Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorkavolsungur-i-undanurslit-visa-bikarkeppninnar
Þór/KA/Völsungur í undanúrslit Visa- bikarkeppninnar Þór/KA/Völsungur vann sanngjarnan 2-0 sigur á liði Selfoss í 8- liða úrslitum Visa- bikarsins sem fram fór sl. föstudag á Þórsvellinum. Mörk Þórs/KA/Völsungs skoruðu þær Karen Nóadóttir og Gígja Valgerður Harðardóttir. Stelpurnar, sem hafa titil að verja, mæta KR- st...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skipulagsnefnd-vill-breytingu-a-lod-fyrir-hagkaupsverslun
Skipulagsnefnd vill breytingu á lóð fyrir Hagkaupsverslun Skipulagsnefnd Akureyrar samþykkti á síðasta fundi sínum að leggja til við bæjarstjórn, að aðalskipulagstillaga er varðar breytingu á lóð við Austursíðu fyrir Hagkaupsverslun, verði samþykkt. Ein athugasemd barst við tillöguna, frá Benedikt Guðmundssyni Fögrusíð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skipulagsstofunun-oskar-frekari-skyringa-vegna-deiliskipulags-vid-undirhlid
Skipulagsstofunun óskar frekari skýringa vegna deiliskipulags við Undirhlíð Skipulagsstofnun hefur sent skipulagsnefnd Akureyrar erindi þar sem fram kemur að stofnunin getur ekki tekið afstöðu til efnis eða forms deiliskipulags við Undirhlíð - Miðholt fyrr en skýringar/lagfæringar hafa borist á ýmsum atriðum. Eins og f...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-stelpur-hnatumeistarar-i-sjotta-flokki
KA- stelpur Hnátumeistarar í sjötta flokki KA-stelpurnar í sjötta flokki urðu um helgina Hnátumeistarar Knattspyrnusambands Íslands á Norður- og Austurlandi. Úrslitakeppnin fór fram á KA-svæðinu og sigruðu KA-stelpur alla sína þrjá leiki með markatöluna 9-0. Þetta er glæsilegur árangur hjá stelpunum sem hafa náð frábær...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sundlaugar-og-heilsuraektar-stodvar-a-akureyri-i-samstarf
Sundlaugar og heilsuræktar- stöðvar á Akureyri í samstarf Á síðasta fundi íþróttaráðs var rætt um samstarf sundlauga Akureyrarbæjar og heilsuræktarstöðva á Akureyri. Íþróttaráð samþykkti og fól íþróttafulltrúa, í samræmi við umræður á fundinum, að klára verðtilboð fyrir aðgang að sundlaugum Akureyrar til allra líkamsræ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tillaga-ad-deiliskipulagi-vid-spitalaveg-steinatrod-og-tonatrod-endurskodud
Tillaga að deiliskipulagi við Spítalaveg, Steinatröð og Tónatröð endurskoðuð Skipulagsnefnd Akureyrar hefur samþykkt að fela skipulagsstjóra að endurskoða auglýsta tillögu að deiliskipulagi Spítalavegar, Steinatraðar og Tónatraðar. Átta athugasemdir bárust við tillöguna, auk þess sem áskorun barst frá húseigendum á svæ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-og-ka-med-tvo-fulltrua-hvor-i-u-18-ara-landslidinu
Þór og KA með tvo fulltrúa hvor í U- 18 ára landsliðinu Kristinn Rúnar Jónsson þjálfari U-18 ára landsliðs karla í knattspyrnu tilkynnti sl. föstudag hóp sinn sem fer á alþjóðlegt mót til Tékklands 25.- 31. ágúst nk. Þórsarar eiga tvo leikmenn í hópnum, þá Atla Sigurjónsson og Gísla Pál Helgason. Þá eiga KA- menn einni...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vilja-styrkja-menntasmidju-unga-folksins-enn-frekar
Vilja styrkja Menntasmiðju unga fólksins enn frekar Á fundi samfélags- og mannréttindaráðs nýlega var lögð fram skýrsla um Menntasmiðju unga fólksins sem starfrækt var á vorönn. Á fundinum fóru fram umræður um stöðu smiðjunnar og framtíðarstefnu. Í framhaldi af viðræðum við þá aðila sem nýtt hafa tilboðið verður unnið ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/frabaer-arangur-umse-og-ufa-a-mi
Frábær árangur UMSE og UFA á MÍ Frjálsíþróttafélögin, UFA og UMSE, náðu góðum árangri á Meistaramóti Íslands, 11-14 ára, í frjálsum íþróttum sem fram fór á Laugum um síðustu helgi. Hjá UMSE sigraði Maciej Magnús Szymkowiak í kúluvarpi í flokki 12 ára en hún kastaði kúlunni 11, 92 m. Þá vann boðsveit félagsins 4x100m bo...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/einar-sigthorsson-hetja-thorsara-i-dag
Einar Sigþórsson hetja Þórsara í dag Einar Sigþórsson var hetja Þórsara þegar hann skoraði bæði mörk liðsins í 2-1 sigri á Víkingi Ó., er liðin mættust í 17. umferð 1. deildar karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu á Akureyrarvelli í dag. Sigurmarkið kom á lokamínútu venjulegs leiktíma. Það voru hins vegar gestirnir í Vík...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jafntefli-hja-ka-monnum-i-gaerkvold
Jafntefli hjá KA- mönnum í gærkvöld KA- menn sóttu KS/Leiftur heim í gærkvöld í 17. umferð 1. deildar karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Ekkert mark var skorað á Siglufjarðarvelli og niðurstaðan því markalaust jafntefli. Eftir leikinn hafa KA- menn 23 stig og eru í fimmta sæti deildarinnar. Þór verður í eldlínunni í ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/piltar-handteknir-fyrir-innbrot-i-nott
Piltar handteknir fyrir innbrot í nótt Tveir ungir piltar, 14 og 16 ára, voru handteknir í nótt á Akureyri grunaðir um aðild að fjórum innbrotum í fyrirtæki í bænum. Að sögn lögreglunnar á Akureyri játuðu piltarnir innbrotin. Frá því í byrjun ágúst mánaðar hafa 9 innbrot verið skráð hjá lögreglu á Akureyri. www.mbl.is
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skolabyrjun-grunnskolanna
Skólabyrjun grunnskólanna Nú líður að því að grunnskólar bæjarins hefjist og þá er að ýmsu að hyggja í undirbúningi. Almennt séð hefst skólastarfið nú eftir helgina en misjafnt er nokkuð eftir skólum með hvaða hætti þetta gerist, stundum er það með formlegri skólasetningu, og stundum með foreldraviðtölum og stundum hvo...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mateja-zver-leikmadur-14-umferdar
Mateja Zver leikmaður 14. umferðar Vefsíðan www.fótbolti.net hefur valið Mateju Zver leikmann Þór/KA sem besta leikmann 14. umferð Landsbankadeildar kvenna. Mateja hefur vakið verðskuldaða athygli eftir að hún kom til liðs við Þór/KA og í síðustu umferð átti hún stórleik með liði sínu gegn Fjölni þar sem hún skoraði 3 ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/seigla-a-akureyri-faer-norsk-nyskopunarverdlaun
Seigla á Akureyri fær norsk nýsköpunarverðlaun Þessa vikuna stendur yfir sjávarútvegssýningin Norfishing 2008 í Þrándheimi, Noregi og er Seigla ehf á meðal þátttakenda. Seigla ehf var eitt þriggja fyrirtækja sem valin voru úr hópi fyrirtækja fyrir tækninýjungar. Það er skemmst frá því að segja að Seigla ehf hlaut fyrst...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/saudfjarbaendur-osattir-vid-verdskra-nordlenska
Sauðfjárbændur ósáttir við verðskrá Norðlenska Norðlenska matborðið birti í gær fyrst afurðasölufyrirtækja verðskrá fyrir sauðfjárafurðir haustið 2008. Samkvæmt þeirri verðskrá eru breytingarnar fólgnar í 15 prósenta hækkun á alla kjötflokka og greiðslur fyrir kjöt til útflutnings hækka um tæp þrjátíu prósent. Í tilkyn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nyjar-studentaibudir-teknar-til-notkunar
Nýjar stúdentaíbúðir teknar til notkunar Í gær hófst flutningur inn í nýja stúdentagarða Háskólans á Akureyri við Kjalarsíðu 1 a og b. Um er að ræða tvö fjögurra hæða hús sem hýsa alls 40 íbúðir. RES orkuháskóli er með 16 íbúðir á leigu fyrir sína skjólstæðinga en nemendur HA búa í hinum. Íbúðirnar eru glæsilegar og ve...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/grand-princess-lagdist-vid-hofn-akureyrar-i-dag
Grand Princess lagðist við höfn Akureyrar í dag Hið gríðarlega fallega og jafnframt eitt stærsta, ef ekki það stærsta, skemmtiferðaskip sem siglt hefur um Íslandsstrendur í sumar, Grand Princess, lagðist við höfn Akureyrar í morgun og stoppaði í nokkrar klukkustundir. Mikið líf var við höfnina þann tíma enda mikill fjö...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/storsigur-hja-thorska-stulkum-i-kvold
Stórsigur hjá Þórs/KA stúlkum í kvöld Þór/KA og Fjölnir mættust í 14. umferð Landsbankadeildar kvenna í knattspyrnu á Akureyrarvelli í kvöld. Þórs/KA stúlkur áttu ekki í vandræðum með stúlkurnar úr Grafaravoginum og unnu öruggan 5-0 sigur sem var síst of stór. Fyrsta mark leiksins kom strax á 3. mínútu og þar var að ve...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thridja-umferd-sjallasandspyrnunnar-urslit
Þriðja umferð Sjallasandspyrnunnar: Úrslit Þriðja umferð Sjallasandspyrnunnar fór fram um sl. verslunarmannahelgi á æfingasvæði Bílaklúbbs Akureyrar fyrir ofan Glerárdal. Helstu úrslit mótsins: Vélsleðar 1. Stefán Þengilsson – Artic Cat Besti tími: 4,593 sek 2. Friðrik Jón Stefánsson – Artic Cat Besti tími 4,158 sek Mó...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kaffisala-og-skoflustunga-a-holavatni
Kaffisala og skóflustunga á Hólavatni Sunnudaginn 17. ágúst nk. verður haldin árleg kaffisala Sumarbúða KFUM og KFUK við Hólavatn. Kaffisalan er öllum opin og stendur frá kl. 14.30 til 17.00. Þann sama dag kl. 14.00 verður tekin skóflustunga að nýjum 180 fm svefnskála sem byggður verður á næstu árum. Um er að ræða gríð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/breyttur-leiktimi-hja-thorka-i-kvold
Breyttur leiktími hjá Þór/KA í kvöld Þór/KA færi Fjölni í heimsókn í kvöld í 14. umferð Landsbankadeildar kvenna í knattspyrnu. Leikurinn er á Akureyrarvelli og hefst kl. 18:00 en ekki 19:15 eins og áður hefur verið auglýst. Frítt er á völlinn í kvöld og eru allir hvattir til þess að mæta á völlinn að styðja stelpurnar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sigur-hja-ka-en-jafntefli-hja-thor-i-kvold
Sigur hjá KA en jafntefli hjá Þór í kvöld KA- menn unnu góðan sigur á Njarðvík í 16. umferð 1. deildar karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu þegar liðin mættust á Akureyrarvelli í kvöld. Þá gerðu Þór og Stjarnan 1-1 jafntefli á Stjörnuvelli í kvöld. Hreinn Hringsson skoraði mark Þórs í leiknum. Í leik KA og Njarðvík var ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jakob-bjornsson-stoltur-af-straknum
Jakob Björnsson stoltur af stráknum Íslenska landsliðið í handbolta var fyrir stuttu að leggja heimsmeistaralið Þjóðverja af velli á Ólympíuleikunum í Peking. Lokatölur í leiknum urðu 33-29 fyrir Ísland. Akureyringar eiga sinn mann í íslenska landsliðinu , varnarmanninn sterka Sverre Jakobsson. Faðir Sverre, Jakob Björ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ny-ithrottamidstod-ris-a-dalvik
Ný íþróttamiðstöð rís á Dalvík Fyrsta skóflustunga að nýrri byggingu Íþróttamiðstöðvar á Dalvík var tekin nýverið, en hún mun rísa á lóð við sundlaugina. Tréverk ehf. átti lægsta tilboð í verkið og var skrifað undir samning við félagið við athöfn í tengslum við skóflustunguna. Bjarni Gunnarsson íþrótta- og tómstundaful...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorsstelpur-stodu-sig-vel-a-paejumoti
Þórsstelpur stóðu sig vel á Pæjumóti Glæsilegt Pæjumót var haldið á Siglufirði um helgina. Keppt var í 4.- 7. flokki kvenna á mótinu í flokki A,- B- og C- liða og voru rúmlega 800 stúlkur sem sýndu listir sínar á mótinu. Um 300 leikir voru spilaðir frá föstudegi til sunnudags. Knattspyrnufélagið Þór átti sína fulltrúa ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/glaesilegur-arangur-ka-og-thors-a-kroksmoti
Glæsilegur árangur KA og Þórs á Króksmóti Hið árlega Króksmót fór fram á Sauðárkróki um helgina 8.- 10. ágúst og að venju er það Ungmennafélag Tindastóls sem stendur að mótinu sem er fyrir 5., 6., og 7. flokk drengja og stúlkna. Knattspyrnudeildir KA og Þórs sendu vaskar sveitir á mótið og stóðu krakkarnir sig geysileg...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-og-thor-leika-i-kvold-i-1deildinni-1
KA og Þór leika í kvöld í 1.deildinni KA og Þór verða bæði í eldlínunni í kvöld þegar 16. umferð 1. deildar karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu fer fram. KA- menn fá Njarðvíkinga í heimsókn á Akureyrarvöll en Þórsarar halda suður á bóginn og mæta Stjörnunni á Stjörnuvelli. Leikurinn á Akureyrarvelli í kvöld hefst kl. 1...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kona-fannst-latin-i-glera
Kona fannst látin í Glerá Lögreglan á Akureyri ásamt Slökkviliði Akureyrar og Björgunarsveitinni Súlur hófu leit að konu á tólfta tímanum í dag eftir að tilkynnt hafði verið um að hennar væri saknað. Bíll hennar fannst nokkru ofan við Akureyri nálægt Glerá og konan sömmu síðar látin í ánni. Ekki er vitað um nánari tild...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/glaesilegur-arangur-hja-stefaniu-ardisi-a-feif-youth-cup
Glæsilegur árangur hjá Stefaníu Árdísi á FEIF Youth Cup Vikuna 12. - 20. júlí fóru níu íslenskir unglingar til Brunnadern í Sviss þar sem þau tóku þátt í þjálfun og keppni á FEIF Youth Cup hestamannamóti. Þátttakendur á mótinu voru 72 frá 12 aðildarlöndum FEIF. Það er æskulýðsnefnd FEIF sem stendur fyrir mótinu og þyki...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tap-hja-magna-1
Tap hjá Magna Magni frá Grenivík tapaði á heimavelli fyrir Reyni í Sandgerði þegar liðin áttust við í 15. umferð 2. deildar karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu sl. laugardag. Lokatölur á Grenivíkurvelli, 3-2 sigur Reynis S. Mörk Magna í leiknum skoruðu þeir Hreggviður Heiðberg Gunnarsson og Georg Fannar Haraldsson. Eft...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skrifudu-motmaeli-a-troppur-heradsdoms
Skrifuðu mótmæli á tröppur Héraðsdóms Félag ábyrgra foreldra framkvæmdi í gærkvöldi fyrsta lið 4 vikna mótmæla sem félagið stendur fyrir. Félagsmenn mættu við Héraðsdóm norðurlands eystra og letruðu á stétt fyrir utan héraðsdóm ,skilaboð til stjórnvalda. Áletrunin hljóðaði svo: “Troðið á rétti barna! –F rumvarp Daggar ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/husdyragardur-i-midri-sveitasaelunni
Húsdýragarður í miðri sveitasælunni Guðbergur Egill Eyjólfsson bóndi á Hléskógum í Eyjafjarðarsveit og konan hans Birna Kristín Friðriksdóttir hafa í nógu að snúast en auk þess að sinna hefðbundnum sveitastörfum hófu þau í fyrrasumar að haldi úti húsdýragarði á sumrin þar sem öll helstu húsdýr landsins eru til staðar. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tap-gegn-breidabliksstulkum-i-dag
Tap gegn Breiðabliksstúlkum í dag Þór/KA beið lægri hlut gegn liði Breiðabliks þegar liðin mættust á Kópavogsvelli í dag í 13. umferð Landsbankardeildar kvenna í knattspyrnu. Staðan í hálfleik var 1-1 en Breiðabliksstúlkur skoruðu sigurmarkið á lokamínútu leiksins og tryggðu sér 2-1 sigur. Mark Þórs/KA skoraði Mateja Z...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjolmenni-a-fiskisupukvoldi-a-dalvik
Fjölmenni á fiskisúpukvöldi á Dalvík Gríðarlegt fjölmenni hefur verið á Dalvík í kvöld, en þar stendur yfir fiskisúpukvöld. Talið er að um 20 þúsund manns hafi verið á rölti um götur bæjarins og notið gestrisni heimamanna sem bjóða gestum sínum sem og sveitungum upp á fiskisúpu. Júlíus Júlíusson framkvæmdastjóri Fiskid...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/taknraen-motmaeli
Táknræn mótmæli Félag ábyrgra foreldra á Akureyri hyggst á næstu dögum standa fyrir táknrænum mótmælum í miðbæ Akureyrar. Félagið vill með því mótmæla að barnalaga frumvarp Daggar Pálsdóttur var ekki afgreitt úr allsherjarnefnd alþingis fyrir þinglok í vor. Félagið gefur ekki út að svo stöddu hvenær mótmælin munu fara ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tolf-ara-piltur-fell-nidur-tvaer-mannhaedir
Tólf ára piltur féll niður tvær mannhæðir Tólf ára piltur fékk þungt höfuðhögg er hann féll niður af klettabelti og lenti ofan í grýttri fjöru skammt frá Hofsósi í Skagafirði í gærkvöldi. Pilturinn var mjög vankaður eftir höfuðhöggið og var ekki viðræðuhæfur, en hélt þó meðvitund. Fallið var um tvær mannhæðir og hélt f...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/folk-streymir-til-dalvikur
Fólk streymir til Dalvíkur Mikill straumur ferðafólks hefur legið til Dalvíkur síðan á miðvikudag þar sem fjölskylduhátíðin, Fiskidagurinn mikli, verður haldin. Í gær hafði íbúatalan að minnsta kosti tvöfaldast og búist er við miklum fjölda í dag. Dagskráin hefst síðdegis og stendur fram á sunnudag. Gestir tjalda vítt ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/einar-orn-radinn-til-la
Einar Örn ráðinn til LA Leikarinn Einar Örn Einarsson hefur ráðið sig til Leikfélags Akureyrar og mun hans fyrsta hlutverk vera í leikritinu Óvitum sem verður aftur tekið til sýninga hjá Leikfélaginu í lok ágúst. Einar gerði garðinn frægan í hlutverki Manna í sjónvarpsþáttunum Nonni og Manni, sem sýndir voru á RÚV fyri...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-tapadi-gegn-selfossi-en-ka-vann-hauka
Þór tapaði gegn Selfossi en KA vann Hauka Þór tók á móti Selfossi í 15. umferð 1. deildar karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu á Akureyrarvelli í kvöld. Leikurinn var ansi fjörugur, tvö rauð spjöld fóru á loft, fimm mörk voru skoruð og skoruðu gestirnir þrjú þeirra og fóru að lokum með 3-2 sigur í leiknum. KA- menn sótt...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atak-gegn-fikniefnum-a-nordurlandi
Átak gegn fíkniefnum á Norðurlandi Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra og lögreglustjórarnir Björn Jósef Arnviðarson á Akureyri, Bjarni Stefánsson á Blönduósi, Halldór Kristinsson á Húsavík og Ríkarður Másson á Sauðárkróki auk Haraldar Johannessen ríkislögreglustjóra skrifuðu í dag, 7. ágúst, undir samkomulag u...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyrarfangelsi-formlega-opnad
Akureyrarfangelsi formlega opnað Fangelsið á Akureyri var formlega opnað í dag við hátíðlega athöfn um miðjan daginn. Þar með lauk öðrum áfanga í áætlun um endurnýjun og uppbyggingu fangelsa í landinu,sem mótuð hefur verið af dóms- og kirkjumálaráðuneyti og fangelsismálastofnun. Allur aðbúnaður í fangelsinu er góður og...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/threyttir-en-anaegdir
Þreyttir en ánægðir “Þetta var bara í einu orði sagt alveg frábært, við erum þreyttir en ánægðir,” sagði Sigfús Helgason formaður Þórs, aðspurður um hvernig ástandið hefði verið um verslunarmannahelgina á tjaldstæði Þórs við Norðurorku. “Það er full ástæða til þakka öllum þeim gestum sem komu á tjaldstæðið fyrir komuna...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-i-eldlinunni-a-akureyrarvelli-i-kvold
Þór í eldlínunni á Akureyrarvelli í kvöld Þór á erfiðan leik fyrir höndum í kvöld þegar liðið fær Selfoss í heimsókn á Akureyrarvöll í 15. umferð 1. deildar karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Fimmtán stig skilja liðin að, Selfyssingar hafa 31 stig í öðru sæti deildarinnar en Þórsarar 16 stig í níunda sæti. Það verður...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hvad-aetladir-thu-ad-verda
"Hvað ætlaðir þú að verða?" Ljósmyndasýning Ragnheiðar Arngrímsdóttur, "Hvað ætlaðir þú að verða?", verður haldinn á Ráðhústorgi 8.- 31. ágúst og er þetta liður af Listasumri Akureyrar 2008. "Halló ég heiti Ragnheiður. Ég er að fara að undirbúa ljósmyndasýningu og langar að biðja þig um...” "Já, en spennandi, hvernig g...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fiskidagurinn-mikli-haldinn-i-attunda-sinn
Fiskidagurinn mikli haldinn í áttunda sinn Fjölskylduhátíðin, Fiskidagurinn mikli 2008, verður haldinn hátíðleg í áttunda sinn laugardaginn 9. ágúst. Frá upphafi hefur markmið hátíðarinnar verið að fá fólk til þess að koma saman, skemmta sér og borða fisk. Ennfremur er allur matur og skemmtan á hátíðarsvæðinu ókeypis. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/husid-enn-svartur-blettur-a-midbaenum
Húsið enn svartur blettur á miðbænum Jón Ingi Cæsarsson formaður skipulagsráðs Akureyrarbæjar segir það vonbrigði að nýir eigendur Hafnarstrætis 98, hafi “ekki axlað þá ábyrgð að koma útliti hússins í lámarks skikk… rífa upplitaðar auglýsingar úr gluggum og helst að pakka húsinu inn í net sem hylur hörmungina sem blasa...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kertum-fleytt-til-minningar-i-minjasafnstjorninni
Kertum fleytt til minningar í Minjasafnstjörninni Íslenskar friðarhreyfingar standa að kertafleytingu sem verður við Reykjarvíkurtjörn í kvöld en við Minjasafnstjörnina hér á Akureyri fimmtudagskvöldið 7. ágúst klukkan 22:30. Þá mun Svavar Jónsson, sóknarprestur, ávarpa gesti. Flotkerti verða til sölu á staðnum. Kertun...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/korfuknattleikslid-thors-berst-aukin-lidsstyrkur
Körfuknattleikslið Þórs berst aukin liðsstyrkur Körfuknattleikslið Þórs hefur borist aukin liðsstyrkur fyrir komandi átök í vetur. Milorad Damjanac, 26 ára Serbi, hefur samið við félagið um að leika með þeim á komandi tímabili. Milorad er 115 kg og leikur stöðu miðherja. Hann hefur undanfarin ár leikið í Háskólakörfubo...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rakel-honnudottir-besti-leikmadur-7-12-umferdar
Rakel Hönnudóttir besti leikmaður 7.- 12. umferðar Rakel Hönnudóttir, landsliðskona úr Þór/KA, var valinn besti leikmaður Landsbankadeildar kvenna í knattspyrnu þegar viðurkenningar voru veittar fyrir umferðir 7.- 12. í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal í hádeginu í gær. Rakel er sannarlega vel að þessari viðurkenningu komi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/django-jazz-festival-a-akureyri-hefst-i-kvold
Django- jazz festival á Akureyri hefst í kvöld Django- Jazz Festival Akureyri 2008 verður haldinn dagana 6. til 9. ágúst og hefjast í kvöld á Græna hattinum. Þetta er í níunda sinn sem efnt er til þessarar jasshátíðar og hefur hún unnið sér fastan sess í skemmtanalífi Akureyrar. Að venju eru frábærir listamenn sem munu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/metadsokn-a-saeludaga-i-sveitinni
Metaðsókn á Sæludaga í sveitinni Sæludagar í sveitinni voru haldnir hátíðlegir í Arnarneshreppi í Eyjafirði sl. laugardag um verslunarmannahelgina. Axel Grettisson, oddviti Arnarneshrepps, segir hátíðina hafa heppnast gríðarlega vel, metaðsókn hafi verið í ár og góð þátttaka í flestum dagskrárliðum. “Þetta gekk alveg r...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thridja-umferd-motocross-urslit
Þriðja umferð Motocross: Úrslit Þriðja umferðin á Íslandsmótinu í motocross var haldin á Akureyri á æfingasvæði KKA fyrir ofan Glerárdal um verslunarmannahelgina. Þar voru mættir 115 keppendur og fjölmargir áhorfendur voru að fylgjast með æsispennandi keppni í öllum flokkum. Brautin var mjög skemmtileg og tilþrif keppa...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eldur-i-ibudarhusi-i-svarfadardal
Eldur í íbúðarhúsi í Svarfaðardal Eldur kom upp í íbúðarhúsi við Hofsárkot í Svarfaðardal um hálf fimm í nótt. Tveir menn voru inn í húsinu og urðu þeir varir við reykskynjara sem varð þeim til happs. Mennirnir komust sjálfir út og gerðu slökkvuliði og lögreglu viðvart. Um töluverðan eld var að ræða en að sögn lögreglu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/queen-elizabeth-ii-vid-pollinn
Queen Elizabeth II við Pollinn Skemmtiferðaskipið, Queen Elizabeth II, kom til Akureyrar í gærdag og lagðist við akkeri í Pollinum. Það hafa mörg skemmtiferðaskip komið til bæjarins það sem af er sumri en QE II er án efa með þeim fegurstu.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oskad-eftir-abendingum-fra-baejarbuum
Óskað eftir ábendingum frá bæjarbúum Framkvæmdadeild Akureyrarbæjar óskar eftir ábendingum frá bæjarbúum fyrir góðan árangur í fegrun og hirðingu bæjarins. Óskað er eftir ábendingum í eftirfarandi flokka: Flokkur nýrri garða. Flokkur eldri garða. Flokkur raðhúsa/fjölbýlishúsa. Flokkur fyrirtækja. Flokkur stofnana. Fyri...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samid-vid-hyrnu-um-stukubyggingu-a-thorssvaedinu
Samið við Hyrnu um stúkubyggingu á Þórssvæðinu Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar hefur samþykkt að ganga til samninga við Hyrnu ehf. á grundvelli tilboðs félagsins í byggingu stúku á íþróttasvæði Þórs við Hamar. Alls bárust átta tilboð í verkið auk eins frávikstilboðs. Eitt þeirra var undir kostnaðaráætlun, en hún hljóða...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikid-um-gledi-og-bros-a-ein-med-ollu-og-allt-undir
Mikið um gleði og bros á "Ein með öllu og allt undir" Um átta til tíu þúsund gestir sóttu hátíðina, “Ein með öllu og allt undir”, sem haldin var hér á Akureyri um helgina. Margrét Blöndal, framkvæmdastjóri hátíðinnar, er hæstánægð með helgina. “Ég held að við getum bara verið voða glöð og það sem við lögðum upp með, að...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/godur-arangur-ufa-a-landsmoti-umfi
Góður árangur UFA á landsmóti UMFÍ Frjálsíþrótta krakkarnir úr UFA stóðu sig með prýði á unglingalandsmóti UMFÍ sem haldið var núna um verslunarmannahelgina í Þorlálakshöfn. Alls kepptu 16 krakkar frá UFA á mótinu, 15 í frjálsum íþróttum og einn í glímu. Kolbeinn Höður Gunnarsson, nýliði í frjálsum íþróttum, kom sá og ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bryndis-run-hansen-setur-islandsmet
Bryndís Rún Hansen setur Íslandsmet Bryndís Rún Hansen, 15 ára sundkona úr Sundfélaginu Óðni, bætti á sunnudaginn Íslandsmetið í 50 m flugsundi í 50 m laug á tímanum 27,93 sekúndum. Metið setti hún á Evrópumeistaramóti ungmenna í Belgrad í Serbíu. Bryndís tryggði sér jafnframt sæti í úrslitum í sundinu, eini íslenski s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bilvelta-i-myvatnssveit
Bílvelta í Mývatnssveit Þrír menn slösuðust þegar bíll þeirra valt í Mývatnssveit nálægt Baldursheimi í gærkvöld og var einn þeirra fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Sjúkrahús Akureyrar til aðhlynningar. Allir reyndust þeir þó vera minna meiddir en óttast var í fyrstu. Talið er hugsanlegt að ökumaður bílsins hafi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikill-erill-um-helgina-en-litid-um-alvarleg-atvik
Mikill erill um helgina en lítið um alvarleg atvik Mikill fjöldi fólks var hér á Akureyri um verslunarmannahelgina á hátíðinni, "Ein með öllu og allt undir", og hafði lögreglan í bænum í nógu að snúast. Ólafur Ásgeirsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, segir menn þar á bænum nokkuð sátta með helgina þrátt fyrir mikinn eril...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/syslumadur-segir-loggaeslu-a-akureyri-i-agaetu-horfi
Sýslumaður segir löggæslu á Akureyri í ágætu horfi "Við teljum að löggæsla á Akureyri sé í ágætu horfi en því er ekki að neita að við myndum gjarnan vilja hafa úr dálitlum meiru að spila. Það er hins vegar rangt að ástandið sé með þeim hætti hér í bænum að í óefni horfi," segir Björn Jósef Arnviðarson sýslumaður. Hjalt...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikill-fjoldi-folks-a-akureyrarvelli
Mikill fjöldi fólks á Akureyrarvelli Mikill fjöldi fólks var á lokaatriði Einnar með öllu á Akureyrarvelli í gærkvöld. Góð stemming var og hélst hún fram eftir nóttu því fátt bar til tíðinda, samkvæmt upplýsingum lögreglu. Einn var fluttur á slysadeild eftir að hafa verið sleginn með flösku í höfuðið og fengið minnihát...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ahofnin-a-huna-bjargadi-manni-a-kaejak
Áhöfnin á Húna bjargaði manni á kæjak Áhöfnin á í Húna II frá Akureyri bjargaði kæjakræðara sem hafði hvolt kæjak sínum út af Oddeyrartanga fyrr í kvöld. Samkvæmt upplýsingum Vikudags var aldan svo mikil að kæjakræðarinn komst ekki aftur í bát sinn svo áhöfnin á Húna greip inn. Manninum á kæjaknum varð ekki meint af.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikil-og-god-sala-i-sumar
Mikil og góð sala í sumar Mikið hefur verið um ferðamenn á Akureyri í sumar og eru kaupmenn alsælir með mikla og góða verslun í bænum. Mikill fjöldi fólks er í bænum nú um helgina og verslun er lífleg. Ragnar Sverrisson formaður Kaupmannafélags Akureyrar kveðst heyra það á sínu fólki að almenn ánægja ríki með verslun s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hafnaryfirvold-meti-likur-a-yfirvofandi-hrydjuverkaaras
Hafnaryfirvöld meti líkur á yfirvofandi hryðjuverkaárás "Nú er orðið nokkuð um liðið að hafnaryfirvöld lokuðu Oddeyrarbryggju sem kölluð er "Sigalda" af flestum. Ástæða þessarar lokunar voru reglur sem settar voru vegna hryðjuverkavarna og hafnaryfirvöld við Eyjafjörð tóku þessa tilskipun bókstaflega og síðan er hér ei...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gledin-var-rikjandi-a-akureyri-i-gaer
Gleðin var ríkjandi á Akureyri í gær Þétt umferð var til Akureyrar síðdegis í gær og fram á nótt. Gekk hún vel og óhappalaust fyrir en allmargir óku þó of hratt. Fjöldi fólks var í bænum að skemmta sér í gærkvöld og fram eftir nóttu og virtist gleðin ríkja hjá flestum því engin alvarleg mál komu á borð lögreglu. Þoka l...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/storbaettur-gagnaflutningur-i-gegnum-sjonvarp-simans-i-eyjafirdi
Stórbættur gagnaflutningur í gegnum sjónvarp Símans í Eyjafirði Síminn hefur unnið markvisst að því að efla gagnaflutningstengingar sínar á landsbyggðinni og uppfæra netbúnað með það að markmiði að auka sjónvarpsþjónustuna á landsbyggðinni ásamt því að geta boðið fyrirtækjum í öllum helstu þéttbýliskjörnum landsins upp...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framkvaemdir-i-fullum-gangi-a-thorssvaedinu
Framkvæmdir í fullum gangi á Þórssvæðinu Gríðarlegar framkvæmdir standa nú yfir á félagssvæði Þórs við Hamar. Landsmót UMFÍ fer fram á svæðinu næsta sumar og fyrir þann tíma verður búið að byggja upp glæsilegan frjálsíþrótta- og knattspyrnuvöll sunnan við Hamar og nýja stúku vestan við. Þá er einnig verið að byggja nýj...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/obodnir-gestir-i-gardi-sundlaugar-glerarskola
Óboðnir gestir í garði Sundlaugar Glerárskóla Hópur ungmenna tjaldaði við Sundlaug Glerárskóla í nótt en þar er ekki skipulagt tjaldsvæði. Þrír úr hópnum létu sér ekki nægja að tjalda heldur vippuðu sér upp á þak sundlaugarinnar og niður í sundlaugargarðinn. Í sundlaugargarðinum eru heitir pottar en hinir óboðnu gestir...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hvad-er-eyfirdingur-med-ollu
Hvað er Eyfirðingur með öllu? Eins og frægt er orðið þá eru Eyfirðingar sér á báti þegar kemur að pylsum og pylsuáti. Nú þegar styttist í hátíðina "Ein með öllu og allt undir" á Akureyri, hafa pylsusalarnir sem reka pylsuvagninn við Sundlaug Akureyrar, séð ástæðu til að senda frá sér fréttatilkynningu. Þeir félagar, Ar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ein-med-ollu-og-allt-undir-a-akureyri-um-helgina
“Ein með öllu og allt undir,” á Akureyri um helgina Lokasprettur undirbúnings fyrir verslunarmannahelgina á Akureyri er nú hafinn og bærinn óðum að taka á sig ennþá vingjarnlegri og fegurri svip en hann skartar þó dags daglega. Götuvitar bæjarins senda bílstjórum hjartalaga bros á rauðu ljósi og grasbletturinn á Ráðhús...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/orlitid-meira-atvinnuleysi-a-nordurlandi-eystra
Örlítið meira atvinnuleysi á Norðurlandi eystra Örlítið meira atvinnuleysi er á Norðurlandi eystra nú þegar borið er saman við sama tímabil í fyrra. Nú eru alls 303 skráðir atvinnulausir hjá Svæðisvinnumiðlun en þeir voru 275 talsins í lok júlí á liðnu ári. Hins vegar er ástandið betra í samanburði við árið 2006, en þá...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aukin-thjonusta-vid-ibua-a-eyjafjardarsvaedinu
Aukin þjónusta við íbúa á Eyjafjarðarsvæðinu Flokkun Eyjafjörður ehf. og Sagaplast ehf. hafa gengið frá samkomulagi um móttöku endurvinnanlegs úrgangs frá einstaklingum og heimilum á Eyjafjarðarsvæðinu. Öllum íbúum á Eyjafjarðarsvæðinu gefst nú kostur á að skila flokkuðum endurvinnsluefnum til Sagaplasts ehf. að Réttar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorvaldur-ludvik-greidir-haestu-skatta-a-nordurlandi-eystra
Þorvaldur Lúðvík greiðir hæstu skatta á Norðurlandi eystra Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson forstjóri Saga Capital á Akureyri greiðir hæstu skatta einstaklinga á Norðurlandi eystra, samkvæmt álagningarskrá sem lögð hefur verið fram. Þorvaldur greiðir alls rúmar 104 milljónir króna í gjöld og af um 2,7 milljónir króna í út...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/magni-enn-a-sigurbraut
Magni enn á sigurbraut Magni frá Grenivík heldur áfram sigurgöngu sinni í 2. deild karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu en í gærkvöldi unnu þeir lið Hattar á útivelli. Lokatölur á Vilhjámsvelli, 3-1 sigur Magna. Mörk Magna í leiknum skoruðu þeir Gunnar Jósteinsson og Víðir Jónsson en eitt markanna var sjálfsmark. Eftir ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tap-hja-dalvikreyni-1
Tap hjá Dalvík/Reyni Dalvíks/Reynis menn náðu ekki að fylgja eftir góðum sigri sínum gegn Spyrni um helgina og þurftu að sætta sig við 3-0 tap gegn Leikni F. í gærkvöldi á útivelli í D- riðli 3. deildar karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Eftir leikinn situr Dalvík/Reynir í fjórða sæti riðilsins með tíu sig eftir níu ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thridja-umferd-motocross-um-helgina
Þriðja umferð Motocross um helgina Laugardaginn 2. ágúst nk. verður haldin þriðja umferð Íslandsmótsins í motocross hér á Akureyri. Mótið er haldið af KKA akstursíþróttafélagi og fer keppnin fram á svæði félagsins í Glerárdal fyrir ofan Akureyri. Búast má við spennandi keppni við frábærar aðstæður þar sem KKA hefur lag...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gudmundur-oli-til-volsungs-andri-juliusson-til-ka
Guðmundur Óli til Völsungs, Andri Júlíusson til KA Miðjumaðurinn sterki hjá KA, Guðmundur Óli Steingrímsson, hefur ákveðið að ganga til liðs við sitt gamla uppeldisfélag Völsung frá Húsavík. Guðmundur, sem kom til KA í vetur, hefur spilað vel fyrir félagið í sumar og skorað þrjú mörk í þrettán leikjum. KA- menn hafa hi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gamanleikur-a-fjalir-leikfelags-akureyrar-i-haust
Gamanleikur á fjalir Leikfélags Akureyrar í haust Hjá Leikfélagi Akureyrar er þegar hafin undirbúningur fyrir næsta leikár. Fyrsta verkið sem sett verður á fjalirnar er spennandi og jafnframt eitraður gamanleikur í leikstjórn Maríu Sigurðardóttur leikhússtjóra LA. Gísli Rúnar Jónsson er að íslenska og staðfæra leikinn,...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikilvaegur-sigur-thors-i-kvold
Mikilvægur sigur Þórs í kvöld Þór vann gríðarlega mikilvægan sigur á Leikni R. í botnbaráttunni í 1. deild karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu þegar liðin mættust á Akureyrarvelli í kvöld. Sex mörk voru skoruð í leiknum og voru fjögur þeirra heimamanna. Leikurinn fór rólega af stað en það dró til tíðinda á 16. mínútu. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/umfjollun-selfoss-thor
Umfjöllun: Selfoss- Þór KA-menn sóttu Selfyssinga heim á Selfossvelli þegar 14. umferð 1. deildar karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu hófst í gærkvöldi. Heimamenn nýttu sín færi betur í leiknum og uppskáru fyrir vikið sigur í leiknum. Selfyssingar byrjuðu betur og voru meira með boltann en gekk illa að skapa sér marktæ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oruggur-sigur-thorska-i-kvold-en-tap-hja-ka
Öruggur sigur Þórs/KA í kvöld en tap hjá KA Þór/KA vann öruggan sigur á HK/Víkingi í 12. umferð Landsbankadeildar kvenna í knattspyrnu er liðin áttust við á Akureyrarvelli í kvöld. Þrjú mörk voru skoruð í leiknum og voru þau öll heimastúlkna. Það gekk ekki eins vel hjá KA- mönnum á útivelli gegn Selfossi í 1. deild kar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/radhustorgid-verdur-graent-fram-yfir-verslunarmannahelgi
Ráðhústorgið verður grænt fram yfir verslunarmannahelgi Ráðhústorgið á Akureyri var þökulagt í skjóli síðustu nætur, auk þess sem þar voru sett niður falleg blóm. Það var Sigurður Guðmundsson verslunarmaður í göngugötunni sem stóð fyrir framkvæmdinni en hann vill grænni bæ. Þökurnar voru lagðar án leyfis bæjaryfirvalda...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nordur-irskur-varnarmadur-til-lids-vid-thor
Norður- Írskur varnarmaður til liðs við Þór Meistaraflokkur Þórs hefur fengið til liðs við sig Norður-Írskan varnarmann að nafni, Sean Webb, fyrir seinni hluta baráttunnar í 1. deild karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Sean er 25 ára gamall og hefur hann leikið nokkra leiki með yngri landsliðum Norður- Írlands. Hann h...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/magni-med-godan-sigur
Magni með góðan sigur Magni vann góðan heimasigur um helgina þegar þeir lögðu Aftureldingu af velli í 13. umferð 2. deildar karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Eitt mark var skorað á Grenivíkurvelli og það gerði Hreggviður Heiðberg Gunnarsson fyrir heimamenn á 89. mínútu leiksins og tryggði Magna öll þrjú stigin í lei...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorska-stulkur-i-eldlinunni-i-kvold
Þórs/KA stúlkur í eldlínunni í kvöld Þórs/KA stúlkur taka á móti liði HK/Víkings í 12. umferð Landsbankadeildar kvenna í knattspyrnu á Akureyrarvelli í kvöld. Sjö stig skilja liðin að fyrir leikinn, Þór/KA hefur 13 stig í sjötta sæti deildarinnar en HK/Víkingur sex stig í næstneðsta sæti. Leikurinn hefst kl. 19:15 og e...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/umhverfisnefnd-oskar-frekari-gagna-vegna-lagnaleidar-blondulinu
Umhverfisnefnd óskar frekari gagna vegna lagnaleiðar Blöndulínu Umhverfisnefnd Akureyrar hefur fengið til umsagnar erindi frá Landsneti en það varðar umsögn á ósk fyrirtækisins þar sem óskað er eftir því við sveitarfélagið að gert verði ráð fyrir fyrirhugaðri lagnaleið Blöndulínu 3 á aðalskipulagsuppdrætti sveitarfélag...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hardur-arekstur-a-eyjafjardarbraut
Harður árekstur á Eyjafjarðarbraut Harður tveggja bíla árekstur varð á Eyjafjarðarbraut vestari við Kjarnaskóg á Akureyri skömmu fyrir hádegi í dag. Að sögn lögreglu var farið með ökumann annars bílsins á slysadeild Sjúkrahúss Akureyrar til aðhlynningar en ekki var um alvarleg meiðsl að ræða. Aðdragandi slysins var sá ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/umhverfisnefnd-akureyrar-vill-raeda-efnistoku-ur-eyjafjardara
Umhverfisnefnd Akureyrar vill ræða efnistöku úr Eyjafjarðará Halldór Pétursson sérfræðingur á Náttúrufræðistofnun mætti á fund umhverfisnefndar Akureyrar fyrir helgi og fór yfir niðurstöður skoðunar sinnar á landbroti á bakka vestustu kvíslar Eyjafjarðarár. Í bókun umhverfisnefndar kemur fram að ekki virðist vera ástæð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atta-marka-sigur-dalviksreynis
Átta marka sigur Dalvíks/Reynis Dalvík/Reynir vann stórsigur á Spyrni í áttundu umferð D- riðils í 3. deild karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu um helgina. Átta mörk voru skoruð á Dalvíkurvelli og voru þau öll heimamanna. Jóhann Hilmar Hreiðarsson gerði sér lítið fyrir og skoraði fjögur mörk fyrir heimamenn. Þá skoraði...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/misjofn-laun-ungmenna-i-vinnuskolum
Misjöfn laun ungmenna í Vinnuskólum Nýlega gerði Afl Starfsgreinafélag á Austurlandi lauslega könnun á þeim launum sem 14, 15 og 16 ára börn og unglingar fá fyrir vinnuframlag sitt hjá sveitafélögum. Í niðurstöðunum kom m.a. fram að umtalsverður munur virðist vera þar á og ekki virðast vera sömu viðmiðanir hjá sveitarf...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hrada-a-framkvaemdum-vid-undirgong-undir-horgarbraut
Hraða á framkvæmdum við undirgöng undir Hörgárbraut "Við munum hraða þessari framkvæmd sem kostur er og gera hvað við getum til að tryggja fjármagn, " segir Helgi Már Pálsson deildarstjóri framkvæmdadeildar Akureyrarbæjar um gerð undirganga á Hörgárbraut á móts við Skúta. Hann segir að til hafi staðið að gera undirgöng...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/godur-sigur-thorska-a-stjornunni
Góður sigur Þórs/KA á Stjörnunni Þórs/KA stelpur unnu góðan sigur á Stjörnustelpum í 11. umferð Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu á Akureyrarvelli sl. föstudagskvöld. Leikurinn fór fjörlega af stað og áttu bæði lið fjölmörg færi í fyrri hálfleik en hvorugu liðinu náði að skora áður flautað var til leikhlés og staðan...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ibui-vid-holatun-osattur-vid-nytt-deiliskipulag-i-naustahverfi
Íbúi við Hólatún ósáttur við nýtt deiliskipulag í Naustahverfi Guðmundur Karl Tryggvason, íbúi í Hólatúni 22 í Naustahverfi á Akureyri, er mjög ósáttur við nýtt deiliskipulag sem skipulagsnefnd hefur samþykkt. Þegar Guðmundur keypti húsið á sínum tíma var deiliskipulagið þannig útlítandi að mikil verönd var í bakgarði ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikid-ad-gera-a-faedingardeild-fsa-i-sumar
Mikið að gera á fæðingardeild FSA í sumar Nú í vikunni voru fæðingar á fæðingardeild Sjúkrahússins á Akureyri orðnar 234 talsins, en raunar stóðu yfir tvær fæðingar þegar Vikudagur hafði samband við deildina. Börnin sem fæðst hafa eru eitlítið fleiri, eitthvað hefur verið um tvíburafæðingar í ár en tölur um fjölda barn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stefnir-i-ad-eldsneytiskostnadur-sva-verdi-20-milljonir-i-ar
Stefnir í að eldsneytiskostnaður SVA verði 20 milljónir í ár Gera má ráð fyrir að eldsneytiskostnaður Strætisvagna Akureyrar verði um 30% hærri er ráð var fyrir gert í áætlun ársins. Stefán Baldursson framkvæmdastjóri segir að kostnaðurinn hafi verið ríflega áætlaður, en stefni samt langt fram úr því sem menn gerðu ráð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/arangurinn-verdur-maeldur-i-brosum
Árangurinn verður mældur í brosum Yfirskrift hátíðahalda á Akureyri um verslunarmannahelgina er: "Ein með öllu og allt undir" og verður fjölbreytt dagskrá í boði um allan bæ. Margrét Blöndal, framkvæmdastjóri hátíðahaldanna, segir að þemað sé elskulegheit og að árangurinn verði mældur í brosum. Margrét sagði að mjög já...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorka-faer-stjornuna-i-heimsokn-i-kvold
Þór/KA fær Stjörnuna í heimsókn í kvöld Þór/KA mætir Stjörnunni úr Garðabæ á Akureyrarvelli í kvöld í lokaleik 11. umferðar í Landsbankadeild kvenna. Fyrir leikinn munar tíu stigum á liðunum, þar sem Stjarnan hefur 20 stig í þriðja sæti deildarinnar en Þór/KA 10 stig í sjötta sæti. Dragan Kristinn Stojanovic þjálfari Þ...