Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.vikubladid.is/is/frettir/getum-alveg-verid-rolegir-enntha
"Getum alveg verið rólegir ennþá" "Það er maí núna og Íslandsmótið klárast í september, þannig að ég held að við getum alveg verið rólegir ennþá," segir Hreinn Hringsson, aðstoðarþjálfari og leikmaður Þórs. Eftir fyrstu tvo leikina á Íslandsmótinu í 1. deild karla í knattspyrnu er Þór aðeins með eitt stig í 10. sæti de...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sera-arna-yrr-valin-prestur-i-glerarprestakalli
Séra Arna Ýrr valin prestur í Glerárprestakalli Valnefnd Glerárprestakalls ákvað á fundi sínum í gær að leggja til að sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir verði skipuð prestur í Glerárprestakalli. Embættið veitist frá 1. júní næstkomandi. Fjórir umsækjendur voru um embættið. Biskup Íslands skipar í embættið til fimm ára að feng...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lokun-gongudeildar-saa-a-akureyri-frestad-ad-sinni
Lokun göngudeildar SÁÁ á Akureyri frestað að sinni Ákveðið hefur verið að fresta lokun göngudeildar SÁÁ á Akureyri að sinni en til stóð að loka deildinni þann 1. júní nk. vegna fjárskorts. Á árinu 2010 er SÁÁ ætlað að reka allt göngudeildarstarf fyrir áfengis- og vímuefnasjúklinga fyrir 40 milljónir króna. Kostnaðurinn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarstjorn-samthykkti-tengingu-bralundar-vid-midhusabraut
Bæjarstjórn samþykkti tengingu Brálundar við Miðhúsabraut Meirihluti bæjarstjórnar Akureyri samþykkti á fundi sínum í gær, tillögu skipulagsnefndar um breytingu á aðalskipulagi, þar sem gert er ráð fyrir að tengja Brálund við Miðhúsabraut. Kristín Sigfúsdóttir og Oddur Helgi Halldórsson greiddu atkvæði á móti tillögunn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/k2m-og-bustolpi-a-akureyri-gera-med-ser-samstarfssamning
K2M og Bústólpi á Akureyri gera með sér samstarfssamning K2M og Bústólpi á Akureyri hafa gert með sér samstarfssamning um þjónustu á DeLaval mjaltabúnaði í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum. Tilgangurinn er að tryggja hagkvæmni og betri og öruggari þjónustu við bændur á svæðinu. Fóðurblandan tók við aðalumboði fyrir DeLaval...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-i-32-lida-urslit-bikarkeppninnar
Þór í 32- liða úrslit bikarkeppninnar Þór er komið áfram í 32- liða úrslit VISA- bikarkeppni karla í knattspyrnu, eftir 3:0 sigur gegn Hvöt í kvöld á Blönduósvelli. Mörk Þórs í leiknum skoruðu þeir Ármann Pétur Ævarsson, Jóhann Helgi Hannesson og Ottó Hólm Reynisson.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorka-skellti-breidablik-a-heimavelli
Þór/KA skellti Breiðablik á heimavelli Þór/KA vann afar sterkan 3:1 sigur gegn Breiðabliki á Þórsvelli í kvöld í annarri umferð Pepsi- deildar kvenna í knattspyrnu. Blikastúlkur voru mun meira með boltann í leiknum í kvöld en heimastúlkur nýttu sín færi vel í leiknum. Mateja Zver skoraði tvívegis fyrir Þór/KA í kvöld o...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/meirihlutinn-a-akureyri-fallinn-og-l-listinn-ordinn-staerstur
Meirihlutinn á Akureyri fallinn og L-listinn orðinn stærstur Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Akureyrar er fallinn samkvæmt könnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins. Sjálfstæðisflokkurinn geldur afhroð og missir tvo af fjórum bæjarfulltrúum. Listi fólksins bætir aftur á móti miklu við sig - f...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-saekir-hvot-heim-i-bikarnum-i-kvold
Þór sækir Hvöt heim í bikarnum í kvöld Þór sækir Hvöt heim í kvöld í annarri umferð VISA- bikarkeppni karla í knattspyrnu. Leikurinn á Blönduósvelli hefst kl. 19:00. Á Árskógsvelli tekur Dalvík/Reynir á móti Völsungi og hefst sá leikur einnig kl. 19:00. Liðin sem vinna í kvöld komast áfram í 32- liða úrslit keppninnar.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/risaslagur-a-thorsvelli-i-kvold
Risaslagur á Þórsvelli í kvöld Það verður stórleikur á Þórsvelli í kvöld þegar Þór/KA fær Breiðablik í heimsókn í annarri umferð Pepsi- deildar kvenna í knattspyrnu kl. 19:00. Leikurinn er jafnframt fyrsti heimaleikur Þórs/KA á tímabilinu. Báðum liðum er spáð mikilli velgengni í sumar og talin líklegustu liðin til þess...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oraunhaeft-ad-veggjold-standi-ad-fullu-undir-gerd-vadlaheidarganga
Óraunhæft að veggjöld standi að fullu undir gerð Vaðlaheiðarganga Stjórn Eyþings tekur undir metnaðarfull markmið fjögurra ára samgönguáætlunar fyrir árin 2009-2012 en gerir nokkrar athugasemdir sem einkum lúta að vegaframkvæmdum á Norðurlandi eystra. Stjórnin vekur m.a. athygli á því að ítrekað hefur komið fram að með...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-afram-i-32-lida-urslit-bikarkeppninnar
KA áfram í 32- liða úrslit bikarkeppninnar KA komst í kvöld í 32- liða úrslit VISA- bikarkeppni karla í knattspyrnu, eftir 2:0 sigur gegn Draupni í Boganum í annarri umferð keppninnar. Það voru þeir Hallgrímur Mar Steingrímsson og Haukur Heiðar Hauksson sem skoruðu mörk KA í seinni hálfleik. KA hafði mikla yfirburði í ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikilvaegt-ad-radast-i-vidhald-mannvirkja-til-ad-fjolga-storfum
Mikilvægt að ráðast í viðhald mannvirkja til að fjölga störfum Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar leggur áherslu á mikilvægi þess að farið sé í sérstakt viðhald mannvirkja í eigu Akureyrarbæjar til þess að fjölga störfum um leið og mikilvægum viðhaldsverkefnum er komið í farveg. Á síðasta fundi stjórnar voru kynntar hugmy...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hlynur-og-stefan-haettir-med-kathor
Hlynur og Stefán hættir með KA/Þór Þeir Hlynur Jóhannsson og Stefán Guðnason eru hættir sem þjálfarar handknattleiksliðs KA/Þórs sem leikur í úrvalsdeild kvenna. Að sögn Erlings Kristjánssonar, formans handknattleiksdeildar KA, var um sameiginlega ákvörðun að ræða. Erlingur segir leit vera hafna að nýjum þjálfara fyrir...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sameining-thriggja-felagsmidstodva-hefur-tekist-vel
Sameining þriggja félagsmiðstöðva hefur tekist vel Félagsmiðstöðvar unglinga sem starfræktar voru í Brekkuskóla, Lundarskóla og Oddeyrarskóla, voru sameinaðar í eina sumarið 2007 og hefur hún verið staðsett í Rósenborg. Um var að ræða tilraunaverkefni, sem tekist hefur vel. Alfa Aradóttir forstöðumaður forvarna- og æsk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framkvaemdir-hafnar-i-hafnarstraeti-98
Framkvæmdir hafnar í Hafnarstræti 98 Í morgun hófust framkvæmdir í Hafnarstræti 98 og munu þær standa yfir í um tvær vikur. Um er að ræða vinnu við að hreinsa innan úr húsinu til að burðarvirki þess komi allt í ljós. SS-Byggir sér um þetta verk. Þegar þessari vinnu lýkur verður hægt að meta með meiri vissu en áður hvað...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-vard-ad-saetta-sig-vid-silfrid
Akureyri varð að sætta sig við silfrið Haukar eru Íslandsmeistarar í handbolta í 2. flokki karla eftir eins marks sigur gegn Akureyri í úrslitum, 30:29, en liðin áttust við í Austurbergi sl. föstudag. Staðan hálfleik var 17:16 fyrir Hauka. Oddur Gretarsson gat jafnað metin fyrir Akureyri úr vítakasti er leiktíminn var ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyrarslagur-i-boganum-i-kvold
Akureyrarslagur í Boganum í kvöld Það verður nágrannaslagur í Boganum í kvöld þegar 1. deildarlið KA og 3. deildarlið Draupnis mætast í annarri umferð VISA- bikarkeppni karla í knattspyrnu kl. 19:00. KA virðist í ágætu formi þess dagana og hefur fjögur stig eftir fyrstu tvær umferðirnar á Íslandsmótinu. Draupnir hefur ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vesturvon-til-karfaveida-a-reykjaneshrygg
Vesturvon til karfaveiða á Reykjaneshrygg Færeyski frystitogarinn Vesturvon VA 200, sem er í eigu Framherja í Færeyjum en að hluta til í eigu Samherja, lét úr höfn á Akureyri seinnipartinn á föstudag. Skipið er búið að vera tvær vikur við bryggju þar sem að ýmsar lagfæringar vegna karfaveiða voru framkvæmdar. Skipið mu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/yfirlysing-fra-framkvaemdastjorn-thors
Yfirlýsing frá framkvæmdastjórn Þórs Vegna ummæla Lárusar Orra Sigurðssonar þjálfara meistaraflokks karla í knattspyrnu á vefmiðlinum fotbolti.net vill framkvæmdastjórn Þórs koma eftirfarandi á framfæri. Framkvæmdastjórnin harmar að umræða sem þessi skuli fara fram í fjölmiðlum og mun hlutast til með að leysa þessi mál...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ummaeli-larusar-orra-eiga-ser-taeplega-fordaemi
Ummæli Lárusar Orra eiga sér tæplega fordæmi Sigfús Ólafur Helgason formaður Íþróttafélagsins Þórs á Akureyri er mjög ósáttur við ummæli Lárusar Orra Sigurðssonar þjálfara karlaliðs Þórs í knattspyrnu, sem hann viðhafði á fotbolti.net í gærkvöld, eftir að Þór hafði tapað fyrir Leikni í Breiðholti á Íslandsmótinu. Sigfú...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/dansgjorningurinn-slaturhus-hjartans-frumfluttur-a-hjalteyri
Dansgjörningurinn “Sláturhús hjartans” frumfluttur á Hjalteyri Dansgjörningurinn "Sláturhús hjartans" verður frumfluttur í listrými Verksmiðjunnar á Hjalteyri við Eyjafjörð í dag, laugardaginn 15. maí kl. 17:00. Höfundar verksins eru Anna Richards dansgjörningalistakona og Sigurbjörg Eiðsdóttir myndlistakona. Flytjandi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/larus-orri-osattur-vid-adalstjorn-thors-ihugar-ad-segja-af-ser
Lárus Orri ósáttur við aðalstjórn Þórs- Íhugar að segja af sér "Það virðist skipta meira máli fyrir formann Þórs að eignast vini hjá KA en að leyfa okkur að æfa á Þórsvelli." Þetta er meðal þess sem kom fram í máli Lárusar Orra Sigurðssonar ,þjálfara meistaraflokks Þórs, í viðtali við fotbolta.net að loknum tapleikum g...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorsarar-urdu-ad-jata-sig-sigrada-i-breidholtinu
Þórsarar urðu að játa sig sigraða í Breiðholtinu Þórsarar sóttu ekki gull í greipar Leiknismanna er þeir sóttu þá heim í Breiðholtið í kvöld, í 1. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu. Heimamenn í Leikni fóru með sigur af hólmi 1:0 en það var Hilmar Árni Halldórsson sem skoraði markið mikilvæga. Eftir um 15 mínútna leik ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kor-akureyrarkirkju-i-oskufalli-i-vestmannaeyjum
Kór Akureyrarkirkju í öskufalli í Vestmannaeyjum Öskufall hófst í Vestmannaeyjum á þriðja tímanum í dag, þegar vindur tók snögglega að snúast til suðvesturs. Dimmt var yfir bænum og þurfti fólk að ganga með grímur. Kór Akureyrarkirkju er í heimsókn í Vestmannaeyjum og hélt m.a. tónleika þar í gær. Í dag fór hópurinn í ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-og-grotta-skildu-jofn-a-thorsvellinum
KA og Grótta skildu jöfn á Þórsvellinum KA náði ekki að fylgja eftir góðum sigri á Þrótti í Reykjavík í 1. umferð Íslandsmótsins í knattspyrnu karla, er liðið fékk nýliða Gróttu í heimsókn í kvöld. Liðin gerðu 1:1 jafntefli en leikið var á Þórsvellinum, þar sem Akureyrarvöllurinn er ekki orðinn leikfær. Haukur Hinrikss...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/arleg-handverksyning-felagsstarfs-eldri-borgara
Árleg handverksýning félagsstarfs eldri borgara Hin árlega handverksýning félagsstarfs eldri borgara í Víðilundi 22 á Akureyri hefst á morgun laugardaginn 15. maí og stendur til miðvikudagsins 19. maí. Sýningin er glæsileg að vanda og marga dýrgripi er þar að finna þar sem hugur, hjarta og hendur standa á bak við. Það ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/um-20-millljona-krona-tjon-hja-becromal-vegna-rafmagnsleysis
Um 20 millljóna króna tjón hjá Becromal vegna rafmagnsleysis Fjárhagslegt tjón Becromal í Krossanesi á Akureyri vegna rafmagnsleysisins sl. föstudagskvöld, er um 20 milljónir króna, samkvæmt upplýsingum Gauta Hallssonar framkvæmdastjóra. Er tjónið vegna skemmdrar vöru, framleiðslutaps vegna endurræsingar og aukakostnað...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/menningarveisla-a-akureyri-um-helgina
Menningarveisla á Akureyri um helgina Það verður mikil menningarveisla í Listagilinu á Akureyri á morgun laugardag þegar opnaður verður fjöldi sýninga. Í Listasafninu á Akureyri opnar klukkan 15 sýningin Straumur/burðarás. Myndlistarmennirnir sem verk eiga á henni eru Ingólfur Arnarsson, Ívar Brynjólfsson, Ívar Valgarð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrsti-heimaleikur-ka-i-kvold
Fyrsti heimaleikur KA í kvöld KA leikur sinn fyrsta heimaleik í 1. deild karla í knattspyrnu í kvöld er liðið fær Gróttu í heimsókn kl. 18:00. Leikurinn fer reyndar fram á Þórsvelli, þar sem Akureyrarvöllur er ekki tilbúinn til notkunar. Þá sækir Þór Leikni R. heim og hefst leikurinn á Leiknisvelli í kvöld kl. 20:00. K...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jafnt-hja-grindavik-og-thorka
Jafnt hjá Grindavík og Þór/KA Grindavík og Þór/KA gerðu frekar óvænt 2:2 jafntefli í dag á Grindavíkurvelli í fyrstu umferð Pepsi- deildar kvenna í knattspyrnu. Þór/KA komst tvisvar yfir í leiknum með mörkum frá Bojönu Besic og Mateju Zver og hafði 2:0 forystu í hálfleik. Dagmar Þráinsdóttir jafnaði hins vegar metin í ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/flestir-hestar-a-akureyri-hafa-smitast-af-hostapestinni
Flestir hestar á Akureyri hafa smitast af hóstapestinni Flestir hestar í hesthúsum Akureyringa hafa fengið hóstapestina sem herjað hefur á hross víða um land. „Hún stakk sér niður hér hjá okkur fyrir viku til 10 dögum og nú má segja að flestir hestar séu smitaðir eða að smitast," segir Elfa Ágústsdóttir dýralæknir á Ak...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vortonleikar-karlakors-akureyrar-geysis-a-dalvik-og-akureyri
Vortónleikar Karlakórs Akureyrar-Geysis á Dalvík og Akureyri Karlakór Akureyrar-Geysir heldur vortónleika sína á Dalvík og Akureyri, 14. og 15. maí. Á tónleikunum verður flutt blanda af nýju og gömlu efni, veraldleg lög og kirkjuleg, negrasálmar og dægurlög. Tónleikarnir á Dalvík verða í Menningarhúsinu Bergi, föstudag...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/arleg-vorsyning-myndlistarskolans-a-akureyri
Árleg vorsýning Myndlistarskólans á Akureyri Þrítugasta og sjötta starfsári Myndlistaskólans á Akureyri lýkur með veglegri sýningu á verkum nemenda í húsnæði skólans. Sýningin hefst í dag, fimmtudag og stendur fram á sunnudag og er opin frá kl. 14.00-18.00. Sýnd verða verk nemenda fornámsdeildar, listhönnunar- og fagur...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikil-eftirspurn-eftir-leiguibudum-a-akureyri
Mikil eftirspurn eftir leiguíbúðum á Akureyri Umskipti hafa orðið á leigumarkaði á Akureyri á örfáum mánuðum, nokkur fjöldi íbúða í eigu félaga sem leiga út íbúðir stóðu auðar á liðnu hausti en nú fá færri en vilja. Vignir Þormóðsson hjá Betri kosti segir að greinilega hafi fjölgað í bænum síðastliðna mánuði og þá sé m...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haukar-og-akureyri-leika-til-urslita-a-fostudaginn
Haukar og Akureyri leika til úrslita á föstudaginn Frestaður úrslitaleikur Hauka og Akureyrar á Íslandsmótinu í handbolta í 2. flokki karla, fer fram í Austurbergi föstudaginn 14. maí. Leikurinn hefst kl. 16:30. Leikurinn átti upphaflega að fara fram 11. apríl en vegna kæru FH eftir leik FH og Hauka í undanúrslitum, ta...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarrad-gerir-athugasemdir-vid-drog-ad-nyrri-samgonguaaetlun
Bæjarráð gerir athugasemdir við drög að nýrri samgönguáætlun Bæjarráð Akureyrar gerir nokkrar athugasemdir við tillögu til þingsályktunar um fjörurra ára samgönguáætlun fyrir árin 2009-2012. Lúta þær að Akureyrarflugvelli, Vaðlaheiðargöngum, hafnamálum, samgöngum milli Akureyrar og höfuðborgarsvæðisins og fjármunum til...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ottast-ad-skert-starfsemi-ogni-gaedum-thjonustunnar-og-oryggi-sjuklinga
Óttast að skert starfsemi ógni gæðum þjónustunnar og öryggi sjúklinga Hjúkrunarráð Sjúkrahússins á Akureyri (FSA) lýsir yfir áhyggjum sínum vegna lengingar á skertri starfsemi FSA í sumar. FSA hefur alla tíð kappkostað að halda starfsemi sinni innan fjárheimilda ríkissjóðs. Með auknum kröfum um meiri sparnað verða fáir...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/markmidid-ad-gera-betur-en-i-fyrra
"Markmiðið að gera betur en í fyrra" Pepsi- deild kvenna í knattspyrnu hefst á morgun, fimmtudag, með heilli umferð. Þór/KA hefur leik gegn Grindavík á útivelli og hefst leikurinn kl. 16:00. Þór/KA náði sínum besta árangri í sögu félagsins í fyrra þegar liðið hafnaði í þriðja sæti deildarinnar. Liðinu er spáð þriðja sæ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/radstefna-um-atvinnulif-a-akureyri-i-ketilhusinu
Ráðstefna um atvinnulíf á Akureyri í Ketilhúsinu Akureyrarstofa, Grasrót-Iðngarðar og Vinnumálastofnun boða átak til eflingar atvinnulífsins. Átakið hefst með ráðstefnu um atvinnulíf á Akureyri og fer hún fram í Ketilhúsinu á morgun, miðvikudaginn 12. maí kl. 13-17. Ráðstefnan er ætluð öllu áhugafólki um efnið og er þá...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samid-um-nytt-hjukrunarheimili-a-akureyri
Samið um nýtt hjúkrunarheimili á Akureyri Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, og Hermann Jón Tómasson, bæjarstjóri á Akureyri, undirrituðu í dag tvo nýja samninga ríkisvaldsins og Akureyrarkaupstaðar. Annars vegar er um að ræða samning um fjármögnun og uppbyggingu 45 hjúkrunarrýma á Akureyri sem koma í...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/umsvifin-hja-frambjodendum-vg-foru-ekki-yfir-300-thusund
Umsvifin hjá frambjóðendum VG fóru ekki yfir 300 þúsund Í aðdraganda Sveitarstjórnarkosninganna voru haldin fjögur forvöl á vegum Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, í Reykjavík, á Akureyri, á Akranesi og í Kópavogi. Alls tóku 41 frambjóðandi þátt í forvölunum og hafa allir skilað upplýsingum til Ríkisenduskoðanda...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sporttv-synir-beint-fra-1-deildinni-i-sumar
SportTV sýnir beint frá 1. deildinni í sumar SportTV hóf tilraunaútsendingar frá 1. deild karla í knattspyrnu í gær er leikur Víkings og Fjarðabyggðar var sýndur í beinni útsendingu. Búið er að ákveða hvaða leikir verða sýndir í næstu umferðum og er leikur ÍA og Þórs þann 5. júní meðal leikja sem sýndir verða. Hægt ver...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samherji-selur-margreti-ea-710-til-sildarvinnslunnar
Samherji selur Margréti EA 710 til Síldarvinnslunnar Samherji hf. og Síldarvinnslan hf. í Neskaupstað hafa gert samning um kaup Síldarvinnslunnar á uppsjávarveiðiskipinu Margréti EA 710. Skipið verður afhent nýjum eiganda seinnihluta maí mánaðar. Samherji hf. óskar Síldarvinnslunni og nýrri áhöfn velfarnaðar í rekstri ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/otviraett-gildi-heradsblada-i-sveitarstjornarkosningum
Ótvírætt gildi héraðsblaða í sveitarstjórnarkosningum Staðbundin fréttablöð eru sá fjölmiðill sem frambjóðendur hyggjast nota mest í komandi kosningabaráttu til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við kjósendur fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í lok mánaðarins. Facebook er hins vegar að sá miðill sem næstur kemur og ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjoldi-innbrota-a-akureyri-upplystur
Fjöldi innbrota á Akureyri upplýstur Lögreglan á Akureyri upplýsti um s.l. helgi innbrot í níu bifreiðar á Akureyrarflugvelli þann 14. apríl s.l. og í fjórar vinnuvélar við Eyjafjarðarbraut vestri þann 4 maí. Í þessum innbrotum var stolið GPS tækjum, geislaspilurum og ýmsu smádóti svo sem handverkfærum. Þá var OB lykli...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skuldastada-heimilanna-og-adgerdir-rikisstjornarinnar-kynntar-a-fundi
Skuldastaða heimilanna og aðgerðir ríkisstjórnarinnar kynntar á fundi Skuldastaða heimilanna, aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að létta greiðslubyrði og fyrirhugaðar leiðréttingar á höfuðstóli erlendra bílalána eru á meðal þess sem Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra kynnir Akureyringum og nærsveitarmönnum á borgarafu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oddur-valinn-besti-leikmadur-akureyrar-i-vetur
Oddur valinn besti leikmaður Akureyrar í vetur Akureyri Handboltafélag hélt lokahóf fyrir nýafstaðið tímabil sl. föstudag, þar sem veittar voru viðurkenningar fyrir þá sem þóttu hafa skarað framúr á tímabilinu. Besti leikmaðurinn var valinn Oddur Gretarsson, besti varnarmaðurinn Hreinn Þór Hauksson, besti sóknarmaðurin...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ohlutbundin-kosning-i-svalbardsstrandarhreppi
Óhlutbundin kosning í Svalbarðsstrandarhreppi Líkt og undanfarin ár kom enginn framboðslisti fram í Svalbarðsstrandarhreppi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í lok mánaðarins. Því verður óhlutbundin kosning (nafnakosning) í sveitarfélaginu. Tveir aðilar hafa gefið það út að þeir gefi ekki kost á sér til endurkjörs, þau...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjorir-radnir-i-menningarhusid-hof-150-umsoknir-barust
Fjórir ráðnir í Menningarhúsið Hof – 150 umsóknir bárust Menningarhúsið Hof auglýsti í apríl eftir fólki í fjögur störf í Menningarhúsinu. Um er að ræða stöðu umsjónarmans fasteignar, tæknistjóra, markaðsfulltrúa og starf í móttöku og miðasölu. Alls bárust 150 umsóknir um störfin og hefur stjórn Menningarfélagsins unni...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hanna-rosa-leidir-l-lista-i-sameinudu-sveitarfelagi
Hanna Rósa leiðir L-lista í sameinuðu sveitarfélagi Hanna Rósa Sveinsdóttir leiðir L-lista Lýðræðisflokksins í sameinuðu sveitarfélagi Hörgárbyggðar og Arnarneshrepps í sveitarstjórnarkosningunum 29. maí nk. Tveir framboðslistar verða því í boði í sveitarfélaginu, en áður hafði J-listi Samstöðulistans verið kynntur. L-...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hugmynd-um-hreyfistraeto-kynnt-fyrir-skolanefnd
Hugmynd um hreyfistrætó kynnt fyrir skólanefnd Á síðasta fundi skólanefndar var tekið fyrir erindi frá Unni Pétursdóttur formanni Norðurlandsdeildar sjúkraþjálfara, þar sem hún fyrir hönd sjúkraþjálfara óskar eftir samstarfi við skólayfirvöld á Akureyri við að koma á hreyfistrætó við einn eða fleiri grunnskóla á Akurey...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atvinnumalafundur-samherja-a-hotel-kea-a-morgun
Atvinnumálafundur Samherja á Hótel KEA á morgun Fjórði atvinnumálafundur Samherja verður haldinn á Hótel KEA á morgun, þriðjudaginn 11. maí kl. 8.15. Að þessu sinni verður fjallað um fiskeldi og markaðsmál. Jón Kjartan Jónsson framkvæmdastjóri fiskeldis Samherja og Gústaf Baldvinsson framkvæmdastjóri Ice Fresh Seafood,...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/karel-leidir-f-listann-i-eyjafjardarsveit-afram
Karel leiðir F-listann í Eyjafjarðarsveit áfram Karel Rafnsson leiðir F-listann í Eyjafjarðarsveit í sveitarstjórnarkosningunum þann 29. maí nk, líkt og hann gerði fyrir síðustu kosningar. Í framboði fyrir F-listann er hópur einstaklinga með breiðan og ólíkan bakgrunn sem á það sameiginlegt að vilja vinna af metnaði og...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/godur-arangur-bryndisar-i-noregi
Góður árangur Bryndísar í Noregi Bryndís Rún Hansen, sundkona úr Óðni, gerði góða hluti í Noregi á sterku alþjóðlegu sundmóti, Bergen Swim Festival, sl. helgi. Bryndís keppti í fimm sundgreinum og synti til úrslita í þeim öllum. Bryndís sigraði í 50 m flugsundi, þar sem hún bætti sitt eigið Akureyrarmet er hún synti á ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jafnt-hja-thor-og-fjolni-ka-vann-a-utivellli
Jafnt hjá Þór og Fjölni- KA vann á útivellli Þór og Fjölnir gerðu í dag 1:1 jafntefli í 1. deild karla í knattspyrnu á Þórsvelli í fyrstu umferð deildarinnar. Fjölnir komst yfir með marki Viðars Guðjónssonar á 18. mínútu en Jóhann Helgi Hannesson jafnaði fyrir Þór skömmu síðar og þar við sat. KA gerði góða ferð suður e...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/dalvikreynir-afram-i-visa-bikarnum-magni-ur-leik
Dalvík/Reynir áfram í VISA- bikarnum- Magni úr leik Dalvík/Reynir er komið áfram í VISA- bikarkeppni karla í knattspyrnu eftir 7:2 sigur gegn Samherjum á Árskógsvelli í gær. Gunnar Már Magnússon og Hermann Albertsson skoruðu tvö mörk hvor fyrir Dalvík/Reyni og þeir Jóhann Hreiðarsson, Viktor Már Jónasson og Atli Þór Ól...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leikur-thors-og-fjolnis-frestast-um-tvo-klukkutima
Leikur Þórs og Fjölnis frestast um tvo klukkutíma Leikur Þórs og Fjölnis í 1. deild karla í knattspyrnu hefur verið færður til kl. 16:00. Leikurinn átti upphaflega að fara fram kl. 14:00 á Þórsvellinum en seinkar um tvo tíma. Ástæðan er aflýsing á innanlandsflugi. Þá hefur leik Víkings R. og Fjarðabyggðar verið frestað...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oddur-efnilegasti-leikmadur-n1-deildar-karla
Oddur efnilegasti leikmaður N1- deildar karla Oddur Gretarsson, leikmaður Akureyrar, var valinn efnilegasti leikmaður N1- deildar karla í handbolta, á lokahófi HSÍ í gærkvöld. Oddur átti frábært tímabil með Akureyri sem komst í undanúrslit Íslandsmótsins. Þá fékk Heimir Örn Árnason leikmaður Akureyrar háttvísisverðlaun...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/millilandaflugid-fer-um-akureyrarflugvoll-a-ny
Millilandaflugið fer um Akureyrarflugvöll á ný Það hefur heldur betur lifnað yfir hlutunum á Akureyrarflugvelli á ný, eftir að Icelandair og Iceland Express fóru að beina millilandaflugi sínu þar um. Þá liggur innanlandsflug niðri. Á mbl.is kemur fram að fyrsta flugvélin af fjórum, sem Icelandair sendir til Glasgow nú ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fotboltinn-byrjar-ad-rulla-fyrir-alvoru
Fótboltinn byrjar að rúlla fyrir alvöru Keppni í 1. deild karla á Íslandsmótsinu í knattspyrnu hefst á morgun, sunnudag þar sem Akureyrarliðin Þór og KA verði í eldlínunni sem fyrr. Þór á heimaleik í fyrstu umferð og fær Fjölni í heimsókn á Þórsvöllinn kl. 14.00 en KA sækir Þrótt heim til Reykjavíkur. Efsta deild karla...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/litur-vel-ut-med-sprettu-og-uppskeruhorfur-godar
Lítur vel út með sprettu og uppskeruhorfur góðar Bændur eru um þessar mundir önnum kafnir við vorverkin, víða er búið að sá korni og sauðburður er kominn á fullan skrið hjá þeim sem slátra á sumarmarkað. Veðrið hefur verið prýðilegt síðustu daga, þannig að vel viðrar til vorverkanna i Eyjafirði. Kornbændur hófu sáningu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/keppt-i-threkmeistaranum-i-dag
Keppt í Þrekmeistaranum í dag Von er á 200 keppendum á Þrekmeistarann sem fram fer í Íþróttahöllinni á Akureyri í dag. Keppni hefst kl. 10:00 og stendur til kl. 18:00. Keppt verður í einstaklingsflokki karla og kvenna, tvenndarkeppni og liðakeppni karla og kvenna. Keppendur þurfa að fara í gegnum alls 10 keppnisgreinar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eldur-i-prjonastofunni-glofa-a-akureyri
Eldur í prjónastofunni Glófa á Akureyri Eldur kom upp í húsnæði prjónastofunnar Glófa við Hrísalund á Akureyri í kvöld. Slökkvilið Akureyrar fékk tillkynningu um eldinn skömmu fyrir kl. 23.00 og þegar slökkviliðsmenn komu á staðinn var lítill eldur í prjónavél í miðrými hússins en mikill reykur. Húsið var mannlaust. Gr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ekki-er-enn-buid-ad-tryggja-rekstur-gongudeildar-saa
Ekki er enn búið að tryggja rekstur göngudeildar SÁÁ Bæjarráð Akureyrar hefur samþykkt að leggja 8,3 milljónir króna til reksturs göngudeildar SÁÁ á Akureyri á þessu ári og því næsta, 3, 3 milljónir í ár og 5 milljónir á næsta ári. „Þetta er gert í ljósi aðstæðna en bæjarráð lítur svo á að rekstur SÁÁ eigi skilyrðislau...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/yfir-850-storf-auglyst-i-serstoku-atvinnuataki
Yfir 850 störf auglýst í sérstöku atvinnuátaki Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra kynnti í dag 856 ný störf, sem spanna allt frá þáttagerð hjá Ríkisútvarpinu til rannsókna á áhrifum eldfjallaösku á flugvélahreyfla. Um er að ræða tímabundin störf sem standa námsmönnum og atvinnuleitendum til boða og nemur ráðningartím...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/radherra-kynnir-atvinnuatak-70-spennandi-og-fjolbreytileg-storf
Ráðherra kynnir atvinnuátak - 70 spennandi og fjölbreytileg störf Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur hefur ákveðið að bregðast við miklum skorti á sumarstörfum og skapa í samvinnu við undirstofnanir sínar allt að 70 spennandi sumarstörf. Haft var samband við Hafrannsóknarstofnun, Veiðimálastofnun, Fiskistofu,...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/um-380-ibudir-i-byggingu-a-akureyri-um-aramot
Um 380 íbúðir í byggingu á Akureyri um áramót Um síðustu áramót voru 378 íbúðir í byggingu á Akureyri, í fjölbýlishúsum, raðhúsum, parhúsum og einbýlishúsum. Um er að ræða byggingar sem höfðu ekki verið teknar í notkun og eru þær langflestar í Naustahverfi. Alls voru 272 íbúðir á byggingarstigi 2 (framkvæmdir hafnar), ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ekki-thurfi-ad-gera-konnun-um-saudfjarbeit-i-hrisey
Ekki þurfi að gera könnun um sauðfjárbeit í Hrísey Bæjarráð Akureyrar telur ekki rétt að efna til sérstakrar könnunar um sauðfjárbeit í Hrísey eins og hverfisráð Hríseyjar lagði til, samhliða sveitarstjórnarkosningunum. Bæjarráð telur mikilvægt að áfram verði leitað leiða til þess að bregðast við þeim vágesti sem útbre...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sigfus-olafur-endurkjorinn-formadur-thors
Sigfús Ólafur endurkjörinn formaður Þórs Sigfús Ólafur Helgason var endurkjörinn formaður Íþróttafélagsins Þórs á fjölmennum aðalfundi í gærkvöld. Hann gegnir jafnframt starfi framkvæmdastjóra félagsins. Árni Óðinsson varaformaður gaf ekki kost á sér til endurkjörs og var Valdimar Pálsson kjörinn í stjórn í hans stað. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorka-spad-thridja-saeti-i-pepsi-deild-kvenna
Þór/KA spáð þriðja sæti í Pepsi- deild kvenna Þór/KA er spáð þriðja sæti í Pepsi- deild kvenna í knattspyrnu fyrir komandi tímabil sem hefst fimmtudaginn 13. maí. Þetta var kynnt á kynningarfundi Pepsi- deildanna í Háskólabíó í dag af forráðamönnum liðanna í deildinni. Þór/KA hafnaði í þriðja sæti í fyrra og var það be...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fulltruarad-sjalfstaedisfelag-anna-lysir-yfir-fullum-studningi-vid-oddvita-sinn
Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélag- anna lýsir yfir fullum stuðningi við oddvita sinn Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna á Akureyri var kallað saman til fundar klukkan 17:30. Sigrún Björk Jakobsdóttir oddviti flokksins fór á fundinum yfir þau mál sem hafa verið gerð að umtalsefni í fjölmiðlum unanfarna daga. Hún gerði meðal an...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atli-radinn-thjalfari-handknattleikslids-akureyrar
Atli ráðinn þjálfari handknattleiksliðs Akureyrar Atli Hilmarsson skrifaði fyrir stundu undir samning um þjálfun handknattleiksliðs Akureyrar næstu tvö árin. Atli skrifaði undir samninginn réttum átta árum eftir að hann gerði KA-menn að Íslandsmeisturum, þann 10. maí 2002. Hann tekur við starfinu hjá Akureyri af Rúnari...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/radstefnan-audur-hafs-og-stranda-haldin-i-ketilhusinu
Ráðstefnan Auður hafs og stranda haldin í Ketilhúsinu Ráðstefnan Auður hafs og stranda: frumkvæði og sköpunarkraftur til nýtingar menningararfs, verður haldin í Ketilhúsinu á Akureyri á morgun föstudaginn 7. maí 2010. Ráðstefnan verður sett kl. 13.15 og henni lýkur seinni partinn. Flutt verða fjölmörg erindi, auk þess ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/list-an-landamaera-a-nordurlandi
List án landamæra á Norðurlandi Fyrstu viðburðir norðan heiða á hátíðinni List án landamæra fóru fram um síðustu helgi. Skúlptúrverk Geðlistar sem búið er að koma fyrir á planinu við Safnasafnið á Svalbarðsströnd hefur vakið mikla athygli. Hópurinn er búinn að þekja Peugeot bifreið að innan sem utan með gervigrasi og b...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/varaformadur-skipulagsnefndar-vill-ibuakosningu-um-sikid
Varaformaður skipulagsnefndar vill íbúakosningu um síkið Ólafur Jónsson varaformaður skipulagsnefndar Akureyrarbæjar vill að íbúum bæjarins gefist kostur á að kjósa með rafrænum hætti um hvort síki verði gert í miðbænum eða ekki. Samkvæmt tillögum sem lagðar hafa verið fram er gert ráð fyrir að gert verði síki frá menn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/unglingarnir-i-hrisey-vilja-reyklaust-island-arid-2015
Unglingarnir í Hrísey vilja reyklaust Ísland árið 2015 Nemendur í 7. og 8. bekk Hríseyjarskóla tóku þátt í verkefninu reyklaus bekkur á vegum Lýðheilsustöðvar. Í umræðum og vinnu sem fram fór í tengslum við verkefnið komu unglingarnir fram með þá hugmynd að skrifa þingmönnum þjóðarinnar bréf og leggja til að gera Íslan...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/visindarad-fsa-formlega-stofnad-a-adalfundi
Vísindaráð FSA formlega stofnað á aðalfundi Á ársfundi Sjúkrahússins á Akureyri (FSA), sem haldinn var í gær, var vísindaráð FSA formlega stofnað og skipað í það. Í erindisbréfi vísindaráðs kemur fram að hlutverk þess sé að vera til ráðgjafar um vísindastarf á sjúkrahúsinu, móta vísindastefnu þess, bæði inn á við og ga...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-aetlar-ser-upp-um-deild-i-sumar
Þór ætlar sér upp um deild í sumar Íslandsmótið í 1. deild karla í knattspyrnu hefst á sunnudaginn kemur kl. 14:00. Þór hefur leik á heimavelli gegn nýliðum Fjölnis en KA sækir Þrótt Reykjavík heim. Þórsarar eru bjartsýnir fyrir sumarið og ætla sér stóra hluti. „Markmið okkar er að fara upp um deild í sumar. Ég tel okk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tillaga-til-sattar-um-umdeildt-siki-kynnt-a-fundi-sjalfstaedismanna
Tillaga til sáttar um umdeildt síki kynnt á fundi sjálfstæðismanna Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri efnir til súpufundar á morgun í Kaupangi um skipulagsmál. Ólafur Jónsson varaformaður skipulagsnefndar Akureyrarbæjar, sem skipar 2. sætið á framboðslista D-listans, flytur á fundinum erindi um skipulagsmál, sérstaklega ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/formadur-thors-motmaelir-bokun-um-ranglega-merktan-voll
Formaður Þórs mótmælir bókun um ranglega merktan völl Sigfús Ólafur Helgason formaður Íþróttafélagsins Þórs, mótmælir því harðlega sem fram kemur í bókun frá síðasta fundi Fasteigna Akureyrarbæjar og sagt var frá vikudagur.is fyrr í dag. Þar kemur m.a. fram að ekki sé um stóra ágalla að ræða á knattspyrnuvellinum en af...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/opnunardagskra-menningarhussins-hofs-tekur-a-sig-mynd
Opnunardagskrá Menningarhússins Hofs tekur á sig mynd Um þessar mundir vinna allt að 50 starfsmenn að því að ljúka framkvæmdum í Menningarhúsinu Hofi en húsið verður opnað í lok ágúst næstkomandi. Stefnt er að því að framkvæmdum ljúki í júní og að sumarið verði notað í lokafrágang og prufukeyrslur. Ljóst er að dagskrái...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/landssamband-kuabaenda-stofnar-utibu-a-akureyri
Landssamband kúabænda stofnar útibú á Akureyri Framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda hefur nú flutt búferlum til Akureyrar ásamt fjölskyldu sinni. Hafa samtökin tekið skrifstofuaðstöðu á leigu í Búgarði, Óseyri 2. Heimilisfang samtakanna verður eftir sem áður að Bitruhálsi 1 í Reykjavík og munu þau halda þeirri skrif...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/yfir-102-thusund-gestir-komu-a-skidi-i-hlidarfjall
Yfir 102 þúsund gestir komu á skíði í Hlíðarfjall Þá er skíðavertíðinni lokið þennan veturinn. Veturinn var misjafn eftir landshlutum. Heildar gestafjöldi á skíðasvæðin var 178,548 sem er fækkun frá því veturinn 2008-2009 en þá var aðsókn á skíðsvæðin 249,420 Ein aðal ástæðan fyrir fækkuninni var lélegur vetur á skíðsv...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/munadi-harsbreidd-ad-hjolaverk-efnid-fengid-althjodlegan-blae
Munaði hársbreidd að hjólaverk- efnið fengið alþjóðlegan blæ Verkefni ÍSÍ, Hjólað í vinnuna, hófst í morgun og stendur til 25. maí nk. Verkefninu var ýtt af stað með viðhöfn bæði í Reykjavík og á Akureyri. Á Akureyri safnaðist hjólafólk saman við Glerártorg og ekki munaði nema hársbreidd að um alþjóðlegan viðburð yrði ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorsvollurinn-var-ranglega-merktur-i-fyrra
Þórsvöllurinn var ranglega merktur í fyrra Á síðasta fundi framkvæmdaráðs Akureyrar var farið yfir ágalla sem komið hafa upp á nýju stúkunni á Þórsvæðinu, merkingum á Þórsvellinum og sigi á Sunnuhlíðarsvæði. Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar bendir á að ekki er um stóra ágalla að ræða á knattspyrnuvellinum en af einhverj...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/verkefnid-hjolad-i-vinnuna-hefst-a-morgun
Verkefnið hjólað í vinnuna hefst á morgun Hjólað í vinnuna, verkefni ÍSÍ hefst á morgun, miðvikudaginn 5. maí og stendur til 25. maí nk. Verkefninu verður ýtt af stað með viðhöfn bæði í Reykjavík og á Akureyri. Á Akureyri safnast hjólafólk saman við austurinngang Glerártorgs eins og fyrir ári. Bæjarstjórinn á Akureyri,...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atli-hilmarsson-i-vidraedum-vid-akureyri
Atli Hilmarsson í viðræðum við Akureyri Atli Hilmarsson, fyrrum þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar og KA í handbolta, hefur verið í viðræðum við forystumenn Akureyrar Handboltafélags í dag um að taka að sér þjálfun liðsins. Þetta staðfestir Hannes Karlsson formaður Akureyrar Handboltafélags við Vikudag. Viðræðurnar í dag ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/toyo-tires-torfaeran-farin-af-stad
Toyo- Tires torfæran farin af stað Mótorsportið er nú farið á fullt eftir vetrarfrí og fyrsta umferðin á Íslandsmótinu í torfæru, sem ber heitið Toyo- Tires, fór fram um helgina í Kollafirði. Alls voru 17 keppendur á mótinu og þar af 9 keppendur frá Bílaklúbbi Akureyrar. Í flokki sérútbúnabíla sigraði Jón Örn Ingileifs...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samid-verdi-vid-gamathjonustu-nordurlands-um-sorphirdu
Samið verði við Gámaþjónustu Norðurlands um sorphirðu Umhverfisnefnd Akureyrar leggur til við bæjarráð að samið verði við Gámaþjónustu Norðurlands ehf um leið A í sorphirðu á grundvelli tilboðs þeirra frá 13. apríl sl. Gámaþjónusta Norðurlands átti lægsta tilboð í báðir leiðirnar í sorphirðu. Fyrirtækið bauð um 762,5 m...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samstodulistinn-i-sameinudu-sveitarfelagi-lagdur-fram
Samstöðulistinn í sameinuðu sveitarfélagi lagður fram Lagður hefur verið fram J-listi samstöðu og sóknar í sameinuðu sveitarfélagi Arnarneshrepps og Hörgárbyggðar fyrir sveitastjórnarkosningar 29 maí n.k. Að Samstöðulistannum standa sveitastjórnir sveitafélaganna. Efstu sætin skipa núverandi oddvitar þeirra. Samstöðuli...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sigfus-olafur-gefur-afram-kost-a-ser-til-formennsku-i-thor
Sigfús Ólafur gefur áfram kost á sér til formennsku í Þór Aðalfundur Íþróttafélagsins Þórs verður haldinn í Hamri fimmtudaginn 6. maí kl. 20:00. Auk venjulegra aðalfundarstarfa, verða lagabreytingar og önnur mál. Sigfús Ólafur Helgason formaður og framkvæmdastjóri Þórs gefur áfram kost á sér til formennsku í félaginu. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/evropumeistaramot-wpf-2010-haldid-a-akureyri
Evrópumeistaramót WPF 2010 haldið á Akureyri Evrópumeistaramót WPF 2010 í kraftlyftingum verður haldið á Akureyri, dagana 23.- 26. júní næstkomandi. Um gríðarlega stórt mót er að ræða en að sögn Sigfúsar Fossdal mótstjóra, er von á 200 keppendum á mótið. Þar af verða um tíu Akureyringar sem spreyta sig.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fimleikafolk-a-akureyri-a-leid-i-nyja-fimleikahusid
Fimleikafólk á Akureyri á leið í nýja fimleikahúsið Óhætt er að segja að mikil eftirvænting hafi verið meðal fimleikafólks þegar fyrstu gámarnir af fimleikabúnaði voru losaðir inn í hið nýja fimleikahús Akureyrar sem verið er að reisa við Giljaskóla. Þrír gámar af stærstu gerð, sem eingöngu innihalda búnað fyrir stóra ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nemendur-lundarskola-i-heimsokn-a-sigurhaedum
Nemendur Lundarskóla í heimsókn á Sigurhæðum "Það var einstök upplifun, að hlusta á ríflega 40 krakka úr 2. bekk Lundarskóla syngja þjóðsönginn okkar, Ó, Guð vors lands, í Sigurhæðum Matthíasar í gærmorgun. Þau sungu svo fallega og voru skóla sínum til mikils sóma", sagði Gísli Sigurgeirsson, húsbóndi á Sigurhæðum, í s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framsoknarmenn-vilja-taka-atvinnumal-fostum-tokum
Framsóknarmenn vilja taka atvinnumál föstum tökum Framsóknarmenn á Akureyri vilja taka atvinnumálin föstum tökum, samhliða því að standa vörð um þá atvinnustarfsemi sem fyrir er. Þeir vilja færa atvinnumál frá Akureyrarstofu og aftur undir atvinnumálanefnd og ráða verkefnisstjóra í atvinnumálin. Framsóknarmenn vilja lá...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/allar-fasteignir-yfir-a-konuna
Allar fasteignir yfir á konuna Jón Björnsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Norðlendinga, færði allar fasteignir sínar yfir á eiginkonu sína Sigrúnu Björk Jakobsdóttur, fyrrverandi bæjarstjóra á Akureyri. Málið hefur verið rætt innan raða Sjálfstæðisflokksins á Akureyri að frumkvæði Sigrúnar Bjarkar, segir í ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/malthing-um-umhverfismal-haldid-a-hotel-kea
Málþing um umhverfismál haldið á Hótel KEA Málþing um umhverfismál verður haldið á Hótel KEA á Akureyri miðvikudaginn 5. maí frá kl. 14.00-16.30. Yfirskrift þingsins er „ Margt smátt gerir eitt stórt - Hugsaðu hnattrænt og framkvæmdu heima fyrir " Markmið með málþinginu er að vekja athygli á brýnum málaflokki sem skipt...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skraning-i-sumarbudirnar-a-holavatni-i-fullum-gangi
Skráning í sumarbúðirnar á Hólavatni í fullum gangi Skráning í sumarbúðir KFUM og KFUK að Hólavatni er nú í fullum gangi en í sumar verður boðið uppá 7 dvalarflokka fyrir börn á aldrinum 7-14 ára. Skráning hófst 20. mars og nú þegar er búið að skrá á annað hundrað börn. Enn er hægt er að bæta við börnum til viðbótar í ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/solbakur-til-hafnar-med-rum-100-tonn
Sólbakur til hafnar með rúm 100 tonn Sólbakur EA, ísfisktogari Brims, kom til heimahafnar á Akureyri í morgun. Togarinn var á veiðum fyrir austan land og aflinn eftir um 5 daga veiðiferð rúmlega 100 tonn, uppistaðan þorskur. Ráðgert er að Sólbakur haldi á miðin á ný annað kvöld.