Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haukur-bestur-og-omar-efnilegastur
Haukur bestur og Ómar efnilegastur Haukur Heiðar Hauksson var útnefndur leikmaður ársins í meistaraflokki KA í knattspyrnu í lokahófi félagsins sem fram fór á Hótel KEA sl. laugardag. Þá var Ómar Friðriksson valinn efnilegasti leikmaðurinn. Þetta kemur fram á heimasíðu KA. Það voru leikmenn meistaraflokks og stjórnarme...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haukur-heidar-yfirgefur-ka-i-vidraedum-vid-kr
Haukur Heiðar yfirgefur KA - Í viðræðum við KR Haukur Heiðar Hauksson fyrirliði KA í knattspyrnu hefur ákveðið að yfirgefa félagið í haust og mun vera í viðræðum við KR um mögulegan samning. Þetta staðfesti Haukur við Vikudag rétt í þessu. Einnig hafa fleiri lið haft samband við hann en samkvæmt heimildum Vikudags hefu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/syningin-matur-inn-2011-i-ithrottahollinni-i-byrjun-oktober
Sýningin MATUR-INN 2011 í Íþróttahöllinni í byrjun október Sýningin MATUR-INN 2011 verður haldin í Íþróttahöllinni á Akureyri dagana 1. og 2. október næstkomandi. Sýningin er stærsti viðburður í starfsemi félagins Matur úr Eyjafirði - Local food en síðasta sýning var haldin haustið 2009 og sóttu hana 12-14 þúsund gesti...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/valur-sigradi-i-eina-leik-dagsins
Valur sigraði í eina leik dagsins Aðeins einn leikur fór fram í Pepsi-deild karla í knattspyrnu í dag en fimm leikjum var frestað vegna veðurs. Þór sótti Val heim þar sem lokatölur urðu 2:1 fyrir heimamenn. Kolbeinn Kárason kom Val yfir skömmu fyrir leikhlé en Sveinn Elías Jónsson jafnaði metin um miðjan seinni hálflei...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sa-vann-bada-leikina-i-gaer
SA vann báða leikina í gær Í gær var leikið á Íslandsmóti karla og kvenna í íshokkí og fóru báðir leikirnir fram í Skautahöllinni á Akureyri. Í karlaflokki sigraði SA Jötnar Húna 4-2 og í kvennaflokki rótburstuðu SA Ynjur lið Bjarnarins, 16-2.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/na-thorsarar-ad-tryggja-saetid-i-dag
Ná Þórsarar að tryggja sætið í dag? Fimm leikir fara fram í Pepsi-deild karla í dag, þar af hefjast fjórir kl. 17:00. Þar á meðal leikur Vals og Þórs á Vodafonevellinum. Þórsarar eru nú sex stigum frá fallsæti og fari svo að þeir nái stigi eða stigum í dag og Fram tapar sínum leik gegn Keflavík, er úrvalsdeildarsætið t...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thokkalega-anaegdir-med-sumarid-hja-nokkva
Þokkalega ánægðir með sumarið hjá Nökkva „Þetta hefur bara gengið þokkalega vel miðað hvað sumarið byrjaði seint," segir Rúnar Þór Björnsson formaður Nökkva, félags siglingamanna á Akureyri. Veðurfarið norðan heiða í sumar hefur ekki verið hliðhollt siglingafólki. Júnímánaður var sá kaldasti í tæp 60 ár og sumarið yfir...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vma-i-hop-heilsueflandi-framhaldsskola
VMA í hóp heilsueflandi framhaldsskóla Í vikunni var opnunarhátíð í Verkmenntaskólanum á Akureyri, sem skólinn tók við fána og skyldi verkefnisins; Heilsueflandi framhaldsskóli, sem er verkefni á vegum Landlæknisembættisins. Á hátíðinni mynduðu nemendur og starfsmenn keðju í kringum skólann, en formaður nemendafélagsin...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjoldi-namstaekifaera-hja-simey-i-vetur
Fjöldi námstækifæra hjá SÍMEY í vetur SÍMEY fagnar haustinu með fjölda námstækifæra fyrir Eyfirðinga, að sögn Erlu Bjargar Guðmundsdóttur framkvæmdastjóra. Hún gleðst jafnframt yfir því að Fjölmennt, fullorðinsfræðsla fatlaðra, sé orðin hluti af þeirri sterku heild sem SÍMEY er orðin með sínum 12 starfsmönnum og glæsil...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-endadi-timabilid-med-oruggum-sigri
KA endaði tímabilið með öruggum sigri KA endaði tímabilið í 1. deild karla í knattspyrnu með stæl er liðið lagði BÍ/Bolungarvík 3-0 á Akureyrarvelli í dag. Heimamenn voru heilt yfir betri í leiknum fyrir utan fyrstu tuttugu mínúturnar. Dan Howell, Davíð Rúnar Bjarnason og Guðmundur Óli Steingrímsson skoruðu mörk KA í l...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framkvaemdastjori-nordlenska-segir-naudsynlegt-ad-skera-upp-landbunadarkerfid
Framkvæmdastjóri Norðlenska segir nauðsynlegt að skera upp landbúnaðarkerfið Sigmundur Ófeigsson framkvæmdastjóri Norðlenska segir nauðsynlegt að skera upp landbúnaðarkerfið á Íslandi. "Kerfið þarf að vera gagnsætt og síðast en ekki síst skiljanlegt. Núverandi kerfi er um margt óskiljanlegt, jafnvel þeim sem starfa í g...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hlynur-haettir-med-thorka-tekur-vid-breidabliki
Hlynur hættir með Þór/KA-Tekur við Breiðabliki? Hlynur Svan Eiríksson mun hætta sem þjálfari Þórs/KA eftir að núverandi samningur rennur út í haust en þetta kemur fram á heimasíðu Þórs. Hlynur mun stýra Þór/KA í Evrópuleikjunum tveimur gegn þýska liðinu Turbine Potsdam í lok mánaðarins. Hlynur tók óvænt við liði Þórs/K...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aetlum-ad-enda-thetta-a-jakvaedum-notum
"Ætlum að enda þetta á jákvæðum nótum" "Þessi leikur leggst bara ágætlega í okkur og við ætlum að reyna að klára mótið á jákvæðu nótunum eftir skellinn á Skaganum,“ segir Ingvar Már Gíslason aðstoðarþjálfari KA. Norðanmenn taka á móti Guðjóni Þórðarsyni og félögum í BÍ/Bolungarvík í dag í lokaumferð 1. deildar karla. L...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vinna-tharf-ad-stefnumotun-sveitarfelagsins-i-oldrunarmalum
Vinna þarf að stefnumótun sveitarfélagsins í öldrunarmálum "Vinna þarf að stefnumótun sveitarfélagsins í öldrunarmálum og er það sérstaklega mikilvægt þar sem til stendur að flytja þjónustuna frá ríki til sveitarfélaga á næstu árum. Þá er nauðsynlegt að fyrir liggi áherslur og kostnaðarmat áður en málaflokkurinn flyst ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/handknattleikskonur-hita-upp-fyrir-veturinn
Handknattleikskonur hita upp fyrir veturinn Handknattleiksvertíðin hjá konunum fer senn að hefjast og um helgina fer fram Errea-mótið í meistaraflokki kvenna. Um er að ræða æfingamót sem haldið er á Seltjarnarnesi í kvöld og á morgun, laugardag. Liðin sem taka þátt eru Grótta, HK, ÍBV og KA/Þór, en norðanliðið sendir l...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ekid-a-11-ara-stulku
Ekið á 11 ára stúlku Ekið var á 11 ára stúlku á Akureyri um 12 leytið í dag er hún var á gangi yfir gatnamót við Glerárgötu. Að sögn lögreglu eru málsatvik óljós en málið er í rannsókn. Stúlkan var flutt til aðhlynningar á Sjúkrahúsið á Akureyri en hún mun ekki vera alvarlega slösuð.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/talsverd-faekkun-gistinatta-a-tjaldsvaedunum-a-akureyri
Talsverð fækkun gistinátta á tjaldsvæðunum á Akureyri Talsverð fækkun varð á fjölda gistinátta á tjaldsvæðunum á Akureyri nú í sumar, en þeim fækkaði alls um tæplega 7.400 á milli ára. Gistinætur urðu samtals um 34.300 á móti um 41.700 á síðasta ári. „Þess ber þó að geta að árið 2010 var metár í fjölda gistinátta á tja...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikil-oanaegja-med-dratt-a-framkvaemdum-vid-flokkunarstod
Mikil óánægja með drátt á framkvæmdum við flokkunarstöð Umhverfisnefnd Akureyrarbæjar lýsir yfir mikilli óánægju með þann drátt sem orðið hefur á byggingu flokkunarstöðvar Gámaþjónustu Norðurlands við Réttarhvamm en enn er langt í land með að verkið verði fullklárað. Vonda lykt leggur frá stöðinni, sem veldur miklum am...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ahugafolk-um-knattspyrnu-kvenna-stofnar-hagsmunafelag
Áhugafólk um knattspyrnu kvenna stofnar hagsmunafélag Félag áhugafólks um kvennaknattspyrnu (FÁK) var stofnað þann 19. júní sl., á 96 ára afmæli kosninga- og kjörgengisréttar kvenna á Íslandi. Megin tilgangur félagsins er að standa vörð um hag kvenna í íslenskri knattspyrnu ásamt því að búa til vettvang fyrir skoðanir ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorsteinn-farid-ad-lita-vel-ut
Þorsteinn: Farið að líta vel út Þorsteinn Ingason fyrirliði Þórs var að vonum sáttur með 2:0 sigurinn gegn Fylki í kvöld í Pepsi-deild karla í knattspyrnu. Þetta var fyrsti sigur Þórs síðan 3. ágúst er liðið lagði Fram að velli. „Það er gaman að upplifa sigurtilfinninguna aftur. Maður var búinn að gleyma því hvernig þe...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikilvaegur-sigur-thors-a-fylki
Mikilvægur sigur Þórs á Fylki Þórsarar lönduðu mikilvægum þremur stigum í kvöld er liðið lagði Fylki 2:0 á Þórsvelli í kvöld í Pepsi-deild karla í knattspyrnu. David Disztl kom Þór yfir snemma í fyrri hálfleik og Sveinn Elías Jónsson bætti við öðru marki snemma í síðari hálfleik. Með sigrinum í kvöld er Þór komið í 21 ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/reidmadurinn-ad-hefjast-med-verklegri-helgi
Reiðmaðurinn að hefjast með verklegri helgi Um næstu helgi hefst Reiðmaðurinn þetta skólaárið, með verklegri helgi í Víðidal, á Akureyri og í Borgarnesi. Námið var fyrst í boði árið 2008 og hefur þróast jafnt og þétt með breyttum kennsluháttum og áherslum við þjálfun og útfærslu æfinga. Í vetur verða 90 nemar í náminu ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oskad-eftir-byggingarleyfi-fyrir-vidbyggingu-vinbudarinnar
Óskað eftir byggingarleyfi fyrir viðbyggingu Vínbúðarinnar Á fundi skipulagsnefndar Akureyrar í vikunni var tekið fyrir erindi frá Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins, þar sem sótt er um byggingarleyfi vegna viðbyggingingar við Hólabraut 16, þar sem Vínbúðin er til húsa. Fram kemur í bókun skipulagsnefndar að úrskurðarn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjolbreytt-dagskra-a-degi-islenskrar-natturu-a-morgun
Fjölbreytt dagskrá á Degi íslenskrar náttúru á morgun Dagur íslenskrar náttúru verður haldinn hátíðlegur á morgun, föstudaginn 16. september. Efnt verður til margra viðburða víða um land í tilefni dagsins, þar sem almenningur, skólabörn, náttúrufræðingar, fjölmiðlar, háskólafólk, ráðamenn, sendiherrar, sveitarstjórnarf...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lagt-til-vid-baejarstjorn-ad-tillaga-ad-deiliskipulagi-dalsbrautar-verdi-auglyst
Lagt til við bæjarstjórn að tillaga að deiliskipulagi Dalsbrautar verði auglýst Meirihluti skipulagsnefndar Akureyrarbæjar samþykkti á fundi sínum í vikunni, að leggja til við bæjarstjórn að tillaga að deiliskipulagi Dalsbrautar verði auglýst. Auður Jónasdóttir V-lista lét bóka á fundinum að hún greiddi atkvæði gegn ti...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thad-er-kominn-timi-a-sigur
"Það er kominn tími á sigur" Þór og Fylkir mætast á Þórsvelli í dag í Pepsi-deild karla í knattspyrnu en heil umferð fer fram í deildinni í dag og hefjast allir leikirnir kl. 17:15. Eftir úrslit síðustu umferðar eru Þórsarar aðeins fjórum stigum frá fallsæti og þurfa því nauðsynlega á sigri að halda í dag. Að 18 umferð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/alcoa-segir-orkusolumal-a-nordurlandi-hafa-tekid-nyja-stefnu
Alcoa segir orkusölumál á Norðurlandi hafa tekið nýja stefnu Alcoa á Íslandi hefur sent frá sér yfirlýsingu í tilefni ummæla iðnaðaráðherra í fjölmiðlum í gær, þriðjudag, um atvinnuuppbyggingu á Bakka og aðkomu Alcoa. Fram kemur að nýjustu fréttir bendi til þess að orkusölumál á Norðurlandi hafi tekið nýja stefnu. Í lj...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/astaeda-til-bjartsyni-med-aframhaldandi-solu-og-kokubasara-kvenfelaganna
Ástæða til bjartsýni með áframhaldandi sölu og kökubasara kvenfélaganna Stjórn Kvenfélagasambands Íslands hefur haft þungar áhyggjur af framvindu mála er varða bann við heimabakstri og sölu kvenfélaganna í landinu. Stjórnin sendi af því tilefni áskorun til ráðherra málaflokksins, Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs- og landb...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oanaegja-med-ad-haetta-eigi-moltuframleidslu-i-hrisey
Óánægja með að hætta eigi moltuframleiðslu í Hrísey Umhverfisnefnd Akureyrarbæjar lýsir yfir mikilli óánægju með að ákveðið hafi verið að hætta moltuframleiðslu í Hrísey. Þessi ákvörðun var tekin án samráðs við Hríseyinga og án þess að umhverfisnefnd væri upplýst um málið eða fengið nokkuð um ákvörðunina að segja, þrát...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/askriftarkort-hofs-hafa-fengid-godar-vidtokur
Áskriftarkort Hofs hafa fengið góðar viðtökur Áskriftarkort Hofs hafa fengið frábærar viðtökur frá gestum hússins. Í boði eru þrjár tegundir af áskriftarleiðum en í hverju korti eru þrír fastir viðburðir og einn valviðburður. Áskriftarkortasala fyrir viðburði vetrarins lýkur nk. föstudag, 16. september. Kortin tryggja ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stytting-hringvegarins-med-svinvetningaleid-mikilvaeg
Stytting hringvegarins með Svínvetningaleið mikilvæg Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps tók fyrir erindi á síðasta fundi sínum, þar sem óskað var tillögu sveitarstjórnar að 2-3 forgangsverkefnum í samgöngumálum á starfssvæði Eyþings. Sveitarstjórn bendir á í svari sínu á mikilvægi styttingar hringvegarins með Svínve...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heildarfjoldi-frjokorna-i-agust-meiri-en-sjo-undanfarin-sumur
Heildarfjöldi frjókorna í ágúst meiri en sjö undanfarin sumur Heildarfjöldi frjókorna á Akureyri í ágúst reyndist um 1100 frjó/m3 sem er nokkru ofan meðallags áranna 1998-2010 og meiri fjöldi en sjö undanfarin sumur. Munar þar mestu um síðustu daga mánaðarins en þá fór hitastig upp undir 20°C og grasfrjó náðu þar með h...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/adeins-tvo-tilbod-i-bruargerd-fyrir-vinnuumferd-i-tengslum-vid-vadlaheidargong
Aðeins tvö tilboð í brúargerð fyrir vinnuumferð í tengslum við Vaðlaheiðargöng Aðeins bárust tvö tilboð í framkvæmdir við bráðabirgðabrú fyrir vinnuumferð, í tengslum við gerð Vaðlaheiðarganga. Vegagerðin bauð verkið út fyrir hönd Vaðlaheiðarganga hf. og voru tilboðin opnuð eftir hádegi í dag. G. Hjálmarsson ehf. á Aku...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haldid-upp-a-afmaeli-hrafnagilsskola-og-eyjafjardarsveitar
Haldið upp á afmæli Hrafnagilsskóla og Eyjafjarðarsveitar Föstudaginn 16. september næstkomandi verður haldið upp á 40 ára afmæli Hrafnagilsskóla og 20 ára afmæli Eyjafjarðarsveitar. Miklar framkvæmdir hafa verið á skólasvæðinu á þessu ári og verður þeim ekki að fullu lokið fyrr en í árslok. Þennan dag bjóða skólinn, s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjarhagsrammi-fyrir-naesta-ar-samthykktur-i-baejarradi
Fjárhagsrammi fyrir næsta ár samþykktur í bæjarráði Vinna við fjárhagsáætlun ársins 2012 er nú í fullum gangi hjá bæjaryfirvöldum á Akureyri. Á fundi bæjarráðs í gær var samþykkt tillaga að fjárhagsramma fyrir næsta ár. Bæjarfulltrúar A-lista, B-lista, D-lista, S-lista og V-lista lögðu fram bókun á fundinum, þar sem fr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tvimaelalaust-kostur-ad-hafa-valmoguleika-vid-husnaediskaup
Tvímælalaust kostur að hafa valmöguleika við húsnæðiskaup „Það er tvímælalaust kostur að hafa valmöguleika um óverðtryggð lán," segir Sigurður Sveinn Sigurðsson hjá Fasteignasölunni Hvammi, en nú nýverið kynntu Arion banki og Íslandsbanki viðskiptavinum sínum sem eru í fasteignahugleiðingum þann valkost að taka óverðtr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/draumur-dalvikurreynis-ur-sogunni
Draumur Dalvíkur/Reynis úr sögunni Draumur Dalvíkur/Reynis um að spila í 1. deild að ári varð úr engu er liðið tapaði gegn Völsungi um helgina í 2. deild karla. Liðin mættust á Húsavíkurvelli þar sem heimamenn í Völsungi unnu 7:3, þrátt fyrir að spila manni færri nánast allan seinni hálfleikinn, en Hrannar Björn Steing...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/yfir-thusund-atvinnuleitendur-hefja-nam-i-skolum-landsins
Yfir þúsund atvinnuleitendur hefja nám í skólum landsins Í síðustu viku var undirritaður samningur um verkefnið nám er vinnandi vegur en með því er tryggt að yfir þúsund atvinnuleitendur geta hafið nám í skólum landsins í vetur og að framhaldsskólanemendum mun fjölga um rúmlega 1.500 á milli ára. Þessi samningur er m.a...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/valur-sigradi-a-opna-nordlenska
Valur sigraði á Opna Norðlenska Valsmenn báru sigur úr býtum á opna Norðlenska mótinu í handbolta sem haldið var í íþróttahöllinni á Akureyri um helgina. Sex lið tóku átt í mótinu, Akureyri, Valur, Haukar, Stjarnan ÍR og Afturelding. Valur hafði betur í úrslitaleik á móti Haukum þar sem lokatölur urðu, 26:22, og Akurey...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oskar-eftir-utandagskrarumraedu-um-kaup-utlendinga-a-jardnaedi-a-islandi
Óskar eftir utandagskrárumræðu um kaup útlendinga á jarðnæði á Íslandi Sigmundur Ernir Rúnarsson alþingismaður Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi hefur óskað eftur utandagskrárumræðu á Alþingi um kaup útlendinga á jarðnæði á Íslandi og að Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra verði til svara. "Ég er mjög áfram um að...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/god-adsokn-ad-fjolsmidjunni-og-starfssemin-dafnar
Góð aðsókn að Fjölsmiðjunni og starfssemin dafnar „Þetta gengur nú yfirleitt alltaf mjög vel hjá okkur. Starfsemin er lífleg og þetta vex og dafnar vel hjá okkur," segir Erlingur Kristjánsson forstöðumaður hjá Fjölsmiðjunni á Akureyri. Félagsmálaráð samþykkti nýlega að veita Fjölsmiðjunni á Akureyri 4 milljónir króna í...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorsarar-lagu-a-hasteinsvelli
Þórsarar lágu á Hásteinsvelli Eftir leiki dagsins í Pepsi-deild karla í knattspyrnu er Þór aðeins fjórum stigum frá fallsæti. Þórsarar sóttu ÍBV heim þar sem Eyjamenn unnu 3:1. Jóhann Helgi Hannesson kom Þór yfir um miðjan fyrri hálfleikinn en Aaron Spear jafnaði metin fyrir hálfleik. Andri Ólafsson bætti við tveimur m...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kristinn-haettir-sem-framkvaemdastjori-ithrottadeildar
Kristinn hættir sem framkvæmdastjóri íþróttadeildar Kristinn Svanbergsson framkvæmdastjóri íþróttadeildar Akureyrarbæjar hefur sagt upp störfum en hann hyggst snúa sér að öðrum verkefnum, eftir að uppsagnarfrestur hans rennur út þann 1. desember nk. Kristinn hefur verið framkvæmdastjóri íþróttadeildar í á tíunda ár og ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ia-vann-storsigur-a-ka
ÍA vann stórsigur á KA Topplið ÍA tók KA-menn í gegn í dag er liðin mættust á Akranesvelli í 1. deild karla í knattspyrnu. Skagamenn unnu 5:0 þar sem íþróttafréttamaðurinn Hjörtur Hjartarsson skoraði þrennu, þar af tvö mörk á uppbótartíma. Einnig skoruðu þeir Fannar Freyr Gíslason og Mark Doninger fyrir ÍA. KA-menn lék...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sigur-hja-thorka-i-lokaleiknum
Sigur hjá Þór/KA í lokaleiknum Þór/KA bar sigurorð af KR er liðin mættust á Þórsvelli í lokaumferð Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu í dag. Lokatölur urðu 4:0. Heimamenn höfðu mikla yfirburði í leiknum, þá sérstaklega í fyrri hálfleik. Staðan í hálfleik var 3:0 en þær Sandra Maria Jessen, Manya Makoski og Maria Perez-...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aukning-i-innanlandsflugi-og-fleiri-storar-einkavelar
Aukning í innanlandsflugi og fleiri stórar einkavélar Sigurður Hermannsson umdæmisstjóri Isavia á Norðurlandi, segir að sumarið sem senn er á enda hafi verið alveg þokkalegt í fluginu. Það sem af er hafi orðið nokkur aukning í innanlandsfluginu á milli Akureyrar og Reykjavíkur á milli ára og þá hafi komið til bæjarins ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/um-750-nemendur-i-menntaskolanum-a-akureyri-i-vetur
Um 750 nemendur í Menntaskólanum á Akureyri í vetur Menntaskólinn á Akureyri verður settur í næstu viku, miðvikudaginn 14. september, og kennsla hefst samkvæmt stundaskrá daginn eftir. Í vetur eru 748 nemendur skráðir til náms, 227 í fyrsta bekk, 204 í öðrum bekk, 163 í þriðja bekk og stúdentsefnin eru 154. Bekkjardeil...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/their-fa-ekkert-gefins-hja-okkur
„Þeir fá ekkert gefins hjá okkur” „Já ég fer heldur betur á kunnuglegar slóðir og það verður gaman að koma aftur heim,” segir Gunnlaugur Jónsson þjálfari KA. Norðanmenn sækja ÍA heim í dag í 21. umferð 1. deildar karla, en Gunnlaugur gerði einmitt garðinn frægan sem leikmaður hér áður fyrr með ÍA og var m.a. fyrirliði ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lokaumferd-pepsi-deildar-kvenna-i-dag
Lokaumferð Pepsi-deildar kvenna í dag Lokaumferð Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu fer fram í dag og hefjast allir fimm leikirnir kl. 13:00. Lítil spenna er fyrir þessa lokaumferð. Þegar er orðið ljóst að Stjarnan er Íslandsmeistari og að Grindavík og Þróttur R. falla. Þá eru Valsstúlkur öruggar með annað sæti deildar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/raett-um-enn-meiri-staekkun-a-verksmidju-becromal
Rætt um enn meiri stækkun á verksmiðju Becromal Bæjaryfirvöld á Akureyri hafa átt í viðræðum við forsvarsmenn Becromal um stækkun aflþynnuverksmiðjunnar í Krossanesi. Fram kom í máli Eiríks Björns Björgvinssonar bæjarstjóra á fundi bæjarstjórnar í vikunni, að rætt hafi verið um að verksmiðjan yrði stækkuð um 8.000 ferm...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/upppsagnir-hja-slokkvilidinu-a-akureyri
Upppsagnir hjá slökkviliðinu á Akureyri Fimm starfsmönnum Slökkviliðs Akureyrar var sagt upp störfum um síðustu mánaðarmót og tekur uppsögnin gildi þann 1. desember nk. Stöður fjögurra annarra sem hafa haft starfstöð á vellinum leggjast einnig af. Uppsagnirnar tengjast því að Isavia tekur yfir þá þjónustu sem Slökkvili...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tillogur-um-endurbyggingu-oasaettanlegar-med-tilliti-til-adgengis-fatladra
Tillögur um endurbyggingu óásættanlegar með tilliti til aðgengis fatlaðra Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra á Akureyri telur fyrirliggjandi teikningar af Hafnarstræti 98 sem fela ekki í sér aðgengi fyrir alla inn í húsið, verslun svo og gistirými, óásættanlegar, segir í bókun frá síðasta fundi nefndarinnar. Fyrirhugu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hiti-i-monnum-a-ibuafundi-um-tillogu-ad-deiliskipulagi-dalsbrautar
Hiti í mönnum á íbúafundi um tillögu að deiliskipulagi Dalsbrautar Töluverður hiti var í fundarmönnum á íbúafundi um tillögu að deiliskipulagi Dalsbrautar, sem haldinn var í Lundarskóla í gærkvöld. Húsfyllir var í sal Lundarskóla en þegar nokkuð var liðið á fundinn gengu fjölmargir óánægðir gestir af fundi. Langflestir...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/landsbankinn-og-innovit-i-atvinnu-og-nyskopunaratak
Landsbankinn og Innovit í atvinnu- og nýsköpunarátak Landsbankinn og Innovit nýsköpunar- og frumkvöðlasetur hafa undirritað samning um atvinnu- og nýsköpunarhelgar. Helgarnar eru samstarfsverkefni Landsbankans, Innovit og sveitarfélaga landsins en fyrirhugað er að halda að lágmarki sex slíkar helgar nú í vetur. Meginma...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/er-fulltrui-umbodsmanns-skuldara-a-leidinni-nordur
Er fulltrúi umboðsmanns skuldara á leiðinni norður? Bæjarfulltrúum á Akureyri var tíðrætt um embætti umboðsmanns skuldara, á fundi bæjarstjórnar í vikunni. Mjög lengi hefur verið unnið að því að fá fulltrúa frá embættinu til starfa á Akureyri en án árangurs. Nú þegar um þrjú ár eru liðin frá efnahagshruninu, sér loks f...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarrad-styrkir-ka-og-ga-vegna-kalskemmda-a-svaedum-felaganna
Bæjarráð styrkir KA og GA vegna kalskemmda á svæðum félaganna Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi sínum í morgun að styrkja Knattspyrnufélag Akureyrar um hálfa milljón króna og Golfklúbb Akureyrar um 2 milljónir króna vegna kalskemmda á svæðum félaganna. Áður hafði íþróttaráð lagt til að KA og GA yrði veittur fjárstuð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rumlega-180-thusund-tonna-upphafsheimild-i-lodnu
Rúmlega 180 þúsund tonna upphafsheimild í loðnu Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra gaf í dag út heimild til íslenska loðnuveiðiskipa á komandi loðnuvertíð til veiða á 181.269 lestum af loðnu. Um er að ræða upphafsheimild sem er nokkru fyrr á ferðinni nú en síðasta vetur þar sem ráðgjöf Hafrannsóknastofn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fylgst-med-okuhrada-i-skolahverfum-a-akureyri
Fylgst með ökuhraða í skólahverfum á Akureyri Að venju hefður lögreglan á Akureyri haldið uppi eftirliti m.a. með ökuhraða við skóla bæjarins í upphafi þessa skólaárs. Til þess hefur hún notað merkta sem ómerkta bíla og þá einnig verið með færanlega hraðamyndavél sem hefur sýnt það glögglega að ökuhraði er ekki alltaf ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/magni-spilar-um-thridja-saetid
Magni spilar um þriðja sætið KV hefur tryggt sér sæti í 2. deild karla eftir sigur gegn Magna í undanúrslitum 3. deildarinnar. KV vann fyrri leikinn á heimavelli 7:1 um liðna helgi en liðin gerðu svo 3:3 jafntefli fyrir norðan í seinni leiknum í gær. KV vann því einvígið 10:4. Í leiknum í gær skoruðu þeir Ibra Jagne, A...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vetrarfaerd-a-nordurlandi
Vetrarfærð á Norðurlandi Vetrarfærð er á nokkrum vegum á Norður- og Norðausturlandi. Það er krap á Vatnsskarði og Þverárfjalli, og eins á Siglufjarðarvegi og í Héðinsfirði. Á Víkurskarði er krap og éljagangur, og hálkublettir eru á Mývatnsöræfum. Dæmi eru um að ökumenn á litlum bílum og sumardekkjum, hafi þurft að snúa...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stefnt-ad-thvi-ad-landsmot-umfi-50-verdi-haldid-i-eyjafjardarsveit
Stefnt að því að landsmót UMFÍ 50+ verði haldið í Eyjafjarðarsveit UMSE hefur hug á því að sækja um landsmót UMFÍ 50+. UMSE telur að Eyjafjarðarsveit sé í stakk búin til að taka við mótinu án þess að til mikilla framkvæmda þurfi að koma. Íþrótta- og tómstundanefnd hefur fjallað um málið og telur að svo lengi sem að sve...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heimildarmyndin-bakka-baldur-frumsynd-i-bergi-a-dalvik
Heimildarmyndin Bakka-Baldur frumsýnd í Bergi á Dalvík Villingur kynnir í samstarfi við REC BAKKA Baldur heimildarmyndina Bakka-Baldur en frumsýning myndarinnar verður í Bergi menningarhúsi á Dalvík á morgun, fimmtudaginn 8. september kl. 18:00. Myndin verður svo sýnd á föstudag, laugardag og sunnudag kl. 20.00. Leikst...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/um-180-konur-fra-fjorum-londum-saekja-umdaemisthing-zonta-a-akureyri
Um 180 konur frá fjórum löndum sækja umdæmisþing Zonta á Akureyri Umdæmisþing Zonta International í umdæmi 13 verður haldið á Akureyri í þessari viku, dagana 8. - 11. september. Um 180 konur, frá Íslandi, Damörku, Noregi og Litháen mæta á þingið og koma rúmlega 100 þeirra erlendis frá. Zontasamtökin eru alþjóðleg hreyf...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sif-tekur-saeti-i-felagsmalaradi
Sif tekur sæti í félagsmálaráði Á fundi bæjarstjórnar Akureyrar í gær var lögð fram tillaga A-listans um breytingu á skipan fulltrúa framboðsins í félagsmálaráði. Sif Sigurðardóttir, tekur sæti aðalmanns í stað Önnu Hildar Guðmundsdóttur, sem verður varamaður í stað Sifjar. Bæjarstjórn samþykkti tillöguna með 11 samhlj...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/einar-threfaldur-islandsmeistari
Einar þrefaldur Íslandsmeistari Bræðurnir Bjarki og Einar Sigurðssynir hafa gert góða hluti í mótorsportinu í sumar og unnið til fjölda verðlauna. Einar varð þrefaldur Íslandsmeistari, en hann sigraði í 85cc flokki í Motocrossi og í Enduro og einnig sigraði Einar í 85cc flokki á Unglingalandsmótinu á Egilstöðum. Þá náð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/menningarminjadagur-evropu-her-a-landi-haldinn-a-fimmtudag
Menningarminjadagur Evrópu hér á landi haldinn á fimmtudag Menningarminjadagur Evrópu hér á landi verður haldinn fimmtudaginn 8. september nk. Þema dagsins að þessu sinni er menningarlandslag. Í tilefni dagsins mun Sigurður Bergsteinsson minjavörður Norðurlands eystra halda erindið Minningar og minjar í menningarlandsl...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ibuafundur-um-deiliskipulag-vaentanlegrar-dalsbrautar
Íbúafundur um deiliskipulag væntanlegrar Dalsbrautar Bæjaryfirvöld á Akureyri hafa boðað til íbúafundar á fimmtudagskvöld, 8. september, vegna deiliskipulagsins "Dalsbraut frá Þingvallastræti að Miðhúsabraut". Fundurinn verður í Lundarskóla og hefst kl. 20.30. Bæjarbúar eru hvattir til að mæta á fundinn og kynna sér sk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nagrannaslagnum-frestad
Nágrannaslagnum frestað Ekkert verður af fyrirhuguðum leik Víkinga og Jötna í Skautahöllinni á Akureyri á Íslandsmóti karla í íshokkí. Samkvæmt upplýsingum hjá ÍHÍ forfallaðist dómari leiksins og ekki þótti ástæða til að fá annan dómara sökum kostnaðar. Ekki er búið að ákveða hvenær leikurinn fari fram en það skýrist á...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/maeldur-a-yfir-160-km-hrada-i-hedinsfjardargongum
Mældur á yfir 160 km hraða í Héðinsfjarðargöngum Lögreglumenn á eftirliti í Héðinsfjarðargöngum mældu í gærkvöld bifreið á yfir 160 km/klst hraða en bifreiðin var að aka frá Ólafsfirði til Siglufjarðar. Hámarkshraði í Héðinsfjarðargöngunum er 70 km/klst. Lögreglumenn misstu sjónar af bifreiðinni en haft var upp á ökuma...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sa-slagur-i-skautahollinni-i-kvold-5
SA-slagur í Skautahöllinni í kvöld Einn leikur fer fram á Íslandsmóti karla í íshokkí í kvöld en þá mætast Víkingar og Jötnar í innbyrðisviðureign Skautafélags Akureyrar. Víkingar léku gegn Birninum um helgina og töpuðu 3:4 en Jötnar leika sinn fyrsta leik í kvöld á tímabilinu. Leikurinn verður í Skautahöllinni og hefs...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/althjodadagur-laesis-a-fimmtudag
Alþjóðadagur læsis á fimmtudag Alþjóðadagur um læsi er á fimmtudag, 8. september og hefur skólaþróunarsvið Háskólans á Akureyri haft frumkvæði um að vekja athygli á þessum degi og mikilvægi læsis. Amtsbókasafnið, Akureyrarstofa og fleiri hafa svo komið að þessu með vinnuframlagi. Meðal þess sem, gert hefur verið er upp...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vidbrogd-vid-opnunarskilyrdum-esb-um-landbunadarmal
Viðbrögð við opnunarskilyrðum ESB um landbúnaðarmál Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra barst í dag rýniskýrsla ESB um landbúnaðarmál þar sem Íslandi eru sett skilyrði fyrir því að farið sé í samningaviðræður um landbúnaðarmál. Ráðherra telur að það þurfi að liggja ljósar fyrir að sú áætlunargerð sem ESB krefst feli e...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/verkefnid-gongum-i-skolann-verdur-sett-a-midvikudag
Verkefnið Göngum í skólann verður sett á miðvikudag Verkefnið; Göngum í skólann, verður sett í Síðuskóla á Akureyri miðvikudaginn 7. september kl. 10.00. Í ár tekur Ísland þátt í fimmta skipti í alþjóðlega verkefninu, sem hófst í Bretlandi árið 2000 og hefur þátttaka stöðugt farið vaxandi. Hér á landi stefnir í metþátt...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haukur-heidar-sennilega-ur-leik
Haukur Heiðar sennilega úr leik Haukur Heiðar Hauksson fyrirliði KA í knattspyrnu er sennilega úr leik það sem eftir er tímabils. Haukur varð fyrir ökklameiðslum í leiknum gegn Víkingi Ó. á laugardaginn var og varð að yfirgefa völlinn í fyrri hálfleik. "Þetta lítur ekki vel út og ég reikna með að hann verði ekki meira ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrsta-draumahoggid-slegid-a-jadarsvelli-i-sumar
Fyrsta "draumahöggið" slegið á Jaðarsvelli í sumar Andri Geir Viðarsson náði þeim áfanga að fara holu í höggi á Jaðarsvellinum sl. laugardag en "draumahögginu" náði Andri á 18. braut á BYKO-mótinu. Þetta er jafnframt í fyrsta sinn í sumar sem einhver nær að fara holu í höggi en þetta var nánast vikulegur atburður í fyr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-og-ga-fai-fjarstudning-vegna-kalskemmda-a-svaedum-felaganna
KA og GA fái fjárstuðning vegna kalskemmda á svæðum félaganna Á síðasta fundi íþróttaráðs voru tekin fyrir erindi, annars vegar frá Knattspyrnufélagi Akureyrar og hins vegar frá Golfklúbbi Akureyrar, þar sem óskað er eftir fjárhagslegum stuðningi vegna kalskemmda á svæðum félaganna. KA óskar eftir því að bærinn leggi f...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sa-hof-titilvornina-med-sigri
SA hóf titilvörnina með sigri Íslandsmót kvenna í íshokkí hófst í Skautahöllinni á Akureyri sl. laugardag þar sem SA Ásynjur (áður Valkyrjur) tóku á móti Birninum. Heimamenn unnu örugglega 5:2. Sarah Smiley skoraði tvívegis fyrir SA Ásynjur og þær Bergþóra Bergþórsdóttir, Þorbjörg Geirsdóttir og Guðrún Marín Viðarsdótt...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aukasyning-um-naestu-helgi-a-gledileiknum-husmodirinn
Aukasýning um næstu helgi á gleðileiknum Húsmóðirinn Leikhópurinn Vesturport sýndi Húsmóðurina í Menningarhúsinu Hofi um helgina og sló gleðileikurinn heldur betur í gegn hjá Akureyringum. Því hefur verið ákveðið að bæta við aukasýningu næsta laugardag, 10. september, þar sem færri komust að en vildu um helgina. Í Húsm...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vadlaheidargong-bradabirgdabru-fyrir-vinnuumferd-bodin-ut
Vaðlaheiðargöng - bráðabirgðabrú fyrir vinnuumferð boðin út Vegagerðin, f.h. Vaðlaheiðarganga hf., hefur óskað eftir tilboðum í framkvæmdir við bráðabirgðabrú fyrir vinnuumferð, í tengslum við gerð Vaðlaheiðarganga. Um er að ræða tilboð í gerð stöpla undir bráðabirgðabrú yfir Hringveg (1) við fyrirhugaðan munna Vaðlahe...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framsyn-vill-raeda-hugsanlega-uppbyggingu-ferdathjonustu-a-grimsstodum
Framsýn vill ræða hugsanlega uppbyggingu ferðaþjónustu á Grímsstöðum Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar- stéttarfélags kom saman til fundar síðdegis í gær. Helstu málefni fundarins voru atvinnumál í héraðinu og kaup Huang Nubo á Grímsstöðum á Fjöllum. Land Grímsstaða er á félagssvæði Framsýnar og því koma félagsmenn ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/starf-forstodumanns-nyrrar-menningarmidstodvar-i-listagilinu-auglyst
Starf forstöðumanns nýrrar menningarmiðstöðvar í Listagilinu auglýst Akureyrarstofa hefur auglýst laust til umsóknar, starf forstöðumanns nýrrar menningarmiðstöðvar í Listagilinu. Í miðstöðinni sameinast undir einum hatti starfsemi Listasafnsins á Akureyri og Menningarmiðstöðvarinnar í Listagili. Markmið breytinganna e...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyrskir-verktakar-ohressir-med-framkvaemd-verdkonnunar
Akureyrskir verktakar óhressir með framkvæmd verðkönnunar Sex verktökum, fjórum á Akureyri og tveimur í Skagafirði, var boðið að taka þátt í lokaðri verðkönnun vegna framkvæmda við vatnslögn og raflögn á Svalbarðsströnd, milli Svalbarðseyrar og Hallands. Um er ræða verkþátt á vegum Norðurorku og Rarik, í tengslum við f...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/styrktarganga-gongum-saman-um-allt-land
Styrktarganga Göngum saman um allt land Í dag, sunnudaginn 4. september, verður árleg styrktarganga Göngum saman. Í ár verður gengið á ellefu stöðum á landinu. Fullorðnir þátttakendur eru beðnir um að greiða kr. 3.000 og renna göngugjöldin óskipt í styrktarsjóð félagsins. Öll vinna við undirbúning og framkvæmd er unnin...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bjorninn-lagdi-islandsmeistarana-ad-velli
Björninn lagði Íslandsmeistarana að velli SA Víkingar hófu titilvörnina á Íslandsmóti karla í íshokkí með tapi gegn Birninum í kvöld, 3:4, en leikið var í Skautahöllinni á Akureyri. Björninn komst í 2:0 með mörkum frá Matthíasi Sigurðssyni og Steindóri Ingasyni og þannig var staðan eftir fyrstu lotu. SA jafnaði metin í...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorka-skoradi-sjo-mork-a-valbjarnarvelli
Þór/KA skoraði sjö mörk á Valbjarnarvelli Þór/KA var ekki í vandræðum með Þrótt.R er liðin mættust á Valbjarnarvelli í dag í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu. Lokatölur urðu 1:7 Þór/KA í vil. Mateja Zver átti stórleik fyrir norðanmenn en hún skoraði þrennu. Einnig skoruðu þær Manya Makoski, Marie Perez-Fernandez og Arn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haukur-med-tvo-i-sigri-ka
Haukur með tvö í sigri KA Haukar Heiðar Hauksson fyrirliði KA skoraði tvívegis fyrir norðanmenn sem lögðu Víking frá Ólafsvík í miklum markaleik á Akureyrarvelli í dag í 1. deild karla í knattspyrnu. Lokatölur urðu 4:3. Þetta er í annað sinn á stuttum tíma sem Haukar Heiðar, sem er bakvörður og ekki þekktur fyrir marka...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skuldir-nordurorku-hafa-nanast-ekkert-laekkad-a-arinu
Skuldir Norðurorku hafa nánast ekkert lækkað á árinu Þrátt fyrir að greitt hafi verið af lánum samkvæmt áætlun hafa gengisþróun og verðbætur valdið því að skuldir Norðurorku hf. hafa nánast ekkert lækkað fyrstu sex mánuði ársins og gæti það haft veruleg áhrif til hins verra á afkomu fyrirtækisins á árinu. Franz Árnason...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/islandsmotid-i-ishokki-rullar-af-stad-i-dag
Íslandsmótið í íshokkí rúllar af stað í dag Íslandsmótið í íshokkí hefst í dag í bæði karla og kvennaflokki þegar leikið verður í Skautahöllinni á Akureyri. Skautafélag Akureyrar (SA) hefur titil að verja í bæði karla-og kvennaflokki. Í karlaflokki er sú breyting á í vetur að liðunum fjölgar um eitt og verða fimm talsi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fugl-a-4-braut
Fugl á 4. braut Það er talað um að kylfingar fái fugl leiki þeir holu á einu höggi undir pari. Kylfingar sem voru að leika golf á Jaðarsvelli Golfklúbbs Akureyrar í vikunni, fundu hins vegar fugl þegar þeir voru að leika 4. braut vallarins. Um var að ræða dauða branduglu, sem hékk á öðrum vængnum á gaddavírsgirðingu og...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samkaup-og-thorka-framlengja-samstarfssamning-um-thrju-ar
Samkaup og Þór/KA framlengja samstarfssamning um þrjú ár Knattspyrnudeild Þórs og Samkaup, sem undanfarin ár hefur verið einn af aðal styrktaraðilum kvennalið Þórs/KA, undirrituðu nýjan samstarfssamning og mun samstarfið gilda til næstu þriggja ára. Nói Björnsson frá kvennaráði sagði að þetta væri afar ánægjulegt. Samk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-faer-viking-o-i-heimsokn
KA fær Víking Ó. í heimsókn KA fær Víking Ó. í heimsókn á Akureyrarvöll í dag þegar þrír leikir fara fram í 20. umferð 1. deildar karla í knattspyrnu og hefst leikurinn kl. 14:00. Lítið er undir hjá báðum liðum í leiknum þar sem KA er laust við fall og Víkingur úr leik í baráttunni um annað sæti deildarinnar. KA-menn e...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aflabrogd-god-og-vel-hefur-gengid-i-vinnslunni-hja-samherja
Aflabrögð góð og vel hefur gengið í vinnslunni hjá Samherja Skip Samherja hafa verið að koma til hafnar að undanförnu með mikinn afla og aflaverðmæti og það hefur því verið mikið um að vera í Eyjafirðinum. Kristján Vilhelmsson framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja segir að aflabrögð hafi verið góð, staða á mörkuðum s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/medferdarheimilid-a-laugalandi-heldur-tonleika-i-minningu-sissu
Meðferðarheimilið á Laugalandi heldur tónleika; „Í minningu Sissu“ Meðferðarheimilið á Laugalandi fékk þá hugmynd á vordögum að halda tónleika til þess að styrkja minningarsjóð Sigrúnar Mjallar Jóhannesdóttir. Sigrún Mjöll eða Sissa eins og hún var oftast kölluð var í meðferð á Laugalandi og átti góða tíma þar. Hún lés...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/verkefnid-fra-ongli-i-maga-er-komid-af-stad-a-ny
Verkefnið “Frá öngli í maga” er komið af stað á ný Skóladeild Akureyrararbæjar gerði í fyrsta sinn á dögunum, formlegan samning við Hollvini Húna II, vegna verkefnisins, „Frá öngli í maga", sem er fyrir nemendur í 6. bekk. Hollvinir fengu styrk að upphæð 1 milljón króna til ungmennastarfs. Verkefnið hefur verið í gangi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/raektunarsamband-floa-og-skeida-baud-laegst-i-jardboranir
Ræktunarsamband Flóa og Skeiða bauð lægst í jarðboranir Ræktunarsamband Flóa og Skeiða ehf. átti lægsta tilboð í jarðboranir í Hörgársveit en tilboðin voru opnuð í vikunni. Fyrirtækið bauð tæpar 8 milljónir króna í verkið en kostnaðaráætlun hljóðar upp á 10 milljónir króna. Borun á hitastigulsholunum var boðin út um mi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fagnar-aformum-um-nyja-og-storhuga-ferdathjonustu
Fagnar áformum um nýja og stórhuga ferðaþjónustu Markaðsstofa ferðamála á Norðurlandi fagnar þeim áformum Hr. Huang Nubo að standa fyrir nýrri og stórhuga uppbyggingu í ferðaþjónustu á Norðurlandi. Öll ný fjárfesting í ferðaþjónustu sem fellur að lögum og reglum og fylgir markmiðum um sjálfbæra nýtingu og umhverfisvæna...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/arion-banki-bydur-hagstaed-overdtryggd-ibudalan
Arion banki býður hagstæð óverðtryggð íbúðalán Arion banki mun frá 15. september bjóða viðskiptavinum sínum óverðtryggð íbúðalán til 25 eða 40 ára. Lánin eru með föstum vöxtum til fimm ára. Á fimm ára fresti eru vextirnir endurskoðaðir og taka mið af markaðsvöxtum sem í gildi eru á hverjum tíma. Viðskiptavinir geta ein...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atli-fer-aftur-ut-til-hollands
Atli fer aftur út til Hollands „Þetta var fín ferð og mér leist bara vel á þetta,“ segir Atli Sigurjónsson leikmaður Þórs. Atli æfði með hollenska liðinu NEC Nijmegen í vikutíma á dögunum þar sem hann freistar þess að fá samning. Hann segist ætla að klára sumarið með Þór en reiknar með að halda svo aftur út til Holland...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikilvaegt-ad-enda-timabilid-med-soma
Mikilvægt að enda tímabilið með sóma Eftir úrslit síðustu helgar í 1. deild karla er ljóst að KA heldur sæti sínu í deildinni. Eftir 3:0 sigur gegn Gróttu á útivelli í síðustu umferð er KA komið með 23 stig í áttunda sæti deildarinnar þegar þrjár umferðir eru eftir og geta því ekki hafnað neðar en í tíunda sæti. „Þetta...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gestir-virda-kyrnar-fyrir-ser-ur-glerskala-a-kaffi-ku
Gestir virða kýrnar fyrir sér úr glerskála á Kaffi Kú „Það var strax mikill áhugi á því að koma hingað í heimsókn og við höfum tekið á móti hópum á liðnum misserum, en nú göngum við skrefið til fulls og opnum formlega veitingaaðstöðu," segir Einar Örn Aðalsteinsson, sem í félagi við föður sinn, Aðalstein Hallgrímsson b...