Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kea-motarodin-i-hestaithrottum-hefst-a-akureyri-i-kvold
KEA mótaröðin í hestaíþróttum hefst á Akureyri í kvöld Í kvöld fimmtudaginn 10 febrúar hefst í Topreiter reiðhöllinni á Akureyri, KEA mótaröðin í hestaíþróttum. Mótaröðin er að hefja sitt þriðja tímabil og hefst formlega í kvöld kl 19.00 með keppni í fjórgangi. Alls eru 42 keppendur skráðir til leiks í fjórganginum og ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrirspurn-um-vinnu-vid-skipulag-og-honnun-dalsbrautar
Fyrirspurn um vinnu við skipulag og hönnun Dalsbrautar Á fundi bæjarráðs Akureyrar í morgun lagði Ólafur Jónsson D-lista lagði fram eftirfarandi fyrirspurn. Með vísan í viðtal við formann bæjarráðs Odd Helga Halldórsson í Vikudegi í sl. viku þar sem fram kemur hjá honum að vinna við skipulag og hönnun á Dalsbraut milli...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rocky-horror-a-svid-a-ny-i-hofi-um-helgina
Rocky Horror á svið á ný í Hofi um helgina Vegna fjölda áskorana hefur verið ákveðið að sýna nokkrar aukasýningar á hinum víðfræga söngleik Rocky Horror hjá Leikfélagi Akureyrar. Sýningarnar eru í Hofi og verður sú fyrsta á morgun, föstudaginn 11. febrúar, en sýningafjöldi verður takmarkaður. Metaðsókn var á Rocky Horr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarrad-dalvikurbyggdar-tekur-undir-ahyggjur-af-stodu-sjavarutvegsmala
Bæjarráð Dalvíkurbyggðar tekur undir áhyggjur af stöðu sjávarútvegsmála Bæjarráð Dalvíkurbyggðar tekur undir áhyggjur atvinnumálanefndar Dalvíkurbyggðar, sem fram komu á fundi nefndarinnar 2. febrúar, af þeim óróa sem er í kringum sjávarútveginn og þeirri óvissu sem ríkir um framhaldið. Íbúar og fyrirtæki í Dalvíkurbyg...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fronsk-kvikmyndahatid-i-borgarbioi-a-akureyri
Frönsk kvikmyndahátíð í Borgarbíói á Akureyri Franska kvikmyndahátíðin 2011 var haldin dagana 21. janúar til 3. febrúar í Háskólabíói í Reykjavík og verður nú opnuð í Borgarbíói á Akureyri dagana 12. til 16. febrúar. Franskar kvikmyndir hafa markað djúp spor í menningararfleið síðustu áratuga, eru í stöðugri framþróun ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-og-armann-maetast-i-hollinni-i-kvold
Þór og Ármann mætast í Höllinni í kvöld Þór fær Ármann í heimsókn í kvöld í 1. deild karla í körfubolta og hefst leikurinn kl. 19:15 í Íþróttahöllinni. Þór er í öðru sæti deildarinnar með 20 stig en Ármann situr á botni deildarinnar með fjögur stig. Eftir tapið gegn Skallagrími í síðustu umferð þurfa norðanmenn nauðsyn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/verdur-erfitt-verkefni
„Verður erfitt verkefni” Akureyri sækir Selfoss heim í kvöld í 13. umferð N1-deildar karla í handbolta kl. 18:30. Átján stig skilja liðin að, Akureyri hefur 21 stig á toppnum en Selfoss þrjú stig í botninum. Selfoss kom á óvart í síðustu umferð með því að ná jafntefli á heimavelli gegn Íslandsmeisturum Hauka, 25:25, og...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stjorn-eythings-samthykkti-bokun-vegna-brotthvarfs-frettamanns-ruv
Stjórn Eyþings samþykkti bókun vegna brotthvarfs fréttamanns RÚV Óskar Þór Halldórsson fréttamaður lét af störfum á starfsstöð RÚV á Akureyri um síðustu mánaðamót en hann hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar KA. Stjórn Eyþings, sambands sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum, samþykkti bókun...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ataksverkefni-um-eydingu-kerfils-umfangsmeira-en-aaetlad-var
Átaksverkefni um eyðingu kerfils umfangsmeira en áætlað var Á fundi umhverfisnefndar Eyjafjarðarsveitar nýlega var rætt um átaksverkefni um eyðingu kerfils. Grettir Hjörleifsson mætti á fundinn og gerði grein fyrir stöðu verkefnisins. Verkefnið sl. ár varð mun meira en áætlað hafði verið og fór kostnaður um milljón kró...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nagrannaslagur-i-fyrstu-umferd-visa-bikarins
Nágrannaslagur í fyrstu umferð VISA-bikarins Það verður nágrannaslagur á Dalvíkurvelli í fyrstu umferð VISA-bikarkeppni karla í knattspyrnu, en þá mætast Dalvík/Reynir og Magni. Dregið var í dag í fyrstu tvær umferðirnar í karla-og kvennaflokki. Draupnir mætir Kormáki í Boganum en fyrsta umferðin verður leikinn sunnuda...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjogur-gullverdlaun-til-fimak-a-threpamoti-fsi
Fjögur gullverðlaun til FIMAK á Þrepamóti FSÍ Þrepamót FSÍ fór fram hjá fimleikafélagi Gerplu í Versölum um liðna helgi þar sem keppt var í áhaldafimleikum. Á fjórða hundrað keppendur voru á mótinu og þar af 22 frá Fimleikafélagi Akureyrar. Árangur FIMAK keppenda var góður. Gunnar Skírnir Brynjólfsson og Ólafur Stefán ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aefa-sig-i-hlodunni-a-modruvollum-i-ad-strippa
Æfa sig í hlöðunni á Möðruvöllum í að strippa Bændur í Hörgárdalnum hafa ákveðið að setja upp nýja staðfærða sýningu á verkinu Með fullri reisn, sem kallast Full Monty á frummálinu. Verkið verður frumsýnt í næsta mánuði. Þetta kemur fram á visir.is. „Þetta er bara um það að bændaiðnaðurinn er ekki búinn að skila sínu. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aukafjarveiting-vegna-nyskopunarsjods-namsmanna
Aukafjárveiting vegna Nýsköpunarsjóðs námsmanna Tillaga mennta- og menningarmálaráðherra um 10 milljóna króna aukafjárveitingu vegna Nýsköpunarsjóðs námsmanna var samþykkt á fundi ríkistjórnar Íslands í gær. Er fjárveitingunni ætlað að gera stofnunum ríkissins kleift að greiða mótframlög vegna verkefna sem sem hljóta s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/farthegum-skemmtiferdaskipa-fjolgadi-um-17-a-milli-ara
Farþegum skemmtiferðaskipa fjölgaði um 17% á milli ára Um 55.700 þúsund farþegar lögðu leið sína til Akureyrar með skemmtiferðaskipum á liðinu sumri, eða rúmlega 8.000 fleiri en árið 2009. Aukning er um 17%. Tekjur Hafnasamlags Norðurlands vegna skemmtiferðaskipanna námu rúmum 80 milljónum króna og jukust um tæplega 13...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/halka-a-oxnadalsheidi-i-eyjafirdi-og-austur-i-oxarfjord
Hálka á Öxnadalsheiði, í Eyjafirði og austur í Öxarfjörð Vegir eru nánast auðir í Húnavatnssýslum en hálka er á Þverárfjalli og í Skagafirði. Þá er hálka og skafrenningur á Öxnadalsheiði en víðast hálkublettir í Eyjafirði og austur í Öxarfjörð. Á Norðausturlandi er óveður bæði á Mývatnsöræfum og út við ströndina, á Hóf...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjorir-fra-ska-keppa-a-hm-i-alpagreinum
Fjórir frá SKA keppa á HM í alpagreinum Fjórir keppendur frá SKA verða í eldlínunni á heimsmeistaramótinu í alpagreinum sem hófst í Þýskalandi í gær. Þetta eru þau Íris Guðmundsdóttir, Sigurgeir Halldórsson, Katrín Kristjánsdóttir og Gunnar Þór Halldórsson. Alls eru sjö keppendur frá Íslandi á mótinu en auk fyrrnefndra...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jotnar-lagu-a-heimavelli-gegn-sr
Jötnar lágu á heimavelli gegn SR SR fékk smá líflínu í baráttunni við SA Víkinga um heimaleikjaréttinn í úrslitakeppninni á Íslandsmóti karla í íshokkí, er liðið lagði SA Jötna, 6:2, í Skautahöllinni á Akureyri í kvöld. SR er nú tveimur stigum á eftir Víkingum, en Víkingar eiga tvo leiki eftir en SR einn. Vonin er hins...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/enn-er-halli-a-rekstri-skola-motuneytanna-i-grunnskolum
Enn er halli á rekstri skóla- mötuneytanna í grunnskólum Á fundi skólanefndar Akureyrar í gær var lagt fram uppgjör í rekstri skólamötuneytanna í grunnskólunum fyrir árið 2010. Þar kemur fram að halli var á rekstrinum á árinu, en mismikill eftir skólum. Skólanefnd leggur áherslu á að skoðað verði hvort ekki sé hægt að ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjolbreytt-dagskra-a-vetrarhatidinni-eljagangi
Fjölbreytt dagskrá á vetrarhátíðinni Éljagangi Vetrarhátíðin Éljagangur 2011 verður sett í Hlíðarfjalli fimmtudaginn 10. febrúar og stendur fram á sunnudag. Setningarathöfnin hefst kl.19 með snjóhindrunarhlaupi sem skipulagt er af Ungmennafélagi Akureyrar og Hlíðarfjalli. Þátttaka er öllum heimil og er það von skipuleg...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nordlensk-tidindi-dagsins-a-n4
Norðlensk tíðindi dagsins á N4 N4 Sjónvarp hefur undanfarin tvö ár fjallað um norðlenskt mannlíf alla virka daga þætti sem ber nafnið „Að norðan". Að auki hafa þar verið sýndir þættirnir: 2 gestir, Fróðleiksmolinn, Helgarnir , föstudagsþátturinn og sýndir hafa verið bæjarstjórnarfundir frá Akureyri, svo eitthvað sé nef...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjorir-fra-vma-med-bestan-arangur-a-sveinsprofi
Fjórir frá VMA með bestan árangur á sveinsprófi Iðnaðarmannafélag Reykjavíkur hefur undanfarin ár efnt til verðlaunahátíðar nýsveina í Ráðhúsinu í Reykjavík. Fór hún fram að þessu sinni 4. febrúar sl. Þangað eru boðaðir þeir nýútskrifuðu sveinar í hinum ýmsu námsgreinum sem náð hafa bestum árangri á sveinsprófi á lands...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sa-jotnar-fa-sr-i-heimsokn-i-kvold
SA Jötnar fá SR í heimsókn í kvöld SA Jötnar taka á móti SR í Skautahöllinni á Akureyri í kvöld á Íslandsmóti karla í íshokkí og hefst leikurinn kl. 19:30. SR missti nánast af tækifærinu til að fá heimaleikjaréttinn í úrslitakeppninni með tapi gegn SA Víkingum sl. laugardag, en getur með sigri í kvöld haldið smá líflín...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-og-ka-leika-til-urslita-a-soccerademotinu
Þór og KA leika til úrslita á Soccerademótinu Það verða Þór og KA sem leika til úrslita á Soccerademótinu í knattspyrnu karla. Það var ljóst í gær eftir 9:0 stórsigur Þórs gegn KA2 í Boganum. Atli Sigurjónsson skoraði þrennu fyrir Þór og þeir Jóhann Helgi Hannesson og Kristján Steinn Magnússon tvö mörk hvor. Þá gerðu þ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kiwanisfelagar-faerdu-barnadeild-fsa-monitor-ad-gjof
Kiwanisfélagar færðu barnadeild FSA monitor að gjöf Félagar í kiwanisklúbbum á Óðinssvæði, hafa fært barnadeild Sjúkrahússins á Akureyri, monitor að gjöf. Um er að ræða tæki til að fylgjast með líðan barna á sjúkrastofunni inn á vakt. Tækið er komið í notkun en formleg afhending á því fór fram sl. laugardag, þegar fjöl...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/almenningssalernunum-undir-kirkjutroppunum-lokad
Almenningssalernunum undir kirkjutröppunum lokað Framkvæmdaráð Akureyrar stendur við fyrri ákvörðun sína um að loka almenningssalernunum undir kirkjutröppunum með tilkomu salerna í Hofi. Þó er gert ráð fyrir að salernin undir kirkjutröppunum verði opin þegar mikið er um að vera í miðbænum. Málið var til umfjöllunar á s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hver-minuta-skiptir-mali-vid-flutning-sjuklinga-i-lifshaettu
Hver mínúta skiptir máli við flutning sjúklinga í lífshættu „Við höfum undanfarin misseri flutt þó nokkra sjúklinga í bráðri lífshættu, sjúklinga sem algerlega er óvíst að hefðu lifað af ef lent hefði verið í Keflavík," segir Leifur Hallgrímsson framkvæmdastjóri Mýflugs, en félagið sinnir nær öllu sjúkraflugi hér á lan...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/disztl-til-reynslu-hja-thor
Disztl til reynslu hjá Þór Ungverski framherjinn David Disztl er kominn til reynslu hjá knattspyrnuliði Þórs. Liðið leitar að framherja fyrir átökin í Pepsi-deildinni í sumar og hefur meðal annars verið að skoða leikmenn frá Frakklandi, Serbíu, Bandaríkjunum og Litháen. Disztl hefur leikið undanfarin tvö sumur með KA. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mannlaus-jeppi-rann-af-stad
Mannlaus jeppi rann af stað Mannlaus jeppi, sem ekki var í gangi, rann allt í einu af stað, tók stefnuna þvert yfir götuna, þar yfir gangstétt og steyptist svo niður snarbratta hlíð sunnan og ofan við Akureyrarkirkju á tíunda tímanum í gærkvöld. Þar lenti hann inni í hávöxnu skógarrjóðri og klemmdist að lokum fastur á ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-i-urslit-nordurlandsmotsins
KA í úrslit Norðurlandsmótsins KA er öruggt með sæti í úrslitaleiknum á Norðurlandsmótinu (Soccerademótinu) í knattspyrnu karla eftir 4:1 sigur gegn Magna í gær í Boganum. Með sigrinum tryggði KA sér sigurinn í B-riðli og mætir annaðhvort Þór eða KA2 í úrslitaleiknum en liðin eigast við í kvöld í lokaleik A-riðils.Jóha...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hk-sigrar-i-ka-heimilinu-um-helgina
HK-sigrar í KA-heimilinu um helgina HK gerði góða ferð norður yfir heiðar um helgina þegar liðið lagði KA tvöfalt í KA-heimilinu sl. laugardag á Íslandsmótinu í blaki. HK vann karlaleikinn 3:2 eftir að hafa lent undir 2:0. Í kvennaleiknum vann HK örugglega 3:0 gegn KA, en með sigrinum komst HK á topp Mikasadeildarinnar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/umfangsmiklar-bygginga-framkvaemdir-ad-fara-i-gang
Umfangsmiklar bygginga- framkvæmdir að fara í gang Það styttist í að framkvæmdir við byggingu hjúkrunarheimilis við Vestursíðu á Akureyri hefjist. Vinna við jarðvegsskipti verður boðin út fyrri hluta þessa mánaðar, aðrar framkvæmdir verða boðnar út í vor og áætlað að þeim ljúki haustið 2012. Í húsinu, sem verða 45 hjúk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sa-vikingar-i-godum-malum-eftir-sigur-gegn-sr
SA Víkingar í góðum málum eftir sigur gegn SR SA Víkingar fóru langleiðina með að tryggja sér heimaleikjaréttinn í úrslitakeppni karla á Íslandsmótinu í íshokkí með 7:3 sigri gegn SR í Laugardalnum í kvöld. Þegar bæði lið eiga tvo leiki eftir í deildarkeppninni hafa SA Víkingar fimm stiga forystu í efsta sæti deildarin...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rekstur-sjukrahussins-a-akureyri-ad-mestu-i-jafnvaegi-a-lidnu-ari
Rekstur Sjúkrahússins á Akureyri að mestu í jafnvægi á liðnu ári Rekstur Sjúkrahússins á Akureyri var að mestu í jafnvægi á liðnu ári, en þyngist nokkuð þegar á leið árið. Í lok nóvember hafði stöðum fækkað að meðaltali um 14 á milli ára. Gert er ráð fyrir að reksturinn í heild verði innan fjárheimilda. „Starfsemin á l...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framkvaemdir-vid-lagningu-dalsbrautar-hefjist-i-haust
Framkvæmdir við lagningu Dalsbrautar hefjist í haust Stefnt er að því að framkvæmdir við lagningu Dalsbrautar, milli Þingvallastrætis og Miðhúsabrautar verði boðnar út næsta haust, að sögn Odds Helga Halldórssonar formanns framkvæmdaráðs. Megin þungi framkvæmdanna mun þó fara fram á næsta ári. Oddur segir að viðræður s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/opid-i-hlidarfjalli
Opið í Hlíðarfjalli Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli var opnað kl. 10.00 í morgun og verður opið til kl. 16.00. Þar er hæglætisveður, 5 gráðu frost og snjóframleiðsla í gangi. Leiðindaveður var í Hlíðarfjalli siðustu tvær helgar og lítið hægt að vera á skíðum. Í Hlíðarfjalli gera menn sér hins vegar vonir um að nú sé skíðave...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sr-hafdi-betur-i-uppgjori-topplidanna-i-kvold
SR hafði betur í uppgjöri toppliðanna í kvöld SR minnkaði forskot SA Víkinga niður í tvö stig með 5:4 sigri í uppgjöri toppliðanna í kvöld á Íslandsmóti karla í íshokkí en liðin mættust í Skautahöllinni í Laugardal. SR hefur nú 30 stig í öðru sætinu en SA Víkingar 32 stig á toppnum, þegar þrjár umferðir eru eftir. Liði...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skallagrimur-lagdi-thor-i-mikilvaegum-leik
Skallagrímur lagði Þór í mikilvægum leik Skallagrímur hafði betur gegn Þór er liðin mættust í Borgarnesi í kvöld í 1. deild karla í körfubolta. Lokatölur urðu 87:78 fyrir Borgnesinga. Óðinn Ásgeirsson var besti maður Þórs í leiknum með 22 stig og 13 fráköst en fyrir Skallagrím var Darrell Flake atkvæðamestur með 37 sti...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hverfisrad-grimseyjar-osatt-vid-uthlutun-a-byggdakvota
Hverfisráð Grímseyjar ósátt við úthlutun á byggðakvóta Hverfisráð Grímseyjar er mjög ósátt við úthlutun á byggðakvóta fiskveiðiársins 2010/2011, þ.e. hversu lítiinn hluta af byggðakvóta skilar sér til staðarins, sér í lagi sé horft til nágrannastaða Grímseyjar. Ráðið er hins vegar sammála reglugerð um löndun og vinnslu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/verkefnastadan-hja-slippnum-akureyri-med-allra-besta-moti
Verkefnastaðan hjá Slippnum Akureyri með allra besta móti Verkefnastaða Slippsins Akureyri er með allra besta móti um þessar mundir. "Staðan er alveg ótrúlega góð og við sjáum fram á næg verkefni næsta hálfa árið. Staðan hefur aldrei verið jafn góð frá því við tókum við rekstrinum fyrir fimm og hálfu ári, " segir Anton...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heldur-faerri-komu-til-fjolskyldu-hjalparinnar-en-vant-er
Heldur færri komu til Fjölskyldu- hjálparinnar en vant er „Ef til vill er það góðs viti, en það komu heldur færri til okkar en vanalega," segir Gerður Jónsdóttir hjá Fjölskylduhjálp Íslands, en matvælum var úthlutað á hennar vegum síðastliðinn miðvikudag. Fjölskylduhjálpin hóf starfsemi á Akureyri í nóvember og er að s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrsti-fundur-hja-rikissatta-semjara-vegna-becromal
Fyrsti fundur hjá ríkissátta- semjara vegna Becromal Nú á eftir verður fyrsti fundur hjá ríkissáttasemjara vegna Becromal og þar munu fulltrúar úr samninganefnd við fyrirtækið mæta. Fundurinn átti að vera sl. miðvikudag en var frestað þar til í dag. Undanfarana mánuði hafa Eining-Iðja og Becromal Iceland ehf. átt í við...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bundid-verdi-i-log-hvada-thjonusta-skuli-vera-a-hverju-landsvaedi
Bundið verði í lög hvaða þjónusta skuli vera á hverju landsvæði Stjórn Landsbyggðarinnar lifi skorar á Alþingi og ríkisstjórn að binda í lög hvaða opinber þjónusta skuli vera á hverju landsvæði fyrir sig, með það að markmiði að þjónustustig sé ekki skert á þann hátt að fólki sé mismunað eftir landssvæðum. Einnig er mik...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/verdur-profsteinn-a-lidid
Verður prófsteinn á liðið Þórsarar eiga mikilvægan leik fyrir höndum í kvöld er liðið sækir Skallagrím heim í Borgarnes kl. 19:15 í 1. deild karla í körfubolta. Liðin eru bæði í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni ásamt FSu, Valsmönnum og Breiðabliki en fjögur lið komast í úrslitakeppnina. Þar stendur Þór vel að ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gudlaugur-eg-er-allur-marinn
Guðlaugur: Ég er allur marinn Varnarjaxlinn í liðið Akureyrar, Guðlaugur Arnarsson, fór á kostum í sigri norðanmanna gegn Val í kvöld í N1-deild karla í handbolta í Höllinni á Akureyri. Guðlaugur batt sterka vörn heimamanna saman en frábær fyrri hálfleikur lagði grunninn að 28:26 sigri norðanmanna. Hann var í leikslok ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-med-tveggja-marka-sigur-gegn-val
Akureyri með tveggja marka sigur gegn Val Akureyri vann í kvöld tveggja marka sigur gegn Valsmönnum, 28:26, í Íþróttahöllinni á Akureyri í N1- deild karla í handbolta. Það var frábær fyrri hálfleikur Akureyrarliðsins sem lagði grunninn að sigrinum í kvöld, en norðanmenn höfðu sjö marka forystu í hálfleik, 17:10. Valsme...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tekur-ad-lagmarki-thrja-tima-ad-saekja-laekni-fra-hrisey
Tekur að lágmarki þrjá tíma að sækja lækni frá Hrísey Fulltrúar hverfisráðs Hríseyjar mættu á fund bæjarráðs Akureyrar í morgun og ræddu stöðu heilsugæslumála í Hrísey. Lögð var fram bókun þar sem hverfisráðið, f.h. allra íbúa eyjarinnar, mótmælir harðlega þeirri skerðingu sem orðið hefur á læknisþjónustu í eyjunni. En...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/islensk-oeining-gaeti-tafid-adildarumsokn
Íslensk óeining gæti tafið aðildarumsókn Timo Summa sendiherra ESB á Íslandi telur hugsanlegt að pólitísk óeining í Evrópumálum í ríkisstjórninni og á Alþingi kunni að tefja aðildarviðræður Íslands og Evrópusambandsins. Hann telur einnig að erfiðasta samningsatriði varðandi aðild Íslands að ESB muni snúast um fjárfesti...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrsta-godamot-thors-a-arinu-haldid-um-helgina
Fyrsta Goðamót Þórs á árinu haldið um helgina Fyrsta Goðamót Þórs á árinu fer fram í Boganum um helgina, dagana 4.-6. febrúar. Mótið er nú haldið í 26. sinn og verða stelpurnar í 4. flokki í aðalhlutverki að þessu sinni. Alls verða 37 lið frá 14 félögum á mótinu sem hefst kl. 16:30 á morgun, föstudag, og lýkur með verð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samningsumbod-framsynar-hja-sgs-verdi-tafarlaust-afturkallad
Samningsumboð Framsýnar hjá SGS verði tafarlaust afturkallað Á aukaaðalfundi Framsýnar, sem haldinn var í gærkvöld, var samþykkt með lófaklappi að félagið afturkalli samningsumboð sitt frá Starfsgreinasambandi Íslands. Fundamenn lýstu óánægju sinni með þann hægagang sem verið hefði í viðræðunum og lögðu mikla áherslu á...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oxnadalsheidi-ofaer-og-bedid-med-mokstur-vegna-vedurs
Öxnadalsheiði ófær og beðið með mokstur vegna veðurs Öxnadalsheiði er ófær og þar er beðið með mokstur vegna veðurs. Ekkert ferðaveður er við vestanverðan Eyjafjörð. Það er hríðarveður í Þingeyjasýslum, víða hvasst og mikill skafbylur, raunar er óveður á Mývatnsheiði. Hálka er í Húnavatnssýslum og Skagafirði og verið e...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/n1-deildin-hefst-i-kvold-akureyri-faer-val-i-heimsokn
N1-deildin hefst í kvöld-Akureyri fær Val í heimsókn N1-deild karla í handbolta fer af stað á ný í kvöld eftir hlé með heilli umferð. Akureyri tekur á móti Val í Íþróttahöllinni og hefst leikurinn kl. 19:00. Akureyri er á toppi deildarinnar með 19 stig en Valsmenn eru í sjötta sæti með átta stig. Valur byrjaði mótið sk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skilningsleysi-og-rangtulkanir-thingmanns-samfylkingar
Skilningsleysi og rangtúlkanir þingmanns Samfylkingar Í gærkvöld boðuðu bæjaryfirvöld á Akureyri ásamt Samtökum atvinnurekenda á Akureyri og Verkalýðsfélögunum í Eyjafirði til opins fundar í Menningarhúsinu Hofi til að ræða áhrif breytinga í sjávarútvegi á annan atvinnurekstur og þjónustu í Eyjafirði. Fundurinn var vel...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tolf-fra-sa-i-aefingahopinn-fyrir-hm-i-ishokki
Tólf frá SA í æfingahópinn fyrir HM í íshokkí Sarah Smiley, þjálfari kvennalandsliðsins í íshokkí, hefur ásamt aðstoðarþjálfara sínum Helga Páli Þórissyni valið 22 manna hóp til keppni á HM kvenna í 4. deild, sem haldið verður í Reykjavík dagana 27. mars til 1. apríl næstkomandi. Þegar nær dregur mótinu munu þjálfararn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fasteignagjoldin-a-ibuavef-akureyrarbaejar
Fasteignagjöldin á íbúavef Akureyrarbæjar Álagningu fasteignagjalda í Akureyrarkaupstað er lokið og nú verður tekin upp sú nýbreytni að greiðsluseðlar verða ekki sendir út til einstaklinga yngri en 67 ára. Með þessu móti sparast um 2 milljónir króna árlega í pappírs- og útsendingarkostnað. Allir greiðendur geta eftir s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/byggingarleyfi-fyrir-vidbyggingu-atvr-fellt-ur-gildi
Byggingarleyfi fyrir viðbyggingu ÁTVR fellt úr gildi Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingamála hefur fellt úr gildi ákvörðun skipulags- og byggingarfulltrúa Akureyrar frá 17. nóvember sl. um að veita byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við húsið að Hólabraut 16 á Akureyri. Framkvæmdir við viðbygginguna áttu að vera hafnar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/opnir-fundir-med-nyjum-stjornendum-landsbankans
Opnir fundir með nýjum stjórnendum Landsbankans Nýir stjórnendur Landsbankans hafa boðað til opinna funda vítt og breitt um landið á næstu dögum. Á fundunum munu stjórnendurnir kynna nýja stefnu bankans og framtíðarsýn, breytingar sem orðið hafa og aðgerðaáætlun næstu mánaða. Jafnframt vilja þeir hlusta eftir skoðunum ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vikingar-mordu-sigur-gegn-jotnum
Víkingar mörðu sigur gegn Jötnum SA Jötnar stóðu heldur betur í SA Víkingum í Akureyrarslagnum á Íslandsmóti karla í íshokkí kvöld í Skautahöll Akureyrar. Leiknum lauk með sigri SA Víkinga, 4:3. SA Jötnar komust í þrjú núll með tveimur mörkum frá Stefáni Hrafnssyni og einu frá Helga Gunnlaugssyni. Víkingar náðu að minn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/landsbankinn-ad-ljuka-endur-utreikningi-erlendra-lana
Landsbankinn að ljúka endur- útreikningi erlendra lána Landsbankinn er nú að ljúka endurútreikningi á erlendum íbúðalánum. Þetta á við þau lán sem falla undir lög um vexti og verðtryggingu frá því í desember á síðasta ári. Tæplega 2.800 lán koma til endurútreiknings hjá Landsbankanum. Lækkun höfuðstóls erlendra lána ve...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ahrif-bodadra-breytinga-a-stjornun-fiskveida-raedd-a-fundi-i-hofi
Áhrif boðaðra breytinga á stjórnun fiskveiða rædd á fundi í Hofi Í kvöld verður haldinn á Akureyri fundur um áhrif boðaðra breytinga á stjórnun fiskveiða á sjávarútveginn og annan atvinnurekstur sem honum tengist. Fundurinn verður haldinn kl. 20 í Menningarhúsinu Hofi. Á fundinum kynnir Stefán B. Gunnlaugsson, lektor v...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samtal-um-thjodgildin-og-kristna-sidfraedi-i-glerarkirkju
Samtal um þjóðgildin og kristna siðfræði í Glerárkirkju Eru þjóðgildin bara orðin tóm? Eiga þau erindi til okkar? Hvaða máli skipta þau? Hvernig tengjast hefðir og siðir í landinu tilvist okkar og framtíðarsýn? Þessar og fleiri spurningar verða ræddar á Akureyri á mánudagskvöldum í febrúar og mars. Frummælandi fyrsta k...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-faer-lidsstyrk-fra-makedoniu
Þór fær liðsstyrk frá Makedóníu Körfuknattleiksdeild Þórs hefur samið við Dimitar Petrusev frá Makedóníu um leika með liðinu á lokasprettinum í 1. deild karla. Dimitar er væntanlegur til landsins í dag en þetta kemur fram á heimasíðu Þórs. Dimitar mun verða klár í slaginn í leikinn gegn Skallagrími næstkomandi föstudag...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/islenskar-utgerdir-greida-taepa-thrja-milljarda-krona-i-veidigjald
Íslenskar útgerðir greiða tæpa þrjá milljarða króna í veiðigjald "Íslenskar útgerðir greiða tæpa þrjá milljarða króna í veiðigjald á yfirstandandi fiskveiðiári. Veiðigjaldið nemur nú 9,5% af reiknaðri framlegð útgerðanna en slíkt gjald samsvarar um 18% af hagnaði útgerðar miðað við uppgjör Hagstofu Íslands samkvæmt árg...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samskipti-islenskra-graenlenskra-og-faereyskra-ungmenna-aettu-ad-komast-a-flug
Samskipti íslenskra, grænlenskra og færeyskra ungmenna ættu að komast á flug Með nýlegum breytingum á ferðamálasamningi Íslands, Grænlands og Færeyja gefst nú svigrúm til að styrkja samskipti landanna á sviði skólastarfs, íþrótta og menningar með sérstakri áherslu á börn og ungmenni. Tilgangurinn er að efla tengslin á ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/dundurfrettir-og-sinfoniuhljomsveit-nordurlands-flytja-the-wall
Dúndurfréttir og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands flytja The Wall Laugardagskvöldið 5. febrúar verða tónleikar í Hofi þar sem Dúndurfréttir og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands flytja The Wall, eftir Roger Waters og Pink Floyd. Einnig koma fram á tónleikunum Karlakór Dalvíkur og stúlknakór sem skipaður er nemendum Tónlistar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hreinn-thor-fra-vegna-meidsla
Hreinn Þór frá vegna meiðsla Hreinn Þór Hauksson, varnarmaðurinn sterki í liði Akureyrar, verður fjarri góðu gamni í fyrstu leikjum liðsins í N1-deildinni eftir hlé vegna meiðsla. Hreinn fór í aðgerð vegna langvarandi nárameiðsla um miðjan desember og verður að öllum líkindum frá keppni í 2-3 vikur. Þá er Geir Guðmunds...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/niu-islandsmeistaratitlar-til-ufa-a-mi-i-frjalsum
Níu Íslandsmeistaratitlar til UFA á MÍ í frjálsum Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum í flokki 15-22 ára fór fram í Laugardagshöllinni um liðna helgi. Alls kepptu 222 keppendur frá 17 félögum á mótinu. UFA átti 16 keppendur á mótinu og vann félagið til níu Íslandsmeistaratitla. Má þar nefna að Bjarki Gíslason bætti...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sa-slagur-i-skautahollinni-i-kvold-3
SA-slagur í Skautahöllinni í kvöld SA Jötnar og SA Víkingar mætast í innbyrðisviðureign Skautafélags Akureyrar í kvöld á Íslandsmóti karla í íshokkí kl. 19:30. SA Víkingar hafa 30 stig í efsta sæti og eru þegar búnir að tryggja sig inn í úrslitakeppnina sem hefst í mars. SA Jötnar hafa 16 stig í þriðja sæti, en njóta g...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leidindavedur-gert-skidafolki-erfitt-fyrir-sidustu-tvaer-helgar
Leiðindaveður gert skíðafólki erfitt fyrir síðustu tvær helgar Það hefur ekki gengið þrautarlaust fyrir skíðaáhugamenn að skella sér á skíði í Hlíðarfjalli sl. tvær helgar. Skíðasvæðið var alveg lokað um þar síðustu helgi og um nýliðna helgi var aðeins opið í fjallinu fram til kl. 13.30 á laugardag en alveg lokað í gær...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nytt-sorphirdukerfi-komid-i-notkun-sunnan-glerar
Nýtt sorphirðukerfi komið í notkun sunnan Glerár Verið er að kynna nýtt sorphirðukerfi fyrir íbúum á Oddeyri þessa dagana, en þetta nýja fyrirkomulag við sorphirðu á Akureyri hefur þegar verið tekið upp í flestum hverfum sunnan Glerár, fyrst í Lundarhverfi á liðnu hausti, þá Naustahverfi, Gerðahverfi, Suður- og Norður ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/andri-og-brynjar-haekka-sig-a-heimslistanum-i-skidagongu
Andri og Brynjar hækka sig á heimslistanum í skíðagöngu Landsliðsmennirnir í skíðagöngu, þeir Andri Steindórsson og Brynjar Leó Kristinsson, hafa báðir tekið stórt stökk upp heimslistann í ár. Andri stendur í 181 FIS-stigi í 1930. sæti en Brynjar Leó er í 2096. sæti með 193 FIS-stig. Báðir hafa þeir hækkað um þúsund sæ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-og-thor-med-sigra-a-nordurlandsmotinu-um-helgina
KA og Þór með sigra á Norðurlandsmótinu um helgina Fjórir leikir fóru fram á Norðurlandsmótinu í knattspyrnu í Boganum um helgina. Í A-riðli vann KA2 Draupnir örugglega 4:1. Steinn Gunnarsson, Hallgrímur Mar Steingrímsson, Hinrik Hinriksson og Jóhann Örn Sigurjónsson skoruðu mörk KA í leiknum. Mark Draupnis skoraði Sím...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bidlistar-eftir-oldrunarrymum-hafa-verid-ad-lengjast
Biðlistar eftir öldrunarrýmum hafa verið að lengjast Á fundi félagsmálaráðs Akureyrar í síðustu viku var kynnt staða biðlista eftir hjúkrunar-, dvalar-, skammtíma- og dagvistarrýmum fyrir aldraða. Aukin ásókn er í dagvistarrými og eru 17 manns á biðlista, auk þess eru 10 einstaklingar sem óska eftir aukinni þjónustu. Í...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/faerri-eignir-seldar-a-naudungar-solu-i-fyrra-en-arid-a-undan
Færri eignir seldar á nauðungar- sölu í fyrra en árið á undan Árið 2010 fór fram framhald nauðungarsölu, þ.e. lokasala á 83 fasteignum í umdæmi sýslumannsins á Akureyri, en auk Akureyrar nær svæðið m.a. til Dalvíkur, Grenivíkur sem og annarra þéttbýliskjarna framan þeirra í Eyjafirði sem og til sveita innan umdæmisins....
https://www.vikubladid.is/is/frettir/enn-er-halka-og-skafrenningur-a-oxnadalsheidi-og-i-oxnadal
Enn er hálka og skafrenningur á Öxnadalsheiði og í Öxnadal Öxnadalsheiði hefur verið opnuð á ný en heiðinni var lokað fyrr í dag vegna veðurs. Vindhraði fór þá upp í 26 m/s, snjómokstri var hætt og lentu ökumenn í vandræðum. Félagar í Súlum, björgunarsveitinni á Akureyri var kölluð tið aðstoðar. Hálka og skafrenningur ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/um-350-thusund-gestir-i-sundlaug-akureyar-i-fyrra
Um 350 þúsund gestir í Sundlaug Akureyar í fyrra Gestum Sundlaugar Akureyrar fjölgaði á milli áranna 2009 og 2010 um 2-3% og voru í fyrra á bilinu 340-350 þúsund talsins að sögn Elínar H. Gísladóttur forstöðumanns. „Það er sérlega ánægjulegt að gestum úr hópi eldri borgara, öryrkja og barna hefur fjölgað hjá okkur. Það...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sa-jotnar-hofdu-betur-i-botnslagnum-gegn-birninum
SA Jötnar höfðu betur í botnslagnum gegn Birninum SA Jötnar lögðu Björninn að velli, 7:3, er liðin mættust í Skautahöllinni í kvöld á Íslandsmóti karla í íshokkí. Með sigrinum eru SA Jötnar komnir með 17 stig í deildinni en Björninn dregst enn meira aftur úr en liðið er í neðsta sæti með 11 stig. Jón B. Gíslason og And...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikilvaegt-ad-halda-malefnum-reykjavikurflugvallar-a-lofti
Mikilvægt að halda málefnum Reykjavíkurflugvallar á lofti Njáll Trausti Friðbertsson flugumferðarstjóri og varabæjarfulltrúi D-lista á Akureyri segir það gríðarlega mikilvægt að halda málefnum Reykjavíkurflugvallar á lofti, enda styttist í árið 2016. Aðalskipulag Reykjavíkur gerir þá ráð fyrir aðeins einni flugbraut í ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hreint-motid-i-ishokki-i-skautahollinni-um-helgina
Hreint mótið í íshokkí í Skautahöllinni um helgina Nú um helgina fer fram fyrsta barnamót ársins í íshokkí þegar Hreint mótið verður haldið í Skautahöllinni á Akureyri. Rúmlega 150 keppendur á aldrinum 4-11 ára keppa á mótinu frá þremur félögum. Frá Skautafélagi Akureyrar koma um 75 keppendur en einnig verða keppendur ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrsta-tolublad-islenska-thjod-felagsins-adgengilegt-a-netinu
Fyrsta tölublað Íslenska þjóð- félagsins aðgengilegt á netinu Íslenska þjóðfélagið, tímarit Félagsfræðingafélags Íslands hóf göngu sína um nýliðin áramót. Ritstjórn tímaritsins er við Háskólann á Akureyri til þriggja ára og eru fyrstu ritstjórar þess Ingi Rúnar Eðvarðsson og Þóroddur Bjarnason. Ritstjórn skipa jafnfram...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/botnslagur-i-skautahollinni-i-kvold
Botnslagur í Skautahöllinni í kvöld Einn leikur fer fram á Íslandsmóti karla í íshokkí í kvöld en þá eigast við SA Jötnar og Björninn í Skautahöll Akureyrar kl. 19:30. Bæði lið eru í neðri hluta deildarinnar og því um botnslag að ræða. Björninn hefur 11 stig í neðsta sæti en SA Jötnar 13 stig sæti ofar. Björninn á ekki...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/maria-missir-af-hm-vegna-ofthjalfunar
María missir af HM vegna ofþjálfunar Skíðakonan María Guðmundsdóttir frá SKA mun ekki keppa á HM unglinga sem hefst í Sviss þann 30. janúar. Eftir því sem fram kemur í Morgunblaðinu í dag er það vegna of mikils álags og einhæfa æfinga. María hefur keppt á 18 mótum síðan í nóvember og virðist það hafa verið einum of mik...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/grimseyingar-hafa-ahyggjur-af-agangi-adkomumanna-vid-fuglaveidar
Grímseyingar hafa áhyggjur af ágangi aðkomumanna við fuglaveiðar Hverfisráð Grímseyjar samþykkti á síðasta fundi sínum að senda fyrirspurn til Akureyrarkaupstaðar um ágang aðkomumanna varðandi fuglaveiði í Grímsey. Þar er m.a. spurt um hver sé réttur og staða Grímseyjar og Grímseyinga. "Við viljum vekja athygli á þessu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/songleikjatonleikar-i-hofi-a-sunnudag
Söngleikjatónleikar í Hofi á sunnudag Alexandra Chernyshova og Michael Jón Clarke verða með söngleikjatónleika í Hamraborg í Hofi á Akureyri sunnudaginn 30. janúar kl. 16.00. Þetta er í annað sinn sem þau leiða saman hesta sína, en 2009 fluttu þau óperuna "Síminn" eftir Menotti á Akureyri, Varmahlíð og í Reykjavík. Flu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/snjomokstursmenn-a-vikur-skardi-haft-i-nogu-ad-snuast
Snjómokstursmenn á Víkur- skarði haft í nógu að snúast Víkurskarð hefur verið töluverður farartálmi í vetur, þar hefur oft verið ófært og þá sérstaklega að morgni, samkvæmt yfirliti úr dagbókum Vegagerðarinnar. Þá eru dæmi um að lögregla eða björgunarsveitir hafi þurft að aðstoða fólk sem lent hafði í vandræðum á ferð ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/katrin-nadi-verdlaunasaeti-a-fis-moti-i-sviss
Katrín náði verðlaunasæti á FIS-móti í Sviss Katrín Kristjánsdóttir, skíðakona frá SKA, náði glæsilegum árangri í FIS-móti í Sviss sl. miðvikudag er hún hafnaði í öðru sæti í svigi. Með árangrinum bætti Katrín punktastöðu sína talsvert. Alls hófu 55 manns keppni og 48 kláruðu en nokkuð langt er síðan að Íslendingur náð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eimskip-og-kiwanis-halda-afram-ad-gefa-reidhjolahjalma
Eimskip og Kiwanis halda áfram að gefa reiðhjólahjálma Fyrir átta árum tóku Kiwanishreyfingin og Eimskipafélag Íslands höndum saman að fyrirmynd Kiwanisklúbbsins Kaldbaks á Akureyri og gáfu reiðhjólahjálma á landsvísu. Frá upphafi verkefnisins hafa hátt í 30 þúsund hjálmar verið gefnir sex ára börnum á Íslandi, eða um ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fundur-samherja-mun-snuast-gegn-kvotakerfinu-i-sjavarutvegi
Fundur Samherja mun snúast gegn kvótakerfinu í sjávarútvegi Sigurjón Þórðarson skrifar Ég hef mikla trú á Oddi Helga Halldórssyni stofnanda og leiðtoga L- listans á Akureyri. Hann hefur ávallt komið mér fyrir sjónir sem jarðbundinn og heiðarlegur stjórnmálamaður. Á dögunum fór forstjóri Samherja, Þorsteinn Már Baldvins...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skipulagsnefnd-gerir-athugasemd-vid-efnistoku-i-landi-hvamms
Skipulagsnefnd gerir athugasemd við efnistöku í landi Hvamms Skipulagsnefnd Akureyrar gerir athugasemd við að í tillögu að breytingu á aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar vegna efnistökusvæða sé gert ráð fyrir efnistöku í landi Hvamms þar sem áformin varða hagsmuni íbúa Akureyrarkaupstaðar og gesta hans með afgerandi hætt...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eg-for-iskaldur-inn-a-vollinn
„Ég fór ískaldur inn á völlinn“ Hornamaðurinn Oddur Gretarsson hlaut eldskírn sína með íslenska landsliðinu í handbolta á stórmóti er hann kom inn á undir lok leiksins gegn Frökkum sl. þriðjudag á HM í Svíþjóð. Oddur hefði ekki getað fengið erfiðari mótherja í sínum fyrsta leik þar sem franska liðið er ríkjandi heims-,...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-hafdi-betur-i-toppslagnum-gegn-fsu
Þór hafði betur í toppslagnum gegn FSu Þór hafði betur gegn FSu með tíu stiga mun, 89:79, er liðin mættust í kvöld í Íþróttahöllinni á Akureyri í 1. deild karla í körfubolta. Með sigrinum styrkti Þór stöðu sínum í öðru sæti deildarinnar og hefur nú 20 stig eftir fjórtán umferðir, fjórum stigum meira en FSu sem er í þri...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vatnavextir-i-eyjafjardarsveit
Vatnavextir í Eyjafjarðarsveit Miklir vatnavextir fylgdu í kjölfar hlýinda í kringum síðustu helgi í Eyjafjarðarsveit og fór allt á flot á svæðinu í kringum Hrafnagil, þar sem rétt sást glitta í toppa girðingarstraura í námunda við veginn austur yfir í Laugaland. Jónas Vigfússon sveitarstjóri segir að vatnavextir séu b...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/braedslumenn-a-thorshofn-vilja-vidraedur-vid-isfelagid
Bræðslumenn á Þórshöfn vilja viðræður við Ísfélagið Starfsmenn loðnubræðslu Ísfélags Vestmannaeyja á Þórshöfn lögðu niður störf í morgun til að ræða mótun kröfugerðar og stöðuna sem komin er upp meðal bræðslumanna í öðrum verksmiðjum á Íslandi. Hjá bræðslunni vinna 18 starfsmenn. Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum h...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/helst-vantar-leikskolarymi-i-naustahverfi
Helst vantar leikskólarými í Naustahverfi Sesselja Sigurðardóttir leikskólaráðgjafi mætti á fund skólanefndar Akureyrar í vikunni og gerði grein fyrir áætlaðri stöðu mála í innritun barna í leikskólana á þessu ári. Þar kom fram að 249 börn útskrifast úr leikskóla í vor og haust. Árgangur 2009 telur 272 börn og eru nú þ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rakel-og-arna-fara-ekki-til-spanar
Rakel og Arna fara ekki til Spánar Ekkert verður af því að knattspyrnukonurnar frá Þór/KA. þær Rakel Hönnudóttir og Arna Sif Ásgrímsdóttir, fari á lán til Atletico Malaga á Spáni fram til vorsins. Þegar allir skilmálar beggja aðila höfðu verið samþykktir þá tóku forsvarsmenn Málaga þá ákvörðun að hætta við vegna fjárha...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/var-buin-ad-fa-launalaust-leyfi-vegna-stjornlagathings
Var búin að fá launalaust leyfi vegna stjórnlagaþings "Niðurstaða Hæstaréttar kom mér óvart, ekki síst í ljósi þess hversu seint hún kemur fram, þar sem þingið átti að hefjast 15. febrúar. Ég hef samt ákveðið að halda sálarró og bíða eftir niðurstöðu stjórnvalda. Það er ekki búið að taka ákvörðun um hvort þetta verður ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leikur-sem-vid-verdum-ad-vinna
Leikur sem við verðum að vinna Það verður toppbaráttuslagur í boði í Íþróttahöllinni á Akureyri í kvöld þegar Þór og FSu mætast í 1. deild karla í körfubolta kl. 19:15. Þór er í öðru sæti deildarinnar með 18 stig en FSu hefur 16 stig í þriðja sætinu en hafa leikið einum leik minna en norðanmenn. „Þetta er leikur sem vi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/a-sjavarutvegur-vid-eyjafjord-framtidina-fyrir-ser
Á sjávarútvegur við Eyjafjörð framtíðina fyrir sér? Á sjávarútvegur við Eyjafjörð framtíðina fyrir sér? Þeirri spurningu verður reynt að svara á fundi um áhrif breytinga í sjávarútvegi á annan atvinnurekstur og þjónustu í Eyjafirði, sem haldinn verður í Menningarhúsinu Hofi þriðjudaginn 1. febrúar kl. 20:00. Alþingismö...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heildarafli-skipa-brims-svipadur-milli-ara-en-meira-aflaverdmaeti
Heildarafli skipa Brims svipaður milli ára en meira aflaverðmæti Aflaverðmæti skipa Brims á árinu 2010 námu rúmum 8 milljörðum króna og var aukningin um 10% frá fyrra ári þó svo heildarafli skipanna hafi verið sá sami á milli ára, í tonnum talið. Frystitogarinn Guðmundur í Nesi RE 13 var með mesta aflaverðmætið, samtal...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sjo-tilbod-barust-i-veidi-i-hedinsfjardara
Sjö tilboð bárust í veiði í Héðinsfjarðará Tilboð voru opnuð í Héðinsfjarðará nýlega, en áin er nú með tilkomu Héðinsfjarðarganga orðin aðgengileg veiðimönnum. Áður þurfti ýmist að ganga í nokkrar klukkustundir yfir fjallaskarð eða fara sjóleiðina til að komast að Héðinsfjarðará. Alls bárust sjö tilboð í ána, fimm þeir...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oruggur-sigur-sa-vikinga-gegn-sr-i-kvold
Öruggur sigur SA Víkinga gegn SR í kvöld SA Víkingar unnu stórsigur á SR í Skautahöll Akureyrar í kvöld á Íslandsmóti karla í íshokkí. SA vann leikinn 6:1 og hefur þar með þriggja stiga forskot í deildinni en liðin voru jöfn að stigum fyrir leikinn með 27 stig hvort. Þetta eru liðin sem munu berjast um Íslandsmeistarat...