Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.vikubladid.is/is/frettir/svaedisleidsogunam-a-nordurlandi-a-vegum-simenntunar-ha
Svæðisleiðsögunám á Norðurlandi á vegum Simenntunar HA Símenntun Háskólans á Akureyri býður upp á Svæðisleiðsögunám á Norðurlandi í samvinnu við Leiðsöguskólann í MK og SBA- Norðurleið. Námið er 22 einingar og fer fram á vor- og haustönn 2011 við Háskólann á Akureyri. Námið verður einnig í boði í fjarkennslu á starfssv...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ofaert-um-vikurskard-og-ljosavatnsskard
Ófært um Víkurskarð og Ljósavatnsskarð Á Norðurlandi eystra er þæfingsfærð í Eyjafirði. Búið er að hreinsa veginn um Ólafsfjarðarmúla og þar er snjóþekja. Ófært er í Víkurskarði og Ljósavatnsskarði en þar féll snjóflóð og er verið að kanna aðstæður. Ófært er á Mývatnsöræfum og verið að skoða aðstæður. Þungfært er á Öxn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrirlidi-thors-i-korfubolta-haettur-med-lidinu
Fyrirliði Þórs í körfubolta hættur með liðinu Þórsarar hafa orðið fyrir blóðtöku í 1.deild karla í körfubolta en þeir Bjarki Ármann Oddsson, fyrirliði liðsins, og Bjarni Konráð Árnason hafa báðir ákveðið að hætta að leika með liðinu. Eftir því sem fram kemur á heimasíðu Þórs er það vegna anna sem þeir báðir tóku þessa ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nagrannaslagur-i-skautahollinni-i-kvold-1
Nágrannaslagur í Skautahöllinni í kvöld Það verður nágrannaslagur milli SA-liðanna í Skautahöllinni á Akureyri í kvöld er SA Valkyrjur og SA Ynjur mætast kl. 19:30 á Íslandsmóti kvenna í íshokkí. SA Valkyrjur eru langefstar í deildinni með 21 stig en SA Ynjur hafa 7 stig í þriðja sæti.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/brotist-inn-hja-aflinu-og-tolvu-samtakanna-stolid
Brotist inn hjá Aflinu og tölvu samtakanna stolið Brotist var inn hjá Aflinu - samtökum gegn heimilis og kynferðisofbeldi á Norðurlandi og var tölvu samtakanna stolið. Í þessari tölvu eru gögn sem gagnast samtökunum eingöngu, og því er mikilvægt að hún komast aftur í réttar hendur sem fyrst. "Við heitum fundarlaunum fy...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nordursprotar-afhentu-styrki-vegna-godra-vidskiptahugmynda
Norðursprotar afhentu styrki vegna góðra viðskiptahugmynda Norðursprotar afhentu formlega í dag tíu styrki vegna góðra viðskiptahugmynda og fór athöfnin fram í hátíðarsal Háskólans á Akureyri. Markmiðið með Norðursprotum er að stuðla að nýsköpun í atvinnulífi á Norðausturlandi, frá Eyjafirði til Djúpavogs og fjölga þan...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oddur-gretarsson-i-hm-hopnum
Oddur Gretarsson í HM hópnum Oddur Gretarsson er einn af 17 leikmönnum sem Guðmundur Þ. Guðmundsson landsliðsþjálfari hefur valið til þátttöku á HM í handbolta sem hefst í Svíþjóð næstkomandi fimmtudag. Þeir leikmenn sem ekki fara með eru markvörður Akureyrar, Sveinbjörn Pétursson og Sturla Ásgeirsson frá Val. HM-hópur...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vegurinn-um-olafsfjardarmula-lokadur-vegna-snjoflodahaettu
Vegurinn um Ólafsfjarðarmúla lokaður vegna snjóflóðahættu Á Norðurlandi eystra er hálka eða snjóþekja og ofankoma og er vegurinn um Ólafsfjarðarmúla lokaður vegna snjóflóðahættu. Þæfingsfærð og skafrenningur er á veginum á Árskógsströnd og út á Ólafsfjörð einnig á Víkurskarði og Grenivíkurvegi. Þæfingsfærð og óveður er...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gestasyningin-jesus-litli-fra-borgarleikhusinu-synd-i-hofi
Gestasýningin Jesús litli frá Borgarleikhúsinu sýnd í Hofi Gestasýningin Jesús litli, frá Borgarleikhúsinu, verður sýnd í Hofi frá 15. janúar á vegum Leikfélags Akureyrar og einungis í takmarkaðan tíma. Miðasala er í fullum gangi og er orðið uppselt á margar sýninganna. Það er því vissara fyrir fólk að hafa hraðan á og...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kristjan-sigurolason-i-radir-thors-a-ny
Kristján Sigurólason í raðir Þórs á ný Knattspyrnumaðurinn Kristján Sigurólason, sem leikið hefur í Noregi undanfarin ár, hefur gengið til liðs við Þór á ný. Þetta er staðfest á vef Þórs. Kristján er 22 ára varnarmaður og er uppalinn Þórsari. Hann á að baki 58 leiki með liðinu í deild-og bikarkeppni. Fyrir hafði Þór fe...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ofaerd-og-ovedur-a-akureyri
Ófærð og óveður á Akureyri Norðanáhlaup hefur geysað á Norðurlandi í dag og hefur lögreglan á Akureyri í samstarfi við Björgunarsveitina Súlur haft í nægu að snúast. Verkefni byrjuðu að detta inná borð lögreglu uppúr miðnætti sl. nótt og urðu þau þó nokkur yfir nóttina en álagið jókst verulega um kl. 07:00 í morgun og ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/minningarhatid-um-bjorgvin-gudmundsson-tonskald
Minningarhátíð um Björgvin Guðmundsson tónskáld Ingvar Gíslason skrifar Einn þeirra manna, sem settu sterkan svip á bæjarlíf Akureyrar á öldinni sem leið, var Björgvin Guðmundsson tónskáld og söngstjóri. Í þrjátíu ár, 1931-1961, var hann búsettur á Akureyri, leiðandi maður í menningarlífinu, einkum á sviði tónlistar og...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stjorn-fiskveida
Stjórn fiskveiða Björn Valur Gíslason skrifar Starfshópur um endurskoðun laga um stjórn fiskveiða skilað í haustbyrjun niðurstöðum sínum og tillögum til úrbóta á þeim vattvangi eins og hópnum var falið að gera. Þar segir m.a. um megin niðurstöðu hópsins: „Meirihluti starfshópsins telur rétt að gerðir verði samningar um...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nyju-fotin-keisarans
Nýju fötin keisarans Jón Ingi Cæsarsson skrifar Nú hefur L-listinn setið einn að völdum á Akureyri í rúmlega hálft ár. Listinn boðaði breytta tíma í stjórnmálum á Akureyri og kjósendur trúðu því að þarna væri komið stjórnmálaafl sem gæti breytt gömlu þreyttu flokkastjórnmálunum og fært nýja tíma í bæinn okkar. En er þa...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haepid-ad-samkomulag-naist-um-samraemda-launastefnu
Hæpið að samkomulag náist um samræmda launastefnu Samninganefnd Starfsgreinasambandsins, annarra en flóafélaganna, átti fund með Samtökum atvinnulífsins sl. föstudag þar sem skipst var á skoðunum um kröfugerð SGS og mál reifuð. Á heimasíðu SGS segir að Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri SA hafi getið þess að samtökin...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rannveig-langhlaupari-arsins-i-kvennaflokki
Rannveig langhlaupari ársins í kvennaflokki Rannveig Oddsdóttir, UFA, var valin langhlaupari ársins í kvennaflokki en Björn Margeirsson í karlaflokki. Er þetta niðurstaða kosningar sem fram fór á hlaup.is. Þá var Rannveig einnig valin íþróttamaður ársins 2010 hjá UFA á Nýársfagnaði félagsins sl. föstudag. Rannveig, 37 ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/meiri-kjotsala-fyrir-hatidarnar
Meiri kjötsala fyrir hátíðarnar „Kjötsalan var ívið meiri í ár en í fyrra," segir Auðjón Guðmundsson markaðsstjóri hjá Kjarnafæði um kjötsölu fyrirtækisins um jól og áramót. Hann segir að einkum eigi það við um hefðbundinn jólamat, hangikjöt og hamborgarhrygg, „en það var líka mjög góð sala í krydduðum lærum," segir ha...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ar-uppbyggingar-er-yfirskrift-fundaradar-vg-um-land-allt
Ár uppbyggingar er yfirskrift fundaraðar VG um land allt Við upphaf nýs árs boðar Vinstrihreyfingin - grænt framboð til félagsfunda og almennra stjórnmálafunda. Forystufólk VG mætir á fundi um allt land í janúar til að hitta félagsmenn. Á fundunum verður rætt um flokksstarfið, stöðu VG og farið verður í málefnavinnu og...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atli-sigurjonsson-ithrottamadur-thors-arid-2010
Atli Sigurjónsson íþróttamaður Þórs árið 2010 Knattspyrnumaðurinn Atli Sigurjónsson var í dag valinn íþróttamaður ársins 2010 hjá Þór, í opnu húsi í Hamri þar sem sl. ár hjá Þór var gert upp. Atli, sem er 19 ára, átti frábært tímabil með Þór sem tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni í sumar. Hann var einn allra besti leik...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-aftur-a-sigurbraut-eftir-heimasigur-gegn-hetti
Þór aftur á sigurbraut eftir heimasigur gegn Hetti Þór lagði Hött að velli, 93:77, í Íþróttahöllinni á Akureyri í dag á Íslandsmótinu í 1.deild karla í körfubolta. Konrad Tota skoraði 27 stig fyrir Þór í leiknum og Ólafur Torfason 20 stig. Hjá Hetti var Davíð Arnar Ragnarsson stigahæstur með 19 stig og Björn Benediktss...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/utkollum-hja-slokkvilidi-akureyrar-fjolgadi-a-milli-ara-1
Útköllum hjá Slökkviliði Akureyrar fjölgaði á milli ára Slökkvilið Akureyrar fór í 2.270 útköll á árinu 2010 og er það 9% aukning frá 2009. Dælubílar liðsins voru kallaðir 143 sinnum á árinu í ýmis verkefni en 21 sinni var um eld að ræða. Útköllum dælubíla hefur því fækkað um 10% frá árinu 2009. Sjúkrabílar liðsins vor...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/verdur-oddur-i-hm-hopnum
Verður Oddur í HM hópnum? Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari í handbolta mun tilkynna í dag eða á morgun hvaða 16 leikmenn hann tekur út til Svíþjóðar á heimsmeistaramótið í handbolta karla. Oddur Gretarsson og markvörðurinn Sveinbjörn Pétursson leikmenn Akureyrar voru báðir í 19 manna hópi Guðmundar fyrir leikina...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/frestadur-leikur-thors-og-kfi-fer-fram-i-dag
Frestaður leikur Þórs og KFÍ fer fram í dag Leikur Þórs og KFÍ í 1. deild kvenna í körfubolta fer fram í dag í Síðuskóla kl. 11:30. Liðin áttu að spila í gær en ekkert var flogið frá Ísafirði og því þurfti að fresta leiknum. Þórsstúlkur eru enn án stiga í deildinni eftir sjö leiki en KFÍ er í fimmsta sæti með fjögur st...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-maetir-hetti-i-hollinni-i-dag
Þór mætir Hetti í Höllinni í dag Þórsarar verða eldlínunni á Íslandsmótinu í 1. deild karla í dag er liðið tekur á móti Hetti í Íþróttahöllinni á Akureyri kl. 14:00. Þór tapaði stórt gegn Val á heimavelli sl. fimmtudag og þurfa því á sigri að halda í dag í toppbaráttunni. Þór er sem stendur í þriðja sæti deildarinnar m...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-med-oruggan-sigur-gegn-fylki-i-dag
KA með öruggan sigur gegn Fylki í dag KA fagnaði 83 ára afmæli sínu í dag með því að vinna 3:0 sigur gegn Fylki á Íslandsmóti karla í blaki í KA-heimilinu. KA vann allar þrjár hrinurnar, 25:17, 25:21 og 25:22. Piotr Kempisty var stigahæstur hjá KA með 19 stig og Davíð Búi Halldórsson skoraði 14 stig. Í liði Fylkis var ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/betri-stada-a-vinnumarkadi-um-aramot-en-undanfarin-ar
Betri staða á vinnumarkaði um áramót en undanfarin ár „Við erum frekar bjartsýn á nýtt ár, staðan er betri en hún var um áramótin síðustu," segir Soffía Gísladóttir forstöðumaður Vinnumálastofnunar á Norðurlandi eystra um stöðuna á vinnumarkaði nú um áramót. Á atvinnuleysisskrá eru nú alls 1.169 manns á svæðinu öllu, þ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/slagverk-og-strengir-a-fyrstu-tonleikum-arsins-hja-sn
Slagverk og strengir á fyrstu tónleikum ársins hjá SN Fyrstu tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands á nýju ári fara fram í Hofi á morgun, sunnudaginn 9. janúar kl. 16.00 og er yfirskrift þeirra; Slagverk og strengir. Einleikari á marimbu er Hjörleifur Örn Jónsson og stjórnandi Guðmundur Óli Gunnarsson. Sinfóníuhljó...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/iris-hafnadi-i-odru-saeti-a-fis-moti-i-noregi
Íris hafnaði í öðru sæti á FIS-móti í Noregi Landsliðskonan Íris Guðmundsdóttir frá SKA hafnaði í öðru sæti á FIS-móti í svigi sem fram fór í Oppdal í Noregi í dag. Íris er nýfarin að skíða á ný eftir meiðsli og greinilegt að hún kemur vel undan meiðslunum. Í svigi karla var það einnig SKA keppandi sem stóð stig best e...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vonbrigdi-med-ad-logreglan-haettir-ad-sinna-forvarnastarfi
Vonbrigði með að lögreglan hættir að sinna forvarnastarfi Á fundi bæjarráðs í vikunni var tekið fyrir erindi frá skólaráði Lundarskóla til lögreglustjórans á Akureyri, þar sem skólaráðið lýsir vonbrigðum sínum með þá ákvörðun lögreglunnar á Akureyri að hætta að sinna forvarnastarfi sem sinnt hefur verið í mörg ár og sn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-tilnefnir-fjora-sem-ithrottamann-arsins
KA tilnefnir fjóra sem íþróttamann ársins KA hefur tilnefnd fjóra íþróttamenn sem koma til greina sem íþróttamaður ársins 2010 hjá félaginu. Hver deild tilnefnir einn leikmann og eru tilnefningarnar eftirfarandi: Birna Baldursdóttir-Blakdeild Kolbrún Gígja Einarsdóttir-Handknattleiksdeild Helga Hansdóttir-Júdódeild San...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-i-8-lida-urslit-i-utsvari-eftir-glaesilegan-sigur-a-grindavik
Akureyri í 8-liða úrslit í Útsvari eftir glæsilegan sigur á Grindavík Lið Akureyrar vann glæsilegan sigur á liði Grindavíkur í 16-liða úrslitum í spurningaleiknum Útsvari í Sjónvarpinu í kvöld. Akureyri fékk 78 stig gegn 63 stigum Grindvíkinga og tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum keppninnar síðar í vetur. Það kom ekki...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/breytingar-a-lidi-akureyrar-i-utsvari-i-kvold-vegna-vedurs
Breytingar á liði Akureyrar í Útsvari í kvöld vegna veðurs Veðurhamurinn á landinu hefur sett strik í reikninginn hjá Útsvarsliði Akureyringa sem keppa á við Grindvíkinga í Sjónvarpinu í kvöld. Birgir Guðmundsson og Hilda Jana Gísladóttir komast ekki suður og hefur því þurft að kalla til varamenn í liðið. Hjálmar Stefá...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/annarsamur-dagur-hja-bjorgunarsveitum-landsins
Annarsamur dagur hjá björgunarsveitum landsins Dagurinn hefur verið afar annasamur hjá björgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar í dag og varlega áætlað hafa beiðnir um aðstoð skipt hundruðum sl. sólarhring. Verkefnin hafa verið af ýmsu tagi; fok á lausum munum, þakplötum og þökum, gámum, girðingum, skiltum, fe...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samherji-faerir-ut-kviarnar-erlendis
Samherji færir út kvíarnar erlendis Breska sjávarútvegsfyrirtækið UK Fisheries, sem Samherji hf. á helmingshlut í á móti Parlevliet & Van der Plas, hefur keypt franska sjávarútvegsfyrirtækið Euronor. Það félag stundar öðru fremur veiðar og vinnslu úr ufsa og þorski. Þetta eru önnur kaup UK Fisheries á skömmum tíma, að ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/orkuaudlindirnar-sungnar-til-thjodarinnar-um-allt-land
Orkuauðlindirnar sungnar til þjóðarinnar um allt land Karaókímaraþonið sem hófst í Norræna húsinu í Reykjavík í gær hefur vakið mikla athygli. Reyndar hefur verkefnið undið töluvert upp á sig, því ákveðið hefur verið að setja upp slík karaókímót víðar um land. Brekkukoti, Brekkugötu 7a á Akureyri, hefur t.d. verið umbr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oddur-og-sveinbjorn-utan-hops-i-kvold
Oddur og Sveinbjörn utan hóps í kvöld Hornamaðurinnn Oddur Gretarsson og markvörðurinn Sveinbjörn Pétursson í liði Akureyrar, eru báðir utan hóps í kvöld er Ísland mætir Þýskalandi í æfingaleik fyrir HM í handbolta í Laugardagshöllinni kl. 18:45. Vikudagur heyrði hljóðið í Oddi og Sveinbirni um leikina um helgina og mö...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aflaverdmaeti-skipa-brims-um-8-milljardar-a-sidasta-ari
Aflaverðmæti skipa Brims um 8 milljarðar á síðasta ári Aflaverðmæti skipa Brims hf. var um 8 milljarðar króna á síðasta ári en árið 2009 var aflamverðmæti skipa félagsins um 7,3 milljarðar. Á síðasta ári voru unnin um 8.600 tonn af hráefni hjá landvinnslu félagsins á Akureyri og útflutningsverðmætið var um 4,3 milljarð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thetta-var-mikid-afall
„Þetta var mikið áfall“ „Þetta uppgötvaðist þannig að ég var að borða heima og mamma tekur eftir því að hægri höndin á mér er orðinn blá og þrútinn. Þá er ég búinn að vera með þetta síðan á aðfangadag. Svo kemur í ljós síðar þegar læknar hafa skoðað mig að ég þarf að hvíla mig frá handbolta í 4-7 mánuði,” segir Geir Gu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vonskuvedur-bilanir-og-ofaerd
Vonskuveður, bilanir og ófærð Skólahald hefur að mestu fallið niður á Norðurlandi og reyndar víðar á landinu vegna veðurs og ófærðar. Ekkert ferðaveður er á Norðurlandi vegna stórhríðar og er beðið átekta með snjómokstur. Mikil ófærð er innanbæjar á Akureyri en snjómokstur gengur hægt. Lögregla og björgunarfólk hafa að...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eldur-i-hesthusi-i-eyjafirdi
Eldur í hesthúsi í Eyjafirði Rétt um miðnætti í nótt fékk slökkvilið Akureyrar tilkynningu um eld í hesthúsi við Jódísarstaði í Eyjafirði. Mikið vonsku veður er á svæðinu og blind bylur. Ferð slökkviliðsins á eldstað sóttist hægt sökum slæms skyggnis. Hjálparlið í Eyjafirði frá Hjálparsveitinni Dalbjörgu var einnig kal...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bjorgunarsveitir-kalladar-ut-a-sex-stodum-i-kvold
Björgunarsveitir kallaðar út á sex stöðum í kvöld Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar hafa verið kallaðar út á sex stöðum frá því um kvöldmatarleytið vegna óveðurs. Á Seyðisfirði, í Vestmannaeyjum, á Reyðarfirði þar sem þak losnaði, Egilsstöðum þar sem klæðning losnaði af gróðurhúsi og Húsavík, en björgun...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-tapadi-gegn-val-a-heimavelli-i-kvold
Þór tapaði gegn Val á heimavelli í kvöld Þór tapaði í kvöld gegn Val með 46 stiga mun, 84:130, er liðin áttust við í Íþróttahöllinni á Akureyri á Íslandsmótinu í 1. deild karla í körfubolta. Þetta var þriðji tapleikur Þórs á tímabilinu sem er fyrir vikið komið niður í fjórða sæti deildarinnar með 12 stig. Valur komst m...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/threttandagledi-thors-verdur-haldin-13-januar
Þrettándagleði Þórs verður haldin 13. janúar Eins og fram hefur komið i fjölmiðlum síðustu daga ákvað stjórn Íþróttafélagsins Þórs á Akureyri að halda ekki hina árlegu þrettándagleði félagsins, sem haldin hefur verið nánast árlega frá árinu 1934. Ástæðan var að ekki tókst að fá kostunaraðila að gleðinni að þessu sinni....
https://www.vikubladid.is/is/frettir/byggdakvoti-til-hriseyjar-og-grimseyjar
Byggðakvóti til Hríseyjar og Grímseyjar Á fundi bæjarráðs Akureyrar í morgun var lagt fram til kynningar bréf frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu þar sem tilkynnt er um úthlutaðan byggðakvóta á yfirstandandi fiskveiðiári. Þar kemur fram að 102 þorskígildistonn eru vegna Hríseyjar og 15 þorskígildistonn vegna Gr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/storhrid-a-flestum-leidum-austan-eyjarfjardar
Stórhríð á flestum leiðum austan Eyjarfjarðar Veður fer versnandi á landinu og víða er lítið ferðaveður. Á Norðausturlandi er víða snjókoma og hálka eða snjóþekja. Stórhríð er á Hámundarstaðarhálsi og á flestum leiðum austan Eyjarfjarðar. Ófært er á Hólasandi og stórhríð eða óveður með austurströndini. ófært og stórhrí...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skerdingu-a-heilbrigdisthjonustu-i-hrisey-motmaelt
Skerðingu á heilbrigðisþjónustu í Hrísey mótmælt Hverfisráð Hríseyjar mótmælir fyrirhugaðri þjónustuskerðingu á þjónustu Heilsugæslustöðvar Dalvíkur við íbúa Hríseyjar. Heilsugæslustöð Dalvíkur hefur boðað að frá og með 1. febrúar 2011 muni læknisþjónusta í Hrísey flytjast til Heilsugæslustöðvarinnar á Dalvík. Læknir h...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/varad-vid-stormi-um-allt-land
Varað við stormi um allt land Almannavarnadeild ríkslögreglustjóra vill vekja athygli á því að Veðurstofan varar við stormi um allt land og talsverðri ofankomu norðaustanlands. Nú þegar er farið að hvessa víða norðanlands og austan og útlit fyrir að bæti í vind í dag en að veðrið verði verst frá miðnætti. Rétt er að be...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sofnun-jolatraa-a-akureyri
Söfnun jólatráa á Akureyri Starfsmenn Framkvæmdamiðstöðvar Akureyrarbæjar munu fjarlægja jólatré sem sett hafa verið við lóðarmörk dagana 7. janúar og 10 - 12 janúar nk. Einnig verða gámar staðsettir við Kaupang, Hagkaup, Hrísalund og við verslunarmiðstöðina Sunnuhlíð þar sem hægt verður að losa sig við trén. Tré sem s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/iris-farin-ad-keppa-a-ny
Íris farin að keppa á ný Skíðakonan Íris Guðmundsdóttir er komin á fulla ferð á nýjan leik eftir meiðsli sem hún hlaut í Sviss í haust. Íris hefur verið frá keppni frá því í byrjun september en keppti á alþjóðlegu stórsvigsmóti í Oppdal í Noregi í gær þar sem hún hafnaði í fimmta sæti í kvennaflokki. Þá er það einnig a...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/utsvarstekjur-dalvikurbyggdar-aaetladar-um-616-milljonir-a-arinu
Útsvarstekjur Dalvíkurbyggðar áætlaðar um 616 milljónir á árinu Fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2011, var samþykkt samhljóða á fundi bæjarstjórnar á milli jóla og nýárs. Áætlunin sýnir traustan rekstur sveitarfélagsins. Miðað við fyrirliggjandi áætlun verður handbært fé í upphafi árs um 155 milljónir króna og...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/geir-hugsanlega-ur-leik-thad-sem-eftir-er-timabilsins
Geir hugsanlega úr leik það sem eftir er tímabilsins Geir Guðmundsson handboltamaður hjá Akureyri, leikur hugsanlega ekkert meira með liðinu það sem eftir er tímabilsins. Geir fékk blóðtappa í hægri handlegginn á dögunum og þarf því að taka blóðþynningslyf næstu 3-6 mánuði. Er þetta áfall fyrir Akureyri sem er í toppba...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/urskurdadur-i-gaesluvardhald-fyrir-ad-hota-vitnum-i-pyntingarmali
Úrskurðaður í gæsluvarðhald fyrir að hóta vitnum í pyntingarmáli Karlmaður á Akureyri var úrskurðaður í gæsluvarðhald um áramótin eftir að hann hótaði vitni í þeim tilgangi að hafa áhrif á vitnisburð hans vegna hrottalegs ofbeldismáls sem verður réttað í þann 7. janúar næstkomandi. Þá hafði lögreglan einnig afskipti af...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nordursigling-hefur-hvalaskodun-fra-olafsfirdi
Norðursigling hefur hvalaskoðun frá Ólafsfirði Forráðamenn Norðursiglingar ákváðu nú nýverið að hefja hvalaskoðunarferðir úr Fjallabyggð næsta sumar. Fyrirtækið hefur verið leiðandi afl í slíkum ferðum á Húsavík síðastliðin 16 ár en hyggst nú færa út kvíarnar. Siglt verður daglega frá Ólafsfirði og munu ferðirnar verða...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bjorgvin-keppir-a-heimsbikarmoti-i-zagreb-a-morgun
Björgvin keppir á heimsbikarmóti í Zagreb á morgun Landsliðsmaðurinn Björgvin Björgvinsson frá Dalvík keppir á heimsbikarmóti í alpagreinum í Zagreb á morgun, fimmtudag. Mótið hefst klukkan 13:45 (ísl tíma) og er áætlað að seinni ferð hefjist kl 16:45. Björgvin er í góðu formi og segir aðstæður ytra vera mjög góðar. Bj...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/litill-ahugi-a-frekari-sameiningu-i-horgarsveit
Lítill áhugi á frekari sameiningu í Hörgársveit Hanna Rósa Sveinsdóttir oddviti í Hörgársveit segir að á vegum Eyþings sé starfandi verkefnisstjórn um sameiningarkosti á svæði Eyþings sem hittist annað veifið og fari yfir málin. Eins og staðan er nú telur hún að lítill áhugi sé í sínu sveitarfélagi á því að fara út í f...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ferdaskrifstofa-akureyrar-i-sokn-a-radstefnu-og-fundamarkadi
Ferðaskrifstofa Akureyrar í sókn á ráðstefnu- og fundamarkaði Nú um áramótin tók ný innanlandsdeild Ferðaskrifstofu Akureyrar formlega til starfa og mun megin hlutverk hennar verða skipulag á ráðstefnum, fundum og hvataferðum á Akureyri og Norðausturlandi. Hrafnhildur E. Karlsdóttir stýrir þessu verkefni hjá FA og hóf ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/flugfelag-islands-bydur-400-saeti-a-nettilbodi-i-januar
Flugfélag Íslands býður 400 sæti á nettilboði í janúar Flugfélag Íslands býður Íslendingum gríðarlega gott nettilboð í janúarmánuði. Verðið er einunigs kr. 5.990 aðra leiðina með sköttum og gildiir til / frá Reykjavík, Akureyri, Ísafjarði og Egilsstöðum. Tilboðið er bókanlegt frá kl. 10:00 í dag, miðvikudaginn 5. janúa...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sa-vikingar-skorudu-15-mork-i-sigri-gegn-sa-jotnum
SA Víkingar skoruðu 15 mörk í sigri gegn SA Jötnum Nítján mörk litu dagsins ljós í Skautahöll Akureyrar í kvöld er SA Jötnar og SA Víkingar áttust við á Íslandsmóti karla í íshokkí. Víkingar skoruðu 15 mörk og unnu öruggan ellefu marka sigur, 15:4. Með sigrinum eru SA Víkingar aðeins stigi á eftir SR á toppi deildarinn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/threttandagledi-thors-slegin-af
Þrettándagleði Þórs slegin af Þrettándagleði Þórs hefur verið slegin af þetta árið og því verða bæjarbúar að gera sér að góðu að kveðja jólin með öðru hætti nk. fimmtudag. Ekki tókst að fá aðila til að standa straum af kostnaði við framkvæmd þrettándagleðinnar, sem haldin hefur verið með örfáum undantekningum frá árinu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-og-thor-i-erfidum-ridli-i-lengjubikarnum
KA og Þór í erfiðum riðli í Lengjubikarnum KA og Þór eru í erfiðum riðli í Lengjubikarkeppni karla í knattspyrnu sem hefst um miðjan næsta mánuð. Liðin leika í riðli 1 í A-deild ásamt Íslandsmeisturum Breiðablik, Gróttu, ÍA, Keflavík, KR og Selfoss. Leikið er í þremur deildum, A, B og C bæði hjá konum og körlum. Í kven...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bjorgvin-einn-af-niu-i-lyfjaprofunarhopi-isi
Björgvin einn af níu í lyfjaprófunarhópi ÍSÍ Lyfjaeftirlitsnefnd ÍSÍ hefur valið níu íþróttamenn, fimm konur og fjóra karla, sem verða í skráðum lyfjaprófunarhópi fyrir árið 2011. Samkvæmt alþjóða lyfjareglunum ber þeim sem fara með lyfjaeftirlit meðal íþróttamanna að stofna skráðan lyfjaprófunarhóp. Í hópnum eiga að v...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thatttaka-i-ithrotta-tomstunda-og-aeskulydsstarfi-nidurgreidd
Þátttaka í íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi niðurgreidd Hörgársveit mun á árinu 2011 niðurgreiða þátttökugjöld barna í íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi samkvæmt reglum sem sveitarstjórn hefur sett. Markmiðið er að stuðla að þátttöku barna í slíku starfi óháð efnahag fjölskyldna, í forvarnarskyni. Frístundak...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikil-ofankoma-i-eyjafirdi-og-storhrid-a-vikurskardi
Mikil ofankoma í Eyjafirði og stórhríð á Víkurskarði Á Norðurlandi vestra er víða hálka eða hálkublettir og skafrenningur. Hins vegar er mikil ofankoma við Eyjafjörð og þar fyrir austan. Stórhríð er á Víkurskarði og þungfært. Þar fyrir austan eru vegir að vísu færir víðast hvar en sumstaðar vonskuveður, stórhríð á Tjör...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sa-slagur-i-skautahollinni-i-kvold-2
SA-slagur í Skautahöllinni í kvöld SA Jötnar og SA Víkingar eigast við í Skautahöll Akureyrar í kvöld kl. 19:30 á Íslandsmóti karla í íshokkí. Er liðin mættust fyrir viku síðan rótburstuðu Víkingar Jötna með 12 mörkum gegn 2. Með sigri í kvöld geta SA Víkingar minnkað forskot SR niður í eitt stig, en Víkingar hafa 21 s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ekki-utilokad-ad-eldurinn-hafi-kviknad-af-mannavoldum
Ekki útilokað að eldurinn hafi kviknað af mannavöldum Lögreglan á Akureyri útilokar ekki að eldur hafi kviknað af mannavöldum í Eiðsvallagötu 5 snemma í gærmorgun. Lögreglan óskar eftir því að ná tali af manni sem talinn er hafa verið á vettvangi þegar lögregla og slökkvilið komu á staðinn. Eldur kom upp í þvottahúsi í...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/logreglan-a-akureyri-leitar-ad-vitnum-vardandi-eldsvoda
Lögreglan á Akureyri leitar að vitnum varðandi eldsvoða Varðandi eldsvoða að Eiðsvallagötu 5 á Akureyri að morgni 2. janúar s.l. óskar lögreglan á Akureyri eftir því að ná tali af ungum manni er var á vettvangi þegar lögregla og slökkvilið komu á staðinn laust fyrir klukkan 07:30. Sá aðili var dökkhærður og grannur, kl...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tekin-hefur-verid-upp-orkumaeling-i-reykjaveitu
Tekin hefur verið upp orkumæling í Reykjaveitu Nú um áramót var gerð sú breyting á verðskrá Norðurorku vegna Reykjaveitu að gjald fyrir afnot af heitu vatni er innheimt í samræmi við þann kílóvattstundafjölda sem hver húseign getur nýtt, í stað rúmmetramælingar áður. Þetta þýðir með öðrum orðum að tekin er upp orkumæli...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/litathema-i-klaedaburdi-a-thorra-blotinu-i-eyjafjardarsveit
Litaþema í klæðaburði á þorra- blótinu í Eyjafjarðarsveit Jólin verða kvödd að venju á þrettándanum, þann 6. janúar og jólasveinarnir halda til fjalla á ný. Þá tekur við næsta veislutímabil, þorrinn, og eru þorrablótsnefndir komnnar í fullan gang við undirbúning. Í Eyjafjarðarsveit verður þorrablótið haldið þann 29. ja...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/helga-sigridur-og-bjorgunarmenn-hennar-nordlendingar-arsins
Helga Sigríður og björgunarmenn hennar Norðlendingar ársins N4 Sjónvarp stóð á dögunum fyrir vali á Norðlendingi ársins 2010, fjölmargir voru tilnefndir en enginn vafi var hins vegar á því hver var áhorfendum stöðvarinnar efst í huga. Það er hetjuleg barátta og ótrúleg björgun Helgu Sigríðar Sigurðardóttur 13 ára stúlk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ovist-er-hvort-haegt-verdur-ad-halda-threttandagledi-thors
Óvíst er hvort hægt verður að halda þrettándagleði Þórs Óvíst er hvort hægt verður að halda þrettándagleði Þórs þann 6. janúar nk., þar sem ekki hefur tekist að fá aðila til að standa straum af kostnaði. Akureyrarstofa leggur reyndar til fjármagn en það dugar ekki til. Sigfús Ólafur Helgason formaður Þórs segir að féla...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eldur-i-ruslagamum-a-fjorum-stodum-i-midbaenum-um-helgina
Eldur í ruslagámum á fjórum stöðum í miðbænum um helgina Slökkviliðið á Akureyri fór í tvö útköll í gærkvöld vegna elds í ruslagámum í miðbænum. Í fyrrinótt var liðið einnig kallað út vegna elds í ruslagámi og einnig á gamlárskvöld. Um helgina hafa þá orðið fjórir brunar í ruslagámum á fjórum stöðum í miðbænum. Svo vir...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikill-fjoldi-gesta-a-veitinga-stodum-a-akureyri-i-desember
Mikill fjöldi gesta á veitinga- stöðum á Akureyri í desember „Við verðum ekki vör við að nein kreppa sé í gangi hvað jólahlaðborðin varðar. Það gekk mjög vel hjá okkur og varð aukning í gestafjölda á milli ára," segir Sigurbjörn Sveinsson hótelstjóri á Hótel Kea um jólahlaðborð á veitingastaðnum síðustu vikur. Sigurbjö...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/talsverdar-skemmdir-a-innbui-i-bruna-a-akureyri-i-morgun
Talsverðar skemmdir á innbúi í bruna á Akureyri í morgun Rétt fyrir klukkan hálfátta í morgun barst tilkynning um reyk í húsi við Eiðsvallagötu á Akureyri. Þegar slökkvilið og lögregla komu á vettvang höfðu tveir íbúar náð að komast út og sögðu þeir fleiri vera í húsinu og hugsanlega einnig í kjallara hússins. Reykkafa...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjorir-fluttir-a-slysadeild-eftir-ad-eldur-kom-upp-i-ibud
Fjórir fluttir á slysadeild eftir að eldur kom upp í íbúð Fjórir einstaklingar voru fluttir á slysadeild Sjúkrahússins á Akureyri vegna gruns um reykeitrun, eftir að eldur kom upp í íbúð við Eiðsvallagötu í morgun. Slökkvilið Akureyrar er enn að störfum en búið er að slökkva eldinn, samkvæmt upplýsingum frá Neyðarlínun...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aflaverdmaeti-skipa-samherja-104-milljardar-krona-a-arinu-2010
Aflaverðmæti skipa Samherja 10,4 milljarðar króna á árinu 2010 Aflaverðmæti þeirra skipa Samherja hf. sem gerð eru út undir merki fyrirtækisins á Íslandi nam samtals 10,4 milljörðum króna á árinu 2010. Þar er fjölveiðiskipið Vilhelm Þorsteinsson EA í nokkrum sérflokki en eins og fram hefur komið var aflaverðmæti skipsi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/26-einstaklingar-letust-af-slysforum-arid-2010
26 einstaklingar létust af slysförum árið 2010 Á nýliðnu ári létust 26 einstaklingar af slysförum, sem er sem er einum fleiri en árið 2009. Heldur dró úr banaslysum í umferðinni en 2010 fórust 8 einstaklingar á móti 17 árið á undan. Flestir létust í heima- og frístundaslysum eða 12, tveir í vinnuslysum, þrír í drukknun...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjoldi-sjukrafluga-kominn-i-440-a-arinu-med-468-sjuklinga
Fjöldi sjúkrafluga kominn í 440 á árinu með 468 sjúklinga Fjöldi sjúkrafluga ársins 2010 er nú kominn í 440 og hafa 468 sjúklingar verið fluttir með flugvélum Mýflugs. Ekki er loku fyrir það skotið að það bætist við þá tölu áður en árið er úti. Árið 2009 voru flugin 396 talsins. Fyrstu mánuði ársins var tíðni fluga svi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thrjar-brennur-i-akureyrarkaupstad
Þrjár brennur í Akureyrarkaupstað Kveikt verður í þremur brennum í Akureyarkaupstað seinni partinn í dag og kvöld. Að venju verður brenna og flugeldasýning við Réttarhvamm. Kveikt verður í brennunni kl. 20.30 en flugeldasýningin hefst kl. 21.00. Þá verður kveikt í brennum í Hrísey og Grímsey. Hríseyingar kveikja í bren...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jeppamennirnir-a-eyjafjardardal-komnir-til-byggda-heilu-og-holdnu
Jeppamennirnir á Eyjafjarðardal komnir til byggða heilu og höldnu Á elleftatímanum í gærkvöld barst Hjálparsveitinni Dalbjörg í Eyjafjarðarsveit ósk um aðstoð frá tveimur jeppamönnum sem voru í vandræðum inn á Eyjafjarðardal. Mennirnir sem voru á tveimur fjallajeppum höfðu ákveðið að fara niður dalinn í fyrradag en þeg...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorsteinn-og-rakel-framlengja-hja-thor
Þorsteinn og Rakel framlengja hjá Þór Þorsteinn Ingason fyrirliði karlaliðs Þórs og Rakel Hönnudóttir fyrirliði Þórs/KA, skrifuðu bæði í gær undir nýjan tveggja ára samning við félagið. Bæði höfðu þau þegar gefið út að þau ætluðu að leika með liðinu næsta sumar en litlu mátti muna að Rakel gengi til liðs við sænska úrv...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bjarki-setti-islandsmet-i-stangarstokki
Bjarki setti Íslandsmet í stangarstökki Bjarki Gíslason, UFA, setti Íslandsmet í stangarstökki á frjálsíþróttarmóti sem Fjölnir hélt í Laugardagshöllinni sl. miðvikudag. Bjarki stökk 4,81 m og bætti Íslandsmetið í flokkum 19-20 ára og 21-22 ára. Þar með endurheimti Bjarki metið sem Einar Daði Lárusson, ÍR, tók af honum...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyrarmotid-i-bekkpressu-haldid-i-dag
Akureyrarmótið í bekkpressu haldið í dag Akureyrarmótið í bekkpressu, „Gamlársmótið”, verður haldið í Jötunheimum í dag. Mótið hefst kl. 13:00 en vigtun fer fram tveim tímum fyrr. Alls eru 12 keppendur skráðir til leiks, tíu karlar og tvær konur. Keppt er í sjö þyngdarflokkum og eru keppendur á aldrinum 17 til 46 ára.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stjornvold-falli-fra-aformum-um-ad-leggja-nidur-sjomannaafslattinn
Stjórnvöld falli frá áformum um að leggja niður sjómannaafsláttinn Sjómannadeild Framsýnar- stéttarfélags Þingeyinga samþykkti samhljóða á aðalfundi sínum í gær ályktun um sjómannaafsláttinn og aðild atvinnurekenda að stjórnum lífeyrissjóða. Ályktunin er eftirfarandi: „Aðalfundur Sjómannadeildar Framsýnar, stéttarfélag...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/var-mikil-upplifun
„Var mikil upplifun” „Þetta var bara meiriháttar gaman,” segir Geir Guðmundsson leikmaður Akureyrar, en hann hélt út til Þýskalands um miðjan desember þar sem hann æfði með meisturum Kiel í fimm daga. Kiel er eitt allra besta handboltafélagslið heims en með liðinu leika kappar á borð við Daniel Narcisse, Jarome Fernand...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jens-krullumadur-arsins
Jens krullumaður ársins Jens Kristinn Gíslason hjá SA er krullumaður ársins 2010 en hann hlaut afgerandi kosningu. Jens hefur verið í fremstu röð krullufólks um nokkurra ára skeið. Eftir að hafa stýrt eigin liði í nokkur ár gekk hann til liðs við Mammúta haustið 2008 og gegnir þar mikilvægu hlutverki. Með Mammútum vann...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jardvegsframkvaemdir-vid-vestursidu-bodnar-ut-i-byrjun-ars
Jarðvegsframkvæmdir við Vestursíðu boðnar út í byrjun árs Stefnt er að því að bjóða út jarðvegsskipti vegna byggingu nýs hjúkrunarheimilis við Vestursíðu á Akureyri strax á nýju ári. Oddur Helgi Halldórsson formaður bæjarráðs segir að markmiðið sé að ljúka þeim þætti fyrir sumarið. Oddur vonast til þess að hægt verði a...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/innanrikisraduneytid-tekur-til-starfa
Innanríkisráðuneytið tekur til starfa Innanríkisráðuneytið tekur til starfa 1. janúar 2011 með samruna dómsmála- og mannréttindaráðuneytis annars vegar og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis hins vegar. Ögmundur Jónasson er innanríkisráðherra og Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri hins nýja ráðuneytis. Ráðherra...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fanney-med-tvo-sigra-a-fyrsta-fis-motinu
Fanney með tvo sigra á fyrsta FIS-mótinu Dagnýjarmótið, fyrsta FIS-mótið í alpagreinum í vetur, var haldið í Hlíðarfjalli í vikunni og lauk í gær. Keppt var í svigi í karla-og kvennaflokki. Fanney Guðmundsdóttir frá Reykjavík stóð sig best í kvennaflokki en hún sigraði í báðum mótunum. Brynjar Jökull Guðmundsson frá Ví...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samherji-veitti-styrki-til-samfelagsverkefna-ad-upphaed-75-milljonir-krona
Samherji veitti styrki til samfélagsverkefna að upphæð 75 milljónir króna Útgerðarfyrirtækið Samherji hf. afhenti í kvöld styrki til samfélagsverkefna á Akureyri og í Dalvíkurbyggð samtals að upphæð 75 milljónir króna. Flestir styrkirnir eru gagngert veittir til að efla barna- og unglingastarf í íþrótta- og æskulýðsfél...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/brenna-og-flugeldasyning-a-akureyri-a-gamlarskvold
Brenna og flugeldasýning á Akureyri á gamlárskvöld Hin árlega áramótabrenna á Akureyri verður á sínum stað við Réttarhvamm á gamlárskvöld, auk þess sem boðið verður upp á glæsilega flugeldasýningu. Kveikt verður í brennunni kl. 20.30 en flugeldasýningin hefst kl. 21.00. Það eru Vinir Akureyrar sem standa fyrir þessari ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bjarni-gaeti-verid-kalladur-inn-i-landslidid-a-hm
Bjarni gæti verið kallaður inn í landsliðið á HM Bjarni Fritzson, leikmaður Akureyrar, á enn möguleika á því að leika með íslenska landsliðinu á HM í Svíþjóð þrátt fyrir að vera ekki í 19 manna æfingahóp Guðmundar Guðmundssonar landsliðsþjálfara. Sextán leikmenn verða valdir til að fara á HM en eftir riðlakeppnina verð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sa-vikingar-med-storsigur-gegn-sa-jotnum
SA Víkingar með stórsigur gegn SA Jötnum SA Víkingar rótburstuðu SA Jötna, 12:2, er liðin mættust í Skautahöllinni á Akureyri í kvöld á Íslandsmóti karla í íshokkí. SA Víkingar náðu því að hefna fyrir tapið í síðustu rimmu liðanna. Með sigrinum komust SA Víkingar í 21 stig í öðru sæti deildarinnar en SA Jötnar hafa áfr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fh-deildarbikarmeistari-eftir-sigur-gegn-akureyri
FH deildarbikarmeistari eftir sigur gegn Akureyri FH tryggði sér rétt í þessu deildarbikarinn í handbolta karla eftir þriggja marka sigur gegn Akureyri í úrslitum, 29:26, en leikið var í Íþróttahúsinu við Strandgötu. Akureyri hafði þriggja marka forystu í hálfleik, 16:13, en FH reyndist sterkari aðilinn í lokamínútunum...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sveinbjorn-og-oddur-valdir-i-aefingahopinn-fyrir-hm
Sveinbjörn og Oddur valdir í æfingahópinn fyrir HM Guðmundur Þórður Guðmundsson landsliðsþjálfari karla í handbolta hefur valið 19 manna æfingahóp fyrir heimsmeistaramótið í Svíþjóð sem hefst þann 13. janúar næstkomandi. Tveir liðsmenn Akureyrar eru í hópnum, markvörðurinn Sveinbjörn Pétursson og hornamaðurinn Oddur Gr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vonbrigdi-med-ad-logreglan-haetti-ad-sinna-forvarnastarfi-i-skolum
Vonbrigði með að lögreglan hætti að sinna forvarnastarfi í skólum Á síðasta fundi skólanefndar var lagt fram erindi frá skólaráði Lundarskóla til lögreglustjórans á Akureyri. Þar lýsir skólaráðið vonbrigðum sínum með þá ákvörðun lögreglunnar á Akureyri að hætta að sinna forvarnastarfi sem sinnt hefur verið í mörg ár og...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samkomulag-um-aframhaldandi-serleyfisakstur-a-naesta-ari
Samkomulag um áframhaldandi sérleyfisakstur á næsta ári Fyrirtækið Bílar og fólk ehf. Sterna og Vegagerðin hafa gert með sér samkomulag um framlengingu sérleyfisaksturs vegna ársins 2011. Meðal annars er um að ræða aksturinn á milli Reykjavíkur og Akureyrar og helst sú áætlunarleið alveg óbreytt. Í dag eru farnar 7 fer...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyrarslagur-i-skautahollinni-i-kvold
Akureyrarslagur í Skautahöllinni í kvöld SA Víkingar og SA Jötnar mætast í Skautahöllinni á Akureyri í kvöld kl. 19:30 á Íslandsmóti karla í íshokkí. Síðast þegar liðin mættust höfðu Jötnar óvænt betur, 3:2. Víkingar eru 12 stigum fyrir ofan Jötna með 18 stig í öðru sæti deildarinnar en Jötnar hafa sex stig í neðsta sæ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-i-urslit-deildarbikarins-eftir-storsigur-gegn-haukum
Akureyri í úrslit deildarbikarins eftir stórsigur gegn Haukum Akureyri leikur til úrslita í deildarbikar karla í handbolta eftir að hafa niðurlægt lið Hauka með 13 marka sigri, 29:16, í undanúrslitum í Strandgötunni í kvöld. Staðan í hálfleik var 16:10 fyrir norðanmenn. Akureyri mætir FH í úrslitaleiknum en FH rótburst...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/slovenia-i-beinu-flugi-fra-akureyri-naesta-sumar
Slóvenía í beinu flugi frá Akureyri næsta sumar Á næsta ári eru 20 ár siðan Slóvenía öðlaðist sjáfstæði (tilheyrði áður Júgóslavíu), en Íslendingar voru fyrstir þjóða til þess að viðurkenna sjálfstæðið. Slóvenar eru okkur afar þakklátir og hyggst stór hópur sækja Ísland heim í tilefni þessara tímamóta. Um leið gefst Ís...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jolin-med-rolegasta-moti-a-akureyri
Jólin með rólegasta móti á Akureyri Jólin hafa verið róleg hjá lögreglunni á Akureyri og allt farið vel fram. Þó nokkur erill var í miðbæ Akureyrar í gærkvöld og í nótt og mikill fjöldi samankominn á skemmtistöðum bæjarins, eins og venja er á annan dag jóla. Að sögn varðstjóra lögreglunnar fór þó allt vel fram, líkt og...