Search is not available for this dataset
url stringlengths 21 288 | text stringlengths 1 1.35M |
|---|---|
https://www.vikubladid.is/is/frettir/althjodlegi-gongum-i-skolann-dagurinn-2011-er-a-morgun | Alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn 2011 er á morgun
Á morgun, miðvikudaginn 5. október, er alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn haldinn hátíðlegur víða um heim. Um leið lýkur formlega verkefninu Göngum í skólann hér á landi. Er þetta í fimmta skipti sem Ísland tekur þátt í verkefninu. Það hófst í Bretlandi árið 2000 ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fulltrui-umbodsmanns-skuldara-til-akureyrar-fyrir-jol | Fulltrúi umboðsmanns skuldara til Akureyrar fyrir jól?
Lengi hefur verið unnið að því að fá fulltrúa frá embætti umboðsmanns skuldara til starfa á Akureyri en án árangurs. Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri segir að bæjaryfirvöld hafi verið í áframhaldandi viðræðum við embættið og að nú sé verið að vinna að því að ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/krullulidid-heldur-afram-ad-gera-goda-hluti-a-em-1 | Krulluliðið heldur áfram að gera góða hluti á EM
Íslenska liðið í C-keppni Evrópumótsins í krullu heldur áfram að gera góða hluti en í morgun sigraði liðið Pólverja, 7-6, í jöfnum og spennandi leik. Fyrir leikinn höfðu Pólverjar unnið alla sjö leiki sína til þessa og tryggt sér efsta sætið á mótinu. Ísland er í baráttu... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skrifad-undir-kjarasamninga-vid-slippinn-akureyri | Skrifað undir kjarasamninga við Slippinn Akureyri
Skrifað var undir kjarasamning milli Einingar-Iðju og Slippsins Akureyri ehf. í gær. Um er að ræða viðauka og frávik frá almennum kjarasamningi SGS og SA vegna starfa verkamanna hjá Slippnum. Að lokinni undirskrift var haldinn starfsmannafundur þar sem samningurinn var ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/erlendir-ferdamenn-ordnir-jafn-margir-og-allt-arid-2011 | Erlendir ferðamenn orðnir jafn margir og allt árið 2010
Samkvæmt talningum Ferðamálastofu fóru 51.576 erlendir ferðamenn frá landinu í september síðastliðnum eða tæplega 11 þúsund fleiri en í september á síðasta ári. Aukningin nemur 26,2% á milli ára. Um er að ræða lang fjölmennasta septembermánuð frá upphafi mælinga.
... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/adsoknarmet-slegid-a-syningunni-matur-inn-2011 | Aðsóknarmet slegið á sýningunni MATUR-INN 2011
Áætlað er að 13-15 þúsund manns hafi sótt sýninguna MATUR-INN sem haldin var í Íþróttahöllinni á Akureyri um helgina. Sýningin var haldin af félaginu Mat úr Eyjafirði í samstarfi við Matarkistuna Skagafjörð og Þingeyska matarbúrið, fyrirtæki og styrktaraðila. Þátttakendur ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/meistararnir-steinlagu-a-heimavelli | Meistararnir steinlágu á heimavelli
Það var lítill meistarabragur á liði KA sem hóf titilvörn sína í Mikasa-deild karla sl. helgi er liðið tók á móti Þrótti Reykjavík. Gestirnir gerðu sér lítið fyrir og unnu Íslandsmeistarana 3-0 í KA-heimilinu.
Þróttur vann fyrstu tvær hrinurnar naumlega, 25-23 og 28-26, en hreinlega ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eldur-i-bil-vid-hof | Eldur í bíl við Hof
Slökkviliði Akureyrar barst tilkynning um reyk frá fólksbíl sem stóð við Menningarhúsið Hof um miðjan dag í gær. Þegar slökkviliðið kom á staðinn reyndist eldur í undirvagni bílsins að aftanverðu. Eldurinn reyndist vera í drifi að aftanverðu en sprungið hafði á bílnum á leið frá Mývatnssveit og þurf... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/uppskera-korns-i-samraemi-vid-vedurfarid | Uppskera korns í samræmi við veðurfarið
"Uppskera og útlit kornsins er í samræmi við veðurfar sumarsins," segir Ingvar Björnsson ráðunautur hjá Búgarði um kornuppskeru eftir sumarið. Ingvar segir að Ísland sé á mörkum þess að þar sé hægt að rækta korn, en kornuppskera og þroski fylgi mjög nákvæmlega hitafari vaxtartíma... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/uppskera-korns-i-samraemi-vid-vedurfarid-1 | Uppskera korns í samræmi við veðurfarið
"Uppskera og útlit kornsins er í samræmi við veðurfar sumarsins," segir Ingvar Björnsson ráðunautur hjá Búgarði um kornuppskeru eftir sumarið. Ingvar segir að Ísland sé á mörkum þess að þar sé hægt að rækta korn, en kornuppskera og þroski fylgi mjög nákvæmlega hitafari vaxtartíma... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atli-mar-radinn-thjalfari-knattspyrnulids-magna | Atli Már ráðinn þjálfari knattspyrnuliðs Magna
Atli Már Rúnarsson hefur verið ráðinn þjálfari knattspyrnuliðs Magna á Grenivík en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið í dag. Atli Már er ekki ókunnugur á Grenivík, því hann þjálfaði Magna með góðum árangri í þrjú tímabil, á árunum 2006-2008. Magni leikur í... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hatt-i-fimm-thusund-manns-sottu-menningarvidburdi-um-helgina | Hátt í fimm þúsund manns sóttu menningarviðburði um helgina
Það var fullt út úr dyrum í Menningarhúsinu Hofi, hjá Leikfélagi Akureyrar og á Græna hattinum um helgina og sóttu tæplega fimm þúsund manns viðburði af ýmsum toga á þessum stöðum um liðna helgi. Mikill fjöldi fólks mætti á tónleikana: "Í minningu Sissu" í Hof... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/linta-haettur-med-thor | Linta hættur með Þór
Aleksandar Linta hefur sennilega leikið sinn síðasta leik fyrir Þór. Fram kemur á vef Þórs að Linta muni nú snúa aftur til síns heimalands, Serbíu, og reikni ekki með að snúa aftur.
Linta lék fjögur tímabil með Þór, þrjú í 1. deild og eitt í úrvalsdeild. Alls lék hann 83 leiki með liðinu og skoraði... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hordur-fannar-ristarbrotinn | Hörður Fannar ristarbrotinn
Hörður Fannar Sigþórsson línumaður Akureyrar er ristarbrotinn og verður hann frá keppni í einhverjar vikur. Fram kemur á vef Akureyri Handboltafélags að brotið bein sé í ristinni en hann meiddist í leiknum gegn FH á dögunum og þurfti að fara af velli snemma í síðari hálfleik. Hörður mun fara... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ms-akureyri-fekk-frumkvodlaverdlaun-matar-ur-heradi | MS Akureyri fékk frumkvöðlaverðlaun Matar úr héraði
MS Akureyri fékk frumkvöðlaverðlaun Matar úr héraði og var viðurkenningin afhent undir lok sýnngarinnar MATURINN-INN sem haldin var í Íþróttahöllinni á Akureyri um helgina. Mikil fjölda gesta kom á sýninguna í gær og í dag og voru forsvarsmenn fyrirækja sem þátt tóku,... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/minnisvardi-um-suluna-ea-300-reistur-vid-torfunefsbryggju | Minnisvarði um Súluna EA 300 reistur við Torfunefsbryggju
Í gær var reistur minnisvarði um eitt frægasta fiskiskip íslendina, Súluna EA 300. Afkomendur Sverris Leóssonar, útgerðarmanns, létu reisa varðann í minningu Sverris og færu Akureyrarhöfn listaverkið að gjöf. Súlan EA 300 var í heila öld gerð út frá Akureyri. Hú... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haett-ad-mynda-dagblod-og-timarit-a-amtsbokasafninu-og-starfsfolki-sagt-upp | Hætt að mynda dagblöð og tímarit á Amtsbókasafninu og starfsfólki sagt upp
Nú um mánaðamótin var starfsstöð sem verið hefur á Amtsbókasafninu á Akureyri lokað, en þar fór fram skönnun á dagblöðum og tímaritum. Samningur var á milli safnsins og Landsbókasafns um starfsemina, en síðarnefnda safnið á tækin sem notuð voru.... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tap-og-sigur-a-em-i-krullu | Tap og sigur á EM í krullu
Landslið Íslands í krullu lék tvo leiki í C-keppni Evrópumótsins í dag. Í býtið í morgun mættu íslenska liðið Serbíu og máttu þola 1-6 tap. Leikmenn Íslands hristu það af sér og sigruðu Tyrki nú síðdegis, 10-4. Liðið leikur tvo leiki á morgun, fyrst gegn Slóvenum kl. 10 að íslenskum tíma og s... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorsarar-fallnir-nidur-i-1-deild | Þórsarar fallnir niður í 1. deild
Þórsarar féllu úr Pepsi-deild karla í knattspyrnu í dag þegar lokaumferð deildarinnar fór fram. Þór sótti Keflavík heim þar sem heimamenn höfðu betur 2-1. Keflavík komst í 2-0 eftir 16. mínútna leik með mörkum frá þeim Jóhanni Birni Guðmundssyni og Magnúsi Þorsteinssyni. Sveinn Elías J... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/slippurinn-dng-seldi-faeravindur-fyrir-25-milljonir | Slippurinn DNG seldi færavindur fyrir 25 milljónir
Slippurinn Akureyri var á meðal eyfirskra fyrirtækja sem þátt tóku í sjávarútvegssýningunni í Kópavogi um síðustu helgi. Þar var skrifað undir samning við Onward Fishing, dótturfélag Samherja í Skotlandi, um að Slippurinn smíði vinnslulínu í togarann Normu Mary og hljó... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/syningin-matur-inn-2011-i-ithrottahollinni-um-helgina | Sýningin MATUR-INN 2011 í Íþróttahöllinni um helgina
Sýningin MATUR-INN verður haldin á Akureyri í fimmta sinn í dag laugardag og á morgun sunnudag. Sýningin hefur verið haldin á tveggja ára fresti og var hún síðast haldin árið 2009. Þá voru gestir 12-14 þúsund og er búist við öðru eins í ár. Sýningarbásar eru fleiri e... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/islenska-krullulidid-vann-sigur-a-grikkjum-i-fyrsta-leik-a-em | Íslenska krulluliðið vann sigur á Grikkjum í fyrsta leik á EM
Krullulið skipað leikmönnum úr röðum Krulludeildar Skautafélags Akureyrar keppir þessa dagana fyrir Íslands hönd í C-keppni Evrópumótsins sem fram fer í krulluhöllinni í Tårnby í Kaupmannahöfn. Tårnby krulluhöllin er Íslendingum að góðu kunn, en þangað hefur... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skutur-losnudu-vid-flotbryggjuna-vid-menningarhusid-hof | Skútur losnuðu við flotbryggjuna við Menningarhúsið Hof
Súlur - björgunarsveitin á Akureyri var kölluð út skömmu eftir kl. 16.00 í dag en skútur er liggja við flotbryggjuna við menningarhúsið Hof, losnuðu og skemmdu millibryggjur illa. Mikið hefur bætt í vind á Akureyri undanfarnar klukkustundir og voru10 björgunarsvei... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kaera-logd-fram-vegna-framkvaemda-vid-tengingu-bralundar-vid-midhusabraut | Kæra lögð fram vegna framkvæmda við tengingu Brálundar við Miðhúsabraut
Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála hefur borist kæra og fylgigagn vegna framkvæmdaleyfis fyrir malbikun og tengingu Brálundar við Miðhúsabraut á Akureyri. Í kærunni er gerð krafa um bráðabirgðaúrskurð um stöðvun framkvæmda. Þetta kemur fram... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jonas-gahr-store-i-heita-pottinum-i-gaerkvold | Jonas Gahr Støre í heita pottinum í gærkvöld
Fastagestum í heita pottinum í Sundlaug Akureyrar bættist óvæntur liðsauki í gærkvöld þegar Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs kom þangð ásamt fríðu föruneyti lögreglu og lífvarða. Störe vildi njóta heita vatnsins og skellti sér því pottinn, en hann var hér í gær í t... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nydonsk-i-nand-og-svarta-komedian-hja-la | Nýdönsk í nánd og Svarta kómedían hjá LA
Leikárið fer af stað á fullum krafti og mun Nýdönsk mæta til leiks um helgina á nýjan hátt í návígi leikhússins. Sveitarmenn eru góðir sagnamenn og á leiksviði lifna sögurnar við hvernig lögin og textarnir urðu til ásamt því að leikhúsgestir fá innsýn inn í bæði skandala sveitar... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thrjar-skandinaviskar-listakonur-syna-i-new-york | Þrjár skandinavískar listakonur sýna í New York
Listakonurnar Dagrún Matthíasdóttir frá Íslandi, Gunn Morstöl frá Noregi og Helen Molin frá Svíþjóð opnuðu sýninguna Delicious í Cælum Gallery í Chelsea á Manhattan í New York nú í vikunni og tóku á móti gestum í formlegu opnunarteiti í gær. Listakonurnar hittust á stór... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bid-eftir-hjukrunarrymum-a-akureyri-ad-aukast-fra-fyrri-arum | Bið eftir hjúkrunarrýmum á Akureyri að aukast frá fyrri árum
Bið eftir hjúkrunarrýmum á Akureyri virðist vera að aukast frá fyrri árum, samkvæmt því fram kemur í bókun frá síðasta fundi félagsmálaráðs. Þar kynntu Anna Marit Níelsdóttir verkefnisstjóri og Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri á búsetudeild stöðu biðlista ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leynist-besti-virkjunarkostur-landsins-i-jokulsa-a-fjollum | Leynist besti virkjunarkostur landsins í Jökulsá á Fjöllum?
Jón Þorvaldur Heiðarsson, lektor við Háskólann á Akureyri, flytur erindi á málstofu í viðskiptafræði í stofu R 311 á Borgum við Norðurslóð, dag föstudag kl. 12.10-12.55. Yfirskrift erindisins er: Leynist besti virkjunarkostur landsins í Jökulsá á Fjöllum? Ýmsa... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atli-soknarleikurinn-i-molum | Atli: Sóknarleikurinn í molum
"Við vorum að spila við frábært lið og vissum það fyrirfram. Það var hins vegar fyrst og fremst sóknarleikurinn í seinni hálfleik sem var á virkilega lágu plani í kvöld sem gerði það að verkum að við fengum ekkert út úr þessu í dag, sagði Atli Hilmarsson þjálfari Akureyrar, eftir tapið ge... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-la-gegn-fh-i-hollinni | Akureyri lá gegn FH í Höllinni
FH gerði góða ferð norður yfir heiðar er liðið lagði Akureyringa að velli með fjórum mörkum í Höllinni í kvöld í N1-deild karla í handbolta en lokatölur urðu 20-24. Akureyri byrjaði leikinn frábærlega og komst í 5-0 og FH-ingar skoruðu ekki mark fyrstu níu mínúturnar. Akureyri hélt foryst... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fiskey-gjaldthrota | Fiskey gjaldþrota
Fiskey, félag sem stóð fyrir lúðueldi á Hjalteyri og Dalvík var úrskurðað gjaldþrota á föstudag, en þá var ljóst að ekki tækist að safna nægu nýju hlutafé í félagið, sem stóð höllum fæti. Það hefur átt við fjárhagsvanda að stríða sökum framleiðslubrests undanfarin misseri. Þrátt fyrir umfangsmiklar ra... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarrad-samthykkti-styrki-til-ithrottafelagsins-thors | Bæjarráð samþykkti styrki til Íþróttafélagsins Þórs
Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi sínum í morgun að styrkja Íþróttafélagið Þór um kr. 250.000 vegna kalskemmda á knattspyrnuvöllum félagsins. Áður hafði íþróttaráð mælt með því að bærinn tæki þátt í þeim kostnaði sem til féll vegna viðgerða á svæði félagsins. Áður ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/osk-um-leyfi-til-mottoku-og-umhledslu-a-sorpi-hafnad | Ósk um leyfi til móttöku og umhleðslu á sorpi hafnað
Skipulagsnefnd Akureyrarbæjar hafnaði á fundi sínum í vikunni, erindi frá Íslenska Gámafélaginu ehf., þar sem óskað var eftir leyfi til móttöku og umhleðslu á almennu heimilissorpi til flutnings á förgunarstað, í húsnæðinu að Oddeyrartanga, húsi nr. 6.
Fram kemur í b... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nordmenn-kosta-professorsstodu-i-nordurslodafraedum-vid-ha | Norðmenn kosta prófessorsstöðu í norðurslóðafræðum við HA
Utanríkisráðherra Noregs, Jonas Gahr Støre kemur í opinbera heimsókn til Íslands í dag og hefst hún á Akureyri. Støre og utanríkisráðherra Íslands, Össur Skarphéðinsson, munu taka þátt í fundi um norðurslóðasamstarf Íslands og Noregs sem Háskólinn á Akureyri ste... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/deildarmeistararnir-taka-a-moti-islandsmeisturunum-i-kvold | Deildarmeistararnir taka á móti Íslandsmeisturunum í kvöld
Akureyri leikur sinn fyrsta heimaleik í kvöld í N1-deild karla en þá mæta deildarmeistararnir Íslandsmeisturum FH í Höllinni kl. 19:00. Akureyringar hófu deildina með látum er liðið lagði Aftureldingu að velli í Varmá með ellefu marka mun sl. mánudag, þar sem l... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oruggur-thyskur-sigur-a-thorsvelli | Öruggur þýskur sigur á Þórsvelli
Þýska liðið Turbine Potsdam sigraði Þór/KA örugglega er liðin mættust á Þórsvelli í dag í fyrri leik liðanna í 32-liða úrsitum Meistaradeildar kvenna í knattspyrnu. Potsdam hafði völdin á vellinum en norðanstúlkur áttu þó ágætis spretti inn á milli og miðað við styrkleika andstæðingsins... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/handverkshatidin-a-naesta-ari-med-svipudu-snidi-og-i-ar | Handverkshátíðin á næsta ári með svipuðu sniði og í ár
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum í gær, að Handverkshátíðin 2012 verði með svipuðu sniði og í ár og að sýningarstjórn Handverkshátíðarinnar 2011 verði óbreytt. Sýningarstjórnin fékk jafnframt umboð sveitarstjórnar til að ganga til samninga u... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/verda-ovaent-urslit-a-thorsvelli-i-dag | Verða óvænt úrslit á Þórsvelli í dag?
Við erum nokkuð vel stemmd og hlökkum bara til verkefnisins, sagði Hlynur Svan Eiríksson þjálfari Þórs/KA við Vikudag í morgun. Það verður stórleikur á Þórsvelli í dag þegar Þór/KA og þýska liðið Turbine Potsdam mætast í 32-liða úrslitum Meistaradeildar Evópu kvenna. Leikurinn er... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sr-skellti-vikingum-i-skautahollinni | SR skellti Víkingum í Skautahöllinni
SR gerði góða ferð norður yfir heiðar er liðið sótti SA Víkinga heim á Íslandsmóti karla í íshokkí í kvöld. Liðin mættust í Skautahöll Akureyrar þar sem lokatölur urðu 2-6 fyrir gestina. SR hafði 2-0 forystu eftir fyrstu lotu með mörkum frá Daniel Kolar og Agli Þormóðssyni. Eitt mar... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skorad-a-baejaryfirvold-ad-standa-vord-um-leikfelag-akureyrar | Skorað á bæjaryfirvöld að standa vörð um Leikfélag Akureyrar
Aðalfundur Leiklistarsambands Íslands, sem haldinn var 26. september, ályktar eftirfarandi vegna frétta af málefnum Leikfélags Akureyrar að undanförnu: "Leiklistarsamband Íslands skorar á bæjaryfirvöld á Akureyri að standa vörð um Leikfélag Akureyrar og trygg... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fagnar-aformum-landsvirkjunar-um-nytingu-jardvarma-i-thingeyjarsyslu | Fagnar áformum Landsvirkjunar um nýtingu jarðvarma í Þingeyjarsýslu
Samfylkingin í Þingeyjarsýslu fagnar áformum Landsvirkjunar um nýtingu jarðvarma í Þingeyjarsýslu og lýsir yfir ánægju með hugmyndir um fjölbreytta atvinnuuppbyggingu þeim tengdum í sýslunni. Jafnframt hvetur Samfylkingin stjórnvöld til að greiða fyrir... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/morg-krefjandi-en-spennandi-verkefni-framundan | Mörg krefjandi en spennandi verkefni framundan
Starfið leggst mjög vel í mig. Eins og gengur og gerist með umfangsmikið starf þá bíða mörg krefjandi en spennandi verkefni. Á deildinni stafar áhugasamur og metnaðarfullur hópur fólks sem ég hlakka til að starfa með. Akureyrarbær veitir framsækna félagsþjónustu og það er... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sa-vikingar-fa-sr-i-heimsokn-i-kvold | SA Víkingar fá SR í heimsókn í kvöld
Einn leikur fer fram á Íslandsmóti karla í íshokkí í kvöld en þá taka SA Víkingar á móti SR í Skautahöllinni á Akureyri kl. 19:30. Bæði lið hafa þrjú stig, Víkingar eftir tvo leiki en SR einn. SA Víkingar eiga ennþá eftir að endurheimta sterka leikmenn vegna meiðsla en norðanmenn fe... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/logreglumenn-i-eyjafirdi-segja-sig-ur-oeirdaflokki | Lögreglumenn í Eyjafirði segja sig úr óeirðaflokki
Í framhaldi af fjölmennum félagsfundi Lögreglufélags Eyjafjarðar í gær, hafa níu lögreglumenn í Eyjafirði, sem skipa óeirðaflokk lögreglunnar á svæðinu, allir sem einn, sagt sig frá störfum í óeirðaflokknum. Með þessu vilja þeir undirstrika óánægju sína með framkomu rí... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heimir-ur-leik-i-4-5-vikur | Heimir úr leik í 4-5 vikur
Heimir Örn Árnason fyrirliði Akureyrar verður ekki með liðinu næstu 4-5 vikurnar. Heimir meiddist á hné í leiknum gegn Aftureldingu í gær og verður að fara í aðgerð. Heimir var tæpur fyrir leikinn en hnéð virtist gefa sig alveg undir lok leiksins í gær. Þetta er blóðtaka fyrir norðanmenn sem ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/deildarmeistararnir-byrja-timabilid-med-sigri | Deildarmeistararnir byrja tímabilið með sigri
Akureyri fer vel af stað í N1-deild karla í handbolta en liðið sigraði Aftureldingu með ellefu marka mun er liðin áttust við í Varmá í kvöld í fyrstu umferð deildarinnar. Lokatölur urðu 20-31 fyrir Akureyri. Akureyri hafði sex marka forystu í hálfleik, 16-10. Oddur Gretarss... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyrarbaer-stydur-vid-rekstur-atvinnuleikhuss-i-baenum | Akureyrarbær styður við rekstur atvinnuleikhúss í bænum
Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri og Sigrún Björk Jakobsdóttir formaður stjórnar Leikfélags Akureyrar undirrituðu í dag samning um stuðning Akureyrarbæjar við rekstur atvinnuleikhúss á Akureyri fyrir starfsárið 2011-2012.
Markmið samningsins er að tryggja rek... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kathor-situr-hja-fyrstu-helgina-i-n1-deildinni | KA/Þór situr hjá fyrstu helgina í N1-deildinni
HSÍ hefur ákveðið að fjölga ekki um lið í N1-deild kvenna og að áfram verði leikin tvöföld umferð. Fylkir hætti við þátttöku á síðustu stundu og því þurfti HSÍ að bregðast við því. Þetta þýðir í stuttu máli að liðin níu leika tveimur leikjum færra í vetur.
N1-deild kvenna ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/enn-tvisynt-med-thatttoku-rakelar-i-evropukeppninni | Enn tvísýnt með þátttöku Rakelar í Evrópukeppninni
Enn er tvísýnt með þátttöku Rakel Hönnudóttir fyrirliða Þórs/KA í leikjunum tveimur gegn Turbine Potsdam í Meistaradeild Evrópu. Fyrri leikur liðanna fer fram á Þórsvelli á miðvikudaginn kemur og sá síðari viku síðar í Þýskalandi.
Rakel fékk beinmar á rist sem hélt hen... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/styrkir-til-norraenna-verkefna-med-bornum-og-unglingum | Styrkir til norrænna verkefna með börnum og unglingum
Ungt fólk á Norðurlöndum á sífellt erfiðara með að skilja tungumál hvers annars, þrátt fyrir aukna umferð yfir landamæri. Norræna ráðherranefndin hefur ýtt úr vör spennandi verkefnum þar sem áhersla er lögð á að auka skilning norrænna barna á tungumálum grannþjóðann... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/syningin-matur-inn-i-ithrottahollinni-um-naestu-helgi | Sýningin MATUR-INN í Íþróttahöllinni um næstu helgi
Stjórn Akureyrarstofu samþykkti á síðasta fundi sínum að styrkja sýninguna MATUR-INN 2011, sem haldin verður í Íþróttahöllinni um næstu helgi, um kr. 200.000. Í bókun stjórnar Akureyrarstofu kemur fram að sýningin endurspegli norðlenska matarmenningu í víðum skilningi... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aldrei-hafa-fleiri-nemendur-laert-ensku-i-grunnskolum-landsins | Aldrei hafa fleiri nemendur lært ensku í grunnskólum landsins
Aldrei hafa fleiri nemendur lært ensku í grunnskólum landsins, en 78,9% grunnskólanemenda læra ensku, samkvæmt tölum sem Hafstofan hefur tekið saman. Tölurnar eru birtar í tilefni af degi tungumála í Evrópu 26. september. Að meðaltali læra framhaldsskólaneme... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/n1-deild-karla-hefst-i-kvold-akureyri-byrjar-a-utivelli | N1-deild karla hefst í kvöld-Akureyri byrjar á útivelli
Handboltavertíðin rúllar af stað í kvöld en þá hefst N1-deild karla. Akureyringar hefja leik á útivelli en þeir sækja Aftureldingu heim í kvöld.
Þetta verður erfiður útivöllur að fara á og við lentum í miklu basli þarna í fyrra, segir Alti Hilmarsson þjálfari Ak... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/pall-vidar-their-voru-einfaldlega-klokari | Páll Viðar: Þeir voru einfaldlega klókari
Páll Viðar Gíslason þjálfari Þórs var að vonum svekktur eftir tapið gegn Breiðabliki í kvöld í Pepsi-deild karla í knattspyrnu. Eftir 2-1 sigur Blika eru Kópavogsdrengirnir sloppnir við fall, en skildu Þórsara hins vegar eftir með bakið upp að vegg fyrir lokaumferðina næstu hel... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-med-bakid-upp-ad-vegg-eftir-tap-gegn-blikum | Þór með bakið upp að vegg eftir tap gegn Blikum
Breiðablik bjargaði sér frá falli í dag með því að leggja Þór á Þórsvelli, 1-2, í næstsíðustu umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu í dag. Eftir ágætis byrjun heimamanna voru það Blikar sem voru heilt yfir betri og sigurinn fyllilega verðskuldaður. Ingi Freyr Hilmarsso... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikid-um-fyrirspurnir-vegna-arshatidaferda | Mikið um fyrirspurnir vegna árshátíðaferða
Sumarið var ágætt, það fór rólega af stað og júní var raunar ekki neitt sérstakur en í heildina kom það þokkalega út, segir Sigurbjörn Sveinsson hótelstjóri á Hótel Kea. Veðurfar í júní skipti þar miklu, en strax og fór að hlýna fjölgaði ferðamönnum.
Sigurbjörn segir að nýti... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thetta-er-leikur-sem-vid-verdum-ad-klara | Þetta er leikur sem við verðum að klára
Það er heldur betur farið að færast líf í fallbaráttuna í Pepsi-deild karla eftir leiki síðustu umferðar. Þegar tvær umferðir eru eftir geta fimm lið fallið, Keflavík, Breiðablik, Þór, Grindavík og Fram. Víkingur er fallinn en Framarar, sem sitja í fallsæti með 18 stig, gefa ek... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/idnadarsafnid-a-akureyri-i-fjarhagserfidleikum | Iðnaðarsafnið á Akureyri í fjárhagserfiðleikum
Iðnaðarsafnið á Akureyri á í fjárhagserfiðleikum og hefur m.a. verið gripið til þess ráðs að segja forstöðumanni safnsins upp störfum. Við náum ekki endum saman þegar horft er til ársins alls og erum því að grípa til þessara aðgerða, segir Þorsteinn Arnórsson formaður st... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vifilfell-a-akureyri-framleidir-bjor-til-utflutnings-1 | Vífilfell á Akureyri framleiðir bjór til útflutnings
Fyrsta sendingin er farin, það fór út einn gámur nýlega til Bretlands og svo fer annar til Kaliforníu í október, segir Unnsteinn Jónsson verksmiðjustjóri hjá Vífilfelli á Akureyri, en þar er nú framleiddur bjór undir vöruheitinu Einstök en það er í eigu þriggja ban... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/okkar-hlutverk-ad-halda-uppi-menntunarstigi-a-landsbyggdinni | Okkar hlutverk að halda uppi menntunarstigi á landsbyggðinni
Þetta lítur ekki nægilega vel út, en sem betur fer hefur ársverkum hér ekki fækkað eins mikið og virðist samkvæmt þessum tölum, segir Stefán B. Stefánsson rektor Háskólans á Akureyri og segir að margar skýringar aðrar en uppsagnir séu því að störfum hefur f... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hlynur-svan-tekur-vid-breidabliki | Hlynur Svan tekur við Breiðabliki
Hlynur Svan Eiríksson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Breiðabliks í knattspyrnu. Þetta staðfesti knattspyrnudeild félagsins í gærkvöld. Hlynur stýrði Þór/KA í sumar eftir að hafa tekið óvænt við liðinu snemma sumars. Hann mun áfram stýra norðanliðinu í leikjunum tveimur gegn Tur... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/landsbyggdin-latin-blaeda-fyrir-thenslu-a-hofudborgarsvaedinu | Landsbyggðin látin blæða fyrir þenslu á höfuðborgarsvæðinu
Breytingar á stöðugildum hjá hinu opinbera á árunum 2008 til 2010 hafa verið með þeim hætti að fækkunin starfa er meiri hjá stofnunum sem starfa á landsbyggðinni en þeim sem starfandi eru á höfuðborgarsvæðinu. Stofnanir úti á landi hafa þannig orðið verr úti hv... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kynning-a-frisbigolfi-ad-homrum-a-morgun | Kynning á Frisbígolfi að Hömrum á morgun
Frisbígolf (Folf) hefur náð miklum vinsældum bæði hér á landi og erlendis. Á Íslandi eru nú komnir sex sérbúnir folfvellir en þrír þeirra voru opnaðir á þessu ári og margir eru að kynnast þessari skemmtilegu afþreyingu þessa dagana.
Birgir Ómarsson formaður Íslenska frisbígolfsa... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lagning-dalsbrautar-yrdi-i-stefnuskra-sjalfstaedisflokksins | Lagning Dalsbrautar yrði í stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins
"Miðað við umræður virðist því lítið haldið á lofti að margir sjálfstæðismenn styðja lagningu Dalsbrautar á milli Miðhúsabrautar og Þingvallastrætis. Það eru síðan enn færri sem vita að fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar samþykkti framboðslisti sjálfstæðism... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/markmidid-ad-vera-i-barattunni-um-alla-titlana | Markmiðið að vera í baráttunni um alla titlana
Handboltaunnendur geta farið að taka gleði sína á ný en á mánudaginn kemur hefst N1-deild karla á ný. Akureyri
Handboltafélag átti frábært tímabil í fyrra þar sem liðið varð deildarmeistari og lék til úrslita í bikarnum og um
sjálfan Íslandsmeistaratitilinn.
Norðanmenn s... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/voruthrounarverkefni-skapa-ny-taekifaeri-fyrir-reglulegt-flug-um-akureyrarflugvoll | Vöruþróunarverkefni skapa ný tækifæri fyrir reglulegt flug um Akureyrarflugvöll
Fjöldi nýrra hugmynda kom fram á vinnustofu ferðaþjónustufyrirtækja á Norðurlandi í gær. Á þriðja tug fyrirtækja í ferðaþjónustu hófu vinnu við þróunarverkefni sem ætlað er að efla samkeppnishæfni svæðisins. Vinnustofan var sett upp út frá ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hraeringar-hja-ka-i-blakinu | Hræringar hjá KA í blakinu
Karlalið KA mun mæta talsvert breytt til leiks er Íslandsmótið í blaki hefst í næsta mánuði. Marek Bernart mun hætta sem
þjálfari bæði karla-og kvennaliðsins, en samkvæmt heimildum Vikudags ákvað stjórn blakdeildar KA að breyta til, þar sem Marek hefur
þjálfað KA-liðin í fjögur ár.
Filip Pawe... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hordur-synir-19-aldar-ljosmyndun-a-minjasafninu | Hörður sýnir 19. aldar ljósmyndun á Minjasafninu
Á morgun, laugardaginn, 24. september milli kl. 15.00 og 16.00, gefst fólki einstakt tækifæri til að bregða sér aftur um aldir og fylgjast með Herði Geirssyni ljósmyndara og safnverði ljósmyndadeildar Minjasafnsins á Akureyri, taka ljósmyndir og framkalla með efnum og að... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vel-hefur-gengid-ad-framfylgja-reglum-um-unglingadansleiki | Vel hefur gengið að framfylgja reglum um unglingadansleiki
Á fundi samfélags- og mannréttindaráðs Akureyrarbæjar í vikunni var rætt um hvernig gengið hefur að framfylgja reglum, sem
bæjarstjórn samþykkti í mars sl., varðand leyfi til að standa fyrir unglingadansleikjum. Inga Þöll Þórgnýsdóttir
bæjarlögmaður og Daníel G... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mannakorn-med-utgafutonleika-i-hofi-i-november | Mannakorn með útgáfutónleika í Hofi í nóvember
Nú í nóvember kemur út ný plata með hljómsveitinni Mannakorn, sú fyrsta síðan platan Von kom út árið 2008, en
hún naut mikilla vinsælda og seldist með miklum ágætum. Nú hafa þeir Magnús Eiríksson og Pálmi Gunnarsson tekið upp nýja
plötu sem er fagnaðarefni því þetta samsta... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fiskey-stefnir-i-throt-takist-ekki-ad-safna-nyju-hlutafe | Fiskey stefnir í þrot takist ekki að safna nýju hlutafé
„Verið er að vinna að því að fá nýtt hlutafé og það skýrist betur í lok vikunnar hvort það tekst," segir
Arnar Freyr Jónsson framkvæmdastjóri Fiskey, en félagið hefur átt við fjárhagsvanda að stríða sökum framleiðslubrests á
lúðuseiðum undanfarin misseri. Þrátt fy... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bleiki-pokinn-til-styrktar-krabbameinsfelagi-islands | Bleiki pokinn til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands
Krabbameinsfélag Íslands og Plastprent undirrituðu samstarfssamning á dögunum er lýtur að stuðningi Plastprents við Bleiku slaufuna og
Krabbameinsfélagið með sölu á BLEIKA POKANUM. Samningurinn felur í sér að allur ágóði af sölu BLEIKA
POKANS rennur óskiptur til stuð... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hlynur-heldur-fyrirlestur-um-verk-sin-og-syningar | Hlynur heldur fyrirlestur um verk sín og sýningar
Hlynur Hallsson heldur fyrirlestur á vegum Listnámsbrautar VMA, Listasafnsins á Akureyri og Menningarmiðstöðvarinnar í Grófargili. Fyrirlesturinn sem
ber titilinn " Sýningarstjórn og samfélagsrýni" fer fram í Ketilhúsinu í Listagilinu á Akureyri föstudaginn 23. septembe... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-velur-umhverfisvaena-prentlausn-fyrir-sjo-grunnskola | Akureyri velur umhverfisvæna prentlausn fyrir sjö grunnskóla
Akureyrarbær hefur gert samning til fjögurra ára við Nýherja um Rent a Prent prentþjónustu fyrir sjö grunnskóla og tónlistarskóla
bæjarins. Markmið bæjarfélagsins með samningnum er að stuðla að lækkun á prent- og ljósritunarkostnaði og lækkun á rekstri
prentb... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samthykkt-ad-taka-upp-vidraedur-vid-ka-um-endurskodun-a-uppbyggingarsamningi | Samþykkt að taka upp viðræður við KA um endurskoðun á uppbyggingarsamningi
Bæjarráð tók fyrir á ný á fundi sínum í morgun, beiðni KA um að Akureyrarbær flýti framkvæmdum við
væntanlegan gervigrasvöll á félagssvæði KA um eitt ár þannig að vinna við jarðvegsframkvæmdir hefjist í haust og
völlurinn lagður gervigrasi vorið... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/l-listinn-ekki-raett-vid-gudmund-eda-adra-um-frambod-til-althingis | L-listinn ekki rætt við Guðmund eða aðra um framboð til Alþingis
Geir Kristinn Aðalsteinsson oddviti L-listans og forseti bæjarstjórnar Akureyrar segir að það sé ekkert til í þeim sögusögnum að
fulltrúar L-listans hafi rætt við Guðmund Steingrímsson eða aðra varðandi framboð til Alþingis. "Við höldum því bara
áfram að ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/islenska-sjavarutvegssyningin-hefst-i-dag | Íslenska sjávarútvegssýningin hefst í dag
„Já já, ég er kominn suður og ætla mér að skoða sýninguna, enda nauðsynlegt að fylgjast með tækninýjungum og
framförum. Ég byrja líklega fyrst á því að skoða básana sem eru með fiskvinnsluvélar og
þar á eftir reyni ég að kynna mér nýjungar í dýptarmælum og fjarskiptabúnaði," se... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/getum-verid-nokkud-sattir-med-arangurinn | Getum verið nokkuð sáttir með árangurinn
„Ég held að við getum verið ánægðir með stígandan í liðinu í seinni umferðinni. Við náum þar 19
stigum sem gerir þriðja besta árangurinn í deildinni. Þannig að það er jákvætt þótt að staðan hefði vissulega ekki
verið góð á tímabili. En við sluppum við fallsæti og fórum nógu lang... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leikskolagjold-fyrir-born-med-logheimili-utan-reykjavikur | Leikskólagjöld fyrir börn með lögheimili utan Reykjavíkur
Á fundi skólanefndar Akureyrarbæjar í vikunni var fjallað um breytingar á leikskólagjöldum í höfðuborginni, fyrir börn með
lögheimili utan Reykjavíkur. Kynnt var samkomulag sem náðist á fundi sem Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri og Gunnar Gíslason
fræðslus... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-spad-odru-saeti-i-n1-deildinni | Akureyri spáð öðru sæti í N1-deildinni
Spá formanna, þjálfara og fyrirliða liða í N1-deild karla og kvenna var kunngerð á fréttamannafundi HSÍ í hádeginu
í dag. FH er spáð Íslandsmeistaratitlinum í karlaflokki en Val í kvennaflokki. Bæði liðin eru ríkjandi Íslandsmeistarar.
Akureyri er spáð öðru sætinu í N1-deild karla... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atli-ad-na-fyrri-heilsu | Atli að ná fyrri heilsu
„Ég er búinn að vera með eitthvern vírus eða eitthvað þannig sem hefur haldið mér
lárréttum. Ég er hins vegar loksins að komast á lappir núna og stefni á að fara á mína fyrstu æfingu í dag í langan
tíma,” segir Atli Sigurjónsson leikmaður Þórs, sem er óðum að ná sér eftir veikindi. Atli hefur ve... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tonleikar-til-heidurs-ingimari-eydal-i-hofi | Tónleikar til heiðurs Ingimari Eydal í Hofi
Tónleikar til heiðurs Ingimari Eydal verða haldnir í Hofi á Akureyri í næsta mánuði. Þessi ferð í Skódanum hans Ingimars
verður full af elskulegheitum og óvæntum uppákomum! Ingimar var fæddur 20. október 1936 og hefði því orðið 75 ára á
þessu ári hefði hann lifað. Í tilefni þ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samthykkt-i-baejarstjorn-ad-auglysa-tillogu-ad-deiliskipulagi-dalsbrautar | Samþykkt í bæjarstjórn að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Dalsbrautar
Meirihluti bæjarstjórnar Akureyrar samþykkti á fundi sínum í dag, tillögu meirihluta skipulagsnefndar þess efnis að tillaga að
deiliskipulagi Dalsbrautar, frá Miðhúsabraut að Þingvallastræti, verði auglýst. Sex bæjarfulltrúar L-listans greiddu atkv... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vikingar-voltudu-yfir-jotna-i-sa-slagnum | Víkingar völtuðu yfir Jötna í SA-slagnum
Víkingar völtuðu yfir Jötna í kvöld er liðin áttust við í innbyrðisviðureign Skautafélags Akureyrar á
Íslandsmóti karla í íshokkí. Lokatölur í Skautahöllinni urðu 16-0. Andri Már Mikaelsson átti góðan
leik fyrir Víkinga og skoraði fimm mörk og átti tvær stoðsendingar. Þá skoruðu... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/niu-umsoknir-um-starf-forstodumanns-nyrrar-menningarmidstodvar-i-listagilinu | Níu umsóknir um starf forstöðumanns nýrrar menningarmiðstöðvar í Listagilinu
Alls bárust níu umsóknir um starf forstöðumanns nýrrar menningarmiðstöðvar í Listagilinu. Umsækjendur eru; Arndís
Bergsdóttir, Björg Erlingsdóttir, Eyjólfur Már Thoroddsen, Friðrik Rafnsson, Hannes Sigurðsson, Harpa Björnsdóttir, Hlynur Hallss... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/felagsmalarad-fagnar-vidurkenningu-fyrir-godan-rekstur | Félagsmálaráð fagnar viðurkenningu fyrir góðan rekstur
Bæjarráð Akureyrar heimilaði færslu fjárveitinga á milli ára í málaflokkum félagsþjónustu og fræðslu- og
uppeldismála og komu 12 milljónir króna í hlut fjölskyldudeildar og búsetudeildar, eins og fram hefur komið. Málið var til umfjöllunar
á síðasta fundi félagsmál... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/agust-torfi-tekinn-vid-sem-forstjori-nordurorku | Ágúst Torfi tekinn við sem forstjóri Norðurorku
Á stjórnarfundi Norðurorku hf. fyrir helgi tók nýráðinn forstjóri Norðurorku, Ágúst Torfi Hauksson, formlega til starfa.
Jafnframt þakkaði stjórnarformaður Geir Kristinn Aðalsteinsson f.h. stjórnar Franz Árnasyni fráfarandi forstjóra gifturík
störf í þágu Norðurorku og Hi... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/malthing-um-umhverfismal-og-sjalfbaera-throun | Málþing um umhverfismál og sjálfbæra þróun
Fimmtudaginn 22. september kl. 9 - 12 verður haldið opið málþing í Ketilhúsinu á Akureyri, undir heitinu: Umhverfismál og sjálfbær
þróun. Norræn samvinna með þátttöku íbúa og fyrirtækja. Málþingið er haldið í tengslum við
loftslagsráðstefnu norrænu vinabæja Akureyrar, sem hald... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/afram-verdi-haegt-ad-selja-heimabakstur-i-fjaroflunarskyni | Áfram verði hægt að selja heimabakstur í fjáröflunarskyni
Stjórn Slysavarnafélagsins Landsbjargar hefur sent áskorun til Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, þar sem
tekið er heils hugar undir áskorun Kvenfélagasambands Íslands, þar sem ráðherra sjávarútvegs- og landbúnaðarmála er hvattur
til að brey... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-oskar-eftir-fjarframlagi-fra-baenum-vegna-kalskemmda | Þór óskar eftir fjárframlagi frá bænum vegna kalskemmda
Á síðasta fundi íþróttaráðs var tekið fyrir erindi frá Sigfúsi Ólafi Helgasyni framkvæmdastjóra
Íþróttafélagsins Þórs þar, sem hann óskar eftir fjárframlagi frá Akureyrarbæ vegna mjög slæms ásigkomulags
knattspyrnuvalla félagsins af völdum kalskemmda sem orsakaði ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/dalvikreynir-endadi-timabilid-med-sigri | Dalvík/Reynir endaði tímabilið með sigri
Dalvík/Reynir lagði Fjarðabyggð 3-0 á heimavelli er liðin áttust við í lokaumferð 2. deildar karla í
knattspyrnu sl. laugardag. Öll mörkin komu í fyrri hálfleik en þeir Ísak Einarsson, Kristinn Þór Björnsson og Hermann Albertsson sáu um
markaskorun fyrir Dalvík/Reyni.
Norðanmenn... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tekid-undir-ahyggjur-med-dratt-a-byggingu-flokkunarstodvar | Tekið undir áhyggjur með drátt á byggingu flokkunarstöðvar
Framkvæmdaráð Akureyrarbæjar tekur undir bókun umhverfisnefndar á dögunum, þar sem umhverfisnefnd lýsti yfir miklum áhyggjum með
þann drátt sem orðið hefur á byggingu flokkunarstöðvar Gámaþjónustu Norðurlands ehf. við Réttarhvamm.
Vonda lykt leggur frá stöðinni... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sa-slagur-i-skautahollinni-i-kvold-6 | SA-slagur í Skautahöllinni í kvöld
Tveir leikir fara fram á Íslandsmóti karla í íshokkí í kvöld. Í Skautahöllinni á Akureyri eigast við Jötnar og
Víkingar í innbyrðisviðureign Skautafélags Akureyrar og í Egilshöll mætast Björninn og Húnar í innbyrðisviðureign Bjarnarins.
Báðir leikirnir hefjast kl. 19:30. Víkingar og H... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/afram-fritt-i-sund-fyrir-atvinnuleitendur-a-akureyri | Áfram frítt í sund fyrir atvinnuleitendur á Akureyri
Íþróttaráð samþykkti á síðasta fundi sínum að halda áfram að veita Akureyringum, sem skráðir eru að fullu
sem atvinnuleitendur, frían aðgang að Sundlaugum Akureyrarbæjar. Tilboð þetta gildir alla virka daga tímabilið 1. október 2011 til 15. maí
2012.
Á fundinum var l... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ljodahatid-i-eyjafirdi | Ljóðahátíð í Eyjafirði
Um næstu helgi verður haldin Ljóðahátíð í Eyjafirði. Aðstandendur hennar eru Verksmiðjan á Hjalteyri, Populus tremula og
Skógræktarfélag Eyfirðinga. Hin árlega Ljóðaganga í eyfirskum skógi verður að þessu sinni hluti hátíðarinnar og
nú haldin í Grundarskógi í Eyjafirði.
Dagskráin verður þríþætt e... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bodid-upp-a-klassiskar-biomyndir-i-hofi-i-vetur | Boðið upp á klassískar bíómyndir í Hofi í vetur
KvikYndi, Bíó Paradís og Menningarhúsið Hof hafa tekið höndum saman og ætla að bjóða upp á kvikmyndasýningar í
vetur. Sýningarnar fara fram í Hamraborg, stóra sal Hofs, í fullkomnum hljóð og myndgæðum. Andrúmsloft kvikmyndanna verður fært
í Hof og leitast verður eftir að ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/starfshopur-skipadur-vegna-alvarlegrar-stodu-svartfuglastofna | Starfshópur skipaður vegna alvarlegrar stöðu svartfuglastofna
Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, hefur skipað starfshóp sem ætlað er að gera tillögur um aðgerðir sem stuðlað geti
að endurreisn svartfuglastofna hér við land. Þá skal hópurinn gera tillögur um hvernig megi styrkja verndun og sjálfbæra nýtingu stofn... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/logreglumenn-samningslausir-og-verda-ad-endurheimta-verkfallsrettinn | Lögreglumenn samningslausir og verða að endurheimta verkfallsréttinn
Stjórn Lögreglufélags Eyjafjarðar hefur sent frá sér ályktun eftir félagsfund sem haldinn var fyrir helgi. Þar kemur fram að
lögreglumenn hafi verið kjarasamningslausir í 288 daga og að það sé með öllu óviðunandi. Viðmiðunarstéttir hafi fengið
áunnar ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/motastjori-ksi-engin-osk-um-ad-leiknum-yrdi-frestad | Mótastjóri KSÍ: Engin ósk um að leiknum yrði frestað
„Stutta skýringin er sú að fyrst að Þórsararnir voru komnir á svæðið að þá bar okkur skylda að athuga hvort
hægt væri að leika. Dómarinn kannaði vilja beggja félaga og báðir þjálfararnir vildu spila,” segir Birkir Sveinsson
mótastjóri hjá KSÍ. Það vakti athygli í gær... |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.