Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.akureyri.is/is/frettir/paskaaevintyri-a-akureyri-1
Páskaævintýri á Akureyri Það er einstakt páskaævintýri framundan á Akureyri. Skíðaparadísin í Hlíðarfjalli tekur vel á móti gestum sínum stórum sem smáum og verður m.a. hægt að hlýða á hina eina sönnu Helenu Eyjólfsdóttur hefja upp raust sína milli þess sem skíðað er niður brekkurnar, tekið þátt í skíðatrimmi o.fl. Hæg...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samfelag-og-rikisvald-hvad-for-urskeidis
Samfélag og ríkisvald: Hvað fór úrskeiðis? Félag áhugafólks um heimspeki, Amtsbókasafnið og Félagsvísinda- og lagadeild Háskólans á Akureyri efna til fyrirlestraraðar á vordögum undir yfirskriftinni "Hrunið og heimspekin". Rýnt verður í íslenskan veruleika samtímans og síðari ára, eftir hrun, með augum heimspekinnar. U...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kainn-kvedinn-a-sigurhaedum
Káinn kveðinn á Sigurhæðum Kvæðamannafélagið Gefjun á Akureyri heldur opinn kyningarfund á Sigurhæðum í kvöld, miðivikudaginn 7. apríl kl. 20. Þar munu félagar kynna kveðanda og rímnakveðskap. Félagið var stofnað fyrir fimm árum og hefur verið jafn stígandi í starfsemi þess. Fundinn ber upp á fæðingardag kímniskáldsins...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hver-vinnur-akureyri
Hver vinnur Akureyri? Annað kvöld kl. 20, fimmtudagskvöldið 8. apríl, verður haldinn borgarafundur í Deiglunni á Akureyri sem helgaður er komandi bæjarstjórnarkosningum og ber yfirskriftina "Hver vinnur Akureyri?" Sérstakir spyrlar hafa verið fengnir til að leggja spurningar fyrir fulltrúa þeirra framboðslista sem sem ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/mest-fjolgun-gistinatta-a-nordurlandi
Mest fjölgun gistinátta á Norðurlandi Gistinætur á hótelum í febrúar síðastliðnum voru 77.100 en voru 72.800 í sama mánuði árið 2009. Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum nema á Austurlandi og Suðurnesjum. Gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á Norðurlandi, úr 4.500 í 5.500 eða um 22% miðað við febrúar 2009. Á h...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nytt-haettumat-vegna-ofanfloda
Nýtt hættumat vegna ofanflóða Hættumatsnefnd Akureyrarbæjar boðar til kynningar á tillögu að nýju hættumati vegna ofanflóða fyrir Akureyri. Kynningin verður haldin í Zontahúsinu, Aðalstræti 54, í dag, fimmtudaginn 8. apríl, kl. 16-19. Tillaga að hættumati verður sýnd á veggspjöldum og drög að greinargerð með hættumatsk...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjorugur-ibuafundur-i-gimsey
Fjörugur íbúafundur í Gímsey Í gærkvöldi var haldinn í Grímsey íbúafundur með bæjarstjóra, samráðsnefnd um málefni Grímseyjar og nokkrum stjórnendum Akureyrarbæjar í félagsheimilinu Múla. Framsögur fluttu Hermann Jón Tómasson, bæjarstjóri á Akureyri, Sigríður Stefánsdóttir, verkefnastjóri og tengiliður við Grímsey, og ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sidustu-syningar-a-39-threpum
Síðustu sýningar á 39 þrepum Hinn geysivinsæli gamanleikur 39 þrep hjá Leikfélagi Akureyrar hefur nú verið sýndur fyrir fullu húsi frá því í janúar. Í þessum nýstárlega og sprenghlægilega spennu-gamanleik takast fjórir hugrakkir leikarar á við 139 hlutverk, í einhverjum hröðustu, mest spennandi og fyndnustu 100 mínútum...
https://www.akureyri.is/is/frettir/athugun-a-thorf-fyrir-lagningu-dalsbrautar-sunnan-thingvallastraetis-mars-2011
Athugun á þörf fyrir lagningu Dalsbrautar - Sunnan Þingvallastrætis. Mars 2010 Samkvæmt gildandi aðalskipulagi Akureyrar er gert ráð fyrir tengibraut milli Miðhúsabrautar og Þingvallastrætis, Dalsbraut, í beinu framhaldi af núverandi Dalsbraut. Markmið þessa verkefnis er að athuga þörf fyrir þennan hluta Dalsbrautar út...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sundlaugartonleikar-i-kvold
Sundlaugartónleikar í kvöld Samband íslenskra framhaldsskólanema stendur fyrir sérstökum tónleikum á bökkum Sundlaugar Akureyrar í kvöld frá klukkan 19.30 til 22.30. Fram koma hljómsveitirnar Bróðir Svartúlfs, Árstíðir, Nammidagur og Yoda Remote. Öll meðferð áfengis eða annarra vímuefna er að sjálfsögðu stranglega bönn...
https://www.akureyri.is/is/frettir/innritun-i-leikskola
Innritun í leikskóla Búið er að senda út rúmlega 160 innritunarbréf vegna leikskóla. Þeir foreldrar sem fá bréf hafa nú 10 daga til að taka ákvörðun um hvort þeir láta innrita börn sín í leikskólana eða ekki. Þeir foreldrar sem ekki fá bréf á næstu dögum, hafa í flestum tilvikum sótt um leikskóla þar sem eftirspurn eft...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ort-staekkandi-ljodahatid-a-akureyri
Ört stækkandi ljóðahátíð á Akureyri Stutt bókmenntahátíð sem ber hið hæverska nafn Litla ljóðahátíðin fer fram á Akureyri helgina 16.?17. apríl. Þetta er í annað sinn sem hátíðin er haldin en í ár koma fram: Sigurður Pálsson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Vilborg Dagbjartsdóttir, Elísabet Kristín Jökulsdóttir, Kristín Ómars...
https://www.akureyri.is/is/frettir/um-skolamotuneyti
Um skólamötuneyti Frambjóðandi til komandi sveitarstjórnakosninga hefur haldið því fram opinberlega að börnum sé mismunað í skólamötuneytum grunnskólanna á Akureyri og að þar gangi sum börn um svöng á meðan önnur fái mat. Hermann Jón Tómasson, bæjarstjóri á Akureyri segir að þetta sé alrangt og vill því koma eftirfaran...
https://www.akureyri.is/is/frettir/salvor-nordal-flytur-fyrirlestur
Salvör Nordal flytur fyrirlestur Í dag klukkan 17.00, fimmtudaginn 15. apríl, heldur Salvör Nordal fyrirlesturinn "Samfélag sérhagsmuna í alþjóðlegu umhverfi" á Amtsbókasafninu á Akureyri. Salvör átti sæti í vinnuhópi um siðferði og starfshætti sem starfaði með rannsóknarnefnd Alþingis og mun fjalla um samfélagslega áb...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ekki-oskufall-a-nordurlandi
Ekki öskufall á Norðurlandi Öskufall frá eldgosinu í Eyjafjallajökli hefur enn sem komið er engin áhrif í Eyjafirði eða á Norðurlandi og samkvæmt veðurspá eru varla teljandi líkur á að svo verði í bráð. Í frétt á vef Landlæknisembættisins er greint frá þeim áhrifum sem öskufall getur haft á menn og dýr. Fréttina má les...
https://www.akureyri.is/is/frettir/volcanic-eruption-in-south-iceland
Volcanic eruption in South Iceland The volcanic eruption in the glacier Eyjafjallajokull in South Iceland is continuing but Icelandic civil protection authorities have the situation as regards public response fully under control. The affected areas have been evacuated and damage has been limited to roads, bridges and o...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hverfandi-likur-a-oskufalli
Hverfandi líkur á öskufalli Hverfandi líkur eru á öskufalli norðanlands næstu daga samkvæmt spá Veðurstofu Íslands sem birtir nú reglulegar öskufallsspár á vef sínum. Vestanáttir hafa verið ríkjandi og öskufall nær hugsanlega allt austur að Höfn innan tíðar. Síðan snýst vindur til afgerandi norðanáttar og dreifist þá u...
https://www.akureyri.is/is/frettir/eyrarpukar-a-sagnastund
Eyrarpúkar á sagnastund Sagnakvöldin á Sigurhæðum hafa notið mikilla vinsælda en fjallað hefur verið um Hafnarstræti, gamla bæinn og Spítalaveg í tvígang og alltaf fullt hús. Brugðið hefur verið upp gömlum og nýjum myndum og talað út frá þeim. Í kvöld, þriðjudaginn 20. apríl kl. 20, verður fjallað um Eyrina, en þeir vo...
https://www.akureyri.is/is/frettir/barnaskemmtun-a-minjasafninu
Barnaskemmtun á Minjasafninu Fjölskyldustemning ríkir á sumardaginn fyrsta á Minjasafninu á Akureyri frá kl. 14-16. Blásarasveit Tónlistaskólans á Akureyri blæs sumarið inn með lúðraþyt. Fulltrúar þeirra pólitísku lista sem bjóða fram á Akureyri munu etja kappi í pokahlaupi. Í næsta mánuði sést svo svart á hvítu hvort ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/glera-fra-stiflu-til-sjavar-tillaga-ad-deiliskipulagi-lokid
Glerá - frá stíflu til sjávar. Tillaga að deiliskipulagi - Lokið Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að deiliskipulagi samþykkt í bæjarstjórn 13. apríl 2010. Skipulagssvæðið nær til Glerár og nánasta umhverfis, frá gömlu brúnni við Sólvan...
https://www.akureyri.is/is/frettir/andresar-andar-leikarnir-35-ara
Andrésar andar leikarnir 35 ára Andrésar andar leikarnir verða settir á Akureyri í 35. sinn í dag, miðvikudaginn 21. apríl. Um 800 keppendur á aldrinum 7?14 ára eru skráðir til leiks og keppt verður í svigi og stórsvigi, göngu bæði hefðbundinni og með frjálsri aðferð að ógleymdri keppni í þrautabraut. Fjölmargir skíðam...
https://www.akureyri.is/is/frettir/breyting-a-gjaldskra-gatnagerdargjalda
Breyting á gjaldskrá gatnagerðargjalda. Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti á fundi sínum þann 13. apríl s.l. breytingu á gjaldskrá gatnagerðargjalda: Vegna stækkunar íbúðarhúss sem er a.m.k. 15 ára skal greiða 40% af venjulegu gatnagerðargjaldi skv. 1.? 5. tl. greinar 4.3 enda nemi stækkunin ekki meira en 30 fermetrum á h...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vorkoma-i-ketilhusinu
Vorkoma í Ketilhúsinu Á sumardaginn fyrsta fer fram árleg Vorkoma Akureyrarstofu. Þar verður tilkynnt hver hlýtur starfslaun listamanns 2010 - 2011 en á síðasta ári urðu fyrir valinu þau Guðný Kristmannsdóttir listmálari og Björn Þórarinsson tónlistarmaður. Á Vorkomunni verða einnig veittar viðurkenningar Menningarsjóð...
https://www.akureyri.is/is/frettir/bjorn-thorlaksson-er-baejarlistamadur
Björn Þorláksson er bæjarlistamaður Vorkoma Akureyrarstofu fór fram í Ketilhúsinu í dag í björtu og fallegu sumarveðri og voru veittar alls sjö viðurkenningar, auk þess sem tilkynnt var um val á bæjarlistamanni Akureyrarbæjar. Það er Björn Þorláksson rithöfundur sem hlýtur starfslaun listamanns í sex mánuði og hyggst h...
https://www.akureyri.is/is/frettir/betri-afkoma-og-meiri-tekjur
Betri afkoma og meiri tekjur Ársreikningar fyrir árið 2009 voru lagðir fram í bæjarráði Akureyrar á miðvikudag. Rekstur A- og B-hluta, fyrir fjármagnsliði, gekk mjög vel og mun betur áætlanir gerðu ráð fyrir. Sjóðsstreymi var einnig mjög gott. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 1.799 milljónir króna e...
https://www.akureyri.is/is/frettir/millilandaflug-um-akureyri
Millilandaflug um Akureyri Mjög aukin umferð hefur verið um Akureyrarflugvöll í morgun og verður svo að líkindum í allan dag þar sem loftrýmið umhverfis Keflavíkur- og Reykjavíkurflugvöll hefur lokast vegna öskuskýs í háloftunum. Tvær þotur voru á vellinum í morgun, ein frá Icelandair og önnur frá Iceland Express, en þ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nr-358-2010-auglysing-um-skipulagsmal-i-akureyrarkaupstad-breyting-a-deiliskipulagi-hafnarsvaedisins-i-krossanesi-og-nytt-deiliskipulag-kirkjugards-a-naustahofda
Nr. 358/2010 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Breyting á deiliskipulagi hafnarsvæðisins í Krossanesi og?nýtt deiliskipulag kirkjugarðs á Naustahöfða. Breyting á deiliskipulagi hafnarsvæðisins í Krossanesi. Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 16. mars 2010 í samræmi við 1. mgr. 26. gr. skipulags- og...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hundrad-thusundasti-gesturinn-i-hlidarfjalli
Hundrað þúsundasti gesturinn í Hlíðarfjalli Síðsta laugardag kl. 14.00 kom 100.000. gesturinn í Hlíðarfjall á þessum vetri. Tíðarfar hefur verið skíðafólki einkar hagstætt: vertíðin hófst 28. nóvember og stendur enn með nægum snjó og góðu skíðafæri. Næsta helgi verður síðasta opnunarhelgin. Þá verður opið föstudaginn 3...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hver-er-stefnan-i-menningarmalum
Hver er stefnan í menningarmálum? Miðvikudaginn 28. apríl boðar Myndlistafélagið á Akureyri til opins fundar með fulltrúum framboðanna til sveitastjórnarkosninga á Akureyri 2010. Fundurinn verður haldinn í Deiglunni og hefst kl. 20.00. Spurt verður spurninga á borð við þessar: Á að selja Ketilhúsið? Er 50% niðurskurður...
https://www.akureyri.is/is/frettir/er-samfelagssattmalinn-brostinn
Er samfélagssáttmálinn brostinn? Fimmtudaginn 29. apríl kl. 17.00 flytur Guðmundur Heiðar Frímannson fyrirlestur í heimspekifyrirlestrarröðinni Hrunið og heimspekin. Erindi Guðmundar nefnist Er samfélagssáttmálinn brostinn? Fyrirlesturinn fer fram á Amtsbókasafninu, Akureyri. Í fyrirlestrinum verða rakin fáein sögulega...
https://www.akureyri.is/is/frettir/1-mai-hlaup-ufa
1. maí hlaup UFA Nú líður að árlegu 1. maí hlaupi UFA sem Greifinn, Sportver, Verkalýðsfélögin og Vífilfell standa að. Í ár verður í fyrsta skipti hlaupið frá nýja vellinum við Hamar í stað þess að hlaupa frá Glerártorgi. Hlaupið er hugsað fyrir alla, byrjendur jafnt sem þá sem lengra eru komnir og einnig fyrir allan a...
https://www.akureyri.is/is/frettir/haengsmotid-i-hollinni
Hængsmótið í Höllinni Hængsmótið, íþróttamót fatlaðra, verður sett 28. sinni í Íþróttahöllinni á Akureyri föstudaginn 30. apríl kl. 11 árdegis. Alls eru um 240 keppendur skráðir til leiks og verður meðal annars keppt í boccia fyrir hreyfihamlaða, þroskahefta og í opnum flokki, einnig í borðtennis og lyftingum. Veglegt ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/1-mai-hatidarholdin-a-akureyri
1. maí hátíðarhöldin á Akureyri Hátíðarhöld á baráttudegi verkalýðsins 1. maí munu að venju setja svip sinn á bæinn með kröfugöngu og skemmtidagskrá fyrir unga sem aldna. Göngufólk safnast saman við Alþýðuhúsið kl. 13.30. Lagt verður upp í kröfugöngu við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar kl. 14.00. Happdrættismiðar verð...
https://www.akureyri.is/is/frettir/100-km-a-thorsvellinum
100 km á Þórsvellinum Þegar Þórsvöllurinn var endurvígður eftir gagngerar breytingar var tekin sú ákvörðun að opna völlinn fyrir almenningi, þ.e. til göngu á hlaupabrautunum. Þetta hefur mælst afar vel fyrir og hefur fólk tekið þessu fegins hendi og æ fleiri mæta daglega á völlinn til að ganga. Einn af mörgum, sem nýti...
https://www.akureyri.is/is/frettir/malthing-um-umhverfismal
Málþing um umhverfismál Málþing um umhverfismál verður haldið á Hótel KEA á Akureyri miðvikudaginn 5. maí frá kl. 14.00-16.30. Yfirskrift þingsins er ?Margt smátt gerir eitt stórt - Hugsaðu hnattrænt og framkvæmdu heima fyrir.? Markmið með málþinginu er að vekja athygli á brýnum málaflokki sem skiptir okkur öll máli. F...
https://www.akureyri.is/is/frettir/frambjodendur-i-naustahverfi
Frambjóðendur í Naustahverfi Hverfisnefnd Naustahverfis, skólaráð Naustaskóla og foreldraráð Naustatjarnar boða til opins kosningafundar allra framboða til bæjarstjórnarkosninga á Akureyri. Þar verða framboðin með erindi um stefnumál sín með áherslu á uppbyggingu Naustahverfis, skóla- og leikskólamál í hverfinu og skip...
https://www.akureyri.is/is/frettir/safnadagurinn-vinsaell
Safnadagurinn vinsæll Hundruð manna lögðu leið sína í söfnin við Eyjafjörð á eyfirska safnadeginum síðastliðinn laugardag. Þetta er í fjórða sinn sem söfnin við Eyjafjörð, átján talsins, sameinast um safnadaginn og mátti nú greina að skapast hefur hefð fyrir þessum degi. Mikil ánægja var meðal gesta með eyfirska safnad...
https://www.akureyri.is/is/frettir/langmest-adsokn-i-hlidarfjall
Langmest aðsókn í Hlíðarfjall Þá er skíðavetrinum lokið og var hann afar misgóður eftir landshlutum. Heildargestafjöldi á skíðasvæðin var 178,548 sem er fækkun frá því veturinn 2008-2009 en þá var aðsókn á skíðsvæðin 249,420 Ein aðalástæðan fyrir fækkuninni var lélegur vetur á skíðsvæðum höfuðborgarsvæðisins og misjafn...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nyjar-einbylishusalodir-i-auglysingu-1
Nýjar einbýlishúsalóðir í auglýsingu. Komnar eru í auglýsingu 16 nýjar einbýlishúsalóðir við Daggarlund. Sex af þessum sextán lóðum eru með nýtingarhlutfall 0,32 af lóðarstærð og á tíu lóðum er hámarksstærð bygginga 230 fermetrar. Lóðirnar eru auglýstar með fyrirvara um byggingarhæfi. Frekari upplýsingar má svo sjá und...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ungir-hriseyingar-skrifa-althingismonnum
Ungir Hríseyingar skrifa Alþingismönnum Nemendur í 7. og 8. bekk Hríseyjarskóla tóku þátt í verkefninu reyklaus bekkur á vegum Lýðheilsustöðvar. Í umræðum og vinnu sem fram fór í tengslum við verkefnið komu unglingarnir fram með þá hugmynd að skrifa þingmönnum þjóðarinnar bréf og leggja til að gera Ísland að reyklausu ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/list-an-landamaera-a-nordurlandi
List án landamæra á Norðurlandi Fyrstu viðburðir norðan heiða á hátíðinni List án landamæra fóru fram um síðustu helgi. Skúlptúrverk Geðlistar sem búið er að koma fyrir á planinu við Safnasafnið á Svalbarðsströnd hefur vakið mikla athygli en hópurinn er búinn að þekja Peugeot bifreið að innan sem utan með gervigrasi og...
https://www.akureyri.is/is/frettir/orkusamfelag-nordursins
Orkusamfélag norðursins Miðvikudaginn 12. maí nk. verður haldin ráðstefna í Ketilhúsinu undir yfirskriftinni "Akureyri - Orkusamfélag norðursins". Ráðstefnan markar upphaf sérstaks átaks á vegum Akureyrarstofu, Grasrótar-Iðngarða og Vinnumálastofnunar til eflingar atvinnulífsins í bænum. Hún er ætluð öllu áhugafólki um...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjorir-radnir-i-menningarhusid-hof
Fjórir ráðnir í Menningarhúsið Hof Menningarhúsið Hof auglýsti í apríl eftir fólki í fjögur störf í Menningarhúsinu. Um er að ræða stöðu umsjónarmans fasteignar, tæknistjóra, markaðsfulltrúa og starf í móttöku og miðasölu. Alls bárust 150 umsóknir um störfin og hefur stjórn Menningarfélagsins unnið úr umsóknum á síðust...
https://www.akureyri.is/is/frettir/laekkud-greidslubyrdi
Lækkuð greiðslubyrði Skuldastaða heimilanna, aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að létta greiðslubyrði og fyrirhugaðar leiðréttingar á höfuðstóli erlendra bílalána eru á meðal þess sem Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra kynnir Akureyringum og nærsveitarmönnum á borgarafundi á Hótel KEA í kvöld, þriðjudagskvöldið 11. ma...
https://www.akureyri.is/is/frettir/handverkssyning-i-hlid
Handverkssýning í Hlíð Hin árlega handverkssýning heimilisfólks og dagþjónustugesta á Öldrunarheimilum Akureyrar verður haldin í Hlíð fimmtudaginn 13. maí, uppstigningardag, frá kl. 13 til 17 og föstudaginn 14. maí frá kl. 13 til 16. Söluhorn verður á staðnum. Á uppstigningardag verður glæsilegt kaffihlaðborð í Hlíð fr...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samid-um-nytt-hjukrunarheimili-a-akureyri
Samið um nýtt hjúkrunarheimili á Akureyri Árni Páll Árnason, félags? og tryggingamálaráðherra, og Hermann Jón Tómasson, bæjarstjóri á Akureyri, undirrituðu í dag tvo nýja samninga ríkisvaldsins og Akureyrarkaupstaðar. Annars vegar er um að ræða samning um fjármögnun og uppbyggingu 45 hjúkrunarrýma á Akureyri sem koma í...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kjarnagata-50-68-tillaga-ad-deiliskipulagsbreytingu-lokid
Kjarnagata 50-68. Tillaga að deiliskipulagsbreytingu - Lokið Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að deiliskipulagsbreytingu samþykkt í bæjarstjórn 4. maí 2010. Um er að ræða deiliskipulagsbreytingu skv. 1. mgr. 26. gr. sömu laga. Skipulag...
https://www.akureyri.is/is/frettir/straumur-burdaras-a-listasafniu
Straumur/burðarás á Listasafniu Laugardaginn 15. maí kl. 15 verður sýningin Straumur/burðarás opnuð í Listasafninu á Akureyri. Myndlistarmennirnir sem verk eiga á henni eru Ingólfur Arnarsson, Ívar Brynjólfsson, Ívar Valgarðsson, Jón Laxdal Halldórsson og Kristján Guðmundsson. Sýningin, sem skartar í flestum tilvikum n...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vorsyning-myndlistaskolans-1
Vorsýning Myndlistaskólans Þrítugasta og sjötta starfsári Myndlistaskólans á Akureyri lýkur með veglegri sýningu á verkum nemenda í húsnæði skólans. Sýnd verða verk nemenda fornámsdeildar, listhönnunar- og fagurlistadeildar. Þar gefur að líta sýnishorn af því helsta sem nemendur hafa verið að fást við í myndlist og hön...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tokum-vel-a-moti-sumrinu-1
Tökum vel á móti sumrinu Akureyrarbær hvetur bæjarbúa til að taka höndum saman við að hreinsa til í bænum eftir veturinn og taka á móti sumrinu með bros á vör. Akureyrarbær mun ekki fjarlægja garðaúrgang frá lóðarmörkum en gámar verða staðsettir í hverfum bæjarins frá 17-25. maí. Staðsetning gámanna verður á eftirtöldu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/menningarveisla-um-helgina-1
Menningarveisla um helgina Það verður mikil menningarveisla í Listagilinu á Akureyri á morgun, laugardag, þegar opnaður verður fjöldi sýninga. Í Listasafninu verður sýningin Straumur/burðarás opnuð kl. 15. Myndlistarmennirnir sem verk eiga á henni eru Ingólfur Arnarsson, Ívar Brynjólfsson, Ívar Valgarðsson, Jón Laxdal ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hamraborgin-og-hamrar
Hamraborgin og Hamrar Í Menningarhúsinu Hofi, sem opnað verður í ágúst, verður afar góð aðstaða fyrir tónleikahald, sviðslistir af mörgum toga, ráðstefnur, fundi, veislur og aðra viðburði. Í húsinu, sem er á þremur hæðum auk kjallara, er einn 500 sæta salur og annar sem er með 200 sætum. Auk þess eru önnur rými sem hen...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nams-og-kynningarferd-til-pollands
Náms- og kynningarferð til Póllands Í lok maí fer starfsfólk Akureyarbæjar sem starfar að tómstundamálum í náms- og kynningarferð til Póllands. Styrkur til fararinnar fékkst frá Evrópusambandinu en það veitir slíka styrki til menningarmála ríkjum sem standa utan EES. Tilgangur ferðarinnar er að vinna með og læra af pól...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kosningafundur-i-beinni
Kosningafundur í beinni Kosningafundur vegna sveitarstjórnakosninganna á Akureyri 29. maí nk. verður í beinni útsendingu á N4 Sjónvarpi í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20.00. Fundurinn verður í sal Brekkuskóla á Akureyri og eru bæjarbúar sérstaklega boðnir velkomnir þangað. Oddvitar flokkanna sitja fyrir svörum, farið ve...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjarsjodur-a-minjasafninu
Fjársjóður á Minjasafninu Laugardaginn 22. maí klukkan 14 verður opnuð á Minjasafninu á Akureyri sýningin "Fjársjóður - tuttugu ljósmyndarar frá Eyjafirði 1858-1965". Sýningin er afrakstur rannsókna Harðar Geirssonar, safnvarðar Minjasafnsins, á ljósmyndaarfi Íslendinga. Uppgötvunum hans á ferðalaginu um leyndardóma lj...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyrarbaer-tryggir-rekstur-gongudeildar-saa-a-akureyri
Akureyrarbær tryggir rekstur göngudeildar SÁÁ?á Akureyri Akureyrarbær og SÁÁ, samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann, hafa gert samstarfssamning um sérhæfða göngudeildarstarfsemi fyrir áfengis- og vímuefnasjúklinga og aðstandendur þeirra sem SÁÁ mun starfrækja á Akureyri á árinu 2010 og 2011. Ennfremur verður...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ungmennarad-akureyrar
Ungmennaráð Akureyrar Nýskipað ungmennaráð Akureyrar hittist í fyrsta skiptið í gær en ráðið tekur formlega til starfa næsta haust. Í ráðinu sitja 11 ungmenni frá grunnskólum bæjarins, framhaldsskólum, ÍBA, skátunum og Ungmenna-Húsinu. Tilgangur og markmið ráðsins er m.a. að þeir sem eru yngri en 18 ára geti fengið að ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skrudganga-ad-hofi
Skrúðganga að Hofi Á morgun kl. 16.00, miðvikudaginn 26. maí, efnir Tónlistarskólinn á Akureyri til skrúðgöngu frá Hvannavöllum 14, þar sem skólinn er nú til húsa, að Menningarhúsinu Hofi í tilefni flutninga skólans þangað. Nemendur eru hvattir til að mæta með hljóðfærin sín að Hvannavöllum kl. 15.30. Trommusveit mun l...
https://www.akureyri.is/is/frettir/villidyr-og-politik-i-samkomuhusinu
Villidýr og Pólitík í Samkomuhúsinu Radíusbræður, Davíð Þór og Steinn Ármann, leiða saman hesta sína á ný í íslenskri útgáfu á víðfrægum uppistandssýningum Ricky Gervais. Hafa þeir gert þessar sýningar að sínum eigin með hjálp leikstjórans Gunnars B. Guðmundssonar sem leikstýrði síðasta áramótaskaupi og kvikmyndinni As...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kosningavefur-fyrir-akureyri
Kosningavefur fyrir Akureyri Kosið verður til bæjarstjórnar á Akureyri eftir þrjá daga. Kjörstaðir í Akureyrarkaupstað eru í Verkmenntaskólanum á Akureyri, Grunnskólanum í Hrísey og félagsheimilinu Múla í Grímsey. Sex listar eru boðnir fram og til kynningar á þeim hefur verið settur upp sérstakur vefur hér á Akureyri.i...
https://www.akureyri.is/is/frettir/breidholt-hesthusahverfi-tillaga-ad-endurskodudu-deiliskipulagi-lokid
Breiðholt, hesthúsahverfi. Tillaga að endurskoðuðu deiliskipulagi - Lokið Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að endurskoðuðu deiliskipulagi, samþykkt í bæjarstjórn 18. maí 2010. Skipulagssvæðið nær til hesthúsahverfisins Breiðholts sem a...
https://www.akureyri.is/is/frettir/styrkir-ur-husverndarsjodi
Styrkir úr Húsverndarsjóði Ákveðið hefur verið að veita 2-3 styrki úr Húsverndarsjóði Akureyrar að upphæð 200-300 þúsund krónur. Sjóðurinn styrkir viðhald á friðuðum húsum og húsum sem hafa varðveislugildi á Akureyri. Umsóknarfrestur er til 3. júní 2010. Þær umsóknir sem hafa borist sjóðnum frá áramótum verða afgreidda...
https://www.akureyri.is/is/frettir/breyting-a-adalskipulagi-akureyrar-2005-2018-breytingar-a-gatnakerfi
Breyting á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018. Breytingar á gatnakerfi. Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 18. maí 2010 samþykkt breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018 vegna tenginga innra gatnakerfis Akureyrar við stofn- og tengibrautir. Tillagan var auglýst frá 17. mars til 28. apríl 2010. Fimm athugase...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tonlistarskolinn-flytur-i-hof
Tónlistarskólinn flytur í HOF Miðvikudaginn 26. maí var farin skrúðganga frá Tónlistarskólanum við Hvannavelli 14 að Menningarhúsinu Hofi. Tilefnið var táknrænn flutningur Tónlistarskólans í Hof þar sem skólaári Tónlistarskólans er að ljúka og næsta skólaár hefst að mestu leyti í nýju húsnæði. Þátttaka í skrúðgöngunni ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyri-a-imex-syningunni-i-frankfurt
Akureyri á IMEX-sýningunni í Frankfurt Í gær lauk einni stærstu kaupstefnu heims um ráðstefnu- og hvataferðir, hinni svonefndu IMEX-sýningu sem haldin er í Frankfurt í Þýskalandi. Fulltrúar Akureyrar höfðu fengið boð um að vera með sýningarpláss þar til að kynna ráðstefnubæinn Akureyri og Menningarhúsið Hof sem "nýjung...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tillaga-ad-breytingu-a-adalskipulagi-akureyrar-2005-2018-breyting-a-akureyrarflugvelli
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018. Breyting á Akureyrarflugvelli. Skipulagsdeild Akureyrarkaupstaðar kynnir, í samræmi við 1. mgr. 17. gr. skipulags- og byggingarlaga, tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018. Breytingin fellst m.a. í að flugvallarsvæðið stækkar úr 102,8 ha í 162 ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/baejarstjornarkosningar-a-akureyri
Bæjarstjórnarkosningar á Akureyri Bæjarstjórnarkosningar fara fram á Akureyri laugardaginn 29. maí 2010 og verður kosið í Verkmenntaskólanum á Akureyri, í Grunnskólanum í Hrísey og í félagsheimilinu Múla í Grímsey. Kjörfundur hefst á kjördag á Akureyri klukkan 9.00 og lýkur honum klukkan 22.00. Í Hrísey og í Grímsey he...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nr-438-2010-auglysing-um-skipulagsmal-i-akureyrarkaupstad-adalstraeti-80
Nr. 438/2010 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Aðalstræti 80 Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 13. apríl 2010 í samræmi við 2. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Innbæinn og fjöruna. Breytingin nær til lóðar nr. 80 við Aðalstræti og felur í sér að skilg...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vorhatid-naustahverfis-2010
Vorhátíð Naustahverfis 2010 Vorhátíð Naustahverfis verður haldin á fimmtudag, 3. júní, og hefst klukkan 16.15 með brekkusöng í Naustaborgum. Þar verður ýmis skemmtun og afþreying á boðstólum fyrir alla fjölskylduna til klukkan 18.00. Meðal þess sem í boði verður er: Þrautabraut Andlitsmálning Stultur, kastveggur o.fl. ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/gestavinnustofa-gilfelagsins
Gestavinnustofa Gilfélagsins Umsóknarfrestur fyrir gestavinnustofu Gilfélagsins á Akureyri árið 2011 rennur út í dag. Gestavinnustofan er staðsett í Listagilinu á Akureyri og samanstendur af vinnuplássi og íverustað og er úthlutað til listamanna í einn til þrjá mánuði í senn. Á þessari heimasíðu, www.artistsstudio.blog...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vidurkenningar-skolanefndar-akureyrarbaejar
Viðurkenningar skólanefndar Akureyrarbæjar Laugardaginn 5. júní boðar skólanefnd Akureyrarbæjar til samkomu í Listasafninu kl. 14.00 þar sem sjö nemendum og átta kennurum og starfsmönnum við skóla Akureyrarbæjar verður veitt viðurkenning fyrir að hafa skarað fram úr í starfi. Þetta er í fyrsta sinn sem skólanefnd stend...
https://www.akureyri.is/is/frettir/thjodin-sendi-myndband
Þjóðin sendi myndband Í dag verður efnt til þjóðarátaks í tengslum við ?Inspired by Iceland?, markaðsátak ferðaþjónustunnar á erlendum mörkuðum. Ætlunin er að virkja íslenskan almenning og fá fólk til þess að vekja jákvæða athygli á Íslandi undir heitinu "Þjóðin býður heim". Átakið minnir á að nú er einmitt rétti tímin...
https://www.akureyri.is/is/frettir/blomakerin-taka-lit
Blómakerin taka lit Blómakerin á Ráðhústorgi fengu á sig sumarlegan og fagran blæ í morgun þegar nemendur í 3., 4. og 5. bekk í Oddeyrarskóla máluðu þau og skreyttu með hlýlegum litum. Það var Brynhildur Kristinsdóttir, myndmenntakennari í Oddeyrarskóla, sem stjórnaði verkinu en að því komu 20-25 nemendur skólans. Nokk...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sjomannadeginum-fagnad-1
Sjómannadeginum fagnað Um helgina verður blásið til hátíðar í útgerðarbænum Akureyri þegar sjómannadeginum verður fagnað með dagskrá sem nær yfir bæði laugardag og sunnudag. Á laugardaginn verður líf og fjör í Sandgerðisbótinni þar sem smátabátaeigendur munu taka á móti gestum og gangandi og á sama stað verður bátavéla...
https://www.akureyri.is/is/frettir/thjonustustefna-akureyrarbaejar-kynnt
Þjónustustefna Akureyrarbæjar kynnt Bæjarstjórinn á Akureyri, Hermann Jón Tómasson, kynnti á föstudag nýja þjónustustefnu fyrir starfsmenn Akureyrarbæjar. Þjónustustefnan var samþykkt í bæjarstjórn Akureyrar í febrúar sl. en meginatriði hennar koma fram í gildunum "fagleg, lipur og traust". Um leið og stefnan var kynnt...
https://www.akureyri.is/is/frettir/serhaefd-fjarmalaradgjof
Sérhæfð fjármálaráðgjöf Akureyrarbær hefur ráðið fjármálaráðgjafa til starfa. Um er að ræða tímabundið verkefni sem unnið er í samvinnu við Vinnumálstofnun. Hlutverk ráðgjafans er sambærilegt við hlutverk Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna, þ.e. að aðstoða fólk í miklum skuldavanda. Ráðgjafinn starfar á skrifstofu Fj...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vinnuskolinn-ad-hefjast
Vinnuskólinn að hefjast Vinnuskóli Akureyrar hefst miðvikudaginn 9. júní nk. vegna skólaslita en það á þó aðeins við um unglinga sem fæddir eru 1995 og 1996, að undanskildum nemendum úr Glerárskóla en þeir byrja í dag, 7. júní, og mæta í fjölmiðlafræðslu í Rósenborg. Árgangur 1995 á að mæta á sína starfsstöð (sinn skól...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vidurkenningar-skolanefndar-akureyrarbaejar-1
Viðurkenningar skólanefndar Akureyrarbæjar Laugardaginn 5. júní sl. bauð skólanefnd Akureyrarbæjar til uppskeruhátíðar í Listasafninu í fyrsta skipti, þar sem veittar voru viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur, starf, áhuga og vilja. Markmiðið er að vekja sérstaka athygli á því sem vel er gert og hvetja þá sem fy...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nr-491-2010-auglysing-um-skipulagsmal-i-akureyrarkaupstad-glerareyrar-1
Nr. 491/2010 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Gleráreyrar 1 Breyting á deiliskipulagi verksmiðjusvæðisins á Gleráreyrum. Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 18. maí 2010 í samræmi við 2. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga, samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir verksmiðjusvæðið á Gleráreyrum....
https://www.akureyri.is/is/frettir/leikskolakennarar-i-heimsokn
Leikskólakennarar í heimsókn Síðasta föstudag komu góðir gestir í heimsókn á leikskólann Flúðir og voru þar einnig á mánudag og þriðjudag. Um var að ræða leikskólakennara frá Englandi, Svíþjóð, Ítalíu, Rúmeníu og Frakklandi sem voru hingað komnir á vegum Comeniusar-verkefnis Evrópusambandsins en Flúðir hafa verið aðila...
https://www.akureyri.is/is/frettir/christina-sunley-a-amtsbokasafninu
Christina Sunley á Amtsbókasafninu Christina Sunley, höfundur skáldsögunnar "Freyjuginningar", les upp úr bók sinni og ræðir við gesti í Amtsbókasafninu miðvikudaginn 9. júní kl. 17.00. Christina er bandarísk, af íslenskum ættum. Bók hennar "The Tricking of Freyja" fékk frábærar viðtökur gagnrýnenda vestan hafs. Bókin ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/palmholt-60-ara
Pálmholt 60 ára Föstudaginn 11. júní fagnar leikskólinn Pálmholt sextíu ára afmæli sínu. Af því tilefni verður opið hús á Pálmholti milli klukkan 15.00 og 17.00 á afmælisdaginn og eru bæjarbúar hvattir til að koma og samfagna með starfsfólki og krökkunum á leikskólanum. Þeir sem eiga minningar frá veru sinni á Pálmholt...
https://www.akureyri.is/is/frettir/17-juni-hatidarholdin-a-akureyri
17. júní hátíðarhöldin á Akureyri Skátafélagið Klakkur sér um hátíðarhöld á 17. júní. Hefðbundin dagskrá hefst í Lystigarðinum klukkan 13 með fánahyllingu, hátíðarávarpi í flutningi Geirs Kristins Aðalsteinssonar oddvita L-listans, bænagjörð og blessun sem Pétur Björgvin Þorsteinsson djákni við Glerárkirkju flytur og K...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kea-uthlutar-5-3-milljonum-krona-ur-haskolasjodi
KEA úthlutar 5,3 milljónum króna úr Háskólasjóði Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA, afhentu 5,3 milljónir króna úr Háskólasjóði KEA við athöfn sem fram fór á Sólborg, húsnæði Háskólans á Akureyri við Norðurslóð 12. júní. Þetta er í áttunda sinn sem úthlutað er úr H...
https://www.akureyri.is/is/frettir/utsynisferdir-um-akureyri
Útsýnisferðir um Akureyri Akureyri City Sightseeing er kostur sem verður í boði í sumar fyrir íbúa og gesti Akureyrar. Um er að ræða útsýnisferð með leiðsögn um bæinn þar sem fólk kaupir sér dagsmiða og getur farið úr og í bílinn aftur á hverri biðstöð. Bíllinn leggur af stað frá Oddeyrarbryggju á klukkutíma fresti frá...
https://www.akureyri.is/is/frettir/solstoduhatid-i-grimsey
Sólstöðuhátíð í Grímsey Sólstöðuhátíð verður haldin í Grímsey um næstu helgi. Þetta er í þriðja sinn sem slíkt hátíð er haldin. Það er kvenfélagið Baugur sem stendur að hátíðinni en hátíðarstjóri er Gísli Sigurgeirsson. Margt verður sér til gamans gert, enda Grímseyingar gestrisnir og góðir heima að sækja. Vegleg ljósm...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skolahatid-ma
Skólahátíð MA Menntaskólanum á Akureyri verður slitið í 130. sinn og stúdentar brautskráðir við hátíðlega athöfn í Íþróttahöllinni á Akureyri fimmtudaginn 17. júní næstkomandi. Athöfnin hefst klukkan 10.00 en hús er opið frá klukkan 9.00. Jón Már Héðinsson skólameistari brautskráir í þetta sinn 183 stúdenta, en þetta e...
https://www.akureyri.is/is/frettir/geir-forseti-baejarstjornar
Geir forseti bæjarstjórnar Geir Kristinn Aðalsteinsson, oddviti Lista fólksins, var kjörinn forseti nýrrar bæjarstjórnar Akureyrar í dag. Hann er einn átta nýliða í bæjarstjórn, þar sem sitja ellefu fulltrúar. L-listinn hefur sex fulltrúa og er fyrsta stjórnmálaaflið sem nær hreinum meirihluta í bæjarstjórn Akureyrar. ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skapandi-sumarstorf-1
Skapandi sumarstörf Í sumar starfa 24 einstaklingar á aldrinum 15-25 ára í svokölluðum "skapandi sumarstörfum" hjá Akureyrarbæ. Unnið er undir leiðsögn flokkstjóra í tveimur hópum, annars vegar 15?16 ára unglinga og hins vegar 17-25 ára. Hlutverk hópanna er að lífga upp á mannlífið í miðbænum og gleðja ferðamenn og bæj...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kvennasoguganga-19-juni
Kvennasöguganga 19. júní Á kvenréttindadaginn 19. júní verður farin "Kvennasöguganga" um Innbæinn. Gangan hefst fyrir framan Minjasafnið kl. 12 og lýkur í Lystigarðinum kl. 14. Um leiðsögn sér Guðrún María Kristinsdóttir, formaður Zontaklúbbs Akureyrar, Hlín Bolladóttir, bæjarfulltrúi, ávarpar göngugesti og boðið verðu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fornar-sagnir-og-spar-i-laxdalshusi
Fornar sagnir og spár í Laxdalshúsi Á þjóðhátíðardaginn opnaði nýtt kaffihús og sögusetur í Laxdalshúsi. Þar uppi á loftinu verður Valgerður H. Bjarnadóttir með sögustundir í sumar. Hún bregður sér í hlutverk landnámskonunnar Þórunnar hyrnu annars vegar og völvunnar Heiðar úr Völuspá hins vegar. Sögustundirnar eru flut...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tjaldsvaedisreitur-vid-thorunnarstraeti-tillaga-ad-deiliskipulagi-lokid
Tjaldsvæðisreitur við Þórunnarstræti. Tillaga að deiliskipulagi - Lokið Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að deiliskipulagi samþykkt í bæjarstjórn 15. júní 2010. Skipulagssvæðið afmarkast af Hrafnagilsstræti í suðri, Byggðavegi í vestri...
https://www.akureyri.is/is/frettir/arctic-open-ad-hefjast
Arctic Open að hefjast Arctic Open golfmótið verður haldið á Jaðarsvelli á Akureyri frá fimmtudegi til laugardags. Arctic Open er alþjóðlegt golfmót sem hefur verið haldið frá árinu 1986 og hafa á fjórða þúsund innlendir og erlendir gestir látið drauminn rætast og tekið þátt í mótinu. Keppendur eru sammála um að það sé...
https://www.akureyri.is/is/frettir/umsaekjendur-um-stodu-baejarstjora
Umsækjendur um stöðu bæjarstjóra Tugir manna sóttu um stöðu bæjarstjóra á Akureyri sem auglýst var laus til umsóknar. Dregist hefur að birta nöfn umsækjenda þar sem nokkrir óskuðu nafnleyndar og var þeim gefinn kostur á að draga umsókn sína til baka áður en listinn yrði birtur. Umsækjendur eru þessir í stafrófsröð: Aða...
https://www.akureyri.is/is/frettir/spitalavegur-einstefna-til-sudurs-fra-tonatrod
Spítalavegur - einstefna til suðurs frá Tónatröð Vakin er athygli á að neðri hluti Spítalavegar er nú einstefnugata til suðurs frá Tónatröð að Lækjargötu. Efri hluti Spítalavegar, frá Eyrarlandsvegi að Tónatröð, er áfram tvísefnugata.
https://www.akureyri.is/is/frettir/uthlutun-ur-vaxtarsamningi-eyjafjardar
Úthlutun úr Vaxtarsamningi Eyjafjarðar Úthlutað var öðru sinni á þessu ári úr Vaxtarsamningi Eyjafjarðar 2008-2010 á aðalfundi Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar sem haldinn var í dag. Sem fyrr var mikil ásókn eftir verkefnaaðild Vaxtarsamnings Eyjafjarðar en alls bárust 14 umsóknir og var óskað samtals eftir ríflega 22,...
https://www.akureyri.is/is/frettir/god-afkoma-lsa-1
Góð afkoma LSA Afkoma Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar (LSA) var góð á árinu 2009 og var hrein raunávöxtun sjóðsins 3,13% samanborið við 0,56% neikvæða raunávöxtun sjóðsins á árinu 2008. Að sögn Kára Arnórs Kárasonar framkvæmdastjóra Stapa lífeyrissjóðs, en Stapi er sér um rekstur sjóðsins, þá var það fyrst og ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/stulknablasarasveit-i-heimsokn
Stúlknablásarasveit í heimsókn Alla næstu viku, 26. júní til 3. júlí, verður stúlknablásarasveit frá vinabæ Akureyrar í Danmörku, Randers, í heimsókn og munu skemmtilegir tónar hennar berast víða um bæinn. Um er að ræða 30 stúlkur á aldrinum 12-25 ára sem skipa hljómsveitina Randers Pigegarde. Þær koma oft fram í Rande...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjolmennasta-knattspyrnumot-sem-hefur-verid-haldid-a-islandi
Fjölmennasta knattspyrnumót sem hefur verið haldið á Íslandi Hið árlega N1-mót KA í knattspyrnu fyrir 5. aldursflokk drengja verður haldið á KA-svæðinu á Akureyri dagana 30. júní ? 3. júlí. Mótið er nú haldið í 24. skipti og hefur aldrei verið fjölmennara. Í mótinu taka þátt um 1500 strákar og með þjálfurum og liðsstjó...
https://www.akureyri.is/is/frettir/saman-i-solinni
?Saman í sólinni? Undanfarin sumur hefur SAMAN hópurinn staðið fyrir ýmsum uppákomum þar sem minnt er á mikilvægi samveru fjölskyldunnar. Í ár verður verður haldin skemmtidagskrá á Akureyri þann 1. júlí nk. Einnig verður efnt til örsögu samkeppni þar sem vegleg verðlaun eru í boði fyrir alla fjölskylduna. Örsögu samkep...