Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aldur-barna-sem-fa-nidurgreidslu-verdi-haekkadur-i-16-ar
Aldur barna sem fá niðurgreiðslu verði hækkaður í 16 ár Á síðasta fundi íþróttaráðs Akureyrar var tekið fyrir erindi, þar sem Samtaka, svæðisráð foreldra nemenda í grunnskólum Akureyrar, fer fram á að bæjaryfirvöld endurskoði afstöðu sína gagnvart niðurgreiðslum vegna íþrótta- og tómstundaiðkunar barna með lögheimili í...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gretar-sigradi-a-akureyrarmoti-kfa
Grétar sigraði á Akureyrarmóti KFA Grétar Skúli Gunnarsson sigraði á Akureyrarmóti KFA í kraftlyftingum annað árið í röð en mótið fram fór í Jötunheimum sl. helgi. Grétar hlaut 418 stig í efsta sæti. Auk þess bætti hann fjögur Íslandsmet í öllum greinum og í samanlögðu. Í öðru sæti á mótinu varð Ormar Agnarsson með 322...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sigur-og-tap-i-dag-hja-islenska-krullulandslidinu
Sigur og tap í dag hjá íslenska krullulandsliðinu Ísland tapaði fyrir Hvít-Rússum í dag í jöfnum og spennandi leik, 9-10, í C-keppni Evrópumótsins í krullu. Íslenska liðið lenti undir, 0-5, strax í upphafi, komst síðan yfir, 9-8, en fékk svo á sig tvö stig í lokaumferðinni. Í morgun unnu Íslendingar unnu Serba, 8-5, og...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorka-i-meistaradeild-evropu
Þór/KA í Meistaradeild Evrópu Þór/KA náði sínum besta árangri í sögu félagsins er liðið hafnaði í öðru sæti Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu. Þór/KA vann Aftureldingu 4:0 á útivelli í lokaumferðinni í dag og tryggði sér þar með sæti í Meistaradeild Evrópu að ári. Annað sæti deildarinnar stóð á milli Þórs/KA og Breiða...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikill-fjoldi-gesta-i-sundlaug-akureyrar-i-sumar
Mikill fjöldi gesta í Sundlaug Akureyrar í sumar „Þetta var prýðisgott sumar, hingað kom fjöldi gesta líkt og vaninn er," segir Elín Gísladóttir forstöðumaður Sundlaugar Akureyrar. Nokkru fleiri gestir komu í sundlaugina en í fyrra og segir Elín það ánægjulegt. Engin stór sundmót voru haldin í Sundlaug Akureyrar í suma...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/islendingar-trona-a-toppnum-a-evropumotinu-i-krullu
Íslendingar tróna á toppnum á Evrópumótinu í krullu Íslendingar tróna nú einir á toppnum í C-keppni Evrópumótsins í krullu með þrjá sigra í þremur leikjum, eftir sigur á Tyrkjum í gær. Liðið leikur tvo leiki í dag, gegn Serbum kl. 10 og Hvít-Rússum kl. 15 að skoskum tíma. Íslendingar unnu einnig Slóvaka í gær, 6-5, í ö...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/brytur-thorka-blad-i-sogu-felagsins
Brýtur Þór/KA blað í sögu félagsins? Mikil spenna er í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu fyrir lokaumferðina sem leikinn verður í dag þó að Íslandsmeistaratitillinn sé þegar farinn á loft. Enn á eftir að ráðast hvaða lið fellur ásamt Haukum og hvaða lið tryggir sér seinna Evrópusætið. Þór/KA og Breiðablik bítast um það ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sa-vikingar-hofu-titilvornina-med-sigri-i-kvold
SA Víkingar hófu titilvörnina með sigri í kvöld SA Víkingar hófu titilvörnina á Íslandsmóti karla í íshokkí með 6:3 sigri gegn Birninum er liðin áttust við í Skautahöll Akureyrar í kvöld. Heimamenn hófu leikinn af krafti og Andri Freyr Sverrisson skoraði tvö mörk á tveggja mínútna kafla um miðbik fyrsta leikhluta. Þega...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/horft-til-thess-ad-fjolga-ferdafolki-yfir-veturinn
Horft til þess að fjölga ferðafólki yfir veturinn Ásbjörn Björgvinsson framkvæmdastjóri Markaðsskrifstofu ferðamála segir að nú horfi menn mjög til þess að auka við vetrarferðamennsku í fjórðungnum enda hafi hann upp á margt að bjóða í þeim efnum. Gert er ráð fyrir að Færeyingar komi í töluverðum mæli til Akureyrar í v...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hjartastudtaeki-i-flutningabilum-landflutninga-samskipa
Hjartastuðtæki í flutningabílum Landflutninga-Samskipa Í tilefni alþjóðlega Hjartadagsins, sem haldinn er í tíunda sinn á heimsvísu á sunnudaginn, hafa Landflutningar-Samskip ákveðið að koma fyrir alsjálfvirkum hjartastuðtækjum í flutningabílum á öllum helstu akstursleiðum félagsins. Þetta er gert til að auka almennt ö...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/savikingar-hefja-titilvornina-i-kvold
SAVíkingar hefja titilvörnina í kvöld SAVíkingar hefja titilvörnina í kvöld er liðið fær Björninn í heimsókn í Skautahöll Akureyrar kl. 17:30 á Íslandsmóti karla í íshokkí. Liðin áttust við í æsispennandi úrslitakeppni í fyrra sem endaði með sigri SA í fimmta leik liðanna. Liðin mættust einnig tvisvar í æfingaleik sín ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sigur-i-fyrsta-leiknum-a-em-i-krullu
Sigur í fyrsta leiknum á EM í krullu Íslenska landsliðið í krullu sigraði Lúxemborg í fyrsta leik sínum í C-flokki Evrópumótsins í krullu sem fram fer í Skotlandi. Strax í fyrstu umferð sýndu Íslendingar klærnar og skoruðu 5 stig og var raunar aldrei spurning eftir það hvort liðið færi með sigur af hólmi. Endanlegar tö...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fikniefnasala-a-akureyri
Fíkniefnasala á Akureyri Síðastliðið miðvikudagskvöld handtók lögreglan á Akureyri fjóra menn í bifreið við Giljaskóla. Grunsemdir höfðu vaknað um að tveir mannanna, bræður um tvítugt, stæðu í fíkniefnasölu og styrktist sá grunur þegar lögreglan fann nokkra poka með marijuana á mönnunum. Að fengnum dómsúrskurði framkvæ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rekstarafkoma-sjukrahussins-a-akureyri-i-jafnvaegi
Rekstarafkoma Sjúkrahússins á Akureyri í jafnvægi Rekstarafkoma Sjúkrahússins á Akureyri fyrstu 7 mánuði ársins er í jafnvægi. Gjöld umfram tekjur eru 5,7 milljónir eða 0,2%. Launakostnaður hefur lækkað um 2,2% frá fyrra ári og er um 13 milljónir innan áætlunar eða 0,7%. Stöðum hefur fækkað um 18 að meðaltali á milli á...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/spennandi-leikar-framundan-i-freyvangi
Spennandi leikár framundan í Freyvangi Það verður líf og fjör á fjölum Freyvangs í Eyjafjarðarsveit í vetur, þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Fyrsta frumsýningin hjá Freyvangsleikhúsinu verður fimmtudaginn 30. september nk. Um er að ræða leikritið, Bannað börnum - erótísk hryllingskómedía, sem skrifa...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/upprunalegir-hvanndalsbraedur-med-tonleika-a-graena-hattinum
Upprunalegir Hvanndalsbræður með tónleika á Græna hattinum Vegna 8 ára afmælis Hvanndalsbræðra ætlar upprunalega útgáfan að koma saman á Græna hattinum á Akureyri í kvöld, föstudag og á morgun laugardag. Þetta eru þeir Rögnvaldur gáfaði, Valur og Sumarliði Hvanndal en þeir félagar spiluðu fyrir hálftómu húsi á Græna ha...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/slaturtid-gengur-vel-hja-nordlenska
Sláturtíð gengur vel hjá Norðlenska Meðalvigt dilka sem slátrað hefur verið fram til þessa hjá Norðlenska á Húsavík er örlítið lægri en var á sama tíma í fyrra, en holdfylling er meiri sem og fita. Sláturtíð hefur gengið vel enda húsið vel mannað hæfu starfsfólki með mikla reynslu. Sigmundur Hreiðarsson vinnslustjóri N...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/neytendabylting
Neytendabylting Agnes Arnardóttir skrifar Það sem er að gerast núna í íslensku þjóðfélagi er ekki til þess fallið að skapa hér lífvænlega búsetu. Hver höndin upp á móti annarri. Krafa um að stjórnvöld og alþingismenn geri eitthvað, eitthvað, eitthvað... En hvað með okkur sjálf? Eigum við ekki að gera eitthvað. Eigum vi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nu-getur-felagid-farid-ad-blomstra
„Nú getur félagið farið að blómstra” Það var stór stund hjá Fimleikafélagi Akureyrar á dögunum þegar félagið fékk afhent nýtt æfingahúsnæði í Giljaskóla en hingað til hafa æfingar hjá félaginu farið fram við þröngan kost í Íþróttahúsi Glerárskóla. Birna Ágústsdóttir, formaður FIMAK, segir þetta stóran og merkan áfanga ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vill-samstarf-vid-akureyrarbae-um-thjonustu-vid-fatlada
Vill samstarf við Akureyrarbæ um þjónustu við fatlaða Á fundi félagsmálanefndar Eyjafjarðarsveitar í gær var rætt um tilfærslu þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitafélaga. Akureyrarbær er tilbúinn til samstarfs við nágrannasveitarfélögin um myndun þjónustusvæðis á grunni þeirrar leiðar sem kölluð er; "þjónustusamnin...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oskad-eftir-samvinnu-vid-baeinn-um-rannsoknir-a-hauggasi
Óskað eftir samvinnu við bæinn um rannsóknir á hauggasi Á fundi bæjarráðs Akureyrar í morgun, var tekið fyrir erindi þar sem Dofri Hermannsson fyrir hönd Metanorku ehf óskar eftir samvinnu við Akureyrarbæ um frekari rannsóknir á hauggasi í urðunarstaðnum á Glerárdal með söfnun, vinnslu og sölu þess í huga. Bæjarráð sam...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vatnsleki-i-fjolbylishusi-a-akureyri
Vatnsleki í fjölbýlishúsi á Akureyri Slökkvilið Akureyrar var kallað að fjölbýlishúsi við Tjarnarlund skömmu eftir miðnætti sl. nótt, eftir að upp kom vatnsleki í íbúð á þriðju hæð hússins. Vatn flæddi um íbúðina, auk þess sem vatn lak á milli hæða og í íbúðir á 2. og 1. hæð hússins. Ekki fengust upplýsingar hjá slökkv...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sgs-veitt-umbod-til-ad-gera-kjarasamninga-fyrir-hond-einingar-idju
SGS veitt umboð til að gera kjarasamninga fyrir hönd Einingar-Iðju Á fundi samninganefndar Einingar-Iðju sem haldinn var í gær var samþykkt samhljóða að veita Starfsgreinasambandinu umboð til að gera kjarasamninga fyrir hönd félagsins. Umboðið nær til aðalkjarasamninga við Samtök atvinnulífsins og annarra kjarasamninga...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarstjorn-akureyrar-stadfestir-tillogur-skipulagsnefndar
Bæjarstjórn Akureyrar staðfestir tillögur skipulagsnefndar Bæjarstjórn Akureyrar staðfesti á fundi sínum í gær, tillögur skipulagsnefndar að falla frá auglýstri tillögur að deiliskipulagi fyrir Drottningarbrautarreit og að láta vinna heildstæða tillögu að deiliskipulagi fyrir reit sem afmarkast af Kaupvangsstræti, Hafn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lengi-lifi-thor-i-thorpinu-lesendabref
Lengi lifi Þór í Þorpinu (lesendabréf) Ágætum Þórsurum allra tíma óska ég hjartanlega til hamingju með stórsigurinn á Hamri á laugardegi lukkunnar og uppförina í Úrvalsdeild! Ég hefi persónulega aldrei haft yfir Þórsurum að kvarta; margar glæstustu minningar mínar frá Grasinu græna og hinum mjúka Moldarvelli eru stútfu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjallabyggd-kaupir-slokkvibifreid-fra-akureyri
Fjallabyggð kaupir slökkvibifreið frá Akureyri Fjallabyggð hefur fest kaup á slökkvibifreið (tankbíl) Slökkviliðs Akureyrar og var farið með bílinn til Siglufjarðar á dögunum. Hann er hugsaður sem aukið viðbragð í tengslum við tilkomu Héðinsfjarðarganga, sem verða opnuð formlega í næsta mánuði. Umræddur slökkvibíll hef...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sigvaldi-baud-laegst-i-vidgerd-a-girdingu-vid-andapollinn
Sigvaldi bauð lægst í viðgerð á girðingu við Andapollinn Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkti á síðasta fundi sínum að ganga til samninga við Sigvalda Guðmundsson um viðgerð á girðingunni í kringum Andapollinn. Á fundinum var farið yfir niðurstöður verðkönnunar á viðgerðinni og átti Sigvaldi lægsta tilboðið, rúmar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/erfid-akvordun-ad-yfirgefa-ka
„Erfið ákvörðun að yfirgefa KA" „Mér fannst þetta rétti tíminn til þess að breyta til. Þar sem samningur minn við félagið var að renna út núna í október og ég fékk skemmtilegt tilboð annars staðar frá ákvað ég að segja skilið við félagið á þessum tímapunkti,” segir Dean Martin, sem sl. mánudag hætti störfum sem þjálfar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ha-gerir-samstarfssamning-vid-haskola-i-astraliu
HA gerir samstarfssamning við háskóla í Ástralíu Paul Martin, yfirmaður AgLaw Centre við Háskólann í New England í Ástralíu, flytur erindi í Háskólanum á Akureyri kl. 12.10 á föstudag sem nefnist; Creating the next generation of natural resource management laws and markets that work, that are fair and are less costly. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thrir-thorsarar-i-urvalslid-1-deildarinnar
Þrír Þórsarar í úrvalslið 1. deildarinnar Nú síðdegis í dag var lið ársins í 1.deild karla í knattspyrnu opinberað í Gyllta salnum á Hótel Borg við Austurvöll. Vefsíðan fotbolti.net fékk þjálfara og fyrirliða deildarinnar til að velja lið keppnistímabilsins. Þrír Þórsarar eru í byrjunarliðinu og tveir á bekknum. Liðið ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vatnsmal-til-umraedu-a-fundi-sveitarstjornar-grytubakkahrepps
Vatnsmál til umræðu á fundi sveitarstjórnar Grýtubakkahrepps Vatnsmál voru til umræðu á fundi sveitarstjórnar Grýtubakkahrepps í gær en eins og fram hefur komið, hefur vatnsskortur látið á sér kræla á Grenivík í sumar. Halldór Baldursson kom á fundinn í gær, þar sem rætt var sérstaklega um að fanga vatn í gildru úr lin...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oskad-eftir-umsoknum-um-verk-efnastudning-fra-vaxtarsamningi
Óskað eftir umsóknum um verk- efnastuðning frá Vaxtarsamningi Óskað er eftir umsóknum um verkefnastuðning frá Vaxtarsamningi Eyjafjarðar og rennur umsóknarfrestur út á morgun, miðvikudaginn 22. september. Allar atvinnugreinar hafa jafna möguleika á stuðningi, uppfylli umsóknir skilyrði og helstu atriði sem lögð eru til...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vimuakstur-og-fikniefni-a-akureyri-1
Vímuakstur og fíkniefni á Akureyri Síðdegis í gærdag handtók lögreglan á Akureyri mann um tvítugt grunaðan um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna. Í framhaldi af því var gerð húsleit á heimili hans þar sem hald var lagt á um 20 grömm af kannabisefnum auk tækja og tóla til neyslu þeirra. Auk þess kom í ljós að maðu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vinnustadaskirteini-gegn-svartri-atvinnustarfsemi-og-undirbodum
Vinnustaðaskírteini gegn svartri atvinnustarfsemi og undirboðum Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ, fjallaði um vinnustaðaskírteini á trúnaðarráðsfundi Einingar-Iðju í gær. Þar sagði hann m.a. frá tilurð þeirra og tilgangi. Vinnustaðaskírteinunum er ætlað að vinna gegn svartri atvinnustarfsemi og undirboðum...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/pall-vidar-gislason-verdur-afram-med-thorslidid
Páll Viðar Gíslason verður áfram með Þórsliðið Páll Viðar Gíslason verður áfram þjálfari meistaraflokks Þórs í knattspyrnu, en þetta staðfestir Unnsteinn Jónsson formaður knattspyrnudeildar félagsins við Vikudag. Unnsteinn segir einnig vonast eftir því að Hreinn Hringsson verði áfram aðstoðarþjálfari liðsins. „Það er v...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/arna-valgerdur-samdi-vid-fylki
Arna Valgerður samdi við Fylki Arna Valgerður Erlingsdóttir, handknattleikskona frá Akureyri, hefur samið við Fylki um að leika með liðinu í vetur í N1-deild kvenna. Arna þurfti að finna sér nýtt lið eftir að KA/Þór hætti við að senda lið til þátttöku í úrvalsdeild. Frá þessu er greint á mbl.is.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/visindakaffi-a-akureyri-i-bodi-ha-og-rannis
Vísindakaffi á Akureyri í boði HA og Rannís Í tilefni af Vísindavöku 2010 og Degi evrópska vísindamannsins bjóða Háskólinn á Akureyri og Rannís upp á Vísindakaffi á Akureyri fimmtudaginn 23. september kl. 20:00 Í Hofi á 1862 Nordic Bistro. Vísindakaffið ber yfirskriftina: Erfðabreytt framtíð - sjálflýsandi gullfiskar o...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/runar-freyr-runarsson-haettur-vid-ad-haetta
Rúnar Freyr Rúnarsson hættur við að hætta Rúnar Freyr Rúnarsson leikmaður SA, er hættur við að hætta og verður áfram með liðinu í vetur á Íslandsmótinu í íshokkí. Rúnar gaf það út eftir að SA varð Íslandsmeistari í vor að sennilega myndi hann leggja skóna, eða öllu heldur skautana á hilluna. „Þetta kemur bæði útaf þrýs...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjarhagsrammi-fyrir-sumarvinnu-fatlada-og-slokkvilid-verdi-aukinn
Fjárhagsrammi fyrir sumarvinnu fatlaða og slökkvilið verði aukinn Á síðasta fundi framkvæmdaráðs Akureyrarbæjar var farið yfir endurskoðun á fjárhagsáætlun 2010 og stöðu framkvæmda framkvæmdadeildar fyrstu 7 mánuði ársins 2010. Framkvæmdaráð óskar eftir því við bæjarráð að fjárhagsrammi fyrir sumarvinnu fatlaðra verði ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/dean-martin-haettur-sem-thjalfari-ka
Dean Martin hættur sem þjálfari KA Dean Martin, þjálfari meistaraflokks KA í knattspyrnu, óskaði í dag eftir því að láta af störfum sem þjálfari og leikmaður hjá KA. Samningur hans við félagið, sem var til þriggja ára, átti að renna út í lok október. Dean Martin hefur í það heila spilað vel á þriðja hundrað leiki fyrir...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/evropski-tungumaladagurinn-haldinn-26-september
Evrópski tungumáladagurinn haldinn 26. september Að frumkvæði Evrópuráðsins hefur Evrópski tungumáladagurinn verið haldin árlega þann 26. september frá því árið 2001. Yfir 6.000 tungumál eru töluð í heiminum og á bak við hvert þeirra liggur rík og fjölbreytt menning. Markmið Evrópska tungumáladagsins eru einkum að; vek...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/landslid-islands-i-krullu-keppir-a-em
Landslið Íslands í krullu keppir á EM Landslið Íslands í krullu í karlaflokki, skipað leikmönnum úr Krulludeild Skautafélags Akureyrar, heldur utan nú í vikunni til þátttöku í C-flokki Evrópumótsins sem fram fer í Skotlandi 24.-28. september. Liðsmennirnir eru Haraldur Ingólfsson (fyrirliði), Jens Kristinn Gíslason, Sv...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyrarlidin-fara-vel-af-stad-i-ishokkiinu
Akureyrarliðin fara vel af stað í íshokkíinu Íslandsmótið í íshokkí hófst sl. helgi í meistaraflokki karla og kvenna. Í karlaflokki lagði SAJötnar SR að velli 6:4 í Skautahöllinni í Laugardal. Þá lögðu SAValkyrjur SR að velli 12:0 í kvennaflokki og því fara Akureyrarliðin vel af stað í íshokkíinu.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorka-vann-storsigur-a-kr-velli
Þór/KA vann stórsigur á KR-velli Þór/KA átti ekki í vandræðum með KR á KR-vellinum í dag í Pepsi-deild kvenna. Þór/KA vann leikinn 6:0. Rakel Hönnudóttir og Danka Podovac skoraði tvö mörk hvor fyrir norðanstúlkur og þær Mateja Zver og Vesna Smiljkovic skoruðu eitt mark hvor. Breiðablik vann 9:3 stórsigur á Haukum á sam...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vinnustadir-eiga-ad-gera-ahaettumat-a-storfum-starfsmanna
Vinnustaðir eiga að gera áhættumat á störfum starfsmanna Á fundi bæjarráðs Akureyrar í vikunni var lagt fram til kynningar erindi frá Vinnueftirlitinu þar sem kynntar eru skyldur bæjar- og sveitarstjórna varðandi vinnuverndarstarf í fyrirtækjum og stofnunum. Þar kemur meðal annars fram að allir vinnustaðir eiga að gera...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/pall-vidar-stor-stund-fyrir-thor
Páll Viðar: Stór stund fyrir Þór „Mér líður bara mjög vel og er montinn. Sennilega bulla ég bara eitthvað en það verður bara að hafa það,” sagði Páll Viðar Gíslason þjálfari Þórs við Vikudag, hrærður eftir frækinn 9:1 sigur sinna manna gegn Fjarðabyggð á Þórsvelli í dag í lokaumferð 1. deildar karla í knattspyrnu. Þórs...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorsarar-upp-i-urvalsdeild-med-stael
Þórsarar upp í úrvalsdeild með stæl Þórsarar tryggðu sér sæti úrvaldsdeildinni með 9:1 sigri gegn Fjarðabyggð á Þórsvelli í dag í lokaumferð Íslandsmótsins í 1. deild karla í knattspyrnu. Þórsarar sett hreinlega upp sýningu fyrir áhorfendur og komu sér upp í úrvalsdeildina með glæsibrag. Á sama tíma lagði Fjölnir Leikn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/um-100-thusund-dosir-af-hledslu-seljast-a-manudi
Um 100 þúsund dósir af Hleðslu seljast á mánuði Sala á prótein íþróttadrykknum Hleðslu hefur farið fram út björtustu vonum, en drykkurinn er árangur vöruþróunar hjá starfsfólki MS-Akureyri. Jón Ingi Guðmundsson framleiðslu- og verkstjóri ferskvörudeilda MS-Akureyri segir að um 100 þúsund dósir af Hleðslu séu seldar í h...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/trui-ad-fjolnir-geri-okkur-greida
Trúi að Fjölnir geri okkur greiða Lokaumferð Íslandsmótsins í 1. deild karla í knattspyrnu fer fram í dag og hefjast allir leikirnir kl. 14:00. KA sækir ÍA heim en mikil spenna verður á Þórsvelli þar sem heimamenn fá Fjarðabyggð í heimsókn. Víkingur R. tryggði sér þátttökurétt í efstu deild með sigri gegn KA í síðustu ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjolbreytt-starfsemi-hja-simey-i-vetur
Fjölbreytt starfsemi hjá Símey í vetur „Það verður mikið um að vera hjá okkur í vetur, ýmsar námsleiðir í boði auk fjölbreyttra námskeiða á öllum sviðum," segir Erla Björg Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Símeyjar, Símenntunarmiðstöðvar Eyjafjarðar. Tvær starfsstöðvar eru á vegum Símeyjar, á Akureyri og í námsveri á Dal...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/islandsmotid-i-ishokki-hefst-um-helgina-sa-sendir-tvo-lid-til-leiks
Íslandsmótið í íshokkí hefst um helgina-SA sendir tvö lið til leiks Þá er það orðið staðfest að Skautafélag Akureyrar mun tefla fram tveimur liðum í meistaraflokki karla í íshokkí í vetur. Liðin hafa hlotið nöfnin Víkingar og Jötnar en komist Akureyringar í úrslitakeppnina munu þessi tvö lið sameinast í eitt. Íslandsmó...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/blodgjofum-fer-fjolgandi
Blóðgjöfum fer fjölgandi Stjórn Blóðgjafafélags Íslands var á Akureyri í síðustu viku og heimsótti þá m.a. útibú Blóðbankans á FSA. Við það tækifæri mætti Arnór Þorgeirsson starfsmaður FSA í blóðgjöf í 94. skipti en hann er sá einstaklingur sem oftast hefur gefið blóð í Blóðbankanum á Akureyri. Einnig voru mættir til a...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/orkumal-til-umraedu-a-ibuafundi-i-grimsey
Orkumál til umræðu á íbúafundi í Grímsey Orkumálastjóri, ásamt starfsmönnum Akureyrarskrifstofu Orkustofnunar, tveimur fulltrúum RARIK og Akureyrarbæjar og fulltrúa iðnaðarráðuneytisins, fóru til fundar við íbúa í Grímsey á dögunum og ræddu við þá um orkumál í eyjunni. Aðstæður voru skoðaðar í eyjunni og um kvöldið var...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vadlaheidarganga-a-morgun-laugardag
Vaðlaheiðarganga á morgun laugardag Á morgun, laugardaginn 18. september, er áformuð ganga á vegum Greiðrar leiðar ehf. yfir Vaðlaheiði milli væntanlegra gangamunna Vaðlaheiðarganga. Lagt verður af stað í gönguna frá Skógum (gamli Vaðlaheiðarvegurinn) í Fnjóskadal kl 10:30. Vaðlaheiðargöng verða 7,4 km að lengd og geng...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/um-120-thatttakendur-a-samnorraeni-radstefnu-um-ferdamalafraedi
Um 120 þátttakendur á samnorræni ráðstefnu um ferðamálafræði Samnorræn ráðstefna um ferðamálafræði, sú 19. í röðinni, verður haldin í Hofi - menningarhúsi Akureyringa dagana 22.-24. september nk. Um 120 þátttakendur eru skráðir á ráðstefnuna og koma þeir víðsvegar að úr heiminum og kynna sínar rannsóknir. Þema ráðstefn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/umtalsvert-tekjufall-hja-akureyrarbae-i-sumar
Umtalsvert tekjufall hjá Akureyrarbæ í sumar Umtalsvert tekjufall hefur orðið hjá Akureyrarbæ í sumar. Verði tekjur undir áætlunum til ársloka bíður bæjaryfirvalda erfið vinna við gerð fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár, að mati bæjarstjórans á Akureyri. Svo virðist sem mjög greinilegur samdráttur sé í tekjum margra sveit...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leikir-helgarinnar
Leikir helgarinnar Akureyrarliðin Þór, KA og Þór/KA verða öll í eldlínunni um helgina á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Í 1. deildinni fer lokaumferðin fram á morgun og þar ræðst það hvort Leiknir eða Þór fylgir Víkingi í efstu deild. Í Pepsi- deild kvenna er Þór/KA í harðri baráttu við Breiðablik um Evrópusæti, þegar tve...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/um-80-thusund-manns-um-bord-i-skemmtiferdaskipum-sumarsins
Um 80 þúsund manns um borð í skemmtiferðaskipum sumarsins Um 55 þúsund farþegar lögðu leið sína til Akureyrar með skemmtiferðaskipum á liðinu sumri, eitt er raunar ókomið enn, en síðasta skemmtiferðaskip þessa sumars er væntanlegt 1. október næstkomandi. Pétur Ólafsson skrifstofustjóri hjá Hafnasamlagi Norðurlands segi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nordurorka-oskar-eftir-vidraedum-vid-baejaryfirvold-um-rannsoknir-a-gasi
Norðurorka óskar eftir viðræðum við bæjaryfirvöld um rannsóknir á gasi Norðurorka hf. hefur óskað eftir viðræðum við bæjaryfirvöld á Akureyri vegna rannsókna og vinnslu "hauggas" á Glerárdal. Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar lét Norðurorku fyrir nokkru í té minnisblað; Forathugun á framleiðslu á metangasi fyrir koltrefj...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nytt-hjukrunarheimili-verdur-reist-vid-vestursidu
Nýtt hjúkrunarheimili verður reist við Vestursíðu Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi sínum í morgun, með 3 atkvæðum gegn 2 atkvæðum Guðmundar Baldvins Guðmundssonar og Njáls Trausta Friðbertssonar, að breyta fyrri ákvörðun bæjarráðs um staðsetningu hjúkrunarheimilis og samþykkti að heimilið skuli reist við Vestursíðu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/metadsokn-ad-tjaldstaedinu-vid-hrafnagil-i-sumar
Metaðsókn að tjaldstæðinu við Hrafnagil í sumar Aldrei hafa jafn margir gestir sótt tjaldstæðið að Hrafnagili heim og á liðnu sumri, en þar voru skráðar um 12 þúsund gistinætur sumarið 2010. Metaðsókn var í júlí og ágúst en rólegra aftur á móti í júnímánuði. Um 80% gestanna eru Íslendingar. Guðrún Sigurjónsdóttir forst...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hafnarfjardarmotid-i-beinni-a-sporttvis
Hafnarfjarðarmótið í beinni á SportTV.is Hafnarfjarðarmótið í handbolta hefst í kvöld og stendur fram á laugardag. Akureyri verður meðal keppenda en hægt verður að sjá alla leikina á mótinu í beinni útsendingu á SportTV.is. Dagskráin er þannig: Fimmtudagur 16. september kl. 18:00 FH - Valur kl. 20:00 Haukar – Akureyri ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mjolnismenn-bjartsynir-fyrir-leikinn-a-laugardaginn
Mjölnismenn bjartsýnir fyrir leikinn á laugardaginn „Stemmningin hjá okkur er bara fín og menn eru fullur bjartsýni fyrir leikinn,” segir Óðinn Svan Óðinsson meðlimur í Mjölnismönnum, sem eru dyggir stuðningsmenn karlaliðs Þórs í 1. deildinni í knattspyrnu. Mjölnismenn hafa verið áberandi á heimaleikjum Þórs í sumar og...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fallid-fra-tillogu-ad-deiliskipulagi-fyrir-drottningarbrautarreit
Fallið frá tillögu að deiliskipulagi fyrir Drottningarbrautarreit Skipulagsnefnd samþykkti á fundi sínum í dag, 15. september, að falla frá auglýstri tillögu að deiliskipulagi fyrir Drottningarbrautarreit. Skipulagsnefnd samþykkti jafnfnframt að láta vinna heilstæða tillögu að deiliskipulagi fyrir reit sem afmarkast af...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aukin-eftirspurn-eftir-fjarhags-adstod-hja-fjolskyldudeild
Aukin eftirspurn eftir fjárhags- aðstoð hjá fjölskyldudeild Fjárhagsaðstoð fjölskyldudeildar Akureyrarbæjar hefur haldið áfram að aukast umfram áætlun á fyrri helmingi ársins. Málið var til umræðu á síðasta fundi félagsmálaráð og m.a. kynnt yfirlit yfir fjárhagsaðstoð tímabilið janúar til júlí sl. Um hundrað manns þigg...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarstjori-og-forseti-baejarstjornar-i-heimsokn-hja-einingu-idju
Bæjarstjóri og forseti bæjarstjórnar í heimsókn hjá Einingu-Iðju Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju bauð þeim Eiríki Birni Björgvinssyni, bæjarstjóra á Akureyri, og Geir Kristni Aðalsteinssyni, forseta bæjarstjórnar, í heimsókn á skrifstofu félagsins á Akureyri nýlega. Þeir þáðu boðið og komu í gær og héldu fun...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fimm-metra-ha-varda-hladin-a-brun-hlidarfjalls
Fimm metra há varða hlaðin á brún Hlíðarfjalls Laugardaginn 11. september sl. lagði 12 manna hópur síðustu hönd á hleðslu fimm metra hárrar vörðu á brún Hlíðarfjalls við Akureyri. Margir hafa komið að því verki sem hófst á síðasta ári með söfnun steina sem síðan hefur verið hlaðið upp undir styrkri stjórn Tómasar Júlíu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/andri-snaer-samdi-vid-odder
Andri Snær samdi við Odder Handboltamaðurinn Andri Snær Stefánsson hefur samið við danska 1. deildar liðið Odde Håndbold Klub. Andri gerir samning til eins árs en hann lék áður með liði Akureyrar. Andri hefur leikið með liði Odder sl. fimm vikur og spilað nokkra æfingaleiki og gengið vel. Hann segir við Vikudag að honu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/yfir-550-seljendur-ferdathjonustu-a-vestnorden-a-akureyri
Yfir 550 seljendur ferðaþjónustu á Vestnorden á Akureyri Vestnorden ferðakaupstefnan hefst á Akureyri á morgun, miðvikudag og stendur fram á föstudag. Þar koma saman yfir 550 seljendur ferðaþjónustu á Íslandi, Grænlandi og Færeyjum og kaupendur víðs vegar að úr heiminum. Kaupstefnan er einstakt tækifæri fyrir seljendur...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sveinn-elias-i-bann-missir-af-leiknum-gegn-fjardabyggd
Sveinn Elías í bann-Missir af leiknum gegn Fjarðabyggð Sveinn Elías Jónsson leikmaður Þórs var dæmdur í tveggja leikja bann af Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ í dag. Hann mun því missa af leik Þórs og Fjarðabyggðar í lokaumferð 1. deildarinnar á laugardaginn kemur. Eru þetta slæm tíðindi fyrir Þór sem eru í harðri baráttu v...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ljosastaur-yfir-gangbraut-brotnadi-og-fell-a-gangstett
Ljósastaur yfir gangbraut brotnaði og féll á gangstétt Betur fór en á horfðist þegar ljósastaur við gangbraut yfir Þórunnarstræti á Akureyri, rétt ofan við lögreglustöðina, brotnaði og féll á gangstéttina nú fyrir stundu. Mildi þykir að staurinn hafnaði ekki á bíl eða gangandi vegfaranda. Reyndar er leiðindaveður á Aku...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/man-enginn-eftir-odru-eins
„Man enginn eftir öðru eins” Golfarar á Jaðarsvelli hafa farið hamförum í sumar og alls hafa níu manns farið holu í höggi, þar af einn tvisvar en það er Björgvin Þorsteinsson margfaldur Íslandsmeistari. Það var einmitt Björgvin sem hóf faraldurinn um miðjan júlí í sumar. Nú síðast fór varaformaður Golfklúbbs Akureyrar,...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/einelti-og-ungt-folk-netid-og-abyrgd-samfelagsins
Einelti og ungt fólk, netið og ábyrgð samfélagsins Einelti er ekki einkamál þeirra sem í því lenda, heldur samfélagslegt vandamál. Einelti er ofbeldi sem hefur í för með sér alvarlegar afleiðingar, bæði fyrir einstaklinga og fyrir samfélagið í heild. Nauðsynlegt er að taka upp umræðu um einelti á opinberum vettvangi og...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/blodbankabillinn-med-blod-sofnun-a-glerartorgi-a-morgun
Blóðbankabíllinn með blóð- söfnun á Glerártorgi á morgun Blóðbankabíllinn verður með blóðsöfnun á Glerártorgi á morgun, miðvikudaginn 15. september, frá kl. 11.30 til 17.30. Blóðbankinn þarf á 70 blóðgjöfum að halda daglega til að anna eftirspurn heilbrigðistofnanna um allt land. Hægt er að gefa blóð á þremur stöðum: B...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/keppa-i-danmorku-i-siglingum
Keppa í Danmörku í siglingum Þeir Gauti Elfar Arnarson, Þorlákur Sigurðsson og Björn Heiðar Rúnarsson héldu út til Danmerkur í morgun í æfinga- og keppnisferð í siglingum. Þeir félagar eru allir meðlimir í siglingaklúbbnum Nökkva á Akureyri og munu taka þátt í Open Danish Championship um næstkomandi helgi, þar sem best...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nyjum-sorpilatum-dreift-i-lundahverfi-i-manudinum
Nýjum sorpílátum dreift í Lundahverfi í mánuðinum Stór skref hafa verið stigin í sorpmálum á Akureyri á síðustu árum. Má þar helst nefna að reist var jarðgerðarstöð fyrir lífrænan úrgang sem til fellur á Eyjafjarðarsvæðinu. Einnig voru möguleikar á förgun úrgangs svæðisins vandlega skoðaðir og lauk þeirri skoðun með að...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/styrkur-veittur-i-karlasmidju-fyrir-langtima-atvinnulausa
Styrkur veittur í karlasmiðju fyrir langtíma atvinnulausa Samfélags- og mannréttindaráð Akureyrarbæjar samþykkti á síðasta fundi sínum að veita styrk að upphæð krónur 800.000 til tilraunaverkefnis um karlasmiðju fyrir langtíma atvinnulausa. Erindi barst frá Starfsendurhæfingu Norðurlands ehf um styrk að upphæð ein mill...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/menntaskolinn-a-akureyri-settur-i-morgun
Menntaskólinn á Akureyri settur í morgun Menntaskólinn á Akureyri var settur í morgun á Sal skólans í Kvosinni, að viðstöddu fjölmenni, nemendum, starfsfólki og forráðamönnum nemenda. Alls eru nemendur skólans um 760 talsins í vetur, þar af um 230 nýnemar á fyrsta ári og 16 þeirra koma beint úr 9. bekk í grunnskóla. Um...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/riflega-100-a-bidlista-eftir-felagslegum-leiguibudum
Ríflega 100 á biðlista eftir félagslegum leiguíbúðum Jón Heiðar Daðason húsnæðisfulltrúi Akureyrarbæjar kynnti stöðu biðlista eftir félagslegum leiguíbúðum 31. júlí sl. á síðasta fundi félagsmálaráðs. Þá biðu 107 eftir íbúð en voru 100 á sama tíma árið 2009. Biðtími eftir tveggja herbergja íbúðum er nú um það bil tvö á...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/serthjonusta-fyrir-folk-med-olaeknandi-og-lifsognandi-sjukdoma
Sérþjónusta fyrir fólk með ólæknandi og lífsógnandi sjúkdóma Þjónustumiðstöð Tryggingastofnunar stendur fyrir tilraunaverkefni sem felst í sérþjónustu fyrir fólk með ólæknandi og lífsógnandi sjúkdóma. Markmið verkefnisins er að hverjum þeim sem glímir við slíka sjúkdóma bjóðist aðstoð sérhæfðs þjónusturáðgjafa við að n...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/forseti-asi-fundadi-med-stjorn-einingar-idju
Forseti ASÍ fundaði með stjórn Einingar-Iðju Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands, fundaði með stjórn Einingar-Iðju fyrir helgi en fundurinn var liður í fundarferð Gylfa með öllum stjórnum aðildarfélaga um land allt. Tilefni fundarferðarinnar er að kynna fyrir stjórnunum fyrirhugaðar skipulagsbreytingar á...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/varaformadur-ga-for-holu-i-hoggi
Varaformaður GA fór holu í höggi Rúnar Antonsson varaformaður Golfklúbbs Akureyrar gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á Jaðarsvelli í gær sunnudag. Hann sló drauma höggið á 18. holu og fór kúlan beint í holu á lofti. Rúnar notaði 7 járn í höggið. Þetta er í annað sinn sem Rúnar fer holu í höggi en í fyrra skipti...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ovissa-um-aframhaldandi-starfsemi
Óvissa um áframhaldandi starfsemi „Mér sýnist staðan vera sú að allir bíði eftir að ráðinn verði verkefnisstjóri atvinnumála hjá Akureyrarbæ og ég sé ekki betur en menn leggi allt traust sitt á hann, að hann verði eins konar töframaður sem leysi öll mál,“ segir Rúnar Þór Björnsson en hann hefur starfað hjá Grasrót-Iðng...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fh-sigradi-opna-nordlenska-motid
FH sigraði Opna Norðlenska mótið FH fór með sigur af hólmi á Opna Norðlenska mótinu í handbolta sem fram fór í Íþróttahöllinni á Akureyri um helgina. FH og Akureyri léku til úrslita og hafði FH betur 29:26 en norðanmenn leiddu í hálfleik 13:12. Geir Guðmundsson var markahæstur í liði Akureyrar í leiknum með 11 mörk og ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/unnid-ad-endurbotum-a-kristnesi
Unnið að endurbótum á Kristnesi Framkvæmdir við endurbætur á Kristnesi eru nú nýlega hafnar og áætlað að þeim ljúki um næstu áramót. Sjúkrahúsið á Akrueyri fékk 60 milljónir króna af fjárveitingu sem stjórnvöld ákváðu fyrr á árinu að verja til átaks um viðhald opinberra fasteigna um allt land. Framkvæmdastjórn SA ákvað...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/faerri-brudkaup
Færri brúðkaup Færri brúðkaup hafa verið á Akureyri í sumar en verið hefur undanfarin sumur samkvæmt upplýsingum sem Vikudagur hefur frá Akureyrarkirkju og Glerárkirkju. Þá virðist starfsfólki einnig að mun minna sé lagt upp úr slíkum athöfnum en áður var. Athafnir í báðum kirkjum hafa verið færri en undanfarin ár, en ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vikingur-upp-eftir-sigur-gegn-ka-thorsarar-topudu-a-kopavogsvelli
Víkingur upp eftir sigur gegn KA- Þórsarar töpuðu á Kópavogsvelli Víkingur R. tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni í dag með því að leggja KA 2:0 að velli á Akureyrarvelli á Íslandsmótinu í 1. deild karla í knattspyrnu. Það voru þeir Viktor Örn Guðmundsson og Marteinnn Briem sem skoruðu mörk gestanna. Gestirnir voru mun ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/utlit-fyrir-ad-kornuppskera-verdi-i-medallagi
Útlit fyrir að kornuppskera verði í meðallagi Þresking á korni er hafin í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum og lítur vel út með uppskeru að sögn Ingvars Björnssonar ráðunautar hjá Búgarði. Hann telur að líklega verði einhver samdráttur í ræktuninni, einkum á Eyjafjarðarsvæðinu en það muni koma betur í ljós þegar uppskerustö...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/setur-ka-strik-a-reikninginn
Setur KA strik á reikninginn? „Þetta verður verðugt verkefni og örugglega hörkuleikur. Við erum búnir að gleyma þessum Þórsleik og erum núna bara að einblína á leikinn gegn Víkingi,” segir Haukur Heiðar Hauksson bakvörðurinn sterki í liði KA. Þeir gulklæddu eiga erfitt verkefni fyrir höndum í dag er topplið 1. deildari...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aetlum-ad-klara-okkar-leiki
„Ætlum að klára okkar leiki” „Þetta verður erfiður leikur en við erum alveg tilbúnir í hann og mætum fullir sjálfstrausts,” segir hinn ungi og efnilegi Atli Sigurjónsson leikmaður Þórs, sem sækir HK heim á laugardaginn kemur kl. 14:00 á Íslandsmótinu í 1. deild karla í knattspyrnu. Þór heldur enn í vonina um að komast ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/325-sjukraflug-a-arinu
325 sjúkraflug á árinu Slökkvilið Akureyrar hefur farið 325 sjúkraflug það sem af er árinu og flutt 355 sjúklinga. Um er að ræða fjölgun fluga á milli áranna 2009 og 2010 en einnig bættust Vestmannaeyjar inn í Þjónustusvæði liðsins. Nú stefnir í að á þessu 13. starfsári liðsins í sjúkraflugi þá fari heildarfjöldi sjúkr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nemendum-fjolgar-i-grimsey-og-hrisey
Nemendum fjölgar í Grímsey og Hrísey Skólastarf í Grímsey og Hrísey hófst á dögunum og fjölgar grunnskólanemendum á báðum stöðum. Tólf nemendur hófu nám í Grímseyjarskóla og er það fjölgun um einn frá því í fyrra. Alls eru 15 nemendur í skólanum, því þrír krakkar eru í leikskólanum sem er samtvinnaður grunnskólanum. Ke...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thetta-er-mikil-ahorfendasyning
“Þetta er mikil áhorfendasýning” Það verður mikið um dýrðir í Menningarhúsinu Hofi í kvöld, þegar Leikfélag Akureyrar frumsýnir söngleikinn Rocky Horror. Þetta er jafnframt fyrsta sýningin sem sett er upp í Hofi. Richard O’Brien skrifaði The Rocky Horror Show árið 1973 og verkið var frumsýnt 19. júní sama ár í London. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skiptar-skodanir-um-stadsetningu-a-nyju-hjukrunarheimili
Skiptar skoðanir um staðsetningu á nýju hjúkrunarheimili Á fundi bæjarráðs Akureyrar í morgun var rætt að nýju um staðsetningu á nýju hjúkrunarheimili á Akureyri en afgreiðslu málsins var frestað. Á dögunum var haldinn íbúafundur um málið og segir Oddur Helgi Halldórsson formaður bæjarráðs að fundurinn hafi verið góður...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tiu-milljonir-til-vidbotar-til-atvinnuataksverkefna
Tíu milljónir til viðbótar til atvinnuátaksverkefna Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi sínum í morgun, viðbótarfjárheimild að upphæð 10 milljónir króna vegna atvinnuátaksverkefna. Fyrir fundinum lá fundargerð stjórnar Akureyrarstofu, þar sem fram kom að fjárheimild til atvinnuátaksverkefna fyrir þetta ár væri uppurin...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/namskeid-um-vidhald-og-verdmaeti-fasteigna-i-hofi
Námskeið um viðhald og verðmæti fasteigna í Hofi Nýsköpunarmið Íslands bauð á opið námskeið um viðhald og verðmæti fasteigna í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri í gær og var það vel sótt. Um er að ræða samstarfsverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar og Íbúðalánasjóðs við fagfólk og sérfræðinga á ákveðnum sviðum. Haldnar voru fjór...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/opna-nordlenska-um-helgina
Opna Norðlenska um helgina Akureyri Handboltafélag heldur sex liða æfingamót í Íþróttahöllinni um helgina, Opna Norðlenska mótið þar sem sex liða taka þátt. Um sterkt mót er að ræða en auk heimamanna eru það Fram, Valur, Grótta, FH og Stjarnan sem leika á mótinu. Leikið verður í tveimur riðlum og hefst mótið seinni par...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/malum-vegna-skulda-i-skolum-fjolgad-um-50-a-milli-ara
Málum vegna skulda í skólum fjölgað um 50 á milli ára Dan Brynjarsson fjármálastjóri Akureyrarbæjar og Eggert Þór Óskarsson forstöðumaður fjárreiðudeildar mættu á síðasta fund skólanefndar og gerðu grein fyrir fyrirkomulagi innheimtumála og fóru yfir stöðuna á innheimtum sem heyra undir skóladeild. Fram kom að málum hj...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/saemdur-heidursdoktors-nafnbot-vid-hug-og-felagsvisindasvid-ha
Sæmdur heiðursdoktors nafnbót við hug og félagsvísindasvið HA Á morgun fimmtudag, verður Nigel David Bankes prófessor við lagadeild Háskólans í Calgary, sæmdur heiðursdoktors nafnbót við hug og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri vegna ómetanlegs framlags síns á sviði heimskautaréttar og tengdra greina. Nigel Bankes...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/meirihluti-baejarstjornar-samthykkti-leid-b-vid-sorphirdu
Meirihluti bæjarstjórnar samþykkti leið B við sorphirðu Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti á fundi sínum í gær, með 7 atkvæðum gegn 4, ákvörðun framkvæmdaráðs frá 6. ágúst sl. um að breyta fyrri ákvörðun við sorphirðu úr leið A í leið B, sem er í samræmi við umsögn og bókun meirihluta umhverfisráðs 19. ágúst. Leið B gerir...