Search is not available for this dataset
url stringlengths 21 288 | text stringlengths 1 1.35M |
|---|---|
https://www.akureyri.is/is/frettir/skida-konur-odruvisi-en-karlar | Skíða konur öðruvísi en karlar?
Einn þekktasti skíðakennari heims, Jeannie Thoren, heldur námskeið fyrir konur í Hlíðarfjalli nú um helgina. Hún var með námskeið þar í lok apríl árið 2002 og voru þátttakendur afar ánægðir. Jeannie Thoren hefur undanfarna áratugi aflað sér mikillar virðingar í skíðaheiminum fyrir rannsó... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/umtalsverdur-sparnadur-vid-utsendingu-greidslusedla | Umtalsverður sparnaður við útsendingu greiðsluseðla
Gutenberg ehf. hefur samið við Akureyrarbæ og orkufyrirtækið Norðurorku hf. á Akureyri um prentun og dreifingu á innheimtuseðlum, launaseðlum og öðrum föstum fjöldasendingum með svokölluðum ePósti. Með þessum samningi næst umtalsverð hagræðing og sparnaður hjá Akureyr... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/islenskir-haskolar-kynntir-a-akureyri | Íslenskir háskólar kynntir á Akureyri
Næsta laugardag verður haldin í húsakynnum Háskólans á Akureyri sameiginleg kynning á námsframboði allra skóla á Háskólastigi á Íslandi. Háskólar landsins hafa um nokkurt skeið haft samvinnu um að kynna námsframboð á háskólastigi á Íslandi og hafa kynningar af þessu tagi verið hald... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/jafnrettisstefnan-i-oll-hus-a-morgun | Jafnréttisstefnan í öll hús á morgun
Nýútgefinni jafnréttisstefnu Akureyrarbæjar verður dreift á öll heimili á Akureyri á morgun. Jafnréttisstefnan takmarkast við jafnrétti kynjanna líkt og fyrri áætlanir bæjarins í jafnréttismálum og tekur mið af lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 96/2000. Ný jafn... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/andresar-andar-leikarnir-2004 | Andrésar Andar leikarnir 2004
Andrésar Andar leikarnir á skíðum verða haldnir í Hlíðarfjalli um helgina en setningarathöfn fer fram á miðvikudag, síðasta vetrardag. Aflýsa varð þessu skemmtilega skíðamóti í fyrra og útlitið í ár var ekki bjart núna í byrjun apríl. En úr hefur ræst með dágóðri snjókomu og eru aðstæður g... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/vortonleikar-2004 | Vortónleikar 2004
Árlegir vortónleikar Karlakórs Akureyrar Geysis verða haldnir miðvikudaginn 21. apríl og föstudaginn 23. apríl í Glerárkirkju. Dagskráin er glæsileg og fjölbreytt að vanda, m.a. verða fluttar þekktar íslenskar söngperlur og lög úr söngleikjum. Hljómsveit leikur undir í hluta dagskrárinnar undir stjórn... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/opid-hus-i-skjaldarvik | Opið hús í Skjaldarvík
Nú er komið að því að fyrstu íbúarnir flytji í nýuppgerða hjúkrunarheimilið í Skjaldarvík og í síðustu viku var Akureyringum og nærsveitungum gefinn kostur á að skoða breytingar sem gerðar hafa verið á húsnæðinu. Sá hængur var á sýningu húsnæðisins að seinkun var á sendingu húsgagna þannig að ges... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/gudbergur-i-gilinu | Guðbergur í Gilinu
Rithöfundurinn Guðbergur Bergsson, sem nýlega hlaut Norrænu bókmenntaverðlaunin, fjallar um skáldsöguna Don Kíkóta eftir Cervantes kl. 21 annað kvöld, sumardaginn fyrsta, í Deiglunni. Guðbergur hefur sjálfur þýtt þetta mikla bókmenntaverk og verður forvitnilegt að heyra hann tala um söguna. Þau leiðu... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/dvalarheimilid-hlid-faer-nyjan-bil | Dvalarheimilið Hlíð fær nýjan bíl
Dvalarheimilið Hlíð fékk á dögunum afhentan nýjan bíl af sams konar gerð og heimilið hefur haft síðustu árin og hefur reynst mjög vel. Um er að ræða spánnýjan bíl af gerðinni Toyota Hiace. Bíllinn er með sætum fyrir 8 farþega og fyrir tvo hjólastóla að auki. Öll sætin eru með 3ja punkt... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/liflegt-a-sumardaginn-fyrsta | Líflegt á sumardaginn fyrsta
Akureyringar fagna sumardeginum fyrsta með líflegum hætti og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Bærinn lifnar við á tónleikum, myndlistarsýningum og öðrum uppákomum þar sem sumarkomunni er fagnað. Hér að neðan er vakin athygli á nokkrum dagskrárliðum í blómlegu bæjarlífi.
Nú stendu... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/vinsaell-haskoli | Vinsæll háskóli
Á fundi háskólaráðs Háskólans á Akureyri var fyrir skemmstu samþykkt með þremur atkvæðum gegn einu að setja reglur um takmörkun á fjölda nemenda við innritun í skólann. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkar reglur eru settar fyrir allar deildir Háskólans en áður hefur verið beitt fjöldatakmörkunum í heilbri... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/plastidjan-bjarg-idjulundur-faer-nyja-plastsprautuvel | Plastiðjan Bjarg-Iðjulundur fær nýja plastsprautuvél
Síðasta vetrardag kom ný plastsprautuvél í hús hjá Plastiðjunni Bjargi-Iðjulundi. Vélin er af gerðinni Engel eins og vél sem keypt var fyrir ári síðan. Þessi vél er öllu minni, aðeins 45 tonna steypuþrýstingur en hin er með 110 tonna þrýstingi. Nýja vélin nýtist vel ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/sveinsstykki-arnars-jonssonar | Sveinsstykki Arnars Jónssonar
Sveinsstykki eftir Þorvald Þorsteinsson verður sýnt í Samkomuhúsinu á laugardags- og sunnudagskvöld. Arnar Jónsson þykir fara á kostum í þessum einleik sem var skrifaður sérstaklega í tilefni 40 ára leikafmælis hans. Sýningin hefur hlotið einróma lof í Reykjavík og er ekki við öðru að búas... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/starfslaun-listamanna-2 | Starfslaun listamanna
Tilkynnt hefur verið hvaða listamenn hljóta starfslaun listamanna á Akureyri starfsárið 2004-2005. Það eru eru listakonurnar Sveinbjörg Hallgrímsdóttir og Arna Valsdóttir sem hlutu heiðurinn að þessu sinni, Sveinbjörg til 9 mánaða og Arna til 3 mánaða. Tilkynnt var um valið á Vorkomu menningarmála... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/nyr-samningur-akureyrarbaejar-og-la | Nýr samningur Akureyrarbæjar og LA
Í gær, sumardaginn fyrsta, var undirritaður samningur Akureyrarbæjar og Leikfélags Akureyrar (LA) um stuðning við rekstur atvinnuleikhúss næstu þrjú árin. Samningurinn byggður á samningi bæjarins við menntamálaráðuneytið um stuðning ríkisins við menningarmál á Akureyri.
Í samningnum v... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/bonus-styrkir-haefingarstodina-og-kristnesspitala | Bónus styrkir Hæfingarstöðina og Kristnesspítala
Fyrirtækið Bónus fagnaði 15 ára afmæli á dögunum og gaf af því tilefni 16 aðilum eina milljón króna hverjum. Meðal þeirra sem hlutu styrki frá Bónus voru Hæfingarstöðin á Akureyri og Kristnesspítali í Eyjafjarðarsveit. Styrkirnir voru afhentir við hátíðlega athöfn á Hóte... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/dagur-umhverfisins-a-akureyri | Dagur umhverfisins á Akureyri
Dagur umhverfisins er á sunnudag og dagskrá af því tilefni er þéttskipuð hér á Akureyri. Dagurinn er fæðingardagur Sveins Pálssonar, fyrsta íslenska náttúrufræðingsins, og þess manns sem einna fyrstur hvatti til aðgerða gegn skógareyðingu á Íslandi og orðaði fyrst á íslensku þá hugsun sem ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/vanadis-volva-og-valkyrja | Vanadís, völva og valkyrja
Á félagsvísindatorgi Háskólans á Akureyri á morgun flytur Valgerður H. Bjarnadóttir erindi sem hún kallar "Vanadís, völva og valkyrja - fornar birtingarmyndir gyðjunnar, endurspeglaðar úr minni íslenskrar konu". Fyrirlesturinn hefst kl. 16.30 í húsnæði Háskólans að Þingvallastræti 23, stofu 1... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/althjodlegt-mot-i-curling-a-akureyri | Alþjóðlegt mót í curling á Akureyri
Á föstudag og laugardag fer fram í Skautahöllinni á Akureyri fyrsta alþjóðlega mótið í curling (krullu) sem haldið hefur verið á Íslandi. Tíu lið taka þátt í mótinu, eitt frá Gimli í Kanada, eitt frá Helsingborg í Svíþjóð, eitt úr Reykjavík en sjö lið eru frá Akureyri. Liðunum tíu he... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/allt-um-efta-domstolinn | Allt um EFTA-dómstólinn
Á síðasta lögfræðitorgi vetrarins, kl. 16 á miðvikudag, flytja erindi Carl Baudenbacher, forseti EFTA-dómstólsins, og Þorgeir Örlygsson, dómari við sama dómstól.
Við gerð samningsins um hið Evrópska efnahagssvæði var lögð rík áhersla á einsleitni löggjafar á öllu svæðinu. Það hefur komið í hlut ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/kea-og-vaxtarsamningurinn | KEA og vaxtarsamningurinn
Kaupfélag Eyfirðinga svf. efnir til málþings undir yfirskriftinni "Vaxtarsamningur fyrir Eyjafjarðarsvæðið - aðild KEA að nánari úrvinnslu og aðgerðum" í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju miðvikudaginn 28. apríl kl. 18 til 20. Framsöguerindi á fundinum flytur Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/27-tilbod-i-nyja-slokkvibifreid | 27 tilboð í nýja slökkvibifreið
Í morgun voru opnuð tilboð í nýja slökkvibifreið fyrir Slökkvilið Akureyrar. Tilboð bárust frá þremur aðilum, þ.e. Ólafi Gíslasyni og Co í Reykjavík, MT bílum ehf Ólafsfirði og S.U.T bílum Selfossi. Alls bárust 27 tilboð í slökkvibifreiðina frá þessum fyrirtækjum og því verður nóg að ger... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/kea-vill-leggja-fram-150-200-milljonir-arlega | KEA vill leggja fram 150-200 milljónir árlega
Á fundi stjórnar Kaupfélags Eyfirðinga svf. í gær, þriðjudaginn 27. apríl, var gerð samþykkt þar sem lýst er vilja til þess að félagið leggi fram 150-200 milljónir króna árlega næstu fjögur til fjárfestinga og stuðningsverkefna sem skiptast milli þeirra vaxtarkjarna sem ski... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/tonlistin-blomstrar-i-ma | Tónlistin blómstrar í MA
Fjórir nemendur MA halda útskriftartónleika frá Tónlistarskólanum á Akureyri á næstu dögum. Fyrstu tónleikarnir verða á morgun, fimmtudag, og hefjast klukkan 16.30 í sal Tónlistarskólans við Hvannavelli. Það eru lokatónleikar tveggja píanóleikara, Sigríðar Svönu Helgadóttur í 4A og Sigurðar Hel... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/skemmdarverk | Skemmdarverk!
Við göngustíga og götur bæjarins eru um 50 garðbekkir þar sem fólk getur hvílt lúin bein, notið veðurs og útsýnis um bæinn fagra. Almenn ánægja er með þessa bekki en þó eru alltaf einhverjir sem haldnir eru þeirri undarlegu áráttu að eyðileggja sameiginlegar eignir bæjarbúa. Mikið er um að bekkir á sömu s... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/einungis-1-9-akureyringa-kjosa-balfor | Einungis 1,9% Akureyringa kjósa bálför
Akureyringar eru íhaldssamir þegar kemur að greftrun og kjósa einungis um 1,9% þeirra bálför en um 25% höfuðborgarbúa. Á hinum Norðurlöndunum er hlutfallið allt annað og miklu mun hærra en þar kjósa allt að 95% bálför. Hlutfall bálfara á Íslandi árið 2003 var um 15% af tölu látinn... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/althjodleg-radstefna-um-tilraunir-i-audlindahagfraedi | Alþjóðleg ráðstefna um tilraunir í auðlindahagfræði
Dagana 20. til 23. maí næstkomandi, verður haldin alþjóðleg ráðstefna á Akureyri um tilraunir í auðlindahagfræði, með sérstakri áherslu á rannsóknir á sviði fiski- og orkuhagfræði. Ráðstefnan er samvinnuverkefni Hagfræðistofnunar og Viðskipta og hagfræðideildar Háskól... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/samningur-um-prentun-a-sogu-akureyrar | Samningur um prentun á Sögu Akureyrar
Í morgun var skrifað undir samning við Ásprent/Stíl hf. um prentun 4. bindis Sögu Akureyrar. Bindið nær yfir tímabilið frá 1919 til maí 1940 þegar breska herliðið var á leiðinni til landsins en menn óttuðust jafnvel að Þjóðverjar yrðu fyrri til. Áætlað er að 4. bindi verði 432 bls.... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/haengsmotid-i-boccia-hofst-i-dag | Hængsmótið í boccía hófst í dag
Hængsmótið í boccía var sett kl. 13 í dag í Íþróttahöllinni. Þetta er 22. mótið og verður keppt í sveita- og einstaklingskeppni í boccía, opnum flokki sveita í boccía, borðtennis og lyftingum. Keppendur eru 227 frá 13 félögum af öllu landinu. Í borðtennis eru skráðar 6 konur og 30 karlar... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/oddaleikur-um-helgina | Oddaleikur um helgina
Arnór Atlason skoraði 11 mörk fyrir KA sem lagði Íslandsmeistaralið Hauka að velli í öðrum leik liðanna í undanúrslitum RE/MAX-deildar karla í handknattleik í gærkvöldi, lokatölur 33:29, en staðan í hálfleik var 15:13 KA í vil. Einar Logi Friðjónsson skoraði 6 mörk fyrir KA líkt og Jónatan Magnúss... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/sala-a-felagslegum-ibudum | Sala á félagslegum íbúðum
Í gær var skrifað undir samning um sölu á innleystum félagslegum íbúðum í eigu Akureyrarbæjar. Samið var við Fasteignasöluna Byggð að undangengnu útboði en alls bárust Akureyrarbæ sex tilboð. Samningurinn er til tveggja ára með möguleika á framlengingu um tvö ár, eitt í senn. Samningurinn er m... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/bukolla-aftur-a-svid-hja-la | Búkolla aftur á svið hjá LA
Í maí stígur Búkolla á svið hjá Leikfélagi Akureyrar en sýningin hætti fyrir fullu húsi sl. vor. Leikritið byggir á hinni alkunnu þjóðsögu um Búkollu og strákinn. Sýningin er ævintýraleg, þar sem ýmis furðukvikindi koma við sögu önnur en þau sem frá segir í þjóðsögunni. Áður en hinn æsispenn... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/leonardo-kynntur | Leonardó kynntur
Fimmtudaginn 6. maí kl. 15 stendur Landsskrifstofa Leonardó í samvinnu við Háskólann á Akureyri fyrir kynningarfundi um Leonardó starfsmenntaáætlun ESB og ný forgangsatriði fyrir árin 2005 – 2006. Að þessu sinni er sérstök áhersla lögð á að auka þátttöku fyrirtækja í áætluninni, annars vegar til að sen... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/uppskeruhatid | Uppskeruhátíð
Leikskólarnir Krógaból, Síðusel og Sunnuból halda uppskeruhátíð vegna loka þróunarverkefnisins Lífsleikni í leikskóla. Leikskólarnir hafa unnið að þessu verkefni síðastliðin þrjú ár. Hátíðin verður haldin í K.A. heimilinu laugardaginn 8. maí frá kl. 11–13. Hljómsveit skipuð foreldrum og nokkrum börnum mun... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/kona-radin-i-slokkvilid-akureyrar | Kona ráðin í Slökkvilið Akureyrar
Þau tímamót hafa nú orðið hjá Slökkviliði Akureyrar að kona hefur í fyrsta sinn verið ráðin þar til starfa. Auglýst var eftir tveimur slökkviliðs- og sjúkraflutningamönnum til starfa og á varðstjóra fundi í gær var samþykkt tillaga slökkviliðsstjóra um að ráða Sigurbjörn Gunnarsson og ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/litrikt-vor-virkir-eldri-borgarar | Litríkt vor - virkir eldri borgarar
Akureyrarbær stendur fyrir fræðslu- og kynningardagskrá dagana 7. - 15. maí undir yfirskriftinni „Litríkt vor – virkir eldri borgarar“. Markmið verkefnisins er að skapa jákvæða umræðu um málefni eldri borgara og kynna þá þjónustu og möguleika sem falla vel að þörfum eldri borgara á A... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/virkir-eldri-borgarar | Virkir eldri borgarar
Akureyrarbær stendur fyrir fræðslu- og kynningardagskrá dagana 7.-15. maí undir yfirskriftinni "Litríkt vor - virkir eldri borgarar." Markmið verkefnisins er að skapa jákvæða umræðu um málefni eldri borgara og kynna þá þjónustu og möguleika sem falla vel að þörfum þeirra á Akureyri og nágrenni. Lö... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjorda-afmaelissyning-punktsins | Fjórða afmælissýning Punktsins
Punkturinn á Akureyri varð 10 ára sunnudaginn 25. janúar og af því tilefni hafa verið settar upp 10 sýningar sem eru táknrænar fyrir starfsemina í húsinu. Á þriðjudaginn kemur opnar Þráinn Karlsson leikari fjórðu sýningu ársins með fyrirlestri um málma. Fyrirlesturinn verður fluttur í Pun... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/styttist-i-listahatid | Styttist í Listahátíð
Nú styttist í það að merkir viðburðir af Listahátíð verði færðir upp á Akureyri og er miðasala í fullum gangi í Pennanum/Bókval. Á laugardag hefst ein merkilegasta myndlistarsýning allra tíma hérlendis í Listasafninu á Akureyri. Þar er á ferðinni Kenjarnar, sýning á frummyndum eftir Spánverjann Fr... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/genfarsamningarnir-a-islensku | Genfarsamningarnir á íslensku
Í dag kynntu Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, og Úlfar Hauksson, formaður Rauða kross Íslands, útgáfu Genfarsamninganna á íslensku með athöfn við Espihól í Eyjafirði. Við sama tækifæri kynnti Þorsteinn Gunnarsson rektor háskólans á Akureyri nýstofnaða Félagsvísinda- og lagadeild hásk... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/litrik-vorsigling | Litrík vorsigling
Eldri borgurum á Akureyri var boðið til siglingar um Eyjafjörð með Súlunni EA á sunnudagsmorgun. Um 90 manns nýttu tækifærið til að njóta blíðunnar í firðinum og veitinga um borð í boði útgerðarfélags skipsins. Leikið var á harmonikku og trommu um borð, sungið saman og stigin nokkur dansspor á þilfari... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/hola-i-hoggi-her-um-bil | Hola í höggi hér um bil
Það var glatt á hjalla í Boganum í morgun þar sem eldri borgarar kynntu sér forvitnilegar íþróttagreinar, fengu sér kaffisopa og sannreyndu að maður er manns gaman. Þónokkuð vel var mætt og sýndi fólk á besta aldri góða takta í golfi, boccía og stafagöngu.
Dagskráin framundan er þessi:
12. maí
k... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/fraegasta-listaverk-sem-komid-hefur-til-islands | Frægasta listaverk sem komið hefur til Íslands
Næsta laugardag verður opnuð í Listasafninu á Akureyri sýning á frægasta listaverki sem komið hefur til Íslands. Er þar um að ræða Kenjarnar, eða Los Caprichos, eftir einn frægasta listamann heimslistasögunnar, spænska snillinginn Francisco de Goya (1746-1828). Þetta mun v... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/baer-i-barnsaugum | Bær í barnsaugum
Tíu leikskólar á Akureyri hafa, ásamt Skóladeild Akureyrar og Skólaþróunarsviði Háskólans, tekið höndum saman um verkefni sem hefur hlotið heitið "Bær í barnsaugum". Hápunktur verkefnisins verður föstudaginn 28. maí þegar allir leikskólarnir efna til sameiginlegrar sýningar í miðbæ Akureyrar. Sýningunn... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/samstarfssamningar-vegna-arctic-open | Samstarfssamningar vegna Arctic Open
Undirritaður var í gær samstarfssamningur Golfklúbbs Akureyrar við Símann og Flugfélag Íslands vegna Arctic Open miðnæturgolfmótsins sem haldið verður í átjánda sinn 23.-26. júní nk. Arctic Open er alþjóðlegt golfmót sem hefur verið haldið frá árinu 1986 og hafa á þriðja þúsund innl... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/ithrottir-fyrir-virka-eldri-borgara | Íþróttir fyrir virka eldri borgara
Eldri borgarar eiga þess kost að kynnast skemmtilegum íþróttagreinum við allra hæfi frá kl. 10 í fyrramálið í Boganum. Þónokkuð margir nýttu sér þetta tækifæri í gær og nú verður haldið áfram þar sem frá var horfið. Gefin verður innsýn í Boccía kl. 10, kunnáttumenn kenna fólki að hand... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/oddeyrarskoli-hlytur-hvatningarverdlaun-heimilis-og-skola-2004 | Oddeyrarskóli hlýtur hvatningarverðlaun Heimilis og skóla 2004
Oddeyrarskóli hlaut á dögunum hvatningarverðlaun Heimilis og skóla fyrir verkefni sem lýtur að árangursmiðuðu foreldrasamstarfi og verða verðlaunin hvatning til kennara og foreldra um ennþá betra samstarf.
Alls bárust 37 tilnefningar um verkefni sem unnin h... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/lokahof-felagsmidstodvanna | Lokahóf félagsmiðstöðvanna
Lokahóf félagsmiðstöðvanna á Akureyri verður haldið í Sjallanum annað kvöld, föstudagskvöldið 14. maí. Húsið verður opnað kl. 21 og er lofað stanslausu fjöri til kl. 1 eftir miðnætti við dúndrandi undirleik hljómsveitarinnar SENT. Þetta er árlegur viðburður unglinga í 8., 9. og 10. bekk og er... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/fraedsludagur-a-morgun | Fræðsludagur á morgun
Góð aðsókn hefur verið að fræðslu- og skemmtidögunum "Litríkt vor - virkir eldri borgarar" en þeim lýkur á morgun með afar forvitnilegum fræðsludegi þar sem kennir ýmissa grasa. Fræðsludagurinn verður haldinn í Glerárkirkju og hefst hann klukkan 10 í fyrramálið með ávarpi bæjarstjóra. Síðan líður ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/bidrod-vid-listasafnid | Biðröð við Listasafnið
Góð stemning og mikil eftirvænting ríkti við Listasafnið á Akureyri í dag þegar opnuð var sýning á Kenjunum eftir Goya. Höfðu menn á orði að það væri merkilegt að sjá biðröð við listasafn á Íslandi og eflaust er það einsdæmi. Hér er án efa um að ræða einn af hápunktum menningarsögu á Akureyri og ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/vorsyning-2004 | Vorsýning 2004
Þrítugasta starfsári Myndlistaskólans á Akureyri lýkur með stórri sýningu á verkum nemenda í húsnæði skólans að Kaupvangsstræti 16, Listagili. Þar gefur að líta sýnishorn af því helsta sem nemendur hafa verið að fást við í myndlist og hönnun á þessu skólaári.
Fornámsdeild skólans er 39 eininga nám sem sk... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/min-jord-thin-jord-i-leikhusinu-a-morgun-brudleikhussyningin | Mín jörð - þín jörð í Leikhúsinu á morgun - Brúðleikhússýningin
Brúðleikhússýningin "Mín jörð ? þín jörð" verður í Leikhúsinu á Akureyri á morgun. Um er að ræða eina af þeim sýningum sem er á norrænu barnaleikhúshátíðinni sem nú stendur yfir í Reykjavík. Sýningin kemur frá danska brúðleikhúsinu "Teatret Månegøgl" og þa... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/kosid-um-sameiningu-akureyrar-og-hriseyjar | Kosið um sameiningu Akureyrar og Hríseyjar
Kosið verður um sameiningu Akureyrarkaupstaðar og Hríseyjarhrepps samhliða forsetakosningunum 26. júní. Þetta var ákveðið á fundi samstarfsnefndar um sameiningu sveitarfélaganna í gærkvöldi. Gert er ráð fyrir að sameiningin taki gildi 1. ágúst og að bæjarstjórn Akureyrar fari ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjorugur-fraedsludagur | Fjörugur fræðsludagur
Um 100 manns mættu á sérstakan fræðsludag fyrir eldri borgara í safnaðarheimili Glerárkirkju um síðustu helgi en þar var um að ræða lokahnykkinn á Litríku vori. Létt var yfir mannskapnum, enda mikið um að vera og dagskráin fjölbreytt. Flutt voru fróðleg erindi um allt milli himins og jarðar, í and... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/leikskoli-helgamagrastraeti-tillogur-ad-deiliskipulagi-og-b | Leikskóli, Helgamagrastræti: Tillögur að deiliskipulagi og breytingu á aðalskipulagi
Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.b. tillögu að breytingu á aðalskipulagi. Breytingin varðar reit milli Helgamagrastrætis og Þórunnarstrætis, norðan Bjarkarstígs, og... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/breytingar-hja-gummivinnslunni | Breytingar hjá Gúmmívinnslunni
Nýir eigendur hafa komið til liðs við Gúmmívinnsluna hf. á Akureyri með kaupum á 66% hlutafjár í félaginu en jafnframt kaupunum mun Gúmmívinnslan kaupa rekstur Kraftbíla ehf. á Akureyri. Það eru þeir Gunnar Sigtryggsson og Óskar Óskarsson sem hafa í sameiningu keypt 66% hlut í félaginu en... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/skaldid-og-sekkjapipuleikarinn | Skáldið og sekkjapípuleikarinn
Dagskrá með írska nóbelsskáldinu Seamus Heaney og sekkjapípuleikaranum Liam O'Flynn sem kallast einfaldlega "The Poet and the Piper" verður í Samkomuhúsinu á sunnudaginn kl. 21.00. Heaney er án efa eitt af helstu skáldum samtímans og hefur lengi verið. Það var svo árið 1995 sem Seamus Hea... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/allra-sidustu-syningar-a-elvis | Allra síðustu sýningar á Elvis
Enn eru til lausir miðar á leiksýninguna "Eldað með Elvis" í Samkomuhúsinu í kvöld og annað kvöld. Þetta verða allra síðustu sýningar á þessu vinsæla verki sem gengið hefur fyrir fullu húsi hér á Akureyri.
Eldað með Elvis er í senn drepfyndið og átakanlegt. Söguþráðurinn er á þá leið að l... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/hringtorg-a-hlidarbraut | Hringtorg á Hlíðarbraut
Í sumar er fyrirhugað að gera tvö hringtorg á Hlíðarbraut; á gatnamótunum við Hlíðarfjallsveg og við Merkigil. Markmið framkvæmdarinnar er að auka umferðaröryggi og tryggja greiðar samgöngur um Hlíðarbraut.
Skoða: Yfirlitsuppdrátt ... Syðra torgið ... Nyrðra torgið.
Nánari upplýsingar um framkvæ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/nordurlandameistarar-i-korfubolta | Norðurlandameistarar í körfubolta
Tveir liðsmenn Þórs urðu Norðurlandameistarar í körfubolta á sunnudag þegar unglingalandslið Íslands, U-18 ára, bar sigurorð af Svíum í úrslitaleik Norðurlandameistaramótsins sem haldið var í Stokkhólmi. Þórsararnir sem um ræðir eru Bjarni Konráð Árnason og Ólafur Halldór Torfason. En ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/songvaka-i-minjasafnskirkjunni | Söngvaka í Minjasafnskirkjunni
Fyrsta söngvaka sumarsins í Minjasafnskirkjunni verður haldin laugardaginn 29. maí kl. 20.30 en þá ætla Þórarinn Hjartarson og Þuríður Vilhjálmsdóttir að stíga á stokk og flytja nokkur vel valin lög. Minjasafnið á Akureyri hefur boðið upp á söngvökur síðan 1994. Þær hafa vakið verðskuldað... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/listsyning-i-midbaenum-a-morgun | Listsýning í miðbænum á morgun
Það verður mikið um að vera á morgun í Miðbæ Akureyrar þegar leikskólabörn halda þar mikla og litríka listsýningu frá kl. 11 fyrir hádegi og fram eftir degi. Uppákoman er hápunktur verkefnisins "Bær í barnsaugum" sem 10 leikskólar á Akureyri standa að ásamt Skóladeild Akureyrar og Skólaþr... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/sundthjalfun-fatladra-barna | Sundþjálfun fatlaðra barna
Sundfélagið Óðinn, í samstarfi við Fjölskyldudeild Akureyrarbæjar og ÍSÍ á Akureyri, vinna saman að undirbúningi að markvissri sundþjálfun fyrir börn með fötlun. KEA veitti styrk í þetta átaksverkefni að upphæð 100.000 kr. Verkefnið byrjaði í mars 2004 og stendur í 10 vikur. Æfingar eru 1 sin... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/uppskeruhatid-skakmanna | Uppskeruhátíð skákmanna
Hin árlega uppskeruhátíð Skákfélags Akureyrar verður haldin í kvöld kl. 20 í Íþróttahöllinni. Hátíðin markar jafnan lok hvers starfsárs félagsins en á henni eru verðlaun veitt fyrir viðburði vetrarins. Boðið er upp á léttar veitingar og líklegt verður að teljast að gripið verði í tafl. Allir eru... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/orugg-utigaesla | Örugg útigæsla
Sumarið 2004 er rekinn einn gæsluvöllur á Akureyri, Eyrarvöllur við Eiðsvöll. Markmið með rekstri gæsluvallar á Akureyri er að veita börnum á aldrinum 2ja-7 ára örugga útigæslu. Á gæsluvellinum er líf og fjör alla daga, þar er lögð áhersla á að börnin leiki sér í frjálsum útileikjum. Af og til yfir sumar... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/klezmer-nova-i-sjallanum-a-sunnudag | Klezmer Nova í Sjallanum á sunnudag
Listahátíð í Reykjavík heldur áfram á Akureyri og nú eru það galsafullu Frakkarnir í Klezmer Nova sem troða upp í Sjallanum á Akureyri á sunnudagskvöld kl. 21.30. Meðlimir Klezmer Nova, sem eru níu talsins, leika alkunna tegund tónlistar sem kennd er við gyðinga frá Austur-Evrópu og ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/starfsaaetlanir-a-netid | Starfsáætlanir á netið
Starfsáætlanir Akureyrarbæjar fyrir árið 2004 eru komnar á heimasíðuna. Í þeim eru birtar áætlanir sviða og ýmissa nefnda, hvaða markmið hafa verið lögð fram og hvernig menn hyggjast ná þeim. Birt eru skorkort fyrir viðkomandi starfsemi, listar yfir verkefni og annað þvíumlíkt. Einnig er að finna... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/atvinnuhorfur-skolafolks-a-akureyri | Atvinnuhorfur skólafólks á Akureyri
Ákveðið hefur verið að kanna hversu margt skólafólk, 17 ára (f. 1987) og eldra með lögheimili á Akureyri, er enn án sumarstarfs. Fyrirhugað er að leysa vanda þeirra að einhverju leyti með tilboði um 6 vikna vinnu.
Þeir sem eru enn án atvinnu og óska eftir starfi hjá Akureyrarbæ eru b... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/bilaklubburinn-30-ara | Bílaklúbburinn 30 ára
Félagar í Bílaklúbbi Akureyrar gerðu sér glaðan dag í tilefni af 30 ára afmæli félagsins sem var í gær. Slegið var upp veislu í félagsheimilinu við Frostagötu þar sem það bar meðal annars til tíðinda að formaður klúbbsins og bæjarstjórinn á Akureyri undirrituðu viljayfirlýsingu um samstarf og uppb... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/baerinn-i-augum-barna | Bærinn í augum barna
Sýningin Bær í barnsaugum var opnuð með mikilli viðhöfn og að viðstöddu fjölmenni við kirkjutröppurnar á Akureyri í gær. Umferð var lokað um Kaupvangsstræti, Gilið, enda voru þeir sem fylgdust með ekki háir í loftinu, börn af leikskólum bæjarins voru í meirihluta. Tíu leikskólar í bænum ásamt Skóla... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/vefmyndavel-i-listagilinu | Vefmyndavél í Listagilinu
Vefmyndavélin á heimasíðu bæjarins var flutt upp í Listagil á föstudag og gefur nú skemmtilegra sjónarhorn á bæinn en áður var. Vélin er staðsett í Listasafninu á Akureyri og vísar niður Gilið og út á Pollinn. Smellið á takkann "Akureyri í beinni" á forsíðu heimasíðunnar eða hér til að skoða.
... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/sorpeyding-eyjafjardar-opnar-heimasidu | Sorpeyðing Eyjafjarðar opnar heimasíðu
Í dag var heimasíða Sorpeyðingar Eyjafjarðar opnuð á vorfundi Héraðsnefndar Eyjafjarðar. Heimasíðunni er annars vegar ætlað að vera upplýsingabanki fyrir Eyfirðinga um allt sem viðkemur flokkun úrgangs til endurvinnslu og hins vegar að veita stjórnsýsluupplýsingar um Sorpeyðinguna... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/vefnadur-i-punktinum | Vefnaður í Punktinum
Í tilefni af 10 ára afmæli Punktsins verða settar upp sýningar á handverki sem unnið hefur verið í Punktinum frá opnun hans. Nú er komið að vefnaðarsýningunni. Stax á fyrstu dögum starfseminnar var Punktinum gefinn vefstóll. Síðan hafa bætst við 14 vefstólar sem ýmist hafa verið gefnir staðnum eða ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/till-ad-breytingum-a-deiliskipulagi-i-afangi-naustahverfi-1 | Till. að breytingum á deiliskipulagi: I. áfangi Naustahverfis - stækkun
Með vísan til 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga auglýsir Akureyrarbær hér með tillögu að breytingum á deiliskipulagi 1. áfanga Naustahverfis, upphaflega samþykktu í bæjarstjórn 23. apríl 2002, síðast breyttu með samþykkt bæjarstjórnar 2. ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/fundir-um-sameiningarmal | Fundir um sameiningarmál
Ákveðið hefur verið að íbúar Hríseyjarhrepps og Akureyrarkaupstaðar greiði atkvæði um sameiningu sveitarfélaganna samhliða forsetakosningum laugardaginn 26. júní nk. Kynningarfundir vegna fyrirhugaðrar sameiningar verða haldnir sem hér segir:
Hrísey: Þriðjudaginn 8. júní kl. 20.00 í félagsheimi... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/tilbod-i-ny-upplysingakerfi-baejarins | Tilboð í ný upplýsingakerfi bæjarins
Ríkiskaup auglýstu um helgina, fyrir hönd Akureyrarbæjar, eftir tilboðum í ný upplýsingakerfi bæjarins. Óskað er eftir tilboðum í fjárhagskerfi ásamt launa- og mannauðskerfi. Tilboð skulu einnig ná til vinnu við greiningu á hvernig boðnar lausnir falla að þörfum bæjarins, uppsetning... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/stofnun-hverfisnefndar-i-siduhverfi | Stofnun hverfisnefndar í Síðuhverfi
Annað kvöld, fimmtudagskvöldið 10. júní, verður haldinn stofnfundur hverfisnefndar í Síðuhverfi en fyrir hafa verið stofnaðar hverfisnefndir á Akureyri bæði í Giljahverfi og á Oddeyri. Góð reynsla hefur verið af starfi þessara nefnda og er það hluti af áætlun um Staðardagskrá 21 að s... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/malefnalegir-kynningarfundir | Málefnalegir kynningarfundir
Seinni kynningarfundurinn um fyrirhugaða sameiningu Hríseyjarhrepps og Akureyrarkaupstaðar var haldinn á Akureyri í gærkvöldi. Fyrri fundurinn var í Hrísey á þriðjudagskvöld og þóttu báðir fundirnir málefnalegir og góðir. Um eða yfir 40 manns mættu á hvorn fundinn fyrir sig og virtist sem f... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/songvaka-i-minjasafnskirkjunni-2 | Söngvaka í Minjasafnskirkjunni
Þriðja söngvaka sumarsins verður haldinn laugardaginn 12. júní kl. 20.30. Flytjendur eru þau Hjörleifur Hjartarson og Íris Ólöf Sigurjónsdóttir. Minjasafnið á Akureyri hefur boðið upp á söngvökur síðan 1994. Þær hafa vakið verðskuldaða athygli enda hvergi hægt að finna skemmtidagskrá af þ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/komin-hverfisnefnd-i-siduhverfi | Komin hverfisnefnd í Síðuhverfi
Hverfisnefnd Síðuhverfis var kjörin á góðum stofnfundi í Síðuskóla í gærkvöldi. Líflegar umræður spunnust á fundinum um málefni sem varða íbúa hverfisins, svo sem hraðahindranir, græn svæði, göngustíga og snjómokstur. Áður höfðu fulltrúar bæjarins kynnt fyrir íbúunum skóla- og skipulagsm... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/ny-adkoma-ad-lystigardinum | Ný aðkoma að Lystigarðinum
Ný aðkoma að Lystigarðinum á Akureyri var formlega vígð síðastliðinn föstudag og um leið var hleypt í loftið nýrri heimasíðu með öllum helstu upplýsingum um garðinn. Hönnun nýrrar aðkomu, sem er við norðvesturhorn garðsins, var gerð af fyrirtækinu Landmótun í Kópavogi og verklegar framkvæmdir... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/listasumar-og-jonsmessuhatid | Listasumar og jónsmessuhátíð
Listasumar á Akureyri 2004 verður sett í Ketilhúsinu á laugardag kl. 15. Þá verður opnuð sýning þriggja listkvenna, Auðar Vésteinsdóttur, Bjargar Þorsteinsdóttur og Sigríðar Ágústsdóttur. Yfirskrift sýningarinnar er “Nítjándi júní - vefur, vatnslitur og leir. Fleira verður á dagskrá, svo se... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/gott-vedur-framundan | Gott veður framundan
Einstaklega gott veður er nú á Akureyri og Veðurstofa Íslands gerir ráð fyrir að veðrið næstu daga verði milt og gott norðaustanlands. Búast má við ágætum hita og að sólin láti sjá sig. Nánar tiltekið er spáin frá Veðurstofunni svohljóðandi:
Veðurhorfur á landinu til kl. 18 á morgun:
Hæg suðvestaná... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/samid-um-smidi-a-einni-oflugustu-slokkvibifreid-landsins | Samið um smíði á einni öflugustu slökkvibifreið landsins
Í dag undirrituðu Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri og Sigurjón Magnússon, framkvæmdastjóri MT bíla í Ólafsfirði, samning um smíði slökkvibifreiðar fyrir Slökkvilið Akureyrar. Bifreiðin er af stærstu og öflugustu gerð, undirvagn af gerðinni Scania 12... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/gripid-verdur-til-radstafana | Gripið verður til ráðstafana
Gert er ráð fyrir að mikill fjöldi gesta leggi leið sína á tjaldsvæðin á Akureyri um komandi helgi. Hátíðahöld af ýmsu tagi eru í bænum fyrir og um helgi og leggja því margir leið sína til bæjarins. Talsvert var um ölvun og óspektir og einnig var umgengni slæm á tjaldsvæðinu við Þórunnarstr... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/17-juni-a-akureyri-4 | 17. júní á Akureyri
Að venju verður mikið um að vera frá morgni til kvölds á Akureyri 17. júní. MA-stúdentar setja svip sinn á bæinn og dagskráin, sem skátarnir hafa veg og vanda af, er þéttskipuð.
Dagskrá 17. Júní 2004 í umsjón Skátafélagsins Klakks:
8.00
Fánar dregnir að húni
9.15
Lúðrasveit Akureyrar og Bílaklúbbur ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/vatn-er-svalt-2 | Vatn er svalt
Tímabilið 18.júní til 1.ágúst stendur yfir átak til heilsueflingar á Akureyri sem ber yfirskriftina "Vatn er svalt". Markmið átaksins er að vekja athygli bæjarbúa á mikilvægi neysluvatns til heilsueflingar og nauðsyn þess að tryggja öllum aðgengi að góðu vatni. Auk þess er vakin athygli á mikilvægi vatnsi... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/hatidardagur-islenskra-kvenna-19-juni | Hátíðardagur íslenskra kvenna 19. júní
Jafnréttis- og fjölskyldunefnd Akureyrar stendur fyrir dagskrá að Hömrum laugardaginn 19. júní í tilefni þess að 89 ár verða þá liðin frá því að konur á Íslandi fengu kosningarétt til Alþingis.
Nefndin heldur upp á daginn á útivistarsvæðinu að Hömrum við Kjarnaskóg og hefst dagskr... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/fra-opnun-dalsbrautar | Frá opnun Dalsbrautar
Dalsbraut var formlega opnuð fyrir umferð á föstudagsmorgun, Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri klippti á borða sunnarlega í brautinni og ók síðan sem leið lá fremstur í flokki á eðalvagni eftir hinni nýju leið að Borgarbraut.
Borgarbrautin opnar nýja leið milli bæjarhluta, frá efri brekku og að O... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/jonsmessuleikur-i-kjarnaskogi-1 | Jónsmessuleikur í Kjarnaskógi
Jónsmessuleikur Listasumars verður í Kjarnaskógi í kvöld þar sem hápunkturinn er sýningin "Jörðin" eftir brúðugerðarmanninn Bernd Ogrodnik. Yfirskrift sýningarinnar er "Allir vegir liggja til Akureyrar og þaðan út í heim". Bernd er þekktur og virtur brúðugerðarmaður um allan heim og þekkja... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/kosid-um-sameiningu-a-morgun | Kosið um sameiningu á morgun
Kosið verður um sameinginu Hríseyjarhrepps og Akureyrarkaupstaðar samhliða forsetakosningum á morgun. Samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaganna tveggja ákvað að leggja til að íbúar þessara sveitarfélaga greiði atkvæði um sameiningu þeirra í eitt sveitarfélag. Sameiningin mun taka gildi ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/sameining-akureyrar-og-hriseyjar-samthykkt | Sameining Akureyrar og Hríseyjar samþykkt
Meirihluti íbúa Akureyrar og Hríseyjar samþykkti sameiningu sveitarfélaganna tveggja en kosið var samhliða forsetakosningum á laugardag. Hríseyingar samþykktu sameininguna nær einróma, eða með 93,5% atkvæða. Af 124 sem greiddu atkvæði sögðu 116 já og 8 nei eða 6,5%. Alls voru 1... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/menntamidjan-i-evropusamstarfi | Menntamiðjan í Evrópusamstarfi
Menntasmiðjan hefur á undanförnum árum verið þátttakandi í ýmsum Evrópuverkefnum, aðallega í gegnum SÓKRATES/Grundtvig áætlun Evrópusambandsins. Markmið SÓKRATES/Grundtvig er m.a. að auka getu fólks til að taka fullan þátt í þjóðfélaginu og gera sér grein fyrir mismunandi menningum þjóða,... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/danski-drengjakorinn | Danski drengjakórinn
Danski drengjakórinn hefur verið á tónleikaferð um Ísland undanfarið og heldur tónleika í Akureyrarkirkju kl. 20 í kvöld. Kórinn kom síðast til landsins fyrir 10 árum og söng þá í Reykjavík, Stykkishólmi og á Selfossi. Fyrsta ferð kórsins til Íslands var hins vegar árið 1954 og síðan aftur 1956 og ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/blaskeljahatid-i-hrisey-a-laugardag | Bláskeljahátíð í Hrísey á laugardag
Á laugardag verður hin árlega Bláskeljahátíð haldin í Hrísey en hátíðina sótti fjöldi manns á síðasta ári, mun fleiri en nokkurn hafði órað fyrir. Hátíðin hefst með málþingi um kræklingarækt kl. 10 á laugardag, kynningu á fyrirtækinu Norðurskel, sem rekið er í Hrísey, og á möguleikum... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/thusundir-gesta-i-baenum-um-helgina | Þúsundir gesta í bænum um helgina
Hið árlega ESSO-mót KA í knattspyrnu fyrir fimmta aldursflokk drengja hefst á Akureyri í dag og því verður slitið að kvöldi laugardags. Á sama tíma stendur yfir Pollamót Þórs og má búast við nokkur þúsund gestum til bæjarins í tengslum við þessi tvö íþróttamót.
Aldrei áður hafa jafn ma... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/vatn-er-svalt-um-400-manns-toku-thatt-i-getraun | Vatn er svalt - um 400 manns tóku þátt í getraun
Á sunnudag lauk kynningu á átakinu “Vatn er svalt” á Glerártorgi. Að kynningunni stóðu Norðurorka, Vífilfell, Brim, Strýta, rækjuvinnsla Samherja hf., Akureyrarbær og Norðurorka.
Getraun var í tengslum við átakið, þar sem spurt var:
Hvað rúmast mikið vatn í vatnstanknum?... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/vaxtarsamningur-undirritadur | Vaxtarsamningur undirritaður
Í gær var undirritaður svokallaður vaxtarsamningur fyrir Eyjafjarðarsvæðið en gerð samningsins er hluti af byggðaáætlun stjórnvalda þar sem sérstök áhersla er lögð á Eyjafjarðarsvæðið. Vaxtarsamningurinn tekur til tímabilsins 2004 til 2007 og byggir á nýjum aðferðum við að styrkja hagvöxt e... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/islenski-safnadagurinn | Íslenski safnadagurinn
Á sunnudaginn frá kl. 14-17 verður líflegt á safnasvæðinu og margt áhugavert í boði jafnt utan sem innan dyra. Gestum gefst kostur á að ganga Nonnaslóð upp frá safnasvæðinu, út eftir Naustahöfðanum og niður gömlu kaupstaðarleiðina í Búðargil, með leiðsögn Brynhildar Pétursdóttur safnvarðar. Nonna... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/amtsbokasafnid-faer-vidurkenningu | Amtsbókasafnið fær viðurkenningu
Amtsbókasafninu á Akureyri var á föstudag veitt viðurkenning framkvæmdastjórnar Akureyrarbæjar fyrir framúrskarandi þjónustu og sveigjanleika. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi viðurkenning er veitt en ætlunin er að veita hana árlega héðan í frá. Í ræðu sinni við þetta tilefni sagði Kris... |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.