Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.akureyri.is/is/frettir/svifryksmaelir-biladur-9
Svifryksmælir bilaður - UPPFÆRT kominn í lag Svifryksmælir við Strandgötu, sem gefur upplýsingar um loftgæði í bænum, er bilaður. Viðgerð er hafin og er vonast til að hún taki skamman tíma. Á loftgæðavef Umhverfisstofnunar er hægt að fylgjast með mældum styrk svifryks við Strandgötu. Lítið er að marka nýjustu tölur, en...
https://www.akureyri.is/is/frettir/breytingar-a-vidveru-vegna-styrkumsokna-i-uppbyggingarsjod
Breytingar á viðveru vegna styrkumsókna í Uppbyggingarsjóð Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra og hugðist starfsfólk SSNE hafa viðveru á völdum stöðum næstu í viku en vegna neyðarstigs almannvarna verður um rafræna fundi að ræða. Hægt er að bóka tíma hjá ráðgjöfum SSNE í g...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nytt-leidanet-kynnt-a-naestunni
Nýtt leiðanet strætó kynnt á næstunni Von er á tillögum að nýju leiðaneti Strætisvagna Akureyrar. Tillögurnar verða kynntar ítarlega á næstu vikum og samráðs leitað við íbúa með fjölbreyttum hætti. Að undanförnu hefur átt sér stað vinna við endurskoðun á leiðanetinu. Þótt metnaður hafi verið lagður í að gera almennings...
https://www.akureyri.is/is/frettir/lokanir-i-naustaborgum-vegna-framkvaemda
Lokanir í Naustaborgum vegna framkvæmda Framkvæmdir á vegum Landsnets vegna Hólasandslínu 3 eru að hefjast í Eyjafirði með lagningu ídráttarröra í jaðar Naustaflóa. Vegna framkvæmdanna þarf að takmarka aðgengi að nokkrum göngu- og reiðleiðum í Naustaborgum. Frá og með deginum í dag, 13. október, verða rauðmerktar leiði...
https://www.akureyri.is/is/frettir/koronuveirusmit-i-arholti
Kórónuveirusmit í Árholti Leikskóladeildinni Árholti var lokað í morgun eftir að barn þar greindist með kórónuveiruna. Allt starfsfólk leikskóladeildarinnar og börn eru farin í varúðarsóttkví vegna smitsins. Beðið er frekari fyrirmæla frá sóttvarnayfirvöldum. Í Árholti hafa verið 17 börn og 7 starfsmenn en deildin tilh...
https://www.akureyri.is/is/frettir/um-grimunotkun-starfsfolks-akureyrarbaejar-1
Um grímunotkun starfsfólks Akureyrarbæjar Vegna vaxandi útbreiðslu kórónuveirunnar á Íslandi eru það eindregin tilmæli frá bæjarstjóra og sviðsstjórum Akureyrarbæjar að starfsfólk sem hefur verið einhverra erinda á höfuðborgarsvæðinu eða öðrum skilgreindum áhættusvæðum vegna Covid-19, noti andlitsgrímur við störf sín h...
https://www.akureyri.is/is/frettir/folf-vid-heimskautsbaug-1
Folf við Heimskautsbaug Í vikunni stóð Kiwanisklúbburinn Grímur að uppsetningu folfvallar í Grímsey. Folf er íþrótt sem er nokkurs konar bræðingur af frisbí og golfi. Þar reyna menn að kasta frisbí-diskum í sérútbúnar körfur á þar til gerðum völlum og reyna menn að fara hverja braut í sem fæstum köstum. Íþróttin nýtur ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/smit-i-oddeyrarskola
Smit í Oddeyrarskóla Í gær greindist nemandi á miðstigi Oddeyrarskóla á Akureyri með staðfest smit af Covid-19. Vegna þessa hefur skólanum verið lokað og allt starfsfólk og nemendur sæta nú úrvinnslusóttkví á meðan smitrakning fer fram. Starfsfólk, nemendur og foreldrar þeirra eru beðnir að fylgjast vel með því hvort f...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fundur-i-baejarstjorn-thridjudaginn-20-oktober
Fundur í bæjarstjórn þriðjudaginn 20. október Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 20. október. Á dagskránni er meðal annars endurskoðun á reglum um sérstakan húsnæðisstuðning, breytingar á reglum um nefndarlaun, breytingar á aðalskipulagi Holtahverfis og breytingar á aðalskipulagi tjal...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nytum-okkur-rafraena-thjonustu
Nýtum okkur rafræna þjónustu Íbúar eru hvattir til að nota rafrænar þjónustu- og samskiptaleiðir Akureyrarbæjar eins og kostur er til þess að draga úr smithættu. Vegna vaxandi útbreiðslu Covid-19 er mikilvægt að draga úr umferð um skrifstofur bæjarins og standa þannig vörð um nauðsynlega þjónustu. Margar rafrænar leiði...
https://www.akureyri.is/is/frettir/breyttur-afgreidslutimi-a-jardvegslosunarsvaedinu
Breyttur afgreiðslutími á jarðvegslosunarsvæðinu Vetrarafgreiðslutími á jarðvegslosunarsvæðinu að Jaðri hefur nú tekið gildi. Opið er á svæðinu samkvæmt samkomulagi og þarf að hafa samband í síma 620-6020 ef óskað er eftir því að losa. Svæðið er ætlað fyrir meiriháttar losun sem er í flestum tilvikum frá atvinnustarfse...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vinnu-vid-ad-baeta-umferdaroryggi-midar-vel
Vinnu við að bæta umferðaröryggi miðar vel Fyrstu vísbendingar benda til þess að skilti með upplýsingum um raunhraða ökutækja, sem nýlega voru sett við Hörgárbraut, geri gagn með því að stuðla að lækkun umferðarhraða. Skiltin voru sett niður í byrjun október sem liður í aðgerðaáætlun til að bæta umferðaröryggi á svæðin...
https://www.akureyri.is/is/frettir/grimuskylda-i-straeto
Grímuskylda í strætó Ný reglugerð heilbrigðisráðherra sem tók gildi á miðnætti kveður á um að nota beri andlitsgrímur sem hylja nef og munn þegar ekki er unnt að tryggja 2ja metra fjarlægðarmörk. Þetta gerir það að verkum að taka verður upp grímuskyldu í Strætisvögnum Akureyrar. Börn fædd 2005 eða síðar eru þó undanþeg...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skyrsla-baejarstjora-710-20102020
Skýrsla bæjarstjóra 7/10-20/10/2020 Í lok hvers bæjarstjórnarfundar fer bæjarstjóri yfir helstu verkefni hverju sinni. Efni skýrslunnar getur tekið breytingum í flutningi. Flutt á fundi bæjarstjórnar 20. október 2020. Síðustu vikurnar hafa litast mjög af viðbrögðum samfélagsins við þriðju bylgju Covid-19 og í hendur vi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/haustfri-a-akureyri-1
Haustfrí á Akureyri Haustfrí eru nú í grunnskólum Akureyrar og mörgum öðrum grunnskólum landsins. Á Akureyri er margt skemmtilegt í boði fyrir alla fjölskylduna til að lyfta sér á kreik og bregða á leik. Akureyrarstofa hefur tekið saman yfirlit yfir ýmislegt sem hægt er að taka sér fyrir hendur í leyfinu, m.a. upplýsin...
https://www.akureyri.is/is/frettir/umsoknarfrestur-rennur-ut-a-midnaetti
Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti Umsóknarfrestur um styrk úr aukaúthlutun Menningarsjóðs rennur út á miðnætti í dag, föstudaginn 23. október. Þessi úthlutun er hluti af markaðs- og vöruþróunarátaki Akureyrarbæjar fyrir sumarið 2020 og eru samtals 5.000.000 kr. til úthlutunar. Áhersla er lögð á verkefni sem eru atvi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/afslattur-af-vetrarkortum-i-fjallid
Afsláttur af vetrarkortum í Fjallið Ákveðið hefur verið að þeir sem áttu vetrarkort í Hlíðarfjall síðasta vetur fái góðan afslátt af kortum fyrir komandi skíðavetur. Þetta er viðleitni til að bæta upp fyrir þá daga sem handhafar skíðakorts urðu af síðasta vetur þegar loka þurfti skíðasvæðinu vegna Covid-19 undir lok ma...
https://www.akureyri.is/is/frettir/oskad-er-eftir-bakvordum-i-velferdarthjonustu
Óskað er eftir bakvörðum í velferðarþjónustu Akureyrarbær leitar liðsauka til að sinna störfum í velferðarþjónustu og vera hluti af bakvarðasveit til tímabundinnar aðstoðar. Nú þegar heimsfaraldur Covid-19 gengur yfir getur komið upp sú staða að starfsemi viðkvæmra eininga á vinnustöðum Akureyrarbæjar raskist með mögul...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nidurstada-baejarstjornar-adalskipulagsbreyting-i-holtahverfi
Niðurstaða bæjarstjórnar - Aðalskipulagsbreyting í Holtahverfi Bæjarstjórn Akureyrarbæjar hefur þann 20. október 2020 samþykkt breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 vegna Holtahverfis. Breytingin felur í sér minniháttar breytingu á ákvæðum fyrir íbúðasvæði ÍB17 og ÍB18. Breytingin telst óveruleg og hefur fengið...
https://www.akureyri.is/is/frettir/smit-i-siduskola
Smit í Síðuskóla Starfsmaður í frístund í Síðuskóla hefur greinst með Covid-19. Viðkomandi fékk einkenni um liðna helgi og var smitið staðfest í gær. Starfsmenn frístundar sem unnu með viðkomandi á fimmtudag og föstudag í síðustu viku og börn sem voru í frístund þá daga hafa verið send heim í úrvinnslusóttkví. Af þessu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skipulagslysing-fyrir-tjaldsvaedisreit-vid-thorunnarstraeti-a-akureyri
Skipulagslýsing fyrir tjaldsvæðisreit við Þórunnarstræti á Akureyri Unnið er að gerð aðalskipulagsbreytingar fyrir tjaldsvæðissreitinn við Þórunnarstræti. Skipulagssvæðið afmarkast af Þingvallastræti í norðri, Þórunnarstræti í austri, Hrafnagilsstræti í suðri og Byggðavegi í vestri. Í gildandi aðalskipulagi skiptist la...
https://www.akureyri.is/is/frettir/breidholt-tillaga-ad-deiliskipulagsbreytingu
Breiðholt – Tillaga að deiliskipulagsbreytingu Bæjarstjórn Akureyrarbæjar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir yfirbyggðum hringgerðum við Breiðholtsveg 6 og Perlugötu 14 í Breiðholtshverfi. Hægt er að skoða tillöguna hér. Fr...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fyrstu-tillogur-ad-nyju-leidaneti-sva
Fyrstu tillögur að nýju leiðaneti SVA Fyrstu tillögur að nýju leiðaneti Strætisvagna Akureyrar hafa litið dagsins ljós. Kynningar- og samráðsferli tekur nú við og er óskað eftir ábendingum frá íbúum um tillögurnar. Allar upplýsingar má nálgast á sérstöku vefsvæði verkefnisins sem var opnað í dag. Ný hugmyndafræði Markm...
https://www.akureyri.is/is/frettir/smit-i-5-bekk-i-brekkuskola
Smit í 5. bekk í Brekkuskóla Staðfest hefur verið að barn í 5. bekk í Brekkuskóla er með Covid-19. Af þessum sökum, og á meðan smitrakning fer fram, eru allir nemendur árgangsins sem voru í skólanum miðvikudaginn 28. október komnir í sóttkví sem og kennarar 5. bekkjar sem höfðu verið í samskiptum við barnið. Skólastjór...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fundur-i-baejarstjorn-thridjudaginn-3-november
Fundur í bæjarstjórn þriðjudaginn 3. nóvember Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 3. nóvember. Á dagskránni er meðal annars lántaka hjá Lánasjóði sveitarfélaga, framtíðarstaðsetning Reykjavíkurflugvallar og möguleiki á styttingu þjóðvegar milli Akureyrar og Reykjavíkur. Sjá dagskrá fun...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ahrif-a-thjonustu-akureyrarbaejar-1
Áhrif hertra aðgerða á þjónustu Akureyrarbæjar Hertar sóttvarnarráðstafanir taka gildi um allt land laugardaginn 31. október og hafa ýmis konar áhrif á þjónustu Akureyrarbæjar. Gegnumgangandi má segja að þjónusta skerðist að nokkru leyti en þó mismikið. Fólk er hvatt til að forðast bein samskipti við aðra og nýta þess ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kennari-i-lundarskola-greindist-med-covid-19
Kennari í Lundarskóla greindist með Covid-19 Kennari í 1. bekk í Lundarskóla á Akureyri hefur greinst með Covid-19. Nemendur í 1. bekk þurfa því að vera í sóttkví til föstudagsins 6. nóvember ásamt starfsfólki í sóttvarnarhólfinu þar sem kennarinn starfaði. Nemendur í 1. bekk sem voru ekki í skólanum á fimmtudag og fös...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skipulagsdagur-manudaginn-2-november-2020
Skipulagsdagur mánudaginn 2. nóvember 2020 Fræðsluyfirvöld á Akureyri hafa ákveðið að hafa skipulagsdag mánudaginn 2. nóvember í leik- og grunnskólum, tónlistarskólanum og frístundastarfi vegna hertra sóttvarnaaðgerða stjórnvalda. Þetta er gert svo starfsfólk skólanna fái svigrúm til að endurskipuleggja skólastarfið og...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyri-ljosum-prydd
Akureyri ljósum prýdd Starfsmenn umhverfismiðstöðvar Akureyrarbæjar byrja að tendra jólaljósin vítt og breitt um bæinn á allra næstu dögum. Þar með fer bærinn okkar í jólaklæðin og er skorað á bæjarbúa að láta ekki sitt eftir liggja heldur tendra jólaljósin við heimili sín og lýsa þannig upp svartasta skammdegið. Hugum...
https://www.akureyri.is/is/frettir/afrekssjodur-akureyrarbaejar-auglyst-eftir-umsoknum
Afrekssjóður Akureyrarbæjar - auglýst eftir umsóknum Auglýst er eftir umsóknum í afrekssjóð Akureyrarbæjar fyrir árið 2020. Markmið sjóðsins er meðal annars að styrkja afreksíþróttaefni, á sextánda aldursári eða eldri, til æfinga og keppni undir merkjum aðildarfélaga ÍBA. Afreksíþróttefni eru þau sem talið er að geti, ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/haegt-ad-panta-baekur-og-gogn
Hægt að panta bækur og gögn Í ljósi hertra sóttvarnaraðgerða er Amtsbókasafnið á Akureyri lokað um óákveðinn tíma. Á meðan bókasafnið er lokað er hægt að panta bækur og önnur safngögn. Sjá leiðbeiningar og fyrirkomulag á heimasíðu Amtsbókasafnsins.
https://www.akureyri.is/is/frettir/skyrsla-baejarstjora-2110-3112020
Skýrsla bæjarstjóra 21/10-3/11/2020 Í lok hvers bæjarstjórnarfundar fer bæjarstjóri yfir helstu verkefni hverju sinni. Efni skýrslunnar getur tekið breytingum í flutningi. Flutt á fundi bæjarstjórnar 3. nóvember 2020. Þriðjudaginn 20. október hóf ég fundatörn þar sem fór fram tveggja manna tal við hvern og einn sviðsst...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skammtimathjonustu-fyrir-fatlada-i-thorunnarstraeti-lokad-vegna-covid-19-smits
Skammtímaþjónustu fyrir fatlaða í Þórunnarstræti lokað vegna Covid-19 smits Starfsmaður í skammtíma- og frístundaþjónustu fyrir fatlaða á Akureyri hefur greinst með Covid-19. Viðkomandi starfaði í Þórunnarstræti 99 og hefur starfsemi þar verið lögð af á meðan smitrakning fer fram. Af þessum sökum þurfa um eða yfir 30 s...
https://www.akureyri.is/is/frettir/eru-nagladekkin-naudsynleg
Eru nagladekkin nauðsynleg? Nú þegar nóvember er genginn í garð má búast við því að margir bifreiðaeigendur hugi að því að skipta yfir á vetrardekk. Akureyrarbær vill hvetja þá sem mögulega geta til þess að velja vistvæna kosti í þeim efnum. Nagladekkin eiga sinn þátt í svifryki, auk þess að valda hávaða og slíta malbi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/aframhaldandi-framkvaemdir-vegna-holasandslinu-3
Áframhaldandi framkvæmdir vegna Hólasandslínu 3 Framkvæmdir á vegum Landsnets vegna jarðstrengs Hólasandslínu 3 halda áfram. Á næstu vikum verða lögð ídráttarör undir Eyjafjarðará. Í lok vikunnar hefst samsetning ídráttarröra og hefur suðugámur verið staðsettur við aðstöðu hestaleigunnar austan árinnar. Að samsetningu ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/malthing-um-ibuasamrad-hja-sveitarfelogum
Málþing um íbúasamráð hjá sveitarfélögum Málþing um íbúasamráð verður haldið á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga mánudaginn 9. nóvember kl. 9:30-12:00. Þar verður fjallað um reynsluverkefni Akureyrarbæjar og þriggja annarra sveitarfélaga á þessu sviði. Akureyrarbær og Sambandið fengu í lok árs 2018 styrk frá Jöfnu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kynningarfundur-um-nytt-leidanet-sva
Kynningarfundur um nýtt leiðanet SVA Rafrænn kynningarfundur um nýtt leiðanet Strætisvagna Akureyrar verður haldinn á morgun, miðvikudaginn 11. nóvember, kl. 17-18. Fyrstu tillögur að nýju leiðaneti hafa litið dagsins ljós og er óskað eftir ábendingum frá íbúum um tillögurnar. Sjá nýlega frétt um málið og einnig vefsvæ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/mikill-ahugi-a-nyju-leidaneti-uptaka-fra-kynningarfundi
Mikill áhugi á nýju leiðaneti - uptaka frá kynningarfundi Rafrænn kynningarfundur um nýtt leiðanet Strætisvagna Akureyrar var haldinn í gær, 11. nóvember. Fundurinn var vel sóttur af íbúum og komu fram margar áhugaverðar spurningar og vangaveltur. Hér er hægt að horfa á upptöku af kynningarfundinum. Hrafn Svavarsson fo...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ertu-ungskald-2
Ertu ungskáld? Minnt er á að skilafrestur í ritlistasamkeppni Ungskálda 2020 rennur út á miðnætti mánudaginn 16. nóvember nk. Verkum skal skila á netfangið ungskald@akureyri.is og verða úrslit tilkynnt á Amtsbókasafninu fimmtudaginn 3. desember kl. 17. Hér er tilvalið tækifæri fyrir ungt fólk á aldrinum 16-25 ára á Nor...
https://www.akureyri.is/is/frettir/verdur-skidasvaedid-opnad-17-desember
Verður skíðasvæðið opnað 17. desember? Starfsfólk Hlíðarfjalls er byrjað að undirbúa opnun skíðasvæðisins og stefnt er að því að opna 17. desember. Stemningin er góð og smá sendingar af hvítum kornum hafa komið síðastliðna daga. Einnig er búið að hlaða byssurnar og þær tilbúnar til þess að puðra snjó af fullum krafti u...
https://www.akureyri.is/is/frettir/innritun-i-leikskola-fyrir-haustid-2021
Innritun í leikskóla fyrir haustið 2021 Aðalinnritun í leikskóla á Akureyri hefst í byrjun marsmánaðar með því að foreldrar fá sent innritunabréf í tölvupósti. Mikilvægt er að allar umsóknir um leikskóla og beiðnir um flutning milli leikskóla berist eigi síðar en 1. febrúar næstkomandi. Sótt er um á rafrænu formi í geg...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fundur-i-baejarstjorn-thridjudaginn-17-november
Fundur í bæjarstjórn þriðjudaginn 17. nóvember Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 17. nóvember. Á dagskránni er meðal annars breyting á aðalskipulagi Krókeyrar og umræður um atvinnumál og endurskoðun leiðakerfis strætisvagna. Sjá dagskrá fundarins í heild sinni. Að þessu sinni verður ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyrarbaer-hlaut-vidurkenningu-jafnvaegisvogar-fka-2020
Akureyrarbær hlaut viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA 2020 Akureyrarbær var á meðal þeirra fyrirtækja og opinberu aðila sem hlutu viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA árið 2020 en tilkynnt var um viðurkenningarhafa í gær. Jafnvægisvogin, hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA), hélt í gær stafrænu ráðstefnuna ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skyrsla-baejarstjora-411-17112020
Skýrsla bæjarstjóra 4/11-17/11/2020 Í lok hvers bæjarstjórnarfundar fer bæjarstjóri yfir helstu verkefni hverju sinni. Efni skýrslunnar getur tekið breytingum í flutningi. Flutt á fundi bæjarstjórnar 17. nóvember 2020. Þrátt fyrir samkomutakmarkanir, nálægðarmörk og aðrar sóttvarnaaðgerðir vegna Covid-19 þá halda hjól ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyrarkirkja-80-ara
Akureyrarkirkja 80 ára Í dag eru 80 ár frá því Akureyrarkirkja var vígð en kirkjan var teiknuð af Guðjóni Samúelssyni þáverandi húsameistara ríkisins. Kirkjan er eitt helsta kennileiti Akureyrar og í raun eins konar tákn bæjarins. Kirkjustæðið þykir eitt það fegursta á landinu. Í kirkjunni er meðal annars steindur glug...
https://www.akureyri.is/is/frettir/baejarstjori-flutti-erindi-a-netradstefnu-um-samstarf-nordurslodarikja
Bæjarstjóri flutti erindi á netráðstefnu um samstarf Norðurslóðaríkja Bæjarstjórinn á Akureyri, Ásthildur Sturludóttir, talaði í morgun á alþjóðlegri netráðstefnu um samstarf Norðurslóðaríkja sem haldin var af efnahagsþróunarráðuneytinu í Múrmansk í samvinnu við utanríkisráðuneyti Rússlands. Við upphaf ráðstefnunnar fl...
https://www.akureyri.is/is/frettir/athugasemdafrestur-vegna-leidanets-sva-ad-renna-ut
Taktu þátt í að móta leiðanet SVA - frestur að renna út Í dag, miðvikudaginn 18. nóvember, rennur út frestur til þess að koma á framfæri almennum ábendingum um fyrstu tillögur að nýju leiðaneti SVA. Tillögurnar voru fyrst kynntar fyrir þremur vikum og hafa síðan verið auglýstar á hinum ýmsu miðlum, auk þess sem kynning...
https://www.akureyri.is/is/frettir/opid-fyrir-umsoknir-um-styrki-vegna-barnamenningarhatidar-2021
Opið fyrir umsóknir um styrki vegna Barnamenningarhátíðar 2021 Barnamenningarhátíð á Akureyri verður haldin í apríl 2021. Hægt er að sækja um styrki vegna verkefna eða viðburða sem tengjast hátíðinni og er umsóknarfrestur til og með 9. desember nk. Leik- og grunnskólar eru sérstaklega hvattir til að sækja um. Sótt er u...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akvedid-ad-mota-nyja-atvinnustefnu
Ákveðið að móta nýja atvinnustefnu Meirihluti bæjarstjórnar Akureyrar hefur samþykkt að hefja undirbúning að nýrri atvinnustefnu. Atvinnumál voru á dagskrá bæjarstjórnarfundar í gær. Rætt var um ýmsa þætti sem varða atvinnumál, atvinnutækifæri og íbúaþróun í sveitarfélaginu. Samþykkt var tillaga um nýja atvinnustefnu s...
https://www.akureyri.is/is/frettir/auglyst-eftir-rekstraradila-skida-og-brettaskola-i-hlidarfjalli
Auglýst eftir rekstraraðila skíða- og brettaskóla í Hlíðarfjalli Hlíðarfjall auglýsir eftir áhugasömum aðila/aðilum til þessa að taka að sér rekstur skíða- og brettaskóla Hlíðarfjalls og einkakennslu á komandi skíðavetri 2020-2021. Ábyrgð á rekstri skólans yrði hjá viðkomandi sem þyrfti að greiða aðstöðugjald til Hlíða...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samthykktar-skipulagstillogur-fyrir-bjarmastig-og-sjukrahusid
Samþykktar skipulagstillögur fyrir Bjarmastíg og Sjúkrahúsið Breyting á deiliskipulagi miðbæjar fyrir Bjarmastíg 5. Skipulagsráð Akureyrarbæjar hefur þann 11. nóvember 2020 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Bjarmastíg 5. Breytingin felur í sér fjölgun bílastæða innan lóðar í fjögur bílastæði, lækkun jarðvegshæðar,...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjarhagsstyrkur-til-ithrotta-og-tomstundaidkunar
Opnað fyrir umsóknir á sérstökum íþrótta- og tómstundastyrk vegna áhrifa af Covid-19 Opnað hefur verið fyrir umsóknir á sérstökum íþrótta- og tómstundastyrkjum fyrir börn sem búa á tekjulægri heimilum þar sem markmiðið er að jafna tækifæri þeirra til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Styrkirnir koma ti...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sifellt-fleiri-nota-thjonustugattina
Sífellt fleiri nota þjónustugáttina Umsóknum í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar hefur fjölgað mikið að undanförnu, samhliða auknum nýtingarmöguleikum. Mikil áhersla er lögð á að bæta rafræna þjónustu sveitarfélagsins og að þjónustugáttin sé meginfarvegur fyrir afgreiðslu erinda. Á tímabilinu 1. júní til 14. október s...
https://www.akureyri.is/is/frettir/aldrei-fleiri-ungskald
Aldrei fleiri Ungskáld Aldrei hafa fleiri sent inn verk til þátttöku í ritlistakeppninni Ungskáld sem hefur það að markmiði að efla ritlist og skapandi hugsun hjá ungu fólki á aldrinum 16-25 ára. Alls bárust 100 verk frá 48 höfundum,19 strákum og 29 stúlkum. Til samanburðar má geta þess að í fyrra voru innsend verk 36 ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/drog-ad-breytingu-a-adalskipulagi-akureyrar-2018-2030-vegna-holtahverfis
Drög að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 vegna Holtahverfis Skipulagsráð Akureyrarbæjar kynnir, í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030. Allt frá árinu 2017 hefur verið unnið að gerð deiliskipulags fyrir svæði sem nær til íbúðarsvæð...
https://www.akureyri.is/is/frettir/giljaskoli-er-rettindaskoli-unicef
Giljaskóli er réttindaskóli UNICEF Í dag, 20. nóvember á alþjóðlegum degi réttinda barnsins, hlaut Giljaskóli viðurkenningu sem Réttindaskóli UNICEF. Skólinn er jafnframt sá fyrsti utan höfuðborgarsvæðisins til þess að hljóta þá viðurkenningu. Réttindaskólar stuðla að fræðslu um réttindi barna, til nemenda, foreldra og...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nytnivikan-er-ad-hefjast
Nýtnivikan er hafin Nýtnivikan hefst í dag, 21. nóvember, en hún er samevrópskt átak sem er ætlað að vekja fólk til vitundar um nauðsyn þess að draga úr magni úrgangs, minnka sóun, endurvinna og nýta betur. Þema vikunnar í ár er ósýnilegur úrgangur (e. invisible waste) og snýr að því sem kemur ekki fyrir augu neytenda,...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ungmennarad-akureyrarbaejar-fullskipad
Ungmennaráð Akureyrarbæjar fullskipað Fjórir nýir fulltrúar tóku í dag sæti í ungmennaráði bæjarins og er ráðið þar með fullskipað ellefu manns fyrir komandi starfsár. Mikill áhugi var á að taka þátt í störfum ráðsins, en alls bárust 53 umsóknir eða um tífalt fleiri en í fyrra. Við val á nýjum fulltrúum var tekið tilli...
https://www.akureyri.is/is/frettir/greining-a-samsetningu-og-uppruna-svifryks
Greining á samsetningu og uppruna svifryks Sýnataka er hafin vegna rannsóknar á efnasamsetningu og uppruna svifryks á Akureyri. Þetta er samstarf verkfræðistofunnar Eflu og Akureyrarbæjar. Niðurstöður verða bornar saman við samsetningu svifryks í Reykjavík og út frá því verður meðal annars reynt að meta áhrif negldra h...
https://www.akureyri.is/is/frettir/facebook-sida-skipulagssvids
Facebook síða Skipulagssviðs Endilega kíkið á facebook síðu Skipulagssviðs þar sem fréttir tengdar skipulagsmálum líta dagsins ljós.
https://www.akureyri.is/is/frettir/verkefnin-heim
Verkefnin heim Þótt loka hafi þurft Punktinum í Rósenborg og félagsmiðstöðinni í Víðilundi tímabundið vegna Covid-19 þá er starfsemin ekki í neinum dvala. Mikil áhersla hefur verið lögð á að finna leiðir til þess að koma til móts við fólk sem hefur þurft að dvelja meira heima en venjulega. Verkefnin heim er svar starfs...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ssne-bydur-fyrirtaekjum-a-sinu-starfssvaedi-ad-taka-thatt-i-ratsjanni
SSNE býður fyrirtækjum á sínu starfssvæði að taka þátt í Ratsjánni. Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðausturlandi (SSNE) í samvinnu við fleiri, bjóða nú fyrirtækjum á sínu starfssvæði að taka þátt í Ratsjánni. Ratsjáin er ákveðið verkfæri ætlað stjórnendum í ferðaþjónustu og tengdum greinum sem vilja auka ný...
https://www.akureyri.is/is/frettir/utbod-a-veitingarekstri-i-hlidarfjalli-1
Útboð á veitingarekstri í Hlíðarfjalli Akureyrarbær leitar eftir aðila/aðilum til að annast veitingarekstur í Hlíðarfjalli frá 1. janúar til 30. apríl 2021. Í skíðahótelinu Hlíðarfjalli er u.þ.b. 130 fm veitingasalur og ágætlega útbúið 50 fm eldhús. Útboðsgögn verða afhent frá og með fimmtudeginum 26. nóvember 2020. Vi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/velferd-og-fraedslumal-i-forgangi-i-fjarhagsaaetlun-akureyrarbaejar
Velferð og fræðslumál í forgangi í fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2021 var lögð fram í bæjarráði í dag. Rekstrarafkoma A- og B-hluta er áætluð neikvæð um 1.067,9 milljónir króna eftir fjármagnsliði og tekjuskatt. Jafnframt var lögð fram þriggja ára áætlun áranna 2022-2024. Af þes...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fundur-i-baejarstjorn-thridjudaginn-1-desember
Fundur í bæjarstjórn þriðjudaginn 1. desember Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 1. desember. Á dagskránni er meðal annars fyrri umræða um fjárhagsáætlun bæjarins 2021-2024, breyting á aðalskipulagi stígakerfis Akureyrar, deiliskipulag á Hvannavallareit og stjórnkerfisbreytingar í vel...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ljosin-tendrud-ad-vidstoddu-famenni-vegna-covid-19
Ljósin tendruð að viðstöddu fámenni vegna Covid-19 Í kvöld voru ljósin á jólatrénu frá vinabænum Randers í Danmörku tendruð. Venjan hefur verið að efna til samkomu á Ráðhústorgi við þetta tilefni en vegna kórónuveirufaraldursins þótti slíkt ekki koma til greina að þessu sinni. Fulltrúi frá danska sendiráðinu í Reykjaví...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skyrsla-baejarstjora-1811-1122020
Skýrsla bæjarstjóra 18/11-1/12/2020 Í lok hvers bæjarstjórnarfundar fer bæjarstjóri yfir helstu verkefni hverju sinni. Efni skýrslunnar getur tekið breytingum í flutningi. Flutt á fundi bæjarstjórnar 1. desember 2020. Til hamingju með fullveldisdaginn. Það þarf ekki að orðlengja það að vikurnar sem nú líða, einkennast ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/askorun-baejarstjornar-vegna-framhaldsskola-og-haskolans-a-akureyri
Áskorun bæjarstjórnar vegna framhaldsskóla og Háskólans á Akureyri Á fundi bæjarstjórnar Akureyrar þriðjudaginn 1. desember var samþykkt samhljóða eftirfarandi áskorun: "Bæjarstjórn Akureyrarbæjar telur illa vegið að framhaldsskólum á Norðurlandi eystra þar sem þeir bera verulega skertan hlut frá borði í fjárlögum 2021...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nytt-sameinad-velferdarsvid
Nýtt sameinað velferðarsvið Á bæjarstjórnarfundi í gær var samþykkt tillaga um sameiningu fjölskyldusviðs og búsetusviðs í eitt velferðarsvið og tekur sameiningin gildi 1. janúar 2021. Markmiðið er að bæta velferðarþjónustuna og gera hana notendavænni, auka skilvirkni, lækka rekstrarkostnað og nýta í auknum mæli mögule...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hofiogheim
Kynslóðunum teflt saman í tónleikaröðinni Í Hofi & Heim Menningarhúsið Hof býður menningarþyrstum Akureyringum og öðrum íbúum landsins upp á tónleikaröðina Í Hofi & Heim í desember og janúar. Tónleikarnir fara fram á sviði Hamraborgar fyrir framan gesti í sal, fjöldinn takmarkast við gildandi sóttvarnarreglur hverju si...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vetrarfaerd-og-lelegt-skyggni-snjomokstur-i-gangi
Vetrarfærð og lélegt skyggni - snjómokstur í gangi Mikið hefur snjóað á Akureyri síðasta sólarhringinn samhliða hvössum vindi úr norðri. Fyrir vikið er færðin innanbæjar sums staðar þung, sérstaklega inni í hverfum, og er skyggni víða lélegt. Snjómokstur hófst eldsnemma í morgun. Öll áhersla er á að halda helstu gangst...
https://www.akureyri.is/is/frettir/framkvaemdir-vid-rangarvelli-vegna-holasandslinu-3
Framkvæmdir við Rangárvelli vegna Hólasandslínu 3 Framkvæmdir Landsnets við jarðstreng Hólasandslínu 3 hefjast við Rangárvelli á næstu dögum. Hlíðarfjallsvegur verður þveraður og þarf því að loka honum meðan á framkvæmdum stendur, en opnuð verður hjáleið um lóð Terra. Vegfarendur eru beðnir um að gæta að umferðaröryggi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nytt-upplysingarit-um-velferdartaekni
Nýtt upplýsingarit um velferðartækni Velferðarsvið Akureyrarbæjar hefur gefið út bækling með fróðlegum og hagnýtum upplýsingum um um velferðartækni. Bæklingurinn er einkum ætlaður eldri borgurum og aðstandendum þeirra til útskýringar á því hvernig velferðartækni getur aukið lífsgæði. Þarna eru ýmsar upplýsingar um mism...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nytt-hjukrunarheimili-fyrir-60-ibua-a-akureyri
Nýtt hjúkrunarheimili fyrir 60 íbúa á Akureyri Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Akureyri hafa undirritað samning um byggingu 60 rýma hjúkrunarheimilis við Vestursíðu 9. Áætlaður heildarkostnaður við framkvæmdina er um þrír milljarðar króna sem skiptist þannig að 85% grei...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samkeppni-um-fallegasta-jolagluggann-1
Samkeppni um fallegasta jólagluggann Akureyrarstofa efnir til samkeppni um fallegasta og best skreytta verslunargluggann um jólin á Akureyri og er heiti verkefnisins Jólagluggi Akureyrar 2020. Áður hefur verið haldin keppni af þessu tagi og með framtakinu vill Akureyrarstofa vekja athygli á fjölbreyttu úrvali verslana ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hvert-fara-peningarnir-kynningarfundur-um-fjarhagsaaetlun
Kynningarfundur um fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2021 verður kynnt á rafrænum íbúafundi þriðjudaginn 8. desember kl. 17. Hér er hægt að skoða áætlunina. Á fundinum verður frá starfsemi og stærstu verkefnum næsta árs, auk þess sem fundargestum gefst kostur á að spyrja spurninga. ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samthykkt-skipulagstillaga-rangarvellir-2
Samþykkt skipulagstillaga - Rangárvellir 2 Breyting á deiliskipulagi Rangárvalla. Skipulagsráð Akureyrarbæjar hefur þann 11. nóvember 2020 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Rangárvelli 2. Breytingin felur í sér stækkun á byggingarreit fyrir nýtt anddyri milli bygginga 1 og 5 og nýtt hjólaskýli við norðvesturhorn b...
https://www.akureyri.is/is/frettir/adventan-2024
Ratleikir og fleira skemmtilegt á aðventunni Aðventuævintýri verður með óhefðbundnu sniði þetta árið vegna samkomutakmarkanna en þótt skipulagðir viðburðir séu ekki á hverju strái þá eru ýmsar leiðir færar til að gera sér dagamun. Á vef bæjarins má finna tillögur að afþreyingu fyrir fjölskylduna og á viðburðadagatali b...
https://www.akureyri.is/is/frettir/gott-haust-i-grimsey
Gott haust í Grímsey Óvenju mannmargt hefur verið í Grímsey í haust, en nokkuð margir Grímseyingar sem alla jafna dvelja í landi á veturna hafa nú verið í eynni, þar með talið töluvert af börnum og unglingum sem hafa verið í fjar- og heimakennslu eins og víða annars staðar. Á sumrin dvelja yfirleitt upp undir 100 manns...
https://www.akureyri.is/is/frettir/uppbygging-midbaejarins-kynning
Uppbygging miðbæjarins – kynning á fimmtudaginn Tillögur að framtíðaruppbyggingu í miðbæ Akureyrar liggja fyrir og verða kynntar á streymisfundi fimmtudaginn 10. desember kl. 17. Tillögurnar eru settar fram sem drög að breytingu á deiliskipulagi. Skipulagsráð samþykkti í fyrra að hefja vinnu við breytingar á skipulagin...
https://www.akureyri.is/is/frettir/umsoknarfrestur-vegna-barnamenningarhatidar-rennur-ut-a-morgun
Umsóknarfrestur vegna Barnamenningarhátíðar rennur út á morgun Frestur til að sækja um styrk vegna fyrirhugaðra verkefna eða viðburða á Barnamenningarhátíð 2021 á Akureyri rennur út á miðnætti á morgun, miðvikudaginn 9. desember. Sótt er um rafrænt í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar á akureyri.is. Athugið að einungis...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nidurstada-baejarstjornar-glerargata-36-og-stigakerfi-akureyrar
Niðurstaða bæjarstjórnar – Glerárgata 36 og Stígakerfi Akureyrar Deiliskipulag Hvannavallareits – Glerárgata 36 Bæjarstjórn Akureyrarbæjar hefur þann 1. desember 2020 samþykkt deiliskipulag Hvannavallarreits í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagssvæðið nær yfir lóð Glerárgötu 36 sem afmarka...
https://www.akureyri.is/is/frettir/leitum-listina-uppi
Leitum listina uppi Á aðventunni verða í boði nokkrir leikir til að stytta bæjarbúum og gestum stundir. Síðastliðinn mánudag kynntum við léttan leik sem hentar vel fyrir yngri kynslóðina. Nokkur kaffihús í miðbænum bjóða upp á 2 fyrir 1 af kakó fyrir börn yngri en 12 ára sem taka þátt í leiknum með fjölskyldu sinni. Sj...
https://www.akureyri.is/is/frettir/magnus-orri-er-ungskald-akureyrar-2020
Magnús Orri er Ungskáld Akureyrar 2020 Magnús Orri Aðalsteinsson hlaut 1. verðlaun í ritlistakeppni Ungskálda 2020 fyrir ljóðið Sálarlaus hafragrautur en úrslit voru kunngjörð í beinni útsendingu á Facebooksíðu Akureyrarbæjar fyrr í dag. Veitt voru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin: Sálarlaus hafragrautur eftir Magnús Or...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hugljuf-vetrarstemming-i-beinu-streymi
Hugljúf vetrarstemming í beinu streymi Í kvöld kl. 20 fara fram aðrir tónleikar í tónleikaröðinni Í HOFI & Heim þegar söngkonan Þórhildur Örvarsdóttir og píanóleikarinn Alexander Edelstein koma fram í beinu streymi á www.mak.is. Þórhildur hefur starfað sem söngkona bæði hér heima og erlendis og fengist við verk úr úr ý...
https://www.akureyri.is/is/frettir/frodleiksfundur-um-covid-urraedi-stjornvalda-17-desember
Fróðleiksfundur um Covid úrræði stjórnvalda 17. desember Þann 17. desember næstkomandi bjóða KPMG og SSNE til gagnvirks fróðleiksfundar um COVID úrræði stjórnvalda. Á fundinum verður stutt framsaga um helstu úrræðin sem eru í boði auk þess sem þátttakendum gefst færi á að spyrja sérfræðinga KPMG út í einstök atriði. Ná...
https://www.akureyri.is/is/frettir/stefnt-ad-uppbyggingu-i-midbaenum-hid-fyrsta
Stefnt að uppbyggingu í miðbænum hið fyrsta Akureyrarbær kynnir í dag tillögur að breytingum á miðbæjarskipulagi. Tillögurnar byggja á niðurstöðum þverpólitísks stýrihóps með fulltrúum allra flokka í bæjarstjórn. Stefnt er að því að hefja uppbyggingu sem allra fyrst. Skipulagsráð samþykkti í fyrra að gera breytingar á ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fundur-i-baejarstjorn-thridjudaginn-15-desember
Fundur í bæjarstjórn þriðjudaginn 15. desember Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 15. desember. Á dagskránni er meðal annars síðari umræða um fjárhagsáætlun bæjarins 2021-2024, aðalskipulag á Tjaldstæðisreit, aðalskipulag Holtahverfis og deiliskipulag Holtahverfis norður. Sjá dagskrá ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/godur-gangur-i-uthlutun-byggingarloda
Góður gangur í úthlutun byggingarlóða Skipulagsráð Akureyrarbæjar samþykkti í vikunni að úthluta lóðum við Austurbrú 10-12 og Hafnarstræti 80. Þetta eru spennandi uppbyggingarreitir í miðbæ Akureyrar. Í deiliskipulagi er gert ráð fyrir hóteli á lóð Hafnarstrætis 80 og íbúðum á lóð Austurbrúar 10-12, en mögulegt er að b...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyri-i-jolabuningi
Akureyri í jólabúningi Áhersla hefur verið lögð á að skreyta bæinn vel að undanförnu og lýsa upp svartasta skammdegið. Starfsfólk Akureyrarbæjar byrjaði fyrr en venjulega að tendra jólaljósin, auk þess sem ákveðið var að bæta við nýjum jólaskreytingum á almennum svæðum. Var þetta einkum gert til að bregðast við óvenjul...
https://www.akureyri.is/is/frettir/adventuratleikur-amtsbokasafnsins-1
Aðventuratleikur Amtsbókasafnsins Á aðventunni verða í boði nokkrir leikir til að stytta bæjarbúum og gestum stundir. Nú þegar höfum við kynnt tvo leiki (sjá hlekki hér að neðan) en að þessu sinni kynnum við ratleik á vegum Amtsbókasafnsins. Til að taka þátt í leiknum þarf að hlaða niður smáforritinu (app) goosechase.c...
https://www.akureyri.is/is/frettir/listagjof-um-allt-land-a-adventunni
Listagjöf um allt land á aðventunni Listahátíð í Reykjavík, með stuðningi frá Mennta- og menningarmálaráðuneyti, býður upp á aðra útgáfu af hinu vel heppnaða verkefni Listagjöf – að þessu sinni um land allt! Frá og með hádegi í dag, mánudaginn 14. desember, mun almenningur geta pantað Listagjöf fyrir ástvini á sérhönnu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/timabundinn-samningur-um-rekstur-oa
Tímabundinn samningur um rekstur ÖA Í síðustu viku óskuðu Sjúkratryggingar Íslands eftir því við Akureyrarbæ að sveitarfélagið héldi áfram rekstri Öldrunarheimila Akureyrar (ÖA) tímabundið. Í ljósi fordæmalausra aðstæðna í miðjum heimsfaraldri, hefur Akureyrarbær fallist á að framlengja uppsagnarfrest um fjóra mánuði o...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skyrsla-baejarstjora-212-15122020
Skýrsla bæjarstjóra 2/12-15/12/2020 Í lok hvers bæjarstjórnarfundar fer bæjarstjóri yfir helstu verkefni hverju sinni. Efni skýrslunnar getur tekið breytingum í flutningi. Flutt á fundi bæjarstjórnar 15. desember 2020. Mál málanna síðustu vikurnar hefur verið fyrirhuguð yfirfærsla á rekstri Öldrunarheimilanna frá Akure...
https://www.akureyri.is/is/frettir/langtimaleigusvaedi-fyrir-soluvagna-i-midbae-akureyrar-2021
Langtímaleigusvæði fyrir söluvagna í miðbæ Akureyrar 2021 Í samþykkt Akureyrarbæjar um götu- og torgsölu eru afmörkuð svæði í miðbæ þar sem sölustarfsemi utandyra má fara fram. Í samræmi við samþykktina er hér með auglýst eftir umsóknum um langtímaleigusvæði fyrir söluvagna í miðbæ Akureyrar fyrir árið 2021. Um er að r...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fyrirtaekjathing-akureyrarbaejar
Fyrirtækjaþing Akureyrarbæjar Nú er í undirbúningi rafrænt fyrirtækjaþing sem haldið verður í janúar 2021 og er markmiðið að leggja grunn að samkeppnisgreiningu fyrir Akureyrarbæ. Hverjir eru helstu kostir og gallar við að reka fyrirtæki hér og hvar liggja framtíðartækifærin? Greiningin, sem er unnin í samstarfi Akurey...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjarhagsaaetlun-samthykkt-i-baejarstjorn-1
Fjárhagsáætlun samþykkt í bæjarstjórn Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti í gær fjárhagsáætlun 2021-2024 að lokinni síðari umræðu. Rekstrarniðurstaða A- og B- hluta er áætluð neikvæð um 1.111 milljónir króna á næsta ári en gert er ráð fyrir batnandi afkomu til ársins 2024. Á árinu 2021 er gert ráð fyrir framkvæmdum að fjár...
https://www.akureyri.is/is/frettir/aramotabrennum-akureyrarbaejar-aflyst
Áramótabrennum Akureyrarbæjar aflýst Ákveðið hefur verið að halda ekki áramótabrennur á vegum sveitarfélagsins að þessu sinni sökum aðstæðna í þjóðfélaginu vegna Covid-19. Fjöldi manns hefur alla jafna safnast saman við Réttarhvamm á Akureyri og notið áramótabrennu og flugeldasýningar. Nú þegar fjöldatakmarkanir miðast...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vega-og-stigagerd-i-desember
Vega- og stígagerð í desember Nýverið hófust framkvæmdir við að endurgera gamla þjóðveginn um Krókeyri. Unnið er að endurgerð á allri götunni ásamt nýjum 4,5 metra breiðum göngu- og hjólastíg frá Miðhúsabraut austan Skautahallar og suður fyrir Gömlu-Gróðrarstöðina. Gatan er um 250 metrar að lengd og stígurinn sem mun l...
https://www.akureyri.is/is/frettir/viltu-koma-fram-i-menningarhusinu-hofi
Viltu koma fram í Menningarhúsinu Hofi? Í tilefni 10 ára afmælis Menningarhússins Hofs er auglýst eftir umsóknum í listsjóðinn VERÐANDI fyrir listviðburðaröð sem fram fer í Hofi fimmtudaga í júní og ágúst 2021. Sjóðurinn veitir styrki til kostnaðar vegna afnota af salarkynnum, tæknibúnaði og tækniþjónustu ásamt auglýsi...