Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
http://www.austurfrett.is/frettir/1042-ekki-nog-adh-gelda-hundinn-heilbrigdhiseftirlit-fer-fram-a-logun-hunds-sem-bitidh-hefur-folk
HAUST fer fram á að hundur sem bitið hefur fólk verði aflífaður Heilbrigðiseftirlit Austurlands (HAUST) hefur farið fram á að hundi sem bitið hefur í fólk á svæðinu verði lógað. Gerð var tilraun með að gelda hundinn en það virðist ekki hafa haft úrslitaáhrif á skapgerð hans. Frá þessu er grein í fundargerðum heilbrigði...
http://www.austurfrett.is/frettir/1026-austurvarp-sedh-fyrir-endann-a-30-ara-bidh-eftir-goengum
Austurvarp: Séð fyrir endann á 30 ára bið eftir göngum Austfirðingar sjá nú fyrir endann á um þrjátíu ára bið eftir nýjum Norðfjarðargöngum. Fyrsta haftið að nýju göngunum var sprengt við Eskifjörð í dag að viðstöddu fjölmenni. Það var Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, sem ýtti á takkann undir handleiðsl...
http://www.austurfrett.is/frettir/1022-nordhfjardhargoeng-fyrsta-haftidh-sprengt-myndir
Norðfjarðargöng: Fyrsta haftið sprengt - Myndir Segja má að framkvæmdir við ný Norðfjarðargöng hafi formlega hafist í dag þegar Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, sprengi fyrsta haftið í göngunum. Fjölmenni lagði leið sína að sprengjustaðnum í Eskifirði í dag. Það var klukkan kortér yfir fjögur sem haftið...
http://www.austurfrett.is/frettir/1018-nordhfjardhargoeng-solarhringur-i-fyrstu-sprenginguna
Norðfjarðargöng: Sólarhringur í fyrstu sprenginguna Sléttur sólarhringur er nú í að Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, sprengi fyrstu formlegu sprenginguna við gerð nýrra Norðfjarðarganga. Gestir munu safnast saman nálægt gangnamunnanum í Eskifirði klukkan 16:00 en ráðherra ræsir sprenginguna klukkan 16:1...
http://www.austurfrett.is/frettir/1016-austfirskt-fyrirtaeki-flytur-inn-nyja-snjallsima-hagaedhasimar-a-laegra-verdhi
Austfirskt fyrirtæki flytur inn nýja snjallsíma: Hágæðasímar á lægra verði Fyrstu snjallsímarnir sem seldur eru á vegum Zopo ehf. voru afhentir í morgun. Zopo er kínverskt farsímafyrirtæki en austfirskir frumkvöðlar flytja þá inn. Þeir segja símana standast dýrustu snjallsímunum fyllilega snúning gæðum en séu á móti mu...
http://www.austurfrett.is/frettir/1008-fjardhabyggd-og-fljotsdalsherad-i-adlogunarferli-vegna-skulda
Fjarðabyggð og Fljótsdalshérað í aðlögunarferli út af skuldum Stærstu sveitarfélögin á Austurlandi, Fjarðabyggð og Fljótsdalshéraðs, eru bæði á vöktunarlista Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga út af skuldum. Gert er ráð fyrir að skuldir þeirra verði komnar undir 200% af veltu árið 2019. Þetta kemur fram í árs...
http://www.austurfrett.is/frettir/998-ibuathing-i-breiddalshreppi-fleiri-atvinnutaekifaeri-eru-malidh
Íbúaþing í Breiðdalshreppi: Fleiri atvinnutækifæri eru málið! Það vantar fleiri atvinnutækifæri á Breiðdalsvík til að renna stoðum undir byggðina og möguleikarnir eru fjölmargir. Þetta voru einróma skilaboð íbúaþings sem haldið var helgina 2. – 3. nóvember með um 50 þátttakendum. Ýmsar hugmyndir komu fram um nýtingu fr...
http://www.austurfrett.is/frettir/993-vilhjalmur-seydhfirdhingar-hafa-ekkert-heyrt-fra-smyril-line
Vilhjálmur: Seyðfirðingar hafa ekkert heyrt frá Smyril Line Vilhjálmur Jónsson, bæjarstjóri Seyðisfjarðarkaupstaða, segir forsvarsmenn bæjarins ekkert hafa heyrt frá skipafélaginu Smyril Line, móðurfélagi Norrænu, um hvert markmið þeirra með viðræðum við fulltrúa nágrannasveitarfélagsins Fjarðabyggðar sé. „Þetta mál er...
http://www.austurfrett.is/frettir/1012-nytt-beltataeki-landsnets-reyndist-vel-a-hallormsstadharhalsi
Nýtt beltatæki Landsnets reyndist vel á Hallormsstaðarhálsi Sérútbúið beltatæki fyrir vinnu við háspennulínur og möstur sem Landsnet hefur fest kaup á kom að góðum notum á Hallormsstaðarhálsi á dögunum þegar skipta þurfti um brotna einangra og lagfæra leiðara á Fljótsdalslínu 2. Beltatækið, sem er einna líkast skriðdre...
http://www.austurfrett.is/frettir/1007-ibuafundir-fjarmal-a-heradi-umhverfi-i-neskaupstadh-og-saa-a-eskifirdhi
Íbúafundir: Fjármál á Héraði, umhverfi í Neskaupstað og SÁÁ á Eskifirði Fjölmargir opnir fundir verða haldnir á Austurlandi í vikunni. Í kvöld eru á dagskrá fundir á vegum SÁÁ á Eskifirði og um fjármál Fljótsdalshéraðs á Egilsstöðum. Á morgun verður haldinn íbúafundur í Neskaupstað. SÁÁ heldur opinn borgarafund í Kirkj...
http://www.austurfrett.is/frettir/996-bardhi-nk-stopp-a-isafirdhi-vegna-bilunar
Barði NK stopp á Ísafirði vegna bilunar Barði NK, skip Síldarvinnslunnar hefur verið stopp á Ísafirði undanfarna þrjá daga vegna bilunar. Skip fyrirtækisins hafa síðustu tvær vikur verið á síldarveiðum á Breiðafirði. „Það er bilun í spilkerfi. Það hefur engin áhrif á veiðiferðina," segir Karl Jóhann Birgisson, rekstrar...
http://www.austurfrett.is/frettir/991-jens-gardhar-erindi-smyril-line-kom-okkur-virkilega-a-ovart
Jens Garðar: Erindi Smyril Line kom okkur virkilega á óvart Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar, segir ósk Smyril Line um viðræður um að Fjarðabyggðarhafnir verði áfangastaður ferjunnar Norrænu í framtíðinni hafa komið virkilega á óvart. Engin áform hafi verið uppi um að byggja upp ferjuhöfn í sveita...
http://www.austurfrett.is/frettir/1009-metadsokn-i-gestavinnustofur-skaftfells
Metaðsókn í gestavinnustofur Skaftfells Tæplega 200 manns sóttu um að komast að í gestavinnustofum menningarmiðstöðvarinnar Skaftfells á Seyðisfirði á næsta ári en umsóknarfresturinn rann út fyrir skemmstu. Aldrei hafa fleiri sóst eftir að dveljast í vinnustofunum. Skaftfell, sem er miðstöð myndlistar á Austurlandi, re...
http://www.austurfrett.is/frettir/1005-nordfjardargong-allt-ad-verda-tilbuid-fyrir-gangagroftinn
Norðfjarðargöng: Allt að verða tilbúið fyrir gangagröftinn Formlega verður byrjað að grafa ný Norðfjarðargöng á fimmtudaginn kemur. Þessa dagana er verið að leggja lokahönd á undirbúning fyrir gröftinn. Síðustu daga hefur verið gengið frá bergstálin í Eskifirði þar sem göngin byrja. Það sem sést á meðfylgjandi myndum e...
http://www.austurfrett.is/frettir/995-ragnheidhur-elin-alveridh-er-happadraettisvinningur-austfirdhinga
Ragnheiður Elín: Álverið er happadrættisvinningur Austfirðinga Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, segir það eins og stóran happdrættisvinning fyrir Austfirðinga að álver Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði hafi komist á laggirnar. Það hafi samt eins og fleiri verkefni byrjað sem hugmynd. „Það má vel l...
http://www.austurfrett.is/frettir/990-framkvaemdastjori-smyril-line-thetta-eru-fyrst-og-fremst-koennunarvidhraedhur
Framkvæmdastjóri Smyril Line: Þetta eru fyrst og fremst könnunarviðræður Framkvæmdastjóri Smyril Line - International segir enga ákvörðun hafa verið tekna um hvort heimahöfn Norrænu verði flutt frá Seyðisfirði til Fjarðabyggðar. Þær viðræður sem fyrirtækið hafi óskað eftir við Fjarðabyggð séu fyrst og fremst ætlaðar ti...
http://www.austurfrett.is/frettir/989-norraena-til-fjardhabyggdhar-fjardharheidhin-er-throeskuldur-i-throun-vetrarferdha
Norræna til Fjarðabyggðar? Fjarðarheiðin er þröskuldur í þróun vetrarferða Forráðamenn Smyril-Line, sem heldur út farþegaferjunni Norrænu, hafa óskað eftir viðræður við bæjaryfirvöld í Fjarðabyggð um að taka á móti ferjunni í framtíðinni. Vegurinn yfir Fjarðarheiði þykir hamla vetrarþjónustu fyrirtækisins. Þetta kemur ...
http://www.austurfrett.is/frettir/984-nordhfjardhargoeng-byrjadh-adh-grafa-goengin-i-vikunni
Norðfjarðargöng: Byrjað að grafa göngin í vikunni Gert er ráð fyrir að formlega verði byrjað að grafa ný Norðfjarðargöng síðar í þessari viku. Vinna hefur gengið vel síðustu vikur og flest tæki og tól sem verktakinn þarf að verða komin á svæðið. Í október hefur verið unnið að forskeringu en með henni er sprengd renna i...
http://www.austurfrett.is/frettir/979-rithoefundur-fra-borgarfirdhi-gefur-ut-gamansoegu-um-eldri-borgara
Rithöfundur frá Borgarfirði gefur út gamansögu um ástir á elliheimili Ingunn Vigdís Sigmarsdóttir, frá Borgarfirði eystri, sendir á næstunni frá sér skáldsöguna Bræðraborg. Höfundurinn segist hafa viljað leggja áherslu á gamansamar sögur úr hversdagslífinu. Inginn er fædd á Borgarfirði en hefur lengst af búið á Norðurl...
http://www.austurfrett.is/frettir/969-thriggja-stunda-rafmagnsleysi-a-stoedhvarfirdhi-i-gaer-vidhgerdharflokkar-adh-stoerfum-til-sex-i-morgun
Þriggja stunda rafmagnsleysi á Stöðvarfirði í gær: Viðgerðarflokkar að störfum til klukkan sex í morgun Rafmagnslaust var á Stöðvarfirði í þrjár klukkustundir í gærkvöldi. Lélegt skyggni torveldaði leit viðgerðarflokka að biluninni auk þess sem áhersla var lögð á að bjarga línum frá frekari skemmdum af völdum ísingar. ...
http://www.austurfrett.is/frettir/987-rannsokn-a-eldsupptoekum-i-berufirdhi-langt-komin-eg-a-fjoelskylduna-mina-enntha
Rannsókn á eldsupptökum í Berufirði langt komin: Ég á fjölskylduna mína ennþá Rannsókn á upptökum elds í íbúðarhúsinu Hamraborg í Berufirði í fyrrinótt er vel á veg komin. Sjö manna fjölskylda á tveimur vegfarendum mikið að launa en þeir vöktu fjölskylduna og björguðu henni út úr reykfylltu húsinu. „Ég á fjölskylduna m...
http://www.austurfrett.is/frettir/981-vidhraedhur-um-soelu-hlutar-fjardhabyggdhar-i-sparisjodhi-nordhfjardhar-thokast-i-rett-att
Viðræður um sölu hlutar Fjarðabyggðar í Sparisjóði Norðfjarðar þokast í rétta átt Forsvarsmenn Sparifélagsins eiga í viðræðum við fulltrúa Fjarðabyggðar um að félagið kaupi hlut sveitarfélagsins í Sparisjóði Norðfjarðar. Talsmenn verjast allra frétta en segja viðræðurnar þokast í rétta átt. „Þessar viðræður um eignarhl...
http://www.austurfrett.is/frettir/975-fyrsti-baturinn-afhentur-fra-ran-batasmidhju-i-morgun
Fyrsti báturinn afhentur frá Rán Bátasmiðju í morgun Fyrsti báturinn sem smíðaður er af Rán Bátasmiðju á Djúpavogi, sem tók tók til starfa fyrir tveimur árum, var í morgun afhentur Fiskeldi Austfjarða og verður notaður sem þjónustubátur við fiskeldi fyrirtækisins í Berufirði. „Þetta er fyrsti báturinn sem við seljum hé...
http://www.austurfrett.is/frettir/968-gert-radh-fyrir-117-milljona-hagnadhi-af-rekstri-vopnafjardharhrepps-engin-ny-lan-tekin
Gert ráð fyrir 117 milljóna hagnaði af rekstri Vopnafjarðarhrepps: Engin ný lán tekin Gert er ráð fyrir tæplega 117 milljóna króna hagnaði af rekstri Vopnafjarðarhrepps á næsta ári. Nokkur ár er síðan sveitarfélagið tók síðast lán en unnið hefur verið að niðurgreiðslu skulda síðustu ár og stefnt er að því að halda það ...
http://www.austurfrett.is/frettir/986-vilja-endurskodha-loeg-um-byggingarmal-ut-af-myglusveppi-verra-en-adh-missa-husidh-sitt-i-bruna
Vilja endurskoða lög um byggingarmál út af myglusveppi: Verra en að missa húsið sitt í bruna? Þrettán Alþingismenn standa á bakvið þingsályktunartillögu sem nýverið var lögð fram um að umhverfis- og auðlindaráðherra skipi starfshóp sem taki til heildstæðrar endurskoðunar lög og reglur um byggingarmál með tilliti til my...
http://www.austurfrett.is/frettir/980-rostungaaridh-mikla-einn-enn-heimsotti-mjoafjoerdh
Rostungaárið mikla: Einn enn heimsótti Mjóafjörð Aldir eru síðan jafn margir rostungar heimsóttu Ísland og gert hafa í ár. Fimmta dýrið sást í Mjóafirði fyrir skemmstu og sá sem fyrstur mætti til Reyðarfjarðar í júní hefur nánast haldið til við landið síðan. Rúmar tvær vikur eru síðan ungur rostungur sást í Mjóafirði þ...
http://www.austurfrett.is/frettir/970-bjarga-folki-frekar-en-bilum-bjoergunarsveitir-geta-dregidh-bila-a-hverjum-dagi
Bjarga fólki frekar en farartækjum: Björgunarsveitir geta ekki dregið bíla á hverjum degi Austfirskar björgunarsveitir hyggjast leggja áherslu á að bjarga fólki frekar en farartækjum þegar þær eru kallaðar út til aðstoðar ferðalöngum í erfiðri færð. Tíðni útkalla er orðin slík að sveitirnar hafa vart lengur bolmagn til...
http://www.austurfrett.is/frettir/966-norskur-arkitekt-sigradhi-i-hugmyndasamkeppni-um-baetta-adhstoedhu-ferdhafolks-i-storurdh
Norskur arkitekt sigraði í hugmyndasamkeppni um bætta aðstöðu ferðafólks í Stórurð Norski arkitektinn Erik Rönning Andersen bar sigur úr býtum í hugmyndasamkeppni um bætta aðstöðu fyrir ferðafólk í Stórurð og næsta nágrenni Dyrfjalla. Hann segir útlínur fjallgarðsins hafa veitt honum innblástur við hönnunina. „Hugmyndi...
http://www.austurfrett.is/frettir/965-leidhindavedhur-a-austurlandi-ofaert-um-fjardharheidhi-og-oddskardh
Leiðindaveður á Austurlandi: Ófært um Fjarðarheiði og Oddskarð Gengið er í vonskuveður víða á Austurlandi en samkvæmt veðurspá mun veðrið ganga niður í nótt. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er stórhríð á Oddskarði og vegurinn lokaður. Því er ófært í Neskaupstað. Eins er óveður á Fjarðarheiði og því ófært með öllu...
http://www.austurfrett.is/frettir/947-audlindin-austurland-atvinnumalaradstefna-i-november
Auðlindin Austurland: Atvinnumálaráðstefna í nóvember Dagana 5. – 6. nóvember nk. stendur Austurbrú fyrir atvinnumálaráðstefnu undir yfirskriftinni „Auðlindin Austurland“ á Hóteli Hallormsstað. Boðið verður upp á fjölda fyrirlestra, málstofa og tengslatorg. Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðarráðherra mun setja ráðstefn...
http://www.austurfrett.is/frettir/940-atvinnutorg-austurlands-a-austurfrett
Atvinnutorg Austurlands á Austurfrétt Austurfrétt hefur opnað undirvefinn Atvinnutorg Austurlands. Á síðunni geta atvinnurekendur komið atvinnuauglýsingum á framfæri og atvinnuleitendur geta skráð sig á póstlista til að fylgjast með nýjum störfum. „Þetta er hluti af hugsun okkur að byggja upp samfélagsvef,“ segir Stefá...
http://www.austurfrett.is/frettir/924-daemdur-i-fimmtan-ara-fangelsi-fyrir-samraedhi-vidh-14-ara-stulku
Dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir samræði við 14 ára stúlku Héraðsdómur Austurlands dæmdi í dag 24 ára gamlan karlmann í fimmtán mánaða fangelsi, þar af þrjá mánuði óskilorðsbundna, fyrir samræði við stúlku sem var tíu árum yngri en hann. Atvikið átti sér stað í ágúst í fyrra. Maðurinn sótti þá stelpuna á dvalarst...
http://www.austurfrett.is/frettir/964-brothaettar-byggdir-bodid-til-ibuathings-i-breiddalshreppi-um-helgina
Brothættar byggðir: Boðið til íbúaþings í Breiðdalshreppi um helgina Um næstu helgi, 2. – 3. nóvember er boðið til íbúaþings í Breiðdalshreppi. Þingið tengist verkefni Byggðastofnunar í svokölluðum „Brothættum byggðum“, þar sem áherslan er á samstarf íbúa og stofnana við að leita lausna til að efla byggð. Þingið stendu...
http://www.austurfrett.is/frettir/945-nyr-vegur-opnadhur-til-vopnafjardhar-skipt-miklu-mali-adh-fa-loksins-nutimalegan-veg
Nýr vegur opnaður til Vopnafjarðar: Skiptir miklu máli að fá loksins nútímalegan veg Innanríkisráðherra, Hanna Birna Kristjánsdóttir, opnaði á miðvikudag formlega nýja vegtengingu við Vopnafjörð. Um er að ræða tæplega 60 km vegagerð sem tengir Vopnafjörð við hringveginn um Norðausturveg. Sveitarstjórinn segir nýja vegi...
http://www.austurfrett.is/frettir/933-thingmadhur-reykjavikur-heimsotti-austurland-i-kjoerdaemaviku
Þingmaður Reykjavíkur heimsótti Austurland í kjördæmaviku Venjan er sú að í kjördæmavikum Alþingis fari þingmenn heim í sín kjördæmi, ferðist um, hitti fólk og taki púlsinn á stöðunni. Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata í Reykjavíkurkjördæmi norður, fór þó öfuga leið og heimsótti Austurland. „Þingmaðurinn er bara...
http://www.austurfrett.is/frettir/919-embla-eir-siglingar-a-nordhurslodhum-eru-ekki-haettulausar
Embla Eir: Siglingar á norðurslóðum eru ekki hættulausar Embla Eir Oddsdóttir, forstöðumaður Norðurslóðanets Íslands, varar menn við of mikill bjartsýni í tengslum við hugsanlegar siglingar fragtskipa um norðurslóðir. Þeim fylgir áhætta, bæði viðskiptalega og umhverfislega. Þá sé mikilvægt að gleyma ekki öðrum tækifæru...
http://www.austurfrett.is/frettir/961-fljotsdalsherad-keypti-reidholl-a-uppbodi-gjorningur-sem-skytur-skokku-vid-a-sparnadartimum
Fljótsdalshérað keypti reiðhöll á uppboði: Gjörningur sem skýtur skökku við á sparnaðartímum? Fulltrúar minnihlutans í bæjarstjórn Fljótsdalshérað hafa áhyggjur af forgangsröðun í útgjöldum sveitarfélagsins í ljósi kaupa þess á reiðhöllinni á Iðavöllum á rúmar tuttugu milljónir fyrir skemmstu. Bæði þeir og fulltrúar úr...
http://www.austurfrett.is/frettir/941-fyrsti-sildarfarmurinn-kominn-til-vopnafjardhar
Fyrsti síldarfarmurinn kominn til Vopnafjarðar Vopnfirðingar fögnuðu því í dag að fyrsti farmur íslensku síldarinnar á þessari vertíð kom að bryggju. Ingunn AK var fyrsta skipið úr flota HB Granda til að leita á miðin en Lundey NS hóf einnig veiðar í gær. Í samtali við Austurfrétt í dag sagði Magnús Þór Róbertsson, vin...
http://www.austurfrett.is/frettir/926-menningarsamningur-a-austurlandi-skarar-fram-ur-austurland-er-throskadhasta-svaedhidh
Menningarsamningur á Austurlandi skarar fram úr: Austurland er þroskaðasta svæðið Menningarsamningur Austurlands er sá menningarsamningur landshluta sem mestum árangri skilar. Samningurinn hér er elstur og kemur það Austfirðingum til góða. Austurland fær samt talsvert minna fé til menningarmála frá ríkinu heldur en aðr...
http://www.austurfrett.is/frettir/918-fridrik-brynjar-daemdur-i-16-ara-fangelsi
Friðrik Brynjar dæmdur í 16 ára fangelsi: Þykir ekki eiga sér neinar málsbætur Friðrik Brynjar Friðriksson var í dag dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir að hafa ráðið Karli Jónssyni bana í íbúð hans á Blómvangi 2 á Egilsstöðum aðfaranótt 7. maí. Dómarar mátu frásögn hans í lykilatriðum ótrúverðuga og sögðu hann ekki eiga sé...
http://www.austurfrett.is/frettir/917-pall-bjoergvin-vidh-getum-byrjadh-strax-a-morgun
Páll Björgvin: Við getum byrjað strax á morgun Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, segir sveitarfélagið vel í stakk búið til að takast á við verkefni og tækifæri sem kunna að fylgja breyttum aðstæðum á norðurslóðum. Uppbygging stóriðju hafi undirbúið Fjarðabyggð fyrir fleiri stórverkefni. Þetta kom fr...
http://www.austurfrett.is/frettir/910-austfirskir-loegreglumenn-hafa-ahyggjur-af-samskiptum-innan-loegreglunnar
Austfirskir lögreglumenn hafa áhyggjur af samskiptum kynjanna innan lögreglunnar Félagar í Lögreglufélagi Austurlands harma niðurstöður skýrslu um vinnumenningu og kynjatengsl innan lögreglunnar. Rannsóknin sýndi fram á erfiða stöðu kvenna innan lögreglunnar. Þetta kemur fram í ályktun frá aðalfundi félagsins sem haldi...
http://www.austurfrett.is/frettir/897-daemdur-fyrir-falsadh-vegabref-leidhretta-thurfti-akaeru
Dæmdur fyrir falsað vegabréf: Leiðrétta þurfti ákæru Rúmlega fertugur karlmaður frá Máritaníu var í Héraðsdómi Austurlands dæmdur í þrjátíu daga fangelsi fyrir að framvísa fölsuðu vegabréfi við komu hingað til lands með ferjunni Norrænu. Manninum var í ákæru gefið að sök að hafa framvísað í blekkingarskyni við vegabréf...
http://www.austurfrett.is/frettir/893-haraldur-olafsson-loftslagsbreytingar-eru-stadhreynd
Haraldur Ólafsson: Loftslagsbreytingar eru staðreynd Ekki þýðir að halda því fram að loftslagsbreytingar séu ekki til staðar þótt allar spár gangi ekki eftir. Spálíkön eru misgóð en alla jafna kjósa vísindamenn að fara varlega í niðurstöðurnar. Í sunnanverðri Evrópu eru þegar farnar að sjást afleiðingar hlýnunar jarðar...
http://www.austurfrett.is/frettir/916-olafur-ragnar-island-hefur-aldrei-haft-mikilvaegari-stoedhu-i-heimsmyndinni
Ólafur Ragnar: Ísland hefur aldrei haft mikilvægari stöðu í heimsmyndinni Forseti Íslands segir að staða Íslands í heiminum hafi aldrei verið mikilvægari en á næstu tveimur áratugum, einkum vegna nýrra siglingaleiða sem gætu opnast í gegnum norðurslóðir. Ýmis tækifæri gætu þar opnast fyrir Austfirðinga enda svæðið vel ...
http://www.austurfrett.is/frettir/907-daemdur-fyrir-adh-skalla-loegreglumann-i-andlitidh
Dæmdur fyrir að skalla lögreglumann í andlitið Héraðsdómur Austurlands dæmdi í síðustu viku tvítugan karlmann í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að skalla lögreglumann við skyldustörf tvisvar í andlitið. Árásin átti sér stað fyrir utan skemmtistaðinn Gömlu símstöðina á Egilsstöðum í fyrravor. Í dóminum segir að ge...
http://www.austurfrett.is/frettir/896-gistihusidh-a-egilsstoedhum-staekkar-fjosidh-vikur-fyrir-ferdhamoennum
Gistihúsið á Egilsstöðum stækkar: Fjósið víkur fyrir ferðamönnum Framkvæmdir eru hafnar við viðbyggingu við Gistihúsið á Egilsstöðum. Með nýbyggingunni bætast við ný og glæsileg gestamóttaka, heilsulind, 30 herbergi og lyftuhús. Gunnlaugur Jónasson hótelstjóri segir mikla þörf vera fyrir þessa viðbót. „Við höfum verið ...
http://www.austurfrett.is/frettir/891-nordhfjardhargoeng-sprengigroeftur-formlega-hafinn
Norðfjarðargöng: Sprengigröftur formlega hafinn Fyrsta sprengingin fyrir nýjum Norðfjarðargöngum var sprengd Eskifjarðarmegin skömmu eftir hádegi á laugardag. Íbúar á Eskifirði mega því eiga von á að heyra sprengingar af og til næstu mánuðina. Nokkur hópur áhorfenda fylgdist með frá golfvallarveginum en þaðan sást vel ...
http://www.austurfrett.is/frettir/914-nordhfjardhargoeng-allt-adh-verdha-klart-fyrir-sjalfan-groeftinn
Norðfjarðargöng: Allt að verða klárt fyrir sjálfan gröftinn Undirbúningur við ný Norðfjarðargöng heldur áfram en búist er við að formlegur gangagröftur hefjist fyrri hluta nóvembermánaðar. Norðfjarðarmegin er byrjað að gera klárt svæði undir vinnubúðir. Fyrsta sprengingin í forskeringunni Eskifjarðarmegin var fyrir tíu...
http://www.austurfrett.is/frettir/900-baejarstjornarbekkur-a-egilsstoedhum-haldidh-thidh-adh-einhver-kjosi-ykkur
Bæjarstjórnarbekkur á Egilsstöðum: „Haldið þið að einhver kjósi ykkur?“ Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs stóð fyrir svokölluðum bæjarstjórnarbekk þriðjudaginn 15. október. Fulltrúar allra framboða í bæjarstjórn komu sér þá fyrir í kaffihorni Nettó og ræddu málin við gesti og gangandi. Bæjarstjórnarbekkurinn hefur verið hal...
http://www.austurfrett.is/frettir/894-hlyrra-loftslag-gaeti-baett-adhstaedhur-til-timburframleidhslu
Hlýrra loftslag gæti bætt aðstæður til timburframleiðslu Hlýrra loftslag gæti aukið möguleika Íslendinga til nytjaskógræktar. Þó er óvíst að sú hlýnun sem spáð er dugi Íslendingum til að rækta nýjar tegundir. Erfitt er því að vita tækifæri gætu opnast skógræktendum. Þetta er mat Þorbergs H. Jónssonar, sérfræðings hjá S...
http://www.austurfrett.is/frettir/888-vinstri-graen-hneyksludh-a-utreidh-landsbyggdharinnar-i-fjarlagafrumvarpinu
Vinstri græn hneyksluð á útreið landsbyggðarinnar í fjárlagafrumvarpinu Kjördæmisráð Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðausturkjördæmi segir stórfelldan niðurskurð blasa við í byggðamálum í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Þetta kemur fram í ályktunum aðalfundar ráðsins sem haldinn var að Stóru-Laugum í...
http://www.austurfrett.is/frettir/883-hlyrra-eystra-um-helgina-heldur-en-i-nagrannarikjunum-gamanidh-buidh-i-bili
Hlýrra eystra um helgina heldur en í nágrannaríkjunum: Gamanið búið í bili Hlýrra var í veðri á Austfjörðum í lok síðustu viku heldur en víða í Evrópu. Hæðin sem ráðið hefur veðrinu undanfarna daga hefur misst afl sitt og því er von á kaldari straumum úr þessu. Eitt daghitamet féll en hitametið fyrir mánuðinn stendur e...
http://www.austurfrett.is/frettir/873-nordhfjardhargoeng-fyrsta-sprengingin-a-morgun
Norðfjarðargöng: Fyrsta sprengingin á morgun Fyrsta sprengingin við gerð nýrra Norðfjarðargana Eskifjarðarmegin verður á morgun, laugardaginn 12. október 13:00. Nokkrar takmarkanir verða á umferð af þeim sökum. Stuttu fyrir sprengingu verður Dalbraut lokað við vinnubúðir verktaka og einnig nokkru innan við vinnusvæðið,...
http://www.austurfrett.is/frettir/864-andapollurinn-a-reydharfirdhi-ordhinn-bleikur-ljosin-hennar-steinu-vekja-mikla-athygli
Andapollurinn á Reyðarfirði baðaður í bleiku: Ljósin hennar Steinu vekja mikla athygli Bleik lýsing umhverfis andapollinn á Reyðarfirði hefur vakið umtalsverða athygli vegfarenda en lýsingin er hugarfóstur hvunndagshetju Krabbameinsfélags Austfjarða í ár. Austfirðingar eru hvattir til að klæðast bleiku á morgun. „Við k...
http://www.austurfrett.is/frettir/856-brotnir-hlekkir-i-kerfi-svaust-vantar-fjarmagn-til-adh-standa-undir-famennari-leidhum
Brotnir hlekkir í kerfi SvAust: Vantar fjármagn til að standa undir fámennari leiðum Ekki er hægt að komast á milli Reyðarfjarðar og Hafnar í Hornafirði með almenningssamgöngum þar sem engar slíkar eru á milli Breiðdalsvíkur og Djúpavogs. Styrkir við flugsamgöngur hafa áhrif á styrki til samgangna á landi. Strætisvagna...
http://www.austurfrett.is/frettir/882-framsoknarmenn-telja-reykjavikurflugvoell-eitt-staersta-byggdhamal-samtimans
Framsóknarmenn telja Reykjavíkurflugvöll eitt stærsta byggðamál samtímans Framsóknarmenn í Norðausturkjördæmi telja núverandi staðsetningu Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýrinni í Reykjavík eitt stærsta byggðamál samtímans. Þeir gleðjast einnig yfir góðu gengi í þingkosningunum í vor sem tryggði flokknum sæti í ríkisstjó...
http://www.austurfrett.is/frettir/871-vorblidha-a-austfjoerdhum-i-dag-rumlega-tuttugu-stiga-hiti-a-kollaleiru-i-kvoeld
Vorblíða á Austfjörðum í dag: Rúmlega tuttugu stiga hiti á Kollaleiru í kvöld Óvenju hlýtt var í veðri á Austfjörðum í dag miðað við að kominn sé tíundi október. Ríflega tuttugu stiga hiti mældist á Kollaleiru í Reyðarfirði á níunda tímanum í kvöld. Á Seyðisfirði lögðu menn vetrarúlpunum fyrir léttari yfirhafnir. „Það ...
http://www.austurfrett.is/frettir/861-hlunnindi-is-helmingur-leyfanna-seldur-a-fyrsta-solarhringnum
Hlunnindi.is: Helmingur leyfanna seldur á fyrsta sólarhringnum Um helmingur þeirra veiðileyfa sem í boði eru á vefnum hlunnindi.is hefur verið seldur síðan sala á leyfunum hófst í gærkvöldi. Aðstandendur vefsins segja tilganginn með honum að byggja upp vef landaupplýsingum fyrir veiði á einum stað. „Mest seldist á fyrs...
http://www.austurfrett.is/frettir/855-akaerdhur-fyrir-adh-draga-annan-mann-ut-ur-bil-a-harinu
Ákærður fyrir að draga annan mann út úr bíl á hárinu Lögreglustjórinn á Eskifirði hefur ákært karlmann á fertugsaldri fyrir að hafa dregið rúmlega tvítugan karlmann á hárinu út úr bifreið sinni. Sá maður er á móti ákærður fyrir að hafa slegið árásaraðilann. Mennirnir tveir lentu í stympingum utan við íbúð eldri mannsin...
http://www.austurfrett.is/frettir/877-akaerdhur-fyrir-adh-stofna-lifi-vegfarenda-og-loegreglumanna-i-haettu-medh-ofsaakstri
Ákærður fyrir að stofna lífi vegfarenda og lögreglumanna í hættu með ofsaakstri Ríkissaksóknari hefur ákært ríflega tvítugan karlmann fyrir að hafa stefnt lífi og heilsu vegfarenda og lögreglumanna í „augljósan háska á ófyrirleitinn hátt.“ Maðurinn ók undir áhrifum áfengis og reyndi að stinga lögregluna af á leiðinni u...
http://www.austurfrett.is/frettir/866-hotel-tanga-veitt-aminning-fyrir-brot-a-reglum-um-matvaeli
Hótel Tanga veitt áminning fyrir brot á reglum um matvæli Heilbrigðiseftirlit Austurlands (HAUST) veitti í sumar rekstraraðila Hótel Tanga áminningu fyrir brot á matvælalöggjöf, ákvæðum starfsleyfis og ítrekuðum fyrirmælum HAUST. Forsvarsmenn fyrirtækisins segjast vera búnir að bæta úr þeim atriðum sem athugasemdir vor...
http://www.austurfrett.is/frettir/858-sjoe-tima-bjoergunaradhgerdhir-foru-til-adh-bjarga-husbil-en-endudhu-a-adh-redda-rutum
Sjö tíma björgunaraðgerðir: Fóru til að bjarga húsbíl en enduðu á að redda rútum Björgunarsveitarmenn frá Fljótsdalshéraði og Seyðisfirði stóðu í ströngu í gærkvöldi þegar selflytja þurfti hundruð ferðamanna af Fjarðarheiði niður á Seyðisfjörð í ferjuna Norrænu. Þrjár stórar rútur sátu þar fastar í mikilli hálku. Björg...
http://www.austurfrett.is/frettir/851-nordhfjardhargoeng-hvadh-er-forskering
Norðfjarðargöng: Hvað er forskering? Gryfjan sem þarf að grafa í fjallshlíðina áður en gangagröftur getur hafist er nefnd forskering. Hluti hennar er grafin í laust efni mest skriðuefni en hluti í klöpp sem þarf að sprengja. Hafin er vinna við forskeringuna Eskifjarðarmegin og búið að grafa burtu mest af lausu jarðefnu...
http://www.austurfrett.is/frettir/849-barkabolgan-a-egilsstadhabylinu-uppraett
Barkabólgan á Egilsstaðabýlinu upprætt Matvælastofnun telur að tekist hafi að uppræta smitandi barkabólgu sem greindist í kúm á kúabúinu á Egilsstöðum í fyrrahaust. Ekki hefur enn tekist að rekja hvaðan smitið barst. Þetta kemur fram í tilkynningu sem stofnunin sendi frá sér í dag. Eftir að jákvæð svörun greindist við ...
http://www.austurfrett.is/frettir/841-djupavogsbuar-fagna-nyjum-laekni
Nýjum lækni fagnað á Djúpavogi Sveitarstjórn Djúpavogshrepps fagnar því að tekist hefur að manna stöðu læknis í Djúpavogslæknishéraði. Leitað hefur verið eftir hjúkrunarfólki á svæðið síðustu misseri. Auglýst var eftir lækni í héraðið í lok síðasta árs en lítil viðbrögð voru við þeirri auglýsingu. Í sumar var staðan au...
http://www.austurfrett.is/frettir/837-vidhgerdhir-hafnar-a-mygluhusunum-ibuar-thurfa-ekki-adh-bera-neinn-kostnadh-af-vidhgerdhum
Viðgerðir hafnar á mygluhúsunum: Íbúar þurfa ekki að bera neinn kostnað af viðgerðum Viðgerðir eru hafnar á íbúðarhúsum á Egilsstöðum og Reyðarfirði sem byggð voru af ÍAV fyrir nokkrum árum og skemmd eru af myglusveppi. Verkið hefur dregist þar sem treglega hefur gengið að fá iðnaðarmenn en vonast er til þess að því ve...
http://www.austurfrett.is/frettir/828-sjukrathjalfunarstofan-heilsuleidhir-opnudh-folk-spyr-eftir-thessari-thjonustu
Sjúkraþjálfunarstofan Heilsuleiðir opnuð: Fólk spyr eftir þessari þjónustu Sjúkraþjálfunarstofan Heilsuleiðir var opnuð á Egilsstöðum í dag. Stofnandinn segist finna fyrir töluverðri eftirspurn og hefur trú á að starfsmönnunum fjölgi innan tíðar. „Biðlistarnir í sjúkraþjálfun hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands eru lang...
http://www.austurfrett.is/frettir/845-riflega-100-milljona-vidhsnuningur-a-rekstri-seydhisfjardharkaupstadhar
Ríflega 100 milljóna viðsnúningur á rekstri Seyðisfjarðarkaupstaðar Ríflega 100 milljóna viðsnúningur hefur orðið á rekstri Seyðisfjarðarkaupstaðar á undanförnum tveimur árum. Haustið 2011 var gripið til umfangsmikilla hagræðingaraðgerða í rekstri sveitarfélagsins eftir viðvarandi hallarekstur. Þetta kom fram í erindi ...
http://www.austurfrett.is/frettir/840-daemd-fyrir-meidhyrdhi-gegn-agli-einarssyni-solarhring-tok-adh-safna-fyrir-sektinni
Dæmd fyrir meiðyrði gegn Agli Einarssyni: Sólarhring tók að safna fyrir sektinni Tæpan sólarhring tók að safna rúmum 900.000 krónum sem Ingibjörg Lilja Hafliðadóttir var í vikunni dæmd til að greiða Agli Einarssyni (Gillzenegger) í miskabætur og málskostnað fyrir ærumeiðandi ummæli. Ingibjörg kveðst þakklát öllum þeim ...
http://www.austurfrett.is/frettir/834-daemdur-fyrir-samraedi-vid-fjortan-ara-stulku
Dæmdur fyrir samræði við fjórtán ára stúlku Tvítugur karlmaður var í dag dæmdur í eins árs skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Austurlands fyrir að hafa í fyrra haft samræði við stúlku sem þá var fjórtán ára gömul. Maðurinn játaði brot sitt greiðlega. Lágmarksrefsing við slíkum brotum er eins árs fangelsi. Heimilt er ...
http://www.austurfrett.is/frettir/824-thadh-liggur-sextan-ara-fangelsi-vidh-svona-broti-og-eg-se-enga-astaedhu-til-adh-faera-tha-refsingu-neitt-nidhur
„Það liggur sextán ára fangelsi við svona broti og ég sé enga ástæðu til að færa þá refsingu neitt niður“ Saksóknari krefst þess að Friðrik Brynjar Friðriksson yrði dæmdur í sextán ára fangelsi en hann er ákærður fyrir að hafa ráðið Karli Jónssyni bana með hníf í íbúð Karls á Egilsstöðum í byrjun maí. Verjandi benti á ...
http://www.austurfrett.is/frettir/843-akaerdhur-fyrir-haettulega-aras-medh-alskoflu
Ákærður fyrir hættulega árás með álskóflu Ríkissaksóknari hefur ákært karlmann á þrítugsaldri fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás en hann sló annan mann í höfuðið með álskóflu í átökum þeirra á Reyðarfirði í fyrra. Í ákærunni segir að maðurinn hafi slegið hinn tvisvar sinnum í höfuðið með 1,2 kg álskóflu þannig að f...
http://www.austurfrett.is/frettir/839-austurland-gegnt-miklu-hlutverki-i-framthroun-vinnuoeryggis
Austurland hefur gegnt miklu hlutverki í framþróun vinnuöryggis Forstjóri Vinnueftirlitsins segir framkvæmdaraðila á Austurlandi hafa verið öðrum til fyrirmyndar hvað vinnuöryggi varðar. Aðrir hafi fylgt fordæmi Bechtel sem reisti álverið þegar í ljós kom að aðferðir fyrirtækisins báru árangur. „Öryggismálin hjá Bechte...
http://www.austurfrett.is/frettir/831-nordfjardargong-framkvaemdir-hafnar-vid-vaentanlegan-gangnamunna
Norðfjarðargöng: Framkvæmdir hafnar við væntanlegan gangnamunna Segja má að framkvæmdir hafi hafist formlega við ný Norðfjarðargöng á laugardag þegar aðalverktakinn byrjaði að vinna á svæðinu þar sem gangnamunninn á að vera. Byrjað verður að sprengja fyrir honum innan skamms. „Það var mokað ofan af fjallshlíðinni þar s...
http://www.austurfrett.is/frettir/825-slaturfelag-austurlands-gjaldthrota
Sláturfélag Austurlands gjaldþrota Sláturfélag Austurlands hefur verið úrskurðað gjaldþrota, fjórum mánuðum eftir að félagið opnaði kjöt- og fiskbúð í miðbæ Egilsstaða. Talsmaður félagsins segir að þær áætlanir sem gerðar voru fyrir sumarið hafi ekki gengið eftir. Stjórn félagsins óskaði eftir gjaldþrotaskiptum í byrju...
http://www.austurfrett.is/frettir/820-hallo-eg-heiti-fridhrik-brynjar-eg-held-eg-hafi-drepidh-mann
„Halló. Ég heiti Friðrik Brynjar. Ég held ég hafi drepið mann.“ „Halló. Ég heiti Friðrik Brynjar. Ég held ég hafi drepið mann,“ voru fyrstu orð Friðriks Brynjars Friðrikssonar í símtali til Neyðarlínunnar aðfaranótt 7. maí. Friðrik Brynjar er ákærður fyrir að hafa ráðið Karli Jónssyni bana. Upptaka af símtalinu var spi...
http://www.austurfrett.is/frettir/816-janne-thadh-tharf-lika-adh-vera-til-stadhar-atvinna-fyrir-makann
Janne: Það þarf líka að vera til staðar atvinna fyrir makann Ein algengasta orsök þess að fólk hættir störfum hjá Alcoa Fjarðaáli og flytur í burtu frá Austurlandi er að það saknar vina sinna sem búa annars staðar á landinu. Mikilvægt er að fjölbreytt atvinna sé í boði á svæðinu til að byggja upp öflugt samfélag sem fó...
http://www.austurfrett.is/frettir/807-vedhurfraedhingur-sennilega-tilviljun-adh-thessi-hoerdhu-haustvedhur-komi-medh-ars-millibili
Veðurfræðingur: Sennilega tilviljun að þessi hörðu haustveður komi með árs millibili Vindhviðan sem mældist í Hamarsfirði upp á rúma 70 metra á sekúndu í byrjun vikunnar er sennilega ein sú snarpasta sem mælst hefur á Íslandi í septembermánuði. Hausthvellir eru þó alls ekki nýir af nálinni. Veðurfræðingur telur líklegr...
http://www.austurfrett.is/frettir/803-melarett-frestadh-til-sunnudags-haett-vidh-adh-einhver-fjoeldi-fjar-se-grafinn-i-foenn
Melarétt frestað til sunnudags: Hætt við að einhver fjöldi fjár sé grafinn í fönn Melarétt í Fljótsdal hefur verið seinkað um sólarhring vegna þess hve hægt hefur gengið að smala. Göngumenn í Rana á Fljótsdalsheiði hafa fundið dautt fé í fönn eftir veðuráhlaupið sem gerði í byrjun vikunnar. Ranamenn hafa fundið tíu dau...
http://www.austurfrett.is/frettir/819-vidh-erum-adh-tala-um-92-hnifsstungur-sem-veittar-voru-medh-miklu-ofbeldi
„Við erum að tala um 92 hnífsstungur sem veittar voru með miklu ofbeldi“ Banamein Karls Jónssonar, sem myrtur var á heimili sínu á Egilsstöðum í byrjun maí, var mikill blóðmissir. Áverkarnir voru veittir af miklu afli. Meintur gerandi var ofurölvi kvöldið sem morðið var framið. „Fórnarlambið andaðist í kjölfar mikils b...
http://www.austurfrett.is/frettir/815-thoroddur-bjarnason-hoefum-skapadh-vandraedhi-medh-thvi-adh-tala-um-landsbyggdhina-i-eintoelu
Þóroddur Bjarnason: Höfum skapað vandræði með því að tala um landsbyggðina í eintölu Ákveðin svæði á landsbyggðinni eru í blússandi sókn á meðan önnur berjast fyrir tilverurétti sínum. Á Íslandi skortir skýra byggðastefnu þar sem tekið er af alvöru á vanda þeirra byggða sem eru í vanda. „Við höfum skapað vandræði með þ...
http://www.austurfrett.is/frettir/806-traudhla-hlutverk-vegagerdharinnar-adh-hemja-ferdhafolk
Trauðla hlutverk Vegagerðarinnar að „hemja“ ferðafólk Vegagerðin vinnur að mótun verklagsreglna um allt land til að koma í veg fyrir að ferðamenn fari um vegi sem eiga að heita ófærir. Merkingum á ljósaskiltum var í vikunni tímabundið breytt á ensku til að reyna að koma í veg fyrir ferðafólk færi sér að voða. „Við geru...
http://www.austurfrett.is/frettir/800-ottast-um-fe-a-joekuldal-vidh-vonum-thadh-besta
Óttast um fé á Jökuldal: Við vonum það besta Óttast er að fé hafi farist á Jökuldal í óveðrinu sem gengið hefur yfir Austurland síðustu tvo daga. Veðrið var verra og snjólínan náði lengra niður en menn gerðu ráð fyrir. Skaðinn er samt ekki orðinn ljós þar sem ekki hefur verið hægt að smala þau svæði sem næst eru bæjunu...
http://www.austurfrett.is/frettir/818-karl-var-einstaklingur-sem-gerdhi-ekki-flugu-mein
Karl var einstaklingur sem gerði ekki flugu mein Vinkona Karls Jónssonar frá Galtastöðum fram segist hafa verið slegin þegar upp á hann voru bornar sakir fyrir dómi um að hann hefði girnst börn. Hann hafi verið gestkomandi á heimili hennar þar sem börn voru fóstruð og aldrei af sér neina hegðun sem benti til þess. „Þet...
http://www.austurfrett.is/frettir/812-baettur-bunadhur-a-faedhingadeild-fsa-soroptimistar-gefa-nyjan-hjartasirita
Bættur búnaður á fæðingadeild FSN: Soroptimistar gefa nýjan hjartasírita Í liðinni viku komu fulltrúar Soroptimistaklúbbs Austurlands færandi hendi á Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað. Klúbburinn gaf fæðingadeild sjúkrahússins hjartasírita en tilefnið var 10 ára afmæli klúbbsins. Síritinn er notaður fyrir og í fæðingu...
http://www.austurfrett.is/frettir/805-sigmundur-davidh-thurfum-adh-komast-upp-ur-ordhraedhunni-um-landsbyggdhina-versus-hoefudhborgina
Sigmundur Davíð: Þurfum að komast upp úr orðræðunni um landsbyggðina gegn höfuðborginni Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, vill að íbúar höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar hætti að skipta sér í tvær andstæðar fylkingar í þjóðmálaumræðunni. Samvinna þjóni betur Íslendinga í heild. „Margt hefur breyst...
http://www.austurfrett.is/frettir/799-eitt-mesta-vatnsvedhur-i-manna-minnum-i-joekulsarhlidh
Eitt mesta vatnsveður í manna minnum í Jökulsárhlíð Vegir hafa farið í sundur í Jökulsárhlíð á Fljótsdalshéraði í einhverju mesta vatnsveðri sem menn segjast hafa séð þar. Rokhvasst er enn á svæðinu sem hefur gert vegagerðarmönnum erfitt um vik við að laga skemmdirnar. „Það er búið að vera gríðarlegt vatnsveður hér und...
http://www.austurfrett.is/frettir/798-fjorar-aukavelar-til-egilsstadha-i-dag-vel-gengur-adh-vinna-upp-tafir-a-flugi
Fjórar aukavélar til Egilsstaða í dag: Vel gengur að vinna upp tafir á flugi Flugfélag Íslands flýgur í dag fjórar auka ferðir á milli Egilsstaða og Reykjavíkur til að vinna upp þær tafir sem orðið hafa á flugi vegna veður síðastliðna tvo daga. Farþegaflug lá niðri frá Egilsstaðaflugvelli í gær og fyrradag en afar hvas...
http://www.austurfrett.is/frettir/789-vetraraaetlun-straeto-gengin-i-gildi
Vetraráætlun Strætó gengin í gildi Vetraráætlun Strætó á landsbyggðinni gekk í gildi í dag og gildir til 17. maí. Ein minniháttar breyting er á Austfjarðasvæðinu. Um er að ræða leið 56 sem gengur á milli Egilsstaða og Akureyrar. Þar verður ekki farin aukaferð á milli Akureyrar og Reykjahlíðar eins og síðasta vetur. Str...
http://www.austurfrett.is/frettir/783-stjorn-bsrb-a-egilsstoedhum-a-medhan-launamunur-kynjanna-er-til-stadhar-verdhur-adh-vinna-gegn-honum
Stjórn BSRB á Egilsstöðum: Á meðan launamunur kynjanna er til staðar verður að vinna gegn honum Launamunur kynjanna er minnstur í Norðausturkjördæmi samanborið við önnur landssvæði. Á meðan munurinn er til staðar verður að vinna gegn honum. Áherslan í komandi kjarasamningum verður á aukinn kaupmátt og að verja velferða...
http://www.austurfrett.is/frettir/778-ef-haegt-er-hafa-atvinnu-af-skograekt-i-svithjodh-og-finnlandi-a-thadh-lika-adh-vera-haegt-her
„Ef hægt er hafa atvinnu af skógrækt í Svíþjóð og Finnlandi á það líka að vera hægt hér“ Skógræktarfræðingur segir framtíðina bjarta í íslenskri skógrækt. Menn verði þó að vera tilbúnir að vera þolinmóðir því tíma tekur að rækta upp nytjaskóga. Þeir sem stundi það hugsjónastarf að gróðursetja fái sjaldnast að njóta arð...
http://www.austurfrett.is/frettir/793-nordhfjardhargoeng-vinnubudhir-risa-vidh-eskifjoerdh
Norðfjarðargöng: Vinnubúðir rísa við Eskifjörð Verktakar við ný Norðfjarðargöng byrjuðu í síðustu viku að reisa vinnubúðir sínar við Eskifjörð. Brúardekk nýrrar brúar yfir Norðfjarðará var steypt á fimmtudag. Fyrstu einingar vinnubúðanna voru fluttar á vinnusvæðið á þriðjudaginn í síðustu viku. Nú eru þar komnar vinnub...
http://www.austurfrett.is/frettir/787-er-sumaridh-buidh-gratt-i-fjoellum-og-60-metra-hvidhur-i-hamarsfirdhi
Er sumarið búið? Grátt í fjöllum og 60 metra hviður í Hamarsfirði Haustið virðist gengið í garð á Austurlandi miðað við veður dagsins. Fjöllin eru grá, snjór á fjallvegum og bálhvasst á Suðausturlandi. Í Hamarsfirði voru vindhviður upp á 64 m/s um hádegisbilið. Hviðurnar eru orðnar heldur mildari en vindhraðinn hefur v...
http://www.austurfrett.is/frettir/781-forstjori-isavia-menn-koma-ekki-til-adh-horfa-a-flugstoedhvar
Forstjóri ISAVIA: „Menn koma ekki til að horfa á flugstöðvar“ Austfirðingar verða að standa saman að markaðssetningu á fjórðungnum til ferðamanna ætli þeir að búa til alþjóðlega farþega umferð um flugvöllinn á Egilsstöðum. Möguleikarnir til þess liggja víða. Þetta er mat Björn Óla Hilmarssonar, forstjóra ISAVIA sem rek...
http://www.austurfrett.is/frettir/777-forsaetisradhherra-mikil-taekifaeri-i-uppbyggingu-a-austurlandi-i-thjonustu-vidh-oliufyrirtaeki
Forsætisráðherra: Mikil tækifæri í uppbyggingu á Austurlandi í þjónustu við olíufyrirtæki Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, telur Austfirðinga eiga mikil tækifæri í uppbyggingu þjónustu við gas- og olíuleitarfyrirtæki. Siglingar um norðurslóðir geti enn frekar eflt svæðið. Lykilatriði sé samt að menn stan...
http://www.austurfrett.is/frettir/792-hraeddir-ferdhamenn-leita-skjols-a-djupavogi-allt-gistirymi-uppuridh
Hræddir ferðamenn leita skjóls á Djúpavogi: Allt gistirými uppurið Nær allt gistirými á Djúpavogi er uppbókað í kvöld en ferðamenn hafa þar leitað skjóls undan veðurofsanum. Formaður björgunarsveitarinnar Báru segir að viðbragðsaðilar verði að koma sér saman um aðgerðir til að koma í veg fyrir að ferðafólk leggi út í v...
http://www.austurfrett.is/frettir/784-adhalfundur-ssa-a-eskifirdhi-tillaga-um-breytta-kjoerdaemaskipan
Aðalfundur SSA á Eskifirði: Tillaga um breytta kjördæmaskipan Aðalfundur Aðalfundur SSA 2013 var settur í dag. Hann er haldinn í Kirkju- og menningarmiðstöðinni á Eskifirði. Fundurinn stendur í tvo daga. Á fundinum eiga seturétt fulltrúar allra 8 sveitarfélaganna sem eru aðilar að Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi. ...
http://www.austurfrett.is/frettir/780-goeng-eingoengu-til-seydhisfjardhar-og-neskaupstadhar-leysa-ekki-vanda-midh-austurlands
„Göng eingöngu til Seyðisfjarðar og Neskaupstaðar leysa ekki vanda mið-Austurlands“ Horfa verður heildsætt til þess sem eflt getur samfélagið á Austurlandi þegar stefna í samgöngumálum á svæðinu er mótuð. Efla þarf fjölbreytni og samgöngur til að styrkja það sem atvinnusvæði. Þetta er mat Guðrúnar Katrínar Árnadóttur, ...
http://www.austurfrett.is/frettir/773-mannaradhningar-hja-austurbru-austfirdhingar-hafa-fjarfest-vel-i-sinu-folki
Mannaráðningar hjá Austurbrú: Austfirðingar hafa fjárfest vel í sínu fólki Austurbrú kynnti nýverið átta konur til leiks sem nýjustu starfsmenn stofnunarinnar. Framkvæmdastjóri stofnunarinnar segir að leitað sé eftir fjölbreytni í starfsmannahópnum. Töluverð ásókn er í störf frá Austfirðingum sem vilja flytja aftur hei...