Search is not available for this dataset
url stringlengths 21 288 | text stringlengths 1 1.35M |
|---|---|
https://www.vikubladid.is/is/frettir/umsaekjendur-um-baejarstjoraembaettid-a-akureyri | Umsækjendur um bæjarstjóraembættið á Akureyri
Nú er komið í ljós hverjir sóttu um embætti bæjarstjóra á Akureyri. Birting nafnanna hefur dregist aðeins vegna þess að sumir
vildu ekki láta birta nafn sitt og var þeim þá gefin kostur á að draga umsóknina til baka. Listinn er þó langur enn og er hann svona:
Umsækjendur um... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/keppendur-ba-sigursaelir-a-biladogum | Keppendur BA sigursælir á Bíladögum
Keppendur frá Bílaklúbbi Akureyrar voru sigursælir á Bíladögum sem haldnir voru á Akureyri um helgina.
Í Burn- Out keppninni var það Halldór Haukur Haraldsson sem sigraði en hann sigraði einnig í trukkaflokki í götuspyrnunni.
Þá sigraði Guðmundur Guðlaugsson í flokki 800 ccc mótorhjó... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/arctic-open-hefst-a-morgun | Arctic Open hefst á morgun
Hið einstaka golfmót Arctic Open verður haldið í tuttugasta og fjórða sinn nú um helgina á Jaðarsvelli. Um er að ræða
alþjóðlegt golfmót og eru um 160 keppendur skráðir til leiks, þar af 35 erlendir. Mótið hefst á morgun, fimmtudag, og er leikið
eftir Stableford punktakerfi með og án forgjafa... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/slippurinn-bydur-a-leik-thors-og-ir | Slippurinn býður á leik Þórs og ÍR
Slippurinn á Akureyri hefur ákveðið að bjóða á stórleik Þórs og ÍR sem eigast við á Þórsvelli
á laugardaginn kemur kl. 14:00 á Íslandsmótinu í 1. deild karla í knattspyrnu.
Um algjöran toppslag er að ræða þar sem ÍR vermir toppsætið með 16 stig en Þór hefur 14 stig í þriðja sæti og
ge... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/beltagrafa-valt-fram-af-kletti | Beltagrafa valt fram af kletti
Mikil mildi verður það að teljast að vélamaðurinn sem var að vinna á Komatsu beltagröfu frá jarðvinnuverktakanum Árna Helgasyni
í Ólafsfirði slapp ómeiddur þegar grafan hans valt fram af um 2-3 metra hárri klettabrún við þjóðveginn rétt sunnan við
Kristnes í Eyjafirði um hádegisbilið í da... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/j-listi-kaerir-ekki-svanfridur-afram-baejarstjori | J-listi kærir ekki - Svanfríður áfram bæjarstjóri
J - listinn á Dalvík mun ekki kæra úrskurð kjörnefndar sýslumannsins á Akureyri um niðurstöðu sveitarstjórnarkosninga í
Dalvíkurbyggð hinn 29. maí sl. Í yfirlýsingu frá framboðinu segir að J - listinn sé óháð framboð, ekki borinn
fram af stjórnmálaflokki á landsvísu og ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/naut-a-faeti-i-verdlaun-fyrir-golfmot | Naut á fæti í verðlaun fyrir golfmót
Næstkomandi laugardag, þann 26. júní, verður haldið fyrsta mótið af fjórum í golfmótaröðinni 2010 við
Þverá í Eyjafjarðarsveit. Leikinn verður höggleikur, engin forgjöf og gilda þrír bestu hringirnir.
Það sem vekur einna mesta athygli eru verðlaunin sem í boði eru á mótinu en sigurv... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/finn-arangur-ga-keppenda | Fínn árangur GA keppenda
Keppendur frá Golfklúbbi Akureyrar stóðu sig vel á fyrsta móti Norðurlandsmótaraðar unglinga 2010 í golfi en keppnin var haldin
á Arnarholtsvelli í Dalvík 13. júní sl. Fjórir keppendur GA sigruðu sinn flokk en það voru þau Stefanía Kristín
Valgeirsdóttir, Ævarr Freyr Birgisson, Ólöf Marín Hlyns... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gratt-torg-i-ar-engar-graenar-thokur | Grátt torg í ár - engar grænar þökur
"Eins og staðan er í dag höfum við ekki fengið neinar áætlanir um að þökuleggja torgið í ár og þetta er ekki inni á
fjárhagsáætlun hjá okkur," segir Helgi Pálsson hjá Framkvæmdadeild Akureyrarbæjar. Undanfarin tvö sumur hefur torgið verið
þökulagt yfir sumarið, en svo mun ekki verða... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/styrkjum-ur-landsmotssjodi-umse-utlhutad | Styrkjum úr Landsmótssjóði UMSE útlhutað
Þann 31. maí síðastliðinn var í fyrsta skipti úthlutað styrkjum úr Landssmótssjóði UMSE 2009. Sjóðurinn var
stofnaður fyrir hluta af þeim hagnaði sem UMSE fékk eftir 100 Landsmót UMFÍ sem haldið var á Akureyri sumarið 2009. Sjóðnum er
ætlað að efla og styrkja innra starf aðildar... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyrarbaer-tekur-2ja-milljarda-lan | Akureyrarbær tekur 2ja milljarða lán
Saga Capital Fjárfestingarbanki og Íslensk verðbréf hafa lokið við að selja skuldabréf fyrir Akureyrarbæ upp á 2 milljarða króna.
Skuldabréfin voru seld í lokuðu skuldabréfaútboði til lífeyrissjóða. Um er að ræða 34 ára jafngreiðslubréf sem
bera 4,35% vexti.
Samkvæmt upplýsingum frá... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/svipmyndir-ur-kvennahlaupi-isi-1 | Svipmyndir úr Kvennahlaupi ÍSÍ
Hundruð kvenna á öllum aldri tók þátt í kvennahlaupinu á kvennréttindadaginn 19. júní. Eftir upphitun hlutu konurnar hver
með sínu lagi hefðbundinn hring, annað hvort langa hringinn eða þann stutta. Skoða má svipmyndir úr hlaupinu með því að smella
hér. |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/godur-arangur-kka-keppenda-i-annarri-umferd-islandsmotsins | Góður árangur KKA keppenda í annarri umferð Íslandsmótsins
Önnur umferð Íslandsmótsins í enduró fór fram á svæði KKA á Akureyri sl. helgi. Keppendur frá KKA stóðu
sig vel og sigruðu í tveimur flokkum. Björn Ómar Sigurðarson sigraði í baldursdeild og í tvímenningi sigruðu þeir Guðmundur H.
Hannesson og Finnur Aðalbjörns... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fimmtiu-milljonir-i-vidhald-a-kristnesi | Fimmtíu milljónir í viðhald á Kristnesi
Stjórnvöld hafa ákveðið að verja 500 milljónum til átaks um viðhald opinberra fasteigna um land allt. Af þeirri
upphæð koma sextíu milljónir í hlut Sjúkrahússins á Akureyri.
Samkvæmt frétt frá FSA hefur framkvæmdastjórn sjúkrahússins ákveðið að fimmtíu milljónum skuli varið til
a... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/um-60-umsoknir-um-starf-baejarstjora | Um 60 umsóknir um starf bæjarstjóra
Nálægt 60 umsóknir hafa borist um starf bæjarstjóra á Akureyri en umsóknarfrestur um starfið rann út í
gær. Fjölmargar umsóknir bárust um helgina og einhverjar munu vera enn á leiðinni í pósti, þannig að endanlegur
fjöldi eða nafnalisti liggur ekki fyrir. “Þetta er vissulega meira en... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ekkert-trippakjot-i-bollum-nordlenska | Ekkert trippakjöt í bollum Norðlenska!
"Innihaldslýsingar á kjötbollum, sviknum héra, bjúgum og kjúklinganöggum sem finna má í greininni eru ekki innihaldslýsingar á
kjötvörum Norðlenska. Norðlenska framleiðir sem dæmi 4 tegundir af kjötbollum, engin þeirra vara hefur að geyma trippakjöt hvað þá
að það sé reykt. Kjötin... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vegna-umraedu-um-unnar-kjotvorur | Vegna umræðu um unnar kjötvörur
Ingvar Már Gíslason markaðsstjóri og Sigurgeir Höskuldsson gæðastjóri Norðlenska ehf.
skrifa
Undanfarna daga hefur borið þó nokkuð á umræðu um unnar kjötvörur í skólamötuneytum Reykjavíkurborgar. Síðastliðinn
sunnudag birtist ágætis grein í Morgunblaðinu undir yfirskriftinni “Pottur víða... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/dalvikreynir-ad-stinga-af-i-d-ridli-3-deildarinnar | Dalvík/Reynir að stinga af í D- riðli 3. deildarinnar
Dalvík/Reynir er að stinga af í D- riðli 3. deildar karla í knattspyrnu en liðið hefur átta stiga forystu á
toppi riðilsins eftir 4:0 sigur gegn Samherja á Hrafnagilsvelli sl. föstudag. Markús Darri Jónsson skoraði tvívegis fyrir Dalvík/Reyni í
leiknum og þeir Gunna... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thetta-verdur-ovenjulegt-sumar-i-ferdathjonustunni | Þetta verður óvenjulegt sumar í ferðaþjónustunni
„Þetta er mikið púsluspil og mikil vinna sem liggur að baki áður en rúturnar fara af stað með ferðamenn," segir Berþór Erlingsson
markaðsstjóri hjá SBA-Norðurleið, en þar á bæ voru menn í gær í óða önn af undirbúa komu
skemmtiferðaskipsins Costa Magica, þegar Vikudagur r... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/storkostlegt-taekifaeri-til-ad-koma-aftur-heim | Stórkostlegt tækifæri til að koma aftur heim
„Þetta er stórkostlegt tækifæri til að koma aftur heim og það hlakka allir í fjölskyldunni til að flytja norður," segir sr. Arna
Ýrr Sigurðardóttir sem nýverið var ráðin sóknarprestur í Glerárkirkju en hún verður sett í embætti við
guðsþjónustu í kirkjunni í kvöld, sunnudags... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/motorhjolasyning-i-motor-hjolasafninu-a-akureyri | Mótorhjólasýning í Mótor- hjólasafninu á Akureyri
Nú stendur yfir sýning á mótorhjólum af ýmsum stærðum og gerðum í Mótorhjólasafninu á Akureyri. Alls eru til
sýnis 44 hjól í eigu safnsins og einnig myndir. Húsnæði safnsins á Krókeyri er enn í byggingu, sýningin er á neðri
hæðinni og verður hún einnig opin á morgun sun... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-i-thridja-saetid-eftir-utisigur-gegn-grottu | Þór í þriðja sætið eftir útisigur gegn Gróttu
Þór vann í dag útisigur gegn Gróttu, 2:0, er liðin áttust við á Gróttuvelli í sjöundu umferð
Íslandsmótsins í 1. deild karla í knattspyrnu. Það voru þeir Ármann Pétur Ævarsson og Ottó Hólm Reynisson sem skoruðu
mörk Þórs í leiknum. Með sigrinum er Þór komið með 14 stig í þr... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/konur-a-ollum-aldri-i-kvennahlaupinu-a-akureyri | Konur á öllum aldri í Kvennahlaupinu á Akureyri
Konur á öllum aldri fjölmenntu í Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ á Akureyri í morgun. Þetta var í tuttugasta og fyrsta sinn sem
hlaupið er haldið. Í ár var yfirskrift hlaupsins "Konur eru konum bestar" og var unnið í samstarfi við Kvenfélagasamband Íslands sem fagnar 80
ára afmæli ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sameinad-sveitarfelag-skal-heita-horgarsveit | Sameinað sveitarfélag skal heita Hörgársveit
Fyrsti fundur í sveitarstjórn sameinaðs sveitarfélags Hörgárbyggðar og Arnarneshrepps va haldinn í gær. Þar var ákveðið
að sveitarfélagið skyldi heita Hörgársveit. Á fundinum var Hanna Rósa Sveinsdóttir kosin oddviti sveitarstjórnar og Axel
Grettisson varaoddviti.
Fundurinn ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-saekir-grottu-heim-i-dag | Þór sækir Gróttu heim í dag
Sjöunda umferð Íslandsmótisins í 1. deild karla í knattspyrnu klárast í dag með tveimur leikjum. Annars vegar mætast HK og
Fjarðabyggð á Kópavogsvelli og hins vegar Grótta og Þór á Gróttuvelli.
Átta stig skilja lið Gróttu og Þórs fyrir leikinn í kvöld, Grótta hefur fjögur stig næstneðsta sæt... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-vann-a-akureyrarvelli-i-kvold | KA vann á Akureyrarvelli í kvöld
KA spilaði sinn fyrsta heimaleik á Akureyrarvelli í kvöld og hélt upp á það með 3:2 sigri gegn Fjölni á Íslandsmótinu
í 1. deild karla í knattspyrnu. KA komst tvisvar yfir í leiknum en gestunum tókst að jafna metin í tvígang. Það var svo Guðmundur
Óli Steingrímsson sem skoraði sigurmark... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/finnur-ehf-umbodsadili-a-akureyri-fyrir-steypustodina | Finnur ehf. umboðsaðili á Akureyri fyrir Steypustöðina
Fyrirtækið Finnur ehf. er orðið umboðsaðili á Akureyri fyrir Steypustöðina og selur nú steyptar hellur af ýmsum stærðum og gerðum
fyrir innkeyrslur, hleðslur og garðinn, svo eitthvað sé nefnt.
Salan hófst í síðustu viku og segir Björn Hákon Sveinsson, lagerstjóri, ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-og-fjolnir-maetast-a-akureyrarvelli-i-kvold | KA og Fjölnir mætast á Akureyrarvelli í kvöld
KA spilar sinn fyrsta leik á Akureyrarvelli í sumar í kvöld er liðið fær Fjölni í heimsókn kl. 19:00 á
Íslandsmótinu í 1. deild karla í knattspyrnu. Miklar framkvæmdir hafa átt sér stað á Akureyrarvelli í sumar og standa enn. Að
sögn Tryggva Gunnarssonar vallarstjóra er völ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/helena-hlaut-riddarakross-fyrir-framlag-til-islenskrar-tonlistar | Helena hlaut riddarakross fyrir framlag til íslenskrar tónlistar
Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, sæmdi tólf einstaklinga Fálkaorðunni við hátíðlega athöfn á
Bessastöðum í gær. Í hópi þeirra sem hlutu orðuna að þessu sinni er Helena Eyjólfsdóttir söngkona á Akureyri,
en hlaut riddarakross fyrir framlag ti... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kvennasoguganga-um-innbaeinn-a-sunnudag | Kvennasöguganga um Innbæinn á sunnudag
Á kvennréttindadaginn 19. júní verður farin "Kvennasöguganga" um Innbæinn. Gangan hefst fyrir framan Minjasafnið kl. 12 og lýkur í
Lystigarðinum kl. 14. Um leiðsögn sér Guðrún María Kristinsdóttir, formaður Zontaklúbbs Akureyrar.
Hlín Bolladóttir, bæjarfulltrúi, ávarpar gönguges... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/syningin-39-threp-hlaut-ahorfendaverdlaunin | Sýningin 39 þrep hlaut áhorfendaverðlaunin
Leiksýningin 39 þrep í uppfærslu Leikfélags Akureyrar fékk áhorfendaverðlaunin á Grímuhátíðinni sem haldin var
í Þjóðleikhúsinu sl. miðvikudag. Almenningi gafst kostur á að kjósa sýningu ársins á heimasíðu
Grímunnar stuttu fyrir hátíðina sjálfa. Þar lentu fimm leiksýningar í e... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/madur-i-haldi-vegna-naudgunar-a-akureyri | Maður í haldi vegna nauðgunar á Akureyri
Um hálf fjögur leytið í nótt tilkynnti stúlka um tvítugt um nauðgun á tjaldstæðinu við Þingvallastræti á
Akureyri. Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni er karlmaður í haldi vegna málsins en ekki er búið að leggja fram kæru í
málinu. Nóttin var erilsöm hjá lögreglunni en töluverður... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjoldi-folks-tok-thatt-i-hatidarholdum-a-akureyri-i-dag | Fjöldi fólks tók þátt í hátíðarhöldum á Akureyri í dag
Fjöldi fólks á öllum aldri tók þátt í hátíðarhöldum á Akureyri í dag,
þjóðhátíðardaginn 17. júní. Hefðbundin dagskrá hófst í Lystigarðinum kl.13.00 með fánahyllingu. Pétur
Björgvin Þorsteinsson djákni við Glerárkirkju flutti bænagjörð og blesssun og Kór Glerárkirkj... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/biladagar-um-helgina | Bíladagar um helgina
Hinir árlegu Bíladagar fara fram á Akureyri um helgina og hefjast með þjóðhátíðarsýningu Bílaklúbbs Akureyrar í
Boganum í dag fimmtudag. Dagskráin yfir helgina er þétt og má nefna fasta liði eins og Burn- Out keppnina, hina sívinsælu götuspyrnu, drift,
torfæru og sandspyrnu. Kristján Þ. Kristinsson... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/agaetis-ferdamannaverslun-a-akureyri-thad-sem-af-er | Ágætis ferðamannaverslun á Akureyri það sem af er
„Sumarið fer vel af stað og lofar góðu," segir Sigurður Guðmundsson kaupmaður í versluninni Viking, en hann rekur jafnframt ferðamannaverslun
í þjónustuhúsi Hafnasamlags Norðurlands á Oddeyrarbryggju. Sigurður segir að erlendir ferðamenn kaupi jafnan minjagripi, ullarvö... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oddur-skoradi-sex-gegn-brasiliu | Oddur skoraði sex gegn Brasilíu
Akureyringurinn Oddur Gretarsson skoraði 6 mörk fyrir íslenska landsliðið í handbolta, í 33:30 sigri liðsins í æfingaleik gegn
Brasilíu ytra í gærkvöld. Ísland var þremur mörkum yfir í hálfleik, 16:13.
Oddur var markahæstur í íslenska liðinu ásamt þeim Arnóri Þór Gunnarssyni og Rúnari Ká... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kartoflubaendur-hafa-lokid-vid-ad-setja-nidur | Kartöflubændur hafa lokið við að setja niður
Kartöflubændur í Eyjafirði hafa nú nýlokið við að setja niður þetta vorið. Uppskera síðasta árs var þokkaleg
að sögn Bergvins Jóhannssonar kartöflubónda á Áshóli í Grýtubakkahreppi, sem er jafnframt formaður Félags
kartöflubænda. „Það var ágætis meðal uppskera en ekkert meir... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/urslit-sveitarstjornarkosninganna-i-sameinudu-sveitarfelagi-standa | Úrslit sveitarstjórnarkosninganna í sameinuðu sveitarfélagi standa
Kjörnefnd, sem skipuð af sýslumanninum á Akureyri, til að úrskurða um tvö vafaatkvæði í sveitarstjórnarkosningunum í
sameinuðu sveitarfélagi Arnarneshrepps og Hörgárbyggðar 29. maí sl. kvað í dag þann úrskurð að þau skuli vera gild.
Það þýðir að þau úrs... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stada-sveitarstjora-svalbards-strandarhrepps-auglyst-laus-til-umsoknar | Staða sveitarstjóra Svalbarðs- strandarhrepps auglýst laus til umsóknar
Staða sveitarstjóra Svalbarðsstrandarhrepps hefur verið auglýst laus til umsóknar. Leitað er að kraftmiklum aðila til að leiða
áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins. Krafa er gerð um að sveitarstjóri verði búsettur í sveitarfélaginu og æskilegt er... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/halla-bjork-kjorin-1-varaforseti-baejarstjornar-akureyrar | Halla Björk kjörin 1. varaforseti bæjarstjórnar Akureyrar
Geir Kristinn Aðalsteinsson oddviti L-listans var kjörinn forseti bæjarstjórnar Akureyrar til eins árs á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar
í gær, eins og fram hefur komið. Geir hlaut 6 atkvæði en 5 seðlar voru auðir. Halla Björk Reynisdóttir bæjarfulltrúi L-list... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/verdur-mun-jafnara-en-menn-heldu | Verður mun jafnara en menn héldu
„Þetta er að spilast á alla kanta og deildin verður örugglega miklu meira spennandi og jafnari en menn héldu,” segir
Siguróli „Moli” Kristjánsson aðstoðarþjálfari Þórs/KA, en þegar sjö umferðum er lokið í Pepsi-
deild kvenna í knattspyrnu er Þór/KA með 13 stig í þriðja sæti deildarinn... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/saga-capital-selur-skuldabref-mosfellsbaejar | Saga Capital selur skuldabréf Mosfellsbæjar
Saga Capital Fjárfestingarbanki hefur lokið við skuldabréfaútboð fyrir Mosfellsbæ. Skuldabréfin voru seld í lokuðu
skuldabréfaútboði til lífeyrissjóða og nam útgáfufjárhæðin 600 milljónum króna. Um er að ræða 10
ára afborgunarbréf í opnum skuldabréfaflokki MOS 09 1, sem eftir... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/39-threp-keppir-um-vinsaelustu-ahorfendasyningu-arsins | 39 Þrep keppir um vinsælustu áhorfendasýningu ársins
Leiksýningin 39 Þrep í uppsetningu Leikfélags Akureyrar er ein fimm sýninga sem keppir um titilinn besta leiksýning ársins að mati áhorfenda
á hinni árlegu uppskeruhátíð leiklistarinnar, Grímunni. Síðustu tvær vikur hafa staðið yfir netkosningar þar sem
áhorfendur ha... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vormot-umse-haldid-i-naestu-viku | Vormót UMSE haldið í næstu viku
Vormót UMSE í frjálsum íþróttum fer fram mánudaginn 21. júní og miðvikudaginn 23.
júní á Þórsvelli. Mótið hefst klukkan 18:00 báða dagana og er mótið öllum opið. Þann 21. júní
keppa 13 ára og eldri og 23. júní keppa 12 ára og yngri.
Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2., og 3. sæti til keppe... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/johann-helgi-i-eins-leiks-bann | Jóhann Helgi í eins leiks bann
Jóhann Helgi Hannesson, leikmaður meistaraflokks Þórs, hefur verið úrskurðaður í eins leiks keppnisbann af
Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ. Jóhann verður því í banni þegar Þór sækir Gróttu heim næstkomandi laugardag
í 1. deildinni.
Þá voru þeir Garðar Marvin Hafsteinsson og Ægir Svanholt Reyni... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/geir-kristinn-forseti-baejarstjornar-og-oddur-helgi-formadur-baejarrads | Geir Kristinn forseti bæjarstjórnar og Oddur Helgi formaður bæjarráðs
Ný bæjarstjórn Akureyrar kom saman til síns fyrsta fundar seinni partinn í dag og þar var Geir Kristinn Aðalsteinsson oddviti L-listans, kjörinn
forseti bæjarstjórnar. Einnig var kosið í nefndir og ráð bæjarins og var Oddur Helgi Halldórsson bæjarful... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ithrottafelagid-fjordur-sigradi-a-bikarmoti-i-sundi | Íþróttafélagið Fjörður sigraði á bikarmóti í sundi
Vel heppnað bikarmót Íþróttsambands fatlaðra fór fram í Sundlaug Akureyrar sl. helgi í umsjón Sundfélagsins
Óðins, þar sem 60 keppendur voru skráðir til leiks frá fjórum aðildarfélögum ÍF.
Lokastigaröð mótsins urðu þau að Íþróttafélagið Fjörður sigraði með 12.299 stig ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjolbreytt-dagskra-a-17-juni-hatidarholdum-a-akureyri | Fjölbreytt dagskrá á 17. júní hátíðarhöldum á Akureyri
Það er án efa fallegur dagur framundan á Akureyri þegar haldið verður upp á þjóðhátíðardag Íslendinga 17.
júní auk þess sem útskrift nýstúdenta við Menntaskólann á Akureyri og hátíðarhöld tengd þeim ágæta
skóla setja alltaf mikinn svip á bæinn. Það er Skátafélagið ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vilhelm-keppir-med-landslidinu-i-thyskalandi | Vilhelm keppir með landsliðinu í Þýskalandi
Vilhelm Hafþórsson úr Sundfélaginu Óðni heldur í dag til Þýskalands með landsliði
Íþróttasambands fatlaðra í sundi. Þar tekur liðið þátt í Opna þýska meistaramótinu sem fram fer 17.-24.
júní. Ferðin er hluti undirbúnings fyrir Heimsmeistaramót fatlaðra í haust og verður fróðl... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hin-arlega-flughelgi-a-akureyri-um-helgina | Hin árlega Flughelgi á Akureyri um helgina
Hin árlega Flughelgi verður haldin á Akureyrarflugvelli um helgina. Þetta er í 11. sinn sem þessi viðburður fer fram og hefur hann verið vel vel
sóttur, í fyrra komu um 3.000 manns á flugvöllinn. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá bæði á laugardag og sunnudag.
Svæðið verðu... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hvanndalsbraedur-a-ferd-og-flugi-1 | Hvanndalsbræður á ferð og flugi
Hvanndalsbræður hafa verið á ferð og flugi um landið, að kynna nýjan hljómdisk sem þeir hafa sent frá sér. Á morgun
miðvikudag verða þeir félagar með tónleika í félagsheimilinu á Vopnafirði og á þjóðhátíðardaginn 17.
júní verða Hvanndalsbræður á heimavelli. Þeir munu halda uppi fjörinu á... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/siglingamenn-fra-nokkva-byrja-sumarid-vel | Siglingamenn frá Nökkva byrja sumarið vel
Siglingavertíðin hófst á dögunum þegar Opnunarmótið í siglingum var haldið í Kópavogi. Tveir liðsmenn
frá Nökkva tóku þátt í mótinu, þeir Gauti Elfar Arnarson og Gunnar Úlfarsson. Báðir gerðu þeir gott
mót en Gauti sigraði í opnum flokki í Laser og Topper Topas en Gunnar sigrað... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/edlilegt-ad-foreldrar-kynni-ser-malin | Eðlilegt að foreldrar kynni sér málin
„Ég ásamt Samtaka, (samtökum foreldrafélaga á Akureyri) vorum í raun ekkert að vara við þessari skemmtun heldur bara að benda foreldrum
á að skoða hlutina í kringum þetta og það er langur vegur frá því að ætlunin með þessu hafi verið að gera
þessum mönnum (N3) grikk," segir Gréta K... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kvennahlaupid-19-juni-haldid-i-tuttugasta-og-fyrsta-sinn | Kvennahlaupið 19. júní haldið í tuttugasta og fyrsta sinn
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ verður haldið í tuttugasta og fyrsta sinn, laugardaginn 19. júní. Í ár er yfirskrift hlaupsins "Konur eru
konum bestar" og er unnið í samstarfi við Kvenfélagasamband Íslands sem fagnar 80 ára afmæli sínu á árinu. Um þúsundir
kvenna á öllum ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sameining-arnarneshrepps-og-horgarbyggdar-hefur-tekid-gildi | Sameining Arnarneshrepps og Hörgárbyggðar hefur tekið gildi
Sameining Arnarneshrepps og Hörgárbyggðar tók formlega gildi sl. laugardag, þann 12. júní. Arnarneshreppur varð til árið 1824, en
náði þá yfir nokkru stærra svæði en seinna varð. Það heiti leysti af hólmi sveitarfélagsheitið Hvammshreppur, sem
náði nokkurn veg... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/grasleppuveidin-aukist-mikid-og-verd-a-hrognum-haekkad | Grásleppuveiðin aukist mikið og verð á hrognum hækkað
Grásleppuvertíð hefur gengið afar vel í ár og hefur veiði aukist um 50% frá fyrri árum sem þó hafa talist góð.
Afurðaverð er einnig mjög gott. Þannig fengust 2. júní 2009 kr. 779,75 fyrir hvert kíló af grásleppuhrognum samkvæmt upplýsingum
Reiknistofu fiskmarkaða, e... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/langstaersti-hopur-nystudenta-brautskradur-fra-upphafi | Langstærsti hópur nýstúdenta brautskráður frá upphafi
Menntaskólanum á Akureyri verður slitið í 130. sinn og stúdentar brautskráðir við hátíðlega athöfn í
Íþróttahöllinni á Akureyri fimmtudaginn 17. júní nk. og hefst athöfnin kl. 10.00. Jón Már Héðinsson skólameistari
brautskráir í þetta sinn 183 stúdenta, en þetta er ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bjarki-vard-fimmti-a-nordurlandamotinu | Bjarki varð fimmti á Norðurlandamótinu
Bjarki Gíslason, frjálsíþróttamaður frá UFA, varð í fimmta sæti á Norðurlandamóti unglinga í
fjölþrautum sem haldið var í Danmörku um helgina. Bjarki fékk alls 6.549 stig á mótinu en það var Svíinn Douglas Stenberg sem
sigraði með 6.847 stig. |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eldur-kom-upp-i-gamla-baenum-i-laufasi-i-kvold | Eldur kom upp í gamla bænum í Laufási í kvöld
Eldur kom í hlóðareldhúsi í gamla bænum í Laufási í Grýtubakkahreppi í kvöld. Slökkviliðið á
Grenivík var kallað á staðinn kl. 20:45 og var komið á staðinn rúmum 15 mínútum síðar. Tveir menn úr slökkviliðinu
voru í Laufási þegar eldurinn kom og náðu þeir að rjúfa þekjuna og... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorka-i-annad-saeti-pepsi-deildarinnar | Þór/KA í annað sæti Pepsi- deildarinnar
Þór/KA er komið með 13 stig í öðru sæti Pepsi- deildar kvenna í knattspyrnu eftir 3:1 sigur gegn Stjörnunni á
Þórsvelli í dag. Þór/KA er nú aðeins einu stigi á eftir toppliði Vals, en hefur leikið einum leik meira. Það voru þær
Bojana Besic, Danka Podovac og Vesna Smiljkovic sem ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorka-faer-stjornuna-i-heimsokn-i-dag | Þór/KA fær Stjörnuna í heimsókn í dag
Einn leikur fer fram í Pepsi deild kvenna í knattspyrnu í dag þegar Þór/KA og Stjarnan mætast á Þórsvelli kl. 14:00.
Búast má við hörkuleik milli þessara liða, sem eru jöfn að stigum í deildinni með tíu stig í fjórða og fimmta
sæti. Þar sem Íslandsmeistarar Vals hafa verið að hikst... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/folk-thegar-farid-ad-streyma-i-lystigardinn-a-akureyri | Fólk þegar farið að streyma í Lystigarðinn á Akureyri
Lystigarðurinn á Akureyri var formlega opnaður fyrir gesti og gangandi þann 1. júní sl. Björgvin Steindórsson, forstöðumaður, segir
garðinn koma vel undan vetri og að fólk sé þegar farið að streyma að. „Fólk byrjaði að koma áður en garðurinn opnaði
formlega og við s... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/um-1500-nemendur-stundudu-nam-a-thremur-svidum-ha-i-vetur | Um 1500 nemendur stunduðu nám á þremur sviðum HA í vetur
Háskólaárið 2009-20010 stunduðu um 1500 nemendur nám í þremur sviðum við Háskólann á Akureyri. Ríflega
þriðjungur þeirra stundaði fjarnám á u.þ.b. 20 stöðum á landinu. Í ár voru 376 kandídatar brautskráðir á
háskólahátíð sem haldin var í Íþróttahöllinni á Akureyr... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/honnun-hjukrunarheimilisis-ad-ollu-jofnu-bodin-ut | Hönnun hjúkrunarheimilisis að öllu jöfnu boðin út
„Málið var rætt innan stjórnar Fasteigna Akureyrar og ákvörðun tekin um að fara þessa leið," segir Hermann Jón Tómasson
bæjarstjóri á Akureyri um ákvörðun stjórnar Fasteigna Akureyrar á dögunum. Þar staðfesti meirihluti stjórnar FA tillögu um
að gera verðfyrirspurn meða... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-tapadi-a-eskifjardarvelli | KA tapaði á Eskifjarðarvelli
Fjarðabyggð lagði KA að velli 1:0 í á Eskifjarðarvelli í kvöld á Íslandsmótinu í 1. deild karla í knattspyrnu.
Það var Aron Már Smárason sem skoraði sigurmark leiksins á 77. mínútu. Eftir sex umferðir hafa bæði KA og Fjarðabyggð sex stig
í deildinni, KA í sjöunda sæti en Fjarðabyggð í því n... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorsarar-logdu-thrott-ad-velli-i-kvold | Þórsarar lögðu Þrótt að velli í kvöld
Þór hafði betur gegn Þrótti R., 2:1, er liðin mættust á Þórsvelli í kvöld á Íslandsmótinu í
1. deild karla í knattspyrnu. Þróttarar enduðu aðeins með níu menn inni á vellinum þar sem þeir Helgi Pétur Magnússon og
Erlingur Jack Guðmundsson fengu að líta rauða spjaldið í seinni hálfl... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lystar-krofur-i-throtabu-fridriks-v-um-70-milljonir-krona | Lýstar kröfur í þrotabú Friðriks V um 70 milljónir króna
Alls var lýst kröfum í þrotabú veitingastaðarins Friðriks V á Akureyri að upphæð rúmlega 70 milljónir króna. Ingvar
Þóroddsson skiptastjóri búsins segir að endanleg afstaða til krafna liggi ekki fyrir, en skiptafundur verður haldinn í byrjun júlí og
þá segir hann... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/uthlutad-ur-haskolasjodi-kea-i-attunda-sinn | Úthlutað úr Háskólasjóði KEA í áttunda sinn
Að lokinni brautskráningu úr Háskólanum á Akureyri á morgun, laugardaginn 12. júní, munu hr. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands og Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA, afhenda styrki úr Háskólasjóði KEA. Þetta er í áttunda
sinn sem úthlutað er úr sjóðnum og fer athö... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hatidarstemmning-a-60-ara-afmaeli-leikskolans-palmholts | Hátíðarstemmning á 60 ára afmæli leikskólans Pálmholts
Sannkölluð hátíðarstemmning ríkir á leikskólanum Pálmholti en dag, föstudag, fagnar leikskólinn 60 ára afmæli
sínu. Pálmholt er elsti starfandi leikskóli á landsbyggðinni og var upphaflega byggður af kvenfélagskonum í kvenfélaginu Hlíf. Mikill
fjöldi fólks tók þátt... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/um-1100-manns-sottu-um-skolavist-i-ha | Um 1100 manns sóttu um skólavist í HA
Um 1.100 manns sóttu um skólavist í Háskólanum á Akureyri fyrir næstkomandi haust og er það 5-8 prósenta aukning frá
því í fyrra. Mest er sótt í heilbrigðisdeildina og auðlindagreinarnar, en heldur fækkar í viðskiptadeildinni og í
félagsvísindum. Stefán B. Sigurðsson, rektor skólan... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aetlum-ad-vinna-alla-heimaleikina | Ætlum að vinna alla heimaleikina
„Mér líst sérstaklega vel á alla heimaleikina okkar því að þar ætlum við að vinna alla okkar leiki, það er
ekkert flóknara en það,” segir Páll Viðar Gíslason þjálfari Þórs, sem tekur á móti Þrótti R.
í kvöld er liðin mætast á Þórsvelli kl. 19:00 á Íslandsmótinu í knattspyrnu í 1. deild ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/motmaelir-aformum-um-ad-leggja-af-sjavarutvegs-og-landbunadarraduneyti | Mótmælir áformum um að leggja af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti
Stjórn Landssamtaka sauðfjárbænda mótmælir kröftuglega fyrirætlan ríkisstjórnarinnar um að leggja af sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðuneyti. Víðtæk og eindregin andstaða hefur ítrekað komið fram við málið frá þeim sem starfa
innan landbúnaðar- og sjá... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/dagur-hinna-villtu-bloma-verdur-haldinn-a-sunnudaginn | Dagur hinna villtu blóma verður haldinn á sunnudaginn
Dagur hinna villtu blóma verður haldinn sunnudaginn 13. júní á fjórtán stöðum víðs vegar um landið. Þá verður
boðið upp á stutta gönguferð með plöntuskoðun fyrir alla fjölskylduna.
Eyfirðingar geta valið um tvær gönguferðir:
1. Eyjafjarðarsveit: Mæting kl. 10:00 við... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sirkussmidja-a-akureyri-og-lokabraedsla-a-hjalteyri | Sirkussmiðja á Akureyri og lokabræðsla á Hjalteyri
Eyfirski ungmenna Sirkusinn "Sirkus Artika" býður upp á sirkussmiðjur fyrir ungt fólk á aldrinum 8-25 ára, vikuna 14. -18. júní
næstkomandi. Meðal þess sem er kennt er clowning, að ganga á línu, juggl, sviðsframkoma og akróbatík. Kennarar eru Hanna Terava og Reija Tapa... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sjukrahusid-a-akureyri-fekk-45-milljonir-krona-ad-gjof | Sjúkrahúsið á Akureyri fékk 45 milljónir króna að gjöf
Gjafasjóður Sjúkrahússins á Akureyri fékk veglega gjöf á dögunum, er aðili sem ekki vill láta nafn síns getið, styrkti
sjóðinn um 45 milljónir króna. Þessi gjöf er ein sú stærsta sem Sjúkrahúsið hefur fengið frá upphafi og verður
fjárhæðinni varið til kaupa á tækju... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leikskolinn-palmholt-fagnar-60-ara-afmaeli-a-morgun | Leikskólinn Pálmholt fagnar 60 ára afmæli á morgun
Á morgun, föstudaginn 11. júní, fagnar leikskólinn Pálmholt á Akureyri 60 ára afmæli sínu. Í dag eru stöðugildi
við Pálmholt 13,50, starfsmenn eru 16 og börnin 60 talsins. Leikskólinn er elsti starfandi leikskóli á landsbyggðinni og var upphaflega byggður af
kvenfélags... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nemandi-fra-uganda-lykur-meistaranami-vid-ha | Nemandi frá Úganda lýkur meistaranámi við HA.
Lillian Chebet varð í gær, miðvikudaginn 9. júní fyrsti nemandinn frá Úganda sem lýkur meistaranámi sínu við
Auðlindafræði við Háskólan á Akureyri. Lillian hefur stundað nám sitt síðastliðin tvö ár á Akureyri fyrir
tilstuðlan Sjávarútvegsskóla háskóla Sameinuðu þjóðanna (UN... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/enginn-fra-ka-i-landslidshop-karla-i-blaki | Enginn frá KA í landsliðshóp karla í blaki
Búið er að velja lokahóp íslenska karlalandsliðsins í blaki sem tekur þátt í undankeppni EM
smáþjóða í Möltu dagana 17.- 21. júní. Athygli vekur að ekkert pláss er fyrir neinn leikmann í hópnum frá
þreföldu meistaraliði KA frá því í vor. Hilmar Sigurjónsson fyrirliði KA er mei... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stefnir-i-gott-grillsumar | Stefnir í gott grillsumar
„Það má segja að sumarið hafi byrjað um hvítasunnuhelgina og þá hafi síðasta grill landsins verið dregið út," segir
Auðjón Guðmundsson markaðsstjóri hjá Kjarnafæði. Sala á grillkjöti hefur farið vel af stað í sumar enda Íslendingar
annálaðir grillarar og hafa pylsurnar og hamborgararnir notið ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/althjodleg-radstefna-um-vimuefnarannsoknir-a-akureyri | Alþjóðleg ráðstefna um vímuefnarannsóknir á Akureyri
Dagana 12. til 14. júní munu sérfræðingar um vímuefnaneyslu unglinga frá ríflega fjörutíu löndum halda ársþing sitt
í Brekkuskóla. Hér er um að ræða evrópska rannsóknarverkefnið European School Survey Project on Alcohol and other Drugs (ESPAD) sem unnið er
að tilstuð... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjolskylduganga-i-fotspor-nonna-a-laugardag | Fjölskylduganga í fótspor Nonna á laugardag
Hefur þú séð Nonnasteininn? Hefur þú gengið í fótspor hins ástsæla barnabókarithöfundar Nonna? Ef ekki þá
er tilvalið fyrir alla fjölskylduna laugardaginn 11. júní kl. 14.00 að gera sér glaðan dag og ganga í fylgd kunnugra um Nonnaslóð. Þetta
er létt og þægileg ganga þar sem ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-handboltafelag-bodar-til-fundar-i-ithrottahollinni | Akureyri Handboltafélag boðar til fundar í Íþróttahöllinni
Akureyri Handboltafélag hefur boðað til almennsfundar áhugamanna um handbolta á Akureyri annað kvöld, fimmtudag, kl. 20:00 í
Íþróttahöllinni. Atli Hilmarsson, nýráðinn þjálfari félagsins, fer yfir næstu skref hjá liðinu.
Rætt verður um komandi tímabil og ýmiss ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jon-orn-keppir-i-danmorku | Jón Örn keppir í Danmörku
Jón Örn Ingileifsson, frá Bílaklúbbi Akureyrar, verður meðal þriggja keppenda frá Íslandi sem tekur þátt í
þriðju og fjórðu umferð FIA/NEZ torfærunnar, sem fram fer í Danmörku um helgina dagana 12. og 13. júní.
Jón Örn er efstur á mótinu eftir fyrstu tvær umferðirnar. Ásamt Jóni Erni verða þei... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/andaskiltid-vid-drottningarbraut-verid-sett-upp-i-40-ar | Andaskiltið við Drottningarbraut verið sett upp í 40 ár
Fyrir 40 árum byrjaði Jón Gunnlaugur Sigurjónsson trésmiður að setja upp skilti á Drottningarbrautina. Skiltið setti Jón upp á vorin
og á því er mynd af önd á vappi með ungana sína. Þetta gerði hann til að vekja athygli vegfarenda á öndunum og ungunum sem
örkuðu á... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/armann-petur-i-bann | Ármann Pétur í bann
Ármann Pétur Ævarsson, leikmaður meistaraflokks Þórs í knattspyrnu, var dæmdur í eins leiks bann af Aga- og
úrskurðarnefnd KSÍ í gær. Ármann mun því missa af leik Þórs og Þróttar á Þórsvelli
næstkomandi föstudag. |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/arleg-fifilbrekkuhatid-ad-hrauni-i-oxnadal-a-sunnudag | Árleg Fífilbrekkuhátíð að Hrauni í Öxnadal á sunnudag
Árleg Fífilbrekkuhátíð Menningarfélagsins Hrauns í Öxnadal verður n.k. sunnudag 13. júní. Í samvinnu við
Ferðafélag Akureyrar og Ferðafélagið Hörg verður gönguferð upp á Hallok undir leiðsögn Bjarna E. Guðleifssonar, en Hallok er
fjallsendinn norðan við Hraundranga.... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oddur-komst-a-blad-gegn-donum | Oddur komst á blað gegn Dönum
Akureyringurinn Oddur Gretarsson komst á blað með íslenska A- landsliðinu í handknattleik, er hann skoraði eitt marka liðsins í 33:33
jafntefli gegn Dönum í æfingaleik í Laugardagshöllinni í kvöld. Oddur kom inn á snemma í síðari hálfleik og var
ekki lengi að stimpla sig inn með fínu marki... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skrifad-undir-samstarfssamning-um-oryggismal-ferdamanna | Skrifað undir samstarfssamning um öryggismál ferðamanna
Í dag skrifuðu 16 aðilar, er koma að ferðaþjónustu á einn eða annan hátt, undir samstarfssamning í Krýsuvík um
öryggismál ferðamanna. Fjöldi ferðamanna sem ferðast um landið hefur verið að aukast með hverju árinu. Tölur frá
Ferðamálastofu sýna að 90% íslendinga fe... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sjo-keppendur-fra-odni-keppa-a-althjodlegu-sundmoti | Sjö keppendur frá Óðni keppa á alþjóðlegu sundmóti
Sjö keppendur frá Sundfélaginu Óðni voru valdir til að keppa fyrir Íslands hönd á alþjóðlegu
sundmóti sem haldið verður í Hafnarfirði næstkomandi helgi. Alls eru íslensku keppendurnir 35. Um er að ræða mót sem kallast Sundkeppni
smáþjóða og er nú haldið í annað sinn.Ke... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ny-thjonustustefna-akur-eyrarbaejar-kynnt | Ný þjónustustefna Akur- eyrarbæjar kynnt
Bæjarstjórinn á Akureyri, Hermann Jón Tómasson, kynnti fyrir helgina nýja þjónustustefnu fyrir starfsmenn Akureyrarbæjar og fór
athöfnin fram á lóð leikskólans Kiðagils í blíðskaparveðri. Þjónustustefnan var samþykkt í bæjarstjórn
Akureyrar í febrúar sl. en meginatriði hennar ko... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/serstakt-umhverfisatak-verdi-a-akureyri-i-sumar | Sérstakt umhverfisátak verði á Akureyri í sumar
Á síðasta fundi umhverfisráðs Akureyrarbæjar fóru fram umræður um hvort hefja eigi sérstakt umhverfisátak á árinu 2010.
Í framhaldinu samþykkti umhverfisnefnd að leggja til við nýtt framkvæmdaráð að sérstakt umhverfisátak verði frá 1.
júlí til 31. ágúst nk.
Átakinu verði ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nefnd-skipud-til-ad-fara-yfir-kaerur-vegna-kosningaurslita | Nefnd skipuð til að fara yfir kærur vegna kosningaúrslita
Sýslumaðurinn á Akureyri hefur skipað þriggja manna nefnd sem tekur fyrir kærur sem sýslumannsembættinu hafa borist vegna kosningaúrslita annars
vegar í sameiginlegu sveitarfélagi Hörgárbyggðar og Arnarneshrepps og hins vegar í Dalvíkurbyggð.
Í nefndinni eru Ásg... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/agaet-gengi-kka-keppenda-a-islandsmotinu-i-motocrossi | Ágæt gengi KKA keppenda á Íslandsmótinu í motocrossi
Fyrsta keppnin á Íslandsmótinu í motocrossi fór fram á Ólafsfirði um helgina þar sem keppendur frá KKA gerðu fína
hluti. Hákon Gunnarsson sigraði í flokki 12-13 ára og hafnaði í sjötta sæti í flokki 85cc. Bjarki Sigurðsson varð í öðru
sæti í flokki MX2, Sigurður Bjar... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mol-og-sandur-endurvakid-a-akureyri | Möl og sandur endurvakið á Akureyri
Steypufyrirtækið Möl og sandur verður endurvakið á Akureyri og mun starfssemi fyrirtækisins hefjast formlega um
næstu mánaðarmót. Þetta gerist í kjölfar gjaldþrots BM Vallá en eins og Vikudagur greindi frá í síðustu viku
lagðist starfssemi BM Vallá niður á Akureyri þann 21. maí sl. M... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/visa-bikar-ka-saekir-grindavik-heim | VISA -bikar: KA sækir Grindavík heim
Dregið var í 16- liða úrslit VISA- bikarkeppni karla og kvenna í höfuðstöðvum KSÍ í hádeginu í dag.
Þór/KA fékk heimaleik gegn Fjarðabyggð/Leikni en KA mætir úrvalsdeildarliði Grindavíkur á útivelli. Leikið verður
í kvennaflokki laugardaginn 26. júní en í karlaflokki verður leikið m... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jafnt-hja-draupni-og-magna | Jafnt hjá Draupni og Magna
Draupnir og Magni gerðu 2:2 jafntefli á Íslandsmótinu í D- riðli 3. deildar karla í knattspyrnu sl. laugardag. Símon Símonarsson og
Ægir Svanholt Reynisson skoruðu mörk Draupnis í leiknum en fyrir Magna skoruðu þeir Hreggviður Heiðberg Gunnarsson og Kristján Fannar Ragnarsson.
Dalvík/Reynir h... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jafnt-hja-ia-og-thor-i-kvold | Jafnt hjá ÍA og Þór í kvöld
Þór og ÍA gerðu í kvöld 1:1 jafntefli á Akranesvelli á Íslandsmótinu í 1. deild karla í knattspyrnu.
Atli Sigurjónsson kom Þór yfir eftir fimm mínútna leik með marki úr aukaspyrnu en Andri Júlíusson jafnaði metin fyrir ÍA um
miðjan seinni hálfleikinn. Eftir fimm umferðir hefur Þór átta stig ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorka-vann-oruggan-sigur-gegn-fh | Þór/KA vann öruggan sigur gegn FH
Þór/KA átti ekki í vandræðum með nýliða FH á Íslandsmótinu í Pepsi- deild kvenna í knattspyrnu er
liðin mættust í Kaplakrika í dag. Þór/KA vann öruggan 4:1 sigur, eftir að hafa lent marki undir í leiknum. Elva Friðjónsdóttir
skoraði tvívegis fyrir Þór/KA í leiknum og þær Rakel Hönnudót... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leikur-ia-og-thors-i-beinni-a-sporttv-i-dag | Leikur ÍA og Þórs í beinni á SportTv í dag
ÍA og Þór mætast í 5. umferð Íslandsmótsins í 1. deild karla í knattspyrnu á Skaganum í dag. ÍA var
spáð góðu gengi í deildinni í sumar en hefur byrjað mótið illa og hefur eitt stig í næstneðsta sæti, en Þór er
á ágætis siglingu í fimmta sæti deildarinnar með sjö stig. Sigri Þ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/alls-373-nemendur-brautskrast-fra-ha | Alls 373 nemendur brautskrást frá HA
Alls verða 373 kandídatar brautskráðir frá Háskólanum á Akureyri, laugardaginn 12. júní næstkomandi.
Brautskráningin fer fram í Íþróttahöllinni á Akureyri og hefst kl. 10:30. Langflestir brautskrást frá hug- og
félagsvísindadeild eða 215. Í viðskipta- og raunvísindadeild brautskrást... |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.