Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.akureyri.is/is/frettir/ny-ibudabyggd-i-holtahverfi
Ný íbúðabyggð í Holtahverfi Eftirtaldar skipulagstillögur eru auglýstar samhliða: Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 fyrir Holtahverfi Bæjarstjórn Akureyrarbæjar hefur þann 15. desember 2020 samþykkt að auglýsa breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030, skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 1...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hugur-okkar-er-hja-seydfirdingum
Hugur okkar er hjá Seyðfirðingum Íbúar Akureyrar senda Seyðfirðingum og Austfirðingum öllum hlýjar kveðjur og hluttekningu vegna þeirra náttúruhamfara sem dunið hafa á Seyðisfirði síðustu daga í aðdraganda jóla. Þetta eru hörmulegar náttúruhamfarir sem hafa kallað mikla óvissu yfir Seyðfirðinga og ljóst að sú eyðileggi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/heimsendur-matur-fra-velferdarsvidi-nyr-thjonustuadili
Heimsendur matur frá velferðarsviði - nýr þjónustuaðili Um áramótin verður gerð sú breyting að heimsendur matur fyrir þjónustuþega heimaþjónustu velferðarsviðs (áður búsetusviðs) kemur frá Matsmiðjunni og hefst sú þjónusta 1. janúar 2021 Kaupendur á heimsendum mat geta þar með valið úr fjórum réttum daglega. Er um að r...
https://www.akureyri.is/is/frettir/afgreidslutimi-gamasvaedis-um-jol-og-aramot
Afgreiðslutími gámasvæðis um hátíðarnar Gámasvæðið Réttarhvammi verður opið um jól og áramót sem hér segir: Teiknuð mynd af gámasvæðinu.
https://www.akureyri.is/is/frettir/jolagluggi-akureyrar-2020
Jólagluggi Akureyrar 2020 Herrafataverslunin JMJ bar sigur úr býtum í samkeppni um fallegasta og best skreytta verslunargluggann á Akureyri fyrir þessi jól. Akureyrarstofa stóð fyrir keppninni og var markmiðið að vekja athygli á fjölbreyttu úrvali verslana í bænum og þeim metnaði sem lagður er í gluggaskreytingar. Íbúa...
https://www.akureyri.is/is/frettir/drog-ad-breytingu-a-adalskipulagi-akureyrar-2018-2030-breyting-a-tjaldsvaedisreit-og-skardshlid-vegna-heilsugaeslustodva
Drög að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 - Breyting á Tjaldsvæðisreit og Skarðshlíð vegna heilsugæslustöðva Skipulagsráð Akureyrarbæjar kynnir, í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030. Breytingin felst í að svæði milli Byggðavegar, ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/afgreidslutimar-og-thjonusta-um-hatidarnar
Afgreiðslutímar og þjónusta um hátíðarnar Afgreiðslutímar og þjónusta sveitarfélagsins tekur að venju breytingum um jól og áramót. Ráðhúsið, Geislagötu 9, verður opið kl. 9:00-15:00 í dag, 23. desember, og einnig virka daga á milli jóla og nýárs. Lokað verður á aðfangadag, gamlársdag, jóladag og nýársdag. Sama gildir u...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fundir-skipulagsrads-og-baejarstjornar-arid-2021
Fundir skipulagsráðs og bæjarstjórnar árið 2021 Fundaáætlun skipulagsráðs og bæjarstjórnar fyrir árið 2021 er nú hægt að skoða hér. Einnig er hægt að skoða fundargerðir, fundaáætlun og fleira hér.
https://www.akureyri.is/is/frettir/nyr-einstaklingsklefi-i-sundlaug-akureyrar
Nýr einstaklingsklefi í Sundlaug Akureyrar Eftir miklar framkvæmdir hefur nýr einstaklingsklefi verið tekinn í notkun í Sundlaug Akureyrar. Markmiðið er fyrst og fremst að bæta aðgengi að sundlauginni. Búningsklefinn nýtist einkum þeim sem hafa aðstoðarmann af öðru kyni eða þeim sem geta ekki notað hina hefðbundnu kynj...
https://www.akureyri.is/is/frettir/bolusetning-ad-hefjast-a-akureyri
Bólusetning að hefjast á Akureyri Bólusetning íbúa Öldrunarheimila Akureyrar gegn Covid-19 hefst eftir hádegið í dag. Bóluefni frá lyfjaframleiðandanum Pfizer er nú á leið til bæjarins og fyrirhugað er að klára bólusetningu íbúa á bæði Hlíð og Lögmannshlíð fyrir kvöldið. Unnið er að bólusetningunni í samvinnu við Heilb...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hreinsum-eftir-hatidarnar
Hreinsum eftir hátíðarnar Þegar jólin eru liðin og jólatrén hafa þjónað sínu hlutverki skulum við hjálpast að við að koma þeim í réttan farveg. Í byrjun janúar verður gámum undir jólatré komið fyrir við báðar verslanir Bónus, Hagkaup og verslunarmiðstöðina Sunnuhlíð, við Kaupang og Hrísalund. Íbúar eru hvattir til að k...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nytt-ar-bodar-breytingar-og-ny-taekifaeri
Nýtt ár boðar breytingar og ný tækifæri Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, óskar lesendum gleðilegrar hátíðar og farsæls komandi árs með þökk fyrir vel unnin störf og kraftmikla samstöðu á árinu sem er að líða. Gleðilega hátíð, Hvað boðar nýárs blessuð sól? spurði skáldið okkar séra Matthías og ég trúi að ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/unnid-gegn-svifriksmengun
Unnið gegn svifryksmengun Unnið er að því að draga úr svifryksmengun sem mælist nú of mikil á Akureyri. Lögð er áhersla á að sópa og rykbinda stærstu umferðargöturnar. Aðstæður eru með þeim hætti í dag að svifryksmengun gerir vart við sig. Há gildi hafa mælst síðustu klukkutímana á Akureyri eins og sjá má á loftgæðavef...
https://www.akureyri.is/is/frettir/breytingar-a-akstri-almenningsvagna-til-og-fra-akureyri
Breytingar á akstri almenningsvagna til og frá Akureyri Þann 1. janúar voru gerðar nokkrar breytingar á akstri almenningsvagna á landsbyggðinni og hefur það meðal annars haft áhrif á þá vagna sem fara til og frá Akureyri. Aksturinn hefur á undanförnum árum verið á herðum margra verktaka en reksturinn hefur miðast við h...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tillaga-ad-breytingu-a-adalskipulagi-akureyrar-2018-2030-uppbygging-a-oddeyri
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 – Uppbygging á Oddeyri Bæjarstjórn Akureyrarbæjar hefur þann 15. september 2020 samþykkt að auglýsa breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030, skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu. Svæði sem afmarkast af Hjalteyrargötu í vestri, Kaldbaksgöt...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samthykkt-skipulagstillaga-kjarnagata-57
Samþykkt skipulagstillaga - Kjarnagata 57 Breyting á deiliskipulagi Hagahverfis – Kjarnagata 57 Skipulagsráð Akureyrarbæjar hefur þann 9. desember 2020 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Kjarnagötu 57. Breytingin felur í sér að nýtingarhlutfall lóðarinnar hækkar úr 0,87 í 1,25 en nýtingarhlutfall bílageymslu hækkar...
https://www.akureyri.is/is/frettir/eldur-i-glerarskola-skolahaldi-aflyst-i-dag
Eldur í Glerárskóla – skólahaldi aflýst í dag Eldur kviknaði í Glerárskóla á tólfta tímanum í gærkvöldi. Slökkvistarf gekk vel og tókst fljótt að ráða niðurlögum eldsins. Rafmagnslaust er í skólanum og verður ekkert skólastarf þar í dag. Eldurinn kom upp í kjallara skólans og barst reykur og sót í nærliggjandi spennist...
https://www.akureyri.is/is/frettir/frettaannall-akureyrarbaejar-2020
Fréttaannáll Akureyrarbæjar 2020 Nýliðið ár var sögulegt eins og allir vita. Jafnvel þótt mörgu hafi verið aflýst og flest hafi verið með öðru sniði en venjulega þá var árið 2020 býsna viðburðaríkt hjá Akureyrarbæ, líkt og 465 fréttir og tilkynningar sem voru birtar hér á heimasíðunni bera vott um. Fréttir af heimsfara...
https://www.akureyri.is/is/frettir/auglyst-eftir-umsoknum-i-listsjodinn-verdandi
Auglýst eftir umsóknum í Listsjóðinn Verðandi Auglýst er eftir umsóknum í Listsjóðinn Verðandi fyrir listviðburðaröð sem fram fer í Menningarhúsinu Hofi í júní og ágúst 2021 í tilefni af 10 ára afmæli Hofs. Sjóðurinn veitir styrki til kostnaðar vegna afnota af salarkynnum, tæknibúnaði og tækniþjónustu. Helstu markmið s...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fallorka-laekkar-almennt-raforkuverd
Fallorka lækkar almennt raforkuverð Stjórn Fallorku ákvað að lækka verð á raforku til almennings um áramót þannig að nýtt verð frá 1. janúar 2021 er 8,08 kr/kWst með vsk. Þrátt fyrir að vísitala neysluverðs hafi hækkað um 3,6% á síðustu 12 mánuðum er ekki talin þörf á að hækka raforkuverð til samræmis. Sagt er frá þess...
https://www.akureyri.is/is/frettir/innritun-i-leikskola-2021
Innritun í leikskóla 2021 Næsta haust er gert ráð fyrir innritun barna sem fædd eru í ágúst 2020 og fyrr í leikskóla Akureyrar. Upplýsingar um innritun verða sendar til foreldra í marsmánuði og því er mikilvægt að allar umsóknir hafi borist fyrir 1. febrúar næstkomandi. Hér er hægt að sækja um leikskólapláss. Gert er r...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skidasvaedid-i-hlidarfjalli-opnad-a-fostudag
Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli opnað á föstudag Föstudaginn 15. janúar verður skíðasvæðið í Hlíðarfjalli opnað en með ákveðnum takmörkunum vegna Covid-19. Veðurspáin er býsna góð og því stefnir allt í frábæra helgi. Gerð er sú sjálfsagða krafa að allir gestir skíðasvæðisins fari að settum reglum og virði fjöldatakmarkanir ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fridrik-omar-og-eik-i-beinu-streymi
Friðrik Ómar og Eik í beinu streymi Í kvöld fara fram þriðju tónleikarnir í tónleikaröðinni Í HOFI & Heim þegar Friðrik Ómar og Eik Haraldsdóttir stíga á svið Hamraborgar í Menningarhúsinu Hofi. Fjöldi gesta í sal takmarkast við gildandi sóttvarnarreglur. Enginn aðgangseyrir er á tónleikana en panta þarf miða á mak.is....
https://www.akureyri.is/is/frettir/adalatridid-er-ad-vera-gladur-i-vinnunni
„Aðalatriðið er að vera glaður í vinnunni“ Áslaug Kristjánsdóttir lét nýverið af störfum hjá Akureyrarbæ vegna aldurs en hún hefur síðastliðin 40 ár unnið með fötluðu fólki, nú síðast í þjónustukjörnum fyrir fólk með geðraskanir. Áslaug segist varla hafa misst dag úr vinnu í gegnum tíðina og að lykilatriði sé að hafa g...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hugur-i-atvinnurekendum-a-akureyri
Hugur í atvinnurekendum á Akureyri Vel heppnað rafrænt fyrirtækjaþing var haldið í gær á vegum Akureyrarstofu og SSNE, Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra. Komu þar saman í netheimum fulltrúar á fjórða tug fyrirtækja sem eru með fjölbreytilega atvinnustarfsemi á Akureyri og ræddu meðal annars u...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hermann-sigtryggsson-90-ara
Hermann Sigtryggsson 90 ára Æskulýðs- og íþróttafrömuðurinn Hermann Sigtryggsson fagnar 90 ára afmæli sínu í dag. Hermanni var veitt heiðursviðurkenning Akureyrarbæjar á 150 ára afmæli sveitarfélagsins árið 2012 en honum hefur hlotnast margvíslegur heiður og viðurkenningar á löngum og farsælum starfsferli. Hermann fædd...
https://www.akureyri.is/is/frettir/haefnihringir-studningur-fyrir-konur-i-fyrirtaekjarekstri-a-landsbyggdinni
Hæfnihringir – stuðningur fyrir konur í fyrirtækjarekstri á landsbyggðinni Hæfnihringir eru byggðir á aðferðafræði, sem kallast aðgerðanám, en það grundvallast á því að nota raunverulegar áskoranir, verkefni og tækifæri sem grunn fyrir lærdóm. Markmiðið er að aðstoða frumkvöðlakonur við að komast yfir hindranir með því...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fundur-i-baejarstjorn-thridjudaginn-19-januar
Fundur í bæjarstjórn þriðjudaginn 19. janúar Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 19. janúar. Á dagskránni er meðal annars samþykkt fyrir ungmennaráð, aðalskipulag á tjaldsvæðisreit og Skarðshlíð 20 og deiliskipulag vegna Austursíðu. Sjá dagskrá fundarins í heild sinni. Að þessu sinni v...
https://www.akureyri.is/is/frettir/att-thu-rett-a-serstokum-ithrotta-og-tomstundastyrk
Átt þú rétt á sérstökum íþrótta- og tómstundastyrk? Enn er opið fyrir umsóknir um sérstakan íþrótta- og tómstundastyrk fyrir börn sem búa á tekjulægri heimilum. Styrkirnir eru liður í aðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna Covid-19 og koma til viðbótar hefðbundnum frístundastyrkjum sveitarfélaga. English and Polish below. H...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ithrottamadur-akureyrar-2020-tilnefningar
Íþróttamaður Akureyrar 2020 - tilnefningar Tilkynnt verður á miðvikudaginn næstkomandi um val á íþróttakarli og íþróttakonu Akureyrar fyrir árið 2020. Síðustu ár hefur bæjarbúum verið boðið til athafnar við þetta tilefni. Sökum aðstæðna verður viðburðurinn í menningarhúsinu Hofi með öðru og minna sniði en venjulega og ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skyrsla-baejarstjora-16122020-1912021
Skýrsla bæjarstjóra 16/12/2020-19/1/2021 Í lok hvers bæjarstjórnarfundar fer bæjarstjóri yfir helstu verkefni hverju sinni. Efni skýrslunnar getur tekið breytingum í flutningi. Flutt á fundi bæjarstjórnar 19. janúar 2021. Stærstu málin á dagskrá minni síðustu vikurnar hafa verið annars vegar menningarsamningurinn við r...
https://www.akureyri.is/is/frettir/auglyst-eftir-umsoknum-i-menningarsjod-akureyrar
Auglýst eftir umsóknum í Menningarsjóð Akureyrar Akureyrarstofa auglýsir eftir umsóknum í Menningarsjóð Akureyrar fyrir árið 2021. Hægt er að sækja um í fjórum flokkum eftir því sem við á: Samstarfssamningar Verkefni sem stuðla að fjölbreyttu menningarlífi á Akureyri. Hægt er að sækja um samstarf til tveggja eða þriggj...
https://www.akureyri.is/is/frettir/folk-faerir-storf-rafraent-malthing
Fólk færir störf – rafrænt málþing Akureyrarstofa og SSNE, samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, standa fyrir rafrænu málþingi þann 28. janúar næstkomandi. Þar verður ljósinu varpað á ört vaxandi möguleika sem felast í störfum sem eru óháð staðsetningu. Umræða um færanleika fólks og starfa hefur ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/aldis-kara-og-viktor-eru-ithrottafolk-akureyrar-2020
Aldís Kara og Viktor eru íþróttafólk Akureyrar 2020 Skautakonan Aldís Kara Bergsdóttir úr SA er íþróttakona Akureyrar árið 2020 og kraftlyftingamaðurinn Viktor Samúelsson úr KFA er íþróttakarl Akureyrar 2020. Í öðru sæti voru þau Miguel Mateo Castrillo blakari úr KA og Hafdís Sigurðardóttir frjálsíþróttakona úr UFA. Í ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/andrea-og-einar-oli-i-hofi-og-a-makis
Andrea og Einar Óli í Hofi og á mak.is Tónleikaröðin Í HOFI & Heim heldur áfram og í kvöld leiða saman hesta sína söngkonan Andrea Gylfadóttir og tónlistarmaðurinn Einar Óli eða iLo. Tónleikarnir fara fram á sviði Hamraborgar fyrir framan gesti í sal. Fjöldi gesta takmarkast við gildandi sóttvarnarreglur hverju sinni e...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skemmtileg-og-skapandi-tomstundanamskeid
Skemmtileg og skapandi tómstundanámskeið Tómstundanámskeið fyrir 4.-7. bekk eru byrjuð aftur í Rósenborg. Skemmtileg og skapandi viðfangsefni eru í boði fyrir hressa krakka á vorönn. Kynnið ykkur fjölbreytt úrval hér. Skráning er hafin hér. Allar helstu upplýsingar um tómstundanámskeiðin eru líka á Facebook undir "Tóms...
https://www.akureyri.is/is/frettir/aukin-anaegja-med-thjonustu-akureyrarbaejar
Aukin ánægja með þjónustu Akureyrarbæjar Nær allir íbúar Akureyrarbæjar eru ánægðir með sveitarfélagið sem stað til að búa á, samkvæmt niðurstöðum nýrrar þjónustukönnunar Gallup. Yfirleitt eykst ánægja með þjónustu bæjarins eða stendur í stað milli ára, en í þremur flokkum hefur viðhorf til þjónustunnar aldrei mælst já...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sorphirdu-frestad-vegna-ofaerdar
Sorphirðu frestað vegna ófærðar Terra neyðist til að fresta sorphirðu vegna ófærðar. Snjó hefur kyngt niður síðustu daga og kemst bíllinn illa leiðar sinnar um íbúðargötur, auk þess sem tunnur eru víða á kafi. Unnið er að snjómokstri af fullum krafti og hefst sorphirða að nýju eins fljótt og auðið er. Íbúar eru beðnir ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/stada-kvenna-a-nordurslodum
Staða kvenna á Norðurslóðum Arctic Frontiers ráðstefnan verður haldin í Tromsø í Noregi 1.-4. febrúar en fimmtudaginn 28. janúar verður boðið upp á málstofu í tengslum við ráðstefnuna undir heitinu „Jafnrétti kynjanna og félagsleg sjálfbærni á Norðurslóðum." Ásthildur Sturludóttir, formaður Arctic Mayors' Forum, AMF (S...
https://www.akureyri.is/is/frettir/snjomokstur-i-ollum-hverfum
Snjómokstur í öllum hverfum Unnið er að snjómokstri af fullum krafti. Samtals eru 33 tæki í notkun og er unnið í öllum hverfum bæjarins. Snjó hefur kyngt niður síðustu daga samfara vindi og skafrenningi á köflum sem hefur gert snjómokstur krefjandi. Áherslan hefur verið lögð á fyrsta og annan forgang samkvæmt skipulagi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/afleitt-vedur-i-grimsey
Afleitt veður í Grímsey Veðrið hefur verið afar vont í Grímsey síðustu vikuna eða svo. Sjómenn tóku upp netin fyrir viku enda stefndi í að ekki yrði hægt að vitja þeirra á næstunni og því hætta á að net myndu skemmast og sömuleiðis aflinn. Þrátt fyrir vond veður og mikla snjókomu hafa samgöngur að mestu gengið greiðleg...
https://www.akureyri.is/is/frettir/mjuk-og-litrik-syning-i-listasafninu
Mjúk og litrík sýning í Listasafninu Um síðustu helgi fór fram í Listasafninu á Akureyri fyrsta listvinnustofa verkefnisins Allt til enda - listvinnustofur barna. Textíllistakonan Lilý Erla Adamsdóttir kenndi börnum á aldrinum 8-12 ára einföld útsaumsspor og aðferðir við gerð mismunandi áferðar með garni. Börnin tóku v...
https://www.akureyri.is/is/frettir/bilun-i-hitakerfinu-i-kirkjutroppunum
Bilun í hitakerfinu í kirkjutröppunum Vegna bilunar hefur verið slökkt á snjóbræðslukerfinu í kirkjutröppunum tímabundið. Þar af leiðandi getur myndast meiri hálka en venjulega og er fólk beðið um að fara sérstaklega varlega. Unnið er að því að greina orsök bilunarinnar og meta hvernig hægt er að bregðast við. Kirkjutr...
https://www.akureyri.is/is/frettir/maelabord-um-velferd-barna
Mælaborð um velferð barna Akureyrarbær er að taka í notkun mælaborð sem hefur að geyma safn upplýsinga um velferð og stöðu barna og ungmenna innan sveitarfélagsins. Mælaborðið sýnir bæði einstakar mælingar á fjölmörgum þáttum og vísitölu barnvænna sveitarfélaga. Það samanstendur af fimm víddum sem eru beintengdar grunn...
https://www.akureyri.is/is/frettir/utbod-a-metan-straetisvagni
Útboð á metan strætisvagni Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í kaup á metan strætisvagni fyrir hönd Strætisvagna Akureyrarbæjar. Útboðið er boðið út á EES svæðinu og er tungumál útboðsins íslenska. Útboðsgögn eru afhent frá og með 27. janúar 2021. Óska skal eftir útboðsgögnum með því að s...
https://www.akureyri.is/is/frettir/athafnasvaedi-vid-hlidarfjallsveg-utbod-a-landleigu
Athafnasvæði við Hlíðarfjallsveg – útboð á landleigu Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar auglýsir til leigu athafnasvæði sunnan Hlíðarfjallsvegar, vestan og sunnan "brennustæðis". Svæðið allt er um 6.400 m² og er ætlað til moldarvinnslu (sjá meðf. mynd). Um er að ræða norðurhluta svæðisins, sem er um 2.100 m², ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/alagning-fasteignagjalda-2021
Álagning fasteignagjalda 2021 Álagningu fasteignagjalda er lokið hjá Akureyrarbæ og eru álagningarseðlar aðgengilegir fasteignaeigendum í þjónustugátt sveitarfélagsins og á island.is. Álagningarseðlar eru ekki sendir út á pappír og sparar það bæði fé og fyrirhöfn fyrir utan að vera mun umhverfisvænna. Eftir sem áður ge...
https://www.akureyri.is/is/frettir/frabaerar-adstaedur-til-utivistar
Frábærar aðstæður til útivistar Þó einungis séu örfáir dagar síðan bærinn fór allur á kaf undir þykkan snjó þá er nú fært um allar götur og helstu stíga bæjarins. Einnig er búið að moka leiðir að mörgum helstu útivistarperlum Akureyrar. Segja má að snjómokstursfólkið okkar hafi lyft grettistaki í vikunni. Við tekur að ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fundur-i-baejarstjorn-thridjudaginn-2-februar
Fundur í bæjarstjórn þriðjudaginn 2. febrúar Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 2. febrúar. Á dagskránni er meðal annars deiliskipulag á Hvannavallareit, skýrslan Samstarf Grænlands og Íslands á nýjum Norðurslóðum, og starfsáætlun skipulagsráðs fyrir árið 2021. Sjá dagskrá fundarins í...
https://www.akureyri.is/is/frettir/eva-hrund-og-ingibjorg-olof-i-vidtalstima
Eva Hrund og Ingibjörg Ólöf í viðtalstíma Viðtalstímar bæjarfulltrúa eru haldnir einu sinni í mánuði á fimmtudögum frá kl. 17:00 til 19:00 á tímabilinu september til maí. Í viðtalstímum gefst bæjarbúum kostur á að hitta fulltrúa í bæjarstjórn og ræða þau málefni sem hæst ber hverju sinni. Viðtalstímarnir eru í Ráðhúsin...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skyrsla-baejarstjora-201-222021
Skýrsla bæjarstjóra 20/1-2/2/2021 Í lok hvers bæjarstjórnarfundar fer bæjarstjóri yfir helstu verkefni hverju sinni. Efni skýrslunnar getur tekið breytingum í flutningi. Flutt á fundi bæjarstjórnar 2. febrúar 2021. Síðustu vikur hef ég átt samtal við alla sviðsstjóra bæjarins - maður á mann - þar sem við höfum farið yf...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samthykkt-skipulagstillaga-stigakerfi-akureyrar
Samþykkt skipulagstillaga - Stígakerfi Akureyrar Skipulagsstofnun staðfesti 15. janúar 2021 breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 1. desember 2020. Í breytingunni er sett fram heildstæð stefna um uppbyggingu stígakerfis Akureyrarbæjar með það að markmiði að stuðla að bættum samgön...
https://www.akureyri.is/is/frettir/helga-st-jonsdottir-er-100-ara-i-dag
Helga St Jónsdóttir er 100 ára í dag Helga Steinunn Jónsdóttir frá Hrísey fagnar 100 ára afmæli sínu í dag. Hún fæddist á Kálfsskinni á Árskógsströnd 2. febrúar 1921. Foreldrar hennar áttu sex börn, þar af tvenna tvíbura. Bergrós tvíburasystir Helgu varð 93 ára og hálfbróðir Helgu samfeðra er Sveinn á Kálfsskinni sem e...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nytt-stigaskipulag-odlast-stadfestingu
Nýtt stígaskipulag öðlast staðfestingu Skipulagsstofnun hefur staðfest breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 sem felur í sér nýtt heildarskipulag fyrir stígakerfið innanbæjar. Með nýju stígaskipulagi er sett fram heildstæð stefna og skýr framtíðarsýn um að byggja upp skilvirkt, öruggt og aðlaðandi stígakerfi se...
https://www.akureyri.is/is/frettir/folk-faerir-storf-tharf-bara-ad-framkvaema
Fólk færir störf: „Þarf bara að framkvæma“ Kraftur og bjartsýni einkenndu málþingið „Fólk færir störf“ sem haldið var með rafrænum hætti í síðustu viku á vegum Akureyrarstofu og SSNE. Markmiðið var að varpa ljósi á vaxandi möguleika sem felast í störfum sem eru óháð staðsetningu. Vel á annað hundrað manns fylgdust með ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/er-barnid-thitt-ad-hefja-grunnskolagongu
Er barnið þitt að hefja grunnskólagöngu? Í febrúarmánuði fer fram innritun nemenda sem hefja nám í 1. bekk í grunnskólum Akureyrar haustið 2021. Skila þarf inn umsókn í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar. Skólaval Samkvæmt skólastefnu og fjölskyldustefnu Akureyrarbæjar stendur foreldrum til boða að velja í hvaða skóla ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/virdum-fjarlaegdarmorkin-i-sundi
Virðum fjarlægðarmörkin í sundi eins og annars staðar Nú hafa verið settar upp merkingar við heitu pottana í Sundlaug Akureyrar sem tiltaka þann fjölda sem má vera í hverjum þeirra í einu. Þetta er gert í ljósi þess að um síðustu helgi þótti heldur of þétt setið í pottunum og var að því fundið jafnvel þótt tveggja metr...
https://www.akureyri.is/is/frettir/graena-akureyri-flokkunarleidbeiningar-og-fleira-ahugavert
Græna Akureyri – flokkunarleiðbeiningar og fleira áhugavert Hér á heimasíðu Akureyrarbæjar er nú hægt að finna hagnýtar og áhugaverðar upplýsingar um umhverfismál í sveitarfélaginu. Sérstök athygli er vakin á flokkunarleiðbeiningum með helstu upplýsingum um grenndarstöðvar og endurvinnsluflokka. Leigusalar, gististaðir...
https://www.akureyri.is/is/frettir/odruvisi-oskudagur-a-farsottartimum
Öðruvísi öskudagur á farsóttartímum Öskudagurinn er miðvikudaginn 17. febrúar. Rík hefð er fyrir því að krakkar á Akureyri gangi þá á milli verslana og fyrirtækja og syngi fyrir nammi. Fólk hefur velt því fyrir sér hvaða fyrirkomulag verði á öskudeginum nú á tímum Covid-19 og af því tilefni hafa almannavarnir, Embætti ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/busetuskilyrdi-a-akureyri-skora-hatt
Búsetuskilyrði á Akureyri skora hátt Íbúar á Akureyri eru einna ánægðastir á landinu með búsetuskilyrði og meðal þeirra jákvæðustu í viðhorfi til síns sveitarfélags, samkvæmt nýrri könnun á vegum Byggðastofnunar og landshlutasamtakanna. Akureyringar eru ánægðastir allra í könnuninni með almenningssamgöngur, framhaldssk...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hvad-er-ad-fretta-af-plastidjunni-bjargi-idjulundi-1
Hvað er að frétta af Plastiðjunni Bjargi – Iðjulundi? Plastiðjan Bjarg - Iðjulundur er vinnustaður á vegum Akureyrarbæjar þar sem áherslan er lögð á starfsendurhæfingu, starfsþjálfun og að skapa vinnutækifæri fyrir fólk með skerta starfsgetu af ýmsum ástæðum. Svanborg Bobba Guðgeirsdóttir forstöðumaður segir frá starfs...
https://www.akureyri.is/is/frettir/evropskur-stadall-fyrir-rafraena-reikninga
Evrópskur staðall fyrir rafræna reikninga Akureyrarbær lauk nú í janúar umfangsmiklu verkefni sem snerist um að innleiða evrópskan staðal fyrir rafræna reikninga. Markmið verkefnisins, sem kallast ICELAND-INV18, er að auka rafræn viðskipti innanlands og milli landa í Evrópu. Háskólinn í Valencia, LMT Group og Unimaze h...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tillogur-ad-uppbyggingu-a-austurbru-og-hafnarstraeti
Tillögur að uppbyggingu á Austurbrú og Hafnarstræti Skipulagsráð hefur samþykkt að hefja vinnu við að breyta deiliskipulagi á svæði sem nær til lóðanna Austurbrúar 10-12 og Hafnarstrætis 80 og 82 í samræmi við tillögur þróunaraðila að uppbyggingu. Í desember sl. samþykkti ráðið að úthluta þessum spennandi lóðum í miðbæ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/prufufrett-fyrir-utbod
Prufufrétt fyrir útboð Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í einingaverð á tímavinnu vegna ófyrirséðs viðhalds árin 2021-2022. Um er að ræða vinnu á eftirtöldum fagsviðum: Trésmíði, málun, raflögn, pípulögn, dúkalögn, blikksmíði, stálsmíði og múrverki. Útboðsgögn verða afhent bjóðendum í tö...
https://www.akureyri.is/is/frettir/langflestir-foreldrar-anaegdir-med-skolamaltidir
Langflestir foreldrar ánægðir með skólamáltíðir 97% foreldra á Akureyri telja að barnið sitt fái hollt fæði í leikskólanum, samkvæmt nýjustu upplýsingum úr Skólapúlsinum. Niðurstöður benda þó til þess að börn og unglingar í eldri bekkjum grunnskóla Akureyrar mættu borða meira af ávöxtum og grænmeti. Skólapúlsinn er ann...
https://www.akureyri.is/is/frettir/uppselt-i-hlidarfjall
Uppselt í Hlíðarfjall á föstudag og laugardag Uppselt er á skíðasvæðið í Hlíðarfjalli í dag og á morgun, föstudag og laugardag, sem og fyrripart sunnudags. Nokkrir miðar eru lausir í seinna hólfið á sunnudag. Vegna fjöldatakmarkana mega aðeins um 25% af hámarksfjölda vera í Hlíðarfjalli hverju sinni og hefur helgum dög...
https://www.akureyri.is/is/frettir/breyting-a-greidslum-reikninga
Breyting á greiðslum reikninga Frá og með árinu 2021 er ekki lengur boðið upp á greiðslu reikninga vegna heimaþjónustu velferðarsviðs og dagþjónustu ÖA með boðgreiðslum á kreditkort. Áður hefur verið tilkynnt um sömu breytingu varðandi fasteignagjöld. Allar greiðslur fara hér eftir fram með kröfu í netbanka. Vakin er a...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nyr-samstarfssamningur-vid-fjolsmidjuna
Nýr samstarfssamningur við Fjölsmiðjuna Í morgun undirrituðu Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri og Erlingur Kristjánsson forstöðumaður Fjölsmiðjunnar nýjan samstarfssamning um þjónustu Fjölsmiðjunnar á Akureyri fyrir árið 2021. Markmið samningsins er að efla Fjölsmiðjuna í hlutverki sínu sem starfsþjálfunarstaður fyrir...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fundur-i-baejarstjorn-thridjudaginn-16-februar
Fundur í bæjarstjórn þriðjudaginn 16. febrúar Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 16. febrúar. Á dagskránni er meðal annars endurskoðun lögreglusamþykktar, skipulagsmál í Holtahverfi norður og umræður um rekstur hjúkrunarheimila. Sjá dagskrá fundarins í heild sinni. Fundurinn verður ha...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sund-og-skidi-i-vetrarfrii
Sund og skíði í vetrarfríi Akureyrarbær býður grunn- og framhaldsskólanemum á Akureyri í sund og á skíði í vetrarfríi grunnskólanna. Auk þess er frítt fyrir alla í sund á miðvikudaginn í tengslum við „G-vítamín á þorra.“ Miðvikudaginn 17. febrúar og fimmtudaginn 18. febrúar geta grunn- og framhaldsskólanemar farið í sk...
https://www.akureyri.is/is/frettir/threttan-spennandi-verkefni-styrkt
Þrettán spennandi verkefni styrkt Stjórn Akureyrarstofu hefur úthlutað styrkjum til þrettán fjölbreyttra verkefna í tengslum við Barnamenningarhátíð á Akureyri. Í ár verður hátíðin allan aprílmánuð og eru einstaklingar, hópar, fyrirtæki og stofnanir hvött til almennrar þátttöku. Áhugasömum er bent á nánari upplýsingar ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/oskudagurinn-a-akureyri-4
Öskudagurinn á Akureyri Öskudagurinn á miðvikudaginn verður með óhefðbundnu sniði eins og margt annað á farsóttartímum. Rík hefð er fyrir því á Akureyri að börn gangi á milli vinnustaða og syngi fyrir sælgæti og hafa margir velt fyrir sér fyrirkomulaginu í ár. Fyrirtækjum, stofnunum og öðrum vinnustöðum er í sjálfsvald...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skyrsla-baejarstjora-32-1622021
Skýrsla bæjarstjóra 3/2-16/2/2021 Í lok hvers bæjarstjórnarfundar fer bæjarstjóri yfir helstu verkefni hverju sinni. Efni skýrslunnar getur tekið breytingum í flutningi. Flutt á fundi bæjarstjórnar 16. febrúar 2021. Í byrjun mánaðarins áttum við kynningarfund með fulltrúum fyrirtækis sem þróað hefur stofnframlagsverkef...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nyr-samningur-um-minjasafn-og-skaldahus
Nýr samningur um Minjasafn og skáldasöfn Í dag undirrituðu bæjarstjórinn á Akureyri og formaður stjórnar Minjasafnsins á Akureyri nýja samninga til næstu þriggja ára um þjónustu Minjasafnsins og rekstur skáldasafnanna Nonnahúss og Davíðshúss. Í þjónustusamningnum við Minjasafnið er getið um starfsemi, hlutverk og tilga...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nidurstada-baejarstjornar-deiliskipulag-hesthusahverfisins-i-breidholti
Niðurstaða bæjarstjórnar – Deiliskipulagsbreyting Hesthúsahverfisins í Breiðholti Bæjarstjórn Akureyrarbæjar hefur þann 2. febrúar 2021 samþykkt deiliskipulagsbreytingu í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í deiliskipulaginu felst að í lóð nr. 6 við Breiðholtsveg verður yfirbyggt reiðgerði. Reiðger...
https://www.akureyri.is/is/frettir/godur-gangur-i-framkvaemdum-vid-siglingaholl
Góður gangur í framkvæmdum við siglingahöll Framkvæmdir við nýtt og glæsilegt aðstöðuhús siglingaklúbbsins Nökkva ganga vel. Verkið er á áætlun og er stefnt að því að húsið verði tilbúið til notkunar fyrri part sumars. Húsið eru rúmir 400 fermetrar að gólffleti. Stærstur hluti þess er bátaskýli með góðri aðstöðu til vi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samraemd-thjonusta-vid-flottafolk
Samræmd þjónusta við flóttafólk Bæjarráð samþykkti nýverið þátttöku Akureyrarbæjar í reynsluverkefni til eins árs á vegum félagsmálaráðuneytisins um móttöku flóttafólks. Ráðuneytið og Akureyrarbær hafa í kjölfarið undirritað samning, sem felur í sér samræmda og bætta þjónustu við fólk sem hefur fengið alþjóðlega vernd ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/adflugsaefingar-a-manudag
Aðflugsæfingar á mánudag Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland er að hefjast með komu flugsveitar norska flughersins. Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum í nokkur skipti á tímabilinu 22. febrúar til 5. mars, ef veður leyfir. Mánudaginn 22. febrúar gera Norðmenn ráð f...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fleiri-midar-til-solu-i-hlidarfjall
Fleiri miðar til sölu í Hlíðarfjall Í morgun var tilkynnt að nýjar reglur hafi tekið gildi um skíðasvæði landsins í Covid-19 faraldri. Helstu breytingar eru þær að nú mega skíðasvæðin taka á móti 50% af hámarksgetu svæðanna og einnig má opna veitingasölu. Víst er að margir munu taka þessu fagnandi enda liggur straumur ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/alfheidur-jonsdottir-100-ara
Álfheiður Jónsdóttir 100 ára Álfheiður Jónsdóttir er 100 ára í dag. Af því tilefni heimsótti Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri, hana og færði henni blómvönd frá bæjarstjórn Akureyrar. Álfheiður fæddist á Akureyri og hefur búið þar alla sína tíð. Árið 1945 eignaðist hún soninn Harald Karlsson sem lést árið 2016. Hún b...
https://www.akureyri.is/is/frettir/starfsarid-a-listasafninu
Starfsárið á Listasafninu Á kynningarfundi sem haldinn var í Listasafninu á Akureyri á föstudaginn var komandi starfsár, sýningaskrá ársins 2021 og hlaðvarp Listasafnsins kynnt. Einnig var farið yfir starfsemi safnsins á ársgrundvelli og hlutverk þess á tímum Covid-19 faraldursins. Sýningaárið 2021 hófst á laugardaginn...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sigurhaedir-til-leigu
Sigurhæðir til leigu Frestur til að skila inn hugmyndum og tilboðum í leigu á Sigurhæðum rennur út á föstudaginn kemur, 26. febrúar. Akureyrarstofa auglýsir til leigu Sigurhæðir á Akureyri. Húsið lét þjóðskáldið, séra Matthías Jochumsson, reisa árið 1903 en það er einlyft timburhús með risi. Húsið stendur á steinhlöðnu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samthykktar-skipulagstillogur-12
Samþykktar skipulagstillögur Breyting á deiliskipulagi spennistöðvar við Þingvallastræti. Skipulagsráð Akureyrarbæjar hefur þann 23. september 2020 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir spennistöðina við Þingvallastræti. Breytingin felur í sér að 6 metra mastur verði sett ofan á spennistöðina við Þingvallastræti. Deil...
https://www.akureyri.is/is/frettir/framlengdur-frestur-til-ad-saekja-um-serstaka-ithrotta-og-tomstundastyrki
Lengri frestur til að sækja um sérstaka tómstundastyrki Frestur til að sækja um sérstaka íþrótta- og tómstundastyrki fyrir börn sem búa á tekjulægri heimilum hefur verið framlengdur til 15. apríl 2021. Stór hluti þeirra sem eiga rétt á styrknum hefur ekki enn sótt um. Styrkirnir eru liður í aðgerðum ríkisstjórnarinnar ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/honnun-gatna-og-stiga-i-holtahverfi-a-akureyri
Hönnun gatna og stíga í Holtahverfi á Akureyri Akureyrarbær og Norðurorka bjóða út hönnun gatna og stíga í Holtahverfi á Akureyri. Verkið felst í því að hanna götur í Holtahverfi Norður, sem er þéttingarreitur í Holtahverfi. Í verkhönnun felst fullhönnun gatna og stíga með veitukerfum, þ.e.a.s. götulýsingu, fráveitu au...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fundur-i-baejarstjorn-thridjudaginn-2-mars
Fundur í bæjarstjórn þriðjudaginn 2. mars Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 2. mars. Á dagskránni er meðal annars síðari umræða um endurskoðun lögreglusamþykktar og breyting á deiliskipulagi miðbæjar. Sjá dagskrá fundarins í heild sinni. Fundurinn verður haldinn í Hömrum i Hofi og er...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjolgum-bornum-af-erlendum-uppruna-i-ithrottastarfi
Upplýsingar um íþróttastarf á átta tungumálum Akureyrarbær vekur athygli á bæklingi sem Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Ungmennafélag Íslands hafa gefið út um ávinning þess að stunda íþróttir með íþróttafélagi. English and Polish below. Efnið er aðgengilegt á ensku, pólsku, arabísku, filippseysku, litháísku, tæle...
https://www.akureyri.is/is/frettir/heimir-og-hlynur-i-vidtalstima
Heimir og Hlynur í viðtalstíma Viðtalstímar bæjarfulltrúa eru haldnir einu sinni í mánuði á fimmtudögum frá kl. 17:00 til 19:00 á tímabilinu september til maí. Í viðtalstímum gefst bæjarbúum kostur á að hitta fulltrúa í bæjarstjórn og ræða þau málefni sem hæst ber hverju sinni. Viðtalstímarnir eru í Ráðhúsinu, Geislagö...
https://www.akureyri.is/is/frettir/radhus-akureyrarbaejar-vidbygging-og-endurbaetur-a-nuverandi-husi-honnunarsamkeppni-forval
Ráðhús Akureyrarbæjar - viðbygging og endurbætur á núverandi húsi Hönnunarsamkeppni - Forval Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrabæjar óskar eftir umsóknum arkitekta/teiknistofa um þátttöku í forvali fyrir boðskeppni vegna viðbyggingar við Ráðhúsið á Akureyri, endurbætur á hluta núverandi húss og endurhönnun á lóð og ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samthykkt-skipulagstillaga-nonnahagi-1-5
Samþykkt skipulagstillaga - Nonnahagi 1-5 Breyting á deiliskipulagi Hagahverfis Skipulagsráð Akureyrarbæjar hefur þann 10. febrúar 2021 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Nonnahaga 1, 3 og 5. Breytingin felur í sér að nýtingarhlutfalli er breytt úr 0,40 í 0,25 - 0,40. Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í s...
https://www.akureyri.is/is/frettir/inda-bjork-tilnefnd-til-stjornunarverdlauna-stjornvisi
Inda Björk tilnefnd til stjórnunarverðlauna Stjórnvísi Inda Björk Gunnarsdóttir, skólastjóri leikskólans Kiðagils, er tilnefnd til stjórnunarverðlauna Stjórnvísi árið 2021. Stjórnvísi er stærsta stjórnunarfélag landsins og eru verðlaunin veitt árlega stjórnendum fyrirtækja og stofnana sem hafa skarað fram úr á sínu svi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/grimur-i-listsafninu-a-akureyri
Grímur í Listsafninu á Akureyri Um síðustu helgi fór fram í Listasafninu á Akureyri önnur listvinnustofa verkefnisins Allt til enda - listvinnustofur barna. Barnamenningarhönnuðurinn Ninna Þórarinsdóttir bauð börnum á aldrinum 6 til 10 ára að búa til sínar eigin grímur. Eitthvað breytist þegar við setjum á okkur grímu,...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skyrsla-baejarstjora-172-232021
Skýrsla bæjarstjóra 17/2-2/3/2021 Í lok hvers bæjarstjórnarfundar fer bæjarstjóri yfir helstu verkefni hverju sinni. Efni skýrslunnar getur tekið breytingum í flutningi. Flutt á fundi bæjarstjórnar 2. mars 2021. Það er vor í lofti og brúnin léttist á mannfólkinu um leið og virðist rofa til í baráttunni við kórónuveiruf...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tillaga-ad-breytingu-a-adalskipulagi-akureyrar-2018-2030-heilsugaeslustodvar
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 - Heilsugæslustöðvar Bæjarstjórn Akureyrarbæjar hefur þann 19. janúar 2021 samþykkt að auglýsa breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030, skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breyting er gerð á svæði milli Byggðavegar, Þingvallastrætis, Þórunnarst...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samthykkt-ad-auglysa-breytingu-a-midbaejarskipulagi
Samþykkt að auglýsa breytingu á miðbæjarskipulagi Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti í gær að auglýsa endurskoðaða tillögu að breytingu á miðbæjarskipulagi. Gerðar hafa verið breytingar til að koma til móts við athugasemdir og umsagnir, auk þess sem brugðist hefur verið við niðurstöðu vindgreiningar. Drög að deiliskipulag...
https://www.akureyri.is/is/frettir/raektum-eigid-graenmeti
Ræktum eigið grænmeti Líkt og undanfarin ár gefst Akureyringum kostur á að leigja matjurtagarða af sveitarfélaginu í sumar og rækta eigið grænmeti. Þetta eru 15 fermetra garðar sem hver og einn hefur til umráða og kostar 4.900 krónur að leigja garð. Leiðbeiningar og ráðgjöf verða í boði á staðnum. Athugið að takmarkað ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjolbreytt-sumarstorf-i-bodi
Fjölbreytt sumarstörf í boði Akureyrarbær auglýsir um þessar mundir fjölbreytt og spennandi sumarstörf hjá sveitarfélaginu. Á hverju ári er ráðið fjölmargt sumarstarfsfólk hjá Akureyrarbæ og er sama uppi á teningnum að þessu sinni. Hér á heimasíðunni er hægt að skoða nánar auglýst störf hjá sveitarfélaginu og sækja um....
https://www.akureyri.is/is/frettir/murbrjotar-hljota-grasrotarverdlaun-ksi
Múrbrjótar hljóta grasrótarverðlaun KSÍ Fótboltafélagið Múrbrjótar hlýtur grasrótarverðlaun Knattspyrnusambands Íslands vegna verkefnisins Fótbolti án fordóma. Múrbrjótar bjóða einstaklingum sem takast á við geðræn og félagsleg vandamál upp á fótboltaæfingar og er markmiðið að auka þátttöku í hollri hreyfingu, efla sam...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samthykkt-skipulagstillaga-hvannavallarreitur
Samþykkt skipulagstillaga - Hvannavallarreitur Hvannavallarreitur, deiliskipulag Bæjarstjórn Akureyrarbæjar samþykkti 2. febrúar 2021 deiliskipulag fyrir Hvannavallarreit. Í deiliskipulaginu felst að heimilt verður að rífa núverandi byggingar á norðurhluta lóðarinnar; að meðfram Glerárgötu verði tvö hús, fjögurra og fi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/midbaer-tillaga-ad-deiliskipulagsbreytingu
Miðbær – Tillaga að deiliskipulagsbreytingu Miðbær – Tillaga að deiliskipulagsbreytingu Bæjarstjórn Akureyrarbæjar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu fyrir miðbæ Akureyrar. Skipulagssvæðið afmarkast af Glerárgötu, Kaupvangsstræti, Skipagötu, Hofsbót og S...