Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.akureyri.is/is/frettir/viltu-fara-til-japan
Viltu fara til Japan? Akureyrarbær auglýsir eftir tveimur þátttakendum á aldrinum 15-18 ára til að taka þátt í umhverfisþingi ungs fólks í Sapporo í Japan 2.-7. ágúst 2004. Á þingið kemur ungt fólk víðs vegar af norðurslóðum heimsins til að fræðast og ræða um umhverfismál frá ýmsum hliðum. Markmiðið með þinginu er að g...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vetraroyndi-og-skammdegisthreyta
Vetraróyndi og skammdegisþreyta Nemendur Menntaskólans á Akureyri tóku í dag þátt í könnun Lífeðlisfræðistofnunar Háskóla Íslands á vetraróyndi, fyrstu könnun þessarar tegundar. Jóhann Axelsson prófessor við Háskóla Íslands ávarpaði nemendur í Kvosinni og greindi frá könnuninni og Brynjólfur Ingvarsson læknir á Fjórðun...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fundur-i-menntasmidjunni-fyrir-konur-af-erlendum-uppruna
Fundur í Menntasmiðjunni fyrir konur af erlendum uppruna Í kvöld kl. 20 hittast konur af erlendum uppruna búsettar á Akureyri og Eyjafjarðarsvæðinu í Menntasmiðjunni, Glerárgötu 28, 3. hæð. Fulltrúi frá Samtökum kvenna af erlendum uppruna kemur á fundinn og kynnir samtökin sem voru stofnuð 20. október sl. og er ætlað a...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samningur-um-hreinlaetisvorur-og-pappir
Samningur um hreinlætisvörur og pappír Gengið hefur verið frá samningi Mjallar-Friggjar hf. og Akureyrarbæjar sem kveður á um að næstu þrjú ár kaupa allar stofnanir bæjarfélagsins, deildir og fyrirtæki hreinlætisvörur og pappír (salernispappír, handþurrkur heimilisrúllur, einblöðunga o.fl.) af Mjöll-Frigg. Samningurinn...
https://www.akureyri.is/is/frettir/malthing-um-hannes-hafstein
Málþing um Hannes Hafstein Hvað var svona merkilegt við Hannes Hafstein? Margir hafa spurt sig þessarar spurningar í umræðunni sem hefur spunnist í kringum heimastjórnarafmælið undanfarið og svarið ætti að fást á málþingi um Hannes sem haldið verður í Möðruvallakirkju laugardaginn 14. febrúar kl. 13.30. Þar munu þrír f...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ny-upplysingakerfi-fyrir-akureyrarbae
Ný upplýsingakerfi fyrir Akureyrarbæ Á fundi í bæjarráði Akureyrar í síðustu viku var samþykkt að ganga til samninga við Ríkiskaup um umsjón með útboði á nýju fjárhags- og launakerfi ásamt tengdum hugbúnaðarkerfum fyrir Akureyrarbæ. Ljóst er að um umfangsmikið útboð verður að ræða þar sem Akureyrarbær er eitt af stærst...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hvad-er-umhverfisstjornun-fyrirtaekja
Hvað er umhverfisstjórnun fyrirtækja? Á fimmtudag verður haldinn á Akureyri kynningarfundur um umhverfisstjórnun fyrirtækja og hinn svokallaða "umhverfisvita" (Miljöfyrtårn). Fundurinn er haldinn á Hótel KEA kl. 13-16 og er á vegum náttúruverndarnefndar Akureyrar. Kynningarfundurinn verður settur af Kristjáni Þór Júlíu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/opid-hus-hja-fsa
Opið hús hjá FSA Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri heldur áfram að fagna tvöföldu afmæli sínu og á sunnudag verður sjúkrahúsið sjálft, svo og Kristnesspítali, opið öllum almenningi. Opið verður á sjúkrahúsinu frá kl. 14-16 en á Kristnesi frá 15-17. Boðið verður upp á afmælistertu og kaffi fyrir gesti og starfsfólk. Íbúar...
https://www.akureyri.is/is/frettir/rut-ithrottamadur-arsins-hja-thor
Rut íþróttamaður ársins hjá Þór Rut Sigurðardóttir var kjörin íþróttamaður Þórs fyrir árið 2003 en útnefningin fór fram í hófi í Hamri í vikunni. Rut var jafnframt valin taekwondomaður ársins. Árni Þór Sigtryggsson hafnaði í öðru sæti í kjörinu en hann var valinn handknattleiksmaður ársins. Guðrún Soffía Viðarsdóttir v...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjolgun-ibua-og-aukinn-rekstrarafgangur
Fjölgun íbúa og aukinn rekstrarafgangur Í nýrri þriggja ára áætlun Akureyrarbæjar um rekstur, fjármál og framkvæmdir á árunum 2005-2007 er gert ráð fyrir umtalsverðri fjölgun íbúa og vaxandi rekstrarafgangi. Áframhald verður á þróttmikilli uppbyggingu á innviðum bæjarins og þjónustu við íbúana, ásamt því að á sama tíma...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nytt-utlit-a-vef-haskolans
Nýtt útlit á vef háskólans Opið hús var hjá Háskólanum á Akureyri um helgina og þar opnaði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, meðal annars fyrir nýtt útlit á vef skólans. Deildir háskólans kynntu starfsemi sína og þeir fjölmörgu gestir sem lögðu leið sína á athafnasvæði háskólans gátu skoðað húsa- og t...
https://www.akureyri.is/is/frettir/mannrettindi-vidskipti-og-hnattvaeding
Mannréttindi, viðskipti og hnattvæðing Á lögfræðitorgi í dag veltir Páll Ásgeir Davíðsson upp spurningum um félagslega og mannréttindalega ábyrgð alþjóðafyrirtækja og varpar ljósi á þróun mála á liðnum árum. Myndir af börnum við framleiðslu á íþróttavörum þekktra framleiðanda við ómannúðlegar aðstæður hafa á undanförnu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/verdmaeti-kea-i-kaldbaki-eykst
Verðmæti KEA í Kaldbaki eykst Verðmæti hlutabréfa Kaupfélags Eyfirðinga í Kaldbaki hefur aukist um nærri hálfan milljarð króna frá áramótum en KEA á 27% hlut í Kaldbaki. Stjórn KEA hefur verið boðuð til fundar í dag. Þar verður meðal annars rætt um tilboð sem félaginu hefur borist í hlutabréfin. Helstu eignir Kaldbaks ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyri-a-vetrarhatid-i-reykjavik
Akureyri á Vetrarhátíð í Reykjavík Listamenn frá Akureyri verða þátttakendur í viðamikilli dagskrá Vetrarhátíðar í Reykjavík sem sett verður í dag. Leikfélag Akureyrar sýnir atriði úr "Draumalandinu" í Ingólfsnausti á opnunarkvöldinu kl. 20.40. Sýningin verður svo frumsýnd í Samkomuhúsinu 6. mars nk. um leið og Samkomu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/till-ad-breytingum-a-deiliskipulagi-i-afangi-naustahverfi
Till. að breytingum á deiliskipulagi: I. áfangi Naustahverfis, Íbúðarsvæði við Mýrarveg Akureyrarbær auglýsir hér með skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga 2 tillögur að breytingum á deiliskipulagi: 1 Íbúðarsvæði við Mýrarveg Gerð er tillaga um að bæta við einni lóð fyrir 5 hæða fjölbýlishús norðan lóðarinnar nr. 11...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tru-og-sidur-i-sviptingum-samtimans
Trú og siður í sviptingum samtímans Biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, flutti í hádeginu í dag fyrirlestur fyrir nemendur og starfsfólk Háskólans á Akureyri í salnum í Þingvallastræti 23. Fyrirlesturinn bar heitið Trú og siður í sviptingum samtímans og fjallaði biskup um hlutverk kirkjunnar í nútímasamfélagi og...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skidastadagangan-a-morgun
Skíðastaðagangan á morgun Skíðastaðagangan verður í Hlíðarfjalli á morgun og hefst við Strýtu kl. 14. Gengnir verða 20, 10 og 5 km. Skíðastaðagangan er hluti Íslandsgöngunnar sem er skíðatrimm fyrir alla. Að göngunni lokinni er þátttakendum boðið í kaffi, súkkulaði og kökur í félagsheimili Þórs í Hamri. Þar fer fram ve...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ronja-raeningjadottir-i-freyvangi
Ronja ræningjadóttir í Freyvangi Freyvangsleikhúsið frumsýnir Ronju ræningjadóttur eftir sögu Astrid Lindgren á morgun. Ronja elst upp í Matthíasarborg hjá Lovísu, Matthíasi og ræningjunum hans. Þegar hún verður nógu gömul til að fara út í skóginn þarf hún að takast á við alls kyns hættur, grádverga, rassálfa og skógar...
https://www.akureyri.is/is/frettir/snobbarar-verja-titilinn
Snobbarar verja titilinn Akureyrarfélagið Snobbararnir bar sigur úr býtum í karlaflokki á öldungamóti Þórs í körfubolta á laugardag. Heldri dömur í Íþróttafélag stúdenta Reykjavík hafði sigur í kvennaflokki keppninar en þetta var fyrsta skiptið sem konur taka þátt í mótinu. Þessi stórmerka keppni misungra öldunga var h...
https://www.akureyri.is/is/frettir/strandhogg-i-reykjavik
Strandhögg í Reykjavík Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar stendur fyrir morgunverðarfundi á Grand Hótel í Reykjavík í fyrramálið þar sem kynnt verður rekstrarumhverfi fyrirtækja á Eyjafjarðarsvæðinu, aðgengi að áhættufjármagni og fjárfestingartækifæri. Iðnaðarráðherra Valgerður Sverrisdóttir setur fundinn en að því loknu ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/1100-thatttakendur-a-godamotunum
1.100 þátttakendur á Goðamótunum Fyrsta Goðamót ársins í knattspyrnu verður um helgina á Akureyri og keppa að þessu sinni stúlkur í 3., 4. og 5. flokki víðs vegar af landinu. Flautað verður til leiks í Boganum á föstudag. Unglingaráð knattspyrnudeildar Þórs hleypti mótaröð þessari af stokkunum í fyrravetur, fyrir yngst...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skringilega-klaett-folk
Skringilega klætt fólk Skringilega klædd börn á öllum aldri hafa flykkst um götur Akureyrar í dag. Tilefnið er að sjálfsögðu öskudagurinn og tilgangurinn að syngja út nammi í verslunum og þjónustufyrirtækjum. Meðfylgjandi myndir voru teknar af krökkum sem komu til að syngja í Ráðhúsi Akureyrarbæjar og þáðu sælgæti fyri...
https://www.akureyri.is/is/frettir/afmaelissyningar-a-punktinum
Afmælissýningar á Punktinum Punkturinn á Akureyri varð 10 ára nú fyrir skömmu. Vegna þessara tímamóta verða haldnar sýningar sem sýna þversnið af því sem unnið hefur verið á Punktinum á þessum árum. Fyrsta sýningin opnaði á afmælisdaginn en sýningarnar verða 10 í allt og enda á jólasýningunni. Önnur sýningin, Húsgögn o...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vel-heppnad-strandhogg-i-reykjavik
Vel heppnað strandhögg í Reykjavík Almenn bjartsýni ríkti á morgunverðarfundi sem Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar hélt í Reykjavík í gær undir yfirskriftinni Strandhögg í Reykjavík. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra hóf fundinn og fjallaði um Eyjafjarðarsvæðið sem með bættum samgöngum væri nú orðið eitt atvinnusv...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sjalfstyrkingarnamskeid-fyrir-born-og-unglinga
Sjálfstyrkingarnámskeið fyrir börn og unglinga Vímulaus æska/Foreldrahús í samstarfi við félagssvið Akureyrarbæjar hafa gert með sér samning um að bjóða upp á sjálfstyrkingarnámskeið fyrir börn og unglinga á Akureyri. Umsjón með námskeiðunum hefur Stefanía Elísabet Hallbjörnsdóttir, félagsráðgjafi. Námskeiðin eru fyrir...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fleiri-skemmtiferdaskip
Fleiri skemmtiferðaskip Ljóst er að fleiri skemmtiferðaskip koma til Akureyrar næsta sumar en nokkru sinni áður. Sumarið 2003 komu 45 skip sem samtals voru um 935.000 BT en nú hafa 53 skip tilkynnt komu sína og eru þau samtals hátt í 1300.000 BT. Búast má við að farþegar með þessum skipum verði rúmlega 30.000. Frétt af...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ka-bikarmeistarar-i-handbolta
KA bikarmeistarar í handbolta KA vann stórsigur í úrslitum bikarkeppninnar í handbolta gegn Fram á laugardag með 31 marki gegn 23. Á heimasíðu félagsins segir orðrétt: "Það var mikil spenna í Laugardalshöll í gær þegar KA menn léku í úrslitum bikarkeppninnar gegn Fram. Það var jafnt á með liðununum fyrstu 10 mínúturnar...
https://www.akureyri.is/is/frettir/stjornarskra-stjornmal-eda-logfraedi
Stjórnarskrá: Stjórnmál eða lögfræði? Stjórnarskrá lýðveldisins hefur verið töluvert í umræðunni að undanförnu og sýnist sitt hverjum. Nú þegar sextíu ár eru liðin frá stofnun lýðveldisins hefur enn ekki tekist að endurskoða stjórnarskrána með þeim hætti sem lofað var í aðdraganda lýðveldistofnunarinnar. Í erindi sínu ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/menning-umgjord-umhyggja
Menning, umgjörð, umhyggja Á föstudag verður haldið málþing á Hótel Kea um Evrópuverkefnið "Menning, umgjörð, umhyggja" sem nú er að ljúka en það hefur staðið yfir í rúmt ár. Jafnréttisáætlun Evrópusambandsins fjármagnaði verkefnið að stærstum hluta en Félagsmálaráðuneyti Íslands lagði fram 20% kostnaðar. Markmið verke...
https://www.akureyri.is/is/frettir/songkeppni-ma-i-kvold
Söngkeppni MA í kvöld Söngkeppni Menntaskólans á Akureyri verður haldin í skólanum kl. 20 í kvöld. Anna Katrín Guðbrandsdóttir sigraði í fyrra og sló síðan í gegn í Idol-keppninni. Það verður spennandi að sjá hver verður sigurvegari kvöldsins. Alls eru 23 atriði skráð til keppni og hafa æfingar staðið yfir undanfarna d...
https://www.akureyri.is/is/frettir/menningartengd-ferdathjonusta
Menningartengd ferðaþjónusta Viðbyggingin við Amtsbókasafnið á Akureyri verður vígð á laugardag en á föstudag flytur arkitekt hússins, Guðmundur Jónsson, erindi við Háskólann á Akureyri en hann hefur sérhæft sig í byggingum á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu. Menningartengd ferðaþjónusta er hugtak sem heyrist æ of...
https://www.akureyri.is/is/frettir/menningarvitinn-i-listagilinu
Menningarvitinn í Listagilinu Nýtt umhverfislistaverk eftir Finnboga Pétursson var sett upp á þak Listasafnsins fyrir helgi og ræst með formlegum hætti á sunnudagskvöld. Verkið gengur undir heitinu "Menningarvitinn" og sendir frá sér ljósgeisla í spíral upp frá safninu til himins eftir að rökkva tekur. Verður eflaust þ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tillogur-ad-breytingu-a-adalskipulagi-og-deiliskipulagi-i
Tillögur að breytingu á aðalskipulagi og deiliskipulagi: I. áfangi Naustahverfis - Dvalarheimilið Hlíð og nágrenni Akureyrarbær auglýsir hér með skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga eftirtalda tillögu að breytingu á aðalskipulagi, og skv. 25. og 26. gr. sömu laga eftirtaldar tillögur að deiliskipulagi/breytingu á d...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vigsla-a-laugardag
Vígsla á laugardag Húsnæði Amtsbókasafnsins og Héraðsskjalasafnsins verður vígt í nýrri og endurbættri mynd á laugardag. Starfsfólk safnanna tekur á móti bæjarbúum og gestum þeirra á sunnudag og sýnir nýju húsakynnin. Guðmundur Jónsson arkitekt teiknaði nýja húsið og sagði í ummælum dómnefndar um tillögu hans meðal ann...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kata-ekkjan-i-ketilhusinu
Káta ekkjan í Ketilhúsinu Leikhúskórinn á Akureyri frumsýnir óperettuna Kátu ekkjuna eftir Franz Lehár næsta föstudagskvöld í Ketilhúsinu. Verkið hefur notið mikilla vinsælda um allan heim og er oftlega nefnt "drottning óperettunnar". Leikstjóri á þessari sýningu er Ingunn Jensdóttir en með aðalhlutverk fara Alda Ingib...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tonleikar-med-heru-bjork
Tónleikar með Heru Björk Næsta sunnudag syngur Hera Björk Þórhallsdóttir syngja á tónleikum í Akureyrarkirkju. Tónleikarnir eru liður af Kirkjuviku í Akureyrarkirkju og hefjast kl. 20.30. Hera syngur fjölbreytta tónlist, gospel, spirituals og önnur dægurlög. Með Heru spila hljóðfæraleikararnir Jón Rafnsson á bassa, Vig...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjolmenni-vid-vigslu-vidbyggingar
Fjölmenni við vígslu viðbyggingar Viðbygging við gamla Amtsbókasafnshúsið við Brekkugötu, sem nú hýsir bæði Amtsbókasafn bæjarins og Héraðsskjalasafnið, var vígð að viðstöddu fjölmenni í dag. Fólk var í hátíðarskapi, enda stór dagur í menningarlífi bæjarbúa runninn upp því í kvöld var endurbætt Samkomuhús bæjarins einn...
https://www.akureyri.is/is/frettir/draumalandid-frumsynt-i-betra-samkomuhusi
Draumalandið frumsýnt í betra Samkomuhúsi Leikritið Draumalandið eftir Ingibjörgu Hjartardóttur verður frumsýnt í Samkomuhúsinu á Akureyri í kvöld en miklar framkvæmdir hafa verið við húsið síðustu mánuðina og er það nú sem nýtt. Á heimasíðu Leikfélags Akureyrar segir meðal annars um verkið: Fimmta frumsýning vetrarins...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sogustadir-vid-horgarosa
Sögustaðir við Hörgárósa Í þessum mánuði stendur Gásafélagið fyrir fjórum fræðslukvöldum í Deiglunni undir yfirskriftinni "Sögustaðir við Hörgárósa". Þeir staðir á svæðinu sem verða kynntir eru Gásakaupstaður, Skipalón, Hlaðir og Möðruvellir. Auk kynninga sérfræðinga á sögu staðanna, fornleifauppgreftri á svæðinu og bó...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hundurinn-bassi-i-akureyrarkirkju
Hundurinn Bassi í Akureyrarkirkju Þessa vikuna er Þorsteinn Haukur Þorsteinsson frá Tollgæslunni í Reykjavík ásamt fíkniefnaleitarhundinum Bassa á ferðinni um Norðurland. Í gær hittu þeir félagar fermingarbörn í Akureyrarkirkju en tilgangur heimsóknar þeirra er að fræða krakkana um skaðsemi vímugjafa og er það liður í ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/uppselt-a-draumalandid
Uppselt á Draumalandið Uppselt er á sýningu Leikfélags Akureyrar á Draumalandinu eftir Ingibjörgu Hjartardóttur á föstudagskvöld og örfá sæti laus á laugardagskvöld. Næstu sýningar eru föstudagskvöldið 19. og laugardagskvöldið 20. mars. Góð stemmning var á frumsýningunni um síðustu helgi og flestir leikhúsgestir létu s...
https://www.akureyri.is/is/frettir/allar-heimsins-konur-a-akureyri
Allar heimsins konur á Akureyri Laugardaginn 13. mars kl. 15 verður sýningin "Allar heimsins konur" opnuð í Listasafninu á Akureyri. Á sýningunni eru 176 verk eftir 176 konur frá jafnmörgum löndum, en það er næstum hvert einasta land í heiminum sem hlotið hefur viðurkenningu sem sjálfstætt ríki. Verkefnið er unnið í sa...
https://www.akureyri.is/is/frettir/haettu-adur-en-thu-byrjar
Hættu áður en þú byrjar Alla næstu viku fer forvarna- og fíkniefnafræðslan "Hættu áður en þú byrjar" fram í grunnskólum Akureyrarbæjar. Fræðslan er ætluð nemendum í 9. og 10. bekk og foreldrum þeirra. Sýnd verður mynd sem endurspeglar íslenskan veruleika í fíkniefnaheiminum. Magnús Stefánsson skýrir frá reynslu sinni o...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyri-vesturheimur
Akureyri - Vesturheimur Á laugardag efna Þjóðræknisfélag Íslendinga og Vesturfarasetrið á Hofsósi til kynningarfundar um tengsl Íslendinga og afkomenda vesturfaranna í Deiglunni á Akureyri kl. 11. Fundurinn ber yfirskriftina Gagnkvæm tengsl Íslands og Vesturheims. Mikill áhugi hefur á síðustu árum vaknað á gagnkvæmum h...
https://www.akureyri.is/is/frettir/mikid-um-ad-vera-i-vidilundi
Mikið um að vera í Víðilundi Um áramótin voru gerðar breytingar á tilhögun tómstundatilboða bæjarins fyrir eldri borgara. Megininntak þessara breytinga er að í stað þess að allir geti komið hvenær sem er og fengið kennslu í handverki og leikfimi gegn ákveðnu mánaðargjaldi er nú boðið upp á þjónustu í tvenns konar formi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/born-og-notkun-netsins
Börn og notkun netsins Annað kvöld kl. 20 verður haldin í Lundarskóla svokölluð SAFT-kynning um örugga netnotkun barna á vegum Heimili og skóla - landssamtaka foreldra - í samstarfi við Barnaheill og skóladeild Akureyrarbæjar. Börnin okkar leita í sífellt auknum mæli inn á internetið í leit að afþreyingu og fræðslu en ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hannes-hafstein-og-heimastjornararin-i-eyjafirdi
Hannes Hafstein og heimastjórnarárin í Eyjafirði Á fimmtudag verður opnuð í Amtsbókasafninu á Akureyri sýning á munum og skjölum sem tengjast Hannesi Hafstein og heimastjórnarárunum í Eyjafirði. Halldór Blöndal, forseti Alþingis, opnar sýninguna og um kvöldið flytur Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur, erindi um ævi Hann...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nytt-verklag-vid-baejarstjornarfundi
Nýtt verklag við bæjarstjórnarfundi Í dag var haldinn blaðamannafundur í Ráðhúsi Akureyrarbæjar þar sem kynnt var nýtt verklag við bæjarstjórnarfundi í samræmi við breytta bæjarmálasamþykkt. Þessar breytingar fela meðal annars í sér að nefndir og embættismenn fá aukna heimild til að taka fullnaðarákvarðanir í ýmsum mál...
https://www.akureyri.is/is/frettir/snjorinn-breikkar-brosid
Snjórinn breikkar brosið Snjóað hefur í Hlíðarfjalli í allan dag á meðan það hefur verið rigning eða hálfgerð hundslappadrífa í bænum. Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður í Hlíðarfjalli, er að eigin sögn farinn að brosa út í bæði. Útlitið fyrir skíðafólk var orðið heldur dapurlegt en nú rætist úr. Veðurspáin næstu da...
https://www.akureyri.is/is/frettir/er-barnid-thitt-ad-byrja-i-skola
Er barnið þitt að byrja í skóla? Á fimmtudag og föstudag fer fram skráning 6 ára barna sem hefja grunnskólagöngu á Akureyri næsta haust og þá sömu daga verða foreldrar barna í 1. - 4. bekk sem ætla að nýta sér skólavistun næsta skólaár að skrá börn sín í þá þjónustu. Innritun 6 ára barna (fædd 1998) fer fram í grunnskó...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sigurdur-lindal-kennir-vid-haskolann-a-akureyri
Sigurður Líndal kennir við Háskólann á Akureyri Sigurður Líndal, prófessor emeritus og einn virtasti lögmaður landsins, hefur að undanförnu kennt við Félagsvísinda- og lagadeild Háskólans á Akureyri. Í dag heldur Sigurður erindi á Lögfræðitorgi um "Stjórnskipunarlega stöðu forseta Íslands" og gefst bæjarbúum þá tækifær...
https://www.akureyri.is/is/frettir/butur-af-ofurtogi-fra-baejarstjora
Bútur af ofurtógi frá bæjarstjóra Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, sendi áhöfninni á Baldvin Þorsteinssyni EA-10 og öllu starfsfólki Samherja táknræna sendingu í dag með hamingjuóskum um giftusamlega björgun skipsins. Kortið er tryggilega krækt í bút af ofurtógi sem er að vísu aðeins grennra en það sem n...
https://www.akureyri.is/is/frettir/i-nyju-ljosi-a-evropuari-fatladra
Í nýju ljósi á Evrópuári fatlaðra Á föstudag verður haldið málþing í Ketilhúsinu á Akureyri um málefni fatlaðra sem tengjast lífi okkar allra á einn eða annan hátt. Aðgangur er ókeypis og málþingið er opið öllum sem áhuga hafa á málefnum fatlaðra. Skráning fer fram í síma 460 1000 og lýkur á morgun, 18. mars. Dagskrá: ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/baldvin-thorsteinsson-kominn-a-flot
Baldvin Þorsteinsson kominn á flot Norska dráttarskipinu Normand Mariner tókst að draga fjölveiðiskipið Baldvin Þorsteinsson EA af strandstað í Meðallandsfjöru upp úr klukkan tvö í nótt. Vel gekk að draga skipið og mun dráttarskipið nú vera á leið með Baldvin í togi til Eskifjarðar. Áður en togað var í Baldvin í nótt h...
https://www.akureyri.is/is/frettir/frumsyningar-a-honk-og-sweeney-todd
Frumsýningar á Honk! og Sweeney Todd Það er mikið um að vera í leiklistarlífi framhaldsskólanemenda á Akureyri. Á morgun frumsýnir leikfélag Verkmenntaskólans verkið Honk! Og miðvikudaginn í næstu viku frumsýnir Menntaskólinn spennutryllinn Sweeney Todd. Leikfélag Verkmenntaskólans á Akureyri frumsýnir í kvöld söngleik...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skyrsla-um-hlutfall-rikisstarfa-i-eyjafirdi
Skýrsla um hlutfall ríkisstarfa í Eyjafirði Á hádegisverðarfundi Atvinnuþróunarfélags Eyjarfjarðar í gær kynnti Halldór R. Gíslason samanburðarskýrslu AFE um hlutfall ríkisstarfa í Eyjafirði og á höfuðborgarsvæðinu. Á eftir voru afar líflegar umræður um málefnið. Auk Halldórs töluðu Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri, ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/af-hverju-fa-thau-ekki-vinnu
Af hverju fá þau ekki vinnu? Ráðstefnan Af hverju fá þau ekki vinnu? um stöðu ungs fólks í atvinnuleit verður haldin þriðjudaginn, 23. mars næstkomandi á Hótel KEA. Markmið ráðstefnunnar er að ræða stöðu 16 til 24 ára atvinnuleitenda og möguleika þeirra á að finna nám og störf við hæfi. Fundurinn hefst klukkan 13.00 og...
https://www.akureyri.is/is/frettir/stora-upplestrarkeppnin-1
Stóra upplestrarkeppnin Lokahátíð Stóru upplestarkeppninnar í 7. bekk var haldin í Menntaskólanum á Akureyri fimmtudaginn 18. mars. Að venju var fjölmenni á hátíðinni, m.a. heiðraði bæjarstjórinn keppendur með viðveru sinni. Nemendur í Tónlistarskólanum á Akureyri fluttu tónlist og Sigurlaug Anna Gunnarsdóttir, aðstoða...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ungir-akureyringar-a-leid-til-japan
Ungir Akureyringar á leið til Japan Tveir ungir Akureyringar fara á umhverfisþing ungs fólks í Japan næsta haust á vegum Akureyrarbæjar. Þórunn Edda Magnúsdóttir úr MA og Jón Helgi Sveinbjörnsson úr VMA voru valin úr hópi 19 umsækjenda en þau eru bæði á náttúrufræðibraut. Akureyrarbær auglýsti í febrúar eftir ungmennum...
https://www.akureyri.is/is/frettir/unglist-2004-a-akureyri
Unglist 2004 á Akureyri Listahátíðin Unglist hófst með með frumsýningu sönleiksins Honk! í gryfju VMA á föstudaginn í seinustu viku og stendur yfir til 28. mars næstkomandi. Hátíðin heldur áfram með myndlistarsýningu á Glerártorgi út Unglistarvikuna og fleiri áhugaverðum viðburðum. Vert er að minnast á bílskúrsbandakvö...
https://www.akureyri.is/is/frettir/frumsyningu-sweeney-todd-frestad
Frumsýningu Sweeney Todd frestað Leikfélag Menntaskólans á Akureyri hefur tekið þá ákvörðun að fresta sýningum á spennutryllinum um morðóða rakarann Sweeney Todd fram yfir páska. Frumsýningin verður því fimmtudaginn 15. apríl en ekki á miðvikudag í þessari viku eins og fram kom hér á Akureyrarvefnum. Fyrirsjáanlegt var...
https://www.akureyri.is/is/frettir/felagsvisindatorg-starfsvettvangur-skolasalfraedi
Félagsvísindatorg: Starfsvettvangur skólasálfræði Skólasálfræði er með elstu greinum sálfræðinnar á Íslandi. Greinin hefur tekið breytingum og þróast samhliða samfélagsbreytingum og er talin jafn nauðsynleg nú og hún þótti á bernskudögum sínum í íslensku skólasamfélagi fyrir um hálfri öld. Í erindi sínu á Félagsvísinda...
https://www.akureyri.is/is/frettir/innsyn-i-verold-fatlads-folks
Innsýn í veröld fatlaðs fólks Á morgun gefst Akureyringum öllum kostur á að kynnast daglegu lífi og starfi fatlaðs fólks. Gefin verður innsýn í veröld þeirra með því að hafa opið hús hjá Hæfingarstöðinni við Skógarlund, Plastiðjunni Bjargi-Iðjulundi á Gleráreyrum, Lautinni við Þingvallastræti 32 og Fjölmennt við Hvamms...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sumarstorf-fyrir-17-ara-og-eldri
Sumarstörf fyrir 17 ára og eldri Auglýst hafa verið laus til umsóknar sumarstörf fyrir 17 ára og eldri hjá Akureyrarbæ og rennur umsóknarfrestur út 29. mars. Þær stofnanir og deildir sem um er að ræða eru: Framkvæmdamiðstöð, Sundlaug Akureyrar, leikskólar, gæsluvöllur, Sumarvistun fatlaðra á Árholti, Strætisvagnar Akur...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vel-heppnud-radstefna-um-stodu-ungs-folks-i-atvinnuleit
Vel heppnuð ráðstefna um stöðu ungs fólks í atvinnuleit Í gær var haldin ráðstefna á Hótel KEA um stöðu 16 til 24 ára atvinnuleitenda og möguleika þeirra á að finna nám og störf við hæfi. Á ráðstefnuna mættu um 70 manns og var hún vel heppnuð í alla staði. Meðal þeirra sem fluttu erindi voru Helena Karlsdóttir forstöðu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skidi-og-skoli
Skíði og skóli Þessa dagana er verið að prófa þá nýjung að bjóða öllum nemendum í 5. bekk grunnskólanna á Akureyri upp á skíðakennslu í Hlíðarfjalli þeim að kostnaðarlausu. Kennslan byrjaði mánudaginn 22. mars og stendur til 31. mars. Tekið er á móti nemendum úr tveimur skólum í einu eða 80?90 nemendum, en í allt er hé...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hofundur-eldad-med-elvis-til-akureyrar
Höfundur Eldað með Elvis til Akureyrar Höfundur leikritsins Eldað með Elvis er væntanlegur til Akureyrar og verður viðstaddur hátíðarsýningu á leikriti sínu í Samkomuhúsinu 7. apríl nk. Lee Hall er þekktastur er fyrir leikritin Eldað með Elvis og kvikmyndina Billy Elliot sem hann hlaut Óskarstilnefningu og tvenn Bafta-...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hatidin-skidasveifla-og-snjoalog-hefst-i-kvold
Hátíðin Skíðasveifla og snjóalög hefst í kvöld Fyrir og um páska verður boðið upp á hátíðina Skíðasveifla og snjóalög á Akureyri. Hátíðin samanstendur af 8 fjölbreyttum tónlistarviðburðum og einu mögnuðu erindi um Hringadróttinssögu. Það eru Gilfélagið á Akureyri, Djassklúbbur Akureyrar og Menningardeild Akureyrarbæjar...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sidustu-syningar-katu-ekkjunnar
Síðustu sýningar Kátu ekkjunnar Um helgina fara fram síðustu sýningar Leikhússkórsins á óperettunni Káta ekkjan eftir Franz Lehár. Leikstjóri er Ingunn Jensdóttir og um tónlistina sér Roar Kwam. Verkið hefur fengið afar góða dóma og Leikhúskórnum hefur verið hrósað fyrir glæsilega uppfærslu á óperettunni sem oft er nef...
https://www.akureyri.is/is/frettir/godamot-thors-i-boganum
Goðamót Þórs í Boganum Um helgina fer fram Goðamót Þórs í knattspyrnu og er von á 320 keppendum á aldrinum 9 til 10 ára, 50 fararstjórum auk 200 til 300 manns sem munu fylgjast með mótinu. Leikirnir fara allir fram í Boganum og verða alls 110 leikir leiknir. Öll aðstaða á Þórssvæðinu er tilvalin til móthalds því drengi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/midnaeturdjasstonleikar-i-ketilhusinu
Miðnæturdjasstónleikar í Ketilhúsinu Á laugardag heldur hátíðin Skíðasveifla og snjóalög áfram með Miðnæturdjasstónleikum í Ketilhúsinu klukkn 23.00. Þetta atriði er á vegum Jazzklúbbs Akureyrar en þar leikur hljómsveitin NANÚNA eyrnakonfekt djasstónlistarinnar, m.a. lög eftir Herbie Hancock, Chick Corea og Paquito d'R...
https://www.akureyri.is/is/frettir/leikur-a-radhustorgi
Leikur á Ráðhústorgi Í dag föstudag, mun Ævintýradansleikhúsið og hljóðfærasmiðjan í samvinnu við Frúna í Hamborg, taka höndum saman og leika á Ráðhústorgi klukkan 17. Bæjarbúum á Akureyri er nú þegar kunnugt um Ævintýradansleikhúsið sem þær Anna Richards og Arna Valsóttir hafa starfrækt fyrir börn í allan vetur. Setta...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sol-og-blida
Sól og blíða "Halló! Páskar Akureyri" nefnist hátíð sem verður á Akureyri um páskana. Dagskráin hefst 2. apríl og þar ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi því margt er í boði. Einstakir dagskrárliðir verða kynntir sérstaklega hér á Akureyrarvefnum en vert er að minna á djasstónleika sem verða í Deiglunni á föstud...
https://www.akureyri.is/is/frettir/200-milljonir-i-pottinum
200 milljónir í pottinum Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar og Matvælasetur HA standa fyrir hádegisverðarfundi nk. fimmtudag þar sem Tækniþróunarsjóður verður kynntur í tilefni af fyrstu úthlutun úr þessum nýja sjóði sem er ætlað að efla samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. Í ár hefur sjóðurinn 200 milljónir til ráðstöfu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/undirritun-samnings-milli-haskolans-a-akureyri-og-menntamalaraduneytisins
Undirritun samnings milli Háskólans á Akureyri og menntamálaráðuneytisins Menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og rektor Háskólans á Akureyri, Þorsteinn Gunnarsson, undirrituðu í gær, mánudaginn 29. mars, samning um kennslu og rannsóknir við skólann. Í samningnum birtist stefna stjórnvalda í málefnum hásk...
https://www.akureyri.is/is/frettir/throunarsamvinna-a-krossgotum
Þróunarsamvinna á krossgötum Á félagsvísindatorgi Háskólans á Akureyri verður í dag fjallað um þróunarsamvinnu á krossgötum. Fyrirlesarinn er Sjöfn Vilhelmsdóttir, stjórnmálafræðingur en fyrirlesturinn er að vanda í Þingvallastræti 23, stofu 14 klukkan 16.30 í dag. Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ) er sjálfstæð rík...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skidamotin-i-hlidarfjalli
Skíðamótin í Hlíðarfjalli Dagana 28.-30. mars voru alþjóðleg mót í alpagreinum haldin í Hlíðarfjalli. Keppt var í svigi og stórsvigi karla og kvenna (tvisvar í stórsvigi kvenna). Um var að ræða svonefnd FIS-mót, þar sem keppt er um að lækka FIS-stig, en þau eru mikilvæg fyrir rásröð á skíðamótum og hún ræður miklu um á...
https://www.akureyri.is/is/frettir/uppselt-a-eldad-med-elvis-aukasyningu-baett-vid
Uppselt á Eldað með Elvis - aukasýningu bætt við Leikritið Eldað með Elvis verður frumsýnt á Akureyri 2. apríl og er þegar uppselt á allar fyrirhugaðar sýningar. Ákveðið hefur verið að bæta við aukasýningu fimmtudaginn 8. apríl kl. 16.00. Sala er hafin á miðum á þá sýningu. Leikritið hefur verið sýnt fyrir fullu húsi í...
https://www.akureyri.is/is/frettir/egill-og-trio-bjorns-thoroddsen-i-deiglunni
Egill og Tríó Björns Thoroddsen í Deiglunni Á morgun föstudag mætir Egill Ólafsson, fjölsöngvari og stuðmaður, ásamt Tríói Björns Thoroddsen í Deigluna og flytja söngdagskrá sína tvisvar sinnum, fyrst klukkan 20.30 og svo aftur klukkan 23.00 sama kvöld. Auk Björns leika í tríóinu: Ásgeir Óskarsson á gítar og Gunnar Hra...
https://www.akureyri.is/is/frettir/mars-var-einstakur-a-akureyriis
Mars var einstakur á Akureyri.is Akureyri.is heldur áfram að slá ný met og nýliðinn marsmánuður var einstakur á allan hátt, ekki bara veðurfarslega. Gestir voru 12.616 og flettingar 115.621! Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd þá hafa flettingar á síðunni aukist statt og stöðugt frá því í júní árið 2002 og gestafjöldinn...
https://www.akureyri.is/is/frettir/lokahof-flottamannaverkefnis
Lokahóf flóttamannaverkefnis Félagsmálaráðherra og bæjarstjóri Akureyrar voru viðstaddir lokahóf flóttamannaverkefnisins sem var haldið á Hótel KEA föstudaginn í síðustu viku. Þar voru samankomnar þær sex fjölskyldur sem komu til Akureyrar fyrir rúmu ári auk rúmlega 60 manns sem hafa stutt þetta verkefni. Með lokahofin...
https://www.akureyri.is/is/frettir/big-jump-keppni-i-gilinu-annad-kvold
Big Jump keppni í Gilinu annað kvöld Ak-Extreme snjóbrettamótið er nú hafið í Hlíðarfjalli og á morgun verður, líkt og í fyrra, sérstök Big Jump keppni efst í Gilinu. Í fyrra fylgdust um 3.000 manns með snjóbrettaköppunum leika listir sínar. Það hefur varla farið fram hjá bæjarbúum að risastórum gámum frá Eimskip hefur...
https://www.akureyri.is/is/frettir/snjobretti-i-gilinu-i-kvold
Snjóbretti í Gilinu í kvöld Búið er að flytja snjó úr Hlíðarfjalli í Gilið á Akureyri og er unnið að fullum krafti að undirbúningi snjóbrettasýningarinnar sem verður þar klukkan 9 í kvöld í tengslum við Ak-Extreme. Hitastigið á Akureyri er nú um 12 gráður en til að koma í veg fyrir að snjórinn bráðni of hratt er settur...
https://www.akureyri.is/is/frettir/honnunarsamkeppni-um-menningarhus
Hönnunarsamkeppni um menningarhús Haldinn var blaðamannafundur í Ráðhúsinu á Akureyri í gær þar sem kynnt var hönnunarsamkeppni um menningarhús. Skipuð hefur verið 5 manna dómnefnd til að sjá um samkeppnina og mun hún skila niðurstöðum til menntamálaráðuneytis og Akureyrarbæjar fyrir ágústlok 2004. Hinn 7. apríl 2003 u...
https://www.akureyri.is/is/frettir/starfslaun-listamanna-2004-2005
Starfslaun listamanna 2004 - 2005 Menningarmálanefnd hefur auglýst eftir umsóknum um starfslaun listamanna fyrir tímabilið 1. júní 2004 til 31. maí 2005. Starfslaunum verður úthlutað til tveggja listamanna til 9 mánaða annars vegar og 3 mánaða hins vegar. Ætlast er til að viðkomandi listamaður helgi sig list sinni eða ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/rokktonleikar-a-thridjudagskvold
Rokktónleikar á þriðjudagskvöld Rokkhljómsveitirnar Kanis frá Akureyri og Amos frá Reykjavík ásamt Múskat og Kingstone munu skemmta áhorfendum í Deiglunni annaðkvöld klukkan 20.00. Kanis er skipuð Davíð Þór Helgasyni á bassa, Hjalta Jónssyni á gítar og hann sér einnig um sönginn, Hrafnkeli Brimari Hallmundssyni á gítar...
https://www.akureyri.is/is/frettir/paskar-i-akureyrarkirkju
Páskar í Akureyrarkirkju Að venju verður hátíðleg dagskrá í Akureyrarkirkju um páskana þar sem Pássíusálmarnir verða meðal annars lesnir, efnt til kyrrðarstundar og haldnar almennar messur á upprisuhátíðinni. Klukkan 20.30 á skírdag verður kvöldmessa í Akureyrarkirkju. Prestur er sr. Guðmundur Guðmundsson og organisti ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vaxtarsamningur-eyjafjardarsvaedisins
Vaxtarsamningur Eyjafjarðarsvæðisins Miðvikudaginn 7. apríl verður haldinn á Hótel KEA á Akureyri kynningarfundur um skýrslu Verkefnistjórnar um byggðaáætlun fyrir Eyjafjarðarsvæðið. Í skýrslunni segir m.a. að það sé "mat og framtíðarsýn verkefnisstjórnar að fyrir árið 2020 verði íbúatala Eyjafjarðarsvæðisins um 30.000...
https://www.akureyri.is/is/frettir/menningarhus-keppnislysing
Menningarhús - keppnislýsing Hafin er hönnunarsamkeppni um byggingu menningarhúss á Akureyri og hefur keppnislýsing nú verið send út til þeirra vilja spreyta sig á þessu spennandi verkefni. Gögnin er einnig að finna hér. Á morgun verður liðið slétt ár síðan Tómas Ingi Olrich, þáverandi menntamálaráðherra, og Kristján Þ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/minni-launamunur-kynjanna
Minni launamunur kynjanna Samkvæmt samantekt sem Viðskiptaráðgjöf IBM gerði nýverið fyrir Kópavogsbæ er launamunur kynjanna hjá Akureyrarbæ mun minni en hjá Reykjavíkurborg. Bornar voru saman launakannanir sem nokkur sveitarfélög hafa látið gera á síðastliðnum árum og er könnun Akureyrarbæjar sú elsta en hún var gerð 1...
https://www.akureyri.is/is/frettir/aldurshopurinn-0-til-19-ara-hlutfallslega-staerstur-a-akureyri
Aldurshópurinn 0 til 19 ára hlutfallslega stærstur á Akureyri Í skýrslu Hagstofunnar kemur fram að aldurshópurinn 0 til 19 ára er hlutfallslega stærstur á Akureyri en á landinu öllu. Einnig er aldursflokkkurinn 0 til 9 ára stærstur hér eða 7% stærri en annarsstaðar á landinu. Eðlilega er aldurshópurinn 70 til 99 ára st...
https://www.akureyri.is/is/frettir/uthlutun-leikskolaplassa-fyrir-skolaarid-2004-ndash-2005
Úthlutun leikskólaplássa fyrir skólaárið 2004–2005 Börnum stendur til boða leikskólapláss árið sem þau verða 2ja ára og aðalúthlutun fyrir næsta skólaár hefst eftir 15. apríl nk. Þeir foreldrar sem hafa hug á að nýta pláss í leikskólum Akureyrar fyrir börn sín næsta skólaár og hafa ekki sótt um slíkt er bent á að umsók...
https://www.akureyri.is/is/frettir/soroptimistakonur-og-baekurnar
Soroptimistakonur og bækurnar Nær allar vikur ársins sækja konur úr Soroptimistaklúbbi Akureyrar bækur á Amtsbókasafnið og keyra heim til aldraðra og þeirra sem eiga ekki heimangengt. Þetta hafa þær gert í sjálfboðavinnu síðastliðin 22 ár og það er til marks um umfang þessarar starfsemi að árið 2003 keyrðu þær heim til...
https://www.akureyri.is/is/frettir/midjan-er-undir-iljum-thinum
Miðjan er undir iljum þínum Út er komin á vegum Háskólans á Akureyri bókin "Miðjan er undir iljum þínum - héraðsfréttablöð og nærumfjöllun á nýrri öld" eftir Birgi Guðmundsson, aðjunkt við skólann. Í bókarkynningu segir: "Umræðan um nauðsyn fjölbreytni í fjölmiðlum hefur verið kröftug á Vesturlöndum undanfarin ár og ma...
https://www.akureyri.is/is/frettir/margret-jonsdottir-leirlistakona-opnar-gallery
Margrét Jónsdóttir leirlistakona opnar gallerý Á morgun, skírdag, opnar leirlistarkonan Margrét Jónsdóttir sölu- og sýningarsal í Gránufélagsgötu 48. Þar verða nytja- og listmunir hennar til sýnis og sölu auk þess sem hún hyggst leigja salin út til annarra listamanna fyrir stuttsýningar. Opnun sýningarsalarins verður k...
https://www.akureyri.is/is/frettir/radstefna-um-sjalfraedi-og-sjalfstaedi
Ráðstefna um sjálfræði og sjálfstæði Á föstudaginn kemur verður haldin ráðstefna á Fiðlaranum á Akureyri um sjálfræði og sjálfstæði með sérstakri vísan til fólks með fötlun og annarra sem þurfa þjónustu og aðstoð opinberra aðila og fjölskyldu til að ráða fram úr daglegum viðfangsefnum. Að ráðstefnunni standa Félagssvið...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vaxtarsamningur-og-klasar
Vaxtarsamningur og klasar Á miðvikudag var haldinn fundur á Hótel KEA þar sem Verkefnisstjórn um byggðaáætlun fyrir Eyjafjarðarsvæðið kynnti lokaskýrslu sína og niðurstöður. Þar er meðal annars lagt til að gerður verði svokallaður vaxtarsamningur fyrir árin 2004 til 2007 sem byggist á nýjum aðferðum við að styrkja hagv...
https://www.akureyri.is/is/frettir/salubot-i-glerarkirkju
Sálubót í Glerárkirkju Söngfélagið Sálubót heldur tónleika í Glerárkirkju á miðvikudag kl. 20.30. Með hópnum syngur fólk úr sveitum Suður-Þingeyjarsýslu og frá Húsavík og Akureyri. Það hittist til æfinga að meðaltali einu sinni í viku yfir veturinn í Stórutjarnaskóla. Félagið hefur starfað af miklum krafti í bráðum 11 ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sumarvinna-16-ara-unglinga
Sumarvinna 16 ára unglinga Unglingum fæddum 1988 er gefinn kostur á að sækja um 6 vikna vinnu í sumar hjá Akureyrarbæ, 7 tíma á dag eða samtals 210 vinnustundir. Umsóknum skal skilað í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar dagana 15. og 16. apríl frá kl. 9 til 16. Vinna 14 og 15 ára unglinga verður með svipuðum hætti og síðas...
https://www.akureyri.is/is/frettir/menningarveisla-a-glerartorgi
Menningarveisla á Glerártorgi Kaupfélag Eyfirðinga býður til menningarveislu í verslunarmiðstöðinni Glerártorgi á laugardaginn kemur og hefst dagskráin kl. 13.30. KEA svf. efndi í fyrsta skipti í fyrra til slíkrar menningarhátíðar á Glerártorgi og tókst hún einstaklega vel. Fullt var út úr dyrum og var það mál húsvarða...