðji maður Á-lista felli út þriðja mann Framsóknar sem tapar nokkru fylgi. Á listi: 442 atkvæ...
http://www.austurfrett.is/frettir/2002-seydisfjordur-sjalfstaedisflokkurinn-nadi-thridja-manni-a-tveimur-atkvaedum
Seyðisfjörður: Sjálfstæðisflokkurinn náði þriðja manni á tveimur atkvæðum Sex atkvæði skilja að listana þrjá sem buðu fram á Seyðisfirði. Sjálfstæðisflokkurinn tapar töluverði fylgi en heldur sínum þriðja manni á tveimur atkvæðum. Framsóknarflokkurinn: 138 atkvæði, 32,5%, 2 fulltrúar Sjálfstæðisflokkurinn: 144 atkvæði,...
http://www.austurfrett.is/frettir/1999-fyrstu-toelur-adh-austan-um-kvoeldmat
Fyrstu tölur að austan um kvöldmat Von er á kosningaúrslitum úr Fljótsdal og frá Borgarfirði upp úr klukkan 19:00 í kvöld. Von er á að úrslit af Austurlandi verði orðin ljós fyrir miðnætti. Kjörstað var lokað á Borgarfirði, Seyðisfirði og Fljótsdal nú klukkan 18:00. Á Seyðisfirði fengust þær upplýsingar að kjörsókn hef...
http://www.austurfrett.is/frettir/1998-viljum-koma-sveitarfelaginu-i-tha-stodu-ad-thad-geti-rekid-sig-atvinnumal-eru-adalmalid
Viljum koma sveitarfélaginu í þá stöðu að það geti rekið sig: Atvinnumál eru aðalmálið Frambjóðendur Óskalistans í Djúpavogshreppi segjast vilja grandskoða fjármál sveitarfélagsins. Talsmenn lista Framfara segja mestu skipta að styrkja frekar stoðir atvinnulífsins. Þau vilja fara ólíkar leiðir við ráðningu sveitarstjór...
http://www.austurfrett.is/frettir/1995-hofum-itrekad-thurft-ad-gripa-til-varna-gegn-asaelni-nagrannanna
Höfum ítrekað þurft að grípa til varna gegn ásælni nágrannanna Bæjarstjóri Seyðisfjarðarkaupstaðar segir höfuðverkefni bæjarstjórnarinnar á líðandi kjörtímabili hafa verið að standa vörð um fyrirtækin í bænum. Bæði hafi hún falist í að verjast niðurskurði og ásælni nágranna. „Við höfum ítrekað þurft að grípa til varna ...
http://www.austurfrett.is/frettir/1987-nu-eru-flutt-seidi-a-hverjum-degi
„Nú eru flutt seiði á hverjum degi" Starfsmenn Fiskeldis Austfjarða hafa undanfarnar tvær vikur unnið hörðum höndum að því að flytja seiði í fiskeldið í Berufirði. Gert er ráð fyrir að 600 þúsund seiði bætist í kvíarnar í sumar. „Nú eru flutt seiði á hverjum degi, um 20.000 stykki í hverri ferð og þannig verður það fra...
http://www.austurfrett.is/frettir/1984-minnisvardi-um-bjorgunarafrekin-i-vodlavik-afhjupadur
Minnisvarði um björgunarafrekin í Vöðlavík afhjúpaður Minnisvarði um það þegar sex af sjö skipverjum Goðans og fimm manna áhöfn Bergvíkur VE var bjargað sitt hvorum megin við áramótin 1994 af strandstað í Vöðlavík verður afhjúpaður þar á föstudag. Áhöfn Bergvíkur var bjargað í land með fluglínutækjum austfirsku björgun...
http://www.austurfrett.is/frettir/1997-eigum-ekki-ad-thurfa-eignarnam-i-okkar-litla-samfelagi-buin-ad-teygja-okkur-ut-yfir-grof-og-dauda-til-adh-na-satt
Eigum ekki að þurfa eignarnám í okkar litla samfélagi: Búin að teygja okkur út yfir gröf og dauða Frambjóðendur í Djúpavogshreppi tókust á um veglínur í botni Berufjarðar á framboðsfundi í gærkvöldi. Óskalistinn segist vilja vinna málið í sátt en oddviti hreppsins segir sitjandi sveitarstjórn hafa tengt sig eins langt ...
http://www.austurfrett.is/frettir/1994-hugur-ibua-til-sameiningar-kannadur-i-breiddal
Hugur íbúa til sameiningar kannaður í Breiðdal Til stendur að gera skoðanakönnun samhliða sveitarstjórnarkosningunum á morgun, um hug Breiðdælinga til sameiningar við önnur sveitarfélög. Sveitarstjórinn segir könnunina aðeins vera til að gefa nýrri sveitarstjórn veganesti. „Það er ekki verið að kjósa um sameiningarkost...
http://www.austurfrett.is/frettir/1986-yfir-helmingur-kjosenda-maetti-a-frambodsfund
Yfir helmingur kjósenda mætti á framboðsfund Tíu af þeim sautján sem eru á kjörskrá í Mjóafirði mættu á framboðsfund sem haldinn var þar í gær. Samgöngumál voru heimamönnum ofarlega í huga. Fundurinn var sá sjötti og síðasti í röðinni hjá framboðunum í Fjarðabyggð en allir þéttbýliskjarnar sveitarfélagsins voru heimsót...
http://www.austurfrett.is/frettir/1982-vopnafjordur-eitt-best-staeda-sveitarfelaga-landsins-breiddalshreppur-einna-verst-statt
Vopnafjörður eitt best stæða sveitarfélaga landsins: Breiðdalshreppur einna verst statt Rekstur Vopnafjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fjarðabyggðar, Seyðisfjarðar og Fljótsdalshéraðs er í lagi og stendur undir skuldbindingum sveitarfélaganna. Breiðdalshreppur er á móti eitt verst stadda sveitarfélag landsins. Þetta kemu...
http://www.austurfrett.is/frettir/1996-viljum-skoda-hvort-haegt-se-ad-skipta-sykurskertri-kokunni-medh-odrum-haetti
Viljum skoða hvort hægt sé að skipta sykurskertri kökunni með öðrum hætti Möguleg forgangsröðun í fjármálum er það sem helst virðist skilja á milli þeirra þriggja framboða sem bjóða fram fyrir sveitarstjórnarkosningarnar á Seyðisfirði. Húsnæðismál grunnskólans virðast ekki þola frekari bið. „Við viljum áfram styrka og ...
http://www.austurfrett.is/frettir/1988-vilja-valaskjalf-komid-aftur-til-fyrri-virdingar-slaturhusid-er-okkar-menningarhus-og-thad-viljum-vid-byggja-upp
Vilja Valaskjálf komið aftur til fyrri virðingar: Sláturhúsið er okkar menningarhús og það viljum við byggja upp Oddviti Á-listans á Fljótsdalshéraði vill að settar verði upp sýningar ætlaðar ferðamönnum í Sláturhúsinu á Egilsstöðum. Listinn vill eins að Valaskjálf verði miðstöð sviðslista á svæðinu. Önnur framboð styð...
http://www.austurfrett.is/frettir/1985-frambodsfundir-a-seydisfirdi-og-djupavogi
Framboðsfundir á Seyðisfirði og Djúpavogi Íbúar á Seyðisfirði og í Djúpavogshreppi standa fyrir framboðsfundum í dag. Þar gefst kjósendum tækifæri á að bera fram spurningar til framboðanna. Fundurinn á Seyðisfirði hefst klukkan 17:00 og fer fram í Herðubreið. Þar eru þrjú framboð: Framsóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur ...
http://www.austurfrett.is/frettir/1979-73-menningarstyrkir-a-austurlandi
73 menningarstyrkir á Austurlandi Menningarráð Austurlands hefur úthlutað 73 menningarstyrkjum samkvæmt menningarsamningi ríkis og sveitarfélaga á Austurlandi um menningarmál. Alls bárust á annað hundrað umsókna og heildarupphæð úthlutunar nemur ríflega 40 milljónum króna. Menningarsvið Austurbrúar hefur umsjón með fra...
http://www.austurfrett.is/frettir/1978-mikil-thorf-a-ad-endurskoda-storkarlalegt-midbaejarskipulag-viljum-ekki-kollsteypu-eins-og-hinir
Mikil þörf á að endurskoða stórkarlalegt miðbæjarskipulag: Viljum ekki kollsteypu eins og hinir Flestir þeirra lista sem bjóða fram á Fljótsdalshéraði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor telja nauðsynlegt að endurskoða skipulag miðbæjarins á Egilsstöðum. Sjálfstæðisflokkurinn vill þó að haldið verði áfram eftir núv...
http://www.austurfrett.is/frettir/1973-verdum-ad-loka-hallormsstadarskola-ahyggjur-sjalfstaedisflokksins-af-skuldamalum-eru-nytilkomnar
Verðum að loka Hallormsstaðarskóla: Áhyggjur Sjálfstæðisflokksins af skuldamálum eru nýtilkomnar Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins á Fljótsdalshéraði segja að ráðast verði í heildarskoðun á rekstri sveitarfélagsins með það fyrir augum að minnka skuldir þess. Þar verði ekkert undanskilið. Oddviti Framsóknarmanna segir ...
http://www.austurfrett.is/frettir/1970-visir-frestar-flutningi-eins-mikilli-ovissu-aflett-og-haegt-er
Vísir frestar flutningi: Eins mikilli óvissu aflétt og hægt er Vísir hefur ákveðið að fresta flutningi á tveimur af þremur vinnslulínum fyrirtækisins frá Djúpavogi til Grindavíkur um allt að eitt ár. Með henni flytjast fimmtán störf. Tímann á að nota í að treysta stoðir vinnustaðarins. „Við frestum þessu um eitt ár. Vi...
http://www.austurfrett.is/frettir/1961-bidum-eftir-urslitum-kosninganna-med-ad-mynda-nyjan-meirihluta
Bíðum eftir úrslitum kosninganna með að mynda nýjan meirihluta Frambjóðendur í Fjarðabyggð segjast ekki vera búnir að mynda nýjan meirihluta. Slíkt sé ekki hægt að gera fyrr en úrslit kosninganna liggja fyrir. Frambjóðendur voru spurðir út í hvort nýr meirihluti væri að myndast á framboðsfundi í Neskaupstað á föstudags...
http://www.austurfrett.is/frettir/1977-andres-skula-viljum-frekar-400-tonn-en-ekki-neitt
Andrés Skúla: Viljum frekar 400 tonn en ekki neitt Andrés Skúlason, oddviti Djúpavogshrepps, segir heimamenn freka þiggja 400 tonna frá Byggðastofnun frekar en ekki neitt. Meira þurfi samt að koma til þannig að fiskvinnsla á staðnum verði tryggð. Þetta kom fram í máli Andrésar á íbúafundi með sjávarútvegsráðherra í gær...
http://www.austurfrett.is/frettir/1972-sigurdur-ingi-hofum-velt-fyrir-okkur-breytingu-a-stjorn-fiskveida
Sigurður Ingi: Höfum velt fyrir okkur breytingu á stjórn fiskveiða Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegsráðherra, segir til greina koma að breyta reglum um úthlutun kvóta í eigu ríkisins þannig hann nýtist frekar sjávarbyggðum sem eiga undir högg að sækja. „Við höfum velt fyrir okkur breytingum á stjórn fiskveiða. Við...
http://www.austurfrett.is/frettir/1965-vilja-baejarstjorann-afram-hann-er-svo-til-gallalaus
Vilja bæjarstjórann áfram: Hann er svo til gallalaus Frambjóðendur á Fljótsdalshéraði voru sammála um að þeir vildu halda í núverandi bæjarstjóra, Björn Ingimarsson, svo framarlega sem samningar takist. „Við munum leita samninga við Björn áfram. Ef svo ólíklega vill til að þeir takist ekki þá auglýsum við starfið. Björ...
http://www.austurfrett.is/frettir/1960-deiliskipulagid-er-i-politisku-uppnami-skipulagid-ekki-afgreitt-i-neinum-flyti
Deiliskipulagið er í pólitísku uppnámi: Var ekki afgreitt í neinum flýti Umræður um legu Nesgötu við væntanlegan leikskóla á Neseyri voru fyrirferðamiklar á framboðsfundi í Neskaupstað á föstudagskvöld. Sjálfstæðismenn fylgdu þar eftir nýjum hugmyndum um að setja umferð um götuna í stokk. „Stokkurinn kostar um helming ...
http://www.austurfrett.is/frettir/1976-fjardabyggd-leggur-aherslu-a-samgong
Fjarðabyggð leggur áherslu á Samgöng Bæjarstjórn Fjarðabyggðar vill að skoðaðir verði betur kostir þess að rjúfa Seyðisfjarðar með svokölluðum Samgöngum. Norðfjarðargöng teljast fyrsti áfanginn í þeirri framkvæmd. Þetta kemur fram í athugasemd bæjarstjórnar við fjögurra ára samgönguáætlun og var fylgt eftir á framboðsf...
http://www.austurfrett.is/frettir/1971-gauti-johannesson-erum-i-allt-annarri-stodu-en-28-mars
Gauti Jóhannesson: Erum í allt annarri stöðu en 28. mars Gauti Jóhannesson, sveitarstjóri Djúpavogshrepps, segir Djúpavogsbúa hafa unnið áfangasigur með frestun á brottflutningi fiskvinnslu Vísis til Grindavíkur. „Við erum í töluvert annarri stöðu í dag heldur en 28. mars," sagði Gauti við lok íbúafundar með sjávarútve...
http://www.austurfrett.is/frettir/1962-visir-frestar-lokun-a-djupavogi
Vísir frestar lokun á Djúpavogi Vísir hf. hefur frestað lokun a fiskvinnslu sinni á Djúpavogi um eitt ár. Einhver fækkun starfa verður þó þegar saltfiskvinnsla verður flutt. Forstjóri Vísis vill að tíminn verði nýttur til að undirbúa mótvægisaðgerðir. Þetta kom fram í viðtali við Pétur Hafstein Pálsson í Eyjunni á Stöð...
http://www.austurfrett.is/frettir/1956-lilja-talsmadur-endurreisnarinnar-i-fjarveru-askels
Lilja talsmaður Endurreisnarinnar í fjarveru Áskels Lilja Óladóttir, bóndi í Merki á Jökuldal, verður talsmaður Endurreisnarinnar á Fljótsdalshéraði næstu daga en hún skipar annað sæti listans á meðan Áskell Einarsson, oddviti listans, gengst undir læknismeðferð. Þetta kemur fram í tilkynningu sem framboðið sendi frá s...
http://www.austurfrett.is/frettir/1955-er-pall-bjorgvin-fyrsti-kostur-sem-baejarstjori
Er Páll Björgvin fyrsti kostur sem bæjarstjóri? Frambjóðendur núverandi meirihlutaflokka í Fjarðabyggð, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, segja það þeirra fyrsta kost að ráða núverandi bæjarstjóra, Pál Björgvin Guðmundsson áfram. Oddviti Fjarðalistans segir Pál Björgvin mjög hæfan en það séu líka fleiri. Frambjóðe...
http://www.austurfrett.is/frettir/1951-kjoernir-fulltruar-verdha-adh-fordhast-adh-nota-sidhareglur-sem-taeki-i-politiskum-agreiningi
Kjörnir fulltrúar verða að forðast að nota siðareglur sem tæki í pólitískum ágreiningi Siðanefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga varar kjörna fulltrúa við að nota siðareglur sveitarfélaga sem tæki í pólitískum ágreiningi. Bæjarfulltrúi á Seyðisfirði segir sárt að hafa setið undir ásökunum innan bæjarstjórnar um að haf...
http://www.austurfrett.is/frettir/1945-fjardhabyggd-arion-banki-stakk-okkur-i-bakid
Fjarðabyggð: Arion-banki stakk okkur í bakið Bæjarfulltrúar í Fjarðabyggð saka Arion-banka um hafa svikið heiðursmannasamkomulag í tengslum við sölu á Hafnargötu 6 á Reyðarfirði. Þeir hafi verið í viðræðum um kaupin en frétt það svo utan úr bæ að eigin væri seld. „Þegar kom að því að reyna að leysa til sín eignir BM Va...
http://www.austurfrett.is/frettir/1939-omarklegt-thegar-menn-eigna-ser-verk-annarra-var-okkar-langstaersta-mal-i-sidustu-kosningum
Ómaklegt þegar menn eigna sér verk annarra: Var okkar langstærsta mál í síðustu kosningum Tekist var á um hvort rétt væri að eigna Sjálfstæðisflokknum heiðurinn af ört minnkandi skuldum Fjarðabyggðar á opnum framboðsfundi á Fáskrúðsfirði í gærkvöldi. Frambjóðendur meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks, hafa nýtt ...