Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tilbod-opnud-i-rannsoknar-boranir-vegna-vadlaheidarganga
Tilboð opnuð í rannsóknar- boranir vegna Vaðlaheiðarganga Ræktunarsamband Flóa og Skeiða ehf. á Selfossi bauð lægst í rannsóknarboranir vegna Vaðlaheiðarganga en tilboðin voru opnuð hjá Vegagerðinni í gær. Alls bárust fjögur tilboð í verkið og hljóðaði lægsta tilboðið upp á tæpar 36,9 milljónir króna, eða 78% af kostna...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/syning-i-motun-i-radhusinu-a-akureyri-a-althjodadegi-laesis
Sýning í mótun í Ráðhúsinu á Akureyri á alþjóðadegi læsis "Ég óska þess að Akureyringum hlotnist fiskasafn þar sem krakkar geti séð og komið við fiskinn." Þannig hljóðar ósk Köru Lífar Antonsdóttur, sem mætti sem fulltrúi leikskólanna á Akureyri við opnun sýningar í Gallerí Ráðhús, í morgun, á alþjóðadegi læsis. Sýning...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikil-svifryksmengun-a-akureyri
Mikil svifryksmengun á Akureyri Mikill svifryksmengun hefur verið á Akureyri í dag og er ástæðan líklega sandfok af hálendinu. Svifriksstyrkur síðasta klukkutímann er um 200 en heilsuverndarviðmiðin eru 50 míkrógrömm í rúmmetra á sólarhring. Að sögn veðurfræðings á Veðurstofu Íslands sýna gervitunglamyndir fok norður ú...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mjolkursamsalan-vekur-athygli-a-nyyrdum-i-nyju-islenskuataki
Mjólkursamsalan vekur athygli á nýyrðum í nýju íslenskuátaki Hvað er beturviti og banastrik? Hvaða aðrar merkingar hefur orðið gemsi? Þessum spurningum og mörgum öðrum er velt upp á mjólkurfernum landsmanna í nýju málræktarátaki Mjólkursamsölunnar. Í átakinu er áhersla lögð á nýyrði og nýyrðasmíðar auk þess sem fjallað...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/breid-samstada-um-aflamarks-kerfi-og-langtima-rett-til-aflaheimilda
Breið samstaða um aflamarks- kerfi og langtíma rétt til aflaheimilda Starfshópur um endurskoðun laga um stjórn fiskveiða hefur nú skilað skýrslu sinni. Í starfs-hópnum myndaðist breið samstaða um að byggja áfram á aflamarkskerfi og fara svokallaða samningaleið. Sú leið grundvallast á samningum ríkisins og rétthafa afla...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tonlistarskolinn-var-rekinn-innan-heimilda-a-sidasta-skolaari
Tónlistarskólinn var rekinn innan heimilda á síðasta skólaári Skólastjóri Tónlistarskólans, Hjörleifur Örn Jónsson, kom á fund skólanefndar í gær og gerði grein fyrir starfsemi skólans og áætluðum breytingum á starfsemi hans eftir flutning í nýtt húsnæði í Hofi. Þar kom m.a. fram að á síðasta skólaári var skólinn rekin...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/logreglan-oskar-eftir-sjalfboda-lidum-vid-aefingu-neydaraaetlunar
Lögreglan óskar eftir sjálfboða- liðum við æfingu neyðaráætlunar Lögreglan á Akureyri óskar eftir 13-15 sjálfboðaliðum við æfingu neyðaráætlunar fyrir Akureyrarflugvöll en æfingin fer fram fimmtudaginn 9. september næstkomandi. Sjálfboðaliðarnir þurfa að mæta í afgreiðsluna í flugstöðinni kl. 12:00 þar sem þeim verður ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oskir-til-handa-akureyringum-til-arsins-2015
Óskir til handa Akureyringum til ársins 2015 Á Alþjóðadegi læsis, á morgun miðvikudaginn 8. september, verður opnuð sýning í Gallerí Ráðhús sem staðsett er í bæjarstjórnarsalnum á 4. hæð í ráðhúsinu á Akureyri. Þá er almenningi boðið að heimsækja Gallerí Ráðhús frá klukkan 8.15 - 16.00 og skrifa og/eða teikna óskir sín...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/daniel-berg-hugsanlega-lids-vid-akureyri
Daníel Berg hugsanlega liðs við Akureyri Handknattleiksmaðurinn Daníel Berg Grétarsson er hugsanlega á leið til Akureyrar Handboltafélags og leika með liðinu í N1-deildinni í vetur. Að sögn forsvarsmanns Akureyrar ræðst það um helgina hvort af félagsskiptunum verði. Meiri líkur en minni eru taldar á að svo verði en han...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/logreglan-stodvadi-bruggframleidslu-a-akureyri
Lögreglan stöðvaði bruggframleiðslu á Akureyri Lögreglan á Akureyri stöðvaði bruggfarmleiðslu í einbýlishúsi í bænum í gær og lagði hald brugg og búnað. Við leit í húsinu fundust 13 lítrar af eimuðum spíra, tæpir 300 lítrar af gambra í gerjun og eimingartæki. Lögregla gerði leitina vegna gruns um bruggstarfssemi í húsi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-bikarmeistari-kvenna-i-3-flokki
Þór bikarmeistari kvenna í 3. flokki Stúlkurnar í 3. flokki Þórs í knattspyrnu eru Vísabikarmeistarar í AL/NL riðli eftir 3:0 sigur gegn Fjarðabyggð/Leikni í úrslitaleiknum á Þórsvelli sl. laugardag. Það var Laufey Kristjánsdóttir sem skoraði fyrsta mark Þórs í leiknum og þær Amanda Mist Pálsdóttir og Sandra Mist Jesse...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leikfelag-akureyrar-og-hof-med-sameiginlega-midasolu-i-menningarhusinu
Leikfélag Akureyrar og Hof með sameiginlega miðasölu í menningarhúsinu Leikfélag Akureyrar og Menningarhúsið Hof hafa ákveðið að reka sameiginlega miðasölu og verður hún staðsett í Hofi. Í þessu felst mikil hagræðing fyrir þessar menningarstofnanir og þægilegra verður fyrir íbúa Akureyrar og nágrennis og alla þá sem sæ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fanndis-hlaut-djaknabikarinn-a-gaedingamoti-lettis-og-goda
Fanndís hlaut Djáknabikarinn á Gæðingamóti Léttis og Goða Gæðingamót Léttis og Goða í hestaíþróttum fór fram á Akureyri sl. helgi. Að þessu sinni var það Fanndís Viðarsdóttir sem hlaut Djáknabikarinn. Þóra Höskuldsdóttir hlaut Þytsbikarinn en bikarinn hlýtur það barn eða unglingur sem hlýtur hæstu einkunn í forkeppni. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vifilfell-bruggar-nyjan-bjor-ur-lifraent-raektudu-hraefni-1
Vífilfell bruggar nýjan bjór úr lífrænt ræktuðu hráefni Nú fyrr í sumar fékk Víking Ölgerð á Akureyri fyrst íslenskra ölgerða lífræna vottun frá vottunarstöðinni Túni. Vottunin hefur mikið gildi fyrir Víking Ölgerð sem nú hefur framleitt fyrsta íslenska bjórinn þar sem eingöngu eru notuð bestu fáanlegu lífrænt ræktuðu ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skemmdir-unnar-a-bekkjum-vid-sundlaug-akureyrar
Skemmdir unnar á bekkjum við Sundlaug Akureyrar Skemmdir voru unnar á tveimur bekkjum í nótt, sem staðsettir eru við Sundlaug Akureyrar. Þegar starfsfólk kom til vinnu í morgun, var búið að henda bekkjunum úr töluverðri hæð ofan í rampinn við íþróttahúsið við Laugagötu. Ekki létu þeir sem þarna voru að verki þar við si...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/verkthekking-og-reynsla-er-ekki-keypt-ut-i-bud
Verkþekking og reynsla er ekki keypt út í búð Björn Friðþjófsson framkvæmdastjóri Tréverks á Dalvík, sem var aðalverktakinn við nýbyggingu Háskólans á Akureyri, færði skólanum að gjöf, fyrir hönd fyrirtækisins, veglegt ræðupúlt við vígslu hússins á dögunum. Einnig afhenti hann Stefáni B. Sigurðssyni lykilinn að nýja hú...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ibuar-fari-med-endurvinnslu-sorp-ut-a-hverfisvelli
Íbúar fari með endurvinnslu- sorp út á hverfisvelli Fulltrúar L-listans í framkvæmdaráði Akureyrarbæjar samþykktu á dögunum að farin yrði leið B í sorphirðu á Akureryi, en fjallað var um sorpmál og framtíðarsýn á fundi ráðsins á dögunum. Tvær leiðir, nefndar A og B voru til umfjöllunar og sýndist sitt hverjum. Helgi Má...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stjarnan-lagdi-thorka-ad-velli
Stjarnan lagði Þór/KA að velli Stjarnan lagði Þór/KA 3:2 á Stjörnuvelli í dag í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu. Mateja Zver skoraði bæði mörk Þórs/KA en þær Soffía Gunnarsdóttir, Katie McCoy og Inga Birna Friðjónsdóttir skoruðu mörk Stjörnunar. Inga Birna skoraði sigurmarkið tveimur mínútum fyrir leikslok. Þá urðu þa...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/arna-sif-og-silvia-ran-i-hopnum-sem-leikur-i-forkeppni-em
Arna Sif og Silvía Rán í hópnum sem leikur í forkeppni EM Þær Arna Sif Ásgrímsdóttir og Silvía Rán Sigurðardóttir frá Þór/KA voru báðar valdar í U19 landsliðshóp kvenna í knattspyrnu, fyrir forkeppni EM 2011. Forkeppnin fer fram í Búlgaríu og leikur Ísland í riðli með heimamönnum, Ísrael og Úkraínu. Leikirnir fara fram...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/erfitt-ad-fa-fagfolk-til-starfa-a-fsa-um-thessar-mundir
Erfitt að fá fagfólk til starfa á FSA um þessar mundir „Þetta er barátta, það er staðreynd að nú gengur hægar en oft áður að fá fagfólk til starfa, einkum lækna, það er langt í frá auðvelt að fá t.d. sérfræðinga af ýmsu tagi," segir Halldór Jónsson forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri. Nýverið hafa þrjár stöður lækna, de...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/althjodadagur-laesis-8-september
Alþjóðadagur læsis 8. september Frá árinu 1965 hafa Sameinuðu þjóðirnar helgað 8. september málefnum læsis. Íslendingar hafa getað boðið börnum sínum tækifæri til lestrarnáms en læsi er nú skilgreint af SÞ sem grunnlífsleikni. Til að viðhalda lestrarfærni þarf að iðka lestur. Þess er vænst að landsmenn íhugi þau lífsgæ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sprenging-i-hundahaldi-a-akureyri
Sprenging í hundahaldi á Akureyri Hundum hefur fjölgað mjög á Akureryi undanfarin ár, en nú eru um 530 hundar skráðir í bænum. Fyrir um áratug voru þeir um 200 talsins. Drög að nýrri samþykkt um hundahald í sveitarfélaginu voru til umfjöllunar á fundi framkvæmdaráðs á morgun, en ýmsar breytingar eru í farvatninu frá fy...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjar-og-stodrettir-i-eyjafirdi-og-fnjoskadal-i-haust
Fjár- og stóðréttir í Eyjafirði og Fnjóskadal í haust Réttarstörf eru að hefjast og næstu daga verður mikið um að vera í Dalvíkurbyggð. Í dag föstudag er réttað í Syðraholtsrétt og Garðshornsrétt. Á morgun laugardag er réttað í Teigsrétt, Hofsrétt og Hofsársrétt. Á sunnudag er svo réttað í Tungurétt. Aðrar fjár- og stó...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/horfur-i-byggingaridnadi-ekki-godar-fyrir-veturinn
Horfur í byggingariðnaði ekki góðar fyrir veturinn „Í augnablikinu er staðan örlítið skárri en hún var á sama tíma í fyrra, það eru færri af okkar félagsmönnum á atvinnuleysisskrá en aftur á móti eru horfurnar fyrir veturinn verri og þar skiptir mestu að það eru engin stór verkefni framundan," segir Heimir Kristinsson ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bjartmar-ornuson-keppir-a-nordurlandamoti-22-ara-og-yngri-i-svithjod
Bjartmar Örnuson keppir á Norðurlandamóti 22 ára og yngri í Svíþjóð Bjartmar Örnuson frá UFA er einn fimm Íslendinga sem keppir á Norðurlandamóti 22 ára og yngri frjálsum íþróttum, sem haldið verður í Söderhamn í Svíþjóð um helgina. Átta íslenskir frjálsíþróttamenn náðu lágmörkum á mótið en fimm þeirra taka þátt í móti...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorsarar-a-toppinn-eftir-oruggan-sigur-a-ka
Þórsarar á toppinn eftir öruggan sigur á KA Þórsarar tylltu sér á topp 1. deildar karla í knattspyrnu eftir 3:0 sigur gegn KA á Þórsvelli í kvöld. Það voru þeir Atli Sigurjónsson, Þorsteinn Ingason og Sigurður Marínó Kristjánsson sem skoruðu mörk Þórs í leiknum. Þar með hefur Þór 40 stig á toppi deildarinnar, einu stig...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tvaer-nyjar-gonguleidir-med-bekkjum-vigdar-a-akureyri
Tvær nýjar gönguleiðir með bekkjum vígðar á Akureyri Þann 8. september er alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar. Á Akureyri verða af því tilefni vígðar tvær gönguleiðir með bekkjum. Gönguleiðirnar eru sérstaklega hannaðar með þarfir þeirra sem lakir eru til gangs, í huga. Önnur er út frá Víðilundi, hin út frá Lindarsíðu. V...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hagnadur-islenskra-verdbrefa-63-milljonir-krona-fyrstu-sex-manudi-arsins
Hagnaður Íslenskra verðbréfa 63 milljónir króna fyrstu sex mánuði ársins Rekstur Íslenskra verðbréfa var í samræmi við áætlanir fyrstu sex mánuði ársins 2010, en félagið skilaði 63 milljóna króna hagnaði á tímabilinu. Mikill vöxtur var á öllum sviðum eignastýringar, hvort sem horft er til einstaklinga eða fagfjárfesta,...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gerir-athugasemdir-vid-haekkanir-a-gjaldskra-hriseyjarferju
Gerir athugasemdir við hækkanir á gjaldskrá Hríseyjarferju Á fundi bæjarráðs Akureyrar í morgun var tekið fyrir erindi frá Michael Jóni Clarke og Sigurlínu Jónsdóttur þar sem þau vekja athygli á mikilli hækkun ferjugjalda til Hríseyjar og einnig vildu þau koma á framfæri óánægju sinni með að aðeins þeir sem lögheimili ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oli-synir-vida-um-heim
Óli sýnir víða um heim Það er skammt stórra högga á milli hjá listmálaranum Óla G. Jóhannssyni. Hann hefur verið með sýningar víða um heim og hafa verk hans vakið mikla athygli. Nýlega lauk sýningu á verkum Óla í Seoul í Suður Kóreu og þá átti hann verk á umfangsmikilli afmælissýningu Opera Gallery í New York. Sýningin...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjallahjolabraut-i-kjarnaskogi-vigd-a-laugardaginn
Fjallahjólabraut í Kjarnaskógi vígð á laugardaginn Fjallahjólreiðar er vaxandi íþrótt á Íslandi og er nú komið að því að vígja fyrstu sérhönnuðu fjallahjólabraut landsins en hún er í Kjarnaskógi við Akureyri. Á laugardaginn verður brautin vígð formlega og í kjölfarið verður leiðsögn um spennandi og krefjandi fjallahjól...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-og-ka-maetast-a-thorsvelli-i-kvold
Þór og KA mætast á Þórsvelli í kvöld Það verður væntanlega eldfimt andrúmsloftið á Þórsvelli kl. 18:00 í kvöld þegar nágrannaliðin Þór og KA mætast í 20. umferð Íslandsmótsins í 1. deild karla í knattspyrnu. Mikið er undir fyrir heimamenn í leiknum sem einfaldlega verða að vinna í kvöld. KA-menn sigla lygnan sjó um mið...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tillogur-ad-breytingu-a-skipulagi-akureyrarflugvallar-auglystar
Tillögur að breytingu á skipulagi Akureyrarflugvallar auglýstar Akureyrarkaupstaður hefur auglýst tillögu að breytingu á aðalskipulagi og deiliskipulagi Akureyrarflugvallar. Deiliskipulagstillagan gerir m.a ráð fyrir stækkun flugstöðvarbyggingarinnar, nýju flughlaði og breytingu á byggingarreit og lóðarmörkum fyrir vör...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/styrktargangan-gongum-saman-i-kjarnaskogi-a-sunnudag
Styrktargangan Göngum saman í Kjarnaskógi á sunnudag Sunnudaginn 5. september verður árleg styrktarganga Göngum saman. Í ár verður gengið á sjö stöðum á landinu, Akureyri, Reykjavík, Patreksfirði, Ísafirði, Hólum í Hjaltadal, Reyðarfirði og Höfn. Þátttakendur eru beðnir um að greiða kr. 3.000 og renna göngugjöldin óski...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/guiseppe-funicello-farinn-fra-thor
Guiseppe Funicello farinn frá Þór Ítalinn og vinstri bakvörðurinn Guiseppe “Joe” Funicello er farinn frá 1. deildar liði Þórs í knattspyrnu og hefur gengið í raðir finnska úrvalsdeildarliðsins IFK Mariehamn. Guiseppe gerir eins og hálfs árs samning við finnska liðið. Frá þessu er greint á vefsíðunni fotbolti.net. Hann ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/iris-gudmundsdottir-slasadist-a-aefingu-i-sviss
Íris Guðmundsdóttir slasaðist á æfingu í Sviss Íris Guðmundsdóttir landsliðskona í alpagreinum á skíðum, varð fyrir því óláni að slasast illa á hné á æfingu í Sass Fee í Sviss í gær. Íris var við stórsvigsæfingu þegar óhappið varð. Talið er að hún hafi skaddast á krossbandi, liðbandi og liðþófa. Íris er væntanleg til K...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/utlit-fyrir-6-milljona-krona-halla-a-skolamotuneytum-i-lok-ars
Útlit fyrir 6 milljóna króna halla á skólamötuneytum í lok árs Fyrir fundi skólanefndar Akureyrar í vikunni var lagt fram uppgjör á rekstri skólamötuneyta grunnskólanna fyrir vormisseri 2010. Fram kemur í uppgjörinu að við upphaf nýs skólaárs er hallinn á skólamötuneytunum orðinn nokkur og er ekki hægt að sjá annað en ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ibuafundur-um-stadsetningu-nys-hjukrunarheimilis
Íbúafundur um staðsetningu nýs hjúkrunarheimilis Skipulagsdeild boðar til opins íbúafundar, fyrir hönd Akureyrarbæjar, um staðsetningu nýs hjúkrunarheimilis, næstkomandi fimmtudag. Fundurinn fer fram í Síðuskóla og hefst kl. 20.30 en fundarstjóri er Eírkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri. Dagskrá fundarins: Oddur Helgi ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/alfanamskeid-haldin-a-akureyri-i-haust
Alfanámskeið haldin á Akureyri í haust Alfanámskeið verða haldin í haust í samstarfi við KFUM og KFUK á Akureyri. Kynningarkvöld verður miðvikudaginn 8. sept. kl. 20. Það er byrjendanámskeiðið þar sem glímt er við spurninguna: Hver er tilgangur lífsins. Þau Dögg Harðardóttir, hjúkrunarfræðingur, og Fjalar Freyr Einarss...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tilraun-hafin-med-nytingu-moltu-til-uppgraedslu
Tilraun hafin með nýtingu moltu til uppgræðslu Starfsmenn Moltu ehf. í Eyjafjarðarsveit eru nú að hefja tilraun með nýtingu á moltu til uppgræðslu. Moltu sem staðið hefur á þroskunarplani í um sex mánuði eftir að hún kom úr tromlunum verður dreift á afmarkað svæði, lítið afgirt hólf austan við lóð fyrirtækisins sem er ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/menningarminjadagur-evropu-haldinn-a-sunnudaginn
Menningarminjadagur Evrópu haldinn á sunnudaginn Menningarminjadagur Evrópu hér á landi verður haldinn sunnudaginn 5. september n.k. Þema dagsins að þessu sinni er sjávar- og strandminjar. Í tilefni dagsins mun Sigurður Bergsteinsson minjavörður Norðurlands eystra, leiða gesti um hinn forna verslunarstað Gásir við Eyja...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bara-flokkurinn-spilar-a-akureyri-eftir-25-ara-hle
Bara-flokkurinn spilar á Akureyri eftir 25 ára hlé Föstudagskvöldið 3. september kl. 20.00 koma fram norðlensk ættaðar hljómsveitir í menningarhúsinu Hofi, Þetta eru hljómsveitir sem njóta, eiga eftir og hafa notið vinsælda um allt land. Hljómsveitirnar eru; Hvanndalsbræður, Helgi og hljóðfæraleikararnir, Heflarnir og ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/met-laxveidi-i-fnjoska
Met laxveiði í Fnjóská Met laxveiði hefur verið í Fnjóská í sumar og 26 ágúst sl. voru 785 laxar komnir á land, sem er mesta veiði í ánni frá upphafi vega. Gamla metið í Fnjóská er 555 laxar árið 1992 og 554 laxar árið 1978, en það ár var metár í nánast öllum ám á landinu. Stærstu laxarnir sem hafa veiðst eru 18 - 19,5...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/alls-47-umsoknir-um-stodu-verkefnisstjora-atvinnumala
Alls 47 umsóknir um stöðu verkefnisstjóra atvinnumála Alls bárust 47 umsóknir um stöðu verkefnisstjóra atvinnumála hjá Akureyrarbæ en umsóknarfrestur rann út í gær. Langflestir umsækjenda eru frá Akureyri, eða 34. Eins og fram hefur komið er stefnt að því að ráða í stöðuna fljótlega. Eitt af helstu hlutverkum verkefnis...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haustferd-a-strandir-fra-akureyri-med-midnaetursol
Haustferð á Strandir frá Akureyri með Miðnætursól Ferðaskrifstofan Miðnætursól stendur fyrir haustferð á Strandir frá Akureyri í ár. Aðalstarfsemi ferðaskrifstofunnar er að skipuleggja ferðir um Ísland fyrir frönskumælandi ferðamenn með áherslu á Vestfirði. Í sumar var farið í vel heppnaða ferð með slíkan hóp á Strandi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kathor-haett-vid-thatttoku-i-n1-deild-kvenna-i-vetur
KA/Þór hætt við þátttöku í N1-deild kvenna í vetur KA/Þór mun ekki senda lið til leiks í efstu deild kvenna í handbolta í vetur og mun þess í stað leika í 2. deild. Þetta staðfestir Erlingur Kristjánsson formaður félagsins í samtali við Vikudag nú í morgun. Ástæðuna segir Erlingur vera að sex af sjö byrjunarliðsmönnum ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/helgin-16-18-juli-var-umferdarmesta-helgi-sumarsins
Helgin 16.-18. júlí var umferðarmesta helgi sumarsins Umferðin um nýliðna helgi varð mun minni en um helgina þar á undan eða sem nemur 4,4 prósentum. Óhætt er að lýsa því yfir að hinni eiginlegu sumarhelgarumferð er lokið, segir á vef Vegagerðarinnar. Helgarumferðin nú er komin undir það sem hún var í upphafi júní. Hel...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oruggt-hja-thorka-gegn-fh
Öruggt hjá Þór/KA gegn FH Þór/KA vann öruggan 5:1 sigur gegn FH á Þórsvelli í kvöld er liðin áttust við í 15. umferð Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu. Danka Podavac skoraði tvívegis fyrir heimamenn í leiknum og þær Rakel Hönnudóttir og Mateja Zver sitt markið hvor, en eitt markanna var sjálfsmark FH. Mark gestanna sk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/godgerdarsamtokin-mommur-og-moffins-faerdu-faedingardeild-fsa-peningagjof
Góðgerðarsamtökin Mömmur og Möffins færðu fæðingardeild FSA peningagjöf Góðgerðarsamtökin Mömmur og Möffins færðu fæðingardeild FSA peningagjöf fyrr í dag, samtals 376.000 krónur. Þetta er sú upphæð sem safnaðist í Lystigarðinum á Akureyri þann 31. júlí sl., í Mömmur og Möffins veislu sem þar var haldin. Að sögn Auðar ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/dalvikreynir-i-godum-malum-fyrir-seinni-leikinn-i-8-lida-urslitum-3-deildarinnar
Dalvík/Reynir í góðum málum fyrir seinni leikinn í 8-liða úrslitum 3. deildarinnar Fyrri leikirnir í átta liða úrslitum 3. deildar karla í knattspyrnu fóru fram um helgina. Dalvík/Reynir er í góðum málum eftir 2:1 útisigur gegn Álftanesi, en Ragnar Hauksson skoraði bæði mörk Dalvíkur/Reynis í leiknum en Sveinn Guðmunds...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hamarkshradi-gatna-i-thettbyli-i-grimsey-verdi-30-kmklst
Hámarkshraði gatna í þéttbýli í Grímsey verði 30 km/klst Skipulagsnefnd Akureyrar samþykkti á síðasta fundi sínum að hámarkshraði allra gatna í þéttbýli í Grímsey verði 30 km/klst. Einnig er því beint til framkvæmdadeildar að gerðar verði sérstakar ráðstafanir til að draga úr umferðarhraða í nánasta umhverfi grunn- og ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjolbreyttri-og-velheppnadri-akureyrarvoku-lauk-i-gaer
Fjölbreyttri og velheppnaðri Akureyrarvöku lauk í gær Akureyrarvöku lauk í Sundlaug Akureyrar í gær en þar spilaði pönkhljómsveitin Buxnaskjónar fyrir sundlaugargesti. Akureyrarvaka hófst að venju í Lystigarðinum sl. föstudagskvöld og voru um 500 manns sem nutu viðburða í upplýstum rjóðrum garðsins. Við tók Draugaslóð ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ba-keppendur-sigursaelir-i-sandspyrnunni
BA keppendur sigursælir í sandspyrnunni Keppendur frá Bílaklúbbi Akureyrar voru sigursælir þegar önnur umferð Íslandsmótsins í sandspyrnu fór fram í Garðssandi sl. helgi. Keppendur BA unnu í öllum flokkum nema einum. Í flokki vélsleða var það Stefán Þengilsson sem sigraði, í unglingaflokki var það Kristófer Daníelsson ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/l-listinn-vill-breytingar-i-stjorn-nordurorku
L-listinn vill breytingar í stjórn Norðurorku Meirihluti bæjarráðs Akureyrar samþykkti á síðasta fundi ráðsins, tillögu frá frá fulltrúum L-listans, um að óska eftir því að stjórn Norðurorku hf boði til hluthafafundar. Ástæðan er breytingar í stjórn Norðurorku hf vegna nýafstaðinna sveitarstjórnarkosninga. L-listinn, s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sidasti-heimaleikur-thorska-i-kvold-1
Síðasti heimaleikur Þórs/KA í kvöld Þór/KA leikur sinn síðasta heimaleik í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu í kvöld er liðið fær FH í heimsókn á Þórsvöll kl. 18:00. Þór/KA situr í þriðja sæti deildarinnar með 28 stig en getur með sigri í kvöld komist í annað sætið. FH situr í næstneðsta sæti með 14 stig og er að berjas...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rekstur-ms-akureyri-gengur-vel-og-bjartsyni-rikjandi
Rekstur MS-Akureyri gengur vel og bjartsýni ríkjandi Rekstur MS-Akureyri gengur vel um þessar mundir og eru horfur betri en þær hafa verið nokkur undanfarin ár. Sala mjólkurafurða er jöfn og góð. Sigurður Rúnar Friðjónsson samlagsstjóri hjá MS-Akureyri segir að kvótaárið sé nú óvenjulangt, eða 16 mánuðir. Vanalega hófs...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjolmenni-a-vigslu-nybyggingar-ha-og-opnu-husi
Fjölmenni á vígslu nýbyggingar HA og opnu húsi Nýtt húsnæði Háskólans á Akureyri var vígt við hátíðlega athöfn á Sólborg í gær. Hr. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands og Dorrit Moussaieff forsetafrú voru viðstödd en forsetinn flutti ávarp í tilefni dagsins. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra heiðraði einnig hát...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jafnt-a-akureyrarvelli-thor-vann-orugglega-i-breidholtinu
Jafnt á Akureyrarvelli-Þór vann örugglega í Breiðholtinu KA og Leiknir R. gerðu 2:2 jafntefli í dag er liðin áttust við á Akureyrarvelli á Íslandsmótinu í 1. deild karla í knattspyrnu. Eftir að hafa lent 0:2 undir komu KA-menn sterkir til baka og náðu að jafna metin. Mörk KA í leiknum skoruðu þeir Guðmundur Óli Steingr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sveinbjorg-myndskreytti-bok-um-hrafna-floka
Sveinbjörg myndskreytti bók um Hrafna-Flóka Nú um mánaðamótin kemur út í Noregi, heimildaskáldsaga um Hrafna-Flóka, sem gefin er út af forlagi í Osló. Höfundurinn, Sylvelin Vatle, er þekktur barna- og unglingarithöfundur í Noregi en myndskreyting bókarinnar var í höndum Sveinbjargar Hallgrímsdóttur myndlistarmanns á Ak...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/erum-ekki-med-slakara-lid
„Erum ekki með slakara lið” KA og Þór verða bæði í eldlínunni í dag þegar 19. umferð Íslandsmótsins í 1. deild karla í knattspyrnu klárast. KA fær Leiknir R. í heimsókn á Akureyrarvöll kl. 15:00 og Þór sækir ÍR heim kl. 14:00. KA-menn sigla lygnan sjó um miðja deild en Þórsarar eiga í harðri toppbaráttu. Steingrímur Ör...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/brua-tharf-bilid-a-milli-fyrirtaekja-og-baejaryfirvalda
Brúa þarf bilið á milli fyrirtækja og bæjaryfirvalda Akureyrarbær hefur auglýst stöðu verkefnisstjóra atvinnumála lausa til umsóknar. Geir Kristinn Aðalsteinsson forseti bæjarstjórnar og formaður starfshóps um atvinnumál, segist finna fyrir gríðarlegum áhuga og að fjöldi fólks hafi sett sig í samband við sig vegna star...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/olafur-gylfason-golfkennari-ga-for-holu-i-hoggi
Ólafur Gylfason golfkennari GA fór holu í höggi Ólafur Gylfason golfkennari hjá GA fór holu í höggi í gær. Hann setti draumahöggið í á 4. holu til þess notaði hann 5. járn, sló háan bolta, holan var hægra megin á flötinni þannig að ekki sést frá teig, svo að hann sá ekki þegar hún fór í. Þetta er í annað sinn sem Ólafu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vidar-sigurjonsson-radinn-thjalfari-thorska
Viðar Sigurjónsson ráðinn þjálfari Þórs/KA Knattspyrnudeild Þórs hefur ráðið Viðar Sigurjónsson sem þjálfara meistaraflokks Þórs/KA og mun hann stýra liðinu út þetta tímabil. Honum til aðstoðar verður Siguróli Kristjánsson sem verið hefur aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna undanfarin ár. Viðar hefur verið starfandi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/landaframleidsla-uppraett-a-akureyri
Landaframleiðsla upprætt á Akureyri Lögreglan á Akureyri framkvæmdi húsleit í iðnaðarhúsnæði í bænum í gærkvöld, vegna gruns um landaframleiðslu. Í ljós kom að nokkuð umfangsmikil framleiðsla á landa var í gangi í húsnæðinu. Hald var lagt á 150 lítra af tilbúnum landa, 260 lítra af gambra auk tækja og tóla til landafra...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/virdist-vera-meiri-hiti-i-monnum-fyrir-sunnan
„Virðist vera meiri hiti í mönnum fyrir sunnan” „Mér finnst nú líklegt að við samþykkjum þetta hérna fyrir norðan. Menn sætta sig kannski við þetta þó þeir séu ekkert endilega sáttir. Það virðist reyndar vera aðeins meiri hiti í mönnum fyrir sunnan heldur en hér,” segir Ólafur Stefánsson trúnaðarmaður hjá Slökkviliði A...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/dragan-haettur-sem-thjalfari-thorska
Dragan hættur sem þjálfari Þórs/KA Dragan Kristinn Stojanovic er hættur sem þjálfari meistaraflokks Þórs/KA í knattspyrnu. Dragan tilkynnti leikmönnum liðsins tíðindin í gær. Ósætti hefur verið á milli Dragans og kvennaráðs Þórs sem virðist megin ástæða brotthvarfs þjálfarans. „Þetta kom svolítið óvænt upp á. Það hafa ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/verdur-taumlaus-hatid
„Verður taumlaus hátíð” „Þvílíkt og annað eins, þetta verður gjörsamlega taumlaus Akureyrarvaka,” segir Guðrún Þórsdóttir verkefnisstýra Akureyrarvöku, sem hefst í kvöld með setningarathöfn í Lystigarðinum kl. 20:00 og verður þétt dagskrá í boði fram á sunnudagssíðdegi. Þá verður Menningarhúsið Hof formlega vígt á hátí...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hlutafe-greidrar-leidar-verdi-aukid-um-100-milljonir-krona
Hlutafé Greiðrar leiðar verði aukið um 100 milljónir króna Stjórn Greiðrar leiðar ehf. kannar nú vilja hluthafa til þess að auka hlutafé félagsins um 100 milljónir króna. Fyrir á félagið um 100 milljónir króna af handbæru fé en hugmyndin er að Greið leið leggi 200 milljónir króna í nýtt hlutafélag um Vaðlaheiðargöng og...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/athyglisverd-syning-a-flug-safninu-a-akureyrarflugvelli
Athyglisverð sýning á Flug- safninu á Akureyrarflugvelli Athyglisverð sýning hefur verið opnuð í Flugsafni Íslands á Akureyrarflugvelli. Þar getur að líta gervitunglamyndir sem sýna hvernig ástandið var á svæðinu kringum Eyjafjallajökul frá því að þar fór að gjósa og dags daglegar breytingar frá þeim tíma. Ágúst Guðmun...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjorir-fra-ska-i-landslidshopnum-i-alpagreinum
Fjórir frá SKA í landsliðshópnum í alpagreinum Búið er að velja landsliðshópinn í alpagreinum á skíðum fyrir veturinn 2010-2011. Fremstur í flokki fer Dalvíkingurinn Björgvin Björgvinsson sem tekur þátt í Heimsbikarmótum vetrarins í svigi, ásamt því að vera í eldlínunni á heimsmeistarmótinu í svigi í Garmisch-Partenkir...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nordurlandamot-ungmenna-i-frjalsum-haldid-a-thorsvelli-um-helgina
Norðurlandamót ungmenna í frjálsum haldið á Þórsvelli um helgina Norðurlandamót ungmenna, undir 19 ára, í frjálsum íþróttum verður haldið á Þórsvellinum á Akureyri um helgina. Efnilegasta íþróttafólk Norðurlandanna mun etja kappi í hinum ýmsu greinum frjálsíþróttanna en keppendur verða rúmlega 200. Einnig verður keppt ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/karlakor-akureyrar-geysir-a-opnunarhatid-hofs
Karlakór Akureyrar-Geysir á opnunarhátíð Hofs Karlakór Akureyrar-Geysir tekur þátt í opnunarhátíð menningarhússins Hofs á Akureyri, um helgina. Kórinn syngur á laugardagskvöld, en þá verður Hof opnað upp á gátt og allir boðnir velkomnir í húsið kl. 21:00-01:00. KAG hefur upp raust sína kl. 21:15 og kemur fimm sinnum fr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bornum-fjolgar-a-leikskolum-akureyrar
Börnum fjölgar á leikskólum Akureyrar Það stefnir í að barnafjöldi í leikskólum Akureyrar verði 1085 börn, sem er fjölgun um 21 barn frá árinu áður. Möguleiki er á að bæta við nokkrum eldri börnum þar sem nauðsynlegt er að geta brugðist við ef fjölgun verður í bæjarfélaginu á haustmánuðum. Alls voru 255 börn í árgangi ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tvaer-ljosmyndasyningar-opnadar-i-listasafninu
Tvær ljósmyndasýningar opnaðar í Listasafninu Á Akureyrarvöku, laugardaginn 28. ágúst kl. 15.00, verða tvær ljósmyndasýningar opnaðar í Listasafninu á Akureyri, annars vegar hin árlega sýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands og hins vegar sýning á myndröðinni Trú eftir norska ljósmyndarann Ken Opprann. Sýningarnar standa...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nytt-karlarad-hja-knattspyrnudeild-thors-tekid-til-starfa
Nýtt karlaráð hjá knattspyrnudeild Þórs tekið til starfa Nýtt karlaráð hjá knattspyrnudeild Þórs tók formlega við störfum í gær en karlaráðið stendur á bak við meistaraflokk félagsins og 2. flokki. Ráðið skipa þeir Eiður Pálmason, Vignir Traustason, Magnús Kristjánsson og Magnús Eggertsson, en hann mun gegna stöðu form...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjorar-a-slysadeild-eftir-ad-bill-valt-ut-i-myri
Fjórar á slysadeild eftir að bíll valt út í mýri Fjórar stúlkur voru fluttar til aðhlynningar á slysadeild Sjúkrahúss Akureyrar um tíuleytið í gærkvöld, eftir að bíll þeirra valt útaf Eyjafjarðarbraut eystri við bæinn Þórustaði og hafnaði útí í mýri. Að sögn varðstjóra lögreglunnar á Akureyri er ekki talið að stúlkurna...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/alls-barust-30-athugasemdir-til-vidbotar-vid-skipulagsbreytingu
Alls bárust 30 athugasemdir til viðbótar við skipulagsbreytingu Alls bárust 30 athugasemdir við tillögu að deiliskipulagsbreytingu á suðarhluta miðbæjarins, til viðbótar við þá undirskriftalistana, með rúmlega 1.850 nöfnum, sem afhentir voru bæjaryfirvöldum í síðustu viku, þar sem þessum hugmyndum er mótmælt. Frestur t...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sulan-ea-sigldi-i-sidasta-sinn-fra-akureyri-i-morgun
Súlan EA sigldi í síðasta sinn frá Akureyri í morgun Súlan EA 300, eitt kunnasta og farsælasta aflaskip íslenska fiskveiðiflotans, sigldi í síðasta sinn frá Akureyri í morgun. Skip með þessu nafni hefur verið gert út frá Akureyri í heila öld. Fyrstu Súluna keypti Otto Tuliníus til Akureyrar frá Mjóafirði, en það hafði ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/daemdur-i-fjogurra-ara-fangelsi-fyrir-kynferdisbrot
Dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir kynferðisbrot Maður var dæmdur í fjögurra ára fangelsi í Héraðsdómi Norðurlands eystra nýlega, fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn bróðurdóttir sinni og bróðursyni. Brotin áttu sér stað á heimili mannsins á Akureyri og í bifreið hans á árunum 2002-2008. Ákærði nofærði sér það að þolend...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bjartmar-med-besta-timann-a-arinu
Bjartmar með besta tímann á árinu Bjartmar Örnuson, frjálsíþróttamaðir úr UFA, tók þátt í 800 metra hlaupi á móti í Manchester á Englandi í gær, þar sem hann náði besta tíma íslendings í greininni það sem af er árinu. Bjartmar kom í mark á tímanum 1:52,92 mín. og bætti metið sitt um tæplega sekúndu frá því í Gautaborg ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarfulltruar-l-listans-og-formenn-nefnda-a-sidfraedinamskeid
Bæjarfulltrúar L-listans og formenn nefnda á siðfræðinámskeið Eftir stórsigur í bæjarstjórnarkosningum á Akureyri í vor, þar sem L-listinn, listi fólksins, fékk 6 bæjarfulltrúa af 11, kom upp sú staða , sem ekki hefur verið á Akureyri áður, að eitt stjórnmálaafl náði hreinum meirihluta. "Vandi fylgir vegsemd hverri og ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/yfir-70-nemendur-i-mennta-skolanum-a-trollaskaga
Yfir 70 nemendur í Mennta- skólanum á Tröllaskaga Menntaskólinn á Tröllaskaga var settur í fyrsta sinn síðastliðinn laugardag. Skólinn er staðsettur í Ólafsfirði og er nýjasti framhaldsskólinn í landinu. Fjölmargir mættu á skólasetninguna enda opnuðu starfsmenn Háfells Héðinsfjarðargöngin, til að Siglfirðingar ættu auð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/draugaslod-i-innbaenum-a-akureyrarvoku-a-fostudagskvold
Draugaslóð í Innbænum á Akureyrarvöku á föstudagskvöld Skerandi skelfileg óp, drungaleg tónlist og verur af öðrum heimi er meðal annars það sem gestir og gangandi munu heyra og sjá í Innbænum, elsta hluta Akureyrar, næstkomandi föstudagskvöld 27. ágúst kl 22:30-23:59 í Draugaslóð Minjasafnsins á Akureyri. Sögufólk verð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sterkt-hestamannamot-for-fram-a-melgerdismelum
Sterkt hestamannamót fór fram á Melgerðismelum Hestamannamót var haldið á Melgerðismelum um síðastliðna helgi. Sterkir hestar voru samankomnir á mótinu og náðust glæsilegir tímar. Keppt var í tölti, B-flokki, A-flokki, barnaflokki, ungmennaflokki, unglingaflokki, 100 m skeið og 150 skeið. Úrslit mótsins urðu eftirfaran...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haesta-kauptilbod-i-thingvallstraeti-23-er-160-milljonir
Hæsta kauptilboð í Þingvallstræti 23 er 160 milljónir Pálmar Harðarson átti hæsta kauptilboð í húseignina Þingvallastræti 23 á Akureyri en tilboðin voru opnuð hjá Ríkiskaupum í morgun. Tilboð hans hljóðar upp á 160 milljónir króna. Þó nokkur tilboð bárust í eignina, samkvæmt upplýsingum Óskars Ásgeirssonar hjá Ríkiskau...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/myndlistarfelagid-synir-verk-felagsmanna-i-hofi
Myndlistarfélagið sýnir verk félagsmanna í Hofi Myndlistarfélagið á Akureyri verður með kynningu í menningarhúsinu Hofi, sem opnuð verður föstudaginn 27. ágúst nk. kl. 17.00. Á kynningunni verða verk eftir rúmlega 60 listamenn úr Myndlistarfélaginum sem sannarlega endurspegla þann margbreytileika sem myndlistin felur í...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-maetir-hk-i-fyrsta-leik
Akureyri mætir HK í fyrsta leik Akureyri Handboltafélag sækir HK heim í fyrstu umferð N1-deildar karla í handbolta sem hefst fimmtudaginn 30. september næstkomandi. Leikið verður í Digranesi og hefst leikurinn kl. 18:30. Fyrsti heimaleikur Akureyrar er svo fimmtudaginn 7. október er liðið tekur á móti nýliðunum í Aftur...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/althjodastofan-a-akureyri-flytur-i-radhusid
Alþjóðastofan á Akureyri flytur í Ráðhúsið Alþjóðastofan á Akureyri, sem hefur verið til húsa í Rósenborg, flytur í dag aðsetur sitt í Ráðhúsið og verður með skrifstofu á fjórðu hæð hússins. Alþjóðastofan (Akureyri Intercultural Center) er málsvari útlendinga og vettvangur málefna þeirra. Starfsemi Alþjóðastofu byggir ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/yfirtaka-byrs-a-sparisjodi-nordlendinga-verdi-rannsokud
Yfirtaka Byrs á Sparisjóði Norðlendinga verði rannsökuð Á síðasta fundi sveitarstjórnar Hörgársveitar urðu umræður um stöðu stofnfjáreigenda í Byr sparisjóði í kjölfar greiðsluþrots sparisjóðsins sl. vor. Sveitarstjórn samþykkti að taka undir framkomnar óskir sveitarfélaga og fleiri um að Alþingi taki til skoðunar tilu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aefingar-hafnar-fyrir-fyrstu-stortonleikana-i-hofi
Æfingar hafnar fyrir fyrstu stórtónleikana í Hofi Æfingar fyrir fyrstu stórtónleikana sem haldnir verða í Menningarhúsinu Hofi, hófust síðastliðinn föstudag. Tónleikarnir eru dagskrárliður í fjölbreyttri opnunarhátið hússins og Akureyrarvöku sem er árleg bæjarhátíð, haldin síðustu helgina í ágúst í tilefni afmælis Akur...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lagt-til-ad-hlutafe-i-greidri-leid-verdi-aukid-um-100-milljonir
Lagt til að hlutafé í Greiðri leið verði aukið um 100 milljónir Á síðasta fundi sveitarstjórnar Hörgársveitar, var gerð grein fyrir kynningarfundi um málefni Vaðlaheiðarganga, sem Greið leið ehf. og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið héldu nýlega. Þar kom m.a. fram að á næstunni muni hluthafafundur verða boðaður í ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjarveiting-arsins-til-atvinnu-ataksverkefna-er-uppurin
Fjárveiting ársins til atvinnu- átaksverkefna er uppurin Stjórn Akureyrarstofu hefur óskað eftir því að bæjarráð taki stöðu atvinnuátaksverkefna Akureyrarbæjar og Vinnumálastofnunar til umfjöllunar og taki jafnframt afstöðu til þess hvort veita eigi frekara fjármagni til atvinnuátaksverkefna á árinu. Fyrir liggur að fj...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hatidartonleikar-sinfoniuhljom-sveitar-nordurlands-i-hofi
Hátíðartónleikar Sinfóníuhljóm- sveitar Norðurlands í Hofi Hátíðartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands verða í Hofi þann 29. ágúst. Þetta er upphaf 18. starfsárs hljómsveitarinnar og stór tímamót í sögu hennar þar sem hún er nú að fá fastan samastað í Hofi hinu nýja menningarhúsi á Akureyri. Stjórnandi á tónleiku...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/starfshopur-akureyrarstofu-um-atvinnumal-formlega-skipadur
Starfshópur Akureyrarstofu um atvinnumál formlega skipaður Á síðasta fundi stjórnar Akureyrarstofu var farið yfir fyrstu skref starfshóps um atvinnumál og hugmyndir og áherslur sem ræddar hafa verið á fundum hans. Fyrir liggur samþykki bæjarráðs um viðbótarfjárveitingu til að ráða sérstakan verkefnisstjóra atvinnumála ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jon-orn-og-haukur-islandsmeistarar-i-torfaeru
Jón Örn og Haukur Íslandsmeistarar í torfæru Íslandsmótið í torfæru kláraðist um sl. helgi en lokatorfæran fór fram á Stapanum á Suðurnesjunum. Meðlimir Bílalkúbbs Akureyrar geta verið sáttir við sinn árangur í sumar en keppendur BA röðuðu sér í þrjú efstu sætin í báðum flokkum. Í flokki sérútbúinna bíla sigraði Jón Ör...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framkvaemdir-hafnar-i-hlidarfjalli
Framkvæmdir hafnar í Hlíðarfjalli Framkvæmdir við uppsetningar nýrrar barnalyftu í Hlíðarfjalli eru hafnar og mun lyftan verða staðsett sunnan við núverandi Hólabraut. Jarðvegsframkvæmdir hafa staðið yfir í nokkrar vikur og segir Kristinn H. Svanbergsson, deildarstjóri íþróttadeildar hjá Akureyrarbæ, að stefnt sé að þv...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hatt-i-500-manns-a-skolaradstefnu-i-hofi
Hátt í 500 manns á skólaráðstefnu í Hofi Skólaárið á Akureyri hófst með glæsilegri samkomu í Hofi, hinu nýja menningarhúsi bæjarins, í byrjun vikunnar, þegar blásið var til ráðstefnu allra starfsmanna grunnskóla Akureyrar og kennara Tónlistarskólans. Hátt í 500 hundruð manns sóttu ráðstefnuna en yfirskrift hennar var; ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-tapadi-fyrir-fjolni
KA tapaði fyrir Fjölni KA tapaði fyrir Fjölni 2-3 er liðin áttust við á Grafarholtsvelli í dag. Heimamenn í Fjölni komust í 2-0 með mörku frá Aroni Jóhannssyni og Illuga Gunnarssyni og þannig var staðan í hálfleik. KA-menn gáfust ekki upp og náðu að jafna í síðari hálfleik með mörkum David Disztl og Srdjan Tufegdzic. Þ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haegt-ad-tina-sveppi-fram-ad-naeturfrostum
Hægt að tína sveppi fram að næturfrostum „Það verður hægt að tína sveppi fram að næturfrostum," segir Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir sveppafræðingur, en sveppatínslutími nær frá miðju sumri, í kringum miðjan júlí og ef tíð er hagstæð er hægt að tína sveppi fram á haust eða þar til næturfrost skella á. Guðríður Gyða segir ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/um-2600-nemendur-i-grunn-skolum-akureyrar-i-vetur
Um 2.600 nemendur í grunn- skólum Akureyrar í vetur Hátt í 2.600 nemendur búa sig nú undir að hefja nám við grunnskólana á Akureyri, en skólaárið 2010-2011 hefst í næstu viku. Rúmlega 250 nemendur hefja nám í fyrsta bekk og er þetta svipaður fjöldi og verið hefur undanfarin ár. Grunnskólar bæjarins eru sjö talsins og e...