Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.vikubladid.is/is/frettir/n1-mot-ka-hefst-i-dag
N1- mót KA hefst í dag Hið árlega N1- mót KA í knattspyrnu hefst í dag kl 15:00 og verða síðustu leikirnir spilaðir kl 17:00 á laugardaginn. Gríðarlega góð þátttaka er á mótinu í ár og eru 144 keppnislið frá 35 félagsliðum sem taka þátt. Keppt er flokki A-, B-, C-, D- og E- liða. Magnús Sigurólason í mótstjórn segir mó...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/johannes-daemir-manna-best
Jóhannes dæmir manna best Akureyringurinn og KA maðurinn Jóhannes Valgeirsson var valinn besti dómarinn í Landsbankadeild karla nú á dögunum þegar viðurkenningar voru veittar fyrir fyrstu sjö umferðirnar í deildinni í höfuðstöðvum KSÍ. Jóhannes er margreyndur dómari en auk þess að dæma hér á landi er hann einnig FIFA- ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/silvia-ran-madur-leiksins-gegn-nordmonnum
Silvía Rán maður leiksins gegn Norðmönnum Þessa dagana taka þær Silvía Rán Sigurðardóttir og Arna Sif Ásgrímsdóttir knattspyrnukonur úr Þór/KA þátt í landsleikjum með U16 ára landsliði kvenna á Norðurlandamótinu í knattspyrnu sem haldið er hér á landi. Silvía Rán skoraði annað mark Íslands í 2-6 tapi liðsins gegn Norðm...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/dro-upp-hnif-eftir-arekstur-a-akureyri
Dró upp hníf eftir árekstur á Akureyri Nokkuð harður árekstur varð á Akureyri um ellefu leytið í gærkvöld á Drottningarbraut við Suðurbrú þegar bifreið var ekið í veg fyrir aðra. Ökumaður bifreiðinnar sem ekið var á brást heldur illa við og dró upp hníf og ógnaði hinum ökumanninum. Að sögn lögreglunar á Akureyri róaðis...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samthykkt-heimild-til-vidraedna-um-solu-a-ollum-gognum-eda-hlutum-i-greidri-leid
Samþykkt heimild til viðræðna um sölu á öllum gögnum eða hlutum í Greiðri leið Á aðalfundi Greiðrar leiðar ehf - félags um gerð Vaðlaheiðarganga - í gær var samþykkt að heimila stjórn félagsins „að ganga til viðræðna við samgönguyfirvöld um sölu, annað hvort á öllum gögnum félagsins eða öllum hlutum í félaginu, eftir þ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/larus-orri-haettur-ad-leika-med-thor
Lárus Orri hættur að leika með Þór Lárus Orri Sigurðsson þjálfari 1. deildar liðs Þórs í knattspyrnu hefur gefið það út að hann sé hættur að spila með liðinu og muni framvegis einbeita sér eingöngu að þjálfun liðsins. Hann segir margar ástæður hafa spilað inn í ákvörðun sína. "Það er svo margt, líkaminn er bara búinn, ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-a-althjodlegt-handboltamot
KA á Alþjóðlegt handboltamót Hið Alþjóðlega handboltamót Partille Cup fer fram í Svíþjóð dagana 2. – 6. júlí en þetta er í 39. sinn sem mótið er haldið. Þetta er jafnframt vinsælasta unglingamót um allan heim sem haldið er í dag. Þar eru samankomin yfir um 15. 000 handboltafólk á öllum aldri frá 50 löndum. Á mánudaginn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/alls-sottu-25-manns-um-stodu-forvarnarfulltrua-akureyrarbaejar
Alls sóttu 25 manns um stöðu forvarnarfulltrúa Akureyrarbæjar Alls sóttu 25 manns um stöðu forvarnarfulltrúa Akureyrarbæjar. Fráfarandi forvarnarfulltrúi, Bryndís Arnarsdóttir, sagði starfi sínu laus í vor eftir að hafa gegnt stöðunni í sjö ár. Markmið starfsins er að stuðla að heilbrigðum lífsvenjum barna og ungs fólk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/seratappadar-vatnsfloskur-merktar-hverjum-vidburdi-a-listasumri
Sérátappaðar vatnsflöskur merktar hverjum viðburði á Listasumri Listasumar, lengsta grasrótarhátíð á Íslandi, var sett formlega í sextánda sinn í Ketilhúsinu á dögunum. Listasumar stendur næstu í tíu vikur og í boði verða hátt á annað hundrað viðburðir. Við sama tækifæri var opnuð sýningin Bráðnun, samsýning tíu listak...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gsm-thjonustusvaedi-simans-a-nordurlandi-staekkar
GSM þjónustusvæði Símans á Norðurlandi stækkar Síminn hefur sett upp nýjar GSM stöðvar á Geitafellshnjúk, í Bárðardal og á Slórfelli á Möðrudalsöræfum. Stöðin á Geitafellshnjúk styrkir sambandið efst í Aðaldal, í Laxárdal og á Kísilveginum Í Bárðardal næst nú samfellt samband um næstum allan dalinn frá Goðafossi áleiði...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorunn-bjorg-radin-skolastjori-grunnskolans-i-hrisey
Þórunn Björg ráðin skólastjóri Grunnskólans í Hrísey Þórunn Björg Arnórsdóttir hefur verið ráðin skólastjóri grunnskólans í Hrísey. Þórunn lauk B.Ed. gráðu frá KHÍ nú í vor eftir 4 ára fjarnám. Þórunn hefur starfað sem leiðbeinandi við Grunnskólann í Hrísey s.l. 7 ár.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/namsmannastyrkir-byrs-afhentir-a-akureyri
Námsmannastyrkir Byrs afhentir á Akureyri Sjö námsmennn hafa fengið skólastyrk frá Námsmannaþjónustu Byrs og þar af voru tveir styrkir afhentir á Akureyri. Bankinn veitir styrkina tvisvar á ári. Á Akureyri fengu þær Hilda Helgadóttir og Ingunn Hjaltalín Helgadóttir styrki. Að þessu sinni voru veittir tveir styrkir til ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ellefu-nyjar-gsm-sendistodvar-a-landsbyggdinni
Ellefu nýjar GSM sendistöðvar á landsbyggðinni Ellefu nýjar GSM sendistöðvar voru gangsettar nýlega og alls hafa þá 62 nýir sendar frá Vodafone verið teknir í notkun á árinu. Á Norðausturlandi voru GSM sendar gangsettir á Gunnólfsvíkurfjalli, á Þórshöfn á Langanesi, Viðarfjalli í Þistilfirði, á Raufarhöfn, Snartarstaða...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tap-hja-dalvikreyni
Tap hjá Dalvík/Reyni Dalvík/Reynir mátti sætta sig við tveggja marka tap þegar liðið sótti Leikni F. heim í D- riðli 3. deildar karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu um helgina. Lokatölur á Búðugrundarvellinum 2-0 sigur heimamanna þar sem Uchenna G. Asika gerði bæði mörk Leiknis. Eftir fimm umferðir hefur Dalvík/Reynir s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kea-styrkir-krabbameinsfelag-akureyrar-og-nagrennis
KEA styrkir Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis Framkvæmdastjóri KEA, Halldór Jóhannsson, afhenti Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis styrk að fjárhæð 2,5 milljónir króna. Styrknum er meðal annars ætlað að niðurgreiða gistikostnað sjúklinga sem þurfa að leita sér lækninga fjarri heimilum sínum. Hlíf Guðmundsdó...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/godur-utisigur-hja-magna
Góður útisigur hjá Magna Magni vann mikilvægan útisigur á liði Hamars er liðin mættust á Grýluvelli í Hveragerði í 2. deild karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu um helgina. Lokatölur urðu 2-1 sigur Magna. Mörk Magna skoruðu þeir Hreggviður Heiðberg Gunnarsson og Ingvar Már Gíslason. Eftir átta umferðir hefur Magni sex s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarstjorn-akureyrar-i-sumarfri-fram-i-september
Bæjarstjórn Akureyrar í sumarfrí fram í september Á morgun, þriðjudaginn 1. júlí, verður fundur í bæjarstjórn Akureyrar en að honum loknum fer bæjarstjórn í sumarleyfi fram í september nk. Þetta var samþykkt á síðasta fundi bæjarstjórnar. Tillagan sem samþykkt var á síðasta fundi bæjarstjórnar og samþykkt var með 11 sa...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kvoldsiglingar-um-eyjafjordinn-med-huna-ii-i-sumar
Kvöldsiglingar um Eyjafjörðinn með Húna II í sumar Í sumar verður boðið upp á þrjár fastar ferðir á viku þar sem siglt er að kvöldlagi um Eyjafjörðinn með eikarbátnum Húna II. Hann er innréttaður til farþegaflutninga og hefur haffærisskírteini og björgunarbúnað fyrir allt að 100 farþega. Ferðirnar þrjár sem verða í boð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/slovenskir-kartofluunnendur-a-ferd-um-nordurland
Slóvenskir kartöfluunnendur á ferð um Norðurland Hópur fólks frá Slóveníu sem myndar félagsskap áhugafólks um kartöfluna var á ferð um Norðurland í vikunni. Valgarður Egilsson og Katrín Fjeldsted eru einu íslensku félagarnir í "Kartöfluvinafélaginu" og fór fyrir hópnum á ferð þeirra hér á landi. Janez Fejfar forseti fé...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eitt-og-halft-ar-fra-fra-thvi-aurskridurnar-fellu-i-eyjafjardarsveit
Eitt og hálft ár frá frá því aurskriðurnar féllu í Eyjafjarðarsveit Fjöldi fólks kom í heimsókn til þeirra Maríu Tryggvadóttur og Óskars Kristjánssonar í Grænuhlíð í Eyjafjarðarsveit um síðustu helgi en þar var opið hús fyrir sveitunga, vini og velgjörðarfólk. Gestum var boðið að þiggja veitingar og skoða uppbygginguna...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/biladagar-a-akureyri-verda-faerdir-til-ad-ari
Bíladagar á Akureyri verða færðir til að ári Kristján Þ. Kristinsson formaður Bílaklúbbs Akureyrar segir að rætt hafi verið um það á síðasta ári að færa Bíladagana til og að sú umræða hafi einnig verið viðruð í ár. "Þetta félag var stofnað til að halda lýðræðissýningu á 17. júní og hefur alla tíð gert það. Við höfum te...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/storsigur-hja-thorska-stulkum-i-dag
Stórsigur hjá Þórs/KA stúlkum í dag Þórs/KA stúlkur unnu öruggan 4-0 sigur á Sindra frá Hornarfirði þegar liðin mættust á Akureyrarvelli í dag í 16- liða úrslitum VISA- bikarkeppni kvenna. Rakel Hönnudóttir skoraði þrennu fyrir heimastúlkur og Alexandra Tómasdóttir eitt. Heimastúlkur voru mun betri allan leikinn og hef...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/talsvert-tjon-i-bruna-i-mynd-listarskolanum-a-akureyri
Talsvert tjón í bruna í Mynd- listarskólanum á Akureyri Rétt fyrir miðnætti barst Slökkviliði Akureyrar tilkynning um eld í Myndlistarskólanum í Kaupvangsstræti. Allt vakthafandi lið frá aðalstöð og flugvelli var kallað á staðinn, ásamt því að mannskapur af tveimur frívöktum var kallaður til. Reykafarar hófu þegar leit...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-sigur-i-nagrannaslagnum
KA sigur í nágrannaslagnum Akureyrarliðin Þór og KA mættust á Akureyrarvelli í kvöld í 9. umferð 1. deildar karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Eitt mark var skorað í leiknum og það gerðu KA- menn í viðbótartíma og hirtu öll stigin þrjú. KA- menn voru mun frískari í byrjun leiks og voru meira með boltann. Þórsarar átt...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heimilt-verdi-ad-byggja-57-ibudir-vid-undirhlid
Heimilt verði að byggja 57 íbúðir við Undirhlíð Meirihluti skipulagsnefndar Akureyrar samþykkti á fundi sínum í vikunni að leggja til við bæjarstjórn að tillaga að deiliskipulagi íbúðasvæðis á reit er markast af Undirhlíð, Langholti, Miðholti og Krossanesbraut verði samþykkt. Aðalskipulag Akureyrar 2005-2018 gerir ráð ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/veiddi-urrida-sem-var-med-minkahvolp-i-maganum
Veiddi urriða sem var með minkahvolp í maganum Hrund Nilima Birgisdóttir, 7 ára veiðigarpur á Akureyri, landaði urriða úr Ljósavatni á dögunum, sem í sjálfu sér þykir ekki í frásögur færandi. Í maga fisksins var hins vegar minkahvolpur sem þykir aftur mjög sérstakt. Birgir Össurason, faðir Hrundar, segir að þau feðgin ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/netto-og-fiskidagurinn-mikli-skrifa-undir-styrktarsamning
Nettó og Fiskidagurinn mikli skrifa undir styrktarsamning Nettó og Fiskidagurinn mikli hafa skrifað undir styrktarsamning í fjórða sinn. Fiskidagurinn mikli hefur verið haldinn á Dalvík sl. sjö ár en markmiðið með deginum er að fá fólk til að koma saman, borða fisk og eyða góðum degi saman. „Þetta er fjórða árið sem Ne...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hopslagsmal-a-akureyri-i-gaerkvold-og-nott
Hópslagsmál á Akureyri í gærkvöld og nótt Lögreglan á Akureyri var í tvígang kölluð út vegna hópslagsmála í bænum í gærkvöld og nótt. Öxi, golfkylfur og stólfætur voru á lofti. Lögreglan telur að um sé að ræða uppgjör í fíkniefnaheiminum. Lögreglan var fyrst kölluð út um kl. 21:30 í gærkvöld en þá hafði 7 manns á aldri...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/agust-frimann-jakobsson-radinn-skolastjori-naustaskola
Ágúst Frímann Jakobsson ráðinn skólastjóri Naustaskóla Ágúst Frímann Jakobsson skólastjóri hefur verið ráðinn skólastjóri Naustaskóla á Akureyri. Ágúst útskrifaðist sem grunnskólakennari 1995 og einnig dipl. Ed. í stjórnun frá KHÍ 2003, en hefur starfað sem aðstoðarskólastjóri fyrst í Húnaþingi vestra á árunum 1998 til...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/alls-barust-15-umsoknir-um-framlag-ur-vaxtasamningi-eyjafjardar
Alls bárust 15 umsóknir um framlag úr Vaxtasamningi Eyjafjarðar Alls bárust 15 umsóknir til Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar þar sem óskað var eftir framlagi úr Vaxtasamningi Eyjafjarðar samtals yfir 40 milljónir króna. Það er skilyrði gagnvart stuðningi að það komi a.m.k. jafn hátt framlag frá umsóknarfyrirtækjum og s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/um-190-keppendur-a-arctic-open-golfmotinu
Um 190 keppendur á Arctic open golfmótinu Arctic open alþjóðlega miðnæturgolfmótið hefst á Jaðarsvelli á Akureyri í dag og verða fyrstu kylfingarnir ræstir út núna kl. 15.00. Um 190 manns hafa skráð sig til keppni í ár og komast færri að en vilja. Á mótinu er leikið eftir Stableford - punktakerfi með og án forgjafar. A...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/einar-logi-til-skovde
Einar Logi til Skövde Stórskyttan og Akureyringurinn Einar Logi Friðjónsson hefur ákveðið að ganga til liðs við sænska handboltaliðið Skövde sem leikur í úrvalsdeild. Einar fór nýlega út til Svíþjóðar og var til reynslu hjá félaginu í eina viku en gengið var frá samningnum í gærdag. Samningurinn er til tveggja ára með ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/olvadur-okumadur-velti-bil-i-hrisey
Ölvaður ökumaður velti bíl í Hrísey Mildi þykir að ekki urðu slys á fólki þegar ölvaður maður tók bíl traustataki í Hrísey aðfararnótt sunnudags. Maðurinn ók á ofsahraða um eyjuna, þar til hann missti stjórn á bílnum sem endasentist út af veginum fór eina velta og endaði á hjólunum. Gestkomandi fólk í eyjunni var á gön...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/viljayfirlysing-um-alver-a-bakka-vid-husavik-framlengd
Viljayfirlýsing um álver á Bakka við Húsavík framlengd Fulltrúar Alcoa, ríkisstjórnar Íslands og Norðurþings framlengdu í dag viljayfirlýsingu um rannsóknir á hagkvæmni þess að reisa álver á Bakka við Húsavík, til 1. október árið 2009. Um er að ræða framlengingu og uppfærslu á viljayfirlýsingu þessara aðila sem undirri...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bagalegt-ad-hafa-ekki-hverfisvoll-i-naustahverfi
Bagalegt að hafa ekki hverfisvöll í Naustahverfi Enginn hverfisvöllur er í Naustahverfi fyrir eldri börn og segir Bjarni Sigurðsson sem sæti á í hverfisnefnd það mjög bagalegt, "og kraumandi óánægja" vegna þess meðal barnafólks í hverfinu. Bjarni segir að í fyrrasumar hefði staðið til að þökuleggja völl í hverfinu en þ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/margret-styrir-hatidaholdum-um-verslunarmannahelgi
Margrét stýrir hátíðahöldum um verslunarmannahelgi Akureyrarstofa hefur samið við Margréti Blöndal fjölmiðlakonu um að taka að sér að stýra undirbúningi og hátíðarhöldum á Akureyri um verslunarmannahelgina. Margrét mun leiða hóp hagsmunaaðila sem standa saman að því að bjóða til fjölskylduhátíðar í bænum. Markmiðið er ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framkvaemdir-hafnar-vid-endurbaetur-a-sundlauginni-a-thelamork
Framkvæmdir hafnar við endurbætur á sundlauginni á Þelamörk Framkvæmdir eru hafnar við umfangsmiklar endurbætur á sundlauginni á Þelamörk. Samið hefur verið við verktakafyrirtækið B. Hreiðarsson ehf. um að vinna verkið, sem á að vera lokið í síðasta lagi 1. desember nk. Verksamningurinn hljóðar upp á 105,6 milljónir kr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/afmaelisrit-haskolans-a-akureyri-2007-er-komid-ut
Afmælisrit Háskólans á Akureyri 2007 er komið út Út er komið Afmælisrit Háskólans á Akureyri 2007 í tilefni af 20 ára afmæli skólans. Um er að ræða ríflega 400 blaðsíðna kiljubundna bók sem inniheldur 23 greinar eftir kennara og starfsfólk Háskólans á Akureyri en höfundar eru alls 27 talsins. Ritstjóri er Hermann Óskar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ljosmyndasamkeppnin-fjolskyldan-i-fokus-komin-af-stad
Ljósmyndasamkeppnin “Fjölskyldan í fókus” komin af stað Katrín Jakobsdóttir alþingismaður ýtti á dögunum sumarverkefni SAMAN-hópsins sumarið 2008 úr vör en það er ljósmyndasamkeppnin ,,Fjölskyldan í fókus". Keppnin stendur til 8. ágúst 2008 og er ætlað að vekja athygli á að samverustundir með fjölskyldunni eru dýrmæt a...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kea-styrkir-kaup-a-flygli-i-thorgeirskirkju
KEA styrkir kaup á flygli í Þorgeirskirkju KEA hefur afhent Þingeyskum sagnagarði styrk að fjárhæð 500.000 krónur sem renna til flygilkaupa fyrir Þorgeirskirkju. Flygillinn er af gerðinni Estonia og var kaupverð hans og fylgihluta um 2,2 milljónir króna. „Styrkveiting KEA skiptir okkur gríðarlega miklu máli því um leið...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/odinn-vill-hvergi-fara
Óðinn vill hvergi fara Óðinn Ásgeirsson körfuboltamaðurinn sterki úr Þór, hefur gefið það út að hann hafi engan áhuga á að fara frá félaginu og mun ekki hlusta á nein tilboð frá öðrum félögum. Samkvæmt heimildum Vikudags hafa nokkur lið að sunnan sett sig í samband við Óðinn og freistað þess að fá hann til liðs við sig...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/godur-utisigur-hja-dalvikreyni
Góður útisigur hjá Dalvík/Reyni Dalvík/Reynir vann góðan útisigur á Spyrni frá Breiðholti um helgina í D- riðli 3. deildar karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Lokatölur á Fellavelli 2-0 sigur Dalvíks/Reynis. Mörkin skoruðu Jón Örvar Eiríksson og Jóhann Hreiðarsson. Eftir fjórar umferðir situr Dalvík/Reynir í öðru sæti...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/odinn-heldur-afram-ad-gera-goda-hluti
Óðinn heldur áfram að gera góða hluti Sundfélagið Óðinn á Akureyri endaði í 4. sæti í stigakeppni félaga á Aldursflokkameistaramóti Íslands ( AMÍ ) sem haldið var í Reykjanesbæ um síðustu helgi. Sundfólkið stóð sig frábærlega en 26 krakkar kepptu fyrir hönd Óðins og féllu alls 39 Akureyrarmet á mótinu. Þá vann Elín Erl...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/arna-sif-og-silvia-ran-i-landslidid
Arna Sif og Silvía Rán í landsliðið Kristrún Lilja Daðadóttir landsliðsþjálfari U16 landslið kvenna tilkynnti á dögunum hópinn sem mun keppa á Opna Norðurlandamótinu U16 kvenna sem haldið verður hér á landi 30. júní til 5. júlí nk. Þar eiga Akureyringar tvo fulltrúa en þær Arna Sif Ásgrímsdóttir og Silvía Rán Sigurðard...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sex-umsaekjendur-um-stodu-skolastjora-naustaskola
Sex umsækjendur um stöðu skólastjóra Naustaskóla Sex umsækjendur eru um stöðu skólastjóra Naustaskóla á Akureyri og tveir sóttu um stöðu skólastjóra grunnskólans í Hrísey. Umsækjendur um stöðu skólastjóra Naustaskóla eru; Anna Kolbrún Árnadóttir. Anna Lilja Sigurðardóttir. Ágúst Frímann Jakobsson. Helga Sigurðardóttir....
https://www.vikubladid.is/is/frettir/god-rekstrarnidurstada-og-traustur-fjarhagur-akureyrarbaejar
Góð rekstrarniðurstaða og traustur fjárhagur Akureyrarbæjar Ársreikningur Akureyrarbæjar fyrir árið 2007 var lagður fram á síðasta fundi bæjarráðs. Þar kemur fram að reksturinn skilaði góðri niðurstöðu og fjárhagurinn er traustur. Rekstur Akureyrarbæjar gekk vel á árinu og er heildarniðurstaða ársins betri en fjárhagsá...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tap-hja-magna
Tap hjá Magna Magni náði ekki að fylgja eftir góðum sigri sínum á Hvöt í síðustu umferð 2. deildar karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu þegar þeir töpuðu á heimavelli gegn ÍR um helgina. Lokatölur á Grenivíkurvelli 3-1 sigur ÍR eftir að heimamenn höfðu náð forystunni snemma í leiknum. Mark Magna skoraði Laszlo Szilagyi....
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ny-stjorn-myndud-hja-akureyri-handboltafelag
Ný stjórn mynduð hjá Akureyri Handboltafélag Ný stjórn hjá Akureyri Handboltafélag var mynduð í síðustu viku og nú þegar er hafinn undirbúningur fyrir haustið. Stjórnina skipa þeir Atli Ragnarsson formaður, Gestur Einarsson varaformaður, Alex Björn Bulow gjaldkeri og meðstjórnendur eru Ingólfur Samúelsson og Stefán Jóh...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nemendum-faekkar-ef-framhaldskolarnir-verda-faerdir-til-sveitarfelaga
Nemendum fækkar ef framhaldskólarnir verða færðir til sveitarfélaga Jón Már Héðinsson skólameistari Menntaskólans á Akureyri varaði við því í ræðu sinni við skólaslit MA að færa framhaldsskólana til sveitarfélaga, eins og gert hefði verið með tónlistarskólana. Hann nefndi sem dæmi að utanbæjarnemandi í MA sem veldi tón...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rekstrarafkoma-fsa-i-byrjun-ars-er-verri-en-aaetlad-var
Rekstrarafkoma FSA í byrjun árs er verri en áætlað var Rekstrarafkoma Sjúkahússins á Akureyri eftir fyrstu fjóra mánuði ársins er heldur verri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Launakostnaður hefur aukist og almenn rekstrargjöld hafa hækkað, einkum vegna áhrifa af verðlagsbreytingum og hækkun á gengi. Í lok aprílmánaðar er ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hef-fulla-tru-a-ad-vid-ljukum-verkefninu
Hef fulla trú á að við ljúkum verkefninu "Vissulega má segja á þessari stundu að ástæða sé til að hafa áhyggjur af gangi máli," segir Kristján Þór Júlíusson formaður Landsmótsnefndar UMFÍ um framkvæmdir á Þórssvæðinu sem nú standa yfir. Þar á að halda landsmót í júlí á næsta ári. Tilboð í ýmis verkefni sem borist hafa ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/storsigur-hja-ka-monnum-i-dag-en-tap-hja-thor
Stórsigur hjá KA- mönnum í dag en tap hjá Þór KA- menn unnu stórsigur á Akureyrarvelli í dag þegar þeir burstuðu lið Leiknis frá Reykjavík með sex mörkum gegn engu í 8. umferð 1. deildar karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Á sama tíma tapaði Þór gegn Víkingi R á útivelli þar sem lokatölur urðu 2-1 sigur Víkings. Mark ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarfulltrui-gagnrynir-aukin-hradakstur-og-havada
Bæjarfulltrúi gagnrýnir aukin hraðakstur og hávaða Jóhannes Bjarnason bæjarfulltrúi á Akureyri segist mjög undrandi á viðbrögðum Daníels Guðjónssonar yfirlögregluþjóns við gagnrýni sinni þess efnis að umferðaröryggi í bænum sé minna nú er verið hefur. Daníel sagði í Vikudegi í síðustu viku að hann vissi ekki hvað Jóhan...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/utisamkomur-i-thettbyli-hafa-skapad-mjog-neikvaeda-umfjollun
Útisamkomur í þéttbýli hafa skapað mjög neikvæða umfjöllun "Það kom mér vissulega á óvart að lesa greinina "Bless Akureyri", þar sem vegið er að bæjarstjóra og Akureyrarstofu . Við sem störfum með sveitarfélögunum og Akureyrarstofu hrökkvum eðlilega við. Yfirlýsinar eins og að: "Vekja upp frá dauðum" "Ganga frá einhver...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nyr-heilsarsvegur-yfir-kjol-yrdi-mikid-framfaraspor
Nýr heilsársvegur yfir Kjöl yrði mikið framfaraspor "Ég tel að nýr Kjalvegur yrði mikið framfaraspor fyrir samfélagið, hann myndi auka samgöngur á milli Suður- og Norðurlands, efla menningartengsl milli þessara landshluta sem og hefur hann góð áhrif hvað atvinnu varðar. Nýr heilsársvegur yfir Kjöl myndi skapa margvísle...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gestir-og-gangandi-komast-lengra-a-reidhjolum-i-bodi-vodafone
Gestir og gangandi komast lengra á reiðhjólum í boði Vodafone Gestir og gangandi á Akureyri, Dalvík og Húsavík eiga þess kost í sumar að fara víðar og lengra en ella á reiðhjólum í boði Vodafone. Um 110 reiðhjól verða afhent sveitarfélögunum og munu þau nýtast sem ókeypis farkostur fyrir bæjarbúa og ferðafólk í allt su...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyrarhlaup-kea-fer-fram-a-laugardaginn
Akureyrarhlaup KEA fer fram á laugardaginn Akureyrarhlaup KEA fer fram nk. laugardag, þann 21. júní. Hlaupið hefur verið haldið frá árinu 1992 og er þetta því í 16. skiptið sem hlaupið fer fram. UFA hefur séð um að halda hlaupið en í fyrra gerði það þriggja ára samning við KEA um að vera aðalstyrktaraðili hlaupsins. Þa...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akvedid-ad-taka-tilbodi-thekkingar-i-umsjon-med-tolvukerfi-baejarins
Ákveðið að taka tilboði Þekkingar í umsjón með tölvukerfi bæjarins Akureyrarbær hefur ákveðið að taka tilboði Þekkingar í rekstur og þjónustu við tölvukerfi bæjarins til næstu þriggja ára. Þekking átti lægsta tilboð í verkið fyrir umrætt tímabil en það var upp á 35,7 milljónir króna. Alls sendu fjögur fyrirtæki inn til...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/norraent-thing-kvenfelaga-a-akureyri
Norrænt þing kvenfélaga á Akureyri Norrænt þing kvenfélaga innan Nordisk kvinnoforbund hófst á Hótel Eddu á Akureyri í gær fimmtudag og stendur fram á sunnudag. Yfirskrift þingsins er: „Fleiri karla í kvennaliðið"- jafnrétti - heilsa - hannyrðir." Dagskrá þingsins hófst í gær og í dag verða jafnframt flutt fjölmörg eri...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/arleg-flughelgi-a-akureyrar-flugvelli-um-helgina
Árleg Flughelgi á Akureyrar- flugvelli um helgina Hin árlega Flughelgi Flugsafns Íslands verður haldin á Akureyrarflugvelli á morgun laugardaginn 21. júní og á sunnudag. Ókeypis er inn á svæðið og að venju má búast við miklum fjölda gesta á svæðið. Dagskráin hefst kl. 10.00 á morgun laugardag en þá fer fram Íslandsmót ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyrarhlaup-kea-fer-fram-um-helgina
Akureyrarhlaup KEA fer fram um helgina Akureyrarhlaup KEA fer fram næstkomandi laugardag þann 21. júní. Hlaupið hefur verið haldið frá árinu 1992 og er þetta því í 16. skiptið sem hlaupið fer fram. UFA hefur séð um að halda hlaupið en í fyrra gerði það þriggja ára samning við KEA um að vera aðalstyrktaraðili hlaupsins....
https://www.vikubladid.is/is/frettir/zontakonur-afhenda-aflinu-milljon-kronur
Zontakonur afhenda Aflinu milljón krónur Í dag afhentu Zontakonur á Akureyri Aflinu einnar milljón króna fjárstuðning á tröppum Zontahússins við Aðalstræti. Peningarnir eru hluti af afrakstri þess þegar Zontakonur um land allt stóðu dagana 7. og 8. mars sl. fyrir sölu á gullrósarnælu undir yfirskriftinni ,,Zonta gegn k...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/zontakonur-afhenda-aflinu-milljon-kronur-1
Zontakonur afhenda Aflinu milljón krónur Í dag afhentu Zontakonur á Akureyri Aflinu einnar milljón króna fjárstuðning á tröppum Zontahússins við Aðalstræti. Peningarnir eru hluti af afrakstri þess þegar Zontakonur um land allt stóðu dgana 7. og 8. mars sl. fyrir sölu á gullrósarnælu undir yfirskriftinni ,,Zonta gegn ky...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tap-hja-thor-og-ka-i-kvold
Tap hjá Þór og KA í kvöld Bæði Þór og KA töpuðu leikjum sínum í kvöld þegar 32- liða úrslitin í VISA- bikarkeppni karla kláruðust. Þór tók á móti Val á Akureyrarvelli og Valsmenn náðu naumlega að tryggja sér sigur með marki á lokamínútum leiksins. KA- menn sóttu Breiðablik heim og töpuðu einnig með einu marki gegn engu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rakel-honnudottir-i-urvalslidi-fyrstu-sex-umferda
Rakel Hönnudóttir í úrvalsliði fyrstu sex umferða Rakel Hönnudóttir knattspyrnukona úr Þór/KA var valin í úrvalslið fyrstu sex umferða í Landsbankadeild kvenna nú á dögunum en athöfnin fór fram í höfuðstöðvum KSÍ. Þá fékk Rakel einnig viðurkenningu sem annar af tveimur bestu framherjunum þessar fyrstu umferðir en hinn ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nordurorka-kaupir-hitaveitu-eyjafjardarsveitar
Norðurorka kaupir hitaveitu Eyjafjarðarsveitar Samningar liggja fyrir milli Eyjafjarðarsveitar og Norðurorku hf. um kaup á hitaveitu Eyjafjarðarsveitar og er gert ráð fyrir að hluti kaupverðs verði greiddur með nýju hlutafé að nafnverði kr. 1.000.000. Á fundi bæjarráðs í morgun var tekið fyrir erindi frá Norðurorku var...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kvennasoguganga-um-innbae-akureyrar-og-styrktarafhending
Kvennasöguganga um Innbæ Akureyrar og styrktarafhending Á morgun fimmtudaginn 19. júni verður kvennasöguganga um Innbæinn á Akureyri í boði Jafnréttisstofu, Minjasafnsins á Akureyri og Zonta-klúbbana á Akureyri. Gengið verður frá Samkomuhúsinu kl.16.15 og mun Elín Antonsdóttir leiða gönguna. Áður en gangan hefst mun Si...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/allskonar-kraesingar-fjall-an-kinda-fleiri-myndir-og-sprey
Allskonar kræsingar, fjall án kinda, fleiri myndir og sprey Hlynur Hallsson opnar sýninguna "Allskonar kræsingar, fjall án kinda, fleiri myndir og sprey" í bæjarstjórnarsal ráðhúss Akureyrar á morgun fimmtudaginn 19. júní klukkan 12:15. Þar gefur að líta sex ljósmynda/textaverk úr myndröðinni "MYNDIR - BILDER - PICTURE...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/grunnskola-og-leikskolastig-verdi-sameinud-undir-eina-yfirstjorn
Grunnskóla- og leikskólastig verði sameinuð undir eina yfirstjórn Á síðasta fundi skólanefndar Eyjafjarðarsveitar lagði Guðmundur Jóhannsson sveitarstjóri fram tillögu þess efnis að grunnskólastig og leikskólastig verði sameinuð undir eina yfirstjórn og einn skólastjóra. Í tillögu sveitarstjóra um nýtt skipulag skólamá...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjoldi-folks-tok-thatt-i-hatida-holdum-a-akureyri-i-dag
Fjöldi fólks tók þátt í hátíða- höldum á Akureyri í dag Fjöldi fólks tók þátt í hátíðahöldum á Akureyri í dag í tilefni þjóðhátíðardagsins 17. júní. Hátíðardagskrá var í Lystigarðinum eftir hádegið og þaðan var haldið í skrúðgöngu á Ráðhústorg, þar sem áfram var haldið með dagskrána. Í Lystigarðinum var lúðrablástur fr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tilkynnt-um-thrjar-likamsarasir-a-akureyri-i-nott
Tilkynnt um þrjár líkamsárásir á Akureyri í nótt Lögreglan á Akureyri fékk tilkynningu um líkamsárás á skemmtistað í miðbæ Akureyrar í nótt en þar lenti tveimur aðilum saman með þeim afleiðingum að annar þeirra gaf hinum olnbogaskot í andlitið. Tilkynnt var um tvær aðrar líkamsárásir við sama skemmtistað en í annarri l...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/idnadarsafnid-fekk-likan-af-snaefellinu-ea-ad-gjof
Iðnaðarsafnið fékk líkan af Snæfellinu EA að gjöf Börn Bjarna Jóhannessonar og Sigríðar Freysteinsdóttur hafa fært Iðnaðarsafninu á Akureyri að gjöf líkan af Snæfelli EA 740 sem Grímur Karlsson í Keflavík gerði. Með gjöfinni minnast þau foreldra sinna, en bæði hefðu átt stórafmæli í ár hefðu þau lifað, Bjarni 95 ára og...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/barattumadur-fyrir-malefnum-fatladra-flytur-erindi
Baráttumaður fyrir málefnum fatlaðra flytur erindi Fimmtudaginn 19. júní nk. mun Sjálfsbjörg á Akureyri í samstarfi við búsetudeild Akureyrar bjóða öllum sem áhuga hafa á erindi eins þekktasta baráttumanns fyrir málefnum fatlaðra í heiminum, Evalds Krog frá Danmörku. Hann er formaður „Muskelsvindfonden" í Danmörku og e...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/enn-fjolgar-starfsfolki-hja-saga-capital-fjarfestingarbanka
Enn fjölgar starfsfólki hjá Saga Capital Fjárfestingarbanka Þrír nýir starfsmenn hafa komið til starfa hjá Saga Capital Fjárfestingarbanka, Jón Óttar Birgisson, Unndór Jónsson og Vilhjálmur Bergs. Starfsmenn bankans eru þar með orðnir samtals 35 á Akureyri og í Reykjavík. Jón Óttar hefur verið ráðin til starfa sem fram...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leikskolaborn-toku-forskot-a-thjodhatidarstemmninguna
Leikskólabörn tóku forskot á þjóðhátíðarstemmninguna Leikskólabörn í þremur leikskólum í Síðuhverfi á Akureyri og starfsfólk tóku forskot á þjóðhátíðarstemmninguna í morgun og fóru saman í skrúðgöngu um hverfið. Með í för voru einnig tveir lögregluþjónar. Hóparnir, sem komu frá Krógabóli, Síðuseli og Sunnubóli, hittust...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bjarki-gislason-i-landslidid
Bjarki Gíslason í landsliðið Bjarki Gíslason frjálsíþróttamaður úr UFA hefur verið valinn í landslið Íslands til að keppa í stangarstökki á Evrópukeppni landsliða sem fram fer í Tallin í Eistlandi um helgina. Bjarki sigraði í stangarstökki á vormóti ÍR í síðustu viku þegar hann stökk 4, 30 m sem þó er töluvert frá hans...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/loksins-sigur-hja-magna
Loksins sigur hjá Magna Magni náði loksins að fá sín fyrstu stig í 2. deild karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu þegar liðið lagði Hvöt á útivelli með tveimur mörkum gegn engu. Gunnar Jósteinsson og Símon Símonarson skoruðu mörk Magna í leiknum. Gríðarlega mikilvægur sigur hjá liði Magna og ætti sigurinn að hleypa sjálf...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samherji-sendir-morg-tonn-af-bleikjuflokum-erlendis-vikulega
Samherji sendir mörg tonn af bleikjuflökum erlendis vikulega Einar Geirsson matreiðslumeistari á Akureyri hefur unnið fyrir Samherja við að markaðssetja eldisbleikju sem fyrirtækið framleiðir hér á landi. Veitingahúsakeðjan Bonefish í Bandaríkjunum hefur tekið bleikju frá Samherja á matseðil sinn og segir Einar að nú f...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sigur-hja-thor-um-helgina-en-tap-hja-ka
Sigur hjá Þór um helgina en tap hjá KA Þór vann góðan heimasigur á liði Fjarðabyggðar þegar liðin áttust við á Akureyrarvelli í gærdag í sjöundu umferð 1. deildar karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Það var Aleksandar Linta sem skoraði eina mark leiksins sjö mínútum fyrir leikslok. Á sama tíma tapaði KA 0-1 fyrir topp...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aldrei-fleiri-studentar-verid-brautskradir-fra-ma
Aldrei fleiri stúdentar verið brautskráðir frá MA Menntaskólanum á Akureyri verður slitið við hátíðlega athöfn þriðjudaginn 17. júní. Að þessu sinni verða brautskráðir 159 stúdentar og hafa þeir aldrei verið fleiri í sögu skólans. Við skólaslit munu fulltrúar nokkurra afmælisárganga flytja skólanum ávörp. Í hópi þeirra...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skoteldatertu-skotid-ad-logreglumonnum-og-fleirum-a-radhustorgi
Skoteldatertu skotið að lögreglumönnum og fleirum á Ráðhústorgi Á þriðja tímanum í nótt var skoteldatertu skotið lárétt yfir Ráðhústorg á Akureyri og beint að lögreglumönnum og öðrum sem þar voru og þykir mildi að enginn slasaðist. Mikil ölvun og ólæti voru í miðbæ Akureyrar sl. nótt, samkvæmt upplýsingum lögreglu. Mik...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/staerstu-hluthafar-i-fiskey-leggja-felaginu-til-nytt-hlutafe
Stærstu hluthafar í Fiskey leggja félaginu til nýtt hlutafé Allir stærstu hluthafar í Fiskey hafa samþykkt að leggja nýtt hlutafé inn í félagið, samtals 34 milljónir króna. Stjórn félagsins hefur óskað eftir því að hluthafar komi með nýtt hlutafé í reksturinn að upphæð 50 milljónir króna. Rekstur Fiskeyjar hefur gengið...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kaupthing-lokar-starfsstod-sinni-a-glerartorgi-a-akureyri
Kaupþing lokar starfsstöð sinni á Glerártorgi á Akureyri Kaupþing hefur ákveðið að loka starfsstöð sinni á Glerártorgi á Akureyri frá og með þessari helgi. Í starfsstöð bankans á Glerártorgi eru tveir starfsmenn en ekki kemur til uppsagna í tengslum við þessa breytingu, að sögn Sigurðar Harðarson útibússtjóra. Þótt afg...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikil-umferd-og-toluvert-um-hradakstur-i-nagrenni-akureyrar
Mikil umferð og töluvert um hraðakstur í nágrenni Akureyrar Mikil umferð var í nágrenni Akureyrar í gærkvöld og nótt og gekk hún slysalaust fyrir sig. Tuttugu og fjórir ökumenn voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur og sá sem hraðast ók mældist á 182 km/klst. hraða í Öxnadal. Ökumaðurinn var sviptur ökuleyfi á staðnum. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/matsferli-hafid-vegna-alvers-a-bakka-vid-husavik
Matsferli hafið vegna álvers á Bakka við Húsavík Hafið er matsferli vegna álvers á Bakka við Húsavík. Til skoðunar er bygging álvers með allt að 250.000 tonna ársframleiðslu. Álver Alcoa fellur undir lög nr. 106/2000 m.s.br., um mat á umhverfisáhrifum, skv. 5. gr. og 5. mgr. 1. viðauka laganna. Alcoa er framkvæmdaraðil...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rett-leid-til-thess-ad-sporna-vid-utihatidarstemmningu
“Rétt leið til þess að sporna við útihátíðarstemmningu” Um helgina fara Bíladagar fram hér á Akureyri og eins og ávallt þessa helgi er von á miklum fjölda fólks til bæjarins og þá ekki síst skemmtanaþyrstum unglingum. Mikil ölvun og ofbeldi hefur einkennt þessa helgi undanfarin ár og hefur það farið fyrir brjóstið á fó...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/taeplega-330-kandidatar-brautskradir-fra-haskolanum-a-akureyri-a-morgun
Tæplega 330 kandídatar brautskráðir frá Háskólanum á Akureyri á morgun Alls verða 328 kandídatar brautskráðir á háskólahátíð Háskólans á Akureyri, sem haldin verður í Íþróttahöllinni á Akureyri á morgun, laugardaginn 14. júní nk. og hefst kl. 10:30. Af þessum hópi eru 98 sem hafa stundað fjarnám fyrir milligöngu háskól...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tap-hja-thorska-stelpum-i-kvold
Tap hjá Þórs/KA stelpum í kvöld Þórs/KA stelpur tóku á móti Fylki í sjöttu umferð Landsbankardeildar kvenna í kvöld. Það var ekki áferða falleg knattspyrna sem boðið var upp á á Akureyrarvelli þar sem báðum liðum gekk illa að skapa sér marktækifæri og einkenndist leikurinn af baráttu. Fylkisstúlkur skoruðu hins vegar e...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aim-festival-althjodleg-tonlistarhatid-a-akureyri-sett-med-glaesibrag
AIM Festival, alþjóðleg tónlistarhátíð á Akureyri sett með glæsibrag AIM Festival, alþjóðleg tónlistarhátíð á Akureyri, var sett með glæsibrag fyrr í dag þegar Arngrímur Jóhannsson, flugkappi, dansaði á listflugvél sinni við undirleik vals sem var útvarpað á Rás 2. Fjöldi fólks lagði leið sína niður að Höepfnersbryggju...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarstjorinn-hefur-drepid-staerstu-helgina-i-ferdathjonustu-a-svaedinu
Bæjarstjórinn hefur drepið stærstu helgina í ferðaþjónustu á svæðinu "Bæjarstjórinn á Akureyri hefur, því sem næst upp á sitt einsdæmi, drepið stærstu helgina í ferðaþjónustu á Eyjafjarðarsvæðinu," segir Bragi Bergmann í grein sem birt er hér á vikudagur.is. "Ég harma það sem bæjarbúi og lýsi fullri ábyrgð á hendur bæj...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oddur-oskar-eftir-yfirliti-yfir-allar-launagreidslur-til-baejarfulltrua
Oddur óskar eftir yfirliti yfir allar launagreiðslur til bæjarfulltrúa Oddur Helgi Halldórsson bæjarfulltrúi L-lista, lista fólksins lagði fram erindi á fundi bæjarráðs í morgun, þar sem hann óskar eftir því að fá yfirlit yfir allar greiðslur sem Akureyrarbær hefur greitt bæjarfulltrúum á árinu 2007. "Ég óska eftir að ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aim-festival-althjodleg-tonlistar-hatid-hefst-a-akureyri-i-dag
AIM Festival, alþjóðleg tónlistar- hátíð hefst á Akureyri í dag Opnunaratriði AIM Festival tónlistarhátíðarinnar í dag fimmtudag kl. 16.30, er akróbatískt áhættuatriði þar sem Arngrímur Jóhannsson, flugkappi, dansar vals á listflugvélinni sinni yfir miðbæ Akureyrar. Valsinn var sérstaklega saminn fyrir hátíðina og verð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/flugmal-i-brennidepli-a-adalfundi-atvinnuthrounarfelags-eyjafjardar
Flugmál í brennidepli á aðalfundi Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar Aðalfundur Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar var haldinn á Melum í Hörgárdal í gær. Þema fundarins var "Tækifæri samfara lengingu flugbrautarinnar á Akureyri." Með aðalerindi fór Mattías Imsland, forstjóri Iceland Express. Í erindi Mattíasar sagði hann f...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gert-ad-greida-325-milljonir-krona-i-sekt
Gert að greiða 32,5 milljónir króna í sekt Stjórnarmaður og framkvæmdastjóri einkahlutafélags í Dalvíkurbyggð hefur verið dæmdur í 5 mánaða fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára og að greiða 32,5 milljónir króna sekt til ríkissjóðs vegna meiriháttar brota gegn skattalögum. Greiði maðurinn ekki sektina kemur 9 mánaða ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nokkru-fleiri-ibudir-i-smidum-i-arslok-midad-vid-arid-a-undan
Nokkru fleiri íbúðir í smíðum í árslok miðað við árið á undan Hafin var smíði 329 íbúða á Akureyri á liðnu ári, 2007, eða nokkru fleiri en árið á undan þegar hafin var smíði 293 íbúða. Fullgerðar íbúðir á liðnu ári voru alls 251, 160 urðu fokheldar og alls voru 636 íbúðir í smíðum í árslok 2007. Árið 2006 voru alls í s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/magni-enn-an-stiga
Magni enn án stiga Magni frá Grenivík mátti sætta sig við enn eitt tapið í 2. deild karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu á þriðjudagskvöldið þegar liðið fékk Gróttu í heimsókn. Leikurinn fór vel af stað fyrir Magna og komust þeir tveimur mörkum yfir í leiknum með mörkum frá Ingvari Má Gíslasyni og fyrstu stigin virtust ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/odinn-sopadi-ad-ser-verdlaunum-um-helgina
Óðinn sópaði að sér verðlaunum um helgina Sundfélagið Óðinn frá Akureyri gerði fína ferð á Akranesleikana í sundi sem fram fór um helgina. Óðinn stóð uppi sem stigahæsta félag mótsins auk þess sem Elín Erla Káradóttir var stigahæsti sundmaðurinn. Mótið hefur verið haldið um árabil og er þetta í fyrsta skiptið sem Óðinn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/godur-sigur-ka-manna-i-kvold-en-tap-hja-thor
Góður sigur KA- manna í kvöld en tap hjá Þór KA-menn fengu KS/Leiftur í heimsókn í kvöld í 1. deild karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Heimamenn unnu sætan sigur eftir að hafa verið marki undir í hálfleik. Lokatölur á Akureyrarvellinum 2-1 KA í vil. Á sama tíma tapaði Þór á útivelli gegn Víkingi Ó. í Ólafsvík þar sem...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gattir-throunarverkefni-i-menningartengdri-ferdathjonustu-kynnt
Gáttir – þróunarverkefni í menningartengdri ferðaþjónustu kynnt Á næstu vikum standa Impra á Nýsköpunarmiðstöð og Ferðamálastofa fyrir vinnufundum til að kynna nýtt verkefni í menningartengdri ferðaþjónustu. Verkefnið hefur fengið nafnið Gáttir - þróunarverkefni í menningartengdri ferðaþjónustu. Tveir fundir verða hald...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bjarki-setti-islandsmet
Bjarki setti Íslandsmet Bjarki Gíslason frjálsíþróttamaður úr UFA setti nýtt Íslandsmet í stangarstökki í flokki drengja 17- 18 ára á frjálsíþróttamóti á Laugum um síðustu helgi. Bjarki stökk 4, 45 m og er það bæting á fyrra meti um fimm sentimetra og jafnframt jöfnun á meti í unglingaflokki 19- 20 ára. Þetta er glæsil...