Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.akureyri.is/is/frettir/blodbankabillinn-a-akureyri
Blóðbankabíllinn á Akureyri Blóðbankabíllinn verður á Glerártorgi með blóðsöfnun miðvikudaginn 15. september frá kl. 11.30 til 17.30. Blóðbankinn þarf á 70 blóðgjöfum að halda daglega til að anna eftirspurn heilbrigðistofnanna um allt land. Hægt er að gefa blóð á þremur stöðum: Blóðbankanum Snorrabraut 60 í Reykjavík, ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tillaga-ad-breytingu-a-adalskipulagi-akureyrar-2005-2018-breyting-a-landnotkun-i-landi-hlidarenda
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018. Breyting á landnotkun í landi Hlíðarenda Skipulagsdeild Akureyrarkaupstaðar kynnir, í samræmi við 1. mgr. 17. gr. skipulags- og byggingarlaga, tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018 Breytingin fellst í að afmarkað er 24,5 ha svæði fyrir frístun...
https://www.akureyri.is/is/frettir/gangaganga
Gangaganga Laugardaginn 18. september er áformuð ganga yfir Vaðlaheiði milli væntanlegra gangamunna Vaðlaheiðarganga. Lagt verður af stað í gönguna frá Skógum (gamli Vaðlaheiðarvegurinn) í Fnjóskadal kl 10.30. Vaðlaheiðargöng verða 7,4 km að lengd og gengið verður því nokkuð lengri leið. Fólki er bent á að taka með sér...
https://www.akureyri.is/is/frettir/deiliskipulagsbreyting-fyrir-glerareyrar-1-10
Deiliskipulagsbreyting fyrir Gleráreyrar 1-10 Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 7. september 2010 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir verksmiðjusvæðið á Gleráreyrum. Skipulagssvæðið nær til Gleráreyra 1-10 og felst breytingin m.a. í færslu á gatnamótum við Borgarbraut, lóðastærðum og göngustígum. Tillagan v...
https://www.akureyri.is/is/frettir/leiklist-fyrir-ungt-folk-a-nordurlandi
Leiklist fyrir ungt fólk á Norðurlandi Þjóðleikur er stórt leiklistarverkefni sem haldið er á öllu Norðurlandi í samstarfi við Þjóðleikhúsið og fjölmarga áhugasama aðila. Verkefnið nær til alls Norðurlands, allt frá Bakkafirði til Húnavatnssýslna. Allir hópar mega sækja um að vera með í Þjóðleik, svo lengi sem þeir upp...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nytt-deiliskipulag-fyrir-drottningarbrautarreit
Nýtt deiliskipulag fyrir Drottningarbrautarreit Skipulagsnefnd Akureyrarbæjar hefur samþykkt að setja Drottningarbrautarreit í heildstætt deiliskipulag. Forsaga málsins er sú að 27. maí sl. samþykkti skipulagsnefndin að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Drottningarbrautarreit í miðbæ Akureyrar. Auglýsing dei...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vestnorden-a-akureyri
Vestnorden á Akureyri Vestnorden ferðakaupstefnan stendur nú sem hæst á Akureyri. Kaupstefnan er haldin árlega og hefur mjög mikla þýðingu fyrir ferðamennsku á Íslandi, Grænlandi og í Færeyjum. Annað hvert ár er hún haldin á Íslandi og hin árin til skiptis í umsjón Færeyinga og Grænlendinga. Kaupstefnan var síðast hald...
https://www.akureyri.is/is/frettir/thorsarar-i-urvalsdeild
Þórsarar í úrvalsdeild Þórsarar tryggðu sér sæti úrvaldsdeild með 9:1 sigri gegn Fjarðabyggð á Þórsvelli á laugardag í lokaumferð Íslandsmótsins í 1. deild karla í knattspyrnu. Þórsarar settu upp sýningu fyrir áhorfendur og komu sér upp í úrvalsdeildina með glæsibrag. Á sama tíma lagði Fjölnir Leikni R. 3:1 á Leiknisve...
https://www.akureyri.is/is/frettir/umsoknir-um-verkefnastudning
Umsóknir um verkefnastuðning Umsóknarfrestur um verkefnastuðning frá Vaxtarsamningi Eyjafjarðar rennur út miðvikudaginn 22. september. Allar atvinnugreinar hafa jafna möguleika á stuðningi, uppfylli umsóknir skilyrði og helstu atriði sem lögð eru til grundvallar við mat umsókna. Skilyrði er að um sé að ræða samstarf tv...
https://www.akureyri.is/is/frettir/peningar-myndlist
Peningar + myndlist Fyrsti fyrirlesturinn í fyrirlestraröð listnámsbrautar VMA, Listasafnsins á Akureyri og Menningarmiðstöðvarinnar í Grófargili verður haldinn á föstudaginn, 24. september, kl. 14.50 í Ketilhúsinu. Þá mun Hannes Sigurðsson, listfræðingur, stíga á stokk og fjalla um fjármálagjörninga listheimsins. Erin...
https://www.akureyri.is/is/frettir/rocky-horror-aukasyning
Rocky Horror aukasýning Laugardagskvöldið 25. september kl. 23 verður aukasýning á Rocky Horror í Menningarhúsinu Hofi og er þar um að ræða svokallaða "power sýningu" þar sem allt verður skrúfað í botn. Uppsetningin á verkinu hlýtur einróma lof áhorfenda og hefur verið uppselt á flestar sýningar fram til þessa. Hægt er...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vigdis-finnbogadottir-a-akureyri
Vigdís Finnbogadóttir á Akureyri Í tilefni evrópska tungumáladagsins mun frú Vigdís Finnbogadóttir koma til Akureyrar miðvikudaginn 29. september og heimsækja Menntaskólann á Akureyri og Háskólann á Akureyri. Menntaskólinn hefur frá árinu 2001 haft dagskrá í tilefni að evrópska tungumáladeginum og með margvíslegu móti ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hvada-ahrif-hafa-hedinsfjardargong
Hvaða áhrif hafa Héðinsfjarðargöng? Héðinsfjarðargöng verða opnuð á laugardag. Þau munu gjörbreyta samgöngum á utanverðum Tröllaskaga - en hver verður breytingin? Hvernig verður umferðin í framtíðinni á þessu svæði? Hvaða möguleikar opnast með Héðinsfjarðargöngum? Mun opnun ganganna hafa víðtæk áhrif, t.d. á Akureyri e...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nytt-hotel-a-akureyri
Nýtt hótel á Akureyri Icelandairhótels munu opna nýtt heilsárshótel á Akureyri 1. júní 2011. Félagið hefur gert leigusamning til næstu 20 ára um rekstur heilsárshótels í húsinu að Þingvallastræti 23 en húsið verður endurnýjað og sniðið að þörfum hótelreksturs nú í vetur. Icelandairhótel Akureyri mun bjóða uppá alls 101...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nr-740-2010-auglysing-um-skipulagsmal-i-akureyrarkaupstad-deilliskipulag-breidholts-hesthusahverfis
Nr. 740/2010 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað - Deilliskipulag Breiðholts, hesthúsahverfis Bæjarráð Akureyrarkaupstaðar hefur þann 29. júlí 2010 í samræmi við 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga samþykkt endurskoðað deiliskipulag fyrir Breiðholt, hesthúsahverfi. Með endurskoðun skipulagsins eru ger...
https://www.akureyri.is/is/frettir/metthatttaka-a-radstefnu-um-skolamal
Metþátttaka á ráðstefnu um skólamál Metþátttaka er á ráðstefnunni "Samstarf og samræða allra skólastiga" sem nú er haldin í Íþróttahöllinni, Brekkuskóla og Menntaskólanum á Akureyri. Yfir 1.000 þáttakendur eru skráðir á ráðstefnuna og þykir dagskrárin sérlega áhugaverð. Hér er að finna tengla þar sem má skoða lokaútgáf...
https://www.akureyri.is/is/frettir/dagur-myndlistar
Dagur myndlistar Dagur myndlistar á Íslandi. Undanfarin ár hefur Samband íslenskra myndlistarmanna staðið fyrir Degi myndlistar þar sem gestum og gangandi hefur verið boðið að heimsækja listamenn á vinnustofur þeirra um allt land. Nú er einnig hægt að skoða viðtöl við myndlistarmenn og fá ýmsar upplýsingar á vefsíðunni...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kynningarfundur-um-sorphirdu-og-flokkun-urgangs
Kynningarfundur um sorphirðu og flokkun úrgangs Kynningarfundur fyrir íbúa Lunda- og Gerðahverfis um breytt fyrirkomulag á sorphirðu og flokkun úrgangs í Akureyrarkaupstað verður haldinn í Lundarskóla í kvöld kl. 20.00. Fundurinn hefst strax að loknum aðalfundi hverfisnefndar Lunda- og Gerðahverfis sem verður haldinn k...
https://www.akureyri.is/is/frettir/storafmaeli-hja-la
Stórafmæli hjá LA Leikfélag Akureyrar var stofnað árið 1917 og þann 13. október nk. verður frumsýnd 300. sýning Leikfélagsins. Það er vel við hæfi að frumsýna klassískan gamanleik eftir Nóbelsverðlaunahafann Harold Pinter í tilefni dagsins. Verkið heitir Þögli þjónninn og verður sýnt í Rýminu. Höfundurinn, Harold Pinte...
https://www.akureyri.is/is/frettir/strengjamot-a-akureyri
Strengjamót á Akureyri Helgina 8.?10. október stendur Tónlistarskólinn á Akureyri fyrir strengjamóti á Akureyri. Um 270 nemendur alls staðar af landinu hafa skráð sig til þátttöku og fylgja þeim um 64 foreldrar og farastjórar. Þetta er í 3. sinn sem strengjamótið er haldið en fyrir tveimur árum var það haldið í Reykjan...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samningavidraedur-islands-og-esb
Samningaviðræður Íslands og ESB Í kvöld, fimmtudaginn 7. október kl. 20.00, verður haldinn fundur í Hömrum í Menningarhúsinu Hofi undir yfirskriftinni "Samningaviðræður Íslands og Evrópusambandsins - hver er staðan?" Þar mun Stefán Haukur Jóhannesson, aðalsamningamaður Íslands, gera grein fyrir stöðunni í samningaviðræ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/afram-fritt-i-straeto
Áfram frítt í strætó Frá ársbyrjun 2007 hefur verið frítt í strætó á Akureyri og frá þeim tíma hefur farþegum fjölgað umtalsvert á hverju ári. Samkvæmt upplýsingum Odds Helga Halldórssonar formanns framkvæmdaráðs er gert ráð fyrir því að áfram verði frítt á strætó á Akureyri á næsta ári. Oddur Helgi segir að samkvæmt f...
https://www.akureyri.is/is/frettir/shanghai-akademian-a-akureyri
Shanghaí Akademían á Akureyri Dagana 15.-18. október koma um 30 ungmenni frá Mols í Danmörku í heimsókn til Dalvíkur og Akureyrar og halda sýningar á báðum stöðum. Hópurinn kallar sig "Shanghaí Akademíuna" og hefur farið víða með sýningar sínar, meðal annars til Shanghaí og dregur nafn sitt af því. Sýningar þeirra sama...
https://www.akureyri.is/is/frettir/undirhlid-midholt-tillaga-ad-deiliskipulagsbreytingu-lokid
Undirhlíð - Miðholt?. Tillaga að deiliskipulagsbreytingu - Lokið Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að deiliskipulagsbreytingu. Málsmeðferð er skv. 1. mgr. 26. gr. sömu laga. Deiliskipulagsbreytingin nær til Undirhlíðar 1-3. Tillagan ger...
https://www.akureyri.is/is/frettir/auglysingar-um-skipulagsmal-vid-golfvoll-og-naustahverfi-akureyri-lokid
Auglýsingar um skipulagsmál við golfvöll og Naustahverfi, Akureyri - Lokið Í samræmi við 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018. Golfvöllur að Jaðri Tillagan gerir ráð fyrir að opið svæði til sérstakra nota, 3.1...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ljodalog-jons-hlodvers-2
Ljóðalög Jóns Hlöðvers Fimmtudagskvöldið 14. október kl. 20 verða tónleikar í Hömrum, minni sal Menningarhússins Hofs. Á efnisskrá verða Ljóðalög Jóns Hlöðvers Áskelssonar, m.a. 12 söngvar úr Vísum um drauminn eftir Þorgeir Sveinbjarnarson, auk laga við ljóð eftir Ólaf Hauk Símonarson, Sverri Pálsson, Jón Bjarmann, Sig...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tillaga-ad-breytingu-a-adalskipulagi-akureyrar-2005-2018-svaedi-fyrir-thjonustustofnun-vid-vestursidu
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018. Svæði fyrir þjónustustofnun við Vestursíðu Skipulagsdeild Akureyrarkaupstaðar kynnir, í samræmi við 1. mgr. 17. gr. skipulags- og byggingarlaga, tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018. Breytingin fellst í að skilgreint er 1,8 ha svæði fyrir þjó...
https://www.akureyri.is/is/frettir/thjodleikur-a-nordurlandi
Þjóðleikur á Norðurlandi Þjóðleikur er stórt leiklistarverkefni sem haldið er á öllu Norðurlandi í samstarfi við Þjóðleikhúsið og fjölmarga áhugasama aðila. Verkefnið nær til alls Norðurlands, allt frá Bakkafirði til Húnavatnssýslna. Mjög góð þátttaka er á Norðurlandi og nú hafa 14 hópar sótt um þátttöku í verkefninu. ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/haustverkin-kalla-2
Haustverkin kalla Hefur þú séð hvernig kindahausar eru sviðnir? Hefur þú smakkað reyktan bringukoll, fjallagrasaslátur eða fjallagrasasúpu? Ef ekki þá er tilvalið að leggja leið sína í Gamla bæinn í Laufási laugardaginn 16. október milli kl. 13.30 og 16.00 til þess upplifa gamla tíð með öllum skynfærum. Dagurinn hefst ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ithrottamidstod-vigd
Íþróttamiðstöð vígð Glæsileg íþróttamiðstöð við Giljaskóla hefur nú verið tekin í notkun og gjörbreytir allri aðstöðu ungmenna til fimleika- og íþróttaiðkunar. Á sunnudag kl. 14.00 fer fram formleg vígsla byggingarinnar og er bæjarbúum og öðrum áhugasömum boðið að sjá skemmtiatriði ungra Akureyringa og skoða húsakynnin...
https://www.akureyri.is/is/frettir/um-700-ungmenni-a-landsmoti-aeskulydsfelaga-kirkjunnar
Um 700 ungmenni á Landsmóti æskulýðsfélaga kirkjunnar Í dag hefst á Akureyri Landsmót æskulýðsfélaga og er mótið það stærsta sem haldið hefur verið til þessa. Alls munu um 650 unglingar og sjálfboðaliðar gefa vinnu sína til að styrkja hjálparstarfsverkefni á Indlandi. Verkefnið felst í því að frelsa þrælabörn á Indland...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nr-778-2010-auglysing-um-skipulagsmal-i-akureyrarkaupstad-glerareyrar-1-10-og-granufelagsgata-23-og-nordurgata-11-og-13
Nr. 778/2010 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Gleráreyrar 1-10 og Gránufélagsgata 23 og Norðurgata 11 og 13? Breyting á deiliskipulagi verksmiðjusvæðisins á Gleráreyrum. Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 7. september 2010 í samræmi við 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga samþykkt deiliski...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kynjagleraugu-til-solu
Kynjagleraugu til sölu Um nýliðna helgi bauð Aflið, samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi, til sín ýmsum yfirmönnum Akureyrarbæjar og seldi þeim kynjagleraugun sem eru til styrktar Aflinu hér norðan heiða. Um leið var Kvennafrídagurinn 2010 kynntur en hann verður 25. október nk. þegar konur leggja niður störf frá k...
https://www.akureyri.is/is/frettir/endurnyjun-thingvallastraetis
Endurnýjun Þingvallastrætis Neðsti hluti Þingvallastrætis hefur verið lokaður um nokkurt skeið því verið er að endurnýja allar lagnir undir götunni, um leið og gangstéttar hafa verið lagfærðar sem og ljósastaurar og girðing við Andapollinn að norðan. Fyrr í sumar stóðu yfir miklar framkvæmdir í Kaupvangsstræti og Eyrja...
https://www.akureyri.is/is/frettir/borgarafundur-um-endurskodun-stjornarskrarinnar
Borgarafundur um endurskoðun stjórnarskrárinnar Boðið er til opins borgarafundar um endurskoðun stjórnarskrárinnar í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri á morgun, miðvikudaginn 20. október, kl. 20.00. Til fundarins er boðið af Stjórnlaganefnd og Eyþingi - Sambandi sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum. Nefndarmenn g...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tillaga-ad-breytingu-a-adalskipulagi-akureyrar-2005-2018-landnotkun-i-landi-hlidarenda-lokid
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018. Landnotkun í landi Hlíðarenda - Lokið Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005 ? 2018. Breyting er gerð á landnotkun í landi Hlíðarenda. Afma...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fristundabyggd-med-verslun-og-thjonustu-ad-hlidarenda-tillaga-ad-deiliskipulagi-lokid
Frístundabyggð með verslun og þjónustu að Hlíðarenda -Tillaga að deiliskipulagi - Lokið Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að deiliskipulagi fyrir frístundabyggð með verslun og þjónustu að Hlíðarenda. Skipulagssvæðið liggur norðan Hlíðar...
https://www.akureyri.is/is/frettir/konur-fyrir-konur-i-hofi
Konur fyrir konur í Hofi Annað kvöld, fimmtudagskvöldið 21. október kl. 20.30, verða tónleikarnir "Konur fyrir konur" haldnir í Menningarhúsinu Hofi. Tónleikarnir verða síðan endurteknir í Bergi, menningarhúsinu á Dalvík, föstudaginn 22. október kl. 12.00. Flutt verða tónverk og ljóð eftir konur. Allur aðgangseyrir ren...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vidtalstimar-i-hverfum-baejarins
Viðtalstímar í hverfum bæjarins Kynnt hefur verið áætlun um viðtalstíma bæjarfulltrúa á Akureyri veturinn 2010-2011. Þar kemur fram sú nýbreytni að viðtalstímar fara ekki einungis fram í Ráðhúsi Akureyrarbæjar, heldur einnig í grunnskólum hverfa bæjarins. Bæjarfulltrúar munu jafnframt heimsækja Hrísey og Grímsey og ver...
https://www.akureyri.is/is/frettir/snjoframleidsla-hafin
Snjóframleiðsla hafin Snjóframleiðsla hófst í Hlíðarfjalli síðdegis og verða snjóbyssurnar 10 keyrðar í nótt og vonandi alla næstu daga. Lágt rakastig er nú í Fjallinu og aðstæður til snjóframleiðslu hinar ákjósanlegustu. Stefnt er að því að opna skíðasvæðið í síðasta lagi síðustu helgina í nóvember eða eftir rúman mán...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fyrsti-vetrardagur-a-minjasafninu-2
Fyrsti vetrardagur á Minjasafninu Veistu hvernig þvottur var þveginn fyrir tíð þvottavéla? Vilt þú kynnast Stuttu-Siggu eða heyra um strákapör Ástarbrands? Viltu prófa búning og fara í hnefatafl eða bingó? Fróðleg og forvitnileg skemmtun fyrir alla fjölskylduna verður á Minjasafninu á Akureyri fyrsta vetrardag, laugard...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sidustu-syningar-a-rocky-horror-i-november
Síðustu sýningar á Rocky Horror í nóvember Leikfélag Akureyrar hefur sýnt Rocky Horror fyrir fullu húsi frá 10. september og sýningum lýkur þann 13. nóvember nk. Viðtökur hafa verið með eindæmum góðar, uppselt hefur verið á allar sýningarnar og met slegin í aðsókn og sölu miða. ?Við bjuggumst svo sem við góðum viðtökum...
https://www.akureyri.is/is/frettir/lifandi-laugardagur-a-akureyri
Lifandi laugardagur á Akureyri Það verður skemmtileg stemmning í Listagilinu í dag þegar Listasafnið og galleríin í Gilinu bjóða gesti og gangandi velkomna. Klukkan 15.00 verður opnuð í Listasafninu sýningin "Portrettnú!" þar sem norræn portrettlist er í aðalhlutverki og á sama tíma opnar listakonan Bryndís Arnardóttir...
https://www.akureyri.is/is/frettir/verkefnisstjori-atvinnumala
Verkefnisstjóri atvinnumála Sævar Pétursson hefur verið ráðinn verkefnisstjóri atvinnumála hjá Akureyrarbæ. Starfshópur um atvinnumál mælti með ráðingu hans en umsækjendur voru 48. Sævar er viðskiptafræðingur að mennt frá Háskólanum á Bifröst og lagði auk þess stund á nám í íþrótta- og leiðtogafræðum á Nýja Sjálandi. S...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kvennafridagurinn-a-akureyri
Kvennafrídagurinn á Akureyri Hátt í þúsund konur á öllum aldri tóku þátt í kvennafrídeginum á Akureyri í köldu en góðu veðri. Konur í bænum lögðu niður störf klukkan 14.25 og söfnuðust saman hjá styttunni af Þórunni hyrnu og manni hennar Helga magra á Hamarskotsklöppum. Þaðan var gengið niður í Menningarhúsið Hof þar s...
https://www.akureyri.is/is/frettir/thjodleikur-og-thjodleikhusid
Þjóðleikur og Þjóðleikhúsið Þátttakendur í Þjóðleik á Norðurlandi og Þjóðleik á Austurlandi fjölmenntu á námskeið sem haldið var í Þjóðleikhúsinu um síðustu helgi. Þetta námskeið var sérstaklega ætlað leikstjórum hópanna. Vigdís Jakobsdóttir, deildastjóri fræðsludeildar Þjóðleikhússins, tók á móti hópnum í "Kassanum" á...
https://www.akureyri.is/is/frettir/thrastarlundur-3-5-tillaga-ad-deiliskipulagsbreytingu-lokid
Þrastarlundur 3-5. Tillaga að deiliskipulagsbreytingu - Lokið Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að deiliskipulagsbreytingu. Málsmeðferð er skv. 1. mgr. 26. gr. sömu laga. Deiliskipulagsbreytingin nær til lóðar nr. 3 við Þrastarlund. Til...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sirkus-soley-a-akureyri
Sirkus Sóley á Akureyri Sirkus Íslands setur upp sýninguna Sirkus Sóley í Menningarhúsinu Hofi um næstu helgi en sýningin var sett upp í Salnum í Kópavogi fyrr á árinu við frábærar undirtektir áhorfenda og gagnrýnenda. Og nú er komið að því að skemmta Norðlendingum. Sirkus Sóley er spennandi sirkussýning þar sem fjör o...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nr-809-2010-auglysing-um-skipulagsmal-i-akureyrarkaupstad-fossatun-6-8-kirkjugardur-a-naustahofda-og-fyrir-fosshlid-manahlid-sunnuhlid-og-barmahlid
Nr. 809/2010 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Fossatún 6-8, Kirkjugarður á Naustahöfða og fyrir Fosshlíð, Mánahlíð, Sunnuhlíð og Barmahlíð. Breyting á deiliskipulagi Naustahverfis, 1. áfanga. Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 5. október 2010 í samræmi við 2. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarla...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vetrarkort-i-hlidarfjall-fast-i-hofi
Vetrarkort í Hlíðarfjall fást í Hofi Sala á vetrarkortum á skíðasvæðið í Hlíðarfjalli er hafin í miðasölu Menningarhússins Hofsi. Sérstök tilboðsverð bjóðast á vetrarkortum í miðasölu Hofs fram að opnun skíðasvæðisins; 22.000 kr. fyrir fullorðna og 8.000 kr. fyrir börn. Snjóframleiðsla hófst í Hlíðarfjalli í síðustu vi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ertu-med-goda-hugmynd
Ertu með góða hugmynd? Norðursprotar er verkefni sem styður við nýsköpunarhugmyndir einstaklinga á Norðausturlandi. Nú auglýsir Impra hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, í samvinnu við samfélagssjóð Alcoa og Háskólann á Akureyri, eftir umsóknum frá þeim sem vilja atvinnulíf á svæðinu. Styrkir eru veittir til gerða viðskipta...
https://www.akureyri.is/is/frettir/styrktartonleikar-i-kvold
Styrktartónleikar í kvöld Í kvöld verða haldnir í Menningarhúsinu Hofi styrktartónleikar til stuðnings Sævari Darra Sveinssyni og foreldrum hans. Sævar Darri er 8 ára og greindist með hvítblæði 6. september sl. Hann þurfti undireins að fara í stranga lyfjameðferð til Reykjavíkur og dvelur þar næstu mánuði ásamt foreldr...
https://www.akureyri.is/is/frettir/adalfundur-hverfisnefndar-naustahverfis
Aðalfundur hverfisnefndar Naustahverfis Aðalfundur hverfisnefndar Naustahverfis verður haldinn fimmtudaginn 4. nóvember kl. 20.00 í Naustaskóla (2. hæð). Á dagskrá eru venjubundin aðalfundarstörf og gestir fundarins verða meðal annarra Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri, og Helgi Snæbjarnarson, formaður skipulagsn...
https://www.akureyri.is/is/frettir/styrktartonleikar-aflsins-i-kvold
Styrktartónleikar Aflsins í kvöld Árlegir styrktartónleikar Aflsins, samtaka gegn kynferðis- og heimilisofbeldi, verða haldnir í kvöld, fimmtudagskvöldið 4. nóvember, kl. 20.00 í Akureyrarkirkju. Meðal þeirra sem stíga á stokk eru Karlakór Akureyrar, kór Glerárkirkju, Heimir Ingimarsson, Rúnar Eff, Bryndís Ásmundsdótti...
https://www.akureyri.is/is/frettir/auglysing-um-skipulagsmal-vid-vestursidu-akureyri-lokid
Auglýsing um skipulagsmál við Vestursíðu, Akureyri - Lokið Þjónustustofnun við Vestursíðu ? Breyting á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018 Í samræmi við 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018. Í tillögunni er skil...
https://www.akureyri.is/is/frettir/gonguskidabrautin-opnud
Gönguskíðabrautin opnuð Gönguskíðabrautin í Hlíðarfjalli verður opnuð klukkan 10 í fyrramálið, laugardaginn 6. nóvember. Kveikt verður á flóðlýsingu við brautina til klukkan 10 annað kvöld. Snjóframleiðsla hefur gengið ágætlega efra síðasta sólarhringinn og eru snjóalög orðin þokkaleg. Vonast er til að hægt verði að op...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samstarf-aflsins-og-akureyrarbaejar
Samstarf Aflsins og Akureyrarbæjar Miðvikudaginn 10. nóvember verður undirritaður fjögurra ára samstarfssamningur Aflsins, samtaka gegn kynferðis og heimilisofbeldi, og Akureyarbæjar í húsnæði Aflsins að Brekkugötu 34. Viðstaddir verða bæjarstjóri Akureyrar, velunnarar og starfskonur Aflsins. Samningurinn er þýðingarmi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/uppahaldslog-hymnodiu
Uppáhaldslög Hymnodiu Kammerkórinn Hymnodia heldur tónleika í Hömrum, minni sal Menningarhússins Hofs á Akureyri, fimmtudaginn 11. nóvember kl. 20.00. Hver kórfélagi valdi sitt uppáhaldslag frá eldri tónleikaefnsskrám kórsins. Kórinn var stofnaður árið 2003 og hefur haldið tugi tónleika með afar ólíkri efnisskrá. Það e...
https://www.akureyri.is/is/frettir/minningarhatid-um-matthias
Minningarhátíð um Matthías Fimmtudaginn 11. nóvember eru 175 ár liðin frá fæðingu Matthíasar Jochumssonar, þjóðskálds og heiðursborgara Akureyrar. Af því tilefni verður opið hús á Sigurhæðum á Akureyri frá kl. 15-17 þann dag og hátíðardagskrá í minningu skáldsins í Ketilhúsinu kl. 20.30 um kvöldið. Á Sigurhæðum verður ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/dygd-haustsins-a-siduseli
Dygð haustsins á Síðuseli Vinsemd er dygð haustsins á leikskólanum Síðuseli. Öllum er hollt að tileinka sér þau góðu gildi sem skapa vinsemd á meðal fólks. Það að eiga góðan vin, fá að tilheyra hópi á eigin forsendum og leyfa öðrum að njóta þess sama, er mikilvægur þáttur í jákvæðum samskiptum. Dygðin verður rauður þrá...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sorphirda-i-naustahverfi
Sorphirða í Naustahverfi Kynningarfundur fyrir íbúa Naustahverfis um breytt fyrirkomulag á sorphirðu og flokkun úrgangs í Akureyrarkaupstað verður haldinn í Naustaskóla mánudagskvöldið 15. nóvember kl. 20.00. Formaður umhverfisnefndar, Sigmar Arnarson, fjallar um hið nýja fyrirkomulag, flokkun úrgangs og markmið bæjari...
https://www.akureyri.is/is/frettir/smasagnasamkeppni
Smásagnasamkeppni Áratugur er síðan útilistaverkið Íslandsklukkan eftir Kristinn E. Hrafnsson var vígt en verkið var sigurframlag Kristins í samkeppni sem Akureyrarbær efndi til árið 2000 í tilefni af þúsaldarafmæli kristnitöku og fyrstu ferða Íslendinga til Norður-Ameríku. Í tilefni af 10 ára afmælinu hefur verið efnt...
https://www.akureyri.is/is/frettir/afmaelisdagur-nonna
Afmælisdagur Nonna Á degi íslenskrar tungu, þriðjudaginn 16. nóvember, bjóða Nonnahús og Minjasafnið á Akureyri í opið hús í Ketilhúsinu frá kl. 9.00 til 15.30 fyrir stóra og smáa í tilefni af afmæli barnabókarithöfundarins og jesúítaprestsins Jóns Sveinssonar, Nonna. Þar verður hægt að skoða sýninguna ?Pater Jón Svein...
https://www.akureyri.is/is/frettir/islandsklukkan-a-akureyri
Íslandsklukkan á Akureyri Um næstu helgi, 19.-21. nóvember, heldur Þjóðleikhúsið í leikferð norður yfir heiðar með Íslandsklukkuna. Alls verða þrjár sýningar í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri; kvöldsýningar á föstudegi og laugardegi en á sunnudeginum er sýning kl. 14. Þess uppfærsla Íslandsklukkunnar var frumsýnd þann ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/faekkun-hjukrunarryma-motmaelt
Fækkun hjúkrunarrýma mótmælt Bæjarstjóranum á Akureyri, Eiríki Birni Björgvinssyni, voru í gær afhentir undirskriftalistar með nöfnum 5.963 Akureyringa og nærsveitarmanna, þar sem fyrirhugaðri fækkun hjúkrunarrýma á Öldrunarheimilum Akureyrar er mótmælt. Að auki hafa rúmlega 540 einstaklingar skrifað undir mótmæli á sé...
https://www.akureyri.is/is/frettir/stormot-i-ishokki
Stórmót í íshokkí Um næstu helgi verður sannkallað stórmót í íshokkí haldið í Skautahöllinni á Akureyri þegar 150 keppendur á aldrinum 3ja-11 ára reyna með sér. Helmingur keppenda er frá Skautafélagi Akureyrar en aðrir frá Skautafélagi Reykjavíkur og Birninum. Spilað verður frá kl. 8 til 19 á laugardag og frá 8 til 12....
https://www.akureyri.is/is/frettir/hlidarfjall-opnad-klukkan-16-i-dag
Hlíðarfjall opnað klukkan 16 í dag Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli verður opnað kl. 16 í dag og verður hægt að renna sér þar efra til kl. 19. Á föstudag verður opið frá kl. 14-19 og um helgina frá kl. 10-16. Gott skíðafæri er í Fjallinu, nýr troðinn snjór og hitastig einkar þægilegt eða rétt undir frostmarki. Opið verður í ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/eru-skolarnir-skapandi
Eru skólarnir skapandi? Myndlistarfélagið á Akureyri stendur fyrir málþinginu "Eru skólarnir skapandi?" laugardaginn 20. nóvember kl. 14-17 á veitingastaðnum RUB í Listagilinu. Framsögumenn verða Kristinn G. Jóhannsson, Kristín Dýrfjörð, Ragnheiður Þórsdóttir, Guðmundur Ármann Sigurjónsson og Þorvaldur Þorsteinsson. Ei...
https://www.akureyri.is/is/frettir/heimildarmynd-um-amtsbokasafnid
Heimildarmynd um Amtsbókasafnið Amtsbókasafnið er elsta stofnun Akureyrarbæjar. Það var stofnað 1827 og 200 ára afmæli þess nálgast óðfluga. Bókasafnið á sér merkilega sögu. Það var lengi vel flutt á milli húsa og eitt sinn var það meðal annars í sama húsi og fangelsi á Akureyri. Þá var það einnig í Samkomuhúsinu, leik...
https://www.akureyri.is/is/frettir/haustthing-akureyrarakademiunnar
Haustþing AkureyrarAkademíunnar Haustþing AkureyrarAkademíunnar verður haldið að þessu sinni laugardaginn 27. nóvember kl. 14 til 17. Yfirskrift þess er "Menningin og monningurinn" og verður rætt um hagrænt og samfélagslegt gildi menningarstarfs. Kolbrún Halldórsdóttir, forseti Bandalags íslenskra listamanna, flytur fr...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nr-891-2010-auglysing-um-skipulagsmal-i-akureyrarkaupstad-breyting-a-deiliskipulagi-eyrarlandsholts
Nr. 891/2010 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Breyting á deiliskipulagi Eyrarlandsholts Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 19. október 2010 í samræmi við 2. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Eyrarlandsholt. Breytingin felur í sér að lóð Miðteigs 11 stæ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/handbolti-a-fimmtudag
Handbolti á fimmtudag Akureyri handboltafélag skemmti landsmönnum svo sannarlega í beinni útsendingu á RÚV á laugardaginn með frábærum leik gegn FH. Næsti kafli í ævintýrinu fer fram fimmtudaginn í Höllinni þegar helstu mótherjar liðsins, HK, mæta eftir að hafa hitað upp í Rússlandi um síðustu helgi. Allir þeir sem ske...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ibuar-a-brekku-innbae-og-midbae-athugid
Íbúar á Brekku, Innbæ og miðbæ athugið Kynningarfundur um breytt fyrirkomulag á sorphirðu og flokkun úrgangs í Akureyrarkaupstað verður haldinn í Brekkuskóla fimmtudagskvöldið 25. nóvember kl. 20.00. Dagskráin er svohljóðandi: Breytt fyrirkomulag á sorphirðu og flokkun úrgangs og markmið Akureyrarkaupstaðar í flokkunar...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kea-uthlutar-styrkjum
KEA úthlutar styrkjum Þriðjudaginn 23. nóvember afhentu Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og Halldór Jóhannsson, framkvæmdstjóri KEA, styrki úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA. Þetta er í 77. sinn sem KEA veitir styrki úr sjóðnum og fór úthlutunin fram í Ketilhúsinu á Akureyri. Auglýst var eft...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kosningar-til-stjornlagathings-2010
Kosningar til stjórnlagaþíngs 2010 Á Akureyri er kjörstaður í Verkmenntaskólanum á Akureyri, í Hrísey er kjörstaður í Hríseyjarskóla og í Grímsey er kjörstaður í félagsheimilinu Múla. Akureyrarkaupstað er skipt í fjórtán kjördeildir, tólf á Akureyri, ein í Hrísey og ein í Grímsey. Tíu kjörklefar verða í hverri kjördeil...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ljosin-tendrud-a-jolatrenu
Ljósin tendruð á jólatrénu Í dag verða ljósin tendruð á jólatrénu á Ráðhústorgi og hefst dagskráin klukkan 14.50. Jólatréð er gjöf frá Randers, vinabæ Akureyrar í Danmörku. Dagskráin hefst með því að Stórsveit Tónlistarskólans á Akureyri undir stjórn Alberto Carmona spilar. Barna- og æskulýðskór Glerárkirkju syngur und...
https://www.akureyri.is/is/frettir/breytt-fyrirkomulag-sorphirdu-a-oddeyri
Breytt fyrirkomulag sorphirðu á Oddeyri Kynningarfundur um breytt fyrirkomulag á sorphirðu og flokkun úrgangs í Akureyrarkaupstað verður haldinn í Oddeyrarskóla í kvöld, mánudagskvöldið 29. nóvember, kl. 20.00. Dagskráin er svohljóðandi: Breytt fyrirkomulag á sorphirðu og flokkun úrgangs og markmið Akureyrarkaupstaðar ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vegleg-gjof-til-maedrastyrksnefndar-akureyrar
Vegleg gjöf til Mæðrastyrksnefndar Akureyrar Sjö verkalýðsfélög í Eyjafirði afhentu föstudaginn 26. nóvember sl. Mæðrastyrksnefnd Akureyrar styrk að upphæð kr. 1.820.000. Jóna Berta Jónsdóttir veitti styrknum viðtöku fyrir hönd Mæðrastyrksnefndarinnar. Jóna Berta þakkaði fyrir og sagði að þetta kæmi að góðum notum Hún ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/oa-tilnefnd-til-verdlauna
ÖA tilnefnd til verðlauna Norðurslóðaáætlun 2007-2012 hefur tilnefnt verkefnið Our Life as Elderly II ? öldrunarþjónusta, til RegioStars verðlaunanna. Íslenskir samstarfsaðilar verkefnisins eru Öldrunarheimilin á Akureyri, félagsþjónustan í Hafnarfirði og Heilbrigðisstofnun Suðausturlands en auk þeirra taka þátt Norðme...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjarlogin-kynnt
Fjárlögin kynnt Í kvöld, þriðjudagskvöldið 29. nóvember kl. 20.00, verður haldinn opinn stjórnmálafundur á Hótel KEA. Þar mun Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, gera grein fyrir fjárlögum næsta árs og þingmenn kjördæmisins ræða fjárlögin, efnahagsmál og stjórnmálaástandið. Allir eru hvattir til að mæta og taka...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hatidarhold-1-desember
Hátíðarhöld 1. desember Miðvikudaginn 1. desember verður venju samkvæmt haldið upp á fullveldisdaginn í Háskólanum á Akureyri um leið og því er fagnað að áratugur er liðinn frá því að útilistaverkið Íslandsklukkan eftir Kristinn E. Hrafnsson var vígt og fært Akureyringum að gjöf frá Akureyrarbæ. Í tilefni af 10 ára afm...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ibuar-holta-og-hlidahverfis-athugid
Íbúar Holta og Hlíðahverfis athugið Kynningarfundur um breytt fyrirkomulag á sorphirðu og flokkun úrgangs í Akureyrarkaupstað verður haldinn í Glerárskóla fimmtudagskvöldið 2. desember n.k. kl. 20.00. Dagskrá: Breytt fyrirkomulag á sorphirðu og flokkun úrgangs og markmið Akureyrarkaupstaðar í flokkunar- og endurvinnslu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/stefna-skiptir-yfir-i-rautt
Stefna skiptir yfir í rautt Stefna hugbúnaðarhús hefur starfað frá árinu 2003 og hefur þróað vefumsjónarkerfið Moya. Stefna er með yfir 400 viðskiptavini. Meðal þeirra eru til að mynda Vodafone, Sjúkrahúsið á Akureyri og Saga Fjárfestingarbanki sem hafa nú um árabil notað vefumsjónarkerfið Moya með góðum árangri. Nýjas...
https://www.akureyri.is/is/frettir/adventuveisla-sn-med-diddu-og-pali-oskari
Aðventuveisla SN með Diddú og Páli Óskari Laugardaginn 4. og sunnudaginn 5. desember verða aðventutónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands í Hofi á Akureyri. Einsöngvarar á tónleikunum verða systkinin Diddú og Páll Óskar. Sérstakur gestur tónleikanna er hörpuleikarinn Monika Abendroth en þau Páll Óskar hafa unnið mik...
https://www.akureyri.is/is/frettir/adventusyning-la
Aðventusýning LA Aðventusýning Leikfélags Akureyrar í ár er ?Gegnum holt og hæðir" eftir Herdísi Egilsdóttur. Herdís samdi einnig lögin í sýningunni en Ragnhildur Gísladóttir útsetti. Sýningin er fyrir alla fjölskylduna og var frumsýnd 27. nóvember í Rýminu. Næstu sýningar eru núna um helgina, laugardaginn 4. desember,...
https://www.akureyri.is/is/frettir/mikid-um-ad-vera-um-helgina
Mikið um að vera um helgina Aðventuævintýri á Akureyri hófst um síðustu helgi þegar ljósin voru tendruð á jólatrénu á Ráðhústorgi. Aðventan er einstaklega heillandi tími á Akureyri þegar bærinn klæðist jólabúningi og jólaljósin skreyta bæinn svo úr verður eitt allsherjar Aðventuævintýri. Á boðstólnum eru fjölmargir ske...
https://www.akureyri.is/is/frettir/rocky-horror-aftur-a-fjalirnar
Rocky Horror aftur á fjalirnar Vegna fjölda áskorana hefur verið ákveðið að sýna nokkrar aukasýningar á Rocky Horror og verður fyrsta sýningin föstudaginn 11. febrúar. Sýningafjöldi verður takmarkaður. Metaðsókn var á þennan víðfræga söngleik hjá Leikfélagi Akureyrar nú í haust. Um 12 þúsund gestir sáu sýninguna á tvei...
https://www.akureyri.is/is/frettir/baejarstjorinn-i-hlidarfjalli
Bæjarstjórinn í Hlíðarfjalli Bæjarstjórinn á Akureyri, Eiríkur Björn Björgvinsson, hefur verið á ferð og flugi síðustu vikur að heimsækja deildir og stofnanir bæjarins. Við hittum hann í Hlíðarfjalli föstudaginn 3. desember þar sem Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður skíðasvæðisins, og Kristinn H. Svanbergsson, íþrót...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ljosaganga-og-samstada
Ljósaganga og samstaða Í tilefni af alþjóðlegu 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi verður efnt til ljósagöngu og samstöðu á Ráðhústorgi fimmtudaginn 9. desember. Gengið verður með kyndla frá Akureyrarkirkju kl.16.30-17.00. Þann 25. nóvember var 16 daga átaki gegn kynbundu ofbeldi ýtt úr vör í 19. sinn út um allan heim...
https://www.akureyri.is/is/frettir/jakvaed-rekstrarafkoma
Jákvæð rekstrarafkoma Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2011 var lögð fram í bæjarstjórn Akureyrar í gær. Rekstarafkoma A- og B hluta er áætluð jákvæð um 146,3 milljónir króna eftir fjármagnsliði og tekjuskatt. Fjárhagsáætlunin er sett fram samkvæmt reikningsskilum sveitarfélaga. Starfseminni er skipt upp í tvo ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kea-styrkir-hjalparstarf-kirkjunnar
KEA styrkir Hjálparstarf kirkjunnar Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA, afhenti í gær Hjálparstarfi kirkjunnar á Akureyri 500 þúsund króna peningagjöf sem ætluð er til kaupa á matvælum til styrktar skjólstæðingum hjálparstarfsins. Halldór segir að með þessari gjöf vilji KEA létta undir með því fólki sem þurfi á a...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ibuar-sidu-og-giljahverfa-athugid
Íbúar Síðu- og Giljahverfa athugið Kynningarfundur um breytt fyrirkomulag á sorphirðu og flokkun úrgangs í Akureyrarkaupstað verður haldinn í Síðuskóla fimmtudagskvöldið 9. desember nk. kl. 20.00. Dagskrá er eftirfarandi: Breytt fyrirkomulag á sorphirðu og flokkun úrgangs og markmið Akureyrarkaupstaðar í flokkunar- og ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ljosaganga-og-samstada-2
Ljósaganga og samstaða Í tilefni af alþjóðlegu 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi verður efnt til ljósagöngu og samstöðu á Ráðhústorgi í dag, fimmtudaginn 9. desember. Gengið verður með kyndla og kerti frá Akureyrarkirkju kl.16.30. Hópar og samtök um allan heim hafa nýtt 16 daga átakið til að krefjast aðstoðar og stu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/audgum-lifid
Auðgum lífið Á morgun, föstudaginn 10. desember, verður haldin skemmtun í Vélsmiðjunni til minningar um hjónin Hólmfríði Ósk Jónsdóttur og Ólas Bjarnason en systkini þeirra hafa ákveðið að gefa veglega peningagjöf í minningu þeirra til að auðga líf fólks með fötlun. Er búsetudeild Akureyrarbæjar falið að ráðstafa gjöfi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/glitsky-yfir-baenum
Glitský yfir bænum Allan seinnipartinn í gær sást stórt og glæsilegt glitský á suðvesturhimni yfir Akureyri. Litadýrð skýsins var á köflum afar mikil og virtist hafa nokkur áhrif á birtuna í bænum. "Glitský myndast þegar óvenjukalt er í heiðhvolfinu og eru úr ískristöllum eða úr samböndum ískristalla og saltpétursýru-h...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sidasta-syningarhelgi-i-listasafninu-2
Síðasta sýningarhelgi í Listasafninu Komið er að síðustu sýningarhelgi "PortrettNú!" í Listasafninu á Akureyri. Sýningin er unnin í samstarfi við Fredriksborgarsafn í Danmörku en hér er á ferðinni samnorræn portrettsýning sem fyrst var sett upp árið 2008. Á sýningunni "PortrettNú!" er að finna verk frá öllum Norðurlönd...
https://www.akureyri.is/is/frettir/bjorgulfur-ea-yfir-milljardinn
Björgúlfur EA yfir milljarðinn Björgúlfur EA 312 kom til heimahafnar á Dalvík í dag með fullfermi eða 115 tonn af fiski. Uppistaðan er þorskur sem fer beint til vinnslu í frystihúsinu á Dalvík. Aflaverðmæti í túrnum eru rúmar 25 milljónir króna. Með þessari löndun hefur Björgúlfur veitt fyrir yfir 1.000 milljónir á ári...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kea-styrkir-ka-og-thor-2
KEA styrkir KA og Þór KEA hefur endurnýjað styrktarsamninga við Íþróttafélagið Þór og Knattspyrnufélag Akureyrar. KEA mun áfram verða einn af aðalstyrktaraðilum félaganna en um er að ræða heildarsamninga sem taka til allra deilda félaganna og gilda til eins árs. Halldór Jóhannsson undirritaði samninginn fyrir hönd KEA,...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ys-og-thys-i-hofi
Ys og þys í Hofi Einkar líflegt og jólalegt er í Menningarhúsinu Hofi þessa dagana. Skólatónleikar Tónlistarskólans á Akureyri hafa staðið yfir síðustu daga og í gær voru einir slíkir haldnir en þá hófust einnig æfingar fyrir tónleika Frostrósa með þremur stórum kórum, auk þess sem gestir frá Öldrunarheimilum Akureyrar...
https://www.akureyri.is/is/frettir/listasumar-2011-a-akureyri
Listasumar 2011 á Akureyri Umsóknarfrestur um þátttöku í Listasumri á Akureyri 2011 hefur verið framlengdur til 20. janúar 2011. Tónlistarfólk er séstaklega hvatt til að sækja um. Listasumar mun standa frá 19. júní til 27. ágúst. Umsóknareyðublöð og upplýsingar um skilmála fyrir þátttakendur er að finna á vefsíðunni ht...