Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.akureyri.is/is/frettir/veist-thu-um-eldra-folk-sem-tharf-adstod
Veist þú um eldra fólk sem þarf aðstoð? Starfsfólk Akureyrarbæjar og ríkisins sem á það sameiginlegt að veita öldruðu fólki sem býr heima þjónustu hefur unnið náið saman frá því samkomubannið skall á. Starfsfólk heimaþjónustu hjá búsetusviði Akureyrarbæjar, dagþjálfunar og tímabundinna dvala í Hlíð og heimahjúkrunar hj...
https://www.akureyri.is/is/frettir/from-the-mayor-wiadomosc-od-burmistrzyni-cak-nayk-thesmntri-khtab-mn-mdt-akwryry
From the Mayor / Wiadomość od burmistrzyni / จากนายกเทศมนตรี / خطاب من عمدة أكوريري English Język polski ภาษาไทย اللغة العربية Dear friends These are strange times and difficult circumstances for us all, in Akureyri and all over the world. It is at times like these that it is so important that we show solidarity, help ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/adgerdaaaetlun-til-ad-bregdast-vid-ahrifum-covid-19
Aðgerðaáætlun til að bregðast við áhrifum COVID-19 Bæjarráð samþykkti 2. apríl fyrstu aðgerðaáætlun Akureyrarbæjar til að bregðast við samfélagslegum og efnahagslegum áhrifum COVID-19. Allt frá því að sjúkdómurinn greindist fyrst á Íslandi hafa stjórnendur sveitarfélagsins verið í viðbragðsstöðu og gripið til varúðarrá...
https://www.akureyri.is/is/frettir/slokkvilidid-i-vma
Slökkviliðið í VMA Slökkvilið Akureyrar hefur nú fengið aðstöðu í Verkmenntaskólanum á Akureyri fyrir hluta af slökkviliðs- og sjúkraflutningamönnum sínum. Starfsliði Slökkviliðsins hefur þar með verið skipt upp í þrjá hópa sem ganga fjórar vaktir en enginn samgangur er á milli hópanna til að forðast smit. Einn hópur h...
https://www.akureyri.is/is/frettir/verum-heima-um-paskana
Verum heima um páskana Mælst hefur verið til þess að fólk "ferðist innanhúss" um páskana, virði samkomubann og fjarlægðarmörk, til að koma í veg fyrir fleiri smit af Covid-19. Einnig er bent á að óþarfa ferðalög bjóða heim hættunni á slysum sem yrðu til að auka enn álagið á heilbrigðiskerfið. Ásthildur Sturludóttir, bæ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fundur-i-baejarstjorn-7-april
Fundur í bæjarstjórn 7. apríl Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 7. apríl. Á dagskránni er meðal annars: umsókn um breytt deiliskipulag á Rangárvöllum vegna Hólasandslínu 3, tillögu að breytingu á deiliskipulagi Eyrarlandsvegs 31, stefnuumræða og starfsáætlun skipulagsráðs og viðbrögð...
https://www.akureyri.is/is/frettir/lattu-ther-lida-vel-ny-upplysingasida
Láttu þér líða vel - hugmyndir og ráð Þrátt fyrir óvenjulegar aðstæður og takmarkanir þá skiptir verulegu máli að láta sér líða vel og gera það besta úr aðstæðum. Enn er hægt að gera ótrúlega margt skemmtilegt og uppbyggilegt sem má vel vekja athygli á. Nýtt vefsvæði hefur þess vegna verið útbúið hér á heimasíðunni, ei...
https://www.akureyri.is/is/frettir/styrkir-i-byggdathrounarverkefnid-glaedum-grimsey-3
Styrkir í byggðaþróunarverkefnið Glæðum Grímsey Verkefnisstjórn byggðaþróunarverkefnisins Glæðum Grímsey auglýsir styrki vegna verkefnisins fyrir árið 2020, eða kr. 5.000.000. Styrkfénu er ætlað að styrkja verkefni sem falla að áherslum byggðaverkefnisins. Stefnumótun og helstu markmið verkefnisins má sjá á www.grimsey...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjolgun-gjalddaga-fasteignagjalda
Fjölgun gjalddaga fasteignagjalda Einstaklingar sem eiga íbúðarhúsnæði á Akureyri og hafa orðið fyrir verulegu tekjufalli í kjölfar Covid-19 faraldursins, geta nú sótt um að fjölga gjalddögum þeirra fasteignagjalda sem eftir eru á árinu og þannig dreift greiðslum. Sex gjalddagar geta komið til dreifingar, frá apríl til...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fyrsta-skoflustunga-ad-nyjum
Fyrsta skóflustunga að nýjum leikskóla Í dag var tekin fyrsta skóflustunga að leikskólanum Klöppum við Glerárskóla á Akureyri. Leikskólinn verður alls um 1.450 fermetrar á tveimur hæðum og verður innangengt yfir í grunnskóla og íþróttamiðstöð. Gert er ráð fyrir sjö deilda leikskóla með 144 rýmum, þar af ungbarnadeild, ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samkomubann-notad-til-framkvaemda
Samkomubann notað til framkvæmda Sundlaugar og söfn eru lokuð fyrir gestum í samkomubanni en því fer fjarri að allir sitji með hendur í skauti og ekkert sé um að vera. Þvert á móti er þessi óvenjulegi tími notaður til nauðsynlegra framkvæmda og kærkominna breytinga í Sundlaug Akureyrar og á Amtsbókasafninu. Lagfæringar...
https://www.akureyri.is/is/frettir/164-milljonir-til-akureyrar-ur-husafridunarsjodi
16,4 milljónir til Akureyrar úr húsafriðunarsjóði Í byrjun síðustu viku var tilkynnt um úthlutanir úr húsafriðunarsjóði fyrir árið 2020 til viðhalds og viðgerða á friðlýstum og friðuðum húsum. Akureyrarbæ var úthlutað 3,2 milljónum króna til viðhalds á Samkomuhúsinu, Nonnahúsi, Sigurhæðum og Húsi Hákarla-Jörundar í Hrí...
https://www.akureyri.is/is/frettir/lundinn-maettur-i-grimsey
Lundinn mættur í Grímsey Vorið er farið að láta á sér kræla norður við heimskautsbaug eftir frekar erfiðan og snjóþungan vetur. Langvían og álkan eru nú þegar sestar upp í björgin til að tryggja sér hreiðurstæði og lundinn var að mæta. Lundinn kemur ávallt til Grímseyjar um þetta leyti árs. Hann byrjar á því að finna h...
https://www.akureyri.is/is/frettir/paskakvedja-fra-baejarstjora
Páskakveðja frá bæjarstjóra Ég kveiki á kertum mínum við krossins helga tré, orti Davíð Stefánsson frá Fagraskógi í kvæði sínu um föstudaginn langa. Tregafullt lagið sem Guðrún Böðvarsdóttir frá Hrafnseyri við Arnarfjörð samdi við kvæðið, lyftir orðum Davíðs á æðra stig og fyllir páskana af helgi og þökk fyrir lífið. Þ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samthykktar-skipulagstillogur-fyrir-jadarsidu-joninnuhaga-og-hanfarstraeti
Samþykktar skipulagstillögur fyrir Jaðarsíðu, Jóninnuhaga og Hafnarstræti Breyting á deiliskipulagi íbúðarbyggðar við Vestursíðu. Skipulagsráð Akureyrarbæjar hefur þann 29. janúar 2020 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Jaðarsíðu 2. Breytingin felur í sér að einbýlishúsalóð er breytt í parhúsalóð. Byggingarreitur e...
https://www.akureyri.is/is/frettir/til-hamingju-vigdis
Til hamingju, Vigdís Akureyrarbær óskar frú Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands, til hamingju með 90 ára afmælið. Vigdís fæddist 15. apríl 1930 og var fjórði forseti Íslands. Hún gegndi embættinu frá 1980 til 1996. Vigdís var fyrsta konan i heiminum sem kosin var í lýðræðislegum kosningum til að gegna h...
https://www.akureyri.is/is/frettir/frestun-gjalddaga-fasteignagjalda-fyrir-atvinnuhusnaedi
Frestun gjalddaga fasteignagjalda fyrir atvinnuhúsnæði Nú geta eigendur atvinnuhúsnæðis sem eiga við tímabundna rekstrarörðugleika að stríða vegna tekjufalls, sótt um frestun á allt að þremur greiðslum fasteignagjalda sem eru á gjalddaga 3. apríl til og með 3. september 2020. Gilda þar sömu skilyrði og málsmeðferðarreg...
https://www.akureyri.is/is/frettir/deiliskipulag-rangarvalla-nidurstada-baejarstjornar
Deiliskipulag Rangárvalla, niðurstaða bæjarstjórnar Deiliskipulag Rangárvalla, niðurstaða bæjarstjórnar Bæjarstjórn Akureyrarbæjar hefur þann 7. apríl 2020 samþykkt deiliskipulagsbreytingu í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin nær að mestu til lóðar Landsnets sem er nr. 1 við Rangárvelli ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tokum-nagladekkin-ur-umferd-1
Tökum nagladekkin úr umferð Akureyringar eru minntir á að notkun nagladekkja er almennt bönnuð á Íslandi frá og með 15. apríl til og með 31. október nema aðstæður gefi tilefni til annars. Akureyrarbær vill hvetja íbúa til að skipta út nagladekkjum sem allra fyrst. Nagladekk slíta malbiki hraðar en önnur dekk sem hefur ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/unnid-gegn-rakaskemmdum-i-lundarskola
Unnið gegn rakaskemmdum í Lundarskóla Nýverið gerði verkfræðistofan Mannvit úttekt á Lundarskóla vegna hugsanlegra rakaskemmda og komu í ljós skemmdir á afmörkuðum svæðum. Að mati sérfræðinga Mannvits eiga skemmdirnar ekki að hafa veruleg áhrif á kennslu eða annað starf innan skólans, enda verði gripið til fullnægjandi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/betri-rekstrarnidurstada-en-aaetlad-var
Betri rekstrarniðurstaða en áætlað var Akureyrarbær var rekinn með 463 milljóna króna afgangi í fyrra en áætlun hafði gert ráð fyrir 86 milljóna króna halla. Ársreikningar Akureyrarbæjar fyrir árið 2019 voru lagðir fram í bæjarráði í dag. Rekstur samstæðu Akureyrarbæjar var viðunandi og niðurstaða ársins nokkru betri e...
https://www.akureyri.is/is/frettir/opnad-fyrir-umsoknir-i-vinnuskolann
Opnað fyrir umsóknir í Vinnuskólann 22. apríl Sumarið minnir á sig með hækkandi sól og þá styttist í að starfsemi hefjist hjá Vinnuskóla Akureyrar. Opnað verður fyrir umsóknir 22. apríl. Vinnuskólinn verður starfræktur frá 8. júní til 12. ágúst og er fyrir börn og ungmenni á aldrinum 14-17 ára. Börnum í 8. bekk (fædd 2...
https://www.akureyri.is/is/frettir/4-mai-er-ekki-kominn
4. maí er ekki kominn Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri, sendir starfsfólki Akureyrarbæjar kveðju í vikulok með þökk fyrir vel unnin störf en minnir um leið á að 4. maí er ekki kominn og það gæti reynst afdrifaríkt ef við förum ekki áfram að öllu með gát. Tölvupósturinn frá Ásthildi er svohljóðandi: Kæra samstarfsfól...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fundur-i-baejarstjorn-21-april
Fundur í bæjarstjórn 21. apríl Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 21. apríl. Á dagskránni er meðal annars: Lántaka hjá Lánasjóði sveitarfélaga, breytingar á samþykkt fyrir frístundaráð, skjalastefna Akureyrarbæjar og tillaga að breytingu á svæðisskipulagi Eyjafjarðar vegna flutningslí...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vorhreinsun-ad-hefjast
Vorhreinsun að hefjast Á Akureyri fer fram vorhreinsun í öllum hverfum bæjarins þegar snjór og klaki er farinn af götum og stéttum. Stofnbrautir, tengi- og safngötur, húsagötur og gönguleiðir eru sópaðar. Áður en sópað er í einstökum hverfum/húsagötum eru íbúar látnir vita á síðu viðkomandi hverfis á Facebook auk þess ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/aukauthlutun-ur-soknaraaetlun
Aukaúthlutun úr sóknaráætlun Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra auglýsa eftir hugmyndum að áhersluverkefnum fyrir árið 2020. Um er að ræða viðbótarfjármagn af hálfu ríkisins sem veitt er í sóknaráætlanir landshluta, sem og aukið fjármagn samtakanna, vegna áhrifa Covid-19 á samfélagið. Alls eru ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hver-a-skilid-ad-fa-vidurkenningu-fraedslurads
Hver hefur skarað fram úr í skólastarfi? Frá árinu 2010 hefur fræðsluráð veitt þeim sem skarað hafa fram úr í skólastarfi viðurkenningar við hátíðlega athöfn. Viðurkenningarnar eru í tveimur flokkum, það er nemendur annars vegar og skólar/starfsfólk hins vegar. Markmiðið er að vekja sérstaka athygli á því sem vel er ge...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nyr-stigur-inn-glerardalinn
Rúm 21 milljón í nýjan stíg fram Glerárdal Í sumar hefjast framkvæmdir við gerð stígs sem liggja mun fram Glerárdal að austan og inn í botn eða að Lamba, skála Ferðafélags Akureyrar. Verkefnið hlaut styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrr í vikunni að upphæð 21.485.000 króna. Verkefninu er skipt í þrjá hluta og f...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyringar-plokka-a-laugardaginn
Akureyringar plokka á laugardaginn Stóri plokkdagurinn verður haldinn laugardaginn 25. apríl, á Degi umhverfisins, og eru Akureyringar og landsmenn allir hvattir til að plokka rusl. Nú er góður tími til að hreinsa bæinn okkar, enda hopar snjórinn hratt og ýmislegt sem kemur í ljós eftir veturinn. Plokk er frábær útiver...
https://www.akureyri.is/is/frettir/asdis-arnardottir-er-baejarlistamadur-akureyrar-2020
Ásdís Arnardóttir er bæjarlistamaður Akureyrar 2020 Vorkoma Akureyrarstofu var haldin í dag í netheimum. Veittar voru ýmsar viðurkenningar og tilkynnt að bæjarlistamaður Akureyrar árið 2020 er Ásdís Arnardóttir sellóleikari. Vegna samkomubanns var Vorkoman send út á Facebooksíðu Akureyrarbæjar og hægt er að skoða upptö...
https://www.akureyri.is/is/frettir/orkonnun-sumarvinna-18-25-ara
Örkönnun - sumarvinna 18-25 ára Könnun á stöðu ungs fólks á Akureyri varðandi sumarvinnu hefur verið sett upp í þjónustugáttinni. Tilgangurinn er að afla upplýsinga um mögulega þátttöku í atvinnuátaki fyrir 18-25 ára. Í aðgerðaáætlun Akureyrarbæjar vegna efnahagslegra og samfélagslegra áhrifa Covid-19 er gert ráð fyrir...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kynning-a-drogum-ad-breytingu-a-adalskipulagi-akureyrar-2018-2030-stigakerfi-akureyrar
Nýtt stígakerfi Akureyrarbæjar Tillaga að nýju stígakerfi innan Akureyrarbæjar liggur fyrir og er hún sett fram sem breyting að aðalskipulagi 2018-2030. Skipulagsráð bæjarins hefur samþykkt að kynna tillöguna í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felur í sér nýtt heildarskipulag fyrir stí...
https://www.akureyri.is/is/frettir/beitarlond-til-leigu
Beitarlönd til leigu Akureyrarbær auglýsir hér með nokkur beitarlönd til leigu. Eingöngu er hægt að sækja um rafrænt í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar frá og með 30. apríl. Ef fleiri en einn sækir um sama landið verður dregið úr umsóknum. Umsóknarfrestur er til og með 7. maí 2020. Nánari upplýsingar eru gefnar í geg...
https://www.akureyri.is/is/frettir/heimsoknarbanni-aflett-med-takmorkunum
Heimsóknarbanni aflétt með takmörkunum Heimsóknir verða leyfðar á Öldrunarheimilum Akureyrar frá og með 4. maí en þó með ákveðnum takmörkunum. Heimsóknarbann hefur verið í gildi frá 7. mars vegna útbreiðslu Covid-19. Fyrsta tilslökun á samkomubanni verður á mánudaginn. Þá verður almenna reglan sú að 50 manns mega koma ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hvad-breytist-4-mai
Hvað breytist 4. maí? Fyrsta tilslökun á samkomubanni vegna Covid-19 verður á mánudaginn. Þá verður almenna reglan sú að 50 manns mega koma saman í stað 20 áður. Tveggja metra reglan verður áfram í gildi meðal fullorðinna og er mikil áhersla á sóttvarnir og hreinlæti. Samkomubannið og sóttvarnarráðstafanir hafa eðlileg...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vilt-thu-koma-fram
Vilt þú koma fram? Starfsemi í Skógarlundi, miðstöð virkni og hæfingar, tekur breytingum í sumar vegna sumarleyfa starfsmanna. Í fjórar vikur, frá og með 22. júní, mun venjubundin dagskrá leggjast af. Þess í stað verður opið hús alla virka daga kl. 13-16 og boðið upp á ýmislegt skemmtilegt, spjall og kaffisopa. Líkt og...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fundur-i-baejarstjorn-5-mai
Fundur í bæjarstjórn 5. maí Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 5. maí. Á dagskránni er meðal annars: tillaga um breytingar á stefnu aðalskipulags Akureyrar 2018-2030 varðandi heimildir fyrir rekstrarleyfisskylda gististarfsemi á íbúðarsvæðum, umferðaröryggi á Hörgárbraut, og markaðsát...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vorhreinsun-i-fullum-gangi
Vorhreinsun í fullum gangi: Áætlun 4.-9. maí Vorhreinsun á Akureyri er í fullum gangi samkvæmt áætlun. Stofnbrautir, tengi- og safngötur, húsagötur og gönguleiðir eru sópaðar. Í þessari viku sem er að líða undir lok voru Hlíða- og Holtahverfi sópað, auk þess sem haldið var áfram með stofnbrautir. Áður en sópað er í ein...
https://www.akureyri.is/is/frettir/listasafnid-opnad-ad-nyju
Listasafnið opnað að nýju Listasafnið á Akureyri verður opnað aftur 4. maí næstkomandi eftir lokun undanfarnar vikur vegna Covid-19. Fjöldatakmörkun gesta verður miðuð við 50 manns og þeir hvattir til að fylgja tilmælum sem kveða á um tveggja metra fjarlægðartakmarkanir. Í ljósi aðstæðna verða sýningarnar Línur og Sköp...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samthykkt-skipulagstillaga-fyrir-oddeyrargotu-38
Samþykkt skipulagstillaga fyrir Oddeyrargötu 38 Breyting á deiliskipulagi Norðurbrekku – neðri hluta. Skipulagsráð Akureyrarbæjar hefur þann 11. september 2019 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Oddeyrargötu 38. Breytingin felur í sér að byggingarreitur stækkar um 6 metra til suðurs frá núverandi íbúðarhúsi þar sem...
https://www.akureyri.is/is/frettir/drog-ad-breytingu-a-adalskipulagi-akureyrar-2018-2030-og-a-rammahluta-adalskipulags-fyrir-oddeyri
Drög að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 og á Rammahluta aðalskipulags fyrir Oddeyri Skipulagsráð Akureyrarbæjar kynnir, í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 sem nær til götureits sem afmarkast af Hjalteyrargötu í vestri, Kaldbak...
https://www.akureyri.is/is/frettir/stutt-vid-ferda-og-menningarstarfsemi
Stutt við ferða- og menningarstarfsemi Bæjarstjórn samþykkti samhljóða í gær að verja allt að 40 milljónum króna í aðgerðir til að styðja við ferða- og menningarstarfsemi á Akureyri. Akureyrarstofa hefur undirbúið þessar aðgerðir sem eru tilkomnar vegna aðstæðna í þjóðfélaginu. Algjört hrun hefur orðið í ferðaþjónustu,...
https://www.akureyri.is/is/frettir/umferdarstyring-a-strandgotu-austan-hjalteyrargotu-5
Umferðarstýring á Strandgötu austan Hjalteyrargötu Skipulagsráð samþykkti þann 15. janúar 2020, að beiðni Hafnasamlags Norðurlands, að ekki verði leyfður akstur austur Strandgötu, frá Hjalteyrargötu að Laufásgötu. Takmörkun þessi mun gilda frá 1. maí til 25. september 2020 þá daga sem skemmtiferðaskip eru við Oddeyrarb...
https://www.akureyri.is/is/frettir/um-hjolreidar-a-stigum
Alls konar umferð - sýnum tillitssemi Með hækkandi sól og sumri fjölgar þeim sem nota reiðhjól og aðra virka ferðamáta. Margt bendir líka til þess að útivist og hreyfing hafi stóraukist á Akureyri í samkomubanninu og því ber að fagna. Heilsu- og hvatningarátakið Hjólað í vinnuna er nú hafið og eru Akureyringar hvattir ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hreinsunarvikan-er-hafin
Hreinsunarvikan er hafin Árleg hreinsunarvika á Akureyri hófst í dag. Þá eru bæjarbúar hvattir til að taka höndum saman við að hreinsa bæinn eftir veturinn og taka þannig á móti sumrinu með brosi á vör. Hreinsunarvikan stendur raunar í tíu daga, til og með 17. maí, og inniheldur tvær helgar. Starfsfólk Akureyrarbæjar m...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vorhreinsun-i-fullum-gangi-aaetlun-11-15-mai
Vorhreinsun í fullum gangi: Áætlun 11.-15. maí Vorhreinsun á Akureyri heldur áfram af fullum krafti. Stofnbrautir, tengi- og safngötur, húsagötur og gönguleiðir eru sópaðar. Hreinsun hefur gengið vel í vikunni og er nokkurn veginn á áætlun. Í næstu viku eru Norðurbrekka (Mýrarvegur að Þórunnarstræti) og Suðurbrekka (Da...
https://www.akureyri.is/is/frettir/katta-og-hundaeigendur-athugid-2
Katta- og hundaeigendur athugið Í Akureyrarbæ eru í gildi sérstakar samþykktir um bæði katta- og hundahald. Þar er m.a. getið um lausagöngu hunda og bann við næturbrölti katta utandyra. Mikilvægt er að hafa þessi atriði sérstaklega í huga á þessum árstíma þegar varp fugla er hafið í bæjarlandinu og utan þess. Takmarka ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nyr-slokkvibill-til-akureyrar
Nýr slökkvibíll til Akureyrar Slökkvilið Akureyrar hefur fengið afhenta nýja og glæsilega slökkvibifreið sem er sérstaklega hönnuð fyrir björgunar- og slökkvistarf í jarðgöngum. Bíllinn er af gerðinni IVECO og er fjórhjóladrifinn, sjálfskiptur, með slökkvikerfi sem skilar 1.300 lítrum á mínútu, klippubúnað og fimm reyk...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ataksverkefni-um-nytingu-moltu
Átaksverkefni um nýtingu moltu á Norðurlandi Ákveðið hefur verið að ráðast í tilrauna- og átaksverkefni um nýtingu moltu í landbúnaði, skógrækt og landgræðslu á Norðurlandi. Meðal annars á að setja aukinn kraft í gróðursetningu í Græna trefilinn ofan Akureyrar og leggja grunn að Moltulundi í kringum skíðasvæðið í Hlíða...
https://www.akureyri.is/is/frettir/breyting-a-adalskipulagi-akureyrar-2018-2030-gisting-a-ibudarsvaedum-nidurstada-baejarstjornar
Breyting á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 – Gisting á íbúðarsvæðum, niðurstaða bæjarstjórnar Bæjarstjórn Akureyrar hefur þann 5. maí 2020 samþykkt breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 í samræmi við 2. mrg. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna breytingar á rekstrarskyldri gististarfsemi á íbúðarsvæðum. ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skorad-a-fyrirtaeki-ad-taka-thatt-i-hreinsunarataki
Skorað á fyrirtæki að taka þátt í hreinsunarátaki Árleg hreinsunarvika á Akureyri stendur nú sem hæst, en þá er fólk hvatt til að taka höndum saman við að hreinsa bæinn eftir veturinn og taka þannig á móti sumrinu með brosi á vör. Margir bæjarbúar hafa hreinsað í kringum sín hús eða plokkað rusl á almennum svæðum og þv...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nyr-samningur-um-raforkukaup
Nýr samningur um raforkukaup Í dag var undirritaður samningur við Fallorku um raforkukaup Akureyrarbæjar og Hafnasamlags Norðurlands. Samningurinn er gerður að loknu örútboði á grundvelli rammasamnings Ríkiskaupa en þar bauð Fallorka lægst af 5 bjóðendum. Er þetta fyrsta útboð á raforku sem Akureyrarbær stendur að en á...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sundlaugar-verda-opnadar-a-manudag
Sundlaugar verða opnaðar á mánudag Sundlaugar Akureyrarbæjar verða opnaðar að nýju mánudaginn 18. maí en líkt og aðrar sundlaugar landsins hafa þær verið lokaðar frá 24. mars vegna Covid-19. Sundlaugar verða opnaðar á venjulegum tíma og hlakkar starfsfólk þeirra til að taka aftur á móti gestum. Öll hefðbundin starfsemi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fundur-i-baejarstjorn-19-mai
Fundur í bæjarstjórn 19. maí Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 19. maí. Á dagskránni er meðal annars: viðaukar við fjárhagsáætlun, endurskoðun menntastefnu, umræða um fiskeldi í Eyjafirði og starfsáætlun velferðarráðs, Sjá dagskrá fundarins í heild sinni. Fundurinn verður haldinn í H...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyrarbaer-tryggir-ungu-folki-sumarvinnu
Akureyrarbær tryggir ungu fólki sumarvinnu Opnað hefur verið fyrir umsóknir um sumarstörf fyrir 18-25 ára ungmenni á Akureyri. Þessi störf eru tilkomin vegna atvinnuástandsins í þjóðfélaginu og liður í aðgerðum Akureyrarbæjar vegna Covid-19. Annars vegar er um að ræða 100 störf fyrir námsmenn í atvinnuátaki Akureyrarbæ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/laun-unglinga-i-vinnuskola-akureyrarbaejar-sumarid-2020
Laun unglinga í Vinnuskóla Akureyrarbæjar sumarið 2020 Bæjarráð hefur samþykkt að laun unglinga í Vinnuskóla Akureyrarbæjar sumarið 2020 miðist við hlutfall af launaflokki 117 í kjarasamningi Einingar-Iðju og Sambands íslenskra sveitarfélaga og verði sem hér segir: 8. bekkur 30% eða 624 kr./klst., 9. bekkur 40% eða 832...
https://www.akureyri.is/is/frettir/midaldadagar-a-gasum-verda-ekki-i-ar
Miðaldadagar á Gásum verða ekki í ár Stjórn Gásakaupstaðar ses og Gásverjar hafa ákveðið í ljósi aðstæðna að aflýsa Miðaldadögum á Gásum í ár. Síðustu ár hafa um 2.000 manns árlega ferðast aftur til fortíðar þriðju helgina í júlí þegar þeir sækja Miðaldadaga á Gásum í Eyjafirði heim. Í ár verða menn að halda sig í samt...
https://www.akureyri.is/is/frettir/styrkur-til-rafvaedingar-hafna
Styrkur til rafvæðingar hafna Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur úthlutað 43,8 milljónum króna til rafvæðingar hafna á Akureyri. Fjármunirnir nýtast við að undirbúa rafvæðingu Tangabryggju en þar standa nú yfir miklar framkvæmdir. Styrkurinn er hluti af fjárfestingaátaki stjórnvalda vegna heimsfaraldursins, en alls v...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ahugaverdar-visbendingar-um-lidan-barna-i-samkomubanni
Áhugaverðar vísbendingar um líðan barna á tímum Covid-19 Niðurstöður þátttökuverkefnisins „Ég og Kóróna“ benda til þess að Covid-19 faraldurinn og tengdar takmarkanir hafi haft mjög mismunandi áhrif á börn á Akureyri. Þótt þeim hafi almennt gengið ágætlega að laga sig að aðstæðum þá leið mörgum börnum skringilega í sam...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vidburda-og-voruthrounarsjodur-2020
Viðburða- og vöruþróunarsjóður 2020 Akureyrarbær auglýsir eftir umsóknum í sérstakan viðburða- og vöruþróunarsjóð fyrir komandi ferðamannasumar. Markmið sjóðsins eru: Að efla viðburðahald og vöruþróun á Akureyri í ferðaþjónustu, menningarlífi sem og í íþrótta- og útivistargeira á árinu 2020 Að vega á móti neikvæðum afl...
https://www.akureyri.is/is/frettir/umfangsmiklar-endurbaetur-a-lundarskola
Umfangsmiklar endurbætur á Lundarskóla Akureyrarbær hefur ákveðið að ráðast í umfangsmeiri endurbætur og endurnýjun á húsnæði Lundarskóla en til stóð í fyrstu eftir að rakaskemmdir í húsnæðinu voru staðfestar fyrr á árinu. Byggingarnar eru komnar mjög til ára sinna og endurnýjun á húsnæðinu er á framkvæmdaáætlun Akurey...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skipulagsbreytingar-a-oddeyri-ert-thu-med-abendingu
Skipulagsbreytingar á Oddeyri – ert þú með ábendingu? Frestur til að koma á framfæri athugasemdum við tillögu að aðalskipulagsbreytingu fyrir hluta Oddeyrar rennur út miðvikudaginn 27. maí. Íbúar eru hvattir til að kynna sér málið og koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Tillaga að breytingunni var kynnt 6. maí síðastliði...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vidtaekar-adgerdir-til-ad-baeta-umferdaroryggi-a-horgarbraut
Aðgerðir til að bæta umferðaröryggi á Hörgárbraut Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti á dögunum tillögur að úrbótum í samvinnu við Vegagerðina til að auka umferðaröryggi á Hörgárbraut milli Glerár og Undirhlíðar. Mikil umferð er alla jafna um þennan kafla og hafa orðið of mörg slys og óhöpp á undanförnum árum. Þótt nýlega ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hesjuvellir-tillaga-ad-deiliskipulagi-1
Hesjuvellir – Tillaga að deiliskipulagi Bæjarstjórn Akureyrarbæjar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagi. Skipulagssvæðið nær til lands Hesjuvalla ofan Lögmannshlíðarvegar upp að afmörkun skógræktarsvæðisins Græna trefilsins. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir 0,35 ha sv...
https://www.akureyri.is/is/frettir/listasafnid-fekk-styrk-ur-barnamenningarsjodi
Listasafnið fékk styrk úr Barnamenningarsjóði Listasafnið á Akureyri hlaut á dögunum milljón króna styrk frá Barnamenningarsjóði fyrir verkefnið "Allt til enda – Listvinnustofur barna í Listasafninu á Akureyri" sem fer fram í byrjun árs 2021. Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, er umsjónarkona verkefnisins se...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyrarbaer-er-fyrsta-barnvaena-sveitarfelagid-a-islandi
Akureyrarbær er fyrsta barnvæna sveitarfélagið á Íslandi Akureyrarbær varð í dag fyrst sveitarfélaga á Íslandi til að hljóta viðurkenningu Barnvænna sveitarfélaga. Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, og Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, afhentu Ásthildi Sturludóttur, bæjarstjóra...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kvoldopnun-i-lautinni-i-sumar
Kvöldopnun í Lautinni í sumar Lautin, athvarf fyrir fólk með geðraskanir, verður opin á þriðjudagskvöldum í sumar með fjölbreyttri dagskrá. Þetta er viðbót við aðra þjónustu á vegum Lautarinnar. Markmiðið er að rjúfa félagslega einangrun, auka lífsgæði þeirra sem glíma við geðræna sjúkdóma og draga úr fordómum í samfél...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fundur-i-baejarstjorn-2-juni
Fundur í bæjarstjórn 2. júní Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 2. júní. Á dagskránni er meðal annars: kosning forseta og skrifara bæjarstjórnar til eins árs, kosning bæjarráðs til eins árs, breytt gjaldskrá fyrir bílastæðasjóð og tillögur að breytingum á deiliskipulagi Gilsbakkavegs ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vidburda-og-voruthrounarsjodur-sidasti-sens
Viðburða- og vöruþróunarsjóður - síðasti séns Frestur til að sækja um styrk í sérstakan viðburða- og vöruþróunarsjóð fyrir komandi ferðamannasumar á Akureyri rennur út á miðnætti á morgun, 3. júní. Markmið sjóðsins eru: Að efla viðburðahald og vöruþróun á Akureyri í ferðaþjónustu, menningarlífi sem og í íþrótta- og úti...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ovaentur-lidsauki-i-raektunarstodinni
Vinnugleði í Ræktunarstöðinni Mikið og blómstrandi líf er í Ræktunarstöð Akureyrarbæjar um þessar mundir. Á meðan starfsfólk undirbýr sumarblómin þá rækta Akureyringar eigið grænmeti sem aldrei fyrr og sjálfboðaliðar úr hópi eldri borgara prikla trjáplöntur. Mikil aukning í grænmetisræktun Líkt og undanfarin ár gefst f...
https://www.akureyri.is/is/frettir/mikil-fjolgun-i-vinnuskolanum
Mikil fjölgun ungmenna í Vinnuskólanum 696 ungmenni sóttu um í Vinnuskóla Akureyrar í sumar sem er fjölgun um ríflega 50% frá 2019. Mest er aukningin meðal 17 ára umsækjenda, eða 126 umsóknir samanborið við 38 í fyrra. Bæjarráð samþykkti á fimmtudag tímafjölda hjá starfsfólki Vinnuskólans. 14 ára börnum (fædd 2006) ste...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samthykkt-skipulagstillaga-fyrir-sandgerdisbot
Samþykkt skipulagstillaga fyrir Sandgerðisbót Breyting á deiliskipulagi Sandgerðisbótar. Bæjarstjórn Akureyrarbæjar hefur þann 18. febrúar 2020 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Sandgerðisbót. Breytingin felur í sér að bætt er við íbúðarhúsalóð á svæði þar sem húsið Byrgi stendur, en fyrirhugað er að rífa það hús....
https://www.akureyri.is/is/frettir/sumarfjor-i-skogarlundi-22-juni-17-juli
Sumarfjör í Skógarlundi 22. júní - 17. júlí Boðið verður upp á skemmtilegt frístundastarf fyrir fatlað fólk í húsnæði Skógarlundar á meðan venjubundin starfsemi þar fer í sumarfrí. Sumarfjör er opið öllum 16 ára og eldri og þurfa þátttakendur ekki að hafa sótt þjónustu í Skógarlund áður. Á virkum dögum frá 22. júní til...
https://www.akureyri.is/is/frettir/gjold-vegna-stodubrota-haekka
Gjöld vegna stöðubrota hækka Bæjarstjórn Akureyrar hefur samþykkt breytingu á gjaldskrá bifreiðastæðasjóðs sem tekur gildi frá 1. júlí næstkomandi. Þá verða gjöld vegna stöðubrota, þegar ökutækjum er lagt ólöglega, hækkuð úr 11.000 krónum í 20.000 krónur. Þetta er hluti af átaki sveitarfélagsins til að koma í veg fyrir...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samthykkt-skipulagstillaga-fyrir-rangarvelli
Samþykkt skipulagstillaga fyrir Rangárvelli Breyting á deiliskipulagi Rangárvalla. Bæjarstjórn Akureyrarbæjar hefur þann 7. apríl 2020 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Rangárvelli. Breytingin felur í sér að afmarkað er lagnabelti fyrir flutningslínur raforku í stað nákvæmrar legu hverrar línu, lóð nr. 1 er stækku...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fraedslurad-afhendir-vidurkenningar-2
Fræðsluráð afhendir viðurkenningar Fræðsluráð boðaði til samverustundar í Hofi sl. miðvikudag þar sem nemendum og starfsfólki leik- og grunnskóla Akureyrar voru veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi skólastarf skólaárið 2019-2020. Markmiðið með viðurkenningunum er að vekja sérstaka athygli á því sem vel er gert o...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fimm-nyjar-syningar-i-listasafninu
Fimm nýjar sýningar í Listasafninu á Gildegi Laugardaginn 6. júní kl. 12 verða fimm sýningar opnaðar í Listasafninu á Akureyri. Listagilið verður lokað frá kl. 14-17. Sýningarnar í Listasafninu eru: Brynja Baldursdóttir – Sjálfsmynd Heimir Björgúlfsson – Zzyzx Jóna Hlíf Halldórsdóttir – Meira en þúsund orð Samsýning – ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nytt-leiksvaedi-i-skatagilinu
Leiksvæði í Skátagilinu og brettavöllur í Hrísey Framkvæmdir standa nú yfir í Skátagilinu þar sem verður útbúið leiksvæði með leiktækjum sem eiga að höfða til yngstu kynslóðarinnar. Jarðvegsvinna hófst fyrir nokkrum dögum og gert er ráð fyrir að verkinu verði lokið fyrir 17 júní. Rennibraut í Skátagilið síðar í sumar S...
https://www.akureyri.is/is/frettir/breytt-svaedisskipulag-eyjafjardar-vegna-flutningslina-raforku
Breytt Svæðisskipulag Eyjafjarðar Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar samþykkti þann 31. mars 2020 tillögu að breytingu á Svæðisskipulagi Eyjafjarðar 2012-2024 vegna flutningslína raforku. Breytt stefna Svæðisskipulags Eyjafjarðar 2012-2024 um flutningslínur raforku er árétting þeirrar stefnu, sem sett var fram í svæðissk...
https://www.akureyri.is/is/frettir/god-reynsla-af-sveigjanlegri-dagthjalfun
Góð reynsla af sveigjanlegri dagþjálfun Nýsköpunar- og þróunarverkefni um sveigjanlega dagþjálfun hjá Öldrunarheimilum Akureyrar hefur reynst mikilvægur hlekkur í viðbrögðum við hækkandi hlutfalli aldraðra og breytilegum þörfum þeirra. Niðurstaða áfangamats að loknu fyrsta starfsári er að sveigjanleg dagþjálfun hafi au...
https://www.akureyri.is/is/frettir/forsetakosningar-27-juni-nk
Forsetakosningar 27. júní Forsetakosningar verða laugardaginn 27. júní 2020. Akureyrarbæ verður skipt í tólf kjördeildir, tíu á Akureyri, eina í Hrísey og eina í Grímsey. Á Akureyri verður kjörstaður í Verkmenntaskólanum á Akureyri, í Hrísey verður kjörstaður í Hríseyjarskóla og í Grímsey verður kjörstaður í Félagsheim...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vorverkin-halda-afram-thvottur-a-gotum
Vorverkin halda áfram: Þvottur á götum Vorhreinsun gatna hófst seinni partinn í apríl og um mánaðamótin síðustu var lokið við að sópa bæinn. Næsta skref er að þvo göturnar almennilega eftir veturinn. Tilkynningar verða settar upp í hverfunum þegar líður að hreinsun og einnig inn á hverfissíður á Facebook. Verkið hefst ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjolbreytt-og-skemmtileg-sumarnamskeid
Fjölbreytt og skemmtileg sumarnámskeið Úrval námskeiða og sumarstarfs á Akureyri fyrir börn á aldrinum 5-16 ára er einstaklega fjölbreytt, litríkt og skemmtilegt. Mikilvægt er að börnin okkar hafi eitthvað skemmtilegt og uppbyggilegt fyrir stafni. Íþróttaskólar, hjólabrettanámskeið, sirkussmakk og vísindaskóli er brot ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/mikilvaegt-skref-i-rafvaedingu-hafna
Mikilvægt skref í rafvæðingu hafna Í morgun var undirritaður samningur vegna styrkveitingar ríkisins til rafvæðingar hafna á Akureyri. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, og Pétur Ólafsson hafnarstjóri undirrituðu samninginn að viðstaddri Ásthildi Sturludóttur bæjarstjóra á Akureyri. Styrkurinn...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjoldi-athugasemda-vid-tillogu-ad-skipulagsbreytingu
Fjöldi athugasemda við tillögu að skipulagsbreytingu Í vikunni voru lagðar fram til kynningar í skipulagsráði athugasemdir og umsagnir sem bárust við tillögu að breytingu á aðalskipulagi á Oddeyri. Tillagan var kynnt 6. maí og rann athugasemdafrestur út þremur vikum seinna. Breytingin nær til reits sem afmarkast af Hja...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fritt-i-hriseyjarferjuna-ut-juni
Frítt í Hríseyjarferjuna út júní Stjórn Akureyrarstofu samþykkti á fundi sínum miðvikudaginn 10. júní sl. að veita allt að tveimur milljónum króna í styrk til Ferðamálafélags Hríseyjar til að gera því kleift að fella niður fjargjöld í Hríseyjarferjuna Sævar í samstarfi við rekstraraðila hennar. Frítt verður í ferjuna f...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fundur-i-baejarstjorn-16-juni
Fundur í bæjarstjórn 16. júní Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 16. júní. Á dagskránni er meðal annars: deiliskipulag Hvannavallareits, breyting á aðalskipulagi sem nær til lóðarinnar Norðurvegur 6-8 í Hrísey, Vefstefna Akureyrarbæjar og starfsáætlun og stefnuumræða fræðsluráðs. Sjá ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kaupvangsstraeti-lokad-vegna-malningarvinnu
Kaupvangsstræti lokað vegna málningarvinnu Kaupvangsstræti verður lokað sitt hvoru megin við gangbrautina norðan við Hótel KEA á morgun, þriðjudaginn 16. júní milli kl. 9 og 16, vegna málningarvinnu. Ungmenni á aldrinum 14-16 ára sem eru í vinnuhóp í Rósenborg á vegum Vinnuskólans ætla að mála gangbrautina í regnbogali...
https://www.akureyri.is/is/frettir/thjodhatid-med-odru-snidi
Þjóðhátíð með öðru sniði Hátíðarhöld á Akureyri þjóðhátíðardaginn 17. júní verða með óhefðbundnu sniði að þessu sinni. Ekki verður safnast saman í Lystigarðinum eða miðbænum eins og verið hefur síðustu árin. Þess í stað verður sérstakur blómabíll á ferð um bæinn frá kl. 13 og kl. 15 hefst skemmtidagskrá fyrir yngri kyn...
https://www.akureyri.is/is/frettir/slattur-og-umhirda-i-baejarlandinu
Sláttur og umhirða í bæjarlandinu Grassláttur í bæjarlandinu hófst í lok maí sem er nokkru seinna en í fyrra. Tíðarfarið hefur þar mest að segja, en almennt eru flest svæði orðin græn og falleg í dag. Óheimilt er að geyma tjaldvagna, fellihýsi og annað þvíumlíkt á grassvæðum í eigu Akureyrarbæjar, því annars eru svæðin...
https://www.akureyri.is/is/frettir/losunarsvaedi-vid-jadar-lokad-um-helgina
Losunarsvæði við Jaðar lokað um helgina Moldarlosunarsvæðið við Jaðar verður lokað á neðangreindum tíma vegna Íslandsmóts í holukeppni sem fram fer á Jaðarsvelli um helgina. Lokað verður: Föstudag 19. júní kl. 8-18 Laugardag 20. júní kl. 8-17 Sunnudag 21. Júní kl. 8-16 Íslandsmótið í holukeppni er eitt af stærstu mótum...
https://www.akureyri.is/is/frettir/midbaer-gilsbakkavegur-15-tillaga-ad-deiliskipulagsbreytingu
Miðbær - Gilsbakkavegur 15 – Tillaga að deiliskipulagsbreytingu Miðbær - Gilsbakkavegur 15 – Tillaga að deiliskipulagsbreytingu Bæjarstjórn Akureyrarbæjar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu sem nær til lóðarinnar Gilsbakkavegar 15 og svæðis suður af henn...
https://www.akureyri.is/is/frettir/lundarsel-og-stefania-hljota-jafnrettisvidurkenningar
Lundarsel og Stefanía hljóta jafnréttisviðurkenningar Leikskólinn Lundarsel og Stefanía Sigurdís Jóhönnudóttir hlutu í gær jafnréttisviðurkenningar Akureyrarbæjar. Frístundaráð Akureyrarbæjar veitti þriðja árið í röð sérstakar viðurkenningar vegna jafnréttismála. Viðurkenningarnar voru veittar við hátíðlega athöfn fyri...
https://www.akureyri.is/is/frettir/godir-gestir-hja-baejarstjora-1
Góðir gestir hjá bæjarstjóra Í morgun gengu á fund bæjarstjóra, Ásthildar Sturludóttur, þau Briet Tinna Temara, 8 ára, og Tómas Bjarkason Lind, 9 ára, með hugmynd að nýrri miðstöð til að bjarga heimilislausum dýrum. En hvernig kviknaði hugmyndin? Jú, Bríet flutti nýlega heim frá Singapúr og þar sá hún marga heimilislau...
https://www.akureyri.is/is/frettir/spennandi-sumarstorf-fyrir-namsmenn
Spennandi sumarstörf fyrir námsmenn Akureyrarbær auglýsir í samstarfi við Vinnumálastofnun fjölbreytt sumarstörf fyrir námsmenn á Akureyri. Þetta eru spennandi en um leið krefjandi störf sem eru hluti af sérstöku atvinnuátaki vegna aðstæðna í þjóðfélaginu. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf mjög fljótlega. Nemi í lö...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nytt-fallegt-og-skemmtilegt-i-midbaenum
Nýtt, fallegt og skemmtilegt í miðbænum Margt gleður augað í miðbæ Akureyrar og er sumt af því nýtilkomið. Rautt hjarta við suðurenda Göngugötunnar og regnbogabraut yfir Kaupvangsstræti vekja verðskuldaða athygli vegfarenda á meðan leiksvæði í Skátagilinu gleður yngstu kynslóðina. Hjartað var vígt með glæsilegri athöfn...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hvad-a-nyja-bruin-ad-heita
Hvað á nýja brúin yfir vestari kvísl Eyjafjarðarár að heita? Akureyrarbær efnir til verðlaunasamkeppni um heiti á nýju brúna yfir vestari kvísl Eyjafjarðarár. Óskað er eftir að fólk sendi inn tillögu að nafni á netfangið bru@akureyri.is fyrir dagslok mánudaginn 29. júní nk. Brúin verður vígð kl. 18 miðvikudaginn 1. júl...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hvannavallareitur
Hvannavallareitur – Glerárgata 36 – Tillaga að deiliskipulagi Bæjarstjórn Akureyrarbæjar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagi sem nær til lóðar nr. 36 við Glerárgötu ásamt aðliggjandi götum. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir því að heimilt verði að rífa núverandi byggi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/godur-baer-betri-baer-i-visindaskola-unga-folksins
Góður bær, betri bær í Vísindaskóla unga fólksins Akureyrarbær er meðal þátttakenda í Vísindaskóla unga fólksins að þessu sinni. Starfsfólk bæjarins heldur námskeið undir yfirskriftinni Akureyri – góður bær, betri bær Vísindaskóli unga fólksins er nú haldinn í sjötta sinn í Háskólanum á Akureyri. Skólinn er fyrir áhuga...
https://www.akureyri.is/is/frettir/upplysingar-fra-natturuhamfaratryggingu-islands
Upplýsingar frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands Þótt skjálftahrinan hér á Norðurlandi sé nú vonandi að verða gengin yfir, viljum við benda á þetta minnisblað frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands varðandi tryggingar gegn tjónum af völdum jarðskjálfta. NTÍ ráðleggur þeim sem eiga innbú og lausafé að kanna stöðu sína í sam...