Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
http://www.austurfrett.is/frettir/771-langhlyjast-a-austurlandi-i-agust
Langhlýjast á Austurlandi í ágúst Sumarið, sem virðist vera að renna sitt skeið á enda, er með þeim hlýjustu sem mælst hafa á Austurlandi. Austurland skar sig úr í hitatölum í nýliðnum ágústmánuði. Sumarið er hið sjötta hlýjasta á Egilsstöðum síðan samfelldar mælingar þar hófust árið 1954. Meðalhitinn í júní-ágúst var ...
http://www.austurfrett.is/frettir/765-nordhfjardhargoeng-fyrstu-taekin-vaentanleg-a-svaedhidh-um-helgina
Norðfjarðargöng: Fyrstu tækin væntanleg á svæðið um helgina Forsvarsmenn aðalverktaka nýrra Norðfjarðarganga heimsóttu svæðið í síðustu viku. Von er að verktakinn fari að koma sér fyrir á næstu dögum. Búist er við að tækjaflutningar hefjist um helgina og einhverjar framkvæmdir verði á svæðinu strax eftir helgi. Forsvar...
http://www.austurfrett.is/frettir/761-vandraedhagangur-vidh-adhalmedhferdh-simaskyrsla-af-meinafraedhingi-onothaef-vegna-tungumalaoerdhugleika
Vandræðagangur við aðalmeðferð: Símaskýrsla af meinafræðingi ónothæf vegna tungumálaörðugleika Skýrslutökur af rannsakendum í manndrápsmálinu á Egilsstöðum hafa haldið áfram í Héraðsdómi Austurlands nú seinnipartinn. Ljóst er að aðalmeðferð mun ekki ljúka í dag. Rannsóknarlögreglumenn hafa í dag farið yfir athuganir sí...
http://www.austurfrett.is/frettir/758-hja-marlin-i-hop-graenna-farfuglaheimila
Hjá Marlín í hóp Grænna farfuglaheimila Gistiheimilið Hjá Marlín á Reyðarfirði komst nýverið í hóp Grænna farfuglaheimila. Í þann flokk falla farfuglaheimili sem uppfylla ákveðin skilyrði á sviði umhverfismála. Hjá Marlín er eitt fjögurra nýrra farfuglaheimila sem tekin voru inn í hópinn fyrir skemmstu en auk þeirra bæ...
http://www.austurfrett.is/frettir/770-ny-flugbrautarljos-a-nordhfirdhi-tekin-i-notkun
Ný flugbrautarljós á Norðfirði tekin í notkun Fjölmenni var þegar ný flugbrautarljós á Norðfjarðarflugvelli voru formlega tekin í notkun. Vinna við uppsetningu var unnin í sjálfboðaliðavinnu en SÚN kostaði kaupin á ljósunum. Það var Ingvar Sveinn Árnason, rafiðnfræðingur og flugmaður sem fann búnaðinn, fékk belgíska fy...
http://www.austurfrett.is/frettir/764-thadh-vantar-peysu-adhalmedhferdh-i-mordhmali-frestadh-og-saksoknari-oskar-eftir-frekari-goegnum
„Það vantar peysu“: Aðalmeðferð í morðmáli frestað og saksóknari óskar eftir frekari gögnum Saksóknari í máli ákæruvaldsins gegn Friðriki Brynjari Friðrikssyni óskaði eftir að gerði yrði nánari DNA rannsókn á blóðblettum sem fundust í buxum í eigu Friðriks Brynjars. Hinn ákærði lýsti yfir sakleysi sínu við upphaf aðalm...
http://www.austurfrett.is/frettir/760-oljost-neydharlinusimtal-loegregla-og-sjukraflutningamenn-fundu-ekki-fornarlambidh-um-nottina
Óljóst neyðarlínusímtal: Lögregla og sjúkraflutningamenn fundu ekki fórnarlambið um nóttina Í skýrslutöku af lögreglumönnum fyrir Héraðsdómi Austurlands í dag kom fram að brugðist hefði verið við símtali í Neyðarlínuna nóttina sem Karli Jónssyni var ráðinn bani. Áður hafði komið fram við aðalmeðferðina að það var ákærð...
http://www.austurfrett.is/frettir/756-opidh-malthing-um-austfirsk-malefni-timabaer-naflaskodhun-um-lykilforsendur-hagsaeldar-a-austurlandi
Opið málþing um austfirsk málefni: Tímabær naflaskoðun um lykilforsendur hagsældar á Austurlandi Málþing um lykilforsendur hagsældar á Austurlandi verður haldið á Egilsstöðum um næstu helgi. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, verður á meðal framsögumanna á þinginu. Það eru samtökin Landsbyggðin lifi (LBL) ...
http://www.austurfrett.is/frettir/768-knuidh-a-um-urbaetur-a-vegslodhum-i-thjodhgardhinum-illa-gengur-adh-skyra-hver-ber-abyrgdhina
Knúið á um úrbætur á vegslóðum í þjóðgarðinum: Illa gengur að skýra hver ber ábyrgðina Illa hefur gengið að fá á hreint hver ber ábyrgð á viðhaldi slóða og vega á austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs. Skortur á viðhaldi getur leitt til utanvegaaksturs og þar með landskemmda. Í nýlegu bréfi Félags hreindýraleiðsögumanna til...
http://www.austurfrett.is/frettir/762-kristborg-boel-tekur-vidh-austurglugganum
Kristborg Bóel tekur við Austurglugganum Kristborg Bóel Steindórsdóttir er nýr ritstjóri vikublaðsins Austurgluggans. Hún segist hlakka til að takast á við fjölbreytt starf. Fyrsta blaðið undir ritstjórn Kristborgar kemur út í næstu viku en Sigurður Ingólfsson, sem ritstýrt hefur blaðinu undanfarna mánuði, kvaddi lesen...
http://www.austurfrett.is/frettir/759-manndrap-a-egilsstoedhum
Manndráp á Egilsstöðum: „Ég veit ég gerði þetta ekki“ Í morgun hófst í Héraðsdómi Austurlands aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn Friðrik Brynjari Friðrikssyni en hann er ákærður fyrir manndráp af ásetningi með því að hafa ráðið Karli Jónssyni bana í íbúð þess síðarnefnda á Egilsstöðum aðfaranótt 7. maí. Við aðalmeðf...
http://www.austurfrett.is/frettir/755-austfirskir-baendur-smala-fe-sinu-nidhur-af-fjoellum-af-otta-vidh-ovedhur
Austfirskir bændur smala fé sínu niður af fjöllum af ótta við óveður Austfirskir bændur hafa varan á sér eins og kollegar þeirra á Norðurlandi og eru farnir að smala fé sínu til að koma því í skjól undan aftakaveðri sem spáð er um helgina. Vopnfirðingar eru farnir í Mælifellsheiði fyrr en áætlað var og Fljótsdælingar f...
http://www.austurfrett.is/frettir/754-fljotsdalsheradh-rangt-adh-starfsmadhurinn-hafi-veridh-faerdhur-til-vegna-gruns-um-hardhraedhi
Fljótsdalshérað: Rangt að starfsmaðurinn hafi verið færður til vegna gruns um harðræði Skólastarfsmaður, sem í sumar var sýknaður af ákæru um líkamsárás og brot á barnaverndarlögum, var ekki færður til innan skóla Fljótsdalshéraðs vegna gruns um harðræði gegn börnum í fyrra starfi. Atvikið sem leiddi til kærunnar kom u...
http://www.austurfrett.is/frettir/746-iiif-kynnir-sina-fyrstu-voerulinu-afurdhir-ur-hreindyraafurdhum
IIIF kynnir sína fyrstu vörulínu: Afurðir úr hreindýraafurðum IIIF frumsýnir sýna fyrstu vörulínu á menningarnótt í Reykjavík á laugardag. IIIF samanstendur af tveimur austfirskum fatahönnuðum og frönskum vöruhönnuði sem vinna meðal annars úr austfirsku hráefni. Þríeykið mynda þau Sigrún Halla Unnarsdóttir, Agla Stefán...
http://www.austurfrett.is/frettir/739-ibuafundur-a-eskifirdhi-um-ny-nordhfjardhargoeng
Íbúafundur á Eskifirði um ný Norðfjarðargöng Framkvæmdir við ný Norðfjarðargöng verða kynntar á íbúafundi sem haldinn verður í Grunnskólanum á Eskifirði í kvöld klukkan 20:00. Þar verður einnig fjallað um hvernig upplýsingum verður miðlað til íbúa á framkvæmdatíma ganganna. Fulltrúar Vegagerðarinnar og Austurfréttar ha...
http://www.austurfrett.is/frettir/724-efnt-til-samkeppni-um-baetta-adhstoedhu-fyrir-ferdhafolk-i-storurdh-og-naesta-nagrenni-dyrfjalla
Efnt til samkeppni um bætta aðstöðu fyrir ferðafólk í Stórurð og næsta nágrenni Dyrfjalla Sveitarfélögin Fljótsdalshérað og Borgarfjarðarhreppur í samstarfi við Arkitektafélag Íslands standa fyrir hugmyndasamkeppni um bætta aðstöðu fyrir ferðafólk í Stórurð og næsta nágrenni Dyrfjalla. Samkeppnin er öllum opin. Svæðið ...
http://www.austurfrett.is/frettir/752-dagmar-yr-radhin-upplysingafulltrui-fjardhaals
Dagmar Ýr ráðin upplýsingafulltrúi Fjarðaáls Dagmar Ýr Stefánsdóttir hefur verið ráðin upplýsingafulltrúi Alcoa Fjarðaáls og kemur til starfa í í október. Erna Indriðadóttir, sem hefur gegnt starfi upplýsingafulltrúa Fjarðaáls frá því fyrirtækið hóf rekstur, sagði starfi sínu lausu síðastliðið vor og hverfur til annarr...
http://www.austurfrett.is/frettir/747-nordhfjardhargoeng-laeti-fra-sprengingum-fyrstu-manudhina
Norðfjarðargöng: Læti frá sprengingum fyrstu mánuðina Íbúar á Eskifirði mega eiga von á nokkru ónæði vegna framkvæmda við ný Norðfjarðargöng, sérstaklega fyrstu tvo mánuðina. Áhrifin verða minni Norðfjarðarmegin enda framkvæmdasvæðið fjær þéttbýlinu. Þetta var meðal þess sem fram kom á kynningarfundi um framkvæmdirnar ...
http://www.austurfrett.is/frettir/738-ekki-haegt-adh-fullmanna-loegregluna-i-sumar-vegna-onogra-fjarveitinga
Ekki hægt að fullmanna lögregluna í sumar vegna ónógra fjárveitinga Ekki var hægt að uppfylla mannaflaþörf hjá lögreglunni í umdæmi lögreglustjórans á Seyðisfirði í sumar svo vel væri vegna ónógra fjárveitinga. Sýslumaður segir ráðherra og þingmenn sýna stöðunni ágætan skilning. Öryggi borgaranna hafi ekki verið stefnt...
http://www.austurfrett.is/frettir/718-redhist-inn-a-heimili-loegreglumanns-og-hotadhi-heimilisfolki-liflati
Réðist inn á heimili lögreglumanns og hótaði heimilisfólki lífláti Karlmaður réðist inn á heimili lögreglumanns í umdæmi lögreglustjórans á Seyðisfirði í gærkvöldi. Hann hótaði heimilisfólki meðal annars lífláti áður en hann hafði sig á brott. „Hann fer að heimili lögreglumannsins, hótar heimilisfólkinu meðal annars lí...
http://www.austurfrett.is/frettir/750-45-thusund-hafa-undirritadh-studhningsyfirlysingu-vidh-flugvoellinn-i-vatnsmyrinni
Bæjarstjórn hvetur íbúa Fjarðabyggðar til að styðja undirskriftarsöfnun við flugvöllinn í Vatnsmýrinni Um 45.000 manns hafa undirritað stuðningsyfirlýsingu við „óskerta flugstarfsemi í Vatnsmýri til framtíðar.“ Vika er síðan söfnin hófst. Bæjaryfirvöld í Fjarðabyggð hvetja íbúa sveitarfélagsins til að skrifa undir. Í t...
http://www.austurfrett.is/frettir/740-kviknadhi-i-husi-i-fellabae-ekki-talidh-verk-brennuvargs
Kviknaði í húsi í Fellabæ: Ekki talið verk brennuvargs Eldur kviknaði í húsi við Brekkubrún í Fellabæ aðfaranótt laugardags. Nokkrar skemmdir urðu á fótstykki hússins. Lögreglan telur ólíklegt að brennuvargur, sem leitað hefur verið að á Egilsstöðum undanfarna viku, hafi verið að verki. „Þetta virðist hafa verið óhapp ...
http://www.austurfrett.is/frettir/737-bjoergunarbatur-dro-annan-bat-i-gang
Björgunarbátur dró annan bát í gang Björgunarbáturinn Hafdís á Fáskrúðsfirði sinnti tveimur útköllum úti fyrir Austfjörðum á jafnmörgum dögum í síðustu viku. Í annað skiptið virðist hún hreinlega hafa dregið vélarvana bát í gang. Fyrra útkallið var á miðvikudag en báturinn aðstoðaði þá tvo handfærabáta til hafnar á Bre...
http://www.austurfrett.is/frettir/719-slodh-loegdh-adh-nyjum-nordhfjardhargoengum
Slóð lögð að nýjum Norðfjarðargöngum Undirbúningur að nýjum Norðfjarðargöngum er kominn á fullt. Í sumar hefur verið unnið að byggingu nýrrar brúar yfir Norðfjarðará og nú er byrjað að ryðja slóð frá væntanlegum gangnamunna að brúnni til að menn komist að munnanum og geti byrjað að vinna þar. Slóðin er um þrír kílómetr...
http://www.austurfrett.is/frettir/717-loegreglan-leitar-brennuvargs-a-egilsstoedhum
Lögreglan leitar brennuvargs á Egilsstöðum Lögreglan á Egilsstöðum leitar að brennuvargi sem kveikir í bifreiðum. Kveikt var í tveimur bílum í þorpinu aðfaranótt sunnudags. Í tilkynningu lögreglunnar segir að kveikt hafi verið í báðum bílunum um klukkan fimm um nóttina. Annar stóð í stæði við Laufás 5 og var mjög nálæg...
http://www.austurfrett.is/frettir/708-sigridhur-run-skipudh-prestur-i-egilsstadhaprestakalli
Sigríður Rún skipuð prestur í Egilsstaðaprestakalli Biskup Íslands hefur skipað Sigríði Rún Tryggvadóttur, guðfræðing, í embætti prests í Egilsstaðaprestakalli frá og með 1. september. Sjö sóttu um starfið. Í tilkynningu frá Þjóðkirkjunni segir að tíu manna valnefnd prestakallsins hafi mælt með skipan Sigríðar. Hinir s...
http://www.austurfrett.is/frettir/699-tekjur-austfirdinga-2013-fjardabyggd
Tekjur Austfirðinga 2013: Fjarðabyggð Austurfrétt birtir í dag árlega samantekt á tekjum Austfirðinga. Teknir eru tekjuhæstu einstaklingar hvers sveitarfélags auk nokkurra áberandi einstaklinga úr samfélaginu til að sýna betri þverskurð á samsetningu samfélaganna. Sjómenn, lykilstarfsmenn Alcoa-Fjarðaáls og læknar eru ...
http://www.austurfrett.is/frettir/696-tekjur-austfirdinga-2013-seydisfjordur
Tekjur Austfirðinga 2013: Seyðisfjörður Austurfrétt birtir í dag árlega samantekt á tekjum Austfirðinga. Teknir eru tekjuhæstu einstaklingar hvers sveitarfélags auk nokkurra áberandi einstaklinga úr samfélaginu til að sýna betri þverskurð á samsetningu samfélaganna. Sjómenn, lykilstarfsmenn Alcoa-Fjarðaáls og læknar er...
http://www.austurfrett.is/frettir/713-gestamet-slegidh-i-selardalslaug
Gestamet slegið í Selárdalslaug Gestamet var slegið í sundlaug Vopnfirðingar í Selárdal í lok júlí. Vikuna 22. – 28. júlí komu þangað 879 gestir. Frá þessu er greint á vef Vopnafjarðarhrepps. Eldra met mun hafa verið sett í sömu viku fyrir tveimur árum þegar rúmlega 800 manns stungu sér í laugina. Gott veður í júlí mán...
http://www.austurfrett.is/frettir/703-rikissaksoknari-akaerir-fyrir-manndrap
Ríkissaksóknari ákærir fyrir manndráp Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur Friðriki Brynjari Friðrikssyni fyrir að hafa orðið Karli Jónssyni að bana að heimili hans á Egilsstöðum aðfaranótt þriðjudagsins 7. maí. Í ákærunni er Friðriki Brynjar gefið það að sök að hafa banað Karli með því að „stinga hann tvisvar...
http://www.austurfrett.is/frettir/698-tekjur-austfirdinga-2013-breiddalsvik
Tekjur Austfirðinga 2013: Breiðdalsvík Austurfrétt birtir í dag árlega samantekt á tekjum Austfirðinga. Teknir eru tekjuhæstu einstaklingar hvers sveitarfélags auk nokkurra áberandi einstaklinga úr samfélaginu til að sýna betri þverskurð á samsetningu samfélaganna. Sjómenn, lykilstarfsmenn Alcoa-Fjarðaáls og læknar eru...
http://www.austurfrett.is/frettir/695-tekjur-austfirdinga-2013-fljotsdalur
Tekjur Austfirðinga 2013: Fljótsdalur Austurfrétt birtir í dag árlega samantekt á tekjum Austfirðinga. Teknir eru tekjuhæstu einstaklingar hvers sveitarfélags auk nokkurra áberandi einstaklinga úr samfélaginu til að sýna betri þverskurð á samsetningu samfélaganna. Sjómenn, lykilstarfsmenn Alcoa-Fjarðaáls og læknar eru ...
http://www.austurfrett.is/frettir/712-haesti-medhalhiti-a-landinu-i-juli-a-hallormsstadh
Hæsti meðalhiti á landinu í júlí á Hallormsstað Mestur meðalheiti á landinu í júlímánuði mældist á Hallormsstað. Mánuðurinn var sá þriðji hlýjasti í sögu veðurmælinga á Dalatanga en hann var Austfirðingum afar góður. Meðalhitinn á Hallormsstað mældist 12,2 stig og 11,4 á Egilsstaðaflugvelli. Langlægstur var hann hins v...
http://www.austurfrett.is/frettir/700-tekjur-austfirdinga-2013-fljotsdalsherad
Tekjur Austfirðinga 2013: Fljótsdalshérað Austurfrétt birtir í dag árlega samantekt á tekjum Austfirðinga. Teknir eru tekjuhæstu einstaklingar hvers sveitarfélags auk nokkurra áberandi einstaklinga úr samfélaginu til að sýna betri þverskurð á samsetningu samfélaganna. Sjómenn, lykilstarfsmenn Alcoa-Fjarðaáls og læknar ...
http://www.austurfrett.is/frettir/697-tekjur-austfirdinga-2013-djupivogur
Tekjur Austfirðinga 2013: Djúpivogur Austurfrétt birtir í dag árlega samantekt á tekjum Austfirðinga. Teknir eru tekjuhæstu einstaklingar hvers sveitarfélags auk nokkurra áberandi einstaklinga úr samfélaginu til að sýna betri þverskurð á samsetningu samfélaganna. Sjómenn, lykilstarfsmenn Alcoa-Fjarðaáls og læknar eru á...
http://www.austurfrett.is/frettir/694-tekjur-austfirdinga-2013-borgarfjordur-eystri
Tekjur Austfirðinga 2013: Borgarfjörður eystri Austurfrétt birtir í dag árlega samantekt á tekjum Austfirðinga. Teknir eru tekjuhæstu einstaklingar hvers sveitarfélags auk nokkurra áberandi einstaklinga úr samfélaginu til að sýna betri þverskurð á samsetningu samfélaganna. Sjómenn, lykilstarfsmenn Alcoa-Fjarðaáls og læ...
http://www.austurfrett.is/frettir/693-tekjur-austfirdinga-2013-vopnafjordur
Tekjur Austfirðinga 2013: Vopnafjörður Austurfrétt birtir í dag árlega samantekt á tekjum Austfirðinga. Teknir eru tekjuhæstu einstaklingar hvers sveitarfélags auk nokkurra áberandi einstaklinga úr samfélaginu til að sýna betri þverskurð á samsetningu samfélaganna. Sjómenn, lykilstarfsmenn Alcoa-Fjarðaáls og læknar eru...
http://www.austurfrett.is/frettir/683-verkamenn-i-bryggjubyggingu-a-djupavogi-hlunnfarnir
Verkamenn í bryggjubyggingu á Djúpavogi hlunnfarnir Slóvenskir starfsmenn við byggingu nýrrar bryggju á Djúpavogi eru hlunnfarnir í launum og búa við ófullnægjandi skilyrði. Sveitarfélagið heldur eftir greiðslum til að knýja á um úrbætur. Fyrst var greint frá málinu á vef AFLs – starfsgreinafélags í gær. Samkvæmt útrei...
http://www.austurfrett.is/frettir/678-einn-fluttur-sudhur-eftir-hardhan-arekstur-a-egilsstadhanesi
Einn fluttur suður eftir harðan árekstur á Egilsstaðanesi Ungur karlmaður var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur eftir harðan árekstur tveggja bifreiða sem komu hvor úr sinni háttinni Egilsstaðanesi í hádeginu í dag. Samkvæmt heimildum Austurfréttar mun bíllinn sem kom úr norðurátt hafa farið yfir á öfugan vegarhe...
http://www.austurfrett.is/frettir/672-loegreglumanni-vikidh-fra-stoerfum-eftir-adh-barnaklam-og-sterar-fundust-a-heimili-hans
Lögreglumanni vikið frá störfum eftir að barnaklám og sterar fundust á heimili hans Lögreglumanni í umdæmi lögreglustjórans á Eskifirði hefur verið vikið tímabundið frá störfum eftir að barnaklám fannst við húsleit á heimili hans. Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í dag. Þar segir að húsleitin hafi verið gerð vegna m...
http://www.austurfrett.is/frettir/691-sturla-skattakongur-austurlands
Sturla skattakóngur Austurlands Sturla Þórðarson, skipstjóri á Berki NK, greiðir hæstu opinberu gjöldin á Austurlandi í ár. Þeir tíu efstu búa allir í Fjarðabyggð og eru skipstjórar áberandi á listanum. Þetta kemur fram í útreikningum Austurfréttar sem byggja á gögnum frá skattinum. Í okkar gögnum telst Austurland það ...
http://www.austurfrett.is/frettir/682-breidhdalshreppur-ekki-forsendur-fyrir-rekstri-i-obreyttri-mynd
Breiðdalshreppur: Ekki forsendur fyrir rekstri í óbreyttri mynd Rúmlega 25 milljóna króna tap varð af rekstri Breiðdalshrepps á síðasta ári. Sveitarfélagið stendur illa og ekki virðast forsendur fyrir rekstri þess nema til aðgerða verði gripið. Þetta kemur fram í bókun hreppsnefndar eftir að aðalreikningur ársins 2012 ...
http://www.austurfrett.is/frettir/675-daemdur-fyrir-voerslu-kannabislaufa-notadhi-thau-til-adh-utbua-roandi-te
Dæmdur fyrir vörslu kannabislaufa: Notaði þau til að útbúa róandi te Karlmaður á fertugsaldri var nýverið dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi Héraðsdómi Austurlands fyrir að hafa á heimili sínu tæp 130 grömm af kannabislaufum. Maðurinn sagðist hafa notað efnin til að útbúa sér róandi te en ekki sem vímugjafa. Húsl...
http://www.austurfrett.is/frettir/664-throttur-90-ara-forusta-um-byggingu-sundlaugar-mesta-afrekidh
Þróttur 90 ára: Forusta um byggingu sundlaugar mesta afrekið Norðfirðingar héldu upp á 90 ára afmæli íþróttafélagsins Þróttar fyrir skemmstu. Fyrrverandi formaður segir forustuna sem félagið hafði um byggingu sundlaugarinnar í miðbænum eitt mesta afrekið í sögu þess. Haldið var upp á afmælið með sundlaugarpartýi, íþrót...
http://www.austurfrett.is/frettir/685-djupivogur-verktakinn-haettur-og-verkidh-manudhi-a-eftir-aaetlun
Djúpivogur: Verktakinn hættur og verkið mánuði á eftir áætlun Hellu- og varmalagnir ehf. sem unnu að byggingu nýrrar bryggju á Djúpavogi, hafa sagt sig frá verkinu. Verkið er um mánuði á eftir áætlun og væntanlega að minnsta kosti hálfur mánuður í að það hefjist á ný með nýjum verktaka. „Nú tekur við uppgjör á verkinu ...
http://www.austurfrett.is/frettir/679-framfarafelag-stofnadh-a-borgarfirdhi-erum-adh-leita-leidha-til-adh-geta-veridh-thar-sem-vidh-viljum-vera
Framfarafélag stofnað á Borgarfirði: Leitum leiða til að geta verið þar sem við viljum vera Tæplega fimmtíu manns sóttu stofnfund Framfarafélag Borgarfjarðar – til móts við nýjan dag, sem haldinn var í síðustu viku. Forsvarsmaður hópsins segir hvatann af félaginu koma frá ungu fólki sem sé að klára nám og hafi mikinn á...
http://www.austurfrett.is/frettir/673-skolastarfsmadhur-syknadhur-af-akaerdhu-um-likamsaras-gegn-nemanda
Skólastarfsmaður sýknaður af ákæru um líkamsárás gegn nemanda Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað skólastarfsmann af ákæru um líkamsárás og brot á barnaverndarlögum eftir að hafa fært nemenda með valdi úr matsal skólans síðasta haust. Áverkar komu fram á hálsi nemandans eftir atvikið en dómurinn taldi ekki nægar sanna...
http://www.austurfrett.is/frettir/661-fjoeldi-ferdhamanna-a-austurlandi-flest-tjaldsvaedhi-full
Fjöldi ferðamanna á Austurlandi: Flest tjaldsvæði full Mikil aðsókn hefur verið að austfirskum tjaldsvæðum síðustu daga og ferðamannastöðum enda einmuna veðurblíða í fjórðungnum. Varla sást í auðan grasblett fyrir tjöldum, hjólhýsum og húsbílum á tjaldsvæðunum í Hallormsstað í dag. Þá voru stæðin við sundlaugar fjórðun...
http://www.austurfrett.is/frettir/658-junimanudhur-einn-sa-hlyjasti-sem-maelst-hefur
Júnímánuður einn sá hlýjasti sem mælst hefur Nýliðinn júnímánuður er einn sá hlýjasti sem mælst hefur á austfirskum veðurstöðvum. Hann var til dæmis sá sjötti heitasti á Teigarhorni frá því mælingar þar hófust árið 1872. Þetta kemur fram í samantekt Veðurstofu Íslands á tíðarfari í júní. Á Teigarhorni var meðalhiti mán...
http://www.austurfrett.is/frettir/644-kristin-albertsdottir-nyr-forstjori-hsa-tveir-ur-hopi-ellefu-umsaekjenda-metnir-haefastir
Kristín Albertsdóttir nýr forstjóri HSA: Tveir úr hópi ellefu umsækjenda metnir hæfastir. Heilbrigðisráðherra hefur skipað Kristínu Björgu Albertsdóttur í embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands til fimm ára. Hún var önnur af tveimur umsækjendum sem sérstök hæfnisnefnd taldi hæfasta í embættið. Kristín er fæ...
http://www.austurfrett.is/frettir/638-borgfirdhingar-toku-a-moti-blafananum-i-tiunda-sinn
Borgfirðingar tóku á móti Bláfánanum í tíunda sinn Borgarfjarðarhreppur tók á móti Bláfánanum í tíunda sinn fyrir skemmstu. Fáninn er alþjóðleg viðurkenning sem veitt er smábátahöfnum og baðströndum fyrir markvissa umhverfisstjórnun. Bláfánaverkefninu var hleypt af stað hérlendis árið 2003 og hafa Borgfirðingar verið m...
http://www.austurfrett.is/frettir/632-vegamalastjori-hrunidh-seinkadhi-nyjum-goengum-a-milli-nordhfjardhar-og-eskifjardhar
Vegamálastjóri: Hrunið seinkaði nýjum göngum á milli Norðfjarðar og Eskifjarðar Vegurinn yfir Oddsskarð er barn síns tíma og uppfyllir ekki lengur kröfur um umferðaröryggi og akstursþægindi. Undirbúningi var að mestu lokið árið 2008 þegar efnahagshrunið skall á og framkvæmdum var þá frestað. Þetta kom fram í máli vegam...
http://www.austurfrett.is/frettir/652-koennun-a-mikilvaegi-innanlandsflugs-fyrir-landsbyggdhina
Könnun á mikilvægi innanlandsflugs fyrir landsbyggðina Innanríkisráðuneytið vinnur nú að greiningu á mikilvægi innanlandsflugs fyrir hinar dreifðu byggðir landsins. Starfsmenn ráðuneytisins hafa undanfarið verið á ferð og flugi um landið að ræða málefni innanlandsflugs við íbúa og fyrirtæki á landsbyggðinni. Það er lið...
http://www.austurfrett.is/frettir/643-bill-brann-vidh-ibudharhus-snoer-handtoek-loegreglu-bjoergudhu-husinu
Bíll brann við íbúðarhús: Snör handtök lögreglu björguðu húsinu Snör handtök lögreglu komu í veg fyrir að ekki fór verr þegar bíll brann við einbýlishús á Egilsstöðum í nótt. Eldurinn var byrjaður að sleikja húsið. Það var laust eftir klukkan tvö í nótt sem lögreglan á Egilsstöðum var kölluð út þar sem bifreið stóð í b...
http://www.austurfrett.is/frettir/634-heilbrigdhiseftirlitidh-lokadhi-n1-stoedhinni-a-reydharfirdhi
Heilbrigðiseftirlitið lokaði N1 stöðinni á Reyðarfirði Sjálfsafgreiðslustöð olíufélagsins N1 á Reyðarfirði var lokuð í tæpan sólarhring því fyrirtækið hafði ekki uppfyllt skilyrði starfsleyfis. Fyrirtækinu var í morgun veittur frestur út næstu viku til úrbóta. Stöðinni var lokað seinni partinn í gær þar sem ekki höfðu ...
http://www.austurfrett.is/frettir/625-jens-gardhar-eigum-vidh-sem-buum-uti-a-landi-ekki-adh-motmaela-listamannalaunum
Jens Garðar: Eigum við sem búum úti á landi ekki að mótmæla listamannalaunum? Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar, efast um að þeir sem skrifað hafa undir áskorun um að lögum um veiðigjald verði ekki breytt viti undir hvað þeir hafi skrifað. Breytingin sem gera eigi á gjaldinu eigi að verja minni fis...
http://www.austurfrett.is/frettir/648-austfirdhingar-duglegir-adh-nyta-ser-almenningssamgoengur
Austfirðingar duglegir að nýta sér almenningssamgöngur Góð nýting er á almenningssamgöngum á Austurlandi en Strætisvagnar Austurlands (SvAust) hófu formlega göngu sína í byrjun júní. Það er fyrsta heildstæða almenningssamgöngukerfið sem þjónar fjórðungnum í heild sinni. „Það er mjög góð nýting á vögnunum og hún eykst m...
http://www.austurfrett.is/frettir/639-vidhtaekt-og-alvarlegt-tjon-tun-vidha-illa-kalin-eftir-snjothyngsli-i-vetur
Víðtækt og alvarlegt tjón: Tún víða mikið kalin eftir snjóþyngsli í vetur Tún, einkum á Úthéraði, eru víða mikið kalin eftir snjóþungan vetur. Bændur hafa víða lagt nótt við nýtan dag að undanförnu við að rækta upp ónýt tún. Dæmi eru um allt að 80% kal á jörðum og hleypur tap sumra ábúenda á milljónum króna. Víða hafa ...
http://www.austurfrett.is/frettir/633-ferdhafolk-varadh-vidh-djupri-laegdh-a-morgun-ekkert-ferdhavedhur-fyrir-eftirvagna
Ferðafólk varað við djúpri lægð á morgun: Ekkert ferðaveður fyrir eftirvagna Veðurstofan og Vegagerðin vara ferðafólk við hvassviðri sem spáð er á morgun. Óvenju kröpp lægð er á leið til landsins sem setja mun svip sinn á veðrið næstu tvo daga. Spáð er sunnan 5-15 metrum á sekúndu á Austurlandi. Þótt íbúar svæðisins ei...
http://www.austurfrett.is/frettir/624-austurbru-stofnunin-naer-tvoefalt-dyrari-en-radh-var-fyrir-gert
Austurbrú: Stofnkostnaður nær tvöfalt meiri en ráð var fyrir gert Stofnun stoðstofnunarinnar Austurbrúar varð tæplega tvöfalt dýrari en áætlanir gerðu ráð fyrir. Framkvæmdastjórinn segir það hugrekki að ráðast í þá áskorun sem sameining stoðstofnananna í eina hafi verið. Takist það vel verði það öðrum til eftirbreytni ...
http://www.austurfrett.is/frettir/617-samidh-um-byggingu-hjukrunarheimilis-a-egilstoedhum-samidh-um-laekkun-a-tilbodhi
Nýtt hjúkrunarheimili rís á Egilstöðum: Samið um lækkun frá tilboði Verksamningur um byggingu nýs hjúkrunarheimilis á Egilsstöðum á milli Fljótsdalshéraðs og VHE ehf. var undirritaður á fimmtudag. Síðustu vikur hafa staðið yfir samningaviðræður um breytingar á verkinu þar sem tilboðin sem bárust eftir útboð voru nokkuð...
http://www.austurfrett.is/frettir/599-faldi-thyfi-i-bildekkjum-og-reyndi-adh-smygla-medh-norraenu
Faldi þýfi í bíldekkjum og reyndi að smygla með Norrænu Tollverðir á Seyðisfirði haldlögðu mikið magn þýfis sem reynt var að koma úr landi með Norrænu í síðustu viku. Þýfið fannst í bifreið manns sem var einn á ferð. Í frétt frá Tollstjóranum kemur fram að meðal annars hafi fundist 355 kíló af kopar sem falin hafi veri...
http://www.austurfrett.is/frettir/594-bjoergunarsveitin-vopni-bjargadhi-skit
Björgunarsveitin Vopni bjargaði skít Verkefni björgunarsveita geta verið jafn misjöfn og þau eru mörg. Því fengu björgunarsveitarmenn í Vopna á Vopnafirði að kynnast í dag þegar bóndi í sveitinni hringdi í þá og bað um aðstoð við að bjarga skít. „Bóndinn sem bar þetta erindi upp sagði reyndar að þetta hljómaði undarleg...
http://www.austurfrett.is/frettir/589-utskrift-i-va-thetta-er-timinn-til-adh-allt-sem-mann-langar
Útskrift í VA: Þetta er tíminn til að prófa allt sem mann langar Á sama tíma og nýstúdentar kveðja skólann sinn með söknuði opnast þeim ný og fjölmörg tækifæri sem erfitt er að velja á milli. Óþægilegt getur verið að gera mistök en stundum leiða þau menn á réttar brautir. „Þetta er tíminn til þess að prófa allt sem man...
http://www.austurfrett.is/frettir/605-tunfiskveidhar-a-heradhi
Túnfiskar veiðast í Lagarfljóti Fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott. Vatnavextir í Lagarfljóti skiluðu bændum á Finnsstöðum í Eiðaþinghá svokölluðum túnfiskum sem benda til þess að ekki sé allur fiskur horfinn úr Lagarfljóti. Um þetta má lesa í frétt á heimasíðu Fljótsdalshéraðs. Þar kemur fram að í vorl...
http://www.austurfrett.is/frettir/596-fjarhus-brann-a-eydhibyli-vidh-egilsstadhi
Fjárhús brann á eyðibýli við Egilsstaði Fjárhús á eyðibýlinu Kollstöðum skammt fyrir innan þéttbýlið á Egilsstöðum brunnu til grunna í dag. Talið er að fimmtán hænuungar hafi brunnið þar inni. Reyk tók að leggja yfir byggðina á Egilsstöðum um fjögurleytið í dag. Lögregla fór þá á vettvang og kallaði út slökkvilið. Húsi...
http://www.austurfrett.is/frettir/593-haekkar-um-halfan-metra-a-dag-i-halsloni
Hækkar um hálfan metra á dag í Hálslóni Vatnsyfirborð í Hálslóni hækkar um hálfan metra á dag en miklar leysingar eru á vatnasviðið þess. Útlit er fyrir að ekki þurfi að minnka álframleiðslu á Reyðarfirði vegna orkuskorts. Í frétt á vef Landsvirkjunar kemur fram að á fimmtudaginn var hafi loks farið að hækka í lóninu e...
http://www.austurfrett.is/frettir/585-skridhufoell-og-grjothrun-i-hlaku-a-austurlandi
Skriðuföll og grjóthrun í hláku á Austurlandi Aurskriða féll rétt við bæinn Brú á Jökuldal í gær og um svipað leyti hrundi úr lofti Oddskarðsganganna. Stór aurskriða féll í Seyðisfirði í vikunni. Mikil hláka hefur verið á Austurlandi í vikunni og eru umhleypingarnar afleiðingar þeirra. Það var á sjötta tímanum í gær se...
http://www.austurfrett.is/frettir/600-flodh-i-joekulsarhlidh
Flóð í Jökulsárhlíð: Landeigendur óttast að grugguga vatnið skaði veiði Lagarfljót og Jökulsá á Dal flæða nú út úr farvegi sínum yfir stór landflæmi á Úthéraði. Landeigendur og veiðiréttarhafar yst í Jökulsárhlíð eru uggandi vegna stöðunnar. Lagarfljót og Jökulsá hafa lengst af fallið til sjávar í sameiginlegum ósi á m...
http://www.austurfrett.is/frettir/595-krapaflodh-i-bessastadhaa-ain-flaedhir-yfir-tun
Krapaflóð í Bessastaðaá: Áin flæðir yfir tún Stórt krapaflóð fór niður Bessastaðaá í Fljótsdal í dag eftir að krapastífla brast í Fljótsdalsheiði. Vatn flæðir yfir tún á bæjunum Eyrarlandi og Bessastaðagerði. Áin breiðir úr sér yfir túnin. Bændur höfðu skömmu áður smalað kindum af svæðinu af ótta við að flóð kæmi í ána...
http://www.austurfrett.is/frettir/591-utskrift-ur-va-skolinn-er-throskavettvangur
Útskrift úr VA: Skólinn er þroskavettvangur Tæplega þrjátíu nemendur útskrifuðust úr Verkmenntaskóla Austurlands á nýloknu skólaári. Fráfarandi skólameistari segir skólagöngu flestra vera þroskaskeið þótt sumir líti á skólann sem biðstöð áður en út í alvöruna komi. „Flestir átta sig á því að skóli merkir tækifæri öðrum...
http://www.austurfrett.is/frettir/581-hallormsstadharskoli-thadh-stendur-ekki-til-adh-leggja-skolann-nidhur
Hallormsstaðarskóli: Það stendur ekki til að leggja skólann niður Samningur er í gildi milli Fljótsdalshéraðs og Fljótsdalshrepps um rekstur Hallormsstaðarskóla til ársins 2020. Því stendur ekki til að leggja skólann niður. Oddviti Fljótsdalshrepps segir þá vinnu sem sveitarfélögin eru farin af stað með um framtíð skól...
http://www.austurfrett.is/frettir/575-thadh-umhverfi-sem-er-skipulagt-fyrir-boern-er-gott-fyrir-alla
„Það umhverfi sem er skipulagt fyrir börn er gott fyrir alla“ Nauðsynlegt er að raddir ungmenna fái að heyrast og að hlustað sé á þær þegar skipulag þéttbýlis er mótað. Það kosti vinnu en borgi sig þar sem þau séu fólkið sem takið við stöðunum. Þetta kom fram í máli Katrínar Karlsdóttur, M.Sc. í skipulagsverkfræði og u...
http://www.austurfrett.is/frettir/562-sviptur-oekurettindum-aevilangt-fyrir-itrekudh-umferdharlagabrot
Sviptur ökuréttindum ævilangt fyrir ítrekuð umferðarlagabrot Karlmaður á þrítugsaldri var nýverið sviptur ökuréttindum ævilangt og dæmdur í átta mánaða fangelsi, þar af sex mánuði skilorðsbundna í héraðsdómi Austurlands, fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Maðurinn rauf með gjörð sinni skilorð og lögreglustjórasátt. ...
http://www.austurfrett.is/frettir/557-sumaraaetlun-straeto-tekur-gildi-a-sunnudag
Sumaráætlun Strætó tekur gildi á sunnudag Brottför Strætó frá Egilsstöðum til Akureyrar hefur verið seinkað um tvær klukkustundir alla daga. Þá er bætt við aukaferðum. Skipulagður akstur strætisvagna á milli Egilsstaða og Akureyrar hófst um síðustu áramót. Nú er búið að aðlaga kerfið og birta sumaráætlun sem gildir frá...
http://www.austurfrett.is/frettir/554-bjoergunarsveitir-thurfa-adh-hjalpa-ferdhaloengum-i-vetrarfaerdhinni
Björgunarsveitir þurfa að hjálpa ferðalöngum í vetrarfærðinni Þó nokkuð hefur verið um útköll hjá austfirskum björgunarsveitum til að hjálpa ferðalöngum sem lent hafa í vandræðum á austfirskum fjallvegum í vetrarfærðinni undanfarna daga. Þannig þurfti í fyrradag að aðstoða rútu og ferðalanga úr Norrænu sem voru á ferð ...
http://www.austurfrett.is/frettir/572-hallormsstadharskoli-a-hvadha-timapunkti-getum-vidh-haldidh-thessu-afram
Hallormsstaðarskóli: Á hvaða tímapunkti getum við haldið þessu áfram? Forsvarsmenn sveitarfélaganna Fljótsdalshéraðs og Fljótsdalshrepps hafa hafið viðræður um framtíð grunnskólans á Hallormsstað. Nemendum þar hefur fækkað jafnt og þétt og undanfarin ár og ekki sér fyrir endann á því. Faglega starfið var einnig til umr...
http://www.austurfrett.is/frettir/561-salt-cafe-og-bistro-opnadh-ekki-stadhurinn-sem-bydhur-upp-a-hamborgara-og-franskar
Salt café og bistro opnað: Ekki staðurinn sem býður upp á hamborgara og franskar Nýtt kaffihús og veitingastaður, Salt, opnaði nýverið í miðbæ Egilsstaða. Eigandinn segist hafa orðið var við að spurn væri eftir stað sem þessum sem myndi lífga upp á bæjarlífið. Það er Hótel Hallormsstaður sem á og rekur staðinn en því s...
http://www.austurfrett.is/frettir/556-erlendir-ferdhamenn-eydha-thrjatiu-milljoerdhum-i-mat-a-ferdhum-sinum-um-island
Erlendir ferðamenn eyða þrjátíu milljörðum í mat á ferðum sínum um Ísland Um þriðjungur þess fjár sem erlendir ferðamenn eyða í Íslandsferðum sínum fer í mat. Vaxandi áhugi er fyrir mat úr heimahéraði. Þrjú austfirsk veitingahús bjóða upp á matseðla þar sem fyrst og fremst er notað austfirskt hráefni. Þetta var meðal þ...
http://www.austurfrett.is/frettir/552-vonast-til-adh-na-samningum-um-byggingu-hjukrunarheimils-innan-skamms
Vonast til að ná samningum um byggingu hjúkrunarheimils innan skamms Forsvarsmenn sveitarfélagsins Fljótsdalshéraðs vonast til að hægt verði að ganga frá samningum við verktaka um byggingu hjúkrunarheimils á Egilsstöðum innan skamms. Tilboðin sem bárust voru nokkuð yfir kostnaðaráætlun. „Við vonumst til að ná samningum...
http://www.austurfrett.is/frettir/563-vid-verdum-ad-sinna-ferdathjonustunni-af-meiri-fagmennsku-ef-vid-aetlum-ad-hafa-hana-ad-atvinnu
Við verðum að sinna ferðaþjónustunni af meiri fagmennsku ef við ætlum að hafa hana að atvinnu Ætli Austfirðingar að hafa ferðaþjónustu að atvinnu verða þeir líka að nálgast hana þannig en ekki sem aukabúgrein eða áhugamál. Það þýðir að fjölbreyttari þjónusta verður að vera í boði allt árið. „Ef við ætlum að vera í þess...
http://www.austurfrett.is/frettir/559-nalaegdhin-vidh-hreindyr-joeklana-og-dalina-ekki-sidhur-soeluvaenleg-en-austfirska-sumaridh
Nálægðin við hreindýr, jöklana og dalina ekki síður söluvænleg en austfirska sumarið Forsvarsmenn Icelandair hyggja á aukna markaðssetningu á ferðum til Austurlands á veturna á næstu misserum, sérstaklega á Bretlandsmarkaði. Efla þarf framboðið á þeirri afþreyingu sem er í boði allt ársið á svæðinu. Þetta kom fram í má...
http://www.austurfrett.is/frettir/555-alla-borgthors-ahyggjuefni-thegar-samstarfidh-heldur-ekki-thegar-a-reynir
Alla Borgþórs: Áhyggjuefni þegar samstarfið heldur ekki þegar á reynir Vandséð er að Austurland beri fjórar skemmtiferðaskipahafnir miðað við þá ásókn sem er í dag. Uppbygging innviða líður fyrir það ef skipin dreifast of víða um svæðið. Menn hafa sammælst um ákveðnar hafnir á samráðsvettvangi austfirskra sveitarfélaga...
http://www.austurfrett.is/frettir/549-elvar-jonsson-nyr-skolameistari-va
Elvar Jónsson nýr skólameistari VA Elvar Jónsson hefur verið skipaður skólameistari Verkmenntaskóla Austurlands til næstu fimm ára. Fjórir aðrir sóttu um stöðuna. Elvar hefur BA gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og hefur auk þess lokið kennsluréttindanámi á meistarastigi frá Háskólanum á Akureyri. Hann hefur ...
http://www.austurfrett.is/frettir/534-snaefell-opnar-kjot-og-fiskbud-salan-gengid-vonum-framar-fyrsta-daginn
Snæfell opnar kjöt- og fiskbúð: Salan gengið vonum framar fyrsta daginn Kjötvinnslan Snæfell opnaði í morgun kjöt- og fiskbúð á Egilsstöðum þar sem ferskar vörur úr fjórðungnum verða á boðstólum. Framkvæmdastjórinn er ánægður með viðtökurnar á fyrsta degi. „Viðtökurnar hafa verið gríðarlega góðar og salan gengið vonum ...
http://www.austurfrett.is/frettir/lgreglan-ekki-nokkrum-vafa-um-sekt-hins-handtekna
Lögreglan ekki í nokkrum vafa um sekt hins handtekna Lögregla er sögð sannfærð um sekt karlmanns á þrítugsaldri sem er í haldi grunaður um að hafa ráðið nágranna sínum í fjölbýlishúsi á Egilsstöðum bana aðfaranótt þriðjudags. Lögregla hefur staðfest að hinum 59 ára Karli Jónssyni blæddi út. Fréttablaðið greinir frá því...
http://www.austurfrett.is/frettir/528-nafn-mannsins-sem-lest
Nafn mannsins sem lést Maðurinn sem lést á heimili sínu á Blómvangi 2 á Egilsstöðum aðfaranótt þriðjudags hét Karl Jónsson frá Galtastöðum fram í Hróarstungu. Hann var 59 ára, ókvæntur og barnlaus. Lögreglan rannsakar lát hans. Karlmaður á þrítugsaldri var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald til 21. maí í tengslum við ra...
http://www.austurfrett.is/frettir/nafn-mannsins-sem-lst
Nafn mannsins sem lést Maðurinn sem lést á heimili sínu á Blómvangi 2 á Egilsstöðum aðfaranótt þriðjudags hét Karl Jónsson frá Galtastöðum fram í Hróarstungu. Hann var 59 ára, ókvæntur og barnlaus. Lögreglan rannsakar lát hans. Karlmaður á þrítugsaldri var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald til 21. maí í tengslum við ra...
http://www.austurfrett.is/frettir/533-raforkuafhending-skert-vegna-lelegs-vatnabuskapar
Raforkuafhending skert vegna lélegs vatnabúskapar Landsnet hefur þurft að skerða afhendingu rafmagns til nærri allra kaupenda svokallaðrar skerðanlegrar orku á Austurlandi síðustu daga og útlit er fyrir að það haldi áfram næstu vikur. Ástæðan er lélegur vatnabúskapur stærstu vatnsaflsvirkjananna á Austur- og Norðurland...
http://www.austurfrett.is/frettir/530-ferdhathjonustan-verdhlaunadhi-audhi-oennu-og-austfirskar-krasir
Ferðaþjónustan verðlaunaði Auði Önnu og Austfirskar krásir Ferðamálasamtök Austurlands verðlaunuðu nýverið Auði Önnu Ingólfsdóttur, hótelstýru Hótels Héraðs og matvælaklasann Austfirskar krásir fyrir framlag þeirra til austfirskrar ferðaþjónustu. Auður Anna fékk viðurkenninguna Klettinn en hún er veitt þeim sem um árab...
http://www.austurfrett.is/frettir/527-urskurdhadhur-i-tveggja-vikna-gaesluvardhhald-rannsokn-malsins-gengur-vel
Úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald: Rannsókn málsins gengur vel Karlmaður á þrítugsaldri var í kvöld úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn á láti karlmanns á sjötugsaldri sem talið er hafa borið að með saknæmum hætti. Yfirlögregluþjónn segir rannsóknina ganga vel. Fulltrúi sýslumanns ...
http://www.austurfrett.is/frettir/531-loegreglan-ekki-i-nokkrum-vafa-um-sekt-hins-handtekna
Lögreglan ekki í nokkrum vafa um sekt hins handtekna Lögregla er sögð sannfærð um sekt karlmanns á þrítugsaldri sem er í haldi grunaður um að hafa ráðið nágranna sínum í fjölbýlishúsi á Egilsstöðum bana aðfaranótt þriðjudags. Lögregla hefur staðfest að hinum 59 ára Karli Jónssyni blæddi út. Fréttablaðið greinir frá því...
http://www.austurfrett.is/frettir/526-faridh-fram-a-fjoegurra-vikna-gaesluvardhhald-yfir-hinum-grunadha
Farið fram á fjögurra vikna gæsluvarðhald yfir hinum grunaða Maðurinn sem er grunaður um aðild að láti karlmanns á sjötugsaldri á Egilsstöðum síðustu nótt var leiddur fyrir dómara á tíunda tímanum í kvöld í fylgd með verjanda sínum. Helgi Jensson, fulltrúi sýslumannsins á Eskifirði, staðfesti að farið hefði verið fram ...
http://www.austurfrett.is/frettir/525-karlmadhur-a-thritugsaldri-i-haldi-loegreglu
Karlmaður á þrítugsaldri í haldi lögreglu Lögreglan hefur karlmann á þrítugshaldi í haldi í tengslum við rannsókn á andláti karlmanns á sjötugsaldri í fjölbýlishúsi á Egilsstöðum í morgun. Í samtali við Austurfrétt sagði Jónas Wilhelmsson, yfirlögregluþjónn á Eskifirði, að maðurinn væri í haldi þar til að lögreglan gæt...
http://www.austurfrett.is/frettir/sterna-lagi-ssa-hrasdmi-sanna-a-hver-sem-er-gti-keypt-hringmia
Sterna lagði SSA í héraðsdómi: Ósannað að hver sem er gæti keypt hringmiða Héraðsdómur Austurlands hafnaði í dag kröfu Sambands sveitarfélaga á Austurlandi á að staðfesta lögbann á reglubundnum fólksflutningum Sternu á leiðinni Höfn-Egilsstaðir-Höfn. Sterna hélt því fram að ferðirnar væru aðeins fyrir handhafa hringmið...
http://www.austurfrett.is/frettir/rsfundur-sjlfbrniverkefnisins-morgun
Ársfundur Sjálfbærniverkefnisins á morgun Ársfundur Sjálfbærniverkefnisins á Austurlandi verður haldinn þann í Fróðleiksmolanum á Reyðarfirði á milli klukkan 13:00 og 17:00 á morgun. Þar verða kynntar helstu niðurstöður úr mælingum á áhrifum Kárahnjúkavirkjunar og álvers Alcoa-Fjarðaáls á mannlíf og náttúru á Austurlan...
http://www.austurfrett.is/frettir/517-gagnast-aherslur-nyrrar-rikisstjornar-launafolki-frekar-en-serhagsmunahopum
Gagnast áherslur nýrrar ríkisstjórnar launafólki frekar en sérhagsmunahópum? Verkalýðshreyfingin býr sig undir baráttu í komandi kjarasamningum sem snúist um fleira en feitari launaumslög. Velferðarkerfið þarf ekki síður að verja og berjast fyrir varanlegum lausnum sem nýtast til hagsbóta launþegum. Þetta kom fram í fy...
http://www.austurfrett.is/frettir/karlmaur-rtugsaldri-haldi-lgreglu-yfirheyrslur-a-hefjast
Karlmaður á þrítugsaldri í haldi lögreglu: Yfirheyrslur að hefjast Lögreglan hefur karlmann á þrítugshaldi í haldi í tengslum við rannsókn á andláti karlmanns á sjötugsaldri í fjölbýlishúsi á Egilsstöðum í morgun. Í samtali við Austurfrétt sagði Jónas Wilhelmsson, yfirlögregluþjónn á Eskifirði, að maðurinn væri í haldi...
http://www.austurfrett.is/frettir/523-ssa-grundvellinum-kippt-undan-almenningssamgoengum-ef-thessi-domur-verdhur-nidhurstadhan
SSA: Grundvellinum kippt undan almenningssamgöngum ef þessi dómur verður niðurstaðan Forsendur eru brostnar fyrir uppbyggingu almenningssamgangna landið um kring ef sérleyfi sem sveitarfélögin semja um við tiltekin fólksflutningafyrirtæki halda ekki. Héraðsdómur Austurlands hnekkti í dag lögbanni Sambands sveitarfélaga...
http://www.austurfrett.is/frettir/lgbanni-ssa-akstur-sternu-hnekkt
Lögbanni SSA á akstur Sternu hnekkt Héraðsdómur Austurlands hnekkti í dag lögbanni sem Samband sveitarfélaga á Austurlandi fékk á fólksflutninga Sternu á sérleyfisleiðinni Egilsstaðir-Höfn-Egilsstaðir síðasta sumar. Fyrirtækið var sýknað af öllum kröfum sambandsins sem að auki var dæmt til að greiða málskostnað upp á 7...